29.10.26

Fimmtudagskvöld

Þegar ég kom heim eftir vinnu, osteostrong og bókasafnsferð í gær stakk ég bílnum í samband í tæpa tvo tíma, eða þar til tvíburahálfsystir mín lét mig vita að hún væri komin heim. Þá tók ég prjónadótið með og fór á bílnum yfir til hennar. Heimsóknartilefnið var líka að fá lánaða regnkápu til að taka með í ferðina til Lissabon fyrstu helgina í næsta mánuði. Sömu regnkápu fékk ég lánaða þegar ég fór með RB í helgarferð til Kaupmannahafnar í mars fyrir rúmum þremur árum. Stoppaði við í um einn og hálfan tíma og prjónaði smávegis en var meira að spjall við mæðgurnar, tvíburahálfsystur mína og dóttluna hennar.

Í morgun var ég mætt á braut 6 tuttugu mínútum fyrir sjö og synti 500 m á rétt tæpum tuttugu mínútum. Stimplaði mig inn í vinnu tuttugu mínútum fyrir átta. Í heildina voru bókaðar inn þrjátíuogfjórar skoðanir en þrír af bílunum voru bókaðir í aðalskoðun og breytingaskoðun, ýmist að breytast í eða úr leigubíl. Stimplaði mig út á slaginu hálffimm og fór beinustu leið heim. Upp úr klukkan hálfsex klæddi ég mig upp og var mætt á fund um sex leytið, tæpum klukkutíma áður en fundur hófst. Kom heim korter fyrir tíu og er að vinna í því að fara í háttinn.

28.10.26

Sundsprettur fyrir vinnu, osteostrong og bókasafn eftir vinnu

Var alveg tilbúin að vakna þegar vekjarinn ýtti við mér tíu mínútum fyrir klukkan sex. Fimmtíu mínútum síðar var ég komin á braut 7 og færði mig svo á braut 6 þegar ég var uþb hálfnuð með fimmhundruð metrana. Stimplaði mig inn í vinnu tuttugu mínútum fyrir átta. Ásgeir, skoðunarmaður mætti fimm mínútum síðar og stöðvarstjórinn mætti um átta leytið. Inn á milli var rólegt en það komu skorpur af alls kyns verkefnum og í heildina voru bókaðir inn yfir fjörutíu bílar í skoðun í dag. Sumir með bókaða tíma í noona en flestir komu inn af götunni. Stimplaði mig út á slaginu hálffimm og fór beinustu leið í Hátúnið. Þurfti ekki að bíða nema í fimm mínútur eftir að komast að. Eftir tímann lá leiðin í bókasafnið í Kringlunni. Í gærkvöldi kláraði ég næstsíðustu bókina sem ég var með í láni og byrjaði á þeirri síðustu og einhvern veginn fannst mér það góð hugmynd að skila inn fimm bókum af sex. Freistaðist svo auðvitað til að taka sex bækur með mér heim og tvær af þeim bókum eru nýjar og með tveggja vikna skilafrest; Birkilundur ÍBÚÐIR FYRIR 60+ eftir Margréti Sigríði Sölvadóttur og Hefnd Þórdísar eftir Öddu Sigurjóns. Hinar fjórar bækurnar eru Einfaldlega Emma og Birta, ljós og skuggar eftir Unni Lilju Aradóttur, Eyja eftir Ragnhildi Þrastardóttur og ALDREI ALDREI eftir Collen Hoover og Tarryn Fisher. Þetta verður smá áskorun og kostar eitthvað skipulag. Vonandi verður þetta til þess að ég dragi aðeins niður í imba/þátta glápinu því ég þarf að sinna fleiru en þessu og vinnunni. Kemur í ljós.

27.10.26

Sjóbusl eftir vinnu

Vekjarinn var stilltur á tuttugu mínútur fyrir sjö. Vaknaði einu sinni um miðja nótt til þess að fara á pisseríið. Sofnaði ekki alveg strax aftur en svaf svo alveg þar til vekjarinn ýtti við mér. Var mætt í vinnu um hálfátta og náði að gera eitt og annað í snurfusi og undirbúningi opnunnar á tæpum hálftíma. Fyrsta hálftímann eftir opnun var nokkur erill og svo róaðist allt og okkur fannst allt stefna í að þetta yrði lélegasti skoðunardagurinn í mánuðinum. En það rættist úr og skoðaðir voru amk fimm fleiri bílar en þann 12 okt sl þegar skoðaðir voru tuttuguogþrír bílar yfir daginn. Kalda pott vinkona mín mætti til mín tíu mínútum fyrir lokun og hún fékk far með mér í sjóinn og eftir ágætis busl tíma skutlaði ég henni heim til sín. Ákvað að gera eins og sl þriðjudag og kom við á Preppbarnum á leiðinni heim og fékk mér litla öskju af sinnepskjúkling á þriðjudagstilboði, 1990 kr. Kom heim um hálfsjö leytið. 

26.10.26

Síðustu dagarnir í október

Næst komandi sunnudag byrjar nýr mánuður, sá næstsíðasti á þessu ári. Tíminn er svo sannarlega ekki að láta bíða eftir sér. Í morgun vaknaði ég einni mínútu áður en vekjarinn átti að ýta við mér. Var mætt á braut 6 í Laugardalslaug tuttugu og tveimur mínútum fyrir sjö og var búin að synda 500 þremur mínútum fyrir sjö. Sat í steinapottinum, að spjall við tvo fastakúnna, í um tuttugu mínútur. Klukkuna vantaði korter í átta þegar ég mætti í vinnu og var Ásgeir alveg ný mættur. Það var ekki alveg eins mikill erill í skoðunum og á föstudaginn var en þó fóru skoðanirnar yfir þrjátíu í heildina. Stimplaði mig út á slaginu hálffimm og var komin vestur í bæ til norsku esperanto vinkonu minnar áður en klukkan varð fimm. Stoppaði hjá henni í uþb klukkustund og við lásum m.a. 4 sögur af sr. Eiríki á Vogsósum, bæði á esperanto og á íslensku. Kom heim fyrir klukkan hálfsjö. Hafði soðna ýsu í matinn. Sauð einnig niðurskorna gulrót og eina sæta kartöflu skorna í bita. Það er nægur afgangur til að búa til plokkfisk í vikunni og þá mun ég líklega skera niður lauk og mýkja áður en ég bæti honum saman við. 

25.10.26

Sunnudagskvöld

Föstudagurinn var óvanalega erilsamur í vinnunni. Ég mætti beint úr sundi, aðeins seinna en oftasta, á sama tíma og annar skoðunarmaðurinn. Stöðvarstjórinn mætti á slaginu átta og það voru þá þegar komnir að tveir kúnnar og svo átti einn bókaðan tíma klukkan átta sem kom tíu mínútum yfir. Milli átta og fjögur voru skoðaðir næstum því fimmtíu bílar. En við gátum hætt og lokað á slaginu fjögur. Ég kom við í Krónunni í Lindum á leiðinni heim, lagði bílnum á efraplanið og labbaði stigaganginn tvær hæðir með sunddótið og þrjá poka. Það var eiginlega af því að lyftan var nýfarin upp og ég nennti ekki að bíða eftir henni. Oddur var á leiðinni í bæinn en ætlaði að gera eitt og annað með bróður sínum áður en hann kæmi í næturgistingu til mín. Hann var ekki kominn um tíu um kvöldið þegar ég fór í háttinn, svo ég læsti ekki dyrunum inn í íbúð. Vissi að Davíð Steinn gæti opnað fyrir hann niðri.

Kom á fætur um hálfníu á laugardeginum og Oddur vakanði skömmu síðar. Ég varð ekkert vör við það þegar hann kom öðru hvor meginn við miðnætti. Fresta þurfti hittingi í spilahóp sem þeir bræður eru í. Í staðinn fékk ég Odd til að koma með mér í smá bíltúr. Leyfði honum að keyra og markmiðið var eiginlega bara að fara og renna bílnum í gegnum þvottastöð. Keyrðum svo smá krókaleiðir til baka aftur. Var með saltfisk og kartöflur í kvöldmatinn.

Í morgun fór ég á fætur rúmlega níu. Þá var Oddur þegar vaknaður. Morguninn fór í prjón, spjall, og ýmislegt fleira. Um tvö sóttum við Davíð Stein og keyrðum hann upp í Engjahverfi í Grafarvogi til að sækja bílinn sinn. Hann var á einhverju staffaskralli í gær og fékk far heim eftir þá skrall. Oddur keyrði Púmuna og fékk svo að skutla sér í Mosó í heimsókn til pabba síns og fjölskyldu hans. Ég var að spá í að heimsækja fólk sem passaði mig og systur mína sumarið sem ég var sex ára. Það fólk býr í Mosfellsbænum. Það svaraði ekki hjá þeim heimasíminn en nokkru eftir að ég kom heim var hringt til baka. Þau voru heima en bæði lögst í slæma pest.

22.10.26

Alveg að koma aftur helgi

Vaknði um hálfsex. Klukkutíma síðar var ég komin á planið við Laugardalslaug. Synti 500m ár braut 5 og staldraði svo við í steinapottinum tæpt korter. Bíllinn var kominn niður í 27% hleðslu og farinn að láta vita að það gæti verið sniðugt að hlaða hann. Ég ákvað samt að lifa "hættulega" og mætti í vinnu rétt rúmlega hálfátta. Okkar stöð átti vinninginn í skoðuðum bílum í dag, þrjátíu og sjö alls. Eftir vinnu lagði ég leið mína í Fiskbúð Fúsa. Hringdi í pabba og spjallaði við hann á meðan ég var á leiðinni þangað. Ákvað að hringja í tvíburahálfsystur mína eftir að ég væri búin að reka erindi mitt í fiskbúðinni. Reyndar hringdi hún, tvíburahálfsystir mín, í mig þegar var í kúnnaröðinni. Ég svaraði en við stöllur sammæltumst um að í myndi hringja í hana þegar ég væri búin að versla mér harðfisk og alls konar í soðið. Ó, já, ég hamstraði aðeins í búðinni, keypti ýsu, saltfisk, fiskibollur, kartöflur og tvær tegundir af harðfisk, óbarða ýsu og lúðu. Hringdi svo til baka í Sonju. Hún átti við mig erindi sem ég tók vel í og varð hún því á undan mér að Núpalindinni. Ég fékk stæði á hleðslustaur, bíllinn var ekki kominn niður fyrir 20%. Um leið og ég hef lokið pistlinum og gengið frá fartölvunni ætla ég út, stoppa hleðsluna, taka úr sambandi og færa bílinn á annað stæði. Hann verður þá komin í eitthvað á milli 84-90%. Sonja færði mér annars baststól sem passar ágætlega á svalirnar hjá mér. Svo fengum við okkur te og þarafrækex með sykurlausri bláberjasultu og spjölluðum um eitt og annað. Hún kvaddi upp úr klukkan sex.

21.10.26

Bleiki dagurinn í dag

Vekjarinn ýtti við mér tíu mínútum fyrir klukkan sex. Var smá stund að átta mig á hvað væri eiginlega að gerast því mig var að dreyma eitthvað. Kveikti á hitanum í bílnum fimm mínútum áður en ég fór út. Varð samt að skafa af ljósum. Mætti í sundið uþb fimm mínútum eftir opnun. Synti 400m á korteri á braut 8 og sat svo annað korter í steina pottinum að spjalla við nokkra fastagesti. Stimplaði mig inn í vinnu korter fyrir átta. Þótt það sé að róast í skoðunum voru skoðaði þrjátíuogeinn bíll í dag. Stimplaði mig út á slaginu hálffimm og fór beinustu leið í Hátúnið í Osteostron. Þar var óvanalega margt um manninn og góð mæting og þótt þeir væru tveir að leiðbeina þurfti ég að bíða í hálftíma. Það var í góðu lagi, mætti korteri fyrir "fasta" tímann minn og hann var aðeins korteri seinna, þ.e. korter yfir fimm. Stóð mig þokkalega í öllum æfingum og slakaði svo vel á á eftir að ég var næstum sofnuð. Var komin heim rétt fyrir klukkan sex. 

20.10.26

Sjórinn 5,5°C

Í gærmorgun dreif ég mig í sund fyrir vinnu þrátt fyrir að svefnin hafi verið svolítið köflóttur. Synti 500m og staldraði svo aðeins við í steina pottinum áður en ég fór upp úr og í vinnuna. Vorum tvö en það var nokkuð rólegt, aðeins tuttuguogsex bílar skoðaðir í heildina. Fór beint heim eftir vinnu og var frekar ánægð með sjálfa mig að halda mér vakandi til klukkan að ganga tíu. Ég var alveg örugglega sofnuð upp úr klukkan hálftíu og svaf nánast í einum dúr þar til vekjaraklukkan ýtti við mér korter fyrir sjö í morgun. Mætti í vinnu upp úr klukkan hálfátta. Vorum þrjú í dag, aðeins fleiri bílar skoðaðir heldur en í gær en mjög rólegt inn á milli. Hitti kalda potts vinkonu mína á planinu við Nauthólsvík um fimm. Fórum tvær ferðir í sjóinn, eina í lónið, tvær ferðir í gufuna og eina í pottinn. Á heimleiðinni kom ég við á Prepp-Barnum við Suðurlandsbraut 10 og tók litla öskju af sinneps-kjúklingablöndu með mér heim. 

18.10.26

Pabbi 92 ára í dag

Suma daga hef ég frá frekar litlu að segja og aðra daga ákveð ég að sleppa því að taka fram tölvuna eða þá að það er svo mikill erill í kringum mig að ég finn ekki hentungan tíma til að setjast niður og punkta eða skrá niður það sem er að gerast. Á fimmtudaginn var mætti ég í sund um leið og opnaði og í vinnu upp úr klukkan hálfátta. Það er heldur farið að róast í skoðunum en þó koma skorpur inn á milli. Í dagslok vék ég frá þeirri reglu minni að bíða eftir klukkunni og stimplaði mig út þremur mínútum áður en klukkan varð hálffimm. Fór beinustu leið heim, skipti um föt, tók til það sem var mitt framlag í kaffinu eftir fund og fór svo beint upp á Kirkjustétt til að undirbúa. Það eru alltaf tveir sem eru í þessu hlutverki og það er skipst á. Það má samt alltaf bjóða fram aðstoð og við þáðum þá aðstoð sem okkur bauðst bæði í undirbúningnum og í fráganginum á eftir.

Á föstudagsmorguninn var ég mætt í sund um leið og opnaði og í vinnu á svipuðum tíma og morguninn áður. Skömmu á eftir mér mætti nýrri skoðunarmaðurinn. Við tvö sáum alfarið um stöðina því stöðvarstjórinn tók sér langa helgi. Hann kíkti þó við einhvern tímann eftir hádegið en það var aðallega til að "skoða" bíl sem hann var kannski að spá í að kaupa. Vorum að ganga frá stuttu fyrir fjögur þegar kom að kona austan undan fjöllunum með bíl í skoðun ca þremur mínútum fyrir fjögur. Við ákváðum að opna kerfin aftur, skrá bílinn inn og hann að skoða. Samt var ég mætt í klippingu tíu mínútum áður en tíminn var. Nema sá sem átti tímann á undan mér var seinn fyrir og mætti rétt á eftir mér svo ég settist ekki í stólinn fyrr en korter fyrir fimm. En það var í góðu lagi því ég ákvað að þyggja kaffi og taka því aðeins rólegra. Þegar ég kom heim ákvað ég að nýta laust pláss á hleðslustaurnum. Hlóð bílinn upp í 100% á tæpum fimm tímum.

Í gærmorgun var ég komin á fætur upp úr klukkan átta. Notaði morguninn í alls konar meðal annars verkefni sem ekki skal skrifa um. Um hádegisbilið lagði ég af stað austur. Hringdi í strákana mína og spjallaði við þá hluta af leiðinni, fyrst Davíð Stein sem svaraði ekki en þá Odd og um það leyti sem við vorum að hætta að tala saman hringdi Davíð Steinn til baka. 23 m á sek mældust kviðurnar í Þrengslunum, rok og rigning. Hringdi í Huldu þegar ég var komin yfir fjallið og fékk það staðfest að teppið er búið að skila sér. Rétt austan við Selfoss tók í puttaferðaling upp, íslenskan tæplega 15 ára pilt sem var með gítar meðferðis. Hann reyndist vera á leiðinni á Hellu þar sem hann hefur búið með fjölskyldu sinni sl. 4 ár. Hann er alíslenskur en fæddist og ólst upp í Austurríki fyrstu tæpu tíu ár ævi sinnar. Það var mjög gaman að spjalla við þennan pilt, kurteis, opinn og áhugasamur. Skutlaði honum heim að dyrum upp í hæð og komst svo að því seinna um daginn að föðuramma hans og ég erum þremenningar. Ég var komin í Hólavanginn um hálftvö. Pabbi, Bríet og Itsell voru öll heima. Hálftíma eftir að ég mætti komu Jóna Mæja og Reynir. Þau voru að koma úr bústaðnum og ákváðu að kíkja við á pabba, daginn fyrir afmælið. Hann skellti í vöfflur og það vildi svo til að ég var með mér ostaköku, osta, frækex og vínber. Bríet spurði reyndar hvort hún mætti ekki bjóða fram vínber sem hún átti til, sem var í góðu lagi. Átttum mjög góða stund, öll sex, við kaffiborðið. Jóna og Bríet voru duglegar að þýða bæði fyrir Itsell og pabba. Itsell skilur orðið helling í íslensku en það er kannski erfiðara þegar talað er of hratt.

Bríet fann upphlutinn minn í gær og mátaði hann, skildi ekkert í sér afhverju hún vildi ekki að mamma hennar klæddist honum í fermingaveislunni á sínum tíma og langar helst að fá að klæðast honum þegar bumbulína verður skírð. Ég eldaði fisk í kvöldmatinn og Bríet gerði mjög gott sallat með.

14.10.26

Miðvika og mánuðurinn að verða hálfnaður

Svefninn var það köflóttur í nótt að ég ákvað að sleppa morgunsundinu og kúra frekar lengur. Var þó mætt í vinnu um hálfátta. Morguinn var frekar rólegur á köflum en það var meira að gera eftir hádegi og í heildina voru skoðaðir þrjátíuogsjöbílar. Ég fór í osteostrong beint eftir vinnu og svo beinustu leið heim. Annars frekar lítið að frétta en eru ekki engar fréttir yfirleitt góðar fréttir?

13.10.26

Sjósundsdagur

Vekjarinn var stilltur á 6:45 en ég var vöknuð fyrir klukkan hálfsex. Var komin í vinnu um hálfátta, mistókst samt að stimpla mig inn, kláraði ekki seinna skrefið fyrr en rétt fyrir átta. Þá var ég búin að hella upp á, snurfusa afgreiðslurýmið og opna helstu afgreiðslukerfi. Vorum annars öll þrjú mætt í dag. Aðeins voru bókaði tveir bílar í skoðun en í heildina voru skoðaðir þrjátíuogsjö bílar og vorum við í þriðja sæti af frumherjastöðvunum. Eftir vinnu fór ég beinustu leið í Nauthólsvík. Hitti kaldapotts vinkonu mína á planinu. Við fórum tvivar í 7,2°C sjóinn, tvivar í gufu, einu sinni í lónið og einu sinni saman í pottinn en hún fór tvær. Þegar ég var komin upp úr og var að labba að bílnum sá ég að ég hafði misst af tveimur símtölum og þau voru bæði frá vinkonum sem hringja afar sjaldan í mig. Ég hringdi til baka í báðar, spjallaði við aðra á leiðinni úr Nauthólsvík að Hagkaup í Skeifunni og hina þegar ég var á leiðinni heim. Spjallaði í góða stund eftir að ég var búin að leggja á neðra planinu. Þegar samtalið var búið var farið að rigna og ég ákvað að færa bílinn upp á efra plan enda með tvo auka poka, ekki þunga þó, meðferðis. Steingleymdi alveg að ég ætlaði að horfa á seinni hálfleikinn í landsleiknum í knattspyrnu kvenna. Hann fór fimm núll fyrir stelpunum okkar, samtals 9-0 ef fyrri leikurinn er talinn með.

12.10.26

Ný vinnuvika hafin

Rumskaði um fimm leytið í morgun, aðeins of snemma. Ekki virkaði að kúra sig niður aftur svo ég var komin á fætur um hálfsex og í sund klukkutíma eftir það. Stimplaði mig inn í vinnu tuttugu mínútum fyrir átta. Hellti upp á og undirbjó nokkurra daga uppgjör í að vera lagt inn í bankann. Stöðvarstjórinn mætti rétt fyrir átta og lagði bílnum sínum á hina brautina þar sem hinn skoðunarmaðurinn var forfallaður. Stöðvarstjórinn merkti hádegis-lokun í noona kerfinu, milli tólf og hálfeitt. Hann fór í Bónus í hádeginu en ég skrapp og póstlagði barnateppið til Huldu. Í heildina voru annars skoðaðir tuttuguogþrír bílar en það var svolítið um annars konar eril inn á milli. Stimplaði mig út á slaginu hálffimm og fór beinustu leið vestur í bæ til norsku esperanto vinkonu minnar. Lásum nokkrar sögur af sr. Eiríki í Vogsósum, bæði á esperanto og á íslensku úr fyrsta bindi af Þjóðsögum Jóns Árnasonar. Stoppið hjá Inger varði í um klukkustund. Á heimleiðinni kom ég við í Krónunni í Lindum.

11.10.26

Sunnudagskvöld

Föstudagurinn var nokkuð hefðbundinn. Fór í sund um hálfsjö og var mætt í vinnu rúmum klukkutíma síðar. Fyrsti bíll var bókaður strax klukkan átta. Morgun var þó frekar rólegur og þar sem enginn bíll var bókaður í hádeginu ákváðum við að loka. Meira var að gera milli hálfeitt og fjögur. Skoðaðir bílar fóru eitthvað yfir þrjátíu. Eftir vinnu fór ég beint heim og stakk bílnum í samband og hlóð hann upp í 100%.

Í gærmorgun var ég komin á fætur milli klukkan átta og níu, vöknuð aðeins fyrr þó. Morguninn fór í alls konar dútl. Um hádegið lagði ég af stað austur og var komin á Hellu til pabba stuttu fyrir klukkan tvö. Hann var einn heima. Bríet var í bænum, á landbúnaðarsýningunni, þar sem hún fékk fyrstu verðlaun í sælkeraflokki fyrir grafin hjörtu. Frétti þetta í gegnum Davíð Stein. Pabbi ákvað að skella í vöfflur og ég ákvað að með þeim yrði ég að fá kaffi og hellti upp á 2-3 bolla. Mæli með vöfflum með rabbabarasultu ala pabbi og hreinu skyri. Kvaddi pabba upp úr klukkan fimm og var komin heim um hálfsjö. Setti bílinn aftur í samband og hlóð hann upp í næstum 99%. Var að taka hann úr hleðslu upp úr klukkan ellefu.

Í morgun svaf ég til klukkan verða níu. Fór lítið út nema í klukkutíma göngu milli tvö og þrjú. Annars var ég m.a. að prjóna eitthvað sem ég fitjaði upp á í gær og á að verða að trefli.

8.10.26

Árlegt tanneftirlit í dag

Í gærmorgun vaknaði ég fyrir allar aldir, löngu á undan vekjaranum. Held að klukkan hafi ekki verið orðin fimm. Sofnaði ekki aftur en kláraði að lesa eina bók sem ég var langt komin með. Var komin á planið við Laugardalslaug rétt um það leyti sem opnaði og á braut 5 tíu mínútum síðar. Vinnudagurinn byrjaði nokkuð rólega en eins og stundum áður var meiri erill eftir hádegi og í heildina voru skoðaðir hátt í fjörutíu bílar. Stimplaði mig út rétt rúmlega hálffimm og fór beint í osteostrong tíma. Var komin heim korter fyrir sex en fór reyndar ekki beint inn þar sem ég var að spjalla við eina fyrrum samstarfskonu mína. Eftir að ég kom inn fór ég ekki út aftur. Fór snemma í háttinn eða upp úr klukkan níu, las samt í nokkrar mínútur en ég er viss um að ég var sofnuð löngu fyrir klukkan tíu.

Ég svaf í einum dúr til klukkan að verða hálfsex. Rúmri klukkustund síðar var ég komin á braut 7. Gleymdi mér svo næstum því í steinapottinum því ég var að spjalla við þrjá aðra fastagesti. Stimplaði mig inn tuttugu mínútum fyrir átta og var bara örfáum mínútum á undan nýrri skoðunarmanninum. Núna er hægt að bóka tíma í skoðun, 3 bíla á klst. milli klukkan átta og hálffimm en þar sem enginn var bókaður akkúrat í hádeginu og stöðvarstjórinn skrapp heim til sín í mat sagði hann að við mættum læsa milli tólf og hálfeitt ef við vildum. Ég fékk svo að skreppa frá í tæpa klukkustund til að fara í árlegt tanneftirlit. Borgaði rúmlega þrjátíuþúsund fyrir tvær myndir, tannsteinshreinsun, skoðun og tuttugu mínútur í stólnum. Var mætt í vinnu aftur tuttugu mínútum fyrir fjögur. Í heildina voru skoðaðir þrjátíuogfjórir bílar í dag. Stimplaði mig út á slaginu hálffimm og fór beinustu leið heim. 

6.10.26

Tvíburahálfsysturhittingur í kvöld

Vekjarinn var stilltur á korter í sjö í morgun. Ég rumskaði aðeins um hálfsex en sofnaði strax aftur og svaf í klukkustund í viðbót. Setti hitakerfi bílsins í gang fimm mínútum áður en ég fór út en þurfti samt að skafa aðeins af fram- og afturljósum og einnig móðu af hliðarrúðum. Mætti í vinnu rétt rúmlega hálfátta. Tveir komu í skoðun upp úr klukkan átta en svo virtist dagurinn ætla að verða nokkuð rólegur. Man ekki hvað innan við tuttugu bílar voru skoðaðir fyrir hádegi. Erillinn jókst eftir hádegi og í heildina voru skoðaðir þrjátíuogsjö bílar í dag. Stimplaði mig út á slaginu hálffimm og lagði af stað beinustu leið í Nauthólsvík. Var um tuttugu mínútur á leiðinni. Maulaði kalda lifrapyslusneið og smá harðfisk á leiðinni en hringdi líka og spjallaði við pabba. Kaldapotts vinkona mín var mætt rétt á undan mér og gat þó aðeins setið um stund í heita pottinum áður en ég kom út, tilbúin að fara beinustu leið í sjóinn. Vorum frekar stutt út í fyrri ferðina í 7,4°C sjónum. En eftir rúmar tíu mínútur í gufunni fórum við aftur beint í sjóinn, hún í nokkrar mínútur en ég synti út að kaðli og kom einnig við í lóninu áður en ég hitti hana aftur í heitapottinum. Kom heim um hálfsjö. Stoppaði við í rúmlega einn og hálfan tíma en fór svo yfir til tvíburahálfsystur minnar. Ég var hjá henni seinni partinn á sunnudaginn var og þá tók hún að sér að þvo, teygja og leggja til barnateppið og í kvöld var ég að sækja það til hennar. Vá, hvað teppið er orðið enn fallegra. Og nú á ég bara eftir að senda það norður til systurdóttur minnar. Stoppaði hjá Sonju til klukkan langt gengin í tíu. Alltaf höfum við um nóg að spjalla og ef líkamsklukkan mín væri ekki orðin svona innstillt á að "komasérírúmið um og helst fyrir tíu" á virkum dögum þá hefði ég líklega stoppað mun lengur.

5.10.26

Tíminn æðir áfram

Fyrri parturinn af laugardeginum fór í alls konar "dúllerí", bæði þarft og óþarft. Stuttu fyrir klukkan þrjú var ég búin að pakka niður í tösku. Fyrst lá leiðin á einn stað í Hafnarfirði. Þar býr einn fyrrum kórfélagi minn, flutti þangað fyrr á árinu, og hann var búinn að bjóða okkur "gamla genginu" í heimsókn. Mættum fimm til hans. Ég stoppaði í tæpan einn og hálfan tíma áður en ég hélt för minni áfram. Leiðin lá út úr bænum, yfir Þrengslin og á "Hótel Svörtu Sanda", nýr staður rétt við Hafið Bláa og Óseyrarbrú. Var komin upp úr klukkan fimm, bókaði mig inn, skipti um föt á hótelherberginu og fór svo aftur fram í lobbý þar sem vinnufélagar og maka voru að safnast saman. Um hálfsjö var farið yfir á Hafið Bláa. Þangað kom svo bíll frá Grillvagninum sem sá um matinn fyrir árshátíðina. Um hálftólf var farið aftur yfir á hótelið. Hópurinn var aðeins farinn að þynnast. Ég ákvað að draga mig í hlé en ég veit að einhverjir héldu lengur út, eitthvað fram í nóttina.

Á sunnudagsmorgninum fór ég í sturtu upp úr klukkan átta og var mætt í morgunmat um níu. Bókaði mig út af hótelinu um tíu leytið. Um klukkutíma síðar var ég búin að hlaða bílinn upp í 90% á olísstöðinni vestan við Ölfusá á Selfossi. Frændfólk mitt í Löngumýrinni átti von á mér í heimsókn og ég stoppaði hjá þeim í næstum tvo tíma áður en ég dreif mig í bæinn. Renndi bílnum í gegnum þvottastöðina Löður uppi á Hálsum áður en ég fór heim.

Í morgun var ég vöknuð korteri áður en vekjarinn átti að ýta við mér. Bjó mér til hafragraut og var mætt í sund um það leyti sem opnaði. Stimplaði mig inn í vinnu upp úr klukkan hálfátta. Stöðvarstjórinn mætti rétt fyrir átta. Erillinn byrjaði strax klukkan átta. Hinn skoðunarmaðurinn þurfti að sinna tveimur erindinum áður en hann mætti í vinnuna um níu leytið. Í heildina voru skoðaðir fjörutíu og þrír bílar í dag og vorum við fyrst af Frumherja stöðunum að fara yfir fjörutíu skoðaða bíla. Held samt að Akureyri hafi náð að jafna okkur. Stimplaði mig út á slaginu hálffimm og fór beinustu leið vestur í bæ í esperanto hitting til norsku vinkonu minnar. Klukkan var orðin hálfsjö þegar ég kom heim. Var því að heiman í rúma tólf tíma. 

2.10.26

Október er hafinn

Gærdagurinn var í lengri kantinum. Var vöknuð áður en vekjarinn átti að ýta við mér og mætt í sund klukkan hálfsjö. Þar hitti ég kaldapotts vinkonu mína, í steinapottinum, þegar ég var búin að synda. Aðeins rólegra var í vinnunni en þó skoðaðir hátt í fjörutíu bílar og einhvað um önnur afgreiðsluverkefni. Stimplaði mig út á slaginu hálffimm og fór beint heim. Stoppaði þó ekki heimavið nema í uþb klukkustund. Var mætt upp á Kirkjuteig upp úr klukkan sex og ekki komin heim aftur fyrr en um hálfellefu. Þá háttaði ég mig beint upp í rúm en að sjálfsögðu þurfti ég að grípa aðeins í bók. Er ekki viss hvað ég las lengi en ég var nú örugglega alveg sofnuð fyrir miðnætti.

Það kom mér verulega á óvart að ég vaknaði amk tíu mínútum áður en vekjarinn átti að hringja. Dreif mig á fætur og var mætt á planið við Laugardalslaug áður en klukkan var orðin hálfsjö. Vinnudagurinn var svipaður og í gær, nema hálftíma styttri því við hættum alltaf klukkan fjögur á föstudögum. Ég fór á bókasafnið í Kringlunni eftir vinnu og skilaði nokkrum bókum, þrjár bækur voru eftir heima og ég tók með mér þrjár bækur; Sara og Dagný og ég eftir Ísak Regal, Snjór í paradís eftir Ólaf Jóhann Ólafsson og Irpa eftir Hildi Knútsdóttur. Allt bækur með 30 daga skilafresti. Á leiðinni á safnið tók ég aðeins stöðuna á pabba en það helltist í hann kvef fyrr í vikunni. Hann fór ekki í sund í gær og í dag en segist vera að jafna sig og stefnir á að mæta í sund eftir helgi. Af safninu lá leiðin í N1 í Borgartúni og meðan ég var á leiðinni þangað hringdi ég í Odd og spjallaði við hann. Davíð Steinn var fáanlegur til að vinna fyrir mig smá viðvik. Hann skutlaði bílnum sínum heim til sín eftir vinnu, sótti verkfæratöskuna sína og varð samferða mér heim til mín til að merkja fyrir mig póstkassann minn. Ég var búin að skrifa nafnið mitt í wordskjal í vinnunni minn fyrir nokkrum dögum, prenta út og klippa niður  passlega stóran miða. Það þurfti lítið stjörnuskrúfjárn til að losa og fjarlægja hinn miðann undan smá plast eða glerplötu, setja miðann minn í staðinn og festa aftur. Handskrifaði miðinn sem var límdur á boxið í nóvember var fjarlægður. Eftir þetta viðvik skutlaði ég syninum í Krónuna í Lindum. Þegar hann var búinn að versla bauð ég honum að borða með mér á Saffran áður en ég skutlaði honum heim. Ég var komin heim stuttu fyrir klukkan átta. Tengdi þá bílinn við hleðslustaur og er að hugsa um að hafa hann þar til klukkan ellefu. Verð því að halda mér vakandi aðeins lengur í kvöld. 

 

30.9.26

September alveg að klárast og sjónvarpið 60 ára í dag

Ég var vöknuð upp úr klukkan fimm og fór á fætur um hálfsex. Hafði því tíma til að lesa smávegis líkt og í gærmorgun. Var mætt á braut 6 í Laugardalslauginni tuttugu mínútum fyrir sjö og stimplaði mig inn í vinnu rétt rúmlega hálfátta. Stöðvarstjórinn var ekki mættur þegar ég þurfti að skreppa frá rétt rúmlega átta, átti tíma hjá augnlækni. Varð að skilja þann nýja eftir í djúpu lauginni við bæði að afgreiða og skoða. Átti samt ekki von á öðru en að hann yrði ekki lengi einn. Ég labbaði yfir í Sjónlag og var mætt þremur mínútum fyrir tímann. Var þó ekki kölluð alveg strax inn en þegar kallið kom þá var það ekki augnlæknirinn sjálfur heldur önnur kona sem gerði ýmsar mælinga, spurði mig út úr, "blés" í augun og setti í þau dropa. Síðan sagði hún mér að setjast aftur á biðstofuna. Tíu mínútum seinna var ég sótt í myndatöku. Það var ekki fyrr en smástund eftir að myndatöku lauk að augnlæknirinn kallaði mig inn til sín. Hún gerði sínar skoðanir og sagði mér líka að fæðingabletturinn hefði ekkert breyst. Í raun þyrfti ég ekki að koma aftur í skoðun fyrr en eftir þrjú ár nema ég fyndi einhverjar breytingar. Hún bókar reyndar ekki þrjú ár fram í tímann. Ég benti henni á að ég væri mikið að vinna fyrir framan skjá og það væri bara fínt að fá augntékk aftur eftir tvö ár. Hún samþykkti það og bókaði mig 18. okt. 2028. Ég mætti aftur í vinnu um níu. Þá var stöðvarstjórinn nýlega mættur og nóg að gera. Alls voru skoðaðir sjötíuogfimm bílar í dag, vorum næsthæst af Frumherjastöðvunum á eftir Akureyri. Strákarnir voru að skoða síðustu tvo bílana þegar ég stimplaði mig út á slaginu hálffimm, kvaddi og fór beint í osteostrongtíma. Eftir tímann kom ég við í hraðbanka og svo stoppaði ég í Krónunni í Lindum áður en ég fór heim. Lagði þar af leiðandi á efra planinu. 

29.9.26

Slagveður á köflum

Vaknaði upp úr klukkan sex, rúmum hálftíma áður en vekjarinn átti að ýta við mér. Það gaf mér smá stund til að lesa áður en ég lagði af stað í vinnuna, þ.e. eftir að ég hafði sinnt morgunverkunum. Tók sjósundsdótið með mér. Stimplaði mig inn í vinnu á slaginu hálfátta. Stöðvarstjórinn var búinn að láta okkur vita að hann kæmi ekki í vinnu fyrstu tímana, kom reyndar aðeins við á tíunda tímanum og fékk þá m.a. innkaupalista. Hann mætti svo klyfjaður um hálftólf. Þá var hinn skoðunarmaðurinn búinn að skoða um sautján bíla og það var smá röð. Rétt rúmlega tuttugu bílar voru skoðaðir fyrir hádegi en eftir hádegispásu hélt "veislan" áfram og í heildina voru skoðaðir fimmtíuogfimm bílar í dag, mjög margir með 7 sem endastaf í númeri. Ég stimplaði mig út á slaginu hálffimm. Hringdi og spjallaði við pabba á meðan ég keyrði áleiðs í Nauthólsvík. Umferðin mikil og frekar hæg en ég fór fyrri ferðina í 9°C sjóinn rúmlega fimm. Kom heim um hálfsjö leytið. Borðaði helminginn af afgangum frá kvöldmatnum í gær, horfði á kafla úr landsleiknum í knattspyrnu karla en var aðallega að horfa á tvo þætti um lögreglumanninn Alex Ridley, sem er eiginlega sestur í helgan stein en er beðinn um að sinna ráðgjafahlutverki í málum sem koma upp. Hvert mál spannar tvo þætti en svo er rauður þráður í gegnum alla seríuna. Á aðeins eftir að horfa á síðustu tvo þættina af átta. 

28.9.26

Ný vinnuvika hafin

Vekjarinn ýtti við mér tíu mínútum fyrir klukkan sex í morgun. Um hálfsjö var ég mætt á planið við Laugardalslaug og um sjö var ég búin að synda 500m á um það bil tuttugu mínútum. Stimplaði mig inn í vinnu tuttuguogfjórum mínútum fyrir átta. Morguninn var þokkalega rólegur en þó voru skoðaðir átján bílar. Stöðvarstjórinn skrapp frá um tólf leytið til að leysa af á annarri stöð. Hann var sem betur fer kominn aftur um tvö því það var mikil traffík eftir hádegi, amk fyrir einn mann. Í heildina voru skráðir inn fjörutíuogátta bílar í dag en tvo af þeim verður að handskrá inn og skoða á morgun. Það var alveg í lagi að geyma þá því þeir voru skildir eftir með þeim skilaboðum að þeir yrðu sóttir milli níu og tíu í fyrramálið. Eftir vinnu fór ég beinustu leið vestur í bæ til norsku esperanto vinkonu minnar. Stoppaði hjá henni í rúman klukkutíma. Við lásum hluta af þjóðsögu á esperanto í þýðingu Þórbergs heitins Þórðarsonar. Var komin heim upp úr klukkan hálfsjö. Setti upp fiskibollur í einn pott og sæta kartöflu í bitum í annan pott. Eldaði það mikið að ég á afgang í tvö skipti sem er þægilegt.