30.11.21

Desember hinum megin við miðnætti

Var vöknuð og komin á fætur upp úr klukkan sex í gærmorgun. Var að vafra um á netinu þegar N1 sonurinn kom fram. Hann var farinn út á undan mér á aukavakt. Ég mætti fyrst í vinnuna en hvorki ég né sú næsta sem mætti komumst inn í herbergið þar sem framleiðsluvélin var. Fyrirliðinn varð að hringja á einn vinnufélaga okkar á svæðinu. Sá gat hjálpað henni í gegnum símann. En eftirleiðis verðum við allar að nota lykilkortin okkar inn og út af þessu svæði sama hvort við erum að fara tvær, þrjár eða fleiri inn á það. Ég var á móttöku endanum á vélinni fram að kaffi. Eftir kaffi var ég í pökkun, talningu og flokkun kennispjalda. Eftir hádegi fór ég á ítroðsluendann þangað til yfirmaður mætti á svæðið þá gerðum við framleiðslupásu í þrjú korter á meðan við fórum á fund. Var komin heim korter fyrir fjögur. Ákvað að skrópa í sjóinn og fara ekkert út aftur. Um fimm var ég með stillt á RÚV2 og fylgdist með karlalandsliðinu í körfubolta keppa við Rússa. 

29.11.21

Ný vinnuvika

Var komin á fætur um átta. Skutlaði Davíð Steini upp á Gagnveg fyrir hálftíu og fór beint í sund eftir skutlið. Var í minni fyrstu ferð í kalda pottinum þegar kalda potts vinkona mín kom í sína aðra ferð. Fórum fimm ferðir í viðbót og svo í gufu. Var komin heim um hálftólf.

Ein leiðin til að passa upp á að sækja ekki of margar bækur á safnið er að senda einkabílstjórann að skila þeim fjórum sem voru að komast eða komnar á skiladag. Oddur Smári tók þetta verkefni að sér glaður og sagðist hafa skilað tveimur bókum aukalega. Það kom nefnilega einhver grímulaus og skilaði tveimur bókum og fór án þess að renna þeim í gegnum skilavélina. Oddur renndi þeim í gegn.

Annars er frekar lítið að frétta. Helgin leið mjög hratt. Horfði á tvo fótboltaleiki í gær og horfði Oddur með mér á Chelsea - Man. Utd. leikinn. Horfði líka á næstsíðasta þáttinn af Ófærð. Betra að horfa á línulega dagskrá til þess að geta haft síðu 888 í textavarpinu virka.

28.11.21

Lítið eftir af nóvember

Ég var komin á fætur upp úr klukkan hálfsjö í gærmorgun og hafði góðan tíma til að vafra aðeins um á netinu áður en N1 sonurinn kom fram. Skutlaði honum í vinnuna og var hann mættur upp á Gagnveg um hálfátta. Ég fékk kaffibolla til að taka með mér í staðinn. Var komin á bílaplanið við Laugardalslaug tólf mínútum fyrir opnun. Hlustaði á átta fréttir áður en ég fór í sundið. Fór þrjár ferðir þann kalda og tvær í heitasta áður en ég fór á braut 2 og synti í 15 mínútur. Eftir fjórðu ferðina í kalda sat ég góða stund í gufunni, svo kalda sturtu og tíu mínútur í sjópottinum áður en ég fór upp úr og þvoði mér um hárið. Næst lá leiðin í Krónuna við Fiskislóð (Granda). Kom heim um ellefu og fékk stæði fyrir utan. Að öðru leyti fór gærdagurinn að mestu í lestur, prjón, fótbolta- og þáttaáhorf. 

27.11.21

Á skutlvaktinni

Vorum þrjár í vinnu í gær. Ég sá um bókhaldið og pökkun hinar um framleiðslu og önnur þeirra taldi með mér allar tegundir í öllum vögnum eftir daglega framleiðslu. Hættum vinnu upp úr klukkan hálfþrjú svo ég var komin heim um þrjú. Stoppaði heima í rúmlega klukkutíma og skrapp síðan í Nauthólsvík. Tolldi alveg 15 mínútur í 2,7°C sjónum. Veðrið svalt en stillt. Steikti slátur og kartöflur í kvöldmatinn handa okkur Oddi, N1 sonurinn var að vinna og kom ekki heim fyrr en um hálfníu. 

26.11.21

í endann á vikunni

Vorum allar fimm mættar til vinnu í gærmorgun, amk til hádegis en þá fór ein í helgarfrí. Framleiðsluvélin var ósamvinnuþýð langt fram eftir morgni. Fyrsta skammti var ekki skilað af sér fyrr en um ellefu leytið. Ég var á ítroðsluendanum á vélinni eftir kaffi og það var um hálfellefu sem allt komst í gang. Eftir hádegi tók ég bókhaldsvinnuna að mér. Daglegum verkum lauk á þriðja tímanum. Það var ekki mikið auka framleitt, 200 gjafakort og örfá kort í kreditendurnýjun því um klukkan þrjú hófst sviðsfundur sem var hægt að vera á á Teams. Fylgdist með megninu af fundinum en yfirgaf tölvuheima og vinnustað rétt fyrir fjögur. Fór beint heim með strætó og ekkert út aftur. Davíð Steinn sá um kvöldmatinn alveg óumbeðið. Það var frekar notalegt.

25.11.21

Fimmtudagur

Í gær vorum við aðeins þrjár á vinnustað. Sú sem fór heim lasin í fyrradag og sú sem fékk örvunarskammtinn á mánudag voru enn lasnar. Við hinar þrjár vorum þá allar á sömur vinnustöðvum. Ég var að hlaða inn verkefnum og senda þau af stað. Vorum búnar að framleiða og telja fyrsta verkefnið fyrir klukkan níu. Næsta verkefni kláraðist stuttu eftir kaffi og fram að hádegi framleiddum við 1500 gjafakort og svo önnur 600 með hádegisverkefninu. Fórum í mat um eitt. Eftir hádegi kláruðum við dk-endurnýjun. Og héldum áfram með kreditendurnýjun. Senda þurfti hana aftur því undirrituð hafði ekki vanda sig við tiltekt á vélinni og hent henni út. Sem betur fer var hægt að keyra hana aftur. Þrátt fyrir að ég sæi til þess að þær fjórar skrár af 29 færu ekki í gegn aftur tók það um einn og hálfan tíma að koma yfir á vélina en hún kom akkúrat þegar við vorum að vinna í debetendurnýjuninni. Framleiddum átta skrár af 25. Hættum og gengum frá um þrjú. Ég kom heim korter í fjögur. Var komin í sund um fimm. Byrjaði á því að synda og var í minni fyrstu ferð í kalda pottinum þegar kalda potts vinkona mín kom í sína fyrstu. Ég var því örugglega sjö mínútur í fyrstu ferðinni og svo fórum við fjórar aðrar 3 mínútna ferðir í 8°C pottinum. Enduðum á löngu gufubaði. 

24.11.21

Þriðji skammtur - kokteill

Eftir átta tíma svefn, smá rumsk um fimm leytið, vaknaði ég við að vekjaraklukkuna í gærmorgun. Hafði samt góðan tíma til að vafra aðeins um á netinu. Fór á bílnum í vinnuna og lagði af stað á svipuðum tíma og þegar ég tek strætó. Var mætt rúmum fimm mínútum fyrr en venjulega en samt ekki fyrst á svæðið. Sú sem fékk sína þriðju sprautu í fyrradag hringdi sig inn veika. Við vorum því aftur fjórar á svæðinu því sú sem var lasin á mánudaginn kom í gær. Ég var á móttökuendanum á framleiðsluvélinni fram að kaffi. Fljótlega eftir kaffi skrapp ég í Laugardalshöllina. SMS-ið frá því daginn áður sagði tímann 11:10 en ég var mætt um hálfellefu. Allt gekk hratt og vel fyrir sig. Er nú komin með eina Pfizer ofan í tvær moderna. Eina vandamálið var að stæðið við vinnuna beið mín ekki og ég varð að leggja á gjaldstæði. Borgaði 500 kr. fyrir að leggja til klukkan 15:17. Eftir hádegi fór ég á ítroðsluendann á vélinni að klára dk framleiðsluna sem var í stærra lagi í gær. Gátum líka gert hluta af síðustu skránni í dk-endurnýjun. Fékk að hætta vinnu korter yfir þrjú. Þá átti bara eftir að ganga frá og telja. Það voru tvær eftir til að sjá um það en sú fjórða fór heim lasin um hálftvö leytið. Ég fór beinustu leið heim og hélt mig þar það sem eftir lifði dags. 

23.11.21

Sofið þar til klukkan hringdi

Vorum þrjár í vinnu í gær. Ein í fríi og önnur lasin. Ég var á móttökuendanum á framleiðsluvélinni fram að hádegi. Um hádegið skrapp sú sem var á hinum vélarendanum í Laugardalshöll af fá örvunarskammtinn. Sú þriðja var í bókhaldinu og eftir hádegi töldum við óhætt að setja af stað gjafakortaframleiðslu á meðan við töldum tvo seinni skápa dagsins. Sú sem fór í bólusetninguna kom rétt eftir að við vorum búnar að telja og þá var búið að skoða fyrstu 100 gjafakortin og örugglega um tvöhundruð óskoðuð. Hún tók að sér að vera á þeim endanum og framleiddum við alls 1500 kort til klukkan að verða þrjú. Hefðum líklega náð 500 í viðbót ef vélin hefði ekki farið að eyðileggja slatta af kortum. Ákváðum frekar að hætta og ganga frá, nóg var af borðunum til að tæta eftir framleiðslu dagsins. Var komin heim um hálffjögur og um klukkustund síðar skellti ég mér í sjóinn 4,4°C sjóinn í korter.  

22.11.21

American style

Rumskaði rétt um átta og dreif mig fljótlega á fætur. Klukkan var langt gengin tíu þegar ég lagði af stað í sundið. Rútínan var svipuð og morguninn áður nema ég synti ekki á bakinu og eftir síðustu ferðina í kalda pottinn fór ég í kalda sturtu áður en ég fór upp úr. Kom við á Atlantsolíustöðinni við Sprengisand og fyllti á tankinn áður en ég fór heim. Heima leið dagurinn áfram, hratt við alls kona dútl. Um hálfsjö bauð ég strákunum út að borða. Þeir voru eitthvað að spá í að velja Pítuna eina ferðina enn. Ég var alveg sátt við það en endirinn varð svo sá að við fórum á American style.

21.11.21

Jómfrúin

Þegar ég var að keyra að heiman í sund í gærmorgun voru morgunfréttir klukkan átta að byrja í útvarpinu. Var komin ofan í kalda pottinn tuttugu mínútum yfir átta. Sat í rúmar fimm og fór þá í þann heitasta í nokkrar mínútur og svo aftur í kalda. Um tuttugu mínútum fyrir níu synti ég af stað á braut sex, 250 metra á bakinu og 150 á bringunni. Fór svo beinustu leið aftur í þann kalda. Á eftir sat ég góða stund í gufunni. Fór í kalda sturtu eftir það "bað" og beint í sjópottinn. Endaði svo á kalda pottinum í um þrjár mínútur áður en ég fór upp úr og þvoði mér um hárið. Þegar ég kom heim byrjaði ég á að setja handklæði í þvottavél og tók upp þvottinn fyrir annan soninn í leiðinni. Settist inn í stofu en um tólf hellti ég mér upp á kaffi og fann mér til hressingu. Hlustaði á hádegisfréttir en stillti svo yfir á hádegisleikinn í enska boltanum. Lauk við að lesa bókina Hælið eftir Johan Theorin. Þá á ég aðeins eftir að lesa nokkrar smásögur í skammtímalánsbókinni og bókina Nornaveiðar eftir Max Seeck. Ég gæti reyndar framlengt skilafrestinum á þeirri bók, sem er þann 28. n.k., um 30 daga. Bókin er yfir fjögurhundruðogþrjátíu blaðsíður og ég er rétt byrjuð á henni. En ef hún er spennandi fer ég örugglega létt með að klára hana fyrir næsta sunnudag. Svo er ég með tvær bækur með skilafrestinum 14. des; Svört perla eftir Lizu Marklund og Bláleiftur eftir Ann Cleeves. Það er líka hægt að framlengja skilafrestinum á þeim bókum um 30 daga ef ég verð ekki búin að lesa þær fyrir 14. desember. Horfði einnig á Manjú leikinn. En um það leyti sem aðalleikurinn var að byrja og mínir menn í Liverpool að taka á móti Arsenal þá var ég búin að klæða mig upp á og á leiðinni út. Þorði ekki annað en að slökkva á sjónvarpinu áður en leikurinn byrjaði. Tuttugu mínútum fyrir sex sótti sjósundsvinkona mín. Nafna hennar hafði pantað borð fyrir okkur fimm úr sjósundshópnum. Við hittum hana og systurnar þar. Áttum tímann milli sex og átta. Ég pantaði mér kalkúnabringu, hvítvínsglas og elpatertusneið í eftirrétt. Var að hitta systurnar og nöfnu sjósunds vinkonunnar í fyrsta skipti í nokkrar vikur. Einhvern veginn höfum við verið að fara á mis í sjósundinu. Þær fara t.d. oft á laugardögum sem ég er hætt að gera. En það var glatt á hjalla og tíminn fljótur að líða. Svo var búið að skila mér aftur heim um hálfníu. 

20.11.21

Vika í aðventu

Vorum þrjár í vinnu í gær. Ég sá um móttökuendann á vélinni. Þegar fyrsta verkefni var lokið og smá hluti af verkefni tvö lagði ég til að við færum í gjafakortaframleiðslu. Tók á móti 500 og skoðaði á meðan hinar tvær töldu fyrstu tvo vagnana. Eftir kaffi héldum við gjafakortaframleiðslunni áfram og framleiddum 2000 stk til viðbótar. Þau kort og 1000 önnur fóru frá okkur með hádegisframleiðslunni um eitt. Eftir hádegi kláruðum við verkefni tvö og héldum svo áfram með endurnýjun til klukkan þrjú. Kom heim um hálffjögur. Stoppaði rétt rúman hálftíma heima áður en ég fór í Nauthólsvík og hitti þar fyrir sjósundsvinkonu mína. Vorum 12 mínútur út í 3,3°C sjónum og svo rúmlega það í heita pottinum á eftir.

19.11.21

Föstudagur

Enn á ný er að koma helgi. Í gærmorgun var eitt af þeim skiptum sem ég svaf alveg þar til vekjarinn fór að hamast við að vekja mig. Ég slökkti á vekjaranum og fór strax á fætur. Gaf mér tíma í að vafra aðeins um á netinu og fékk mér lýsi og 3 glös af vatni áður en ég tók strætó frá Krambúðinni að Þjóðleikhúsinu. Við mættum allar fimm til vinnu í gær og vorum fimm fram að hádegi en þá hættir sú sem vinnur 70%. Ég var á ítroðsluendanum á vélinni en það kom fljótlega í ljós að fyrstu tvö verkefnin höfðu ekki skilað sér yfir og þurftum við að hringja á vin. Það leið nokkur stund áður en við mundum eftir því að við gætum verið að framleiða endurnýjun á meðan. Flokkuðum kennispjöld í rúmar tíu mínútur áður en við fórum aftur inn í framleiðsluherbergi. Framleiddum til klukkan hálftíu og þá var annað verkefni dagsins komið inn á verkefnalistann. Það verkefni sem við byrjum alltaf á var ekki tilbúið fyrr en eftir kaffi, um tíu. Ég fór inn með 17 flokkaða kassa af kennispjöldum og kom til baka með 15 óflokkaða. Flokkaði kennispjöld til hádegis. Eftir hádegi fór ég á móttökuendann á vélinni. Lukum við debet framleiðslu dagsins og héldum áfram framleiðslu á debet-endurnýjun. Smá vesen var á vélinni um þrjú leytið ég fékk samt að fara rétt fyrir hálffjögur. Tók ásinn á Hlemm og labbaði þaðan í blóðbankann við Snorrabraut. Átti bókaðan tíma kl 15:50 en ég fékk bæði mail og sms, í fyrradag, með beiðni um að panta tíma hjá þeim. Var búin að vera extra dugleg að drekka vatn yfir daginn og fékk mér eitt djúsglas áður en ég fór inn. Allar mælingar voru góðar og ég lét þá sem meðhöndlaði mig þreyfa á báðum handleggjum og velja í hvorn hún myndi stinga. Sú hægri varð fyrir valinu en þrátt fyrir að gefa sér góðan tíma þá "færðist" æðin eitthvað undan svo nálin hitti ekki. Önnur var fengin til að þreyfa á vinstri en hún treysti sér ekki til að finna og hitta á æðina þar. Svo þessi heimsókn í besta bankann var ónýt. Ég má panta tíma aftur eftir viku. Veit samt ekki hvort ég læt líða aðeins lengri tíma en það. Labbaði heim og lét frænku mína vita þegar ég var komin þangað. Hún mætti skömmu síðar og færði mér gjafir, malað kaffi í fallegri dós, smákökur í spiladós og súkkulaðihnetur, allt fyrir passið á Pixý.

18.11.21

Furðulegir draumar

Bankaði á herbergisdyr N1 sonarins ca tuttugu mínútum fyrir sjö í gærmorgun. Hafði ekki heyrt í vekjaraklukkunni hans og hélt kannski að hann væri að sofa yfir sig. Heyrðist samt á röddinni að hann væri búinn að rumska en væri ekkert að flýta sér á fætur. Miðað við það að hann fær sér ekki morgunmat áður en hann fer hafði hann víst alveg nógan tíma. Hann kom fram skömmu síðar og var farinn á undan mér að venju. Ég var mætt fyrst í vinnuna og var ein fyrstu tíu mínúturnar. Var í bókhaldinu, undirbjó pökkun því ég var ein frammi til að byrja með og flokkaði kennispjöld inn á milli hefðbundinna verkefna. Eftir að allri talningu var lokið eftir hádegi voru tvær að framleiða endurnýjun og við hinar tvær að taka nýtt plast upp úr kössum og telja. Hættum vinnu rétt rúmlega þrjú og var ég komin heim um hálffjögur. Átti von á nöfnu minni og frænku í heimsókn upp úr klukkan fjögur svo ég hellti fljótlega upp á kaffi. Hún hringdi hins vegar rétt fyrir fimm og sagðist hafa gleymt sér. Ég ætlaði að drífa mig í sund í staðinn en var á svo spennandi stað í bók sem ég var að lesa að ég gleymdi mér í lestri og kaffidrykkju. 

17.11.21

Smá rafmagnsleysi

Var mætt fyrst til vinnu en samt bara rétt á undan næstu manneskju. Vann á vélinni allan daginn því sú sem var með mér á móttökuendanum fram að kaffi þurfti að fara um hádegið. Ég fór því aftur á ítroðsluendann eftir hádegið og við framleiddum 2500 gjafakort til klukkan að ganga fjögur. Kom heim rétt fyrir fjögur. Hringdi í pabba og svo náði nafna mín og frænka, sem á hluta af kisunni sem ég var að passa um daginn, í mig í símann strax á eftir samtalið við pabba. Var komin í sund um fimm. Synti ekkert en fór þrjár ferðir í kalda og hitti svo konu í sjópottinum og sat þar á spjalli í um hálftíma. Rétt þegar ég var að skríða upp í rúm um tíu sló út hjá okkur. Við mæðginin hjálpuðums að við að slá rafmagninu inn aftur. Ég var búin að lesa í svona korter þegar rafmagnið fór alveg af hverfinu og kom ekki á aftur fyrr en einhvern tímann á tólfta tímanum.

16.11.21

Dagarnir styttast

Vaknaði nokkru áður en vekjaraklukkan átti að hringja. Slökkti á henni og var komin á fætur um hálfsjö. Notaði hluta af næsta hálftímanum í netvafr og að setja inn færslu dagsins. Var mætt fyrst í vinnuna en bara rétt á undan fyrirliðanum. Við tókum út vagnana og kveiktum á vélinni og kortateljurunum. Eftirlétum bókaranum að prenta út framleiðslublöðin. Fram að kaffi var ég að undirbúa pökkun debetkorta og flokka kennispjöld. Þegar fyrstu tölur dagsins voru tilbúnar taldi ég framleiddar tegundir með þeirri sem var í bókhaldinu. Eftir kaffi fór ég á ítroðsluendann á vélinni. Klárðuðum debetframleiðsluna fyrir ellefu og þurftum að bíða í uþb hálftíma eftir hádegisverkefninu. Flokkaði kennispjöld á meðan. Eftir hádegi fór ég í talningar aftur. Á meðan var verið að farga ónýtu plasti frá því í september og október. Um hálftvö var stuttur fundur með yfirmanni. Svo fórum við tvær inn á vél, ég og fyrirliðinn, og framleiddum 1000 gjafakort á 50 mínútum. Fengum pöntun upp á 5000 slík kort og erum því búnar með 1/5 af skammtinum. Kom heim um hálffjögur og stoppaði við í rúman hálftíma. Var komin í Nauthólsvík um hálffimm og var rétt búin að koma mér í sundbol, sundhettu, skó og vettlinga þegar sjósundsvinkona mín mætti. Beið eftir henni og við vorum svo um átta mínútur í sjónum en örugglega tæplega hálftíma í heita pottinum. Það var svo langt síðan við hittumst síðast og við höfðum um margt að spjalla. Kom heim rétt fyrir sex. 

15.11.21

Mánudagur

Þegar ég vaknaði upp úr klukkan sjö í gærmorgun kveikti ég á náttborðslampanum, tók bók og las í uþb klukkustund. Fór á fætur um hálfníu. Klukkutíma síðar skilaði ég Davíð Steini á N1 stöðina við Gagnveg. Fór svo beinustu leið í sund. Fyrst í kalda pottinn og synti svo uþb 100 metra en þá sá ég að kalda potts vinkona mín var að fara sína fyrstu ferð í kalda pottinn. Eftir fjórðu ferðina í kalda hittum við eina systur hennar sem kom með okkur í heitast pottinn og hitti okkur svo í sjópottinum eftir næstu ferð í kalda. Ég var komin heim um hálftólf. Þá kláraði ég að lesa bókina og hellti mér síðan upp á kaffi. Um eitt leytið skrapp ég í bókasafnið í Kringlunni. Skilaði 4 bókum og tók þrjár með mér heim og er þá með 6 bækur í láni. 

14.11.21

Sunnudagur

Ég var komin á fætur upp úr klukkan hálfsjö í gærmorgun, á skutlvaktinni. Hafði tíma til að vafra um á netinu og setja inn færslu dagsins. Tíu mínútum yfir sjö bankaði ég á herbergisdyrnar hjá N1 syninum og spurði hvort hann ætlaði sér ekki að vera mættur í vinnum um hálfátta. Hann kom fram skömmu síðar. Ég tók með mér sunddótið mitt og rétt rúmlega hálfátta þáði ég fyrsta kaffibolla dagsins inn í bíl til mín. Lenti í smá vandræðum með málið en það bjargaðist að mestu. Lokið smokraðist af og það sullaðist aðeins á gallabuxurnar mínar en ekki allt. Lauk við að drekka kaffið þegar ég var komin á planið við Laugardalslaugina tólf mínútum fyrir átta. Það opnar klukkan átta um helgar svo ég beið alveg róleg og hlustaði meira að segja á morgunfréttir áður en ég fór inn. Byrjaði á því að fara rúmar fimm mínútur í kalda pottinn. Synti svo 500 metra á brautum sjö og átta, aðallega á braut sjö. 250 metra á bakinu. Fór svo beint í kalda pottinn aftur. Hafði ætlað að skreppa aðeins í sjópottinn en hann var tómur og lokaður. Fór eina ferð í heitasta pottinn, þriðju ferðina í þann kalda og endaði svo í gufunni áður en ég fór og þvoði á mér hárið. Næst lá leiðin í Krónuna við Fiskislóð vestur á Granda. Vörurnar fóru í þrjá fjölnota poka og kostuðu um þrjátíu þúsund. Hluta af þessum vörum hefði ég svo sem alveg getað sleppt að kaupa en einhverra hluta vegna fer ég frekar eins sjaldan í búð og ég kemst upp með og leyfi mér að grípa smá óþarfa með þegar ég loksins fer. Spyr strákana reglulega hvort það sé eitthvað sérstak sem vantar og þeir muna aldrei eftir neinu svo ég er farin að segja við þá að ef þá vantar eitthvað sem ekki kemur úr búðinni með mér verði þeir að útvega sér það sjálfir. Kom heim upp úr ellefu og komst með vörurnar, sunddótið og handtöskuna inn í einni ferð. Gekk frá vörunum og hellti mér upp á kaffi. Fór ekkert aftur út og eyddi restina af deginum í alls konar dútl, þarft og óþarft. 

13.11.21

Mánuðurinn að verða hálfnaður

Enn og aftur var ég mætt fyrst til vinnu. Fyrirliðinn þurfti að koma við í búð. Vorum annars bara þrjár því ein er í fríi og önnur vinnur aldrei á föstudögum nema í sérstökum tilvikum, svosem sumarafleysingum. Ég var í bókhaldinu, hinar tvær að framleiða. Þegar klukkan var langt gengin í níu kom í ljós að hringja þurfti í vin vegna þess að vélin neitaði að framleiða tvær kortategundir úr fyrsta verkefni dagsins. Tæknimaðurinn kom fljótlega og það var búið að afgreiða þetta mál áður en taskan var sótt. Í kaffinu bauð fyrirliðinn upp á osta, vínber, mandarínur og smákex en hún átti afmæli í gær. Um tólf leysti ég hina samstarfskonu mína af á móttökuendanum. Hún var að fara í jarðaför. Vorum að framleiða smá slatta af gjafakortum og þeirri framleiðslu lauk rúmlega eitt. Þá skruppum við aðeins í mat en tókum okkur svo til og töldum allar tegundir í öllum vögnum eins og gert er á föstudögum. Kom heim upp úr klukkan þrjú. Var svo komin í Nauthólsvík um fjögur. Sjórinn 2,7°C en sem fyrr ætlaði ég varla að tíma að fara upp úr. Svamlaði um í korter og stoppaði svo tíu mínútur í heita pottinum. Kom við í Fiskbúð Fúsa á heimleiðinni. Hefði betur keypt saltfisk eða nætursaltaða ýsu en uppá haldið mitt er soðin ýsa og ég keypti svoleiðis. Annar sonurinn var að vinna og hinn gekk frá eftir matinn en fékk sér eitthvað allt annað að borða.

12.11.21

Föstudagur

Í gærmorgun vaknaði ég sjö mínútum áður en vekjaraklukkan átti að ýta við mér. Var að dreyma eitthvað sem ég man nú ekki hvað var nema hluti af því var vandræði með að halda lesgleraugunum heilum. Var í vandræðum með að herða skrúfu. Lausa-skrúfu vandamálið er reyndar nokkuð sem er byrjað að bera á einmitt á þeim lesgleraugum sem ég nota mest. Enn sem komið er hef ég ekki tínt skrúfunni, þótt hún hafi dottið tvisvar úr. Annars keypti ég þessi gleraugu í Tiger í sumar og þar finnast fleiri á góðu verði svo ef skrúfan tínist þá fjárfesti ég bara í öðrum gleraugum.

Enn á ný var ég mætt fyrst á vinnustað í minni deild. Það var vegna þess að fyrirliðinn kom við í bakaríi til að útvega kruðerí með "föstudagskaffinu" sem er alltaf á fimmtudagsmorgnum. Hún var semsagt í bókhaldinu í gær. Tvær voru í fríi og við hinar tvær skiptum með okkur umsjón með vélinni. Fljótlega eftir að framleiðsla hófst varð ljóst að kalla þurfti til sérfræðinga vegna ákveðinna kortategunda. Gáutm framleitt eitthvað en ekki allt. Eftir að sérfræðingarnir komu og fóru að vinna að lausnum ætluðum við að byrja á næsta verkefni, þ.e. þegar við vorum búnar að framleiða allt sem hægt var í fyrsta verkefninu. Þá var umslagavélini með vesen. Það tók um korter að koma vélinni af stað en eftir það stoppaði hún aldrei ekki einu sinni í "collet pocket jam" eins og gerist reglulega. Sú sem er í 70% og á að vera búin klukkan tólf á fimmtudögum komst ekki heim fyrr en um eitt. Á þriðja tímanum var svo loksins búið að framleiða þau kort sem ekki var hægt að framleiða um morguninn.

Kom heim um hálffjögur og stoppaði í uþb hálftíma áður en ég fór í sund. Synti reyndar ekkert því við kalda potts vinkona mín vorum mættar á svipuðum tíma. Fórum sex ferðir í kalda og ég fimm ferðir í þann heitasta, hún byrjar í honum á meðan ég byrja í kalda, enduðum svo á góðu gufubaði. Kom heim rétt fyrir sex. Davíð Steinn tók að sér að græja kvöldmatinn.

11.11.21

Fimmtudagur

Var aftur mætt fyrst til vinnu í gærmorgun. Vorum þrjár í vinnu og þar með unnum við á föstum stöðum. Bókarinn er alltaf í bókhaldinu en við sem vorum á framleiðsluvélinni "pössuðum" hvorn sinn endann á meðan á framleiðslu stóð. Ég var í móttökunni. Framleiðslu lauk rétt um tólf en þá kom líka maðurinn sem "heimsækir" vélina mánaðarlega og yfirfer. Stundum koma þeir reyndar tveir saman en í gær kom hann einn. Um eitt leyfði ég stelpunum að fara. Þegar einn er í yfirferð tekur það fjóra tíma. En um þrjú kom einn vinnufélagi minn sem kemur ef vesen er á FÍFU og SMÁRA eða þarf að uppfæra kerfin eða eitthvað. Þar með mátti ég stinga af. Var komin heim um þrjú og stoppaði þar í tæpa tvo tíma því kalda-potts vinkona mín ætlaði að hitta mig í kalda pottinum um hálfsex. Ég rétt náði að synda 200 metra en þá mætti vinkonan amk tíu mínútum (og 200 metrum) á undan áætlun. Fórum fimm ferðir í kalda, fjórar í heita og enduðum í gufubaði. Kom heim aftur stuttu fyrir sjö og græjaði kvöldmat. 

10.11.21

Miðjan á vikunni

Var mætt fyrst til vinnu í gærmorgun. Fljótlega fékk ég símhringingu frá fyrirliðanum. Án þess að fara nánar út í nein smáatriði né neitt þá var smá ástand hjá sumum vinnufélögum sem ekki komust til vinnu. Það mál var leyst. Við sem stóðum vaktina vorum að framleiða og sinna daglegum verkefnum til klukkan rúmlega eitt en fórum þó í morgunkaffi í millitíðinni. Eftir hádegishlé kláruðum við talningu og frá gangi á deildinni. Um hálfþrjú kom beiðnapóstur sem venjulega kemur um tvö. Afgreiddum hann og náðum því áður en pósturinn sótti póst dagsins. Hættum vinnu um þrjú. Ég var komin heim um hálffjögur og datt fljótlega í lestrargír svo það varð ekkert úr því að ég færi út aftur. Skrópaði því í sundi.

9.11.21

Tíminn þýtur áfram

Var vöknuð rétt upp úr klukkan sex í gærmorgun. Hafði tíma til að vafra um á netinu. Var mætt fyrst í vinnuna og eins og á föstudaginn var ég skráð í bókhaldið. Vorum þrjár á svæðinu til að byrja með en sú fjórða mætti um hálftíu. Sú fimmta er komin í frí næstu eina og hálfa vikuna. Hættum vinnu upp úr klukkan þrjú. Ég var komin í sjóinn stuttu fyrir fimm og svamlaði um í uþb korter. Kom heim aftur um rétt fyrir sex. Um hálfsjö var ég mætt í smá sjötugsafmælisboð til einnar frænku minnar sem býr í Noregi en er á landinu um þessar mundir. Það var maðurinn hennar sem átti afmæli. Málið var að hún og hann og systir hennar heimsóttu pabba á laugardaginn fyrir rúmri viku og þar gleymdi hún bláum trefli. Ég tók þennan trefil með í bæinn og var að skila honum til hennar í gærkvöldi. Færði afmælisbarninu heimaprjónað eldhúshandklæði, grænt með munstrinu snúningar. Í boðinu voru einnig systir hennar og fjölskylda, bróðir hennar og sonur og ein frænka eða vinkona. Mikið var gaman að hitta þetta frændfólk sitt. Ég stoppaði í um þrjá tíma og var alls ekki sú fyrsta til að kveðja né sú síðasta að fara.

8.11.21

Ný vinnuvika

Vaknaði rétt fyrir klukkan níu í gærmorgun. Fór á fætur og fékk mér lýsi og eitt harðsoðið egg. Lagði nokkra kapla. Pabbi kom fram stuttu seinna. Um hálfellefu hellti ég upp á kaffi. Lauk við að lesa eina bók sem var 619 blaðsíður. Það er önnur af bókunum sem ég framlengdi skilafrestinum á. Fitjaði upp á nýrri tusku. Kvaddi pabba um hálftvö og var komin heim um þrjú. Horfði á fótbolta, nokkra þætti og fjórða þáttinn af Ófærð III. 

7.11.21

Jólakortaframleiðsla á Hellu

Klukkan var byrjuð að ganga átta þegar ég vaknaði í gærmorgun. Gaf mér tíma til að vafra um á netinu áður en ég fór í sund. Var mætt í Laugardalinn upp úr hálfníu, dreif mig út úr húsi án þess að fá mér lýsi eða morgunmat. Hreinlega gleymdi því. Byrjaði á því að synda 400 metra, helminginn á bakinu. Fór tvisvar sinnum 6 mínútur í kalda pottinn sem var 7,7°C, eina ferð í heitasta pottinn og endaði á góðu gufubaði áður en ég fór uppúr og þvoði mér um hárið. Úr sundi fór ég í síðustu heimsóknina til kisu í bili. Hún var búin að ná kisunammipokanum af eldhúsborðinu og var hann fyrir innan dyrnar, enn harðlokaður þó þegar ég kom. Stoppaði hjá kisu í tæpan klukkutíma. Kom heim upp úr hálftólf. Lauk við að pakka niður. Davíð Steinn kom fram um þetta leyti og fór í sturtu. Hann spurði mig hvort ég gæti skutlað sér upp á N1 við Gagnveg. Ég gat það og þurfti að bíða í smá stund eftir honum því hann varð fyrst að skreppa niður í þvottahús og ná í þvottinn sinn og skella sér í buxur beint af snúrunni. Ég vakti Odd til þess að kveðja hann. Kom við hjá móðurbróður mínum í Álftamýrinni og lét hann hafa húslyklana af kisuheimilinu. Skyldi Davíð Stein eftir við Gagnveg, hann ætlaði sér að koma sér sjálfur þaðan og í barnaafmælisveislu í Kópavogi. Kom við í Fossheiðinni og stoppaði þar í tæpa klukkustund. Þegar ég kom á Hellu var klukkan að byrja að ganga fjögur. Ég varð að nota húslykil og hleypa sjálfri mér inn. Pabbi kom stuttu síðar úr jarðaför Skúla Lýðssonar heitins á frá Keldum. Við pabbi fengum okkur kaffi og svo tók ég út þorskhnakka flak úr frysti. Það var ekki fyrr en eftir kvöldmat og sjónvarpsfréttir sem ég  breiddi úr mér við eldhúsborðið, náði mér í hvítvín í vínglas og hófst handa við að búa til jólakort ársins. Tveimur og hálfum tíma og tveimur vínglösum síðar var kvótinn kominn, 25 kort. Aðeins á eftir að setja hvítan pappír inn í lituðu kortin svo jólakveðjurnar verði læsilegar. Fékk mér hálft vínglas í viðbót eftir að hafa gengið frá eftir mig og vafraði um á pabba neti í tæpa klukkustund áður en ég fór í rúmið að lesa. 

6.11.21

Laugardagur

Þá er ég búin að nota nýtt strætókort í eina og hálfa viku eða átta virka daga. Var mætt númer tvö af fjórum til vinnu í gærmorgun. Sú sem kom á undan mér var ekki búin að prenta út og þar sem ég var að sinna bókhaldsverkefnum í gær tók ég það að mér. Þegar ég var búin að undirbúa fyrstu talningu fór ég með 13 sorteraða kennispjaldakassa og sótti 15 aðra ósorteraða í staðinn. Erum komnar að árinu 2003. Sú sem var frammi með mér fram að kaffi kom og hjálpaði mér þegar ég var búin að tæma vagninn og langt komin með að fylla á hann aftur. Öll dagleg verkefni voru búin um hálftvö og við ákváðum að yfirgefa vinnustað tæpri klukkustund síðar og fara inn í helgina. Ég skrapp heim og gleymdi mér næstum því í tölvuvafrinu. Upp úr fjögur fór ég í sjóinn og var komin á kisuvaktina um fimm. Stoppaði hjá Pixí í tæpa klukkustund. Hún tók vel á móti mér en ég er ekki frá því að hún hefði viljað hafa mig lengur.

5.11.21

"Litla" veislan

Var mætt fyrst til vinnu um hálfátta í gærmorgun. Ekki leið þó á löngu áður en tvær bættust í hópinn og sögðust hafa hitt þá þriðju sem var að koma úr bakarínu og varð að fara þangað aftur að ná í hluta af kaffimeðlætinu sem hafði orðið eftir. Sú fimmta í hópnum var því mætt á undan henni en við vorum allar mættar áður en klukkan sló átta. Ég var á móttökuendanum á vélinni fram að kaffi og byrjaði á því að taka til og telja í þær tegundir sem voru til framleiðslu í fyrstu tveimur verkefnum dagsins. Eftir kaffi flokkaði ég kennispjöld. Vesen var á einu verkefni dagsins og það fór svo að við ákváðum að fara heim um hálffjögur þrátt fyrir að verkefnið væri ekki komið til okkar. Ég stoppaði stutt heima. Fór í kisuheimsókn um hálffimm og um sex var ég mætt til einnar samstarfskonu minnar sem býr í Kópavogi en hún var búin að bjóða kortadeildinni til sín í mat. Ég var síðust af okkur fimm. Fékk kristal í glas og ferskt jarðaber út í. og svo var boðið upp á osta, vínber, bláber, kex, sultu, jarðaber og melónu á meðan kvöldmaturinn var að græjast í ofninum. Færðum okkur úr eldhúsinu og yfir í borðstofuna um hálfsjö leytið. Boðið var upp á ofnbakað lambalæri með öllu tilheyrandi. Okkur fannst bara vera komin jólin, gular og grænar baunir, rauðkál og þær sem vildu fengu sér malt og appelsín. Ég hélt mér við kristalinn. Eftir að hafa gert matnum góð skil hjálpuðumst við að taka af borðinu og færðum okkur svo inn í stofu. Þar var boðið upp á nammerí og kaffi fljótlega. Um átta leytið færðum við okkur aftur inn í borðstofu og þar var boðið upp á rommkúlutertu og ostaköku. Fyrrum samstarfskona okkar sem vann við þrif þar til fyrir þremur árum að hún var að verða 67 hringdi í eina okkar sem setti símtalið á "speaker". Það sem við vorum glaðar að heyra í þessari manneskju og hún í okkur. Klukkan var langt gengin í níu þegar við kvöddum. Vorum samt að gantast með það að gista. Kom við hjá AO-við Sprengisand og fyllti á tankinn. Horfði svo á einn og hálfan þátt áður en ég fór upp í rúm tæpum klukkutíma seinna en ég er vön á virkum dögum. Las samt til klukkan að verða ellefu.

4.11.21

Fimmtudagsmorgun

Var búin að slökkva á vekjaranum og komin á fætur amk korteri áður en hann átti að hringja og vekja mig. Fyrsti hálftími dagsins fór í netvafr og blogg. Var komin í vinnuna um hálfátta. Sorteraði kennispjöld og aðstoðaði við fyrstu talningu fyrir kaffi. Var á móttökuendanum eftir kaffi. Daglegri framleiðslu lauk um klukkan hálfeitt. Var ekki í sorteringastuði eftir mat en dútlaði við ýmislegt annað. Hættum vinnu um þrjú. Ég stoppaði heima áður en ég fór á kisuvaktina og í sund. Kom heim aftur um hálfsjö og bjó til plokkfisk úr afgangnum frá því kvöldið áður. 

3.11.21

Stytting

Ég var mætt til vinnu um hálfátta í gærmorgun. Fyrirliði deildarinnar var þegar mætt og ég lét hana vita að ég ætlaði mér að hætta vinnu um hádegi, taka út 1/2 dag þennan mánuðinn sem styttingu vinnuvikunnar einu sinni í mánuði. Hún var sátt við það. Fram að kaffi undirbjó ég pökkun, flokkaði kennispjöld og aðstoðaði við talningu þegar fyrstu tölur voru tilbúnar. Eftir kaffi var ég númer eitt á vélinni. Daglegri framleiðslu lauk korter yfir tólf, heldur seinna en ég reiknaði með en ég var ekkert tímabundin og það koma dagar þar sem við erum að hætta og fara í fyrra fallinu svo það skiptir engu þótt ég hafi verið rúmu korteri lengur en ég ætlaði mér í vinnu í gær.

Kom heim um eitt og stoppaði þar í um klukkustund. Þá lá leiðin í Dýrabæ í Kringlunni þar sem ég keypti nýja "kattasandsveiðiskóflu" og kisunammi. Næst fór ég í Fiskbúð Fúsa og keypti m.a. ýsu í soðið. Eftir það fór ég í sund. Byrjaði á að synda 300 metra og var svo 2x5-6 mínútur í kalda pottinum, einu sinni í heitasta og endaði í gufunni. Eftir sundið fór ég í 66° Norður í Faxafeni og notaði loksins gjafakortið sem ég fékk í jólagjöf frá vinnunni í fyrra. Verslaði fyrir rétt rúmlega 31000, gjafa kortið dekkaði það allt og enn eru eftir tæp 4000 á því. Svo fór ég til kisu. Opnaði út á svalir og leyfði henni að fara út í smá stund. Íbúðin er á fimmtu hæð og ólíklegt að kötturinn taki upp á því að stökkva niður af svölunum. Hreinsaði vatnsdallinn og fyllti á hann og þurrmattardallinn. Hreinsaði kattasandinn, var með poka með mér. Gaf kisu nokkra mola af kisunammi. Hún vildi svo koma í fangið á mér þegar ég settist í sófann. Breiddi sem betur fer teppi yfir lærin á mér svo klærnar væru ekki að stingast í gegnum buxurnar.

Klukkan rúmlega sex var ég komin heim aftur. Setti upp kartöflur og snöggsauð ýsuna. Hvorugur bræðranna borðaði með mér af þessu svo það er til afgangur til að nota í plokkfisk. 

2.11.21

Afmælisdagur systur minnar

Var vöknuð rétt upp úr klukkan sex í gærmorgun. Fór strax á fætur og notaði svo hluta af tímanum til að vafra um á netinu. Notaði að sjálfsögðu strætókortið til að koma mér til vinnu með leið 13 milli Krambúðar og Þjóleikhúss. Ég var á ítroðsluendanum á vélinni fram að kaffi og að flokka kennispjöld eftir kaffi. Eftir hádegi kom yfirmaður á hálfsmánaðar reglulegan stöðufund milli háftvö og hálfþrjú. Ég fékk að fara um þrjú og hinar fóru örugglega ekki mikið seinna. Stoppaði heima í rúman hálftíma áður en ég dreif mig í með sjósundsdótið í Nauthólsvík og skellti mér í sjóinn í uþb tíu mínútur. Næst lá leiðin í heimsókn til kisu. Hleypti henni aðeins út á svalir. Þetta er inni köttur en íbúðin sem frænka mín býr í núna er á fimmtu hæð svo það er engin hætta á að kötturinn fari neitt langt. Kom heim um hálfsjö og þá var Davíð Steinn búinn að elda. 

1.11.21

Á kisuvaktinni

Svaf til klukkan að verða átta í gærmorgun. Settist svo inn í stofu með fartölvuna í fanginu og vafraði um á netinu næstu tvo tíma. Var lengi að íhuga það að skreppa í sund. Eftir "tölvutímann" færði ég mig í stofustólinn og kveikti á sjónvarpinu. Horfði á tvo þætti af "Once up on a time..." og tók það mun styttri tíma heldur en tíminn sem fór í tölvuna. Um hálftvö fór ég með sunddótið mitt út í bíl og skrapp í heimsókn til móðurbróður mín og konu hans. Sameiginleg frænka okkar, systurdóttir hans og mömmu og nafna mín, hringdi í mig á fimmtudaginn var frá Bretlandi. Mamma sambýlismanns hennar hafði veikst alvarlega og þau fóru út seinni part laugardags um síðustu helgi. Frændi minn og kona hans voru búin að vera á kisuvaktinni í viku og ég bauðst til þess að taka við og var að sækja húslykla til þeirra. Stoppaði hjá þeim í rúman klukkutíma. Frá þeim fór ég beint í heimsókn til kisu, sem þekkti mig, og tók mér mjög vel. Elti mig um alla íbúð og þegar ég settist í stofusófann kom hún sjálfviljug aftur og aftur í fangið á mér. Ég varð samt að færa hana af mér því hún vildi endilega vera að "teygja" úr klónum og lærin á mér þoldu það ekki. Hjá kisu stoppaði ég í um klukkustund. Svo fór ég aftur heim án þess að nota sunddótið, tók það bara inn úr bílnum aftur.