Svaf næstum því til klukkan átta. Var þó komin á fætur áður en pabbi kom heim úr sundi. Vafraði aðeins smástund á netinu. Þar sem var komið annað tilboð í framkvæmdir utanhúss sem var amk 10 millijónum dýrara en tilboðið sem við fengum í júli var ég beðin um að athuga hvort fyrra tilboðið stæði óbreytt. Hafði samband við milliliðinn, þann sem mundi skrifa upp á framvindureikninga og taka út verkið. Bað hann um að senda svarið í meili þegar hann væri búinn að tala við verktakann og taka fram hversu stuttan tíma við hefðum til að ákveða okkur. Svarið kom um miðjan dag. Tilboðið stendur til 13. september og framkvæmdir myndu byrja eftir miðjan október. Setti þessa tilkynningu inn á sameiginlega svæðið og bað fólk um að taka afstöðu. Allir eru búnir að sjá þetta en aðeins sá sem var í sambandi við þann sem gerði okkur seinna tilboðið búinn að svara. Hann tók það fram að hann vildi bara fylgja meiri hlutanum. Veit að ég hef formanninn í mínum stigagangi og mjög líklega þá sem eru með mér í stjórninni svo það eru fimm af átta. Spurning hvort stjórnin muni bara ekki taka aftöðu ýta málunum almennilega af stað? Þau sem aðallega hafa verið á "bremsunni" eru líklega í klemmu en þau eru búin að fá rúm þrjú ár og nú þarf að fara að kjósa með húsinu.
Pabbi bauð mér með sér á Kanslarann í hádeginu og var rukkaður það sama fyrir minn skammt. Ekkert löngu eftir að við komum til baka kom maður einnar frænku minnar í móðurætt í heimsókn. Sá vinnur hjá Brimborg og hjálpar okkur oft við bílamálin. Hann var í veiði í Ytri Rangá, veiðifélagarnir farnir, og ákvað að kíkja aðeins á gamla manninn. Kona þessa manns og ég erum skyldar í annan og þriðja lið. Seinna skrapp pabbi í búðina, hafði gleymt miðanum heima þegar við fórum í hádeginu. Eftir kaffi ákvað ég að safna skrefum. Fæturnir báru mig þó fyrst í hús við Nestúnið og þar stoppaði ég í hátt í klukkustund áður en ég hélt gönguferðinni aðeins áfram. Eftir kvöldfréttir í sjónvarpinu skiptum við yfir á RÚV2 og horfðum á bikar leik í körfbolta karla, Stjarnar-KR þar sem fyrrnefnda liði hafði sigur og fór í átta liða úrslit.
Eldhúshandklæði (eða tuska í stærra lagi) "datt" af prjónunum og ég er langt komin með enn eitt teppaprjónið. Svo er ég byrjuð á skammtímalánsbókinni; Vítisfnykur eftir Mons Kallentoft.