Ég byrjaði gærdaginn næstum eins og ég endaði laugardaginn. Þ.e. eftir að hafa farið í sturtu rétt fyrir átta í gærmorgun og smurt á mig gelið skreið ég aftur upp í rúm og fór að lesa. Fór ekki fram úr og á fætur fyrr en ég var búin að klára bókina og þá var klukkan orðin hálfellefu. Mætti í kirkjuna um eitt en það voru fermdir fimm drengir í messunni klukkan tvö. Fór beint heim eftir messu. Strákarnir voru komnir í betri leppana en voru í einhverjum leik sem ekki var hægt að hætta alveg strax í. Lögðum af stað út úr bænum upp úr hálffjögur og vorum komin á réttum tíma í veisluna. Hulda systurdóttir mín var að fermast og tók ég myndina hér að neðan af henni með foreldrum sínum fljótlega eftir að við mættum á svæðið. Bríet, yngri systirin, var einhvers staðar á hlaupum svo hún festist ekki á filmu. Systir mín er í upphlutnum mínum og tekur sig afar vel út í honum.
14.4.14
13.4.14
Sunnudagur
Var tiltölulega snemma á fótum í gærmorgun. Var komin á stjá fyrir klukkan níu en fór ekkert að stússa í neinu öðru en netvafri. Var mætt hjá norsku esperanto vinkonu minni rétt fyrir ellefu og var hjá henni í tvo tíma. Þaðan fór ég í Krónuna að versla. Kom heim um hálftvö. Oddur Smári tók við pokunum og gekk frá vörunum. Ég mannaði mig upp í að sinna smá skylduverkum. Klukkan var að verða fjögur þegar ég hellti upp á könnuna. Kannski ekkert að marka þar sem ég hafði fengið kaffi hjá Inger. Ég hellti upp á fulla könnu enda kom það á daginn að Davíð Steinn vildi líka kaffi. Hafði lasagnia í matinn, horfði á fréttir og "Alla leið" en nennti svo ekki að horfa meir. Settist við tölvuna en var svo komin í rúmið upp úr ellefu. Ekki þó til að fara beint að sofa heldur til að lesa, nema hvað.
12.4.14
Nokkrar línur á laugardegi
Auðvitað notaði ég strætó til og frá vinnu í gær. Vinnudagurinn leið afar hratt og upp úr hálfþrjú var annríkið á enda. Samt leið afgangurinn af vinnudeginum alveg jafn hratt og tímarnir á undan. Fór beint heim eftir vinnu. Strákarnir ætluðu að hafa vikulegt spilakvöld svo ég þurfti ekki að hugsa fyrir mat því þeir sáu sjálfir um að hita vorrúllur í ofni. Horfði á fréttir, skólahreysti og útsvar en slökktvi svo fljótlega á sjónvarpinu eftir það. Var að klára bók númer tvö af sex af safninu í gær, "Órólegi maðurinn" eftir Henning Mankel. Síðasta bókin um Wallander held ég. Þá á ég fjórar bækur ólesnar, misþykkar, og sé fram á að þurfa að framlengja láninu á sumum af þeim bókum um 30 daga því ég er þegar búin að hafa þær í þrjár vikur. Byrjaði á bók í gærkvöldi sem heitir, "Táknmál blómanna". Það er mjög grípandi bók og líklega verð ég ekki lengi að lesa hana.
11.4.14
Færsla nr. 101 á árinu
Bauð strákunum far í skólann í gærmorgun. Þeir eru oftast mættir nokkuð vel fyrir fyrsta tíma sem byrjar tíu mínútur yfir átta því ég er mætt í mína vinnu og byrjuð að vinna áður en klukkan er orðin átta. Vann til klukkan þrjú en var þá búin að fá mig lausa til að geta sinnt smá bankamálum. Fór beint inn í landsbankann í Borgartúni og þar upp á aðra hæð. Þar fékk ég afgreiddan nýjan auðkennislykil og sú sem afgreiddi mig var svo ánægð með hvað hinn lykillinn hafði dugað mér lengi að hún sagðist ekki ætla að rukka mig neitt fyrir þann nýja. Svo bað ég hana um að fella út fyrir mig greiðsluseðla í fyrirtækjabanka hússjóðsins og setja mig inn í staðinn. Einnig fékk ég hana til að endurstilla báða fyrirtækjabankana (kórinn og hússj.) og þar að auki að leyfa mér að velja mér nýtt auðkennisnúmer fyrir hússjóðsreikninginn. Að þessu loknu leit ég aðeins við hjá þjónustufulltrúanum sem ég er í mestu sambandi við. Hún sagði mér að verið væri að vinna í að útbúa skjal um afléttingu bankalánsins á veðinu í skúrnum. Ég ákvað svo að þyggja það að bankinn sæi um að þinglýsa þessu skjali fyrir mig. Næst ætlaði ég að taka bensín hjá atlantsolíu við Flugvallarveg en þar var löng röð vegna afsláttardags að ég ákvað að bíða aðeins með þetta.
Annar tvíbbinn var kominn heim og fljótlega eftir að hinn kom fórum við í Dressmann í Kringlunni þar sem þeir bræður fengu að velja sér nýjar skyrtur. Ég keypti líka handa þeim hvort sitt sokkaparið en aðeins annar strákurinn fann sér bindi sem honum líkað við. Þeir eiga reyndar báðir "fermingarbindin" sín enn sem þeir geta líka notað. Svo ákvað ég að bjóða þeim að borða á Stjörnutorginu. Vildi sjálf fagna því að öll mál eru að ganga upp hjá mér og þar að auki ekki verra að sleppa við að elda. Skutlaði svo bræðrunum heim og fór svo að fylla á tankinn.
10.4.14
Líður á vikuna
Notaði strætó til og frá vinnu bæði í gær og fyrradag. Hvorugur strákanna var heima þegar ég skilaði mér heim rétt fyrir hálffimm. Mig grunaði að þeir hefðu farið pabba síns og hafði rétt fyrir mér þar. Þeir gleymdu hins vega að smessa á mig smá tilkynningu. Fór með útfyllt plögg varðandi hússjóð og inneign kjallaraíbúðarinnar til stúlkunnar sem þar býr. Hún hafði komið kvöldinu áður með þessi plögg og ég lenti í smá vandræðum því auðkennislykillinn var "dauður". Endirinn varð sá að ég hringdi í bankann og bað um aðstoð af fyrirtækjabankasviðinu. Þar lenti ég í smá veseni, varð að auðkenna mig á einkareikning því ég bara gat ekki munað öryggisttöluna sem ég valdi mér þegar ég tók við gjaldkeraembætti húsfélagsins. Lét svo nágrannann á neðri hæðinni vita að öll mál varðandi afléttingu veðs á skúrnum væru að leysast. Fékk mér haframjöl með rúsínum, kasewhnetum, smá musli og kanil í kvöldmat. Setti sjóðandi vatn út að þetta og lét kólna og trekkja sig út. Var mætt á kóræfingu rétt fyrir hálfátta. Það var fullmannað í karlaröddunum og tenórarnir lánuðu sóprönunum tenórínuna þar sem þar vantaði þrjár. Strákarnir voru komnir heim þegar ég kom aftur heim upp úr hálftíu og afsökuðu það að hafa gleymt að senda mér skilaboð um að þeir yrðu ekki í kvöldmat.
9.4.14
Stafarugl í krossgátu
Norska esperanto vinkona mín er farin að ráða krossgátuna í dagskráblaðinu Birtu sem kemur út á laugardögum. Hún er að verða nokkuð flink við þetta en það kemur fyrir að hún hefur samband til að athuga hvort ég get fyllt upp í eyðurnar hjá henni. Þegar ég kom heim á sunnudagskvöldið var hafði hún hringt nokkru áður. Það var ekki of seint að hringja til baka svo ég sló á þráðinn. Lofaði henni svo að kíkja á krossgátuna daginn eftir. Á mánudaginn tók ég Birtu með mér í vinnuna. Ég var einmitt á þeim stað í vinnuferlinu sem ágætt er að hafa eitthvað smá auka með. Á myndinni var mynd af kari fullu af sykri og ég taldi mig skrifa strásykur sem passaði akkúrat. Lauk svo að mest við krossgátuna nema í horninu undir og við myndina. Inger var búin að finna út úr þessu á undan mér því ég hefði aldrei getað leyst gátuna fyrr en ég var búinn að laga myndatextann, ég hafði nefnilega skrifað; SRTÁ- SYKUR. Þar sem ég ætlaði að skrifa rumur fyrir risa átti til að mynda að vera tröll.
Gærdagurinn í vinnunni var annars afar annasamur og var ég að alveg frá því áður en klukkan var átta og alveg til klukkan fjögur. Fékk þó matar og kaffihlé. Við hættum framleiðslu rétt fyrir tvö þegar allt daglegt var búið því ein fór í orlof um hádegið, tvær á fund milli tvö og þrjú og við hinar tvær vorum að opna kassa, telja og merkja kort við þriðja mann úr innri endurskoðun. Hættum rúmlega þrjú til að ganga frá en þá vorum við ekki einu sinni hálfnuð að skoða í kassana. Meðfram þessu var verið að flytja lagerinn í bráðabirgðageymslu.
Annars er loksins að ganga að fá aflétt veðinu af bílskúrnum. Það gekk strax í gegn hjá íbúðalánasjóði en ég varð að senda skjalið frá þeim og kvittun fyrir þinglýsingu til landsbankans til að þeir samþykktu. Ég var farin að halda að ég yrði bara að klára að borga þetta "litla" lán svo ég gæti selt nágrannanum skúrinn án frekari vesens.
8.4.14
Staka, limra og smávegis meira
Orðin í feluleik fóru
flest þau eru að vinna.
Bæði smáu og þau stóru
safnast til allra hinna.
Enga sögu segja kann.
Samt ég mikið efni fann.
Ég beið og beið
illa mér leið
svo andinn mig líklega vann.
Bræðurnir urðu samferða mér í skólann í gær þar sem framhaldskennarar eru ekki lengur í verkfalli. Kennt verður út þessa viku en þeir fá að vita það í dag hvaða fimm dagar bætast við til að vinna upp dagana sem töpuðust, eða eitthvað af þeim. Vinnudagurinn minn leið hratt og örugglega í gær. Keyrði svo beint heim. Annar tvíbbinn var kominn heim hinn kom fljótlega. Sá hafði notað gat í töflunni til að heimsækja Torfa, tengdaföður systur minnar. Nú er strákurinn aftur kominn með kamb. Ekkert var saumað í gær en vafrað á netinu, lesið og glápt á imbann.
7.4.14
Málþing um meistara Þór Vigfússon heitinn
Ég dreif mig á fætur um níu í gærmorgun, aðallega til að vafra aðeins um á netinu og spila uppáhalds leikina. Hringdi í tvíburahálfsystur mína rétt fyrir hálftólf til að athuga hvenær hún myndi leggja af stað. Í kjölfarið skipti ég yfir í skárri leppana, varalitaði mig og beið svo bara eftir essemmessi. Bankaði upp á hjá Oddi til að láta hann vita að ég væri á förum og kæmi ekki aftur fyrr en einhvern tímann um kvöldið. Sonja náði í mig rúmlega tólf og vorum við komnar að Fjölbrautaskóla Suðurlands klukkan eitt. Búið var að opna húsið og þar sem upphitun kórsins var ekki fyrr en hálftíma síðar var okkur bent á að kíkja í stofurnar á annarri hæð. Í hverri stofu var að finna eitthvað efni með Þór heitnum Vigfússyni sem tók við skólameistarastöðu við skólans á þriðja starfsári hans. Þarna kenndi ýmissa grasa (útvarpsviðtöl, útskrift, 25 ára útskriftar afmæli hans sjálfs og fleira og fleira) og var mjög fróðlegt að skoða þetta auk þess sem það var svo notalegt að heyra röddina hans aftur. Um hálftvö fórum við stöllur upp í stofu 312, frönsku stofuna, þar sem kórinn hitaði upp. Um það leyti sem við vorum að byrja birtust Vignir Stefánsson og Kristjana Skúladóttir að kanna hvenær þau kæmust að í upphitun en hún söng þrjú revíulög á þýsku, frá tímabilinu sem Þór var í námi úti, framarlega í dagskránni. Við gripum auðvitað Vigni með í hópinn en hann var í kórnum á sínum tíma og kunni að sjálfsögðu þessi þrjú lög. Rétt fyrir tvö stilltum við okkur upp á ganginum niðri á fyrstu hæð og þegar Móri hringdi bjöllunni gaf Jón Ingi okkur tóninn og við gengum gegnum miðjan salin og upp á svið syngjandi Cum de core. Næst sungum við Smávinir fagrir og svo enduðum við á Kalli olle kukku lalle með undirspili bæði einraddað og í röddum.
Við Sonja og margir aðrir úr kórnum settumst svo niður í sal (þegar við vorum búin að afhenda Jóni Inga blómvönd og klappa á táknmáli) og fylgdumst áfram með dagskránni. Ekki voru allir allan tíman en við vorum þó nokkur fyrir utan allt hitt fólkið sem mætti. Dagskráin var afar fjölbreytt og skemmtilega og mjög svo í anda Þórs. Ég hefði alls ekki viljað missa af þessu en finnst of langt mál að segja frá þessu öllu fyrir utan það að upplifunin var alveg einstök.
Klukkan sex vorum við tvíburahálfsysturnar komnar í Fossheiðina til foreldra hennar. Þar beið okkar veislumatur. Nú vorum við búnar að syngja svo það var engin afsökun að borða ekki vel. Fengum lambalæri með alls kyns tilheyrandi meðlæti og jarðaberjabúðing með súkkulaðiflögum og þeyttum rjóma í eftirrétt. Og svo var okkur færður kaffibolli með fréttunum. Þetta var veisla og ég át algerlega yfir mig. Sem betur fer vorum við ekkert að drífa okkur heim. Horfðum fyrst á fréttir og Landann áður en við þökkuðum fyrir okkur og kvöddum.
6.4.14
Sunnudagur
Ég var komin nokkuð snemma á stjá í gærmorgun. Gaf mér góðan tíma til að veita húðinni kókosolíumeðferð áður en ég fór í sturtu. Eftir sturtuna bar ég á mig gelið sem ég fæ ekki að losna við alveg strax og fleygði mér upp í rúm aftur á meðan það þornaði. Notaði tímann og las í nýjustu lánsbókinni, "Maður sem heitir Ove", meiriháttar bók verð ég að skrifa. Það er hreinlega allur tilfinningaskalinn undir og ýmist er maður að skella upp úr og eða hlægja eða þá að maður fær tár í augun og kökk í hálsinn, og eignlega allt þarna á milli. Kveikti á tövlunni um hálftíu en bara í smá stund því ég var komin á hársnyrtistofuna Kristu rétt fyrir klukkan tíu þar sem Nonni tók á móti mér og klippti mig og þynnti hárið eftir kúnstarinnar reglum. Skrapp aðeins aftur heim en var svo mætt hjá norsku esperanto vinkonu minni um ellefu eftir um þriggja vikna hlé. Þaðan fór ég í Krónuna upp úr hálfeitt. Oddur Smári gekk frá vörunum er ég kom heim. Ég kveikti á sjónvarpinu og ætlaði að fylgjast með söngkeppni framhaldsskólanna en tolldi ekki við fyrir framan sjónvarpið. Ég settist hins vegar fyrir framan skáinn þegar vináttuleikurinn byrjaði og byrjaði að sauma fjórða jólakort ársins. Leikurinn var erfiður að horfa á. Hafði steikt slátur (og steikta lifrarpylsu) með soðnum kartöflum í matinn. Sat svo við sjónvarpið og saumaði og fylgdist með útsendingu frameftir kvöldi. Ég kláraði næstum því kortið, á bara eftir smá útlínur og merkingu.
5.4.14
Nýklippt
Lánsbíllinn var notaður milli heimilis og vinnu í gær og á heimleiðinni renndi ég bílnum í gegnum snertilausu þvottastöðina hjá Olís við Skúlagötu. Strákarnir voru með spilakvöld frá því seinni partinn í gær og til eitthvað um tíu svo þeir sáu alveg um að næra sig. Ég fékk mér afgang frá því fyrr í vikunni. Vafraði um á netinu og spilaði uppáhalds leikina mína tvo áður en ég settist fyrir framan skjáinn og horfði á fréttir, fyrsta skólahreysti þáttinn, seinni hálfleikinn í vináttu landsleiknum við Austurríki og útsvar og kláraði þriðja jólakortið á árinu í leiðinni. Byrjaði aðeins að kíkja á fyrri mynd kvöldsins en nennti svo ekki að horfa meir. Settist aftur við tölvuna í einhvern tíma áður en ég skreið upp í og las smá fyrir svefninn.
4.4.14
Líður að helgi
Þriðja daginn í röð tók ég strætó í vinnuna. Nóg var að gera þannig að vinnudagurinn leið afar hratt við hefðbundin dagleg sem og mánaðarleg störf. Framleiðsla var í gangi alveg til klukkan að verða fjögur. Fékk far með einni úr vinnunni heim. Fór úr við hornið á Lönguhlíð og Drápuhlíð, rétt aðeins lengra heldur en ef ég hefði komið heim með strætó. Einhverjir strákpattar voru búnir að stilla upp varúðarkeilu á miðri akreininni aðeins lengra og aðvífandi umferð beygði annað hvort inn götuna "mína" eða snéri við þar til einhver tók sig til og henti keilunni upp á eyjuna. Ég fór beint í lánsbílinn og brunaði í fiskbúðina við Sundlaugarvél og keypti bæði bleikju og þorskflök. Hafði bleikjuna í kvöldmatinn en frysti þorskinn. Var sest fyrir framan skjáinn um átta og horfði á úrslitin í "Biggest loser Ísland" og saumaði jólakortið sem ég er nýlega byrjuð á, á meðan. Við Oddur Smári horfðum svo saman á Criminal minds eftir tíufréttir.
3.4.14
Heimsókn æskuvinkonu
Var í strætó á Lönguhlíðinni tveimur stoppistöðum að heiman þegar Ella vinkona mín til margra ára hringdi og sagðist vera stödd í bænum á fulltrúaþingi. Dagskrá var lokið þennan daginn og ekkert planað um kvöldið. Ég fór þess vegna beint úr strætó í lánsbílinn og sótti vinkonu mína á hótelið sem hún dvelur á þessa dagana þar sem þetta fulltrúaþing er haldið. Lét strákana vita og var annar þeirra búinn að búa til handa okkur kaffi þegar við mættum í Drápuhlíðina. Við settumst inn í stofu og tók Ella upp prjóna og spjaldtölvu þar sem hún var með prjónauppskriftina af flíkinni sem hún var með á prjónunum. Ég tók ekki upp saumana fyrr en eftir mat en þá saumaði ég m.a. útlínur í grammófónmyndinni og byrjaði einnig á nýju jólakorti. Við höfðum um svo margt að spjalla og tíminn flaug alltof, alltof hratt eins og oft þegar er gaman. Um tíu skutlaði ég Ellu til baka og fannst þá eiginlega orðið of seint að hringja austur í foreldra mína, sem ég geri annars nánast daglega.
2.4.14
Spilakvöld hjá bræðrunum
Það munaði engu að ég gleymdi að hringja bjöllunni til að vagninn myndi stoppa við Hörpu í gærmorgun. Hugurinn var víðsfjarri en þegar tilkynnt var að næsta stopp væri Harpa rankaði ég við mér og var ekkert of sein að ýta á stopp takkann. Vinnudagurinn leið jafn hratt og venjulega við verkefni sem entust til fjögur, þ.e. við hættum vinnu klukkan fjögur eigum enn eftir nóg til að vinna á. Fór beint heim eftir vinnu, með leið 13. Tveir spilavinir voru þegar mættir og fljótlega kom sá fimmti. Sjötti drengurinn sem oft mætir líka kom eitthvað seinna en hann er heldur ekkert að spila. Ég eldaði matarmikinn pastarétt með hakki, sætri kartöflu, gulrótum, kúrbít, lauk, sveppum og graskersfræjum og bauð strákunum að borða. Það var þá með þökkum. Allir fimm fengu sér en það varð þó afgangur fyrir tvo til þrjá því þetta fyllti mallana á þeim það mikið að enginn fékk sér nema einu sinni á diskinn, ekki heldur ég. Ég notaði svo afganginn af deginum í tölvuleiki, lestur og sjónvarpsgláp.
1.4.14
Saumaklúbbur
Þar sem ég var búin að ákveða í verslunarleiðangur strax eftir vinnu í gær var alveg upplagt að fara á lánsbílnum. Vinnudagurinn leið afar hratt þrátt fyrir alls konar vesen. Í Krónunni við Granda hitti ég fyrrum vinnufélaga og spjallaði stuttlega við hann. Kom heim um fimm. Bræðurnir voru ekki komnir heim svo ég varð að sjá um að bera pokana inn og ganga sjálf frá vörunum. Aftur á móti frétti ég að ekki væri von á strákunum fyrr en eftir kvöldmat svo ég slapp alveg við að elda í gær. Setti í þvottavél og fór fljótlega að huga að því að það var saumaklúbbur hjá mér um kvöldið. Vissi reyndar ekkert hvort við yrðum ein, tvær eða þrjár. Lilja mætti upp úr hálfátta og um klukkustund síðar fékk ég sms frá Sonju þar sem hún tilkynnti að hún væri að leggja í hann. Hún náði til mín áður en klukkan varð níu og svo varð klukkan allt í einu ellefu. Ég bara skil ekki hvernig tíminn getur tekið svona á rás. En það var mikið spjallað, hlegið og reynt að setja einhver spor í jafa eða munda prjónana. Ég vann að því að reyna að klára útlínur í grammófóns myndinni og það var svo sem ekki svo mikið eftir þegar við hættum. Hér fyrir neðan set ég mynd af verkefninu sem ég tók þegar ég var nýlega byrjuð að vinna í útlínunum.
31.3.14
Liverpool á toppnum
Fór á stjá rétt fyrir níu og fékk að byrja á því að skella mér í sturtu. Pabbi var búinn að borða morgunmatinn og farinn inn að leggja sig smá aftur þegar ég kom fram í eldhús. Hann var aftur á móti búinn að kveikja á tölvunni sinni svo ég settist við hana um leið og ég var búin að fá mér eitthvað og kveikja á kaffikönnunni. Dagurinn leið ógnar-hratt. Ég greip í sauma og kláraði meðal annars jólakortið sem ég byrjaði á í saumaklúbb um daginn. Einnig las ég, spjallaði við foreldra mína og vafraði á netinu. Upp úr hálffimm tók ég mig saman, fékk m.a. 2 berjapoka og nokkur egg með mér, og kvaddi svo. Gleymdi reyndar einni flösku af asea en ég er nýbúin að ná í sendingu og á þrjár heima svo ég þurfti ekki að snúa við. Var komin í Fossheiðina á sjötta tímanum, langt á undan "tvíburahálf- og föðursystrum" mínum. Þær skiluðu sér um hálfsjö. Fengum þessa dýrindis kjötsúpu í matinn sem var þykk og matarmikil. Húsmóðirin sagði að þetta væri eiginlega kjötgrautur, súpan var svo þykk. En góð var hún og eins og venjulega varð maður pakksaddur af trakteringunum. Við vorum mættar upp í fjölbrautaskóla rétt fyrir átta og þar var þýskukennarinn, Ingi S. mættur og búinn að opna. Fólk fór að tínast í hús og það sáust nokkur ný andlit. Sungum yfir þessi fjögur lög og eitt til vara og æfðum einnig innkomuna en rétt eins og í gamla daga er stefnan sett á að koma syngjandi inn á "Cum de core". Æfingin stóð yfir í um það bil klukkustund svo ég var komin heim til mín fyrir hálfellefu. Strákarnir sendu mér sms að þeir yrðu hjá pabba sínum til morguns. Koma semsagt heim í dag.
30.3.14
Í góðu yfirlæti
Þrátt fyrir að hafa ekki farið að sofa fyrr en eftir klukkan eitt í fyrrinótt var ég komin á stjá um níu í gærmorgun og tókst svona nokkurn veginn að borða morgunmat með föður mínum. Morguninn fór svo í lestur, tölvuleiki og útsaum. Greip í "Lost no more" myndina og saumaði smá. Það lítur út fyrir að ég ætli að vera jafnlengi með þetta litla svæði sem eftir er (trjá lauf) og allt það sem ég er komin með áður. En ég er alveg róleg. Verkefnið mun klárast á endanum. Nokkru eftir hádegi skrapp ég í smá göngutúr sem endaði í Bogatúninu hjá gömlu hjónunum sem einu sinni áttu heima hér við hliðina í Hólavanginum. Þau eru fædd 1920 og 1927, hún yngri löngu orðin hvíthærð en svo slétt og fín í framan. Hann verður 94 ára í sumar og er ekkert orðin neitt hvíthærður, hreyfir sig hægt og er með göngugrind síðan hann lærbrotnaði fyrir skömmu en bæði eru mjög viðræðugóð og hjartahlý. Þáði hjá þeim kaffi og pönnsur og kom svo til baka um það leyti sem pabbi var með kaffitímann hér. Eftir kvöldmat horfðum við mamma á síðasta hlutann af Ladda-þáttunum.
29.3.14
Á æskuslóðum
Lánsbíllinn var notaður til að komast í og úr vinnu í gær. Vinnudagurinn leið afar hratt við ýmis verkefni. M.a. kláraði ég endurreisnarverkefnið og hafði þá alls notað rúmlega 40 klst. til að sinna því (Mér skilst að áætlað hafi verið að þetta tæki milli 40 og 60 klst enda var ég stundum allt að tvo tíma með að endurskrá gögn og uppfæra fyrir einn einasta mánuð). Kom heim upp úr fjögur. Einn spilafélagi bræðranna var mættur og þeir höfðu allir fengið sér kaffi og klárað uppáhellinguna. Ég vissi að eftir spilakvöldið myndu strákarnir fara til pabba síns svo ég var búin að taka ákvörðun um að skreppa í heimsókn til foreldra minna. Löngu kominn tími á það. Hringdi í pabba, tók mig til og kvaddi strákana áður en klukkan var orðin fimm. Rennifæri var alla leið austur og ég var komin rétt upp úr sex. Pabbi bauð upp á rúmlega tveggja ára hvítvín eftir mat og skiptum við flöskunni á milli okkar. Ég horfði með þeim á Útsvarið og sat svo ein að sjónvarpinu næstu tvær myndir. Þá voru pabbi og mamma farin að sofa en ég slökkti á imbanum og fór "aðeins" að vafra um á netinu, í klukkutíma eða svo áður en ég slökkti líka á tölvunni og las einn kafla áður en ég fór að sofa.
28.3.14
Föstudagur enn á ný
Þriðja morguninn í röð fór ég með strætó í vinnuna. Mín verk í vinnunni voru bókhaldstengd svo ég gat aðeins unnið í endurreisnarverkefninu líka. En rétt fyrir fjögur vorum við búnar að taka saman. Ein var reyndar farin aðeins fyrr en við hinar þrjár urðum samferða í K2 á sviðsfund. Fundurinn varði í tæpa klukkustund og þá rölti ég heim. Reyndi að hringja í tvíburana annar svaraði ekki en hinn sagðist vera búin að búa til kaffi handa mér. Ég fór þó ekki alveg beint heim heldur sótti lánsbílinn og rak nokkur erindi. Þurfti að skreppa í hraðbanka, ná í smá sendingu og svo nýtti ég mér 12 kr afsláttinn hjá Atlantsolíu og dældi tæpum 12 lítrum á tankinn. Hef greinilega ekki verið að keyra mikið síðan 17. mars. Var með lifur í hvítlauks- og hvítlaukskryddaðri edikssósu. Skrapp svo á Valsvöllinn og sá "mína menn" liggja fyrir Haukum 30:33 í næst síðasta heimaleiknum á tímabilinu. Það var búið að hella aftur uppá er ég kom heim af leiknum. :-)
27.3.14
Seint er skrifað
Ég "hoppaði" upp í leið 13 á sama tíma og frá sama stað í gærmorgun og á þriðjudagsmorguninn. Vorum einum færri í vinnu á deildinni svo við fyrirliðinn tókum þá ákvörðun að geyma endurreisnarverkefnið svo álagið yrði ekki of mikið á þær hinar. Nóg er að gera og svo kom einnig upp sú staða að önnur okkar fyrirliðans vorum boðaðar með stuttum fyrirvara yfir í K2. Ég fékk að ráða og ákvað að fyrirliðinn skyldi sjá um "útkallið". Hún fór því fyrir tíu og var um tvo tíma í burtu en átti von á því að verða kölluð aftur. Það gerðist þó ekki í gær. Klukkan þrjú vorum við þrjár eftir en ákváðum stuttu seinna að "pakka saman" og kalla til viðgerðarmann til að skipta um hjól þar sem umslagavélin dregur niður umslögin. Það er frekar tafsamt og þreytandi að vinna á vélina ef hún hagar sér ekki alveg sem skyldi. Var örlítið sein fyrir út úr húsi eftir vinnu. Oftast er 13 hvort sem er ekki alveg á tíma en í gær var vagninn akkúrat á réttum tíma (3 mín yfir heila tímann) og ég var ekki komin út að stoppistöð þótt hún sé örskammt frá vinnunni. Tók því næsta vagn, ásinn, upp á Hlemm og beið þar eftir næsta 13. Bræðurnir voru ekki búnir að gera það sem ég hafði beðið þá um hér heima svo ég ákvað að sleppa því að elda. Reyndar var til nægur afgangur af mat frá því fyrr í vikunni. Annar bróðirninn dreif verkefnin af og svo björguðu þeir sér sjálfir með afganginn. Ætlaði varla að nenna á kóræfingu en dreif mig og sé alls ekki eftir því.
26.3.14
Blautur dagur í dag
Ég tók leið 13 upp úr hálfátta við Sunnubúð í gærmorgun. Framan af vinnudeginum var ég í endurreisnarstarfssemi en ég var líka eitthvað að leysa af í kaffi og hádegi. Rétt fyrir tvö fórum við allar úr deildinni yfir í K2, turninn við Katrínartún (Höfðatorg) á tveggja tíma vinnufund. Þaðan labbaði ég svo heim í fínu veðri. Lánsbíllinn var ekkert hreyfður í gær enda hélt ég mig heimavið seinni partinn og um kvöldið. Var með steiktan þorsk í matinn og notaði afganginn af búlgunum blönduðum með graskersfræjum og ananas sem ég var með kjúklingaréttinum rétt fyrir helgi. Í búlgurnar hafði ég einnig hellt soðinu af kjúklingnum. Annar strákurinn fékk sér tvisvar á diskinn honum fannst þetta svo gott. Oddur og ég horfðum á Castle en svo fóru bræðurnir í heimsókn til vinar og var ég komin upp í rúm áður en þeir komu aftur. Er enn ekki byrjuð að lesa í neinni bók af safninu því ég er enn að lesa Grimmd eftir Stefán Mána. Sú bók er afar grípandi en líkt og með Sandmanninn þá næ ég að lesa bara part og part og slíta mig svo frá efninu á milli. Kæmist líklega yfir meiri lestur ef ég endurskoðaði tímann sem fer í netvafr og netleiki. ;-)
25.3.14
Aðeins vika eftir af mars
Ég fór á lánsbílnum í vinnuna í gærmorgun þar sem ég var alveg ákveðin í að skreppa á sýsluskrifstofuna að sækja skjal úr þinglýsingu. Ég lét verða af þessari skreppu minni rétt fyrir tvö og var komin til baka uþb tuttugu mínútum síðar. Annars var vinnudagurinn fljótur að líða. Ég fór beint heim eftir vinnu og komst þá að því að annar tvíburinn hafði tekið það upp hjá sjálfum sér að sortera og ganga frá ófrágengnum hreinum þvotti. Mikið sem ég var glöð með drenginn. Fyrir utan matarstúss og eina kaffiuppáhellingu leið seinni parturinn og kvöldið við netvafr, sjónvarpsgláp og lestur.
24.3.14
Ný vinnuvika
Ég var hás og afar löt þegar ég vaknaði rétt fyrir tólf í gær. Var lengi að koma mér í gang en ákvað mjög fljótt að taka því bara rólega svo ég sendi kórstjóranum sms um að ég kæmi ekki í messuna. Oddur Smári fór með mér í Krónuna seinni partinn, gekk frá vörunum er við komum heim aftur og tók svo strætó til pabba síns. Ég hélt bara áfram að taka því rólega. Hellti ekki upp á fyrr en eftir kvöldmat. Las, drakk kaffi, vafraði um á netinu og horfði á sjónvarpið. Gærdagurinn var sannkallaður notalegur letidagur.
23.3.14
Bláa lónið
Tók því nokkuð rólega til að byrja með í gærmorgun. Varð vör við tölvustrákinn um átta og fór fram til að athuga hvort hann ætlaði ekki í sturtu. Eins gott að ég gerði það því drenginn vantaði handklæði og hafði ekki hugsað sér að trufla mig þótt handklæðin væru geymd í skáp í mínu herbergi. Mikið verður það nú annars frábært þegar búið verður að gera upp baðherbergið og setja m.a. skáp þar inn þar sem hægt verður að geyma handklæði og fleira. Tölvuneminn úr Tækniskólanum var svo farinn út úr húsi fyrir níu til að mæta í morgunmat í HR áður en keppnin hófst. Í HR var hann langt fram á dag og hans lið lenti í 8. sæti af 26.
Um eitt leytið skrapp ég í Kringluna, alveg búin að steingleyma að það var kringlukast. Leið mín lá í skóverslunina Steinar Waage þar sem ég fann á mig nýja eccoskó sem ég borgaði með jólagjöf vinnunnar, gjafakorti, og á þá líklega um 5000 eftir enn af jólagjöfinni. Undanfarna daga hef ég verið að lesa bók eftir hjón sem skrifa undir nafninu Lars Kepler, Sandmaðurinn. Það er merkilegt hvað mér hefur tekist að slíta mig frá þesseri spennandi bók sem þar að auki er skrifuð í stuttum köflum. En í gær hætti ég ekki lestri fyrr en ég kláraði bókina. Þá var líka kominn tími til að skvera sig upp og skreppa í fyrir partí fyrir árshátíð. Þar stoppaði ég í rúma klukkustund eða þar til kominn var tími til að ná rútunni í Mjóddinni. Geymdi lánsbílinn á Olísstöðinni við Mjódd því ég hafði tekið þá ákvörðun um að drekka ekkert nema vatn og kannski kaffi. Um sjö var rútan komin að veislusalnum við Bláa lónið. Held að okkar rúta hafi verið fyrst en það voru einhverjir komnir á einkabílum. Um leið og maður var búinn að taka af sér lenti maður í myndatökuröð áður en haldið var áfram upp stiga þar sem fordrykkurinn var borinn fram. Sleppti þeim drykk því sá óáfengi var sprite, sem ég drekk ekki, og ég vildi ekki láta hafa fyrir mér og sækja fyrir mig vatn. Um átta var sest að borðum. Maturinn og þjónustan var til fyrirmyndar, veislustjórinn (Kári Viðarsson) og skemmtiatriðin stóðu alveg undir væntingum og hljómsveitin Dalton sá svo um að halda upp fjörinu alveg til tvö. Ég söng og dansaði alveg helling og nýju skórnir reyndust bara afar vel. Smá tíma tók að smala fólki í rúturnar en við vorum komin aftur í Mjóddina rétt fyrir þrjú. Skutlaði einni af deildinni minni heim og var komin heim sjálf um hálffjögur. Þar hitti ég tölvustrákinn að vinna á tölvuna sína í myrkrinu í stofunni. Ég skreið fljótlega upp í rúm en fór ekki alveg strax að sofa heldur byrjaði að lesa nýja bók sem systir mín lánaði mér um daginn, Grimmd eftir Stefán Mána.
22.3.14
Árshátíðarhelgi
Ég ákvað að fara á lánsbílnum í vinnuna í gærmorgun þar sem ég ætlaði að fá að skreppa og sækja skjal úr þinglýsingu á sýsluskrifstofuna. Það var hins vegar eignalega enginn tími góður til að skreppa aðeins, m.a. vegna þess að það þurftu fleiri að skreppa út af mikilvægarari málefnum. Skjalið mitt mátti alveg bíða aðeins. Ég var nær eingöngu í "endurreisnarstarfinu" fyrir utan smá afleysingu á vélinni. Eftir vinnu lét ég fyrst þvo lánsbílinn á snertilausu stöðinni við Skúlagötu. Þegar bíllinn var orðinn hreinn að utan fór á borgarbókasafnið, aðalsafnið, í Grófinni. Þar skilaði ég inn öllum sjö bókunum og tók mér sex aðrar í staðinn, sumar mun þykkari en ég var að skila en engin á skammtímaláni. Kom heim um fimm. Oddur kom ekki löngu síðar úr smá undirbúningi úr HR þar sem fer fram forritunarkeppni í dag. Hafði matinn einhvern tímann upp úr hálfsjö. Um átta varð ég vör við að Davíð Steinn var að brasa eitthvað í eldhúsinu. Í fyrstu hélt ég að hann hefði tekið upp hjá sjálfum sér að vaska upp en hann var þá að hella upp á kaffi sem mér fannst alveg eins gott. :-)
21.3.14
Föstudagur
Þá er þessi vinnuvika liðin og var fljót að. Reyndar var ég bara í vinnu í þrjá daga. Fór með strætó í vinnuna í gær. Dagurinn leið mjög fljótt enda sökkti ég mér á kaf í endurreisnarverkefnið mest allan tímann. Hoppaði svo upp í næsta strætó rúmlega fjögur og tók skiptimiða til að stoppa á Hlemmi og kaupa mér fleiri strætómiða. Kom heim rétt fyrir fimm. Restin af deginum fór í eitt og annað, m.a. greip ég aðeins í saumana mína, nýjasta jólakortaverkefnið.
20.3.14
Fríið búið í bili
Mér tókst ekki að kúra lengur en til hálfníu í gærmorgun sem var í sjálfu sér bara ágætt. Notaði morguninn í alls konar hluti en upp úr klukkan eitt rölti ég á sýsluskrifstofuna með umslagið frá íbúðalánasjóði um afléttingu veðs á bílskúrnum. Fór fyrst upp á þriðju hæðina en var send beint niður á fyrstu hæð. Þar byrjaði ég á því að fara í almenna afgreiðslu en var sagt að ég ætti að fara innar og taka númer. Reyndar ákvað sú sem afgreiddi mig í afgreiðslunni að skoða aðeins málin og þá kom nokkuð ófyrirsjáanlegt í ljós. Ég hafði aldrei lesið yfir gögnin í umslaginu. Umslagið var greinilega merkt mér en innihaldið var um íbúð í Álftamýrinni. Ég trítlaði því heim til að sækja bílinn og fór beint niður í Borgartún 21. Þar skilaði ég inn þessum "röngu" gögnum og fékk mín afgreidd í staðinn. Síðan brunaði ég upp á sýsluskrifstofu, beint inn á fyrstu hæð og tók númer til að fá afgreiðslu við að leggja inn réttu gögnin til þinglýsingar. Ég má svo sækja þetta á morgun.
Strákarnir ákváðu að hafa spilakvöld í gær. Ég var búin að panta mér sérstakan tíma um kvöldið og ætlaði ekki á kóræfingu. Sérstaki tíminn féll svo reyndar niður en ég var ekki í neinu söngstuði heldur boðaði komu mína til tvíburahálfsystur minnar til að hitta nýjasta fjölskyldumeðliminn, hvolpinn Pöndu, sem hélt bara ekki vatni yfir mér. Ég var líka með handavinnuna með mér og saumaði í þremur verkefnum, stóru myndinni, grammafónmynd (útlínur) og jólakortið sem ég byrjaði á hjá Lilju sl. fimmtudagskvöld. Kom heim um ellefu og fór næstum því beint í rúmið með spennandi bók að lesa.
19.3.14
Frídagur hinn síðari
Þrátt fyrir frídag úr vinnu var ég komin á fætur um átta og vöknuð löngu fyrr. Um hálftíu vakti ég Davíð Stein. Fyrir nokkru fór hann að kvarta yfir að það væri alls ekki sama hvar hann sæti í skólastofum ef hann þyrfti að fylgjast með á töflu eða tjaldi. Sjálf var ég ekki búin að fara til augnlæknis í þrjú ár. Ég hafði því hringt i augnlækningadeildina í Hamrahlíðinni, þar sem augnlæknirinn minn er með stofu, fyrri partinn í febrúar. Og í gær rann upp dagurinn sem við mæðgin áttum tíma, Við trítluðum af stað um tíu og þurftum að bíða smá stund áður en við komumst að. Fórum bæði inn í einu og byrjaði Eydís auglæknir á að skoða og mæla mig. Okkur til mikillar ánægju þá var afar lítil breyting og engin ástæða til að fá sér ný gleraugu, hvað þá tvískipt gleraugu. Þegar þetta var ljóst skiptum við mæðgin um sæti. Vel gekk að mæla drenginn og hafði Eydís á orði hvað hann væri með falleg augu. Það eru samt greinilega byrjun á smá nærsýni. Engin ástæða samt að gera nokkuð fyrr en í haust. Hann mældist semsagt -0,25 á öðru og -0.50 á hinu. Það er ekkert farið að gera fyrr en í -0,50 en þar sem þetta er ekki farið að há honum alvarlega, stutt fram á vorið og kennarar þar að auki í verkfalli þá ákváðum við að panta tíma aftur í haust og láta mæla hann aftur þá. Í bakaleiðinni skrapp Davíð Steinn í heimsókn til eins vinar úr árganginum í Hlíðaskóla en þeir félagarnir komu fljótlega hingað yfir. Restin af deginum hjá mér fór í alls konar dútl og ég tók meira að segja fram handavinnutöskuna mína. Reyndar opnaði ég hana ekki og saumaði þar af leiðandi ekki spor.
18.3.14
Frídagur hinn fyrri
Við Oddur hlustuðum á útvarpsfréttir klukkan tíu á sunnudagskvöldið var. Fyrsta fréttinn var um að samningur hafði ekki náðst við framhaldsskólakennara svo það var ljóst að verkfall var hafið. Ég var því ein um að vakna snemma í gærmorgun. Fór á bílnum því með í farteskinu voru þrjár afmæliskökur, tvær bakaðar og ein keypt súkkulaðiostakaka. Ég fékk alfarið að sinna endurreisnar starfsseminni. Í morgunkaffinu skellti ég annarri heimabökuðu kökunni á borðið því ljóst var að sú sem var að vinna til klukkan tvö þurfti að fara strax klukkan tvö og ég vildi ekki að hún yrði útundan. Í hádeginu fékk ég dýrindis fiskrétt í mötuneyti Seðlabankans og í seinna kaffinu bauð ég upp á allar sortir. Uþb helmingurinn var eftir af "morguntertunni". Klukkan fjögur tók ég alla afganga með mér heim og voru bræðurnir afar glaðir með það og kláruðu heimabökuðu kökurnar strax. Kom við í Atlantsolíu við Flugvallarveg því það var 15 kr. afmælisafsláttur. Reyndar komust ekki nema 12 lítrar á tankinn. Þegar heim kom kveikti ég næstum strax á tölvunni og það var strax ljóst að margir höfðu sent mér kveðju og þær voru enn að streyma inn. ÉG fékk yfir 270 kveðjur og held að ég hafi náð að svara öllum kveðjunum sem var póstað beint á vegginn hjá mér. Hafði lambafillet með piparsósu, kartöflubátum, kúlukáli, grænmeti og hrásallati í kvöldmatinn. Einn vinur strákanna var í heimsókn og þáði boð um að borða með okkur, enda alveg nóg til. Fljótlega eftir matinn tók Oddur sig til og fór til pabba síns þar sem hann ætlar að vera fram að næstu helgi. Ég er afar sátt með gærdaginn. :-)
17.3.14
Afmæli
Við tvíburahálfsystir mín erum 46 ára í dag eða samtals 92, ekki ónýtt það. Annars ætlaði, eins og vanalega, að skrá aðeins niður það helsta frá gærdeginum. Ég vaknaði um átta og gat ómögulega kúrt lengur en tæpa klukkustund. Á ellefta tímanum tók ég til við baksturinn og bakaði tvo botna og eina heilhveiti/haframjöls-sultuköku (hjónabandssælu). Eftir baksturinn snéri ég mér að framtalsmálunum, skráði niður lánið frá pabba, yfirfór, villuleitaði og skilaði inn. Gott að vera búin að þessu.
Um tvö kvaddi ég synina og lagði af stað til systur minnar. Þar lágu tvö verkefni fyrir og svo bættist eitt við. Byrjaði á því að skrifa utan á umslög til ferminarboðsgesta. Það tók mig tæpa hálfa klukkustund en Hulda og vinkona hennar skrifuðu utan á fimm á fimm tímum. Síðan setti ég mig í endurskoðanda gírinn og fór yfir, bætti inn á og skilaði skattframtali systur minnar og mágs. Fyrir þessa vinnu var mér boðið í mat, kjötsúpa a la Ingvi. Eftir mat hjálpaði ég yngri systurdóttur minni að klára heimanámið með því að "finna" fyrir hana 40 orð úr bók sem hún er að lesa. Hún átti að skrifa niður orðin óséð og laga þau ef hún gerði villur. Áður en ég fór heim bar mágur minn einn stól sem þau voru að losa sig við, fyrir mig út í bíl. Oddur Smári sótti stólinn svo fyrir mig út í bíl þegar ég kom heim.
16.3.14
Morgunstundir
Ég var komin á fætur og búin að fara í sturtu og allt nokkru fyrir hálfátta í gærmorgun. Rétt fyrir átta var ég mætt í skautahöllina í Laugardag þar sem hópurinn hennar Bríetar yngri systurdóttur minnar var að fara að hita upp. Frænka mín var svo númer fjögur í keppnisröðinni. Huldu hópur hitaði upp rétt fyrir tíu og hún var fyrst inn á svellið eftir upphitunina. Hún skorar afar hátt fyrir túlkun en hefur ekki náð sér á strik í tæknihlutanum, kannski vegna fótbrotsins því hún skoraði mun lægra en oft áður þótt hún skori ekki hátt venjulega. Yfirleitt nær hún meira en 10 en í gær var hún með rúmlega 7 fyrir tækni en með 26 komma eitthvað í heildina.
Var mætt til norsku esperanto vinkonu minnar um ellefu og stoppaði hjá henni í tvo tíma áður en ég kom svo við og verslaði í Krónunni á heimleiðinni. Oddur var kominn heim svo hann gekk frá vörunum. Um hálffjögur ákvað ég að hræra í vöfflur og staflinn var tilbúinn um fimm. Hellti upp á kaffi í leiðinni, alveg fullan brúsa.
Var mætt til norsku esperanto vinkonu minnar um ellefu og stoppaði hjá henni í tvo tíma áður en ég kom svo við og verslaði í Krónunni á heimleiðinni. Oddur var kominn heim svo hann gekk frá vörunum. Um hálffjögur ákvað ég að hræra í vöfflur og staflinn var tilbúinn um fimm. Hellti upp á kaffi í leiðinni, alveg fullan brúsa.
15.3.14
Helgi
Mikið er ég fegin að gærdagurinn er liðinn og þessi erfiða vika að verða búin. Þrátt fyrir að vera bara fjórar á deildinni í gær sá fyrirliðinn til þess að ég væri laus frá hefðbundnum daglegum rekstri til að vinna í að lagafæra ákveðið/in verkfæri sem við þurfum nauðsynlega að hafa í lagi. Það er nokkuð ljóst að þessi vinna mun taka gífurlegan tíma. Vann við þetta í uþb sex klst. í gær og er samt aðeins búin með 1/9 hlutann af heildardæminu.
Hér var spilakvöld í gær, aðeins í styttri kantinum því um níu bað Davíð Steinn mig um að skutla sér og tveimur öðrum í gleðsskap. Oddur Smári var skynsamur að mér fannst og sleppti þessu dæmi svo hann væri vel fyrirkallaður á æfingu og undirbúning undir forritunarkeppni sem fram fer í HR n.k. laugardag. Sjálf fór ég óvanalega snemma í háttinn þrátt fyrir að það væri föstudagskvöld og helgin öll framundan.
14.3.14
Saumaklúbbur á Vatnsstíg
Notaði lánsbílinn í gær og fengu strákarnir því far í skólann. Vinnudagurinn leið einhvern veginn og seinni partinn fór ég í að skoða ákveðin mál sem þarf að laga nokkra mánuði aftur í tímann. Þegar klukkan sló fjögur vissi ég amk hvernig skárst væri að tækla málin en gerði mér janfframt ljóst að það er gígantísk vinna framundan áður en málin komast í fyrra form.
Hafði kjúkilingabringur í matinn upp úr sex. Oddur Smári fór á trommuæfingu rétt fyrir sjö og var ekki kominn heim aftur þegar ég tók mig til og lagði af stað í saumaklúbb. Hef ekkert tekið í nál síðan ég heimsótti vinkonu mína á Vatnsstíg fyrir tveimur eða þremur viku síðan (get flett því upp því ég er viss um að ég bloggaði um þá heimsókn). Ég saumaði útlínur í myndina af gamaldags grammófóninum og byrjaði einnig á nýju jólakorti. Það var kátt og glatt á hjalla og tíminn flaug óþarflega hratt frá okkur. Ákvað næsta klúbb hjá mér rétt fyrir mánaðamót og sendi stelpunum sms um það. Ætlaði að spauga með að vilja vera með í skilaboðaklúbbnum og sendi mér líka sms, eða það hélt ég. Þegar síminn minn pípti ekkert skoðaði ég síðasta númer og það var víst allt annað númer en gsm-númerið mitt, mjög líkt númer samt. Rétt áður en ég fór að sofa fékk ég sms til baka úr því númeri þar sem mér var tjáð að ég hefði óvart sent sms þangað og mér jafnframt óskuð góð helgi.
13.3.14
Þessi fór víst ekki alla leið inn í gær :-/
Það hvarflaði að mér að sleppa því að setja inn pistil í dag. En þá var hættan orðin sú að ég hefði "misst dampinn" og jafnvel liðið nokkrir dagar áður en ég gæti hugsað mér að skrifa eitthvað. Mig langar ekkert að segja neitt að ráði frá ákveðnum atburðum gærdagsins, tæpi bara á því helsta. Tók strætó við Sunnubúðina upp úr hálfátta í gærmorgun. Morguninn í vinnunni var nokkuð eðlilegur en um hádegið fór allt á hvolf. Mikið um fundarhöld í turninum við Katrínartún og þegar fundum lauk hafði engin af vinnufélögum mínum á deildinni minnstu löngun til að fara aftur til baka þótt klukkan væri ekki nema rúmlega tvö. Fimm saman löbbuðu við Laugaveginn og Bankastræti og settumst inn á Kaffi París í hátt í einn og hálfan tíma áður en hver fór til síns heima. Við vorum slegnar og þungar í spori og á brún og eiginlega öskureiðar líka.
Engin kóræfing í gærkvöldi
Fór með fulla lúku af klinki, (krónur, tíkallar og hundraðkallar), alls 350 kr. sem ég ákvað að losa mig við í strætó á leið í vinnuna í gærmorgun. Ég er ekki búin með strætómiðana en fannst það ágætt að létta aðeins á klinkbuddunni minni. Vinnudagurinn gekk nokkuð eðlilega fyrir sig miðað við allt og allt. Eftir hádegi "heimsóttu" okkur þrír "strákar" af tækninsviðinu að sinna ýmsum verkefnum. Einn er að byrja að setja annan inn í sitt starf og einn var að athuga hvort hann kæmi upp nokkrum verkfærum sem við þurfum á að halda en hafa ekki verið nothæf í nokkra daga. Stimplaði mig út á slaginu fjögur og þá á ég að ná á leið 13 innan fimm mínútna. Vagninn var hins vegar eitthvað seinni og ég hafði það sterklega á tilfinningunni að hann væri það seinn að næsti vagn á eftir væri bara rétt rúmum fimm mínútur þar á eftir. Beið þó ekki eftir þeim vagni hvorki fyrir utan vinnuna né á Lönguhlíðinni milli Mávahlíðar og Drápuhlíðar til að fá úr þessari tilfinningu skorið. Steikti rúsínuslátur og lifrarpylsu og hafði í kvöldmatinn ásamt soðnum kartöflum. Bræðurnir voru á leið í Kringlubíó ásamt einhverjum vinum um átta. Ég var hins vegar mætt í "fýluferð" út í kirkju um hálfátta ásamt þremur öðrum úr kórnum og ein af þeim var búin að hella upp á. Við fengum okkur smá kaffi fyrst við vorum komin á annað borð og svo fékk ég diskinn undan annarri kökunni sem ég kom með í kaffimessuna sl. sunnudag. Kom heim stuttu fyrir átta og þá var annar tvíburinn enn heima. Ég skutlanði honum út í Kringlu svo hann næði í bíóið. Hann hafði víst þurft að klára eitthvað í tölvuleiknum sem hann var að leika sér í. Um hálftíu hringdi ég á bjöllunni hjá nágrannanum á neðri hæðinni. Við skrifuðum undir kaupmála að bílskúrnum mínum sem senn verður hans. Hann er nú þegar byrjaður að vinna í skúrnum með fullu leyfi mínu en gengið verður frá samningnum á næstu vikum og hann mun borgar mér 2x900þús, annars vegar við eiginlega undirskrift og hins vegar upp úr miðjum ágúst. Þennan pening ætla ég bæði að nota í nýtt bað og til að borga hraðar niður af Landsbankanláninu sem ég tók í nóvember sl.
11.3.14
Leiðindi
Gat ekki hamið mig í að pósta þessum titli á pistil dagsins þótt ég hvorki geti né vilji tjá mig meira um þau mál. :-( Strákarnir fengu far með mér í skólann í gærmorgun og vinnudagurinn minn leið hratt eins og venjulega. Fór svo beint heim og var svo heppin að fá annan strákinn til að sækja þvottinn af snúrunum niðri í þvottahúsi. Þar sem strákarnir voru með spilakvöld milli fjögur og níu á sunnudaginn og fengu sér pizzu með spilavinunum var ég með sunnudagsmatinn í gær. Hafði keypt þrjár lærissneiðar sem ég steikti upp úr eggi og byggflögum krydduðum með "Best á lambið". Með þessu hafði ég kartöflur, grænar baunir, hrásallat og piparsósu. Þetta mældist mjög vel fyrir enda er svona matur afar sjaldan á borðum.
10.3.14
Galdramessa í gær
Tók því nokkuð rólega í gærmorgun, kúrði aðeins fram á morguninn og eftir að ég var búin að koma mér á fætur leið tíminn til hádegis ægilega hratt eitthvað. Rétt fyrir eitt tölti ég með tvær kökur, sálmabókina mína og pening fyrir kaffihlaðborðinu eftir messu út í lánsbílinn sem ég hafði lagt fyrir aftan heilsugæsluna er ég kom heim daginn áður. Fimm sálmar voru "merktir" upp á sálmatöfluna og nafnarnir tveir í bassanum tókust á loft er þeir sáu að m.a. átti að syngja sálm númer 351 "Ég er kristinn". Sann-Kristinn og Kiddi voru ekkert smá glaðir með þetta sálmaval en við hin gátum ekki setið á okkur að stríða þeim aðeins og segja að þeir ættu eiginlega að syngja sálminn tveir einir og við að humma undir. Annars gekk messan ágætlega fyrir sig nema presturinn hefur oft verið með tilkomu meiri töfrabrögð heldur en hann var með í gær. Nokkuð margir voru mættir ein þó ekki það margir að legga þyrfti á borð inni í kirkjunni eins og oft áður. Ég kom með hluta af annarri kökunni heim aftur strákunum og spilavinum þeirra til mikillar ánægju sem kláruðu kökuna með það sama í mínu boði autvitað.
9.3.14
Vígsluhátíð flygils
Ég var mætt til norsku esperanto vinkonu minnar á slaginu ellefu í gærmorgun. Stoppaði hjá henni í tæpa tvo tíma og fór svo beint í Krónuna við Granda að versla inn. Oddur Smári hafði farið upp í skóla rétt fyrir tíu til að æfa sig fyrir forritunarkeppni. Hann var ekki kominn heim þegar ég kom úr búðinni og Davíð Steinn var ekki vaknaður svo það dæmdist á mig að ganga frá vörunum. Tók svo smjörlíkí út úr ísskáp til að mýkja upp við stofuhita fyrir bakstur.
Rétt fyrir fjögur var ég mætt í kirkju óháða safnaðarins þar sem átti að hafa smá tónleika í tilefni nýs Bösendorfer flygli sem nýlega var keyptur til kirkjunnar. Þetta voru alveg magnaðir tónleikar. Tríóið hans Árna Heiðars byrjaði á því að spila fjögur lög af báðum útgefnum jazzplötum sínum en eitt lagið var nýtt og ekki komið út á disk enn. Það fer samt pottþétt á næsta disk sem tríóið gefur út. Síðan spilaði Árni Heiðar til skiptis undir hjá Huldu Garðarsdóttur og Gissuri Páli Gissurarsyni sem sungu tvö og tvö x 3 lög þ.e. komu þrisvar sinnum fram hvort um sig. Að sjálfsögðu var klappað upp og aukalagið sungu þau saman. Tónleikarnir stóðu í rétt tæpan einn og hálfan tíma sem leið alltof hratt. Á eftir bauð safnaðarstjórnin upp á snittur gos og vatn í efri safnaðarsalnum.
Klukkan var byrjuð að ganga sjö er ég kom heim. Strákarnir fengu sér afgang að borða og ég tók mér smá tíma í að koma mér í bakstursstuð. Bakaði svo tvær kökur upp úr heilhveiti, haframjöli, púðursykri (setti reyndar hvítan sykur í seinni kökuna), smjörlíki, eggi, smá matarsóta og rabbarbarasulut. Horfði svo á megnið að þættinum um Ladda, alla ævintýramyndina sem var strax á eftir og restina af Barnabymyndinni á DR1. Hafði séð þá mynd áður en festist yfir endinum engu að síður. Síðan slökkti ég á sjónvarpinu, fór smá stund í tölvuna og skreið svo í rúmið rétt eftir miðnætti.
8.3.14
Kveðja
Ég tók mér frí úr vinnunni í gær til þess að geta kvatt og fylgt henni Hlíbbu minni. Kistulagningin var klukkan tólf og útförin klukkan eitt. Ég fór reyndar ekki í garðinn á eftir heldur í safnaðarheimili kirkjunnar í erfidrykkjuna eins og flestir. Allra nánustu aðstandendur fóru í garðinn og komu svo aftur til baka. Dóttur-dóttir Hlíbbu, er bæði frænka mín og eiginlega litla systir því hún kom til okkar á Heiði mánaðar gömul sumarið 1976 og var hjá okkur fyrsta árið. Móðir hennar (dóttir) hafði líka þurft að vera fjarri foreldrum sínum fyrstu mánuðina í sínu lífi til að koma í veg fyrir berklasmit. Hlíbba mín var alveg einstök kona og það eru dóttir, hennar og dótturdóttir líka. Hún var svo ljúf og yndisleg. Alltaf þegar ég kom í heimsókn hafði hún á orði hvað ég væri ræktarsöm og góð að koma til hennar. Sjálf fékk ég alveg helling út úr því að vera í samvistum við hana. Við gátum spjallað um svo margt og svo var eitthvað svo gott í kringum þessa konu. Í gegnum árin hafði hún á orði öðru hvoru að hún kviði því svo að deyja. Hún hafði meira að segja orð á þessu á laugardeginum tveim dögum fyrir 87 ára afmælið og þremur sólarhringum áður en hún lést. Hún fékk að fara í svefni og ég er viss um að það er ein besta leiðin til að fá að fara, sofna bara og vakna ekki aftur hérna megin.
Kom heim upp úr hálffjögur eftir að hafa komið við og fyllt lánsbílinn hjá atlantsolíu við Flugvallarveg, 13 kr afsláttur. Bíllinn var uþb hálfur fyrir en það fóru tuttugu lítrar á hann og safnast þegar saman kemur. Strákarnir voru boðnir í afmæli um kvöldið svo ég var ekkert að hugsa fyrir mat. Rétt fyrir átta labbaði ég út í Valsheimili þar sem Valsstelpurnar tóku á móti stelpunum í HK. Það leit út fyrir rúst því það munaði níu eða tíu mörkum í hálfleik. "Mínar stelpur" skoruðu svo ekki fyrstu sex mínúturnar í seinni hálfleik á meðan andstæðingarnir minnkuðu muninn jafnt og þétt. HK-stelpurnar náðu samt ekki að jafna og leikurinn endaði 27-24.
7.3.14
"Frídagur"
Strákarnir fengu far með mér í skólann í gærmorgun. Ég var mætt í vinnu rétt fyrir átta og fyrsta verkefni dagsins fólst í að taka á móti og skoða kort. Annars leið dagurinn afar fljótt eins og venjulega. Kom við í fiskbúðinni við Sundlaugarveg og fékk þar þrjú bleikjuflök, hrogn og ca kíló af ýsu. Ýsuna setti ég í frysti. Ég bakaði bleikjuna í ofni og sauð hrognin vafin inn í álpappír. Annar strákurinn sneyddi alveg hjá hrognunum en hinn hafði orð á því hversu góð þau voru.
Rétt fyrir klukkan átta rölti ég út í Valsheimili þar sem Valsstrákarnir tóku á móti HK. Leikar enduðu 31-24 en það tók "mína menn" smá tíma að ná tökum á mótherjunum. Við Oddur horfðum svo á Criminal Minds fljótlega eftir að ég kom heim af leiknum.
6.3.14
Færsla númer 1560 síðan jan. 2003
Mikið var ég fegin að vera ekki að fara á bílnum í vinnuna í gær. Slapp þá við að sópa og skafa af lánsbílnum í bili. Ég mætti nógu snemma til vinnu til að byrja frá grunni á vinnustöðinni. Í gær var það mitt hlutverk að hlaða inn og setja af stað fyrstu framleiðslu dagsins (oftast er hópstjóri deildarinnar mætt nokkuð á undan og byrjuð að hlaða inn skrám og framleiða) sem og að hlaða inn fleiri skrám eftir því sem þær bárust. Eftir kaffi færði ég mig um set á framleiðsluvélinni og tók á móti og skoðaði. Vinnudagurinn leið fljótt og eftir hádegi sinnti ég ýmsu sem einungis tengist samantekt eftir mánaðamót. Kom heim upp úr fjögur. Strákarnir höfðu látið mig vita að þeir ætluðu til pabba síns eftir skóla svo ég þurfti ekki að elda í gær, fékk mér bara haframjöl í sjóðandi vatni með kasewhnetum, rúsínum og kanil. Lagði svo af stað á kóræfingu í fyrrafallinu því ég vissi að það færi einhver tími í að verka lánsbílinn. Var mætt á réttum tíma á æfingu. Tveir tímar voru fljótir að líða og þá þurfti ég að hafa aðeins meira fyrir því að skafa af lánsbílnum áður en ég keyrði heim. Horfði á Kiljuna á tímarásinni og gleymdi mér svo illilega í einum netleik á FB. Strákarnir komu heim hálftólf en þótt klukkan væri orðin meira en miðnætti þegar ég skreið upp í las ég í nokkrar mínútur.
5.3.14
Hvít jörð
Ég fann að það var betra að stíga varlega til jarðar þennan stutta spöl út á stoppistöð í gærmorgunn. Það var launhált. Mér skrikaði ekki fótur og komst til vinnu heilu og höldnu. Vinnudagurinn leið afar hratt og klukkan varð fjögur miklu fyrr en ég reiknaði með, eða þannig. Tók 13 beint heim strax eftir vinnu. Heima byrjaði ég á því að kveikja á tölvunni áður en ég trítlaði niður í þvottahús til að setja í eina vél og ná í það sem var á snúrunni. Setti upp bygggrjón og þegar þau voru um það bil að verða soðin setti ég þau í eldfast fat, bætti við kjúklingabaunum, gulum baunum og kjúklingabitum krydduðum með "Best á kjúklinginn". Þetta setti ég inn í 150 gráðu heitan ofninn og bakaði í ca fjörutíu mínútur. Neibb, engin sprengidagssúpa og saltkjöt hjá mér, fékk mér heldur ekki svoleiðis í mötuneytinu í hádeginu.
Annars var ég alveg viss um að í dag myndi ég segja frá því að ég hefði gripið í saumana mína í gær. En það eina sem ég get sagt er að ég hugsaði um að grípa í saumana mína en það varð ekki neitt úr neinu. Horfði á Castle með Oddi og svo seinna á síðasta þáttinn af breskum sakamálaþætti sem sýndur var eftir tíu fréttir sl. þrjú þriðjudagskvöld. Kannski gríp ég aðeins í nál í kvöld, hver veit???
4.3.14
Mars að komast á skrið
Að venju notaði ég lánsbílinn milli heimilis og vinnu í gærmorgunn og bauð ég tvíburunum skutl í skólann í leiðinni. Vinnudagurinn leið frekar hratt enda nóg að gera svona um mánaðamót. Ég fékk svo að fara upp úr þrjú því ég átti tíma í K2 í heilsufarsmælingu. Var mætt aðeins fyrir tímann en komst strax að því sá sem átti að vera í tímanum á undan hafði ekki mætt. Ætla mér ekkert að fara sérstaklega ofan í þessa ör-heilsumælingu nema ég var ánægð með sumt en síður með annað. Var komin heim um fjögur og gerði lítið annað en að vafra um á netinu, taka til kvöldmat, ganga frá í eldhúsinu eftir matinn og horfa á fréttir og svo Law and Order þátt frá því á sunnudagskvöldið. Mér tókst að koma mér í rúmið upp úr ellefu og að hætta að lesa áður en klukkan varð hálftólf. Held að ég hafi svo verið nokkuð fljót að sofna.
3.3.14
Fyrsta helgi mánaðarins liðin
Undarlegt hvað þessar helgar eru fljótar að líða. Þær vilja líklega ekki vera eftirbátar virku daganna sem líða yfirleitt frekar hratt líka. Var heldur fyrr á fótum í gærmorgun miðað við laugardaginn enda byrjaði ég á því að dekra við mig með því að smyrja á mig kókosolíu hátt og lágt áður en ég fór í sturtu. Upp úr hádeginu ákvað ég að ljúka við að lesa þriðju og síðustu skammtímalánsbókina af safninu. Mátti alveg hafa þær í viku lengur en ég var líka búin að lesa þrjár aðrar svo ég ákvað að drífa mig með þessar sex og skila á safnið, upp úr tvö. Og viti menn mér tókst að komast út af safninu án þess að taka nokkra einustu bók með mér. Það eru enn hjá mér sjö bækur og það að auki ein úr kiljuklúbbnum Hrafninum að ég tali nú ekki um eina af jólabókunum sem ég virðist vera að spara aðeins. Á leiðinni heim af safninu ákvað ég að koma við í bakaríi og kaupa tilbúnar vatnsdeigsbollur handa strákunum.
Um fimm kvaddi ég strákana og brunaði í Hafnarfjörðinn að sækja tvíburahálfsystur mína. Hún átti eftir að ganga aðeins frá áður en við gátum haldið ferðinni saman áfram út úr bænum en við vorum komnar í Fossheiðina fyrir hálfsjö. Föðursystir mín hitti okkur svo þar í kvöldmatarboð hjá foreldrum þeirrar fyrrnefndu. Dýrindis kjötbollur með alls kyns meðlæti og á eftir fengum við bollur með kaffinu. Aftur höfðum við tvíburahálfsysturnar áhyggjur að því að við myndum standa á blístri á kóræfingu fyrrum kórfélaga kórs FSu. En auðvitað voru það alveg óþarfa áhyggjur. Æfingin gekk afar vel og æfð voru sex lög. Tveir tímar liðu alltof hratt og klukkan tíu héldum við þrjár saman í bæinn. Fyrst í Katrínarlind, þaðan í Svöluhraun og svo heim í Drápuhlíðina. Þangað kom ég svona korter yfir ellefu.
2.3.14
Sunnudagur
Vaknaði fyrst eldsnemma eða um sjö í gærmorgun. Fór aðeins framúr og sinnti þrennu mikilvægu áður en ég fór aftur upp í rúm. Svo kúrði mín og drollaði fram eftir morgni eða þar til klukkan var byrjuð að ganga ellefu. Var mætt hjá norsku esperanto vinkonu minni um ellefu. Fengum okkur kaffi, ristað brauð og eina bollu áður en við snérum okkur að tilbúna tungumálinu góða, með meira kaffi með okkur. Stoppaði í um tvo tíma en fór svo í Krónuna við Granda að versla inn fyrir vikuna. Þegar heim kom var bikarúrslitaleikur kvenna milli Stjörnunnar og Vals hafinn og að sjálfsögðu fór ég beint í að fylgjast með því Oddur sá um að ganga frá vörunum. Leikurinn endaði með sigri "minna" stelpna og voru þær að taka bikartitilinn þriðja árið í röð.
Um fimm lagði ég lánsbílnum við Hallgrímskirkju og labbaði þaðan á kaffihúsið Babalú. Fór beint upp en sá ekki að hin tvíburamamman væri mætt. Stuttu seinna hringdi gemsinn minn og þá kom í ljós að vinkonan var mætt en hún sat á neðri hæðinni og var að gæða sér á súpu. Ég dreif mig niður og fékk mér kaffi og spínat-crépes. Við sátum svo og spjölluðum og hlógum næstu þrjá tímana eða svo og inn á milli spurðum við spilin hennar Siggu Kling og fengum nokkur frábær svör. Við kvöddumst fyrir utan kaffihúsið upp úr átta með loforði um að hittast fljótlega aftur.
Er heim kom horfði ég á Barnaby á DR1 með Oddi. Síðan horfði ég á tvo þætti á frelsinu, fór aðeins í tölvuna áður en ég skreið upp í rétt fyrir eitt og las í hálftíma.
1.3.14
Laugardagur
Já, sæll, það er kominn mars. Tveir mánuðir liðnir af árinu og ég búin að pósta pistlum upp á hvern einasta dag í fjóra mánuði. Fór annars með leið 13 í vinnuna upp úr hálfátta í gærmorgun. Vinnudagurinn leið afar hratt og vorum við með verkefni af ýmsum toga sem entust út allan daginn. Tók strætó heim strax eftir vinnu og þar sem spilakvöld stóð fyrir dyrum hjá strákunum og fjórum vinum þeirra þurfti ég ekkert að hafa fyrir að hugsa um kvöldmat. Seinni parturinn og kvöldið fór í tölvuleiki, sjónvarpsgláp og lestur.
28.2.14
Heiðruð fyrir 35 blóðgjafir
Strákarnir fengu far með mér, á lánsbílnum, í skólann í gærmorgunn eins og er orðið nokkuð venjulegt á fimmtudagsmorgnum á þessu vormisseri. Vinnudagurinn leið frekar hratt því þessa dagana er nóg að gera allan daginn. Reyndar fengum við rúmlega klukku stundar pásu upp úr eitt en vorum byrjaðar að framleiða aftur fyrir hálfþrjú og hættum ekki fyrr en stuttu fyrir fjögur. Fór beint heim að vinnu lokinni. Lét Odd hafa pening fyrir sex trommutímum, tímanum síðan í síðustu viku, tíma gærdagsins og svo fyrir öllum tímum í mars. Upp úr hálfsjö setti ég upp kartöflur og skar niður blóðmörskepp með rúsínum (frá SS). Steikti handa mér og Davíð Steini en þar sem Oddur var farinn á æfingu þurfti hann bara að sjá um að steikja sínn skammt sjálfur. Rétt fyrir átta var ég mætt í K-byggingu við Landsspítalann við Hringbraut. Þar fór fram aðalfundur bljóðgjafafélagsins. Eftir ávarp forstjóra spítalans voru venjuleg aðalfundarstörf afgreidd. Formaður síðustu tiu ára, Ólafur Helgi Kjartansson og einn annar meðlimur úr stjórninni gáfu ekki kost á sér áfram en það var búið að finna gott fólk í staðinn til að taka við keflinu. Síðan voru veittar viðurkenningar. Ég var í hópi hátt í 40 manns sem fengu sína fyrstu viðurkenningu, konur (við vorum 4, allar mættar) fyrir 35 gjafir og menn fyrir 50 gjafir (aðeins hluti af mönnunum mætti). Ein kona fékk viðurkenningu fyrir 50 gjafir og einn maður er búinn að slá Íslandsmet og fá viðurkenningu frá heilbrigðisráðherra fyrir 175 gjafir. Eftir viðurkenningaveitingar og myndatöku var boðið upp á smá veitingar, kaffi, safa, ávexti, skúffuköku og fl. Kom heim um tíu og tók þessa mynd af mér og skjalinu:
27.2.14
Lítið eftir af viku og mánuði
Oddur Smári var farin í ræktina fyrir sjö eða áður en ég kom aftur fram og Davíð Steinn var ekki kominn fram þegar ég fór út til að ná strætó upp úr hálfátta. Vinnudagurinn leið hratt og örugglega. Smá "pása" var á milli eitt og hálfþrjú á meðan verið var að skipta um "haus" við einn litmyndaborðann í vélinni en svo vorum við að alveg til klukkan að verða fjögur. Eftir vinnu fór ég fyrst heim. Kveikti á tölvunni til að ná mér í smá upplýsingar en dreif mig svo að ná í þrennar buxur úr viðgerð. Mætti Davíð Steini á leiðinni út. Úr Saumnálinni fór ég í hraðbanka bæði til að ná í aur fyrir trommutímum Odds og svo finnst mér gott að eiga eitthvað af seðlum í veskinu. Þegar ég settist aftur inn í bílinn byrjaði ég á því að hringja í tengilið til að kanna hvort ég gæti sótt sendingu. Fékk jákvætt svar og fór beint þangað að sækja kassann minn. Fljótlega eftir að ég kom heim fór ég að huga að mat. Setti upp bygggrjón, kryddaði þrjár kjúklingabringur með best á kjúklinginn, kveikti á ofninum og setti frosið grænmeti í pott með smá vatni og örlitlu salti. Allt kláraðist svo nema bygggjónin. Var mætt á kóræfingu rétt fyrir hálfátta. Við vorum aðeins ellefu með kórstjóranum og það vantaði einhvern/einhverja í hverja rödd, 2 í sópran, 2 í alt, einn (og hálfan) í tenór og 1 í bassa. Æfingin gekk samt bara vel og var farið yfir ýmis lög.
26.2.14
Ýmislegt
Notaði almenningssamgöngur milli heimilis og vinnu í gær. Kom heim upp úr fjögur og hringdi í þá konu sem ég var búin að nefna við að kaupa afmælisgjöf af henni handa einni vinkonu minni. Mér var sagt að koma og ég dreif mig í smá ferðalag út á Álftanes á lánsbílnum. Keypti gjafabréf, tvo eins spilastokka og festi tíma handa sjálfri mér. Áður en ég fór heim aftur kom ég við hjá atlantsolíu við flugvallarveg og dældi á lánsbílinn því það var 12 kr. afsláttur af lítranum. Bræðurnir ætluðu að sjá um kvöldmatinn fyrir sig sjálfir því ég var á leiðinni út að borða með afmælisbarninu og nokkrum stelpum á öllum aldri (systrum, frænkum og vinkonum). Nokkru áður en tvíbursystir mín renndi við eftir mér hringdi frændi minn, sem ég hitti sl. laugardag, til að segja mér að tengdamóðir hans væri dáin, hafði andast í svefni um morguninn, daginn eftir 87 ára afmælið sitt. Mikið er ég fegin að ég átti kost á því að hitta hana um síðustu helgi. Ég hugsaði svo sterkt til hennar á mánudaginn, afmælisdaginn, en einhvern veginn varð ekkert úr því að ég hringdi í gömlu konuna.
Lilja varð fimmtug í gær og hafði ákveðið að fara út að borða í tilefni dagsins. Við vorum nokkrar sem vorum velkomnar að koma og borða með henni á "Restaurant Reykjavík" við Vesturgötu 2. Sonja sótti mig rétt fyrir sjö. Hún var búin að búa til afmæliskort og skrifa á það og umslagið var það stórt að óskasteinn og spilastokkur komust fyrir í því en við tvíburahálfsysturnar gáfum Lilju þetta saman auka gjafabréfs á einkatíma til Siggu Kling. Að auki gaf ég Lilju diskinn sem var tekinn upp í Skálholti sl. vor með Gloríu eftir Verdy og Litlu orgelmessunni eftir Haydn. Við vorum sjö sem heiðruðum Lilju með nærveru okkar, tvær systur af fimm systkynum hennar, tvær frænkur og við saumaklúbbsvinkonurnar. Fengum afar góðan mat. Sumar fóru á hlaðborð, einhverjar pöntuðu fisk dagsins, ein fékk sér bleikju og ég fékk mér lamb. Allar fórum við svo í eftirréttarhlaðborðið. Þegar við vorum eiginlega búnar að borða sungum við afmælissönginn og rétt seinna kom þjónn og bauð upp á freyðivín, eitt glas á mann, í tilefni dagsins. Að auki fékk Lilja eftirréttinn frían í boði hússins. Þetta var yndisleg kvöldstund með skemmtilegu fólki. Því miður þurfti svo afmælisbarnið að fara að vinna fyrir miðnætti en undanfarnar vikur hefur hún passað skip á nóttunni (yfirleitt milli átta og átta).
Kom heim um tíu og horfið á Castle á tímarásinni með Oddi og svo "Hafinn yfir grun" í kjölfarið.
25.2.14
Í kaffipásu
Það er orðinn fastur liður að nota lánsbílinn milli heimilis og vinnu á mánudagsmorgnum og fá þá synirnir að fljóta með að Tækniskólanum. Vinnudagurinn leið hratt og örugglega við ýmis störf. Fór beint heim eftir vinnu. Annar tvíbbinn var nokkuð löngu kominn heim og hafði hann ryksugað yfir eldhúsgólfið og herbergisgólfið sitt. Ég kveikti á tölvunni og þegar ég opnaði facebook síðuna komst ég að því að eldri systurdóttir mín hafði verið svo óheppin að bíta í köku með hnetum í daginn áður. Hún hafði verið á e-s konar sýningu sem hármódel í voða flottum kjól. Held að þetta hafi verið eitthvað tengt fermingargreiðslum. Fara þurfti með Huldu á bráðamóttökuna þar sem henni var gefið eitthvað svo hún færi ekki að kasta upp lifur og lungum í bráðaofnæmiskastinu. Af bráðamóttökunni var frænka mín send yfir á barnadeildina við Hringbraut þar sem hún varð að vera í amk sjö tíma. Hafði annars hakk og spakk í matinn og kvöldið fór í netvafr, sjónvarpsgláp og lestur.
24.2.14
Mánudagur
Ég leyfði mér að sofa aðeins lengur fram á morguninn í gær heldur en á laugardaginn. Var samt vöknuð fyrir tíu. Morguninn leið fljótt við ýmislegt dúllerí. Um eitt var ég mætt í upphitun fyrir tónlistarmessu. Sungum yfir alla messuna undir gítar og hammond-orgelspili en trommarinn hafði forfallast. Það var bara þokklega mæting í kirkjuna. Messan gekk vel og sá Kristján Sverrisson hjá kristniboðssambandinu um predikunina. Hann var með virkilega fína ræðu og þótt hann notaði allar sínar tuttugu mínútur eða svo þá var ég bara öll ein eyru allan tímann. Eftir messu fékk ég mér smá kaffi með kórfélögunum og einnig var mætt á svæðið fyrrum kórsystir. En upp úr hálffjögur dreif ég mig í smá verslunarleiðangur áður en ég fór heim. Heima gekk ég frá vörunum en annars var ég að vafra um á netinu, lesa og horfa á sjónvarpið. Strákarnir komu heim um og upp úr hálfellefu.
23.2.14
Úr fjórum í tólf
Fór nokkuð snemma á fætur í gærmorgun til þess m.a. að gefa mér tíma til að meðhöndla húðina með kókosolíu. Rétt fyrir tíu var ég svo mætt til Nonna í Kristu Quest en hann sér um að klippa mig á sex vikna fresti. Eins og venjulega skildi ég mikið af hárum eftir á stofunni. Klukkan var hins vegar ekki orðin hálfellefu þegar ég kvaddi svo ég skrapp aðeins heim aftur.
Á slaginu ellefu hringdi ég á bjöllunni hjá norsku esperanto vinkonu minni, Inger. Við byrjuðum á því að fá okkur graut og tókum svo kaffið með okkur í sófann frammi í gangi. Fórum yfir það sem við höfum verið að punkta niður síðustu vikur og bættum við nokkrum orðum og þýðingum þeirra. Maðurinn hennar kom heim með nýbakað vínarbrauð og við enduðum á því að setjast niður með honum og fá okkur nýtt kaffi með bakkelsinu.
Frá Inger lá leið mín á aðalsafnið í Grófinni. Þrátt fyrir að aðeins væru sex dagar síðan ég var þar síðast á ferð var ég búin að lesa fjórar af þeim fimm bókum sem ég náði mér í þá. Ein af þeim var svona skammtímalánsbók til tveggja vikna. Ég skilaði þessum lesnu bókum og á skömmum tíma var ég búin að fylla fang mitt af miklu fleiri bókum. Alls urðu það 12 og af þeim þrjár að láni til tveggja vikna.
Úr bókasafninu fór ég og sótti Lilju. Saman fórum við á ljósmyndasýningu útskriftanema úr ljósmyndaskólanum. Sýningin var í húsi rétt við Nesstofu. Þar kenndi ýmissa "grasa" og þar hitti ég einn vinnufélaga minn og frænda einnar vinkonu minnar. Eftir að hafa skoðað sýninguna skilaði ég Lilju heim tíl sín aftur og fór sjálf heim til mín.
Vafraði aðeins um á netinu en stóðst svo ekki mátið að byrja að lesa. Að sjálfsögðu byrjaði ég á einni af bókunum sem ég þarf að skila innan 14 daga, Svikalogn eftir sænskan höfund, Viveca Sten. Um hálffimm hringdi gemsinn minn. Kona eins frænda míns og dóttir einnar gamallar konu sem ég heimsæki stundum var að bjóða mér að hitta þau hjá gömlu konunni en þau voru að gera henni dagamun þar sem hún verður 87 á morgun en þá verða þau ekki í bænum. Ég sló til. Fór í spariföt, litaði á mér varirnar og dreif mig yfir. Einn gestur til var einnig á svæðinu. Drakk með þeim kaffi og reyndi að passa mig að borða ekki yfir mig af meðlætinu, spjallaði og skemmti mér hið besta. Kvaddi rétt fyrir sjö.
Var mætt í kirkjuna rétt fyrir sjö en safnaðarstjórnin var búin að bjóða þar til árshátíðar öllum þeim sem starfa í krikjunni. Fengum mjög góðan mat bæði kalda og heita rétti og með kaffinu á eftir var heit eplaterta með rjóma og skyrterta. Einn kórfélagi minn var með pistil að venju, sagðist hafa fundið einn lítið notaðan og svo var fjöldasöngur í lokin. Semsagt nóg um að vera hjá mér í gær.
22.2.14
Hulda 14 ára í dag
Oftast er ég komin út á stoppistöð við Sunnubúðina um mínútu áður en áætlun strætó segir til um og þarf að bíða svo kannski í kannski 2-4 mínútur eftir vagninum. Í gærmorgun bar mig að akkúrat um leið og vagninn renndi að skýlinu. Vinnudagurinn leið ágætlega hratt. Um þrjú fékk ég sms-skilaboð frá Lilju vinkonu um að ég væri velkomin í heimsókn á nýja staðinn ef ég vildi og gæti. Það varð úr að ég dreif mig fyrst heim eftir vinnu til að sækja saumadótið og lánsbílinn. Það kom í ljós þegar ég kom heim að ekkert yrði af spilakvöldi hjá strákunum en að þeir væru á leiðinni til pabba síns upp úr sjö og myndu borða þar. Var komin til Lilju um fimm. Hún bauð upp á kaffi, kex og osta og svo spjölluðum við yfir kaffibollunum og handavinnunni í rúma tvo tíma. Þá skutlaði ég henni út á Granda þar sem hún vaktar stundum skip yfir nóttina. Bræðurnir voru rétt ófarnir er ég kom heim. Ég vafraði aðeins um á netinu eða þar til Barnaby byrjaði á RÚV.
21.2.14
Tap
Fimmtudagar eru lánsbílsdagar milli heimilis og vinnu. Bauð sonunum far í skólann í gærmorgunn og var mætt í vinnuna stuttu fyrir átta. Verkefni dagsins entust alveg til fjögur og var ég megnið af deginum að vinna á framleiðsluvélinni. Strax eftir vinnu lét ég snetrilausu þvottastöðina Löður við Skúlagötu skola af lánsbílnum. Splæsti gullþvottaprógrammi á bílinn sem varð hreinn og fínn að utan. Þá er bara spurningin hvenær ég læt verða að því að skrúbba hann að innan?
Hafði lifur í hvítlauks- og steinsellukryddaðri edikssósu í matinn sem er alltaf vinsælt á mínum bæ. Samt var ég svo heppin að það var afgangur til að taka með sér í vinnuna í dag. Rétt fyrir átta rölti ég út í Valsheimili á heimaleik í Olísdeild karla í handbolta, Valur - FH. Staðan var 14:13 í hálfleik en tveir leikmenn FH-inga voru atkvæða miklir og illviðráðanlegir, markvörðurinn og leikmaður nr 24 sem skoraði 10 mörk, svo leikurinn endaði með fjögurra marka tapi 24-29. Fljótlega eftir að ég kom heim horfðum við Oddur Smári saman á "Criminal Minds".
20.2.14
Smá tónleikar í upphafi kóræfingar
Í gær var almenningssamgöngudagur milli heimilis og vinnu. Ég er eitthvað farin að huga að því að labba kannski heim úr vinnunni en í gær var nokkur hraðferð á logninu og frekar kalt svo ég nýtti mér leið 13 sem stoppar eiginlega á horninu heima. Strákarnir ætluðu til pabba síns eftir skóla. Reyndar fór annar pilturinn í ræktina fyrst og ég hitti hann í mýflugumynd þegar hann skilaði af sér ræktardótinu heim. Ég vafraði um á netinu og fékk mér sjóðandi vatn út á haframjöl með rúsínum, kasewhnetum og kanel í kvöldmatinn. Horfði á fréttirnar á Stöð 2 og tók svo með mér einnota plastkaffimál á kóræfingu til að spara uppvaskið. Árni Heiðar var í miklum ham að spila eitthvað þegar við kórfélagarnir vorum að tínast inn á æfingu. Þegar við vorum öll sest inn var aðeins byrjað að rabba um tilvonandi árshátíð kirkjunnar og spurði kórstjórinn okkur hvort hann mætti spila fyrir okkur verk eftir Frans Lizt sem hann hefur hug á að spila fyrir árshátíðargesti sem og á tónleikum fyrstu helgina í mars. Æfingin gekk annars vel og eftir kaffipásu renndum við yfir tónlistarmessuformið sem verður n.k. sunnudag. Árni ætlar að spila á hammondinn og fá með sér tvo á gítar og trommur. Enginn bassaleikari að þessu sinni. Þetta verður örugglega gaman. Klukkan var farin að halla í tíu er ég kom heim. Bræðurnir komu ekki heim fyrr en um klukkustundu síðar og þá fór annar þeirra eiginlega beint í háttinn.
19.2.14
Heimasigur í gær
Mikið hvað tíminn getur ætt hratt áfram. Gærdagurinn var hefðbundinn framan af. Tók strætó í vinnuna um hálfátta og aftur heim upp úr fjögur. Byrjaði á því að kveikja á tölvunni þegar heim kom áður en ég fór í smá "heimilisvinnu". Setti upp kartöflur, steikti fisk upp úr eggi og byggjöli og sesamfræjum krydduðu með "best á fiskinn" og bræddi smá smjör og hellti úr hálfdós af gulum baunum út í pottinn. Klukkan hálfátta var ég mætt á heimaleik í kvennahandboltanum, Valur - Fram. Heimakonur eltu allan fyrri hálfleikinn en misstu samt frammarana aldrei of langt frá sér. Einu marki munaði í hálfleik. Fljótlega í seinni hálfleik kom 5:0 kafli og staðan breyttist úr 12:12 í 17:12. Leikurinn endaði 25:22. Labbaði heim glöð í bragði. Fékk Odd til að poppa og svo horfðum við á Castle á tímarásinni.
18.2.14
Saumaklúbbur
Heilsa þér með virktum mestum
Muntu segja já við "gestum"?
Eitt gjafabréf
og handa mér
svo andann og sálina nestum.
Mánudagar eru lánsbílsdagar og þá fá tvíburnarir líka far í skólann. Eftir vinnu í gær kom ég aðeins við í Krónunni út á Granda og keypti smá inn. Ekki samt alveg hefðbundna vikulega körfu því ég átti til ýmislegt þótt annað vantaði. Strax og ég kom heim setti ég í svo sem eins og eina þvottavél og byrjaði svo að finna til kvöldmat. Við borðuðum rétt upp úr sex og ég var búin að hengja upp um sjö. Horfði á fréttir en upp úr hálfátta fór ég að huga að því að taka mig til fyrir saumaklúbb. Var mætt hjá tvíburahálfsystur minni klukkan átta. Við vorum aðeins tvær en seinna um kvöldið kíkti æskuvinkona hennar við sem ég þekki úr FSu og kórnum þar. Mikið var gaman að hitta hana. Ég saumaði aðeins í "Lost no more" - myndinni og svo eitthvað af útlínum á grammafónsmyndina. Kvöldið leið hratt og var klukkan farin að ganga tólf er ég kom heim.
17.2.14
"Dregin á gjörning"
Það hvarflaði sem snöggvast aftur að mér, að vinstra hnéð hefði líklega bara verið í "þynnkukasti" á laugardaginn (eins og ég hélt fram meira í gamni en alvöru í gær), þegar ég steig fram úr rúmi um níu í gærmorgun. Mér leið svo miklu, miklu betur í hnénu. Ákvað að smyrja mig með kókosolíu og beið með að þurrka yfir húðina í ca tíu mínútur áður en ég fór svo í sturtu. Um ellefu var ég mætt til norsku esperanto-vinkonu minnar. Við fengum okkur graut og tókum svo kaffið með okkur yfir í esperantohornið frammi í holi. Þar minntist hún á sýningu eða gjörning við mig sem er sýndur á Hverfisgötu í húsi merktu Kling og Bang. Hún var búin að sjá þessa sýningu amk þrisvar og vildi endilega fara með mér þangað. Eftir glímu við erfiða krossgátu á esperanto og uppflettingu á nokkrum orðum fengum við okkur ristað brauð. Síðan lá leiðin í Borgarbókasafnið í Grófinni. Þar skilaði ég sex bókum og tók mér aðrar fimm í staðinn. Vorum komnar inn í Kling og Bang um tvö og rétt seinna hófst fyrsta rennslið. Inni í salnum voru nýskjáir átta inni og einn sem sýndi hús nokkurt e-s staðar út og veröndina fyrir framan. Hinar myndavélarnar voru hver í sínu herbergi og stofum. Um var að ræða gjörning sem Ragnar nokkur Kjartanson og nokkrir aðrir framkvæmdu. Hann var í froðubaði og spilaði á gítar og söng. Í einu herberginu var kona að spila á harmonikku. Hún söng líka og skipti svo seinna yfir á gítar. Í öðru herbergi var dökkur maður sem spilaði á banjó. Hann söng líka með. Í einu herbergi sást kona liggja í rúmi og á rúmstokknum sat maður og spilaði á gítar og söng. Á tveimur stöðum voru menn sem spiluðu á píanó, annar þeirra var líka með munnhörpu og hinn með gítar. Svo var kona að spila á selló og maður á trommur. Allir sungu með og voru með eyrnatól til að heyra í hvert öðru. Einnig voru tvö á veröndinni samtengd og annað þeirra var með gítar. Það var mikið um endurtekningu. Atriðið stóð yfir í klukkutíma, melódían var angurvær og gaman að fylgjast með öllum sjónarhornum. Í lokin safnaðist fólkið inni við annað píanóið áður en það gekk út, sameinaðist hópnum á veröndinni og gekk syngjandi út á engið í átt til skógar.
16.2.14
Innipúki í gær
Það kom nú ekki til af góðu að ég hélt mig innivið í gær. Ég er ekki mikið fyrir að kvarta, held ég, svo ég spyr mig bara hvort þynnkan geti sest á einn ákveðinn líkamspart? Ég var ekki með neina timburmenn en vinstra hnéð lét mig finna vel fyrir sér í hvert skipti sem ég stóð upp og gekk um íbúðina. Gæti labbið frá Katrínartorgi hafa átt hlut að máli, að þar sem ég var aðeins búin að fá mér í tána, hafi ég ekki gætt nógu vel að mér á göngunni? Ég minnist þess ekki að hafa verið neitt stíf eða hafa misstigið mig. Reyndar hef ég aðeins fundið fyrir þessu hné núna nýlega og skýringin er líklega sú að það safnast of mikill bjúgur sem þrýstir á og framkallar þennan sársauka. Ég ákvað semsagt að taka því afar rólega hér heima í gær og notaði tækifærið og horfði á restina af annarri seríu af Scandal á skjáfrelsi. Hellti mér upp á kaffi seinni partinn og átti svo afgang af kjúklingapottrétti sem ég gat skipt upp í tvær máltíðir svo ég á eftir annan skammt í kvöld. Horfði á Barnaby á DR1 og Sherlock Holmes á RÚV um kvöldið. Þá mundi ég eftir því að ég átti sennilega smá treo uppi í skáp. Það var akkúrat ein tafla eftir sem ég leysti upp í vatni og skellti í mig áður en ég skreið upp í.
15.2.14
Letilíf um helgina
Fór með leið 13 til vinnu upp úr hálfátta í gærmorgun. Dagurinn leið einhvern veginn, hvorki of hægt né of hratt. Vorum þrjár eftir upp úr klukkan tvö og rétt fyrir fjögur fengu tvær af okkur far með þeirri þriðju yfir í Katrínartúnið þar sem við hittum þá fjórðu aftur, ásamt fullt af fleiri vinnufélögum, á 20. hæð. Þetta var svo "Kick off" dæmi þar sem farið var yfir bæði það sem er búið og vel gert og það sem er framundan. Boðið var upp á léttar veitingar. Ég entist bara nokkuð vel í þessu húllum-hæi en þegar átti svo að fara að rölta í bæinn ákvað ég að rölta bara heim. Hér heima voru strákarnir með spilakvöld. Ég fór inn í herbergi eftir að hafa kastað kveðju á alla. Rétt leit í tölvuna en lagðist svo augnablik á rúmið. Steinsofnaði um stund. Rumskaði um miðnættið og þá voru allir strákarnir farnir, bræðurnir líka því það er pabbahelgi. Ég háttaði mig og náði að sofna strax aftur.
14.2.14
Fullt tungl
Bauð bræðrunum far í skólann í gærmorgun, sem þeir þáðu. Ég vann á vélinni milli átta og rúmlega hálftólf með smá kaffihléi upp úr tíu. Fórum fimm saman af sex í mat upp í mötuneyti seðlabankans. Sátum svo allar sex á kaffistofunni frá korter yfir tólf. Ég tók mér orlof eftir hádegi og stimplaði mig út rétt fyrir eitt. Skrapp fyrst heim að ná í smá gögn sem ég hafði gleymt að taka með um morguninn. Fyrst lá leiðin í landsbankann í Borgartúni. Þar átti ég nokkur erindi. Byrjaði á því að setja klinkið úr kaffikrukku KÓSÍ-kórsins í myntteljarann. Í krukkunni voru líka nokkrir seðlar. Þetta voru rúmlega tólf þúsund krónur sem ég lagði inn á reikning kórsins. Næst valdi ég mér ákveðinn þjónustufulltrúa. Var að athuga hvort bankalánið mitt hjá þeim væri líka með veð í bílskúrnum og ef svo væri hvort þeir vildu aflétta því og færa alfarið á íbúðina. Þetta þarfnaðist frekari skoðunnar og kemur í ljós á næstu dögum. Síðan fór ég upp á næstu hæð og lagði inn skjal um að ég væri að taka að mér gjaldkerastöðuna í húsfélaginu. Spurði í leiðinni afhverju ég fengi árlega tilkynningu um að ég væri í ábyrgð fyrir foreldrafélag DKR þrátt fyrir að vera hætt sem gjaldkeri þar haustið 2010? Það átti þá eftir að fella þetta niður. Mun sleppa við þessa tilkynningu hér eftir. Úr bankanum lá leiðin í Íbúðalánasjóð sem er við sömu götu. Þar var ég að biðja um að aflétta veðinu á bílskúrnum. Fæ líklega jákvæða staðfestingu á því dæmi fljótlega. Áður en ég fór heim kom ég svo við í Saumnálinni, sem nú er staðsett við Laugaveg 168, með þrennar buxur í viðgerð. Semsagt ýmis erindi rekin í gær. Hringdi austur í foreldra mína þegar ég kom heim. Hellti upp á könnuna og hringdi svo annað símtal á Selfoss.
13.2.14
"Raddtemjari" með kóræfinuna í gær
Nýtti mér almenningssamgöngur, stóra gula bílinni, milli heimilis og vinnu í gær. Hópstjórinn okkar var í fríi í tilefni dagsins en önnur úr hópnum bannaði okkur hinum að fara neitt fyrr heim þennan daginn. Við áttum margar einn klukkutíma vegna fundarins milli fjögur og fimm sl. fimmtudag. Um eitt leytið bannaði hún svo einni að fara fram á salernið. Sagði að hún yrði að bíða til hálftvö. Þegar klukkan var búin að slá hálf þá var okkur sagt að fara allar fram í einu. Þar beið okkar stærðarinnar bleik afmælisterta og afmælisbarnið, hópstýran. Hún bauð upp á illy-kaffibaunir í kaffivélina með þessu og saman var þetta alveg himneskt.
Strákarnir fóru til pabba síns eftir skóla og rækt í gær svo ég þurfti ekki að hugsa fyrir kvöldmat. Fékk mér bara sjóðandi vatn út á haframjöl með kasewhnetum, rúsínum og kanil og borðaði þetta þegar hafrarnir voru búnir að drekka í sig vatnið.
Var mætt á kóræfingu klukkan hálfátta. Að þessu sinni var Guðbjörg Tryggvadóttir, kórstýra sönghópsins Veiranna, með okkur í raddþjálfun. Þaulæfðum tvö lög, annað sem við höfum sungið oft áður (Sigurhátíð sæl og blíð...) og hitt höfum við rétt kíkt á, reyndar í aðeins annarri útsetningu en hún æfði með okkur. Tímin leið afar hratt enda mjög gaman og maður fann hvað maður hafði gott af þessari einbeitingu á tækni til að nota söngröddina sem réttast og léttast.
12.2.14
Vikan hálfnuð
Fór með strætó til vinnu í gærmorgun. Þessa dagana er einungis um daglegan rekstur og framleiðslu að ræða. Við eigum ekki von á neinni endurnýjun fyrr en í kringum 22. þ.m. Framleiðslan er mismikil dag frá degi en samt aldrei svo mikil að við séum að langt fram á daginn. Nema kannski ef vélin hagar sér illa sem kemur fyrir. Tók strætó aftur heim upp úr fjögur og var rétt á eftir öðrum tvíburanum inn en fann hinn veikan heima. Kveikti á tölunni og hringdi svo í foreldra mína. Pabbi svaraði og við spjölluðum í stutta stund. Stundum tala ég við þau bæði.
Ég er í prufuáskrift af smá vörulínu næstu vikurnar. Sendingar eiga að koma mánaðarlega en næsta sending kemur ekki fyrr en í þarnæstu viku og ég var búinn með birgðirnar. Svo ég setti mig í sambandi við birgjann sem bauð mér að kaupa af sér eina aukaeiningu. Ég ákvað að þyggja það og fór strax og sótti þetta.
Við Oddur Smári horfðum saman á Castle-þátt í gær. Strákurinn poppaði fyrir þáttinn. Þegar þættinum lauk horfði ég á einn þátt af Scandal á Skjá-frelsi á meðan ég beið eftir að síðasti Whitecappel-þátturinn ætti að fara í loftið.
11.2.14
Kókosolíumýkt
Strákarnir fengu far með mér í skólann í gærmorgun þar sem ég ákvað að fara á bíl í vinnuna. Átti hálft í hvoru von á því að þurfa að reka erindi strax eftir vinnu. Það var nú ekkert úr því, fór bara beint heim. Gærdagurinn leið afar hratt bæði fyrripartur og seinni partur. Eftir kvöldmat og uppvask skrapp ég í heimsókn til eldri konu, tengdamömmu eins frænda míns. Hjá henni liðu rúmir tveir tímar sem varla hálfur væri enda orðið alltof langt síðan ég heimsótti hana síðast. Höfðum um margt að spjalla og svo horfði ég með henni á tíu-fréttir og part af íþróttaþættinum sem var á eftir.
Annars er ég að gera smá tilraun með að hreinsa og mýkja húðina að utan. Annan til þriðja hvern morgun bursta ég upp húðina og maka svo á mig kókosolíu. Hluti af olíunni smyrst inn í húðina en ég strýk aftur yfir með þvottastykki áður en ég fer svo í sturtu. Hvítt þvottastykki verður alveg grátt eftir að hafa strokið olíuna af. Húðin er silkimjúk á eftir svona meðferð.
10.2.14
Ný vinnuvika
Ég var komin á fætur upp úr níu í gærmorgun. Morguninn leið afar hratt og klukkan eitt var ég mætt upp í kirkju óháðasafnaðarins. Við mættum ellefu úr kórnum og renndum í gegnum sálmana og æfðum einn sérstaklega í röddum, sálmur 732 Leið mig Guð. Messan stóð svo yfir í rúmlega 35 mínútur. Samt vorum við ekkert að hraða hlutunum en það var ekki altarisganga. Altarisgöngur eru alltaf fjórða sunnudag í mánuði og svo föstudaginn langa. Fékk mér smá kaffi og maul eftir messu en fór svo beint heim. Hringdi í foreldra mína um fimm leytið og spjallaði stuttlega við þau. Þurfti ekki að hugsa fyrir mat því bræðurnir komu ekki heim fyrr en einhvern tímann eftir kvöldmat.
9.2.14
Messa á eftir
Stuttu áður en kominn var tími fyrir mig til að leggja af stað til esperanto vinkonu minnar hringdi systir mín í mig til að segja mér fréttir. Ég var að vísu ekki beðin fyrir að vera ekki að útvarpa þessum fréttum en ætla samt að bíða með að minnast meira á þetta þar til málin verða mun skýrari. Ég var svo mætti vestur í bæ um ellefu. Ég var mjög öflug og sagði henni frá hluta af gærdeginum á esperanto. Inger byrjaði á því að bjóða mér dýrindis hafragraut áður en við fórum með kaffið okkar yfir í aðal esperanto hornið. Leituðum uppi hin og þessi orðin en gleymdum okkur líka í spjalli á mínu móðurmáli um eitt og annað. Það er bara svo gaman að spjalla við þessa manneskju. Einhvern tíman mun koma að því að við munum auka notkunina á þessu skemmtilega tilbúna máli. Ég er alveg viss um það.
Næst lá leiðin í Krónuna vestur á Granda þar sem ég verslaði inn fyrir vikuna. Náði að halda körfunni í rétt rúmlega 20.000 og er viss um að hafa nóg fram að næsta vikulega leiðangri. Nú ef ekki, þá er Sunnubúðin rétt hjá og tilvalið að styrkja kaupmanninn á horninu.
Oddur var á leiðinni í sturtu er ég kom heim með þrjá poka. Föðurforeldrar voru á leiðinni að sækja strákana til að bjóða þeim út að borða og vera hjá sér yfir helgina. Ég gekk því frá vörunum og ákvað að bruna svo á lánsbílnum á Valsvöllinn, þar sem handboltastelpurnar voru að taka á móti Haukum, því þá væri ég snögg að bregða mér lengra af bæ eftir leikinn. Því miður töpuðu stelpurnar og ég er hrædd um að Stjarnan hafi deildarbikarinn alveg í hendi sér, þrátt fyrir að hafa gert jafntefli í sínum leik.
Að leik loknum hringdi ég í mömmu einnar frænku minnar, yndislegrar gamallrar konu á tíræðisaldri til að athuga hvernig ég sækti að. Ég var auðvitað velkomin og mín beið kaffi og með því er ég mætti ca. korteri seinna. Spjölluðum yfir kaffibollunum í dágóða stund en svo spurði hún mig hvort hún mætti plata mig til að fara og versla með sér. Það var alveg auðsótt mál. Áður en við lögðum í hann taldi hún upp það sem hún ætlaði að kaupa og það var ká í því öllu. Í búðinni bættist svo við ein dós af laxasallati.
Horfði á Barnaby á DR1 um kvöldið og Sherlock Holmes á tímarásinni. Vavraði aðeins um á netinu áður en ég skreið upp í rúm þar sem ég las um stund áður en ég slökkti á lampanum, bað bænir mínar og sveif svo inn í draumalandið.
8.2.14
Helgarfrí
Fór með strætó til vinnu í gærmorgun. Vinnudagurinn var afar fljótur að líða enda vorum við með verkefni alveg til klukkan fjögur. Fram að kaffi tók ég á móti kortum, skoðaði og safnaði saman á einn stað. Ef eitthvað var athugavert við kortin fór ég með þau til þeirrar sem var að "troða í" vélina. Eftir kaffi hjálpaði ég þeirri sem sinnti bókhaldsmálum í gær og taldi allar kortategundir úr vögnunum sem búið var að framleiða úr. Upp úr tólf, eftir að hafa farið í hádegispásu, fór ég aftur á vélina. Í þetta sinn til að "troða í". Lukum framleiðslu upp úr hálfþrjú, skruppum í kaffipásu og notuðum svo síðasta klukkutímann til að pakka framleiddum kortum eftir kúnstarinnar reglum.
Strax eftir vinnu rölti ég af stað áleiðis á Kaffi París. Ég var rétt rúmlega hálfnuð þegar ég hitti á þá sem hafði mælt sér mót við mig þar, tvíburamömmuna og jafnöldu, Brynju, sem ég djammaði með um síðustu helgi, og við urðum samferða síðasta spölinn. Við pöntuðum okkur Gylfasallat og ég ákvað að splæsa líka á mig svo sem eins og einu hvítvínsglasi. Við vorum nýlega byrjaðar að borða þegar sá þriðji boðaði, Ofur Baldur, mætti á svæðið. Hann var líka einn af þeim sem var á djamminu með okkur um síðustu helgi. Það var mikið spjallað og hlegið. Pöntuðum okkur kaffi eftir að hafa borðað. Ég hafði séð fyrir mér að við myndum sítja og spjalla í tvo til fjóra tíma og var með það á bak við eyrað að skreppa á heimaleik minna manna í handboltanum, fyrsta heimaleikinn á árinu. Tíminn hins vegar flaug frá okkur, enda var þetta gaman og góður félagsskapur. Klukkan var orðin hálftíu þegar við loksins kvöddumst. Vinkona mín bauðst til að skutla mér heim og þáði ég það.
Hér heima voru strákarnir með spilakvöld. Ég kastaði kveðju á hópinn en fór svo inn í herbergi og kveikti á tölvunni m.a. til að athuga hvernig leikurinn Valur - HK fór, 48-18 fyrir Val. Ótrúlegar tölur það.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)