- Enn af hjólinu -
Ekki komst ég með hjólið í viðgerð í gær heldur fékk það að vera á hjólastæði í kjallara vinnustaðarins í nótt. Borgarhjól sf. er opið milli átta og sex flesta virka daga en ég komst ekki úr vinnu fyrr en upp úr sjö í gær vegna smá mála sem þurfti að afgreiða "strax". En ég er nokkuð viss um að hjólið fer í viðgerð eftir fjögur í dag.
Hef lokið við að lesa tvær síðustu bækurnar sem ég er með af Kringlusafninu. Vetrarsól eftir Auði Jónsdóttur og Drottning rís upp frá dauðum sem er söguleg skáldsaga eftir Ragnar Arnalds. Báðar alveg ágætisbækur. Þarf að skila þeim á safnið fyrir 18. þ.m. og ef ég næli mér í e-r bækur í staðinn þarf ég líklega að endurnýja bókasafnskírteinið. Annars á ég þrjár ólesnar bækur heima, Húsið eftir Stefán Mána, Ég geng ein eftir Mary Higgins Clark og Áður en ég sofna eftir Steven J. Watson. Þessa síðustu fékk ég í síðustu viku frá bókaklúbbnum sem ég er í. Fyrst nefndu bókina keypti ég á afar góðum afslætti í gegnum "Núið" í byrjun árs og "miðbókina" keypti ég á bókamarkaðinum í Perlunni í febrúar eða mars. Byrjaði á að lesa bókina hans Stefáns Mána í gær og hún lofar góðu. Þetta er mjög þykk bók og það er helst að ég kvíði því að hún grípi mig svo sterkum tökum að ég verði að lesa langt frameftir öllu og sinni ekki saumunum mínum á meðan.