24.6.26

Osteostrong og sund eftir vinnu

Fór á fætur rétt fyrir klukkan hálfsjö. Sauð hafragraut úr grófum grjónum sem ég var búin að láta liggja í bleyti í pottinum yfir nótt. Grautnum gat ég skipt í þrennt og á því eftir tvo skammta. Var mætt í vinnu rétt fyrir klukkan hálfátta. Alls voru 33 bílar skoðaðir í dag. Lokuðum á slaginu hálffimm. Ég hringdi og spjallaði aðeins við pabba á meðan ég var að keyra yfir í Hátúnið. Komst strax að í osteostrong. Allar tölur voru mun betri heldur en fyrir hálfum mánuði. Mætti í Laugardalslaug um hálfsex leytið. Fór þrisvar í kalda pottinn, tvisvar í heitasta pottinn, einu sinni 12 mínútur í gufuna og synti svo 200m áður en ég fór upp úr. Kom við í Krónunni í Lindum áður en ég fór heim. Fór ekkert út aftur eftir að hafa fengið mér hressingu heldur horfði á tvo þætti úr mismunandi þáttaröðum og smá brot af fótbolta. 

23.6.26

Bríet 22 í dag

Vissi af mér og var að rumska líklega svona fimm mínútum áður en vekjarinn átti að ýta við mér. Gerði það með vilja að kúra alveg þar til vekjarinn fór að hamast. Var mætt á planið við Laugardalslaug stuttu fyrir hálfsjö. Hins vegar var ekki opnað fyrr en um 6:40 þar sem það vantaði mannskap. Ég fór beint út á braut 8 eftir að búið var að opna og ég búin að afklæðast, læsa fötin í skáp, fara í sturtu og svo sundbol. Sleppti því að fara í "sundskóna" og sá næstum eftir því. Synti 100m á braut átta og aðra 200 á braut 7. Helminginn af þessari vegalengd syndi skriðsun, 100m bakskrið og aðeins 50m bringusund. Fór þrisvar í þann kalda, ekkert í gufuna en smástund í sjópott og 42°C pottinn. Stimplaði mig inn í vinnu rúmlega korter fyrir átta. Einn kom í skoðun á fyrsta klukkutímanum en samt urðu skoðaðir bílar 38 í heildina eins og í gær. Stöðvarstjórinn var að ljúka við að skoða síðasta bílinn þegar ég stimplaði mig út, þakkaði fyrir daginn og kvaddi. Fór beint heim. Til stóð að skreppa jafnvel út aftur en ég festist í öðru og leyfði mér að vera löt. 

22.6.26

Ný vinnuvika hafin

Ég vaknaði það löngu á undan vekjaranum að ég hefði alveg haft tíma til að skella mér í morgunsund. Ég lét það þó vera því planið var að fara í sjóinn eftir vinnu. Gerði þess í stað nokkrar æfingar með 2 kg lóðum og kveikti einnig á fartölvunni til að vafra smá, aldrei þessu vant. Stimplaði mig inn í vinnu rétt fyrir klukkan hálfátta og var búinn að undirbúa, græja og gera þegar stöðvarstjórinn mætti rétt fyrir opnun. 23 bílar voru skoðaðir fram að hádegi en í heildina urðu þeir 38. Það kom örstutt stund rétt fyrir fjögur þar sem skoðunarmaðurinn gat sest niður á stól í afgreiðslu rýminu. Strax eftir vinnu fór ég ég Nauthólsvík og hitti kaldapotts vinkonu mína. Fórum tvær ferðir í tæplega 14°C heitan sjóinn og eina í lónið. Það var að fjara út og lónið því volgara en sjórinn. Kom heim upp úr klukkan hálfsjö og rúmri klukkustund síðar skrapp ég út í klukkutíma útivist. Fór í rólega göngu, smá hring upp á 3,6km og settist tvisvar niður á leiðinni til að njóta veðurs, kyrrðar og fuglasöngs.

21.6.26

Helgar uppgjör

Þrátt fyrir að enn séu rúmir átta klukkutíma til miðnættis ætla ég aðeins að taka helgina saman. Ég fór á fætur um sjö leytið og var komin í sund rétt eftir að opnaði um átta. Fór þrjár ferðir í kalda pottinn, synti 600m á braut átta, mest skriðsund, var nokkrar mínútur í gufunni, sleppti sjópottinum en settist í smá "sólbað" áður en ég fór upp úr og í esperanto hitting. Á Sólavalla götunni setti ég bílinn í samband þrátt fyrir að vera enn með amk 67% hleðslu. Á þeim rúma klukkutíma sem ég stoppaði hjá norsku esperanto vinkonu minni fór batteríið upp í 85%. Keypti þvott á bílinni og renndi honum í gegnum færibandið hjá Löðri við fiskislóð. Var komin heim stuttu fyrir klukkan tólf. Gaf mér tæpan hálftíma til að klára að pakka niður í tösku áður en ég lagði í hann austur á bóginn. Hringdi í pabba þegar ég var nýlega komin niður úr Þrengslunum og sagðist vera á leiðinni en ekki búin að ákveða hvort ég gerði stopp. Þegar ég kom á Selfoss fór ég í heimsókn til frændfólksins í Löngumýrinni og stoppaði í um klukkustund. Var komin til pabba einhvern tímann á fjórða tímanum. Bríet frænka var á fullu að koma sér fyrir. Pabbi grillaði rétt fyrir hálfsjö, ég sá um að það yrðu tilbúnar kartöflur á sama tíma og eftir matinn gekk frænka mín frá. Var aðeins að fylgjast með útsendingunni frá Þingvöllum en einnig smá fótbolta, einn þátt og eina bíómynd. Ég fór í háttinn um tíu en pabbi horfði sjónvarp símans til miðnættis og svo byrjun á einum fótboltaleik.

Þegar ég kom á fætur um átta í morgun var pabbi þegar kominn á stjá. Búinn að taka úr uppþvottavélinni og var að hlusta á rás tvö. Ég fór út um hálftíu í tæplega tveggja klukkutíma rólega göngu niður með ánni. Átti örugglega alls ekki svo langt eftir að Ægisíðufossi þegar ég ákvað að snúa við. Var komin til baka um hálftólf. Bríet kom fram skömmu síðar en hún var þá búin að ákveða að fara til vinkonu, vildi ekki borða með okkur. Pabbi hafði tekið út eitt þorskflak sem honum áskotnaðist og ég græjaði matinn á rúmum hálftíma. Bríet kvaddi um það leyti sem við vorum að setjast að snæðingi. Klukkan er rétt orðin fjögur og ég er enn að ákveða hvenær ég eigi að hafa mig af stað í bæinn.

19.6.26

Vinnuvikan liðin

Þrátt fyrir að ég vaknaði áður en vekjarinn átti að ýta við mér gaf ég mér ekki tíma í æfingar með lóðum í morgun. Fékk mér afgang af hafragraut frá því á miðvikudaginn og var mætt nokkrum mínútum fyrir opnun á planið við Laugardalslaug. Stimplaði mig inn í vinnu nítján mínútum fyrir átta. Rétt á eftir mér mætti afleysingaskoðunarmaður. Hann var reyndar kominn á undan en sat úti í frumherjabílnum þar til ég var búin að taka úr lás, kerfið af og kveikja ljósin. Rúmlega átta mætti aðstoðar pilturinn sem var með okkur sl. föstudag. Það var alveg í nógu að snúast og skoðunarmaðurinn fékk fáar pásur fyrir utan hádegishléið. Þrjátíu og átta farartæki skoðuð og klukkan var byrjuð að ganga fimm þegar við vorum búin að ganga frá og stimpla okkur út. Ég fór beinustu leið heim. Restin af deginum leið alveg jafn hratt og vinnudagurinn og mér sýnist það ætla að enda með því að ég fari frekar snemma í rúmið í stað þess að skreppa í smá spássitúr. 

18.6.26

Annar afleysinga-skoðunarmaður

Var svolítið hissa þegar vekjarinn ýtti við mér klukkan korter fyrirsex í morgun.Var reyndar eitthvað lengur að sofna í gærkvöldi svo það er líklega ekkert skrýtið. Dreif mig strax á fætur og gaf mér meira að segja tíma til að gera nokkrar lóða æfingar með 2kg lóðunum. Var mætt á planið við Laugardalslaug rétt fyrir klukkan hálfsjö. Rútínan eins og í gær og svo hitti ég óvænt "mánudags"-morgunsundsvinkonu mína í sjópottinum. Stimplaði mig inn í vinnu nítján mínútum fyrir átta. Einn af skoðunar-flökkurunum mætti tíu mínútum síðar. Það var ákveðin ró yfir deginum en þó voru um fjörutíu farartæki skoðuð í heildina. Við lokuðum á slaginu hálffimm og þá var ég búin að ná að gera upp kassann. Kom við í Fiskbúð Fúsa og keypti harðfisk og ýsu í soðið. Um leið og ég var komin heim snéri ég mér að verkum sem ekki má skrifa um. Um hálfsjö leytið setti ég upp ýsuna. Átti afgang af kartöflum og rósakáli frá því á sunnudaginn. Um hálfátta stillti ég heilsuforritið á útivist og skrapp út í göngutúr. Fór fram hjá Smáralind og langleiðina á Breiðabliksvöllinn. Labbaði svo stíg í dalnum í áttina heim og kom að Himnastiganum. Labbaði upp 207 þrepin. Það fór fram úr mér ungur maður á hlaupum. Hann kom ekki niður aftur, hljóp einhvern hring og kom aftur hlaupandi upp stigann og framhjá mér þar sem ég sat á bekk efst uppi. Ég mætti honum svo á niðurleiðinni. Útivistin spannaði eina klukkustund og fimmtíu mínútur og ég labbaði 5,75km, með hléum í heildina. Ég verð mjög hissa ef ég mun eiga erfitt með að sofna í kvöld. 

17.6.26

Þjóðhátíðardagurinn

Í smá stund fannst mér eins og ég hefði sofið yfir mig þegar ég vaknaði rétt fyrir klukkan níu í morgun. En ég var útsofin og hafði nægan tíma. Gerði meira að segja æfingar með 2kg lóðum. Bjó mér til hafragraut rétt fyrir tíu og var hann svo vel útilátinn að ég skipti honum niður og á eftir  tvo skammta. Með grautnum fékk ég mér sneið af köldum blóðmör og eitt harðsoðið egg af fjórum sem ég sauð. Ég var mætt í Nauthólsvík um leið og opnaði um ellefu. Fjara og sjórinn tæpar 14°C. Fyrri ferðina synti ég og svamlaði út að kaðli (hefði getað vaðið alla leiðina). Eftir ferð í gufuna fór ég beint aftur út í sjó og svamlaði um eða lét mig fljóta á bakinu. Var komin heim aftur upp úr klukkan hálfeitt. Hringdi í pabba um tvö leytið og frétti að hann hefði verið í bæjarferð í gær, var í tíma hjá augnlækni í Mjóddinni. Rétt fyrir fjögur fékk ég mér ristað brauð og te. Svo stillti ég heilsuforritið á útivist, fór í sömu flíkur og ég skrifaði um fyrir útivist gærdagsins og lagði leið mína að Himnastiganum. Settist á bekk í smá stund eftir að ég kom upp en trítlaði svo niður aftur og labbaði smá hring með tveimur hæfilegum pásum. Útivistin varði í tæpan einn og hálfan tíma og yfirferðin var tæpir 4,5km. 

16.6.26

Færsla númer fjögurþúsundogsjöhundruð

Rumskaði alltof snemma, einhvern tímann á fimmta tímanum. Fór á pisseríið og svo fram í ísskáp og saup á lýsisflöskunni áður en ég fór aftur upp í rúm. Hlýt að hafa gleymt mér í einhverja stund. Vaknaði korteri áður en vekjarinn átti að ýta við mér. Dreif mig fljótlega á fætur en samt gaf ég mér ekki tíma í neinar lóða æfingar. Var mætt á planið við Laugardalslaug fimm mínútum áður en opnaði. Synti 400m á braut 7 og byrjaði á að synda skriðsund yfir og bakskriðsund til baka fyrstu þrjá hringina. Fjórða og síðasta hring fór á bringusundi yfir og skrið- og bakskrið til baka. Var mætt í vinnu tuttugu mínútum fyrir átta. Sami afleysinga-skoðunarmaður mætti nokkrum mínútum fyrir átta, sjáfur yfirmaður BSK-sviðs, nafni minn og frændi. Dagurinn gekk vel hjá okkur en varð aðeins lengri í hinn endann. Akkúrat 40 faratæki skoðuð og við vorum að ganga frá og loka tíu/fimmtán mínútum fyrir fimm. Ég fór beint heim en þó aðra leið en oftast. Fékk mér smá hressingu og greip svo í bók, slakaði á í næstum þrjá tíma. Þá var ég reyndar búin að kveikja á sjónvarpinu en áður en ég festist alveg yfir boltanum stillti ég heilsuforritið í símanum á útiveru, fór í strigaskó, lopapeysu og ennisband og rölti 4,6km hring með þremur pásum á einum og hálfum tíma. 

15.6.26

Mánuðurinn hálfnaður

Vekjarinn "ýtti" við mér korter fyrir sex í morgun. Var mætt á planið við Laugardalslaug tæpum þremur korterum síðar. Fór þrjár ferðir í kalda pottinn, synti 400 metra og var um tíu mínútur í sjópottinum að spjalla við eina sundvinkonu mína. Stimplaði mig inn í vinnu seytján mínútum fyrir átta og var búin að hella upp á, starta kerfum og gera upp þegar Siggi frændi mætti á svæðið á slaginu átta. Skoðaðir voru 37 bílar í dag. Fór beinustu leið heim eftir vinnu og lagði bílnum á neðra planinu. Fékk mér hressingu, kveikti á sjónvarpinu en slökkti aftur á því korteri síðar og fór að lesa. Rúmlega sjö klæddi ég mig í lopapeysu, setti á mig eyrnaband og reimaði á mig strigaskóna. Stillti símaforritið á útivist. Labbaði uþb 3km hring með einni ca korters pásu á tæpum klukkutíma. Annars greiddi ég húsnæðislánið niður um hálfa millijón í dag, eftir að hafa greitt mánaðalegu afborgunina af því. Þá skulda ég bara rúmlega átta millijónir.

14.6.26

Helgin gerð upp

Það var með vilja að ég sleppti því að setja inn færslu fyrir gærdaginn. Ákvað að taka ekki fram tölvuna í gær. Svaf út, fór á fætur um hálfníu. Bjó til hafragraut fljótlega og vakti eiginlega Odd til þess að borða hann með mér. Um eitt leytið var ég með hádegismat. Fann bleikjubita og smá ýsu í frysti sem ég sauð. Setti líka upp kartöflur og rósakál og skar niður einn lauk sem ég mýkti aðeins upp á suðu. Var einnig með súrkál og sallat með þessu. Var eitthvað að spyrja soninn hvort hann vildi koma í göngutúr en við vorum amk ekki farin að fara út þegar hinn sonurinn hringdi í bróður sinn um þrjú og spurði hvort hann vildi koma í bíltúr. Mér var líka boðið að koma með en fannst eigilega of langt liðið á daginn því stefnan var tekin á Arnarstapa. Þeir bræður lögðu í hann stuttu fyrir fjögur og meiningin hjá mér var að skreppa út í stuttan göngutúr. Þau plön urðu ekki að veruleika og það endaði með því að ég var innipúki í gær, festist í að horfa á breska þætti á RÚV um Kjarnakvendið Emmu Hart byggða á samnefndri skáldsögu eftir Barböru Taylor Bradford. Klukkan var langt gengin í tólf þegar ég fór í háttinn. Samt las ég í smá stund.

Vaknaði fyrst upp úr klukkan sex í morgun en náði að kúra mig niður í um klukkustund. Ég var mætt í sund rétt eftir að opnaði um átta. Fór fjórum sinnum í kalda pottinn, synti 500m, var nokkrar mínútur í gufu og sjópottinum en sat líka í dágóða stund á stól á spjalli við yngstu mágkonu mömmu. Klukkan var að verða tíu þegar ég fór upp úr og heim. Um tvö leitið skrapp ég aftur út. Markmiðið var að labba að og upp himnastigann, rúmlega 200 þrep. Ekki er langt á staðinn og allt gekk vel. Ég var samt frekar andstutt þegar ég kom upp. Staldraði aðeins við og tók mynd áður en ég hélt göngunni áfram sem varð á endanum næstum því 6km hringur. Settist niður á einum öðrum stað. Þrátt fyrir að bíllinn væri með meira en 55% hleðslu ákvað ég að nýta mér að staurinn var laus. Ætla að hlaða upp í amk 95%. Þambaði vatn og fékk mér svo te og brauðsneið og bók í hönd. Tók ekki tölvuna fram fyrr en um sex leytið.

12.6.26

Veðurblíða

Vaknaði rétt fyrir klukkan hálfsex. Hálft í hvoru langaði mig eiginlega til að snúa mér á hina hliðina og kúra aðeins lengur. Ég fór samt fljótlega á fætur og notaði auka tímann í að gera nokkrar lóðaæfingar með 1,5kg lóðum og lesa. Var komin í kalda pottinn í Laugardalslauginni tuttugum mínútum fyrir sjö. Fór því næst á braut 7 og synti 400m á ca 17 mínútum. Fór tvær ferðir í viðbót í þann kalda, nokkrar mínútur í sjópottinn og gerði einnig stutta "hanga í rim"-æfingu áður en ég fór upp úr og í vinnu. Rétt rúmlega átta mætti til okkar sumarpilturinn sem var með okkur um daginn og á tíunda tímanum kom auka skoðunarmaður til okkar. Það var þó frekar rólegt í skoðunum, aðeins 12 faratæki fyrir hádegi og 13 eftir hádegi. En þá var bæði hægt að nota tímann til að sitja úti í sólinni (reyndar var ég inni að vakta símann og önnur samskipti) og strákarnir þrifu líka stöðina mjög vel. Stöðvarstjórinn skrapp aðeins rétt fyrir hádegi til að kaupa handa okkur súpu að borða. Fór beint heim eftir vinnu. Setti handklæði og tuskur í þvottavélina, fékk mér hressingu og horfði á tvo nýja þætti. Um kvöldmatar leytið bjó ég mér til plokkfisk. Gleymdi því alveg að ég ætlaði að skera niður lauk, mýkja og bæta við. Plokkarinn var samt mjög góður. Klukkan var byrjuð að ganga tíu þegar ég dreif mig aftur út í smá göngu/útiveru í tæpa klukkustund. Von er á Oddi í gistingu síðar í kvöld.

11.6.26

Húsfundur

Vaknaði einhvern tímann snemma á sjötta tímanum í morgun. Það var því ágætis tími fyrir morgunrútínu og að bæta smá lóðaæfingum og lestri við áður en ég dreif mig í sund. Svo var ég mætt í vinnu um tuttugu mínútum fyrir átta. Tuttugu bílar voru skoðaðir fyrir hádegi. Stöðvarstjórinn skrapp heim í hádeginu. Ég hellti upp á nýtt kaffi, fékk mér að borða og skrapp einnig í um tíu mínútna göngutúr, smá hring. Var komin aftur fyrir klukkan hálfeitt, á undan stöðvarstjóranum. Ég var komin heim um fimm. Las í tæpa klukkustund en um sex var ég mætt niður í bílageymslu á húsfund þar sem greidd voru atkvæði um nokkrar framkvæmdir sem eru framundan. Það var frekar léleg mæting á fundinum en til hans var boðað með löglegum fyrirvara og þar sem flestir eða allir mætti voru samþykkir því sem verið er að fara að gera þá munu þær framkvæmdir fara í frekari ferli fljótlega. 

10.6.26

Sjósunds hittingur

Á miðvikudögum fer ég aðeins seinna af stað út úr húsi og þá beint í vinnuna. Var mætt um hálfátta og vá þá búin að vera á fótum í um einn og hálfan tíma. Gaf mér m.a. tíma til að gera nokkrar lóðaæfingar með 1,5kg lóðunum. Þegar stöðvarstjórinn mætti rétt fyrir átta voru komnir tveir á húninn. Fram að hádegi skoðaði hann 20 farartæki. Stöðin var lokuð í um fimm korter í hádeginu en byrjað var að skoða aftur korter fyrir eitt. Heildin fór upp í 38, einhverjum varð að vísa frá í dag og sumir ákváðu sjálfir að annað hvort fara annað eða koma aftur annan dag. Eftir vinnu fór ég beint í osteostrong tíma og þaðan í Nauthólsvíkina. Kaldapotts vinkona mín var mætt og beið í heita pottinum þegar ég mætti á svæðið um hálfsex. Það var eiginlega háfjara og sjórinn 11,7° C. Vorum ca klukkutíma að sinna rútínunni okkar og spjalla. Fórum upp úr um hálfsjö. Ég kom við í Krónunni í Skeifunni og var ekki komin heim fyrr en korter yfir sjö, tólf tímum eftir að ég fór að heiman í morgun.

9.6.26

Soðin ýsa alltaf sælgæti

Ég var vöknuð áður en klukkan varð hálfsex, amk tuttugu mínútum áður en vekjarinn átti að hnippa í mig. Var útsofin og dreif mig fljótlega á fætur. Hafði því bæði tíma til að gera smá lóðaæfingar og lesa smávegis áður en ég dreif mig í morgunsundið. Rútína dagsins var svipuð og í gær nema ég fór fjórar ferðir í kalda pottinn, smá stund í heitasta og hékk og gerði smá æfingar í rimlunum. Stimplaði mig inn í vinnu átján mínútum fyrir átta tæpu korteri áður en stöðvastjórinn mætti. Ég var búin að hella upp á og var að klára að gera upp. Skoðuð voru rétt yfir farartæki í dag, þar af voru þrjú mótorhjól og eitthvað af endurskoðunum. Eftir vinnu kom ég aftur við á N1 í Borgartúni, að kíka á N1-soninn, en fór svo Sæbrautina heim. Um fimm leytið var þar mikil umferð en ég notaði tímann og spjallaði við pabba meiri hlutann af leiðinni. Fljótlega eftir að ég kom heim setti ég upp kartöflu og sauð upp á ýsunni sem ég fékk í fiskbúðinni í gær. Var eitthvað aðeins að horfa á landsdleikinn í kvennaboltanum en ákvað svo að skreppa aðeins út. Notaði tækifærið og fór með lífræna ruslið. Stillti heilsuforrit símans á útiveru og labbaði hring sem mældist tæpir 3km. Áður en ég fór inn aftur kom ég við í sjoppunni hinum megin við götuna og keypti mér tvo poka af prótein poppi. Hitti fyrrum vinnufélaga í sjoppunni.

8.6.26

Á bókasafnið

Ég var vöknuð rúmu korteri áður en vekjarinn átti að ýta við mér, ekki alveg útsofin en þó tilbúin í daginn. Gerði meira að segja nokkrar lóðaæfingar. Var mætt á planið við Laugardalslaug fimm mínútum fyrir opnun. Byrjaði sundrútínuna á að skella mér nokkrar mínútur í þann kalda, synti svo 400m á braut 7 áður en ég fór aftur í kalda pottinn. Hitti nokkrar sundvinkonur á öllum aldri í sjópottinum. Stimplaði mig inn í vinnu átján mínútur í átta og var búin að hella upp á kaffi, undirbúa afgreiðslurýmið, setja upp afgreiðslukerfin, gera upp og kveikja á pressunni áður en stöðvarstjórinn mætti á slaginu átta. Þá biðu tveir á húninum. Það var ákveðin ró yfir deginum en þó nokkur ös engu að síður. Ingi frændi kom við að athuga með númeraplötu, hún var ekki komin en skráð þannig í kerfinu að hún væri á leiðinni. Skelltum í lás í hádeginu og stöðvarstjórinn sótti handa okkur mat á Hanann, keyptan fyrir flöskusjóðinn. Í heildina voru skoðaðir 43 bílar þar af 20 fyrir hádegi. Númeraplatan kom ekki með sendingu dagsins og ég sendi nokkrar fyrirspurnir. Strax eftir vinnu hringdi ég í Davíð Stein og kom aðeins við hjá honum á N1, stoppaði ekki lengi. Næst lá leiðin í röðina í Fiskbúð Fúsa. Þar verslaði ég harðfisk og ýsu sem ég geri ráð fyrir að hafa í matinn annað kvöld (óþarfi að borða tvær heitar máltíðir á dag). Úr fiskbúðinni fór ég í bókasafnið í Kringlunni og skilaði þremur bókum af fjórum. Er búin með 68 bls. af 480 af fjórðu bókinni; Ráðuneyti æðstu hamingju eftir Arundhati Roy. Var frekar lengi að komast inn í þá bók en ákvað að gefa henni séns. Af safninu "eltu" mig fjórar bækur heim. Engin af þeim skammtímaláns. Sleggjudómur eftir Ragnheiði Jónsdóttur, Sumarrollur eftir Quentin Bates, Það sem við komumst ekki yfir eftir Lucy Score og Minninga skrínið eftir Kathryn Hughes. Ég hef það sterklega á tilfinningunni að ég eigi eftir að framlengja einhverjum skilafrestum. Áður en ég fór heim kom ég við í Útilíf í Kringlunni og kláraði tvö gjafa kort og bætti við tæplega 1100 kr. þegar ég fjárfesti í 3mm "sokkum" sem ég ætla að nota seinna í sjóbuslið. Kom heim rétt fyrir klukkan sex. Það stóð til að skreppa aðeins út og safna skrefum en líklega verður endirnn sá að ég fer í fyrra fallinu í háttinn.

7.6.26

Sjórinn

Eitthvað svar ég furðulega í nótt en í staðinn náði ég að kúra til klukkan langt gengin í níu. Þá fór ég loksins á fætur og bjó mér til hafragraut. Var mætt í Nauthólsvík tíu mínútum áður en aðstaðan opnaði. Kaldapotts vinkona mín var þá þegar mætt á svæðið. Við fórum þrjár ferðir í sjóinn og í annarri ferðinni minni synti ég út að kaðli. Var komin heim aftur stuttu fyrir klukkan tólf. Til stóð að gera eitthvað meira úr deginum en það sem ég var að dunda mér við er eiginlega ekki í frásögur færandi. Skrifa bara það að tíminn leið frekar hratt. 

6.6.26

Laugardagur

Það var heldur snemmt að fara á fætur þegar ég  rumskaði fyrst rétt fyrir klukkan hálfsex. Mér tókst að sofna aftur og var mun tilbúnari í daginn þegar ég vaknaði um sjö. Var mætt í sund rétt rúmlega átta. Byrjaði í kalda pottinum en synti svo 500m, aðallega á braut átta. Var búin með rúmlega 100m á braut 7 þegar sú braut fylltist af krökkum á sundæfingu. Eftir aðra ferðina í þann kalda fór ég í gufu, þá kalda sturtu og sjópottinn. Var búin að vera þar í nokkrar mínútur þegar yngsta mágkona mömmu mætti á svæðið. Eftir lokaferðina í kalda pottinn fór ég upp úr og lagði leið mína vestur í bæ til norsku esperanto vinkonu minnar. Stakk bílnum í hleðslu áður en ég fór inn. Við lásum tvær útgáfur af því hvernig álfar urðu til á esperanto í þýðinu Þórbergs Þórðarsonar. Eftir hittinginn, spjallið, samlesturinn og fleira keypti ég þvott fyrir bílinn og renndi honum á færibandið hjá Löðri við Fiskislóð. Síðan fór ég beinustu leið heim. Staurinn var laus, bílinn í 54% en ég ákvað að stinga honum í samband og hlóð alveg upp í 98%. Á meðan bíllinn var að hlaða sig dundaði ég mér við ýmislegt sem helst ekki má skrifa um. Um hálfþrjú fór ég út, stoppaði hleðsluna, færði bílinn að annað stæði og fór svo í göngutúr. Kom heim aftur um fimm leytið. Skrefafjöldi dagsins er næstum 9000 skref.

5.6.26

Aftur komin helgi

Ég var mætt í sund þegar opnaði og hafði ég rútínuna eins og í gær. Þvoði mér um hárið og var mætt í vinnu tuttugu mínútum fyrir átta. Stöðvarstjórinn mætti á slaginu og þá voru þegar mættir þrír á húninn. Um hálftíu mætti annar skoðunarmaður á stöðina til að leysa af. Þá var þegar búið að skoða níu bíla. Stöðvarstjórinn skrapp frá í rúma klukkustund. Fljótlega eftir að hann kom aftur fór afleysingaskoðunarmaðurinn til baka á stærri skoðunarstöð þar sem helst þurfa að vera þrír skoðunarmenn. Í heildina voru skoðaðir rétt innan við 40 bílar í dag milli klukkan átta og fjögur og samt var lokað í rúmlega hálftíma í hádeginu. Seinni partinn komu tveir tæknimenn á svæðið og nú er búið að setja upp myndavélakerfi. Ég fór beint í klippingu eftir vinnu. Átti tíma klukkan hálffimm en var mætt korter yfir fjögur og þurfti því að bíða smástund. Það var í góðu lagi. Ég var klipp enn styttra í hnakkann og næsti tími var festur eftir sex vikur. Hringdi í pabba og tvíburahálfsystur mína og spjallaði við þau á meðan ég var að keyra heim. Svo var hringt í mig fljótlega eftir að ég kom heim. 

4.6.26

Vikan senn á enda

Vekjarinn var stilltur á korter fyrir sex en ég vaknaði hálftíma áður. Fór ekki alveg strax á fætur en þó nógu snemma til að gefa mér tíma í smá lóðalyftingar. Var mætt á planið við Laugardalslaug fimm mínútum fyrir opnun og byrjaði á því að pikka inn limrum sem varð til á leiðinni. Snéri svo sundrútínunni aðeins við. Fór tvisvar í þann kalda og í heitasta á milli þeirra ferða. Synti 400m á braut 7 og endaði svo á einni kaldapotts ferð áður en ég fór upp úr og í vinnu. Vorum aftur bara tvö en morguninn var rólegri en oft áður þrátt fyrir að það byrjaði með smá látum því það voru tveir á húninum þegar var opnað og tveir aðrir bættust við skömmu síðar. Fyrir hádegi voru skoðaðir 18 bílar. Í hádeginu skrapp stöðvarstjórinn í bankann eftir klinki og í Bónus eftir kaffi. Fljótlega eftir hádegi komu tvær fyrrum samstarfskonur mínar í smá innlit, önnur á hjóli en hin á bíl. Stoppuðu ekki mjög lengi því það var smá erill í afgreiðslunni akkúrat þarna um tvö leytið. Frá rétt fyrir eitt og til klukkan að verða hálffimm voru skoðaðir tuttuguogeinn bíll. Hringdi í Odd og spjallaði við hann hluta af heimleiðinni. Næst hringdi ég í pabba en þar sem hann var með gest varð það örstutt því ég vildi ekki trufla, get alltaf hringt síðar. Þá hringdi ég í Þórnýju fyrrum samstarfskonu en það hef ég ekki gert frá því hún var í leyfi í hittifyrra vegna mjaðmaskipta. Hún fagnaði þessari óvæntu hringingu og við spjölluðum á meðan ég keyrði síðasta spölinn heim og aðeins rúmlega það. Ég var að koma heim rétt rúmlega fimm og skömmu eftir að ég kom heim hringdi ég enn eitt símtalið og spjallaði í rúmar tuttugu mínútur. Um sex leytið fékk ég mér kvöldskatt, afgang af fiskibollum og kartöflum. Horfði á einn nýjan þátt í annarri seríu af; "After the flood", frétti og næstnýjasta þáttinn hans Sigga Gunnars. Klukkan var farin að ganga níu þegar ég hafði mig loksins út í stuttan göngutúr, rétt rúmlega 2km á um tuttuguogfimm mínútum. 

3.6.26

Tvö á vaktinni í dag

Þótt vekjarinn væri stilltur á hálfsjö var ég vöknuð fyrir klukkan sex. Fór þó ekki á fætur fyrr en rétt áður en klukkan varð hálfsjö. Fékk mér chiagraut eftir morgunverkin á baðherberginu, tók til sjósundsdótið og hafði samt smá tíma til að glugga í smá lesefni. Var mætt í vinnu um hálfátta. Náði að hella upp á, gera upp og verka tvo gólffleti áður en klukkan varð átta og stöðvarstjórinn mætti. Hann var einn í dag og geymdi því bílinn sinn á hinni brautinni. Rétt fyrir hádegi kom einn samstarfsmaður okkar sem sér m.a. um breytingar og viðhald á stöðvum. Hann var að fjarlægja smá af köntunum sem voru meðfram skoðunargryfjunum. Alls voru skoðaðir 40 bílar í dag, 20 bílar fyrir hádegi og tuttugu bílar eftir hádegi. Samt fannst okkur morguninn mun rólegri heldur en seinni parturinn af deginum. Stöðvarstjórinn fór rétt fyrir hálffimm og ég sá um að setja kerfið á og læsa. Var komin í Hátún 12, í osteostrongtíma, korter fyrir fimm og komst næstum því strax að. Var með betri árangur á öllum tækjum heldur en í síðustu viku, sló þó engin met. Um hálfsex var ég komin í Nauthólsvík og fékk grænt armaband að þessu sinni. Sjórinn er komin í rúmlega 11°C og ég synti út að kaðli í fyrri ferðinni en svamlaði aðeins um í um fimm mínútur í þeirri seinni. Kom heim áður en klukkan varð sjö.