Þegar ég kom heim í gær sá ég að aldrei þessu vant var allt upptekið á hleðslustaurnum. Í morgun var ég búin að ákveða að leggja snemma af stað í sund, finna hleðslustaur frá Ísorku við Kleppsveg, stinga í samband og labba þaðan í Laugardalslaug. Ekki virkaði að koma hleðslunni af stað svo ég hætti við og fór á bílnum alla leið á planið við laugina. Eftir sundferðina fór ég vestur í bæ og ætlaði að nota hraðhreðslustöð við Ánanaust. Það var heldur ekki að virka en ég veit núna í því tilfelli hvað ég var að gera vitlaust. Svo vildi svo vel til að hleðslustöðvarnar fyrir utan heima hjá norsku esperanto vinkonu minni eru bæði fyrir íbúa og gesti. Þar gat ég stungið í samband og komið á hleðslu með því að leggja kreditkortið við staurinn þannig að hleðsla hófst. Var með hann í hleðslu þennan rétt rúma klukkutíma sem ég var hjá vinkonu minni. Batteríið var komið upp í 68% úr 35% á þessum klukkutíma. Ég fór heim og gekk frá sund- og esperantodótinu og kláraði að pakka niður. Líklega hefði ég komist alla leið á Hellu en ég ákvað að stinga í samband í hraðhleðslustöð ísorku við Olís utan við á. Hélt að hleðsla væri komin af stað en um tíu mínútum seinna var ekkert að gerast. Þá var kominn annar aðili sem var búinn að stinga sínum bíl í samband og gat aðstoðað mig við að koma hleðslunni af stað. Hlóð bara í tæpar tíu mínútur og komst upp í 54%. Í millitíðinni hafði ég hringt í frændfólkið mitt í Norðurmýrinni til að athuga hvort þau væru með tengil, sem var ekki, svo ég stoppaði aðeins hjá þeim. Þau fengu að skoða bílinn og setjast aðeins inn í hann. Stoppaði hjá þeim í uþb klukkustund. Hringdi í pabba þegar ég var að leggja af stað frá þeim og var komin til hans um þrjú leytið. Hann var að horfa á þátt um Siglufjörð en að þeim þætti loknum skoðaði hann bílinn. Við athuguðum líka hvort tengið sem hann setti upp fyrir Ford tvin bílinn sem hann átti fyrir nokkrum árum. Svo var ekki. Pabbi fékk að keyra bílinn að hraðhleðslustöð Ísorku við Olís. Þar setti ég bílinn í hleðslu og svo röltum við pabbi í bakaríð, eða hann ætlaði að bjóða mér í "kaffi". Þá var reyndar klukkan orðin fjögur og búið að loka. Við settumst þá niður við borð í rýminu framan við búðina, vínbúðina og bakaríið. Á tuttugu mínútum fór batteríið upp 85% og það á að vera hægt að keyra rúmlega 200km á þeirri hleðslu. Við komum til baka í Hólavanginn um hálffimm og ætlum að hafa siginn fisk í kvöldmatinn.
24.1.26
23.1.26
Fastráðning
Var alls ekki tilbúin að fara á fætur þegar vekjaraklukkan hringdi rétt fyrir klukkan sex í morgun. Fór því ekki í sund en var mætt í vinnu tuttugu mínútum fyrir klukkan átta. Rúmum klukkutíma síðar skildi ég skoðnunarmennina eftir á meðan ég skrapp í Mjóddina til að tala við Forstjóra Frumherja. Það var mannauðsstjórinn sem hafði samband við mig í gær og bað mig að koma en tilefnið var að skrifa undir fastráðningasamning. Einn af kúnnum dagsins hafði verið að vinna með fyrrum nágranna mínum og fljótlega eftir vinnu ákvað ég að skella mér í heimsókn í Drápuhlíðina. Það var vel tekið á móti mér. Ég stoppaði í rúman hálftíma og þegar ég var að kveðja hittist svo vel á að fjölskyldan á efri hæðinni var að koma heim. Ég fékk leyfi til að kíkja inn hjá þeim og VÁ hvað allt var orðið breytt og svo yndislega öðruvísi. Þau ætla að hóa í mig þegar þau verða búin að ljúka við flestar breytingarnar og koma sér enn betur fyrir. Þá fæ ég líka örugglega að taka myndir. Annars var ég komin heim stuttu fyrir klukkan sex.
22.1.26
Langur dagur - nýkomin heim
Ég var vöknuð alltof snemma í morgun, hafði nægan tíma í morgunverkin og undirbúning undir daginn og var samt mætt á braut átta tuttugu mínútum fyrir sjö. Færði mig yfir á braut 7 eftir fyrstu 100 metrana og synti 200m í viðbót. Stimplaði mig inn í vinnu korter fyrir átta. Fékk þær fréttir að brotist hefði verið inn í stöðina um nóttina. Sem betur fer eru seðlarnir alltaf læstir inni í öryggisskáp en allir 50 og 100 kallarnir í skúffunni voru teknir. Það var til einn staukur, 2000 kr, af 50 kr inn í öryggisskáp. Að öðru leyti gekk dagurinn ágætlega fyrir sig. Skoðaðir voru hátt í 50 bílar. Stöðvarstjórinn fór um þrjú leytið og hinn skoðunarmaðurinn upp úr klukkan fjögur. Það var alveg í lagi mín vegna þar til ég mundi eftir að ég væri ekki með neina lykla og það þarf að læsa innri hurðinni með lykli utan frá. Náði ekki í stöðvarstjórann en sendi honum skilaboð um að ég setti kerfið á og skellti ytri hurðinni í lás. Var komin heim rétt fyrir fimm og farin út aftur um sex. Sú útivist stóð yfir í rúmlega fjóra og hálfan tíma.
21.1.26
Eitt og annað nýtt að frétta
Ég tók með mér sjósunds dótið þegar ég lagði af stað í vinnu í morgun. Var kannski ívið of snemma á ferðinni, stimplaði mig inn um hálfátta. Hafði nægan tíma til að gera upp. Stöðvarstjórinn mætti um átta svo ég afhenti honum lyklana af stöðinni og sagði honum í leiðinni að annað hvort þyrfti ég að skreppa frá í kringum hádegið eða hætta vinnu í fyrra fallinu. Vissi ekki sjálf fyrr en um tvö leytið að það seinna yrði ofan á. En í kringum hádegið var ég að undirrita pappíra rafrænt og um tvö millifærði ég nokkuð stóra summu fyrir kaup á nýjum rafbíl. Millifærði 100 þúsund of mikið því ég fór eftir feitletruðu upphæðinni en ég fékk 100þúsundin fljótlega vegna uppítöku eldri bílsins. Skilaboðin voru svo þau að ég mætti vera mætt um hálffjögur upp í Brimborg. Ég var að sjálfsögðu mætt á slaginu, stimplaði mig út úr vinnu tólf mínútum yfir þrjú og skildi "strákana" eftir eina síðasta rúma klukkutímann. Korter fyrir fimm keyrði ég í burtu á glænýjum Ford Puma eftir fræðslu og fleira. Kom fyrst við á dekkjaverkstæði N1 við Bíldshöfða og setti sumardekkin á hótel hjá þeim. Var mætt í Hátún 12 í osteostron rúmlega fimm í síðasta tímann af árskortinu og notaði tækifærið og greiddi fyrir heilt ár í viðbót áður en ég fór í æfingarnar og slökunina. Klukkan var að byrja að ganga sjö þegar ég var komin í Nauthólsvík. Einhver bilun var á kortakerfinu en mér og fleirum var hleypt inn. Ég fór tvisvar í rúmlega gráðu heitan sjóinn, smá stund í gufu á milli þeirra ferða og svo örstutt í pottinn í lokin. Kortakerfið virkaði fínt þegar ég var búin að klæða mig aftur og á leiðinni út. Hringdi í pabba, aðallega til að segja honum að ég væri komin á nýjan bíl. Talaði við hann þar til klukkan var alveg að verða kvöldfréttir á RÚV. Þá var ég að keyra upp hjá Hamraborginni. Lenti í smá vandræðum að slökkva á símanum og það endaði með því að áður en ég keyrði inn á fyrsta hringtorgið reif ég upp símann og lagði á þannig. Nú er kannski ráð að fara og fylgjast með leik Svía og Króata á EM karla í handbolta. Leikurinn við Ungverja í gær var eiginlega alltof spennandi og frekar langur en það sem ég er montin af strákunum að halda haus út leikinn og ná að vinna að þessu sinni. Viktor Gísli átti mjög stóran þátt í þessum sigri með magnaðri frammistöðu í markinu.
20.1.26
Afsals-uppgjör vegna sölunnar á Drápuhlíð gert í dag
Það var einhver spenningur í mér, var sofnuð um tíu leytið en hrökk upp einhvern tímann fljótlega eftir miðnætti. Fór fram á pisseríið. Sofnaði sem betur fer fljótlega aftur en hrökk svo upp um þrjú leytið. Þurfti aftur á pisseríið og að þessu sinni gekk mér verr að sofna. Ákvað að kveikja ljós og grípa aðeins í bók; Systraklukkurnar eftir Lars Mytting. Þegar ég lagði frá mér bókina ákvað ég að endurstilla vekjarann og sleppa því að fara í morgunsund. Vaknaði um hálfsjö leytið. Borðaði afganginn af hafragrautnum frá því á sunnudaginn og var mætt í vinnu rétt upp úr klukkan hálfátta. Það var mjög hált en ég lenti ekki í neinum vandræðum. Framkvæmdastjórinn yfir BSK kom og leysti af á annarri skoðunarbrautinni fram yfir hádegi. Eftir hádegi kom svo skoðunarmaðurinn sem var að leysa af fyrstu heilu viku ársins. Í gærkvöldi sendi ég annars fyrirspurn í rafrænum pósti til þeirrar sem var með afsalsmálin vegna Drápuhlíðarinnar í sínum höndum. Vildi tékka á hvað færi að frétta. Svar kom um hádegisbilið og þá voru kaupendurnir nýlega búin að ganga frá afsali vegna sölu á íbúðinni í Stigahlíð. Um hálfþrjú leytið voru allir búnir að samþykkja og skrifa rafrænt undir og ég búin að fá loka greiðsluna inn á INDÓ reikninginn minn. En ég var líka að bíða eftir fréttum úr öðru máli, átti hálft í hvoru von á því að vera látin vita um hádegisbilið að ég mætti koma á THM88 upp í Brimborg og kaupa og fá afhentan RYJ17, rauðan Ford Puma 100% rafbíl. Sölumaðurinn hringdi í mig rétt fyrir þrjú og sagði að þessi gjörningur myndi frestast til morguns, bara spurning um hvort það verði um eða upp úr hádeginu eða síðar. Eftir vinnu hringdi ég í pabba og spjallaði við hann á meðan ég var á leiðinni að N1 í Borgartúni. Bauð Davíð Steini far heim þegar vinnutíminn hans var búinn um fimm. Var svo komin heim til mín um hálfsex leytið.
19.1.26
Annríki í vinnunni
Ég var örugglega sofnuð um tíu í gærkvöldi. Var mjög líklega að dreyma eitthvað skemmtilegt þegar vekjarinn fór í gang tíu mínútum fyrir klukkan sex í morgun. Ég fór strax á fætur og sinnti megninu af morgunverkunum áður en ég dreif mig í sundið. Var komin á braut 8 korter fyrir sjö, tafðist aðeins því ég hitti einn fyrrum vinnufélaga sem vann einu sinni hjá RB. Synti 200m, fór tvisvar í þann kalda og hitti svo eina sundvinkonu í sjópottinum. Stimplaði mig inn í vinnu ca korter í átta. Aðeins annar skoðunarmaðurinn var mættur. Þegar til kom vorum við bara tvö í dag. Þar að auki þurfti skoðunarmaðurinn að skreppa aðeins frá um ellefu leytið. En hann var kominn aftur milli hálftólf og tólf. Ég hafði í nógu að snúast í öðru á meðan. Vinnudagurinn leið mjög hratt og það eru færri mál útistandandi heldur en voru þegar ég fór heim á föstudaginn, amk eru sum komin í ákveðið ferli. Ég var síðust úr vinnu, setti kerfið á og læsti á eftir mér rétt rúmlega hálffimm. Ákvað að gera húsvitjun til móðurbróður míns og konu hans sem búa í Álftamýrinni. Stoppaði hjá þeim í tæpan klukkutíma áður en ég kvaddi og fór beinustu leið heim.
18.1.26
Hitatölur, bleyta og hraðferð á logninu
Ég vaknaði alltof snemma í morgun. Um fimm gafst ég upp á að reyna sofna aftur og kláraði að lesa bókina um Kalmann. Fór á fætur um sjö. Settist fljótlega í stofustólinn og kláraði bókina um fólkið í vitanum. Um níu bjó ég til hafragraut. Borðaði helminginn af honum, hinn helmingurinn fór í skál inn í ísskáp. Var mætt í Laugardalinn um 10, á sama tíma og kaldapotts vinkona mín. Við byrjuðum á því að synda í korter til tuttugu mínútur áður en við fórum í potta- og gufurútínuna okkar. Ég kvaddi um hálftólf og fór beint heim aftur. Annars lítið að frétta.
17.1.26
Búið að tæma leigu-geymslurými
Vaknaði um sex. Fór þó ekki á fætur fyrr en um sjö. Var mætt á braut 8 í Laugardalslauginni um hálfníu og svo til esperantovinkonu minnar um tíu. Við lásum 4 bls. í Kon-Tiki. Ákvað að renna bílnum í gegnum Löður við Fiskislóð eftir esperanto-hittinginn. Í sjálfu sér var það kannski galið því ég vissi að bíllinn yrði fljótlega næstum því jafn skítugur aftur. Sótti Davíð Stein og við komum við heima þar sem ég gekk frá sund- og esperantodótinu. Fórum að því búnu niður í geymslu þar sem ég endurraðaði smá af dótinu. Svo lá leiðin í Hafnarfjörð, nánar tiltekið að Einhellu 4 þar sem við tæmdum úr geymslu númer 82. Allt dót frá Davíð Steini. Það komst allt í bílinn. Fórum með megnið af því í geymsluna mína. Sonurinn sá um að raða dótinu sínu og gerði það þannig að það er enn gott pláss og aðgengi að megninu til, fer eftir því í hvaða kassa þú þarft að komast. Svo fórum við með restina yfir í geymsluna sem tilheyrir íbúðinni sem hann er meðleigjandi í. Komumst með allt í einni ferð úr bílnum en vorum líka með báðar hendur fullar. Ég fékk svo aðeins að kíkja upp í íbúð og heilsa upp á aðra vinkonuna. Ég var komin heim aftur um þrjú leytið.
16.1.26
Sigur í fyrsta leik á EM karla í handbolta
Var í hlandspreng þegar ég rumskaði eftir um þriggja tíma svefn. Þegar ég var búin að tæma blöðruna, þvo mér og koma mér upp í rúm aftur klóraði ég mér aðeins í nebbanum með því að bora smá upp í aðra nösina. Þá gerðist það sem ekki hefur gerst í mörg ár ég fékk blóðnasir. Glaðvaknaði við þetta. Það tók ekki langan tíma að stoppa rennslið en ég ákvað að kveikja á lampanum og lesa í smá stund. Þegar ég lagði frá mér bókina hálftíma síðar ákvað ég að endurstilla vekjarann og sleppa sundferð. Sofnaði fljótlega aftur og vaknaði um hálfsjö. Gerði æfingar með 1,5kg lóðunum, fékk mér morgunmat, tannburstaði mig og var mætt í vinnu tuttugu mínútum fyrir klukkan átta. Einn skoðunarmaður sem hefur verið í frumherja í Klettagörðum var mættur ásamt skoðunarmanninum sem er búinn að vinna í Skeifunni sl 14 ár. Sá fór svo heim um hádegið þannig að við vorum bara tvö frá ca hálfeitt og til klukkan fjögur. Það gekk ágætlega upp en það komu samt upp mál í afgreiðslunni sem ég náði ekki að leysa og bíða því nánari skoðunnar eftir helgi. Við lokuðum rétt rúmlega fjögur. Ég gerði mér ferð í Fiskbúð Fúsa og kom svo aðeins við í N1 í Borgartúni til að hitta aðeins á N1 soninn og staðfesta geymslutæmingu um helgina. Hringdi í Odd og spjallaði við hann á meðan ég var á leiðinni heim. Kom heim í þann mund sem fyrsti leikur Íslands á EM hófst, unnum Ítali með 13 marka mun.
Samfelldur átta tíma svefn
Var að losa svefninn rétt um það bil sem vekjarinn fór í gang. Ég hefði svo sem alveg verið til í að snúa mér á hina hliðina en var ákveðnari í að byrja daginn á sundferð. Sundferðin tók rétt rúman klukkutíma og ég var mætt í vinnu tæpu korteri fyrir klukkan átta. Ég heyrði á tali skoðunarmannana, á níunda tímanum, að stöðvarstjórinn þyrfti að hætta á hádegi. Um tíu leytið talaði ég við hann um hvort ég mætti fara aðeins fyrir hálf. Hann gaf samþykkið og sá gamli var upplýstur. Stöðvarstjórinn lét mig hafa lyklana af stöðinni þar sem hann mætir ekki aftur fyrr en eftir helgi. Allt gekk þokkalega, það var mismikið að gera í afgreiðslunni og það komu upp ýmis mál sem ég þurfti að fá aðstoð við að leysa. Lærði semsagt sitthvað nýtt í dag. Á fjórða tímanum var smá dauð stund og sá gamli ákvað að við skyldum bara loka stöðinni klukkan fjögur. Mér leið ekki alltof vel með þá ákvörðun hans og setti mig í samband við þá sem græjar skipulagið vikulega og spurði hvort þetta væri í lagi. Svarið var að það væri ekki vel séð svona dags daglega að hætta fyrir ákveðinn lokunartíma en að það myndi vera í lagi í þetta sinn ef við settum miða á hurðina. Sá gamli var svo farinn á slaginu fjögur en ég stimplaði mig út tíu mínútum seinna, slökkti, setti kerfið á og læsti báðum dyrum. Ástæðuna fyrir því að ég þurfti að hætta fyrr skrifa ég um seinna en ég þurfti að vera komin á ákveðinn stað klukkan hálffimm. Venjulega er maður ekki lengur en um tíu mínútur að komast þangað en það er heldur lengri tími í síðdegisumferðinni. Ég var komin heim rétt fyrir klukkan sex.
14.1.26
Osteostrong og sjósund eftir vinnu
Ég vaknaði helst til of snemma miðað við að ég ætlaði ekki í sund fyrir vinnu. Greip í bók um fimm í morgun en fór svo á fætur um hálfsex leytið. Gerði æfingar með 1,5kg lóðunum. Mætti í vinnuna rúmlega hálfátta. Dagurinn var mis annasamur og verkefnin voru frekar fjölbeytt. Alveg farin á kunna ýmislegt en þarf samt aðstoð inn á milli, sem er bara eðlilegt. Stimplaði mig út rétt áður en klukkan sló hálffimm. Áður en ég lagði af stað yfir í Hátúnið hringdi ég í mann frænku minnar. Hann hefur unnið hjá Brimborg til margra ára og ég var að spyrja hann um stöðu á afgreiðslu sem ég sendi beiðni um á mánudaginn var. Rétt eftir spjallið við hann hringdi vinnufélagi hans í mig til að upplýsa mig um stöðuna á þessari afgreiðslu. Meira um þessi mál fljótlega. Vel gekk í osteostrongtímanum. Þetta var næst síðasti tíminn af árskortinu þannig að ég þarf að endurnýja kortið næst eða í síðasta lagi eftir hálfan mánuð. Næst lá leiðin í Nauthólsvík og spjallaði ég við pabba í gegnum wifi-ið í bílnum á meðan ég keyrði þangað. Sjórinn var annars afar hressandi, -1,1°C, spegilsléttur og ekki svo langt út í. Kældi mig tvisvar, fór í gufu milli sjóferða og endaði smástund í heita pottinum. Kom heim upp úr klukkan hálfsjö.
13.1.26
Gott að byrja daginn á sundspretti
Ég rumskaði upp úr klukkan fimm og þurfti auðvitað að skreppa á pisseríið. Þar sem ég var glaðvöknuð eftir það skrepp kveikti ég ljós og greip í bækur. Ljóðabækurnar sem ég er að lesa eru; Nokkur orð um notagildi lífsins og áður óþekkt ljóð eftir Sigmund Erni Rúnarsson (af safninu, kláraði hana í morgun) og Þyngsta frumefnið eftir Jón Kalman Stefánsson sem ég er með í láni frá esperanto vinkonu minni. Mæli alveg með þessum bókum. Fór á fætur korter fyrir sex og eftir að hafa klætt mig og búið um greip ég smástund í eins kílóa lóðin mín. Var komin á braut 8 í Laugardalslaug tuttugu mínútum fyrir sjö og stimplaði mig inn í vinnu rétt rúmum klukkutíma síðar. Lærði ýmislegt í dag og komst einnig að því að ég er alveg hætt að vera feimin við að svara símanum. Það komu út tölur um símsvörun í símaveri í viku tvö og ég var með 69 fleiri svöruð símtöl heldur en í viku eitt, fór úr þremur í sjötíuogtvö. Stimplaði mig út rétt áður en klukkan varð hálffimm og fór beint heim. Var tuttugu mínútur á leiðinni og eftir að hafa gengið frá sunddótinu og kveikt á sprittkerti í saltkertastjakanum settist ég í stofustólinn og lét fara vel um mig í dágóða stund, kannski alltof lengi. Mætti alveg fara að vinna í að fara í stutta göngutúra eftir vinnu en það getur verið strembið að drífa sig út þegar maður er kominn inn í hlýjuna og sestur niður.
12.1.26
Aftur kominn mánudagur
Vaknaði fyrir klukkan hálfsex, líklega alveg hálftíma áður en vekjarinn átti að hnippa í mig. Sofnaði ekki aftur svo ég slökkti á vekjaranum og dreif mig á fætur. Hafði þannig ágætis tíma til að hafa mig til, fá mér morgunmat og gera nokkrar æfingar með tveimur 1kg lóðum. Var mætt á braut 8 í Laugardalslauginn tuttugu mínútum fyrir sjö. Synti 300m og hafði samt tíma til að fara í þann kalda, smá stund í gufuna og nokkrar mínútur í sjópottinn. Stimplaði mig inn áður en klukkan varð korter í. Báðir skoðunarmennirnir voru mættir og afhenti ég þeim sem var að koma úr fríi lyklana af skoðnunarstöðinni. Hann var mjög feginn, mundi ekki eftir því að hafa látið nöfnu mína hafa þá og hélt að þeir væru glataðir. Vinnudagurinn leið þokkalega hratt. Verkefnin komu í skorpum og voru af ýmsum toga. Hætti á slaginu hálffimm og fór beinustu leið heim. Talaði við pabba á meðan ég var á ferðinni. Hann var að vinna í tuskuþvotti.
11.1.26
Sunnudagur
Dagurinn hófst alltof snemma með ferð á pisseríið einhvern tímann á fimmta tímanum. Kúrði mig niður aftur og gleymdi mér í smá stund en þurfti svo að fara aftur á salernið um hálfsex. Fór aftur upp í rúm en að þessu sinni kveikti ég á náttborðslampanum, greip í bók og setti á mig lesgleraugun. Ein af bókunum sem ég kom með heim að safninu í gær er; Sólrún eftir Sigurlín Bjarney Gísladóttur, saga um ferðalag. Kaflarnir eru stuttir og sagan spennandi. Bókin er ekki löng en ég á eftir að lesa um 100 af 146. Þegar ég hætti að lesa stillti ég vekjarann á rúmlega níu og náði að sofna aftur. Var mætt á braut 8 í Laugardalslaug á slaginu 10, á sama tíma og kalda potts vinkona mín. Hún synti 300m og beið svo eftir mér í einum heita pottinum á meðan ég kláraði 500m. Fórum svo alls fjórar ferðir í þann kalda. Ég var komin heim aftur upp úr klukkan tólf. Um fjögur leytið skrapp ég út í stuttan göngutúr.
10.1.26
Dagurinn flaug hjá
Rumskaði um hálffjögur og varð að skreppa á pisseríið. Gat ekki sofnað strax aftur svo ég kveikti ljós og tók fram bók, eina af jólabókunum um; Fólkið í vitanum. Er búin að lesa um þrjá af 12 vitavörðum og komast að því að börn vitavarðarins Valdimars Stefánssonar sem var númer tvö í röðinni af tólf voru skyld mér. Þekkti tvö af þeim, Hörð og Erlu og er Erla enn á lífi komin á nítugasta og áttunda árið. Hún og pabbi eru þremenningar. Ég er líka að lesa: Kalmann eftir Jozchim B. Schimdt þýdd af Bjarna Jónssyni. Búin með fyrstu 50 bls. af 290. Um hálffimm stillti ég vekjarann á 7:20 og slökkti ljósið aftur. Sofnaði fljótlega og svaf alveg þar til vekjarinn ýtti við mér. Var mætt í sund rétt fyrir hálfníu. Synti 600 m á brautum 7 og 8, meirihlutann á bakinu. Þvoði mér um hárið og var komin yfir til norsku esperanto vinkonu minnar á ellefta tímanum. Stoppaði í rúman klukkutíma og notuðum við þann tíma í spjall. Skrapp í Krónuna út á Granda og þar sem ég hafði fengið skila-áminningu um morguninn lá leiðin svo á Kringlusafnið í Kringlunni. Var mætt þangað hálftíma fyrir opnun og rölti ég því yfir í Heilsuhúsið. Var mætt aftur stuttu áður en safnið opnaði. Skilaði þremur bókum af fimm og tól fjórar í staðinn, eina ljóðabók, Kon-Tiki og tvær skáldsögur. Var komin heim aftur fyrir klukkan tvö og svo leið dagurinn mjög hratt við alls konar dundur hér heima við.
9.1.26
Önnur helgi nýs árs framundan
Það var vekjarinn sem ýtti við mér fímm mínútum fyrir klukkan sex í morgun. Dreif mig á fætur, fékk mér morgunmat, tannburstaði mig, fyllti á vatnsflöskuna, tók saman sunddótið og var mætt í Laugardalinn um hálfsjö. Synti 300m áður en ég fór fyrstu ferðina af þremur í 5,5°C kalda pottinn. Sleppti alveg gufunni en náði uþb tíu mínútna slökun í sjópottinum áður en ég fór síðustu ferðina í þann kalda og svo upp úr. Stimplaði mig inn korter fyrir átta. Vinnudagurinn var mis annasamur en hann leið hratt og örugglega. Hringdi í pabba upp úr klukkan fjögur og spjallaði við hann á meðan ég keyrði yfir í Fiskbúð Fúsa. Pabbi var að vinna í því að taka niður jólin og lét bara vel af sér. Hjá Fúsa keypti ég harðfisk, ýsu og nokkrar fiskibollur. Næst lagði ég leið mína í N1 við Borgartún og var mætt þangað korteri áður en vinnutíma N1 sonarins lauk. Á leiðinni þangað spjallaði ég við æskuvinkonuna. Skutlaði honum heim og við notuðum tækifærið og spjölluðum um næstu skref varðandi tæmingu á snjallgeymslunni sem ég er búin að vera með á leigu í tæpt hálft ár. Ég er búin að segja upp leigunni og við þurfum að vera búin að tæma fyrir 31. janúar. Ákváðum að fara í málin eftir viku, þriðju helgina í mánuðinum. Kom heim stuttu fyrir klukkan sex. Klukkutíma setti ég upp egg, rósakál og ýsuna í soðið, þrír pottar. Fiskibollurnar fóru í frysti.
8.1.26
Lítið eftir af vinnuvikunni
Gemsinn minn hringdi um átta í gærkvöldi og ég vissi hver var að hringja áður en ég tók upp símann og svaraði. Fyrrum samstarfskona mín og jafnaldra var á línunni og við spjölluðum saman í rúman hálftíma. Í morgun var ég vöknuð á undan vekjaranum og á planið við Laugardalslaug um það leyti sem var opnað. Stimplaði mig inn í vinnu ca korteri fyrir átta. Bókaði í nýja kerfinu og gerði upp með athugasemd. Fljótlega eftir að afleysinga-skoðunarmaðurinn mætti spurði hann mig hvort ég hefði verið í sundi og þegar ég játaði því sagðist hann hafa séð mig í sjópottinum en var ekki viss. Það voru ekki margir í pottinum í morgun en ég var ekkert að spá í hvort ég þekkti einhvern eða ekki. Afsakaði mig samt á þann veg að ég þekkti hann ekki í sundskýlu. Það er nú samt oftast á hinn veginn að sundfélagar þekki stundum ekki samferðafólkið í fötum. En vinnudagurinn gekk annars þokkalega vel. Framkvæmdastjórinn kom um hádegisbilið til að leiðabeina mér á Noona kerfið varðandi bókanir á ökutæki í skoðun. Stimplaði mig út rétt áður en klukkan varð hálffimm og fór beinustu leið í Borgartúnið til að hitta N1 soninn og bjóða honum far heim sem hann þáði með þökkum. Hann var búinn klukkan fimm og bað mig um að skutla sér fyrst í Krónuna sem er þarna rétt hjá vinnustaðnum hans.
7.1.26
Osteostrong og sjósund eftir vinnu í dag
Hafði stillt vekjarann á 6:20 en vaknaði klukkan 5:45. Hafði því góðan tíma í alls konar morgunverk og rútínu, m.a. lestur og æfingar með lóðum. Var mætt í vinnu rétt upp úr klukkan átta. Það var aðeins rólegra í vinnunni í dag heldur en fyrstu tvo daga vikunnar en þó komu tarnir inn á milli. Stimplaði mig út um hálffimm og var komin í Hátúnið korteri seinna og í Nauthólsvík áður en klukkan varð hálfsex. Sjórinn -0,1°C, smá ferð á logninu, öldugangur og fjara. Fór tvisvar sinnum út í, gaf mér góðan tíma í gufunni milli ferða og var svo smá stund í pottinum áður en ég fór upp úr og heim. Klukkan var orðin hálfsjö þegar þangað kom.
6.1.26
Þrettándinn
Vaknaði korteri fyrir sex eða fimm mínútum áður en vekjarinn átti að hnippa í mig. Var komin á braut 8 tuttugu mínútum fyrir sjö og synti 300m, beint í kalda pottinn á eftir og sat svo í gufunni í tæpar tíu mínútur áður en ég fór í kalda sturtu og smástund í sjópottinn. Tók svo stutta dýfu í þann kalda áður en ég fór upp úr og í vinnuna. Mætti korter fyrir átta og eftir að hafa stimplað mig inn og opnað helstu forrit gerði ég upp í gamla kerfinu. Dagurinn var frekar annasamur en það komu stuttar pásur inn á milli. Kerfin eru enn að stríða mér en ég er líka stundum næstum búin að gera gloríur. Það kemur sér vel að afleysinga-skoðunarmaðurinn kann ýmislegt og vill líka frekar að ég spyrji of oft frekar en að gera eitthvað sem ég er ekki viss um. Það er ágætis regla. Stimplaði mig út um hálffimm. Var eitthvað að spá í að kíkja við í Brimborg en þegar ég var að koma afleggjaranum í Breiðholtið sá ég að ég myndi alls ekki hafa nægan tíma þótt ég myndi vera komin á staðinn áður en klukkan yrði fimm. Í staðinn fór heim og byrjaði á því að fara með jóladótið niður í geymslu. Tók lyftuna niður. Varð svolítið hissa þegar ég varð vör við að geymslan var opin, hafði ekki athugað að hurðin hafði ekki lokast alveg þegar ég snéri lyklinum rétt fyrir jól. Allt var samt á sínum stað. Passaði að læsa vel á eftir mér og labbaði stigaganginn upp á fjórðu. Hringdi í pabba og spjallaði við hann í nokkra stund eftir að ég kom aftur inn í íbúð.
5.1.26
Ný, heil vinnuvika hafin
Þar sem ég var sofnuð upp úr klukkan tíu í gærkvöldi var ég auðvitað vöknuð fyrir klukkan hálfsex. Þar með ákvað ég að byrja daginn á því að fara í sund eftir að hafa fengið mér morgunmat og vítamín. Var mætt á braut 7 stuttu eftir opnun og synti 300m. Fór upp úr tuttugu mínútur yfir sjö og var mætt í vinnu klukkan korter í átta. Nóg var að gera í vinnunni í allan dag og það komu upp nokkur verkefni þar sem ég varð að fá aðstoð, bæði vegna kerfisvillna og svo eitthvað um að ég var ekki viss um hvort ég væri að gera rétt. Flest allt bjargaðist þetta nú en þegar ég hætti vinnu rúmlega hálffimm stóð eitt hálfklárað verkefni sem ég þarf að klára á morgun. Hringdi í N1 soninn sem fer gangandi í vinnuna þessa dagana og ég ákvað að kippa honum upp. Hann þurfti reyndar að koma við í Nexus í Glæsibæ en þar með fengum við mæðgin smá auka tíma saman. Eftir að hafa skutlað syninum heim til sín kom ég við í AO við Sprengisand/Bústaðaveg og fyllti á bílinn. Klukkan var því alveg að verða sex þegar ég kom heim. Var þá búin að vera að heiman í ca ellefuoghálfan tíma. Hafði gleymt að draga frá glugganum í svefnherberginu og það tekur því ekki héðan af.
4.1.26
Sunnudagskvöld
Ég fór ekki upp í rúm fyrr en klukkan var langt gengin í ellefu í gærkvöld og las þá í uþb hálftíma áður en ég fór að sofa. Samt var ég vöknuð um hálfsex í morgun. Fór fljótlega fram á pisseríið og fékk mér svo sopa af lýsi áður en ég fór aftur upp í rúm. Reyndi að sofna aftur en varð fljótlega ljóst að það myndi ekki ganga upp. Kveikti þá ljósin, hagræddi koddunum, setti lesgleraugun á nefið og greip í bók. Fór á fætur upp úr klukkan átta. Um níu leytið fékk ég mér harðsoðið egg. Var mætt í Laugardalinn stuttu fyrir klukkan tíu, aðeins á undan kalda potts vinkonu minni. Hún var samt á unda út í laug. Ég var komin á braut 7 á slaginu tíu. Setti upp nýju sundgleraugun og synti 500 m á rúmum 22 mínútum, skriðsund aðra hverja ferð. Eftir þrjár ferðir í þann kalda og tvær í þann heitasta fórum við í gufuna og enduðum svo í sjópottinum. Ég kvaddi rétt fyrir hálftólf. Kom við í Krónunni í Lindum, fyrsta verslunarferðin á nýju ári. Lagði bílnum á planinu fyrir framan aðalinnganginn. Ekkert löngu eftir að ég hafði gengið frá vörunum ákvað ég að taka niður jólin, allt nema seríuna á svölunum. Er þó ekki búin að fara með kassann niður í geymslu. Hafði eitthvað verið að spá í að skreppa út í göngu en í staðinn hringdi ég tvö símtöl og var eitthvað að "imbast" fram eftir degi.
3.1.26
Laugardagur næstum liðinn
Klukkan var rétt að verða níu í gærkvöldi þegar ég gafst upp, slökkti á sjónvarpinu og háttaði upp í rúm. Greip samt í bók og las í stutta stund: Saklaust blóð í snjó: söguleg skáldsaga eftir Ásgeir Þórhallsson. Ég held að ég hafi verið sofnuð rúmlega hálftíu og vissi næst af mér klukkan hálfsex í morgun. Þá skrapp ég aðeins fram á pisseríið og fékk mér svo matskeið af lýsi áður en ég fór upp í aftur, ekki til að sofa heldur að lesa. Var komin á fætur um hálfátta. Fékk mér eitt harðsoðið egg, vítamín og drakk glas af vatni. Var komin í Laugardalslaug á braut 7 korter yfir átta. Synti 800m, 750m á bakinu og síðustu 50m synti ég skriðsund. Gaf mér góðan tíma í alla rútínu og var komin heim um hálfellefu. Kláraði bókina sem ég gat um hér að ofan og byrjaði á einni jólabókinni: Fólkið í vitanum skráð af Reyni Traustasyni. Horfði á einn ZOO-þátt og var að fara að huga að næstu verkefnum rétt fyrir eitt þegar síminn hringdi. Það var fyrrum samstarfskona úr kortadeild RB og Seðlaverinu sem fékk vinnu hjá Rekstrarvörum í haust. Áður en við vissum af vorum við búnar að spjalla í þrjú korter um allt mögulegt. Hringdi í pabba og Odd. Skömmu fyrir þrjú ákvað ég að skreppa í Útilíf í Kringlunni og leysa út gjafakort sem ég fékk í jólagjöf frá RB jólin 2024. Það var auðvitað galið að fara af stað í útsöluösina, en ég fann stæði á góðum stað eftir smá leit. Valdi fjóra hluti; sundgleraugu, skótöflur til að nota í sundi, nýjan sundpoka og þykkar æfinga/kósýbuxur með víðum skálmum, sem alls kostuðu rétt rúm 31 þúsund þannig að tæpar níuþúsund eru eftir af gjafakortinu. Var komin heim aftur um fjögur.
2.1.26
Fyrsti vinnudagur ársins að kveldi kominn
Ég var vöknuð alltof snemma og byrjaði á því að grípa í bók og lesa í tuttugu mínútur áður en ég fór á fætur og fékk mér morgunmat og lýsi. Var mætt á braut 8 í Laugardalslauginni tuttugu mínútum fyrir sjö. Bandið/gúmmíið slitnaði á sundgleraugunum svo ég var að henda þeim og synda án þeirra. Synti 200m, þar af helminginn skriðsund. Gaf mér tíma í tvær kalda potts ferðir, eina í þann heitasta, nokkrar mínútur í gufunni og tíu mínútur í sjópottinum áður en ég fór upp úr og í vinnuna. Stimlpaði mig nokkru fyrir átta. Hafði alveg tíma til að gera upp í nýja kerfinu áður en ég fór að bóka inn bíla. Það ruglaði samt aðeins systeminu hjá fasta skoðunarmanninum því það kom einn inn á slaginu átta sem ég skráði inn, vissi ekki að hann vildi skoða sína bíla no 1 og 2 á nýju ári. Þeir voru því skoðaðir no 2 og 3. Annars var þokkalega mikið að gera og sem betur fer kom auka skoðunarmaður og var með okkur alveg til fjögur. Eftir vinnu skrapp ég aðeins á N1 við Borgartún til að hitta á N1 soninn sem er nýfarinn að vinna þar alla virka daga milli 9 og 5. Ég var komin til hans um hálffimm og þegar ég vissi að hann hefði labbað í vinnuna ákvað ég að bíða þar til vinnutíminn hans var liðinn og skutla honum heim til sín. Ég er því tiltölulega nýkomin heim, eða fyrir tæpum hálftíma síðan.
1.1.26
Glænýtt ár!
Vaknaði stuttu fyrir klukkan hálfsjö í morgun. Kúrði í smá stund lengur áður en ég fór fram á pisseríið. Fékk mér matskeið af lýsi og skreið svo aftur upp í rúm og kláraði að lesa skammtímaláns bókina. Sú rúmlega fimmhundruðogfjörutía blaðsíðna spennandi bók endaði þannig að það hlýtur að koma framhald fljótlega. Klæddi mig og bjó um tíu og útbjó mér hafragraut. Var komin í Nauthólsvík rétt fyrir ellefu stuttu áður en opnaði. Svamlaði í sjónum í tæpt korter áður en ég fór í gufu. Eftir næstum tuttugu mínútur í gufunni skrapp ég aðeins aftur út í sjó. Var búin að klæða mig úr hönskunum svo ég held ég hafi ekki verið lengur en tvær mínútur út í áður en ég fór í pottinn. Fór upp úr um tólf leytið. Kom við í Drápuhlíðinni að sækja jólapóst sem var merktur mér. Það reyndist jólakveðja frá Gallup með skafmiða sem á leyndist 300kr. vinningur. Var komin heim fyrir klukkan eitt. Hringdi í pabba en er svo búin að vera að glápa á einhverja þætti, alltaf á leiðinni að grípa í bók eða gera eitthvað annað. Það stefnir í algeran letidag hjá mér.
31.12.25
Rétt rúmir 6 tímar eftir af 2025
Vekjarinn vakti mig korter fyrir sjö í morgun. Kúrði aðeins lengur en bara í stutta stund áður en ég greip í bók. Var komin á fætur upp úr klukkan hálfátta og mætt í Osteostrong tíma tíu mínútum yfir átta. Eftir tímann fór ég beint í sund og á braut 7. Synti 500m. Gaf mér mjög góðan tíma í alla aðra sundrútínu. Var ekki komin heim aftur fyrr en um hálfellefu. Las í rúman klukkutíma áður en ég fékk mér eitthvað að borða. Um hálftvö skrapp ég út í göngu, skipti henni í tvennt því ég settist á bekk eftir 21mínútna labb áður en ég hélt áfram. Kom heim korter yfir tvö og hef ekki fari út síðan. Las í dágóða stund en kveikti svo loksins á tölvunni um fjögur leytið og er búin að vera að vafra og leika mér síðan. Mál til komið að slökkva aftur og fara að dunda við eitthvað annað.
30.12.25
"Í djúpu lauginni"
Nei, ég fór ekki í sund í morgun og ekki heldur eftir vinnu þótt ég væri með dótið með mér. Vaknaði frekar snemma og notaði hluta af morgninum í lestur en ég tók líka nokkrar æfingar með tvö 1kg lóð og fékk mér morgunmat og vítamín. Var mætt í Skeifuna um hálfátta. Annar fasti skoðunarmaðurinn var samt mættur á undan mér, ekki alveg orðinn hress en sagðist samt verða að vera til hádegis. Nafna mín var fengin til að leysa af í afgreiðslunni í Klettagörðum og í dag reyndi svolítið á hversu fær ég er orðin að bjarga mér. Ég gerði uppgjörið í gamla kerfinu en einsetti mér svo að nota nýja kerfið sem allra mest. Fyrstu kúnnar komu á slaginu átta, tveir í röð. Það var rólegt í smá tíma eftir að þeir höfðu verið afgreiddir en það komu í heildina rúmlega tíu bílar inn í skoðun til hálftólf. Þá varð aftur rólegt í um klukkustund. Fasti skoðunarmaðurinn þurfti að fara en það kom afleysingaskoðunarmaður inn áður. Gátum lokað og borðað í næði milli tólf og hálfeitt en fljótlega eftir að opnaði aftur byrjaði traffíkin. Nóg var að gera í alls konar málum og þrisvar varð ég að hringja í vin og fá upplýsingar/aðstoð. Á tímabili leit út fyrir að við yrðum að vera fram yfir lokun en þegar til kom voru það einungis tíu mínútu fram yfir. auglýstan opnunartíma. Afleysingjamaðurinn sá um að slökkva á kerfum í salnum en ég, læsti sjóðinn inn í peningaskáp, slökkti ljós, setti kerfið á og læsti á eftir mér. Varð að skilja eftir þrjú útistandandi mál sem vonandi leysast fljótlega á nýja árinu. Ákvað annars að fara bara beinustu leið heim og var komin rétt rúmlega fimm. Í póstkassanum beið jólabréf á dönsku frá Jótlandi. Er líka búin að fá skilaboð frá fyrrum nágranna mínum í risinu að það hefði komið eitt kort þangað. Það var kveðja til pabba í danska jólabréfinu svo ég hringdi í hann og spjallaði við hann í tæpt korter. Hringdi líka í eina fyrrum samstarfskonu mína.
29.12.25
Mánudagur í Skeifunni
28.12.25
Sund og smá útréttingar
Dagurinn hófst heldur snemma en ég skrapp aðeins á pisseríið um hálfsex og fór svo aftur upp í rúm að lesa. Fór á fætur um hálfsjö leytið og útbjó mér hafragraut. Rétt fyrir klukkan átta sá ég skilaboð frá kaldapotts vinkonu minni um hvort ég væri til í að hitta sig í sundi um tíu leytið. Ég var meira en til í það. Vorum mættar á svipuðum tíma og byrjuðum á því að synda. Ég fór á braut 7 og fékk að hafa hana útaf fyrir mig á meðan ég synti baksund og smá skriðsund í um tuttugu mínútur. Síðan var farið í pottaröltið. Eftir tvær ferðir í þann kalda og aðrar í þann heitasta kastaði ég aðeins kveðju á einn frænda minn í sjópottinum. Eftir þriðju kaldapotts ferðina fórum við í gufu og svo aftur í sjópottinn. Þá áttum við eftir að fara tvær ferðir í viðbót í þann kalda áður en ég fór upp úr og þvoði mér um hárið. Næst lá leiðin í Kringluna. Jólagjöfin frá Davíð Steini var keypt í Hagkaup og ég skipti bókinni fyrir aðra bók og fjárfesti einnig í nýjustu vikunni með völvuspánni. Fór með þetta út í bíl og sótti bókasafnspokann. Skilaði öllum þremur bókunum og fékk mér fimm í staðinn. Þar af var ein ný; Grátkonan eftir Camillu Läckberg. Kom svo við í Krónunni í Lindum áður en ég fór heim. Er búin að stússast í ýmsu síðan. M.a. lesa fyrstu 70 bls. í skammtímalánsbókinni sem er yfir 540 bls. Er meira en hálfnuð með jólabókina frá Oddi, sem er líka grípandi. Eins og þetta sé ekki nóg þar sem ég er komin aftur í 100% vinnu því þá fann ég þáttaröð í sjónvarpi símans sem telja líklega í heildina um 40x 45 mínútna þætti sem eru verulega spennandi. Meðan þetta bitnar ekki á svefni og öðrum skyldum ætti þetta að vera í lagi í smá tíma.
27.12.25
Laugardagur
Nóttin varð eitthvað ruglingsleg. Byrjaði að lesa eina jólagjöfina; Alfa eftir Lilju Sigurðardóttur frá Oddi, þegar ég fór upp í rúm um tíu leytið. Las í hátt í rúma hálfa klukkustund og sofnaði fljótlega eftir það. Rumskaði um eitt leytið og hálftíma síðar skrapp ég á pisseríið. Það virtist ekki vera nóg til að ná að sofna alveg aftur. Reyndi samt mitt besta en um þrjú ákvað ég að kveikja ljós og lesa í smá stund. Eftir það sofnaði ég það fast og vel að ég vissi ekki af mér fyrr en um hálftíu. Dagurinn hefur annars farið í kaplalagnir, lestur og smá útsaum. Bríet kíkti um ellefu leytið, beint úr vinnu og stoppaði í um klst, og nafna mín og frænka sem hjálpaði mér að undirbúa Drápuhlíð undir opið hús vegna sölunnar hringdi um hálftvö til að athuga hvort tekið yrði á móti þeim Hirti ef þau legðu veg undir dekk. Áður en þau komu vorum við pabbi búin að fá okkur siginn fisk með kartöflum, rófum og smjöri. Það var kannski eins gott að pabbi bjó til pönnukökustafla í gær. Gestirnir kvöddu um fimm og sjálf er ég að fara að vinna í því að rúlla í bæinn.
26.12.25
Annar jóladagur
Rétt fyrir átta skrapp ég aðeins fram á pisseríið en fór svo beint upp í rúm aftur, ekki til að sofa heldur lesa. Las í um klukkustund og var klukkan því farin að ganga tíu þegar ég fór loksins á fætur. Ekkert löngu síðar heyrði ég að pabbi var kominn fram. Hann var frekar hissa á sjálfum sér, fannst hann hafa sofið yfir sig því hann hafði aldrei þessu vant ekkert rumskað um morguninn og því ekki farið fram að taka niður helstu tölur. Hann var semsagt að vinna í skráningum þarna um hálftíu leytið. Fengum okkur harðsoðið egg og fórum í smá kaplakeppni. Um hádegið bitaði ég niður afganginn af hryggnum frá því á aðfangadagskvöld og kláraði afganginn af rjómapelanum út í sósuna sem ég hitaði upp. Pabbi ákvað svo fljótlega að fara í búðarferð, vantaði allra helst strásykur og svo var eitt og annað sem týndist til. Ég skrapp með honum. Hann gerði sér líka ferð á lottósölustaðinn, lét lesa af miða frá sér sem á var rúmlega 1000 kr. vinningur. Þurfti amk aðeins að bæta við 300 kr til að fjárfesta í tíu röðum með jóker. Fljótlega eftir að við komum úr búðinni ákvað pabbi að fara að búa til pönnukökkur. Hann tók meira að segja amk þrjár frá án þess að strá sykri á þær ef ég vildi frekar þyggja þær þannig. Ég er annars búin með bókina sem ég keypti handa sjálfri mér og byrjaði á rétt fyrir jólin; Rósa og Björk eftir Sätu Rämö.
25.12.25
Jóladagur að kveldi kominn
Veit ekki hvað klukkan var þegar ég rumskaði fyrst í morgun því ég heyrði stofuklukkuna aðeins slá eitt högg svo hún var hálfeitthvað. Sneri mér á hina hliðina og sofnaði aftur. Næst þegar ég rumskaði heyrði ég stofuklukkuna sjö högg og ákvað að það væri alls ekki kominn fótaferðatími. fór ekki á fætur fyrr en klukkan var byrjuð að ganga tíu. Um ellefu leytið ákváðum við pabbi að búa til þykkan rúsínugrjónagraut og hafa í hádeginu með rúgbrauði og flatbrauði. Afgangur varð af grautnum sem var settur í skál og inn í ísskáp. Eftir hádegi tók ég fram bók og fór að lesa aðeins. Um tvö leytið byrjaði myndin "Sound of Music" á DR1. Horfði á hana og skemmti mér vel, var hún ekki búin fyrr en um hálffimm. Helga systir hringdi rétt áður en myndin var búin. Skömmu seinna þeytti ég rjóma og blandaði saman við afganginn af grautnum. Hann var svo notaður í eftirrétt eftir hangiketið og uppstúfinn sem var í kvöldmatinn um sex leytið.
24.12.25
Aðfangadagslvöld
Rumskaði um klukkan hálfsjö í morgun en snéri mér á hina hliðina. Sofnaði svo sem ekki fast aftur en kúrði upp í rúmi til klukkan að verða átta. Var eitthvað að spá í að rölta í sund en gerði þau regin mistök að kveikja á tölvunni og tína mér aðeins í henni. Hélt að það væri opið til tólf eða eitt og labbaði af stað stuttu fyrir ellefu til þess eins að fá göngutúrinn fram og til baka því það lokaði klukkan ellefu og var hætt að hleypa inn korteri fyrir. Ég hefði heldur varla haft tíma til að fara í sturtu hvað þá meira. En það var ágætt að fá þennan stutta göngutúr. Um hálfeitt skar ég niður lauk og setti í eldfast smáfat hjá lambahryggsbút sem pabbi kryddaði í gærkvöldi. Setti álpappírinn aftur á og stakk þessu inn í ofn sem ég stillti á uþb 100°C. Vökvaði þetta öðru hvoru. Um þrjú leytið setti ég upp sundhettuna og fór í sturtu, ætla ekki að þvo mér um hárið fyrr en um næstu helgi. Um fjögur leytið skrældi ég af sætri kartöflu og skar niður ásamt tveimur kartöflum og setti í sigtipott til að gufusjóða. Um hálffimm sigtaði ég soðið af hryggnum í pott og bjó til sósu. Stuttu áður en sósan og kartöflurnar voru tilbúnar hækkaði ég ofnhitann upp í 200°C í tæpar tíu mínútur. Maturinn var tilbúinn upp úr klukkan fimm og við vorum búin að borða og ganga frá fyrir klukkan sex. Skipti ekki yfir í spariföt fyrr en rétt áður en klukkan sló sex. Hlustuðum á útsendinguna úr Dómkirkjunni og fórum ekki að huga að bögglunum fyrr en á áttunda tímanum. Horfðum á myndina ævintýragarðinn og við feðgin erum bara slök.
23.12.25
Þorláksmessa í Hádegismóum
Ég var vöknuð fyrir klukkan hálfsex, næstum klukkutíma áður en ég ætlaði að láta vekjarann ýta við mér. Leyfði klukkunni að verða sex áður en ég fór á fætur og m.a. að huga að því að klára að pakka niður fyrir austurferð. Rétt fyrir hálfátta fór ég klyfjuð út í bíl, komst með allt í einni ferð, og tók vonandi allt það nauðsynlegasta með mér. Var mætt í Hádegismóa tuttugu mínútum fyrir átta, rétt áður en sú sem tók að sér að opna mætti. Það var frekar rólegt í vinnunni í dag en þó eitthvað að gera bæði í afgreiðslu og skoðunum. Síminn var líka að hringja en ég er enn hálffeimin við að svara, mun þó klárlega taka mig á í þeim efnum mjög fljótlega. Um það leyti sem við vorum að loka um hálffimm kom tvíburahálfsystir mín, ekki til að fá skoðun heldur til að hitta örstutt á mig, afhenda mér jólakort og biðja mig fyrir tvö önnur. Ég fór svo beinustu leið austur, ók um Þrengsli, og gerði ágætis stopp í Fossheiðinni hjá tvíburahálfforeldrum mínum. Var komin á Hellu til pabba um sjö.
22.12.25
Í Skeifunni í dag. Var vöknuð um fimm. Reyndi að kúra svolítið lengur, sofnaði ekki aftur og fór á fætur rétt fyrir sex. Fékk mér chia-graut í morgunmat. Var mætt í Laugardalslaug um hálfsjö. Kaldi potturinn var lokaður en ég synti aðeins 200m og gaf mér lengri tíma í gufu og sjópott. Var mætt í vinnu tuttugu mínútum fyrir átta. Nafna mín var mætt og var byrjuð að gera upp. Stuttu fyrir átta mætti til okkar afleysinga-skoðunarmaður þar sem báðir föstu skoðunarmenn stöðvarinnar voru í orlofi. Það var lúmst mikið að gera en verkefnin komu þó í skorpum og af ýmsum toga. Eftir vinnu fór ég í Fiskbúð Fúsa og keypti slatta af harðfiski. Fyllti á tankinn á AO við Sprengisand og var klukkan orðin hálfsex þegar ég kom heim.
21.12.25
Vetrarsólstöður
Eftir sund og hárþvott í gær lá leiðin vestur í bæ til norsku esperanto vinkonu minnar. Lásum þó ekki neitt í Kon-Tiki en ég afhenti henni böggul og kort og fékk kort frá henni. Hún bauð upp á graut, te og ósætan eplarétt. Stoppaði í uþb þrjú korter. Síðan fór ég með bílinn á þvottastöðina Löður. Númerið þekktist í kerfinu og hliðið lyftist án þess að ég þyrfti að borga eða kalla á starfsmann. Að þessu loknu fór ég heim, gekk frá sunddótinu og tók mig saman fyrir skrepp yfir nótt. Horfði á einn þátt á meðan ég beið eftir að þvottavélin, sem ég hafði sett af stað fyrr um morguninn væri búin. Um hálftvö var ég tilbúin að leggja af stað. Hringdi í systur mína og sagði henni ákvörðun mína en byrjaði á því að koma við hjá N1 í Grafarvoginum en það var N1 sonur minn að vinna sinn síðasta dag áður en búðin lokaði. Allt var á 50% afslætti. Aðal erindið var þó að afhenda honum gjafirnar til hans og bróður hans og hann lét mig hafa pakka til afa síns, mín og að auki einn nokkuð stóran brúsa af rúðuvökva. Var komin á Hellu fyrir klukkan fjögur. Hjálpaði systir minni, mági og yngri systurdóttur að undirbúa fyrir matarveislu. Jóna og Reynir komu um sjö leytið og alls vorum við átta. Tíminn leið eins og óð fluga. Gestirnir kvöddu um hálfellefu leytið og fljótlega fóru flestir aðrir í ró. Pabbi tók að sér að bíða eftir að uppþvottavélin kláraði. Settist við tölvuna sína á meðan. Hann var svo langfyrstur á fætur í morgun. Tók úr vélinni og setti í hana aftur og af stað. Ég fór á fætur upp úr klukkan sjö. Mágur minn kom fram um níu og systir mín skömmu síðar. Þau fóru fljótlega að undirbúa brottför, ætluðu að koma við í Friðheimum skömmu fyrir hádegi áður en þau brunuðu svo norður, kvöddu um hálfellefu. Bríet og Bjarki kvöddu um tólfleytið og fóru yfir í Landeyjarnar. Ég kvaddi pabba um tvö. Var komin heim um fjögur en ég kom við á Bakkanum svo Oddur gæti komið með gjafirnar handa mér og afa hans frá honum út í bíl. Fékk að sjálfsögðu knús í leiðinni.
20.12.25
Örstuttar morgun-hugleiðingar
Ég fór í háttinn um ellefu í gær. Las í smá stund. Rumskaði um fimm leytið. Skrapp á pisseríið og reyndi svo að kúra mig niður aftur. Um sex kveikti ég ljós og fór að lesa. Fór á fætur klukkutíma síðar. Er á leiðinni í sund fljótlega og smá leiðangra. Þarf svo að taka ákvörðun um það hvort ég skreppi austur um Helgina til að eiga samverustund með pabba og fimm öðrum úr fjölskyldunni. Það togar í mig en það eru líka nokkur smá verkefni hér heima sem ég veit ekki hvort ég get annars græjað fyrir jól og hvort þau megi bíða. Ætti samt að geta látið þetta ganga allt saman upp, sérstaklega ef ég kæmi aftur í bæinn í björtu á morgun. Þetta kemur allt í ljós mjög fljótlega.
19.12.25
Fössari
Það hlýtur að hafa verið eitthvað gott í teinu sem ég drakk stuttu áður en ég fór inn í rúm í gær. Las í smá stund í bók sem heitir Skuld eftir Emil Hjörvar Petersen en var örugglega sofnuð rétt rúmlega tíu og svaf alveg þangað til vekjarinn hnippti í mig stuttu fyrir klukkan hálfsjö í morgun. Eitthvað var mig að dreyma fallegt en því miður man ég samt ekki um hvað. Vinnudagurinn var fjölbreyttur og leið ágætlega hratt. Helga systir hafði samband um eitt leytið og spurði hvenær ég yrði komin heim úr vinnu. Ég taldi að ég yrði komin heim upp úr klukkan hálffimm ef ég sleppti því að fara í sund. Hún sagði að þau hjónin myndu kíkja um fimm. Ég lagði af stað frá Hádegismóum rétt rúmlega fjögur og ég held að það hefði verið alveg sama hvaða leið ég hefði valið að fara ég hefði alltaf verið um þrjú korter á leiðinni. Systir mín og mágur komu á umsömdum tíma. Þau stoppuðu innan við hálftíma enda voru þau á leiðinni í matarboð til mömmu hans áður en þau héldu för áfram alla leið austur á Hellu. En þau hjónin voru mjög hrifin af íbúðinni. Gáfu mér nokkur góð ráð sem ég mun taka til athugunar og kannski fara eftir.
18.12.25
Sjötugasta heimsóknin í besta bankann
Var mætt fyrir utan Hádegismóa tuttuguogfimm mínútum fyrir átta. Stöðvarstrjórinn mætti stuttu síðar og opnaði. Er alveg farin að ná aðeins betri tökum á verkefnunum en sum kerfin eru svolítið að stríða mér ennþá. Vinnudegi lauk um hálffimm. Þá fór ég beinustu leið í Kringluna. Blóðbankinn flutti þangað í september og ég átti bókaðan tíma um hálfsex. Var komin um fimm og fékk mér smá hressingu áður. Gjöfin gekk vel og fékk ég mér aftur smá hressingu eftir gjöfina. Fyllti á tankinn hjá AO við Öskjuhlíð og fór svo með jólakort til móðurbróður míns og fjölskyldu. Tók á móti ómerktum innflutnings/jólapakka í staðinn. Var komin heim um hálfsjö.
17.12.25
Osteostrong og Nauthólsvík
Ég var vöknuð klukkan fimm í morgun. Byrjaði á því að grípa í bók og lesa fyrsta hálftímann áður en ég fór á fætur og bjó um. Gerði æfingar með léttustu lóðunum mínum (2x1kg), fékk mér morgunmat og burstaði tennurnar. Var mætt fyrir utan Hádegismóa á svipuðum tíma og í gærmorgun, ca þremur mínútum á undan stöðvarstjóranum sem opnaði starfsmanna-innganginn. Vinnudagurinn gekk ágætlega, þokkalega rólegt á köflum en ég fékk alveg að æfa mig í ýmsu sem ég þarf að tileinka mér. Tíu mínútum fyrir fimm var ég mætt í Hátún 12 í osteostrong tíma. Bætti mig á einu tæki og var við mitt besta á öðru. Festi svo næsta tíma upp úr klukkan átta á gamlársdagsmorgun. Næst lá leiðin í Nauthólsvík. Flóð, hitastig sjávar 1,9°C og að þessu sinni fór ég aðeins einu sinni út í en þó í fimm mínútur og var með höfuðljós. Sleppti gufunni en sat smá stund í pottinum á eftir. Áður en ég fór heim kom ég við í Drápuhlíðinni til að setja tvö jólakort inn um lúgur. Var búin að stinga inn um lúguna sem tilheyrir m.a. risíbúðinni þegar íbúinn af hæðinni kom labbandi inn innkeyrsluna og upp tröppurnar og spurði hvað ég væri að laumupúkast. Ég gat því afhent honum kortið sem átti að fara inn um lúguna hans.
16.12.25
Þriðjudagur
Í morgun vaknaði ég rétt fyrir klukkan sex, tæpum hálftíma áður en klukkan átti að hnippa í mig, eftir samfelldan sjö og hálfan tíma svefn. Gerði lóðaæfingar, las í smá stund og fékk mér chiagraut með allskonar fræjum og möndlum í morgunmat. Var mætt fyrir utan Hádegismóa tuttugu mínútum fyrir átta. Vinnudagurinn leið þokkalega fljótt. Sum verkefnin farin að æfast. Kerfið er þó stundum enn að stríða mér. Eftir vinnu fór ég beint yfir í Árbæjarlaug. Synti í tuttugu mínútur, fór í kalda pottinn í fjórar mínútur og svo kalda sturtu áður en ég þurrkaði mér og settist á handklæði inn í infrarauða klefann í kvennaklefanum. Sat þar í tuttugu mínútur. Var komin heim um hálfsjö. Annars kannski ágætt að geta þess að í gær greiddi ég niður húsnæðislánið um eina og hálfa millijón. Er þá búin að greiða það sjálf niður um þrjár millijónir því ég greiddi inn á það sömu upphæð þann 15. nóv. sl. Eftirstöðvar eru enn um átta komma sex millijónir en ég reikna með að föstu greiðslurnar fari niður fyrir sextíuþúsund á mánuði. Ætla að leyfa áramótunum og janúar að líða áður en ég ákveð næstu niðurgreiðslu skref.
15.12.25
Á "Stínustöðum"
Rumskaði eitthvað um tvö leytið í nótt. Veit ekki hvenær ég náði að sofna aftur en það var vekjarinn sem ýtti við mér rétt fyrir hálfsjö í morgun. Hafði nægan tíma til að gera nokkrar lóðaæfingar og fá mér afgang af hafragraut í morgunmat. Var nokkrar mínútur að skafa af bílnum en ég var engu að síður mætt fyrst á planið við Hádegismóa rúmum tuttugu mínútum fyrir átta. Stöðvarstjórinn kom nokkrum mínútum síðar. Sú sem er venjulega í afgreiðslunni átti bökunardag í dag og stöðvarstjórinn spurði mig hvort mér væri sama þótt hann skráði sig inn í horntölvuna þar sem hann er vanur að vera. Ég hafði ekkert á móti því. Komst inn að mestu á "Stínustöðum", þurfti smá tæknilega aðstoð vegna tveggja forrita sem ég lærði svo betur á að opna eftir aðstoðina. Við sem vorum í móttökunni hjálpuðumst að og flest gekk alveg þokkalega vel fyrir sig. Rétt fyrir fjögur mætti framkvæmdastjórinn. Hann kom m.a. með bakkelsi mér til heiðurs þar sem ég er nýr starfskraftur og tók mynd af okkur. Ég treysti mér ekki í að smakka þar sem maginn getur verið fljótur að kvarta. Eftir vinnu fór ég í Árbæjarlaug. Synti í korter, fór í þann kalda í 4 mínútur, kalda sturtu á eftir, þurrkaði mér og sat svo korter í infra rauða klefanum. Kom heim rétt rúmlega sex.
14.12.25
Sunnudagur
Mikið varð ég hissa þegar ég sá að klukkan var að verða átta þegar ég vaknaði í morgun. Ég fór reyndar ekki upp í rúm fyrr en um ellefu í gærkvöldi. Horfði á ævintýramyndina á RÚV eftir kappsmál. Las líka í smá stund en ekki lengi og var ég örugglega sofnuð fyrir klukkan hálftólf. Ég fór fljótlega á fætur og m.a. að duna mér við að pakka inn jólagjöfunum. Um hálfníu sendi ég skilaboð á kaldapotts vinkonu mína og spurði hvenær hún ætlaði í sund. Hún svaraði um níu leytið og sagðist ætla að mæta rétt fyrir tíu og synda smávegis. Ég mætti í Laugardalslaugina um svipað leyti og hún og við gátum stillt okkur af. Syntum 300m og fórum nokkrum sinnum í þann kalda. Hún reyndar einni til tveimur ferðum oftar því ég hitti að eins á yngstu mágkonu mömmu og spjallaði um stund við hana. Eftir sundið kom ég við hjá frændfólki í Sæviðarsundi. Pabbi frænda míns og móðuramma mín voru systkyni. Reyndar höfðu hjónin ætlað til Kanaríeyja með afleggjurum og fylgifiskum sínum í tilefni sjötugs afmæli húsfreyjunnar fyrir rúmum mánuði. Hún er því miður að glíma við einhvern heilsubrest sem ekki finnst út hvað er og þau urðu að hætta við. Stoppaði hjá þeim í rúma klukkustund. Var komin heim fyrir tvö og hef ekki farið út síðan en dútlað við ýmislegt, m.a. horft á bráðskemmtilega úrslita leiki á HM kvenna í handbolta þar sem Holland náði þriðja sætinu og Noregur titlinum enn eitt skiptið.
13.12.25
Sundhöllin í morgun
Þegar ég mætti á planið við Laugardalslaug voru grunsamlega fáir á ferli og það leit út fyrir að vera lokað. Sá eina manneskju hálfhlaupa að innganginum en koma svo fljótlega til baka. Ég ákvað því að fara og leggja bílnum á stæði við Austurbæjarskóla og fara í Sundhöllina. Í afgreiðslunni þar fékk ég að vita að það hefði verið jólagleði hjá starfsfólkinu í Laugardalslaug í gær og allir sem voru á vaktinni þurftu ekki að mæta og opna fyrr en um tíu. Ég synti á braut 3 í innilauginn, 650m, flesta á bakinu, á um hálftíma. Fór nokkrar ferðir í þann kalda og þvoði mér svo um hárið áður en ég fór upp úr og beint í esperanto-hitting. Um hálftólf leytið ætlaði ég renna bílnum í gegnum þvottastöðina Löður við Fiskislóð. Var búin að borga og númer tvö af þeim sem biðu úti. Þá kom starfsmaður og sagði að það væri bilun. Hann tók mynd af bílnúmerinu mínu og sagði að mér yrði hleypt inn næst þegar ég væri á ferðinni. Kom við í Krónunni þarna skammt frá áður en ég fór heim. Þegar ég var búin að ganga frá vörunum ákvað ég að heyra aðeins í tvíburahálfsystur minni. Það sem átti að verða smá spjall og stöðutékkun teygði í yfir klukkustund. Ekkert svo löngu eftir spjallið fór ég niður með dót í hina ýmsu gáma bæði í ruslageymslu hússins og gámana hinum megin við götuna. Notaði tækifærið og fór í það sem kalla má örgöngu þar sem labbaði lítinn rúmlega áttahundruð metra hring á tíu mínútum.
12.12.25
Árbæjarlaug og infrarauð gufa eftir vinnu
Ég hrökk aðeins upp stuttu fyrir miðnætti og varð að skella mér á klósettið. Maginn var eitthvað að mótmæla einhverju af því sem ég hafði fengið mér af jólahlaðborðinu. Þetta var samt ekki svo slæmt nema að því leyti að ég sofnaði ekki strax aftur. Veit ekki alveg hvað klukkan var þegar ég festi svefn en þá svaf ég alveg þar til vekjaraklukkan hringdi. Gaf mér nokkrar mínútur áður en ég fór á fætur. Það var samt nógur tími til að taka aðeins fram léttustu handlóðin, 1kg og einnig lesa smávegis. Fékk mér eitt harðsoðið egg og burstaði tennur áður en ég fór í vinnuna. Sem fyrr var ég mætt aðeins of snemma, líklega um sjö mínútum á undan þeim sem kom næst og var með lykla. Á föstudögum er lokað klukkan fjögur og þar sem ég var í Hádegismóum og með sunddótið meðferðist úti í bíl ákvað ég að fara beint í Árbæjarlaugina. Synti í uþb tuttugu mínútur, settist í kalda pottinn í rúmar þrjár mínútur og fór svo inn og í sturtu og þurrkaði mér áður en ég fór í infrarauða klefann í korter. Var komin heim um hálfsjö.
11.12.25
Á leið í jólahlaðborð
Rumskaði tvisvar til að fara á salernið í nótt. Drakk bara einn tebolla í gærkvöldi svo ég reikna með að það hafi aðeins verið að renna af mér smá bjúgur. Var komin á fætur um hálfsjö. Sleppti lóðaæfingum en las í ca korter áður en ég fékk mér eitthvað að borða og burstaði svo tennurnar. Var mætt í Hádegismóa um hálfátta, nokkrum mínútum á undan stöðvarstjóranum. Ég er nokkuð viss um að ef ég hefði lagt fimm mínútum seinna af stað að heiman hefði ég lent í aðeins meiri umferð sem var þó orðin nokkur. Það var líka þónokkur umferð á köflum á leiðinni heim úr vinnu um hálffimm leytið. Fór þó ekki í gegnum Árbæinn eins og í gær. En umferðarþunginn í gær stafaði að hluta til vegna lokunar á brú þar sem of stórt ökutæki ætlaði að fara þá leið stíflaði allt. Annars á ég að mæta í Þarabakkann klukkan sex í jólahlaðborð með vinnunni, amk vinnufélögum af höfuðborgarsvæðinu.
10.12.25
Osteostrong og sjósund eftir vinnu í dag
Var vöknuð stuttu fyrir klukkan sex. Hafði nægan tíma til að gera nokkrar lóða æfingar, lesa og fá mér morgunmat áður en ég dreif mig í vinnuna. Tók bæði sund- og sjósundsdót með mér út í bíl. Fór aðeins aðra leið en ég gær og varð fljótari fyrir vikið. Var semsagt aftur mætt aðeins á undan stöðvarsjóranum í Hádegismóum. Ætla ekkert að eyða tíma í að skrifa um sjálfan vinnudaginn. Stimplaði mig út rétt fyrir klukkan hálffimm. Átti tíma í osteostrong í Hátúninu klukkan fimm en þar sem ég fór of snemma út af fyrsta hringtorginu lenti ég fljótlega í mikilli umferð. Klukkan var orðin korter yfir fimm þegar ég kom í Hátúnið. Þar er opið til sex á miðvikudögum og allir bara slakir. Ég komst strax að. Bætti mig á tveimur tækjum og var alveg við mitt besta á hinum tveimur tækjunum. Eftir tímann var ég búin að taka ákvörðun um að skella mér í Nauthólsvík. Var komin þangað rétt fyrir sex. Sjórinn 1,6°C og fjara. Ég fór tvisvar sinnum 2-4 mínútur út í, sjö mínútur í gufuna og tæpar tíu mínútur í pottinn eftir seinni ferðina. Var komin heim um sjö. Þá sá ég rafrænan póst frá Landsbankanum um að nýr aðili væri tekinn við gjaldkerastöðunni í húsfélaginu Drápuhlíð 21. Það sannreyndi ég með því að skrá mig í einkabankann í appinu í símanum og sá að ekki er lengur hægt að fletta og skipta um notanda. Þannig að ég er laus undan þessum skyldum.
9.12.25
Hádegismóar og í Árbæjarlaug eftir vinnu
Rumskaði um hálffimm leytið í morgun. Skrapp aðeins fram á pisseríið og kúrði mig svo aftur niður. Sofnaði ekki aftur en kveikti ekki ljós og fór á fætur fyrr en klukkan að verða sex. Notaði næsta klukkutímann til að gera nokkrar lóða-æfingar, lesa og fá mér morgunmat. Fór úr húsi korter yfir sjö og var komin í Hádegismóa um hálfátta, fyrst af öllum. Þremur mínútum á eftir mér mætti stöðvarstjórinn. Ég kynnti mig og varð samferða honum inn. Hann skráði mig inn í tíma-kerfið og sagði svo að mín vinnustöð í afgreiðslunni yrði á tölvunni hans. Það kom í ljós að ég var ekki komin með allan aðgang svo hann skráði sig inn þar til ég var búin að fá kerfisfræðinginn til að "hjálpa" mér inn í flest kerfi á mínum aðgangi seinna um morguninn. Sú sem vinnur í afgreiðslunni býr á Suðurnesjunum en hún var mætt í vinnu nokkru fyrir átta sem og hinir tveir skoðunarmennirnir. Ég lærði heilmikið nýtt en kerfin voru að stríða okkur reglulega og það kemur í ljós á næstu dögum og vikum hversu vel allt síast inn þegar notkunin fer að verða meiri og reglulegri. Klukkan hálfeitt var læst í afgreiðslunni og allir fóru upp á næstu hæð í eldhúskrókinn þar til að fá sér að borða. Opnað var aftur niðri á slaginu klukkan eitt. Stimplaði mig sjálf út um hálffimm. Hringdi í Sillu þegar ég var komin út í bíl. Hún var nýkomin heim úr sinni vinnu, komin í kósý-föt og um það bil að fara að slaka á en mér tókst að plata hana til að hitta mig við Árbæjarlaugina og fara með mér í sund, potta og infrarauða klefann. Alls tók þessi hittingur um klukkukstund og vorum við báðar ánægðar með hann. Höfðum um nóg að spjalla og tíminn leið frekar hratt. Ég kom heim fyrir tæpum hálftíma síðan og næsta mál á dagskrá er að fá sér af afgangnum síðan í gær.
8.12.25
Mánudagskvöld
Ég var vöknuð fyrir klukkan hálfsex en þar sem ég var búin að mæla mér mót við kalda potts vinkonu mína í Laugardalslaug eftir vinnu lét ég loksins verða af því að taka fram handlóðin aftur. Gerði nokkrar æfingar með léttustu lóðunum. Las í smá stund í; Andlit eftir Bjarna Bjarnason og fékk mér svo morgunmat um sjö. Fljótlega eftir það lagði ég af stað í vinnuna. Fann kortið sem ég var að leita að í gær vinstra meginn við farþegasætið fram í í bílnum. Mér létti heilmikið við þann fund. Mætti í vinnu um hálfátta. Vinnudagurinn var frekar rólegur á minni stöð svo ég fæ að prófa aðra vinnustöð á morgun. Í hádeginu kom póstur frá fasteignasölunni Domus Nova sem innihélt skannað þinglýst skjal. Ég er því orðin þinglýstur eigandi að íbúðinni minni hér í Núpalind 6. Meira um það kannski á morgun. Var mætt í sund korteri fyrir fimm. Synti 300m á braut 7 og var svo búin að fara eina ferð í þann kalda áður en ég hitti kalda potts vinkonu mína. Hún var komin en hafði laumað sér aðeins í gufuna. Við náðum þremur ferðum saman í þann kalda, góðri gufu ferð og amk korteri í sjópottinum. Klukkan var að verða sjö þegar ég kom heim. Setti upp fiskibollur og sætar kartöflur sem ég ætla að fara að borða rétt á eftir.
7.12.25
Sunnudagskvöld í Kópavogi
Var ekki vissu hversu mörg högg stofuklukkan sló þegar ég rumskaði í morgun. Komst að því klukkustund seinna að það höfðu verið sjö. Ég fór fram rétt rúmlega átta. Pabbi var klæddur og kominn á ról svo ég ákvað að drífa mig líka á fætur. Eftir morgunverkin á baðherberginu fékk ég mér eitt harðsoðið egg og lagði fyrsta kapal dagsins. Hann gekk upp. Um níu leytið settist ég aðeins við tölvuna og nokkru síðar hélt ég áfram jólakortaskrifum frá því í gærkvöldi, skrifaði á tíu þá og tíu önnur í morgun en ég bætti nokkrum auka nöfnum á listann bara þetta árið. Um ellefu skrapp ég með tvö af kortunum og afhenti í eigin persónu. Byrjaði á því að fara í Bogatúnið til Vals pabba hennar Ellu. Hann fer norður eftir tæpar tvær vikur og heldur jólin þar. Ég stoppaði ekki nema augnablik, bara til að afhenda kortið og faðma hann. Svo fór ég yfir í Nestún 5, þar fór ég aðeins inn og stoppaði í svo sem eins og hálftíma. Var komin til baka um tólf. Við pabbi borðuðum saltkjöt og sæta kartöflu í hádeginu. Um tvö leytið tók ég mig saman og kvaddi. Kom við í Löngumýrinni og afhenti eitt kort þar. Stoppaði í rúman klukkutíma. Var komin í bæinn um fimm leytið. Setti 10 frímerkt kort í póstkassann við pósthúsið á Dalvegi. Restina af kortunum mun ég koma til skila sjálf smátt og smátt. Eitt furðulegt gerðist, en tvö af ómerktu kortunum voru uppi við og í töskunni með frímerktu kortunum. Passaði upp á að fara aðeins út með frímerktu kortin og þegar ég settist inn í bíl aftur fannst mér ég setja þessi tvö kort aftur í veskið. Þegar ég var búin að leggja bílnum við blokkina í Núpalindinni stuttu síðar fann ég aðeins annað umslagið af tveimur. Það gæti endað með því að ég verði að skrifa það kort aftur því það var sama hversu vel ég leitaði, kortið var ekki í veskinu og ég fann það heldur ekki í bílnum.
6.12.25
Komin á Hellu
Ég fór í háttinn um tíu í gærkvöldi. Las í ca hálftíma en var örugglega sofnuð nokkru fyrir klukkan ellefu. Rumskaði um sex leytið í morgun. Skrapp aðeins fram á salernið og fékk mér svo sítrónuvatn áður en ég skellti mér aftur undir sæng. Fór á fætur fyrir klukkan hálfátta. Setti niður í tösku og tók einnig til sund-og esperanto dótið. Var komin á braut 2 í Laugardalslauginni um hálfníu. Synti 500m, flesta á bakinu því ég ætla að færa hárþvottadagana aftur á laugardaga. Hitti sjósunds vinkonu mína í sjópottinum. Var komin til esperanto vinkonu minnar rétt upp úr klukkan tíu. Lásum fjórar og hálfa blaðsíðu. Kvaddi um hálftólf leytið. Kom við hjá AO við Öskjuhlíð og fyllti tankinn. Kom einnig við í Heilsuhúsinu í Kringlunni. Skrapp svo heim með esperanto- og sunddótið. Næst lá leiðin upp á Gagnveg þar sem N1 sonurinn var að vinna. Klukkan var orðin eitt þegar ég lagði loks af stað austur. Fór um Þrengslin og gerði gott stopp í Fossheiðinni á Selfossi áður en ég hélt förinni áfram. Var komin til pabba um hálffjögur.
5.12.25
Morgunsund
Ég var vöknuð um hálfsex í morgun og mætt í Laugardalslaugina um hálfsjö, rétt eftir að opnaði. Fór á braut 8 og synti 400m. Fór 2x3 mínútur í kalda og smá stund í sjópottinn. Mætti svo í vinnu ca tuttugu mínútum fyrir átta. Nafna mín var að byrja að gera upp og ég punktaði ferlið niður hjá mér. Svo fórum við í gegnum þrjú önnur verkferli sem ég punktaði einnig niður hjá mér. Það var reitingur af mismunandi verkefnum inn á milli. Sumt er ég farin að kunna aðeins á en svo eru líka verkefni sem ég held ég þurfi einhverjar tilraunir til að læra á. Þetta mun samt örugglega lærast á endanum þótt það lærist ekki einn tveir og þrír. Fékk að hætta rétt rúmum hálftíma fyrir lokun og fór með bílinn í smurningu hjá N1 í Fellsmúla. Fékk að nota afslátt N1 sonarins. Var komin heim stuttu fyrir klukkan fimm.
4.12.25
Aðventutónleikar og fleira
Ég fór aftur út úr húsi rétt rúmum tveimur tímum eftir að ég kom heim í gær. Keyrði inn í Reykjavík, lagði bílnum á stæði við Austurbæjarskóla og hitti norsku esperanto vinkonu mína fyrir utan Hallgrímskirkju um hálfátta. Það streymdi að fólk. Við fórum inn og tókum frá sæti fyrir dóttur hennar sem kom tíu mínútum áður en magnaðir aðventutónleikar fjögurra stúlkna- og kvennakóra hófust. Næsti tæpi einn og hálfi tími leið hratt en ég naut hverrar mínútu í botn. Var komin heim aftur um tíu. Fór beint í bælið og las í ca hálftíma áður en ég sofnaði.
Klukkan var næstum hálfsjö þegar ég vaknaði í morgun. Ég fékk mér hreina gríska jógúrt og vítamín í morgunmat og tók svo sjósundsdótið með mér út í bíl uþb korter yfir sjö. Var mætt í vinnu um hálfátta, alls ekki fyrst en heldur ekki síðust. Nefndi það við stöðvastjórann að ég þyrfti að fá að skreppa frá í hádeginu og vissi ekki hversu langt skrepp það yrði, talaði bara um að ég ætlaði ekki að drolla en heldur ekki að flýta mér.
Nafna mín mætti skömmu síðar. Hún þurfti að skreppa frá um tíu leytið en var komin aftur áður en ég þurfti að fara. Ég var komin á Finnson í Kringlunni rétt upp úr klukkan tólf. Þangaði hafði ein af Sigrúnunum úr sundi boðið mér. Hún mætir ekki lengur í Laugardalslaugina á veturna en hún er búin að vera í miklu sambandi við mig undanfarna mánuði og fylgjast með mörgu af því sem hefur verið að gerast. Hún vildi bjóða mér að borða með sér og ég mátti velja af jólamatseðlinu, þrjá rétti ef ég vildi. Ég þáði forrétt og aðalrétt en sleppti eftirréttinum. Spjölluðum um margt og mikið á meðan við gerðum réttunum skil. Nokkru eftir að Sigrún var komin með eftirréttinn sinn afhenti hún mér tvo pakka í gjafapoka og sagði að ég þyrfti ekki að bíða eftir að hún væri búin að klára. Klukkan var að verða hálftvö og ég var búin að vera einn og hálfan tíma í burtu úr vinnunni. Ég þakkaði kærlega fyrir mig og kvaddi hana með kossum á kinnar.
Eftir vinnu athugaði ég fyrst hvort það væri hægt að smyrja bílinn fyrir lokun klukkan fimm á smurstöðinni við Laugaveg 182. Það voru tveir bílar inni og einn að bíða svo það gekk ekki upp. Næst lá leiðin í Nauthólsvík. Það var mjög stutt út í og ég fór tvisvar, einu sinni í gufuna á milli ferða og endaði smá stund í pottinum. Hringdi og spjallaði við pabba á meðan ég var á leiðinni heim.
Sá það annars í gær að það er búið að halda húsfund við D21. Ungi maðurinn sem keypti af mér er tekinn við sem formaður og konan í kjallaranum ætlar að taka að sér að vera gjaldkeri. Aðgangurinn minn að fyrirtækjabankanum mun því senn detta út og ég þarf ekki lengur að sjá um þessi mál.
3.12.25
Ekkert sjósund í dag
Þar sem ég var sofnuð um tíu í gærkvöldi rumskaði ég heldur snemma í morgun. Fór þó ekki á fætur fyrr en um sex og gaf mér engan tíma til að kveikja á tölvunni. Var komin á planið við Laugardalslaug um það leyti sem verið var að hleypa inn um hálfsjö. Byrjaði á kalda pottinum. Synti 400m á brautum 2 og 3, aðallega á 3. Fór aftur í þann kalda og gaf mér svo smá tíma í gufunni og að lokum sjópottinum áður en ég fór upp úr. Var komin í vinnu korter fyrir átta, síðust af öllum. Á móti mér tóku tveir skoðunarmenn, annar hættir eftir einhverjar vikur hinn er tekinn við sem stöðvarstjóri og svo nafna mín í afgreiðslunni sem er skoðunarmaður að upplagi og fer á Selfoss skömmu eftir áramót í slíka stöðu. Fram að því á hún að setja mig inn í afgreiðslumálin á stöðinni í Skeifunni. Það er ýmislegt sem ég þarf að læra og tileinka mér svo það var sem betur fer frekar rólegt í dag. En það er þó gott að læra sumt með því að gera það frekar en að lesa um það þótt það sér gott að hafa leiðbeiningar til að styðjast við. Var þokkalega dugleg að skrifa niður punkta framan af morgni. Um hálfellefu leitið skruppum við nöfnurnar, stúlkan heitir Anna, yfir í Bónus til að kaupa með "kaffinu" til að borða í hádeginu. Skreppið tók enga stund enda búðin rétt hjá. Fóru ekki strax í mat, létum klukkuna verða tólf enda er stöðin læst á milli tólf og hálfeitt. Eitt af því sem afgreiðslan á að sjá um er að svara símanum ef margir hringja inn. Síminn á stöðinni var þögull og þegar fór að líða á daginn fór okkur að finnast þetta frekar undarlegt. Það kom líka í ljós að síminn var bilaður og var það í allan dag. Fékk að hætta aðeins áður en klukkan varð hálffimm, stöðvarstjórinn tók að sér að vera lengur. Það tók drjúga stund að keyra heim, umferðin þung og mjög mikil. Ég var samt komin heim áður en klukkan varð fimm.
2.12.25
Starfsmaður no 86, það er 68 afturábak
Ekkert varð úr göngutúr í gær en ég kláraði að skrifa bréf og jólakort sem fara út fyrir landsteinana; bréf og kort á ensku til Manchester, bréf og kort á dönsku til Jótlands og jólakort á íslensku til Stavanger. Eldaði mér líkja smávegis af bleikjubitum, sem ég átti og á í frysti, í kvöldmatinn. Í morgun var ég komin í stund á svipuðum tíma og í gærmorgun, var á sömu braut en nú synti ég aðeins 400m, flestar ferðir á bakinu. Þvoði mér um hárið og var mætt í Mjóddina rétt fyrir klukkan níu. Þar tóku nafni og nafna á móti mér. Siggi heilsaði og spjallaði smá en ég fór niður í stóra fundaherbergið með starfsmannastjóranum fyrsta klukkutímann og fyllti út alls konar skjöl varðandi ráðningarmálin. Um tíu færðum við okkur upp í minna herbergi þar sem búið var að bóka hitt herbergið. Þar var mér úthlutaður sér aðgangur og vinnunetfang og kynnt fyrir mig helstu verkfærin sem ég mun þurfa að læra á eða nota. Kann nú ýmislegt fyrir mér í bæði tímon og teams en annað verð ég að gefa mér aðeins betri tíma í að skoða og læra á. Áður en við hættum þessari yfirferð, um hálffjögur leytið, gaf hún mér peysu merkta Frumherja. Kom við í pósthúsinu við Dalveg á leiðinni heim. Morgundagurinn verður pottþétt mun lengri. Ef ég vil fara í sund fyrir vinnu verð ég að vera mætt um hálfsjö. Á að mæta á stöðina í Skeifuna stuttu fyrir átta og þar mun sú sem er að fara að flytja sig úr afgreiðslunni í afgreiðsluna á Selfoss eftir hálfan mánuð, setja mig inn í málin og hjálpa mér af stað.
1.12.25
Auka færsla og breyttur taktur
Ég var vöknuð fyrir klukkan sex og mætt á braut 8 tuttugu mínútur yfir sjö. Synti 500m, helminginn skriðsund eins og í gær. Var 5 mínútur í þeim kalda, um tíu mínútur í gufunni og sjópottinum og dýfði mér svo í nokkrar sekúndur í þann kalda áður en ég fór upp úr og í osteostrong. Sló met á þremur tækjum af fjórum og var alveg við mitt besta á fjórða tækinu. Færði líka tímann til klukkan fimm síðdegis á miðvikudögum. Mætti í annað viðtal í Þarabakka 3 kl. hálftíu. Framkvæmdarstjórinn og stöðvarstjórinn í Skeifunni voru með mér á þeim fundi. Fundurinn var ekki langur, ca korter en gekk vel. Framkvæmdastjórinn sagðist myndu hafa samband við mig innan dagsins. Mér skilst að yfir 90 manns hafi sótt um stöðuna. Rétt fyrir klukkan tólf fékk ég sms frá osteostrong um að ég ætti tíma hjá þeim strax á miðvikudaginn kemur. Á eftir að hringja í þá til að fella þann tíma niður, vil ekki byrja á miðvikudags tímunum fyrr en í næstu viku. Upp úr klukkan hálfeitt fékk ég svo rafrænan póst frá "nafna" mínum og frænda, Frumherji vill fá mig í liðið sitt og hann spurði hvort ég gæti mætt í Mjóddina klukkan níu í fyrramálið. Hvort ég get, vííí ég er komin með nýja vinnu. Þess vegna ætla ég að skipta um takt í blogginu og kemur næsta færsla ekki inn fyrr en einhvern tímann eftir að ég kem heim úr vinnu á morgun.
Ekkert sund í gær
Svaf til klukkan að verða níu í gærmorgun. Oddur virtist sofa ágætlega í stofunni og hann rumskaði ekki fyrr en nokkru eftir að ég kom á fætur. Ég bjó til hafragraut um tíu. Rétt fyrir eitt skutlaði ég Oddi í Mjóddina þar sem hann tók strætó á Selfoss korter yfir heila tímann. Ég skrapp sjálf í Kringluna. Skilaði þremur bókum á safnið og tók tvær í staðinn. Er þá með þrjár af safninu hérna heima. Kíkti á tvo aðra staði í Kringlunni áður en ég fór aftur heim.
30.11.25
Næturgestur
Var komin á braut átta um hálfníu leytið í gærmorgun. Synti 500m þar af helminginn skriðsund. Rétt rúmlega tíu var ég um það bil að hringja á dyrabjöllunni hjá esperanto vinkonu minni þegar síminn hringdi. Það var Oddur. Nokkrir vinir ætluðu að hittast hjá einum sem býr í akrahverfinu í Garðabæ og halda eins konar þakkargjörðarhátíð. Oddur spurði hvort hann mætti gista hjá mér. Ég sagði strax já en hann yrði að koma fyrst að fá hjá mér húslykla svo ég þyrfti ekki að vaka eftir honum ef gleðskapurinn drægist eitthvað inn í nóttina. Hann sagðist myndu koma um fimm leytið því hittingurinn átti ekki að byrja fyrr en um sjö. Ég var komin heim um tólf. Um hálfþrjú leytið skrapp ég út í rúmlega hálftíma göngu. Þegar ég kom aftur heim byrjaði ég á fyrsta jólabréfinu af þremur. Oddur kom rétt fyrir sex og stoppaði í rúman klukkutíma. Hann rölti svo yfir í KFC við Bæjarlind til að útvega sinn hlut í Pálínuboðið og þangað sótti bróðir hans hann. Ég fór óvenju seint í háttinn þar sem ég festist yfir jólamyndinni á sjónvarpi símans; "The Hollyday". Hef alveg séð þessa mynd oftar en einu sinni áður en það er eitthvað við hana sem heillar. Dró fyrir í stofunni og bjó um soninn áður en ég skreið upp í rúm um ellefu leytið.
29.11.25
Nóvember alveg að klárast
Var komin á fætur upp úr klukkan sex. Ég tók fram sundtöskuna en það endaði með því að ég stakk henni inn í skáp aftur. Átti von á rafrænum pósti vegna viðtalsins sem ég fór í á fimmtudagsmorguninn. Pósturinn kom upp úr klukkan tíu með upplýsingum um launakjör. Framkvæmdastjórinn hafði einnig flett upp í íslendingabók og séð skyldleikann. Ég þurfti ekki að hugsa mig lengi um varðandi launamálin og svaraði fljótlega með að ég gæti sætt mig við þessi kjör, sérstaklega ef ég fengi 3-5 virka daga í orlof í maí til að komast aðeins norður í sauðburðinn. Það kom póstur til baka um vilja til að hittast aftur strax eftir helgi með stöðvarstjóra viðkomandi stöðvar og spurt um hvaða tími hentaði mér. Hittingurinn verður aftur í Mjóddinni um hálftíu á mánudags morguninn. Ég hef þá tíma til að fara í sund og osteostrong áður. Það var svo ekki fyrr en klukkan langt gengin í fjögur að ég skrapp aðeins út í stutta göngu í um tuttugu mínútur.
28.11.25
Aftur kominn föstudagur
Hitti kalda potts vinkonu mína um átta í gærmorgun. Hún fór beint í sjópottinn á meðan ég synti 400m. Fórum alls 4 ferðir í þann kalda. Hitti á yngstu mágkonu mömmu í sjópottinum. Fór upp úr rétt fyrir hálftíu og var komin í viðtal í fundarherbergi Frumherja við Þarabakka 3 á slaginu tíu. Mannauðsstjórinn og miðjunafna mín tók á móti mér og með í viðtalinu var "nafni" okkar og framkvæmda- og tæknistjóri ökutækjasviðs. Mér fannst viðtalið ganga vel, stóð yfir í um þrjú korter og það var rætt um eitt og annað. Ég og framkvæmdastjórinn vorum orðin frekar viss að við værum eitthvað skyld þannig að þegar ég kom heim fór ég beint í íslendingabók og rakti okkur saman. Erum skyld í þriðja og fjórða lið en langamma hans var systir föðurömmu minnar, árinu eldri og ég man ágætlega eftir henni. Ég veit ekki hversu margir sóttu um og heldur ekki hversu margir fengu boð um að mæta í viðtal eftir að hafa verið beðnir um að senda inn svör við sjö spurningum í videoviðtali. En þau töluðum um að sá sem yrði valinn myndi byrja strax. Um er að ræða afgreiðslustarf í Frumherja í Skeifunni. Það er mest að gera í apríl og maí og ég spurði hvort það væri illa séð að fá nokkra daga í frí til að komast aðeins í sauðburðinn til systur minnar. Það var alls ekki tekið illa í þá beiðni. Hvað sem verður var þetta skemmtilegt viðtal. Annars leið dagurinn alveg hrikalega hratt.
27.11.25
Færsla no 4500
Var mjög slök í gærmorgun og fór ekki á fætur fyrr en um sjö leytið. Upp úr klukkan ellefu var ég mætt í Nauthólsvík. Var smá stund að finna stæði en ég var komin fyrri ferðina í 2,9°C sjóinn áður en klukkan varð hálftólf. Það var háflóð og aðstæður mjög góðar. Gerði eins og mörg undanfarin skipti að fara í gufu á milli tveggja ferða í sjóinn. Fyrri ferðin var rúmar sjö mínútur en sú seinni líklega um þrjár. Sat svo í heita pottinum í um tuttugu mínútur áður en ég dreif mig upp úr. Kom við í Fiskbúð Fúsa. Næst gerði ég mér ferð í Drápuhlíðina og heimsótti fyrrum nágrannakonu á neðri hæðinni. Maðurinn hennar, sem er formaður húsfélagsins, var nýlega skroppin út. Hún tók á móti plagginu sem þarf að fylla út og skila inn í bankann ásamt fundargerð svo ég geti sagt skilið við gjaldkerastöðuna. Mér skilst að nágrannakonan í kjallaranum ætli að taka við boltanum. Ég var búin að skrifa nafnið mitt og kennitölu á plaggið svo ég þarf ekki að mæta á fundinn, hvenær sem hann verður boðaður. Á meðan ég var í þessari heimsókn fékk ég símtal og boð um að mæta í viðtal vegna atvinnuumsóknar klukkan tíu á eftir. Meira um það kannski á morgun. Var komin heim upp úr klukkan hálftvö. Fór ekkert út aftur. Hafði soðna ýsu í kvöldmatinn ásamt sætri kartöflu, gulrótum, hvítkáli (soðnu) og súrkáli.
26.11.25
Smáralind
Var komin á braut 8 í Laugardalslauginni í gærmorgun á svipuðum tíma og á mánudagsmorguninn. Synti 700m, flesta á bakinu, og gaf mér extra góðan tíma í alla aðra rútínu. Þvoði mér um hárið og hafði hvorki fyrir því að blása það né greiða. Heildar tíminn í sundi, frá því ég setti skóna á hilluna framan við klefa og þar til ég var komin í þá aftur, voru rétt tæpir tveir tímar. Var komin heim fyrir klukkan tíu. Klukkan var að verða þrjú þegar ég fór út aftur. Labbaði í Smáralind, frekar rólega því ég var um 24 mínútur að fara þessa 2,2km. Eyddi líklega um hálftíma í smá skoðunartúr því klukkan að verða fjögur labbaði ég örlítið styttri leið heim, 2km og fór hraðar yfir því ég var ekki nema 13 mínútur. Fékk annars póst frá skattinum um að ég yrði að sækja aftur um endurgreiðslu á vsk af vinnu og senda kvittun um greiðslu með ef ég vildi fá þessar rúmu þrjátíuþúsund. Eyddi miklum tíma í að reyna að endurgera umsóknina. Í símanum komu alltaf skilaboð um að ég yrði að senda reikninginn líka þótt mér sýndist ég bæði hafa dregið reikning og kvittun yfir á þar til gert svæði. Í fartölvunni fann ég ekki einu sinni viðeigandi svæði til að sækja um. Kannski endar það með því að ég heimsæki skattinn og fæ einhvern þar til að aðstoða mig. En mikið er ég hissa á að hafa ekki fengið skilaboð um að það vantaði kvittunina áður en umsókninni var hafnað.
25.11.25
Afsal
Vaknaði rétt um sex eftir aðeins köflótta nótt. Var mætt á braut 7 rúmlega hálfátta og í osteostrong tíma klukkutíma síðar. Nýr leiðbeinandi tók á móti mér í vikulega tímanum. Ég sló met á tveimur tækjum af fjórum og var við mitt besta á hinum tveimur tækjunum. Var komin heim aftur fyrir klukkan hálftíu. Fékk mér hressingu og slakaði á um stund en stuttu fyrir klukkan ellefu reimaði ég á mig gönguskóna labbaði yfir í Hlíðarsmára 4 þar sem fasteignasalan Domusnova er með skrifstofu. Labbaði um Smáratorg og fór ég þessa 2,2km á tæpum hálftíma. Hafði ekki haft samband við umboðsmann dánarbúsins því það var tekið fram í rafrænum pósti frá fasteignasalanum að við þyrftum ekki endilega að vera á sama tíma, hefðum mánudaginn og þriðjudaginn til að koma og skrifa undir á viðeigandi stöðum á viðeigandi skjölum. Ég var frekar spennt að ljúka þessu af, greiddi lokagreiðsluna strax á fimmtudaginn var eftir að hafa farið vel yfir skjöl og útreikninga. Labbaði svo mun beinni leið heim, 2km á 28 mínútum svo skrefafjöldi dagsins fór vel yfir 7 þúsund skref. Fór ekkert út aftur en hringdi bæði í pabba og mág minn og var svo að dútla eitthvað hérna heima við. Fór frekar snemma í háttinn og var líklega sofnuð áður en klukkan varð hálftíu.
24.11.25
Serían komin á svalirnar
Var komin á fætur um sjö í gærmorgun en ekki í sund fyrr en um hálftíu. Synti 400m þar af 100m skriðsund. Fór þrisvar í þann kalda og eftir góða gufuferð hékk ég svolítið í rimlunum. Var komin heim aftur um hálftólf leytið. Hringdi í pabba og spjallaði smávegis við hann. Upp úr klukkan eitt hringdi ég í tvíburahálfsystur mína. Hún var ekki við símann þá stundina svo ég hringdi í eina nöfnu mína og frænku. Eftir það, nokkurra mínútna spjall, náði ég í Sonju. Eitt að því sem við ræddum um voru seríumál og hún heyrði á mér að ég væri eitthvað nervus við að takast á við þau mál ein, svona í fyrsta skipti. Úr varð að hún boðaði komu sína seinni partinn. Kom um hálffimm með fullt fangið af innflutningsgjöf til mín og vatt sér svo beinustu leið að vefja seríunni utan um svalahandriðið. Það var reyndar alveg ágætt að vera tvær í þessu en ég gerði þó lítið annað en að fylgjast með og taka öðru hvoru á móti seríunni og færa til lokunargluggana. Þetta tók ekki langan tíma og á eftir fengum við okkur te og smá snarl.
23.11.25
Gærdagurinn var extra góður
Vaknaði um hálfsjö í gærmorgun. Var komin í sund á níunda tímanum. Hitti yngstu mágkonu mömmu í sjópottinum og við spjölluðum svo mikið að það varð næstum því ekkert af sundi hjá mér. Synti samt 300m áður en ég fór upp úr stuttu fyrir tíu. Hringdi í Odd áður en ég lagði af stað í esperanto og var hann opinn fyrir því að ég kæmi og sækti hann upp úr hádeginu. Við Inger lásum aðeins rúma blaðsíðu í Kon-Tiki því hún átti von að yngsta barnabarninu sínu í pössun um ellefu. Rósey var svolítið feimin við mig en líka pínu stríðin. Ég rifjaði upp nokkur leikskólalög og hafði hún alveg gaman að því þótt hún syngi ekki með. Var komin á Bakkann upp úr klukkan hálfeitt. Ákvað að keyra Suðurstrandaveginn og í gegnum Grindavík í bæinn aftur. Komum aðeins við í Krónunni í Lindum áður en Oddur kom í sína fyrstu heimsókn í Núpalindina. Eftir að hafa fengið að nota salernið og skoðað íbúðina settumst við í sófann inn í stofu og spjölluðum áfram, vorum mikið búin að spjalla á leiðinni að austan. Um fjögur leytið hitaði ég upp kjötsúpu. Spurði Odd hvort hann vildi gera eitthvað ákveðið en hann var ekki með neitt sértakt í huga svo við settumst aftur inn í stofu eftir snæðinginn og spjölluðum áfram á meðan uppþvottavélin vann sitt verk. Um hálfsex leytið sýndi ég Oddi geymsluna niðri á fyrstu hæð áður en við fórum út í bíl. Hann fékk að keyra og var fyrsta stopp AO við Sprengisand/Bústaðaveg. Næst fórum við á N1 við Gagnveg þar sem Davíð Steinn var á vakt og fengum hann til að fylla á rúðupissið. Spjölluðum í smá stund en um það leyti sem við vorum að fara að kveðja komu inn viðskiptavinir, amk tveir menn. Ég var ekkert að spá í þetta fólk, var bara að hugsa um að kveðja og vera ekkert að trufla afgreiðsluna þegar einn maðurinn tók í öxlina á mér og ávarpaði mig með nafninu mínu. Fyrst kom svolítið á mig en svo sá ég að þetta var einn bekkjarbróðir minn úr grunnskóla, Hjalti Gíslason, svo ég gerði það eina rétta í stöðunni; faðmaði hann og þakkaði honum fyrir að kasta á mig kveðju. Oddur keyrði sig alla leið á Bakkann og kvaddi mig með knúsi áður en ég færði mig yfir í bílstjórasætið og keyrði heim. Var komin heim um átta.
22.11.25
Kjötsúpa
Vaknaði eiginlega á slaginu hálfsex í gærmorgun og var komin á stjá mjög skömmu síðar. Gaf mér góðan tíma í morgunverkin og rútínuna og svo æxluðust hlutirnir þannig að ég var heima við alveg til klukkan að byrja að ganga þrjú. Hafði samt tekið til sundpokann sem lá svo ósnertur á stól við hliðina á skápnum í ganginum. Um tvö leytið skrapp ég út og gerði mér ferð í Elko og Sports Direct. Þegar ég kom til baka aftur tók ég eftir miða frá póstinum sem var stílaður á mig. Það er ekki hægt að koma pósti til skila ef nafnið finnst ekki. Sendi fyrirspurn á eignarekstur og spjallaði líka rafrænt við einhvern hjá póstinum. Skrifaði nafnið mitt á miða og fór niður í anddyri og límdi hann á póstkassann sem tilheyrir íbúðinni minni. Það kom fljótlega svar frá eignarekstri sem hafði formann húsfélagsins með í póstinum. Fyrirspurnin mín varð og verður líklega til þess að íbúalisti blokkarinnar og merkingar verður uppfært. Óvíst þó hversu langan tíma það tekur. Um fimm leytið setti ég upp kjöt, bygggrjón og lauk og skar niður hálfa sæta kartöflu, eina rófu, nokkrar gulrætur og hluta af hvítkálshaus. Kjötsúpan var tilbúin um hálfsjö leytið og var mjög góð og nógur afgangur í nokkrar upphitanir. Aðskildi kjötið og bitaði niður og skipti súpunni annar niður í þrjú ílát. Er enn að ákveða mig hvort ég eigi að frysta amk eitt ílátið en á meðan er þetta allt saman inni í ísskáp.
21.11.25
Fössari
Vaknaði um hálfsex í gærmorgun. Rúmum tveimur tímum seinna var ég mætt á braut átta í Laugardalslaug. Synti 500m, helminginn skriðsund. Kalda potts vinkona mín var nýmætt og hafði náð að hita sig upp áður en við hittumst í fyrstu ferðinni okkar af 4 í kalda pottinum. Gáfum okkur góðan tíma í allt pottarölt og gufu og var heildartími á sundferðinni tveir tímar og korter. Fór beinustu leið heim eftir sundið. Tók með mér fríblöðin upp og í Kópavogsblaðinu var viðtal við einn frænda minn og smið sem nýlega varð 76 ára og var að hætta vinnu þótt hann ætli ekki að leggja hamarinn alveg á hilluna. Annars fór dagurinn í dútl og dund. Skil samt ekki í mér að vera ekki byrjuð að handfjatla handavinnuna en það hlýtur að koma að því einn daginn. Það kom póstur frá fasteignasalanum í Domusnova. Hún var að senda öll skjöl varðandi afsalið til yfirferðar og tók fram að ef það væru engar athugasemdir þyrfti að greiða loka greiðsluna í síðasta lagi þann 24. nk. Ég sá ekkert athugavert þótt upphæðin væri rúmum hundraðþúsund hærri en á kaupsamningnum og gat ekki beðið eftir að gera upp. Að þessu sinni sendi ég greiðsluna í gegnum LÍ, varð eiginlega að prófa hvort sú leið gengi upp. Smám saman eru samt flest fjármál, greiðslur og innborganir, að færast yfir í Indo. Hef þó hugsað mér að eiga kreditkortið eitthvað áfram en síðustu misseri hef ég sjálf passað að það sé alltaf í plús svo ég sé sjaldan eða aldrei í mínus.
20.11.25
Sjórinn
Var snemma á fótum í gærmorgun og eftir hefðbundna morgunrútínu tók ég því rólega. Settist í hægindastólinn með eina bók og las til klukkan að ganga tíu. Um hálftíu leytið útbjó ég mér hafragraut og tók til vítamínin, daglega skammtinn og fyrir næstu tvo daga. Fékk boð um video-viðtal vegna atvinnuumsóknar og dreif það af. Þurfti að sópa aðeins af bílnum áður en ég fór af stað en var mætt í Nauthólsvík stuttu fyrir ellefu. Engin vandræði að finna stæði. Það var að fjara út, sjórinn rúmar þrjár gráður og að venju fór ég tvisvar út í, fyrst í uþb sjö mínútur og eftir 15 mínútur í gufunni aftur í tæpar fjórar áður en ég settist smá stund í pottinn. Síðan fór ég beint heim aftur. Það fannst asbest í gólfum í íbúðinni og ég samþykkti að taka á mig helminginn af kostnaðinum við að fjarlægja það og farga. Einnig létu ungu hjónin vita að lokagreiðsla og afsal vegna Stigahlíðar yrði gert upp í janúar og báðu um að fresta afsali vegna Drápuhlíðar þar til það uppgjör hefði átt sér stað. Samþykkti það líka. Ætla sam alls ekki að fresta loka uppgjörinu og afsalinu vegna Núpalindar en það verður í næstu viku.
19.11.25
Heimakær
Ég vaknaði um hálfsex í gærmorgun eftir átta tíma samfelldan svefn og ágætis drauma. Sinnti morgunrútínunni en þarf þó að fara að huga að því að taka fram lóðin aftur og bæta þeim við þessa ágætu rútínu. Var mætt á planið við Laugardalslaug korter yfir sjö. Byrjaði að synda á braut 8 en færði mig á braut 7 eftir fyrstu 100 metrana. Synti alls 700m á rétt rúmum hálftíma, flesta á bakinu. Gaf mér svo góða tíma í alla aðra sundrútínu, fór m.a. fjórum sinnum í þann kalda. Þvoði mér um hárið og var komin á Kringlusafnið rétt eftir að opnaði um tíu. Skilaði fjórum bókum af sex. Þær tvær sem voru eftir heima voru það þykkar að ég hafði hugsað mér að sleppa því að taka bækur með mér heim. Það fór þó ekki alveg svo, það komu tvær bækur en urðu næstum því fjórar eða fleiri. Til að sleppa því að taka bækur af safninu þarf ég helst að sleppa því að skoða mig um og fara beint út af safninu eftir skil. Áður en ég fór heim kom ég við í Krónunni í Lindum. Lagði svo á efra planinu svo það væri styttra inn með töskur og poka. Tók líka lyftuna upp á fjórðu úr anddyrinu sem er á annarri hæð. Yfirleitt set ég mér það að taka stigana ef ég er ekki með mikið meðferðis. Á mánudaginn var fór ég með smá dót í lyftunni niður á fyrstu hæð og kom því fyrir í geymslunni, labbaði svo aftur upp á fjórðu. Annars stóð til að fara út í göngu í gær en dagurinn þróaðist þannig að stór hluti af honum fór í lestur á annarri bókinn sem varð eftir heima; Miðnæturrósin eftir Lucindu Riley, sama höfund og um systurnar sjö. Er tæplega hálfnuð með bókina en hún er yfir 600 bls.
18.11.25
Eitt og annað
Eftir köflótta nótt, sem hluta til fór í lestur, var ég komin á fætur fyrir klukkan sex í gærmorgun. Rétt rúmlega sjö lagði ég af stað í sund. Fór lengri en beinni leiðina. Var komin á braut 8 um hálfátta eftir að hafa byrjað í kalda pottinum. Synti aðeins 300m en helminginn af þeirri vegalengd á skriðsundi. Fór aftur í þann kalda, smá stun í þann heitasta og þriðju ferðina í þann kalda og svo sjópottinn í rúmar tíu mínútur. Var mætt í osteostrong rétt rúmlega hálfníu og komin heim aftur fyrir klukkan hálftíu. Fór ekkert út aftur en sýslaði ýmislegt hérna heima við. Um þrjú leytið fékk ég gest, "föðursystur" mína sem ég er búin að þekkja síðan við sungum saman í kór FSu.
17.11.25
Ný vika
Fór á fætur stuttu áður en klukkan sló hálfníu. Pabbi kom á fætur rúmum tveimur tímum síðar. Hafði reyndar eins og alltaf verið búinn að koma fram, fá sér eitthvað og skrá niður helstu tölur. Um hálftólf leytið fengum við okkur skyr og korter yfir tólf ókum við á hans bíl sem leið lá að Keldum. Þar var messa klukkan eitt í tilefni 150 ára afmæli kirkjunnar. Prestur var séra Halldóra Þorvarðardóttir, kór Oddakirkju leiddi söng og organistinn var frændi minn og þremenningur Guðjón Halldór Óskarsson. Kirkjuvörðurinn, Drífa Hjartardóttir leiddi bæði upphafs- og lokabæn en hún sagði einnig frá kirkjunni og sumum munum hennar eftir tvo fyrri ritningalestrana. Kirkjan er ekki stór en hún var þétt setin þótt það hefðu alveg komist fleiri fyrir. Veðrið var í alla staði frábært og þessi stund var og verður eftirminnileg. Eftir messuna kíktum við pabbi aðeins í garðinn áður en við brunuðum í kirkjukaffi í safnaðarheimilið við Dynskála á Hellu. Pabbi hitti m.a. einn leikfélaga sinn úr æsku. Sá er tveimur árum yngri og er sá síðasti sem fæddist á Keldum. Komum úr kaffinu um hálffjögur og fljótlega tók ég mig saman og brunaði heim.
16.11.25
Á Hellu
Var mætt á braut 8 í Laugardalslaug milli klukkan átta og hálfníu. Breytti rútínunni örlítið því eftir 400m, tvær ferðir í þann kalda, gufuferð og korter í sjópottinum fór ég aftur á braut 8 og synti 100m áður en ég fór upp úr. Um tíu leytið var ég mætt vestur í bæ til norsku esperanto vinkonu minnar. Við lásum rúmar þrjár blaðsíður í Kon-Tiki. Kom við á AO við Öskjuhlíð áður en ég fór heim með sunddótið. Um eitt leytið lagði ég af stað austur. Leit við í Löngumýrinni á Selfossi. Var komin á Hellu um hálffjögur. Annars held ég að það sé ágætt að minnast á að það fyrsta sem ég gerði áður en ég fór á fætur og í sund var að borga af húsnæðisláninu mínu. Sem reyndar er ekki í frásögu færandi nema vegna þess að þegar ég var búin í sundi þá birtist loksins fyrri seðillinn af tveimur sem ég útbjó samning um vegna niðurgreiðslu á þessu láni. Þennan samning stofnaði ég til á föstudegi fyrir rúmri viku en hann varð ekki sýnilegur fyrr en eftir að ég var búin að borga reglulegu afborgunina af láninu. Líklega verið að passa upp á að maður borgi þetta í réttri röð, fyrst þessa reglulegu og svo það sem maður vill borga inn á aukalega.
15.11.25
Nóvember hálfnaður eftir daginn í dag
Aldrei þessu vant hef ég ekki frá neinu sérstöku að segja varðandi gærdaginn. Nema kannski að það er ótrúlega gott að vera í þessari íbúð og gera alls konar og ekki neitt. Það stóð til að ég færi í sund en ég missti af morgunglugganum og svo leið dagurinn einhvern veginn. Var samt búin að taka til sundtöskuna en hún er þá bara tilbúinn í sundið þegar opnar klukkan átta.
14.11.25
Færslan með seinni skipunum í dag
Í gærmorgun var ég komin á fætur upp úr klukkan sex. Rúmum tveimur tímum seinna, eða stuttu fyrir klukkan hálfníu, var ég mætt á braut 7 í Laugardalslauginni. Synti 600m þar af helminginn skriðsund. Var búin að fara eina ferð í þann kalda, sitja um korter í sjópottinum og nýkomin í nuddpottinn þar sem ég hitti eina mágkonu hennar mömmu, þegar kalda potts vinkona mín mætti á svæðið. Saman fórum við fjórar ferðir í þann kalda, tvær í heitasta pottinn sem ekki var svo heitur, góða gufu ferð og annað korter í sjópottinn. Klukkan var langt gengin í ellefu þegar ég kom heim. Til stóð að ég gerði eitthvað meira úr deginum en það sem ég dúttlaði hér heima við er ekki í frásögur færandi. Davíð Steinn kom eftir vinnuvakt um átta leytið í gærkvöldi og þáði hjá mér kjötsúpu. Spjallaði alveg helling og stoppaði í góða þrjá tíma. Klukkan var því byrjuð að ganga tólf þegar ég fór upp í rúm. Las að sjálfsögðu í smá stund áður en ég fór að sofa; Perlan eftir Birnu Önnu Björnsdóttur.
13.11.25
Dekkjaskipti
Vaknaði einhvern tímann á sjöunda tímanum í gærmorgun. Sýslaði hér heima við fram eftir morgni en stuttu fyrir klukkan ellefu tók ég sjósundsdótið með mér út og brunaði beinustu leið í Nauthólsvík. Aldrei þessu vant var hægt að velja úr stæðum. Var komin út í 2,9°C sjóinn tuttugu mínútum yfir ellefu og að þessu sinni var ég bæði í hönskum og þykkari skóm. Svamlaði um í uþb 7 mínútur í fyrri ferðinni og ca 3 í seinni ferðinn eftir 15 mínútur í gufunni. Ég átti tíma í dekkjaskipti í Fellsmúla um hálftvö. Var komin á svæðið korter fyrir þann tíma. Tíminn var vissulega bókaður á þessum stað en dekkin höfðu verið send á N1 dekkjaverkstæðið við Bíldshöfða í síðustu viku. Það var hringt þangað til að kanna hvort hægt væri að koma mér að. Svarið var jákvætt og ég var mætt þangað rétt rúmlega hálftvö. Þurfti ekki að bíða nema uþb tíu mínútur til að komast að. Tveir skynjarar voru ónýtir og ég samþykkti strax að fá nýja. Heilsársdekkin sem voru undir bílnum voru orðin það slitin að þeim var fleygt svo ekki þarf ég að borga fyrir geymslu á þeim. Fékk að nota kennitölu N1 sonarins eins og alltaf áður og greiddi rúmar tuttuguogeittþúsund krónur fyrir þessa þjónustu. Kom svo aðeins við upp á Gagnvegi þar sem Davíð Steinn var á vakt, í og með til að þakka honum fyrir að fá að nota kennitöluna hans. Var komin heim fyrir klukkan fjögur.
12.11.25
Kjötsúpa
Hvað ég varð hissa að sjá að klukkan var að verða hálfátta þegar ég vaknaði í gærmorgun. Þetta truflaði svo sem ekki morgunrútínuna en ég snéri annarri rútínu við og ákvað fljótlega að fara ekki í sund fyrr en einhvern tímann eftir hádegi. Um tólf sendi ég fyrirspurn á kalda potts vinkonu mína. Hún sagðist myndu verða í sundi um fjögur. Um hálfþrjú leytið fór ég með bylgjupappír og plast í Sorpu við Dalveg. Kom svo við á einum öðrum stað áður en ég fór í sundið. Var komin á braut 7 um hálffjögur og synti 600m á uþb hálftíma, flestar ferðirnar á bringunni en þó 150m skriðsund. Hrafnhildur var komin og tilbúin í fyrstu ferðina í þann kalda á slaginu fjögur. Gáfum okkur góðan tíma í alla rútínu og var klukkan að byrja að ganga sex þegar ég kvaddi. Umferðin heim um Kringlumýrarbraut var í þyngra lagi en ég var þó komin heim áður en klukkan varð sex. Þá vatt ég mér beint í að búa mér til kjötsúpu. Hafði keypt allt í hana fyrir nokkrum dögum og ég vissi að ég yrði að fara að nota amk hluta af grænmetinu. Súpan var tilbúin um hálfátta, mjög góð. Brytjaði niður afganginn af kjötinu og geymi sér og skipti afgangnum af súpunni í tvennt. Það verða því amk tveir kjötsúpudagar í viðbót á næstunni sem er alveg tilhlökkunarefni.