Verð að játa að ég hef enga löngun haft til að taka fram fartölvuna í nokkra daga, ég sem þyrfti helst að fara að hespa af smá skylduverkefni sem þarf að skila fljótlega. Þegar ég kom heim eftir vinnu sl fimmtudag heyrði ég í einni vinkonu minni sem er í sama félagsskap og ég er nýgengin inn í. Þar eru haldnir fundir reglulega yfir veturinn og einn slíkur var á dagskrá þetta kvöld. Vinkonan heyrði á rödd minni að ég væri alls ekki fullfrísk og jafnvel smitandi. Ég spurði hana hvort ég gæti eða mætti vera með grímu en hún sagði mér að skynsamlegra væri að boða forföll og halda mig heima. Innst inni vissi ég þetta alveg og ég fór eftir þessu ráði. Notaði því fimmtudagskvöldið í að horfa á síðasta þáttinn af Elmu og einhverja tvo aðra áður en ég fór í háttinn.
Mætti í vinnu rétt rúmlega hálfátta á föstudagsmorguninn. Þegar við opnuðum klukkan átta var einn kúnni á húninum, sú heilsaði mér með fullu nafni. Það kom í ljós að þetta var skóla- og útskriftarsystir mín úr Kennó. Seinna um daginn kom konan sem keypti af mér Dráðuhlíðina með bílinn í skoðun. Heildarskoðanir dagsins fóru upp í 20 sem er bara nokkuð gott miðað við árstíma.
Í gær fór ég á fætur upp úr klukkan átta. Hélt mig heimavið langt fram eftir degi. Kláraði trefil fyrir frænku mína, trefil sem líklega er heldur stuttur en frænku minni finnst hann flottur. Ákvað að fitja upp á bleikri tusku, þarf að eiga fleiri svoleiðis. Einn frændi minn kom við um hálftvö leytið með vörur sem ég keypti af honum til styrktar handboltaflokknum sem sonur hans æfir með. Rétt fyrir klukkan sex var ég komin upp í Keiluhöll í Egilshöllinni. Þar hitti ég slatta af fólkinu sem er í sama félagsskap og ég gat um hér ofar. Áttum tvær brautir pantaðar klukkan sjö svo við byrjuðum á því að fá okkur hressingu. Ég fékk mér sætar/franskar kartöflur, það var alveg nóg. Spilamennskan í keilunni gekk ekki mjög vel hjá mér en ég skemmti mér mjög vel. Var komin heim aftur rétt fyrir níu.