Rumskaði frekar snemma en sofnaði sem betur fer fljótlega aftur. Var komin á fætur upp úr klukka sjö og á braut 8 í Laugardalslaug korter yfir átta. Sinnti hárþvottsrútínunni, þ.e. synti flestar ferðir á bakinu en brá þó fyrir mig bringu- og skriðsundi inn á milli. Sat fimm mínútur í kalda pottinum áður en ég fór í gufuna og svo nokkrar mínútur í sjópottinum áður en ég tók smá dýfu í kalda og fór upp úr. Var mætt vestur í bæ um tíu. Ætlaði að hafa bílinn í hleðslu á meðan ég væri í esperanto-hittingnum. Staurarnir voru báðir lausir en það kom upp einhver villa svo ég hætti við og lagði bílnum í annað stæði. Við Inger lásum fimm bls. í Kon-Tiki. Þegar ég fór frá henni fór ég með bílinn í gegnum þvottastöðina Löður við Fiskislóð og svo beint heim eftir það. Laust var í hleðslu á planinu og það gekk fínt og koma öllu í gang. Hann var kominn niður í 30% og núna kominn í 93%. Ætla að taka hann úr sambandi og færa bílinn í annað stæði um leið og ég hef lokið við þessa færslu. Skammtímaláns bókin af safninu er; Englatréð eftir Lucindu Riley og er ég búin að lesa 120 bls af uþb 600. Ég er líka að lesa Kallmann og fjallið sem svaf eftir Joachim B. Schmidt. Það er bók sem er með skilafrest til 9. mars n.k. en hægt er að framlengja um 20 daga. Kláraði annars og sendi inn skattskýrsluna rafrænt í gær, fékk smá aðstoð í gegnum síma hjá tvíburahálfsystur minni og dóttur hennar.
28.2.26
27.2.26
Fössari
Þegar vekjarinn hringdi klukkan korter fyrir sex ákvað ég að slökka á honum og stilla klukkuna á rúmlega hálfsjö. Ákvað þar með að vera ekkert að fara í morgunsund. Var eitthvað að velta því fyrir mér að taka sjósundsdótið með mér en hvarf frá þeirri hugsun. Hitaði upp bílinn í fimm mínútur áður en ég fór út að sópa smá snjó af honum korter yfir sjö og var mætt í vinnu tuttugu mínútum fyrir átta. Fékk strax þær fréttir að við yrðum bara tvö, þriðja daginn í röð, ég og skoðunarmaðurinn sem er að hætta. Á tímabili var svolítið mikið að gera á mörgum vígstöðum, bæði hjá mér og skoðunarmanninum en það róaðist eftir klukkan tvö. Alls voru skoðaði yfir 30 bílar þriðja daginn í röð, einhver sagði um daginn að það væri fínt dagsverk fyrir einn mann að skoða uþb 25 bíla. Ég var seinust út, slökkti, setti kerfið á og læsti á eftir mér. Kom við í Fiskbúð Fúsa á heimleiðinni og keypti mér harðfisk, bleikju og ýsu. Í póstkassanum beið mín innheimtubréf vegna vangoldinna fasteignagjalda á kennitölu dánarbúsins. Eitthvað hlýtur það að hafa fallið milli skips og bryggju við uppgjörið í október. Fasteignaskuldin með vöxtum og innheimtu er rúmlega þrettán þúsund. Og svo er komið að árlegum skattskilum, þarf að klára og senda skýrsluna inn í síðasta lagi 13. mars n.k. Það er alltaf eitthvað. Ég fékk líka þær fréttir í gær að Sigga, lambið/gemsinn sem ég bjargaði í fyrra er með tveimur lömbum. Og Hulda frænka og Óli eru búin að trúlofa sig.
26.2.26
Febrúar klárast um helgina
Það er bara einn virkur dagur af þessum mánuði og einn helgidagur. Næsti mánuður hefst á sunnudaginn. Hví hleypur tíminn svona hratt áfram? Ég var komin á fætur rúmlega hálfsex og mætt í Laugardalslaug rétt eftir að opnaði. Synti 100m á braut 8 og 200 á braut sjö. Sleppti gufunni en fór þrjár ferðir í þann kalda, eina í þann heitasta og smástund í sjópottinn. Stimplaði mig inn í vinnu korter fyrir átta. Vorum aðeins tvö á stöðinni í dag, líkt og í gær. Það voru ekki margar rólegu stundirnar, amk ekki hjá skoðunarmanninum en hann fór í mat í fyrra fallinnu og hægði á eftir hádegi. Á morgun er síðasti vinnudagurinn hans en hann reiknar þó með því að koma fljótlega til að leysa af dag og dag, en þó ekki strax í næstu viku. Ég var síðust út úr húsi rétt rúmlega hálffimm. Bókasafnspokinn með fjórum lesnum bókum af sex var meðferðis og ég skrapp í Kringlusafnið og skilaði þeim. Ætlaði mér aðeins að taka eina bók en þær urðu þrjár og þar af ein skammtímalánsbók. Meira um þær bækur síðar. Fór með pokann út í bíl en notaði svo helming af kringlugjafakorti til að versla smávegis í Bónus áður en ég fór heim. Núna er ég að skrá niður það helsta um daginn og búa mér til grjónagraut.
25.2.26
Sjórinn alltaf jafn hressandi
Vaknaði korteri áður en vekjarinn átti að fara af stað, eða klukkan hálfsjö. Um klukkutíma síðar var ég mætt í vinnuna. Aðeins einn skoðunarmaður mætti í dag en hann var búinn að afgreiða yfir 30 bíla áður en hann þurfti að fara til læknis um þrjú leytið. Sem betur fer var nokkuð rólegt milli þrjú og hálffimm en þó komu fjórir sem ætluðu að koma í skoðun, þar á meðal einn sem kom rétt áður en ég lokaði. Sá hefði mjög líklega ekki sloppið inn. Forstjóri frumherja kom annars í heimsókn í morgun og staldraði við í amk hálftíma. Áður en ég fór í osteostrong tíma eftir vinnu þurfti ég aðeins að sópa af bílnum en ég var svo mætt í Hátúnið tíu mínútum fyrir fimm og komst beint að. Tæpum hálftíma síðar var ég lögð af stað í Nauthólsvík. Hringdi í Helgu systur og spjallaði við hana hluta af leiðinni. Var með sömu sjórútínu og undan farnar vikur, tvær ferðir í sjóinn, góð gufuferð milli ferða og svo nokkrar mínútur í pottinum áður en ég fór upp úr og heim.
24.2.26
Erilsamur dagur í vinnunni
Var komin á fætur upp úr klukkan hálfsex. Greip þó hvorki í bók né handlóð. Fékk mér chiagraut og var mætt í Laugardalslaug um leið og opnaði um hálfsjö. Synti 300m á braut átta, þar af 100m skriðsund. Sat um fjórar mínútur í kalda pottinum, tíu mínútur í gufu, sjö mínútur í sjópottinum og tók svo eina dýfu í kalda áður en ég fór upp úr og í vinnuna. Stimplaði mig inn korter fyrir átta. Þó það væri erilsamt á köflum í vinnunni komu alveg tímar inn á milli þar sem var rólegt. Skoðaðir voru yfir fimmtíu bílar, síminn var með rólegra móti en ég svaraði þó nokkrum símtölum og gat greitt úr flestum erindum. Ég var síðust út, slökkti og setti kerfið á rétt rúmlega hálffimm og var komin heim áður en klukkan varð fimm. Laust var á hleðslustaurnum og er bíllinn búinn að vera í hleðslu í tæpa þrjá tíma og er kominn upp í 84% en hann var ekki kominn niður fyrir 40% þar sem ég hlóð hann upp í 53% á hraðhleðslustöð við KFC í Lindum áður en ég kom heim í gærkvöldi.
23.2.26
Síðasta vinnuvikan í febrúar hafin
Vaknaði einhvern tímann á sjötta tímanum alltof snemma þar sem ég var ekki á leið út úr húsi fyrr en stuttu fyrir klukkan hálfátta. Ég notaði tímann ágætlega í lestur, lóðaæfingar og fleira. Verkefnin í vinnunni voru af ýmum toga. Inn á milli komu rólegar stundir en svo var líka stundum eins og allar afgreiðslur (sími, póstur, netspjall, innskráning í skoðanir og fleira) þyrftu athygli í einu. Innskráning í skoðanir gengur fyrir og það þarf líka að svara netspjallinu hratt og vel. Lenti ekki í neinu veseni en þó stendur eitt mál útaf sem leysist örugglega á morgun. Var komin á braut 7 í Laugardalslaug tíu mínútum fyrir fimm. Synti 400m, helminginn á braut 7 og hinn helminginn á braut 8. Kalda potts vinkona mín kom beint úr Laugum og við hittumst í kalda pottinum. Eftir nokkrar kalda- og heitapotts ferðir fórum við í gufu, svo í sjópottinn og svo tók ég loka ferðina í þann kalda áður en ég fór upp úr aðeins á undan vinkonunni. Ég var komin heim upp úr klukkan hálfsjö. Hleðslan á bílnum var komin niður í 32% en það var fullt á staurnum svo ég ákvað að fara á KFC og stinga í smástund í hraðhleðsluna. Notaði mínúturnar tólf sem tóka að hlaða upp í rúm 53% til að panta mér kjúklingasallat til að taka með heim. Þessi hleðsla gæti dugað mér í amk tvo daga en ég er með það á bak við eyrað að stinga í samband út á plani eftir vinnu á morgun, þ.e. ef staurinn verður laus.
22.2.26
Hulda 26 ára í dag
Vaknaði upp úr klukkan sjö og var komin á fætur um átta. Áður en ég sinnti morgunverkunum á baðherberginu kveikti ég á tölvunni. Fékk mér mandarínu og egg og vafraði svo um á netinu í um klukkustund. Þegar pabbi kom fram fór ég inn í eldhús aftur, útbjó mér te og settist svo við eldhúsborðið og fór í kaplakeppni við pabba. Kaplarnir gengu betur hjá honum heldur en mér. Um hálfellefu settist ég inn í stofu með tvær bækur. Um tólf fékk ég mér skyr og brauð og hélt svo lestri áfram þar til að var búin með aðra bókina og komin vel inn í hina; Mamma og ég eftir Kolbein Þorsteinsson. Fékk þá bók lánaða í Fossheiðinni í gær. Kvaddi pabba stuttu fyrir klukkan þrjú. Var komin í bæinn um hálffimm leytið. Mikill sinueldur logaði við Elliðavatn og skammt frá Guðmundarlundi. Einhver hefur ekki verið að fara varlega með eld og allt sem er svo skraufþurrt þessa dagana. Um sexleytið útbjó ég mér kvöldmat sem samanstóð af fiskibollum og glurót og sætri kartöflu. Framundan er síðasta vika þessa mánaðar. Eftir viku verður kominn 1. mars.
21.2.26
Hjá pabba
Fór að sofa í seinna fallinu í gærkvöldi og svaf alveg til klukkan að verða hálfátta. Var mætt í sund rétt rúmlega átta. Byrjaði á þvi að synda 500m, flesta á bakinu. Svo var það sá kaldi, gufan og sjópotturinn áður en ég fór upp úr, þvoði mér um hárið og fór til norsku esperanto vinkonu minnar. Lásum 4 bls. í Kon-Tiki. Kom heim rétt fyrir tólf. Lauk við að setja niður í tösku og um hálfeitt lagði ég af stað austur. Fór yfir Hellisheiðina og gerði gott stopp í Fossheiðinni. Þar var ég leyst út með aukagjöf, jólapúðaver með Önnu nafninu mínu á. Synir mínir voru komnir til afa síns þegar ég kom á Hellu. Annar þeirra ætlar að taka að sér að elda. Um hálffjögur skrapp ég í búðina og setti bílinn í hraðhleðslu í leiðinni. Hlóð hann upp í 85% en hann var kominn niður í 32%. Aldrei þessu vant kíkti ég í ríkið og keypti mér eina litla hvítvínsflösku, sem ég hef ekki gert síðan ég var í jólakortaföndrinu.
20.2.26
Rúmlega níuhundruð km
Ákvað það áður en ég færi að sofa að ég ætlaði að sleppa morgunsundinu og sofa til klukkan hálfsjö. Sleppti sundinu en var vöknuð um sex leytið. Gerði æfingar með 2kg lóðunum, kláraði afganginn af hafragrautnum sem ég bjó til á miðvikudagsmorguninn og var svo mætt í vinnu rétt fyrir klukkan hálfátta. Það var frekar rólegt framan af. Um hálfellefu heimsótti okkur stöðvarstjórinn úr Hádegismóum en hann er að jafna sig eftir aðgerð á fæti. Sagðist líklega ekki geta skoðað næstu mánuði, jafnvel ár en á einhverjum tímapunkti gæri hann amk mætt komið í vinnu og sinnt afgreiðslustarfinu. Eldri stöðvarstjórinn, sem er að hætta um næstu mánaðamót, kvaddi okkur í fyrra fallinu. Fær oftast að hætta snemma á föstudögum. Hann kom þó fljótlega aftur þar sem yfirmaður okkar á BSK sviðinu (Siggi frændi) bað hann um að mæta aftur þar sem hann þyrfti að hitta aðeins á hann. Tilefnið var að færa viðkomandi kveðjugjöf frá fyrirtækinu þar sem Siggi verður í fríi um mánaðamótin. Sá sem fékk síðustu skoðun dagsins var frændi minn, næstelsti sonur Birnu bróðurdóttur pabba. Hann var með einn bróðurson sinn með. Sá er sex ára og var að eignast lítinn bróður fyrir fimm dögum og á líka þriggja ára systur. Eins og í gær hleypti stöðvarstjórinn mér aðeins fyrr heim án þess að ég væri að biðja um það. Fyrir vikið var ég aðeins á undan síðdegistraffíkinni. Þrátt fyrir að bíllinn væri ekki kominn niður fyrir 50% ákvað ég að setja hann í hleðslu. Laust var á staurnum og fínt að gera bílinn klárann í ferð út úr bænum um helgina.
19.2.26
Fimmtudagur
Vaknaði fyrir allar aldir og byrjaði daginn á því að grípa í bók og lesa í tæpan hálftíma. Fór á fætur um hálfsex og greip smá stund í 2kg lóðin. Fékk mér gríska jógúrt í morgunmat og bætti chiafræum og bláberjum út í hana. Var mætt á braut 8 nítján mínútum fyrir sjö. Synti aðeins 200m en hafði þar af leiðandi ágætis tíma í þann kalda, gufuna og sjópottinn. Var mætt í vinnu ca korter í átta. Það var rólegt fyrst í stað en svo komu ýmis verkefni inn á milli í afgreiðslunni s.s. eins og símsvörun, svara eða senda tölvupósta, svara í tidio spjallkerfinu þegar beðið var um að spjalla við manneskju en ekki spjallmennið og eitt og annað fleira. Stöðvastjórinn hleypti mér aðeins fyrr heim án þess að ég væri að biðja um það. Þáði með þökkum því þá vissi ég að ég næði að slaka aðeins á. Annars ætlaði ég líka að segja titlana á tveimur bókum af safninu sem bíða eftir athygli minni; Kúnstpása eftir Sæunni Gísladóttur og Kalmann og fjallið sem svaf eftir Joachim B. Schmidt.
18.2.26
Sjósund
Í morgun ætlaði ég að vakna í kringum korter fyrir sjö. Ég var hins vegar vöknuð löngu fyrir það. Gat eitthvað kúrt mig niður en rétt fyrir sex kveikti ég ljós og greip aðeins í bók. Fór á fætur um hálfsjö. Gerði æfingar með 2kg lóðum og bjó mér svo til hafragraut. Var mætt í vinnu um hálfátta og var með sjósundsdótið í skottinu. Vinnudagurinn var frekar rólegur inn á milli en verkefnin af ýmsum toga að venju. Um hálffjögur leytið ákvað stöðvarstjórinn að leyfa mér að fara fyrr úr vinnu, sennilega vegna þess að undanfarið hef ég oft verið ein eftir síðasta hálftímann og þá séð um að sinna annarri afgreiðslu en skoðunum og svo lokað og gengið frá. Ég fór beint yfir í Hátún tólf og þótt ég væri rúmum klukkutíma á undan fasta tímanum þurfti ég ekki að bíða. Ég var því komin í Nauthólsvík fyrir klukkan hálffimm og heim stuttu fyrir klukkan sex.
17.2.26
Mánuður í afmælið mitt
Vekjarinn var stilltur á korter fyrir sex en ég var vöknuð aðeins fyrir hálfsex. Hafði því ágætis tíma til að gera nokkrar æfingar með 2kg lóðum. Var mætt á braut 8 19 mínútum fyrir sjö og synti 300m á tæpum fjórtán mínútum. Þar sem hringpottur 4, sem var heitasti potturinn, er bilaður er búið að hækka hitann á hringpotti tvö, næsta pott við þann kalda. Fór því þrjár ferðir í þann kalda, eina í pott 2, nokkrar mínútur í gufu og sjópott og hafði líka tíma til að hanga aðeins í rimlunum. Stimplaði mig inn í vinnu rúmum tuttugu mínútum fyrir átta. Báðir skoðunar-mennirnir voru mættir. Skoðaðir voru yfir fjörutíu bílar í dag, m.a. einn lögreglubíll sem er kominn á mynjasafn lögreglunnar. Sírennurnar og ljósin virkuðu mjög vel. Seinni partiinn komu smiðir og settu upp hillur. Ég var síðust út um hálffimm og kom aðeins við í N1 í Borgartúni. N1 sonurinn er búinn að raka af sér skeggið. Kom heim fyrir klukkan hálfsex og þar sem laust var á hleðslustaurnum á planinu ákvað ég að hlaða bílinn þótt hann væri rétt kominn niður fyrir 50%. Þegar ég kom inn varð ég vör við að on-appið hafði ekki náð/eða misst sambandi. Ég fór því aftur út, klædd lopapeysu undir úlpunni, kom hleðslunni af stað aftur og notaði svo tækifærið og skrapp í tæplega hálftíma göngutúr. Þegar ég kom inn aftur dreif ég mig loksins í að taka niður seríuna af svölunum.
16.2.26
Mánudagskvöld
Breytti aðeins til í morgun. Var búin að ákveða það áður en ég fór að sofa í gærkvöldi að sleppa morgunsundinu. Það kom til að því að ég fór ekki í sund í gær og hitti þar af leiðandi ekki kalda potts vinkonu mína. Ég sendi henni fyrirspurn seinni partinn í gær hvort hún yrði í sundi um fimm leytið ef ég myndi drífa mig í sund eftir vinnu. Svarið var jákvætt svo ég tók sunddótið með í morgun en geymdi það út í bíl á meðan ég var að vinna. Vinnudagurinn var nokkuð erilssamur, 40 bílar skoðaðir og ýmis mál afgreidd í gegnum síma. Ég var síðust út um hálffimm, slökkti, setti kerfið á og læsti á eftir mér. Var komin á braut 8 um fimm mínútum fyrir fimm. Synti aðeins 200m en sundgleraugun voru eitthvað að stríða mér og svo var vinkonan mætt. Fórum alls fjórum sinnum í þann kalda en síðasta ferðin mín var aðeins tæp mínúta á meðan hinar voru amk 3mín hver. Kom heim upp úr klukkan hálfsjö.
15.2.26
Helgin brátt liðin
Rumskaði fyrst um fimm leytið, alltof snemma. Kúrði mig niður aftur en sofnaði ekki aftur. Hélt mig samt undir sæng alveg þar til klukkan var að verða átta. Var bæði að lesa og að skrolla í símanum. Einnig borgaði ég af láninu. Fasta greiðslan er komin niður í 61 þús. Um klukkustund eftir að ég borgaði af því kom upp fyrsti greiðsluhlutinn af þremur sem ég stofnaði sjálf samning um að greiða inn á lánið, 75 þúsund. Annars sleppti ég sundinu í dag, var boðuð á fræðslufund um tíu í morgun og þegar ég kom heim aftur um hádegisbilið stakk ég bílnum í samband. Var með bílinn í hleðslu í þrjá tíma. Þegar ég tók bílinn úr hleðslu hringdi ég í tvíburahálfsystur mína. Hún var heima svo ég skrapp yfir til hennar. Þáði hjá henni te og spjall og bauð henni svo út á rúntinn. Klukkan var langt gengin í sex þegar ég kom heim aftur.
14.2.26
Febrúar uþb hálfnaður
Rumskaði alltof snemma en náði sem betur fer að kúra mig aðeins niður aftur. Var komin á fætur um sjö og í sund um leið og opnaði klukkan átta. Synti 600m, og fór þrjár ferðir í þann kalda. Þvoði mér um hárið og var svo komin til esperanto vinkonu minnar um tíu. Var með bílinn í hleðslu á meðan á hittingnum stóð. Eftir hittinginn lét ég þvo bílinn að utan með því að renna honum í gegnum þvottastöðina Löður við Fiskislóð. Var komin heim fyrir klukkan hálfeitt. Kláraði að lesa eina af bókasafnsbókunum; Munnbiti sögur og ljóð eftir 33 höfunda. Ég er líka að lesa skáldsöguna Slétt og bruðið eftir Árelíu Eydísi Guðmundsdóttur. Og þá er ég með eina bók í láni frá esperanto vinkonu minni; Þjáningin er fæðingarhríð skilningsins eftir (og um vegferð) Mörtu Eiríksdóttur. Rúmlega hálffjögur skrapp ég í tæplega hálftíma, 2km göngu. Það var mjög hressandi.
13.2.26
Mínus þrettán í morgun
Hafði ákveðið að sleppa sundferð í morgun. Rumskaði samt korter fyrir sex og hefði alveg getað rifið mig á fætur. Hins vegar var ég ekki alveg útsofin, var að dreyma eitthvað sem ég man ekki lengur hvað var og steinsofnaði aftur. Var þó vöknuð áður en vekjarinn hringdi um klukkustund síðar. Hitaði bílinn aftur áður en ég lagði af stað í vinnuna. Var aftur fyrst á vinnustaðinn en þó bara um fimm mínútum á undan stöðvarstjóranum. Hann vann fram að hádegi. Fyrstu kúnnar, með einn bíl, voru sjósundsvinkona mín og maðurinn hennar. Siggi kom rétt rúmlega átta og hann var enn að þegar ég kvaddi rétt upp úr klukkan fjögur, ekki að skoða bíla þó þá heldur að þrífa í kringum gryfjurnar. Ég kom við í Fiskbúð Fúsa og keypti mér harðfisk og ýsu í soðið. Hringdi í Ellu og spjallaði við hana á meðan ég var á leiðinni heim. Kom heim rétt fyrir fimm. Restin af deginum leið jafn hratt og fyrri hlutinn og satt að segja var ég næstum búin að gleyma að ég átti eftir að skrá hann niður.
12.2.26
Kuldakast
Ég prófaði að hita upp bílinn áður en ég fór út úr húsi tíu mínútur yfir sex í morgun. Það virkaði vel í gegnum appið í símanum. Í sundi var ég að vinna með töluna 3. Synti 300m og fór þrisvar sinnum í þann kalda þar af tvær ferðir í rúmar þrjár mínútur. Ég var mætt fyrst í vinnu, tuttugu mínútum fyrir átta. Vissi af því, því stöðvarstjórinn hafði samband við mig í gærkvöldi. Ég opnaði, tók kerfið af, kveikti ljós, setti upp kaffi og undirbjó mig eftir bestu getu. Kveikti þó ekki á skoðunarkerfunum frammi. Fyrsti kúnninn kom rétt rúmlega átta ca fimm mínútum á undan framkvæmdastjóra yfir BSK-sviðinu sem leysti af skoðunarmennina í dag. Stöðvarstjórinn kíkti við stuttu fyrir hádegi og kom m.a. með klink í sjóðinn minn. Hann skoðaði 2-3 bíla en stoppaði ekki lengi við. Í heildina voru skoðaðir 31 bíll í dag. Ég var komin heim um fimm. Hringdi í pabba og Huldu á meðan ég var á leiðinni heim. Frænka mín og kærasti hennar kíktu í heimsókn fljótlega eftir að ég kom heim. Þau tóku hjá mér fótaskemilinn sem ég sótti fyrir systir mína um daginn því þau eru á leiðinni norður á morgun. Þau fengu að sjálfsögðu rúnt um íbúðina og óumbeðinn hringdi Óli í pabba sinn, sem er smiður, og spurði hvað það myndi kosta að "flippa" hurðinni inn í þvottaherbergi þannig að hún opnist út. Það er ekkert svo dýrt svo það gæti meira en velverið að ég fari að láta gera eitthvað í þeim málum fljótlega.
11.2.26
Sjórinn alltaf góður
Um sex í gær mætti fyrsti svanur af þremur til mín. Tvær úr hópnum forfölluðust en við ákváðum að hittast engu að síður enda tæpt ár síðan við komum saman síðast. Ætlum í staðinn að reyna að boða annan hitting innan fárra mánaða og vonum að þá verði engin forföll. Við fjórar sem hittumst hjá mér í gærkvöld höfðum um margt að spjalla og tíminn flaug frá okkur.
Í morgun vaknaði ég við vekjaraklukkuna uþb korter fyrir sjö og var mætt í vinnu tæpum klukkutíma síðar. Sem fyrr voru ýmis verkefni en það var alveg rólegt á milli. Tuttugu mínútum fyrir fimm var ég komin í Hátún 12, í osteostrong. Þurfti að bíða um stund eftir að komast að en ég var örugglega byrjuð í æfingunum áður en klukkan varð fimm og ég var komin á planið við Nauthólsvík um hálfsex eftir að hafa hringt í og spjallað við Odd á leiðinni yfir. Það var bæði hressandi og dásamlegt að skella sér smástund í 0,1°C sjóinn. Líkt og sl. skipti fór ég tvisvar út í, hanskalaus í seinna skiptið eftir uþb tíu mínútur í gufunni. Kom heim áður en klukkan varð sjö og setti bílinn í samband við staurinn á planinu. Hann var kominn niður í 43% en á einum og hálfum tíma er hann kominn upp í 66%. Ætla að hafa bílinn í hleðslu til klukkan hálftíu eða tíu.
10.2.26
Sex svanir mínus tveir
Morguninn var svipaður og í gær nema ég synti 300 en ekki 200m í sundinu. Báðir skoðunarmennirnir voru mætti þegar ég mætti í vinnu korter fyrir átta. Þegar þetta er skráð er klukkutími eftir af vinnudeginum en aðeins einn skoðunarmaður eftir. Það er samt búið að skoða yfir fjörutíu bíla í dag en ég er líka búin að þurfa að vísa fólki frá. Annars hafa verkefnin verið af ýmsum toga líkt og aðra daga. Það er enginn dagur eins og yfirleitt er ég að læra eitthvað nýtt á hverjum degi. Farin að vera miklu öryggari í flestri afgreiðslu en gott að vita að það er hægt að leita til annarra reynslubolta ef ég er ekki viss. Titill færslunnar vísar í hitting sem verður heima hjá mér í kvöld. Segi betur frá því í næstu færslu.
9.2.26
Náði í skottmottu eftir vinnu í dag
Rumskaði tæpum þremur korterum áður en vekjarinn átti að ýta við mér. Um hálfsex, korter fyrir hnippið, slökkti ég á vekjaranum og fór á fætur. Fékk mér morgunmat, gerði æfingar með 2kg lóðunum og greip í bók, ekki endilega í þessari röð. Var mætt í sundið rétt eftir að opnaði og stimplaði mig svo inn í vinnu korter fyrir átta. Afgreiðslan í dag gekk alveg ágætlega, hvort sem um var að ræða skoðani, móttöku eða afhendingu númeraplatna, símsvörun eða svörum á rafrænum skilaboðum í gegnum TEAM eða outlock. Ég var síðust út, slökkti ljósin, setti kerfið á og læsti á eftir mér rétt rúmlega hálffimm. Var komin upp í Brimborg uþb tuttugu mínútum síðar.