Vaknaði snemma í gærmorgun, upp úr klukkan sex. Lagði af stað í sund rétt rúmlega átta. Fór eina ferð í kalda áður en ég fór út í laug. Synti alls 800m á brautum 6-8. Meiri hlutann synti ég á bakinu. Eftir næstu ferð í þann kalda fór ég í gufu í uþb tíu mínútur. Var á leið í sjópottinn þegar ég sá sjósundsvinkonu mína í nuddpottinum og tók að sjálfsögðu stefnuna í þann pott. Við höfðum um margt að spjalla og það var maðurinn hennar sem sá til þess að við döguðum ekki uppi í pottinum, eltum hann í sjópottinn þar sem við héldum áfram að spjalla. Og þegar hann ákvað að kalla þetta gott og fara upp úr fórum við tvær saman í kalda pottinn í fjórar mínútur áður en við fórum upp úr. Þvoði mér um hárið og brunaði svo beinustu leið til esperanto vinkonu minnar. Lásum þrjár bls. í Kon-Tiki. Kom við á AO við Öskjuhlíð á leiðinni heim stuttu fyrir klukkan hálfeitt. Gekk frá sunddótinu og fór mjög fljótlega að huga að því að pakka niður. Bankaði á herbergisdyrnar hjá Oddi bæði til að kveðja og setja honum fyrir ákveðið verkefni. Þegar ég var búin að ferma bílinn og búin að setja hann í gang hringdi ég í pabba til að tilkynna honum að ég væri á leiðinni í heimsókn með kortagerðardótið meðferðis. Kom fyrst aðeins við í N1 við Gagnveg til að láta Davíð Stein vita, kveðja hann og versla smávegis eins og t.d. tyggjó. Það var rok og rigning í Þrengslunum kviðurnar upp í 16m á sekúndu. Næsta stopp var í Fossheiðinni á Selfossi. Þar var einnig verið að undirbúa kortagerð. Stoppaði í tæpan klukkutíma og var komin á Hellu um hálffjögur. Settist smá stund inn í stofu með prjónana mína en á fimmta tímanum tók ég fram kortagerðardótið og settist með það við eldhúsborðið. Pabbi var byrjaður á pönnukökugerð. Hann gerði tvöfalda uppskrift og steikti á tveimur pönnum og var búinn fyrir klukkan sex. Ég tók ekki saman mitt dót fyrr en um hálfátta. Þá var ég búin að búa til 14 kort en ég fann 6 tilbúin frá í fyrra og þar sem ég er að skera niður af listanum er ég örugglega komin með kvótann fyrir þetta árið. Fékk mér skyr með chia fræum og rúsínum í kvöldmat og horfði svo á leik Liverpool og Aston Villa 2:0.
10.11.24
9.11.24
Rok
Það varð smá truflun á svefninum í fyrrinótt. Rumskaði stuttu fyrir eitt, þurfti og fór á salernið. Var ekki að kveikja nein ljós en ég var ekki mjög fljót að sofna aftur. Veit ekki hvenær ég sofnaði en ég svaf amk til klukkan rúmlega sex. Vaknaði nokkrum mínútum á undan vekjaraklukkunni. Í vinnunni var framleiðsludagur. Vorum búnar að framleiða allt fyrirliggjandi rétt fyrir níu en þá fórum við á fund sem framkvæmdastjórinn hafði boðað með nokkurra daga fyrirvara. Yfirleitt eru þessir fundir á miðvikudögum en þá var yfirmaðurinn í öðrum mikilvægum verkefnum. Á fundinn mætti líka forstjóri RB en verið var að fara yfir alls konar mánaðamótatölur úr deildinni okkar. Eftir fundinn fórum við niður aftur, kláruðum að pakka, ganga frá vélinni og telja. Ég var byrjuð í innleggjum um hálfellefu leytið. Öllum verkefnum var lokið um hálfþrjú og ég var komin í Nauthólsvík og út í sjó klukkan þrjú. Sjórinn var aftur kominn yfir fimm gráður. Svamlaði um í korter og hitti svo einn frænda minn í pottinum. Sleppti gufuferð í gær og var komin heim um hálffimm.
8.11.24
Föstudagur enn á ný
Klukkan var rétt að verða hálfsex þegar ég vaknaði í gærmorgun. Hafði morgunrútínuna mjög líka og dagana áður. Var mætt í vinnu um hálfátta. Fór niður í kortadeild korter fyrir átta. Uppfærði skiptiblöðin vegna framleiðslu daganna 4.-6. nóv og hlóð einnig inn nýjustu tölum. Petra kom niður korter yfir átta með næstum því öll gögn. Það vantaði eitt skjalið svo hún þurfti að skreppa upp aftur til að prenta það út. Vorum samt byrjaðar að framleiða um hálfníu. Framleiddum fyrst kortin sem ekki fara á form, þau voru eitthvað á annan tuginn. Þegar ég ætlaði svo að setja af stað skrá með kortum sem fara á form og í umslög uppgötvaði ég að það var slökkt á prentaranum. Hann var smá stund að koma upp en mér telst til að hann hafi farið á villumeldingu amk sex sinnum í framleiðsluferlinu í gær. Þannig villumeldingu að þegar hún kom upp þá var það eina í stöðunni að slökkva á honum og kveikja aftur til að fá hann til að halda áfram. Þrátt fyrir þessar tafir lukum við framleiðslu þessara þriggja daga og framleiddum þar að auki síðustu óframleiddu skrána úr nýjustu endurnýjunni og vorum búnar að ganga frá kortadeildinni upp úr klukkan ellefu. Sendum tíu póstbakka upp með lyftunni í skúr eitt. Einn af þeim bökkum var með daglegu kortunum en hinir níu með endurnýjuninni. Restin af vinnudeginum var ég í innlögnum. Öllum mínum verkefnum var lokið um rúmlega hálfþrjú. Var komin á braut átta í Laugardalslaug rétt fyrir þrjú og synti 500m. Var líka búin með eina ferð í þann kalda og nýlega komin í sjópottinn þegar kalda potts vinkona mín kom. Fórum þrjár ferðir saman í kalda, tvær ferðir í þann heitasta og sátum svo góða stund í gufunni. Eftir gufuferðina varð ég að drífa mig upp úr því ég var komin í spreng og yfirleitt klæði ég mig ekki aftur í sundbolinn aftur eftir salernisferðir. Það hefur þó alveg hent sig. En í gær var ég eiginlega búin með rútínuna og þar að auki búin að vera meira en einn og hálfan tíma í sundi. Var komin heim upp úr klukkan fimm.
7.11.24
Æðibunugangur á tímanum
Var komin á fætur stuttu fyrir klukkan sex og líkt og á þriðjudaginn gerði ég æfingar með lóð áður en ég sinnti morgunverkunum á baðherberginu. Mætti í vinnu um hálfátta. Fyllti á vatnsbrúsann, fékk mér heitt vatn í bolla, greip í prjónana mína og spjallaði aðeins við þá vinnufélaga sem sátu á kaffistofunni. Korter fyrir átta fór ég niður í kortadeild en þar var ekkert hægt að gera því það hafði gefið sig eitthvað nauðsynlegt í tölvunni sem stýrir allri vélinni. Þetta hafði gerst daginn áður. Það var maður í yfirferð á svæðinu þá og þar sem þetta var í tölvunni sjálfri var líklegt að til væri varahlutur á landinu. Hann gat hins vegar ekki komið fyrr en eftir hádegi í gær og á meðan var ekkert hægt að framleiða eða gera í kortadeildinni. Við sem áttum að vera þar fórum þá í staðinn í innleggin. Það var auðvitað allt að verða búið uppi þegar viðgerðarmaðurinn mætti með varahlutinn upp úr klukkan þrjú. Ég tók að mér að vera eftir. Viðgerðin tók innan við hálftíma og það var gengið úr skugga um að það kviknaði á allri vélinni. Hleypti viðgerðarmanninum út og var þá orðin ein eftir. Fékk einn samstarfsmann minn, sem hægt er að leita til varðandi tæknimál á vélinni, til að senda yfir nýjustu skrárnar. Spjallaði við hann í gegnum TEAMS. Hlóð skránum inn þegar þær skiluðu sér í möppur skömmu síðar en ég mun svo vinna í skiptiblöðum á eftir. Ég gerði mig svo klára til að fara áður en ég setti öll kerfi á og dreif mig út og beinustu leið í Nauthólsvík. Var komin út í sjó um hálffimm.
6.11.24
Nokkur stór afmæli í dag
Vaknaði stuttu fyrir klukkan sex. Klæddi mig, bjó um og gerði nokkrar lóðaæfingar áður en ég sinnti morgunverkunum á baðherberginu. Fékk mér lýsi, rauðrófusafa, kalk og glas af vatni. Settist svo inn í stofusófa með fartölvuna í fanginu. Vafraði á netinu og setti inn færslu. Stuttu fyrir sjö slökkti ég á tölvunni, færði mig yfir í stofustólinn og greip í prjónana í smá stund. Var mætt í vinnu um hálfátta. Fyllti á vatnsflöskuna áður en ég fór niður í kortadeild að hlaða inn nýjustu skrám og uppfæra skiptiblöðin. Byrjaði í innleggjunum um átta. Verkefnum dagsins lauk upp úr klukkan þrjú. Var komin á braut átta í Laugardalslauginni um hálffjögur. Synti 500m áður en ég fór fyrri ferðina í kalda pottinn. Sat lengst í sjópottinum enda hitti ég á konu sem stjórnaði barnakór Hallgrímskirkju þegar tvíburarnir voru sex ára og báðir í kór. Við spjölluðum í dágóða stund. Á heimleiðinni kom ég við í Fiskbúð Fúsa og keypti harðfisk og 250gr af nætursöltuðum gellum. Þegar heim kom skar ég niður og gufusauð sæta kartöflu til að hafa með gellunum. Hluti af kartöflunni fór reyndar í box og inn í ísskáp. Yfirleitt borða ég ekki heitan mat á virkum kvöldum þar sem ég fæ heitan mat í hádeginu í vinnunni. En ég gerði undantekningu í gær og var bara mjög sátt. Aldrei þessu vant horfði ég svo á Torgið eftir fréttir. Mikið sem þetta unga fólk, sem stóðu fyrir svörum, eru góðar fyrirmyndir.
Annars þekki ég tvö sem eru sextug í dag og eina sem er níræð.
5.11.24
Bókasafn, osteostrong og sund eftir vinnu í gær
Það var vekjarinn sem ýtti við mér klukkan korter yfir sex í gærmorgun. Náði nú samt að sinna flest allri morgunrútínunni á fyrsta virka degi nýrrar vinnuviku. Sleppti aðeins lóðaæfingum. Var mætt í vinnu um hálfátta. Fyrstu tuttugu mínúturnar fóru í kortadeildarmál en annars var ég í innlögnum í gær. Þegar mínum vinnuverkefnum lauk vantaði aðeins um tólf mínútur upp á átta tímana. Þá var klukkan ekki orðin hálffjögur og ég sá fram á að ég hefði ágætis tíma til að skreppa á bókasafnið í Kringlunni og ég yrði samt ekki sein í vikulegan styrktartíma hjá Osteostrong í Hátúni. Skilaði öllum fimm bókunum, meira að segja Kon-Tiki. Hefði nú samt verið fróðlegt hvort ég hefði fengið samið um að hafa hana í láni aðeins lengur. En ég get örugglega nálgast hana aftur fljótlega. Tók fjórar bækur í staðinn. Ein er ný og er með tveggja vikna skilafrest og önnur er mjög þykk; bók eftir Lucindu Riley, Sólarsystir. Var mætt í Hátún 12 um fjögur. Fasti tíminn er tuttugu mínútum yfir en ég komst að aðeins fyrr en það. Það var annar eigandinn af staðnum sem fór hrysti-æfinga-jafnvægis hringinn með mér og pakkaði mér svo inn í teppi á einum af sex það sem ég vil kalla; hengirúmsbekk. Var komin í sund og á braut 8 stuttu fyrir fimm. Synti 300m, þar af tæplega helminginn á bakinu. Var svo að koma úr fyrstu kaldapottsferðinni af fjórum þegar vinkona mín mætti úr ræktartíma úr Laugum. Klukkan var langt gengin í sjö þegar ég kom heim með hreint og rakt hárið.
4.11.24
Ný vinnuvika
Færsla dagsins um gærdaginn verður líklega enn styttri en færsla gærdagsins. Dagurinn var semsagt mjög rólegur og tíðindalaus. Fór hvorki í sund né göngutúr. Var komin á fætur fyrir átta. Prjónaði mikið, horfði á bolta og þætti, vafraði á netinu. Dagurinn leið frekar hratt.
3.11.24
Sunnudagur
Ósköp fátt að frétta af gærdeginum. Var komin á fætur um sjö. Fyrstu þrír klukkutímarnir fóru í morgunrútínu, æfingar, netvafr, prjón og þáttaáhorf. Var mætt til esperanto vinkonu minnar um hálfellefu leytið. Lásum tvær blaðsíður í Kon-Tiki. Var komin heim aftur upp úr klukkan tólf. Fór ekkert út aftur þannig að já, ég fór hvorki í sund né göngutúr. Gerði líka heldur lítið af því sem ekki má skrifa um. Horfði á fótbolta og þætti, prjónaði og las. Útbjó mér bleikju í kvöldmatinn og var skriðin upp í rúm um tíu.
2.11.24
Nýr mánuður og aftur komin helgi
Í dag 2. nóvember er afmælisdagur Helgu systur og líkt og ég gat í heilt ár til 17. mars sl, getur hún nú lesið aldurinn afturábak og áfram án þess að nokkuð breytist. Hún er nú sjálfsagt ekkert að spá í þessu sjálf, bara tölu- og afmælisdaganördinn ég. Annars aðeins að gærdeginum. Var mætt í vinnu rétt fyrir hálfátta. Sjö tíma og korters vinnudagur fór allur í kortadeildina og kortamál. Fórum langleiðina með nýjustu endurnýjunina. Tókum á móti tæknimanni sem setti logo á eina plasttegund svo hægt væri að klára 20 kort af endurnýjun sem kom fyrir nokkrum vikum. Nú fer framleiðsludögum ört fækkandi og ég veðja á að allri framleiðslu verði lokið fyrir jól. Það verður verulega skrýtið. Aðlögunin hefur þó verið ágæt því það var fyrst mjög skrýtið í upphafi árs að hugsa til þess að það yrðu einungis tveir framleiðsludagar í viku. Ég kom reyndar ekki að kortaframleiðslu þetta árið fyrr en nokkru eftir að ég komst í vinnu aftur eftir úlnliðsbrotið, einhvern tímann um og eftir miðjan apríl. Eftir vinnu í gær fór ég beinustu leið í Nauthólsvík. Hringdi í pabba og spjallaði við hann á meðan ég var á leiðinni þangað. Var komin í sjóinn fyrir hálffjögur. Hann var 2,2°C og ansi kalt að reka andlitið ofan í. Samt ætlaði ég ekki að tíma að fara upp úr, svamlaði að mestu um á bakinu í rúmar tíu mínútur. Fór beint í gufuna og þar var ég næsta rúma korterið. Stakk mér örstutt aftur í sjóinn, hanskalaus og sat svo uþb tuttugu mínútur í heita pottinum áður en ég fór upp úr og heim. Mjög hressandi og endurnærandi sjósundsferð.
1.11.24
Kom að lokuðum dyrum
Var komin á fætur fyrir klukkan sex í gærmorgun og byrjaði á nokkrum æfingum með lóðum áður en ég sinnti morgunverkunum á baðherberginu. Mætti í vinnu rúmlega hálfátta. Kláraði fyrsta innlagnarskammtinn á rúmum klukkutíma. Ætlaði svo að skipta yfir í "hefðbundið" kortabókhald en þegar ég ætlaði að færa inn fyrstu tölur á einum stað var staðan á 31.10 nákæmlega sú sama og þann sextánda okt. sl. Ekkert breyttist þótt ég endurræsti tölvuna og ég veit að það voru settar inn endurnýjunartölur og bókhald "lagað" á miðvikudaginn var. Breytingarnar skiluðu sér samt ekki á "sameiginlega" svæðið því ég og sumarliðinn sáum ekki nýjustu tölur. Ég gat fært inn debet og visa en sú sem hafði fært inn og lagað bókhaldið á miðvikudaginn varð að laga mc bókhaldið. Hún sneri sér svo fljótlega að reikningagerðinni. Verkefnum mínum lauk milli tvö og hálfþrjú og þá ætlaði ég svo sannarlega að hitta kaldapotts vinkonu mína í Laugardalslauginni. Vorum þar um hálfþrjú en þá hafði lauginni verið lokað milli hálfeitt og sex vegna sturtu vandræða. Ég var ekki í stuði til að leita á önnur mið og fór bara heim. Skrapp samt í örstuttan göngutúr með poka í texstíl gáminn um fimm leytið. Það kom skrefunum amk að lokum yfir fjögurþúsundogfimmhundruð.
31.10.24
Sjórinn 4°C og mjög hressandi í gær
Var komin á fætur rétt fyrir klukkan sex. Byrjaði á nokkrum lóðalyftum áður en ég sinnti morgunverkunum á baðherberginu. N1 sonurinn kom á fætur um sjö og var farinn af stað í sína vinnu á undan mér. Skömmu eftir að hann fór heyrði ég að ruslabíllinn var í götunni svo ég var ekkert að flýta mér af stað. Stimplaði mig inn í vinnu uþb tíu mínútum síðar en ég geri oftast en samt vel fyrir klukkan átta. Fljótlega byrjaði ég á innleggjum, létt fyrrum fyrirliða og "sumarliðann" um kortaframleiðsluna. Vinnudegi lauk áður en átta tímarnir voru liðnir. Var komin í Nauthólsvík um hálffjögur. Hringdi í pabba en hann var á fullu í pönnukökubakstri svo við ákváðum á ég hringdi aftur þegar ég kæmi upp úr sjónum. Synti smá hring og var að busla í sjónum í uþb 15 mínútur. Fór beint í gufu og sat þar í annað korter. Stakk mér smá stund í lónið og lenti svo á smá spjalli í heita pottinum. Það var liðinn rúmur klukkutími þegar ég hringdi í pabba aftur. Pönnukökustaflinn klár og hann sagði mér að Ingvi og Hulda hefðu komið kvöldið áður, væru í Friðheimum og ætluðu að gista aðra nótt á Hellu. Ég skrapp í Krónuna við Granda. Kom flestu fyrir í einum stórum krónupoka. Fór með kerruna alveg út að bíl og setti það sem ekki komst í pokann efst í sjósundspokann. Var komin upp í rúm fyrir klukkan hálftíu. Á lítið eftir af síðustu bókasafnsbókinni en kláraði ekki í gærkvöldi. Skiladagur er fljótlega í nóvember en þá verð ég búin að vera með fimm bækur í tvo mánuði.
30.10.24
Mið vika og örstutt í mánaðamót
Vaknaði rétt rúmlega sex, nokkuð á undan vekjaranum. Gaf mér góðan tíma í morgunrútínuna en var þó helst til lengi að vafra um á netinu. Mætti í vinnu um hálfátta. Ákvað að leyfa fyrrum fyrirliða að ákveða hvort ég ætti að taka strax við kortabókhaldinu eða fara beint í innleggin. Það síðara varð ofan á. Engu að síður fór ég þrjár ferðir niður í kortadeild í gær. Það var ekki framleiðsludagur en yfirferð á vélinni og tvö af þremur skiptunum var ég að hleypa yfirferðarmanninum inn í kortarýmið. Í þriðja skiptið kom ég niður til að athuga hvort næstsíðasta kreditendurnýjuninn frá síðasta stóra bankanum hefði skilað sér í rétta möppu. Stimplaði mig út úr vinnu eftir akkúrat átta tíma, um hálffjögur. Var komin á braut 7 tæpum hálftíma síðar. Færði mig yfir á braut sex eftir 100m og á braut 5 eftir 300m á 6 og synti síðustu 300 á fimmtu brautinni. Alls 700m ár ca 35 mínútum. Fór í kalda pottinn í fjórar mínútur en beið svo eftir kaldapotts vinkonunni í sjópottinum. Hún kom um fimm og ein systir hennar skömmu síðar svo við sátum aðeins áfram í sjópottinum. Fórum tvær ferðir saman í þann kalda og eina góða gufuferð en þá var ég búin að vera um tvo tíma í sundi, mál að pissa og mál að koma sér heim.
29.10.24
Á leið í vinnuna fljótlega
Vaknaði um sjö leytið í gærmorgun og dreif mig strax á fætur. Oddur kom fram um átta leytið og fór í sturtu. Hann var á leið í skyldunámskeið í Hafnarfirði og var farinn úr húsi um níu leytið. Esperanto hittingur gekk ekki upp í gær en við stefnum á laugardaginn. Skömmu fyrir hádegi dreif ég mig loksins niður í þvottahús, bæði til að setja í vél og taka niður af snúrunum. Bjó mér svo til hafragraut í hádeginu. Davíð Steinn var nýlega kominn á fætur þegar Oddur kom af námskeiðinu um tólf leytið. Þeir bræður ákváðu að skreppa í flösku leiðangur og fengu lánaðan bílinn minn í það verkefni. Ég fékk mér göngutúr að grenndargámunum og var með "dót" í þrjá af þeim; málm-, gler- og textílgáminn. um hálffjögur leytið lagði ég af stað í osteostrong tíma. Fór á bílnum þar sem ég ætlaði beint í sund á eftir. Var svolítið á undan áætlun og að þessu sinni þurfti ég að bíða alveg þar til kom að mínum tíma tuttugu mínútum yfir. Það var alveg í góðu lagi því það voru fleiri að og ég átti þarna skemmtilegt spjall við tvær manneskjur. Kallað var í aðra þeirra á undan mér og hina rétt á eftir mér. Kalda potts vinkona mín var mætt í sundið þegar ég kom þangað um fimm. Fórum á potta og gufurúnt en svo synti ég 100m á bringunni í restina. Þvoði mér um hárið þótt ég hafi ekkert synt á bakinu. Hárið var svo enn smá rakt þegar ég fór í háttinn um hálftíu leytið.
28.10.24
Síðasti orlofsdagurinn í bili
Rumskaði um fjögur í fyrrinótt. Hefði helst þurft að fara og tæma blöðruna en ég fór ekki fram úr og á fætur fyrr en á áttunda tímanum. Pabbi kom klæddur fram stuttu fyrir klukkan tíu. Hafði að sjálfsögðu komið fram fyrst um sex leytið til að taka niður tölur og fá sér eina klementínu og egg. Hann lagði nokkra kapla en skrapp svo út í skúr að huga að bílnum. Bíllinn fór í gang en samt ákvað pabbi að hlaða geyminn betur og var hann með hann tengdan fram eftir degi. Ég fór að huga að heimferð fljótlega eftir hádegið og kvaddi um hálfþrjú leytið. Var komin í bæinn um fjögur. Fékk Odd til að koma út og sækja ferðatöskuna. Horfði á fótbolta og fleira en var líka að prjóna. Er komin með enn eina tuskuna á prjónana en hef ekki prjónað þetta mynstur áður sem heitir; Togari.
27.10.24
Grill og góður bíltúr
Vaknaði stuttu fyrir klukkan átta og dreif mig strax á fætur. Pabbi var búinn að koma fram en farinn inn í rúm aftur. Hann kom á fætur á ellefta tímanum og sagði að það væri ágætis grillveður. Við ákváðum að ég myndi undirbúa meðlætið upp úr klukkan ellefu og hann grilla. Vorum búin að borða um tólf leytið. Fljótlega eftir hádegisfréttir stefndum við að því að skreppa í bíltúr. Pabbi hafði bakkað bílnum inn í skúr þegar hann kom heim úr bankanum og auka ferðinni úr búðinni á föstudaginn. Þegar hann ætlaði að setja bílinn í gang í gær reyndist hann vera rafmagnslaus. Pabbi á hleðslutæki og það tók um klukkutíma að hlaða bílinn nóg til að koma honum í gang og keyra af stað. Þannig að klukkan var byrjuð að ganga þrjú þegar við lögðum í hann. Fórum upp Næfurholtsveg, Gunnarsholts megin og prófuðum "nýja" veginn frá Heiði að Svínhaga. Héldum áfram upp Rangárvelli, framhjá Næfurholti yfir Rangá og niður Landveg að Landvegamótum þar sem við beygðum inn á þjóðveg 1 og kláruðum hringinn. Bíltúrinn tók okkur uþb einn og hálfan tíma. Restin af deginum fór í allskonar og ekki neitt þannig séð.
26.10.24
Laugardagur
Varð vör við það þegar pabbi fór af stað í sundið í gærmorgun. Augun voru límd aftur en fljótlega fór blaðran að ýta við mér. Klukkan var samt farin að ganga átta þegar ég fór á fætur. Pabbi kom heim um hálfníu leytið. Þá var ég búin að sitja góða stund fyrir framan tölvuskjáinn. Færði mig inn í eldhús, fékk mér eitt egg og vítamín og lagði nokkra kapla áður en ég færði mig inn í stofu og greip í prjónana. Um tíu útbjó ég mér blóðbergste. Pabbi bauð mér aftur á Kanslarann í hádeginu. Hægt var að velja um plokkfisk, kjötpottrétt, pizzur og sveppasúpu. Fékk mér súpu í forrétt en aðallega plokkfisk og smá smakk af pottréttinum. Pabbi lenti aftur í vandræðum með annað kortið sitt en hitt virkaði. Komum við í búðinni á leiðinni til baka og það var sama vandamál með annað kortið. Þannig að um eitt leytið skrapp pabbi í bankann til að fá aðstoð varðandi "óþæga" kortið. Á meðan ætlaði ég að athuga hvort ég gæti fært myndir af pabba úr símanum yfir í tölvuna hans. Var ekki með rétta snúru og tölvan slökkti á sér og ég gat ekki fengið hana í gang aftur, hélt að ég væri nú búin að eyðileggja hana. Pabbi hringdi og spurði hvort eitthvað vantaði meira úr búðinni, hann þyrfti að nota kortið til að virkja það aftur. Ég sagði honum frá tölvumálunum og bað hann um að kaupa gulrætur og epli. Hringdi í mág minn og spurði út í tölvumálin. Hann kom með góðar leiðbeiningar en meðan við vorum að spjalla var sennilega reynt að hringja dyrabjöllunni því það var líka reynt að opna og fljótlega bankað á hinar útidyrnar. Kvaddi Ingva og opnaði fyrir Ara frænda mínum sem var að koma með sendingu og í heimsókn til pabba og sagði að Oddur bróðir sinn væri líka á leiðinni. Pabbi kom úr bankanum og búðinni fljótlega og Oddur kom með honum inn. Ég var búin að setja á könnuna. Ég taldi mig aldeilis heppna að vera í vetrarfríi og hitta á þessa tvo frændur mína, systursyni pabba. Annar þeirra var að spá í að fara í bíltúr með pabba en þar sem veðrið var ekki að spila með ákváðu þeir að sá bíltúr yrði þegar væri um betri fjallasýn að ræða. Ég gerði ekki mikið meira af mér í gær nema prjóna og horfa á eitthvað í imbanum, vafra stöku sinnum á netinu og leggja kapla.
25.10.24
Um ævintýri gærdagsins
Rumskaði aðeins um það leyti sem pabbi fór af stað í sitt morgunsund korter yfir sex í gærmorgun. Steinsofnaði aftur en glaðvaknaði svo tæpum tveimur tímum síðar. Var því komin á fætur og búin að kveikja á tölvunni hans pabba áður en hann kom heim úr sundi. Morguninn leið hratt og um hálftólf bauð pabbi mér með sér á Kanslarann. Eftir að við komum heim aftur hafði pabbi orð á því að hann vildi leggja af stað í bæinn í fyrra fallinu til að reka amk eitt eða tvö erindi áður en aðal dagskráin byrjaði. Þurftum samt ekkert að vera að huga að bæjarferð alveg strax. Líkt og um morguninn var ég ýmist að prjóna, vafra á netinu eða leggja kapla. Um þrjú leytið skiptum við pabbi yfir í spariföt og um hálffjögur lögðum við af stað í bæinn. Vorum komin á bílaþvottastöðina við Krókháls rúmum klukkutíma síðar. Næst lá leiðin í Dressman í Kringlunni þar sem pabbi keypti sér einar buxur og eina skyrtu. Pinnið á kortinu hans var hins vegar að stríða honum eða hvort hann hitti ekki á takkana á posanum svo ég bauðst til að greiða fyrir vörurnar. Hann þáði það eftir þriðju misheppnuðu tilraunina. Svo bað hann mig um að keyra okkur í Garðabæinn til frænku minnar sem var búin að bjóða okkur í innlit og var það fyrsta heimsókn pabba til hennar eftir að hún flutti úr Bæjargilinu yfir í Fögruhæð fyrir um sex árum síðan. Hún var nýkomin heim úr vinnu en var samt búin að leggja á borð fyrir fjóra og var að hita upp kjúklingasúpu og skera niður brauð. Maðurinn hennar kom fljótlega úr sinni vinnu og við pabbi stoppuðum þarna í eitthvað á annan tíma. Þegar við kvöddum bað pabbi mig aftur um að setjast undir stýri. Fengum sérmerkt stæði í kjallaranum Borgarleikhúsmeginn í Kringlunni. Gátum notað lyftuna við bókasafnið (ekki þó eftir sýningu því þá var búið að loka Kringlunni). Vorum mætt mjög tímanlega eða tuttugu mínútum fyrir. Fann sæti fyrir pabbi við hliðina á konu sem reyndist líka vera að fara á Ellý. Hún var ein á ferð, búsett á Akureyri, og hafði loksins getað nýtt sér ferðina suður til að sjá þetta verk. Var ekki búin að fara áður. Sætin okkar pabba voru no 1 og 2 í 18 og öftustu röð. Þótt margir væru á sýningunni voru nokkur laus sæti í okkar röð og röðinni fyrir framan. Held að pabbi hafi skemmt sér ágætlega. Honum fannst samt aðeins of mikill "vitleysisgangur" fyrir hlé. Ég er nú samt nokkuð viss um að þessi ár sem þá var fjallað um hafi verið frekar skrautleg og ekkert gert of mikið úr þeim þætti. Klukkan var langt gengin í ellefu þegar sýningu lauk og ég fékk að keyra okkur alla leið austur aftur. Vorum komin á Hellu rétt upp úr miðnætti.
24.10.24
Komin austur aftur
Vaknaði stuttu fyrir klukkan sjö í gærmorgun. Fór strax á fætur og sinnti morgunverkunum. Upp úr klukkan tíu fékk ég mér chia graut með bláberjum og kasew hnetum. Rétt fyrir ellefu tók ég svo til sjósundsdótið og brunaði í Nauthólsvíkina. Það var háflóð, sjórinn innan við 5°C, lítil ferð á logninu og ekki komið svo mikið af fólki. Þó voru einhverjir þegar komnir út í og þegar ég var búin að skipta yfir í sundbol, sundhettu, skó og hanska og var á leiðinni út í mætti ég Guðna Th. Jóhannessyni. Hann virðist viðhalda þeirri venju að fara í sjóinn í hádeginu á miðvikudögum. Ég svamlaði um í uþb tuttugu mínútur, fór beint í gufu í rúmar tíu og þaðan ca mínútu í lónið. Sat svo í heita pottinum í nokkrar mínútur áður en ég fór upp úr. Kom við á AO við Öskjuhlíð og fyllti á tankinn, það var pláss fyrir 18 lítra. Fljótlega eftir að ég kom heim fór ég að huga að því að pakka niður. Klukkan var samt að verða tvö þegar Oddur hjálpaði mér með töskuna út í bíl. Strákarnir voru báðir heima við en Davíð Steinn hafði skroppið í búðina. Hann var að skila sér til baka stuttu áður en Oddur kom með töskuna út í bíl svo ég gat kvatt þá báða. Brunaði beint austur á Hellu. Það var gestur hjá pabba, Árni Sigurjónsson smiður á eftirlaunum. Hann hafði skellt sér í hjólatúr og heimsótti pabba í leiðinni. Var að drekka kaffi, gæða sér á pönnsum og spjalla um landsins gagn og nauðsynjar eins og sagt er. Eftir að hann var farinn fórum við feðgin í smá kapla keppni áður en ég settist smá stund við tölvuna hans pabba. Sat ekki lengi við heldur færði mig fljótlega inn í stofu og fitjaði upp á bleikri tusku og prjóna eftir munstir sem heitir klifurgrind, erfiðasta mynstrið úr fyrstu tuskubókinni minni. Hef aðeins prjónað það einu sinni áður.
23.10.24
Færsla no 4100
Þessa dagana er ég ekkert að stilla á mig vekjaraklukku enda í orlofi. Sum kvöldin er ég einnig að fara heldur seinna upp í heldur en oftast. Í gærmorgun var ég samt vöknuð og tilbúin í daginn um hálfsjö leytið. Hitti því aðeins á N1 soninn áður en hann lagði af stað á vinnuvakt. Klukkan tíu átti ég bókaðan tíma í dekkjaskipti hjá N1 í Fellsmúla. Var mætt um tíu mínútum fyrr. Það var mikið að gera og þeir voru með fjóra skúra í gangi. 918 stóð á skiltinu en ég var svo no 923. Klukkan var að verða hálfellefu þegar mitt númer var loksins sett á skiltið. Umfelgunin tók svo ekki mikið meira en tíu mínútur. Sumardekkin fóru á hótelið og með því að nýta N1 afslátt N1 sonarins kostaði þetta mig rúmlega átjánþúsund krónur. Hefur heldur hækkað. Um ellefu var ég komin vestur í bæ til norsku esperanto vinkonu minnar. Næstum mánuður síðan við hittumst síðast og við smá ryðgaðar í lestrinu. Lásum engu að síður þrjár blaðsíður og það var ágætt að hafa íslensku útgáfuna til hliðsjónar þrátt fyrir að hún sé um sjötíu ára gömul og textinn sumstaðar gamaldags eftir því. Kom heim um hálfeitt. Klukkutíma síðar skrapp ég út í 3,5km göngutúr. Var ekkert að ganga mjög hratt en stoppaði aðeins tvisvar sinnum, ekkert lengi. Kom heim rúmum fimmtíu mínútum síðar. Um hálffjögur lagði ég af stað í sund. Fór beint á braut 7, tólf mínútum fyrir fjögur og var að klára 200m þegar kaldapotts vinkonan mætti. Ég kláraði 300m í viðbót og þurfti aðeins að bíða í um fjórar mínútur uns vinkonan var búin með sína 500m. Heitasti potturinn var lokaður en við fórum fjórar ferðir í þann kalda, tvær í sjópottinn og eina góða gufuferð. Í einni kaldapotts ferðinni köstuðu strákar úr níunda bekk kveðju á Hrafnhildi en hún var að kenna sumum þeirra þegar þeir voru í 1. bekk og mundu þeir eftir henni, líka sá sem ekki var í hennar bekk. Hún hefur verið og er greinilega góður kennari. Allar sturtur voru ískaldar þegar ég var á leiðinni upp úr. Það kom ekki að sök því ég var eiginlega að koma beint úr kalda pottinum og fannst lítið mál að skella mér aðeins undir ískalda bunu og skola af mér og sundbolnum. Tók skyndiákvörðun að koma við á Preppbarnum við Suðurlandsbraut. Vissi ekki af því að það væri tilboð á þriðjudögum en ég verslaði mér minni gerðina af Argentínu boxi og tók með mér heim. Hitti annars eina af sumarstúlkunum á staðnum. Það var verið að afgreiða hana en við náðum samt að spjalla smávegis.
22.10.24
Nagladekkin undir á eftir
Rumskaði um það leyti sem N1 sonurinn var að fara af stað á vinnuvakt í gærmorgun. Hitti því ekkert á hann. Morgunrútínan var með svipuðu móti og oftast nema núna var ég ekki að drífa mig eitt eða neitt. Rúmlega hálftíu skrapp ég út í 3,5km göngutúr með einu örstuttu stoppi. Gönguferðin tók um þrjú korter en ég þurfti samt ekki að draga á eftir mér hægri fótinn upp tröppurnar þegar ég kom heim. Annars var ég að prjóna, lesa, fylgjast með náttúruhlaupinu og horfa á þætti. Var mætt í osteostrong tíma á hárréttum tíma en þurfti aldrei þessu vant að bíða í smá stund því það voru þrír á undan mér. Biðin var samt alls ekki löng og ég var komin í sund rétt fyrir fimm. Var búin að fara eina ferð í kalda pottinn og var í sjópottinum þegar kalda potts vinkonan mætti úr Laugum. Fórum saman fjórar ferðir í kalda, góða gufu, smá stund í heitasta og pott númer tvö og svo aftur í sjópottinn. Syntum ekki neitt, það verður gert í dag.
21.10.24
Heima í augnablikinu
Í dag er þriðji virki orlofsdagurinn af átta og osteostrong dagur. Í gærmorgun var ég komin á fætur stuttu fyrir klukkan átta. Veit að pabbi var búinn að koma fram miklu fyrr en um helgar fer hann oftast aftur inn í rúm og dormar í mislangan tíma. Ég var að klára að taka úr uppþvottavélinni þegar hann kom fram upp úr klukkan tíu. Við fórum í smá kaplakeppni en svo settist hann við tölvuna, sem ég var búin að kveikja á, og ég smá stund inn í stofu með prjónana. Um ellefu leytið setti ég upp folaldakjöt. Tuttugu mínútum eftir að suðan kom upp bætti ég kartöflum og gulrótum út í pottinn. Borðuðum um tólf leytið. Horfði á fyrri hálfleikinn í fyrri leik dagsins í enska. Svo tók ég mig saman og fór að huga að heimferð. Skildi 1,5kg lóðin eftir. Hér heima get ég notað 1kg og 2kg lóðin. Kom við í Fossheiðinni á leiðinni í bæinn. Oftast kem ég við á hinni leiðinni svo ég hafði á orði þegar ég kvaddi eftir gott spjall og einn tebolla að ég vonaðist til að ruglast ekki í ríminu og halda aftur austur á bóginn. Ég beygði í rétta átt og fór Þrengslin. Var komin heim um það leyti sem seinni hálfleikur í seinni leik dagsins hófst; Liverpool - Chelsea 2:1.
20.10.24
Sunnudagur
Fór á fætur á níunda tímanum í gærmorgun. Morguninn var mjög rólegur, festist aðeins of lengi fyrir framan tölvuskjáinn. Um hálfellefu settist ég við eldhúsborðið og lagði nokkra kapla. Pabbi settist á móti mér og við fórum í smá keppni, ekkert harkalega samt. Fengum okkur snarl í hádeginu. Rétt fyrir klukkan eitt skrapp ég í smá göngutúr og fór leið sem er langt síðan ég hef farið. Göngustígnum upp í hæð hefur aðeins verið breytt vegna framkvæmda. Í Heiðvanginum hitti ég konu sem er tveimur árum eldri en ég. Hún var að passa hund og tvö börn á leikskólaaldri. Amk annað barnið var barnabarnið hennar. Þau voru á leiðinni í heimsókn til foreldra hennar og því að hluta til á sömu leið og ég svo við urðum samferða. Forritið í símanum skráði sjálfkrafa á mig tæplega km göngu og um þrettánhundruð skref. En ég var komin yfir þrjúþúsund skref þegar ég kom úr göngutúrnum. Hafði stoppað nokkrum sinnum, snappað og tekið myndir. Um sex leytið komu Jóna Mæja og Reynir. Pabbi var búinn að hella upp á könnuna og setti svo upp saltfisk, rófur og kartöflur allt í einn pott. Borðuðum eftir kvöldfréttir í sjónvarpinu. Um hálftíu leytið færðum við okkur aftur inn í stofu, spjölluðum meira og horfðum líka á tvo þætti af fjórum um Inndjúpið. Voru fyrst sýndir fyrir tíu árum og eru í spilara ruv. Klukkan var byrjuð að ganga tólf þegar gestirnir kvöddu. Við pabbi lögðum tvo til þrjá kapla áður en við fórum í háttinn. Þrátt fyrir að fara inn í rúm um miðnætti greip ég aðeins í bók.
19.10.24
Öðruvísi rútína í gær
Klukkan var rétt að byrja að ganga átta þegar ég vaknaði í gærmorgun. Eftir morgunverkin í eldhúsinu og á baðherberginu tók ég þá ákvörðun að drífa mig bara í sund. Var komin í kalda pottinn rétt rúmlega átta. Svo fór ég á brautir 8, 7 og endaði á braut sex. Synti mest á bakinu en smá skriðsund inn á milli. Var um 35 mínútur að synda 700metra. Þá fór ég aftur í þann kalda og svo beint í gufu. Eftir tæpar tuttugu mínútur í gufunni var ég á leiðinni í sjópottinn þegar ég sá yngstu mágkonu mömmu í nuddpottinum. Fór því ekkert í sjópottinn en átti gott spjall í nuddpottinum. Eftir þriðju og síðustu ferðina í þann kalda fór ég upp úr og þvoði mér um hárið. Ákvað að koma við í Fiskbúð Fúsa og kaupa mér ýsu í hádegissoðið. Hann var hissa á því hversu snemma ég var á ferðinni. Oddur hringdi í mig skömmu síðar en hann hafði verið í viðtali í Vinnumálastofnun. Þar sem ég var á ferðinni renndi ég við eftir honum. Soðningin í hádeginu var mjög góð. Kveikti loksins á fartölvunni eftir matinn en upp úr klukkan eitt fór ég að huga að því að pakka niður. Kvaddi strákana stuttu fyrir tvö. Fyrst lá leiðin í kaffihúsið á Sléttuvegi 25. Þar hitti ég sex af fyrrum kórfélögum mínum. Ætlaði bara rétt að stoppa smá stund og kasta á þau kveðju. Var sú eina í hópnum sem ekki fékk mér neitt en klukkan var að verða þrjú þegar ég kvaddi og lagði af stað austur. Kom þangað um hálffimm leytið. Pabbi hafði átt mjög góðan dag. Þegar hann var búinn með sundrútínuna var búið að setja fram tvær rjómatertur og allar sundlauga vaktirnar mættar. Um svipað leyti voru krakkar og kennari þeirrar að koma í sund og allur hópurinn söng afmælissönginn fyrir pabba. Pabbi fór svo aðeins heim og ég veit að hann fékk einhver símtöl. Rétt fyrir hálftólf sóttu tveir af sundfélögum hans hann. Fyrsta stopp var í Kanslaranum þar sem pabba bauð þeim að borða með sér. Svo fóru þeir þrír í góðan bíltúr upp hjá Koti og um Rangárvelli. Og að hluta til á einhvern slóða sem er ekki mjög fjölfarinn. Held að pabbi hafi bara verið mjög sáttur með daginn en hann var hissa á því hversu margir heilsuðu upp á hann í búðinni, Kanslaranum og mig því ég var að fá eitthvað af hamingjuóskum og kveðjum til hans á vegginn minn sem og fb-spjallið.
18.10.24
Pabbi níræður í dag
Í gær var fyrsti virki dagur af átta í smá vetrarfríi hjá mér. Átti inni þrettán daga og fannst þetta alveg grá upplagt. Engu að síður var ég vöknuð upp úr klukka sex. Eftir nokkuð venjubundna morgunrútínu lagði ég af stað í sund um svipað leyti og ég legg af stað til vinnu, kannski örlítið seinna. Korter fyrir átta fór ég beint á braut 6 og synti 700metra þar af 150 skriðsund. Klukkan var að verða níu þegar ég lagði af stað frá Laugardalslaug. Fór í Kópavog til að fá viðtal við trúnaðarlækni til að fá hana til að skoða niðurstöður úr beinþéttnimælingunni sem ég fór í fyrir nokkru. Það var bara einn á undan mér en ég þurfti samt að bíða í tæpan klukkutíma áður en ég komst að. Staðan á mér er bara nokkuð þokkaleg. Tölvuskjárinn datt út áður en læknirinn gat opnað athugsemdir um hvort mælt væri með einhverjum lyfjum og ætlaði hún að hringja í mig ef það væri. Hún sagði mér samt að það væri ekki nóg að taka lýsi upp á D vítamínbúskapinn og það væri heldur ekki nóg að vera duglegur að stunda sundið. Ég held samt að osteostrong, gönguferðir og lóðalyftingar séu alveg að gera sitt fyrir mig. Verð bara ánægð ef ég slepp við að þurfa að taka inn önnur lyf en venjulegt vítamín sem allra allra lengst. Eftir viðtalið við lækninn kom ég aðeins við í Heilsuhúsinu í Kringlunni til að kaupa mér vítamín og fá mér bleikan bústdrykk í leiðinni. Um miðjan dag kom einn frændi minn og kona hans í kaffi til mín. Aðal erindið var að afhenda mér sendingu frá þeim og tveimur systrum hans og mökum til pabba. Rúmlega fimm labbaði ég að heiman og að pílustaðnum við Snorrabraut. Þar hitti ég ágætan hóp af vinnufélögum. Vorum alls 31 því okkur var skipt í níu þriggja manna lið og eitt fjögurra manna og var farið í tíu umferðir í alls konar píluleikjum. Á eftir var boðið upp á hlaðborð af pizzum og kjúklingabitum. Ég ákvað að sleppa því að borða, gaf drykkjarmiðana tvo og var bara í vatninu. Fór þó ekki eftir píluleikina heldur settist niður og spjallaði. Var svo ljómandi heppin að fá far heim. Hefði alveg getað labbað en það var farið að skyggja svo mér fannst betra að þyggja farið.
17.10.24
Þokuloft í gær
Það var hálf draugalegt að keyra í vinnuna í gærmorgun. Ég var samt mætt á svipuðum tíma og oftast. Það var framleiðsludagur í gær. Vélin byrjaði með smá mótþróaþrjóskuröskun og þurfti að taka hana alveg niður og endurræsa áður en hún hrökk í gang. Kláruðum og gengum frá um hálfellefu leytið og þegar ég var búin að ganga frá bókhaldsvinnunni dembdi ég mér í innleggin. Öllum verkefnum á mínu færi var lokið áður en klukkan varð hálfþrjú. Tók til á skrifborðinu og stillti vinnupóstinn á "out of office" til og með 28. okt. nk. Einn frændi minn hringdi í mig þegar ég var á leiðinni í Nauthólsvík og við urðum ásátt um að hann kíkti við hjá mér eftir hádegið í dag til að koma á mig sendingu til pabba frá honum systkynum hans og mökum. Sjórinn var 4,9°C, veðrið stillt og gott þótt það væri smá þokuloft og ég var sennilega að busla í sjónum hátt í tuttugu mínútur. Var svo annað eins í gufunni, skrapp svo örstutt í lónið og endaði í heita pottinum í rúmar tíu mínútur áður en ég fór upp úr og heim.
16.10.24
Hittingur
Klukkan var ekki nema rétt byrjuð að ganga sex í gærmorgun þegar ég rumskaði. Fljótlega var ég glaðvöknuð en ég fór þó ekki á fætur fyrr en rúmum hálftíma síðar. Hafði mjög góðan tíma í alla morgun rútínu. Vinnudagurinn hófst upp úr klukkan hálfátta hjá mér. Nóg var að gera en við vorum samt búin að klára öll verkefni um þrjú. Stimplaði mig út nákvæmlega átta tímum eftir að ég stimplaði mig inn. Hringdi í eina frænku mína og einnig pabba áður en ég fór í sund. Tólf mínútum fyrir fjögur fór ég á braut 6 og synti 700m á 35 mínútum. 100m af þessum 700 synti ég skriðsund. Kalda potts vinkona mín kom þegar ég var búin með 450m og hún náði að synda 300m áður en við fórum á potta rúntinn og í gufuna. Var komin heim um sex leytið. Um hálfátta var ég komin vestur í bæ til fyrrum kortadeildar vinnufélaga, rétt á eftir einni sem enn vinnur með mér. Stuttu á eftir mér kom fyrrum yfirmaður þessarar deildar og svo síðast tvær í viðbót sem voru hluti af genginu sem vann lengst saman. Þetta var mjög skemmtilegur hittingur og kvöldið leið alltof hratt og teygðist þó úr því þar til klukkan var langt gengin í ellefu.
15.10.24
Smá hlýindi í kortunum
Var mætt í vinnu um hálfátta. Það var amk 4°C frost úti og kalt í vinnusalnum. Sá kuldi lagaðist ekki fyrr en fór að líða á daginn. Mér skilst samt að það hafi verið kaldara niðri. Kláraði að vinna minn fyrsta innlagnarskammt upp úr klukkan níu. Var komin inn á kaffistofu rétt fyrir hálftíu og þar var ég uns komið var að mér í starfsmannasamtali við yfirmanninn. Átti tíma kl 10:20 en sú sem var klukkan tíu var búin aðeins fyrr. Samtalið gekk vel. Ég missti af samtalinu í vor þar sem ég var í veikindaleyfi en það kom ekki að sök. Varð kannski helst til þess að ég nýtti minn tíma mjög vel í gott spjall við yfirmanninn. Vinnudagurinn var búinn um þrjú leytið. Var mætt í osteostrong rúmum hálftíma fyrir skipulagðan tíma og komst að tíu mínútum síðar. Eftir tímann og hvíldina fór ég beint í sund. Var búin að synda 300m, fara tvisvar í þann kalda og í 15mínútur í sjópottinn þegar kalda potts vinkonan mætti á svæðið. Fór með henni tvisvar í kalda pottinn, einu sinni í heitasta og svo í góða gufu áður en ég fór upp úr. Kom við í Hagkaup í Skeifunni áður en ég fór heim. Það er frekar sjaldan sem ég skrepp í Hagkaup en þar fást vörur sem eru líka fáanlegar í heilsuhúsinu.
14.10.24
Þrír vinnudagar framundan hjá mér
Fór á fætur upp úr klukkan sjö. Tók m.a. til sunddótið en eitthvað varð til þess að ég gerði ekkert meira í þeim málum. Morguninn leið samt frekar hratt. Bjó mér til hafragraut í hádeginu og um hálftvöleitið rölti ég með tvo poka af textíl í gáminn í vesturenda Eskihlíðar. Hélt svo göngunni áfram. Tók snöpp stöku sinnum og settist niður stöku sinnum. Faðmaði tré, sá fugla og kanínu (bara ein kanínu) og naut alls þessa í botn. Úr varð ca 7km göngutúr um Hlíðar, Öskjuhlíð og Fossvogskirkjugarð. Heildar skrefafjöldi gærdagsins var tæplega tólfþúsund skref. Þegar ég kom úr göngunni útbjó ég mér heitan súkkulaðidrykk úr 100% súkkulaði og soðnu vatni.
13.10.24
Heima
Sjálfsagt hefði ég alveg komist klakklaust út út bænum á sumardekkjunum en ég ákvað engu að síður að fara ekki lengra heldur en í Laugardalslaugina í gærmorgun. Var komin þangað rétt fyrir níu og það voru allir að vara mig við að pottarnir væru í kaldara lagi. Ég fór beinustu leið í þann kalda sem var mjög hressandi. Svo fór ég á braut 6 og synti 500m, flesta á bakinu, áður en ég fór aftur í þann kalda. Það virtist lokað fyrir tvo hringpotta og sjópottinn en ég fór smá stund í nuddpottinn áður en ég fór aftur í kalda. Eftir þá ferð settist ég inn í gufu sem var svona í máttlausara lagi. Sat þar engu að síður í uþb tuttugu míntútur áður en ég fór upp úr og þvoði mér um hárið. Annars var ég bara heimavið í gær. Nýtti tímann kannski ekkert ofboðslega vel en hann leið engu að síður frekar hratt. Hugurinn var hjá Selsundsfjölskyldunni en Sverrir Haraldsson fékk hvíldina fyrr í mánuðinum og var borinn til grafar í gær. Hann varð 97 ára um miðjan maí sl. og mér skilst að hann hafi enn verið stálminnugur og andlega hress.
12.10.24
Jafntefli
Vaknaði stuttu áður en vekjarinn átti að ýta við mér. Skipti morgunrútínunni ójafnt niður og bitnaði það á úlnliðsæfingunum. Eins og oftast tók ég prjónadótið með í vinnuna og notaði fyrstu tíu mínúturnar á vinnustaðnum í að prjóna nokkrar umferðir til að liðka mig. Það var framleiðsludagur og ég var komin niður fyrir klukkan átta til að hlaða inn nýjustu skrám og uppfæra skiptiblöðin. Gátum ekki lokið daglegri framleiðslu í fyrstu atrennu þar sem okkur vantaði fleiri form. Fengum smá sendingu í hádeginu og vorum þá alls ekki lengi að klára og ganga frá niðri. Uppi hafði líka þurft að hinkra aðeins eftir verkefnum en flest allt var búið fyrir klukkan hálfþrjú. Fór beinustu leið í Nauthólsvík í 5°C sjóinn í ca tuttugu mínútur, var aðrar tuttugu mínútur í gufu en aðeins tíu mínútur í pottinum. Var komin heim upp úr klukkan hálffimm. Vafraði aðeins á netinu. Fékk mér skyr um hálfsex, horfði á einn þátt og svo á opna dagskrá á stöðtvö sport á landsleikinn. Skrapp í stutta göngu í leikhléi og náði skrefamarkmiðum dagsins. Seinni hálfleikurinn var nýbyrjaður þegar ég kveikti aftur á sjónvarpinu. Sá hálfleikur var mun betri en sá fyrri sem var samt alls ekkert svo slakur þrátt fyrir að fá á okkur tvö mörk. Mér fannst bara synd að strákarnir okkar skyldu ekki ná að pota inn þriðja markinu sínu og vinna leikinn. Strax að leik loknum horfði ég á vikuna og svo einn þátt áður en ég fór upp í rúm að lesa um hálfellefu leytið.
11.10.24
Vinningur á miða í SÍBS
Var komin á fætur um sex. Morgunverkin voru svipuð og oftast. Þegar ég lagði af stað í vinnunna var byrjað að snjóa. Það hafði þó engin áhrif á aksturinn. En ég varð mjög vör við það að flestir í umferðinni keyrðu mun varlegar. Ég er búin að bóka dekkjaskipti en fékk ekki tíma fyrr en eftir 21. okt n.k. Vinnudagurinn gekk ágætlega fyrir sig. Um tvö leytið var hringt í mig frá SÍBS til að tilkynna mér um vinning og fá hjá mér reikningsupplýsingar vegna innlagnar. Dregið var 8. okt. Fékk síðast vinning á þennan miða í júní fyrir tíu árum en ég er búin að eiga þennan miða í 38 ár eða svo. Hitti kalda potts vinkonu mína í sundi um þrjú leytið. Hún var búin að synda 200 en synti 300 í viðbót og beið svo eftir mér á meðan ég kláraði 300. Fórum þrisvar í kalda, góða gufu en eftir smá stund í sjópottinum var mér orðið mikið mál að pissa. Þar að auki var ég búin að lofa mér heim um hálffimm til að taka á móti lesgleraugunum sem urðu eftir í saumaklúbbnum á miðvikudagskvöldið.
10.10.24
Saumaklúbbur eftir óvenju langt hlé
Í morgunkaffinu um hálftíu og í rúman klukkutíma í vinnunni í gærmorgun fengum við áhugaverðan fyrirlestur um lífeyrismál. Annars fór mest allur vinnudagurinn í framleiðslumál. Kláruðum nýjustu endurnýjunina, vel yfir fjögurþúsund kort í heildina. Framleiddum rúmlega tólfhundruð af þeim í gær. Eftir vinnu fór ég beinustu leið í Nauthólsvík. Talaði við pabba á meðan ég var á leiðinni þangað. Klukkan var rétt byrjuð að ganga fimm þegar ég óð út í 5,8°C sjóinn. Ætlaði bara að vera stutt en var líklega tæpar tuttugu mínútur og svo svipaðan tíma bæði í gufu og pottinum á eftir. Kom heim um hálfsex. Um hálfátta sótti ég Lilju og við vorum komnar nokkrum mínútum á undan áætlun til Sonju sem hafði boðað okkur í saumaklúbb. Það eru líklega uþb tvö ár síðan síðast var haldinn saumaklúbbur og nú á að endurvekja stemminguna. Kvöldið var að sjálfsögðu mjög skemmtilegt, ljúft, notalegt og alltof fljótt að líða. Kvöddum og þökkuðum fyrir okkur um tíu. Eftir að hafa skilað Lilju heim tók ég einn hring í götunni minni en fann ekkert stæði. Lagði bílnum því í Blönduhlíðinni. Uppgötvaði svo þegar ég kom inn heima að lesgleraugun voru ekki á sínum stað, í pungnum hjá símanum. Hvernig sem það gerðist þá urðu þau eftir hjá Sonju.
9.10.24
Engar holur
Vaknaði um sex. Var mætt í vinnu rétt fyrir hálfátta. Nóg var að gera en ég þurfti svo að fá að stinga af stuttu fyrir þrjú til að mæta í árlegt eftirlit hjá tannsa. Af tönnum er allt gott að frétta, líka þeim tönnum sem tanni vildi fara að "uppfæra" fyrir ári. Önnur af þeim tönnum er barnajaxinn minn sem nú er örugglega orðinn fimmtugur en stendur enn fyrir sínu þótt hann sé minni en fullorðinstennurnar og öðruvísi á litinn. Mér skilst að tryggingastofnun borgi 95% til baka af því sem þarf að gera en ég held að ég myndi sjá eftir jaxlinum. Ætla amk aðeins að hugsa þetta betur. Bókaði næsta eftirlit eftir ár og fór svo beint í sund. Var búin að synda 300m þegar kaldapotts vinkona mín mætti á svæðið. Hún náði að synda 400m á meðan ég synti aðra 300m. Fórum tvær ferðir saman í þann kalda, eina í gufu en eftir nokkrar mínútur í sjópotinum kvaddi hún því hún var að mæta annað um hálfsex. Ég fór eina ferð í viðbót í þann kalda áður en ég fór upp úr og heim.
8.10.24
Osteostrong í gær
Vaknaði um sex í gærmorgun. Hafði nægan tíma í alla morgunrútínu. Þurfti aðeins að ýta við N1 syninum sem líklega slökkti á sínum vekjara og sofnaði aftur. Hann var því að fara af stað í sína vinnu örfáum mínútum á undan mér. Ég fór annars alls fjórum sinnum niður í kortadeild í gær, þrisvar til að hlaða inn gögnum (eitt skipti af þeim þremur voru aukagögnin ekki komin) og einu sinni með tvo kassa af umslögum. Annars var ég í innlögnunum. Það voru bæði frí og veikindi þannig að minn vinnudagur varði í rúma átta tíma. Stakk af rétt fyrir fjögur til að mæta í osteostrong tíma. Að þessu sinni voru engin met slegin en ég var samt við mitt besta. Var komin í sund korter fyrir fimm. Synti reyndar ekkert en fór þrjár ferðir í kalda, eina góða gufuferð og í sjópott og tvo heita potta með kalda potts vinkonu minni sem var þegar búin með tvær ferðir þegar ég mætti. Ég fór upp úr á undan henni og mætti einni systur hennar. Fékk mér hluta af bleikjunni sem var afgangs frá því í hádeginu á sunnudaginn. Fór ekkert út aftur eftir að ég kom heim svo skrefafjöldinn var rétt rúmlega þrjúþúsund, rúmum þúsund undir markmiðinu en ég veit að skrefin voru fleiri því ég geymdi símann í bílnum þegar ég fór í osteostron og inni í skáp þegar ég var í sundi.
7.10.24
Mánudagur
Losaði svefn milli sex og sjö í gærmorgun. Fannst of snemmt að fara alveg strax á fætur og á einhverjum tímapunkti steinsofnaði ég aftur. Vissi næst af mér um hálfníu. Þá fór ég loksins á fætur. Til að byrja með var ég með það í huga að skreppa fljótlega í sund en sú hugmynd hvarf einhvern veginn alveg frá mér. Eldaði mér bleikju í hádeginu og rétt fyrir eitt fór ég loksins út. Ætlaði í smá göngutúr sem varð að uþb 6km hring um Öskjuhlíð með smá tvisti yfir á Klambratún í lokin. Heildar skrefafjöldi gærdagsins fór yfir tíuþúsundogþrjúhundruð skref. Veðrið var dásamlegt og nánast engin ferð á logninu. Stoppaði tvisvar á leiðinni, seinna skiptið á Klambratúninu þannig að stutt var eftir heim. Er orðin mjög meðvituð um að rétta vel úr líkamanum á röltinu og þannig finn ég minnst fyrir hægri mjöðm og hné og með hvíldinni á Klamratúni í gær, þótt stutt væri, sá ég til þess að ég þurfti ekki að draga hægri fótinn upp tröppurnar heima hjá mér. Annars leið gærdagurinn hratt við alls konar og ekki neitt.
6.10.24
Í miklu leti kasti
Vaknaði upp úr klukkan sjö í gærmorgun. Um tíu leytið útbjó ég mér hafragraut og var svo mætt í Nauthólsvík um það leyti sem opnaði klukkan ellefu. Sjórinn var 6,6°C, það var að fjara út en mikil stilla og ég var uþb tuttugu mínútur að svamla í sjónum. Fór út að kaðli og labbaði þaðan beint í gufuna. Fór ekkert í heita pottinn og var komin heim rétt fyrir tólf. Náði seinustu mínútum úr fyrri hálfleik Crystal Palace og Liverpool. Sá leikur fór 0:1 fyrir gestina en markið kom snemma í fyrri hálfleik svo ég sá það ekki. Fljótlega eftir leikinn skrapp ég út í göngu, 4,4km með þremur stuttum stoppum á leiðinni. Heildarskrefafjöldi gærdagsins fór yfir áttaþúsunogþrjúhundruð, þau skref sem forritið í símanum mældi. Forritið gat og getur ekki mælt skrefin sem ég stika þegar ég er ekki með símann á mér í sundi og sjónum. Til þess þyrfti ég að fá mér snallúr en ég er ekki komin þangað ennþá og alls óvíst að ég geri það. Hringdi í pabba í gær. Hann gat ekki svarað mér úr heimasímanum, það virtist bara skellast á. En hann gat svarað gemsanum og við spjölluðum í dágóða stund. Annars var ég að prjóna eða horfa á þætti eða fótbolta, vafra á netinu og dunda við eitt og annað. Tíminn flaug frekar hratt, gerir það alltaf sama hvort ég er að gera eitthvað eða ekki neitt.
5.10.24
Morgunstund
Vinnudagurinn í gær fór að mestu leyti í framleiðslu. Gengum frá kortadeildinni um tvö leytið. Erum byrjaðar á síðustu og stærstu færslunni í nýjustu endurnýjuninni. Rífandi gangur í þessu. Stimplaði mig út eftir nákvæmlega 7klst og 15mín sem er svona föstudagstími. Fór beint í sund og á braut 6. Synti 300m þar og færði mig svo yfir á braut 7 fyrir síðustu 100m áður en ég fór í eina fimm mínútna ferð í kalda pottinn. Settist á bekk í uþb tvær mínútur en dreif mig svo inn að þvo mér um hárið. Átti tíma í klippingu klukkan fjögur og mætti á staðinn nánast á slaginu. Er enn að klippa mig sítt svo endarnir voru snyrtir, fékk svo blástur og greiðslu, keypti mér sjampó og festi næsta tíma í mars eftir hálft ár. Svo fór ég beint heim.
4.10.24
Strax að koma helgi aftur
Í fyrrakvöld var ég sofnuð rétt upp úr klukkan tíu og var svo vakin af vekjaraklukkunni eftir samfelldan átta tíma svefn. Það er ég viss um að sjórinn hafði þessi áhrif. Sinnti morgun rútínunni alveg ágætlega í gærmorgun. Er núna að vinna svolítið með tveggja kílóa lóðin, nokkrar mínútur á hverjum morgni. Er jafnvel farin að spá í að fjárfesta í tveimur næstu þyngdum ef þetta skyldi nú hjálpa mér að vinna í gripinu ásamt fleiru. Var búin í fyrra fallinu í vinnunni, lét kalda potts vinkonuna vita, og var komin í sund rétt fyrir þrjú. Hringdi í pabba og spjallaði við hann á meðan ég var á leiðinni á milli. Fór fyrst í kalda pottinn í fimm mínútur og svo beint á brautir 7-8. Mætti vinkonunni þegar ég var á baka leiðinni í fyrstu ferðinni af fimm. Hún syndir aðeins hraðar en ég og náði að synda sex ferðir á meðan ég kláraði 500 metrana. Svo fórum við nokkrar ferðir í þann kalda og gerðum gott stopp bæði í gufu og sjópotti. Ég kvaddi um fimm leytið og fór beinustu leið heim. Um átta leytið skrapp ég í stuttan göngutúr, fór 1,3km á sléttum 16 mínútum. Annars fór kvöldið í prjón, handboltaáhorf, frágangi á endum og horfði einnig á nýjasta þáttinn um Dimmu.
3.10.24
Sjórinn í gær; Hressandi og dásamlegur!
Megnið af vinnudeginum í gær fór í framleiðslu. Slökktum og gengum frá deildinni um hálfþrjú leytið en þá vorum við aðeins byrjaðar á næstsíðustu en jafnframt næststærstu skránni í þeirri endurnýjun sem við erum að vinna að núna. Allt var að verða búið uppi og við eigum að hafa amk tvær vikur til að klára fyrirliggjandi framleiðslu verkefni. Og við sjáum alveg fram á að það fari langt á föstudaginn og klárist á miðvikudaginn kemur. Annars var ég að telja alla virku miðviku- og föstudagana sem eftir eru á árinu og þeir eru tuttuguogfjórir. Alls ekki víst að við verðum að framleiða alveg til og með 27. des. en það er skrýtið að hugsa til þess að kortaframleiðslan sé á loka metrunum. Var komin í sjóinn tíu mínútum fyrir fjögur. 7,7°C og það var að flæða að. Synti ekki út að kaðli en var út í í næstum tuttugu mínútur. Svo var ég aðrar tuttugu mínútur í gufunni, 2 mínútur í lóninu og uþb tuttugu mínútur í pottinum. Næst lá leiðin í Krónuna við Fiskislóð. Kom heim um sex leytið, fékk stæði fyrir framan hús og komst með alla pinkla inn í einni ferð.
2.10.24
Framleiðsludagur í dag
Það var að venju þriðjudagstörn í vinnunni í gær. Tækluðum samt allt innan átta tímana. Hringdi í pabba og spjallaði við hann á meðan ég var á leiðinni í sund. Var komin í kalda pottinn tæpum tíu mínútum fyrir fjögur og á braut 2 áður en klukkan varð fjögur. Kalda potts vinkonan kom úr skólanum og með nýju sundhettuna skömmu síðar og synti 300m á meðan ég kláraði 500m. Svo fórum við þrjár ferðir saman í kalda, eina langa í gufuna og eins í sjópottinn. Ég var komin heim um hálfsex. Sótti þvott á snúruna, fékk mér kvöldhressinguna og settist svo fyrir framan skjáinn. Það stóð til að skreppa aðeins út aftur en það varð ekkert úr því að þessu sinni.
1.10.24
Fyrsti okóberdagurinn að leggja í hann
Morgunrútína gærdagsins var svipuð og oftast áður. Mætti í vinnu um hálfátta. Tók saman framleiðslutölur. Tölur frá einum stað skiluðu sér ekki fyrr en um hálfníu leytið sem varð til þess að við urðum að biðja tæknimann um að "sópa" skránum yfir á vélina. Sú sem er á hleðsluvaktinni þessa vikuna var búin að fara tvisvar niður og grípa í tómt. Hún bað mig um að fara niður og hlaða inn þegar tæknimaðurinn var búinn að gefa okkur grænt ljós. Annars var ég í innleggjunum. Allt var búið fyrir þrjú. Fannst aðeins of snemmt að athuga hvort ég kæmist svona snemma að í osteostrong. Hringdi í Ellu vinkonu þegar ég lagði af stað frá vinnunni um þrjú leytið. Lagði bílnum fyrst við Hátún 10, fannst eitthvað svo margir bílar við nr 12. Um hálffjögur freistaði ég þess þó að fá stæði þar og það var eitt laust og annað að losna. Það var einn á undan mér í tíma, einn í hvíld og verið að sinna einum til. Ég þurfti samt ekki að bíða nema í fimm mínútur. Bætti mig á tveimur tækjum af fjórum og var við mitt besta á hinum tveimur. Var komin í sund um Hálffimm leytið. Fór eina ferð í þann kalda áður en ég synti 200m. Nú sveið ekki eins í augun nema fyrstu metrana en eftir tvær ferðir virtist vera að færast fjör í leikinn og þrengjast um á brautinni svo ég ákvað að fara aftur í þann kalda. Eftir þá ferð fór ég í sjópottinn í tuttugu mínútur. Var að vonast eftir að kalda potts vinkona mín væri að mæta á svæðið en ég var búin að fara þriðju ferðina í þann kalda og tuttugu mínútur í gufu áður en ég hitti hana. Við náðum þó einni ferð í þann kalda saman áður en ég kvaddi og fór upp úr. Hún átti von á einni systur sinni og svo mæltum við okkur mót aftur seinni partinn í dag.
30.9.24
Síðasti september dagurinn þetta árið
Vaknaði um sjö leytið. Gaf mér góðan tíma í alla rútínu því við kalda potts vinkona mín vorum búnar að mæla okkur mót í kalda pottinum um tíu. Klukkan var reyndar aðeins byrjuð að ganga ellefu þegar ég fór fyrstu ferðina og beinustu leið í þann kalda. Hrafnhildur var mætt og kom úr einum heita pottinum. Náðum fjórum ferðum saman en svo kvaddi hún því hún átti tíma í hot jóga í Laugum. Ég fór þá á braut átta og synti 300m, aldrei þessu vant sveið mig það mikið í augun að ég gafst upp á að synda meira. Synti síðustu 50m skriðsund. Hef ekki notað sundgleraugu í nokkur ár en það hefur hingað til ekki böggað mig mikið, kannski sumar fyrstu ferðirnar en svo jafnar það sig. Eftir þetta 15 mínútna sund fór ég fimmtu ferðina í þann kalda og átti eftir að fara þá sjöttu líka þegar ég var búin að fara í gufu og sjópottinn. Var semsagt um tvo tíma í sundi í gær. Kom heim upp úr klukkan tólf. Rétt fyrir tvö skrapp ég svo aftur út og labbaði 2,6km á rúmum hálftíma. Stillti göngu forritið á mig áður en ég lagði af stað og slökkti á því þegar ég settist smá stund á bekk við Eskihlíð 22. Annars fór dagurinn í handklæða og tuskuþvott (þvottavélin sá um það), fótbolta áhorf, þáttagláp, prjón og lestur. Kláraði eina bók af safninu; ALDREI NEMA KONA söguleg skáldsaga eftir Sveinbjörgu Sveinbjörnsdóttur.
29.9.24
Heima
Ég útbjó mér heitt súkkulaði úr 100% súkkulaði brætt út í möndlumjólk á föstudagskvöldið. Geri þetta stöku sinnum, sérstaklega ef ég hef farið í sjóinn fyrr um daginn. Fór að sofa á ellefta tímanum og steinsvaf til klukkan að verða hálfátta í gærmorgun. Gaf mér tíma í morgunrútínu og fór svo að tékka á Laugardalslauginni einhvern tímann á níunda tímanum. Fór beint á braut 6 og synti 500 metra, flesta á bakinu. Fór aðeins tvisvar í þann kalda sem nú hefur verið stilltur þannig að hann á alltaf að vera milli átta og tíu gráður, sem er alveg í fínu lagi. Gerði æfingar í gufunni og þvoði mér um hárið þegar sund- potta- og gufurútínu var lokið. Fór svo beinustu leið að hitta norsku esperanto vinkonu mína. Kom heim um hálfeitt. Horfði á restina af hádegisleiknum í enska boltanum og var byrjuð að fylgjast með einum af leikjunum sem byrjuðu klukkan tvö þegar ég reif mig upp og skrapp á Café Mílano. Þar er pennavinkona til margra ára með sýningu og hún hafði látið vita á síðunni sinni að hún yrði á staðnum milli tvö og þrjú. Á kaffihúsinu voru líka óvænt tvær aðrar konur sem ég þekki og hitti ég þær aðeins á undan og settist svo um stund hjá þeim þegar ég var búin að heilsa aðeins upp á listakonuna. Reyndar eru þessar tvær konur einnig miklar listakonur. Þetta var óvænt og mjög gaman. Spjallaði meira við þessar þrjár heldur en ég gaf mér tíma til að skoða sýninguna. Get alltaf farið aftur eða farið á Facebook síðuna. Er enn í kaffipásu og lét það alveg vera að panta mér eitthvað af staðnum. Var með soðna ýsu með rósakáli, súrkáli og steinlausum svörtum ólífum í kvöldmatinn, hafði nefnilega komið við í Fiskbúð Fúsa áður en ég fór í sjóinn á föstudaginn.
28.9.24
Aftur komin helgi
Var mætt í vinnu upp úr klukkan hálfátta. Það fyrsta sem ég gerði eftir að ég var búin að stimpla mig inn var að sækja prjónadótið mitt úr skúffu í "kálfi" við skrifborðið mitt og fara með það og vatnsflöskuna mína inn á kaffistofu. Fyllti á flöskuna og fékk mér heitt vatn í bolla. Settist svo niður um stund með vinnufélögum og prjónaði í smá stund til að liðka hægri hendina. Tíu mínútum fyrir átta fór ég niður með vatnsflöskuna og eyrnatólin en gleymdi lesgleraugunum. Sótti þau eftir að ég var búin að kveikja á framleiðsluvélinni. Kláruðum daglega framleiðslu fyrir kaffi og það sem við gátum af þeirri endurnýjun, sem við höfum verið að vinna að síðan í síðustu viku, eftir kaffi. Urðum að skilja eftir smá óframleitt þar sem plast er næstum á þrotum. Í hádeginu kom svo næsti skammtur af endurnýjun, yfir fjögurþúsund stk. Hlóð henni inn en við byrjum ekki framleiðsluna fyrr en í næstu viku. Hjálpuðum frekar til uppi til að allir gætu verið búnir snemma á föstudegi. Var komin í Nauthólsvík um þrjú leytið. Það var flóð og mér skilst að vegalengdin út að kaðli sé þá um 200m. Ég synti og svamlaði smávegis í hina áttina áður en ég sá að það voru fleiri á leið út að kaðli og ég gæti orðið samferða. Kom svo við í lóninu áður en ég fór í gufu. Held að allt í allt hafi ég verið tæpan hálftíma í 7,8°C sjónum. Kom heim um hálffimm.
27.9.24
Haustfagnaður RB í gær
Vakti atvinnulausa soninn um sjö í gær og fékk hann til að skutla mér í vinnuna. Var mætt þangað upp úr klukkan hálfátta. Verkefnunum lauk frekar snemma en við vorum nokkrar sem héldum okkur áfram á svæðinu. Sumir skruppu heim en komu aftur upp úr fjögur. Ég var með prjónana mína meðferðis og ein kom með spilastokk. Við spiluðum ólsen, ólsen og löngu vitleysu. Lögðum líka kapla. Upp úr klukkan hálffimm kom 60 manna rúta með bílstjóra og einum RB-ing og sótti okkur 10 og keyrði okkur að Hörpunni. Þaðan löbbuðum við yfir í nýju höfuðstöðvar Landsbankans og hittum fyrir slatta af RB-ingum. Fengum fyrirlestra um starfsemina og að labba um og skoða svæðið. Hópmynd var tekin af okkur í tröppunum áður en við kvöddum og löbbuðum yfir í Hörpuna, tókum lyftu upp á 5. hæð og löbbuðum upp á sjöttu. Einhverju síðar vorum við beðin um að trítla upp á næstu hæð þar sem leynigestur mætti á svæði, uppistandarinn ungi Jakob, og fór með gamanmál. Einhverjir voru samt farnir á þessum tímapunkti og ekkert löngu eftir uppistandið kvaddi ég og rifjaði upp gönguleiðina heim frá því kortadeildin var staðsett í Seðlabankanum, 2,83km á rúmum hálftíma. Náði skrefamarkmiðum dagsins og vel það.
26.9.24
Á Ljósvíkinga í gær
Var komin á fætur rétt rúmlega sex í gær og mætt í vinnu um hálfátta. Byrjaði á því að fylla á vatnsflöskuna og fá mér sítrónu- og engifer-te. Fór niður í kortadeild korter í átta. Hlóð inn nýjustu skránum og fullvann skiptiblöðin. Petra sá um bókhald, framleiðslublöð og að prenta öll gögn út áður en hún kom niður rétt rúmlega átta. Framleiddum allt daglegt og það átti bara eftir að pakka þegar við fórum upp í kaffi með kortaskammtinn sem fer fyrst úr húsi. Eftir kaffi og þegar búið var að pakka Héldum við áfram með endurnýjunina sem kom til okkar í síðustu viku. Vorum búnar að komast að því að það borgaði sig að bita skrárnar niður. Formin sem við notum eru 10gr of létt og eru gjörn á að flækjast of mikið en það gengur betur ef kortaskammtarnir eru ekki of stórir. Fórum aftur niður í framleiðslu eftir mat en hættum um hálftvö. Vorum nánast búnar en gátum ekki klárað vegna smá hráefnisskorts. Var annars komin í sjóinn um hálffjögur. Gufan var lokuð svo ég var ca korter í sjónum og tvær mínútur í heita pottinum áður en ég fór upp úr og sótti þá sem seldi mér bleiku strigaskóna fyrr í vikunni. Vorum komnar í Kringlunar upp úr klukkan hálffimm og ætluðum að sjá Ljósvíkinga. Það kom í ljós að sýningin kl. 16:40 er í lúxussal og kostar eitthvað á sjötta þúsund fyrir manninn. Að vísu fylgir gos og popp og gotterí með en ég er ekki að nota nema poppið af því. Ég var svo sem alveg til í að fara samt en vinkonunni þótti það of dýrt og við ákváðum að fara frekar í Laugarásbíó. Höfðum tímann fyrir okkur því fyrsta sýning þar var kl korter í sex. Vorum komnar aðeins fyrir opnun en biðum bara í bílnum á bílastæðinu. Það kom í ljós að þar sem vinkonan er orðin eldri borgari fékk hún afslátt á miðanum fékk hann á innan við tvöþúsund. Það var ekki hægt í lúxussalinn í Kringlunni. Myndin var góð en við vorum hissa á að það var gert hlé á henni þar sem við vorum aðeins 14 í salnum. Eftir bíó komum við við á stað sem heitir Preppbarinn og er við Suðurlandsbraut 10. Keyptum okkur litla máltíð sem við tókum með okkur. Ég skutlaði vinkonunni heim en fór ekki inn með henni því klukkan var farin að ganga níu og ég átti m.a. eftir að ganga frá sjósundsdótinu. Borðaði minn matarskammt horfandi á síðasta þáttinn af "Með okkar augum". Fór óvenju seint í háttinn og las til klukkan ellefu.
25.9.24
Framleiðsludagur í dag
Það kom mér verulega á óvart þegar ég hrökk upp við lætin í vekjaranum nítján mínútum yfir sex í gærmorgun. Náði nú samt að sinna morgunrútínunni ágætlega en æfingarnar voru reyndar í styttri kantinum. Mætti í vinnu um hálfátta og byrjaði á því að sækja vatn í flöskuna mína og að fara svo niður í kortadeild að hlaða inn nýjustu skrá og fylla inn tölur á skiptiblöð. Um tuttugu mínútum seinna var ég byrjuð að vinna innlegg. Þrátt fyrir frekar stóran dag í þeim efnum var allt búið á rétt tæpum átta tímum. Hafði fengið skilaboð frá kalda potts vinkonu minni um hádegið að búið væri að opna í Laugardalslaug. Fékk svo önnur um hálfþrjú leytið að sú frétt væri ekki rétt og við mæltum okkur mót í Sundhöllinni um fjögur. Ég var reyndar komin þangað aðeins fyrr og fór beint á braut fjögur í útilauginni og var búin að synda 75m af 450 þegar vinkonan mætti og fór á braut 3. Fórum fjórum sinnum í kalda pottinn, tvisvar í heitasta pottinn sem er 42°C og ca. tíu mínútur í sána. Ég kvaddi eftir síðustu dífuna í þann kalda og var komin heim um hálfsex. Tveimur tímum síðar skrapp ég í smá göngutúr, fór rúmlega 2,2km á rúmum 25 mínútum.
24.9.24
Þriðjudagur framundan
Glaðvaknaði rétt fyrir klukkan sex í gærmorgun. Dreif mig á fætur og sinnti morgunrútínunni. Mætti í vinnu um hálfátta. Byrjaði á því að fara niður í kortadeild að hlaða inn nýjustu skránum en ég var svo byrjuð á innleggjunum tíu mínútum fyrir átta. Vinnudagurinn gekk vel fyrir sig og þegar allt daglegt var búið um eitt var ákveðið að vinna smá af verkefnum þriðjudagsins því þeir dagar eru yfirleitt þeir stærstu í vikunni. Þrátt fyrir "aukabitana" var öllu lokið milli hálfþrjú og þrjú. Mér fannst heldur snemmt að fara í osteostrong strax eftir vinnu. Prófaði að labba hringinn í kringum lengjuna þar sem ég vinn. Það tók um tíu mínútur. Hringdi í pabba til að óska honum til hamingju með daginn sem hann og mamma áttu saman. Ekki tók því að fara heim og það var helst til knappur tími til að fara í sund á undan tímanum, sér í lagi þar sem Laugardalslaugin er enn lokuð. Rúmlega hálffjögur ákvað ég að mæta í Hátún 12. Þar hafði verið allt rólegt nokkru áður en þegar ég kom var ég númer þrjú eða fjögur í röðinni, aftast þar sem minn fasti tími var ekki fyrr en 16:40. Ég þurfti þó ekki að bíða mjög lengi því það voru tvær að leiðbeina og upphitunin, tækjahringurinn og jafnvægisæfingarnar taka í mesta lagi 7-10 mínútur. Komst að fyrir klukkan fjögur og gekk mjög vel, bætti mig á tveimur tækjum af fjórum og var við mitt besta á hinum tveimur. Eftir tímann ákvað ég að fara beint heim þrátt fyrir að vera með sunddótið meðferðis. Fékk mér smá hressingu og sá svo að fyrrum samstarfskona mín hafði haft samband á FB aðallega vegna bleikra strigaskóa. Hún var heima og ég ákvað að skreppa til hennar og máta. Keypti þá svo af henni á 5000 kr. Var komin heim aftur um hálfsjö.
23.9.24
Bíltúr með pabba í gær
Vaknaði útsofin um sjö leytið í gærmorgun. Pabbi hafði farið fram um sex leytið að taka niður hinar ýmsu tölur og fá sér eitthvað. Svo fór hann aftur inn í rúm, steinsofnaði og svaf til klukkan langt gengin í tíu. Hann kom klæddur fram á ellefta tímanum, settist við eldhúsborðið og fór að leggja kapal. Ég var aðallega búin að vafra um á netinu í tölvunni hans en líka búin að leggja nokkra kapla. Pabba leist mjög vel á veðrið úti og spurði hvort ég vildi koma í bíltúr. Ég var meira en til í það og við drifum okkur af stað. Að þessu sinni beygði hann til hægri út úr þorpinu og svo inn á afleggjann upp Landssveit. Nokkru ofan við Snjallsteinshöfða beygðum við niður afleggjara sem ég hafði aldrei farið áður. Hluti af veginum sem við fórum er líklega alls ekki fyrir venjulega fólksbíla en á leiðinni þurftum við að opna tvö hlið og loka á eftir okkur og komum niður að gömlum réttum sem voru byggðar um 1660 og síðast notaðar 1979. Komum upp á malbikaðan veg aftur stutt frá Galtalæk. Beygðum svo niður afleggjara merktan Næfurholt og þann veg höfum við farið oft áður og ein leiðin liggur m.a. framhjá Heiði, hvar pabbi fæddist og ég var með lögheimili þar til tólf ára aldurs. Komum til baka í Hólavanginn um hálf eitt leytið. Hefði nú líklega haft gott af því að fara í smá göngutúr en einhvern veginn leið dagurinn við allt önnur hugðarefni. Um fimm leytið kvaddi ég pabba og brunaði í bæinn.
22.9.24
Alls konar og ýmislegt í gær
Vaknaði ekki fyrr en klukkan rétt að verða átta í gærmorgun, alveg dásamlega útsofin og eftir góða drauma. Gaf mér smá tíma í mínímorgunrútínu en var svo komin í Sundhöllina milli hálfníu og níu. Fór þrjár ferðir í kalda, synti í 25 mínútur á braut 4 í innilauginni og þvoði mér svo um hárið. Fór beinustu leið vestur í bæ til norsku esperanto vinkonu minnar og var komin þangað rúmlega hálfellefu. Við vorum nokkuð duglegar við lesturinn. Stoppaði hjá henni í ca fimm korter áður en ég fór heim til að ganga frá sunddótinu og pakka niður í tösku fyrir austurferð. Annar sonurinn kom fram um svipað leyti og ég kom heim, bankaði á herbergisdyrnar hjá hinum til að kveðja og brunaði svo af stað. Ég var nýkomin upp á Suðurlandsveg þegar ég tók eftir ungri konu sem var að húkka far. Það er mjög sjaldgæft að ég stoppi fyrir puttaferðalöngum en ég stoppaði fyrir þessari manneskju. Hún var á leiðinni á Selfoss og ég sagðist myndu keyra þar í gegn en færi um Þrengsli. Þetta var pólskur skiptinemi við HÍ. Hún ætlaði að hitta vini á Selfossi og ferðast lengra með þeim. Hún settist í aftursætið með dótið sitt. Við spjölluðum á ensku megnið af leiðinni en hún var líka að fylgjast með útsýninu. Hleypti henni út skammt frá Hótel Selfoss. Ég kynnti mig áður og óskaði henni alls góðs. Það kom í ljós að hún heitir líka Anna og verður hér á landi næstum út þetta ár. Var komin á Hellu til pabba um tvö leytið. Hann var að leggja kapla og ég fór í smá keppni við hann. Um þrjú fór ég að fylgjast með seinni hálfleik milli Liverpool og Bornmouth. Leikurinn endaði 3:0 fyrir mínum mönnum en öll mörkin komu í fyrri hálfleik. Klukkan fjögur skipti ég yfir á RÚV og við pabbi fylgdumst með bikarleik í knattspyrnu karla milli Víkinga og KA. Urðum vitni að sögulegum leið þar sem KA tryggði sér fyrsta bikartitilinn í fimmtu tilraun, vann með tveimur mörkum gegn engu. Eftir leikinn setti ég upp matinn, gufusauð saman kartöflur og hálfa sæta kartöflu í bitum og steikt fisk sem pabbi hafði keypt í fiskbúðinni, sennilega löngu flök. Eftir uppvask og fréttir horfðum við pabbi á þrjá þætti af fjórum um fólk í inndjúpinu. Þóra Arnórsdóttir vann þessa þætti í kringum 2010 og sennilega til 2014 en þá voru þeir fyrst sýndir. Fjórði þátturinn er ekki orðinn aðgengilegur ennþá en klukkan var líka að nálgast tíu og ég ákvað að bjóða góða nótt, hátta mig upp í rúm og lesa um stund.
21.9.24
Útsofin
Það var framleiðsludagur í gær. Kláruðum allt daglegt fyrir kaffi og unnum í endurnýjun til klukkan tvö en þá var allt búið uppi svo við ákváðum að ganga frá og hætta líka. Erum búnar með meiripartinn af þessari endurnýjun og eigum alveg að hafa lengri tími til að klára þessa framleiðslu þar sem kort kúnnans renna ekki út fyrr en í lokin á næsta mánuði. Hringdi í pabba áður en ég lagði af stað frá vinnustaðnum og spjallaði við hann langleiðina að Nauthólsvík. Var komin út í sjó um þrjú, í fyrsta skipti í hönskum og sjósundsskóm síðan 5. janúar sl. Það var háfjara og ég hefði getað vaðið út að kaðli, svamlaði um og synti þangað. Var tæpar tuttugu mínútur í sjónum, smá stundi í lóninu, korter í gufunni og góða stund í heita pottinum áður en ég fór upp úr og heim.
20.9.24
Labbað í og úr sund/i í gær
19.9.24
Sjósund og stuttur göngutúr í gær
Í gær var eingöngu framleiðsludagur hjá mér og annarri í kortadeildinni í gær. Fengum loksins plast sem við vorum búnar að bíða eftir í á þriðju viku og svo bættist í endurnýjanirnar. Hættum að vísu framleiðslu upp úr klukkan tvö og gengum frá, bæði þurfti hin að fara og svo var allt búið uppi og allir aðrir að fara. Hringdi í pabba um leið og ég lagði af stað frá vinnu. Hann var nokkuð ræðinn og það kom ekki í ljós fyrr en í lok símtals að ég var auðvitað að trufla hann við pönnukökubakstur. Ég var komin í sjóinn fyrir klukkan hálffjögur. Var reyndar komin á stæði við Nauthólsvík um þrjú en byrjaði á því að hringja í systur mína en hún og mágur minn voru á leiðinni norður. Hann var búinn að vera í nokkra daga á Hellu en sótti hana á Reykjavíkurflugvöll í fyrradag því það var dagurinn sem Bríet (og fleiri) voru að útskrifast sem fullgildir kjötiðnaðarmenn. Annars fór ég einu sinni 15mínútur í rúmlega átta gráðu sjóinn, tuttugu mínútur í gufu og aðrar tuttugu í heita pottinn. Varð í fyrsta skipti vitni að því að sjúkraflutningafólk mætti á svæðið vegna einnar manneskju sem annað hvort var illa fyrir kölluð eða hafði ofgert sér í sjónum, kannski bæði. Var ekkert að spyrja út í það en það leit allt út fyrir að fara þurfti með manneskjuna á sjúkrahús. Veit að þó ekki fyrir víst þar sem ég var farin á undan sjúkrabílnum. Kom heim upp úr klukkan fimm. Klukkan var svo langt gengin í átta þegar ég drattaðist loksins aftur út í ör-göngutúr. Fór stuttan hring á uþb korteri og náði skrefunum yfir fjögurþúsundogsexhundruð.
18.9.24
Mið vika
Vaknaði rétt fyrir klukkan sex. Náði allri morgun rútínunni og góðri æfingalotu með og án lóða. Mætti í vinnu um hálfátta. Fyrsta korterið fór í bókhalds- og tölusamansöfnunarmál fyrir kortadeild. Restina af vinnudeginum var ég í innleggjum. Þegar verkefnum var öllum lokið þurfti ég að stimpla 12 mínútur á bónustíma. Hringdi í vinkonu og fyrrum samstarfskonu og spjallaði við hana á meðan ég var á leiðinni í sund. Stalst enn og aftur til að leggja við Austurbæjarskóla og fór í Sundhöllina. Fann kaldapotts vinkonu mína í kalda pottinum. Hún var nýmætt. Eftir tvær ferðir í kalda og eina í 42°C pottinn fór ég á braut 1 og synti 400m á uþb tuttugu mínútum. Kalda potts vinkona mín fór eina ferð í langpottinn en skellti sér svo á braut 3 og synti þar til hún sá að ég var komin aftur í kalda pottinn. Fórum í gufu eftir þá ferð og sánuna eftir fjórðu ferðina. Svo fór ég upp úr og heim en hún ætlaði amk í einn heitan pott í viðbót. Ekkert varð af neinum labbitúr en skrefafjöldinn fór yfir þrjúþúsundogfimmhundruð og þá eru ótalin skrefin á milli potta og á sundlaugasvæðinu.
17.9.24
Osteostrong og stuttur göngutúr
Vaknaði um sex. Morgunrútínan var mjög svipuð og flesta virka morgna. Mætti í vinnu um hálfátta og þegar vinnudegi lauk vantaði mig aðeins átta mínútur í átta klst. Hringdi í pabba og talaði við hann á meðan ég var á leiðinni yfir í Hátún 12. Var hálftíma á undan áætlun en komst strax að í osteostrongtíma. Bætti mig á tveimur tækjum. Var búin um það leyti sem "fasti" tíminn minn er; 16:20. Þótt ég væri með sunddótið meðferðis fór ég beint heim að þessu sinni. Rétt fyrir sjö skrapp ég út í stutta göngu, fór 1,46km smá hring á 18 mínútum sléttum og náði skrefamarkmiðum dagsins og rúmlega það. Er reyndar aðeins með 4500 skrefa markmið og gær fór fjöldinn yfir fimmþúsundogsexhundruð.
16.9.24
Fartur á tímanum
Vaknaði um sjö. Um hálfníu var ég komin í Sundhöllina. Eftir fyrstu ferðina af þremur í þann kalda sá ég að braut tvö var mannlaus náði samt ekki ofan í laug áður en einhver annar var byrjaður að synda á henni. Var komin út í á braut eitt og synti 300m en á síðustu 75 metrunum bættist þriðja manneskjan við og ég rétt hafði geð í mér að klára upp í 300m því þessar brautir eru eiginlega bara ein og hálfbreidd eða svo. Fór aftur í kalda í fimm mínútur og fékk svo braut 1 í innilauginni alveg fyrir mig og synti aðra 300m þar. Fyllti á bensíntankinn á leiðinni heim um tíu leytið. Stoppaði heima í rúma tvo tíma. Rétt fyrir eitt sótti ég esperanto vinkonu mína. Vorum báðar klæddar til útivistar. Valið hafði staðið á milli þess að skreppa í Viðey eða leita að berjum og við ákváðum að fara í bíltúr aðeins út fyrir bæinn. Fórum fyrst upp að Hafravatni á stað sem Inger hafði farið áður. Þar voru engin ber en fullt af lyngi. Næst lá leiðin í Heiðmörk en við vorum heldur ekki lengi þar. Að endingu fórum við alla leið að Gljúfrasteini. Lögðum þar og röltum aðeins aftur fyrir húsið og stutt áleiðis að Helgufossi sem er tæpa 3km frá. Ef við hefðum verið fyrr á ferðinni, ákveðið að fara beint þangað, hefðum við sennilega labbað aðeins lengra. En við fundum samt smávegis af bæði blá- og krækiberjum. Þau voru ekki stór en í lagi með flest af þeim. Tíndum ekki mikið en eitthvað. Fengum okkur svo te og harðfisk sem Inger hafði útbúið og komið með sér. Í baka leiðinni komum við við hjá N1 við Gangveg og heilsuðum upp á Davíð Stein og Óla. N1-sonur minn tékkaði á þrýstingnum á dekkjunum. 3 af fjórum voru í lagi, en eins og mig grunaði var það fjórða frekar vanstillt. Skilaði svo Inger heim og var sjálf komin heim um hálfsex. Veðrið hafði leikið við okkur allan daginn þótt sums staðar væri smá ferð á logninu. Ekki náði ég þó að safna skrefum alveg upp í 4500 en fór heldur ekki út aftur til að gera það. Hefði ekki þurft langa göngu til að ná markmiðinu en hugsaði með mér að ef öll skref dagsins hefðu verið talin (skrefin milli potta og lauga í sundinu) væri ég í ágætis málum.
15.9.24
Tap hjá Liverpool
Var komin á fætur um sjö leytið í gærmorgun. Klukkan var svo orðin hálfníu þegar ég mætti í sundhöllina. Að þessu sinni gat ég farið beinustu leið í kalda pottinn. Sá yngstu mágkonu mömmu í heita pottinum og heilsaði upp á hana eftir fyrstu kælinguna. Hún var búin að synda og þegar hún fór að hugsa sér til hreyfings upp úr lauginni fór ég aftur í kalda áður en ég fór á braut 4 í innilauginni og synti 600m á hálftíma, flestar ferðir á bakinu en fjórðu hverju ferð ýmist skrið- eða bringusund. Fór smástund í heitasta pottinn, 42°C, annan af elstu pottunum, áður en ég fór síðustu ferðina í þann kalda, gufu og þvoði mér svo um hárið á leiðinni upp úr. Var komin til espernato vinkonu minnar rétt rúmlega hálfellefu og stoppaði hjá henni til tólf. Lásum eina og hálfa bls. í Kon-Tiki og höfðum nú íslensku útgáfuna til samanburðar. Planlögðum svo næsta hitting sem verður á öðrum nótum og strax í dag. Áður en ég fór heim keypti ég þvott og felguþrif á bílinn hjá Löðri við Fiskislóð og kom svo aðeins við í Krónunni. Restin af deginum fór að mestu í fótboltaáhorf, lestur og prjónaskap.
14.9.24
September að verða hálnaður
Vinnudagurinn í gær var léttur og í styttra lagi. Kortaframleiðslu og frágangi á kortadeild lauk fyrir hálftíu. Restina af vinnudeginum var ég í innlögnum. Fréttum reyndar af plastsendingu í hádeginu en sem betur fer ákváðum við að bíða ekki eftir henni því um tvö leytið komu þau skilaboð að pakkanum yrði komið til okkar eftir helgi. Var komin í Nauthólsvík upp úr klukkan þrjú Hringdi í pabba þegar ég var á leiðinni. Pabbi var sjálfur á ferðinni, á leiðinni í búðina. Mágur minn er staddur hjá honum þessa dagana. Fór annars tvisvar í sjóinn, fyrst í tuttugu mínútur og eftir uþb tuttugu mínútna gufu fór ég aftur í rúmar fimm mínútur. Sat svo dágóða stund í heita pottinum áður en ég fór upp úr og heim.
13.9.24
Míni golfgarðurinn með vinnufélögum
Í gær skildi ég bæði prjóna og sunddót eftir heima þegar ég fór í vinnuna. Öllum verkefnum í vinnunni var lokið í fyrra lagi en við dokuðum flest við til klukkan langt gengin í fjögur. Ástæðan var sú að ekki tók því að fara heim því við vorum skráð sem hópur í Mínígólf og staðurinn, sem er frekar stutt frá vinnustaðnum, opnar klukkan fjögur. Vorum 22 í hópnum og af þeim tveir af sumarliðunum og ein sem er í barneignarfríi. Okkur hafði verið skipt í tvö lið og þeir tveir sem skipulögðu þennan hitting voru "bændurnir" í þessari bændaglímu. Svo var okkur skipt niður í fjóra fjögurra manna hópa og einn sex manna, tveir (þrír í sex manna hópnum) úr hvoru liði. Ég var í fyrsta hollinu sem var ræst út klukkan hálffimm. Spilaðar voru allar átján holurnar. Í mínu holli, ekki í mínu liði samt, var sá sem fór holurnar á fæstum höggum. Ég fór fyrstu holuna á tveimur höggum en svo gekk svona upp og niður. Skv. skorblaðinu átti ekki að skrá fleiri högg en sex á hverri holu. En við höfðum ekki lesið það og vissum því ekki af því fyrr en einhver úr öðru liði sagði okkur frá því. Ég fór nefnilega eina holuna á tólf höggum og aðra á 10. Eftir reiknireglunni "ekki fleiri en 6 högg" fór ég fyrri níu á 36 og seinni níu á sömu svo í heildina fór ég á 72 og var líklega í neðsta sæti á flestum höggum. En það var svo gaman og á eftir var hlaðborð og framkvæmdastjórinn tilkynnti hver fór flestar holur í höggi, hvort liði fór á færri höggum í heildina og hver fór á fæstum höggum.
12.9.24
Sjórinn og lengri göngutúr
Það var framleiðsludagur í vinnunni í gær. Allt gekk ágætlega en við áttum eftir að framleiða tvær tegundir þegar klukkan var að verða hálftíu. Geymdum þá framleiðslu því það var fundur í kaffitímanum og forstjórinn var með okkur á þeim fundi. Framleiðslu og frágangi í kortadeild lauk svo milli hálfellefu og ellefu. Sneri mér beint að innleggjum eftir það. Vinnudegi lauk fyrir klukkan þrjú. Var mætt í Nauthólsvík korter yfir þrjú og óð út í um hálffjögur. Hitastigið undir níu gráðum en ég var í strandskónum og berhent. Ætlaði ekki að tíma að fara upp úr en tuttugu mínútum síðar fór ég í gufuna. Eftir gufu, kalda sturtu og tuttugu mínútur í pottinum skrapp ég aftur í sjóinn í örfáar mínútur áður en ég fór að huga að heimferð. Ákvað að fara ekki í sturtu bara þurrka mér en skolaði strandskóna og úr sundbolnum. Kom heim klukkan að ganga sex. Ætlaði varla að nenna út aftur en stuttu fyrir átta fór ég út og það sem átti að vera göngutúr í styttra lagði varð 3,1km hringur á tæpum fjörutíu mínútum. Eftir að ég kom heim aftur náði ég sambandi við Jónu Mæju hans Reynis frænda. Hún náði ekki að svara heima símanum sínum en hringdi til baka úr gemsanum og við spjölluðum saman í heila klukkustund. Það var eiginlega komið fram yfir þann tíma sem ég fer oftast upp í, ekki svo langt fram yfir en framyfir samt. Engu að síður réði ég eina sudoku og las í þremur bókum eftir að ég var háttuð og komin í rúmið enda var klukkan orðin hálfellefu og rúmlega það þegar ég fór loksins að sofa.
11.9.24
Sundhöllin og stuttur göngurtúr
Hrökk upp ca tíu mínútum áður en vekjarinn átti að ýta við mér. Var að dreyma eitthvað furðulegt stuttu áður sem ég man ekki lengur hvað var. Aftur á móti man ég brot úr draumi frá nýliðinni nótt sem var enn furðulegri. "Fann s.s. útsaums/handavinnu-töskuna mína í uppþvottavélinni ásamt smávegis af óhreinu leirtaui. Ekki var búið að setja vélina af stað þegar ég bjargaði töskunni". Annars var ég að vinna til klukkan að verða fjögur í gær. Var með sunddótið meðferðis en ekki alveg ákveðin í hvaða laug ég ætti að stefna á fyrr en ég lagði af stað frá vinnu. Fann stæði við Austurbæjarskóla sem er örstutt frá Sundhöllinni. Því miður var kaldi potturinn lokaður. Ég byrjaði á einni gufuferð, útisturtu og í langpottinn úti. Þar var ég búin að sitja í uþb tíu mínútur þegar kaldapotts vinkona mín og ein systir hennar birtust. Spjallaði við þær í smá stund en svo sá ég að braut 4 í útilauginni var laus, skellti mér í hana og synti í uþb tuttugu mínútur áður en ég fór upp úr og heim. Ætlaði varla að nenna neinu meiru nema kannski glápi en dreif mig út um átta leytið og labbaði smá hring um hverfið. Hélt ekki að ég hefði stoppað neins staða en engu að síður skráði heilsuforritið í símanum á mig tvo stutta göngu túra samtals upp á 2,1km á tæpum tuttuguogfimm mínútum. Greip svo aðeins í prjónana áður en ég kveikti aftur á sjónvarpinu. Fór upp í rúm um hálftíu og las í 3x7-10 mínútur. Já, ég las í þremur bókum, tveimur af safninu og einni sem mér var gefið í vor.
10.9.24
Osteostrong og bókasafn í gær
Var komin á stjá um sex í gærmorgun. Morgunrútínan svipuð og greip ég aðeins í tveggja kílóa lóðin stuttu áður en ég lagði af stað í vinnu. Nóg var að gera í vinnunni, þurfti ekki að bíða eftir verkefnum, en allt var búið um þrjú. Fannst of snemmt að athuga hvort ég kæmist að í osteostrong tíma svo ég byrjaði á því að skreppa í bókasafnið í Kringlunni. Skilaði bókunum fjórum úr Sólheimasafni í hillu merkta "Frátekið". Fann mér svo fimm aðrar bækur, m.a. Kon-Tiki á íslensku en við Inger ætlum að bera saman þann texta við esperanto útgáfuna. Erum reyndar líka að spá í hvort við finnum eintak á norsku, það væri mjög gaman. Hitti Siggu, mágkonu mömmu, á safninu. Var komin í Hátún 12 rétt fyrir fjögur og í Laugardalslaug rétt rúmum hálftíma síðar. Kalda potts vinkona mín mætti um fimm. Þá var ég í minni annarri ferð af fjórum í kalda pottinum. Næsta hálfa mánuðinn verður laugin lokuð almenningi vegna viðhalds svo það verður spennandi að sjá hvaða laugar toga í staðinn eða hvort fleiri ferðir verða farnar í sjóinn.
9.9.24
Ný vinnuvika framundan
Heyrði stofuklukkuna slá hálfsjö í gærmorgun. Svo fannst mér aðeins líða nokkrar mínútur þegar ég heyrði hana slá aftur og taldi sjö slög. Hef greinilega sofnað aðeins aftur og ég veit að ég steinsofnaði aftur milli sjö og átta. Klukkan var svo rétt byrjuð að ganga níu þegar ég var alveg glaðvöknuð og fór á fætur. Pabbi var nýlega kominn á fætur og var að taka niður daglegar tölur til að skrá niður. Dagurinn var frekar rólegur hjá okkur feðginum. Skiptumst á að vafra á netinu í tölvunni hans, fórum í kapla keppnir og horfðum á sjónvarpsútsendingar. Að auki var ég að prjóna. Um hádegisbil matreiddi ég tvö bleikjuflök handa okkur. Pabba fannst þau svo lítil að hann talaði um að hann gæti alveg fengið sér skyr. Ég bað hann amk um að fá sér smá af réttinum því það voru kartöflur og sallat með. Ef hann væri svangur eftir skammtinn mætti hann alveg fá sér skyr í eftirrétt. Um kaffi leytið fengum við okkur flatkökur með reyktum silungi. Það er örugglega uþb ár síðan ég borðaði flatkökur síðast og ég ákvað að fara varlega í smakkið. Borðaði þó tvo fjórðungsparta úr köku. Klukkan var að verða hálfsex þegar ég tók mig loksins saman, kvaddi pabba og brunaði í bæinn.
8.9.24
Laugardagur - skráð á sunnudegi
Vaknaði um sjö í gærmorgun. Var komin í sund um hálfníu. Eftir fimm mínútur í kalda pottinum fór ég á braut 6 og synti 500 metra áður en ég fór aftur í kalda pottinn. Eftir þá ferði lá leiðin í gufuna í ca 15 mínútur, köld sturta og sjópottur í 10 mínútur. Fór svo þriðju ferðina í þann kalda áður en ég fór upp úr og þvoði mér um hárið. Var mætt til esperanto vinkonu minnar um hálfellefu. Stoppaði hjá henni í næstum einn og hálfan tíma og lásum við m.a. tvær og hálfa blaðsíður í Kon-Tiki. Var komin heim milli tólf og hálfeitt. Komst af stað austur rétt rúmum klukkutíma síðar og var komin til pabba rétt upp úr klukkan þrjú. Þegar ég var að leggja af stað úr bænum "vasahringdi" systir mín í mig en hún heyrði mig svara og spjallaði smá. Hafði verið að spjalla við manninn sinn sem þurfti að rjúka af stað með Huldu úr smalamennsku á sjúkrahús vegna ofnæmisviðbragða. Frétti ekki meira um það mál svo það hlýtur að hafa farið vel. Við pabbi ákváðum að grilla kindakjöt, sem var til í ísskápnum hjá honum, um hálfsex leytið. Ég setti upp kartöflur og lagði á borð en hann sá um grillið. Horfðum svo á útsendinguna frá Ljósanótt í Reykjanesbæ milli átta og ellefu.
7.9.24
Strax komin helgi aftur
Bankaði á herbergisdyrnar hjá Oddi stuttu áður en ég fór í vinnu í gær. Hann var vakandi og byrjaður að undirbúa sig undir verkefni dagsins, smá skyldufund hjá vinnumálastofnun og að taka á móti iðnaðarmönnum. Iðnaðarmennirnir höfðu ekki samband fyrr en hann var mættur á fundinn. Oddur sendi þeim skilaboð um að hringja í Davíð Stein þar sem hann væri smá upptekinn. Skilaboðin frá þeim sem voru að koma með nýju svalahurðina voru þau að þeir kæmu ekki fyrr en milli hálfellefu og ellefu. Oddur var löngu kominn heim aftur þá því bróðir hans sótti hann eftir fundinn. Davíð Steinn "stakk" hins vegar af, fór að sinna öðrum verkefnum s.s. fara í klippingu og fleira, og kom ekki aftur fyrr en nýja svalahurðin var komin upp og iðnaðarmennirnir farnir en þeir voru rétt rúma tvo tíma að græja þetta. Ég var búin að vinna stuttu fyrir þrjú. Hringdi í pabba þriðja daginn í röð þegar ég var á leiðinni í Nauthólsvík. Hann var reyndar í heimsókn hjá frændfólki á Selfossi en við spjölluðum engu að síður stuttlega saman. Sjórinn var dásamlegur og hressandi en heldur mikil fjara. Hringdi svo loksins í frænku mína og nöfnu sem á danskan pabba. Hún býr og vinnur hér á Íslandi en við vorum ekki búnar að heyrast síðan í sumar. Hvorug okkar var reyndar að velta sér upp úr því. Mamma hennar, móðursystir mín, er hætt að vinna og alveg flutt til Danmerkur aftur frá Noregi þar sem hún var með lögheimili sl. þrjátíu ár eða svo. Hún á reyndar fasteignir í nokkrum löndum, m.a. hér í Reykjavík.
6.9.24
Ný svalahurð verður sett upp í dag
Gærdagurinn var í léttari kantinum vinnulega séð. Var komin í sund upp úr klukkan hálfþrjú. Synti 400m og var að klára fyrstu ferðina í þann kalda þegar kalda potts vinkona mín mætti. Saman fórum við þrjár ferðir, vorum næstum hálftíma í gufu og uþb 15 mínútur í sjópottinum. Sundferðin mín stóð yfir í næstum tvo tíma. Kom við í Fiskbúð Fúsa á heimleiðinni og keypti mér harðfisk og ýsu í soðið. Pikkaði svo Odd upp og skruppum við saman í Krónuna við Fiskislóð. Á leiðinni þangað hafði smiðurinn, sem kom og mældi út hjá mér svaladyrnar, samband og sagðist ætla koma í dag, föstudag. Hann og einhver með honum koma sennilega fljótlega eftir að ég er farin í vinnu. Oddur mun taka á móti honum og svo tekur Davíð Steinn við um miðjan morgun ef á þarf að halda því Oddur hefur verið boðaður á fund hjá vinnumálastofnun. Vonandi fer eitthvað að gerast í atvinnumálunum hjá honum. Held að hann þurfi að vera mun opnari fyrir tækifærunum en hann heldur amk þannig á spilunum að hann fær smá bætur mánaðarlega.
5.9.24
Sjórinn hressir alltaf
Í gær var framleiðsludagur. Ég var í bókhaldi og á móttökuendanum. Vélin byrjaði á smá mótþróaþrjóskuröskun þegar við ætluðum að hefja framleiðslu. Þurfti að taka hana alveg niður og þegar parturinn fyrir vélina var ræstur gerðist nokkuð sem við höfum ekki lent í áður, þ.e. ekkert gerðist. Takkinn var í réttri stöðu en ekkert heyrðist í vélinni. Eftir nokkrar sekúndur af smá sjokki bað ég þá sem var á ítroðslu endanum að prófa að snúa takkanum til baka, doka stutta stund, og reyna aftur. Hvað við urðum fegnar að þá fór allt í gang og það sem meira var að framleiðsla gekk nánast eins og í sögu. Kláruðum allt daglegt fyrir kaffipásu og afganginn af endurnýjuninni milli tíu og tólf. Kláraði bókhaldsmálin eftir hádegi og var komin í innlegg upp úr hálftvö. Allt var búið um þrjú. Var með sjósundsdótið meðferðis en ákvað að kíkja fyrst í Aqua Sport, gömlu strandskórnir eru löngu orðnir ónýtir. Hringdi í pabba og spjallaði við hann hluta af leiðinni. Sokkarnir sem ég ætlaði að kaupa voru ekki til í minni stærð, kannski sem betur fer því þarna fæst alls konar og m.a. svipaðir skór og strandskórnir. Þykkari botnar aðeins öðru vísi efni og litir en miklu betra en sokkar. Og voru líka til í mínu númeri. Fjárfesti í þeim. Næst kom ég við í sokkabúðinni Copra við Garðatorg og fjárfesti í fjórum pörum af orkusokkum og á þá núna sex pör. Ætlaði að kíka í nýju verslunina Prís en "villtist" inn í Smáralind í Söstrene Grene og keypti mér nokkrar dokkur af 10% bómullargarnir í ýmsum litum. Ákvað að geyma "heimsóknina" í Prís til betri tíma því klukkan var farin að ganga fimm og mál að drífa sig í sjóinn og prófa nýju skóna. Hringdi þó fyrst í Ellu vinkonu eftir að ég var komin á stæði við Nauthólsvík og átti gott spjall við hana. Klukkan var akkúrat fimm þegar ég dembdi mér í sjóinn. Skórnir reyndust ljómandi vel. Var 15 mínútur í sjónum sem er rúmar 10°C þessa dagana, 10 mínútur í gufu, köld sturta og svo 15 mínútur í heita pottinum. Var komin heim fyrir klukkan hálfsjö. Um átta skrapp ég í 1,7km göngu sem tók mig 22 mínútur. Nú hef ég náð skrefamarkmiðunum fimm daga í röð.
4.9.24
Yfir fjögurþúsundogfimmtíu blogg færslur
Gærdagurinn var mjög annasamur í vinnunni en allt kláraðist þó innan níu tíma. Var komin í sund um hálffimm leytið. Byrjaði á því að synda 300m en fór svo á kalda potts rölt með kalda potts vinkonu minni. Gáfum okkur extra góðan tíma í gufunni og sjópottinum. Ferðirnar í þann kalda urðu fjórar 3-5 mínútur í senn. Ég var komin heim rétt fyrir hálfsjö. Rétt rúmum klukkutíma síðar skrapp ég út í smá göngu. Labbaði 1,5km á uþb 19 mínútum og náði skrefa markmiðinu þriðja daginn í röð. Heildarskrefin voru samt mun færri heldur en þá daga sem ég labbaði í og jafnvel úr vinnu en sjöþúsund skref eru þó betri en innan við tvöþúsund skref, eða hvað? :-)
3.9.24
Mun bjartara en í gærmorgun
Vaknaði rétt rúmlega sex í gærmorgun. Þurfti að kveikja ljós á meðan ég var að klæða mig og einnig athafna mig á baðherberginu. Annars var morgun rútínan mjög svipuð. Mætti í vinnu um hálfátta og fyrsti hálftíminn fór í bókhalds og reikningagerða vinnu fyrir kortadeildina. Upp úr klukkan átta svissaði ég yfir í innlagnir. Sú vinna stóð yfir til klukkan langt gengin í þrjú. Þá sneri ég mér aftur að reikningagerðinni. Fékk Petru til að lesa yfir loka tölur og skilaði svo af mér. Gott að þetta er frá. Er langt komin með allar excel tengingar til að safna tölum fyrir næstu mánaðamót. Var komin í Hátún 12 í osteostrong tíma rétt fyrir fjögur og sem fyrr komst ég strax að þótt "fasti" tíminn væri ekki fyrr en 16:20. Eftir tímann fór ég beint í sund. Var búin að láta kalda potts vinkonu mína vita að ég myndi líklega vera mætt í sund ca korter í fimm. Hún var mætt en ég sá hana ekki strax þar sem hún hafði skroppið í gufu. Ég var því búin að fara eina ferð í þann kalda og smá stund í sjópottinn áður en við hittumst. Fórum fjórar ferðir saman í þann kalda og í hina ýmsu potta eða gufu inn á milli. Var komin heim upp úr klukkan sex. Um átta leytið skrapp ég aftur út í stutta göngu, 1,1 km á tæpu korteri en þar með hafði ég náð að safna skrefamarkmiðum dagsins og gott betur svo forritið í símanum þarf ekki að "skamma" mig en hrósar mér í staðinn. Annars er ég svo sem að safna óskráðum skrefum þegar ég er að vappa á milli potta í sundinu. Það væri fróðlegt að vita hversu mörg skref það eru þegar farnar eru 4-6 ferðir í þann kalda og rölt á milli potta og gufu.
2.9.24
Dimmt yfir
Vaknaði eiginlega alltof snemma í gærmorgun, svona miðað við að það var sunnudagur. Helgast kannski af því að ég fór tiltölulega snemma að sofa á laugardagskvöldið. Hvað um það ég var komin á fætur fyrir klukkan hálfsjö. Ætlaði að fylgjast með sundinu hjá Má á ólympíuleikunum áður en ég færi í sund. Í átta fréttum var sagt að það yrði um hálfníu svo ég taldi óhætt að horfa á brot úr þætti í sarpinum. Stillti aftur á rúv2 tuttugu mínútum yfir átta en þá var Már nýbúinn að synda sig inn í úrslit og hinn riðillinn í hans flokki að gera sig kláran í sundið. Var byrjuð að synda korter fyrir níu og þegar ég var akkúrat að klára 500 metrana kom kalda potts vinkona mín. Fórum 4 ferðir í kalda, eina í heitasta, eina í 42°C, eina í gufuna og eina í sjópottinn. Þar sem við hittum eina systur hennar. Kom heim um hálftólf. Dagurinn fór í alls konar en samt aðallega fótboltaáhorf og prjónaskap. Skrapp þó í stuttan göngutúr fljótlega eftir kvöldmat og náði þar af leiðandi skrefa markmiðinu mínu, sem er orðið frekar sjaldgæft. Nenni ekki alltaf út í göngu eftir vinnu og sund eða sjóferð.
1.9.24
Nýr mánuður
Ég rumskaði fyrst rétt fyrir fimm í gærmorgun. Skrapp á salernið að tæma blöðruna og fór beinustu leið aftur í bælið. Sofnaði aftur og klukkan var byrjuð að ganga átta þegar ég fór á fætur. Gleymdi mér aðeins í netvafrinu og um átta var ruslabíll á ferðinni í götunni. Ég var þó komin í sund um hálfníu. Synti 500m, flesta á bakinu. Fór tvær fjögurra mínútna ferðir í þann kalda, gerði æfingar í gufunni og slakaði vel á í sjópottinum. Þvoði mér um hárið og fór svo beint vestur í bæ til norsku esperanto vinkonu minnar. Tókum tvöfaldan tíma og kláruðum fyrsta kaflann í Kon-Tiki, sem við höfum reyndar lesið amk tvisvar sinnum áður. Varð að víkja fyrir bifreið þegar ég var á leiðinni í burtu og bíllinn straukst aðeins við smá steinkant við það. Hugsaði sem svo að það væri skárra heldur en að rispa bílinn sem ég var að víkja fyrir. Ætti að geta lappað upp á þessa skrámu næst þegar ég fer til pabba. Annarst ekkert nýtt né títt.