Ég fór ekki að sofa fyrr en um miðnætti í gær. Var komin upp í rúm um tíu leytið og gleymdi mér alveg í lestrinum. Vaknaði við vekjarann um hálfsex. Mætti í sund um leið og opnaði. Synti 500m. Stimplaði mig inn í vinnu tuttugu mínútum fyrir átta. Stöðvarstjórinn var ný mættur og tíu mínútum á eftir okkur mætti nýr skoðunarmaður. Hafði verið í þjálfun hjá Frumherja í Hafnarfirði en á eftir að klára námskeið eða próf til að fá skoðunarnúmer. Þeir voru því að vinna tveir saman við skoðanir í dag, annar meira uppi og hinn niðri en það var stöðvarstjórinn sem skilaði öllum skoðunum. Á tíma var erill í símsvörun og smá að gerast í númeraplötuviðskiptum. Vinnudagurinn leið fljótt, lokuðum á slaginu hálffimm og ég var komin heim fyrir klukkan fimm.
20.7.26
19.7.26
Helgin og HM að klárast
Þessi helgi hefur verið fljót að líða eins og flestar aðrar helgar. Ég leyfði mér að sofa út í gærmorgun og skrópa í sundið. Vaknaði um hálfníu og frétti um hálftíma síðar að lítil frænka hefði fæðst í Danmörku nokkrum klukkustundum fyrr. Yngsti bróðir mömmu heitinnar og konan hans, 10 og 9 árum eldri en ég, voru að verða afi og amma. Dótturdóttirin hefur verið nefnd Alma. Klukkan tíu var ég mætt til norsku esperanto vinkonu minnar og stoppaði hjá henni í rúma klukkustund. Áður en ég fór heim keypti ég þvott á bílinn hjá Löðri við Fiskislóð. Um þrjú leytið skrapp ég út í göngu, fór 4,4km, með einni pásu, á klukkustund og tuttugu mínútum. Oddur Smári kom um hálftíu í gærkvöldi, rétt áður en Englendingar skoruðu þriðja markið í fyrri hálfleiknum um þriðja sætið á HM. Leikurinn endaði 6:4 fyrir England á mótið Frökkum. Frakkar voru ekki sjálfum sér líkir í fyrri hálfleiknum. En það lítur allt út fyrir að Mbappe verði markakónur, hann skoraði tvö í seinni hálfleik í gær og komst upp í 10 mörk skoruð á þessu móti.
Var komin á fætur um hálfníu í morgun. Bjó mér til hafragraut og tók mig til fyrir sjósundsferð. Hafði smá tíma til að gera æfingar með lóð og lesa. Var mætt í Nauthólsvík rétt fyrir tíu. Hitti kalda potts vinkonu mín sem og sjósundsvinkona mína og aðra til. Kalda potts vinkonan og ég fórum þrisvar í sjóinn, einu sinni í gufu, einu sinni í lónið og tvisvar í pottinn. Ég var komin heim um tólf og hafði glútenlausar fiskibollur úr Fiskbúð Fúsa og sætar kartöflur í matinn. Um þrjú skutlaði ég Oddi í Mjóddina þar sem hann tók næsta strætó á Selfoss, tuttugu mínútur yfir, til að verða kominn á Bakkann áður en úrslitaleikurinn í HM byrjaði.
17.7.26
Viðburðarríkur föstudagur í vinnunni
Synti 500m á brautum 3-5 í morgun, 300m skriðsund og 200m bakskriðsund. Þvoði mér um hárið áður og stimplaði mig inn í vinnu upp úr klukkan hálfátta. Um leið og við opnuðum kom eldri maður, sem bæði hefur hringt og komið áður, til að láta okkur vita að hann hafði valið þessa stöð til að skrá og skoða heimasmíðaðan rafbíl. Hann sagðist vera með alla pappíra frá samgöngustofu og að það kæmu tveir eftirlitsmenn um níu til að fylgjast með. Hann átti eftir að ljúka við að fylla út eitt form og var aðeins á vappinu á svæðinu en fór svo út og skrapp frá þar til klukkan var níu og eftirlitsmennirnir komu. Í millitíðinni höfðu verið skoðaðir tveir bílar. Tæpan klukkutíma tók að taka út þetta nýstárlega furðulega farartæki en niðurstaðan varð bílasmiðnum ekki í vil því alltof mörgu var ábótavant. Fljótlega eftir að þessu ævintýri lauk kom útlendingu hvers farartæki lögreglan hafði boðað í aukaskoðun út af brotnum afturljósum. Hann kom reyndar í gær líka en var ekki með nægan pening þá því það voru ógreidd opinber gjöld á eindaga af bílnum. Viðkomandi bifreið á að koma í skoðun síðar á árinu og við buðum honum að fara í aðalskoðun en hann vildi frekar fara í lögregluskoðun og hélt að þá væri bara skoðað að ljósin væru í lagi. Það endaði með að stöðvarstjórinn hafnaði því að gera skoðun, sagði manninum að fara annað. Ég sá það í ökutækjaskrá seinna í dag að það hafði hann gert, borgað fyrir L1, sem þýðir að ef bíllinn hefði staðist skoðun hefði hann fengið 26 miða og þurft að koma aftur í A1 síðar á árinu. En bifreiðin stóðs ekki skoðun og fékk akstursbann. Stöðvarstjórinn skrapp heim til sín í hádeginu. Ég fór í tuttugu mínútna göngu. Í heildina voru skoðuð 30 farartæki í dag. Lokuðum á slaginu fjögur og ég fór í klippingu áður en ég fór heim og stakk bílnum í hleðslu, var kominn í 30%. Eftir tæpa fjóra tíma er hann kominn í 70%.
16.7.26
Júlí hálfnaður
Ég las einn og hálfan kafla áður en ég fór að sofa í gærkvöldi. Líklega hefur klukkan verið um það bil ellefu þegar ég slökkti ljósið. Rumskaði um þrjú, alveg í spreng, en sofnaði strax aftur eftir að hafa farið á pisseríið. Vissi næst af mér þegar vekjarinn fór að hamast upp úr klukkan hálfsex. Rúmlega klukkustund síðar var ég komin á braut 7 í Laugardalslauginni. Synti 100m áður en ég færði mig á braut 6 og synti 400m í viðbót. Stimplaði mig inn í vinnu tuttugu mínútum fyrir átta. Einn var á húninum á slaginu átta en svo var nokkuð rólegt til að byrja með. Lokuðum í rúmlega hálftíma í hádeginu, þá var búið að skoða 18 farartæki. Stöðvarstjórinn skrapp heim til sín, ég fór í tuttugu mínútna göngu um nágrennið. Meiri erill var eftir hádegi, bæði í síma og annarri afgreiðslu. Heildarfjöldi skoðaðrar farartækja fór upp í 41. Lokuðum á slaginu hálffimm. Ég byrjaði á því að skreppa á bókasafnið. Skilaði fjórum bókum af fimm. Fletti í gegnum prjónablöð og tók eitt að láni ásamt þremur bókum. Kom við í Krónunni í Lindum áður en ég fór heim. Ein vinkona, jafnaldri og fyrrum starfsfélagi hringdi fljótlega eftir að ég kom heim. Við áttum langt og gott spjall.
15.7.26
Nokkuð viðburðarríkur dagur sem byrjaði svolítið snemma
Vaknaði helst til snemma þar sem ég ætlaði mér ekki að mæta í sund fyrir vinnu. Klukkan var ekki orðin sex en ég var útsofin og ég notaði tækifærið m.a. til að gera nokkrar æfingar með 2kg lóðum, borga föstu afborgunina inn á húsnæðislánið, taka mig til fyrir sjósund eftir vinnu og njóta þess að borða chia-morgun grautinn í rólegheitum. Um sjö birtist annar greiðsluseðill vegna húsnæðislánsins í bankaappinu, 2 af þremur í samningi sem ég gerði við sjálfa mig á síðum hsm. Er nú búin að greiða lánið niður um rúmar 4 millijónir síðan ég flutti það yfir á nýja heimilið. Greiðslubirgðin minnkar jafnt og þétt sem er gott. Stimplaði mig inn í vinnu um hálfátta og hafði í nógu að snúast fram að opnun. Morguninn byrjaði rólega en engu að síður var búið að skoða átján bíla fyrir klukkan tólf. Skrapp út í tæplega hálftíma göngu í hádeginu. Opnað var fyrir skoðanir aftur rétt rúmlega hálfeitt og þegar við stimpluðum okkur út tæpum fjórum tímum síðar var heildarfjöldinn kominn upp í 42. Eftir vinnu fór ég beint í osteostrong tíma. Þurfti að bíða smástund eftir að komast að. Bætti mig á tveimur tækjum. Var komin í Nauthólsvík rétt fyrir klukkan hálfsex þar sem ég hitti kalda potts vinkonum mína. Það var háflóð og mjög stutt út í hressandi 11,6°C sjóinn. Vorum extra lengi þar sem við höfðum ekki hist í tæpar tvær vikur en við vorum þó komnar upp úr nokkru áður en lokaði um sjö. Hringdi í tvíburahálfsystur mína þegar ég var að leggja af stað frá Nauthólsvík og var komin til hennar skömmu síðar. Hún bauð mér í kvöldmat sem var súpergóður, lax, sveppir, sætar kartöflur og hollanderssósa. Á níunda tímanum kveikti hún á sjónvarpinu, RÚV og útsendingu frá seinni undanúrslita leiknum. England var nýlega búið að komast 1-0 yfir gegn Argentínu og reyndu svo að verja markið. Argentínumenn gáfust ekki upp og unnu leikinn 2:1. Held að úrslitaleikurinn á sunnudaginn, Spánn - Argentína verði mjög skemmtilegur. Var annars líka að fletta prjónablöðum sem endaði með því að ég tók nokkur með mér heim, eiginlega allan bunkann sem ég var búin að velja og taka frá á sunnudaginn var. En nú er löngu kominn tími fyrir "morgunsunddrottninguna" að koma sér í bælið. Freistast samt örugglega til að lesa smá.
14.7.26
Útsofin í morgun
Ég var pottþétt sofnuð um tíu í gærkvöld og svaf alveg þar til vekjarinn fór að hamast um hálfsex leytið. Var mætt á planið við Laugardalslaugina rétt áður en klukkan varð hálfsjö. Það var hópur á sundæfingu á brautum 6 og 7 svo ég fór á braut 1 og synti 500m áður en ég settist smá stund í steinapottinn. Stimplaði mig inn í vinnu örlítið fyrr en í gærmorgun. Skrapp í tuttugu mínútna göngutúr í hádeginu. Í heildina voru skoðaðir 35 bílar í dag. Ég kom heim um fimm. Þremur korterum seinna fór ég í lopapeysu, strigaskó, setti á mig ennisband og stillti heilsuforritið í símanum á útivist. Labbaði að Himnastiganum og upp langflestar tröppurnar. Sleppti örfáum tröppum neðarlega á leiðinni þar sem að var ungur maður á smágröfu að vinnu. Settist á bekkinn sem er efst uppi í nokkrar mínútur áður en ég fór niður og aftur upp og niður. Grafan var tóm og stopp svo ég fór allar tröppurnar. Labbaði svo stystu leið heim sem er um 950m og var komin áður en fyrri undanúrslitaleikurinn á HM hófst. Núna er hálfleikur og staðan er 1:0 fyrir Spán sem fékk vítaspyrnu stuttu fyrir vatnspásuna.
13.7.26
Mánudagur
Ég var alls ekki útsofin þegar ég fór á fætur stuttu fyrir sex í morgun en ég var ákveðin í að byrja daginn á því að mæta í sund. Það hressti mig til muna. Synti 500m á braut 7 í Laugardalslaug, skriðsund aðra leiðina og bakskrið til baka. Sat svo á spjalli í steinapottinum þar til kominn var tími til að fara upp úr. Stimplaði mig inn í vinnu nítján mínútum fyrir átta og var búin að hella upp á kaffi, snurfursa biðrýmið, opna afgreiðslukerfin og gera upp fimm mínútum fyrir átta. Rólegt var til að byrja með en skoðaðir voru fjórtán bílar fyrir hádegi. Í hádeginu skrapp stöðvarstjórinn aðeins heim og kom svo við í Bónus á leiðinni til baka. Ég skrapp í tuttugu mínútna göngutúr og var byrjuð að taka símann aftur rétt fyrir klukkan hálfeitt. Í heildina voru skoðaðir þrjátíuogfjórir bílar í dag. Hulda frænka fór í tuttugu vikna sónar og fékk að vita að það er von á stelpu seint í nóvember n.k.
12.7.26
Samantekt helgarinnar
Í gærmorgun var ég ákveðin í að sleppa sundinu og ætlaði ég mér að sofa út. Ég varð því mjög hissa þegar "vekjaraklukkan" fór að hamast eldsnemma, um sex að mér sýndist og með nýju hljóði. Í raun var síminn að hringja rétt rúmlega fimm og var það systir mín sem vasahringdi óvart í mig. Ég snéri mér á hina hliðina, nennti ekki fram á pisseríið, og tókst að sofna aftur. Fór á fætur stuttu fyrir níu og bjó mér til hafragraut úr grófum grjónum. Rétt rúmlega ellefu var ég mætt til norsku esperanto vinkonu minnar og á sama tíma kom þar að ein úr Viðeyjargegningu, röltandi frá Aflagrandanum. Innan korters vorum við þrjár lagðar af stað austur fyrir fjall. Keyrðum úr ágætis veðri í bænum inn í þokusúld í Þrengslunum. Það var blautt á Selfossi og líka frekar rigningarlegt á Hellu. Komum til pabba stuttu fyrir klukkan eitt og fengum að pissa. Stoppuðum í ca þrjú korter en vorum mættar nokkru fyrir klukkan tvö í skúrinn við Hellana á Ægisíðu þar sem við keyptum okkur skoðunarferð með íslenskri leiðsögn. Héldum að færði um hellana tæki um klukkustund en þegar búið var að fara inn í þrjá hella og kíkja inn í aðra þrjá og fá mjög góða leiðsögn um þá alla og góðan tíma til að skoða og mynda ef vildi þá var klukkan langt gengin í fjögur. Við fórum aftur til pabba sem bauð upp á pönnsur og Inger upp á smurðar flatkökur, eplapæ og formköku. Pabbi fékk sér kranavatn með, ein fékk kaffi en við vorum tvær í teinu. Hjálpuðumst að við að ganga frá eftir að hafa kýlt vambirnar og spjallað um ýmislegt. Kvöddum pabba rétt fyrir klukkan hálfsex. Stoppuðum næst við Olís vestan við Ölfusá. Lenti í smá veseni með að hlaða bílinn. Appið var dottið út en þegar ég kom því inn aftur tókst að tengja bílinn við hraðhleðsluna. Skilaði stelpunum af mér fyrir utan heima hjá esperanto vinkonu minni um hálfátta leytið og ég fór beinustu leið til að undirbúa mig undir að horfa á þriðja leikinn af fjórum í átta liða úrslitunum. Ég var löngu farin að sofa þegar Oddur kom og bjó um sig í stofunni.
Í morgun ætlaði ég aldrei að nenna á fætur. Dreif mig þó fram áður en klukkan varð mikið meira en tíu. Oddur var vaknaður en ekki búinn að klæða sig eða búa um en fór þó að vinna að því fljótlega. Vorum að spjalla og ákváðum m.a. að sleppa því að fá okkur morgunmat. Ég bauð upp á saltfist og sæta kartöflu í hádeginu og um hálftvö skruppum við mæðgin í tæplega klukkutíma göngu. Sýndi honum Himnastigann og við löbbuðum upp allar 207 tröppurnar en þar sem verið var að mála hann og merkja ákvaðum við að vera ekki að trufla fólkið sem vann að því og löbbuðum í smá hring um hluta af hverfinu. Rúmum hálftíma eftir göngu túrinn skutlaði ég syninum í Mjóddina til að hann næði strætó austur á Selfoss. Sjálf hringdi ég í tvíburahálfsystir mína til að kann hvort hún væri heima og tæki á móti mér. Gerði mjög gott stopp hjá henni.
10.7.26
Vinnuvikan liðin
Var mætt í sund um hálfsjö. Fór á braut 4 og synti í tuttugu mínútur. Sat svo í korter í steinapottinum á spjalli við leikkonuna Kötlu Margréti Þorgeirsdóttur. Stimplaði mig inn í vinnu korter fyrir átta og var búin að hella upp á, snurfusa biðrýmið og setja upp afgreiðslukerfin áður en klukkan varð átta. Þar sem ekki var greitt með reiðufé í gær hafði ég gert upp í lok vinnudagsins í gær. Skoðaðir voru átján bílar fyrir hádegi, samt var mjög rólegt fyrsta klukkutímann. Í hádeginu skrapp ég aftur út í tuttugu mínútuna göngu. Eftir hádegi voru skoðuð 22 farartæki, þar af eitt mótorhjól. Stimpluðum okkur út á slaginu fjögur. Ég kom aðeins við í N1 í Borgartúni. Lét Davíð Stein taka húslykla til að láta bróður sinn hafa. Oddur fær gistingu aðfaranótt sunnudags en þeir bræður eru boðnir í þrítugsafmæli bekkjarsystur úr Hlíðaskóla á laugardagskvöldið. Stakk bílnum í hleðslu þegar ég kom heim upp úr klukkan hálffimm. Hann er kominn upp í 98% núna og segist geta verið að hlaða til klukkan tíu eða í hálftíma í viðbót. Ég skrepp bráðum út, stoppa hleðsluna og færi bílinn á annað stæði.
9.7.26
Fimmtudagur
Ég fór heldur seinna að sofa í gærkvöldi en flest virk kvöld. Klukkan var að verða tíu þegar ég fór í háttinn og þá átti ég eftir að lesa í rúman hálftíma eða þangað til augun fóru að ranghvolfast ég hætt að meðtaka þar sem ég var að reyna að lesa. Rumskaði einhvern tímann um miðja nótt til að fara á pisseríið, sofnaði ekki alveg strax aftur en svaf svo alveg þar til vekjarinn ýtti við mér. Mætti í Laugardalslaugina þegar hún opnaði um hálfsjö, sund, smá spjall í steinapottinum og köld sturta áður en ég fór upp úr og í vinnu. Vinnudagurinn byrjaði mjög rólega, aðeins einn bíll skoðaður milli klukkan átta og rúmlega hálftíu en svo voru 16 bílar skoðaði eftir það til klukkan tólf. Ég skrapp aðeins út í smá göngu, tæpar tuttugu mínútur, í hádeginu. Aðeins meira var að gera eftir hádegi en verkefnin komu í skorpum. Í heildina voru gerðar 29 skoðanir í dag. Kom við í Fiskbúð Fúsa áður en ég fór heim. Verslaði harðfisk, ýsu, saltfisk og smá þorskhnakka sem ég fékk skorinn í þrjá bita.
8.7.26
Hálfurmánuður í sumarfríið
Vaknaði helst til snemma í morgun þar sem planið var að sofa þar til klukkan væri byrjuð að ganga sjö. Var aðeins á "skrollinu" fyrsta hálftímann áður en ég fór á fætur. Tók með mér sjósundsdótið út í bíl á áttunda tímanum og var mætt í vinnu um hálfátta. Veitti ekkert af þessum tíma til að undirbúa daginn og græja eitt og annað áður en opnaði. Dagurinn byrjaði annars rólega en þó voru 16 faratæki skoðuð fyrir hádegi. Í hádeginu skrapp stöðvarstjórinn heim til sín. Ég labbaði tuttugu mínútna hring um svæðið eftir að ég var búin að fá mér að borða og ganga frá. Stimplaði mig úr vinnu á slaginu hálffimm og fór beint í osteostrong. Bætti mig á tveimur tækjum, tvö met. Eftir tímann fór ég beinustu leið í Nauthólsvík. Þar hafði ég mælt mér mót við frænku kaldapotts vinkonu minnar. Sú var nýkomin í klefann þegar ég mætti. Það er langt síðan hún fór í sjóinn síðast. Þótt sjórinn sé 12°C og hún nokkuð vön köldum pottum þá var þetta pínu sjokk fyrir líkama hennar. Vorum líklega útí í um eina og hálfa mínútu. Eftir nokkra stund í heita pottinum fórum við aftur í sjóinn. Hún fór upp úr eftir rúmar tvær mínútur og beið eftir mér í heita pottinum þegar ég kom nokkrum mínútum seinna. Fórum aðeins í gufuna, smá í lónið, sem var volgara en sjórinn þar sem var fjara og vorum svo korter í heita pottinum áður en við fórum upp úr. Ég var komin heim rétt fyrir klukkan sjö.
7.7.26
Sjöundi sjöundi tuttuguogsex
Var farin að losa svefninn í þann mund sem vekjarinn ýtti við mér. Snúsaði einu sinni eiginlega aðallega til að teygja mig og slaka á án þess að hafa áhyggjur af því að ég myndi gleyma tímanum. Fór út í daginn korter yfir sex og var mætt í Laugardalslaug um hálfsjö. Mun færri voru í sundi í morgun en samt einhvern veginn smá kraðak á brautunum til að byrja mér. Æfði mig í að synda hægt í stað þess að reyna að synda framúr. Var mætt í vinnu örlítið fyrr en í gær. Sömu verkefni og bætti við tæmingu á helstu ruslafötum. Þegar við lokuðum í hádeginu um tólf var búið að skoða fimmtán farartæki. Stuttu eftir hádegi komu feðgarnir, sem sjá um tæknimálin í fyrirtækinu, til að skipta um tölvu hjá mér og uppfæra. Ég var nýbúin að bóka inn tvo bíla en svo bókaði ég ekki aftur fyrr en um tvö. Í heildina voru samt skoðaðir tuttuguogátta bílar. Kom við í Krónunni í Skeifunni áður en ég fór heim. Kveikti fljótlega á sjónvarpinu og horfði á síðasta hálftímann í leik Argentínu og Egyptalands. Síðasta rúma hálftímann hef ég hlustað á lýsingu á leik Sviss og Kólumbíu á meðan ég hef verið að vafra á netinu í fartölvunni við eldhúsborðið.
6.7.26
Ný vinnuvika farin af stað
Vaknaði klukkan að verða hálfsex. Um klukkustund síðar var ég mætt á planið við Laugardalslaug. Fór beint á braut 7 og synti 500m. Flestar ferðirnar skriðsund og bakskriðsund til baka en lokaferðina til baka synti ég bringusund í fyrsta skipti í rúma viku. Fór í steinapottinn, sem hefur verið settur upp í amk 40°, þar sem hann er eiginlega eini "heiti" potturinn í notkun þessa dagana. Stimplaði mig inn í vinnu nítján mínútum fyrir átta. Hellti upp á, snurfusaði biðrýmið í afgreiðslunni, startaði tölvukerfunum og gerði upp kassann frá því á föstudaginn. Stöðvarstjórinn mætti nokkrum mínútum fyrir átta. Þótt það væru einhverjir á húninum var tiltölulega rólegt framan af morgni. Þó voru skoðaðir tuttugu bílar fyrir klukkan tólf. Farið var í Bónus í hádeginu og lokunartíminn lengdur um ca korter, opnað aftur korter fyrir eitt. Í heildina fóru skoðanirnar upp í 41 yfir allan daginn og sú sem kom með síðasta bílinn sem var skráður inn var ein bekkjarsystir mín úr A-bekknum í Kennó. Hún var búin að kveikja á mér, mundi bara ekki nafnið, ég þekkti hana ekki fyrr en ég skráði bílinn hennar inn og sá nafnið hennar. Áttum mjög gott spjall þar til ég þurfti að ganga frá afgreiðslunni, stimpla mig út og fara. Þá var bíllinn hennar langt komin í skoðuninni. Ég kom við í N1 í Borgartúni og skilaði syninum hattinum, sem hann hafði reyndar fengið frá móðurafa sínum fyrir þónokkru síðan. Pabbi hafði keypt þennan hatt í annarri af tveimur Tene ferðum með mömmu heitinni á sínum tíma. Annars var ég komin heim stuttu fyrir klukkan hálfsex og ég hugsa að það endi með því að ég horfi loksins á heilan leik á HM í knattspyrnu, 16 liða úrslit milli Spánar og Portúgals.
5.7.26
Uppgjör helgarinnar
Ég er á Hellu í augnablikinu, að ákveða mig hvenær ég legg af stað í bæinn. Var vöknuð upp úr klukkan sjö í gærmorgun en ekki komin á fætur þegar Villa vinkona hringdi í mig stuttu fyrir klukkan átta. Við vorum báðar á leið í sama hitting og höfðum talað um að hún pikkaði mig upp á Hellu upp úr hádeginu. Gestgjafarnir höfðu sent á hana skilaboð um hvort hún gæti komið fyrr. Ég lagði af stað úr bænum tuttugu mínútum fyrir tíu og fór Þrengslin. Ég var rétt komin í gegnum Selfoss og þegar Villa hringdi aftur. Hún hafði lagt af stað tíu mínútum á eftir mér, komið við á einum stað, farið Hellisheiðina og var að keyra framhjá Landsbankahúsinu á Selfossi. Við sammæltumst um að ef hún næði mér ekki áður en ég væri komin á Hellu skyldi ég bíða eftir henni við Olís. Ég stoppaði bílinn reyndar við Arionbanka-bygginguna. Villa kom um þremur mínútum seinna og elti mig til pabba. Vorum þar um ellefu. Ég fór á pisseríið, setti inn dót í herbergið mitt, heilsaði upp á pabba og ítölsku stúlkuna sem fær afnot af einu herberginu þessa dagana. Villa kom líka aðeins inn en við stoppuðum varla í tíu mínútum. Komum við í ÁTVR á Hellu þar sem ég keypti tvær mis-litlar hvítvínsflöskur. Umferðin austur fyrir Hellu og fram að Odda afleggjara var hæg vegna umferðaróhapps. Stoppuðum aðeins í N1 á Hvolsvelli áður en við héldum för áfram inn í Fljótshlíðina að sumarbústað sem er í landi Nátthaga. Þar var vel tekið á móti okkur af þeim tveimur sem eiga bústaðinn og einum gesti sem mætti á föstudeginum. Fljótlega fórum við að hjálpast að við undirbúningi á kvöldmatnum og það var allt búið á ótrúlega skömmum tíma og löngu áður en næstu gestir komu. Alls mættu átta manns í viðbót. Tvennt á húsbíl, tvennt með 6m hjólhýsi í togi, tvennt með 8m hjólhýsi í togi og tvær systur saman á bíl sem ég fékk svo far með á Hellu seint í gærkvöldi. Veðrið var með besta móti, eiginlega of gott og á ákveðnum tímapunkti fór ég í lopapeysu til að handleggir héldu ekki áfram að brenna. Önnur systirin bar líka framan í mig. Þótt ég væri rauð fann ég ekki fyrir þessu. Glatt var á hjalla langt fram á kvöld. Borðuðum úti um átta leytið og seinna um kvöldið var dreginn upp gítar og sönghefti. Ég var komin á Hellu aftur tuttugu mínútum eftir miðnætti og þá áttu systurnar eftir að keyra alla leið í bæinn. Þær sendu skilaboð klukkutíma og korteri síðar um að þær væru komnar heim. Sá þau skilaboð eftir að ég fór á stjá í morgun, en Villa var amk búin að svara þeim.
Stofuklukkan stoppaði um hálftvö í nótt svo ég gat ekki athuga með tímann með því að hlusta á slög þegar ég vaknaði á áttunda tímanum í morgun. Fór á fætur milli átta og hálfníu og einum og hálfum tíma síðar dreif ég mig út í göngu, ákveðin í að labba niður með ánni austan megin alla leið að Ægisíðufossi. Var tæpan klukkutíma á leiðinni. Staldraði við á svæðinu í um korter. Labbaði vegslóða til baka og kom að Hellu við Stracta Hótel. Þá labbaði ég aftur að ánni til þess að fara undir brúna. Þegar ég kom að Hólavanginum hjá pabba aftur voru systurdóttir mín og sú ítalska að hreinsa á milli hellanna á bílaplaninu og pabbi að "saga" niður ónýta sólberjarunna í garðinum. Ég dreif í að elda og matur var borðaður um hálftvö, þótti mjög góður. Fljótlega eftir mat fóru Bríet og vinkonan í smá verslunarferð í bæinn og pabbi aftur út að dútla í garðinum.
3.7.26
Ferð á bókasafnið eftir vinnu
Þrátt fyrir þær fréttir að búið væri að loka fyrir uppáhaldspottana mína, gufuna og fleiri potta í Laugardalslauginni var ég mætt í sund um hálfsjö. Fór beinustu leið á braut 7 og synti 600m á innan við hálftíma. Ekkert bringusund bara skrið og bakskriðssund. Kom aðeins við í steinapottinum áður en ég fór í sturtu og þvoði mér um hárið. Geir Ólafs var með söngatriði í afgreiðslurýminu, staldraði aðeins við en var mætt á planið við vinnuna tuttugu mínútum fyrir átta. Afleysingaskoðunarmaðurinn var þegar mættur á planið. Stöðvarsjórinn mætti rétt fyrir átta. Um hálfníu þurfti afleysingamaðurinn að fara upp í Hádegismóa en hann kom aftur í Skeifuna um hálftvö því fljótlega eftir það þurfti stöðvarstjórinn að fara. Í nógu var að snúast í dag. Sendillinn kom með nýjan kaffibrúsa og skrapp svo fyrir mig í bankann eftir skiptimynt. Hættum á slaginu fjögur og ég var á leiðinni á bókasafnið þegar var hringt í mig. Eftir tuttuguogfimmmínútna spjall skilaði ég fjórum bókum á safnið, framlengdi einni og tók fjórar bækur með mér heim. Setti bílinn í hleðslu um fimm og er bara nýbúin að taka hann úr sambandi og færa á annað stæði.
2.7.26
Líður á vinnuvikuna
Rumskaði stuttu fyrir fimm, alveg í spreng. Sofnaði aftur eftir að hafa farið á pisseríið og vaknaði við vekjarann rúmlega hálfsex. Aldrei þessu vant snúsaði ég tvisvar sinnum og fór ekki á fætur fyrr en rúmum tíu mínútum seinna, aftur alveg í spreng. Var samt ekki að þamba neitt í gærkvöldi. Mætti í sund klukkan hálfsjö. Fór þrisvar í kalda pottinn, synti 300m, fór nokkrar mínútur í gufu og sjópottinn. Nú síðdegis voru annars að berast þær fréttir að loka þurfi gufunni og öllum pottum sem eru stúku megin. Það er spurning hvort ég verði að endurhugsa eða færa morgunsundið í aðra laug. Stimplaði mig inn í vinnu tæpum tuttugu mínútum fyrir átta og var búin að gera upp og starta afgreiðslukerfum í tölvunni í afgreiðslurýminu þegar stöðvarstjórinn mætti. Morguninn var með rólegra móti, þó voru nokkrir á húninum. Það var mun meira að gera eftir hádegi en alls ekkert stress. Í heildina voru skoðuð 33 farartæki. Stimpluðum okkur út og lokuðum á slaginu hálffimm. Ég kom við í N1 í Borgartúni, bæði til að kasta kveðju á N1 soninn og fá lánaðan kúrekahatt til að vera með í hittingnum á laugardaginn.
1.7.26
Árið hálfnað
Vaknaði mun fyrr en ég þurfti þar sem ég ætlaði beint í vinnu en ekki fyrst í sund. Fékk mér chiagraut, kláraði morgunverkin, fyllti á vatnsflöskuna, tók til sjósundsdótið og las svo þar til kominn tími var til að fara. Stimplaði mig inn í vinnu um hálfátta. Það var ein á húninum þegar við opnuðum klukkan átta en svo var rólegt í rúman hálftíma eftir að skoðun lauk. Í heildina komu samt 36 bílar í skoðun í dag. Einnig var smá erill í símsvörun og öðrum afgreiðslum. Stimplaði mig út á slaginu hálffimm og var mætt í osteostrong tíma korteri síðar. Komst strax að. Bætti mig á þremur tækjum af fjórum. Tuttugu mínútum yfir fimm var ég komin í Nauthólsvík, þar sem kalda potts vinkonan beið eftir mér í heita pottinum. Ég byrjaði á því að endurnýja árskortið og fékk blátt armband með mér inn í búningsklefa. Klukkan var rúmlega hálfsex þegar við fórum fyrri ferðina í sjóinn. Það var að flæða að, stutt út í og sjórinn 12,5°C. Ég var komin heim rétt fyrir sjö. Setti upp frosið rósakál og sauð upp á ýsunni sem ég keypti hjá Fúsa í gær. Var að borða kvöldmatinn upp úr klukkan hálfátta.
30.6.26
Júní alveg að klárast
Mætti í sund um leið og opnaði. Eftir fyrstu ferðina af fjórum í kalda pottinn fór ég á braut 2 og synti 400m, skrið- og bakskriðsund. Stimplaði mig inn rúmu korteri fyrir átta. Kaffibrúsinn bilaði í vinnudagslok í gær, ekki hægt að pumpa kaffi úr brúsanum, þannig að ég sleppti því að búa til kaffi. Stöðvarstjórinn mætti fimm mínútum fyrir átta og opnaði á slaginu. Skemmst er frá því að segja að það var aldrei dauð stund í skoðunum í dag nema rétt þann tíma sem var lokað í hádeginu. Í heildina voru skoðaðir 43 bílar en örugglega meira en 10 vísað frá vegna þess að það voru komnir of margir í röðina og/eða það var stutt í lokun. Héldum jafnvel að skoðunarmaðurinn þyrfti að vera aðeins framyfir hálffimm en hann gat lokað á slaginu. Ég kom við í Fiskbúð Fúsa áður en ég fór heim. Keypti harðfisk, ýsu, bleikjuflak og fiskibollur. Ýsuna ætla ég að hafa í kvöldmatinn á morgun. Bollurnar og bleikjuflakið setti ég í frytsti.
29.6.26
Síðasti mánudagurinn í júní
Vaknaði korter yfir fimm við hljóð í stórum bíl. Nennti ekki framúr strax til þess að kanna hvað væri í gangi en ég var útsofin og fór á fætur upp úr klukkan hálfsex. Fékk mér chiagraut með bláberjum í morgunmat og var mætt í sund um það leyti sem var verið að opna í Laugardalslauginni. Byrjaði á kalda pottinum synti 400m skrið- og baksund á braut 7. Fór aftur í kalda áður en ég fór sjópottinn þar sem ég hitti eina af eldri sundvinkonum mínum. Spjallaði við hana í rúmar tíu mínútur áður en ég fór síðustu ferðina í þann kalda, upp úr og í vinnu. Stöðvarstjórinn var mættur rétt á undan mér en hann var að koma beint frá því að skutla konunni sinni út á flugvöll. Það mættu fjórir í skoðun um leið og opnaði. Um níu leytið var smá pása í tæpan hálftíma, akkúrat þegar eftirlitsmaður frá SGS mætti á svæðið. En upp úr klukkan hálftíu fór að streyma aftur að. Skoðuð voru 18 farartæki fyrir hádegi og 19 eftir hádegi. Annars skrapp ég einn stuttan gönguhring, 1,5km á 20 mínútum í hádeginu. Kannski varð það til þess að ég hafði mig ekki út aftur eftir að ég kom heim úr vinnu.
28.6.26
Uppgjör helgarinnar þótt en sé hún ekki alveg liðin
Gærmorguninn byrjaði eiginlega alltof snemma eða um fimm leytið. Fór þó ekki alveg strax á fætur, rétt skrapp á pisseríið og reyndi svo að kúra mig aftur niður. Það gekk ekki neitt, ég var eiginlega glaðvöknuð. Var því búin að gera ýmislegt mis-sniðugt þar til kominn var tími til að leggja af stað í sund. Tíminn líður pottþétt extra hraðar þegar með er að skrolla samfélagsmiðana og "leika" sér í netheimum. Var mætt í sund rétt rúmlega átta. Byrjaði á kalda pottinum en fór svo á braut 7 og synti í rúmar tuttuguogfimmmínútur, 600m, ekkert bringusund aðeins skrið- og bakskriðsund. Eftir aðra ferðina í þann kalda settist ég smástund í gufuna áður en ég fór í kalda sturtu og sjópottinn. Þar fann sjósundsvinkona mín mig og við spjölluðum í dágóða stund. Fór upp úr rétt fyrir klukkan tíu og þvoði mér um hárið. Var komin heim um hálfellefu. Næsti klukkutími fór í að sinna því sem ekki má skrifa um. Afgangurinn af deginum fór í þáttaáhorf, lestur og fleira innidútl. Hafði samt ætlað mér út en einhvernveginn varð ekkert af því.
Í morgun svaf ég til klukkan hálfsex og kúrði áfram til klukkan hálfsjö þótt ég sofnaði ekki aftur. Stuttu fyrir klukkan hálfníu bjó ég til hafragraut úr grófum grjónum sem voru búin að liggja í bleyti í potti inn í ísskáp síðan í gærkvöld. Helmingurinn fór í skál og inn í ísskáp. Var komin á braut sjö korter eftir níu og synti ég 700m á hálftíma, sömu sundaðferðir og í gær. Fór örstutt í kalda pottinn og þaðan í sjópottinn og beið þar eftir kaldapotts vinkonu minni sem kom á slaginu tíu. Við fórum fjórar ferðir í þann kalda og góða gufuferð. Ég kvaddi um ellefu og var komin heim um hálftólf. Klukkan korter yfir tvö fór ég út aftur, stillti heilduforritið í símanum á útiveru. Var úti í einnoghálfan tíma, labbaði 4,5km. Settist þrisvar niður á leiðinni m.a. eftir að hafa "trítlað" upp Himnastigann. Fór hann bara upp einu sinni og ekki niður aftur heldur í áttina að Digranesbraut og þar niður.