31.5.24

Maí-mánuður að klárast

Þegar ég kom fram korter yfir sex í gærmorgun voru bæði Ella og Aðalsteinn komin á fætur. Þá var farið að hellast yfir mig vissan um að tímabært væri að taka sig upp og halda áfram. Til klukkan átta sat ég samt róleg og spjallaði. Knúsaði hjónin bless og þakkaði fyrir mig þegar þau fóru í sínar vinnur. Fékk að taka myndir af Ellu, m.a. rétt áður en hún "brunaði" af stað á rafskútunni sinni. Sú skúta fer nógu hægt til þess að ekki þurfi nein réttindi til að ferðast um á henni en of hratt til þess að hún fái styrk úr sjúkratryggingum. Kemst upp í 25 km hraða en mætti ekki fara hraðar en 10km til að fá styrkinn. Það tók mig næstum einn og hálfan tíma að undirbúa mig undir brottför en um hálftíu kom ég við á AO-stöðinni og fyllti á tankinn áður en ég valdi þá leið að keyra firðina. Keyrði ekki inn á staðina sjálfa nema leiðin lægi í gegn. Stoppaði öðru hvoru, rétti úr mér og tók snöpp og myndir. Var komin á Höfn um eitt leytið. Þar eiga systir mín og mágur vinkonu sem ég þekki líka. Systir mín hafði hvatt mig til að setja mig í samband við hana ef ég kæmi í plássið. Eftir smá umhugsun ákvað ég þó frekar að halda för áfram. Stoppaði næst og fékk mér að borða á Þórðbergssetri. Veðrið var eiginlega að verða of gott fyrir mig, 19°C og sól. Þá fannst mér bara best að vera í bílnum með fulla kælingu á. Hélt samt áfram að stoppa öðru hvoru til að taka myndir og rétta úr mér. Var komin á Kirkjubæjarklaustur upp úr klukkan fimm og ákvað að splæsa á mig sallati með rauðrófubuffi í Systrakaffi. Eftir það stopp keyrði ég alla leiðina á Hellu og var komin þangað upp úr átta. Þar hitti ég, auk pabba, yngri systurdóttur mína og kærastan hennar. Bríet er á fullu þessa dagana að undirbúa sig undir verklegt sveinspróf í kjötiðn hjá SS. Það verður í næstu viku.  

30.5.24

Ferðafiðringur

Jæja, þá fór loksins að gjósa aftur, Valur tók titilinn í körfunni og FH í handboltanum. Miðjubarn vinkonu minnar átti pantað með morgunfluginu frá Egilsstöðum til Reykjavíkur í gærmorgun. Ég bauðst til að skutla honum rétt fyrir hálfníu. Fékk hann reyndar til að keyra sig sjálfur og svo fór ég beinustu leið í sund. Synti í rúmar tuttugu mínútur, aðallega bringusund en nokkrar skriðsundsferðir. Fór þrisvar í kalda pottinn, gerði æfingar í heitarpottinum og endaði á að fara í smá gufubað. Hengdi svo handklæði og sundbol út á snúrur hjá vinkonu minni þegar ég kom til baka því ég var viss um að það væri hætt að rigna. Morguninn fór að öðru leyti í allskonar, meiri æfingar, netvafr og svo fitjaði ég upp á nýrri tusku. Á miðvikudögum í vetur hefur Ella verið að kenna einn tíma í hádeginu svo ég átti ekki von á henni fyrr en um eitt leytið. Hún var hins vegar komin um hálftólf því nota þurfti stærðfræðitímann til að klára að horfa á einhverja mynd í ensku og samkennarar sögðu að hún þyrfti ekki að sitja með þeim og krökkunum. Restina af deginum notuðum við vinkonur í þáttaáhorf, spjall, gosáhorf og eftir kvöldmat var horft á körfuboltaleikinn, smá á handboltaleikinn og einn þátt sem Aðalsteinn og Ella eru bæði að horfa á, á Netflix; Outlander.  

29.5.24

Enn á Egilsstöðum

Staðan í skólanum hjá vinkonu minni í gær var sú að hún gat unnið heima. Engu að síður undirbjó hún sig líkt og aðra vinnudaga; fór snemma á fætur, klæddi sig í vinnufötin og sinnti ýmsum öðrum morgunverkum með góðum hvíldum. Aðalsteinn fór í sína vinnu um átta og fljótlega eftir það stimplaði Ella sig inn í gegnum forrit í símanum og setti upp spelku á vinstri hendina svo sú hendi væri samvinnuþýðari. Ég sjálf tók morguninn rólega en var þó komin fram um sjö. Sótti svo fartölvuna inn um það leyti sem Ella var að byrja að fara yfir pósta og fleira vinnutengt. Hún tók sér "kaffipásu" um hálftíu. Rétt fyrir tíu skrapp ég út í smá labbitúr. Ætlaði út á peysunni en þá var byrjað að dropa og ég er mjög fegin að ég snéri við eftir úlpunni því göngutúrinn varð í heildina rúmur tveir og hálfur kílómetri og það rigndi alla leiðina. Rétt fyrir hálftvö skutlaði ég Ellu í sjúkraþjálfun. Hleypti henni út á merkta stæðinu en lagði svo bílnum skammt frá og ætlaði að nota tækifærið og fara aftur í göngutúr. Auðvitað byrjaði aftur að rigna svo ég entist bara í tæpt korter. Beið svo bara í bílnum þar til Ella var búin í sjúkraþjálfuninni. Restin af deginum fór í spjall, hvíld og þáttaáhorfun. 

28.5.24

Þokuloft en stillt veður

Vinkona mín tekur daginn mjög snemma á vinnudegi. Undirbúningurinn undir daginn tekur drjúga stund og inn í þeirri stund þarf að gera ráð fyrir hvíld/pásum. Þau hjónin voru komin fram fyrir klukkan hálfsjö. Ég kom á fætur stuttu síðar og átti gott spjall næsta klukkutímann eða svo. Þau voru svo bæði farin út úr húsi um átta. Veðrið var yndislegt og ég ákvað fljótlega að rölta í sund. Samkvæmt forritinu í símanum var ég um korter að labba rúman kílómeter svo ég hef farið frekar rólega. Klukkan var sjö mínútur í níu þegar ég byrjaði að synda. Synti í rúmar tuttugu mínútur og flestar ferðir á bakinu. Svo prófaði ég báða köldu pottana, sat dágóða stund í sólbaði en um tíu leytið fór ég upp úr og þvoði mér um hárið í leiðinni. Rölti upp að skóla og sá að rafskútan hennar Ellu var á merkta stæðinu alveg við aðalinnganginn. Ákvað að hinkra eftir henni og athuga hvort ég fengi ekki far fyrir sundtöskuna mína sem var alveg sjálfsagt. Restin af deginum fór í spjall, sólbað, þáttaáhorf og smá bæjarferð. Ella bað mig um að skutla sér í gjafavörubúð til að kaupa tvær útskriftargjafir, aðra handa dóttur sinni og hina handa tengdadóttur sinni. Þessi bæjar ferð gekk mjög vel. Göngugrindin komst vel fyrir við aftursætin og svo gat Ella sest á stól inni í versluninni og fékk mjög góða þjónustu. 

27.5.24

Ekkert ferðaveður - bongóblíða

Var fyrst fram og á fætur í gærmorgun, rétt að verða sjö, en æskuvinkona mín var örugglega vöknuð því hún kom fljótlega fram. Vegna MS þá gengur allt mun hægar og frá því ég kom hingað síðast í ágúst sl. sé ég greinilegan mun á henni. Ég er þakklát fyrir hversu opin hún er með að tala um allt sem þessu fylgir og svarar öllum spurningum greiðlega. Dagurinn var annars tekinn mjög rólega. Aðalsteinn hélt smíðunum áfram ásamt nágranna sínum og eftir hádegi hreinsaði hann beðin og sló lóðina. Einar Bjarni er í vinnulotu og er búinn að vera hér síðast liðna viku. Hann skrapp í útskriftaveislu á Höfn á laugardeginum og kom til baka seint um kvöldið. Hann skrapp út í folf (frisbígólf). Aðalsteini voru færðar nokkrar öskjur af þorskhnökkum af sjómanni sem hann á regluleg viðskipti við og það var ákveðið að fá mig og Einar Bjarna í að matreiða þrjú flök af hnökkum í kvöldmatinn. Samvinnan tókst mjög vel. Vorum búin að borða áður en körfuboltaleikurinn milli Grindavík og Vals byrjaði. Æsispennandi leikur. Ég fylgdist einnig með leik FH og Aftureldingar í úrslitakeppni karla í handbolta á mbl vefnum. Sá leikur var ekki síður spennandi.

Enn hef ég ekki fallið í kaffipásunni en það er rétt að játa það að ég fékk mér hvítvín bæði á föstudags og laugardagskvöld en þá hafði ég ekki drukkið slíkt síðan í september.

26.5.24

Bríet búin að setja upp rauðu húfuna

Þegar ég kom fram um hálfsjö í gærmorgun voru æskuvinkona mín og maðurinn hennar komin á fætur. Um átta leytið bönkuðu nágranninn og smiður uppá því hér fyrir utan er verið að smíða litla geymslu fyrir sexhjól. Aðalsteinn átti hugmyndina og nágranninn greip hana á lofti. Verkið var hafið á föstudaginn og það var haldið áfram í gær. Við Ella tókum því rólega en upp úr klukkan tíu fengum við okkur göngutúr í Nettó, hún á rafskutlunni sinni og ég á mínum tveimur jafnfljótum. Ég stökk inn í búðina rúmu korteri seinna með innkaupalista í sms-i. Svo fórum við aðra leið til baka, hún með vörurnar í grind fyrir aftan sig. Um tvö leytið byrjuðum við að undirbúa mexíkanska kjúklingasúpugerð. Ég beinhreinsaði afgang af kjúkling frá því kvöldið áður en Ella skar niður grænmetið í skál. Um þrjú leytið tók ég að mér að standa yfir pottunum. Það urðu nefnilega til tveir pottar af súpu, annar potturinn var þó minni en hinn. Allt var byrjað að malla um fjögur og fékk að malla á lægsta straum í klukkustund. Þá var settur út í þetta rjómaostur og rjómi, suðan látin koma upp og svo slökkt undir. Horfðum svo á fyrri hálfleikinn í úrslitaeinvígi evrópukeppninnar í handbolta. Valdís dóttir Ellu kom um svipað leyti. Horfði með okkur á leikinn og borðaði svo með okkur þessa dýrindis súpu sem nóg var til af.

Bríet setti upp rauðu húfuna í MK í gær en hún tekur svo verklegt sveinspróf í kjötiðn í fyrstu vikunni í júní. 

25.5.24

Komin í heimsókn til æskuvinkonu

Ég var komin á fætur um hálfsjö í gærmorgun en fór ekkert út í fjárhús. Mágur minn og systir drukku ketókaffið sitt eftir að Helga hafði kíkt í fjárhúsin. Þar var allt rólegt, og það var enn rólegt næst þegar hún kíkti í næstu ferð. Ingvi var eitthvað slappur og lagði sig. Helga fór þriðju ferðina út í hús um níu. Þá greip ég tækifærið til að taka fram fartölvuna, vafra á netinu og setja inn færslu. Það var greinilega eitthvað að gerast úti í húsi því systir mín kom ekki aftur inn. Um tíu leytið kom lögreglubíll með ljósin á upp að húsinu og annar lögregluþjónninn bankaði upp á. Það hafði verið ekið á kind og tvö lömb rétt við afleggjarann og þau voru að athuga hvort kindurnar væru frá Árlandi. Ég veit orðið númerið og það passaði. Hringdi því í systir mína svo hún gæti hringt í Aron sem ekki var kominn á fætur eftir kvöld og næturvaktina. Mágur minn kom fram um svipað leyti. Ungi bóndinn talaði smá við lögregluna en dreif sig svo niður á veg. Annað lambið og rollan voru dauð og hitt lambið svo illa farið að aflífa þurfti það. Hann sótti svo dráttarvél með skóflu og notaði þá tækifærið og fór með þessi hræ og önnur og urðaði á næsta bæ.

Annars var ég byrjuð að pakka og huga að því að halda ferðalaginu áfram en klukkan var að verða hálftvö þegar ég kvaddi loksins. Rúmum tveimur og hálfum tíma síðar var ég komin til Ellu vinkonu. 

24.5.24

Fjör í fjárhúsunum

Svaf til klukkan að verða átta í gærmorgun. Systir mín var í sinni annarri ferð úti í fjárhúsum og ég fór beint til hennar, gleymdi meira að segja að tannbursta mig. Það hafði allt verið rólegt um nóttina og í hennar fyrsta innliti um sex en þegar ég kom voru þrjár byrjaðar og aðrar þrjár mjög líklegar. Það kom lamb hjá einni fljótlega eftir að ég kom og við stúkuðum hana af. Fljótlega kom annað lamb þar og önnur kind var byrjuð að rembast. Færðum þá nýbornu yfir í aðra kró þar sem búið var að stúka af frá öðrum kindum. Skruppum frá í hálftíma. Ég fékk mér að borða og settumst örstutt út í sólina. Það var samt of mikill vindur til að það væri hægt að sitja við. Fórum aftur í fjárhúsin upp úr klukkan níu. Engin ný lömb komin en tvær "að vinna" í þessu. Allt gekk ágætlega með fyrra lambið hjá annarri en svo þurfti Helga að rétta af annan framfótinn á næsta lambi. Það tókst vel og hún leyfði kindinni að rembast og gera sitt þar til hausinn var líka kominn en þá dró hún lambið út og stúkaði svo kind og lömb af. Hjá hinni sem var byrjuð fannst Helgu, við skoðun, að lambið kæmi öfugt að. Hún hringdi því í unga bóndann sem kom fljótlega. Hann náði lambinu út og svo komu tvö önnur. Þegar búið var að stúka þá kind af skrapp hann aftur inn til að útbúa pela en það eru komnir þrír til fjórir heimalingar og svo eru tvö önnur lömb sem þurfa viðbót við það sem þau fá frá mæðrum sínum. Ég gaf þessum þremur-fjórum en fór svo fljótlega inn. Þá voru Helga og Aron farin að gefa á garðana. Eftir hádegið fóru bræðurnir, Aron og Anton, að bera á. Við Helga ætluðum rétt að kíkja á stöðuna í fjárhúsunum en þá var ein kind frá Helgu komin með lamb og það var greinilega annað á leiðinni. Það kom samt ekki og Helga gat ekki hjálpað rollunni því hún var stygg og sterk svo hún hringdi í Aron sem kom fljótlega og bjargaði málunum. Eftir þessa fjárhúsferð fór ég ekki aftur út. Helga setti fjárhúsfötin mín í þvottavélina með fötum frá sér. Hulda sá um að gefa heimalingunum seinni partinn og svo aukagjöf um tíu um kvöldið. Ég eldaði þorsk í kvöldmatinn en var annars bara að lesa, prjóna, vafra um á netinu og taka því rólega. 

23.5.24

Aftur til Akureyrar

Það var rólegt í fjárhúsunum í gærmorgun, amk hvað burð snerti. Var samt á vaktinni með systur minni þar til komið var að því að gefa. Þá fór ég út og hélt Snældu selskap. Skipti um föt upp úr hádeginu og um þrjú leytið lögðum við Hulda frænka af stað til Akureyrar. Hún vildi helst fara þangað þar sem hún átti erindi í eina búð. Byrjuðum á því að skella okkur í sund og smá sólbað í Sundlaug Akureyrar. Eftir klukkutíma þar leiðbeindi hún mér hvert hún þurfti að fara næst. Lét mig leggja við vínbúðina og skottaðist þaðan yfir tvær götur í aðra búð. Ég beið í bílnum á meðan. Næst ákvað ég að gott væri að koma við í AO við Baldursnes. Beygði aðeins of snemma og þar sem Hulda var svöng stoppaði ég við Bónus og beið eftir henni þar. Svo rambaði ég á bensínstöðina og fyllti tankinn. Hulda vildi hvorki skreppa í jólahúsið né fara Grenivíkur leiðina til baka því nú eru komnir heimalingar sem þarf að gefa á nokkrun veginn ákveðnum tímum. Við fórum því sömu leið til baka, um Víkurskarðið, og voru komnar í Árland milli sex og hálfsjö. 

22.5.24

Sól og blíða

Það bar aðeins ein kind í milli sex og hádegis í gærmorgun. Það var kind í eigu Helgu og Huldu dóttur hennar og var hún þrílembd. Ungi bóndinn og Helga fóru svo í fjárhúsin að gefa milli tíu og ellefu í gærmorgun. Ég var úti til að halda Snældu selskap því ef hún er ein úti og Aron í fjárhúsunum sækir hún í að fara þangað inn og er ansi glúrin við að finna leiðir. Hún er fjörug, aktíf og vill alltaf vera að gera eitthvað. Gott ef hún var ekki að reyna að "smala" mér með sér. En ef ég elti hana ekki og labba í aðra átt þá er hún komin á núll einni til að athuga hvert ég er að fara og hvort ég vilji leika. Um miðjan dag í gær skruppum við systur inn á Akureyri. Mágur minn var lasinn heima og það þurfti í búð. "Heimsótti" því loksins Krónuna á Akureyri en þar er systir mín búin að vinna síðan opnaði skömmu fyrir jólin 2022. Eftir verslunarferðina komum við við í Ísbúð þar sem hægt er að fá sykurlausan ís og shake. Ég ákvað að prófa lítinn skammt af sykurlausum expressóís og var Helga spennt að vita hvort þessi smökkun mín myndi magna upp í mér kaffiþörfina. Komum til baka um hálfsex leytið. Hulda undirbjó kvöldmatargerð, lasanja en svo fóru þau Aron út, hún til að gefa þeim lömbum sem ekki fá nóg og hann til að færa aðeins á milli. Rétt fyrir kvöldmat voru fimm kindur byrjaðar að bera, einhverjar einlembdar en ein þrílemd. Systir mín og ungi bóndinn voru þá í fjárhúsunum og komust ekki inn að borða fyrr en um níu leytið. Yngri bróðirinn var farinn af bæ en pabbi þeirra bræðra átti leið hjá og var boðinn í kvöldmat. Kláraði að prjóna lambadulu að ósk systur minnar sem ég byrjaði mjög fljótlega eftir að ég kom í sveit systur minnar. Fór ekki í háttinn fyrr en um ellefu og las þá næstum til miðnættis í þremur ólíkum bókum, tveimur af safninu og einni úr Fossheiðarpokanum. 

21.5.24

Ronna hennar Huldu/Helgu borin þremur lömbum

Pabbi bræðranna var á vaktinni til klukkan að ganga sjö í gærmorgun. Ungi bóndinn, Aron, hafði því farið að sofa fyrr en undanfarna daga en samt einhvern tímann eftir miðnætti. Systir mín og mágur fengu sér ketókaffi en svo fórum við systur yfir í fjárhúsin. Þar voru tvær sem vitað var að myndu bera á næstu tímum og það bættust tvær aðrar í hópinn. Ein af þessum fjórum bar fljótlega. Um hádegisbilið voru alls fimm bornar. Helga, Aron og pabbi hans sáu um að gefa og vatna og ein sem bar á þeim tímapunkti fékk því betra næði til að athafna sig. Annars fór ég inn fyrir klukkan tólf og ekkert út í fjárhús eftir það. Einhvern tíma dagsins var ég úti að halda Snældu selskap til að passa upp á að hún væri ekki að trufla neitt eða neinn í fjárhúsunum. Hún sækist reyndar eingöngu í að komast þangað þegar Aron er þar. Þeir feðgar, allir þrír, voru að merkja lömb á sama tíma og ég var úti með hvolptíkinni. Steikti fisk í kvöldmatinn, eða við systur hjálpuðumst að við það. 

20.5.24

Allt hvítt á sumarfrísdegi númer fimm í röðinni

Dreif mig á fætur um sex í gærmorgun. Þá voru systir mín og mágur þegar búin að fara aðeins út í fjárhús og "næturverðirnir" farnir að hvíla sig. Þau vissu um eina sem var að byrja burð. Fórum tvær út um sjö leytið. Tvær aðrar voru komnar af stað og sú sem við sáum síðast var fyrst til að bera. Kalla þurfti út unga bóndann um tíu. Þá var önnur hinna búin að bera einu en hitt lambið snéri öfugt og það þurfti að hjálpa til við að ná því út. Sumar rollurnar eru það styggar að það borgar sig að eigandinn sé nálægur. Um þetta leyti var hann líka búinn að hleypa Snældu út og ég tók það að mér að vera útivið svo hún myndi ekki troða sér í fjárhúsin. Upp úr hádeginu fór að snjóa smá og í gærkvöldi var allt orðið hvítt. En það var engin hraðferð á logninu og kunnugir meta þetta svo að snjóinn taki upp í síðasta lagi á morgun.


 

19.5.24

Sama uppskrift

Aftur vaknaði ég um hálfsjö. Systir mín og mágur voru komin á stjá og hún var þegar búin að kíkja út í fjárhús. Þar var ein sem sýndi greinileg merki þess að burður var kominn af stað. Tannburstaði mig og fékk mér vatnsglas en þau hjónin byrja alla morgna á ketókaffi. Þegar við komum út í fjárhús fundum við aðra sem var komin með sóttina. Það gekk samt frekar hægt hjá þessum báðum. Sátum góða stund að fylgjast með og í millitíðinni byrjaði að snjóa aðeins úti. Um miðjan morgun tókum við hálftíma pásu. Ég var svo rétt á undan aftur út. Enn var ekkert að gerast en þriðja kindin var byrjuð að krafsa með framlöppunum. Þegar Helga kom skömmu síðar sáum við að sú sem var síðust af stað af þessum þremur var komin með lamb. Helga stúkaði kind og lamb af og það kom annað lamb stuttu síðar. Ég skrapp inn um hálfellefu en systir mín hringdi í unga bóndann og þegar ég kom aftur út háltíma síðar var hann búinn að toga eitt stórt lamb úr "fyrstu" kindinni og þrjú úr annarri. Fyrsta af þremur kom öfugt út en það var þriðja lambið sem lifði ekki af. Snælda sex mánaða frátík unga bóndans tróð sér inn í fjárhús en hún er enn aðeins of mikill kjáni. Vill alveg smala fénu í hóp en það er mikill leikur og læti í henni. Þegar Aron gafst upp á að hafa hana inni í kringum féð og lömbin og fleygði henni út aftur ákvað ég að ég gerði mest gagn með því að fara út líka og sjá til þess að Snælda hefði um annað að hugsa heldur en að sniglast í kringum húsbónda sinn og atast í kindunum. Það virkaði ágætlega. Var með hana úti í hátt í klukkustund eða þar til mágur minn kom með sína þrjá hunda úr göngu ofan úr fjalli. Þá setti ég hana inn í búrið sitt. Um þrjú leytið skruppum við Hulda í sund til Húsavíkur. Við syntum báðar meira heldur en á föstudaginn og ég fór nokkrar ferðir á bakinu af því ég hafði tekið hársjampóið mitt með í þessa sundferð. Eftir sundið kom ég við í Nettó. Hafði verið beðin um að kippa með mér rjóma og ég nýtti tækifærið og birgði mig sjálfa upp af léttu nasli eins og grískri jógúrt, skyri, gulrótum, eplum og fleiru. Í kvöldmat var lamb og báðir bræðurnir sem og pabbi þeirra voru með. Hulda dró sig fljótlega í hlé eftir matinn og yngri bróðirinn fór að heimsækja kærustuna sem vinnur og býr á öðrum bæ ekkert of langt frá. 

18.5.24

Sauðburður og sund

Vaknaði um hálfsjö í gærmorgun. Mágur minn var nýbúinn að útbúa morgundrykkinn þeirra hjóna, ketókaffi og systir mín tók við sínum bolla fyrir utan og fór með hann með sér í fjárhúsin. Sagði að það væru tvær að fara að bera bráðum. Ég rétt gaf mér tíma til að hendast í föt, sinna morgunverkunum á baðherberginu og fá mér glas af kókosvatni áður en ég fór á eftir henni út í fjárhús. Gat eitthvað hjálpað til en var eiginlega fyrst og fremst í eftirlits og snattstörfum. Kíkja hvort vatnaði vatn og hvort eitthvað væri að gerast hjá þeim sem voru komnar á stað og einnig athuga hvort fleiri sýndu merki um að vera að byrja. Gátum skroppið inn í hálftíma inn á milli. Systir mín er greinilega komin með mjög mikinn áhuga á svona bústörfum og stendur sig vel á sínum vöktum. Það er nauðsynlegt að ungi bóndinn, Aron, fái að hvíla sig inn á milli. Anton bróðir hans var á næturvakt fyrripart nætur í fyrrinótt en kom svo beint yfir að leysa bróðir sinn af um þrjú leytið. Hann var í fjárhúsunum þegar Helga tók vaktina um sex en var að fá sér smá snarl um það leyti sem ég kom fram og fór svo og lagði sig til hádegis. Um þrjú leytið fórum við Hulda frænka mín saman í sund inn á Laugar. Þar fór ég þrisvar í kalda pottinn, einu sinni í gufu og einu sinni í 40°C pottinn en synti ekki nema 150m. Þetta var samt mjög notalegt og hressandi í senn. Eldaði svo fiskrétt um kvöldið á alveg nýjan hátt. Það gekk svo vel samt að meira að segja bræðurnir voru mjög hrifnir en þeir eru meira fyrir kjöt en fisk.

17.5.24

Í sveitasælunni fyrir norðan

Þrátt fyrir að vera komin á fætur um hálfsjö fór það þannig að ég skrópaði í sund enn einn daginn. Gerði æfingarnar samviskusamlega, vafraði um á netinu, ýtti við N1 syninum svo hann yrði ekki of seinn í vinnuna og um átta leytið fór ég að huga að því að taka mig saman og pakka. Það tók mun lengri tíma en ég hafði gert ráð fyrir. Um hálftíu bankaði ég upp á hjá Oddi og spurði hvort hann væri til í að rífa sig upp fljótlega og hjálpa mér að ferma bílinn. Hann var til í það en klukkan var orðin hálfellefu áður en ég taldi mig tilbúna. Pakkaði auðvitað niður eins og ég yrði mánuð í burtu en þótt ég sé ekki alveg búin að ákveða hversu lengi ég verð,verður það varla alveg svo langur tími. Á leiðinni út úr bænum kom ég við í N1 við Gagnveg og fékk Davíð Stein til að athuga með loftþrýstinginn á dekkjunum. Klukkan var svo um hálftólf þegar ég hélt áfram út úr bænum og norður á bóginn. Keyrði alla leið á Hvammstanga en þar stoppaði ég loksins til að fá mér að borða. Kíkti líka við í ullarsetrinu áður en ég hélt för áfram. Stoppaði næst við AO í Baldursnesi á Akureyri um hálfsex og fyllti á tankinn. Tók örstuttan rúnt um hluta af bænum áður en ég keyrði áfram. Tók lengri leiðina og fór um Víkurskarð í stað þess að fara göngin og var komin til systur minnar um hálfsjöleytið.

16.5.24

Ferðadagur framundan

Vinnudagurinn í gær varð aðeins lengri en ég hafði áætlað en ég skildi þó við tiltölulega hreint borð þegar ég fór úr húsi klukkan að nálgast hálffimm. Það var framleiðsludagur. "Daglegu" skrárnar kláruðust stuttu eftir kaffi og fundarpásu og þá tók við endurnýjun upp á tæplega þrjúþúsund. Sendum ellefu fulla póstkassa upp með lyftu 1 rétt fyrir fjögur og vorum þá búnar með þessa nokkuð stóru endurnýjun. Þá átti ég bara eftir að bóka, útbúa fylgiskjal með póstinum, stimpla mig út og senda vinnuvikuna til samþykktar ásamt því að haka í alla 28 virku frídagana framundan. Fór svo bjartsýn út í þunga umferðina og náði að komast upp í Grafarholt rétt fyrir lokun hjá Margt Smátt. Þangað sem ég sótti bolla með forsetaframbjóðandanum Baldri og maka hans Felix. Gat bara alls ekki skilið Felix eftir úttundan enda sýnist mér hann styðja mjög vel við bakið á Baldri. Ætlunin var svo að skreppa í sund en ég hvarf frá því. Kom við í Fiskbúð Fúsa og keypti harðfisk. Kom heim klukkan langt gengin í sex og klukkan sjö mætti ég á húsfund niður á næstu hæð. Eftir fundinn kom ég við í þvottahúsinu til að sækja þvott en restin af kvöldinu fór í FBI-þáttaáhorf með Oddi. Var komin upp í rúm um tíu leytið.

 er ég alveg óviss hvernig næstu dagar verða. Er að fara að pakka niður fyrir ferðalag norður í land. Verð hjá systir minni í amk viku og þá er mjög líklegt að ég haldi áfram austur á bóginn og stoppi í nokkra daga hjá æskuvinkonu minni. Fartölvan fer með í ferðalagið og ef ég þekki mig rétt reyni ég að punkta niður það helsta reglulega.

15.5.24

Vinningur á HHÍ miðann minn í gær

Í morgunæfingunum skiptist ég nú á að nota 2 x kíló og 2 x 1,5 kíló í hvorri hönd. Í gærmorgun voru það léttari lóðin. Mætti í vinnu upp úr klukkan hálfátta. Það var einfaldlega klikkað að gera í vinnunni og ég var ekki búin fyrr en klukkan að verða hálfsex. Eins og ég hefði nú haft gott af því að skella mér beint í sund og kaldan pott þá skrópaði ég og fór beint heim. Hringdi í pabba áður en ég fór inn úr bílnum. Gleymdi að segja honum að yngri dótturdóttir hans er að útskrifast með sveinspróf í kjötiðn aðra helgi. Dugnaðarforkurinn hún Bríet sem verður tvítug í næsta mánuði. 

14.5.24

Blár himinn

Morgunrútínan gekk ágætlega að venju í gærmorgun. Notaði 1,5kg lóðin við æfingarnar og vandaði mig við að gera alls konar. Held að ég hafi "tekið" á því í uþb fimmtán mínútur. Mætti í vinnu upp úr klukkan hálfátta. Stimplaði mig inn og byrjaði fljótlega að taka saman tölur og prenta út skjöl vegna korta áður en ég byrjaði í innleggjunum. Fyrirliðinn fór niður að hlaða inn skránum og útbúa skiptiblöð. Tvær sumarstúlkur byrjuðu í gær. Önnur var með okkur í fyrra sumar og kom líka í jóla og páskafríinu. Hin var að koma í fyrsta skipti. Vinnu lauk ekki fyrr en um fjögur. Þá dreif ég mig beint í sund. Synti reyndar ekkert en fór fjórar ferðir í kalda með kalda potts vinkonu minni. Fór upp úr um fimm leytið og ætlaði mér að ná í vörur sem ég var að panta um helgina hjá Margt Smátt. Hélt að það væri opið til klukkan sex en það lokar klukkan fimm svo ég kom að læstum dyrum og verð að gera mér aðra ferð. Kom heim um hálfsjö. 

13.5.24

Þrír vinnudagar í þessari viku

Svaf mun betur í fyrrinótt og vaknaði hress og endurnærð um sjö leytið. Klukkan var samt farin að ganga ellefu áður en ég lagði af stað í sund. Laugardalslaugin var opnuð aftur á laugardaginn. Ég byrjaði á kalda pottinum sem var þó í heitara lagi eða rúmlega 9°C. Synti 400 metra, ca helminginn á bakinu. Aftur í kalda, þá gufu, kalda sturtu, nuddpottinn, sjópottinn og endaði svo á kalda pottinum og smá "sólbaði" áður en ég fór upp úr. Þvoði mér um hárið. Kom heim upp úr klukkan tólf. N1 sonurinn var á vakt en þegar hinn sonurinn rumskaði fékk ég hann í lið með mér í þau verk sem sjaldnast er skrifað um. Hringdi í Önnu frænku, pabba og Ellu vinkonu. Hún var að fara að horfa á sama leik í enska og við Oddur; Man. Utd - Arsenal sem fór á besta veg fyrir gestaliðið sem á möguleika á að vinna deildina en aðeins ef Man. City tapar stigum í frestuðum leik í vikunni. 

12.5.24

Letidagur í gær

Vaknaði alltof snemma eða svaf of lítið. Held að ég hafi ekki sofnað neitt aftur eftir að ég rumskaði fyrir fimm í gærmorgun. Var komin á fætur um sexleytið. Vafraði um á netinu, gerði æfingar og horfði á þætti. Fór ekkert í sund en skrapp til esperanto vinkonu minnar milli hálfellefu og tólf. Fór ekki í göngutúr en horfði á landsleik, þætti og gerði æfingar. Var komin í rúmið fyrir klukkan hálftíu. Leysti sudoku og las til klukkan tíu. Man ekki hvenær ég sofnaði en svaf amk miklu betur í nótt þrátt fyrir samviskubitið yfir letinni.