Ég var vöknuð fyrir klukkan sjö. Fór þó ekki á fætur fyrr en klukkutíma síðar. Tók lesefni, sudoku-blað og blýant með mér fram í stofu. Milli klukkan níu og tíu fékk ég mér gríska jógúrt með chiafræum og bláberjum. Helga systir bætti mér við í sauðburðarspjallhóp Árlands. Sauðburður er hafinn og það er m.a. búið að setja inn myndir af nýbornum lömbum. Rétt rúmlega ellefu var ég komin á stæði við Nauthólsvík. Það var fjara og ég ákvað að synda/svamla/vaða út að kaðli. Svolítið fyndið að synda skiðsund og eiginlega "berja" botninn á köflum. Tók ekki tímann hversu lengi ég var út í en fór beint í gufu í ca korter, aftur í sjóinn í uþb tvær mínútur, korter í heita pottinn og svo upp úr og beint heim aftur. Það stóð til að fara aftur út seinna í dag en dagurinn leið við alls konar og ekki neitt. Tíminn virðist líða alveg jafn hratt hvort sem maður er að lesa, sinna skyldum, horfa á þætti, hugsa um allt og ekkert eða spjalla í síma. Og ég veit að þótt klukkan sé byrjuð að ganga tólf þá mun ég lesa aðeins meira áður en ég fer að sofa.