Gærdagurinn var í lengri kantinum. Var vöknuð áður en vekjarinn átti að ýta við mér og mætt í sund klukkan hálfsjö. Þar hitti ég kaldapotts vinkonu mína, í steinapottinum, þegar ég var búin að synda. Aðeins rólegra var í vinnunni en þó skoðaðir hátt í fjörutíu bílar og einhvað um önnur afgreiðsluverkefni. Stimplaði mig út á slaginu hálffimm og fór beint heim. Stoppaði þó ekki heimavið nema í uþb klukkustund. Var mætt upp á Kirkjuteig upp úr klukkan sex og ekki komin heim aftur fyrr en um hálfellefu. Þá háttaði ég mig beint upp í rúm en að sjálfsögðu þurfti ég að grípa aðeins í bók. Er ekki viss hvað ég las lengi en ég var nú örugglega alveg sofnuð fyrir miðnætti.
Það kom mér verulega á óvart að ég vaknaði amk tíu mínútum áður en vekjarinn átti að hringja. Dreif mig á fætur og var mætt á planið við Laugardalslaug áður en klukkan var orðin hálfsjö. Vinnudagurinn var svipaður og í gær, nema hálftíma styttri því við hættum alltaf klukkan fjögur á föstudögum. Ég fór á bókasafnið í Kringlunni eftir vinnu og skilaði nokkrum bókum, þrjár bækur voru eftir heima og ég tók með mér þrjár bækur; Sara og Dagný og ég eftir Ísak Regal, Snjór í paradís eftir Ólaf Jóhann Ólafsson og Irpa eftir Hildi Knútsdóttur. Allt bækur með 30 daga skilafresti. Á leiðinni á safnið tók ég aðeins stöðuna á pabba en það helltist í hann kvef fyrr í vikunni. Hann fór ekki í sund í gær og í dag en segist vera að jafna sig og stefnir á að mæta í sund eftir helgi. Af safninu lá leiðin í N1 í Borgartúni og meðan ég var á leiðinni þangað hringdi ég í Odd og spjallaði við hann. Davíð Steinn var fáanlegur til að vinna fyrir mig smá viðvik. Hann skutlaði bílnum sínum heim til sín eftir vinnu, sótti verkfæratöskuna sína og varð samferða mér heim til mín til að merkja fyrir mig póstkassann minn. Ég var búin að skrifa nafnið mitt í wordskjal í vinnunni minn fyrir nokkrum dögum, prenta út og klippa niður passlega stóran miða. Það þurfti lítið stjörnuskrúfjárn til að losa og fjarlægja hinn miðann undan smá plast eða glerplötu, setja miðann minn í staðinn og festa aftur. Handskrifaði miðinn sem var límdur á boxið í nóvember var fjarlægður. Eftir þetta viðvik skutlaði ég syninum í Krónuna í Lindum. Þegar hann var búinn að versla bauð ég honum að borða með mér á Saffran áður en ég skutlaði honum heim. Ég var komin heim stuttu fyrir klukkan átta. Tengdi þá bílinn við hleðslustaur og er að hugsa um að hafa hann þar til klukkan ellefu. Verð því að halda mér vakandi aðeins lengur í kvöld.