23.11.26

Mánudagskvöld

Ég fór á fætur upp úr klukkan hálfníu í gærmorgun og settist fljótlega við tölvuna hans pabba og sat við í uþb klukkustund. Þá færði ég mig inn í stofu með prjónana. Pabbi var inni í sínu herbergi að hlusta á þáttinn "Fyrst á fætur" á Rás2 með Huldu Geirsdóttur. Það var opið inn til hans og ég hlustaði á það sem eftir var af þættinum sem hafði byrjað eftir átta fréttirnar. Pabbi var að sjálfsögðu búinn að koma fram fyrr um morguninn og um leið og þátturinn og tíu fréttirnar voru búnar kom hann alklæddur fram og tók út tvö væn þorskflök úr kistunni og setti í kalt vatn í eldhúsvaksinum. Bríet frænka var líka komin á fætur og var að sýsla við ýmislegt. Pólskur vinnufélagi og vinur kom í heimsókn til hennar. Þegar leið að hádegi fór ég að huga að matargerð, Bríet spurði afa sinn hvort vinurinn mætti vera í mat og mig hvort hún ætti að búa til sallat og fékk hún jákvæð viðbrögð við báðum spurningunum. Maturinn var tilbúinn hjá okkur upp úr klukkan hálfeitt. Tekið var frá skammtur fyrir Itzell því okkur tókst ekki að vekja hana í mat, var víst nokkuð lúin eftir langa og annríka vakt frá tíu til tíu á laugardaginn, og átti að mæta aftur í vinnu um fimm. Um þrjú leytið ákvað ég að taka mig saman, kveðja og leggja af stað í bæinn. Komst ekki strax að á uppáhalds hraðhleðslustöðinni minni við Olís á Selfossi. Samt var bara einn bíll í hleðslu en honum var lagt á fremra stæðið en notaði hleðsluna sem ég held að eigi frekar að nota á aftari stæðinu. Ég rúntaði aðeins um Selfoss og var eitthvað að spá í að nota hleðslustöð við KFC en hvarf frá því og ákvað að fara bara aftur á Olís og bíða. Stakk í samband um hálffimm, þá var bíllinn kominn í 27%, og ég var rétt tæpan hálftíma að hlaða upp í 90%. Fékk mér smá hressingu á meðan ég beið. Það tók 21% orku að keyra heim. Hefði alveg haft það af, sérstaklega ef ég hefði ákveðið að keyra beinustu leið (en ekki rúnta um Selfoss) en ég held að ég hefði orðið alltof stressuð, bæði að ná í bæinn og líka hvort það væri pláss á staurnum á planinu heima.

Vaknaði við vekjarann tíu mínútur fyrir sex í morgun og var mætt á planið við Laugardalslaug um það leyti sem verið var að opna um hálfsjö. Synti 400m og sat svo á spjalli í steinapottinum til klukkan korter yfir sjö. Stimplaði mig inn í vinnu tuttugu mínútum fyrir átta. Skoðanir dagsins voru tuttugu en tvær af þeim voru svokallaðar M5 (bilanaskoðanir) og þær detta út úr talningunni eftir miðnætti því þær ná aldrei alla leið í ökutækjaskrá, enda ekki til þess gerðar/ætlaðar. Það voru nokkur önnur verkefni heldur en að bóka inn bíla en inn á milli var rólegt og þá greip ég í prjónana eða krossgátublaðið. Dagurinn leið þokkalega hratt. Fór til esperento vinkonu minnar strax eftir vinnu og ákvað að stinga bílnum í hleðslu á meðan ég væri hjá henni því annar staurinn á planinu var á lausu. Ég á svo ekki að þurfa að hlaða aftur fyrr en um næstu helgi, nema ég muni keyra eitthvað extra eða það fari að kólna mikið aftur. 

22.11.26

Helgarskrepp

Ég gafst upp á að vaka eftir syninum sl föstudagskvöld og fór í háttinn um hálftólf. Hann kom ekkert löngu eftir það en ég hitti hann ekki fyrr en á tíunda tímanum í gærmorgun. Já, ég svaf til klukkan að ganga tíu í gærmorgun. Hann var vaknaður þegar ég kom fram og ég bjó til hafragraut handa okkur í morgunmat. Hann hjálpaði mér við að setja upp jólaseríuna á svalirnar, við röbbuðum saman og horfðum á einn þátt. Í hádeginu var ég með fiskibollur og rósakál ásamt súrkáli og piccolo-tómötum. Davíð Steinn sótti bróður sinn rétt fyrir tvö. Þá var ég búin að hringja í pabba, pakka niður í tösku og tilbúin að drífa mig austur. Kom við í Fossheiðinni hjá tvíburaforeldrum mínum. Tvíburahálfsystir mín var á staðnum að hjálpa þeim að undirbúa flutning. Stoppaði í rúman klukkutíma og til öryggis sagði ég bless við staðinn þótt ekki sé loku fyrir það skotið að ég nái einni heimsókn til, það verður að koma í ljós. Mér var gefinn gufusuðupottur á þremur hæðum sem ku vera svo góður til að elda fisk og fleira í. Það verður spennandi að prófa hann. Var komin á Hellu upp úr klukkan fimm. Pabbi var að horfa á eitthvað mjög fróðlegt í sjónvarpinu og ég settist beint inn í stofu hjá honum með prjónana og vísbendingagátu á kantinum. Frænka mín var himinlifandi með trefilinn sem "datt" af prjónunum um daginn. Nefndi það þó við mig hvort ég gæti prjónað annan stærri og breiðari. Hún varð hissa þegar ég sýndi henni að sá trefill væri þegar komin í vinnslu. Annars er hún að tala um að fara að læra að prjóna og sagði mér líka frá því að hún væri farin að lesa bækur til að auka orðaforðann í íslenskunni sem henni finnst vera ábótavant.

20.11.26

Uþb sex vikur eftir af árinu

Þegar vekjarinn fór af stað tíu mínútum fyrir sex í morgun voru augun ekki tilbúin að opnast. Rifaði þau þó smástund til að slökkva á vekjaranum og endurstilla hann. Já, ég skrópaði í sundið í morgun en var mætt í vinnu rétt rúmlega hálfátta. Í heildina voru gerðar tuttugu skoðanir en einn bíllinn þurfti bæði aðalskoðun og breytingaskoðun. Tveir af þessum 19 bílum voru nýskráningar notaðra bíla inn í landið. Aðeins einn var með bókaðan tíma, kl eitt eftir hádegi. Inn á milli voru þokkalegar rólegar stundir og ég var ýmist að ráða í vísbendingagátu (með Ellu vinkonu í gegnum FB-spjallið) eða að munda prjónana. Einn kúnninn var frekar ánægður með mig þegar hann mætti með bíl í skoðun og sá í prjónana. Enginn kúnni kom síðasta klukkutímann milli þrjú og fjögur en hann var samt fljótur að líða. Við stimpluðum okkur út á slaginu fjögur og ég fór beinustu leið og stakk bílnum í samband þótt hann væri í fimmtíuogeitthvað prósent. Hlóð hann upp í 100% á rúmum fjórum tímum. Á samt enn eftir að ákveða mig um hvernig ég mun eyða helginni. Oddur Smári er að koma á eftir til að gista eina nótt. En hann, Davíð Steinn og þrjú til viðbótar eru á spilakvöldi einhvers staðar í Breiðholtinu. 

19.11.26

Fimmtán jólakort búin til milli klukkan sjö og níu í kvöld

Ég var vöknuð um hálfsex, nokkuð á undan vekjaranum, og mætt á braut sjö í Laugardalslauginni tuttugu mínútum fyrir sjö. Synti 400m og sat svo smástund í steinapottinum að spjall við örfáa fastagesti. Stimplaði mig inn í vinnu tuttugu mínútum fyrir átta. Morguninn byrjaði rólega en milli klukkan níu og hálfellefu komu kúnnar inn jafnt og þétt þannig að skoðunarmaðurinn settist ekki niður nema til að keyra bílana út og inn. Lokuðum í uþb hálftíma í hádeginu. Ég kláraði afganginn af matnum frá í gær. Það voru lengri pásur á milli kúnna eftir hádegi en þó smá rennerí og síðasti kúnninn átti bókaðan tíma tuttugu mínútur yfir fjögur. Klukkan var aðeins rúmlega hálf þegar ég stimplaði mig út. Fór í Fiskbúð Fúsa og verslaði fyrir um fimmtánþúsund, samt bara einn harðfiskpoka, óbarða ýsu. En ég keypti líka m.a. ýsu í soðið, tvö bleikjuflök og glútenlausar fiskibollur sem ég stakk beint í frysti. Var með soðin fisk og sæta kartöflu soðna í bitum í kvöldmatinn. Um sjö leytið hafði ég mig loksins í að taka fram jólakortagerðardótið. Fann sjö tilbúin jólakort frá í fyrra og þótt listinn telji líklega ekki nema 17 þá bjó ég til 15 kort í kvöld og er bara nokkuð sátt við framleiðsluna.

18.11.26

Kiljan

Svefninn sl nótt var svolítið köflóttur að hluta til þannig að þegar vekjarinn ýtti við mér stuttu fyrir sex ákvað ég að endurstilla hann um tæpa klukkustund, skrópa í sund og snúa mér aðeins á hina hliðina. Er ekki alveg viss um að ég hafi sofnað aftur en ég gleymdi mér um stund. Slökkti á vekjaranum fimm mínútum áður en hann átti að hringja. Mætti í vinnu rétt rúmlega hálfátta og náði að sinna smá af því sem aldrei skal skrifa um. Heildar bókanir á bílum í skoðun í dag fóru upp í tuttuguogfimm og vorum við næst hæst af frumherjastöðvunum. Höfn var hærri en þar er bara skoðað þrjá daga í mánuði. Í hádeginu tók stöðvarstjórinn okkur með sér yfir á  í Skeifunni/Faxafeni þar sem er boðið upp á hlaðborð af heimilismat, bæði til að borða á staðnum og taka með. Við tókum okkar skammta með, borgað var með sjóði sem fékkst fyrir flöskur og dósir, og borðuðum helminginn af skömmtunum á stöðinni. Stöðvarstjórinn fór svo með sinn skammt heim þegar hann fór að viðra hundinn sinn. Við hin tvö munum borða hinn helminginn af okkar skömmtum í hádeginu á morgun en þá verður stjórinn kominn í frí og lokað verður í hádeginu. Stimplaði mig út á slaginu. Gleymdi að hita bílinn og beið í fimm mínútur á meðan miðstöðin vann í að hreinsa ísinguna af framrúðunni. Hringdi í pabba og spjallaði við hann á meðan ég var á leiðinni í osteostrong tíma. Eftir tímann kom ég aðeins við í Pennanum/Eymundsson í Kringlunni áður en ég fór heim. Bíllinn var kominn niður í 43% þegar ég kom heim og eftir smá umhugsun ákvað ég að stinga honum í hleðslu þar sem laust var á staurnum. Á rúmum tveimur tímum hlóð bíllinn upp í 75%. Hefði farið aðeins hærra ef ekki hefði komið upp error um hálfníu. Þá var ég að horfa á Kiljuna svo ég fór ekki út fyrr en um níu leytið til að taka úr sambandi og ganga frá hleðslusnúrunni. Stærðarinnar bíll var kominn í hleðsluna við hliðina á og ég velti því fyrir mér hvort hann hafi verið að stinga í samband um það leiti sem villan kom upp. Það þarf nú samt ekkert að vera.

17.11.26

Í sjóinn eftir vinnu

Vekjarinn ýtti við mér korter fyrir sjö í morgun. Var ekki alveg að kveikja í fyrstu því ég var í miðjum draumi og hljóðið virtist passa ágætlega við það sem var í gangi. En hvað það var sem var í gangi er ég alveg búin að gleyma. Var úthvíld og heilsan mun betri en undanfarið svo ég ákvað að taka sjósundsdótið meðferðis í dag og sjá til hvort ég væri í stuði til að nota það eftir vinnu. Verkefnin dagsins komu í skorpum, bókaði inn 19 skoðanir í heildina, tók niður plötupöntun, gerði millifærslur út frá staðfestingarpóstum, afhenti nokkrar númeraplötur, tók á móti einni plötu í geymslu og svaraði símanum nokkrum sinnum. En svo var ég líka með prjónana á kantinum og fór langt með að klára bleiku tuskuna sem ég byrjaði á í fyrradag. Stimplaði mig út á slaginu hálffimm og var þá orðin ákveðin í að fara beinustu leið í Nauthólsvík. Hringdi í Huldu frænku og spjallaði við hana á meðan ég var á leiðinni. Kom á planið við Nauthólsvík stuttu fyrir fimm. Kalda potts vinkona mín var þegar mætt og komin í pottinn. Við fórum eina stutta ferð í 3,5°C sjóinn, tvisvar í gufu eina ferð í lónið og smá stund í pottinn. Fór upp úr tuttugu mínútur í sex og kom svo við á Prepp-Barnum á leiðinni heim og keypti mér lítið box af sinnepskjúklingi á þriðjudagstilboði, 1990kr. Var komin heim um hálfsjö. Lauk við að prjóna tuskuna eftir að hafa borðað og á bara eftir að ganga frá endanum. 

16.11.26

Tannlæknir, gömul viðgerð löguð

Gærdagurinn fór mikið til í rólegtheit og dundur. Rumskaði um hálfátta en fór aftur upp í eftir að hafa farið á pisseríið. Systir mín "vasa"-hringdi í mig og vakti mig um tíu en vissi ekkert af því sjálf. Ég fór á fætur skömmu síðar. Bjó mér til hafragraut sem ég skipti niður í þrennt. Á þá tvo hluta eftir. Ég kláraði að lesa næst síðustu bókina af safninu og byrjaði á þeirri síðustu. Kláraði líka bókina eftir frænku mína, horfði á einhverja þætti, prjónaði, vann að verkefninu sem ég minntist aðeins á í pistli gærdagsins. Hringdi í pabba og einnig Jónu Mæju.

Í morgun var ég vöknuð fyrir klukkan hálfsex. Borðaði chiagraut með bláberjum í morgunmat, hitaði bílinn áður en ég lagði af stað út í daginn. Mætti á planið við Laugardalslaug nokkrum mínútum eftir að opnaði. Synti aðeins 200m og sat aðeins skamma stund í pottinum áður en ég fór upp úr. Stimplaði mig inn í vinnu tuttugu mínútum fyrir átta. Stöðvarstjórinn þurfti að byrja daginn á því að reka erindi en þegar hann mætti stuttu fyrir níu var ekki enn búinn að koma bíll til skoðunar. Ég skrapp frá í rúman klukkutíma frá því stuttu fyrir tíu og til rúmlega ellefu. Átti tíma hjá tannlækni sem hafði fengið mig til að bóka hann eftir síðasta tanneftirlit. Hann vildi fjarlægja gamla silfurviðgerð í jaxli hægra megin í neðri góm. Sú aðgerð tók uþb hálftíma og kostaði rétt tæp fjörutíuogfjögur þúsund.

Heildarfjöldi skoðaðra bíla fór upp í nítján, þar af var ein bilanaskoðun sem dettur út úr talningunni eftir miðnætti því slík skoðun fer aldrei alla leið í ökutækjaskrá. Fór annars beinustu leið heim eftir vinnu og stakk bílnum í samband. Er að hugsa um að hlaða bílinn til klukkan átta en skreppa þá yfir til tvíburahálfsystur minnar og skila henni regnkápunni sem hún lánaði mér til að taka með mér út og nota.

15.11.26

Sunnudagur

Verð að játa að ég hef enga löngun haft til að taka fram fartölvuna í nokkra daga, ég sem þyrfti helst að fara að hespa af smá skylduverkefni sem þarf að skila fljótlega. Þegar ég kom heim eftir vinnu sl fimmtudag heyrði ég í einni vinkonu minni sem er í sama félagsskap og ég er nýgengin inn í. Þar eru haldnir fundir reglulega yfir veturinn og einn slíkur var á dagskrá þetta kvöld. Vinkonan heyrði á rödd minni að ég væri alls ekki fullfrísk og jafnvel smitandi. Ég spurði hana hvort ég gæti eða mætti vera með grímu en hún sagði mér að skynsamlegra væri að boða forföll og halda mig heima. Innst inni vissi ég þetta alveg og ég fór eftir þessu ráði. Notaði því fimmtudagskvöldið í að horfa á síðasta þáttinn af Elmu og einhverja tvo aðra áður en ég fór í háttinn.

Mætti í vinnu rétt rúmlega hálfátta á föstudagsmorguninn. Þegar við opnuðum klukkan átta var einn kúnni á húninum, sú heilsaði mér með fullu nafni. Það kom í ljós að þetta var skóla- og útskriftarsystir mín úr Kennó. Seinna um daginn kom konan sem keypti af mér Dráðuhlíðina með bílinn í skoðun. Heildarskoðanir dagsins fóru upp í 20 sem er bara nokkuð gott miðað við árstíma.

Í gær fór ég á fætur upp úr klukkan átta. Hélt mig heimavið langt fram eftir degi. Kláraði trefil fyrir frænku mína, trefil sem líklega er heldur stuttur en frænku minni finnst hann flottur. Ákvað að fitja upp á bleikri tusku, þarf að eiga fleiri svoleiðis. Einn frændi minn kom við um hálftvö leytið með vörur sem ég keypti af honum til styrktar handboltaflokknum sem sonur hans æfir með. Rétt fyrir klukkan sex var ég komin upp í Keiluhöll í Egilshöllinni. Þar hitti ég slatta af fólkinu sem er í sama félagsskap og ég gat um hér ofar. Áttum tvær brautir pantaðar klukkan sjö svo við byrjuðum á því að fá okkur hressingu. Ég fékk mér sætar/franskar kartöflur, það var alveg nóg. Spilamennskan í keilunni gekk ekki mjög vel hjá mér en ég skemmti mér mjög vel. Var komin heim aftur rétt fyrir níu.

11.11.26

Ekki í sund og ekki í osteostrong

En ég mætti í vinnuna um hálfátta og nýtti fyrsta tæpa hálftímann nokkuð vel. Svo var reyndar frekar rólegt að gera. Held að heildarfjöldi skoðaðra bíla hafi farið upp í tuttugu. Þrír af þeim áttu bókaða tíma en hinir sem komu inn af götunni þurftu sjaldnast að bíða lengi. Eiginlega bara í kringum hádegið þegar stöðvarstjórinn skrapp í mat. Hálsinn er enn með leiðindi en ég þraukaði gegnum daginn. Stimplaði mig út á slaginu klukkan hálffimm og þá var ég búin að ákveða að afbóka mig í osteostrongtíma. Fór þess í stað beinustu leið á bókasafnið í Kringlunni og skilaði af mér fjórum bókum af sjö, þar af báðum skammtímalánsbókunum og önnur hinna var sú sem var ólesin heima í síðustu ferð. Þau undur og stórmerki gerðust að ég freistaðist ekki til að taka neina bók með mér heim. Er með fjórar á náttborðinu og fjórða bókin er hálflesinn; Traustabrestir eftir frænku mína. Ég þarf líka að fara að huga að jólakortagerð, minnir að ég eigi einhvern bunka tilbúinn síðan í fyrra og þarf líklega ekki að komast í nema eitt gott jólakorta-kvöldstuð til að vinna upp fyrir listann sem er alls ekki langur. Það er bara spurning hvort ég set upp kortagerðina hér heima (og laumi mér í það sem átti að verða Viðeyjar-hvítvínið mitt) eða hvort ég fer austur með dótið eins og sl þónokkur ár. Annars setti ég bílinn á staur þegar ég kom heim og hlóð hann upp í 96%, úr rúmlega 40% á fjórum tímum. Var svo séð að leggja við hliðina á merktu hleðslustæði þannig að þegar ég fór og tók úr sambandi þurfti ég ekki að færa bílinn. En nú er skynsamlegast að fara í háttinn og stilla klukkuna á korter í sjö, jebb sleppa sundinu í fyrramálið.

10.11.26

Heilsa ekki alveg upp á 100%

Seinni partinn á sunnudaginn var fór ég að finna aðeins fyrir hálskitli. Það varð til þess að ég keypti mér tvenns konar hálsbrjóstsykur í fríhöfninni og nokkuð stóra engiferrót og sítrónur í Krónunni eftir vinnu og dekkjaskipti í gær. Ég var ákveðin í að sleppa sundi í gærmorgun en fannst ég ekki nógu óhress til að hringja mig inn lasna. Mætti í vinnu korter fyrir átta og var með annan brjóstsykurspokann meðferðis, gat samt notað hann frekar sparlega. Kom heim í gær um hálfsjö og gaf mér tíma til að horfa á nýjasta þáttinn um Elmu sem er byggð á sögunni "Marrið í stiganum" eftir Evu Björgu Ægisdóttur. Horfði líka á viðtalsþáttinn hennar Vikoríu Hermannsdóttur sem að þessu sinni var við biskup Íslands, Guðrúnu Karls Helgudóttur. Klukkan var orðin óvanalega margt þegar ég fór í rúmið í gær. Las samt aðeins í bókinn Aldrei, aldrei.

Ég var vöknuð tíu mínútum áður en vekjarinn átti að ýta við mér og ég tók þá ákvörðun að sleppa því að taka sjósundsdótið með, þarf að vera í betra ástandi til að skella mér út í. Það var annars nokkuð rólegt í vinnunni í dag en skoðaðir voru eitthvað um tuttugu bílar, þar af fjórir sem áttu bókaða tima og einn bíll var bæði að koma í aðalskoðun og breytingaskoðun. Stimplaði mig út á slaginu hálffimm og það tók mig næstum klukkutíma að komast heim, svo mikil var umferðasultan alveg úr Skeifunni og næstum því að Kópavogi. Fljótlega eftir að ég kom heim skar ég niður 3 gulrætur, eina sæta kartöflu og fimm venjulegar og skellti í pott. Eftir að suðan var komin upp fann ég nokkrar fiskibollur í frysti, það margar að ég á afgang í tvær aðrar máltíðir. Núna er ég að drekka blöndu af engiferbitum og safa úr hálfri sítrónu í soðnu vatni krydduðu með kanil og cayenne pipar. Það rífur vel í hálsinn. Skyldi ég komast í sund í fyrramálið og í sjóinn eftir vinnu á föstudaginn? Það verður bara að koma í ljós.

9.11.26

Skemmtileg ferð að baki

Í dag var fyrsti vinnudagur eftir tvo virka daga í frí og þrjár nætur í Lissabon með 67 manna hóp sem tengdust Frumherja, vinnunni minni, á einn eða annan hátt. Ég er alls ekki viss um hvernig best er að segja frá. Vil samt byrja á því að segja frá að ég vaknaði eldsnemma sl fimmtudagsmorgun og var tilbúin ca korter yfir fimm þegar Davíð Steinn kom og sótti mig. Ég var með vegabréfið klárt og hafði pakkað niður í flugfreyjutösku og bakpoka. Það var byrjað að bóka inn þegar ég mætti. Veifaði einungis vegabréfinu og sagðist ekki vera með neinn farangur á færibandið. Næst lá leiðin í öryggisleitina. Þar gekk allt nokkuð vel. Ég var reyndar tekin aðeins útfyrir röðina í random tékk eftir að hafa farið í gegnum öryggishliðið. Ekki var þó gramsað í dótinu í bökkunum. Flugið út tók rúma fjóra tíma og svo tók einhvern tíma að bíða eftir þeim töskum sem tékkaðar voru inn áður en okkur var safnað saman í tvær rútur og keyrt að hótel Mundial niðri í bæ. Þar þurftum við að afhenda vegabréfin okkar, öll í einu, áður en lesið var upp og lyklar afhentir. Ég og sú sem kenndi mér á afgreiðslukerfið í Hádegismóum í fyrra höfðum beðið um tvíbura herbergi. Fengum herbergi númer 547. Þegar við fundum það loksins, beygðum fyrst í ranga átt, og opnuðum var rúmunum stillt upp saman. Við gátum dregið þau í sundur og ákváðum að gera bara gott úr hlutunum. Þessi herbergismál voru mjög skrýtin í nokkrum tilvikum. Þegar við vorum búin að koma okkur aðeins fyrir fórum við niður. Það var enn það mikið eftir af deginum að við fórum nokkur hópur, fundum aðal- göngugötuna og löbbuðum alveg niður að flóa. Þegar við komum til baka fórum við sum upp á áttundu og fundum einhverja úr hópnum þar. Á níunda tímanum fór tólf manna hópur á einn stað í göngugötunni og borðuðum. Vorum að koma aftur á hótelið stuttu fyrir klukkan tíu. Það var slatti af ferðafélögunum niðri á barnum og mjög glatt á hjalla. Ég ákvað samt að fara  upp á herbergi, búin að ganga næstum 11.500 skref sem var næstum fimm sinnum meira en það sem ég næ dags daglega, þ.e. ef ég fer ekki í smá göngutúr. Næsta dag gekk ég yfir 17 þúsund skref, labbaði m.a upp að kastalarústunum með "tvíburanum" mínum og við borguðum okkur inn til að skoða. Um fjögur vorum við sjö sem vorum sótt á hótelið og fórum í göngu og smakk upplifanir með leiðsögn. Fórum á sex staði og þetta tók um þrjá tíma. Komum við á einhverjum bar í baka leiðinni og fengum "happy hour" tilboð. Rétt að geta þess að morgunganga þessa dags byrjaði með því að kaupa sér regnhlíf, en það var stytt upp fyrir hádegi. Á laugardagsmorguninn vorum við sex í hóp sem tókum sporvagn númer 28. Héldum að við gætum tekið heilan hring en þegar við vorum rekin út ákváðum við aðeins að rölta. Komum við á dönsku kaffihúsi og fengum okkur kaffi og kruðerí áður en við fundum ákjósanlegan stað til að láta uber af stærri gerðinn sækja okkur og keyra okkur á markað sem var í göngufæri við hótelið. Eftir að hafa rölt þar um og fengið okkur að borða yfirgáfu tvö hópinn til að fara í jarðskjálftasafn. Við hin fórum á hótelið og um hálffimm voru fjórir búnir að bætast í hópinn og fórum við á tveimur uberum í stærsta aquarium í evrópu að mér skilst. Magnaður staður. Þegar við komum til baka bættust tveir í hópinn sem fór með okkur að borða á Ítölskum stað í nágrenninu. Í gærmorgun skruppum við herbergisfélagarnir í röltgöngu niður að flóa eftir morgunmatinn. Komum til baka fyrir klukkan ellefu og skömmu síðar byrjaði að rigna. Tæmdum herbergið rétt fyrir tólf og rúturnar komu og sóttu okkur um eitt leytið. Vorum aðeins of snemma á ferðinni á flugvöllinn því þegar við mættum var um klukkutími þar til átti að byrja að bóka inn. Flugið heim tók styttri tíma, þrjá tíma og rétt rúmlega þrjú korter.

4.11.26

Fjögurra daga ferðalag framundan

Ég rumskaði upp úr klukkan fjögur. Eftir ferð á pisseríið gat ég kúrt eitthvað áfram en stuttu fyrir hálfsex kveikti ég ljós og kláraði að lesa seinni skammtímalánsbókina áður en ég fór á fætur. Það hafðist á tæpum hálftíma og ég var svo mætt í sund um hálfsjö. Vinnudagurinn var nokkuð rólegur en þó voru skoðaðir hátt í þrjátíu bílar. Mætti í osteostrong rétt fyrir klukkan fimm og var komin heim um hálfsex leytið. Bjó mér til hafragraut sem ég hafði í kvöldmatinn ásamt kaldri lifrarpylsusneið. Þess má geta að í hádeginu hitaði ég blóðmörssneið, af kepp sem ég tók með í vinnu í gær, í örbylgjuofninum. Fékk mér svo hreint skyr með rjóma í eftirmat. Held því líka til haga að ég setti bílinn í hleðslu í rúma tvo tíma, er nú í 83%, og setti hann svo á annað stæði þar sem hann verður alveg til mánudagsmorguns. Líklega verður næsta vika aðeins byrjuð áður en ég set inn færslu næst enda flýg ég til Lissabon snemma í fyrramálið og kem ekki heim aftur fyrr en á sunnudagskvöldið. 

3.11.26

Þriðjudagskvöld

Ég var komin á fætur korter fyrir sjö en var vöknuð mun fyrr. Stimplaði mig inn í vinnu um hálfátta og náði að græja, undibúa og gera helling á fyrsta hálftímanum. Það var lítið að gerast í skoðunum fyrsta klukkutímann en það átti eftir að rætast úr og þegar upp var staðið voru skoðaðir nokkuð yfir þrjátíu bílar í dag. Aðeins einn af þeim var með bókaðan tíma. Skráður eigandi þess bíls er bekkjarbróðir systur minnar úr grunnskóla og frændi Ellu vinkonu. Það var hins vegar sonurinn sem bókaði skoðunina og kom með farartækið. Sá er reyndar sláandi líkur pabba sínum. Stimplaði mig út á slaginu hálffimm og fór og hitti kaldapotts vinkonu mína í Nauthólsvík. Við fórum tvisvar í 6,8°C sjóinn, einu sinni í lónið, tvisvar í gufuna og sátum einnig dágóða stund í heita pottinum. Ég verð illa svikin ef ég sef ekki extra vel í nótt. 

2.11.26

Helga systir 57 ára í dag

Svefninn síðast liðna nótt var eitthvað köflóttur og ákvað ég því að sleppa morgunsundi í morgun. Mætti í vinnu upp úr klukkan hálfátta. Rólegt var til að byrja með en í heildina voru samt skoðaðir hátt í fjörutíu bílar í dag. Fór í esperanto hitting beint eftir vinnu og hafði bílinn í hleðslu þennan klukkutíma sem ég stoppaði. Kom heim stuttu fyrir klukkan hálfsjö og ákvað að hlaða bílinn aðeins meira. Allt virtist í lagi til að byrja með en þegar ég var búin að vera inni í tæpan hálftíma tilkynnti forritið í símanum um villu. Ég fór út og það endaði með því að ég ákvað að taka úr sambandi og færa bílinn á annað stæði. Bíllinn er í 70% og það nægir næstu dagana. 

1.11.26

Skrepp á Hellu með Oddi í dag

Það eru bæði kostir og gallar við að skrásetja ekki endilega niður dagana daglega. Hluti af göllunum getur verið að eitthvað gleymist sem mætti alveg minnast á. Kostir eru þá m.a. að ég hef kannski frá meiru að segja, amk stundum. Þessa stundina er ég á Hellu. Við Oddur komum hérna fyrir klukkan tvö, þá var pabbi í miðri pönnukökugerð. Þeir tveir eru núna að spjalla saman inni í stofu og ég ákvað að nota tækifærið og skrásetja hluta af því sem ég er búin að vera að bralla síðan á föstudaginn. Það er nefnilega ekkert víst að ég nenni að taka fram fartölvuna þegar ég kem heim. Ég var annars vöknuð um átta í morgun og morguninn sem og gærmorguninn fóru að hluta til í það sem ekki má skrifa um. Um hálftólf lagði ég af stað austur. Þegar ég hringdi Odd upp um tvö leytið í gær var hann opinn fyrir því að koma með mér í smá skrepp á Hellu í dag. Hann svaraði þó ekki símanum þegar ég hringdi um það leyti sem ég lagði í hann en hringdi til baka þegar ég var að keyra framhjá Bláfjallaafleggjara.

Um tvöleytið í gær setti ég mig í samband við frænku mína og jafnöldru sem býr í Seljahverfinu. Hún var heima og sagði að ég væri velkomin. Ég var rétt lögð af stað, gangandi, til hennar þegar kom haglél og svo einnig hellidemba. Þrátt fyrir að vera í strigaskóm hélt ég för áfram. Var tæpan hálftíma á leiðinni. Rétt áður en ég kom til hennar sá ég tvöfalda heila regnboga, sá innri mjög litsterkur og flottur. Stoppaði hjá frænku minni í næstum tvo tíma, og svo rúmlega það því þegar ég var tilbúin að fara, komin í og búin að kveðja kom hellidemba. Þá dembu beið ég af mér, ca tíu mínútur, og komst svo heim án þess að rigndi. Þurfti þó að fara úr blautum sokkum þegar ég kom heim.

Föstudagurinn var síðasti virki dagur októbermánaðar. Ég byrjaði daginn á sundferð um hálfsjö. Það var nóg að gera í vinnunni milli klukkan átta og rúmlega fjögur, yfir sextíu bílar. Stimplaði mig út sjö mínútum yfir fjögur. Kom aðeins við hjá N1 syninum í Borgartúni og svo hjá frændfólki sem býr í sundunum. Kom heim um sex og var með bílinn í hleðslu næstum til miðnættis.

29.10.26

Fimmtudagskvöld

Þegar ég kom heim eftir vinnu, osteostrong og bókasafnsferð í gær stakk ég bílnum í samband í tæpa tvo tíma, eða þar til tvíburahálfsystir mín lét mig vita að hún væri komin heim. Þá tók ég prjónadótið með og fór á bílnum yfir til hennar. Heimsóknartilefnið var líka að fá lánaða regnkápu til að taka með í ferðina til Lissabon fyrstu helgina í næsta mánuði. Sömu regnkápu fékk ég lánaða þegar ég fór með RB í helgarferð til Kaupmannahafnar í mars fyrir rúmum þremur árum. Stoppaði við í um einn og hálfan tíma og prjónaði smávegis en var meira að spjall við mæðgurnar, tvíburahálfsystur mína og dóttluna hennar.

Í morgun var ég mætt á braut 6 tuttugu mínútum fyrir sjö og synti 500 m á rétt tæpum tuttugu mínútum. Stimplaði mig inn í vinnu tuttugu mínútum fyrir átta. Í heildina voru bókaðar inn þrjátíuogfjórar skoðanir en þrír af bílunum voru bókaðir í aðalskoðun og breytingaskoðun, ýmist að breytast í eða úr leigubíl. Stimplaði mig út á slaginu hálffimm og fór beinustu leið heim. Upp úr klukkan hálfsex klæddi ég mig upp og var mætt á fund um sex leytið, tæpum klukkutíma áður en fundur hófst. Kom heim korter fyrir tíu og er að vinna í því að fara í háttinn.

28.10.26

Sundsprettur fyrir vinnu, osteostrong og bókasafn eftir vinnu

Var alveg tilbúin að vakna þegar vekjarinn ýtti við mér tíu mínútum fyrir klukkan sex. Fimmtíu mínútum síðar var ég komin á braut 7 og færði mig svo á braut 6 þegar ég var uþb hálfnuð með fimmhundruð metrana. Stimplaði mig inn í vinnu tuttugu mínútum fyrir átta. Ásgeir, skoðunarmaður mætti fimm mínútum síðar og stöðvarstjórinn mætti um átta leytið. Inn á milli var rólegt en það komu skorpur af alls kyns verkefnum og í heildina voru bókaðir inn yfir fjörutíu bílar í skoðun í dag. Sumir með bókaða tíma í noona en flestir komu inn af götunni. Stimplaði mig út á slaginu hálffimm og fór beinustu leið í Hátúnið. Þurfti ekki að bíða nema í fimm mínútur eftir að komast að. Eftir tímann lá leiðin í bókasafnið í Kringlunni. Í gærkvöldi kláraði ég næstsíðustu bókina sem ég var með í láni og byrjaði á þeirri síðustu og einhvern veginn fannst mér það góð hugmynd að skila inn fimm bókum af sex. Freistaðist svo auðvitað til að taka sex bækur með mér heim og tvær af þeim bókum eru nýjar og með tveggja vikna skilafrest; Birkilundur ÍBÚÐIR FYRIR 60+ eftir Margréti Sigríði Sölvadóttur og Hefnd Þórdísar eftir Öddu Sigurjóns. Hinar fjórar bækurnar eru Einfaldlega Emma og Birta, ljós og skuggar eftir Unni Lilju Aradóttur, Eyja eftir Ragnhildi Þrastardóttur og ALDREI ALDREI eftir Collen Hoover og Tarryn Fisher. Þetta verður smá áskorun og kostar eitthvað skipulag. Vonandi verður þetta til þess að ég dragi aðeins niður í imba/þátta glápinu því ég þarf að sinna fleiru en þessu og vinnunni. Kemur í ljós.

27.10.26

Sjóbusl eftir vinnu

Vekjarinn var stilltur á tuttugu mínútur fyrir sjö. Vaknaði einu sinni um miðja nótt til þess að fara á pisseríið. Sofnaði ekki alveg strax aftur en svaf svo alveg þar til vekjarinn ýtti við mér. Var mætt í vinnu um hálfátta og náði að gera eitt og annað í snurfusi og undirbúningi opnunnar á tæpum hálftíma. Fyrsta hálftímann eftir opnun var nokkur erill og svo róaðist allt og okkur fannst allt stefna í að þetta yrði lélegasti skoðunardagurinn í mánuðinum. En það rættist úr og skoðaðir voru amk fimm fleiri bílar en þann 12 okt sl þegar skoðaðir voru tuttuguogþrír bílar yfir daginn. Kalda pott vinkona mín mætti til mín tíu mínútum fyrir lokun og hún fékk far með mér í sjóinn og eftir ágætis busl tíma skutlaði ég henni heim til sín. Ákvað að gera eins og sl þriðjudag og kom við á Preppbarnum á leiðinni heim og fékk mér litla öskju af sinnepskjúkling á þriðjudagstilboði, 1990 kr. Kom heim um hálfsjö leytið. 

26.10.26

Síðustu dagarnir í október

Næst komandi sunnudag byrjar nýr mánuður, sá næstsíðasti á þessu ári. Tíminn er svo sannarlega ekki að láta bíða eftir sér. Í morgun vaknaði ég einni mínútu áður en vekjarinn átti að ýta við mér. Var mætt á braut 6 í Laugardalslaug tuttugu og tveimur mínútum fyrir sjö og var búin að synda 500 þremur mínútum fyrir sjö. Sat í steinapottinum, að spjall við tvo fastakúnna, í um tuttugu mínútur. Klukkuna vantaði korter í átta þegar ég mætti í vinnu og var Ásgeir alveg ný mættur. Það var ekki alveg eins mikill erill í skoðunum og á föstudaginn var en þó fóru skoðanirnar yfir þrjátíu í heildina. Stimplaði mig út á slaginu hálffimm og var komin vestur í bæ til norsku esperanto vinkonu minnar áður en klukkan varð fimm. Stoppaði hjá henni í uþb klukkustund og við lásum m.a. 4 sögur af sr. Eiríki á Vogsósum, bæði á esperanto og á íslensku. Kom heim fyrir klukkan hálfsjö. Hafði soðna ýsu í matinn. Sauð einnig niðurskorna gulrót og eina sæta kartöflu skorna í bita. Það er nægur afgangur til að búa til plokkfisk í vikunni og þá mun ég líklega skera niður lauk og mýkja áður en ég bæti honum saman við. 

25.10.26

Sunnudagskvöld

Föstudagurinn var óvanalega erilsamur í vinnunni. Ég mætti beint úr sundi, aðeins seinna en oftasta, á sama tíma og annar skoðunarmaðurinn. Stöðvarstjórinn mætti á slaginu átta og það voru þá þegar komnir að tveir kúnnar og svo átti einn bókaðan tíma klukkan átta sem kom tíu mínútum yfir. Milli átta og fjögur voru skoðaðir næstum því fimmtíu bílar. En við gátum hætt og lokað á slaginu fjögur. Ég kom við í Krónunni í Lindum á leiðinni heim, lagði bílnum á efraplanið og labbaði stigaganginn tvær hæðir með sunddótið og þrjá poka. Það var eiginlega af því að lyftan var nýfarin upp og ég nennti ekki að bíða eftir henni. Oddur var á leiðinni í bæinn en ætlaði að gera eitt og annað með bróður sínum áður en hann kæmi í næturgistingu til mín. Hann var ekki kominn um tíu um kvöldið þegar ég fór í háttinn, svo ég læsti ekki dyrunum inn í íbúð. Vissi að Davíð Steinn gæti opnað fyrir hann niðri.

Kom á fætur um hálfníu á laugardeginum og Oddur vakanði skömmu síðar. Ég varð ekkert vör við það þegar hann kom öðru hvor meginn við miðnætti. Fresta þurfti hittingi í spilahóp sem þeir bræður eru í. Í staðinn fékk ég Odd til að koma með mér í smá bíltúr. Leyfði honum að keyra og markmiðið var eiginlega bara að fara og renna bílnum í gegnum þvottastöð. Keyrðum svo smá krókaleiðir til baka aftur. Var með saltfisk og kartöflur í kvöldmatinn.

Í morgun fór ég á fætur rúmlega níu. Þá var Oddur þegar vaknaður. Morguninn fór í prjón, spjall, og ýmislegt fleira. Um tvö sóttum við Davíð Stein og keyrðum hann upp í Engjahverfi í Grafarvogi til að sækja bílinn sinn. Hann var á einhverju staffaskralli í gær og fékk far heim eftir þá skrall. Oddur keyrði Púmuna og fékk svo að skutla sér í Mosó í heimsókn til pabba síns og fjölskyldu hans. Ég var að spá í að heimsækja fólk sem passaði mig og systur mína sumarið sem ég var sex ára. Það fólk býr í Mosfellsbænum. Það svaraði ekki hjá þeim heimasíminn en nokkru eftir að ég kom heim var hringt til baka. Þau voru heima en bæði lögst í slæma pest.