Gærdagurinn var nokkuð erilsamur. Vann á framleiðsluvélinni til hádegis, að troða í og hlaða inn skrám fram að kaffi og að taka á móti eftir kaffi. Rétt fyrir tvö var pantaður leigubíll og fórum við tvær yfir í K2 á skyldunámskeið. Hittum þá þriðju þar. Námskeiðið stóð yfir í klukkutíma og þá tókum við leigubíl til baka. Klukkan fjögur komu nokkuð margir af þjónustusviðinu og settust niður í kaffistofunni. Framkvæmdastjórinn rabbaði við okkur um ýmislegt sem gengið hefur í gegn og annað sem er framundan.
Strax eftir vinnu fór ég með bílinn og keyrði hann í gegnum snertilausu þvottastöðina við Olís. (Stoppaði auðvitað inni á meðan sjálfvirku græjurnar unnu sitt verk. Ég hafði líka fengið sms um 12 kr. aukaafslátt hjá Atlantsolíu svo næst lá leiðin að stöðinni við flugvallarveg þar sem ég fyllti bílinn.
Þegar heim kom fór ég beint í að sinna matarmálum. Strákarnir skuppu til eins félaga síns milli átta og hálfellefu en ég kom mér fyrir fyrir framan sjónvarpið. Og viti menn ég tók aðeins upp saumana mína í fyrsta sinn í eina og hálfa viku.


