27.8.26

Sjósund og kosning eftir vinnu

Vaknaði korter fyrir sex, tæpri klukkustund áður en vekjarinn átti að ýta við mér. Skrapp fram á pisseríið og gerði svo tilraun til að kúra mig niður og sofna aftur. Virkaði ekki en ég fór þó ekki á fætur fyrr en um það leyti sem hafði stillt vekjarann á. Mætti í vinnu rétt fyrir hálfátta. Vinnudagurinn var kaflaskiptur, stundum mikill erill en inn á milli rólegra. Fyrrum samstarfskona til hátt í tuttugu ára í kortadeildinni kom með bílinn sinn í skoðun. Gátum spjallað smá því það var smá röð á undan (einn eða tveir bílar). Eftir vinnu fékk ég mér smá göngu að heimilisfangi á Suðurlandsbraut skammt frá gatnamótunum við Grensásveg. Erindið var vinnutengt. Manneskjan sem ég var að reyna að ná sambandi við var ekki heima en ég gat stungið umslagi með smá bréfkorni í í póstkassann hennar. Labbaði beinustu leið til baka í bílinn og dreif mig í Nauthólsvík. Fór fyrri ferðina í sjóinn korter yfir fimm. Stutt var út í og sjórinn 12,2°C. Tók ekki tímann sem ég var út í en fór í gufu, aftur í sjóinn og svo smástund í pottinn áður en ég fór upp úr upp úr klukkan sex. Kom við í Hlíðarsmára og kaus utan kjörfundar. Það var nóg að gera þar en ferlið gekk ótrúlega vel fyrir sig. Ég var komin heim fyrir klukkan sjö.

26.8.26

Eitt og annað

Þar sem ég skrópaði í sund eftir vinnu í gær var ég ákveðin í að mæta á húninn í Laugardalslaug í morgun og stillti vekjarann á að ýta við mér tíu mínútum fyrir sex. Fór í háttinn um tíu og las í hálftíma. Rumskaði um hálffimm og þurfti á pisseríið. Ég sofnaði eiginlega ekki aftur. En ég var mætt á húninn við opnun. Synti 500m á braut sjö á tuttugu mínútum og sat svo nokkrar mínútur í steinapottinum að spjalla við einn fyrrum samstarfsmann. Vinnudagurinn var annars alls konar, rólegur til að byrja með en mun meiri erill eftir hádegið. Í heildina voru skoðaðir 36 bílar. Í stað þess að fara í osteostrong eftir vinnu lá leiðin í ákveðið hús mjög austarlega í borginni. Þar var fyrir slatti af fólki sem var að taka til hendinni og ég lagði mitt af mörkum í því verkefni. Klukkan var langt gengin í sjö þegar ég kom heim. 

25.8.26

Án titils

Ég var frekar óákveðin og óviss með plön eftir vinnu í dag. Tók með mér sund- og sjósundsdót en einnig var ég undirbúin undir esperantó hitting. Stimplaði mig inn í vinnu um hálfátta. Hafði í nægu að snúast fram að opnun. Svo var rólegt fyrsta rúma hálftímann áður en fyrsti bíll kom til skoðunar. Stöðvarstjórinn fékk afleysingu milli hálfellefu og hálfeitt. Fyrir hádegi voru skoðaðir 17 bílar og alveg jafn margir eftir hádegi því heildin fór upp í 34. Strax eftir vinnu fór ég í Fiskbúð Fúsa. Ekki var til óbarin ýsa en ég keypti lúðu, glútenlausar fiskibollur og eitt þorskhnakkaflak. Hugað verður að esperanto hittingi seinni part seinna í vikunni og ég ákvað stefna á sund í Árbæjarlauginni í stað sjósunds í Nauthólsvík. Hringdi í pabba á meðan ég var á leiðinni upp í Árbæ. Hann var að gera sultu úr kílói af niðurskornum rabbabara sem hann átti i frysti síðan í fyrra. Var komin að Árbæjarlaug korter yfir fimm. Fann ekki stæði svo ég hætti við sundferð og fór beint heim. 

24.8.26

Eftir helgina og vinnuvikuupphaf

Helgin varð aðeins öðruvísi en ég átti von á en ég var svo sem ekki með nein plön. Laugardagsmorguninn fór í stúss sem ekki má og er alveg óþarfi að skrifa um. Fékk áminningu frá bókasafninu og ég hefði alveg eins getað farið og skilað bókunum á safninu í Úlfarsárdal því það var opnað um leið og sundlaugin. Kringlusafnið var opið milli eitt og fimm. Það fór svo að ég fór þangað um miðjan dag. Hafði fests í að horfa á "Sama viðtalið" með Baldvini Þór Bergsveinssyni og Patreki Jaime í sarpi RÚV. Skilaði öllum bókunum sem ég var með í láni og fékk mér fjórar í staðinn. Þar af tvær sem voru nýjar og með 14 daga skilafresti. Á heimleiðinni gerði ég stopp í Krónunni í Lindum. Stór partur af því sem eftir lifði helgarinnar fór í að klára að lesa báðar skammtímalánsbækurnar; 17 ástæður til að drepa og 18 rauðar rósir eftir Unni Lilju Aradóttur.

Í morgun var ég búin að stimpla mig inn í vinnu um hálfátta leytið. Rólegt var fyrir hádegi en í heildina voru skoðaðir 32 bílar, sá fyrsti átti bókaðan tíma og mætti um níu. Sá síðasti var skoðaður korter yfir fjögur. Stimplaði mig út á slaginu hálffimm og kom við í Árbæjarlauginni áður en ég fór heim.

21.8.26

Er að hlaða bílinn

Rumskaði frekar snemma og hefði í sjálfu sér getað byrjað daginn á því að fara í sund en ákvað að kúra aðeins lengur og nota svo tímann í smá dútl hér heima áður en ég fór af stað í vinnu tuttugu mínútum yfir sjö í morgun. Var þó með sunddótið meðferðis. Fyrsta hálftímann í vinnunni notaði ég m.a. til að hella upp á, strjúka yfir nokkra fleti og gera upp kassann. Annars var morguninn rólegur og aðeins ellefu bílar skoðaðir fyrir hádegi. Það var meira líf í tuskunum eftir hádegi en þó smá pásur inn á milli. Heildarfjöldi skoðaðra bíla fór upp í þrjátíuogtvo en við stimpluðum okkur út á slaginu fjögur. Kom aðeins við í N1 við Borgartún og heilsaði upp á Davíð Stein. Keypti mér ný plús 1,5 lesgleraugu. Um fimm leytið var ég komin í Árbæjarlaugina. Synti í tæpar tuttugu mínútur, fór í gufu, eina ferð í kalda pottinn, kalda sturtu og infra rauða klefann. Kom heim stuttu fyrir klukkan hálfsjö. Bíllinn var enn í eitthvað yfir fjörutíu prósent en það var pláss á staurnum og ég ákvað að nýta mér það. Hann er kominn upp í 93% núna og ég gæti alveg farið að kalla þetta gott að sinni og færa hann á almennt stæði. Talandi um stæði þá gleymdi ég að geta þess að í gær voru öll útibílastæði sem tengjast blokkinni máluð.

20.8.26

Nauthólsvík eftir vinnu í dag

Mætti í vinnu um hálfátta. Strákarnir voru mættir tuttugu mínútum. Mjög rólegt var fyrstu tvo tímana og notaði nýji maðurinn tímann til að vinna í síðasta bóklega prófinu til að geta sótt um að fá skoðunarréttindi. Ellefu bílar voru skoðaðir fyrir hádegi. Í hádeginu þurfti stöðvarstjórinn að skreppa frá í rúma tvo tíma. Ein "flakkari" var sendur til okkar. Hann kom rétt fyrir hálfeitt og þá voru þegar komnir tveir á húninn. Flakkarinn gerði 19 skoðanir á rétt rúmum tveimur tímum. Stöðvarstjórinn skilaði sér til baka um hálfþrjú og flakkarinn kvaddi rétt fyrir þrjú. Eftir það og fram að lokun voru gerðar fimm eða sex skoðanir. Ég stimplaði mig út á slaginu hálffimm og fór beinustu leið í Nauthólsvík. Umferðin var þannig að ég var rúmlega tuttugu og fimm mínútur á leiðinni þangað. Var rétt á eftir kaldapotts vinkonu minni. Við fórum tvisvar í sjóinn, tvisvar í gufu, einu sinni í lónið og ég fór aðeins einu sinni í heita pottinn því ég fór upp úr eftir ferðina í lónið. Var komin heim rétt um klukkan sjö. 

19.8.26

Osteostrong eftir vinnu í dag

Ég vaknaði fimm mínútum áður en vekjarinn átti að ýta við mér í morgun, eða um hálfsjö. Rétt rúmum klukkutíma síðar var ég mætt í vinnuna. Vorum bara tvö í allan dag. Nokkuð rólegt framan af og stundum inn á milli en í heildina voru þó skoðaðir tuttuguogsex bílar sem er alveg ágætt fyrir einn mann. Sex af þessum skoðunum voru bókaðar í gegnum noona-appið og voru þá á ákveðnum tímum. Með þessari þjónustu þarf þá einnig að vera vakandi fyrir því að tilkynna þeim, sem mæta til að athuga hvort sé hægt að fá skoðun, að bókaðir tímar gangi fyrir. Sum verkefnin mín fóru fram í gegnum síma, með tölvupóstsamskiptum og líka netfyrirspurnarsamskipti af heimasíðu fyrirtækisins. Eftir vinnu fór ég beinustu leið í Hátúnið og komst strax að í osteostrong þótt klukkan væri ekki orðin fimm þegar ég mætti. Átti ekki von á neinum sérstökum árangri þar sem ég er búin að vera lasin en árangurinn var bara mjög þokkalegur. Lét svo vita að ég komist ekki í tíma aftur fyrr en eftir hálfan mánuð. Var komin heim um hálfsex leytið. Í kvöldmatinn kláraði ég afganginn af bleikjuréttinum sem ég útbjó sl. sunnudag. Mikið var annars gaman að horfa á fyrsta þáttinn í sextándu þáttaröðinni af "Með okkar augum" í kvöld.

18.8.26

Smástund í sund eftir vinnu

Ég mætti í vinnu um hálfátta í morgun. Samstarfsmenn mínir mættu stuttu fyrir klukkan átta. Reyndar var sá nýji mættur aðeins fyrr en hann er ekki með lykla og ég vissi ekki af því og hafði læst innri dyrunum eftir að ég var komin inn og búin að taka kerfið af. Það var frekar rólegt í morgun, aðeins tólf bílar skoðaðir fyrir hádegið. Sá nýji fór á skoðunarnámskeið um hádegisbilið og við vorum bara tvö eftir hádegi. Það var meira að gera milli hálfeitt og rúmlega fjögur en þó náði heildarfjöldi skoðaðra bifreiða yfir daginn ekki þrjátíu. Vantaði svo sem ekki mikið upp á. Stimpluðum okkur út á slaginu hálffimm og ég dreif mig í Árbæinn og fór í sund þar. Synti ekki nema um 100m, fór tvisvar í kalda pottinn, eina ferð í gufuna og endaði á að fara í innfrarauða klefann í kvennaklefanum í 15 mínútur áður en ég fór heim. Sundferðin tók innan við klukkustund og ég var komin heim um sex leytið. 

17.8.26

Fékk sms og mail frá besta bankanum í morgun

Þar til flensan náði að leggja mig var takmarkið að fara í blóðbankann eftir vinnu í dag. Var með áminningu í dagatalinu um að bóka tíma akkúrat í dag 17. ágúst. Færði þessa áminningu aðeins aftar í dagatalið og eyddi henni svo. Ekki það að ég sé hætt við heldur er ég ekki viss um hversu lengi ég þarf að fresta þessari heimsókn. Ég myndi halda svona 2-4 vikur. En ég mætti þó í vinnuna í dag og lifði vinnudaginn af. Vorum bara tvö framan af og þegar hinn tilvonandi skoðunarmaðurinn mætti einhvern tímann upp úr hádeginu fór hann að vinna í verkefnum sem tengdust því sem hann er að vinna að þessa dagana, þ.e. að klára skoðunarmannanámskeiðið og taka fleiri en eitt próf til að fá skoðunarskírteinið. Þrjátíuogfjórir bílar og ein kerra voru skoðuð í dag, allt af stöðvarstjóranum. Ég hafði annars tekið sunddótið með í bílinn en eftir vinnu ákvað ég heldur að fara beint heim í sturtu og svo rólegtheit. Greip ekki einu sinni í prjónana mína og líklegast er að ég fari beint í háttinn eftir þessa færslu og lesi lítið sem ekki neitt.

16.8.26

Sunnudagur sextándi

Ég hélt mig heima við í gær eins og fjóra daga þar á undan. Davíð Steinn sótti Odd um tvö leytið og þeir fóru saman í gjafa-leiðangur fyrir "baby-shower" og fengu sér að borða í leiðinni. Oddur var kominn til baka einhvern tímann fyrir fimm. Um sex leytið setti ég upp hýðisgrjón og náði í nokkra bleikjubita úr frosti og setti í annan pott. Greip þetta með mér þegar ég fór í Krónuna síðast. Oddur þáði reyndar ekki að borða með mér (meiri afgangur fyrir mig í staðinn) því hann var enn saddur. Rétt fyrir hálfátta fór hann labbandi í Smárann til að fara í bíó. Ég fór í háttinn upp úr hálftíu og byrjaði á því að mæla mig, ennþá örfáar kommur því miður en ég er eiginlega ekki að nenna þessu lengur. Kommurnar eru kannski eðlilegar að kvöldi til, amk á meðan enn "sýður" aðeins í brjóstholinu. Auðvitað langar mig ekki að láta mér slá niður og ég vil helst ekki fara á læknavaktina til að fá sýklalyf til að vinna þetta hraðar niður. Það síðara er kannski samt það sem ég þarf að gera. Skoða þetta betur í vikunni. 

15.8.26

Kommunum fer fækkandi

Varð svolítið svekkt þegar ég mældi mig í gærkvöldi, fjórar kommur eru alltaf fjórar kommur ef maður er að slást við pestirnar. Ég er þó ekki frá því að það sé farið að losa um "kekkina" í brjóstholinu. Hefði helst viljað vera laus við kommurnar svo ég gæti verið þokkalega viss um að mér slái ekki niður fari ég af stað út í morgundaginn. Ætla að halda mig heima við í dag. Oddur kom í gærkvöldi og er með gistingu hér til morguns og ég fæ þá bræður vonandi til að vera með mér í gjöf, og sjá um allt í kringum hana, til að taka með á opið hús á morgun. Það er eiginlega annars hálf galið að þurfa að halda sig inni við. Annars greiddi ég hálfa millijón inn á húsnæðislánið í morgun eftir að hafa fyrst greitt fasta greiðsluseðilinn. Lánið er því komið niður í 7,1 úr tæpum tólf sem það var í fyrir ári og greiðslubirgðin líklega að komast niður í um fimmtíuþúsund í stað áttatíuogtveggja. Þarf svo aðeins að ákveða næstu skref. Held að það væri skynsamlegt að koma láninu aðeins neðar til að lækka greiðslubirgðina enn frekar og svo halda áfram að borga inn á lánið með séreignarsparnaðinum þegar ég má fara að taka hann út eftir uþb tvö ár. Gallinn við sumt í þessu lífi er að stundum er það sem er svo rétt í dag alveg kolrangt á morgun og öfugt.

13.8.26

Með 8 kommur á kvöldin

Síðan á mánudags kvöldið hef ég verið að "vinna" í því að ná heilsu á ný. Var frekar spæld yfir því að mér tókst ekki að forðast pestina því dagana áður en ég játaði mig sigraða reyndi ég eins og ég gat að fara extra vel með mig. Það er enn nokkuð fast ofan í hálsi eða neðar. Er ekki stífluð en inn á milli þarf ég þó að snýta mér og horinn stundum grænn. Það er alls ekki gaman að vera kippt svona út úr rútínunni en það að ég hafi þurft að "hanga" heima sl daga hefur þó komið sér vel. T.d. eins og í gær þá gat ég fylgst með allri útsendingunni á RÚV vegan sólmyrkvans og í dag fylgdi ég Gunnari heitnum Þórðarsyni með góðri aðstoð útsendinu á sjónavarp símans preminum.

Oddur Smári byrjaði að vinna á mánudaginn var, sinnir yngstaskólastiginu í frístund í einum skólanum á Selfossi. Á meðan ekki er búið að setja skólann er þetta 100% starf en fer svo niður í hlutastarf um leið og skólinn byrjar.

"Hönnunar"-barnateppið stækkar daglega og mig er farið að gruna að ég þurfi að útvega aðeins fleiri dokkur í sumum litunum. Stundum veit ég ekki hvernig næsti bútur í teppinu verður fyrr en rétt áður en komið er að honum. Og þegar ég verð búin að prjóna og ganga frá endum mun ég amk eiga eftir að sauma kindamyndir á alla vega þrjá fleti og jafnvel ákveða hvort flott verði að hekla kant í kringum teppið. 

11.8.26

Pestargemlingur - kann það varla

Eftir að hafa farið frekar vel með mig um nýliðna helgi vaknaði ég nokkuð hress snemma í gærmorgun. Vissulega fann ég enn fyrir særindum í hálsinum en ég taldi mig vera hitalausa og nokkuð viss um að ég væri að komast yfir "versta" hjallann. Mætti í vinnu um hálfátta og var búin að hella upp á, snurfursa salernisrýmið, opna afgreiðslukerfin og gera upp kassann þegar stöðvarstjórinn mætti. Nýi maðurinn var á námskeiði mestallan daginn í gær, að vinna í að fá réttindi til að skoða og skila skoðununum sjálfur. Mér skilst að hugsanlega klárist það mál í vikulokin eða strax í næstu viku. Hann kom til okkar tæpum klukkutíma fyrir lokun og hjálpaði til við að skoða síðustu fimm bílana af 34 í heildina. Þó nokkur erill var í gær og ein skoðunin hafði meira að segja verið bókuð inn á noona sem við vorum að taka í notkun fyrir Skeifuna sl. föstudag. Þegar fór að líða á vinnudaginn var ég orðin nokkuð viss um að ég væri komin með hita. Tókst að mestu að forðast að fá hóstaköst en fann að hálsbólgan lá djúpt. Nebbinn stíflaðist ekki en það kom fyrir að ég þurfti að bregða mér frá og snýta mér eða þurrka nebbann, alls ekki oft. Ég sagði stöðvarstjóranum, í vinnudagslok, að ég ætlaði að mæla mig þegar ég kæmi heim og myndi senda honum sms ef ég væri komin með hita. Fór aðeins inn í Lyfju við Smáratorg. Ætlaði að kaupa annað glas af ólífulaufi og hitamæli en hætti við þar sem greiðslukortið mitt var út í bíl. Kom við í Krónunni í Lindum, hafði ekki farið að versla síðan fyrir síðustu mánaðamót. Kom heim um hálfsex. Gekk frá vörunum og fann svo loksins hitamælinn sem ég vissi að ég ætti í fórum mínum. Mældist með rétt tæplega 38,5°C hita. Ég hef ekki orðið svona lasin í meira en þrjú ár. Sendi sms-ið og tók því svo rólega. Um níu fékk ég mér panodíl-hot drykk, háttaði upp í rúm og fór að sofa án þess að lesa stafkrók. Rumskaði upp úr miðnætti en sofnaði strax aftur eftir að hafa farið á salerni pissað og snýtt mér. Rumskaði aftur um fimm leytið og þá var sama upp á teningnum. Vissi aðeins af mér um sjö en svo ekki fyrr en klukkan var að verða tíu. Er ekki búin að mæla mig aftur, geri það ekki fyrr en í kvöld eða á morgun. Hósta stöku sinnum og það er frekar sárt. Ég þarf líka að þurrka nebbann eða snýta mér öðru hvoru. Er samt ekki stífluð.

Seinni partinn í dag kemur einhver til að þrífa loftstokkinn í þvottaherberginu. Hæðir 5-8 voru teknar í gær og restina á að klára í dag. Nágrannakonan við hliðina bankaði upp á rétt áðan og afhenti mér lykla af sinni íbúð þar sem hún verður að vinna til klukkan hálfsjö.

9.8.26

Svæsin hálsbólga

Ég stóð mína pligt í vinnunni á fimmtudag og föstudag en er ekki búin að fara í sund síðan á Hellu á laugardaginn var og aðeins eina ferð í sjóinn um miðjan dag á miðvikudaginn. Eftir vinnu á fimmtudaginn kom ég við í Lyfju á Smáratorgi, sem ég skrifaði um í síðustu færslu, og keypti mér m.a. ólífulauf- og hvítlaukshylki. Hefði eiginlega líka átt að kaupa eitthvað sterkt og mýkjandi í hálsinn. Átti smá engifer bút sem ég nýtti mjög vel en kláraðist um helgina. 

Bríet hafði samband við mig á föstudaginn og spurði hvort hún mætti gista hjá mér aðfaranótt laugardags. Það var auðsótt mál. Hún kom um sjö leytið og fékk lánaða húslykla en staldraði stutt við. Ég sá hana svo ekki aftur fyrr en rétt fyrir klukkan ellefu í gærmorgun þegar hún kom og skilaði lyklunum og sagði orðrétt: "Svefn er greinilega fyrir aumingja!" Var svo rokin út fljótlega aftur á leið í smá lokunar veislu Hárhornsins en Lilja föðursystir hennar hefur rekið þá stofu síðan Torfi dó. Nú er hún búin að finna annað húsnæði á betri stað skilst mér. Ég reyndi að fara vel með mig um helgina og hélt mig heima við. Það varð þó amk til þess að ég er loksins farin að munda prjónana aftur eftir rúmlega árs hlé. Er byrjuð á einhverju sem á helst að verða bleikt ungbarnateppi með kindum á. Bríeti leist vel á það sem hún sá af því en svo verður það að ráðast hvernig heildarútkoman verður og hvort Hulda verði jafn hrifin. Í morgun fór ég annars í þriðja skipti í sturtu hér heima á þessum rétt tæpu tíu mánuðum sem ég hef búið hér en það kemur ekki til af góðu. Það er þó örugglega ágætt að nota sturtuna öðru hvoru og nýta tækifærið og skrúbba sturtubotninn í leiðinni. Hann var þó ekkert sérlega skítugur, samt smá sandur úr Nauthólsvík og einhver hár í niðurfallinu. 

6.8.26

Fyrsti vinnudagur eftir frí

Gærdagurinn var síðasti frídagurinn í bili. Kalda potts vinkona mín hafði haft samband kvöldið áður að spyrja hvort við gætum hist í Nauthólsvík um þrjú. Ég taldi það frekar líklegt en sló smá varnagla þó því ég fann aðeins fyrir eymslum í hálsinum og var smeik um að vera að leggjast í pestina sem synir mínir eru rétt að verða góðir af. Skrifaði til baka að ef hún heyrði ekkert frá mér í gær mætti hún reikna með að hitta mig. Fór frekar snemma á fætur og loksins lét ég verða af því að grípa í prjónana aftur eftir árs hlé. Einhverskonar barnateppi er komið í vinnslu og verður frekar fróðlegt að sjá útkomuna þegar þar að kemur. Um hádegið tók ég bleikju og smá ýsu úr frysti, skar niður sæta kartöflu sem ég sauð með spergilkáli. Frosna fiskinn setti ég saman í annan pott í vatn krydduðu með best á lambið. Úr varð hin ágætasta máltíð og nægur afgangur í tvo skammta. Ég var mætt í Nauthólsvíkina rétt fyrir þrjú. Við Hrafnhildur fórum þrisvar í sjóinn, einu sinni í gufuna og tvisvar í heita pottinn á einum og hálfum tíma. Var mætt í Hátúnið stuttu fyrir fimm. Eftir tímann fékk ég gefins sólmyrkvagleraugu og þau skilaboð að stöðinni yrði lokað klukkan fjögur n.k. miðvikudag svo ég fæ eina viku í frí. Á heimleiðinni kom ég við í Lyfju við Smáratorg og verslaði mér C-vítamín, hvítlaukshylki, ólífulauf og extra-tyggjó. Hitti bekkjarsystur úr 2. bekk í Helluskóla fyrir utan.

Þegar ég fór í háttinn í gærkvöldið stillti ég tvær "vekjaraklukkur", annars vegar klukkan hálfsex og hins vegar klukkan hálfsjö. Rumskaði um eitt leytið til að fara á pisseríið og ákvað í leiðinni að slökkva á fyrri vekjaranum og sleppa morgunsundi. Var mætt í vinnu um hálfátta. Hellti upp á, gerði uppgjör og fleira. Stöðvarstjórinn er búinn að útvega tveggja sæta sófa og aukaborði í afgreiðslurýmið og hann hafði þar að auki skroppið í Bónus í gær og passað upp á að kaupa hreint skyr og rjóma. Ég fór því aftur heim með chiagrautinn sem ég tók með í vinnuna í morgun og hafði sem millimál um fimm leytið eftir að ég kom heim. 

4.8.26

Næst síðasti frídagurinn langt kominn

Ég mætti fyrst af sjö (tíu ef ég tel hundana með) næturgestum til pabba á laugardaginn var. Helga og Ingvi og hundarnir þrír voru síðust, komu milli fjögur og hálffimm. Þá voru Hulda, Óli og tvíburarnir mætt á tveimur bílum. Við pabbi, Helga og Hulda skruppum þá fljótlega í búðina. Þegar við komum til baka var þremur krydduðum lambalærum pakkað inn í álpappír og stungið í ofn. Þá var líka að komast á hreint hvernig raðað yrði í svefnplássin. Óli, Hulda og Bríet sváfu í stærsta herberginu því þar inni voru tvö rúm, annað tvíbreitt. Ég var ein í mínu herbergi, bræðurnir sváfu saman í tvíbreiðu rúmi í herberginu við hliðina, pabbi og sú spænski í stofunni. Hann í sínu rúmi við minni gluggann og hún á dýnu á gólfinu við stærri gluggann. Helga, Ingvi og hundarnir lögðu undir sig pabba herbergi og "spariforstofuna"! Sú spænska var annars að vinna til klukkan tíu um kvöldið. Kom ekki heim fyrr en við vorum búin að borða og ganga frá. Hún vinnur í eldhúsinu á Stracta hótelinu og er á tólf tíma vöktum. Átti líka vinnu vakt á sunnudeginum. Bræðurnir og Bríet skutluðu henni í vinnuna daginn eftir og gerðu sér ferð á Hvolsvöll eftir hálftöflum og fleiru. Ég rölti í sund og var mætt rétt áður en opnaði um tíu. Kom til baka um tólf leytið. Um hálfþrjú leytið lögðum við af stað á tveimur bílum en Ingvi átti pantað borð fyrir 18 manns á Friðheimum því vinafólk þeirra var á svæðinu. Oddur fékk að keyra okkur Helgu og Ingva og tvo af hundunum á Helgu bíl. Davíð Steinn keyrði bíl afa síns, með óléttu frænku sína í framsætinu og afa sinn, Bríeti og Óla aftur í. Hann lagði heldur lengra frá en hann þurfti en færði svo bílinn nær eftir að pabbi hafði rölt með eina hækju af bílastæðinu og svo smá stuðning þegar hann þurft niður nokkur þrep. Borðið var tilbúið um fjögur leytið og þá voru níu manns á aldrinum 3 til rúmlega 50 búin að bætast við. Stór hlutu af þeim hópi var á fyrstu (og einu hingað til) Árlandsleikunum sem voru haldnir sumarið eftir að Helga og Ingvi fluttu í sveitina fyrir norðan. Systir mín og mágur buðu tvíburunum að borða og drekka, var "sextugs"-afmælisgjöfin þeirra. Ég átti í vandræðum með að velja á milli súpu og sallats en það síðarnefnda, með önd, varð ofan á. Pantaði mér einnig eitt hvítvínsglas með matnum. Nokkru eftir að allir voru búnir að borða og sú ólétta, systir hennar og afinn orðinn þreytt að sitja lengur var ákveðið að Bríet tæki að sér að keyra afa bíl með okkur fjögur og báða hundana með til baka á Hellu. Bræðurnir og systir mín og mágur og hluti af vinahópnum varð aðeins lengur.

Í gær átti sú spænska frídag og hún vildi endilega elda fyrir okkur spænskan rétt. Svo gott hjá henni. Vorum að borða milli tvö og þrjú. Eftir matinn kvöddu Hulda og Óli og fóru til Keflavíkur og ekkert svo löngu á eftir þeim kvöddu bræðurnir. Þeir voru búnir að glíma við smá hálsbólgu alla helgina og mér skilst á Oddi að hann hafi verið kominn með hita seinni partinn í gær. Davíð Steinn átti að byrja að vinna aftur í dag eftir rétt rúmlega viku frí en hann varð að tilkynna sig inn veikan. Ég stoppaði fram yfir kvöldmat og eftirrétt en ákvað svo að drífa mig í bæinn. Bíllinn var í 56% en ég komst á honum alla leið heim og það var laust fyrir hann á hleðslustaurnum þegar ég bakkaði að honum um tíu þá komin niður í 22%. Var rúma sjö klukkutíma að hlaða hann upp í 100%, rumskaði upp úr klukkan fimm til að stoppa hleðsluna en fór ekki út til að taka hann úr sambandi og færa fyrr en um níu.

1.8.26

Í hlutlausum

Ekkert merkilegt gerðist á fimmtudaginn var, nema þá helst að ég kláraði að lesa eina bóka af safninu. Í gærmorgun borðaði ég hinn helminginn af hafragrautnum sem ég bjó til á miðvikudaginn og hitti svo kalda potts vinkonu mína og eina til í Nauthólsvík um tíu. Var komin heim aftur um tólf. Klukkan var orðin hálffjögur þegar ég fór loksins út aftur. Stillti heilsuforritið í símanum á útiveru en byrjaði á því að rölta í Jysk á Smáratorgi að kíkja á og versla garn sem kannski verður að barnateppi við rétta meðhöndlun. Svo hélt ég útiverunni og gönguferðinni áfram. Staldraði aðeins við Himnastigann en ákvað að labba aðra leið og einhverskonar hring. Nú er ég um það bil að fara að leggja í hann austur á Hellu. Helga systir og Ingvi mágur eru á leiðinni suður með hundana sína þrjá. Hulda og Óli komu í bæinn í gær, gistu hjá mömmu hans og fá að geyma hundinn hans þar á meðan þau verða fyrir austan. Pabbi er búinn að undirbúa komu okkar. Færa rúmið sitt í stofuna og smíða annað tvíbreytt í herbergið hans. Spænsk-suðurameríska stúlkan ætlar að hreiðra um sig í stofunni og það lýtur allt út fyrir að hægt verði að hola tíu manns niður inni, amk yfir eina nótt. Pabbi er með allra hressasta móti því blaðran er alls ekki að angra hann þessa dagana. Ég veit annars ekki hvort ég verð eina, tvær eða þrjár nætur fyrir austan. Ætla að láta það ráðast. 

29.7.26

Ekkert kaffi í dag

Rumskaði fyrst um fimm leytið. Er ekki svo viss um að ég hafi steinsofnað alveg aftur en ég kúrði eitthvað. Um hálfsjö leytið greip ég í bók og rúmum klukkutíma eftir það fór ég loksins á fætur. Bjó mér til hafragraut um níu leytið. Á svipuðum tíma komu skilaboð frá ensku vinkonu minni. Hún og maðurinn hennar eru búin að bóka ferð til Íslands í 10 daga  í júní á næsta ári og festa sér íbúð í sjö mínútna göngufæri frá mér. Þetta verður eitthvað skemmtilegt. Annars mætti ég í Nauthólsvík um það leyti sem verið var að opna og var ég á undan kaldapotts vinkonu minni. Fórum þrjár ferðir í sjóinn og í annarri ferðinni var ég lengur út í og svamlaði út að kaðli. Í þriðju og síðustu ferðinni tók ég sundhettuna af höfðinu og sjóbleytti hárið. Ég kom við í Krónunni í Lindum áður en ég fór heim. Fór ekki aftur út fyrr en upp úr klukkan hálffimm en þá brunaði ég í Hátúnið í osteostrong tíma. 

28.7.26

Þrjátíu ár síðan synirnir voru skírðir

Rúmur klukkutími síðan ég kom heim eftir yndislega daga hjá æskuvinkonu á Egilsstöðum. Var svo heppinn að Davíð Steinn var í bænum og nennti að sækja mig á flugvöllinn. Hann skutlaði mér líka þangað um eitt leytið á föstudaginn var. Flugið austur tók um 45 mínútur og var ég að lenda rétt fyrir hálffjögur. Þurfti aðeins að bíða eftir að vera sótt á flugvöllinn, en það var í fínu lagi. Aðalsteinn, maðurinn hennar Ellu, var í sumarfríi á föstudaginn. Það var mikið gott að hitta Ellu og höfðum við um margt að spjalla. Um fimm leytið fengum við okkur hvítvínsglas í fordrykk en Aðalsteinn fór að undirbúa kvöldmatinn, folaldakjöt steikt í ofni í ofnpotti á rótargrænmeti. Mjög góður og vellukkaður matur. Á laugardagsmorguninn fór hann eldsnemma að leiðsegja mönnum frá Vestmannaeyjum í hreindýraveiði. Aðeins annar maðurinn var með leyfi fyrir tarfi en hinn fékk að fljóta með. Það fór allur dagurinn í þetta og endaði með því að þeir urðu frá að hverfa og fara aftur á sunnudaginn. Dagurinn hjá okkur Ellu byrjaði milli sjö og átta, reyndar hafði hún aðeins rumskað og farið fram um leið og bóndinn. Hún er með nokkuð fastmótaða rútínu dags daglega og heimsóknin mín truflaði alls ekki þá rútinu. Inn á milli vorum við að spjalla, leysa lykilgátur, sem hún er sérfræðingur í, horfa á þætti og alls konar. Um tólf ákvað ég að gera hlé á tæplega þriggja ára kaffibindindi og fékk mér einn bolla úr kaffivélinni hennar Ellu ásamt grillaðri samloku. Kaffið var himneskt en ég tók samt þá ákvörðun að "detta" ekki of mikið í það, hélt mig alla fjóra dagana við tvo bolla á dag, seinni bolla alls ekki seinna en klukkan þrjú. Hreindýratúrinn hjá Aðalsteini á sunnudaginn varði frá klukkan átta um morguninn til klukkan hálftvö aðfaranótt mánudagsins. Ella bauð mér út að borða á veitingastaðnum sem tilheyrir "Lake" gistihúsinum. Fórum þangað á rauða bílnum þeirra hjóna, ég bílstjórinn, og vorum settum hjólastólið í skottið á milli staða. Fengum okkur báðar rirsarækjur á grænmetis og ávaxtabeði. Seinna á sunnudaginn fórum við aðeins út á "röltið" þ.e. ég labbaði og Ella notaði rafskútuna sína. Löbbuðum niður á Vilhjálmsvöll, einn hring á ystu brautinni með smá stoppi og svo til baka. Borðuðum afgang af folaldasteikinni um kvöldið. Rétt fyrir hádegið í gær fékk ég rauða bílinn lánaðann og skrapp í heimsókn í Frumherja í Fellabæ. Var mætt rétt fyrir tólf og stoppaði aðeins inn í matartímann þeirra. Skoðunarmanninn þekkti ég aðeins en hann er fastamaður á Hádegismóum en tók að sér að leysa af fyrir austan næstu tvær vikurnar. Milli klukkan átta og tólf skoðaði hann 22 bíla, bæði bókaða bíla og fleiri sem komust að inn á milli ef þeir vildu bíða. Gætu hafa verið allt að fjórir auka bílar bara fyrir hádegi. Eftir heimsókina kom ég við í sundlauginni á Egilsstöðum. Fór beint á braut 2 og synti í um tuttugu mínútur, aðallega skriðsund en líklega um 125m bakskriðsund. Aðalsteinn grillaði ofan í okkur um kvöldið. Upp úr klukkan tíu í morgun skutlaði ég Ellu í sjúkraþjálfun, lagði svo bílnum og fékk mér um það bil hálftíma göngutúr á meðan. Eftir hádegi fórum við stöllur aðeins út á pall bak við húsið þar sem hún blés nokkrar sápukúlur, æfngar sem talmeinafræðingurinn hennar mælti með. Við vorum líka að leysa lykilgátur, horfa á þætti og spjalla. Aðalsteinn bauð upp á þorskhnakka með kartöflum og smjöri í kvöldmat áður en hann skutlaðist með mig á flugvöllinn.

23.7.26

Tvíburarnir þrítugir í dag

Ég gerði það með vilja að taka ekki fram tölvuna í gærkvöldi. Eftir vinnu í gær fór ég í osteostrong tíma, sló met á einu tækinu. Var komin í Nauthólsvík um hálfsex. Þar var margt um manninn því sjósundsfélag Reykjavíkur stóð fyrir einhvers konar sjósundskeppni. Ég er ekki í sjósundsfélaginu, var bara þarna að hitta kalda potts vinkonu mína. Við fórum tvisvar sinnum í sjóinn og í seinna skiptið svamlaði ég út að kaðli og fór smástund í lónið á leiðinni í pottin.

Rumskaði um fimm í morgun sem mér fannst mjög snemmt þar sem ég er byrjuð í tveggja vikna sumarfríi. Hafði ekki stillt á mig klukkuna og gat sem betur fer kúrt mig aðeins niður aftur, ekki mjög lengi samt. Held að ég hafi verið byrjuð að lesa einhvern tímann á sjöunda tímanum. Fór á fætur um átta, hélt áfram að lesa og kláraði næstsíðustu bókina af safninu. Um níu bjó ég mér til hafragraut og um tíu var ég mætt í Nauthólsvík þar sem verið var að opna. Svamlaði út að kaðli og fór í gufuna í tíu mínútur á eftir áður en ég fór aðra ferð í rúmlega 12°C kaldan sjóinn og svo í heita pottinn í ca tuttugu mínútur. Um hálftólf var ég komin á bókasafnið. Skilaði af mér öllum bókum nema einni, líka prjónablaðinu sem ég tók síðast. Í pokann fóru fimm bækur; Í leyndri gröf eftir Vivecu Sten, Hættulegur hæfileiki eftir Camillu Sten, Illska eftir Eirík Örn Norðdahl (gæti verið búin að lesa hana áður), Blómadalur eftir Niviaq Korneliussen og Oddaflug eftir Guðrúnu Helgadóttur.

Þegar ég kom aftur í bílinn af safninu átti klukkan stutt eftir í tólf. Ég hringdi í Odd Smára og talaði við hann á meðan ég keyrði yfir í N1 við Borgartún. Þar hitti ég á hinn soninn. Sá var með kórónu og svolítið skreyttur, m.a. með hálsmen með 30 á. Rétt eftir að ég hitti á Davíð Stein kom einn samstarfsfélaginn og byrjaði að syngja afmælissönginn. Ég tók undir, hástöfum, og afmælisbarnið hálf snéri sér undan. Ég var komin heim um hálfeitt. Ákvað að stinga bílnum í samband og hlaða þrátt fyrir að hann væri í 60%. Fljótlega eftir að ég kom inn fór ég að sinna því sem ekki má skrifa um. Hringdi líka í pabba og Ellu vinkonu. Þegar ég fór út að taka bílinn úr sambandi og færa hann í annað stæði seinni partinn, notaði ég tækifærið og fór í smá göngutúr. Stefnan var tekin á Himnastigann. Neðarlega var grafa við vinnu svo ég tók smá krók, sleppti þar af leiðandi einhverjum tröppum, fór þó alla leið upp og settist á bekkinn um stund. Labbaði svo aðeins aðra leið heim,

Á morgun á ég flug austur á Egilstaði. Davíð Steinn verður kominn í frí og ætlar að gefa sér tíma til að skutla mér á völlinn. Ég mun ferðast frekar létt. Tek ekki tölvuna með mér, enga handavinnu og kannski ekki einu sinni eina bók. Bara föt til fjögurra daga, snyrtibudduna, vítamín og sunddót. Færslur næstu tvær vikur verða örugglega mjög stopular.