Svefninn síðast liðna nótt var eitthvað köflóttur og ákvað ég því að sleppa morgunsundi í morgun. Mætti í vinnu upp úr klukkan hálfátta. Rólegt var til að byrja með en í heildina voru samt skoðaðir hátt í fjörutíu bílar í dag. Fór í esperanto hitting beint eftir vinnu og hafði bílinn í hleðslu þennan klukkutíma sem ég stoppaði. Kom heim stuttu fyrir klukkan hálfsjö og ákvað að hlaða bílinn aðeins meira. Allt virtist í lagi til að byrja með en þegar ég var búin að vera inni í tæpan hálftíma tilkynnti forritið í símanum um villu. Ég fór út og það endaði með því að ég ákvað að taka úr sambandi og færa bílinn á annað stæði. Bíllinn er í 70% og það nægir næstu dagana.
2.11.26
1.11.26
Skrepp á Hellu með Oddi í dag
Það eru bæði kostir og gallar við að skrásetja ekki endilega niður dagana daglega. Hluti af göllunum getur verið að eitthvað gleymist sem mætti alveg minnast á. Kostir eru þá m.a. að ég hef kannski frá meiru að segja, amk stundum. Þessa stundina er ég á Hellu. Við Oddur komum hérna fyrir klukkan tvö, þá var pabbi í miðri pönnukökugerð. Þeir tveir eru núna að spjalla saman inni í stofu og ég ákvað að nota tækifærið og skrásetja hluta af því sem ég er búin að vera að bralla síðan á föstudaginn. Það er nefnilega ekkert víst að ég nenni að taka fram fartölvuna þegar ég kem heim. Ég var annars vöknuð um átta í morgun og morguninn sem og gærmorguninn fóru að hluta til í það sem ekki má skrifa um. Um hálftólf lagði ég af stað austur. Þegar ég hringdi Odd upp um tvö leytið í gær var hann opinn fyrir því að koma með mér í smá skrepp á Hellu í dag. Hann svaraði þó ekki símanum þegar ég hringdi um það leyti sem ég lagði í hann en hringdi til baka þegar ég var að keyra framhjá Bláfjallaafleggjara.
Um tvöleytið í gær setti ég mig í samband við frænku mína og jafnöldru sem býr í Seljahverfinu. Hún var heima og sagði að ég væri velkomin. Ég var rétt lögð af stað, gangandi, til hennar þegar kom haglél og svo einnig hellidemba. Þrátt fyrir að vera í strigaskóm hélt ég för áfram. Var tæpan hálftíma á leiðinni. Rétt áður en ég kom til hennar sá ég tvöfalda heila regnboga, sá innri mjög litsterkur og flottur. Stoppaði hjá frænku minni í næstum tvo tíma, og svo rúmlega það því þegar ég var tilbúin að fara, komin í og búin að kveðja kom hellidemba. Þá dembu beið ég af mér, ca tíu mínútur, og komst svo heim án þess að rigndi. Þurfti þó að fara úr blautum sokkum þegar ég kom heim.
Föstudagurinn var síðasti virki dagur októbermánaðar. Ég byrjaði daginn á sundferð um hálfsjö. Það var nóg að gera í vinnunni milli klukkan átta og rúmlega fjögur, yfir sextíu bílar. Stimplaði mig út sjö mínútum yfir fjögur. Kom aðeins við hjá N1 syninum í Borgartúni og svo hjá frændfólki sem býr í sundunum. Kom heim um sex og var með bílinn í hleðslu næstum til miðnættis.