Suma morgna rumska ég allt, alltof snemma. Gærmorguninn var einn af þeim. Losaði svefn um fimm. Gerði heiðarlega tilraun til að kúra mig niður aftur en um hálfsex var ég byrjuð að gera alls konar teygjuæfingar í rúminu og þegar ég var búin að klæða mig uþb korteri síðar greip ég í 2kg lóðin og gerði nokkrar styrktaræfingar. Síðan var alveg nægur tími fyrir morgunverkin á baðherberginu og netvafrið áður en kominn var tími til að leggja af stað í vinnuna. Það var framleiðsludagur í gær. Vélin ætlaði að vera með eitthvað vesen. Það er líklega að bila skynjari við takkann sem ræsir vélina sjálfa. Það "lifnaði" yfir vélinni í fimmtu tilraun og kom ekki til þess að ræsa þurfti út viðgerðarmenn. Framleiddum fyrst 250 gjafakort, síðan daglegu visakortin sem voru örfá. Þegar við ætluðum að byrja á debetinu endaði það með því að við þurftum að taka vélina alla leið niður. Það kviknaði á henni í annarri tilraun og eftir það gekk hún þokkalega vel. Kláruðum allt daglegt fyrir kaffi og endurnýjunina á tólfta tímanum. Ég gekk frá öllu bókhaldi og fylgimiðum með póstinum áður en ég fór í mat. Eftir mat tók ég að mér að undirbúa desember bókhaldið. Það tók um klukkustund. Þá voru öll innlegg búin eða einhverjir voru að vinna síðustu pokana svo ég fór í að fara yfir skjöl. Var búin í vinnu um þrjú og fór ég beinustu leið í Nauthólsvík. Ekki var búið að uppfæra hitatölur á vefnum frá því á fimmtudag en ég var alveg viss um að hann væri amk kominn í -1°C. Það var hann svo sannarlega og -0,6°C meira og hafði því hitastigið lækkað um heila gráðu. Það var flóð og sjórinn spegilsléttur. Svamlaði um í uþb 7 mínútur, fór smástund í pottinn. Þaðan í gufu í 10mínútur. Aftur í sjóinn, þá hanskalaus, í tæpa mínútur og endaði svo dágóða stund í pottinum áður en ég fór upp úr og heim eftir verulega hressandi og endurnærandi stund eins og alltaf.
30.11.24
29.11.24
Föstudagur og mánaðamót um helgina
Einhverra hluta vegna tókst mér alls ekki að skrá mig inn á bloggsvæðið mitt í gærmorgun. Þegar kom smá pása í innlagnardæmið í vinnunni í gær ákvað ég að nota tækifærið og prófa hvort ég gæti skráð mig inn. Það tókst. Þurfti reyndar að sannreyna að það væri ég sem væri að skrá mig inn úr þessari tilteknu tölvu (vinnutölvunni "minni"). Annars var ég að vinna til rétt rúmlega þrjú. Hringdi í pabba þegar ég var á leiðinni í sund. Var byrjuð að synda korter í fjögur. Synti aðeins 400m og var kalda potts vinkona mín nýkomin á svæðið, ekki með sundhettu, og búin með eina ferð í þann kalda. Saman náðum við þremur ferðum. Ég var svo komin heim upp úr klukkan fimm.
28.11.24
Gat ekki skráð mig inn í morgun
Er að stelast til að setja inn færslu í vinnunni á vinnutíma svo kannski verður textinn eitthvað snubbóttur. Fréttum það í gær að vegfarandinn sem varð fyrir bíl í fyrrakvöld er vinnufélagi okkar. Hann er út lífshættu en ennþá á gjörgæslu. Hugurinn er því búinn að vera hjá vinnufélaganum og fjölskyldu hans. Annars fór ég í sjóinn eftir vinnu í gær, 0,6°C en virkaði pínu kaldari þar sem það var einhver ferð á logninu. Engu að síður tolldi ég út í í uþb tíu mínútur. Og besti vinur minn kom í heimsókn í gærkvöldi. Hann var að afhenda mér vörur sem ég var að kaupa til að styrkja dætur hans og körfuboltalið ÍR. Önnur dóttirin var á æfingu og hin að keppa og mamma þeirra var á keppninni. Kjartan þáði kaffi og ég virðist alveg kunna að hella upp á þótt ég sé sjálf í kaffipásu. Eftir klukkutíma stopp og gott spjall kvaddi hann og fór til að sækja þá dóttur sem var á æfingu.
27.11.24
Nýtt kreditkort komið í hús alla leið frá útlöndum
Gærdagurinn byrjaði ósköp svipað og mánudagsmorguninn. Teygjuæfingar upp í rúmi um hálfsex leytið og nokkrar æfingar með tveggja kílóa lóðum þegar ég var búin að klæða mig. Fékk mér lýsi, sopa af engifer og kanildrykk, vatnsglas og kalktöflu. Eftir morgunverkin á baðherberginu settist ég svo inn í stofu með fartölvuna í fanginu. Var mætt í vinnu upp úr klukkan hálfátta. Fyrsta korterið fór í að safna saman framleiðslutölum og bókhaldsvinnu fyrir kortadeildina. Annars vann ég í innlögnum frá ca átta til klukkan tvö. Eftir tvö var ég að fara yfir dagleg skjöl frá öðrum. Þrátt fyrir nokkuð stóran dag vorum við búin um þrjú. Ég fór beint í sund og var búin að synda 350m þegar kalda potts vinkona mín kom. Synti 350m í viðbót á meðan hún var að synda 400m. Hún hélt því reyndar fram að hún hefði náð að synda 500m. Ef svo er getur verið að ég hafi mistalið mínar ferðir og synt 800m. Held samt ekki því ég er um fimm mínútur að synda hundrað metra og synti í 35 mínútur í gær. Flestar ferðirnar voru á bringunni en ég synti uþb 200m skriðsund. Fórum svo fjórar ferðir í þann kalda, tvær í heitasta pottinn, eina í 42°C pottinn, 15mínútur í gufu og tæpar 15mínútur í sjópottinn. Þá varð mér orðið mál að pissa. Í heildina tók þessi sundferð um tvo tíma, meðtalinn sá tími sem ég var í búnings- og sturtuherbergjunum. Var komin heim upp úr klukkan fimm. Bræðurnir höfðu skroppið í heimsókn til afa síns. Fórum af stað um tíu í gærmorgun og komu heim á níunda tímanum í gærkvöldi.
26.11.24
Þriðjudagur
Klukkan var rétt að byrja að ganga sex þegar ég vaknaði í gærmorgun. Mér fannst það heldur snemmt en það virkaði ekki að reyna að kúra eitthvað áfram svo fljótlega byrjaði ég á teygjuæfingum í rúminu. Var klædd og komin á ról um hálfsex leytið. Gerði nokkrar æfingar með tveggja kílóa lóðum eftir að hafa sinnt morgunverkefnunum á baðherberginu. Svo hafði ég nægan tíma í smá netvafr. Sá tími var reyndar frekar fljótur að líða. Mætti í vinnu um hálfátta. Byrjaði á því að taka saman framleiðslutölur fyrir kortadeild, munar svo miklu á tíma að safna þeim jafnóðum heldur en að vinna í þeim á framleiðsludaginn sjálfan. Þetta tók mig um korter og svo fór ég beint í innlegg. Ég var búin með öll mín verkefni um þrjú. Fannst of snemmt að athuga hvort ég kæmist að í osteostron svona "löngu" fyrir minn fasta tíma. Hringdi í Ellu vinkonu og spjallaði við hana meðan ég fór aðeins á rúntinn. Lagði svo við Hátún 12 ca korter fyrir fjögur rúmum hálftíma fyrir fasta tímann. Þurfti ekki að bíða nema ca 3 mínútur svo ég var búin með prógrammið um það leyti sem ég hefði átt að vera að byrja. Fór svo beinustu leið í sund. Kalda potts vinkonan hafði sagst ætla að hitta mig korter yfir fimm svo ég byrjaði á því að synda 400m. Klukkan var rétt rúmlega fimm þegar ég fór í fyrstu ferðina í þann kalda, og viti menn, þar var kalda potts vinkonan í sinni annarri ferð. Tíminn hennar í Laugum hafði fallið niður. Við náðum þremur ferðum saman í kalda, góðri gufuferð og hittum svo eina systur hennar í sjópottinum í lokin. Ég var komin heim á sjöunda tímanum.
25.11.24
Mánudagur
Vaknaði um átta leytið en klukkan var langt gengin í níu þegar ég fór á fætur. Eftir morgunverkin á baðherberginu kveikti ég á tölvunni hans pabba og var að vafra á netinu næsta einn og hálfa tímann. Eftir það fór ég inn í eldhús og lagði nokkra kapla. Pabbi kom fram rétt fyrir ellefu. Hann hafði reyndar verið búinn að koma fram eldsnemma eins og hann gerir flesta morgna, til að taka niður helstu tölur og fá sér morgunmat. Ég gufusauð sætakartöflu í bitum ásamt lauk og steikti bleikju í hádegismatinn. Eftir mat settist ég inn í stofu og byrjaði á fyrsta jólabréfi þessa árs. Bréfin verða kannski ekki nema tvö, annað á ensku en hitt á dönsku. Það er þó ekki útilokað að ég skrifi eitt bréf á íslensku og sendi með jólakorti til einnar frænku minnar sem býr í Noregi. Hún er búin að panta jólakort og mun amk fá jólakortið. Um tvö byrjaði leikur Southamton og Liverpool 2:3. Þá lagði ég frá mér pennann en greip í prjónana í staðinn á meðan ég fylgdist með leiknum. Í hálfleik hringdi besti vinur minn í mig til að athuga hvort ég væri heimavið. Ég var að styrkja dætur hans og hann ætlaði að koma til mín vörunum. Ég lofaði að láta hann vita ef ég væri komin tiltölulega snemma heim úr vinnu sundi eða sjónum í vikunni. Ég kvaddi ekki pabba fyrr en um hálffimm leytið og var komin heim um sex.
24.11.24
Á Hellu
Ekkert löngu eftir að ég kom heim úr vinnu, sjósunds- og Kringluferð á föstudaginn hringdi pabbi í mig til að tilkynna mér að ein systurdóttir hans hefði orðið bráðkvödd fyrr um daginn. Mig setti hljóða, var einhvern veginn ekki alveg að ná þessu enda þessi frænka mín ekki orðin áttræð. Í gær setti yngsta dóttir hennar tilkynningu um andlátið á lokaðan hóp sem tengist Heiðarfólkinu og seinna um daginn á vegginn hjá sér þar sem hún merkti systikynin sín þrjú og pabba sinn. Sjálfsagt og örugglega er best að fá að fara svona snögglega en þetta er áfall fyrir nánustu aðstandendur. Auðvitað er þetta gangur lífsins og vitað má að við eigum öll eftir að deyja en sem betur fer vitum við ekki í hvaða röð og hvernig.
Annars byrjaði ég gærdaginn á smá netvafri og setti í þvottavél áður en ég fór í sund um hálfníu. Synti 500m, flesta á bakinu og eftir tvær ferðir í þann kalda, eina í gufuna og aðra í sjópottinn þvoði ég mér um hárið og fór svo beinustu leið vestur í bæ til norsku esperanto vinkonu minna. Stoppaði þar í einn og hálfan tíma. Kom við á AO- við Öskjuhlíð og fyllti á tankinn á leiðinni heim. Hengdi upp á snúrur og pakkaði svo niður fljótlega. Klukkan var samt að verða hálftvö þegar ég lagði af stað úr bænum. Kom við í Löngumýrinni hjá Reyni og Jónu Mæju og stoppaði þar í um klukkustund. Klukkan var um fjögur þegar ég kom til pabba. Hann hafði skellt í pönnsur um hádegisbilið. Staflinn var flottur en ég er ekki komin þangað ennþá og óvíst hvort ég borði nokkurn tíman svona aftur. Ég er amk að verða ákveðnari og ákveðnari í því að reyna eftir fremsta megni að forðast sykur það sem eftir er. Í staðinn fékk ég mér harðsoðið egg og blóðbergste. Við pabbi fórum í smá kapla keppni en svo ætluðum við að kíka á síðasta leik dagsins í enska boltanum Man. City - Tottenham 0:4. Myndlykillinn fór hins vegar að vera með vesen og það tók smá tíma að laga það vesen. Fylgdist bara með leiknum á mbl.is. Pabbi er með annað sjónvarp og annan myndlykil í herberginu sínu. Hann skipti á myndlyklum og tókst að laga vandamálið þannig að báðir lyklar virkuðu. Þá var klukkan að verða hálfsjö og komið að fyrstu sjónvarpsfréttum.
23.11.24
Frekar stutt eftir af árinu, um 40 dagar þó
Vaknaði upp úr klukkan hálfsex og hafði því mjög góðan tíma í allar teygju- og lóðaæfingar sem og vafrið á netinu. Var mætt í vinnu um hálfátta. Byrjuðum á því að framleiða gjafakort um átta leytið en þegar við ætluðum að byrja á daglegu framleiðslunni gekk hún ekki sem skildi. Hafði samband við tæknimann sem ákvað að koma svæðið þar sem ekki var nóg að endurræsa framleiðsluvélina sjálfa. Hann var fljótur á vettvang og fann það fljótlega út að endurræsa þurfti kerfið sem "talar" við örgjörvamódúl vélarinna. Endurræsing tók nokkra stund en við gátum byrjað á framleiðslunni stuttu fyrir hálftíu og klárað þau kort sem eru sótt til okkar um tíu. Kláruðum afganginn af deginum eftir smá kaffipásu. Vorum búnar niðri um ellefu og ég fór beint í innlegg eftir það. Verkefnum lauk um tvö leytið og ég var komin í sjóinn fyrir klukkan þrjú. Hann var -0,8°C og ég var um fimm mínútur út í áður en ég fór í gufuna og svo aðeins í pottinn. Skrapp svo aðeins í Kringlu-leiðangur áður en ég fór heim.
22.11.24
Næstum því komin helgi
Vaknaði rétt fyrir klukkan sex. Tuttugu mínútum seinna las ég um það á netinu að enn eitt gosið hefði farið af stað á tólfta tímanum á miðvikudagskvöldið. Það gos er víst heldur minna en tvö síðustu gos en engu að síður hefur það valdið smá usla. Rann t.d. yfir bílastæðin við Bláa lónið. Ef ekki væru þessir varnargarðar væri nú ýmislegt meira farið undir hrauni bæði í þessu og hinum fyrri gosum. Var mætt í vinnu um hálfátta. Hitastigið á sumum stöðum í vinnurýminu er ekki enn orðið gott og eru hitablásarar enn á staðnum. Gat reyndar farið úr lopapeysuni í innlagnavinnunni en var áfram í flíspeysu og fór einnig í ullarsokka. Verkefnum lauk um hálfþrjú og ég fór beint í sund. Synti 700m, þar af 150m skriðsund. Fór eina ferð í kalda pottinn og var búin að sitja tæpar tíu mínútur í sjópottinum þegar kalda potts vinkonan mætti á svæðið. Saman náðum við þremur ferðum í þann kalda og góðri gufuferð. Var komin heim einhvern tímann á sjötta tímanum.
21.11.24
Svaf af mér gosbyrjun
Í gærmorgun var ég vöknuð um hálfsex. Byrjaði á því að gera teygjuæfingar sem og að kreppa hnefana, aðallega þann hægri. Þegar ég var svo búin að klæða mig og búa um gerði ég nokkrar æfingar með tveggja kílóa lóðum. Framhaldið var einnig ósköp svipað og á þriðjudagsmorguninn. Var mætt í vinnu um hálfátta. Enn er frekar kalt í sumum vinnurýmum en það var ágætis hiti í kortadeildinni og þar var ég að vinna fram að hádegi. Var fljótlega komin á stuttermabolinn og þegar við fórum í kaffipásu fór ég upp með flís- og lopapeysurnar og skildi eftir á skrifborðsstólnum við vinnuaðstöðuna mína uppi. Vorum til rúmlega hálftólf að klára daglegt, smá endurnýjun, talningu og frágang í kortadeildinni. Uppskeran var þrír bakkar sem við fengum að senda upp með lyftu í skúr 2. Á leiðinni til baka úr skúr tvö komumst við ekki lengra en rýmið fyrir innan kortagerðarganginn. Komumst aðeins aftur í skúr tvö en ekki skúr eitt, aftur inn á "okkar" gang eða inn í myntsalinn. Hægt var að opna innan frá úr myntsalnum en þar var mun kaldara. Það var líka svolítið kalt á svæðinu sem við vorum fastar á og ískalt í skúr tvö. Þarna vorum við líklega fastar (föst því það voru fimm í myntsalnum, tveir viðgerðarmenn, elsti sonur annars þeirra og tveir samstarfsmenn) í tæpan hálftíma áður en tókst að opna fyrir okkur inn á kortagerðarganginn. Þaðan var leiðin upp greiðfær þótt við þyrftum að fara út um tveggja dyra slússu. Það tók aðeins lengri tíma að gera við bilunina sem olli þessari lokun. Hurðin inn í skúr eitt var skökk og neðri segullinn á henni náði ekki að tengja. Þarna er kerfið þannig að ef ein dyr lokast ekki er ekki hægt að opna hinar. Þannig að það var pínu skrítið að hægt væri að opna skúr tvö. En eftir hádegi fór ég í innlegg. Verkefnum var lokið upp úr klukkan þrjú og ég fór beinustu leið í Nauthólsvík. Sjórinn var 0,6°C, mikil fjara en mjög hressandi að skella sér út í. Hægt var að vaða út að kaðli. Ég gerði það þó ekki en svamlaði um í uþb fimm mínútur. Kom svo við í Fiskbúð Fúsa áður en ég fór heim. Keypti mér harðfisk og smávegis af gellum og kinnum sem ég hafði í kvöldmatinn minn ásamt soðinni sætri kartöflu.
20.11.24
Sjósundsdagur í dag
Var vöknuð stuttu fyrir klukkan sex í gærmorgun. Byrjaði á því að gera einhverskonar teygjuæfingar upp í rúmi áður en ég klæddi mig og bjó um. Þá tók ég fram 2kg lóðin og gerði nokkrar styrktar- og lyftuæfingar. Næst lá leiðin inn í eldhús þar sem ég fékk mér glas af vatnsblönduðum sítrónusafa úr hálfri sítrónu. Svo sinnti ég morgunverkunum á baðherberginu. Settist svo inn í stofu með fartölvuna í fanginu. Var mætt í vinnu um hálfátta. Var í lopapeysu og hafði meðferðis ullarsokka ef mér yrði kalt á tánum. Fór næstum beint niður í kortadeild að hlaða inn nýjustu skránum. Niðri var hlýtt og gott. Uppi var sum staðar skárra "kuldastig" heldur en á mánudaginn. Búið var að setja af stað hitablásarana og ég gat byrjað strax á því að vinna innlegg og bóka. Það var öllu kaldara hjá þeim sem voru á stóru kópru-vélunum. Þrátt fyrir að það væri hitablásari í rýminu hjá þeim þurftu þau á tímabili að vera í úlpum og með húfur. Ég fór úr lopapeysunni upp úr hádeginu en um það leyti sem við vorum að klára allar bókanir var byrjað að kólna aftur. Þrátt fyrir stóran dag og vesen með hitastigið var öllum verkefnum lokið fyrir klukkan hálffjögur. Ég fór beint í sund og á braut átta og var búin að synda rúma hundrað metra þegar kaldapotts vinkona mín kom. Hún synti 500 og ég 600 í heildina. Eftir þrjár ferðir í kalda, góða gufuferð og tuttugu mínútur í sjópottinum fór ég upp úr. Ákvað að skreppa upp á Gagnveg á vinnustað N1 sonarins sem var á vakt. Stuttu áður en ég kom þangað fór mælaborðið að gera athugasemd varðandi þrýstinginn á dekkjunum svo ég byrjaði á því að leggja framan við loft-dæmið og jafna hann sjálf. Það var smá bras en hafðist alveg. Lagði svo bílinn við þjónustudælu til að fá áfyllingu á rúðupissið. Starfsmaður á plani kom fyrst að en rétt á eftir sonur minn sem tók verkið að sér og vildi ekkert taka fyrir það. Var komin heim stuttu fyrir klukkan hálfsjö.
19.11.24
Innikuldi á vinnustað
Var vöknuð um sex, á undan vekjaranum. Gaf mér góðan tíma í alla morgunrútínu en var samt mætt í vinnu rétt fyrir hálfátta. Inni var mjög kalt, þó ekki frost eins og út en samt þannig kalt að það var eiginlega ekki hægt að vinna við þessar aðstæður. Ég fór þó niður í kortadeild að hlaða inn nýjustu skrám og útbúa skiptiblöð. Það virkaði ekki alveg jafn kalt þar. Þegar ég kom upp aftur gerði ég eins og margir af vinnufélögunum sótti úlpuna því þrátt fyrir að vera í ullarvesti var það ekki nóg. Það var heldur skárra inni í kaffistofu en ef maður sat of lengi og var ekki með teppi yfir sér sótti kuldinn á. Einhverjir voru frammi í sal að "reyna" að vinna en við vorum nokkur sem bara gátum ekki hugsað okkur að vinna fyrr en hitastigið yrði aðeins lagað svo við værum ekki með loppnar fingur og tær og eldrauð nef. Menn fá hitastýringu voru fengnir á staðinn en það voru líka leigðir nokkrir hitablásarar og dreyfðir um salinn. Nokkru eftir að þeir voru komnir í gang, svona um tíu leytið, ákvað ég að prófa að vinna. Færði borðið ofar og vann standandi til að geta verið á smá hreyfingu. Hádegismaturinn kom í seinna lagi en yfirleitt kemur hann alltof snemma. Eftir mat prófaði ég að sitja við að bóka innlagnir og það slapp alveg til. Þrátt fyrir að við værum nokkur sem byrjuðum ekki að bóka fyrr en eftir dúk og disk og þar að auki eru nokkrir aðrir frá vegna veikinda þá vorum við búin með verkefni dagsins áður en ég var búin að vera átta tíma á svæðinu. Það munaði þó ekki nema uþb tíu mínútum. Var mætt í osteostrong rúmum hálftíma fyrir fasta tímann og komst beint að. Var því komin í sund um hálffimm. Synti 600m, fór í þann kalda í rúmar þrjár mínútur og beið svo í sjópottinum þar til kaldapotts vinkona mín mætti á svæðið. Saman náðum við tveimur ferðum í þann kalda og góðri gufuferð en þá var ég komin í spreng og kvaddi. Var komin heim á sjöunda tímanum. Hringdi annars í pabba þegar ég var á leiðinni í osteostrong. Hann svaraði úr sínum bíl og var staddur á Ölfusárbrúnni. Hafði skroppið í kaupstað að versla og notaði tækifærið til að fylla á bílinn hjá Atlantsolíu.
18.11.24
Ný vinnuvika
Var komin í sund um hálftíu leytið. Byrjaði á 4 mínútum í kalda pottinum áður en ég fór á braut 6 og synti 500 metra, þar af tæpan helminginn skriðsund. Síðan fór ég aftur í þann kalda og hitti á kalda potts vinkonu mína. Fórum þrjár ferðir saman, tvær í þann heitasta, eina góða ferð í gufu og eina í 42°C pottinn. Sjópotturinn var lokaður. Ég var með skammtímaláns bókina meðferðis í bílnum en bókasafnið opnar ekki fyrr en klukkan tólf á sunnudögum og ég var komin heim um hálftólf. Ákvað að framlengja skilafrestinum um hálfan mánuð og verð þá vonandi búin með tvær af hinum þremur bókunum og get skilað þeim í leiðinni. Skammtímalánsbókin er annars; Súkkulaðileikur eftir Hlyn Níels Grímsson og er alveg ágætis afþreying.
17.11.24
Rétt rúmar sex vikur eftir af þessu ári
Rumskaði um eitt leytið í fyrrinótt, þurfti og fór fram á salerni að tæma blöðruna. Er hreint ekki viss hvenær ég sofnaði aftur en vissi svo næst af mér um klukkan hálfátta. Tók mér rúman hálftíma í morgunverkin og netvafrið en var mætt í Laugardalslaugina á braut sex korter fyrir níu. Synti 500 metra, flesta á bakinu en smá skrið- og bringusund með. Þvoði mér um hárið þegar ég var á leiðinni upp úr um tíu. Næst lá leiðin vestur í bæ til esperanto vinkonu minnar. Við lásum þrjár blaðsíður í Kon-Tiki. Um tólf renndi ég svo bílnum í gegnum bílaþvottastöðina Löður við Fiskislóð. Á eftir kom ég við í Krónunni áður en ég fór heim.
Annars gleymdi ég að geta þess að ég kom við í Holtagörðum eftir vinnu á föstudaginn til að kjósa utan kjörfundar. Það var aðallega til þess að nýta vegabréfið áður en það rennur úr gildi í næstu viku. Mér var reyndar tjáð að það væri alveg tekið mark á útrunnum skilríkjum. Mér var líka sagt að ég mætti kjósa eins oft og ég vildi utankjörfundar. Það er skráður tími á umslagið utan um atkvæðið og það nýjasta gildir. Það er annars ágætt að að vita að ég get kosið aftur ef mér snýst hugur og líka gott að vita að ég get kosið á kjördag, þó bara einu sinni, einnig ef ég verð komin að annarri niðurstöðu um hver eða hvort einhver eigi skilið mitt atkvæði.
16.11.24
Dagur íslenskrar tungu í dag
Var vöknuð alltof snemma í gærmorgun. Gerði smá teygju- og styrktaræfingar í rúminu og þegar ég var komin á fætur og búin að búa um gerði ég æfingar með 2kg lóð í hvorri hönd í nokkrar mínútur. Samt var klukkan ekki orðin sex þegar ég fór fram fékk mér lýsi og kalk, sopa af rauðrófu safa og hálft vatnsglas og sinnti morgun verkunum á baðherberginu. Mætti í vinnu rétt fyrir hálfátta. Sú lausráðna hafði ætlað að vera í fríi í gær og fara með fyrstu vél til Akureyrar. Það var hins vegar ekkert flogið norður í gær og hún ákvað að koma bara í vinnuna. Það er annars búið að framlengja vinnusamningnum hennar til ágústloka 2025 en staðan verður tekin aftur næsta sumar. Vonandi verða aðstæður þá orðnar þannig að hægt verði að fastráða hana. Við rúlluðum upp korta framleiðslunni á tæpri klukkustund. Ég var korteri lengur að ganga frá bókhaldi og póstmálum en fór svo beint í innlegg eftir það. Verkefnum var lokið rétt upp úr klukkan tvö. Ég ætlaði að koma við í Fiskbúð Fúsa en kom að lokuðum dyrum vegna árshátíðaferðar. Var komin í Nauthólsvík rétt fyrir þrjú. Hringdi eitt símtal áður en ég yfirgaf bílinn. Sjórinn hafði mælst 7°C á fimmtudaginn en var kominn niður í 4,4°C. Það var að flæða að. Ég svamlaði um í korter, sat annað eins í gufunni áður en ég fór aftur smástund út í, berhent. Var líklega rúmlega eina mínútu áður en ég fór í pottinn. Eftir sjósundsferðina gerði ég mér ferð í Hagkaup í Skeifunni. Yfirleitt líður lengra á milli ferða þangað en í síðustu ferð á sunnudagskvöldið var keypti ég tvær dokkur af fjólublá þykku bómullargarni og þær eru ekki að duga fyrir stykkið sem ég er með á prjónunum. Þarf amk eina dokku til. Auðvitað rataði ýmislegt annað í körfuna í leiðinni en vörurnar komust þó vel fyrir í einum margnota hagkaupspoka af minni gerðinni. Svona poka sem inn á milli er geymdur í litlum samlitum poka og fer mjög lítið fyrir.
15.11.24
Föstudagur enn á ný
Í gærmorgun var það vekjarinn sem ýtti við mér korter yfir sex. Hafði þó rumskað um fimm leytið en sofnaði sem betur fer aftur. Morgunverkin gengu vel fyrir sig en ég sleppti þó æfingunum sem kannski er ekki til eftirbreytni. Var mætt í vinnu um hálfátta. Fyrsta korterið fór í að taka saman kortatölur og vinna í bókhaldi fyrir kortadeildina. Svo skipti ég yfir í innlagnir. Þeim verkefnum lauk um hálftvö. Þá var komið að skjala yfirferðum. Þeim var lokið rúmlega tvö. Sendi skilaboð til kalda potts vinkonu minnar og við hittumst í sundi korter fyrir þrjú. Fórum beint á brautir fimm og sex og syntum 500m, þar af synti ég rétt tæpa 150m skriðsund. Eftir sundið var komið að pottaferðum og gufu. Ég var komin heim upp úr klukkan hálffimm.
14.11.24
Greip í tómt
Í gær var framleiðsludagur í vinnunni. Vorum ekki búnar þegar við gerðum pásu rétt fyrir níu til að skreppa upp á fund. Vanalega er fundurinn klukkan hálftíu en hann var færður fram í gær og stóð yfir í tæpa klukkustund. Verið var að fara yfir könnun og svo gera aðra óformlega könnun. Vorum komnar niður í kortadeild um tíu leytið og vorum innan við klukkutíma að klára rest og ganga frá deildinni. Ég var svo auka korter að vinna í bókhaldi og undirbúa póstsendingar áður en ég skipti yfir í innleggin. Mínum verkefnum var lokið stuttu fyrir þrjú. Fór beinustu leið í Nauthólsvík. Það var háflóð, sjórinn rétt innan við sex gráður og ég var að vaða út í rétt fyrir hálffjögur. Svamlaði um í rúmt korter áður en ég fór í gufuna í annað korter. Eftir smá dipp í lónið og ca tíu mínútur í pottinum dreif ég mig upp úr. Hugmyndin var að skreppa á Landakot að heimsækja nöfnu mína sem var í KÓSÍ kórnum síðustu árin sem hann var starfandi. Ég lagði bílnum við Bræðraborgarstíg og rölti þaðan. Það var vissulega Anna K. upp á þriðju hæð en ekki sú sem ég ætlaði að heimsækja. Í ljós kom að fyrst hafði hún verið færð upp á fjórðu hæð en svo hafði hún fengið varanlegt pláss á öðrum stað, mjög líklega hjúkrunarheimili sem hefur deild fyrir þá sem eru komnir með alzheimer. Ég mun að öllum líkindum hafa samband við manninn hennar sem líka var í kórnum og spyrja hann hvar hún er og hvort ég megi heimsækja hana þangað. Hann sagði okkur, sem hittumst þann 18. okt. sl, frá stöðunni að hún myndi ekki eiga afturkvæmt heim. Ég spurði hann þá hvort ég mætti heimsækja hana og svarið var jákvætt. Ég var hins vegar of sein í þetta skipti enda er Landakot sjúkrahús en ekki hjúkrunarheimili.
13.11.24
Vikan hálfnuð og bráðum mánuðurinn
Það voru engin svefn vandræði í fyrrinótt en ég var vöknuð korter fyrir sex og klædd og komin á ról um sex eftir að hafa gert smá styrktaræfingar og teygjur. Gerði svo æfingar með tvö tveggja kílóa lóð áður en ég fór fram í eldhús og fékk mér lýsi, smá rauðrófusafa, vítamín og vatnsglas. Sinnti svo morgunverkunum á baðherberginu áður en ég settist inn í stofu með fartölvuna í fanginu. Mætti í vinnu um hálfátta. Það var stór dagur en mun færri hendur á dekki. Engu að síður vorum við innan við níu klukkutíma að klára allt sem þurfti að klára. Fá ef nokkur vandræði komu upp og ég stimplaði mig út áður en klukkan varð hálffimm. Hringdi í pabba og spjallaði við hann á meðan ég var á leiðinni í sund. Í miðju samtali var reynt að hringja í mig. Þekkti ekki númerið en þegar ég var búin að spjalla við pabba leit ég á símann og þá var þetta esperanto vinkona mín. Hafði ætlað að hringja í hana eftir að ég kæmi heim úr sundi en þar sem hún var búin að reyna að ná í mig hringdi ég strax til baka. Var komin í kalda pottinn um fimm leytið. Kalda potts vinkona mín var búin að synda 300m. Við fórum tvær ferðir í þann kalda og hún synti aðra 300m með mér. Fórum svo aðrar tvær ferðir í þann kalda, gufuna, heitasta pottinn og sjópottinn. Ég var komin heim um hálfsjö.
12.11.24
Dimmir meir og meir
Það varð eitthvað smá rask á svefninum í fyrrinótt. Rumskaði stuttu fyrir eitt, þurfti þó ekki og fór ekki framúr en ég er ekki viss hve lengi ég var að sofna aftur. Sofnaði samt alveg örugglega aftur því ég vaknaði rúmlega sex, á undan vekjaranum en eiginlega alveg til í að sofa svolítið áfram. Dreif mig nú samt á fætur og sinnti morgunverkunum. Tók þó engar lóða æfingar og greip ekkert í prjónana. Greip þá bara með mér þegar ég fór í vinnuna. Í vinnunni var nóg að gera og aðeins færri hendur á dekki. Allt var þó búið stuttu áður en átta tímarnir voru liðnir. Úr vinnunni fór ég beint í osteostrong. Var mætt hálftíma fyrir "fastan" tíma en þurfti ekki að bíða lengi eftir að komast að. Bætti mig á einu tæki og jafnaði á öðru. Eftir tímann og hvíldina fékk ég mér vatnsglas, kastaði kveðju á þær sem voru að vinna þarna og fór beint í sund. Var komin tæpum hálftíma á undan kalda potts vinkonu minni. Fór eina ferð í kalda pottinn, synti 300m á braut átta og beið svo í 42°C pottinum eftir að Hrafnhildur kæmi af æfingu úr Laugum. Fórum þrisvar í þann kalda. Klukkan var að byrja að ganga sjö þegar ég fór upp úr og heim. Upp úr klukkan átta hringdi besti vinur minn sem varð sextugur í síðustu viku. Við spjölluðum í uþb hálftíma. Hann og hans fjölskylda eru ein af þeim sem eru búin að tæma húsið sitt og afhenda/selja, hafa öruggt húsnæði á Reykjavíkursvæðinu en eru ekki búin að ákveða næstu skref. Dæturnar eru í Háskólanum, vinnan hans í Tollhúsinu en konan hans vinnur á Hótelinu rétt utan við Grindavík. Óvissan er aldrei góð en mér heyrðist samt hljóðið í honum vera nokkuð gott.
11.11.24
Osteostrong í dag
Ég var frekar hissa þegar ég vaknaði í gærmorgun og uppgötvaði að klukkan var langt gengin í níu. Mig rámar í að hafa aðeins rumskað einhverjum klukkutímum áður á hálfa tímanum. Dreif mig á fætur, tók utan af dýnu sæng og koddum og setti í þvottavél ásamt óhreinum handklæðum og þvottastykkjum sem ég fann á bak við hurð á baðherberginu. Það kom sér vel að ég hafði keypt tyggjó af Davíð Steini hjá N1 við Gagnveg áður en ég fór út úr bænum á laugardaginn því aldrei þessu vant gleymdi ég að taka með mér tannbursta. Vafraði annars um á netinu í smá tíma en ég var komin inn í eldhús að leggja kapal þegar pabbi kom fram um tíu leytið. Á tólfta tímanum matreiddi ég fisk með lauk, kartöflum og rófubitum. Kryddaði fiskinn með cayenne pipar og best á lambið og steikti á pönnu sauð kartöflur og rófu saman, mýkti líka niðurskorinn laukinn í potti áður en ég setti yfir fiskinn á pönnunni. Þetta var mjög gott en sennilega matur fyrir þrjá til fjóra sem við pabbi kláruðum bara tvö. Eftir hádegi settistumst við feðgin inn í stofu og kveiktum fljótlega á sjónvarpinu. Ég greip í prjónana mína og kláraði nýjasta eldhúshandklæðið á meðan ég fylgdist einnig með landsleiknum í handbolta. Eftir landsleikinn fékk ég mér te áður en ég tók mig saman, kvaddi pabba og brunaði í bæinn. Kom við í Hagkaup í Skeifunni til að kaupa mér frækex eins og fæst einnig í heilsuhúsinu. Oddur hjálpaði mér inn með dótið þegar ég kom heim um sex leytið.
10.11.24
Jólakortagerð á Hellu í gær
Vaknaði snemma í gærmorgun, upp úr klukkan sex. Lagði af stað í sund rétt rúmlega átta. Fór eina ferð í kalda áður en ég fór út í laug. Synti alls 800m á brautum 6-8. Meiri hlutann synti ég á bakinu. Eftir næstu ferð í þann kalda fór ég í gufu í uþb tíu mínútur. Var á leið í sjópottinn þegar ég sá sjósundsvinkonu mína í nuddpottinum og tók að sjálfsögðu stefnuna í þann pott. Við höfðum um margt að spjalla og það var maðurinn hennar sem sá til þess að við döguðum ekki uppi í pottinum, eltum hann í sjópottinn þar sem við héldum áfram að spjalla. Og þegar hann ákvað að kalla þetta gott og fara upp úr fórum við tvær saman í kalda pottinn í fjórar mínútur áður en við fórum upp úr. Þvoði mér um hárið og brunaði svo beinustu leið til esperanto vinkonu minnar. Lásum þrjár bls. í Kon-Tiki. Kom við á AO við Öskjuhlíð á leiðinni heim stuttu fyrir klukkan hálfeitt. Gekk frá sunddótinu og fór mjög fljótlega að huga að því að pakka niður. Bankaði á herbergisdyrnar hjá Oddi bæði til að kveðja og setja honum fyrir ákveðið verkefni. Þegar ég var búin að ferma bílinn og búin að setja hann í gang hringdi ég í pabba til að tilkynna honum að ég væri á leiðinni í heimsókn með kortagerðardótið meðferðis. Kom fyrst aðeins við í N1 við Gagnveg til að láta Davíð Stein vita, kveðja hann og versla smávegis eins og t.d. tyggjó. Það var rok og rigning í Þrengslunum kviðurnar upp í 16m á sekúndu. Næsta stopp var í Fossheiðinni á Selfossi. Þar var einnig verið að undirbúa kortagerð. Stoppaði í tæpan klukkutíma og var komin á Hellu um hálffjögur. Settist smá stund inn í stofu með prjónana mína en á fimmta tímanum tók ég fram kortagerðardótið og settist með það við eldhúsborðið. Pabbi var byrjaður á pönnukökugerð. Hann gerði tvöfalda uppskrift og steikti á tveimur pönnum og var búinn fyrir klukkan sex. Ég tók ekki saman mitt dót fyrr en um hálfátta. Þá var ég búin að búa til 14 kort en ég fann 6 tilbúin frá í fyrra og þar sem ég er að skera niður af listanum er ég örugglega komin með kvótann fyrir þetta árið. Fékk mér skyr með chia fræum og rúsínum í kvöldmat og horfði svo á leik Liverpool og Aston Villa 2:0.
9.11.24
Rok
Það varð smá truflun á svefninum í fyrrinótt. Rumskaði stuttu fyrir eitt, þurfti og fór á salernið. Var ekki að kveikja nein ljós en ég var ekki mjög fljót að sofna aftur. Veit ekki hvenær ég sofnaði en ég svaf amk til klukkan rúmlega sex. Vaknaði nokkrum mínútum á undan vekjaraklukkunni. Í vinnunni var framleiðsludagur. Vorum búnar að framleiða allt fyrirliggjandi rétt fyrir níu en þá fórum við á fund sem framkvæmdastjórinn hafði boðað með nokkurra daga fyrirvara. Yfirleitt eru þessir fundir á miðvikudögum en þá var yfirmaðurinn í öðrum mikilvægum verkefnum. Á fundinn mætti líka forstjóri RB en verið var að fara yfir alls konar mánaðamótatölur úr deildinni okkar. Eftir fundinn fórum við niður aftur, kláruðum að pakka, ganga frá vélinni og telja. Ég var byrjuð í innleggjum um hálfellefu leytið. Öllum verkefnum var lokið um hálfþrjú og ég var komin í Nauthólsvík og út í sjó klukkan þrjú. Sjórinn var aftur kominn yfir fimm gráður. Svamlaði um í korter og hitti svo einn frænda minn í pottinum. Sleppti gufuferð í gær og var komin heim um hálffimm.
8.11.24
Föstudagur enn á ný
Klukkan var rétt að verða hálfsex þegar ég vaknaði í gærmorgun. Hafði morgunrútínuna mjög líka og dagana áður. Var mætt í vinnu um hálfátta. Fór niður í kortadeild korter fyrir átta. Uppfærði skiptiblöðin vegna framleiðslu daganna 4.-6. nóv og hlóð einnig inn nýjustu tölum. Petra kom niður korter yfir átta með næstum því öll gögn. Það vantaði eitt skjalið svo hún þurfti að skreppa upp aftur til að prenta það út. Vorum samt byrjaðar að framleiða um hálfníu. Framleiddum fyrst kortin sem ekki fara á form, þau voru eitthvað á annan tuginn. Þegar ég ætlaði svo að setja af stað skrá með kortum sem fara á form og í umslög uppgötvaði ég að það var slökkt á prentaranum. Hann var smá stund að koma upp en mér telst til að hann hafi farið á villumeldingu amk sex sinnum í framleiðsluferlinu í gær. Þannig villumeldingu að þegar hún kom upp þá var það eina í stöðunni að slökkva á honum og kveikja aftur til að fá hann til að halda áfram. Þrátt fyrir þessar tafir lukum við framleiðslu þessara þriggja daga og framleiddum þar að auki síðustu óframleiddu skrána úr nýjustu endurnýjunni og vorum búnar að ganga frá kortadeildinni upp úr klukkan ellefu. Sendum tíu póstbakka upp með lyftunni í skúr eitt. Einn af þeim bökkum var með daglegu kortunum en hinir níu með endurnýjuninni. Restin af vinnudeginum var ég í innlögnum. Öllum mínum verkefnum var lokið um rúmlega hálfþrjú. Var komin á braut átta í Laugardalslaug rétt fyrir þrjú og synti 500m. Var líka búin með eina ferð í þann kalda og nýlega komin í sjópottinn þegar kalda potts vinkona mín kom. Fórum þrjár ferðir saman í kalda, tvær ferðir í þann heitasta og sátum svo góða stund í gufunni. Eftir gufuferðina varð ég að drífa mig upp úr því ég var komin í spreng og yfirleitt klæði ég mig ekki aftur í sundbolinn aftur eftir salernisferðir. Það hefur þó alveg hent sig. En í gær var ég eiginlega búin með rútínuna og þar að auki búin að vera meira en einn og hálfan tíma í sundi. Var komin heim upp úr klukkan fimm.
7.11.24
Æðibunugangur á tímanum
Var komin á fætur stuttu fyrir klukkan sex og líkt og á þriðjudaginn gerði ég æfingar með lóð áður en ég sinnti morgunverkunum á baðherberginu. Mætti í vinnu um hálfátta. Fyllti á vatnsbrúsann, fékk mér heitt vatn í bolla, greip í prjónana mína og spjallaði aðeins við þá vinnufélaga sem sátu á kaffistofunni. Korter fyrir átta fór ég niður í kortadeild en þar var ekkert hægt að gera því það hafði gefið sig eitthvað nauðsynlegt í tölvunni sem stýrir allri vélinni. Þetta hafði gerst daginn áður. Það var maður í yfirferð á svæðinu þá og þar sem þetta var í tölvunni sjálfri var líklegt að til væri varahlutur á landinu. Hann gat hins vegar ekki komið fyrr en eftir hádegi í gær og á meðan var ekkert hægt að framleiða eða gera í kortadeildinni. Við sem áttum að vera þar fórum þá í staðinn í innleggin. Það var auðvitað allt að verða búið uppi þegar viðgerðarmaðurinn mætti með varahlutinn upp úr klukkan þrjú. Ég tók að mér að vera eftir. Viðgerðin tók innan við hálftíma og það var gengið úr skugga um að það kviknaði á allri vélinni. Hleypti viðgerðarmanninum út og var þá orðin ein eftir. Fékk einn samstarfsmann minn, sem hægt er að leita til varðandi tæknimál á vélinni, til að senda yfir nýjustu skrárnar. Spjallaði við hann í gegnum TEAMS. Hlóð skránum inn þegar þær skiluðu sér í möppur skömmu síðar en ég mun svo vinna í skiptiblöðum á eftir. Ég gerði mig svo klára til að fara áður en ég setti öll kerfi á og dreif mig út og beinustu leið í Nauthólsvík. Var komin út í sjó um hálffimm.
6.11.24
Nokkur stór afmæli í dag
Vaknaði stuttu fyrir klukkan sex. Klæddi mig, bjó um og gerði nokkrar lóðaæfingar áður en ég sinnti morgunverkunum á baðherberginu. Fékk mér lýsi, rauðrófusafa, kalk og glas af vatni. Settist svo inn í stofusófa með fartölvuna í fanginu. Vafraði á netinu og setti inn færslu. Stuttu fyrir sjö slökkti ég á tölvunni, færði mig yfir í stofustólinn og greip í prjónana í smá stund. Var mætt í vinnu um hálfátta. Fyllti á vatnsflöskuna áður en ég fór niður í kortadeild að hlaða inn nýjustu skrám og uppfæra skiptiblöðin. Byrjaði í innleggjunum um átta. Verkefnum dagsins lauk upp úr klukkan þrjú. Var komin á braut átta í Laugardalslauginni um hálffjögur. Synti 500m áður en ég fór fyrri ferðina í kalda pottinn. Sat lengst í sjópottinum enda hitti ég á konu sem stjórnaði barnakór Hallgrímskirkju þegar tvíburarnir voru sex ára og báðir í kór. Við spjölluðum í dágóða stund. Á heimleiðinni kom ég við í Fiskbúð Fúsa og keypti harðfisk og 250gr af nætursöltuðum gellum. Þegar heim kom skar ég niður og gufusauð sæta kartöflu til að hafa með gellunum. Hluti af kartöflunni fór reyndar í box og inn í ísskáp. Yfirleitt borða ég ekki heitan mat á virkum kvöldum þar sem ég fæ heitan mat í hádeginu í vinnunni. En ég gerði undantekningu í gær og var bara mjög sátt. Aldrei þessu vant horfði ég svo á Torgið eftir fréttir. Mikið sem þetta unga fólk, sem stóðu fyrir svörum, eru góðar fyrirmyndir.
Annars þekki ég tvö sem eru sextug í dag og eina sem er níræð.
5.11.24
Bókasafn, osteostrong og sund eftir vinnu í gær
Það var vekjarinn sem ýtti við mér klukkan korter yfir sex í gærmorgun. Náði nú samt að sinna flest allri morgunrútínunni á fyrsta virka degi nýrrar vinnuviku. Sleppti aðeins lóðaæfingum. Var mætt í vinnu um hálfátta. Fyrstu tuttugu mínúturnar fóru í kortadeildarmál en annars var ég í innlögnum í gær. Þegar mínum vinnuverkefnum lauk vantaði aðeins um tólf mínútur upp á átta tímana. Þá var klukkan ekki orðin hálffjögur og ég sá fram á að ég hefði ágætis tíma til að skreppa á bókasafnið í Kringlunni og ég yrði samt ekki sein í vikulegan styrktartíma hjá Osteostrong í Hátúni. Skilaði öllum fimm bókunum, meira að segja Kon-Tiki. Hefði nú samt verið fróðlegt hvort ég hefði fengið samið um að hafa hana í láni aðeins lengur. En ég get örugglega nálgast hana aftur fljótlega. Tók fjórar bækur í staðinn. Ein er ný og er með tveggja vikna skilafrest og önnur er mjög þykk; bók eftir Lucindu Riley, Sólarsystir. Var mætt í Hátún 12 um fjögur. Fasti tíminn er tuttugu mínútum yfir en ég komst að aðeins fyrr en það. Það var annar eigandinn af staðnum sem fór hrysti-æfinga-jafnvægis hringinn með mér og pakkaði mér svo inn í teppi á einum af sex það sem ég vil kalla; hengirúmsbekk. Var komin í sund og á braut 8 stuttu fyrir fimm. Synti 300m, þar af tæplega helminginn á bakinu. Var svo að koma úr fyrstu kaldapottsferðinni af fjórum þegar vinkona mín mætti úr ræktartíma úr Laugum. Klukkan var langt gengin í sjö þegar ég kom heim með hreint og rakt hárið.
4.11.24
Ný vinnuvika
Færsla dagsins um gærdaginn verður líklega enn styttri en færsla gærdagsins. Dagurinn var semsagt mjög rólegur og tíðindalaus. Fór hvorki í sund né göngutúr. Var komin á fætur fyrir átta. Prjónaði mikið, horfði á bolta og þætti, vafraði á netinu. Dagurinn leið frekar hratt.
3.11.24
Sunnudagur
Ósköp fátt að frétta af gærdeginum. Var komin á fætur um sjö. Fyrstu þrír klukkutímarnir fóru í morgunrútínu, æfingar, netvafr, prjón og þáttaáhorf. Var mætt til esperanto vinkonu minnar um hálfellefu leytið. Lásum tvær blaðsíður í Kon-Tiki. Var komin heim aftur upp úr klukkan tólf. Fór ekkert út aftur þannig að já, ég fór hvorki í sund né göngutúr. Gerði líka heldur lítið af því sem ekki má skrifa um. Horfði á fótbolta og þætti, prjónaði og las. Útbjó mér bleikju í kvöldmatinn og var skriðin upp í rúm um tíu.
2.11.24
Nýr mánuður og aftur komin helgi
Í dag 2. nóvember er afmælisdagur Helgu systur og líkt og ég gat í heilt ár til 17. mars sl, getur hún nú lesið aldurinn afturábak og áfram án þess að nokkuð breytist. Hún er nú sjálfsagt ekkert að spá í þessu sjálf, bara tölu- og afmælisdaganördinn ég. Annars aðeins að gærdeginum. Var mætt í vinnu rétt fyrir hálfátta. Sjö tíma og korters vinnudagur fór allur í kortadeildina og kortamál. Fórum langleiðina með nýjustu endurnýjunina. Tókum á móti tæknimanni sem setti logo á eina plasttegund svo hægt væri að klára 20 kort af endurnýjun sem kom fyrir nokkrum vikum. Nú fer framleiðsludögum ört fækkandi og ég veðja á að allri framleiðslu verði lokið fyrir jól. Það verður verulega skrýtið. Aðlögunin hefur þó verið ágæt því það var fyrst mjög skrýtið í upphafi árs að hugsa til þess að það yrðu einungis tveir framleiðsludagar í viku. Ég kom reyndar ekki að kortaframleiðslu þetta árið fyrr en nokkru eftir að ég komst í vinnu aftur eftir úlnliðsbrotið, einhvern tímann um og eftir miðjan apríl. Eftir vinnu í gær fór ég beinustu leið í Nauthólsvík. Hringdi í pabba og spjallaði við hann á meðan ég var á leiðinni þangað. Var komin í sjóinn fyrir hálffjögur. Hann var 2,2°C og ansi kalt að reka andlitið ofan í. Samt ætlaði ég ekki að tíma að fara upp úr, svamlaði að mestu um á bakinu í rúmar tíu mínútur. Fór beint í gufuna og þar var ég næsta rúma korterið. Stakk mér örstutt aftur í sjóinn, hanskalaus og sat svo uþb tuttugu mínútur í heita pottinum áður en ég fór upp úr og heim. Mjög hressandi og endurnærandi sjósundsferð.
1.11.24
Kom að lokuðum dyrum
Var komin á fætur fyrir klukkan sex í gærmorgun og byrjaði á nokkrum æfingum með lóðum áður en ég sinnti morgunverkunum á baðherberginu. Mætti í vinnu rúmlega hálfátta. Kláraði fyrsta innlagnarskammtinn á rúmum klukkutíma. Ætlaði svo að skipta yfir í "hefðbundið" kortabókhald en þegar ég ætlaði að færa inn fyrstu tölur á einum stað var staðan á 31.10 nákæmlega sú sama og þann sextánda okt. sl. Ekkert breyttist þótt ég endurræsti tölvuna og ég veit að það voru settar inn endurnýjunartölur og bókhald "lagað" á miðvikudaginn var. Breytingarnar skiluðu sér samt ekki á "sameiginlega" svæðið því ég og sumarliðinn sáum ekki nýjustu tölur. Ég gat fært inn debet og visa en sú sem hafði fært inn og lagað bókhaldið á miðvikudaginn varð að laga mc bókhaldið. Hún sneri sér svo fljótlega að reikningagerðinni. Verkefnum mínum lauk milli tvö og hálfþrjú og þá ætlaði ég svo sannarlega að hitta kaldapotts vinkonu mína í Laugardalslauginni. Vorum þar um hálfþrjú en þá hafði lauginni verið lokað milli hálfeitt og sex vegna sturtu vandræða. Ég var ekki í stuði til að leita á önnur mið og fór bara heim. Skrapp samt í örstuttan göngutúr með poka í texstíl gáminn um fimm leytið. Það kom skrefunum amk að lokum yfir fjögurþúsundogfimmhundruð.