29.9.26

Slagveður á köflum

Vaknaði upp úr klukkan sex, rúmum hálftíma áður en vekjarinn átti að ýta við mér. Það gaf mér smá stund til að lesa áður en ég lagði af stað í vinnuna, þ.e. eftir að ég hafði sinnt morgunverkunum. Tók sjósundsdótið með mér. Stimplaði mig inn í vinnu á slaginu hálfátta. Stöðvarstjórinn var búinn að láta okkur vita að hann kæmi ekki í vinnu fyrstu tímana, kom reyndar aðeins við á tíunda tímanum og fékk þá m.a. innkaupalista. Hann mætti svo klyfjaður um hálftólf. Þá var hinn skoðunarmaðurinn búinn að skoða um sautján bíla og það var smá röð. Rétt rúmlega tuttugu bílar voru skoðaðir fyrir hádegi en eftir hádegispásu hélt "veislan" áfram og í heildina voru skoðaðir fimmtíuogfimm bílar í dag, mjög margir með 7 sem endastaf í númeri. Ég stimplaði mig út á slaginu hálffimm. Hringdi og spjallaði við pabba á meðan ég keyrði áleiðs í Nauthólsvík. Umferðin mikil og frekar hæg en ég fór fyrri ferðina í 9°C sjóinn rúmlega fimm. Kom heim um hálfsjö leytið. Borðaði helminginn af afgangum frá kvöldmatnum í gær, horfði á kafla úr landsleiknum í knattspyrnu karla en var aðallega að horfa á tvo þætti um lögreglumanninn Alex Ridley, sem er eiginlega sestur í helgan stein en er beðinn um að sinna ráðgjafahlutverki í málum sem koma upp. Hvert mál spannar tvo þætti en svo er rauður þráður í gegnum alla seríuna. Á aðeins eftir að horfa á síðustu tvo þættina af átta. 

28.9.26

Ný vinnuvika hafin

Vekjarinn ýtti við mér tíu mínútum fyrir klukkan sex í morgun. Um hálfsjö var ég mætt á planið við Laugardalslaug og um sjö var ég búin að synda 500m á um það bil tuttugu mínútum. Stimplaði mig inn í vinnu tuttuguogfjórum mínútum fyrir átta. Morguninn var þokkalega rólegur en þó voru skoðaðir átján bílar. Stöðvarstjórinn skrapp frá um tólf leytið til að leysa af á annarri stöð. Hann var sem betur fer kominn aftur um tvö því það var mikil traffík eftir hádegi, amk fyrir einn mann. Í heildina voru skráðir inn fjörutíuogátta bílar í dag en tvo af þeim verður að handskrá inn og skoða á morgun. Það var alveg í lagi að geyma þá því þeir voru skildir eftir með þeim skilaboðum að þeir yrðu sóttir milli níu og tíu í fyrramálið. Eftir vinnu fór ég beinustu leið vestur í bæ til norsku esperanto vinkonu minnar. Stoppaði hjá henni í rúman klukkutíma. Við lásum hluta af þjóðsögu á esperanto í þýðingu Þórbergs heitins Þórðarsonar. Var komin heim upp úr klukkan hálfsjö. Setti upp fiskibollur í einn pott og sæta kartöflu í bitum í annan pott. Eldaði það mikið að ég á afgang í tvö skipti sem er þægilegt. 

27.9.26

Aðeins um föstudaginn og helgina

Fór að heiman korter yfir sex á föstudagsmorguninn og var byrjuð að synda á braut 7 í Laugardalslauginni tuttugu mínútum fyrir sjö. Að þessu sinni synti ég aðeins 400m og var því komin í steinapottinn áður en klukkan var orðin sjö. Stimplaði mig inn í vinnu rúmum þrjátíuogfimm mínútum síðar. Alls voru skoðaðir fjörutíu bílar milli klukkan átta og fjögur. Inn á milli var samt rólegt og við lokuðum að venju í hálftíma í hádeginu.

Var ekki alveg búin að "teikna" upp laugardaginn þegar ég fór á fætur um hálfátta. Vissi að ég þyrfti aðeins að sinna því sem ekki má skrifa um og um níu leytið ákvað ég að fara út og setja bílinn í hleðslu þrátt fyrir að vera í rúmlega 60%. Um eitt fór ég aftur út, tók bílinn úr sambandi og færði hann á annað stæði. Ákvað svo að fá mér göngutúr upp í Seljahverfi og athuga hvort ég fyndi eina frænku mína og jafnöldru heima. Svo reyndist ekki vera en ég hitti aðeins á manninn hennar sem var að sinna bílaþvotti úti á plani. Ég skilaði kveðju til frænku minnar og labbaði nokkurn veginn sömu leið til baka heim. Veðrið var mjög þokkalegt og ef ég hefði ekki verið farinn að finna til óþæginda í einni tánni á vinstra fæti hefði ég líklega tekið lengri göngu. Svo virðist sem það hafi verið smá sandkort eða aðskotahlutu í sokknum sem lenti á milli tveggja táa og nuddaði og meiddi.

Í morgun fór ég á fætur upp úr klukkan átta. Nuddið var enn að trufla og meiða og það endaði með því að ég setti plástur á þá tá sem ég fann mest fyrir, en þó ekki fyrr en um hádegisbilið. Þá var ég búin að fá skilaboð frá frænku minni um að hún hefði fengið kveðjuna frá mér í gær og að hún væri heima í dag. Upp úr klukkan eitt dreif ég mig því aftur í göngutúr yfir til Reykjavíkur og var um tuttuguogfimm mínútur á leiðinni til frænku minnar. Veðrið var yndislegt. Heimsóknin stóð yfir í hátt í tvo tíma og svo labbaði ég aðeins aðra leið heim.

Annars er ég búin að lesa báðar bækurnar sem urðu eftir heima í síðustu bókasafnsferð, aðra skammtímalánsbókina og ljóðabókina. Ég var líka að grufla og ráða í vísbendingakrossgátur með Ellu vinkonu. Hún mun flinkari við að finna réttu svörin en ég næ svona einu og einu inn á milli og finnst stundum ég vera að verða betri í þessu.

24.9.26

Síðasti fimmtudagurinn í september

Ég var líklega sofnuð um tíu leytið í gærkvöldi og svaf alveg til klukkan að verða hálfsex í morgun. Var semsagt vöknuð tæplega hálftíma áður en vekjarinn átti að ýta við mér. Var komin á planið við Laugardalslaug fimm mínútum áður en opnaði. Korteri síðar var ég byrjuð að synda á braut 7. Synti í uþb tuttugu mínútur, 500m, og hitti svo kalda potts vinkonu mína í steina pottinum. Stimplaði mig inn í vinnu rúmlega hálfátta. Það var rólegt framan af og inn á milli, samt voru skoðaðir þrjátíuogfimm bílar í heildina í dag. Eftir vinnu kom ég við í Fiskbúð Fúsa og keypti mér fisk í soðið og harðfisk. Ákvað að kíkja við í Drápuhlíðinni. Einn fyrrum nágranni minn var lasinn en ég hitti á manninn sem keypti af mér 50% af gömlu íbúðinni þegar ég var um það bil að labba í burtu. Ég spurði hann hvort ég mætti kíkja við í smá stund og skoða mig um og það var auðsótt mál. Konan hans, og reyndar stelpurnar og ein vinkona voru heima. Hjónin sýndu mér hvað væri búið að gera og það er ekkert smá kósý hjá þeim. Það er m.a. búið að hækka svalirnar, færa rafmagnstöfluna úr holinu yfir í það sem var búr en er nú líka einhvers konar bókaskápur og fleira og fleira. Stoppaði aðeins í tíu mínútur en þakkaði mikið vel fyrir að fá að skoða mig aðeins um. Gleymdi alveg að taka myndir.

23.9.26

Osteostrong

Yfirleitt sef ég extra vel eftir að hafa skroppið og kælt mig í sjónum. Er ekki viss klukkan hvað ég lagði frá mér bókina í gærkvöldi og fór að sofa. Líklega þó fyrir klukkan hálfellefu. Var fljót að sofna en svo rumskaði ég um eitt leytið og þurfti á pisseríð. Gat ekki með nokkru móti sofnað strax aftur og tel ég það vera vegna þess að ég var forvitin að vita hvernig sagan um Galdra-Imbu endaði. Ég lét það eftir mér að klára að lesa bókina áður en ég gat svo farið að sofa aftur. Þegar vekjarinn hringdi tíu mínútum fyrir klukkan sex fann ég að ég var alls ekki tilbúin að fara á fætur svo ég endurstillti vekjarann og steinsofnaði aftur. Var mætt í vinnu rétt rúmlega hálfátta. Morguninn var í rólegri kantinum, mesta ösin var frá því strax eftir hádegi og til klukkan rúmlega þrjú. Í heildina voru skoðaðir þrjátíuogsex bílar í dag. Ég var með sunddótið meðferðis og var að spá í að skreppa í Árbæjarlaugina eftir vinnu. Held þó að ég hefði endað heima ef ég hefði ekki munað eftir því að ég átti tíma í osteostrong klukkan fimm. Var komin í Hátúnið tíu mínútum fyrir tímann þótt ég færi "lengri" leiðina þangað. Komst strax að. Sló met á einu tæki. Eftir tímann var ég orðin alveg frábitin því að skella mér í sund og fór því beinustu leið heim. 

22.9.26

Nauthólsvík eftir vinnu

Klukkan var varla orðin níu þegar ég háttaði upp í rúm í gærkvöldi. Held samt að ég hafi náð að lesa í uþb hálftíma áður en ég lagði frá mér tvær bækur, slökkti ljósin og sofnaði mjög hratt. Vekjarinn var stilltur á sex-fjörutíuogfimm en ég var vöknuð amk hálftíma fyrr. Gaf mér mjög góðan tíma í morgunverkin og las líka í um tíu mínútur áður en ég fór beint í vinnuna. Stimplaði mig inn um hálfátta. Erill var í skoðunum fyrsta klukkutímann, milli átta og níu en í heildina voru skoðaðir þrjátíuogfjórir bílar í dag. Strax eftir vinnu fór ég í Nauthólsvík. Sjórinn sagður 9,6°C, háflóð en var að byrja að fjara út og ég fór tvisvar sinnum fimm mínútur út í, korter í gufuna á milli ferða og annað korter í heita pottinum eftir seinni ferðina áður en ég fór upp úr og heim. Nú er búið að setja upp nafna skiltin í anddyrinu og einnig búið að setja upp skilti með mínu nafni hægra meginn við dyrnar inn í íbúðina mína. Þá þarf ég endilega að fara að drífa í því að laga merkinguna á póstkassanum mínum. 

21.9.26

Esperanto hittingur eftir vinnu í dag

Ég ætla að byrja á því að leiðrétta það sem ég skrifaði um fjölda skoðaðra bíla á föstudaginn. Það voru skoðaðir akkúrat þrjátíu bílar þannig að fjöldinn var meiri en "innan við þrjátíu". Annars vaknaði ég heldur snemma í morgun, fyrir klukkan fimm. Fór á pisseríið og fékk mér svo sopa af lýsi en ég náði ekki að kúra mig niður aftur svo ég greip í bók og las þar til rétt áður en vekjarinn átti að ýta við mér. Fékk mér chiagraut með bláberjum í morgunmat og sneið af lifrarpylsu með. Mætti í Laugardalslaugina um leið og opnaði og synti 500m á braut 7. Slakaði á í steinapottinum í rúmar tíu mínútur og spjallaði við nokkra fastagesti. Stimplaði mig inn í vinnu rétt rúmlega hálfátta. Sex áttu bókaða tíma á tímabilinu frá átta fjörutíu og ellefu og tveir eftir hádegi. Einn sem átti bókaðan tíma um níu tuttugu skrópaði, "villtist" yfir í Aðalskoðun eða eitthvað. Í heildina voru skoðaðir þrjátíuogtveir bílar, þar af þrír sem fóru í gegnum skráningaskoðun og einn einungis í breytingaskoðun. Stimplaði mig út á slaginu hálffimm. Var hálftíma úr Skeifunni yfir á Sólvallagötuna. Þar ákvað ég að leggja bílnum við annan hleðslustaurinn og stinga bílnum í samband þótt hann væri í 78%. Á tæpum einum og hálfumtíma fór bíllinn upp í 94%. Var komin heim skömmu fyrir klukkan sjö. 

20.9.26

Fartölvan ekki verið tekin fram síðan á fimmtudagskvöldið

Var mætt í sund um hálfsjö á föstudagsmorguninn og í vinnu upp úr klukkan hálfátta. Skoðaðir bílar yfir daginn náðu ekki þrjátíu en þeir voru heldur ekki tveir allan tímann því annar skoðunarmaðurinn hætti um hálfþrjú leytið. Vinnudagurinn leið alveg þokkalega hratt, rólegt, en inn á milli alls konar verkefni. Klukkan var byrjuð að ganga fimm þegar ég stimplaði mig út. Hringdi í eina fyrrum samstarfskonu mína þegar ég var sest upp í bíl og úr varð að ég fór beinustu leið í heimsókn til hennar vestur í bæ. Stoppaði hjá henni í næstum tvo tíma enda höfðum við um margt að spjalla. Laust var á staur þegar ég kom heim svo ég stakk bílnum í samband og hlóð hann upp í 85% á uþb fjórum tímum.

Ekkert varð úr esperanto-hitting á laugardagsmorguninn. En ég var komin snemma á fætur og dútlaði mér við alls konar fram yfir hádegi. Um tvö fékk ég mér göngutúr yfir í Belladonna þar sem ég mátaði nokkrar buxur og keypti mér tvennar fyrir rúmlega fjörutíuþúsund. Labbaði beinustu leið heim aftur. Var í og með að fylgjast með bakgarðshlaupinu, lesa, sauma bleikar kindur í barnateppið og fleira. Tíminn leið alla vega frekar hratt.

Rumskaði alltof snemma eða upp úr klukkan fimm í morgun. Fór á pisseríið og svo fékk ég mér sopa af þorskalýsi og þrjá vatnssopa áður en ég reyndi að kúra mig niður aftur. Það virtist ekki ætla að virka framan af en þó steinsofnaði ég að lokum og ætlaði varla að trúa því að klukkan væri byrjuð að ganga tólf þegar ég vaknaði aftur. Upp úr klukkan tvö tók ég saman bækur af safninu, fjórar af sex, og dreif mig í bókasafnið í Kringlunni. Meiningin var að skila bókunum og helst ekki taka neina eða ekki fleiri en tvær í staðinn. En ég stóðst ekki freistinguna og tók sex bækur, þar af tvær skammtímalánsbækur; Þegar heimurinn fórst eftir Stefán Mána, Galdra-Imba eftir Söndru Bergljótu Calusen, Þagnafár ljóð eftir Garibaldi, Bókafárið mikla eftir Tom Sharpe, Ísbirnirnir eftir Sólveigu Pálsdóttur og Arsenik turninn eftir Anne B. Ragde. Var næstum búin að hætta við þá síðustu því mér tóks ekki að nota sjálfsafgreiðsluna og fór með hana að afgreiðsluborðinu og ætlaði að skilja hana eftir þar. En sá sem tók við bókinni vann einu sinni með mér í RB og hann sá til þess að hún bættist í pokann hjá mér. Áður en ég fór heim aftur kom ég við í Krónunni í Lindum. Lagði bílnum á planinu við anddyrið inn í blokk og fór inn með vörur og bækur. Fékk mér hressingu og kveikti smá stund á sjónvarpinu, bakgarðshlaupinu á rás 8. Um hálfsex fór ég út og færði bílinn á stæði á neðra planinu og fór svo í tæplega hálftíma göngutúr áður en ég fór inn aftur. 

17.9.26

Styttist í helgina

Ég var byrjuð að losa svefninn og rumska nokkrum mínútum áður en vekjarinn fór að hamast rétt rúmlega hálfsex í morgun. Í gærkvöldi hafði ég skellt tröllahöfrum, smá haframjöli, chiafræum og salti í skaftpott og bætti 6dl af vatni í til að láta liggja í bleyti inni í ísskáp yfir nóttina. Var enga stund að búa til hafragraut úr þessu eftir að ég kom á fætur. Oddur Smári kom sér á fætur þegar grauturinn var tilbúinn og með þessu fengum við okkur kalda lifrapylsusneið. Ég knúsaði soninn og kvaddi korter yfir sex og var mætt í Laugardalslaugina um það leyti sem var verið að opna. Synti 500m og gleymdi mér svo næstum því á spjalli í steinapottinum. Stimplaði mig inn í vinnu tuttuguogeitthvað mínútum fyrir átta. Rólegt var til að byrja með, einn og einn kúnni og um hálftíu ákvað stöðvarstjórinn að nota tækifærið og fara að láta smíða lykla handa nýjasta skoðunarmanninum. Eftir að hann fór varð renneríið meira og sá nýji stoppaði ekki í einn og hálfan tíma. Í heildina voru skoðaðir þrjátíuogátta bílar í dag. Fór beint heim eftir vinnu. Hringdi í pabba og spjallaði við hann hluta af leiðinni. Stoppaði heima í uþb klukkustund og þegar ég fór út aftur var ég búin að dressa mig upp og tilbúin á fund. 

16.9.26

Miðvikudagur kominn að kveldi og stutt í háttatíma

Rumskaði eldsnemma, amk tveimur og hálfum tíma áður en ég ætlaði að vakan og fara á fætur. Fór á pisseríið og svo leið góð stund, eftir að ég skreið aftur upp í rúm, áður en ég sofnaði aftur. Það gerðist þó á endanum og næst vissi ég af mér tuttugu mínútum fyrir sjö þegar vekjarinn ýtti við mér. Stimplaði mig inn í vinnu um hálfátta. Þrjátíu bílar voru skoðaðir í heildina, rólegt inn á milli eins og í gær en stundum í alls konar horn að líta. Það varð annars smá óhapp í morgun er einn kúnninn ætlaði að koma inn um aðra stóru hurðina sem eru opnaðar þegar verið er að fara inn og út með bíla í skoðun eða skoðað, að hann áttaði sig ekki á því að hún var að lokast. Skoðunarmaðurinn sem var að loka var líka byrjaðu að skoða bíl og sá ekki neitt fyrr en óhappið varð. Kúnninn fékk hurðina í sig og smá skurð á nefið. Hann kom samt inn, bókaði inn bílinn í skoðun en var ósáttur með þetta atvik. Ég skildi samt ekki afhverju hann var að kvarta í mér en spurði kurteislega afhverju hann hefði ekki frekar notað innganginn fyrir mannfólkið. Bríet frænka hafði samband um tíu leytið og fékk að senda mér skjal til útprentunnar með með rafrænum pósti. Stimplaði mig út á slaginu hálffimm og var komin í Hátún 12 tæpu korteri síðar og komst beint að í osteostrong tíma. Var því komin á planið við Nauthólsvík tuttugu mínútum yfir fimm. Kalda potts vinkona mín var þegar mætt og komin í pottinn. Fórum tvær ferðir í sjóinn, eina í gufu og svo var ég tæpt korter í heita pottinum áður en ég fór upp úr. Oddur Smári var kominn í bæinn og ég pikkaði hann upp í Mjóddinni. Hann fær gistingu hér í nótt og svo ætlar bróðir hans að skutla honum á Keflavíkurflugvöll í fyrramálið. Aðeins meira um það kannski síðar. Bríet kom við rétt áðan, ásamt vinkonu, stoppaði mjög stutt en hún fékk skjalið, gaf mér gott knús og bað um að fá að sýna vinkonu sinni teppið sem ég er enn með í vinnslu. 

15.9.26

Ýmislegt var gert í dag

Dagurinn byrjaði helst til snemma, eða rétt fyrir fimm. Um hálfsex var ég komin á fætur og  var þá m.a. búin að greiða mánaðarlega reikninginn af húsnæðisláninu. Rétt rúmlega klukkutíma síðar var ég komin á braut átta í Laugardalslaug þar sem ég synti í tuttugu mínútur. Sat nokkrar mínútur í steinapottinum áður en ég fór upp úr og í vinnuna. Stuttu eftir að við vorum búin að opna kom aðal-kerfisfræðingurinn. Hann var hjá okkur í tæpa þrjá tíma, var að uppfæra og skipta um myndavéla-eftirlitskerfi/ð. Rólegt var í skoðunum til að byrja með og inn á milli og heildarfjöldinn náði ekki alveg 30 bílum. En það var smávegis að gera í annarri afgreiðslu, panta ný númer, afhenda ný númer, afhenda númer úr geymslu og skrá faratæki í umferð, gera millifærslu skv. tölvupóstbeiðnum, svara síma og fleira. Stimplaði mig út á slaginu hálffimm og fór beinustu leið að Vesturbrún 30 en klukkan fimm hófst útgáfuteiti í Áskirkju í tilefni útgáfu bókar sem ein frænka mín skrifaði; Traustabrestir eftir Sigurrós Jónu Oddsdóttur. Einskonar sannsöguleg saga með skáldaleyfi. Hitti fyrir þónokkuð af ættingjum og samferðafólki. Í seinni hópnum var m.a. Jón Ingi Sigurmundsson sem var kórstjóri kórs FSu í fjölmörg ár. Ég var í þeim kór árin ´85-´88. Kom heim um hálfsjö. Klukkutíma síðar hringdi ég í tvíburahálfsystur mína til að kanna hvort hún væri upptekinn, sem hún var ekki svo ég dreif mig yfir og tók barnateppið sem ég er með í "smíðum" með mér. Tíminn æddi frá okkur en við náðum þó góðu spjalli og það bættist ein kind við á teppið, meira að segja frekar kindarleg kind en ekki eins og úlfur í sauðargæru.

14.9.26

Mánuðurinn að verða hálfnaður

Ég kvaddi pabba um og upp úr klukkan hálffjögur í gær. Fór beinustu leið heim og byrjaði á því að setja bílinn í hleðslu. Hlóð hann úr rúmlega 30% í tæp 90% á uþb fjórum tímum. Í morgun var ég vöknuð löngu á undan vekjaranum sem átti að ýta við mér stuttu fyrir klukkan sex. Var mætt í sund um hálfsjö og synti 500m á tuttugu mínútum, aðallega á braut 7. Sat í tæpar tíu mínútur í steinapottinum áður en ég fór upp úr og þvoði mér um hárið. Stimplaði mig inn í vinnu upp úr klukkan hálfátta. Í heildina voru skoðaðir 36 bílar í dag og það var svolítið um annars konar afgreiðslur en að bóka inn bíla. Vinnudagurinn leið þokkalega hratt. Stimplaði mig út á slaginu hálffimm og fór beint heim. Hringdi í Odd Smára er ég var nýlögð af stað frá vinnu og hann svaraði frekar hissa því hann ætlaði einmitt að fara að hringja í mig. Þegar ég kom í anddyrið  á blokkinni tók ég eftir að það er greinilega verið að vinna í að uppfæra nafnatöfluna. Eins var búið að fjarlægja nafnaskiltið fyrir utan innganginn á íbúðinni minni. Bráðum verður nafnið mitt komið á þessa tvo staði og þá er rétt að fara að huga að því að laga merkinguna á póstkassanum líka, fjarlægja handskrifaða miðann og setja mitt nafn prentað í staðinn fyrir fyrri eiganda. Hringdi í hálfdönsku frænku mína og nöfnu ca klukkutíma eftir að ég kom heim. Milli hálfsjö og sjö skrapp ég út í stutta göngu, smá hring. Rétt fyrir átta sló ég líka á þráðinn til Lilju vinkonu. Hef ekki heyrt í henni síðan einhvern tímann í vor.

13.9.26

Sunnudagur

Það er yfirleitt ágætt að hafa eins konar rútínu á hlutunum, en þó ekki um og of. Hvað færslurnar varðar finnst mér ég stundum hafa það lítið að skrifa og mjög oft að skrifa um það sama. Það er samt mjög gott að geta flett upp í skrifunum, þ.e. ef ég hef þá skrifað um hlutina. Ef líða of margir dagar vill það henda að ég annað hvort gleymi að skrifa um eitthvað sem væri vel þess virði að minnast á og halda upp á eða ég þarf að reka á eftir mér að skrifa áður en enn einn skriflausi dagurinn líður hjá.

Ég fór í morgunsund í Laugardalslaug fyrir vinnu á föstudaginn. Stimplaði mig inn í vinnu á svipuðum tíma og oftast. Báðir skoðunarmennirnir voru mættir fyrir átta. Það var rólegt framan af. Um hálfellefu fór stöðvarstjórinn í próf og fleira, fékk restina af deginum til að nýta í alls kyns útréttingar. Þá var þegar byrjað að færast fjör í skoðunarmálin og hinn skoðunarmaðurinn settist ekki niður fram að lokum nema þennan hálftíma sem við vorum í mat. Skoðaði eitthvað yfir tuttugu bíla. Á heimleiðinni kom ég aðeins við í N1 við Borgartún til að heilsa upp á N1 soninn.

Í gærmorgun var ég komin á fætur um hálfátta, vöknuð miklu fyrr. Sleppti sundinu annan laugardaginn í röð en sinnti því sem ekki má skrifa um í staðinn. Lenti í smá tímahraki því eldhúsklukkan sem ég ætlaði ekki að flytja með mér en setti upp tímabundið datt niður eftir að ég rak skaftir á skúringagræjunni í hana. Sópaði upp stærstu brotunum og varð að taka ryksuguna fram aftur. Um tíu var ég mætt vestur í bæ til norsku esperanto vinkonu minnar og var komin heim aftur fyrir klukkan tólf. Klukkutíma eftir það lagði ég af stað austur og gerði gott stopp í Fossheiðinni. Nokkru á eftir mér mætti tvíburahálfsystir mín. Ég var komin á Hellu um fjögur. Bríet var á kafi í alls konar "geru" og eftir kvöldmatinn fékk hún mig til að aðstoða sig við að þræða tilrauna kjötbitaniðurskurð á tannstöngla eftir að hafa marinerast í þrenns konar legi; sætu, venjlegu og sterkur. Semsagt þrjár tegundir. Þetta lét hún svo bakast í 70°C ofninum í á fimmta tíma. Fékk að smakka árangurinn í dag og var hrifnust af því sem marineraðist í sterkasta kryddleginum. Þetta fer svo frænka mín með sér í vinnuna sína, SS, á morgun sem smakk.

10.9.26

Stutt í helgina

Fór í seinna lagi að sofa í gær, í háttinn upp úr tíu og las svo í dágóða stund. Stillti vekjarann á tíu mínútur fyrir sex. Svaf virkilega vel til klukkan að verða fimm. Þá þurfti ég á pisseríið, augun frekar límd aftur en ég beið sennilega aðeins of lengi með að sinna kalli náttúrunnar því ég náði ekki að sofna aftur þegar ég skreið upp í rúm aftur. Kúrði þó til klukkan rúmlega hálfsex. Var mætt á planið við Laugardalslaug fimm mínútum fyrir opnun. Synti 600m, flestar ferðir á braut 7 en þó 50m á braut átta. Var mætt í vinnu um hálfátta leytið. Skoðunarmennirnir komu stuttu fyrir átta. Skoðaðir voru 32 bílar í dag, frekar rólegt inn á milli en það komu líka smá tarnir. Stimplaði mig út á slaginu hálffimm og fór beinustu leið heim. Stakk bílnum í samband þar sem staurinn var laus og bíllinn kominn niður í 32%. Ég var svo forsjál að taka út ýsuflök úr frysti áður en ég fór að heiman í morgun. Átti líka sæta kartöflu, blómkál og brokkolí í ísskápnum. Úr varð hinn ágætasti kvöldmatur sem dugir í tvo skammta í viðbót.

9.9.26

Háflóð í Nauthólsvík kl 17:20 í dag

Vekjarinn var stilltur á korter í sjö í morgun en ég var vöknuð amk hálftíma fyrr. Mætti í vinnu um hálfátta og var Íris, rétt á eftir mér. Við stimpluðum okkur inn, undirbjuggum kaffið og svo sýndi ég henni hvernig ég geri upp. Annars sá hún eiginlega alfarið um afgreiðsluna í dag. Dagurinn var kannski of rólegur á köflum en alls voru gerðar 32 skoðanir og m.a. kom inn nýskráning og einnig tvær aðalskoðanir með breytingaskoðun þar sem í öðru tilfellinu var verið að skrá krók og í hinu að breyta notkunarflokki bifreiðar. Nýja afgreiðslustúlkan afgreiddi málin nokkuð léttilega, þurfti að spyrja smá, aðallega til að laga og bæta við glósurnar sínar sem virkuðu að öðru leyti mjög vel. Framkvæmdastjórinn kom í heimsókn um tvö leytið, bæði til að taka stöðuna og einnig tilkynna þessari nýju að hún ætti að mæta á framtíðarstöðina sína, Klettagarða, í fyrramálið. Íris stimplaði mig út á slaginu hálffimm og ég fór beinustu leið í Hátúnið þar sem ég komst strax að í osteostrongtíma. Var mætt á planið við Nauthólsvík rétt um það leyti sem háflóðið var. Kalda potts vinkona mín var þegar mætt. Við fórum tvisvar í sjóinn og einu sinni í lónið.  Hún fór aðra ferð í gufuna og pottinn en ég kvaddi og fór upp úr korter yfir sex. Var komin heim fyrir klukkan sjö. Greip aðeins í nál í kvöld. Það er að verða nokkuð ljóst að fyrsta saumaða kindin í barnateppinu verður hálfgerð ókind.

8.9.26

Inn í vinnuvikuna

Vekjarinn ýtti við mér tíu mínútum fyrir klukkan sex í gærmorgun. Fjörutíu mínútum síðar var ég mætt á Laugardalslaugar-sund-húninn. Synti 500m og fór svo smá stund í steinapottinn. Stimplaði mig inn í vinnu rétt rúmlega hálfátta. Báðir skoðunarmennirnir mættu 10-15 mínútum síðar og stöðvarstjórinn með þær fréttir að til okkar væri að koma afgreiðslustúlka í þjálfun. Hún var mætt skömmu síðar og fékk þau fyrirmæli að fylgjast með mér, spyrja og punkta niður. Hún ákvað reyndar sjálf að taka niður glósur. Vinnudagurinn gekk vel fyrir sig. Var annars frekar dugleg að þamba vatn því eftir vinnudaginn lá leiðin í Blóðbankann í Kringlunni, sjötugustuogaðra heimsóknina. Þar gekk allt mjög vel fyrir sig en sá sem tók úr mér blóðið vildi að ég hvíldi mig í stutta sund lengur á bekknum eftir gjöfina því honum fannst hendurnar á mér svo kaldar. Lét meira að segja mæla aftur blóðþrýstinginn sem hefur eiginlega aldrei verið betri.

Í morgun var ég vöknuð upp úr klukkan fimm og fór á fætur korter fyrir sex. Mætti í sund um hálfsjö og synti mína 500m. Stoppaði frekar stutt í pottinum og var mætt í vinnu rétt fyrir klukkan hálfátta. Við vorum öll mætt tíu mínútum fyrir átta og sú sem er í þjálfun og á svo að fara í afgreiðsluna í Klettagörðum skráði sig inn í afgreiðslutölvuna og sá um langflestar afgreiðslur í dag sem og að setja upp hin og þessi verkfærin, sem eru notuð, með og án aðstoðar. Dagurinn var fremur rólegur skoðanalega sér. Ég fékk að skrá mig inn, inn á milli til að grípa m.a. millifærslu- og plötupöntunarbeiðnir. Sú nýja stóð sig mjög vel og ég spaugaði með að hún yrði farin að kenna mér áður en langt um liði.

Strax eftir vinnu brunaði ég út úr bænum um Þrengslin austur fyrir fjall og til frændfólks á Selfossi en dóttir þeirra, frænka mín og eins konar litla systir, er í viku heimsókn á landinu. Hún er búin að búa úti í Danmörku í þrjátíu ár af sinni 50 ára ævi. Ég stoppaði hjá þeim í þrjá tíma, og var mikið spjallað. Var boðin í kvöldmat með þeim, svokallaða kofaböku. Hafði líka rænu á því að óska eftir og fá myndatöku bæði af þeim þremur og svo mér og frænku/litlusystur minni áður en ég þakkaði fyrir mig og fór. Var komin heim rétt fyrir tíu.

6.9.26

Nokkra daga "heimatölvufrí"

Það er bæði óvart og smá viljandi að ég tók mér pásu frá skrifum. Fimmtudagurinn var langur í báða enda. Mætti í sund um hálfsjö. Nóg að gera í vinnunni milli 7:37 og 16:35. Stoppaði heima í tæpa klukkustund og klæddi mig í buxnadragtina áður en ég fór að heiman aftur og á fyrsta samfrímúrarafund haustsins. Klukkan var byrjuð að ganga ellefu þegar ég kom heim aftur. Samt gaf ég mér tíma í smá lestur áður en ég fór að sofa. Föstudagurinn byrjaði einnig á sundi áður en ég mætti í vinnu. Það var eiginlega ennþá meiri erill í vinnunni þann daginn og mjög gott að það er skoðað á báðum brautunum. Stimplaði mig út rétt rúmlega fjögur og fór beinustu leið í klippingu. Hringdi reyndar í sundvinkonu sem stundar Laugardagslaugina aðeins á sumrin í seinni tíð, og spjallaði við hana þar til rétt áður en ég átti að klippitímann. Sjö vikur síðan ég var klipp síðast og mér fannst mjög gott að láta stytta og þynna vel. Var komin heim um hálfsex leytið. Fór frekar seint að sofa en þó ekki eftir miðnætti. Var bæði að horfa á þætti og einnig lesa. Kláraði m.a. að lesa ljóðasafnið hans Njarðar en á örugglega eftir að glugga meira í það áður en ég skila inn bókinni.

Vaknaði um hálfsjö á laugardagsmorgninum. Ákvað að fara ekkert í sund. Las í fræðunum og tveimur bókum af safninum fyrsta einn og hálfa tímann. Sinnti því svo sem ekki má skrifa um en var mætt til norsku esperanto vinkonu minnar um tíu. Stakk bílnum í samband á meðan ég var í hittingnum, ca 1 og hálfan tíma. Kom við í Krónunni við Fiskislóð áður en ég fór heim. Heima lagði ég við hleðslustaurinn á planinu og stakk bílnum í samband. Klukkan var líklega eitthvað um hálfeitt og ég var með bílinn í hleðslu til klukkan fjögur. Þá fór ég út, gekk frá hleðslukaplinum, lagði bílnum í annað stæði og skrapp svo í klukkutíma göngutúr.

Í morgun var ég líka vöknuð frekar snemma eða um hálfátta. Fór fljótlega á fætur og var að lesa fyrstu tvo tímana. Rétt fyrir tíu ákváðum við tvíburahálfsystir mín hitting upp úr hádeginu hjá henni. Ég skrapp út í klukkutíma göngutúr. Horfði á einn þátt í þriðju seríunni: "House of the Dragon", fékk mér að borða um tólf leytið og stuttu fyrir eitt tók ég til handavinnudótið mitt og fór akandi yfir í Ljósakur í Garðabæ. Veðrið var svo frábært að við ákváðum að setjast með handavinnuna út á svalir. Ég bað um kaffi og drakk tvo bolla af því. Seinna um daginn skiptum við yfir í te. Sonja kom mér af stað í að sauma í sléttu fletina á barnateppinu. Saumaði reyndar útlínur utan um þrjú hjörtu en er hálfnuð með fyrstu kindina af nokkrum. Finnst ég vera búin að ná tökum á tækninni að sauma eins og kindin sé prjónuð í en samt gæti alveg verið að þessi fyrsta kind muni líta að einhverju leyti út eins og úlfur í sauðagæru. Að vísu verður þessi "kind/úlfur" með horn. Klukkan var að verða að byrja að ganga sjö þegar ég kom heim og bíllinn er enn með 100% hleðslu eða yfir 300km.

2.9.26

Á bókasafnið seinni partinn í dag

Vaknaði næstum hálftíma áður en vekjarinn átti að ýta við mér tíu mínútum fyrir sex. Korter yfir sex lagði ég af stað í sund og fór Kringlumýrarbrautina að þessu sinni. Var komin á planið við Laugardalslaug fimm mínútum áður en opnaði. Synti 500m (250m skrið- og 250m bakskriðsund) á braut sex. Sat svo næstum korter í steinapottinum og spjallaði m.a. við fyrrum vinnufélaga úr RB. Stimplaði mig inn í vinnu upp úr klukkan hálfátta. Aðeins rólegra var í skoðunum í dag heldur en undan farna daga en þær fóru þó nokkkuð yfir þrjátíu. Eftir hádegi kom til okkar kona sem er að ráða sig í afgreiðslustörf hjá frumherja. Vann fyrir nokkrum misserum í afgreiðslu hjá Aðalskoðun þannig að hún kann nú ýmislegt fyrir sér. Tveimur tímum eftir að hún kom settist hún í "afgreiðslu-stólinn" og stóð sig mjög vel og fagmannlega. Á morgun á hún að mæta hjá frumherja í Hafnarfirði. Þar eru tvær tölvur í afgreiðslunni svo hún getur skráð sig inn á aðra og haldið þjálfun áfram en það stendur til að hún fari svo í afgreiðsluna í Hádegismóum síðar á árinu.

Eftir vinnu fór ég beinustu leið í Hátún 12 í osteostrong tíma. Var mætt þar korter fyrir fimm. Þurfti að hinkra í rúmar fimm mínútur og var svo búin með ferlið korter yfir fimm. Þá lá leiðin í bókasafnið í Kringlunni. Skilaði þremur bókum af fjórum. Skilda ljóðasafnið hans Njarðar P. Njarðvík eftir heima þar sem ég er rétt rúmlega hálfnuð að lesa það. Á líka tæpar þrjár vikur eftir af útláninu á þeirri bók. Með mér heim tók ég sex bækur þar af eina með 14 daga skilafresti; Vesen eftir Láru Óskarsdóttur. Hinar bækurnar eru; Fimmta barnið eftir Doris Lessing, FYRIR DAGA farsímans (sögur) eftir Böðvar Guðmundsson, Hefnd Diddu Morthens eftir Sigríði Pétursóttur, Sumarblóm og heimsins grjót eftir Sigrúnu Ölbu Sigurðardóttur og Syndafall eftir Yrsu Sigurðardóttur. Veisla framundan hjá mér en ég tel nú líklegt að ég muni þurfa að framlengja einhverjum skilafrestum því það er meira sem ég þarf að gera eftir vinnu heldur en að lesa.


1.9.26

Glænýr mánuður

Vaknaði á undan vekjaranum, einhvern tímann upp úr klukkan sex. Var mætt í vinnu um hálfátta. Í heildina voru skoðaðir 54 bílar í dag, 10 færri en í gær. Nýji skoðunarmaðurinn var að standa sig ágætlega með góðum stuðningi hjá unga stöðvarstjóranum. Um þrjú leytið kom yfirmaður BSK sviðs (Siggi frændi) við til að funda stuttlega með stöðvarstjóranum. Strax eftir vinnu fór ég í Nauthólsvík. Spjallaði við pabba í símann langleiðina á leiðinni þangað. Var komin út í 11,7°C sjóinn rúmlega fimm. Það var fjara. Fór tvisvar út í, í gufuna á milli ferða og endaði svo í heita pottinum í uþb korter. Var komin heim fyrir klukkan hálfsjö. 

31.8.26

Síðasti ágústdagurinn þetta árið

Ég var komin austur á Hellu um hálftvö leytið á laugardaginn. Eyddi 30% af hleðslunni. Sú spænsk-suðurameríska var á vakt í eldhúsinu á Stracta hótelinu til tíu um kvöldið og Bríet frænka var eitthvað á vegum SS á kjötsúpuhátíð á Hvolsvelli en það voru samt "næturgestir" í herberginu sem hún hefur afnot af og pabbi hélt sig í stofunni og stundum eldhúsinu. Hann var annars ágætlega hress. Ég skrapp í stuttan, tæplega hálftíma göngutúr um fjögur leytið og milli fimm og sex bauð pabbi mér upp á grill. Bríet var komin heim en hún og gestir hennar voru í öðrum hugleiðingum varðandi mat og björguðu sér sjálf.

Þegar ég kom fram á níunda tímanum voru pabbi og sú spænska þau einu sem voru komin á fætur. Hún var með í þvottavélinni en vélin var búin fljótlega og ég ákvað að nota tækifærið og þvo utan af rúminu mínu og hengja svo út á snúru. Pabbi tók út þrjú mismunandi fiskflök úr frysti og ég matreiddi handa okkur þremur í hádeginu. Þegar Bríet kom á fætur um eitt afþakkaði hún að fá sér af því sem var afgangs svo ég fékk að taka afganginn með mér í bæinn. Kvaddi pabba um þrjú leytið og var komin í bæinn á fimmta tímanum. Kom við í Löðri við Vesturlandsveg áður en ég fór heim. Hleðslan var rétt komin niður í 39% þegar ég kom heim og af því að það var laust á staur setti ég bílinn í samband og hlóð hann upp í 89%. Tók hann úr sambandi og færði í annað stæð um tíu í gærkvöldi.

Vaknaði um hálfsex í morgun og var mætt í Laugardalslaug þegar opnaði klukkutíma síðar. Synti 500m á braut 6 og hitti svo fyrrum vinnufélaga smá stund í steinapottinum. Stimplaði mig inn í vinnu ca tuttugu mínútum fyrir átta. Stöðvarstjórinn var búinn að fjarlægja bíl sem var á "auka"brautinni því nú er nýji skoðunarmaðurinn kominn með skoðunarnúmer svo þá er um að gera að nýta báðar brautirnar. Það var þokkalega sturlað að gera, slatti bíla bókaðir (bæði fyrir og eftir hádegi) og svo komu mjög margir inn af götunni. Heildar skoðanir fór upp í 64. Þeir voru að klára síðustu skoðanirnar þegar ég stimplaði mig út rétt eftir klukkan hálffimm.

Fór beinustu leið heim. Í síðasta sjónvarpsfréttatíma Sýnar í kvöld kom Davíð Steinn smá stund í mynd vegna fréttar um að á miðnætti mun vsk af eldsneyti hækka aftur upp í 24% úr 11%. Horfði svo á fréttir á Rúv sem sagði m.a. frá síðasta fréttatíma Sýnar (áður stöð 2, í bili eða hvað sem verður).

Sem betur fer tékkaði ég aðeins á almanakinu í símanum því annars hefði ég gleymt að mæta á boðaðan framhaldsfund í húsfélaginu vegna ónæðis íbúa í einni íbúð af 33 í blokkinni. Þar kom fram að ástandið hefur kannski skánað smá en ekki lagast nógu vel og ákveðið var að veita íbúum frest í 30 daga í viðbót. Þó með þeim fyrirvörum að ef ónæðið byrjar aftur eftir þennan tíma þá verði málið tekið lengra.