Dreif mig á fætur um sex í gærmorgun. Þá voru systir mín og mágur þegar búin að fara aðeins út í fjárhús og "næturverðirnir" farnir að hvíla sig. Þau vissu um eina sem var að byrja burð. Fórum tvær út um sjö leytið. Tvær aðrar voru komnar af stað og sú sem við sáum síðast var fyrst til að bera. Kalla þurfti út unga bóndann um tíu. Þá var önnur hinna búin að bera einu en hitt lambið snéri öfugt og það þurfti að hjálpa til við að ná því út. Sumar rollurnar eru það styggar að það borgar sig að eigandinn sé nálægur. Um þetta leyti var hann líka búinn að hleypa Snældu út og ég tók það að mér að vera útivið svo hún myndi ekki troða sér í fjárhúsin. Upp úr hádeginu fór að snjóa smá og í gærkvöldi var allt orðið hvítt. En það var engin hraðferð á logninu og kunnugir meta þetta svo að snjóinn taki upp í síðasta lagi á morgun.