Veit ekki alveg hvað klukkan var þegar ég fór að sofa í gærkvöldi, ekkert svo seint en örugglega upp úr klukkan hálfellefu. Samt var ég vöknuð upp úr klukkan hálfsex. Var mætt í sund um leið og opnaði. Fór beint á braut 8 og synti 300m. Eftir eina kalda potts ferð fór ég smástund í gufuna og svo hitti ég rúmlega áttræða konu í sjópottinum. Kynntist henni fyrir um tíu árum en hún er alveg hætt að mæta í sund á veturnar en mætir einu sinni til tvisvar í viku yfir sumarmánuðina. Stimplaði mig inn í vinnu tuttugu mínútum fyrir átta. Afleysinga-skoðunarmaðurinn var með okkur til hádegis en þá var hann sendur í Hádegismóa til að leysa af. Fimmtíuogþrír bílar voru skoðaðir í dag, þar af tuttuguog fimm fyrir hádegi. Fór annars beint heim eftir vinnu og lítið meira um þennan fyrsta dag júní mánaðar að segja.