17.2.25

Göngutúr

Svaf svo vel og lengi að klukkan var orðin hálftíu þegar ég hafði mig á fætur í gærmorgun. Var þá aðeins búin að vera vakandi í uþb hálftíma. Rumskaði reyndar stuttlega um miðja nótt þegar unga parið kom af þorrablótinu. Þau komu á fætur upp úr hádeginu og fóru aftur í sveitina hans Bjarka, eða foreldra hans sem eru ekki heima við þessa dagana. Veðrið var dásamlegt en einhvern veginn hafði ég mig ekki strax út. Kláraði söguna um Pa Salt/Atlas, eitt eldhúshandklæði "datt" af prjónunum, lagði nokkra kapla og vafraði eitthvað um á netinu í tölvunni hans pabba. Um tvö byrjaði leikur í enska boltanum; Liverpool - Wolves 2:1. Pabbi byrjaði að horfa með mér en skrapp svo í stutta göngu. Fljótlega eftir að leikurinn var búinn tók ég mig saman, kvaddi pabba og var komin í bæinn um hálfsex. Þremur korterum eftir að ég kom heim dreif ég mig loksins út í það sem átti að vera ca hálftíma ganga en endaði í klukkutíma göngu réttsælis hring í kringum Öskjuhlíðina. 5km á 65mínútum. Þar með er ég búin að hreyfa mig alla daga, nema einn, sem liðnir eru af Lífshlaups-keppninni. Fitjaði svo upp á enn einu eldhúshandklæðinu og prjónaði á meðan ég fylgdist með Landanum og þættinum um íslenska matarhefð fyrr og nú. . 

16.2.25

Orka og kraftur

Stilli sjaldnast á mig klukku um helgar og í gær svaf ég alveg til klukkan að verða hálfsjö. Rétt hitti á N1 soninn áður en hann fór af stað í vinnuna. Gaf mér ágætis tíma í styrktaræfingar, netvafr og blogg og ákvað svo að fara í Sundhöllina. Þessa helgina er nefnilega sundmót í Laugardalslauginni. Mótið svo sem í innilauginni það getur bæði verið erfitt að fá stæði á planinu við laugina, gott skápapláss og jafnvel nægilegan frið til að synda á bakinu á brautunum í útilauginni. Það eru færri og styttri brautirnar í Sundhöllinni, 25m, 4 brautir úti og 4 inni. Ég byrjaði á að skella mér í kalda pottinn korter fyrir níu. Það var aðeins einn að synda í útilauginni og ég skellti mér á braut 4 eftir 4 mínútur í kalda og hafði brautina alveg fyrir mig á meðan ég synti 1000 metra (flesta á bakinu) næstu 50 mínúturnar. Fór aðra ferð í þann kalda og eina ferð í heitasta pottinn sem er annar af þeim tveim elstu. Þvoði mér um hárið og var svo mætt í esperanto hitting um hálfellefu. Lásum tvær bls. í Kon-Tiki. Kom heim um tólf. Pakkaði niður, kvaddi Odd og kom svo aðeins við á N1 við Gagnveg áður en ég brunaði beinustu leið austur á Hellu. Og nei ég var ekki að fara á þorrablótið. 

15.2.25

Laugardagur

Morgunrútínan í gærmorgun var keimlík flestum virkum morgnum. Mætti svo í vinnu um hálfátta. Þrátt fyrir að þrjár þyrftu að fara um og upp úr hádeginu kláruðust verkefni dagsins fyrir klukkan hálfþrjú. Áður en ég fór í sund hringdi ég í afmælisbarn gærdagsins, æskuvinkonu mína hana Ellu og einnig í pabba. Sá síðarnefndi var í smá bíltúr um Rangárvellina, var að hreyfa bílinn aðeins lengra heldur en í sundið, búðina og á Kanslarann. Hitti aðeins á kalda potts vinkonum mína. Hún var búin að synda en við náðum tveimur ferðum í þann kalda áður en ég fór á brautir 7-8 og synti í 40 mínútur eða 800 metra. Ætlaði mér að fara 10 ferðir eða kílómeterinn en allt í einu fylltist allt af krökkum sem voru að hita upp fyrir sundkeppni. Var komin heim fyrir klukkan fimm. Um hálfsex skrapp ég svo í "smá" göngutúr. Fór einn hring um Öskjuhlíð, tæpa 5km ár rétt rúmri klukkustund. 

14.2.25

Lífshlaupið

Það sem ég varð hissa þegar ég fékk skilaboð um hálftvö í gær þess efnis að ég gæti sótt vegabréfið mitt í Kringlunni í Skeifunni eftir klukkan þrjú. Ekki liðinn sólarhringur frá því ég var í myndatöku og ég var ekki að biðja um neina flýtimeðferð. Var búin að vinna upp úr klukkan tvö og fór beint í sund. Hringdi reyndar fyrst í pabba. Var komin á braut 7 tíu mínútum fyrir þrjú. Kalda potts vinkona mín var þá þegar mætt og búin að synda 400m. Ég synti kílómeterinn á 50 mínútum. Hitti svo vinkonu mína í kalda pottinum en hún hafði náð að skreppa aðeins í heitasta pottinn á meðan ég kláraði sundið. Klukkan var svo langt gengin í fimm þegar ég sótti nýja vegabréfið mitt áður en ég fór heim.  

13.2.25

Öryggi

Síðast liðinn mánudag fékk ég skilaboð um að rafrænu skilríkin mín væru að renna út eftir hálfan mánuð og það þyrfti að koma með gild skírteini til að endurnýja þau. Ég á ekki nafnskírteini, vegabréfið rann út í nóvember og mig langar ekki til að framvísa ökuskírteininu ef ég þarf þess ekki. Ég fékk því að fara úr vinnu um tvö í gær til að sækja um nýtt vegabréf. Var búin að panta tíma og allt. Skrifandi um ökuskírteini þá ruglaðist ég aðeins þegar ég kom inn í húsnæðið þar sem sýslumaður höfuðborgarsvæðisins er og byrjaði á því að ná í miða eins og ég væri að sækja um ökuskírteini. Áður en kom að mínu númeri var ég þó búin að átta mig á mistökum mínum og fór yfir ganginn og í réttu röðina. Byrjaði á því að borga hjá gjaldkera til að hafa kvittun tiltæka vegna myndatöku. Þurfti ekki að bíða lengi eftir að komast að í myndatökuna en komst þá að því að ég þurfti að framvísa skilríki og þau voru út í bíl. Ég fékk tíma til að sækja útrunna vegabréfið og svo gekk þetta allt mjög smurt. Var komin út í bíl aftur fyrir klukkan hálfþrjú. Vissi að allt væri að verða búið í vinnunni svo ég ákvað að fara með bílinn í smurningu, 11 mánuðir og tæpir 11000km eknir síðan síðast var smurt. Átti örfáa kílómetra eftir miðað við viðmiðunar miðann á framrúðunni. Komst strax að og þetta tók ekki langan tíma. Fór svo beinustu leið í Nauthólsvík, buslaði í sjónum í 10 mínútur og sat í pottinum í korter áður en ég fór upp úr og heim. Klukkan var þá um fjögur. Klukkutíma síðar skellti ég mér í rúmlega hálftíma 2,8km göngu. Alla hreyfingu skráði ég svo samviskusamlega á vegg lífshlaupsins. 

12.2.25

Virkni

Gærdagurinn byrjaði snemma hjá mér. Var glaðvöknuð um fimmleytið. Skrapp fram á salernið og fljótlega eftir að ég var komin upp í rúm aftur kveikti ég á náttborðs lampanum og fór að lesa aðeins um Atlas/Pa Salt, náungann sem ættleiddi 6 systur frá sex stöðum í heiminum. Þetta er um 750bls bók og ég á eftir að lesa um 200 bls. Rétt fyrir sex fór ég á fætur og gerði nokkrar æfingar með tveimur 2kg lóðum. Æfingarnar taka mig ca 7-10 mínútur. Var annars mætt í vinnu rétt fyrir klukkan hálfátta. Það voru næg verkefni sem kláruðust þó í fyrra fallinu. Ég var komin í sund um þrjú, á sama tíma og kaldapotts vinkona mín. Við byrjuðum á því að synda í 50 mínútur, 1km. Fórum svo 3 ferðir í þann kalda, tvær í heitasta, 20mín í gufu og um korter í sjópottinn. Þá kvaddi ég en vinkona mín fór auka ferðir í þann kalda. Ég kom heim fyrir klukkan hálfsex. Um sjö leytið skrapp ég aftur út í hálftíma göngutúr, 2,2km. Það er magnað hvaða áhrif það hefur að hafa skráð sig í hóp í Lífshlaupinu sem fer fram þessa dagana. 

11.2.25

Nægjusemi

Vaknaði rétt fyrir sex í gærmorgun. Gerði nokkrar æfingar með tveimur 1,5km lóðum þegar ég var búin að klæða mig. Fékk mér lýsi, engifer og kanilskot og vatnsglas og sinnti svo morgunverkunum á baðherberginu áður en ég settist inn í stofu með fartölvuna í fanginu. N1 sonurinn kom fram um hálfsjö og fór skömmu síðar af stað í sína vinnu. Ég var mætt í mína vinnu um hálfátta. Verkefni mín dugðu alveg í tæpa átta tíma. Var komin í Hátún 12 í osteostrong rétt fyrir fjögur. Komst strax að og var því komin í sund um hálffimm. Synti í 40 mínútur, 800m og var nýbúin með fyrstu ferðina í þann kalda þegar kaldapotts vinkona mín kom úr leikfimitímanum sínum úr Laugum. Saman fórum við tvær ferðir í þann kalda, 10mínútur í gufu og annað eins í sjópottinn. Þá fór ég upp úr. Klukkan var að verða hálfsjö þegar ég kom heim.  

10.2.25

Afslöppun

Rumskaði aðeins þegar ég heyrði stofuklukkuna slá sjö í gærmorgun. Vissi næst af mér tveimur tímum seinna og var að brölta á fætur um hálftíu. Pabbi var búinn að koma fram á sínum morguntíma um sex leytið. Heyrði að hann var eitthvað að brasa frammi í herberginu sínu en hann kom þó ekki fram fyrr en eftir fréttir klukkan tíu. Við fórum í smá kaplakeppni en settumst svo inn í stofu að spjalla. Ég greip aðeins í útsaumsdótið mitt. Fengum okkur skyr í hádeginu. Stuttu fyrir eitt skrapp ég út í hálftíma göngu og kíkti svo aðeins á vinafólk í Nestúninu. Þar var ég ekki búin að koma langa lengi. Klukkan var að verða þrjú þegar ég kom aftur til pabba. Greip aðeins í prjónana en skömmu síðar vorum við feðgin aftur komin í kaplakeppni. Ég fékk mér smá te og frækex. Upp úr klukkan fjögur pakkaði ég niður og kvaddi pabba. Gerði klukkutíma stopp í Löngumýrinni á Selfossi svo klukkan var orðin meira en hálfsjö þegar ég kom heim. Lánaði Oddi bílinn því Davíð Steinn var nýkominn úr vinahittingi og ákvað að geyma verslunarferð þar til eftir vinnu í dag, mánudag. 

9.2.25

Ð

Vaknaði stuttu fyrir klukkan sjö í gærmorgun. Klukkan var samt alveg að verða níu þegar ég byrjaði að synda á braut 7 í Laugardalslauginni. Synti í heilar 50 mínútur sem var akkúrat 1km. Var fimm mínútur í kalda pottinum, tuttugu í gufu, 15 í sjópottinu og svo hálfa mínútur áður en ég fór upp úr og þvoði mér um hárið. Þegar ég kom heim kláraði ég að pakka niður, hafði byrjað að taka til dót og tösku áður en ég fór í sundið, og fékk mér smá af grískri jógúrt. Klukkan var byrjuð að ganga eitt þegar ég bankaði upp á hjá öðrum syninum til að láta vita að ég væri að stinga af. Rétt áður en ég brunaði af stað hringdi ég eitt stutt símtal. Niðurstaðan úr því símtali var sú að ég kom við í Fossheiðinni á Selfossi og stoppaði þar í dágóða stund. Fyrsta heimsóknin á þessu ári. Ég hélt svo för áfram á Hellu, líka fyrsta heimsóknin á árinu. Veðrið var annars dásamlega milt og gott og alls engin ferð á logninu. Um fimm skrapp ég aðeins út í stutta göngu, 1,5km á tuttugu mínútum. Alla hreyfingu dagsins skráði ég inn á Lífshlaupið sem er hafið. Við pabbi höfðum svo siginn fisk í kvöldmat sem var borðaður eftir kvöldfréttir, íþróttir og veður. 

8.2.25

Í þungum þönkum

Gærdagurinn var ekki lengi að líða. Nóg að gera í vinnunni en þó allt búið um tvö leytið. Hringdi í pabba og talaði við hann á meðan ég var að keyra frá vinnu yfir á planið við Laugardalslaug. Var komin á braut 8 á slaginu hálfþrjú. Færði mig fljótlega yfir á braut 6. Synti 700m á 35 mínútum. Kalda potts vinkona mín var komin á svæðið en hún var ekki með sundhettuna og beið eftir mér í sjópottinum. Var þó búin að fara eina ferð í þann kalda. Saman náðum við þremur ferðum í hann. Ég fór fjórðu og síðustu ferðina mína áður en ég fór upp úr. Kom aðeins við í Hagkaup í Skeifunni áður en ég fór heim. Var að athuga með dokku af tuskugarni í ákveðnum lit. Fann hann ekki en keypti smá af öðrum litum sem gætu passað með litnum á eldhúshandklæðinu sem er á prjónunum þessa dagana.  

7.2.25

Veðrið

Vaknaði stuttu fyrir klukkan sex í gærmorgun. Morgunrútínan var keimlík flestum virkum morgnum. Mætti í vinnu um hálfátta og var fljótlega byrjuð á innleggjum. Vorum búin með fyrirliggjandi verkefni nokkru fyrir hádegi en vegna veðurs var ekki von á meiru fyrr en um miðjan dag. Bílarnir skiluðu sér inn milli tvö og rúmlega þrjú. Hjálpuðumst að við að taka á móti og vorum búin um hálffjögur. Var komin í sund um fjögur. Kalda potts vinkonan var búin að synda í hálftíma. Við fórum þrjár ferðir í þann kalda og í gufuna og svo kom hún aftur út á braut 8 og synti í tuttugu mínútur. Ég synti 700m á 25 mínútum og mun sá tími verða skráður í Lífshlaupið. Kom aðeins við í Heilsuhúsinu í Kringlunni á leiðinni heim. Þar fæ ég nefninlega alltaf beltisþara ef ég finn hann ekki í Hagkaup. 

6.2.25

Mikil hraðferð á logninu þessa dagana

Var komin á fætur og búin að gera æfingar með lóðum rétt upp úr klukkan sex. N1 sonurinn fór af stað í sína vinnu um hálfsjö. Ég hafði ágætis tíma í smá netvafr, leiki og bloggfærslu. Mætti í vinnu um hálfátta. Vorum tveimur færri en á þriðjudaginn og um þrjú var verið að hvetja okkur til að ganga frá og fara heim. Þá vorum við búin. Ég var með sjósundsdótið meðferðis en það var búið að loka í Nauthólsvík og á leiðinni heim heyrði ég að það væri verið að loka öllum sundlaugum líka. Eins gott því það gekk yfir svaka eldingaveður seinni partinn í gær og fram á kvöld. Ég var því komin heim fyrir fjögur. N1 sonurinn kom ekki heim fyrr en rétt fyrir tíu. Hann hafði verið að vinna til sjö og svo skroppið í heimsókn til vina í engjahverfinu. 

5.2.25

Umhleypingar

Það var vekjarinn sem ýtti við mér á sjöunda tímanum í gærmorgun. Hafði reyndar rumskað eitthvað um hálffimm leytið en sem betur fer sofnaði ég aftur. Var að dreyma eitthvað en það gleymdist um leið og hljóðið í vekjaranum fór af stað. Vorum þremur fleiri í vinnu í gær og það munaði um það. Þrátt fyrir að meira væri að bóka vorum við búin aðeins fyrr í gær heldur en á mánudaginn. Var komin í sund um fjögur. Synti 500m á braut 7. Sat svo fimm mínútur í kalda pottinum. Fór þaðan beint í gufuna í fimmtán mínútur svo kalda sturtu áður en ég fór í sjópottinn í korter. Rétt áður en ég fór upp úr fór ég svo aftur í þann kalda en aðeins í tvær mínútur. Það er greinilegt að kalda potts vinkonan ver ekki á svæðinu því þá hefði ég líklega farið 3-4 ferðir í þann kalda. Kom við á Prepp-barnum á leiðinni heim og splæsti á mig afmælistilboði sem ég tók með mér og borðaði heima. 

4.2.25

Lending

Vorum í færri kantinum í vinnu í gær. Var að bóka til klukkan þrjú og fara yfir skjöl síðustu þrjú korterin. Dreif mig beinustu leið í osteostron og var komin þangað ca sjö mínútur yfir fjögur. Komst strax að og nýr leiðbeinandi fékk að fylgja mér í gegnum upphitun og styrktar og jafnvægisæfingar. Eftir átta mínútna slökun og vatnsglas á eftir var klukkan rétt að verða hálffimm þegar ég kvaddi og fór beinustu leið í sund. Spjallaði reyndar aðeins við pabba áður en ég fór inn í klefa. Synti ekkert en hitti á kalda potts vinkonu mína í heitasta pottinum eftir fyrstu ferðina í þann kalda. Fórum sama tvær ferðir í kalda pottinn. Ég fór upp úr og heim eftir gufuna og smástund í sjópottinum. 

3.2.25

Línudans

Vaknaði rétt fyrir sjö. Tæpum tveimur tímum síðar var ég komin í sund. Byrjaði á kalda pottinum áður en ég fór á brautir 7 og 8. Synti blandað sund og helst á bakinu. Var búin með 400m þegar ég hitti á sjósunds vinkonu mína og manninn hennar. Þau voru að klára á braut sex. Hafði ætlað mér að synda 100-200m í viðbót en það varð úr að ég elti vinkonu mína í sjópottinn. Eftir rúmar tíu mínútur þar fórum við saman 4 mínútur í þann kalda. Eftir það fór hún upp úr en ég í smá gufu. Þvoði mér svo um hárið og var komin vestur í bæ til esperanto vinkonu minnar stuttu fyrir klukkan ellefu. Við lásum tvær bls. í Kontíki. Var komin heim fyrir klukkan eitt. Fór ekkert út aftur en fjórar ferðir í þvottahúsið. Annars var ég að prjóna, lesa og /eða horfa á bolta og þætti. Dagurinn var ekki lengi að líða frekar en oftast áður. 

2.2.25

Öfugsnúið

Vaknaði upp úr klukkan hálfsjö í gærmorgun. Dreif mig fljótlega á fætur. Á níunda tímanum ákvað ég að sleppa sundferð og taka því bara rólega fram yfir hádegi. Var að vafra á netinu, fór fljótlega að lesa og um tíu kveikti ég á imbanum. Klukkan var byrjuð að ganga þrjú þegar ég dreif mig aðeins út í stutta göngu, 2,5km á tæpum hálftíma. Var komin inn aftur rétt áður en leikur Bournmouth og Liverpool hófst sem fór 0:2 fyrir gestaliðið sem er á toppnum í deildinni. Heimaliðið var ekki búið að tapa sl ellefu leiki og lét alveg Liverpool hafa fyrir þessum sigri. Kláraði tvær af safnbókunum í gær. Önnur þeirra er Hvítalogn eftir Ragnar Jónasson. Er búin að lesa ríflega 130bls af bókinni um Pa Salt en hún er 750 bls. Ég er líka að lesa næst síðustu jólabókina; Gólem eftir Steinar Braga. Og á þá einungis eftir að byrja á og lesa Yrsu, Ég læt sem ég sofi. Svo eru þrjár bækur í viðbót af safninu og nokkrar fleiri ólesnar. 

1.2.25

Rok og rigning

Í gær var síðasti dagurinn í janúar, heill mánuður liðinn frá áramótum. Vinnudagurinn var frá ca tuttugu mínútum í átta til klukkan að ganga þrjú. Megnið af honum fór í innlegg/bókanir en síðasta hálftímann var ég að yfirfara skjöl. Þrátt fyrir að vera með sunddótið meðferðis tók ég ákörðun um að fara bara heim. Kom þó við í fiskbúðinni og keypti mér harðfisk og bleikjuflak. Ég var því komin heim áður en klukkan varð þrjú. Restin af deginum var nokkuð fljótur að líða. Fór í háttinn klukkan tíu og las í hálftíma. Var líka búin að lesa fyrr um daginn, fitja upp á prjóna og glápa á imbann. 

31.1.25

Uppskera

Ég man að ég rumskaði einhvern tímann í fyrrinótt, sennilega um fjögur leytið. Hugsaði með mér að ef ég gæti ekki sofnað aftur þá væri nóg af bókum að grípa í. Næst vissi ég af mér þegar vekjaraklukkan hringdi korter yfir sex. Teygði vel úr mér áður en ég fór á fætur en sleppti lóðaæfingunum. Var mætt í vinnu um hálfátta. Fyrstu verkefnalotu lauk stuttu fyrir hálftíu og vegna veðurs og færðar þurftum við að bíða til klukkan að ganga tólf eftir næsta verkefna skammti. Vorum búin fyrir klukkan hálfþrjú. Hringdi í pabba og spjallaði við hann á meðan ég var á leiðinni yfir í Laugardalinn. Ég var mætt á braut 8 fimm mínútum yfir þrjú. Þá var kalda potts vinkona mín búin að synda í 15 mínútur og hún synti 25 mínútur í viðbót á meðan ég synti 500 metra. Eftir það fórum við í pottadýfingar, góða gufu og korter í sjópottinn. Þá fór ég upp úr en hún hélt eitthvað áfram. Kom við í Hagkaup í Skeifunni áður en ég fór heim. Keypti mér m.a. frækex en fann ekki þarann sem mér finnst svo góður. Þetta tvennt fæst líka í heilsuhúsinu. Var komin heim áður en klukkan varð hálfsjö. 

30.1.25

Kortadeildin að ljúka störfum

Gærdagurinn var aðeins öðruvísi vinnulega séð. Var að vísu í innleggjum fram að morgunkaffi. Eftir kaffið og eitthvað fram yfir hádegi vorum við fyrrum fyrirliði að henda munaðarlausu, gömlu plasti í stóra 240 lítra tunnu frá Gagnaeyðingu. Eigum aðeins eftir að fá það 100% staðfest að kort sem hafa orðið ónýt í framleiðslu fari sömu leið líka. Einnig vorum við aðeins að aðstoða flokk manna úr ýmsum áttum. Tveir erlendir, tveir tæknimenn úr RB og annar af þeim sem hefur þjónustað kortavélina sl. tæp fimm ár. Annar af þessum erlendu mönnum er sá sami og kom og sett upp vélina síðla sumars 2020. Það var verið að staðfesta að vélin virkaði en svo voru diskarnir teknir úr og þeim verður fargað. Nýjir diskar verða settir í fyrir nýja eigendur. Annars var ég búin í vinnu upp úr klukkan tvö. Hringdi og spjallaði við pabba á meðan ég var á leið í Nauthólsvík. Rétt fyrir þrjú skellti ég mér í -1,8°C sjóinn, fyrst í ca 3 mínútur og svo þremur mínútum síðar í tæpa mínútur. Sat svo í pottinum í rúmt korter áður en ég fór upp úr og heim.  

29.1.25

Kraftur

Ég var nú alveg til í að kúra lengur þegar ég rumskaði stuttu fyrir sex í gærmorgun. En það hefði líklega þýtt að ég myndi leggja niður lóðaæfingar þann morguninn sem ég gerði ekki. Morgunrútínan var keimlík flestum virkum morgnum. Fór þó af stað í vinnu í fyrra fallinu því það þurfti að byrja á því að sópa af bílnum. Var búin að stimpla mig inn rúmlega hálfátta og byrjuð í innleggjum áður en klukkan varð átta. Þrátt fyrir þokkalega stóran dag vorum við búin með öll verkefni um þrjú. Þá fór ég beinustu leið í Laugardalinn. Hringdi reyndar í fyrrum samstarfskonu mína sem er nýlega komin heim úr mánaða ferð til Tælands. Var byrjuð að synda tuttugu mínútum fyrir fjögur. Kalda potts vinkona mín tafðist aðeins, mætti þegar ég var að klára 400m og sagðist ætla að synda eftir pottadýfingarnar og gufuferðina. Það var líka aðeins farið að fjölga á brautunum svo ég dreif mig með henni í þann kalda og alla þá rútínu. Var komin heim um hálfsex. 

28.1.25

Osteostrong - mæli með því 100%

Korter fyrir sex í gærmorgun var ég komin á stjá. Nýbúin að klæða mig og búa um rúmið og að byrja æfingar með 1,5kg lóðum. Þessar lóða æfingar eru sjaldnast lengri en 5-7 mínútur en þær eru alveg að gera eitthvað fyrir mig. Eftir æfingarnar fékk ég mér sítrónuvatn áður en ég sinnti morgunverkunum á baðherberginu. Hafði svo ágætis tíma í netvafr. N1 sonurinn fór af stað í sína vinnu tuttugu mínútum fyrir sjö, vaktinni hans var flýtt um hálftíma því nú er það hann sem sér um að undirbúa opnun sem er kl. 7:30 sex daga vikunnar. Aðeins á sunnudögum sem opnar ekki fyrr en kl. 10. Ég fór út í fyrra fallinu og þurfti auðvitað að sópa aðeins og skafa af bílnum en það tók styttri tíma heldur en ef ég hefði ekki forunnið þá vinnu á sunnudaginn. Var í innleggjum að mestu í vinnunni í gær. Kom þó aðeins að hreinsun seðlabúnta. Þá er verið að renna búntum í gegnum vél sem sorterar frá alla auka miða. Um eitt leytið voru um hálft tonn af kortum sótt á vegum eins stóra bankans til að láta fara með í gagnaeyðingu. Einn bankinn á enn eftir að gefa fyrirmæli um sitt plast en það eru ekki eins mörg kort, líklega innan við tíu kíló en svo eru slatti af kortum munaðarlaus samt fjórum sinnum léttara magn heldur en fór út frá okkur í gær. Var búin í vinnu fyrir klukkan þrjú og gaf mér tíma til að skreppa á bókasafnið og skila báðum bókunum. Það komu sex bækur með mér af safninu í staðinn. Mætti í osteostrong tímann um fimmtíu mínútum fyrr en fasti tíminn er og var því komin í sund upp úr klukkan hálffimm. Talaði aðeins við pabba og svo Petru í millitíðinni. Synti 500m og var nýbúin með eina ferð í þann kalda þegar kaldapotts vinkona mín mætti úr tíma í Laugum. Saman náðum við 3 perðum í þann kalda. Þvoði mér um hárið á leiðinni upp úr og var komin heim um hálfsjö leytið. 

 

27.1.25

Rólegheit

Klukkan var rétt að byrja að ganga átta þegar ég var vöknuð og komin á fætur í gærmorgun, á sunnudagsmorgni. Eftir morgunverkin á baðherberginu settist ég inn í stofu með fartölvuna í fanginu og vafraði um netheima í hátt í tvo tíma áður en ég slökkti á og lagði frá mér tölvuna. Kveikti þess í stað á imbanum. Um hálftólf setti ég upp rósakál og afþýddi tvær fiskibollur í örbylgjunni. Um eitt leytið skrapp ég út í stutta göngu, ca 1,5km. Áður en ég kom inn eftir gönguna sópaði ég mesta snjóinn af bílnum og skóf af rúðunum. Var að þessu til að flýta fyrir mér á eftir. Kom inn í þann mund sem HM stofan á RÚV hófst. Fljótlega eftir að leikurinn milli Íslands og Argentínu hófst opnaði ég handavinnutöskuna og greip í eitt af saumaverkefnunum. Sama verkefni og ég saumaði nokkur spor í um daginn. Að þessu sinni taldi ég út í hátt í tvo tíma. Var með prjóna og bækur til hliðar. Las reyndar ekkert fyrr en ég fór upp í rúm um hálftíu í gærkvöldi. 

26.1.25

Innipúki

Rumskaði um hálffimm í gærmorgun. Skrapp fram á salernið og svo beinustu leið í rúmið aftur. Vissi næst af mér rétt fyrir níu og fór ekki á fætur fyrr en hálftíu. Ákvað fljótlega að skrópa í sund og vera ekkert að fara eitt eða neitt. Hugsanlega hefði ég kannski átt að fara aðeins út og viðra mig en dagurinn leið við alls konar innidútl. Eina skiptið sem ég fór úr íbúðinni var þegar ég skrapp niður í þvottahús að ná í þvott af snúrunum. Um hádegið útbjó ég mér hafragraut. Geri alltaf tvöfaldan skammt og borðar fyrri skammtinn strax en hinn verður borðaður kaldur einhvern næstu dagana. Davíð Steinn skrapp í göngutúr, var sóttur af vinkonunni sem hann fylgdi út um daginn og þau fóru alla leið austur á Selfoss til að labba um skógarsvæði sem þau hafa ekki farið áður, amk ekki hann. Hringdi í pabba um miðjan dag. Þá var hann nýkominn inn frá því að moka snjó fyrir framan hús og skúr með snjómoksturstækinu sínu.  

25.1.25

Reynsla

Horfi út um stofugluggann á hvítar trjágreinar sem hreyfast nánast ekkert. Falleg póstkortamynd en hefur líka frekar letjandi áhrif á mig, amk í dag. En aðeins að gærdeginum. Vann við innlegg fram að kaffi en milli tíu og hálftólf vorum við á tímabili fjögur að stafla upp kortakössum, með kortum sem tilkeyra einum bankanum, á bretti. Þetta rúma hálfa tonn er vonandi að fara frá okkur eftir helgi. Klukkan eitt átti ég tíma hjá augnlækni hjá Sjónlag í Glæsibæ. Pantaði mér þennan tíma í október sl. Það eru nokkur ár síðan ég fór síðast til augnlæknis. Ég vildi fá ítarlega skoðun og spurði sérstaklega út í rauðan blett á hvítunni í hægra auga sem er búinn að vera þar í einhver ár. Sjónin er góð. Augnlæknirinn staðfesti að plús 1,5 gleraugu henta í lestur og skjánotkun, engin merki um gláku og bletturinn gæti verið fæðingablettur. Til að athuga hvort hann sé nokku að breytast á ég að koma aftur eftir þrjá mánuði en annars á eins til tveggja ára fresti. Fékk tíma í endaðan apríl n.k. Þessi heimsókn tók rúmlega þrjú korter í heildina en ég var búin stuttu fyrir tvö og fór beinustu leið í Laugardalslaug. Þar var kaldapotts vinkona mín búin að synda í korter og synti í korter í viðbót og beið svo í heitum potti á meðan ég kláraði mínar tuttugu mínútur og 400m. Var komin heim upp úr klukkan fjögur. 6 marka tap gegn Króatíu sló heldur betur á væntingar um sæti í átta liða úrslitum. Allt getur enn gerst en ef þrjú efstu liðin í milliriðlinum vinna sína leiki á morgun verður Ísland í þriðja sæti með jafnmörg stig og hin tvö en verri markatölu. Þetta kemur allt í ljós annað kvöld.  

24.1.25

Yfirvegun

Ég var búin frekar snemma með skyldurnar í gær og mætt í sundið upp úr klukkan tvö stuttu á eftir kalda potts vinkonu minni. Hún var byrjuð að synda á braut átta. Ég fór á braut sex og var hálftíma að synda 600m. Fórum þrjár ferðir í þann kalda, tvær í þann heitasta, 20 mínútur í gufu og næstum hálftíma í sjópottinn. Þá fór ég upp úr og heim, tveimur tímum eftir að ég mætti. Kom heim um hálffimm leytið. Restin af deginum leið jafn hratt við alls kona dútl en þó aðallega imbagláp og svo lestur. 

23.1.25

Frábær frammistaða hjá strákunum okkar hingað til á HM!

Svaf mun betur en var samt vöknuð á undan vekjaraklukkunni í gærmorgun. Þó ekki löngu fyrir klukkan sex. Í vinnunni var ég í kortafrágangsmálum fram að hádegi og innleggjum eftir hádegi. Var búin fyrir klukkan þrjú og eftir smá umhugsun lá leiðin beint í Nauthólsvík eins og flesta miðvikudaga. Sjórinn var aðeins yfir gráðuna, örlítið úfinn en ég tolldi út í í uþb tíu mínútur. Sat svo rúmt korter í heita pottinum áður en ég fór upp úr. Kom við á AO við Öskjuhlíð á leiðinni heim og fyllti tankinn. Oddur var búinn að sinna verkefnum sem ekki má tala/skrifa um, alveg óumbeðin. Ég kveikti ekki á sjónvarpinu fyrr en upp úr klukkan sex. Var eitthvað að vafra um á netinu fram að því. Davíð Steinn kom heim úr vinnu um hálfátta, er að vinna frá sjö til sjö sínar vaktir þar sem stöðvarstjórinn þurfti í axlaraðgerð og er hættur störfum. Vá, hvað það er annars gaman að fylgjast með handbolta landsliðinu springa út og tækla hvert verkefnið á fætur öðru á HM. 

22.1.25

Traust

Svefninn var eitthvað gloppóttur í fyrrinótt en ég var samt vöknuð á undan klukkunni og sinnti allri morgunrútínu mjög vel. Mætti í vinnu um hálfátta. Það virðist vera minn fasti tími. Finnst líka gott að leggja af stað áður en umferðin fer að þyngjast að ráði. Byrjaði í innleggjum fyrir klukkan átta. Þrátt fyrir að færri hendur væru á dekki, innleggin fleiri en á öðrum dögum og önnur stóra vélin ekki mjög samvinnuþýð þá voru öll verkefni búin fyrir klukkan hálffjögur. Var byrjuð að synda á slaginu klukkan fjögur, 200m á eftir kalda potts vinkonu minni. Hún varð hissa þegar ég synti aðeins 300 en var samt alveg tilbúin að fara í pottarútínuna okkar. Þrjár þriggja mínútna ferðir í þann kalda, tvær fimm mínútna ferðir í þann heitasta, tuttugu mínútur í gufunni og annað eins í sjópottinum. Rétt dýfði mér svo í þann kalda á leiðinni upp úr en fór líka í kalda sturtu. Var komin heim rétt fyrir sex. Annars hringdi ég í pabba og spjallaði við hann á meðan ég var á leiðinni úr vinnu yfir í sundið. Hann svaraði ekki gemsanum var líklega ekki að átta sig á að hann væri að hringja og ég var búin að leggja á og hringja í heimasímann þegar hann ætlaði að svara. Hann er þokkalega hress en sagði þó að það væri aftur farin að grassera sýkingin í blöðrunni, væri haltari hennar vegna en héldi sínu striki og sinni rútínu. Sennilega er ekkert við þessu að gera. Sterk sýklalyf geta haldið þessu niðri en virðast ekki hafa unnið alveg á þessu. Held að pabbi hafi verið á sýklalyfjum í allt fyrrasumar og fram á haust. 

21.1.25

Kraftur í strákunum okkar á HM

Vaknaði rétt fyrir sex. Morgunrútínan var svipuð og flesta virka morgna. Gerði æfingar með 1,5kg lóðum í ca 7 mínútur. Mætti í vinnu hálfátta. Þegar fyrrum fyrirliði mætti á svæðið fórum við í kortamál. Um ellefu svissaði ég yfir í innlegg. Stimplaði mig út úr vinnu rúmlega hálffjögur. Hringdi í pabba. Hann gat ekki svarað í nýja gemsann en svaraði í heimasímann. Var komin í osteostrong tíma rétt rúmlega fjögur, aðeins fyrr en fasti tíminn er. Komst strax að og var farin aftur innan við hálftíma síðar. Þótt ég væri með sunddótið meðferðis ákvað ég að fara beint í Krónuna í Skeifunni og versla. Kíkti einnig við í Elkó og keypti rafhlöður fyrir heimasíma sem fara í hleðslustöðvar. Kom heim rétt fyrir sex án þess að hafa farið að synda, svo spennt var ég fyrir leiknum sem reyndar var auðvitað ekki fyrr en klukkan hálfátta. Þvílíkur leikur og þvílík frammistaða hjá strákunum og magnaðar vörslur hjá Viktori Gísla! 

20.1.25

Aftur kominn mánudagur

Vaknaði rétt fyrir sjö í gærmorgun, útsofin og spræk. Gerði æfingar með 1kg lóðin, fékk mér engiferskot, sinnti morgunverkunum á baðherberginu og var svo sest inn í stofu með fartölvuna í fanginu um hálfátta leytið. Laugardalslaugin átti ekki að opna fyrr en klukkan tíu og ég fór fljótlega að velta því fyrir mér hvort ég ætti ekki frekar að skreppa út í smá göngu þegar væri komin meiri birta. Þegar kalda potts vinkona mín setti sig í samband við mig í gegnum FB-spjallið um níu leytið var ég búin að ákveða að "skrópa" í sundið. Göngutúrinn varð ekkert svo langur. Skrapp með gler og ál í gámana við Eskihlíð og labbaði til baka meðfram Miklubraut að Lönguhlíð. Stuttur hringur og forritið í símanum sá ekki einu sinni ástæðu til að skrá þetta sem göngu, líklega þar sem ég stoppaði um stund við gámana á meðan ég var að losa mig við glerið og álið. Fór ekki aftur út eftir þetta. Sýslaði eitt og annað hérna heima við. M.a. skoðaði ég í handavinnutöskuna mína og tók nokkur spor í verkefni sem ég var að vinna að fyrir nokkrum misserum síðan. Ein tuska "datt" af prjónunum og ég fitjaði fljótlega upp á annarri. Það voru bækur við höndina og svo var horft á alls konar bolta og tvo eða þrjá þætti úr sarpinum og auðvitað loka þáttinn um Vigdísi.

19.1.25

Tilraunir

Svaf til klukkan hálfsjö. Var komin í sund rúmum tveimur tímum síðar. Synti 600m á braut 6, langflesta á bakinu en smá skriðsund líka en ekkert bringusund. Fór aðeins eina fimm mínútna ferð í kalda pottinn. Var um tuttugu mínútur í gufunni og tíu mínútur í sjópottinum. Þvoði mér um hárið og var svo komin heim um ellefu. Enginn esperanto hittingu þessa helgina. Var eitthvað að spá í að skreppa í verslunarleiðangur en ákvað svo að það gæti alveg beðið í einn til tvo daga. Restin af deginum fór í alls konar dútl, s.s. lestur, prjón, þátta- og íþróttaáhorf. Davíð Steinn hringdi í mig alla leið frá Svíþjóð til að spyrja hvort og þá hvað hann ætti að kaupa handa mér. Ég sagðist bara vilja fá hann heilan heim. Hann sagði mér frá því að hann hefði gleymt bakpokanum sínum í lestinni milli Danmerkur og Svíþjóðar. Hefði sett hann í hillu svo hann væri ekki fyrir og var svo mikið að hjálpa vinkonu sinni með hennar dót þegar þau fóru úr lestinni að hann gleymdi að taka bakpokann og uppgötvaði það ekki fyrr en lestin var farin. Í bakpokanum voru föt til skiptana, hleðslutæki og snúra. Þegar hann fékk loksins samband við einhvern á vegum lestarinnar sem var viljugur að hjálpa þá er niðurstaðan sú að þeir sem geta athugað með pokann eru með lokað yfir helgina og þetta verður ekki athugað fyrr en á morgun, mánudag. Þá verður pilturinn kominn heim úr ferðalaginu. Meira um þetta mál síðar. 

18.1.25

Í sjóinn í gær

Klukkan var rétt að verða fimm þegar ég vaknaði í gærmorgun. Heldur snemma en ég var samt alveg tilbúin í daginn. Gat gert extra æfingar og það var nógur tími fyrir alla rútínu og netvafr. Mætti í vinnu um hálfátta. Fram að kaffi var ég í innlögnum en upp úr tíu fórum við fyrrum fyrirliði niður í kortahvelfinguna að pakka kortum. Slatti af kortum fór í þó nokkra kassa. Eftir hádegi fórum við aftur niður og til stóð að halda áfram að pakka niður en fyrst fórum við í að sortera öll kort sem hafa orðið ónýt í framleiðslu síðustu rúmu tólf mánuði. Þótt búið væri að sortera meiri helminginn af þeim fyrir nokkrum vikum og það væru ekkert svo stórir bunkar af ónýtu plasti þá tók þetta sinn tíma. Þar að auki var öll önnur starfsemi búin fyrir tvö svo við hættum og gengum frá þegar við vorum búnar að flokka, staðfesta. Gengum frá upp úr klukkan tvö og fórum upp. Þá voru aðeins framkvæmdastjórinn og sú sem er yfir innlögnunum eftir. Fórum aðeins yfir málin með framkvæmdastjóranum en ég var komin í Nauthólsvík og sjóinn rétt fyrir þrjú og heim um fjögur leytið.

17.1.25

Landsleikir

Vaknaði rétt fyrir klukkan sex í gærmorgun. Sinnti allri morgunrútínu og æfingum með lóð. Mætti í vinnu um hálfátta. Var aðallega að vinna í innleggjum í gær en við fyrrum fyrirliði fórum eina hálftíma ferð niður og inn á kortalager. Rétt fyrir hádegi skrapp ég niður í kortadeild með tveimur kerfis-sérfræðingum frá Dalveginum. Öllum verkefnum var lokið um hálfþrjú. Fór beint í sund. Synti 400m á 20 mínútum fór þrjár þriggja mínútna ferð í þann kalda og var aðeins 10 mínútur í gufu og aðrar 10 í sjópottinum. Klukkan var byrjuð að ganga fimm þegar ég fór upp úr og ákvað að heimsækja vinnufélagann sem hefur verið á Grensásdeild síðan 8.desember sl Hann var að búa sig undir að fara í afmæli en þau konan hans voru ekkert að flýta sér og gáfu sér tíma til að spjalla aðeins við mig. Nýliðin nótt var hans síðasta en eftir helgi bætir hann bara á dagdeild í æfingar en fær að sofa heima hjá sér. Gott að sjá hversu vel gengur miðað við hversu slæmt slysið var en hann og hundurinn hans uður fyrir bíl seint í nóvember. Var komin heim um hálfsex leytið, tæpum tveimur tímum fyrir fyrsta leik kalraliðsins í handbolta á HM.

16.1.25

Einbeiting

Var mjög ánægð þegar ég vaknaði rétt fyrir klukkan sex í gærmorgun, alveg útsofin og heldur betur til í daginn. Tók pásu frá æfingum með lóð en að öðru leyti var morgunrútínan mjög svipuð. Vinnudagurinn var í styttra lagi en alls konar. Fyrstu verklotu lauk heldur snemma eða um níu og næstu verk komu ekki inn fyrr en langt gengin í ellefu. Í millitíðinni heimsóttu okkur formaður starfsmanna félagsins og fjórir af sex trúnaðarmönnum fyrirtækisins. Einn af þessum fjórum hefur verið í veikindaleyfi sl mánuði og er þar að auki að fara að hætta vinnu fljótlega vegna aldurs. Ég þekkti allt þetta fólk og líka þessa tvo sem ekki komust. En það var mjög gott að fá þessa heimsókn og frábært að geta gefið sér svo góðan tíma. Við fyrrum fyrirliði fórum eina ferð niður í hvelfingu kortadeildar til að taka niður þrjá innsiglaða kortakassa og senda upp með annarri lyftunni. Þetta verður sótt fljótlega. Ég fór líka niður í kortadeild eftir hádegi með viðgerðar/yfirferðar manni sem hafði verið beðinn um að taka niður einhver "log" af vélinni á usb lykil. Það tók hátt í klukkutíma. Þegar ég kom upp aftur um tvö var allt að verða búið. Stimplaði mig út og fór um hálfþrjú. Hringdi í pabba og spjallaði við hann á meðan ég var á leiðinni í Nauthólsvík. Hringdi í heimasímann en hann sagðist hafa skroppið í bæinn á þriðjudaginn og keypt sér nýjan gsm síma í Elkó í skeifunni svo ég hefði getað hring í þann síma. Var komin í sjóinn um þrjú. Hann var komin í 3,7°C gráður og fór ég eina tíu mínútna ferð út í og sat svo korter í pottinum áður en ég fór upp úr og hringdi í nöfnu mína og hálfdanska frænku sem býr á Vestugötunni. Þrátt fyrir að hún væri á kafi í tiltekt og ætti von á gesti í kvöldmat sagði hún að ég væri velkomin að kíkja. Var komin til þeirra um fjögur og stoppaði í svona þrjú korter. Fékk góð knús og einnig athygli frá kisu, Pixý sem virtist alveg muna eftir mér. Annars flaug N1 sonurinn út til Danmerkur sem fylgdarmaður fyrir eina vinkonu sína snemma í gærmorgun. Þau tóku lest til Svíþjóðar og vinkonan er á leið í aðgerð í dag og má alls ekki lyfta neinu næstu dagana. Þess vegna fór Davíð Steinn með. Þau koma heim aftur n.k. sunnudag. 

15.1.25

Vangaveltur

Enn og aftur var ég vöknuð eldsnemma, öðru hvoru megin við fimm. Þegar ljóst varð að ekkert þýddi að reyna að kúra sig niður kveikti ég á náttborðs lampanum og greip í eina bókina á náttborðinu. Um síðustu helgi lánaði esperanto vinkona mín mér nýjustu bókina eftir Elísabetu Jökulsdóttur. Ég lauk reyndar við að lesa þá bók strax um helgina. Ein af bókunum sem ég keypti þegar ég var að kaupa jólagjafirnar var árituð nýjasta bókina hans Ragnars Jónassonar, Dimma! Er langt komin með hana. Gæti svo sem verið búin ef ég væri eingöngu að lesa eina bók í einu sem ég er alls ekki að gera. Er að lesa seinni bókina af safninu og eina af bókunum sem ég fékk í jólagjöf, eftir Evu Björgu Ægisdóttur. Held að ég hafi lesið allar bækurnar sem hafa komið út eftir hana og þetta er sú nýjasta. Annars gekk vinnudagurinn í gær vel fyrir sig og var búinn frekar snemma miðað við að þriðjudagar eru yfirleitt stórir dagar. Ég var amk byrjuð að synda korter yfir þrjú í gær og vorum við á sama tíma kalda potts vinkona mín og ég. Syntum 500m og gáfum okkur einnig góðan tíma í potta- gufu- og sjópottsrútínu. Held að sundferðin hafi varið í rétt rúma tvo tíma. Hélt að ég hefði sett af stað forrit í samsung health á símanum en komst svo að því þegar ég var búin að klæða mig í útiskóna frammi á gangi að það hafði amk ekki farið í gang. Þar með gat ég heldur ekki skráð niður alla serimoníuna, lengd sunds og ferðir í þann kalda. Svona er þetta nú bara stundum. Kom við í Fiskbúð Fúsa og keypti mér harðfisk og fiskibollur. Klukkan var langt gengin í sex þegar ég kom heim. Kvöldið fór í að horfa á fótbolta, smá handbolta og leysa flækju. 

14.1.25

Minningar

Í gær hófst fyrsta heila vinnuvikan á árinu hjá mér. Síðastu viku vann ég fjóra daga af fimm þar sem ég tók út gjafafrídaginn minn á mánudeginum. Þar er annars búið að setja niður aðal fríið mitt þetta árið, frá 30. júní til og með 31. júlí. Það eru 24 virkir dagar af 30 og svo á ég enn eftir um sjö daga frá því í fyrra. Fæ vonandi að taka hluta af þeim dögum í maí svo ég komist aðeins í sauðburðinn til systur minnar. Vinnudagurinn í gær var ekkert svo langur, reyndar það stuttur að tæpan hálftíma af átta tímum skráði ég á svokallaða bónustíma. Var því mætt 40 mínútum fyrir fastan tíma í annan osteostrong tímann á árinu og í sund um hálf fimm. Synti 500m, fór eina ferð í þann kalda og beið svo eftir kalda potts vinkonu minni í sjópottinum en hún var í tíma í Laugum til rúmlega fimm. Saman fórum við tvær ferðir í þann kalda og góða gufuferð áður en ég fór upp úr og heim.

13.1.25

Umbætur

Svaf til klukkan að verða sjö í gærmorgun. Var ekkert að drolla neitt í rúminu en gerði þó samt teygjuæfingar áður en ég fór framúr. Þegar ég var búin að klæða mig og búa um tók ég fram 2kg lóðin og gerði nokkrar æfingar með þau. Eftir að að hafa fengið mér lýsi og engifer skot sinnti ég loksins morgunverkunum á baðherberginu. Eftir það settist ég loksins inn í stofusófa með fartölvuna í fanginu. Var við það detta í algert letikast þegar kalda potts vinkona mín hafði samband á messenger og spurði hvort ég væri á leiðinni í sund. Þetta var á tíunda tímanum og ég svaraði játandi, að ég væri að vinna í þessu og yrði líklega mætt um tíu leytið. Það stóð heima við vorum báðar að mæta um tíu. Hún var á undan að vippa sér í sundfötin og skella sér á braut átta og var líklega búin að synda 150m þegar ég mætti á braut 6. Synti aðeins 300m, þar af 100m skriðsund. Fórum fjórar ferðir í þann kalda, vorum tuttugu mínútur í gufunni og annað eins í sjópottinum. Heildartíminn í sundinu var samt aðeins styttri heldur en á laugardaginn. Var komin heim um hálfeitt og bjó mér til hafragraut. Restin af deginum fór í alls konar, misgáfulegt dútl. 

12.1.25

Kátína

Gærdagurinn byrjaði snemma, klukkan að ganga sex. Skrapp aðeins fram á salernið en greip svo í bók af náttborðinu þegar ég kom upp í aftur. Fór á fætur ein hvern tímann á sjöunda tímanum, gerði æfingar, fékk mér lýsi og engifervatn og settist svo inn í stofu með fartölvu í fanginu. Um hálfníu var ég komin í sund. Byrjaði á einni fjögurra mínútna ferð í kalda pottinum áður en ég fór á braut 6 og synti 600m eða í akkúrat hálftíma. Flestar sundferðirnar á bak- eða bakskrið en þó tvær skriðsundsferðir. Eftir næstu ferð í þann kalda fór ég í heitasta pottinn í nokkrar mínútur áður en ég fór aftur í þann kalda. Svo lá leiðin í gufuna og þar var ég í næstum tuttugu mínútur. Var svo á leiðinni í sjópottinn þegar ég sá yngstu mágkonu mömmu í nuddpottinum. Fór í þann pott í staðinn til að spjalla. Klukkan var að verða hálfellefu þegar ég fór upp úr. Þvoði mér um hárið og var komin vestur í bæ til esperanto vinkonu minnar um ellefu. Lásum aðeins eina bls. í Kon-Tiki en spjölluðum þeim mun meira. Var komin heim upp úr klukkan eitt. Restin af deginum fór að mestu í lestur, prjón og þáttaáhorf. Í RÚV sarpinum rakst ég á heimilda þætti um stríð á norðurslóðum í seinni heimstyrjöldinni, alls 6 þætti og það er rétt rúm vika þar til ekki verður lengur hægt að nálgast þá. Er búin að horfa á helminginn. Horfði reyndar einnig á seinni vináttuleikinn við Svía og fylgdist með kvennaliði Vals í handbolta spila erlendis fyrri leikinn við Costa. Sá leikur endaði með jafntefli en seinni leikur þeirra verður hér heima um næstu helgi. 

11.1.25

Öryggi

Var vöknuð, klædd og búin að gera æfingar fyrir klukkan sex í gærmorgun. Tíminn milli sex og sjö leið hratt en ég var mætt í vinnu um hálfátta. Verkefnum mínum var lokið upp úr klukkan tvö. Þrátt fyrir að vera með sunddótið meðferðis lagði ég leið mín í Faxafen 7 og leysti út jólagjöf frá því 2023 í Cintamani. Mátaði nokkrar flíkur, aðallega peysur og boli og fjárfesti að auki í beltum. Nýtti gjafakortið 100% og þurfti að bæta aðeins við en ég held að ég hafi gert ágætis kaup. Svo fór ég bara heim. Báðir strákarnir voru heima en sá atvinnulaus var eitthvað að vandræðast með að bróðir hans hafði ekki nennt að skreppa í búðina. Ég ákvað að lána Oddi bílinn gegn því að hann færi með allan pappír í sorpu. Hann hafði þegar verið búin að fara með plast og lífrænt út í tunnur en pappírinn var orðinn það umfangsmikill að það var langbest að fara með hann í sopru til að fylla ekki tunnurnar hér heima við. Hringdi í pabba og spjallaði lengi við hann. Hann var bara mjög hress og sagðist hafa verið spurður í apótekinu fyrr í vikunni hvort hann ætti rétt á afslætti vegna aldurs. Pabbi sagðist hafa svarað því til að hann vissi það ekki hann væri bara nítíu ára. 

10.1.25

Tímamót

Akkúrat í dag eru 25 ár síðan ég hóf störf í kortadeild RB. Nú er kortadeildin að leggjast niður, síðustu kortin voru framleidd viku fyrir sl. jól. Vaknaði annars alltof snemma í gærmorgun og brá á það ráð að lesa smávegis þar til tími var kominn til að fara á fætur, gera æfingar og sinna hefðbundinni morgunrútínu á virkum degi. Mætti í vinnu um hálfátta. Þrátt fyrir að það vantaði hendur á dekk var ég búin með mín verkefni um hálfþrjú. Hringdi í pabba og spjallaði við hann á meðan ég var á leiðinni yfir í Laugardalinn. C.a. sex mínútum fyrir þrjú var ég komin á braut 6 og synti 600metra. Kalda potts vinkona mín kom þegar ég var að klára ferð númer tvö af sex. Held að hún hafi náð að synda 500m áður en við hættum sundi og fórum í pottadýfingar og gufuna. Var komin heim um fimm. Horfði á spennandi æfingaleik milli Íslands og Svíþjóðar í handbolta karla en bæði lið eru að undirbúa sig undir stórmótið sem hefst í næstu viku. 

9.1.25

Gæðastundir

Dagarnir æða áfram og líklega verður fyrsti mánuður nýs árs liðinn áður en maður veit af. Þrjár vikur eru ekki svo lengi að líða. Morgunrútínan í gærmorgun var svipuð og flesta virka daga. Held mér við efnið hvað æfingar með lóð varðar. Æfingarnar vara reyndar sjaldnar lengur en 7-10 mínútur en allt hjálpar. Var mætt í vinnu um hálfátta og byrjuð að vinna innlegg skömmu síðar. Stimplaði mig út akkúrat átta tímum eftir að ég stimplaði mig inn. Hringdi og spjallaði við hálfdönsku frænku mína og nöfnu á meðan ég var á leiðinni í Nauthólsvík. Hún hafði reyndar verið fyrri til að hringja, rétt fyrir hádegi, en þá var svolítið mikið að gera. Við vorum sammála um að vera í betra bandi og finna góðan tíma til að hittast fljótlega. Ca. korter yfir fjögur óð ég varlega út í -1,7°C sjóinn og kældi mig í uþb þrjár mínútur. Settist svo inn í gufu í korter áður en ég fór aðrar þrjár mínútur í sjóinn. Var svo næstum því búin að vera hálftíma í pottinum áður en ég fór upp úr. Það var nokkuð margt um manninn og klefinn fullur af konum sem ýmist voru að fara upp úr eða mæta á svæðið. Ég fann samt ágætis pláss framan við salernin til að klæða mig í róleg heitum og settist svo með skó og sokka á stól á ganginum framan við klefana. Var komin heim stuttu fyrir klukkan sex. 

8.1.25

Nægjusemi

Mætti í vinnu í gær eftir að hafa tekið út gjafafrídaginn minn á mánudaginn. Mikið var um innlegg og spannaði minn vinnudagur uþb átta og hálfan tíma. Fór svo beint í sund þar sem ég hitti kalda potts vinkonu mína í hennar annarri ferð í kalda pottinum. Saman náðum við þremur ferðum, góðri gufuferð og korteri í sjópottinum. Lét það gott heita, skrópaði í sjálft sundið og var komin heim milli sex og hálfsjö eftir að hafa komið við í Fiskbúð Fúsa þar sem ég keypti mér harðfisk og hrogn. Mallaði mér hrognin ásamt nokkrum kartöflum og á afgang af því lostæti. 

7.1.25

Iðjuleysi

Var komin á fætur upp úr klukkan sjö. Davíð Steinn kom á fætur um hálftíma síðar. Hann var í vaktafríi en átti tíma og pláss fyrir bílinn á réttingaverkstæði í Skútuvoginum um átta. Fljótlega eftir að hann fór dreif ég mig á eftir honum til að pikka hann upp. Fórum beint heim aftur. Ég settist um stund aftur með fartölvuna í fangið og það leið klukkutími eða rúmlega það áður en ég slökkti og lagði hana frá mér. Hafði tekið með mér þrjár af bókunum sem eru á náttborðinu inn í stofu. Var að lesa í tveimur af þeim af og til í gær. Um hádegisbilið kom Davíð Steinn fram og sagðist hafa fengið símtal frá verkstæðinu. Rangur varahlutur hafi verið pantaður svo hann mátti sækja bílinn sinn aftur í bili. Við mæðgin urðum þó sammála um að fyrst myndi ég lána honum minn bíl til að fara í tíma hjá tannlækni um eitt og sækja mig eftir tímann. Klukkan var því langt gengin í tvö þegar við mæðgin renndum aftur inn í Skútuvog, ég í farþegasætinu á leiðinni þangað. Þegar ég tók svo við stýrinu á bílnum mínum ákvað ég að fara beint inn í Hátún og fara í fyrsta osteostrongtíma ársins. Komst strax að og að tímanum loknum fjárfesti ég í árskorti, 52 tímum. Meðtalinn sá tími sem ég var í í gær. Var komin í sun upp úr klukkan hálfþrjú. Synti 500m og fór 3x4mínútur í þann kalda. Kom heim milli fimm og sex og rétt hitti á synina áður en þeir fóru upp í Mosó til að fara með systkynum sínum á þrettánda brennu. Kvöldið hjá mér leið frekar hratt við að gera sem allra minnst nema glápa, vafra og lesa. 

6.1.25

Þingvellir í köldum vetrarklæðum

Var vöknuð nokkuð snemma miðað við að það var sunnudagur. Skreið aftur upp í eftir að hafa sinnt morgunverkunum á baðherberingu og kláraði að lesa aðra bókina af safninu. Fór á fætur stuttu fyrir átta. Gerði æfingar með lóð, fékk mér lýsi og sítrónu vatn, og sat svo með fartölvuna í fanginu inni í stofusófa í rúman klukkutíma. Kveikti á sjónvarpinu um tíu leytið. Um hálftólf útbjó ég mér matarmikinn hafragraut. Um eitt leytið hringdi esperanto vinkona mín og sagði að þau hjónin og ein vinkona til myndu pikka mig um fljótlega. Hringdi aðeins í pabba en var komin í ullarsokka og bomsur og vel klædd, komin út og  tilbúin þegar leigubíllinn hans Hinriks kom. Fórum á Þingvelli og löbbuðum smá í fimmtán stiga frosti, stillu og fallegu veðri. Fullt af útlendingum en við vorum ánægð með túrinn. Okkur vinkonunum var svo boðið á Sólvallagötuna eftir ferðalagið þar sem var gert vel við okkur í mat og drykk. Ég sagði pass við hvítvíninu þó. Stoppuðum í um tvo tíma en svo skutlaði leigubílstjórinn okkur heim áður en hann fór að vinna. Dásamlegt að eiga svona vini.

5.1.25

Árangur

Var komin á fætur fyrir klukkan sjö í gærmorgun. Klukkan var svo að verða níu þegar ég fór á braut 6 í Laugardalslauginni. Synti 600m á hálftíma, flestar ferðir á bakinu en þó 2x50m skriðsund. Fór tvær fjögurra mínútna ferðir í þann kalda, stutta ferð í þann heitasta, Sjö mínútur í sjópottinn og 17mín í gufuna. Þvoði mér svo um hárið áður en ég fór upp og vestur í bæ til esperanto vinkonu minnar. Lásum tæpar tvær bls. í Kon-Tiki. Eftir eins og hálftíma stopp lá leiðin í Krónuna við Fiskislóð. Klukkan var að verða hálftvö þegar ég kom heim. Restin af deginum fór í lestur, þvottamál og þátta- og fótboltaáhorf. 

4.1.25

Tækifæri

Enn og aftur komin helgi og í mínu tilviki þriggja daga helgi þar sem ég mun taka út gjafafrídaginn minn á mánudaginn kemur. Gærmorguninn var keimlíkur mörgum virkum vinnudagsmorgnum. Notaði 1,5kg lóðin við æfingarnar strax eftir að ég var búin að klæða mig. Áður en ég lagði af stað til vinnu þurfti ég að sópa blautan snjó af bílnum. Var samt mætt til vinnu upp úr klukkan hálfátta og byrjuð að vinna innlegg skömmu síðar. Vinnudegi lauk rétt fyrir hálffjögur. Fór beint í sund. Þurfti reyndar aftur að sópa blautum snjó af bílnum. Kalda potts vinkona mín var búin að synda og við hittumst í kalda pottinum í annarri ferðinni hennar. Fórum 3 ferðir saman, tvær ferðir í heitasta pottinn, vorum tuttugu mínútur í gufunni og enduðum í sjópottinum þar sem við hittum eina systur hennar. Ég endaði reyndar á því að synda 400m áður en ég fór upp úr og heim. Horfði á fyrsta þátt af fimm um Lockerbie, hryðjuverkið 1988 þegar flugvél frá Pan Am var sprengd. Colin Firth leikur aðalhlutverkið.  Næsti þáttur kemur ekki inn fyrr en eftir viku.

3.1.25

Tímamót

Byrjaði gærdaginn á nokkurra mínútna æfingum með 2kg lóð eftir að hafa klætt mig og búið um rétt fyrir sex. Síðan fékk ég mér lýsi og sítrónuvatn áður en ég sinnti morgunverkunum á baðherberginu. Svo hafði ég tæpan klukkutíma í netvafr og bloggfærslu. Var mætt í vinnu rétt rúmlega hálfátta og var byrjuð í innleggjunum rúmum tíu mínútum síðar. Um miðjan morgun tók fyrrum fyrirliði saman síðustu kortaframleiðslutölur og ég og sú sem enn er lausráðin fórum yfir þær tölur saman. Síðasti framleiðsludagur var líklega 18. desember sl. Annars var ég í innleggjum til klukkan að verða hálffjögur. Mínum verkefnum lauk um fjögur og fór ég beint yfir í Laugardalinn í sund. Hitti kaldapotts vinkonu mína örstutt í sturtu þegar hún var að klára og ég að mæta. Synti 300m, fór þrisvar í kalda, eina ferð í gufu og eina í heitasta pottinn. Var svo komin heim um sex leytið.

2.1.25

Ýkjulaust

Svaf til klukkan að verða sjö. Hvíldi mig á lóðaæfingum en vafraði á netinu fyrsta klukkutímann eftir að ég kom á fætur. Horfði á skaupið úr sarpinum og tengdi við margt, fannst þetta alveg ágætis skaup þótt sum atriðin hefðu mátt vera styttri. Um tíu útbjó ég mér matarmikinn hafragraut því ég blandaði í hann hnetum, rúsínum, fræjum og bláberjum og borðaði þykka sneið af köldum blóðmörskepp með. Tók til sjósundsdótið stuttu fyrir ellefu og var komin í Nauthólsvík rétt eftir að opnaði. Mælirinn í bílnum sagði -9 en það var engin ferð á logninu. Hitastigið á sjónum var skráð á tússtöflu á tveimur stöðum við afgreiðsluna. Það voru nokkrir búnir að fara út í og ryðja braut út að smá svæði sem ekki var ís eða krapi í. Ryðja þurfti báðar leiðir og smáa svæðið stækkaði einnig eftir því sem fleiri komu út í. Eftir fjórar mínútur fór ég smá stund í gufuna áður en ég fór aðra ferð út í sjóinn. Var svo í heita pottinum í tæpt korter áður en ég sá að það var lag að koma sér upp úr, skömmu fyrir tólf. En um það leyti eru flestir að skella sér út í uppáklæddir eða í eins konar grímubúningum. Ég laumaði mér í burtu áður en fjörið varð of mikið og var komin heim fyrir klukkan hálfeitt. Þá sýndi mælirinn í bílnum -11 stiga frost. Báðir synirnir voru vaknaðir. Restin af deginum fór í alls konar dundur. M.a. hringdi ég í pabba til að heyra sem fyrst í honum á glænýja árinu.

1.1.25

Nýtt ár!

Aftur var ég vöknuð alltof snemma og síðasti morgunn gamla ársins var keimlíkur þeim næst síðasta. En ég þurfti þó ekki að sópa snjó af bílnum áður en ég fór í vinnuna. Var mætt rétt rúmlega hálfátta og eftir að hafa fyllt á vatnsflöskuna og útbúið tebolla fór ég bæði með bollann og flöskuna að vinnustöðinni minni og hófst handa. Hættum innleggjum rétt fyrir ellefu og þremur korterum síðar skálaði framkvæmdastjóri seðlaversins við okkur í óáfengu freyðivíni. Vegna gamlárshlaupsins þurfti ég að fara krókaleiðir og mun lengri leið heim vegna lokanna. Leiðin varð reyndar líka heldur lengri vegna einbeitingaskorts því ég var allt í einu komin á Miklubraut á austurleið. Beygði inn afleggjarann sem liggur m.a. að Breiðholti og svo inn á Bústaðaveg. Ákvað að koma við hjá AO við Öskjuhlíð og fylla á tankinn. Klukkan var um eitt þegar ég kom loksins heim. Davíð Steinn var að vinna til fjögur. Þeir bræður fóru til föðurfjölskyldunnar um sex leytið. Ég hafði það bara kósí í allan gærdag, ætlaði mér reyndar að lesa meira en ég gerði. Horfði á þætti, kryddsíld sem var í opinni, annála og fleira. Hringdi í pabba. Kveikti á nokkrum sprittkertum. Eldaði mér fljótlegan rétt sem hefur ekkert nafn þar sem ég bjó hann til upp úr sjálfri mér. Í honum voru linsubaunir, kjúklingabaunir og túnfiskur. Um tíu leytið átti ég orðið erfitt með að halda mér vakandi og þótt það væri stutt í að skaupið byrjaði ákvað ég að fara bara í háttinn og það án þess að lesa. Var reyndar búin að lesa eitthvað um daginn. Er byrjuð m.a. á annarri bókasafnsbókinni; Frýs í æðum blóð eftir Yrsu Sigurðardóttur, bókin sem kom fyrir síðust jól.

Allt árið 2024 leið án þess að ég fengi mér kaffi en sagði ansi oft við sjálfa mig að þrauka lengur. Þetta er bara pása. Veit bara ekki enn hversu löng hún verður. Hugsanlega hefði ég getað barist á móti þreytunni sem helltist yfir mig um tíu leytið í gærkvöldi ef ég hefði hellt mér upp á og drukkið 1-2 bolla en mér datt það ekki einu sinni í hug. Líklegra er að líkaminn sé kominn í ákveðið jafnvægi hvað varðar vöku og svefn. Svo er ekkert sem segir að maður verði endilega að vaka fram yfir miðnætti á áramótunum. Reyndar rumskaði ég um miðnættið og þurfti og fór á prívatið. Þá voru skoteldarnir í hámarki, ennþá logaði á sprittkertunum en ég fór samt beinustu leið í rúmið aftur.  

31.12.24

Innlegg

Vaknaði alltof snemma í gærmorgun og ákvað að grípa aðeins í bók áður en ég fór á fætur. Las í tæpan hálftíma en um sex lagði ég frá mér bókina, klæddi mig, bjó um og gerði svo nokkrar æfingar með 2kg lóðum áður en ég sinnti morgunverkunum á baðherberginu. Davíð Steinn kom fram um sjö og var aðeins á undan mér út en hann var enn að sópa af bílnum sínum þegar ég kom út. Ég var mætt í vinnu rúmlega hálfátta. Lagði aldrei þessu vant norðan megin við vinnustaðinn. Nóg var að gera en við vorum heldur fleiri heldur en á föstudaginn. Innlagnar vinnu lauk um þrjú leytið. Ég stakk af um fjögur en þá var verið að fara yfir síðustu skjölin. Mætti í síðasta osteostrong tíma ársins korter yfir fjögur. Bætti mig á einu tæki. Ákvað svo að drífa mig aðeins í sund á eftir. Synti þó aðeins 200m áður en ég fór í kalda pottinn í 4 mínútur. Næst lá leiðin í gufuna og þar fann ég kalda potts vinkonu mína. Við fórum reyndar aðeins stutt saman í þann kalda að þessu sinni en áttu nokkrar mínútur saman bæði í gufu og sjópottinum. Var komin heim um sex. 

30.12.24

Ekki mikið eftir af árinu

Svaf til klukkan að verða sjö í gærmorgun. Gerði æfingar með lóðum um leið og ég var búin að klæða mig. Vafraði um á netinu í dágóða stund og setti inn færslu áður en ég tók til sunddótið mitt, esperanto dótið, bókasafnsbækurnar og bókina sem ég ætlaði að skipta. Var byrjuð að synda uþb korter yfir níu, 500m á braut 8, síðustu 50 á skriði. Fór þrisvar sinnum þrjár mínútur í kalda, tuttugu mínútur í gufu og rúmar tíu í sjópottinn. Klukkan var nýorðin ellefu þegar ég mætti til esperanto vinkonu minnar. Hún bauð upp á graut og te á eftir sem við tókum með okkur á aðal esperanto staðinn. Lásum tvær og hálfa blaðsíðu. Kvaddi Inger stuttu fyrir klukkan eitt og lagði næst leið mína í Kringluna. Skilaði öllum fjórum bókunum á safnið og tók tvær bækur að láni. Rölti einn hring í Kringlunni áður en ég fór í Eymundsson og skipti út Hallgrími Helgasyni fyrir Yrsu Sigurðardóttur. Kom heim um tvö leytið og dundaði mér við ýmislegt fram eftir degi. Klukkan var að verða tíu þegar ég skreið upp í rúm. Las í rúman hálftíma. Er með bókamerki í nokkrum bókum m.a. Ferðalok eftir Arnald Indriðason. Sú bók er vel upp sett og grípandi lesning. 

29.12.24

Tíminn að flýta sér

Vaknaði alltof snemma í gærmorgun og var komin á fætur og búin að gera æfingar fyrir klukkan hálfsjö. Klukkan var samt að verða níu þegar ég dreif mig loksins í sundið. Synti 700m á brautum 7 og 8. Flestar ferðir á bakinu en líka skrið- og bringusund. Fór tvær ferðir í þann kalda og eina dýfu í lokin eftir að hafa farið í sjópott og gufu. Þvoði mér um hárið og var komin heim um ellefu. Þegar Davíð Steinn kom á fætur spurði ég hann um hans plön og þar sem hann var ekkert að plana neitt útstáelsi spurði ég hvort hann vildi elda úr úrbeinuðum kjúklingalærum sem ég keypti af dætrum besta vinar míns til styrktar körfuboltanum. Davíð Steinn tók vel í þessa hugmynd. Oddur kom fram skömmu síðar og við spurðum hann hvort hann vantaði eitthvað úr búðinni og eða hvort hann vildi koma með í verslunarleiðangur. Oddi vantaði ekki neitt. Við Davíð skruppum saman í Krónuna við Fiskislóð um miðjan dag. Fórum á hans bíl og rifjuðum upp þá tíma þegar hann var í æfingaakstri fyrir tæpum tveimur árum. Yfirleitt þegar ég fer að versla fer á afgreiðslukassa en Davíð Steinn notar sjálfsafgreiðsluna svo við fórum á svoleiðis bás. Hann kláraði sínar vörur af á undan og hjálpaði mér svo með að skanna mínar og notaði afsláttarkortið sitt áður en ég borgaði fyrir vörurnar. Hjálpuðumst svo að við að koma þeim í tvo poka sem ég var með meðferðis. Komum úr verslunarleiðangrinum um fjögur. Helga systir hringdi þegar ég var að stíga út úr bílnum fyrir framan hús. Greip einn af pokunum með inn en Davíð Steinn sá um að ganga frá vörunum þar sem við systur vorum að spjalla saman á meðan hún var að keyra heim úr vinnunni sinni, Krónunni á Akureyri. Davíð Steinn græjaði matinn um kvöldið. Lenti í smá veseni með rafmagnið því ein hellan er eitthvað að klikka. Hann var samt bara að nota tvær hellur af fjórum en varð að hætta við að nota þessa "klikkuðu" því rafmagninu sló ítrekað út. Maturinn kom á borð á níunda tímanum og var góður. 

28.12.24

Síðasta helgin á þessu ári

Vaknaði einhvern tímann á sjötta tímanum í gærmorgun. Var komin á fætur og búin að gera æfingar með lóðum áður en klukkan varð sex. Hafði svo ágætis tíma í netvafr og bloggskrif. Tók sjósundsdótið með í vinnuna og geymdi í skápnum sem ég hef afnot af. Var byrjuð að vinna innlegg fyrir klukkan átta. Vorum 10 sem kepptumst við að vinna niður "fjallið" sem var stærra en stór þriðjudagur. Rétt fyrir fjögur var ákveðið að hætta innlögnum, geyma rest framyfir helgi. Næsta klukkutímann vorum við að fara yfir dagskjölin á meðan þau sem voru á stóru vélunum voru að klára að renna innleggjunum í gegnum þær. Samtals unnum við rétt tæp átjánhundruð innlegg. Vinnudagurinn minn varði í tæpa tíu tíma og ég ákvað að fara bara beinustu leið heim þannig að ég hef farið mína síðustu ferð í sjóinn á þessu ári en stefnan er að fara á nýjársdagsmorgun klukkan ellefu, miðvikudaginn kemur. Hringdi í pabba og spjallaði við hann á meðan ég var á leiðinni heim. Bríet og Bjarki komu heim að norðan á fimmtudagskvöldið. Ég var nýkomin heim þegar Jóna Mæja hringdi í mig. Áttum mjög gott spjall. 

27.12.24

Fössari

Svaf alveg ágætlega, hafði farið að sofa um miðnætti og var samt vöknuð um sjö leytið. Dreif mig fljótlega á fætur. Pabbi kom klæddur fram upp úr klukkan átta en hann var pottþétt búinn að koma fram fyrr um morguninn til að fá sér eitthvað og taka niður helstu tölur. Bræðurnir komu fram fyrir klukkan níu. Annar þeirra hafði ekkert sofið. Um svipað leyti klæddi pabbi sig í snjógallann, góða skó og setti upp hanska og fór út að blása snjó í burtu af stéttinni og fyrir framan skúrinn. Snjórinn var blautur enda hitastigið næstum þrjár gráður. Um hádegið fengum við pabbi okkur skyr en strákarnir fengu sér af jólagrautnum sem var í lítersdós undan grískri jógúrt. Kláruðu ekki svo ég tók restina með mér þegar við lögðum af stað í bæinn um eitt leytið.  Ekki þurfti að sópa eða skafa af bílunum því nánast allt var runnið af. Ég lagði af stað aðeins á undan en strákarnir tóku tvisvar fram úr mér, fyrst skammt frá Landvegamótum og svo aftur stuttu eftir að við komum upp Kambana. Þeir höfðu stoppað aðeins á bensínstöðinni vestan Ölfusár til að senda skilaboð. Þeir voru komnir heim fimm mínútum á undan mér og voru að byrja að ferja dót úr bílnum. Oddur hjálpaði mér með hluta af mínu dóti. Fljótlega fóru svo bræðurnir í heimsókn til pabba síns og fjölskyldu hans en ég hafði það náðugt með prjónana, fótbolta- og þáttaáhorf. 

26.12.24

Annar í jólum

Rumskaði á svipuðum tíma og á aðfangadag. Fór á fætur um hálfátta. Pabbi var kominn fram en hafði verið á leiðinni aftur inn í rúm að leggja sig. Hann sat þó í góða stund áfram inn í eldhúsi og við fórum í smá kaplakeppni. Hann lagði sig svo aðeins milli níu og tíu. Um hálfeitt leytið setti ég upp kartöflur og útbjó jafning. Pabbi skar niður hangikjöt og afganginn af léttreykta lambinu og við ræstum tvíburana um eitt. Þegar fór að líða á daginn kom í ljós að það væri betra fyrir strákana að vera rólegir áfram á svæðinu. Pabbi átti bleikjuflök í frysti og lauk, rófu og sæta kartöflu. afhýddi og skar niður grænmetið um fimm leytið. Gufusauð rófuna, mýkti laukinn smá stund í potti en skellti honum svo á pönnuna með bleikjunni. Ég var mjög sátt með þennan kvöldmat og strákarnir kvörtuðu amk ekki og þetta nánast kláraðist. Annars er það helst að frétta að ég kláraði að lesa síðustu bókasafnsbókina. Þvílíkt ævintýri sem sögurnar um og kringum sjö systurnar eru og ég hlakka til að ná mér í bókina um Pa Salt og lesa. 

25.12.24

Hátíð í þorpi

Ég rumskaði um það leyti sem pabbi fór af stað í sundið skömmu fyrir klukkan hálfsjö í gærmorgun. Sofnaði ekki aftur en kúrði upp í rúmi til klukkan að ganga átta. Pabbi kom heim um níu leytið, gekk frá sunddótinu og fór úr íþróttagallanum í önnur föt. Hann sleppti því alveg að leggja sig. Um hálftíu leytið tókum við fram lambahrygginn, krydduðum og settum á eldfastfat í stóran ofnpott inn í ofn á 100 gráðu hita. Þetta var látið malla fram eftir degi og vökvað stöku sinnum. Bræðurnir komu fram í kringum hádegið. Um hálffimm tók Davíð Steinn að sér að skera niður nokkrar kartöflur, og eina sæta, krydda og steikja. Ég bjó til sósu úr soðinu og pabbi lagði á borð. Ekki var sest að borðum fyrr en um hálfsjö þar sem sumir áttu eftir að fara í sturtu rétt fyrir sex. Okkur fannst hryggurinn heldur dökkur og undarlega bleikur inn í. Hann var samt alveg tilbúinn og mjög góður en þegar við grömsuðum eftir umbúðunum í plastruslinu og lásum á kom í ljós að þetta var léttreyktur lambahryggur og hefði líklega átt að meðhöndla allt öðru vísi en við gerðum. En hann var ætur og flestir sáttir. Pabbi og strákarnir hjálpuðust að við að ganga frá. Settumst inn í stofu en geymdum okkur að opna gjafirnar þar til við vorum búin að fá okkur graut um hálfníu leytið. Ég fékk fjórar bækur, þar af tvær frá Davíð Steini. Önnur af þeim er Sextíu kíló af sunnudögum eftir Hallgrím Helgason. Veit að þetta er góð bók en hef bara lesið fyrstu bókina sem ég tók af safninu fyrir nokkrum misserum. Er að íhuga að skipta þessari bók út fyrir nýjustu Yrsu bókina. Hinum bókunum ætla ég að halda, segi frá þeim seinna. Er enn að lesa um týndu systurina, rúmlega hálfnuð og hef þá von um að klára hana fyrir áramótin og þá geta skilað henni á safnið án þess að framlengja frestinn. Nú er bara spurnin hvort strákarnir leggja í bæinn seinni partinn eða verða eina auka nótt. Það fer eftir veðri vindum og hvort það verði opnað yfir heiðina.

24.12.24

Aðfangadagur

Vaknaði um hálfsex leytið. Mætti í vinnu tveimur tímum síðar og var byrjuð að vinna innlegg korter fyrir átta. Vinnudagurinn varð akkúrat átta tíma langur. Þá fór ég heim, pakkaði niður, fór tvær ferðir með dótið út í bíl og kvaddi svo nágrannana á neðri hæðinni áður en ég lagði af stað austur. Bræðurnir höfðu farið af stað um tvö leytið og tóku með sér grautinn svo hann myndi nú örugglega ekki gleymast. Fór Hellisheiðina í stað Þrengsla, aldrei þessu vant. Var komin í Löngumýrina milli fimm og hálfsex og stoppaði í rúman hálftíma. Næst lá leiðin í Fossheiðina til tvíburahálfforeldranna. Nokkrum mínútum á eftir mér mætti tvíburahálfsystir mín á svæðið. Þá var búið að leggja á borð fyrir fjóra og ég boðin með í skötuveislu. Ég þáði boðið og lét pabba vita því hann hafði sagt mér, þegar ég lét hann vita að ég væri lögð af stað úr bænum, að ef ég kæmi á Hellu fyrir átta myndi hann bjóða mér á Kanslarann í skötu þrátt fyrir að hann hafi farið þangað í hádeginu. Ég var reyndar komin á Hellu fyrir átta en alveg pakksödd og sæl eftir veisluna í Fossheiðinni. Strákarnir voru komnir um klukkustund á undan mér.

23.12.24

Þorláksmessa

Var vöknuð og komin á fætur milli sex og hálfsjö í gærmorgun. Klukkan var svo rétt að byrja að ganga tíu þegar ég fór á brautir 7-8 í Laugardalslauginni og synti 400m, þar af 100m skriðsund. Kaldi potturinn var því miður lokaður en ég fór í gufu og sjópottinn áður en ég fór upp úr og vestur í bæ til esperanto vinkonu minnar. Var komin þangað um hálfellefu og stoppaði í uþb einn og hálfan tíma. Lásum eina bls. í Kon-Tíki eftir að hafa skiptst á jólakortum, fengið okkur graut, hrökkbrauð með síldarsallati, muffins úr möndlumjöli með lítið af sætuefni og te. Var komin heim upp úr klukkan tólf. Restin af deginu fór í alls konar dundur. M.a. þeytti ég rjóma og blandaði við grautinn sem ég bjó til á laugardaginn. Oddur Smári fékk að smakka hann til og ég setti í skál fyrir Davíð Stein. Megnið af grautnum skipti ég í tvær líters fötur undan grískri jógúrt. Auðvitað horfði ég líka á fótbolta. Nú er það bara vinnudagur framundan og svo þarf ég að koma aðeins við hér heima, klára að pakka og bruna svo austur með viðkomu á tveimur stöðum á Selfossi.

22.12.24

4160

Titillinn er talan á þessari færslu, fjögurþúsundeitthundraðastaogsextugasta færslan frá upphafi. Það eru bráðum liðin 22 ár frá því ég byrjaði á þessum vettvangi. Sum árin eru þó ansi rýr meðan önnur eru með færslur upp á hvern einasta dag. En aðeins að gærdeginum. Var vöknuð um sex leytið og þar sem það gekk ekkert að kúra sig niður aftur fór ég á fætur. Klukkan var samt orðin meira en hálfníu þegar ég fór loksins í sund. Synti 700m, aðallega á braut átta. Fór eina fimm mínútna ferð í þann kalda á eftir, 20 mínútur í gufuna og næstum annað eins í sjópottinn. Dýfði mér svo í þann kalda í ca 45sek. áður en ég fór upp úr til að þvo mér um hárið. Skrapp aðeins í Hagkaup og keypti mér frækex og vikuna með völvuspánni. Kom svo við í Álftamýrinni hjá móðurbróður mínum og fjölskyldu hans og færði þeim jólakortið. Þá var klukkan að verða ellefu. Það var tekið mjög vel tekið á móti mér og stoppaði ég við í tæpa klukkustund, var amk komin heim um tólf leytið. Var með það á bak við eyrað að gera mér ferð á Selfoss en í staðinn var ég að sýsla heima við í rólegheitum, bjó til graut úr grautargrjónum og mjólk og á eftir að þeyta rjóma til að bæta við. Held að synir mínir verði glaðir með þetta ef vel tekst til. Lánaði Oddi bílinn um miðjan dag í smá skreppu. Annars var ég að lesa, prjóna, horfa á fótbolta og þætti. Er búin með aðra að þremur bókum sem ég tók síðast af safninu; Grátvíðir eftir Fífu Larsen.  

21.12.24

Vetrarsólstöður

Allur vinnudagurinn í gær fór í innlagnir og skjalayfirferð. Sennilega var þetta fyrsti virki föstudagurinn á árinu sem ekki var kortaframleiðsla. Grínuðumst með það í fyrradag að við ættum að telja stöðu plasta á vagni í vikulokin eins og hefð var fyrir en þar sem það var aðeins hreyfing á einni tegund sem við kláruðum alveg sl. miðvikudag var það alveg óþarfi. Munum sennilega telja næst þegar plastinu sem eftir er verður "mokað" út. Vinnudegi lauk um hálfþrjú. Ég var með sunddótið meðferðist en ákvað að byrja á því að reka nokkur erindi fyrst. Hringdi í pabba rétt áður en ég ók frá vinnustað. Hann var staddur á Selfossi að reka einhver erindi. Spjölluðum á meðan ég lagði leið mína í Skipholtið en kvaddi pabba rétt áður en ég keyrði framhjá Fiskbúð Fúsa. Þar virtist vera smá örtröð svo ég ákvað að byrja á því að fara í rúmfatalagerinn í Skeifunni fyrst. Þar fann ég allra síðustu jólagjafirnar. Gerði svo aðra atlögu að Fiskbúð Fúsa og ákvað að leggja bílnum milli Háteigsskóla og kirkju óháða safnaðarin og labba þaðan. Keypti slatta af harðfiski og uþb 400gr af nætursöltuðum gellum. Þegar ég kom í bílinn aftur ákvað ég að kalla þetta gott og skrópa í sundið og fór heim. Þetta var líklega mjög góð ákvörðun því fljótlega eftir að ég kom heim hófst ég handa við að skrifa á síðustu jólakortin og pakka inn jólagjöfunum. Var búin að þessu um sex leytið og slakaði á eftir það. Gellurnar mun ég hafa í matinn annað hvort í kvöld eða á morgun því ég átti chia-graut í ísskápnum sem var nóg í kvöldmatinn fyrir mig. 

20.12.24

Heimsókn no. 67

Það ætlar að rætast spá mín um að síðasta kort í kortadeild RB hafi verið framleitt fyrir jól. Reyndar gætu enn komið upp einhvers konar neyðar aðstæður þannig að grípa þurfi til framleiðslu en mér finnst það ólíklegt. Engu að síður verður kortavélin tilbúin í verkefni, ef upp koma, næstu sex vikurnar. Engar beiðnir voru um "nýja" framleiðslu í póstinum í gær og vinnudagurinn minn fór í að vinna innlegg og fara yfir skjöl. Vorum búin um þrjú. Átti pantaðan tíma í heimsókn í blóðbankann rétt fyrir fjögur. Lagði bílnum við Austurbæjarskóla og rölti þaðan og var mætt um hálffjögur. Átti jafnvel von á því að ég fengi ekki að gefa þar sem ég var kvefuð í síðustu viku. Sú sem kallaði mig inn var ung kona, íslensk í aðra ættina og frönsk í hina. Hún hefur verið búsett erlendis meiri hlutann af æfinni en er komin til hingað m.a. til að læra að tala íslensku. Hún fór vel yfir allar upplýsingar og tók m.a. eftir því að ég var á undan áætlun, þ.e. í þeirra skrám verða fjórir mánuðir frá síðust gjöf liðnir 26. n.k. Það munar samt aðeins um viku. Niðurstaðan varð samt sú að ég mætti gefa. Otaði að henni vinstri hendinni en hún fékk líka að þreyfa á þeirri hægri. Hélt sig samt við þá vinstri. Lenti í smá erfiðleikum með að hitta æðina en fékk hjálp og allt gekk að óskum svo ég lagði inn jólablóðgjöf í besta bankann í gær. Kom heim um hálffimm. Davíð Steinn var að pakka inn jólagjöfum og var að því fram eftir kvöldi. Annars kom rafvirki í gærmorgun og var til klukkan að ganga þrjú að draga nýtt í úr nýju töflunni í sameigninni upp í töfluna í íbúðinni minni. Hann var líka að endurnýja rofa. 

19.12.24

Sjóbusl í gær

Losaði svefn um fimm leytið í gærmorgun, en bara örstutt því svo hrökk ég upp við vekjarann um klukkustund síðar. Hafði samt ágætan tíma í alla morgunrútínu. Mætti í vinnu upp úr klukkan hálfátta. Upp úr klukkan átta vorum við fyrrum fyrirliði byrjaðar á framleiðsluverkefni dagsins, sennilega því allra síðasta þótt kortadeildinni verði ekki lokað fyrr en í byrjun febrúar. Fjórir jafnir skammtar af gjafakortum og náðum við að framleiða fyrstu 701 kortin fyrir kaffi. Tókum okkur tíma til að útbúa alls 12 kassa undir kortin, þrjá kassa fyrir hvern skammt. Eftir kaffi og fram að hádegi framleiddum við 2x701 kort. Ákváðum sem betur fer að bíða með að framleiða síðasta skammtinn þar til eftir hádegi því þegar við komum upp rúmlega hálftólf voru fjórir vinnufélagar úr D30 að syngja fyrra lagið af tveimur jólalögum. Vinnudegi lauk annars um þrjú leytið og þá fór ég beint í Nauthólsvík. Þar hitti ég eina úr hópnum sem ég var í og var mjög virkur í nokkur misseri fyrir nokkrum misserum. Kom heim um fimm leytið. 

18.12.24

Mið vika og stutt í helgi, jól og áramót

 Vaknaði stuttu fyrir sex í gærmorgun. Hafði að vísu rumskað um fjögur leytið og skroppið á salernið. Það tók mig smá tíma að kúra mig niður aftur en hafðist. Morgunrútínan var svipuð, aðeins færri teygjuæfingar í rúminu áður en ég fór á fætur. Nokkrar mínútur í æfingar með 2x2kg lóð og smá netvafr. Var mætt í vinnu rétt rúmlega hálfátta. Nú biðu fjórar jafnstórar gjafakortaskrár eftir að verða hlaðnar inn á framleiðsluvélina þannig að ég byrjaði á því að afgreiða það verkefni. Mjög líklegt er að þetta verði síðustu kortin sem við framleiðum á eftir. Innlagnardagurinn var annars þokkalega stór og var ég til rúmlega hálfþrjú í þeim verkefnum og svo í yfirferðum skjala í þrjú korter þar á eftir. Var komin í sund rétt fyrir fjögur og byrjuð að synda á slaginu fjögur. Þá var kalda potts vinkona mín búin að synda 350m. Hún synti annað eins á meðan ég synti 300m, þar af 100m skriðsund. Fórum þrjár ferðir í þann kalda, vorum amk 20 mínútur í gufunni og voru í sjópottinum þegar ein systir hennar mætti á svæðið. Ég tók eina loka 30sek dýfu í þann kalda áður en ég fór upp úr. Kom við á AO við Öskjuhlíð og fyllti á tankinn. Það hefur greinilega tekist að uppfæra kortaupplýsingar á lyklinum. Nú á ég bara eftir að virkja nýja kreditkortið sjálft með því að nota örgjörvann og slá inn pinnið. Er ekki að nota þetta kort svo mikið eiginlega ekki neitt nema fyrir AO-lykilinn og örfáar fastar greiðslur en það er þó alveg möguleiki á að ég virkji það fyrr en síðar, pinnið á því er það skemmtilegt og gott að það væri vel þess virði að fá að slá því inn amk einu sinni.

17.12.24

Tvær vikur eftir af árinu

Gærdagurinn var alveg ágætur. Hafði góðan tíma í alla morgunrútínu og fór þó út í fyrra fallinu til að sópa af bílnum. Var mætt í vinnu upp úr klukkan hálfátta. Engar kortagerðarskrár voru til framleiðslu. Mjög líklegt er að við höfum framleitt síðustu debet og kreditkortin en við eigum von á að fá gjafakortaskrár í vikunni. Ég fór því beint í innlagnir. Vinnudegi lauk upp úr klukkan þrjú. Skrapp með sjö stk. jólakort á pósthúsið. Hitti einn úr safnaðarstjór Óháða í þeirri vegferð. Komst að í osteostrong tíma korter fyrir fjögur. Bætti mig á tveimur tækjum og var frekar hissa þar sem ég er búin að vera kvefuð. Hef þó ekki verið neitt lin. Á einn tíma eftir af hálfa árinu og mæti í hann milli jóla og nýárs, daginn fyrir gamlársdag. Var mætt í sund um hálffimm. Synti 400m, flesta á bakinu. Fór tvær ferðir í kalda pottinn, rúmt korter í gufu, tíu mínútur í sjópottinn og dýfði mér um hálfa mínútu í þann kalda á leiðinni upp úr. Þvoði mér um hárið og kom svo við í Krónunni í Skeifunni áður en ég fór heim. Var ekki komin heim fyrr en rétt fyrir sjö. 

16.12.24

Fátt að frétta

Það fór svo að ég hélt mig inni í gær líka. Fór á fætur um hálfátta og einhvernveginn brunaði sunnudagurinn í gegn án þess að ég væri að gera nokkuð merkilegt eða sem er í frásögur færandi. Strákarnir voru báðir heima við en fóru mun seinna á fætur. Manjú sonurinn kom fram heilum klukkutíma áður en leikur City og United hófst. Hann gafst upp nokkrum mínútum fyrir leikslok þegar Manjú var nýbúið að jafna og missti því af sigurmarkinu þeirra. Ég horfði bæði á hand- og fótbolta og hefði svo sem einnig getað fylgst með sundkeppni. Ánægð með að Þórir endaði síðasta leik sinn sem þjálfari norska kvennalands liðsins með því að sigra Dani í úrslitaleiknum á EM kvenna. 

15.12.24

Innipúki í gær

Vaknaði um sex leytið í gær. Skrapp fram á salernið en svo beinustu leið í rúmið aftur, að lesa. Kláraði eina af bókasafnsbókunum; Miðillinn eftir Sólveigu Pálsdóttur. Klukkan var því að verða níu þegar ég klæddi mig loksins. Næsta einn og hálfa tímann var ég að vafra á netinu. Skrifaði 7 jólakort sem öll fara í póst eftir helgi. Á enn þrjú frímerki en nota kannski ekki nema eitt eða tvö af þeim. Á þó eftir að skrifa 3-4 jólakort í viðbót. Annars var ég að prjóna, horfa á þætti og fótbolta. Bræðurnir komu á fætur upp úr hádeginu. Davíð Steinn pakkaði inn amk tveimur pökkum en svo fóru þeir bræður í heimsókn til pabba síns og fjölkyldu hans. Ég sauð mér ýsu í gær sem ég hafði keypt í Fiskbúð Fúsa á leiðinni heim úr vinnu á föstudaginn. Með ýsunni hafði ég súrkál og svartar ólífur. 

14.12.24

Nefrennsli og eymsli í hálsi en enginn hiti

Í gærmorgun fór ég ekki með neitt sund- eða sjótengt með mér í vinnuna. Framleiddum heil sex kort og tókum niður upplýsingar um 14 kort sem ekki var hægt að framleiða vegna hráefnisskorts. Var komin í innleggin fyrir klukkan níu. Vinnudegi lauk upp úr klukkan þrjú. Hringdi í esperanto vinkonu mína þegar ég var á leiðinni heim. Mæltum okkur mót við Dómkirkjuna um sjö leytið. Ég tók því rólega fram að því. Fékk Odd til að skutla mér á staðinn. Um hálfátta hófust tónleikar með Sycameore Tree, mjög ljúfir og skemmtilegir. Inger bauð okkur Helgu, einni úr Viðeyjargenginu, og var þetta jólagjöfin hennar til okkar. Tónleikarnir vörðu í rétt rúma klukkustund sem var mjög fljót að líða. Hitti eina frænku mína og einn "Helling" til en þær voru á þessum sömu tónleikum. Hringdi í Odd og bað hann um að sækja mig. Hefði líklega labbað heim ef hálsinn hefði ekki verið að angra mig. Var komin heim um níu leytið. 

13.12.24

Strax kominn föstudagur aftur

Það var ánægjulegt að sjá að allar skrár skiluðu sér á vélina í gærmorgun. Getum reyndar ekki framleitt allar pantanir þar sem hráefnið er alveg á þrotum en það er önnur saga. Annars var ég aðallega í innlögnum í gær. Allt gekk vel og vorum við búin stuttu fyrir þrjú. Ég fór beint í sund og synti 600m. Kalda potts vinkonan kom þegar ég var að klára sundið og hún ákvað að geyma sitt sund þar til við værum búnar með pottadýfingarnar. Ég kom heim rétt upp úr klukkan fimm. 

12.12.24

Þriðja jólakortið fer af stað í dag, til Danmerkur

Samkvæmt kortagerðarpóstinum áttu að koma heil sjö kort til framleiðslu til viðbótar við það sem búið var að hlaða inn á mánudag og þriðjudag. Þetta skilaði sér hins vegar ekki yfir á vélina. Ef þetta hefur ekki skilað sér í dag verður málið kannað betur en við getum líklega ekki framleitt nema fjögur af þessum kortum því hráefnið er búið og það tekur því ekki að fá sent meira því það tekur tíma og að fá það hráefni og kortaframleiðsla er alveg að leggjast af. Framleiddum samt 155 kort í gærmorgun, þar af 150 gjafakort. Var komin í innleggin um níu leytið. Vinnudeginum lauk upp úr klukkan þrjú. Fór beint í Nauthólsvík og hoppaði um í öldunum í 1,5°C sjónum í um tíu mínútur. Var komin heim um fimm leytið. 

11.12.24

Verða síðustu kortin framleidd í dag?

Þrátt fyrir að fara ekki að sofa fyrr en á tólfta tímanum í fyrrakvöld var ég vöknuð upp úr klukkan fimm. Ekki dugði að fara fram, pissa og fá sér lýsi svo um hálfsex leytið var ég byrjuð á að gera alls konar teygjuæfingar upp í rúmi. Klæddi mig og bjó um korter fyrir sex og gerði þá nokkrar æfingar með 2kg lóðum. Var mætt í vinnu um hálfátta og samkvæmt kortagerðarpóstinum voru komnar nýjar skrár á vélina. Fór niður og hlóð inn 3 debetkortum og einu kreditkorti, það var allt og sumt. Annars fór dagurinn í innlagnir. Allt var búið um hálffjögur. Hringdi í pabba á leiðinni yfir í Laugardalslaug. Var komin á braut 6 stuttu fyrir fjögur og synti 600m, þar af 150m skriðsund. Fór eina ferð í kalda og beið svo í sjópottinum eftir kalda potts vinkonu minni. Saman fórum við þrjár ferðir í kalda, tvær í þann heitasta, eina góða gufuferð og svo smástund í sjópottinn. Hún ætlaði að fara að synda um það leyti sem ég var á leið upp úr en þá mætti hún systur sinni, frestaði sundinu en skrapp eina ferð í þann kalda áður en hún fór aftur í sjópottinn. Hvort hún synti eftir að systir hennar fór frétti ég af í sundi með henni eftir vinnu á morgun. Var komin heim um hálfsex. Fór upp í rúm að lesa fyrir klukkan hálftíu og var líklega steinsofnuð rétt upp úr klukkan tíu. 

10.12.24

Þrjár vikur eftir af árinu

Rumskaði um fimm í gærmorgun. Skrapp fram á salerni, tæmdi "blaðrið" og gerði svo vel heppnaða tilraun til að kúra mig niður aftur. Vissi næst af mér þegar vekjarinn vakti mig. Var mætt í vinnu rétt rúmlega hálfátta. Skv. kortapóstinum voru 1 debetkort og 150 gjafakort í pöntun svo ég fór fljótlega niður og hlóð þessum verkefnum inn. Annars var ég í innlögnum sem kláruðust ekki fyrr en klukkan var langt gengin í þrjú. Öllum verkefnum var þó lokið rétt fyrir klukkan hálffjögur. Var mætt í osteostrong tíma tíu mínútum fyrir fjögur og í sund og byrjuð að synda tæpum klukkutíma síðar. Synti ekki nema 300 metra en helminginn af þeirri vegalengd synti ég skriðsund. Var komin heim um sex leytið. Nágranninn á neðri hæðinni kom upp á áttunda tímanum til að gefa mér upp netfang rafvirkjans sem er að setja upp nýja rafmagnstöflu niðri í ganginum fyrir framan þvottahúsið. Ég sendi svo póst á viðkomandi til að biðja um að kíkja á töfluna inni hjá mér sem og laga útiljós og dyrabjöllur fyrir mína íbúð og risið. Aldrei þessu vant fór ég ekki upp í fyrr en rétt fyrir ellefu. Var að klára eitt jólabréf og glápa á imbann, bæði línulega dagskrá á RÚV sem og einn þátt. Las svo til klukkan að verða hálftólf.

9.12.24

Aðventukvöld í óháða í gær

Rumskaði um þrjú leytið í fyrrinótt og sofnaði ekki aftur fyrr en á fimmta tímanum. Klukkan var svo næstum orðin tíu þegar ég vaknaði aftur. Pabbi var búinn að vera á fótum síðan um sex leytið. Um ellefu leytið fór hann að huga að því að setja upp matinn, hrossa-bjúga frá "Villa pylsu" sem er einn af sundfélögum hans. Með þessu hafði hann kartöflur, rófum og hálfa sæta kartöflu, allt soðið saman í einum potti en bjúgað þó helmingi lengur en hitt. Buðum unga fólkinu að borða með okkur en þau þáðu það ekki svo pabbi sendi mig með afganginn í bæinn. Hann var mjög áfram um það að ég væri ekkert að drolla í sveitinni, skyldi drífa mig í bæinn ef veðrið skyldi verða verra. Ég hafði haft hug á því að fara í innsetningarmessu í Breiðabólsstað en hún var klukkan tvö. Um það leyti var ég komin heim. Ég hélt mig heima til klukkan langt gengin í átta en þá fór ég á bílnum í Óháðu kirkjuna, lagði ekki í að labba í rokinu og rigningunni. Það var aðventukvöld og ég hitti nokkra af fyrrum KÓSÍ félögum mínum og einnig fólk sem var með mér í stjórninni á sínum tíma og er enn í stjórn. Þetta var notalegasta stund. Á eftir var boðið upp á svartbaunaseyði, gos, vatn og smákökusmakk. Ég fékk mér aðeins vatnið, maginn hefði mótmælt flestu af hinu. Veit reyndar ekki með kaffið en ég er enn í pásu og bíð aðeins lengur með að aflétta þeirri pásu. 

8.12.24

Komin í bæinn aftur

Pabbi var búinn að vera á fótum í rúma tvo tíma þegar ég kom fram um hálfníu í gærmorgun. Fljótlega komu Bríet og Bjarki fram en þau voru á leiðinni í bæinn í jólagjafaleiðangur og voru farin um níu leytið. Morguninn leið frekar hratt. Við pabbi fengum okkur skyr í hádeginu, hann 500gr en ég 150gr. Um eitt leytið vorum við búin að "skvera" okkur upp og lögðum af stað á Keldur. Það var bjart, kalt og falleg fjallasýn. Pabbi taldi að við værum of snemma á ferðinni en það voru margir komnir á undan okkur. Hann keyrði bílinn inn fyrir hliðið svo það væri stutt að fara. Ætluðum samt að vera í bílnum og hlusta þaðan en skiptum um skoðun þegar útfararstjórinn kom og sagði að það væri alveg nóg pláss í kirkjunni. Fengum meira að segja sæti á öðrum bekk fyrir aftan ekkilinn, systur hans og næstelstu dóttlunnar og hennar maka. Elsta systirin var á fremsta bekk hinum meginn við ganginn og yngri systkynin fyrir innan, til hliðar við altarið því þau voru í hópnum sem báru kistuna eftir athöfnina. Prestur var frændi minn, sr. Kristján Arason, sem sá um athöfn ömmu sinnar föstudag fyrir verslunarmannahelgi. Organistinn var einnig frændi minn, Guðjón Halldór Óskarsson. Öðlingarnir sáu um sönginn en ég held að það hafi verið annar tengdasonurinn sem sá um einsöng í tveimur lögum fyrir og eftir minningar orð. Allar systurnar voru í upphlutum og sum af barnabörnunum eða mökum þeirra. Mörg af þessum nánustu voru líka klædd í fallegar prjónaflíkur prjónaðar af þeirri sem við vorum að fylgja. Athöfnin var virkilega falleg og það voru margir sem fylgdu. Ómögulegt var að telja alla bílana, helst væri að spyrja þær sem sáu um að afhenda sálmaskrárnar hversu margir bílar voru eða hversu margar sálmaskrár voru afhentar. Kosturinn við að vera í kirkjunni svona nálægt nánustu aðstandendum var að við vorum eiginlega fyrst á eftir þeim út og vorum með þeim fyrstu sem blessuðum yfir kistuna áður en við settumst upp í bíl. Þurftum því ekki að standa lengi úti í kuldanum. Vorum líka með þeim fyrstu sem mættum í erfidrykkjuna í íþróttahúsið á Hellu þar sem kvenfélagið Unnur sá um að hella upp á og bera á hlaðborð. Fékk mér vatnsglas, flatköku með hangiketi bakaða af systkynunum og smá bita af brauðtertu. Langaði í kleinu og pönnsu en lét það ekki eftir mér og sleppti líka marengstertunni, það hefði sett magan á hvolf. En ég gaf og fékk ófá knúsin og var glöð yfir hversu pabbi var rólegur því við vorum líklega hátt í tvo tíma eða amk einn og hálfan því klukkan var um hálfsex þegar við komum til baka í Hólavanginn.

7.12.24

Fylgi frænku minni í dag

Það er að verða mjög greinilegt að íslensk bankakorta framleiðsla er við það að líða undir lok. Í gær framleiddum við einungis átta kort, mestur tíminn fór í að telja kortategundirnar í vagninum. Það er aðeins ein óframleidd smá endurnýjun sem liggur fyrir, 10 stk, en þar sem aðeins eru til 7 plöst látum við daglegar pantanir ganga fyrir. Ef ekki koma neinar beiðnir í næstu viku munum við framleiða sjö af þessum tíu og láta viðkomandi bankastofnun vita hverjir verðar útundan. Kannski verður kveikt í síðasta sinn á framleiðsluvélinni í næstu viku en við erum þó með opið fyrir beiðnir út janúar ef eitthvað kemur uppá varðandi þær framleiðsluleiðir sem nú hafa og eru að taka við. Var komin í innleggs vinnu upp úr klukkan níu. Öllum verkefnum var lokið einhvern tímann á þriðja tímanum. Fór beint heim eftir vinnu. Það tók mig um klukkustund að pakka og taka mig til. Lagði svo af stað út í þunga umferðina þegar klukkan var að byrja að ganga fimm. Var komin austur til pabba milli hálfsex og sex. Þar voru fyrir systurdóttir mín og kærastinn hennar. Hún kom ekki fram úr herberginu og vissi greinilega ekki af mér. Bjarki heilsaði upp á mig einhvern tímann í gærkvöldi og spurði mig svo hvort ég vissi hvar brauðristin á heimilinu væri geymd. Hann hélt að Bríet vissi að ég væri komin og ég hélt að hann hefði minnst á mig við hana. Ég var ekkert að trufla unga fólkið en frænka mín var virkilega hissa þegar hún rakst á mig í morgun. Þau skötuhjúin voru frekar snemma á fótum miðað við að það er laugardagur en þau voru farin af stað í leiðangur til Reykjavíkur rúmlega níu.

6.12.24

Aftur kominn föstudagur

Í fyrrakvöld var ég sofnuð upp úr klukkan tíu. Rumskaði einhvern tímann á fjórða tímanum þá um nóttina, sennilega alltof margt að fara í gegnum kollinn á mér og svo var blaðran aðeins að þrýsta á mig. Fór þó ekki á pisseríið fyrr en eftir að hafa reynt að kúra mig niður og dormað í uþb klukkustund. Sofnaði loksins aftur einhvern tímann á fimmta tímanum. Vaknaði svo úthvíld á undan klukkunni upp úr klukkan sex. Fór í pilsi og jólapeysu í vinnuna. Um hálfníu kom tæknimaður í hús til að hjálpa okkur í kortadeildinni að uppfylla beiðni þar sem var beðið um nokkur kortalogo sem prentast á ákveðin kort við framleiðslu. Hann var frekar snöggur að afgreiða málið þrátt fyrir að þurfa að rifja ýmislegt upp en rétt eftir að hann var farinn kom í ljós að það vantaði amk eitt logo til. Ég hafði fylgst með honum og gerði velheppnaða tilraun til þess að "bjarga" málunum. Þ.e. ég náði þessu logoi af framleiðsluvélinni yfir á usb-lykill og svo var önnur sem afritaði logoið af lyklinum yfir í beiðnina. Líklega hefði ég líka getað gert það en það er fyrir mestu að okkur tókst að gera þetta án þess að þurfa að kalla tækninmanninn aftur í hús. Í hádeginu fengum við jólamat frá Múlakaffi og það komu tveir vinnufélagar, annar sem hætti í vor og hinn er í veikindaleyfi en er að hætta fljótlega á nýja árinu, og borðuðu með okkur. Það vantaði fjóra í hópinn okkar en maturinn og félagsskapurinn var samt mjög góður. Verkefnum mínum var lokið á fjórða tímanum. Fór beint í sund en hringdi þó í pabba áður en ég fór inn og hitti kaldapotts vinkonu mína sem var nýlega mætt. Fórum á brautir 7 og 8 og ég synti fimm hringi, langflesta á bakinu. Fórum þrjár ferðir í þann kalda, góða gufuferð og smástund í sjópottinn. Þvoði mér um hárið þar sem ég fer líklega ekki aftur í sund fyrr en eftir helgi. 

5.12.24

Hraðskrið á tímanum

Enn og aftur var ég vöknuð alltof snemma, eða um fimm leytið. Gerði teygjuæfingar þegar ljóst varð að ég var ekki að sofna aftur og greip svo smástund í bók áður en ég fór á fætur. Klæddi mig um sex og gerði nokkrar æfingar með 1,5kg lóðum. Var mætt í vinnu rétt rúmlega hálfátta. Það var framleiðsludagur en framleiðslan er eðlilega að minnka mikið. Svo virðist sem kreditkortin fyrir síðasta stóra bankann, sem við erum enn að þjónusta, séu um það bil að detta út. Fengum einn skammt á mánudaginn sem við framleiddum í gær en ekkert komið síðan þá. Þeir vilja samt halda því opnu að geta leitað til okkar næstu 4-8 vikurnar ef upp koma einhver vandræði. Ég var byrjuð að vinna í innleggjum á ellefta tímanum. Verkefnum mínum lauk upp úr klukkan hálffjögur. Fór beint í Nauthólsvík og skellti mér í -0,5°C sjóinn í uþb tíu mínútur. Kom við hjá ÓB í Öskjuhlíð og notaði kreditkortið sem er að renna úr gildi. Það var í rúmlega níuþúsund króna plús og ég dældi á tankinn fyrir áttaþúsund. Fékk stæði beint fyrir utan, við hliðina á innkeyrslunni, þegar ég kom heim um hálfsex. 

4.12.24

Vikan um það bil hálfnuð

Ég vaknaði ekki alveg eins snemma í gærmorgun og á mánudagsmorguninn. Var þó vöknuð og komin á fætur fyrir klukkan sex. Sleppti teygjuæfingunum en greip í 1,5kg lóðin þegar ég var búin að klæða mig. Morgunrútínan var svo ósköp svipuð og flesta virka morgna. Það var svolítið hált úti í gærmorgun og ég þurfta að skafa og sópa af framrúðunni og annarri hliðinni á bílnum. Mætti í vinnu um hálfátta leytið. Byrjaði á að vinna í kortamálum, bæði að hlaða inn og undirbúa framleiðslublöð en annars var ég í innlögnum til klukkan að verða tvö og yfirferð á skjölum síðasta klukkutímann. Stimplaði mig út milli þrjú og hálffjögur. Byrjaði á því að skreppa á pósthús. Póstlagði smá sendingu til ensku vinkonu minnar og fjárfesti í tólf frímerkjum, þar af tveimur til norðurlandanna. Var mætt í Laugardalslaug rétt fyrir fjögur. Kalda potts vinkona mín var mætt, ekki með sundhettuna og í sinni annarri ferð í kalda pottinum. Saman náðum við þremur ferðum en hún kvaddi svo eftir smástund í gufunni. Ég fór í sjópottinn, eina ferð í kalda, synti aðeins 200m og tók eina dýfu í kalda pottinum í lokin. Kom aðeins við í Hagkaup í Skeifunni áður en ég fór heim. Þar fæ ég frækexið sem einnig fæst í Heilsuhúsinu. Ætlaði líka að kaupa meiri beltisþara en fann hann ekki að þessu sinni og var ekkert að leita eftir aðstoð við að finna hann. Tók hvorki upp penna né prjóna í gærkvöldi en horfði á hluta af handboltaleiknum og tvo þætti úr séríu í sjónvarpi símans sem er að fara að "detta" út úr sarpinum. 

3.12.24

Vetur og kuldi

Vaknaði eiginlega alltof snemma í gærmorgun og var komin á fætur um hálfsex. Hafði þeim mun meiri tíma í allar teygjur, æfingar og netvafr áður en ég fór í vinnuna. Það var hörkufrost úti. Ekki er búið að laga ofna- og þrýstikerfið í vinnunni en það á að klárast í dag. Sem betur fer erum við enn með hitablásarana í láni. Ég var reyndar með lopapeysu og ullarsokka meðferðis til öryggis. Það slapp þó til en rétt svo. Verkefnum mínum lauk stuttu fyrir klukkan hálffjögur. Þá dreif ég mig beint í vikulegan osteostrong tíma. Var mætt rúmum hálftíma fyrir "fasta" tímann minn og komst strax að. Bætti mig á einu tæki og var alls ekki langt frá mínu besta á hinum þremur tækjunum. Nú eru þrír tímar eftir af þessum 26, hálfa ári, sem ég fjárfesti í og fékk svo niðurgreidda um helling. Síðasti tíminn verður á Þorláksmessu en það verður svo sannarlega alls ekki síðasti tíminn því ég er ákveðin í að fjárfesta í árskorti næst, 52 tímum sem eru þá innan við sjöþúsund kr. hver en samt minna en það því ég fæ sjúkraþjálfunarstyrki upp í allt að 30 tíma á ári. Ég finn verulegan mun á bæði styrk og jafnvægi hjá mér og veit að það á bara eftir að verða betra ef ég held mig við þessa leið. Annars fór ég beint heim eftir tímann þrátt fyrir að vera með sunddótið meðferðis. Heima skrifaði ég á fyrsta jólakortið sem fer með bréfinu sem ég lauk við í fyrradag. Kannski kem ég þessu í póst í dag.

2.12.24

Ný vinnuvika

Þrátt fyrir að hafa farið frekar seint að sofa aðfaranótt gærdagsins var ég vöknuð um sjö leytið í gærmorgun. Gerði nokkrar tilraunir til að kúra mig niður aftur en það tókst ekki svo ég var komin á fætur fyrir klukkan átta. Pabbi kom klæddur fram á tíunda tímanum. Hann hafði líka komið fram um sex leytið að venju, til að taka niður og skrá helstu tölur og fá sér morgunmat. Þegar fór að birta ákvað pabbi að skreppa upp að Keldum til að skipta um rafhlöður í ljósinu á leiðinu hjá litlu Önnu og mömmu. Ég ákvað að drífa mig með honum. Það var tíu gráðu frost en bjart og lítil ferð á logninu. Vorum komin til baka um hálftólf. Gufusauð hálfa sæta kartöflu og steikt þrjú lítil bleikjuflök handa okkur pabba í hádeginu. Fljótlega eftir hádegi fór pabbi að setja upp jólaóróana en ég ákvað að drífa mig af stað í bæinn. Var komin til Reykjavíkur upp úr klukkan þrjú og kom við í bókasafninu. Skilaði þremur bókum af fjórum og freistaðist til að taka þrjár með mér heim og það þótt ég sé bara búin með rúmlega einn þriðja af fjórðu bókinni. Ein af þessum þremur bókum er sagan um tíndu systurina. Hún er þykk og mikil en ekki samt jafn margar blaðsíður og sú sem ég er að lesa. Ég verð mjög líklega að lesa mikið um jólin en þarf örugglega að framlengja skilafrestum. Horfði á leik Liverpool og Man. Cyty 2:0 og svo EM leikinn í handbolta kvenna þar sem okkar stelpur unnu Úkraínustelpurnar.  

1.12.24

Fyrsti í aðventu

Svaf til klukkan að verða hálfátta. Gaf mér samt tíma í alla rútínu áður en ég fór í sund. Synti 600m, flesta á bakinu þó smá skriðsund líka en ekkert bringusund. Fór svo eiginlega bara eina ferð í þann kalda en dýfði mér þó rétt sem snöggvast í uþb mínútu þegar ég var á leiðinni inn að þvo mér um hárið eftir góða gufuferð og tíu mínútur í sjópottinum. Var mætt til esperanto vinkonu minnar upp úr klukkan hálfellefu og stoppaði í tæpan einn og hálfan tíma. Lásum m.a. 2 bls. í Kon-Tiki. Fór beint í að pakka þegar ég kom heim og lagði af stað austur um hálfeitt leytið. Pabbi var að setja ljós og stjörnur í eldhús- og stofugluggana. Lagði aðeins einn kapal, fór ekkert í tölvuna en kláraði bréfið sem ég byrjaði á um síðustu helgi. Horfði á kosningasjónvarp til klukkan langt gengin í tvö. Pabbi fór í háttinn stuttu áður og ég ákvað fljótlega að fylgja hans fordæmi en las þó um stund um Electru. Er búin með um 300bls af rúmlega áttahundruð.