11.11.25

Seint í háttinn í gær

Ég var komin á stjá einhvern tímann á sjöunda tímanum í gærmorgun. Um átta hringdi ég í osteostrong og þegar var hringt til baka örfáum mínútum síðar bað ég um að fá að færa tíma dagsins til klukkan eitt. Á slaginu hálfníu hringdi rafvirkinn bjöllunni í anddyrinu. Hann kom inn með stiga, fór yfir það sem hann átti að gera og þurfti á þessum einum og hálfa tíma sem hann var að græja og gera að skreppa þrisvar út í bíl að ná í eitthvað. Nú eru komin ledljós í loftið í eldhúsinum og svefnherberginu og tvö ljós á vegginn fyrir aftan sófa og stól í stofunni. Einnig lagaði hann eina innstunguna. Ég bað hann um að skoða hversvegna ekki kviknaði ljós undir innréttingunni yfir vaski og eldavél og það var vegna þess að það er tengt ljósinu í viftunni. Það er hægt að hafa aðeins ljós á viftunni en það verður að kveikja á því ljósi til að hægt sé að kveikja á hinum ljósunum. Rafvirkinn var farinn fyrir ellefu og reikningurinn birtist í einkabankanum seinni partinn með eindaga eftir viku. Það tók ekki svo langan tíma að sópa upp og ganga frá. Var mætt í Hátún 12 rétt fyrir eitt. Þurfti að bíða í smá stund og svo bætti ég mig eða jafnaði mitt besta á öllum tækjum. Korter fyrir tvö var ég komin á braut 8 í Laugardalslauginni. Synti 600m á tæpum hálftíma, flestar ferðir á bakinu en einnig smá skriðsund og kannski 25m bringusund. Á leiðinni heim eftir sundið stoppaði ég aðeins við í Krónunni í Lindum.  Fyrrum samstarfskona mín og jafnaldra, sem býr í Skógarhjallanum í Kópavogi kíkti í heimsókn um átta. Við vorum ekki búnar að hittast síðan einhvern tímann fyrri partinn í sumar en við höfum hringst á nokkrum sinnum. Tveir tímar liðu ótrúlega hratt. Þurftum báðar að spjalla mikið og svo er andinn í þessari íbúð svo umvefjandi og góður að það fer alveg ótrúlega vel um mann. Eftir heimsóknina fór ég fljótlega í háttinn og kláraði að lesa skammtímalánsbókina af Kringlusafninu; Krufning eftir Patriciu Cornwell.

10.11.25

Morgunstund heima

Losaði svefn um hálffjögur leytið. Opnaði ekki augun sem voru límd aftur, hunsaði blöðruna og hélt að það væri nóg til að sofna fljótlega aftur. Heyrði þó stofuklukkuna slá fjögur, hálffimm og fimm en ekkert svo löngu síðar, að mér fannst sló hún níu högg. Ég fór semsagt ekki á fætur fyrr en á tíunda tímanum í gærmorgun. Pabbi kom fljótlega klæddur fram, hafði pottþétt verið búin að koma fram mun fyrr um morguninn til að taka niður helstu tölur og fá sér eitt harðsoðið egg. Hann setti upp saltað kindakjöt um tíu leytið og hægsauð það. Bætti kartöflum og rófum í pottinn tuttugu mínútum áður en máltíðin var tilbúin stuttu fyrir tólf. Það var feðradagurinn í gær en pabbi vildi sjá um þessi verk sjálfur. Ég rétt svo fékk að ganga frá og setja uppþvottavélina af stað á eftir. Rétt fyrir tvö tók ég mig saman og kvaddi pabba. Hringdi í Odd rétt áður en ég lagði í hann og svo aftur þegar ég var komin á Bakkann. Hann kom út og sótti hleðslutækið sitt sem hann hafði gleymt hjá afa sínum þegar þeir bræður heimsóttu hann í vikunni eftir afmælið hans. Þarna var ég að hitta þennan son minn í fyrsta skipti síðan hann flutti austur fyrir akkúrat þremur mánuðum. Hann vildi ekki setjast inn í bíl, var þó alls ekki hræddur um að ég myndi ræna sér, en við spjölluðum saman í nokkrar mínútur. Áður en ég hélt för áfram. 

9.11.25

Jólakortaframleiðsla í gærkvöldi

Man að ég rumskaði um fjögur í fyrrinótt og fannst það heldur snemmt. Sem betur fer sofnaði ég aftur fljótlega og næst vissi ég af mér um átta í gærmorgun. Ákvað strax að sleppa sundferð. Sinnti bara morgunrútínunni og pakkaði niður í tösku. Um tíu var ég mætt til esperanto vinkonu minnar. Við lásum þrjár blaðsíður í Kon Tiki. Kvaddi um hálftólf. Hringdi í pabba og lét hann vita að ég væri á leiðinni austur. Kom fyrst við á Gagnveginum. Það er vaktahelgi N1 sonarins en hann hafði tekið sér frí svo ég hitti ekki á hann. Jafnaði loftþrýstinginn í dekkjunum og gerði næsta stopp í Fossheiðinni eftir að hafa keyrt Þrengslin. Til pabba var ég komin um hálfþrjú en ég gerði stutt stopp í vínbúðinni, heilsaði upp á bekkjarsystur systir minnar og keypti af henni eina litla hvítvínsflösku. Kortagerðadótið var mest allt í herberginu sem ég hef til afnota frá því ég kom austur helgina sem pabbi átti afmæli. Klukkan var byrjuð að ganga sjö þegar ég tók það fram í eldhús. Fann þrjú ónotuð kort frá því í fyrra og samkvæmt Fb-minningum voru það helmingi færri heldur en þegar ég tók fram dótið í fyrra. Um hálfníu var ég búin að föndra um tuttugu kort. Þá fyrst hellti ég mér í hvítvínsglas. Skipti flöskunni í 2xrúmt hálft glas og dreypti á næsta klukkutímann á meðan ég gerði 7 kort í viðbót. Á þá 30 kort en það eru innan við tuttugu á listanum. Hver veit nema ég sendi fyrrum nágrönnum sem og ungu hjónunum sem keyptu af mér Drápuhlíðina. Það kemur í ljós þegar ég fer í jólakortaskrifgýrinn. Tók saman föndrið um tíu en klukkan var byrjuð að ganga tólf áður en ég fór í háttinn, á undan pabba.

8.11.25

Aftur komin helgi

Í gærmorgun var ég mætt á planið við Laugardalslaug um átta og var eiginlega stálheppin að fá stæði. Það var að byrja eitthvað mót og því óvanalega margir bílar komnir á planið. Fékk heldur engan hornskáp í klefanum en sætti mig svo sem alveg við miðjuskáp þar sem hann var einn af þeim stærri. Aftur á móti fékk ég braut no 7 nánast útaf fyrir mig eða í amk 4 hringi af sex. Sundferðin og allt sem henni fylgdi tók rétt rúma tvo tíma. Kom svo við í Fisbúð Fúsa. Óbarna ýsan var uppseld en ég keypti ýmislegt annað og þegar ég kom heim setti fiskibollur í pott og hitaði upp. Með þeim hafði ég rósakál og súrkál. Á þriðja tímanum skrapp ég út í göngu og labbaði m.a. upp í krikjugarð, í kringum Lindakirkju, inn í Salahverfið og næstum því að Salalauginni. Forritið skráði sjálfkrafa á mig þrjá göngutúra 1,5-1,8km langa. Var komin heim aftur stuttu fyrir klukkan fimm. 

7.11.25

Píparar

Við kalda potts vinkona mín mæltum okkur mót í Laugardalslaug um hálfníu í gærmorgun. Ég ætlaði að mæta milli átta og hálfníu en þar sem ég fór ekki af stað fyrr en klukkan var orðin átta lenti ég í mikilli umferð og var uþb tuttuguogfimm mínútur á leiðinni. Var að leggja á planinu við laugina um hálfníu. Vissi að við værum að fara í pottarölt, gufu og almenna slökun en tók samt sundgleraugun með mér ef ég skyldi nú stinga mér aðeins til sunds í restina. Það fór þó svo að ég sleppti sundinu í þetta sinnið. Klukkan var farin að ganga ellefu og ég ætlaði að athuga hvort Fúsi væri búinn að opna. Áður en ég kom að afleggjaranum þar sem ég ætlaði að beygja fékk ég símtal. Um var að ræða svar við beiðni sem ég sendi fyrir tæpum tveimur vikum um aðstoð frá pípara. Ég brunaði því beinustu leið heim. Tveir ungir menn, undirverktakar, sátu í hvítum bíl á efra planinu og urðu samferða mér inn. Annar fór að huga að þvottavélinni, tók allt teip af og festi affallsbarkann með hosuklemmu. Hinn sá um handklæða ofninn, losaði um pinnann og varð einnig að breyta skífunni svo hún sýndi rétta stillingu. Þetta tók í heildina varla nema um tíu mínútur og ég var sátt og glöð þegar ég kvaddi ungu mennina. Setti strax í eina þvottavél og þorði ekki annað en að fylgjast aðeins með fyrsta kastið. Um hálfþrjú leytið skrapp ég út. Rölti fyrst yfir í Bæjarlind 6 til að athuga aðeins með dragtir hjá Rítu. Þaðan labbaði ég svo í Smáralindina. Keypti einn neyðarkarl og rölti um. Labbaði svo yfir á Smáratorgið og kom aðeins við í Krónunni. Hitti fyrrum formann óháða safnaðarins en við tvær og einn til erum saman í nefnd yfir Bjargarsjóði sem var stofnaður fyrir margt löngu til heiður ömmu hennar og nöfnu sem var ein af stofnendum safnaðarins á sínum tíma. Klukkan var byrjuð að ganga sex þegar ég kom heim og skrefin komin yfir sjöþúsund.

6.11.25

Prófaði eitt alveg nýtt í gær

Var komin á stjá fyrir klukkan sex í gærmorgun. Stefndi allan tímann á það að mæta í Nauthólsvík upp úr klukkan ellefu. Rétt fyrir átta setti ég handklæði og tuskur í þvottavélina. Allt fór vel fram fyrst í stað en þegar prógrammið var hálfnað hafði affalls-slangan losnað og lá á gólfinu. Náði að festa hana aftur og líma betur með breiðara teipi en það lak samt smávegis í fötuna. Ekki kom mikill pollur á gólfið því ég hafði tekið eftir þessu nógu snemma. Klukkan var annars um hálftólf þegar ég mætti í Nauthólsvík. Rétt á eftir mér inn í klefa kom ein vinkona frænku minnar og frænka tvíburanna. Hún var sein fyrir og voru vinkonur hennar þegar búnar að skella sér í sjóinn og að koma sér fyrir í pottinum þegar við urðum samferða í 4,3°C sjóinn. Þrátt fyrir að hitastigið væri komið undir 6 gráður ákvað ég að prófa að fara í strandskónum og hanskalaus út í. Var alveg með hina skóna og hanska meðferðis en ég var smá forvitin að prófa. Fann að sjálfsögðu vel fyrir kuldanum en tolldi alveg út í í uþb 7 mínútur. Tók nokkur skriðsunds tök og svamlaði aðeins á bakinu. Fór aftur út í í 3 mínútur eftir ca 15 mínútur í gufunni í millitíðinni. Í pottinum á eftir hitti ég eina sem ég kynntist í Landsbankakórnum á sínum tíma. Kom heim um hálftvö. Tveimur tímum seinna sá ég að ég hafði fengið póst vegna atvinnuauglýsingar þar sem mér var tilkynnt að að það yrði sendur á mig linkur þar sem ég svaraði nokkrum spurningum á upptökum, fengi tvær tilraunir og ég hefði til 9. nk að klára og senda inn. Þetta var bæði ógnvekjandi en líka afar spennandi og ég var mjög forvitin um hvort ég gæti klárað þetta af alein og sjálf. Það var boðið upp á aðstoð en ég fiktaði mig áfram og hafði gaman af. Samt var ég frekar stressuð og vafðist stundum tunga um tönn. Það hefði líklega verið best að geyma þetta verkefni amk til morguns, græja þetta í dag semsagt. Kannski var ég of fljótfær og kannski kem ég ekki nógu vel fyrir og fyrir mig orði en ég er klárlega reynslunni ríkari og læri af þessu. 

5.11.25

Mið vika

Fór aðeins fyrr út úr húsi í gærmorgun eða um hálfátta. Umferðin var þegar orðin mikil en ekki alveg eins þung og um átta leytið á mánudagsmorguninn. Var komin á planið við Laugardalslaug rúmum tíu mínútum fyrir átta. Byrjaði á tveimur ferðum í þann kalda, einni í þann heitasta og góða stund í sjópottinum áður en ég fór á braut 8 og synti 500m. Átti eftir að fara tvær ferðir og dýfu í þann kalda, gufuna og aftur í sjópottinn áður en ég fór upp úr stuttu fyrir klukkan tíu. Áður en ég lagði af stað vestur í bæ í esperanto hitting hringdi ég í Odd og spjallaði við hann á meðan ég var á leiðinni. Stuttu áður en espó-hittingnum lauk hringdi annar móðurbróðir minn í mig. Hann sagðist skyldu kaupa það sem vantaði til að þétta þvottavéla-affallstenginguna og þau hjónin myndu koma í heimsókn um kvöldið. Eftir hittinginn fór ég með bílinn í Löður við Fiskislóð og keypti mér þvott á hann. Kom heim upp úr klukkan tólf. Sýslaði við eitt og annað, fór m.a. tvær ferðir með dót í geymsluna. Um miðjan dag skrapp ég út með málm í gám og smá göngu í kjölfarið. Fór næstum sama hringinn og ég fór um daginn, stækkaði hann þó aðeins, labbaði 2km á 26 mínútum. Ómar og Sigga komu fljótlega eftir kvöldmat. Í ljós kom að affallstengingin er hönnuð fyrir vask og eiginlega 10mm of þröng, 40mm en ekki 50. Ómar gat ekki notað stykkið sem hann kom með en ég hafði keypt 40mm í Byko í fyrradag svo hann gat mixað þetta en bað mig um að fylgjast með, þegar ég setti þvottavélina af stað í næstu 2-3 skiptin, hvort þetta væri örugglega orðið þétt.

4.11.25

Færsla no 4477

Í gær ákvað ég að fara í osteostrong tíma áður en ég færi í sund. Var komin tímalega af stað því mig grunaði að umferðin úr Kópavoginum yfir í Reykjavík á níunda tímanum væri mikil. Það reyndist vera rétt. Ég mætti í Hátúnið rétt rúmlega hálfníu, rúmum tuttugu mínútum eftir að ég lagði upp frá Núpalind. Komst beint í tíma og stóð mig alveg ágætlega í öllu; upphitnum, tækjum, jafnvægisæfingum og slökun. Var komin á braut 2 í Laugardalslaug um tuttugu mínútum yfir níu. Synti 500m, þar af 150m skriðsund. Sundferðin, frá því ég setti skóna í hilluna framan við klefa og þar til ég var búin að klæða mig í þá aftur eftir alla rútínu, tók rúman einn og hálfan tíma. Kom við í Byko í Kópavogi á leiðinni heim. Keypti eitthvað smotterí en ákvað að það væri betra að ég hefði einhvern vanari með mér í þessum innkaupum. Ætlaði semsagt að kaupa eitthvað til að þétta betur þvottavélatengingarnar vegna vatns í og úr vélinni. Það er ekki sniðugt að kaupa bara eitthvað ef maður er ekki viss og maður er ekki viss ef maður hefur aldrei spáð í þessa hluti. Restin af deginum fór svo þannig séð eiginlega í ekkert sérstakt en samt leið hann frekar hratt. 

3.11.25

Mánudagur

Mætti á braut 7 í Laugardalslaug um hálftíu og synti 500m, flesta á bakinu. Síðustu 50m synti ég reyndar á braut 8. Hitti svo kalda potts vinkonu mína í kalda pottinum. Eftir þrjár ferðir í hann og góða gufuferð hittum við frænku hennar í sjópottinum og stuttu síðar slóst elsta systir kalda potts vinkonunnar í hópinn. Þvoði mér um hárið og var komin upp úr rúmlega ellefu. Kom aðeins við í Krónunni í Skeifunni og keypti mér m.a. efnivið í kjötsúpu áður en ég fór heim. Seinni partinn skrapp ég til tvíburahálfsystur minnar og skilaði henni gestarúminu og efninu sem hún lánaði mér til að bera á sófaborðið. Annars fátt að frétta, nema dagarnir þjóta áfram sífellt hraðar.

2.11.25

Helga systir á daginn í dag

Það kom í ljós að ég hefði ekkert þurft að vera að hafa áhyggjur af því að hreinsa ekki snjóinn af bílnum áður en frysti í vikunni. Það var aðeins smá slabb við bílinn þegar ég skrapp í Sorpu um miðjan dag í gær. Fór því næst til Reykjavíkur, nánar tiltekið í Kringluna. Lét smíða tvo auka lykla af geymslunni hjá skóaranum og keypti mér frækex í Heilsuhúsinu. Á seinni staðnum hitti ég jafnöldru mína sem ég er búin að þekkja í nokkur ár. Það kom í ljós að ungu hjónin sem voru að kaupa af mér búa í sama stigagangi og hún í Stigahlíðinni. Þau eru að undirbúa flutning og mér skilst að nágrannarnir sem eftir verða sjá mjög á eftir þeim. 

1.11.25

Áttunda nóttinn, sú fyrsta í nýja rúminu

Það er kominn 1. nóvember, sextíuogeinn dagar eftir af árinu ef þessi laugardagur er talinn með og ég nýkomin á fætur eftir að hafa sofið fyrstu nóttina í nýja rúminu á Sealy Portland City heilsudýnu. Í gærmorgun var ég mun fyrr á ferð á fótum og nær þeim tíma sem ég er oftast komin á stjá um og upp úr sex. Prófaði sturtuna í fyrsta skipti. Það var alveg ágætt en mér finnst þó best að þvo mér í sturtunum í sundlaugunum. Morguninn leið frekar hratt við ýmis misgáfuleg "verkefni". Á tólfta tímanum hringdi ég í Davíð Stein og var hann tilbúinn að koma og setja saman nýja rúmið með mér. Hann mætti um eitt og vatt sér beint í verkefnið. Ég var aðeins búin að undirbúa en var svo svona handlangari að mestu. Borvélin mín kom að mjög góðum notum. Klukkan var sennilega um hálfþrjú þegar rúmið var komið upp. Settum lak á en svo lauk ég við að búa um eftir að sonurinn fór um hálffjögur leytið. Sátum fram að því inn í stofu og spjölluðum um eitt og annað. 

31.10.25

Prófaði svefnsófann í nótt

Ég var snemma á fótum í gærmorgun og var bara að sýsla hér heima við fram yfir hádegi. Um eitt leytið rölti ég í Krónuna og kom heim aftur fyrir tvö með tvo poka. Um þrjú leytið var loksins hringt vegna nýja rúmsins, að allt væri komið og ég spurð hvort ég vildi sækja það. Ég sem hélt að ég hefði beðið ákveðið um að það yrði sent með bíl og auka manni í burð. Bað um það og mér var sagt að þeir myndu koma einhvern tímann milli fjögur og sjö. Klukkan var reyndar langt gegnin í átta þegar sendingin kom loksins. Var löngu búin að tæma gestarúmið, brjóta það saman og setja ofan í poka. Svo það var gott pláss fyrir "dótið" í herberginu. Það var hins vegar bæðið orðið rökkvað og tíminn þannig að ég vildi ekki vera með hávaða. Ekki heldur viss um að það væri nóg fyrir mig að verða aðeins ein og með borvél í verkinu. Þannig að um hálftíu leytið bjó ég um mig í svefnsófanum í stofunni. Annars hringdi ég í Ellu vinkonu í gær. Hún var akkúrat með gest en hringdi til baka rétt fyrir þrjú. Við vorum akkúrat í miðju samtali þegar var hringt frá Dorma.

30.10.25

Hvar er nýja rúmið mitt?

Ég lét bílinn alveg vera í gær líkt og í fyrradag. Hefði sennilega samt átt að sópa aðeins af honum og moka snjóinn fyrir aftan bílinn. En í staðinn var ég að duna hér heima við að mestu. Fór þó líka í hálftíma göngutúr um nær umhverfi, hring um Linda-hverfi. Notaði gönguskóna sem Davíð Steinn gaf mér fyrir nokkru. Hann hafði keypt þá á sig en þegar til kom voru þeir of litlir. Eru alveg passlegir á mig og mjög góðir. En þar sem ég var að ganga á þeim í fyrsta skipti ákvað ég að vera ekki að ganga of langt. Var þó eitthvað að spá í að labba yfir í Krónuna en ákvað að það mætti alveg bíða aðeins lengur. Það væri líka skynsamlegt að útbúa lista yfir það helsta sem fer að vanta. 

29.10.25

Ekkert á ferðinni í gær

Svaf til klukkan að ganga átta í gærmorgun. Veit þó að ég rumskaði einhvern tímann skömmu eftir miðnætti og það tók smá tíma að sofna aftur. Skrifa það á alls konar spenning. Varð ekki beint andvaka og ég lét það ekki eftir mér að kveikja á símanum, nema til að athuga tímann, eða lampanum til að fara að lesa. Þegar ég kíkti svo út um gluggann eftir að ég fór á fætur varð mér ljóst að ég væri ekkert að fara neitt á bílnum. Hefði getað skroppið í smá göngu og verið aðeins duglegri við að sýsla hérna heima en einhvern veginn leið samt dagurinn og það frekar hratt. Um sex leytið setti ég upp hýðishrísgrjón í einn pott og afhýddi sæta kartöflu og skar niður ásamt einni vænni gulrót í pott og bætti blómkáli saman við. Með þessu borðaði ég smá súrkál. Ágætis kvöldmatur og það er afgangur sem vel er hægt að borða kaldan. 

28.10.25

Það snjóar og snjóar

Var komin á fætur upp úr klukkan sex í gærmorgun og í Laugardalslaug rúmum klukkutíma síðar. Synti 300m á braut 8. Þegar ég var að slaka á, í sjópottinum, og svara ungri konu um í hvaða sveit ég ólst upp spurði einn eldri maður, fastagestur, hvort afi minn hafi verið Oddur Oddsson frá Heiði. Sagðist hafa þekkt hann af afspurn.  Var mætt í osteostrong rétt rúmlega hálfníu. Fór heim og var að sýsla við eitt og annað í rólegheitum fram yfir hádegi. Upp úr hádeginu gerði ég ferð í Ikea, þar fann ég skógrind og einnig betri fætur undir ikea-mubluna í herberginu. Ætlaði að skreppa í fiskbúð Fúsa en þar var lokað vegna vetrarfrís. Skrapp í LÍ í Borgartúni og fékk útprentað skjal og smá leiðbeiningar varðandi gjaldkeraskipti í húsfélagi. Fór síðan heim aftur. Hringdi í pabba og báða syni mína til að spjalla við tvo af þeim en ég fékk Davíð Stein til að kíkja yfir seinni partinn eða á sjötta tímanum og hjálpa mér að skrúfa fæturnar undir og reisa við mubluna í herberginu. Hann hefði helst viljað setja upp ledljósin í eldhúsið og herbergið en bæði fannst mér orðið of skuggsýnt og ég var ekki viss um að eldhústrappan væri nógu há enda bara tvær tröppur.

27.10.25

Mánudagur

Var komin á fætur skömmu fyrir klukkan sjö. Hætti fljótlega við að fara í sund en var í staðinn að dútla við ýmislegt hér heima. Prófaði m.a. eldavélahelluna í fyrsta skipti og bjó mér til hafragraut. Um eitt leytið fór ég með umbúðirnar af stofumublunum í Sorpu. Á eftir mér í röðinni var bekkjarbróðir Davíðs og konan hans og hjálpaði Sæmi mér að tæma pappann úr bílnum alveg óumbeðið. Þau komust hvort sem er ekki í burtu fyrr en ég var búinn. Þetta tók þó alls ekki langa stund. Næst lá leiðin yfir til tvíburahálfsystur minnar. Þær mæðgur sátu að snæðingi í nokkurs konar morgun/hádegisverði og var mér boðið að njóta með þeim. Við vinkonurnar vorum svo á leiðinni í Ikea. Sonja átti sendingu á Korputorgi og við ákváðum að fara fyrst þangað. Áður en við voru komnar alla leið datt okkur í hug að kíkja í Bauhaus fyrst. Þar fundum við ýmislegt sem sett var í kerru og verslað. Það varð því engin ferð í Ikea í þetta skiptið, töldum okkur vera komnar með allt sem þarfnaðist í bili. Sóttum sendinguna hennar og fórum með hana í Ljósakurinn ég dreif mig heim og þangað kom frænka mín og nafna sem hjálpaði til við undirbúninginn undir söluna á Drápuhlíð. Sonja kom skömmu síðar með vörurnar úr Bauhaus, verkfæri, skrúfur og fleira. Fengum okkur te og drukkum það í stofunni. Það fór vel um okkur í sófanum. Þegar frænka mín var farin ætluðum við Sonja að setja fætur undir lausa ikea skápinn í herberginu. Þegar við snérum honum við sáum við að það var gert ráð fyrir fótum með skrúfum í. Ég þarf þá að fara í Ikea eftir allt saman. Sonja gerði tilraunir til að "vekja" handklæða ofninn en það þarf víst að kalla til pípara í það mál. En það var hægt að setja saman skúffueininguna sem tekur við hlutverki grindanna í herbergisskápnum. Klukkan var farin að ganga sjö þegar við kölluðum þetta gott í bili. Sonja kvaddi og ég sýslaði smávegis í viðbót áður en ég "dagaði" uppi í nýja hægindastólnum fyrir framan sjónvarpið. 

26.10.25

Mublur í stofuna

Svaf alveg þokkalega en ekki óslitið fyrstu nóttina í Núpalind.  Þurfti að fara á salernið um tvö og fannst svolítið of kalt að fletta af mér sænginni. Ofnarnir voru stilltir á minna en 3 og þrátt fyrir að fagna kuldanum í sjónum og þeim kalda þá fannst mér ekki þægilegt að trítla fram á bað. Samt svo skrítið að ég fann ekki fyrir þessu að deginum til. Fór á fætur um sjö leytið og var klukkan byrjuð að ganga níu þegar ég lagði af stað í Laugardalslaugina. Þar var mjög rólegt, amk í kvennaklefanum. Fór beint á braut 7 og synti 600m. Var komin heim aftur um hálfellefu. Systir mín hringdi í mig um hálfeitt og rétt eftir að við hættum að spjalla var hringt í mig vegna sófans, hægindastólsins og sófaborðsins. Þetta var allt komið inn á stofugólf til mín upp úr klukkan eitt. Stóllinn í einum stórum kassa, sófaborðið í einum kassa og sófinn í þremur "kössum" eða viðamiklum plast og pappaumbúðum. Hringdi strax í tvíburahálfsystur mína og hún kom um tvö leytið með verkfæri með sér. Hún sá eiginlega alfarið um að púsla þessu saman. Ég gekk að mestu frá pappanum og plastinu og var svo að styðja við eða hjálpa til við að lyfta þegar/ef það átti við. Svitinn bogaði af okkur báðum. Ég opnaði út á svalir og varð skömmu síðar að opna rifur á þá hluta sem loka svölunum því það myndaðis móða innan á plexíglerið. Klukkan var farin að ganga sjö þegar mublurnar voru komnar saman og búið að stilla þeim upp. Sonja kvaddi á áttunda tímanum og ég eyddi kvöldinu til klukkan að ganga tíu í rafmagns-hægindastólnum.

25.10.25

Fyrsta nóttin í Núpalind

Ég var komin í Núpalind rétt um tíu í gærmorgun. Hafði allt dótið með mér úr vesturbænum, blómin og töskuna, því ég var að vona að nýja rúmið yrði sent til mín í gær. Var eitthvað að sýsla hér heima aðeins fram yfir hádegi. Um hálftvö fékk ég mér göngutúr á Smáratorg sem er aðeins í uþb 1km fjarlægð. Fór fyrst í Jysk og skoðaði sófann, sem ég sá um daginn, betur og einnig hægindastól. Gaf mér góðan tíma í þetta en ákvað svo að rölta yfir í Dorma og leita frétta af rúminu. Gámarnir komu víst fyrri partinn í vikunni en sá gámur sem helst var beðið eftir var ekki opnaður fyrst svo rúmið er ekki að koma fyrr en eftir helgina. Dorma og Jysk eru auðvitað sitthvort fyrirtækið og ekki hægt að sameina sendingu frá þeim. Prófaði samt að spyrja. Ég fór svo aftur yfir í Jysk og spurði hvenær sófinn, stóllinn og borðið myndu koma ef ég keypti núna. Ég var það ánægð með svarið að ég staðgreiddi hlutina. Þarf svo að borga flutningamönnunum þegar þeir koma með þá upp úr hádegi í dag. Var komin heim aftur stuttu áður en beina útsendingin frá Lækjartorgi/Arnarhól hófst. Tvíburahálfsystir mín hringdi um fjögur og kom upp úr fimm með gesta rúm pakkað í kassa. Hún stakk því í samband inni í herbergi og snéri rofa svo það blés út í ágætis stærð. Hún var líka með lak til að lána mér. Svo settumst við fram í eldhús, fengum okkur te og spjölluðum. Hún aðstoðaði mig líka við að skrá mig hjá vinnumálastofnun. Á áttunda tímanum ákváðum við að fara yfir til hennar og horfa á þáttinn um Vigdísi Finnbogadóttur. Hún fór á undan því ég ákvað að búa alveg um mig og fara yfir á mínum bíl. Var mætt rétt áður en þátturinn hófst og horfði einnig á þáttinn á eftir. Var komin heim á ellefta tímanum.

24.10.25

Afhenti Drápuhlíðina seinni partinn í gær

Vaknaði rétt fyrir sjö í gærmorgun eftir mjög góðan nætursvefn. Fór þó ekki á fætur fyrr en rúmlega átta. Synti morgunverkunum á baðherberginu, fékk mér vatnsglas og tók með mér sunddótið þegar ég fór úr húsi um hálfníu. Var komin í Drápuhlíðina tíu mínútum fyrir  níu. Einn frá þrifafélaginu var þegar mættur. Ég hleypti honum inn, sýndi hvað ég vildi láta gera varðandi sameignar-gólfflötinn, afhenti honum húslykla og stakk svo af í sund. Sundrútínan var alveg þveröfug miðað við flesta sunddaga því ég endaði á því að synda. Geri það reyndar stöku sinnum. Eftir tæpa tvo tíma í Laugardalnum fór ég í Krónuna í Lindum áður en ég fór heim á nýja staðinn. Fljótlega eftir að ég kom í Núpalindina hringdi fasteignasalinn í mig og sagði að kaupendurnir af Drápuhlíðinni væru aftur farin að spyrja hvenær þau gætu fengið afhent. Hún ráðlagði mér að hringja í þau og segja þeim stöðuna, að verið væri að þrífa, og spyrja hvenær þau vildu fá afhent. Ég hringdi í unga manninn og hann var meira en til í að fá eignina strax eftir að búið væri að þrífa. Ég hélt að það yrði kannski milli fjögur eða fimm. Klukkan að byrja að ganga sex var ég ekki búin að fá símtal frá þrifafélaginu en ég var mætt í Drápuhlíðina og ákvað að fara inn og athuga málin. Þar var svona ca hálftíma verk eftir. Ég mátti samt alveg hringja í nýja eigendur og stefna þeim á staðinn. Þau komu öll fjölskyldan og bóksaflega mættu þrifafólkinu í innkeyrslunni. Nýju tilvonandi íbúarnir afhentu mér blómvönd í vasa um leið og þau komu inn. Ég sýndi þeim svo alla króka og kima. Þau voru öll frekar spennt og glöð og mér skilst að framkvæmdir byrji strax um helgina en þau þurfa ekki að afhenda eignina sem þau eru að fara úr fyrr en eftir miðjan nóvember. Annars bólar ekkert á nýja rúminu mínu. Eftir afhendinguna fór ég því aftur til norsku esperanto vinkonu minnar.

23.10.25

Gisti í 101 Reykjavík

Ég var komin á fætur um hálfsjö leytið í gærmorgun um tveimur tímum áður en ég átti von á flutningabíl og þremur mönnum. Tólf mínútum fyrir níu var hring og sagt að þeir væru á leiðinni og var klukkan rétt byrjuð að ganga tíu þegar flutningabílnum var bakkað inn innkeyrsluna næstum alla leið að tröppunum. Þeir byrjuðu á að taka þvottavélina áður en þeir fóru að bera út dótið sem ekki átti að fara yfir. Einn flutningamannanna spurði mig hvort hann mætti eiga rúmdýnuna sem var að sjálfsögðu í góðu lagi mín vegna. Hann vildi helst ekki taka "ömmu"-stofuhillu stæðuna fyrr en ég benti honum á að hann þyrfti ekki að henda henni heldur gæti sett hana í nytjagám. Rétt fyrir tíu renndi flutningabíllinn í burtu. Ég fór með slatta af dóti í bílinn minn og var komin með það alla leið inn á nýja lögheimilinu fyrir klukkan ellefu. Ekkert löngu seinna hringdi einn af flutningamönnunum og bað mig um að senda þeim nýja heimilisfangið á sms-i, sem ég og gerði. Engu að síður villtust þeir og fór á Nýbýlaveg 6 fyrst en ekki Núpalind. En þeir voru komnir fyrir tólf og tengdu meira að segja fyrir mig þvottavélina. Fljótlega eftir að þeir voru farnir fór ég aðra ferð eftir dóti í Drápuhlíðina, það var næstsíðasta dótaferðin. Það var eiginlega bara eftir stofuborðið sem ég fékk gefins í sumar. Stuttu fyrir hálftvö var hringt í mig af tæknimanni frá Mílu hann var laus og vildi athuga hvort hann mætti koma strax eða á umsömdum tíma um tvö. Ég var rétt ókomin heim á nýja staðinn og sagðist líklega myndu hitta á hann í anddyrinu. Tæknimaðurinn tafðist vegna umferðaslyss í Ártúnsbrekku svo ég var búin að koma dótinu inn áður en hann kom. Það tók hann eitthvað á annan tíma að tengja en ég var líka komin með net og sjónvarp áður en hann fór. N1 sonurinn kom stuttu eftir að tæknimaðurinn var farinn. Hann skoðaði sig um í íbúinni áður en við fórum saman á mínum bíl í síðustu dótaferðina í Drápuhlíð. Davíð Steinn fékk að skoða galtóma íbúðina áður en hann bar sófaborðið út í bíl. Þegar við komum aftur í Núpalind tengdi hann hátalaraboxið við sjónvarpið og límdi tappa á alla stólana. Þegar til kom vantaði engan tappa undir neina af þessum 24 stólfótum. Við mæðgin kvöddumst fyrir utan nýja staðinn um sex leytið, hann brunaði á núverandi íverustað sinn en ég vestur í bæ til norsku esperanto vinkonu minnar þar sem ég fékk að gista sl. nótt.

22.10.25

Drápuhlíðin tóm

Í gærmorgun var ég mætt á braut 8 rétt fyrir klukkan hálfátta. Synti 600 metra og gaf mér góðan tíma í alla aðra rútínu. Var komin heim fyrir klukkan hálftíu. Bjó til hafragraut og setti helminginn af honum í skál. Það stóð til að fara eina ferð yfir í Núpalindina en einhvern veginn þróaðist dagurinn þannig að ég var að undirbúa eitt og annað. T.d. að aftengja sjónvarpið og pakka leiðslum og dóti saman. Nágranninn hjálpaði mér að undibúa flutning á þvottavélinni. Tvíburahálfsystir mín mætti stuttu fyrir fimm og við byrjuðum á því að fá okkur te. Vorum svo að byrja að ferma bílana þegar Hulda og Óli kíktu við. Hún var að skila mér húslyklum af Drápuhlíðinni. Ég var að hitta kærastann hennar í fyrsta skipti en mátti alveg knúsa hann og hann tók að sér að flytja sjónvarpið út í bíl. Þau ætla svo að kíka seinna á mig á nýja staðnum. Við Sonja fórum eina ferð með dót í tveimur bílum í Núpalind. Fórum svo heim til hennar, sóttum bókahillu sem hún var að gefa mér og fórum með hana yfir á mínum bíl. Á eftir bauð hún mér heim til sín í kjötsúpu. Ég villtist aðeins á leiðinni, eða gleymdi mér, því ég er ekki vön að keyra úr Núpalind yfir í Ljósakurinn. En ég þurfti samt ekki að keyra langt til að snúa við. Var komin í Drápuhlíð fyrir klukkan níu og gisti allra síðustu nóttina þar. Hvenær ég mun skrá niður atburði dagsins í dag verður að koma í ljós en þar sem ekki er komið rúm í Núpalindina fæ ég að gista hjá norsku vinkonu minni og manninum hennar núna næstu nótt. 

21.10.25

Allt á réttri leið

Gærdagurinn hófst eldsnemma. Klukkan var samt farin að ganga átta þegar ég mætti í Laugadalslaugina. Fór á braut 2 og synti 400m. Úr kalda pottinum fór ég bein í sjópottinn. Var mætt í osteostrong um hálfníu. Þar var bara einn starfsmaður, engin mússík og eitt tækið ekki komið í samband. Starfsmaðurinn var þó að sinna einum kúnna og annar sat í sófanum. Ég stimplaði mig inn og settist í sófann og spjallaði við manneskjuna sem þar var fyrir. Sú sagði svo að ég væri á undan í röðinni. Ég var nýbúin að gera æfingar á tækjunum, líka því sem ekki var hægt að fá niðurstöður á, þegar annar starfsmaður mætti í hús og kom málunum í lag. Var komin heim rétt upp úr klukkan níu. Bókaði flutningabíl fyrir dót í sorpu og þvottavélina á miðvikudagsmorguninn og flutningsþrif á fimmtudagsmorguninn. Um hálfellefu kom sms frá málaranum um að hann væri alveg að verða búinn. Bað mig um að kíkja yfir og senda sér skilaboð ef ég sæi eitthvað sem þyrfti að laga. Ég fékk norsku esperanto vinkonu mína með mér í þessa ferð og tók ég að sjálsögðu eitthvað af dóti með yfir. Aðeins átti eftir að setja upp ljós og rofa í þvottaherberginu en það var vegna þess að seinni umferðin hafði verið máluð um morguninn. Íbúðin er alveg stórfín. Við Inger tókum með okkur gardínustöng og einn spegil og sóttum annan sem er búinn að vera inn í herbergisskáp í Drápuhlíðinni og fórum með þetta í nytjagám áður en ég skilaði henni heim. Restin af deginum fór í alls konar sýsl, dútl og undirbúning undir loka flutninga héðan. Á eftir að gista eina nótt en þar sem sjónvarpið og ráterinn verða flutt yfir í Núpalindina seinni partinn í dag eða kvöld er óvíst hvenær ég kemst í netsamband aftur til að setja inn færslur. Það verður því sennilega nokkura daga pása frá blogginu. Það verður þá bara frá meiru að segja þegar næsta færsla verður sett inn.

20.10.25

Styttist í loka flutninga

Vaknaði upp úr klukkan sjö og var komin á fætur um hálfátta leytið. Eftir morgunverkin á baðherberginu eyddi ég rúmri klukkustund í tölvunni hans pabba. Um níu leytið var ég sest inn í eldhús og lagði nokkra kapla. Einn kapallinn sem gengur frekar sjaldan upp gekk upp í annarri lögn. Morguninn leið annars frekar hratt. Í hádeginu kláraði ég afganginn af saltfisknum frá því kvöldið áður á meðan pabbi fékk sér skyr. Svo tók ég mig saman, kvaddi pabba og var komin í bæinn um hálftvö leytið. Fékk stæði fyrir framan no 15. Ég hafði hugsað mér að fara amk eina ferð með dót yfir í Núpalindina en fannst bíllinn aðeins of langt í burtu. Auðvitað hefði ég getað talað við nágrannann um að fá að leggja í smástund í innkeyrsluna, en ég notaði þetta frekar sem afsökun til að sjá aðeins til. Og viti menn um þremur korterum síðar losnuðu tvö stæði fyrir framan. Fór með létt dót með mér út í bíl og þegar ég var búin að keyra hringinn og var að beygja inn í götuna sá ég að hornstæðið var líka orðið laust og lagði þar. Fór þrjár ferðir inn eftir dóti, m.a. annað náttborðið, einn plastkassi með prjónadótinu í, pappakassi með bókum og einnig tók ég öll lóðin með. Ég byrjaði samt á að fara á Kringlusafnið og skila þremur bókum af fjórum. Tók tvær bækur í staðinn og er önnur þeirra ljóðabók; Til hamingju með að vera mannleg eftir Sigríði Soffíu Níelsdóttur. Áður en ég hélt för áfram hringdi ég í tvíburahálfsystur mína. Hún var rétt nýkomin í bæinn, búin að setja upp slátur og að bjóða dóttur sinni og pabba hennar í mat en hún var samt til í að koma með mér. Ég byrjaði þó á því að stoppa hjá henni og þyggja hjá henni tesopa svo feðginin voru komin áður en við fórum. Málarinn var greinilega búinn að vera að vinna í íbúðinni og líklega bara eftir að fara seinni umferðir á baðherbergið og þvottaherbergið og klára að setja aftur upp rofa. Tókum eftir því að yfirbyggðu svalirnar voru opnar á einum stað. Fattaði samt ekki að loka honum svo ég hrökk upp eldsnemma í morgun við hugsunina um að hvort það væri örugglega ekki í lagi þótt þetta væri opið. Veit ekki hvort málarinn kemur í dag því hann talaði um að skila af sér um miðjan dag á þriðjudaginn og hann byrjaði vinnunna sl. þriðjudag. Ég ætla amk að skreppa fljótlega eftir sund og osteostron og get tekið stóru ferðatöskuna og ryksuguna með mér í leiðinni. 

19.10.25

Sunnudagur

Ég var mætt á braut 8 í Laugardalslauginni tuttugu mínútum yfir átta í gærmorgun. Synti 400 metra þar af 100 metra skriðsund. Þegar ég var að koma úr kalda pottinum, fyrstu ferðinni af þremur, sá ég einn frænda minn sem vinnur í World Class, vera að fara í heitasta pottinn. Ég ákvað að fara að heilsa upp á hann og pottinn og elti hann svo í þann kalda. Með þessu náðum við uþb fimm mínútnar spjalli áður en hann þurfti að fara að stjórna tíma í líkamsræktarstöðinni og ég fór í gufu. Var komin heim upp úr klukkan hálftíu. Hafði verið að spá í að skreppa eina ferð með dót yfir í Núpalindina en ákvað að taka því rólega fram að hádegi. Fékk mér hressingu og pakkaði niður fyrir ferð til pabba. Upp úr klukkan tólf fór ég með mestallt jólakortadótið, handavinnutöskuna og tösku út í bíl. Jólakortadótið var fyrirferðamest en það, ásamt handavinnutöskunni komst þó fyrir í skottinu og ég setti töskuna í aftursætið. Kom við í Fossheiðinni og þáði tesopa. Þar hitti ég einnig fyrir tvíburahálfsystur mína og nágrannakonuna því það var allt á fullu í sláturgerð. Ég var komin til pabba um hálfþrjú leytið. Hann hafði verið sóttur um tíu af tveimur sundfélögum sínum sem fóru með hann í óvissuferð. Hann hélt að hann væri að fara með þá á sömu slóðir og þeir fóru fyrir ári síðan þegar hann var níræður en félagarnir komu honum verulega á óvart. Hann hafði samt alveg jafn gaman af þessu uppátæki þeirra. Pabbi var kominn úr þessari skemmtiferð þegar ég mætti á svæðið. Um hálfsex mættu Jóna Mæja og Reynir á svæðið. Pabbi var þá búinn að hella upp á könnuna og setja upp saltfisk, kartföflur og rófu í einn pott á hægri suðu. Suðan var það hæg að við gátum horft á kvöldfréttir áður en sest var að borðum.

18.10.25

Pabbi 91 árs í dag

Ég var mætt á braut 8 og byrjuð að synda um hálfátta í gærmorgun. Synti 600 metra á uþb 28 mínútum, flestar ferðir á bakinu. Fór tvisvar í þann kalda, fyrir gufuferð og eftir ferð í sjópottinn. Þvoði mér um hárið á leiðinni upp úr úr og var komin aftur fyrir klukkan hálftíu. Sýslaði ýmislegt hér í Drápuhlíðinni til klukkan langt gengin í eitt. Þá fór ég með nokkra poka og einn kassa út í bíl. Sótti Inger, norsku esperanto vinkonu mína og við byrjuðum á því að fara með þetta dót í nytjagám, spilliefni og almenna draslið í Sorpu. Síðan fórum við yfir í Drápuhlíðina og fermdum bílinn fyrir eina ferð yfir í Núpalind. Dótið sem við fórum með fór allt í geymsluna á fyrstu hæðinni. Síðan fórum við upp í íbúð og tæmdum úr, ferðatöskunni sem ég fór með yfir í fyrra dag, inn í fataskáp í herberginu. Taskan kom með okkur í bílinn. Skruppum í Sports Direct. Aldrei þessu vant voru ekki til uppáhalds sundbolirnir mínir, amk ekki í minni stærð. Fórum aðeins aftur í Núpalindina til að nota salernið en svo fórum við á Smáratorg og skoðuðum sófa og hægindastóla bæði í Dorma og í Jysk. Klukkan var að ferða fjögur þegar við ákváðum að kalla þetta gott. Ég skutlaði vinkonu minni heim og var sjálf komin heim rétt um hálffimm. Fór með leikfangabrunabílinni, sem er búinn að standa vaktina í glugganum á geymslunni í mörg ár, yfir í no 19 og gaf strákunum þeirra Ebbu og Indriða hann. Gerði svo sem ekki mikið meira í gær nema ég setti rúmföt og prjónaðar tuskur, teppi og sjöl í ferðatöskuna. 

17.10.25

Búið að mála loftin

Klukkan var að verða hálfátta þegar ég vaknaði í gærmorgun eftir smá köflótta nótt. Tók því bara rólega framan af morgni. Haft var samband við mig frá símanum varðandi flutning yfir í Núpalindina. Þeir þurfa að koma til að setja upp box fyrir mílu. Ég hafði valið 21. og valdi svo tímann um tvö eftir hádegi. Um ellefu fór ég í Húsgagnahöllina til að athuga hvort þeir vissu eitthvað um eldhússtólana sem eru í Núpalindinni. Ef þeir voru seldir þarna þá eru meira en fimm ár síðan og mér var bent á Byko eða Bauhaus til að athuga hvort ég fengi tappa undir stólfæturnar. Gjóaði aðeins augum á sófa en skrapp svo í vinnuna til N1 sonarins. Ekki er alveg ljóst enn hvenær stöðin við Gagnveg verður lokuð en þegar það gerist færist Davíð Steinn á stöðina í Borgartúni. Jafnaði þrýstinginn á dekkjunum áður en ég fór heim og eldaði mér þorsk, kartöflur og gulrætur í hádeginu. Um það leyti sem ég ætlaði á stúfana aftur, um tvö, hringdi frænka mín og nafna í mig. Sú sem hjálpaði mér að undirbúa opna húsið. Eftir ágætis spjall við hana var ég nýbúin að leggja á þegar málarinn hafði samband. Sagði að búið væri að fara tvær ferðir yfir loftið og óhætt að flytja meira dót yfir, bara setja það sem ekki færi í skápa í miðjuna á gólfunum. Lendingin er svo sú að um miðjan dag á þriðjudaginn kemur verði búið að mála tvær umferðir yfir glugga og veggi og íbúðin aftur tilbúin til afhendingar. Hringdi og spjallaði aðeins við tvíburahálfsystur mína áður en ég fór með slatta af dóti út í bíl. Áður en ég lagði upp í leiðangur sendi ég fyrirspurn á símann um hvort hægt væri að færa bókaða tímann um einn dag. Kom aðeins við í Byko í Kópavogi áður en ég fór með dótið yfir í Núpalind. Sumt fór í skápa en eitthvað á gólfið í svefnherberginu þar sem málarinn er með dót frá sér í stofunni. Tók með mér ljósakrónuna sem var í loftinu í herberginu. Hringdi svo í norsku vinkonu mína og spjallaði við hana á meðan ég var á leiðinni heim. Kom heim stuttu fyrir sex.

16.10.25

Fór á húsfund í Núpalindinni

Líklega er heldur snemmt að fara að sofa fyrir klukkan tíu en ég svaf þó samfleytt í heila sjö tíma áður en ég rumskaði. Var komin á fætur fyrir klukkan hálfsex og var að sýsla hér heima við til klukkan langt gengin í ellefu. Þá dreif ég mig í Nauthólsvík. Fékk stæði við einn braggann og var komin út í 8,6°C sjóinn korter yfir ellefu. Synti út að kaðli. Fór beint í gufu og svo smástund aftur út í sjó. Var komin heim aftur um hálfeitt og hélt sýslinu áfram. Um hálfsex lagði ég af stað yfir í Kópavoginn. Umferðin var þung en ég var komin tíu mínútum fyrir sex og á þeim tíu mínútum náði ég að fara tvisvar upp í íbúð og var svo mætt í bílageymsluna á húsfund á slaginu sex. Eignarekstur hafði boðað tilfundarins með góðum fyrirvara og áttu að sjá um hann. Enginn fulltrúi frá þeim mætti hins vegar á svæðið. Ákveðið var þó að halda stuttan fund sem fjallaði um tilboð í viðgerð á þakinu. Innan við hálftíma síðar var ég komin út í bíl. Hringdi í tvíburahálfsystur mína og það varð úr að ég fór beinustu leið til hennar. Hún var að græja kvöldmatinn þegar ég mætti og bauð hún mér að borða með sér. Spjölluðum um eitt og annað. Ég var komin heim um hálfníu orðin smá þreytt eftir langan dag. Fór þó ekki alveg beinustu leið í rúmið, enda heldur snemmt.

15.10.25

Mið vika og október uþb hálfnaður

Vaknaði eiginlega alltof snemma í gærmorgun. Fór þó ekki á fætur fyrr en um hálfsex. Var mætt í Laugardalslaugina rétt upp úr klukkan sjö og fór beint á braut 8. Ég var komin heim aftur fyrir klukkan hálftíu. Afgangurinn af morgninum fór í róleg heit og smá dútl. Hringdi reyndar í Huldu frænku mína og spjallaði smá stund við hana. Hún og kærasti hennar voru svo að fara norður um hádegisbilið og ætla að vera í nokkra daga. Um hálfeitt leytið kom norska vinkona mín yfir. Við byrjuðum á því að fá okkur te en svo fórum við yfir handklæði og þurrkustykki. Sumu var pakkað niður, eitthvað fór aftur inn í skáp í bili og svo setti ég eina þvottavél. Fórum líka yfir nokkra hluti sem enn voru í búrinu. Málarinn hringdi í mig um tvö leytið, sagði að þeir væru að byrja og fékk það alveg staðfest hjá mér að það mætti taka niður veggljósin í stofunni og ljósakrónuna í svefnherberginu. Inger kvaddi um og upp úr miðjum degi. Ég greip í eina bók af safninu, þá næstsíðustu ólesnu af safninu; Fuglaskoðarinn eftir Stefán Sturlu og kláraði hana. Þá á ég bara eftir að lesa KUL eftir Sunnu Dís Másdóttur.

14.10.25

Fjárfestingar

Aðfaranótt gærdagsins var í smá rugli og hálf köflótt, sennilega vegna spennings. Náði þó loksins að sofna aðeins aftur og vaknaði rétt fyrir hálfátta. Rúmum hálftíma seinna labbaði ég í osteostrong tíma. Var komin heim aftur skömmu fyrir hálftíu. Klukkan að verða tvö lagði ég af stað í smá leiðangur. Byrjaði á því að fara í Byko vestur á Granda. Spurðist fyrir um innstungulokið eða hvað það kallast og var sagt að það fengist í Byko í Kópavogi. Keypti trélím og bakka til að halda hnífapörum aðskildum. Í Kópavogi fann ég þvottagrind áður en ég fann einhvern til að aðstoða mig við að finna varahlutinn sem mig vantar. Næst lá leiðin í Dorma við Smáratorg. Rölti um svæðið þar sem rúmin voru og tók mynd af ákveðnu rúmi. Enginn kom að aðstoða mig fyrr en ég var á leiðinni út eiginlega til að skoða fleiri möguleika í öðrum verslunum. Ákvað að þyggja aðstoðina og sagðist vera að leita að besta rúminu. Og viti menn við fórum beint að rúminu sem ég hafði tekið mynd af. Þá ákvað ég að ég þyrfti ekkert að leita lengur og að ég myndi kaupa meira en rúmið, dýnuna og hlífðarlak, bætti við sæng, kodda og sængurverasetti. Koddinn og rúmdýnan eru ekki að koma fyrr en í næstu viku en ég gat tekið hlífðarlakið, sængina og sængurverasettið með mér. Fyrir þetta greiddi ég um 230þúsund. Fór á einn stað í viðbót áður en ég fór heim. Skildi þetta eftir úti í bíl og var eitthvað að spá í að gera mér ferð í Núpalindina um eða eftir kvöldmat. Ekkert varð þó úr því. Sauð mér fiskibollur, kartöflur og gulrætur í kvöldmatinn og borðaði helminginn af skammtinum.

13.10.25

Anna borð - Birna borðstofuborð

Var komin á fætur upp úr klukkan hálfsjö í gærmorgun. Rúmum einum og hálfum tíma síðar var ég mætt á braut 8 í Laugardalslauginni. Synti 500 metra, var 6 mínútur í þeim kalda, uþb korter í gufunni og dagaði svo næstum því uppi í sjópottinum. Þar hitti ég m.a. eina sundvinkonu mína sem bað mig helst um að hætta ekki að mæta í Laugardalslaugina þótt ég væri að flytja í Kópavoginn. Kom heim stuttu fyrir hálfellefu. Sýslaði ýmislegt fram yfir hádegi og hugsaði m.a. næstu skref. Esperanto vinkona mín kom labbandi úr vesturbænum um eitt. Bauð henni upp á te og svo hjálpaði hún mér að fara yfir stóran hluta af því sem eftir var í fataskápnum. Sumt þarf að skola aðeins úr í þvottavél og sumt ákvað ég að myndi fara í fatagám. Settum svo eitthvað meira úr kassa úr eldhúsinu og ég tæmdi að mestu það dót sem var eftir í baðherbergissúffunum. Fljótlega eftir að tvíburahálfsystir mín mætti á svæðið fórum við í að ferma bílana. Nú er nánast búið að tæma geymsluna. Bílarnir fylltust reyndar ekki en við ákváðum engu að síðar að bruna yfir í Kópavoginn. Fengum stæði á planinu framan við innganginn. Sumt af dótinu fór niður í geymslu. En fórum líka með slatta upp í íbúð og gengum frá í skápa og skúffur svo það verði ekki fyrir málaranum. Ég skutlaði Inger heim til hennar. Sonja skrapp aðeins heim til sín að ná í nokkra hluti en hún kom aftur í Drápuhlíðina rétt á eftir mér. Við nánast kláruðum að pakka eldhúsið niður. Það eru flestir skápar tómir, bara eftir í einni hillu í einum skáp. Ég setti líka megnið af sorteruðum fötunum í stóran glæran kassa og einn poka. Ég átti von á konunni sem ákvað að taka borðstofuborðið um sex leytið. Hún og dóttir hennar komu rétt fyrir hálfsjö og þá hittist svo vel á að innkeyrslan var laus. Þær mæðgur voru með einhver verkfæri til að skrúfa boðið í sundur og það vildi svo vel til að Sonja gat lánað þeim skrúfjárn. Allt komst fyrir í bílnum og stólarnir fjórir líka. Eftir að mæðgurnar voru farnar fermdum við bílinn hennar Sonju og fórum eina ferð á einum bíl í Núpalindina. Gengum frá dótinu og komum til baka með balann og kassana. Þá var klukkan langt gengin í átta og við stöllur orðnar sáttar og ánægðar með dagsverkið. Þvílíkur munur að fá svona góða aðstoð, bæði við að pakka, yfirfara hluti og ganga frá þeim á hinum staðnum. En það er líka frekar tómlegt í holinu þar sem borðstofuborðið var undanfarin rúmu 21 ár. 

12.10.25

Aðeins byrjuð að færa dót yfir með góðri aðstoð

Vaknaði um hálfsjö í gærmorgun. Var mætt í sund um átta rétt eftir að opnaði. Fór beint á braut 7 og synti 500 metra þar af 200 skrið. Hitti eina miðjunafns nöfnu mína í kalda pottinum og sat fyrir vikið í honum á sjöundu mínútu. Hitti hana aftur í gufunni og þá sagði hún mér að hún væri tvíeggja tvíburi. Var mætt á Sólvallagötuna rétt fyrir tíu og komin heim fyrir hálftólf. Tvíburahálfsystir mín sótti mig um eitt og við skruppum í Slippfélagið til að skoða liti. Valdi 1/2 Hör, sem er vinsælasti liturinn í dag, og sendi málaranum sms. Fórum yfir í Drápuhlíðina en Sonja varð reyndar að leggja bílnum á stæði við Blönduhlíð. Það var mikil rigning og við veltum því fyrir okkur hvort við þyrftum að skera niður stóra plastpoka til að vernda kassana. Sonja þvoði upp hnífana og dótið í hnífaskúffunni. Ég tók frá þau eldhúsáhöld sem ég þarf á að halda hérna í Drápuhlíðinni. Pökkuðum slatta af hinu niður og einnig eldhústækjum sem ég vissi að ég gæti sett í skápa í Núpalindinni. Tvíburahálfsystir mín setti borðstofuborðið og stólana á svæði á Facebook þar sem hlutir eru gefins gegn því að verða sóttir. Hún var nýbúin að pósta auglýsingunni þegar ég fékk fyrstu hringinguna. Sá aðili sagðist geta komið um sjö. Ég fékk einnig aðra hringingu og mér skilst að það hafi komið þónokkrar fyrirspurnin undir auglýsingunni. Það var annars hætt að rigna þegar við byrjuðum að ferma bílinn minn. Svo hafði losnað stæði við hliðina á innkeyrslunni svo Sonja sótti bílinn sinn og við settum slatta í hann líka. Mig minnir að við höfum verið komnar í Núpalindina fyrir klukkan þrjú. Byrjaði á því að sýna Sonju íbúðina en svo fórum við niður á fyrstu hæð þar sem geymslan er. Vorum rétt að verða búnar að tæma úr seinni bílnum þegar ég fékk fyrstu heimsóknina. Frænka mín og nafna, sem m.a. hjálpaði mér að undirbúa opna húsið í Drápuhlíð, og maðurinn hennar komu og fengu skoðunarferð um geymsluna fyrst. Hann hjálpaði okkur með dót í lyftuna og inn í íbúð. Hann sá eitt og annað sem þyrfti aðeins að lagfæra, ekkert stórmál en mjög góðar ábendingar. Gestirnir kvöddu á fimmta tímanum þá var Sonja langt komin með að raða dóti í skúffur og skápa í eldhúsinu. Ég hafði fengið sms frá þeim sem ætlaði að taka borðið um að hann yrði að hætta við vegna plássleysis í bíl. Sem betur fer var ein af þeim sem sendu skilaboð undir auglýsinguna á biðlista og ég var í sms sambandi við hana í gærkvöldi. Við tvíburahálfsysturnar ákváðum svo að láta gott heita og kvöddumst um fimm. Ég kom við í Krónunni í Skeifunni á leiðinni heim þótt Krónan í Lindum væri rétt hjá Núpalind. Sú búð er reyndar alveg stórfín.

11.10.25

Búin að flytja lögheimilið

Spenningurinn yfir að vera að fá íbúðina við Núpalind afhenta var það mikill að ég var vöknuð fyrir klukkan fimm í gærmorgun. Fór í sund um sjö leytið og var komin heim aftur rétt rúmlega níu. Rétt fyrir ellefu var ég mætt í Kópavoginn. Rebekka var þegar mætt. Eftir yfirferð yfir íbúðina fékk ég loksins að sjá geymsluna. Það var nýbúið að klára að tæma hana og einn bróðir hennar var akkúrat að taka með sér síðustu kassana. Fékk þrjú sett af lyklum og vitneskju um að fjórða og síðasta settið myndi skila sér í póstkassann um kvöldið. Eftir að Rebekka var farin fór ég aftur upp í íbúð. Tók nokkur snöpp og myndir og ákvað að skilja eitt lyklasettið eftir. Það er annars engin hætta á að ég muni læsa mig úti því það þarf að læsa utanfrá og það er hægt að tvílæsa. Áður en ég fór heim kom ég við í Fiskbúð Fúsa. Keypti harðfisk, kartöflur, bleikjuflak og þorskhnakkaflak. Þorskinn setti ég í frystinn þegar ég kom í Drápuhliðina. Setti upp kartöflur og rétt sauð svo upp á bleikjunni í vatni krydduðu með sítrónupipar, karrý og cayanne. Eftir matinn ákvað ég að fara á ísland.is og skrá nýtt lögheimili. Um hálftvö sendi ég rafrænan póst á málara sem tvíburahálfsystir mín hafði mælt með. Klukkutíma síðar hringdi umræddur málari og við mæltum okkur mót í Núpalindinni um hálffimm. Ég lagði af stað um fjögur vitandi að umferðin er þung á þessum tíma. Var komin ca sjö mínútum fyrr. Rétt rúmlega hálf hringdi málarinn. Þá var hann reyndar rétt ókominn en hafði aðeins tafist í umferðinni. Hann gerði mér tilboð og mælti með lit en hvatti mig til að fá að skoða litinn í Slippfélaginu. Fékk heitið á litnum og tilboðið í sms. Mér leist það vel á tilboðið að ég afhenti málaranum lykla af útihurð og hurðinni inn í íbúð. Hann og aðstoðamaður hans munu mála tvær umferðir yfir loft, veggi og glugga og í bað- og þvottaherbergi nota mygluvörn. Hann áætlaði að verða búinn um 20. okt. Ég get samt verið að flytja skáp úr skáp og úr geymslu í geymslu og tæmt smám saman hjá mér hér í Drápuhlíðinni. Á einhverjum tímapunkti þarf ég svo að kaupa mér nýtt rúm. Það væri best fyrir málarana að ég hinkraði með það á meðan þeir eru að mála. En til að kóróna daginn þá fékk ég sms frá HHÍ um hálfátta í gærkvöldi um 20.000kr vinning og það eru aðeins þrír mánuðir síðan ég fékk vinning upp á sömu upphæð.

10.10.25

Fæ afhent í dag

Vaknaði um hálfsjö í gærmorgun. Einum og hálfum tíma síðar var ég komin í Laugardalinn. Var rétt á eftir kalda potts vinkonu minni sem var líklega búin að synda um 100m þegar ég kom á braut 7. Synti 500m á uþb 23 mínútum, flestar ferðirnar á bakinu en smá skriðsund með. Á eftir fórum við stöllur fjórar ferðir í þann kalda, eina í þann heitasta, eina í 42°C pottinn, góða ferð í gufuna og sjópottinn. Var komin heim aftur rétt fyrir tíu. Um hálfeitt fékk ég hringingu frá þeirri sem kvittaði upp á sölu á tveggja herbergja íbúðinni á 4. hæð við Núpalind sex og sagðist mundu vilja afhenda mér í dag föstudag. Við komum okkur saman um tíma. Ég varð bæði spennt og slök á sama tíma. Ekkert varð úr neinum göngutúr en ég hef ekkert samviskubit yfir því. Stundum þarf ekki að gera bæði að synda og ganga. Var komin upp í rúm fyrir tíu í gærkvöldi og las í smá stund. Fiðrildin í maganum fara stækkandi, vissan um að allt sé að ganga eftir áætlun og að það fer að sjá fyrir endann á þessum fasteigna viðskiptum og búferla flutningum. Hef uþb þrjár vikur en vonast til að ég verði búin að tæma fyrr, fá þrif og geta afhent Drápuhlíðina einhverjum dögum fyrr en 30. okt nk. Sjáum til og tökum einn dag í einu.

9.10.25

Engin hola

Gærdagurinn byrjaði óþarflega snemma. Tók því frekar rólega framan af. Útbjó mér hafragraut um tíu. Um ellefu var ég komin að Nauthólsvík en þar voru engin stæði á lausu svo ég skrópaði í sjóinn og fór aftur heim. Um hálfþrjú fór ég labbandi, í hressandi roki, upp í Valhöll en þar á þriðju hæð er tannlæknirinn minn. Ég átti árlegan tím um þrjú. Var mætt skömmu áður. Klukkan var að verða hálffjögur þegar ég var kölluð í stólinn. Yfirferðin tók enga stund og allt í besta standi. Þessi heimsókn kostaði rúmar átjánþúsund krónur. Kom við í Álftamýrinni hjá móðurbróður mínum og fjölskyldu og stoppaði við í rúma klukkustund áður en ég labbaði heim. 

8.10.25

Allt rólegt

Vaknaði útsofin rétt um hálfsex í gærmorgun. Var komin í sund á svipuðum tíma og á mánudaginn. Gaf mér heldur lengri tíma í sund, pottarölt og gufu en var þó komin heim aftur rétt fyrir níu. Á tólfta tímanum skrapp ég aftur út í rúmlega klukkutíma göngu. Fór sama hring í kringum Öskjuhlíðina en að þessu sinni kláraði ég hann án þess að stoppa og mældist hann rúmlega 5,5km skv símaforritinu. Annars var ég bara slök í gær. Viðurkenni þó að þegar síminn hringdi stuttu eftir að ég kom heim úr göngunni hélt ég í augnablik að nú væri komið að því að ákveða afhendingu á íbúðinni í Núpalind. En svo reyndist ekki vera og sá ég það strax og ég tók upp símann. Á línunni var frænka mín og nafna, líklega alveg jafn spennt og ég, að spyrja frétta. Mín tilfinning er sú að ég verði búin að fá afhent fyrir næstu helgi en það kemur allt í ljós mjög fljótlega.  

7.10.25

Þriðjudagur

Korter yfir sjö í gærmorgun var ég komin á braut 7. Synti 500m og hafði ágætis tíma í potta og gufu rútínu á eftir. Fór þó aðeins tvisvar í þann kalda og seinna skiptið var aðeins smá dýfa. Um hálfníu var ég mætt í Hátún 12 í osteostrong tíma. Það var smá bið í örfáar mínútur en samt var ég búin og komin út í bíl aftur um níu. Heima fékk ég mér hressingu og var svo alveg slök þar til klukkan að verða tvö. Skrapp þá út í göngu hringinn í kringum Öskjuhlíðina sem ég skipti niður í tvær göngulotur. Annars er fátt að frétta í augnablikinu. 

6.10.25

Hratt líður stund

Vaknaði á slaginu hálfsjö í gærmorgun. Rúmum einum og hálfum tíma síðar var ég mætt á braut átta í Laugardalslauginni. Gaf mér góðan tíma í sund, potta, gufu og spjall og var klukkan orðin hálfellefu þegar ég kom heim aftur. Á tólfta tímanum flysjaði ég sæta kartöflu og skar niður ásamt nokkrum regnbogagulrótum og setti í pott ásamt smá vatni og salti. Tíu mínútum eftir að suðan kom upp sauð ég upp á bleikjuflaki, í vatni sem ég kryddaði með karrý, sítrónupipar og cayanne pipar. Hafði tekið flakið úr frysti áður en ég fór í sundið. Borðaði helminginn af þessu í hádeginu ásamt nokkrum pikkaló tómötum. Dagurinn leið ótrúlega hratt miðað við að ég var ekki að gera neitt sem er í frekari frásögur færandi. Aldrei þessu vant var klukkan svo byrjuð að ganga ellefu áður en ég skreið upp í rúm með bók eftir Katrine Engberg, Krókodíllinn.

5.10.25

Sunnudagur

Mætti í sund rétt rúmlega átta eða rétt eftir opnun í gærmorgun. Fór beint á braut 8 og synti 500m áður en ég fór í þann kalda. Þar ætlaði ég aðeins að vera uþb 4 mínútur. Hitti svo skemmtilegt fólk að ég gleymdi mér aðeins og var í rúmar sex mínútur. Eftir 12 mínútur í gufunni og aðrar 12 í sjópottinum var ég 3 mínútur í kalda áður en ég fór upp úr og heim. Um hádegisbilið var ég mætt til esperanto vinkonu minnar sem bauð upp á smá veislu áður en við lásum nokkrar blaðsíður í Kon Tiki. Stuttu fyrir klukkan tvö fórum við svo saman á "pop up" málverkasýningu í Skútuvogi. Fasteignasalinn, vinkona mín Vilborg, er búin að fá nokkur alþjóðleg verðlaun, viðurkenningar og umfjöllun um málverkin sín. Þetta var mjög kraftmikil sýning og við Inger tókum þrjá hringi um svæðið, hughrifin voru svo mögnuð. Þarna hitti ég svo fyrir eina sem ég kynntist í sundi. Sú er að mestu hætt að stunda Laugardalslaugina, fallinn fyrir Sundhöllinn. Frétti það fyrst þarna að hún og Vilborg eru frænkur. Við Inger stoppuðum í tæpan klukkutíma af tveimur, það var enn að streyma að fólk þegar við kvöddum. Tókum smá rúnt yfir í Kópavog áður en ég skutlaði henni aftur heim.

4.10.25

Kaupsamningur undirritaður

Gærdagurinn hófst frekar snemma hjá mér í gær. Var komin á fætur einhvern tímann á sjötta tímanum. Leyfði klukkunni þó að verða sjö áður en ég lagði af stað í sund. Fór beint á braut 7 og synti 500m, skriðsund aðra hverja ferð. Eftir kaldan pott og smá gufu settist ég næstum því að í sjópottinum. Ég var nú samt komin heim aftur um níu leitið. Tuttugu mínútum yfir tíu var ég komin á fasteignasöluna Domus Nova með tvö plögg meðferðis. Fasteignasalinn bauð mér kaffi en ég bað um vatn og var nýsest inn í fundarherbergið þegar handhafi seljenda og maðurinn hennar mættu á slaginu hálfellefu. Farið var yfir það helsta og það kom í ljós að ég átti víst að vera með eitt plagg enn með mér. Það kom þó ekki að sök því fasteignasalinn var með það í rafrænum pósti sem hún gat prentað út. Skrifað var undir öll viðeigandi skjöl og ég borgaði fyrstu innborgun á íbúðina og gerði einnig upp umsýslugjald við fasteignasalann. Á kaupsamningum stendur að íbúð eigi að afhendast eigi síðar en 17. okt. n.k. en mér skilst að það eigi bara eftir að fá þrif svo það eru góðar líkur að ég verði búin að fá afhent fyrir næstu helgi. Ég hringdi í Odd um leið og ég kom út í bíl. Hann svaraði ekki en hringdi til baka áður en ég var komin út af planinu svo hann var fyrstu að fá fréttirnar. Ég hringdi svo í fasteignasalann minn þegar ég kom heim. Hringdi reyndar nokkur önnur símtöl í gær en ég fór líka í smá göngu og kom aðeins við á Grettisgötunni hjá Lilju vinkonu, sem var mjög hissa að sjá mig en tók að sjálfsögðu vel á móti mér. 

3.10.25

Fössari

Vaknaði frekar snemma í gærmorgun, eða upp úr klukkan fimm. Fór þó ekki á fætur fyrr en um klukkustund síðar og var mætt í sund fyrir klukkan hálfátta. Fór fyrst í þann kalda og svo á braut 2 þar sem ég synti 400m, flesta á bakinu. Eftir tvær ferðir í viðbót í þann kalda, smá gufu og næstum hálftíma í sjópottinum þvoði ég mér um hárið og fór svo beint heim. Fékk mér hressingu en stoppaði ekki lengi heima. Labbaði á heilsugæsluna skömmu fyrir tíu þar sem ég átti pantaðan tíma í leghálsskoðun, sennilega næstsíðasta skiptið. Það er smá skömm að segja frá því að það eru liðin heldur fleiri en fimm ár frá síðustu sýnatöku. En ef allt er eðlilegt á ég víst bara eftir að fara einu sinni enn því þessari skimun er hætt eftir að kona er orðin 64 ára. Ferlið gekk annars hratt og vel og ég var komin heim aftur tíu mínútur yfir tíu. Rétt fyrir hálfþrjú var ég mætt á fasteignasöluna Bæ sem er með skrifstofu í Skútuvogi. Þar hitti ég kaupendurna af Drápuhlíðinni og að þessu sinni voru þau með yngri dóttur sína með sér þar sem það var starfsdagur í leikskólanum. Allt ferlið vegna sölunnar, yfirferð og undirskriftir tók tæpa klukkustund. Mér létti stórlega þegar samningur kvað á um að afhending yrði í síðasta lagi eftir 4 vikur, má vera fyrr en það færi þá eftir því hvenær ég fæ afhent og hversu langan tíma það tekur að tæma, flytja og fá þrif. Kemur allt í ljós á næstu vikum. Ég lagði svo leið mína upp á N1 við Gagnveg til að heilsa aðeins upp á N1 soninn og í bakaleiðinni heimsótti ég fyrrum fyrirliða og samstarfskonu sem einnig er á starfslokasamningi. Stoppaði hjá henni í rúman hálftíma og hitti einnig þrjá káta kettlinga. Kom heim upp úr klukkan fimm.

2.10.25

Málin að þokast áfram

Ég átti tíma hjá augnlækni korter yfir átta í gærmorgun. Þetta var þriðja heimsóknin á árinu til að ganga úr skugga að blettur í hvítunni á öðru auganu væri ekki að breytast. Allt leit eins út og enn er heldur engin ástæða fyrir mig að nota önnur gleraugu en lesgleraugu í styrk plús 1,5. Næsti tími var bókaður eftir rétt rúmt ár. Um tíu leytið útbjó ég mér hafragraut. Mætti í Nauthólsvík um ellefu. Sjórinn var 9,4°C en fyrir fjórum árum var hann 6°C. Synti út að kaðli, gaf mér góðan tíma í gufunni á eftir og skrapp svo aftur út í sjó í uþb 5 mínútur. Þegar ég var á leiðinni í bílinn aftur eftir þessa hressandi stund sá ég að ég hafði misst af símtali við fasteignasalann minn. Hafði víst líka fengið sms sem ég sá ekki fyrr en ég var búin að hringja til baka. Ég er boðuð á fasteignasöluna um hálfþrjú í dag. Eftir að ég var komin heim gerði ég tilraun til að hringja í fasteignasalann sem hefur með Núpalindina að gera. Fékk skilaboð um að hringt yrði til baka. Það símtal kom um fjögur. Reyndar sagði fasteignasalinn að hún hefði verið búin að hringja fyrr en ég varð ekki vör við þá hringingu. Ég fékk líka að vita að ég fengi ekki afhent strax og kaupsamningur er kominn í gang sem ég var mjög hissa en það verður þá bara aðeins flóknara ferlið við flutningana sem eru framundan. Ákvað að drífa mig á bókasafnið um fimm leytið. Skilaði þremur bókum og kom heim með fimm. Ein af þeim er; LÚÐRASVEIT Ellu Stínu. Þessi bók kom út 1996 og er samasafn af örsögum og prósum sem ég er nú þegar búin að lesa einu sinni og finnst ekkert ólíklegt að ég muni lesa bókina aftur áður en ég þarf að skila henni. 

1.10.25

Októbermánuður genginn í garð

Var mætt í sund upp úr klukkan sjö. Fór á braut 7 og synti 500 metra, skriðsund aðra hverja ferð. Fór tvær ferðir í þann kalda, tíu mínútur í gufuna en lengst var ég í sjópottinum. Kom heim aftur á tíunda tímanum. Annars er frekar lítið að frétta svo ég verð virkilega undrandi ef ekkert mun heyrast í fasteignasalanum í dag. Ég sýslaði við eitt og annað hér heima en fór ekkert út aftur. Bjó mér til frekar einfalda linsubaunasúpu í gærkvöldi og borðaði einn þriðja af henni. 

30.9.25

Sund, osteostrong og stuttur göngutúr í gær

Vaknaði alltof snemma í gærmorgun. Mætti í sundið rétt rúmlega sjö. Fór beint á braut átta og synti 400 metra. Um hálfníu var ég komin í Hátún 12 í osteostrong. Nýr leiðbeinandi tók mig að sér að þessu sinni. Fékk auka mínútur á upphitunar hristipallinum. Æfingarnar gengu þokkalega og tíminn leið hratt. Var komin heim um níu. Fékk mér chiagraut og fjallagrasabrauðsneið í hressingu. Í hádeginu bjó ég til blokkfisk úr afgangnum frá því á föstudaginn. Um hálftvö skrapp ég með gler og mál í gámana við upphafsenda Eskihlíðar. Gerði smá hring úr þessu og heilsuforritið í símanum skráði á mig stutta göngu. Heyrði ekkert frá fasteignasalanum í gær en það er líklega vegna þess að það vantar upp á einhver skjöl varðandi Stigahlíðina. Gæti verið varðandi lánið sem kaupendur mínir eru að taka, en hvað veit ég. Veit að allt er tilbúið hjá mínum fasteignasala sem er að selja fyrir mig og mér finnst líklegt að sá fasteignasali sem er að selja mér íbúðina í Núpalindinni sé með allt tilbúið. Þetta kemur allt í ljós mjög fljótlega, ef ekki í dag þá örugglega á morgun. Á meðan dunda ég mér við að undirbúa flutningar í rólegheitunum, glápi á þætti, les og sýsla við eitt og annað. Annars er ég búin með skammtinn sem ég tók síðast á safninu. Er aðeins að halda í mér varðandi það að stökkva af stað, skila og ná í meira lesefni. 

29.9.25

Ný vika og bráðum mánaðamót

Fór á fætur um átta í gærmorgun. Veðrið var jafn gott og á laugardaginn en hitastigið hafði greinilega farið aðeins niður fyrir frostmark. Pabbi kom á fætur um hálftíu, hafði þá þegar verið búinn að koma einu sinni fram eldsnemma að venju. Fljótlega setti hann upp saltkjöt og við borðuðum það ásamt kartöflum og rófum upp úr klukkan hálftólf. Um hálftvö leytið skrapp ég í smá göngutúr. Fór upp og yfir hæð. Labbaði Langasand að Dynskálum. Fór framhjá búðinni og Olís út að brú og svo meðfram ánni þar til ég var komin skammt frá elliheimilinu. Labbaði framhjá því að Bogatúni og fann fínan stíg sem leiddi mig að smá trébrú sem er við endann á Hólavanginum. Á þessari leið settist ég einu sinni niður á bekk þar sem Þorsteins Björnssonar er minnst. Pabbi fór í sinn göngutúr stuttu eftir að ég kom til baka. Um fimm tók ég mig saman, fermdi bílinn, kvaddi pabba og brunaði í bæinn. 

28.9.25

Sunnudagur

Vaknaði í fyrra fallinu í gærmorgun og hafði því extra tíma fyrir morgunrútínuna. Enn er ég þó ekki búin að taka lóðin fram aftur, geri það kannski ekki fyrr en eftir að ég er flutt. Mætti í sund rétt eftir að opnaði, fór beint á braut 7 og synti 400 metra, þar af helminginn skriðsund. Var komin til norsku esperanto vinkonu minnar um tíu. Við lásum 4 bls. í Kon-Tiki og undruðums enn og aftur hversu fljótar við vorum. Um hálftólf kom ég við hjá AO við Öskjuhlíð og fyllti á tankinn sem reyndar var hálfur. Var búin að pakka mér saman og ferðadótið komið út í bíl en ég kom við heima til að hengja upp og ganga frá sunddótinu. Kom svo við í Heilsuhúsinu í Kringlunni og N1 við Gagnveg. Á seinni staðnum athugaði ég þrýstinginn á dekkjunum og spjallaði svo um stund við N1 soninn áður en ég brunaði austur á Hellu. Veðrið var dásamlegt og um fjögur ákvað pabbi að fara út í stuttan gönguhring. Ég tók snapp af honum að leggja úr hlaði og labbaði svo hinn hringinn á móti honum þar til ég mætti honum. Sneri þá við og labbaði smá spöl með pabba en ákvað að kíkja í heimsókn á einn stað í Nestúninu. Kom því ekki til baka aftur fyrr en um hálfsex. 

27.9.25

Kaupsamningar að fara í gang

Ég var mætt á braut 8 í Laugardalslauginni um hálfátta í gærmorgun. Synti 500 metra, þar af 250 metra skriðsund. Fór beint úr fyrri ferðinni kalda pottinn í sjópottinn og í gufu eftir seinni ferðina. Var komin heim rétt fyrir hálftíu. Hafði soðna ýsu með sætri kartöflu og gulrótum í hádegismat. Stuttu síðar lét fasteignasalinn minn mig vita að búið væri að selja Bólstaðarhlíðina og kaupferlið í Stigahlíðina væri hafið. Ég mætti því gera ráð fyrir að kaupferlið í Drápuhlíðina færi af stað fljótlega eftir helgi sem þýðir að ég get hafið kaupferlið í Núpalind í næstu viku og farið að huga að flutningum. Allt er semsagt að ganga upp og ég reikna fastlega með því að vera flutt í Kópavog innan mánaðar.

26.9.25

Fáir dagar eftir af september

Vaknaði upp úr klukkan sex í gærmorgun. Var mætt í sund stuttu fyrir átta, á svipuðum tíma og kalda potts vinkona mín. Hún var þó langt á undan mér út í laug og var búin að synda amk 100m þegar ég fór loksins á braut 7. Syntum í tæpan hálftíma áður en við fórum á pottaröltið. Eftir þrjár ferðir í þann kalda fórum við í gufu og þaðan svo í sjó pottinn. Þar dagaði ég hálfpartinn uppi því yngsta mágkona hennar mömmu kom þar að fljótlega og við þurftum að spjalla um eitt og annað. Ég varð svo samferða henni stóran hring um laugina áður en hún fór að synda en ég fór fjórðu ferðina í þann kalda áður en ég fór upp úr og þvoði mér um hárið. Kom við í Fiskbúð Fúsa á leiðinni heim. Hann sagði að harðfiskurinn, óbarna ýsan, væri á leiðinni svo ég ákvað að fara til hans aftur eftir hádegið. Klukkan var farin að ganga þrjú þegar ég lagði upp í þann leiðangur. Í stað þess að fá mér göngutúr ákvað ég að nota tækifærið og byrja á því skutla pakka í flug til Egilsstaða í leiðinni og fór því á bílnum.  Lagði svo reyndar við óháðu kirkjuna og rölti þaðan í Skipholt 70 þar sem ég fékk bæði harðfisk og ýsu og bleikju í soðið. Bleikjuna setti ég í frysti þegar ég kom heim en ýsuna í ísskápinn. Ekkert varð þó úr eldamennsku en ég reikna fastlega með að ég setji ýsuna í pott í hádeginu á eftir.

25.9.25

Fimmtudagur

Gærdagurinn byrjaði stuttu fyrir klukkan hálfsjö hjá mér. Hafði tímann fyrir mér þar sem ég stefndi á sjósund. Um tíu leytið bjó ég til hafragraut og svo var ég klár í slaginn stuttu fyrir ellefu. Nú brá svo við að ég sá strax að það "beið" eftir mér stæði. Tíu mínútum yfir ellefu skellti ég mér út í sjó og svamlaði út að kaðli á uþb korteri í 9°C sjónum. Var hanskalaus og í strandskóm, sundbol og með sundhettu. Sat í gufunni í korter, skellti mér aftur í sjóinn í 7 mínútur og að lokum í pottinn í rúmt korter. Var komin heim um hálfeitt. Ekkert varð úr meiri útiveru því einhvern veginn leið dagurinn í alls konar mis gáfulegt dútl. 

24.9.25

Stefán Ólafur Helgason 1951-2025

Í gær fylgdi ég fyrrum vinnufélaga til margra ára. Útförin var frá Neskirkju og áttu aðstandendur stóran þátt í athöfninni. M.a. flutti eldri sonur hans minningarorðin og gerði það vel. 74 ár er ekki svo hár aldur í dag en þessi höfðingi sem var kvaddur í gær hefur alveg örugglega skilið eftir sig margar og góðar minningar hjá þeim sem hann þekktu og umgengust í gegnum tíðina. Hann var eldklár og íhugull og maður sem stóð á sínu og var ekkert endilega að láta berast með straumnum. Blessuð sé minning hans.

23.9.25

Eldarnir

Í gær ákvað ég að sleppa sundferð og fara frekar gangandi í osteostrong tíma upp úr klukkan átta. Ég var komin heim aftur fyrir klukkan hálftíu. Um tvö fékk ég þá hugdettu að skunda í Kringluna og fara að sjá nýjustu íslensku myndina í bíó. Það voru ekki margir í bíó á þessum tíma en ég var þó ekki ein í salnum. Ég hef að sjálfsögðu lesið bókina sem myndin er byggð á. Eina sem ég hef út á að setja varðandi myndina í gær var að það skildi vera haft hlé en það er örugglega staðallinn og auglýst sérstaklega ef það er ekki hlé. Kom aðeins við í Eymundsson áður en ég rölti heim eftir bíóið. 

22.9.25

Bíllausi dagurinn í dag

Ég var komin á braut 7 í Laugardalslauginni fyrir klukkan hálfníu. Gaf mér góðan tíma í rútínuna en heildar tíminn frá því ég setti skóna á hilluna áður en ég fór inn í klefa og þar til ég var búin að klæða mig í þá aftur var ein klukkustund og fjörutíu og þrjár mínútur. Var komin heim um tíu leytið. Setti fljótlega upp hýðishrísgrjón og á tólfta tímanum rétt sauð ég upp á einu bleikjuflaki sem ég hafði átt í frysti og tekið út fyrr um morguninn. Borðaði svo helminginn af þessu ásamt nokkrum kirsuberjatómötum. Annars fór ég ekkert aftur út í gær, bara eina ferð að sækja þvott á snúrurnar í þvottahúsið. Pakkaði niður í einn kassa og sýslaði við eitt og annað. Dagurinn leið frekar hratt. Er langt komin með að lesa; Hvarfið eftir Johan Theorin. Og er búin að setja bókamerki inn í þriðju og síðustu bókina af safninu; Hundrað dagar í júli eftir Emelie Schepp. Fjórða bókin, Kon Tik er hjá esperanto vinkonu minni mun skila henni um leið og ég skila þessum þremur sem eru hjá mér eftir ca 3 vikur. 

21.9.25

Sunnudagur

Ég var mætt í sund rétt upp úr klukkan átta í gærmorgun. Fannst frekar mikið um að vera á brautunum svo ég var búin að fara tvær ferðir í þann kalda og sitja góða stund í sjópottinum og smá stund í nuddpottinum þar sem ég hitti eina mágkonu hennar mömmu heitinnar áður en ég skellti mér á braut 7 og synti aðeins 200m. Gaf mér svo tíma til að fara í gufu eftir þriðju kalda potts ferðina áður en ég fór upp úr og vestur í bæ í esperanto hitting. Kom heim um hálftólf. Helga systir hringdi í mig einhvern tímann á þriðja tímanum. Klukkan var langt gengin í fjögur þegar ég fór loksins út aftur í smá göngutúr. Labbaði að þessu sinni hinum megin við Miklubraut að Snorrabraut og alveg niður á Sæbraut. Labbaði göngustíginn meðfram sjónum og beygði svo upp Kringlumýrarbraut. Kom heim um hálfsex leytið og var þá búin að ganga 6,5km í þremur pörtum. Nafna mín og hálf danska frænka mín hringdi í mig þegar ég var að ganga síðasta spölinn heim. Eftir spjallið við hana og áður en ég fór inn hitti ég á nágranna mína á no 19. Fékk staðfest leyfi frá formanni og gjaldkera þess húsfélags um að fasteignasalinn minn mætti senda henni rafrænan póst með fyrirspurn um hvort nokkuð hefði breyst sl 30 daga. Ég hringdi svo í Villu eftir að ég kom inn. Netfangið hjá Ebbu nágranna er skráð á yfirlýsingaskjalið sem Villa er með hjá sér.

20.9.25

Skriður að komast á fasteignamálin

Vaknaði um hálfsjö í gærmorgun. Fimm korterum síðar mætti ég í sund. Var búin að fara tvisvar í þann kalda og í sjópottinn áður en ég fór á braut 7 og synti 500m. Átti svo eftir að fara tvær ferðir í þann kalda og gufuna áður en ég fór upp úr og heim. Rétt fyrir eitt setti ég tvo poka í pakpoka, seðlaveski, bók og sólgleraugu og rölti af stað í átt að Borgartúninu. Kom fyrst við í hraðbanka í Landsbankanum og tók út nokkra seðla. Svo lagði ég af stað áleiðis til baka. Var nýkomin inn í Nettó/Moj Market við Nóatún þegar fasteignasalinn minn hringdi. Hún var aðallega að spjalla um annað verkefni heldur en fasteignasöluna en sagði þó að það hefðu komið alls 6 tilboð í Bólstaðarhlíðina og það væri verið að vinna úr þeim, við myndum frétta eitthvað seinna um daginn eða strax eftir helgi. Næsti viðkomustaður var Fiskbúð Fúsa. Það var ekki til óbarin ýsa en ég keypti tvo pakka af harðfisk, lúðu og þorsk. Notaði ekkert bókina eða sólgleraugun heldur fór beint heim. Um fjögurleytið kom fasteignasalinn til mín gögnum út af öðru máli en sagði að fasteignasalinn sem væri að selja hinar tvær íbúðirnar hefði reynt að ná í hana en svo ekki svarað þegar hún hringdi til baka. Hálftíma eftir að Vilborg fór hringdi hún aftur og sagði að nú væri allt að ganga saman, Bólstaðarhliðin seld og fljótlega yrði hægt að fara að stilla upp. Svo ég get fastlega reiknað með því að ég byrji kaupferlið í Núpalindina í kringum næstu mánaðamót og verði jafnvel flutt og búin að afhenda Drápuhlíðina um miðjan október.

19.9.25

Fössari

Vaknaði rétt fyrir klukkan hálfsjö í gærmorgun og hafði þá sofið í einum dúr frá því um tíu leytið. Morgunrútínan tók smá tíma þrátt fyrir að ég er ekki enn búin að taka lóðin fram aftur. Var mætt í Laugardalslaugina rétt fyrir klukkan átta og byrjaði á 5 mínútum í kalda pottinum og fór þaðan beint í sjópottinn. Um hálfníu fór ég loks á braut 7 og synti 400m, flesta á bakinu. Að sundferð lokinni skrapp ég í eitt fyrirtæki upp á hálsunum og skildi þar eftir útprentaða ferilskrá og fór heim með þau skilaboð um að fylgja henni eftir með tölvupósti til mannauðsstjóra þessa staðs. Rétt rúmlega eitt fór ég svo í lengsta göngutúrinn sem ég labbaði í þremur lotum. Labbaði Bústaðaveginn alveg að sjúkrahúsinu í Fossvogi, þaðan að brúnni yfir Kringlumýrarbraut og svo eftir ströndinni alla leið að og eftir Suðurgötu alveg að Háskólasvæðinu. Þar labbaði ég framhjá Norræna húsinu og yfir brúað svæði að brúnni yfir Hringbraut. Skrefafjöldi gærdagsins fór yfir sextán þúsund í heildina og þá eru ótalin skrefin sem ég tók á sundlaugarsvæðinu. Annars pakkaði ég niður í einn kassa í gær og fór með niður í geymslu. Ætlaði að segja aðeins frá einni af bókasafnsbókunum í gær þar sem ég kláraði hana en geri það hér með; sjálstýring eftir Guðrúnu Brjánsdóttur. Þetta er bók upp á 76 bls, verðlaunasaga um afleiðingar ofbeldis. Mæli með þessari bók.  

18.9.25

Fljúga áfram dagarnir

Svaf til klukkan að verða hálfátta í gærmorgun. Framan af morgni tók ég því rólega, sinnti rútínu, vafraði á netinu og eitthvað fleira. Um tíu bjó ég mér til hafragraut. Var svo mætt í Nauthólsvík rétt fyrir opnun. Þrátt fyrir marga bíla voru nokkur stæði laus. Skildi símann eftir út í bíl, tek hann stundum með mér til að telja skrefin. Sjórinn er kominn niður fyrir 11°C, það var að fjara út en ég synti út að kaðli fyrri ferðina sem ég fór út í sjó.  Stuttu fyrir klukkan hálfeitt var ég mætt á bókasafnið í Kringlunni. Skilaði fjórum bókum af fimm, var búin að framlengja leigunni á Kon-Tiki um enn einn mánuðinn. Tók þrjár bækur með mér heim. Um tvö skrapp ég út í langa göngu sem ég skipti niður í fjórar mislangar lotur. Fór upp í Öskjuhlíð, framhjá Perlunni, í Fossvogskirkjugarð og labbaði svo með ströndinni í kringum flugvöllinn. Kom heim um hálffimm eftir uþb 8,5km og komin yfir þrettánþúsund skref.

17.9.25

Sjósundsdagur í dag

Var komin á fætur um hálfsjö í gærmorgun og í sund tæpum klukkutíma síðar. Gaf mér góðan tíma í alla rútínu. Um hálftíu var ég komin heim aftur. Í hádeginu hafði ég fiskibollur með rósakáli og smjöri. Um tvö fór ég út. Áður en ég lagði af stað í göngutúr spjallaði ég aðeins við einn nágrannann. Göntutúrinn skiptist svo upp í þrjár lotur, alls um átta km. Stór hringum um Öskjuhlíð sem færðist svo að BSÍ, gömlu Hringbraut, part af Barónsstíg, niður Eiríksgötu og svo settist ég smá stund á bekk á Klambratúni. En spölurinn þaðan og heim, með viðkomu í Krambúðinni við Lönguhlíð, var það stuttur að hann mældist ekki sem ganga. Skrefafjöldi gærdagsins fór vel yfir 12 þúsund skref. Meðan ég var í búðinni hringdi ein fyrrum samstarfskona í mig og stuttu eftir að ég kom heim hringdi frænka mín og nafna (og hálfgerð stóra systir). Um hálfátta hringdi ég í aðra fyrrum samstarfskonu og þegar við vorum hættar spjallinu sá ég skilaboð frá fasteignasalanum mínum um að á opið hús við Bólstaðarhlíð seinni partinn í gær hefðu mætt um tuttugu manns og að það væru þegar komin tvö tilboð og jafnvel fleiri á leiðinni. Svo nú er stutt í að keðjan gangi upp, verði örugg og hægt verði að byrja á kaupferlum og huga að flutningum.

16.9.25

September liðlega hálfnaður

Ég var mætt á braut 7 rétt fyrir klukkan hálfátta í gærmorgun. Synti 400m, sat fjórar mínútur í kalda pottinum og þaðan fór ég beint í sjópottinn. Mætti í osteostrong tíma á slaginu klukkan hálfníu og var komin heim rúmum hálftíma síðar. Var eitthvað að sýsla hér heima í rólegheitum, m.a. að lesa. Einhvern tímann eftir hádegi skrapp ég með málm í gám við upphafsenda Eskihlíðar og gerði svo smá göngutúr úr þeirri ferð. Annars er fátt að frétt en mér segist svo hugur um að það styttist í að húsnæðiðs-kapallinn fari að ganga upp. Það er opið hús í Bólstaðahlíð 46 seinni partinn í dag. Sjálf gæti ég alveg verið duglegri í að undirbúa næstu skref en finnst voða þó voða gott að "detta" í rólega gírinn inn á milli. Allt hefur sinn tíma. 

15.9.25

Osteostrongtími á eftir

Svaf í einum dúr frá klukkan hálfellefu á laugardagskvöldið til klukkan að byrja að ganga átta í gærmorgun. Eftir að ég var komin á fætur og búin að tannbursta mig kveikti ég á tölvunni hans pabba og vafraði um á netinu í á annan klukkutíma. Um níu leytið fékk ég mér hressingu og lagði nokkra kapla. Pabbi kom á fætur um svipað leyti. Síðan settist ég smá stund inn í stofu og greip í saumana mína og spjallaði við pabba. Um ellefu skrapp ég út í göngutúr, fór um fjóra km á þremur korterum. Við pabbi horfðum saman á bronsleikinn á EM karla í körfu sem reyndist æsispennandi. Eftir leikinn tók ég mig saman, kvaddi og var komin í bæinn áður en leikurinn um gullið hófst. Sá leikur var ekki síður spennandi. 

14.9.25

Á Hellu

Aðfaranótt nýliðins laugardags slitnaði svolítið í sundur. Veit að ég var sofnuð upp úr klukkan tíu en svo rumskaði ég um hálftvö leytið, skrapp á salernið og gat ekki sofnað strax aftur. Greip því í bókina um minningar Kristínar Jóhannsdóttur frá því hún var í námi í Þýskalandi. Veit ekki hvað ég las lengi né hvenær ég sofnaði aftur. Klukkan var langt gengin í átta þegar ég vaknaði í gærmorgun. Þetta og nýja klippingin varð til þess að ég ákvað að skrópa í sund. Um hálftíu pakkaði ég niður í tösku og tók með mér út í bíl. Fyrst lá leiðin vestur í bæ til norsku esperanto vinkonu minnar. Við lásum hátt í þrjár blaðsíður í Kon Tiki. Um hálftólf kom ég við í heilsuhúsinu í Kringlunni. Þar keypti ég m.a. beltisþara, frækex og litla fernu af kókosvatni. Þegar ég kom út í bíl aftur hringdi ég þrjú símtöl. Í einu tilvikinu fékk ég tilkynningu um að hringt yrði fljótlega til baka. Svo brunaði ég af stað austur fyrir fjall og fór um Þrengslin eins og ég er yfirleitt farin að gera. Í og með til þess að sleppa við Ölfusárbrúna. Hulda frænka hringdi til baka rétt áður en ég kom á Selfoss. Ég vildi bara segja henni að ég væri farin úr bænum og spyrja í leiðinni hvenær hún færi norður. Hún er búin að vera í Keflavík sl. rúmar tvær vikur. Gerði gott stopp í Fossheiðinni þar sem var tekið vel á móti mér að vanda.  Var komin til pabba fyrir klukkan þrjú.

13.9.25

Eitt og annað

Um hálfátta í gærmorgun fékk ég sms um að það væri sending merkt mér hjá Icelandair Cargo. Um níu sótti ég sendinguna, sem var námsmappan frá Helgu systur, og selflutti pakkann á skrifstofu MK. Notaði svo tækifærið og prófaði að versla í Krónunni í Lindum áður en ég fór heim aftur. Í hádeginu útbjó ég mér plokkfisk úr afgangnum af þorskhnakkaflakinu og osti með svörtum pipar. Klukkan var langt gengi í tvö þegar ég fór loksins í sund. Hitti strax á kalda potts vinkonu mína og við fórum á braut 8 og byrjuðum á því að synda í uþb 25 mínútur áður en við fórum nokkrum sinnum í þann kalda og heitasta, góða gufu og sjópott. Kvaddi rétt fyrir hálffjögur, þvoði mér um hárið og fór svo í klippingu til Nonna. Hann klippti um tuttugu sentimetra af hárinu og gaf sér svo góðan tíma til að blása það og greiða. Festi næsta klippitíma í mars en með fyrirvara um að ég mætti hafa samband fyrr ef ég tæki þá ákvörðun að flýta því að klippa mig stutt aftur.

12.9.25

Föstudagur

Í gærmorgun vantaði klukkuna aðeins tíu mínútur í átta þegar ég fór á braut 7 og synti 300m, þar af helminginn skriðsund. Eftir 200m sá ég kalda potts vinkonu mína tilsýndar en ég vissi að hún væri að fara smá stund í heitasta pottinn svo ég synti 100m í viðbót áður en ég hitti hana í kalda pottinum. Gaf mér mjög góðan tíma í potta, gufu og spjalltíma en heildar tíminn í sundferðinni tók um tvær klukkustundir. Var komin heim um hálfellefu. Svo fór stór hluti af deginum í alls konar dútl, m.a. lestur. Ætlaði að segja frá því í gær að ég væri búin að lesa aðra bók af safninu; Svikaslóð eftir Ragnheiði Jónsdóttur. Þetta er önnur bók höfundar en ég hef einnig lesið fyrstu bókina; Blóðmjólk. Núna er ég að lesa bókina Ekki gleyma mér eftir Kristínu Jóhannsdóttur. Sú bók er m.a. byggð á dagbókum höfundar frá því þegar hún fór í nám í austur Þýskalandi 1987. Um hálfsjö fór ég og skilaði af mér flestu af því sem nafna mín lánaði mér fyrir opna húsið. Sumt af dótinu var hún búin að nefna að hún vildi ekki en ég sé það núna í þessum skrifuðu orðum að ég gleymdi samt einu litlu gervi blómi. Hitti Ástu frænku, stóru systur Önnu Báru, Lars og Hjört rétt aðeins en ég var á hraðferð í matarboð til tvíburahálfsystur minnar. Stuttu eftir að ég var mætt í það boð komu hjón frá Ísafirði. Hann er reyndar alinn upp í Holtunum í Rangárvallasýslu, var samtíða okkur Sonju í FSu, og konan hans er frá Rússlandi. Síðast hittumst við öll fjögur á Skriðuklaustri fyrir rúmum tveimur árum. Kvöldið leið afar hratt og margt var skrafað og spjallað. Maturinn og félagsskapurinn einstaklega góður. Vorum fimm í heildina með dóttur tvíburahálfsystur minnar. Allt í einu var klukkan að verða tíu og oftast er ég komin upp í rúm um það leyti. Ég var komin heim rétt upp úr klukkan tíu og um það leyti kom póstur frá fasteignasalanum sem er að selja Stiga- og Bólstaðarhlíðina um að síðarnefnda íbúðin væri komin á fasteignavefinn og að það verður opið hús nk þriðjudag.

11.9.25

Aðeins byrjað að hausta

Ég hef ekki stillt á mig neina vekjaraklukku í rúma fjóra mánuði. Er oftast vöknuð rétt fyrir sex og stundum mun fyrr. Þeir eru ekki margir morgnarnir sem ég hef sofið lengur en til átta en þeir eru þó einhverjir. Að sama skapi er kvöldrútínan einnig mjög sterk og frekar fáir dagar þar sem ég er ekki komin í rúmið og eða farin að sofa áður en klukkan verður mikið meira en tíu til hálfellefu. Gærdagurinn byrjaði rétt um sex. Það var sjósundsdagur og það opnar ekki aðstaðan í Nauthólsvík fyrr en um ellefu svo ég tók því nokkuð rólega framan af morgni. Sinnti flestri morgunrútínu en síðan lóðin fóru inn í skáp fyrir opna hús tiltektina hef ég ekki enn tekið þau fram aftur. Þarf að fara að breyta því. Um tíu leytið útbjó ég mér hafragraut. Líkt og síðustu tvo til þrjá miðvikudagsmorgna var ég heppin að fá stæði við Nauthólsvík. Stæðin eru meira og minna undirlögð að þeim sem stunda nám og eða vinnu við HR. Sjórinn kominn rétt undir 12°C, það var að fjara út en ég synti út að kaðli fyrri ferðina sem ég fór út í. Eftir seinni ferðina fór ég í pottinn. Það átti bara vera í smá stund en ég fór að spjalla við konu sem ég er nýlega búin að kynnast og setan í pottinum varði í meira en hálftíma. Á eftir kom ég við í Fiskbúð Fúsa áður en ég fór heim. Ekki var til óbarin ýsa en ég keypti lúðu, eitt bleikjuflak, nokkrar fiskibollur og stórt flak af þorskhnökkum. Það síðast nefnda setti ég í pott þegar ég kom heim og borðaði helminginn af því eingöngu með smá smjörklípu. Davíð Steinn kom á fimmta tímanum og skrúfaði í sundur gamla rúmið sitt. Ég tæmdi næstum ísskápinn af dóti, sem ekki hefur verið notað lengi eða var komið á tíma,í glæran stóran og sterkan plastpoka. Pokinn varð varla hálfur en nokkuð þungur þó. Fékk soninn til að skreppa með þetta í gám 66 í Sorpu. Fór með honum því eftir sorpuferðina bauð ég honum út að borða fyrir hjálpina. Fórum á Local í Borgartúni og borðuðum á staðnum. Fengum okkur tilboð af tveimur sallatskömmtum ásamt 2 Egils kristal á rétt innan við 5000kr. Svo skutlaði sonurinn mér heim og kvaddi. 

10.9.25

Mið vika

Gærdagurinn teiknaðist aðeins öðruvísi upp en flestir dagar. Fljótlega eftir að ég fór á fætur, eftir köflóttan svefn, á sjöunda tímanum tók ég ákörðun um að sleppa sundferð. Tók því bara nokkuð rólega til klukkan ellefu. Þá skrapp ég í Rúmfatalagerinn í Skeifunni og keypti tvö búnt af pappakössum. Það gera 10 kassa. Síðan lá leiðin upp á N1 við Gagnveg þar sem ég vissi að N1 sonurinn væri á vakt. Byrjaði á því að jafna loftþrýstinginn á dekkjunum áður en ég lagði bílnum við hliðina á hvíta skódanum og fór inn í verslunina. Ætlaði að kaupa mér bláan kristal en Davíð Steinn bauð mér upp á sítrónukristal sem ég þáði. Spjallaði við strákana í dágóða stund en ég var svo komin heim upp úr klukkan tólf. Pakkaði niður bókum í tvo kassa og fór með annan kassann niður í geymslu en hinn setti ég fram í hol. Ég byrjaði líka aðeins að taka niður af veggjum og "frelsaði" dót úr búrinu. Þannig að það er aðeins farið að dreifast úr dóti sem hefur verið lokað af í amk þrjár vikur. Um hálffjögur leytið kom fasteignasalinn minn við og afhenti mér gögn frá hsm, skjal um veðflutning á láninu. Það skjal mun ég hafa með mér þegar ég fer til fasteignasalans sem er að selja mér íbúðina við Núpalind. Það verður ekki fyrr en kaupendur að minni íbúð hafa undirritað kaupsamning við mig og hafið greiðslur. Sem gerist ekki fyrr en þeirra kaupendur hafa selt eina litla íbúð og geta hafið kaupferlið á eigninn í Stigahlíð. En það styttist í að þessi kapall gangi upp og ég fékk það einnig á hreint í gær að ég þarf ekki að losa íbúðina hér í Drápuhlíð fyrr en þessi sölu- og kaupferlakeðja er farin af stað. Ég er samt búin að "blikka" Davíð Stein um að koma fljótlega og skrúfa í sundur gamla rúmið sitt.

9.9.25

Níundi níundi

Vaknaði útsofin um sex í gærmorgun. Var mætt í Laugardalslaugina stuttu fyrir klukkan hálfátta og fór beint á braut 2. Sundferðin tók rétt rúma klukkustund með öllu og svo var ég mætt í Hátún 12 í osteostrong á slaginu hálfníu. Eftir tímann rak ég tvö önnur erindi áður en ég fór heim. Um hálfeitt var ég búin að skipta um föt og mætt í Digraneskirkju í útför. Hitti hluta af föðurfjölskyldunni, margt af fólkinu hennar  Böggu heitinnar sem var systir pabba. Ég hitti líka Jón Inga, sem var kórstjóri kórs FSu þegar ég var í honum, og Eddu konuna hans. Stoppaði um stund í erfidrykkjunni og spjallaði við hluta af "fólkinu mínu". Leit á símann um hálfþrjú og sá þá að fasteignasalinn minn hafði verið að reyna að ná í mig. Kaupendur mínir eru búnir að fá tilboð sem er með fyrirvara um sölu á tveggja herbergja íbúð annars staðar í Hlíðunum og þau vildu fá samþykki mitt. Að sjálfsögðu samþykkti ég og er orðin nokkuð viss um að kapallinn sé alveg að fara að ganga upp. Ég þarf því að fara að herða mig upp aftur og halda áfram að pakka mér niður og huga að því að tæma Drápuhlíðina.

8.9.25

Morgunstund

Vaknaði útsofin um sjö í gærmorgun. Var mætt í sund rétt eftir opnun, rúmlega átta. Fór tvær ferðir í þann kalda áður en ég fór á braut 2 og synti 400m, þar af 150m skriðsund. Svo beint í kalda pottinn aftur, þá gufuna í tæpt korter, kalda sturtu og sjópottinn í hálftíma og að lokum eina dýfu í kalda pottinn áður en ég fór upp úr og heim. Restin af deginum fór í ýmis konar dútl. M.a. tók ég út hakk úr frysti sem N1 sonurinn skildi eftir og bjó til einhverskonar pottrétt úr því ásamt bygggrjónum sem ég sauð áður. Er búin að lesa skammtímalánsbókina og byrjuð að glugga í tvær af þeim þremur sem eftir eru ólesnar. Hugsanlega hefði ég getað gert meira í flutningsundirbúning en er svo sem nokkuð viss um að þegar að því kemur að ég fæ afhenta íbúðina sem ég er búin að festa að þá muni allt ganga upp og vel fyrir sig. Hef það á tilfinningunni að það sé að styttast í þann kafla og ég er í raun alveg tilbúin í þessar breytingar og næstu skref. 

7.9.25

Sunnudagur

Ég var  mætt í Laugardalslaugina upp úr klukkan átta. Byrjaði á því að skella mér í kalda pottinn í nokkrar mínútur og svo í sjópottinn. Þar var ég næsta hálftímann áður en ég fór loksins á braut 8 og synti 300m. Var mætt til norsku esperanto vinkonu minnar stuttu fyrir klukkan tíu. Við lásum tvær blaðsíður í Kon-Tiki. Var komin heim um hálftólf og það fór svo að ég fór ekkert út aftur. Var aðallega að lesa skammtímalánsbókina en líka að sýsla eitt og annað í rólegheitunum. Nafna mín og hálfdanska frænka mín hringdi í mig um hálfsex og við spjölluðum í uþb klukkutíma. Annars fátt að frétta í augnablikinu.

6.9.25

Sól og birta

Ég var komin á braut 8 um hálfátta í gærmorgun. Synti 400m þar af 150m skriðsund. Eftir fjórar mínútur í kalda pottinum og rúmlega 12 í gufunni fór ég í kalda sturtu og var svo í sjópottinum næsta rúma hálftímann eða svo. Var komin heim um hálftíu. Var að sýsla við eitt og annað í rólegheitum til klukkan tvö. Þá skrapp ég út í það sem átti að vera stuttur göngutúr en varð að stórum hring í kringum Öskjuhlíð, tæpum 6km sem ég labbaði án þess að stoppa og var um sjötíu mínútur. Settist svo niður með bók og las í hálftíma eftir gönguna. Er enn að lesa skammtímalánssbókina. Er að verða hálfnuð en bókin er hátt í sexhundruð blaðsíður. Sauð mér laxabita sem ég keypti síðast þegar ég fór í fiskbúðina og tók út úr frysti í fyrradag. Með þessu hafði ég soðið grænmeti; sæta kartöflu í bitum, hnúðkál í bitum og svolítið af hvítkáli. Borðaði tæplega helminginn af þessu góðgæti en setti afganginn í skál inn í ísskáp. Fylgdist aðeins með landsleiknum í knattspyrnu en var líka að glápa á eitthvað annað. Var komin upp í rúm um hálftíu. 

5.9.25

Aftur kominn föstudagur

Ég var mætt á braut átta um hálfátta í gærmorgun. Synti 500m og hitti svo kaldapotts vinkonu mína í kalda pottinum. Við fórum fjórar ferðir í þann pott í heildina. Ég kvaddi um níu. Fór heim og fékk mér hressingu. Á ellefta tímanum hringdi ég í Ómar frænda og rölti svo yfir til hans. Var um 23 mínútur á leiðinni. Fórum á hans bíl yfir í Kópavoginn til að skoða tveggja herbergja íbúðina á fjórðhæð í Núpalind 6. Fulltrúi dánarbúsins og maðurinn hennar tók á móti okkur um ellefu. Frænda mínum leist alveg jafn vel á íbúðina og mér og sagði að það væri lítið sem þyrfti að gera nema flytja inn. Hjónin spurðu mig hvort ég vildi nýta eitthvað af innbúinu og það var eitt og annað í boði sem ég var og er alveg til í að þiggja, t.d. eins og flest ljós, eldhúsborð og stólar og veggfastar hirslur/hillur. Við frændi minn gáfum okkur rúman tíma til að skoða og spjalla við fólkið. Fengum hins vegar ekki að sjá geymsluna í kjallaranum því þau voru ekki með lykil að henni. Það var allt í lagi, veit að hún er um 5fm og með hillum og mun nýtast mér ágætlega. Ómar skilaði mér heim um tólf leytið. Afgangurinn af deginum fór í smá sýsl, nokkur símtöl en þó mest í rólegheit og smá gláp og lestur. 

4.9.25

Fimmtudagur

Klukkan var byrjuð að ganga níu þegar ég fór á fætur í gærmorgun. Það var svo sem í góðu lagi því ég stefndi á að fara í sjóinn svo ég tók því rólega framan af morgni. Útbjó mér hafragraut á ellefta tímanum og var svo heppin að fá stæði í Nauthólsvík um ellefu. Sjórinn næstum 14°C. Eftir tvær ferðir í hann þar sem ég fór aðra ferðina út að kaðli og 10 mínútur í gufunni fór ég upp úr. Skrapp á N1 við Gagnveg með póst til Davíðs Steins sem var á vakt. Var komin heim um eitt leytið. Um hálfþrjú leytið setti ég fjórar af fimm bókum af safninu í bókaboka og bakpoka og rölti af stað í átt að Kringlunni. Mætti nágrannakonunni í húsinu á móti og við spjölluðum líklega í hátt í hálftíma. Á safninu stóðst ég ekki mátið og fékk lánaðar 4 bækur í staðinn, þar af eina sem er með skammtímaláni. Fiðrildaherbergið eftir Lucindu Riley, höfund bókanna um sjö systur. Er byrjuð að lesa hana. Þegar ég kom af safninu ákvað ég að labba lengri leiðina heim. Skipti þeim göngu túr í tvær lotur með góðu stoppi á milli svo klukkan var að verða fimm þegar ég kom heim aftur.

3.9.25

Snemma að sofa, seint á fætur í morgun

Ég var komin í sund upp úr klukkan sjö í gærmorgun. Synti aðeins 400m því allt í einu varð mikil traffík á brautinni. Gaf mér rúman tíma í aðra sundrútínu. Var þó komin út í bíl um níu og sammþykkti gagntilboð í fasteignina sem ég er að bjóða í kl. 09:02 þann 02.09. Fór svo beinustu leið heim. Sýslaði ýmislegt fram yfir hádegi en um hálftvö lagði ég af stað í göngutúr með stefnuna í Austurstrætið til að kíkja á vinkonu mína sem er með sölubás þar og hefur verið með mörg undanfarin ár. Hún ætlar að nota alla góðu dagana í september en svo tekur hún sér pásu frá sölumennskunni fram á næsta vor. Notar veturinn til að fylla á lagerinn hjá sér. Stoppaði við í ca þrjú korter. Labbaði svo áleiðis heim eftir Lækjargötunni, þveraði Hljómskálagarðinn og þegar ég kom yfir brúna yfir Hringbraut ákvað ég að taka lengri leiðina heim þaðan. Skrefafjöldi gærdagsins fór líka yfir 15 þúsund og ég var ekki komin heim fyrr en upp úr klukkan fimm. 

2.9.25

Allt að gerast

Var mætt í sund upp úr klukkan sjö. Synti 400m á brautum 6, 7 og 8. Eftir 10 mínútur í gufu, annað eins í sjópottinum, 4mínútur og dýfu í kalda fór ég upp úr og beint í osteostrong. Var komin heim um níu. Tveimur tímum síðar hringdi fasteignasali DomusNova í mig og sagði að ég væri búin að fá gagntilboð í fasteignina sem ég var að bjóða í sl. föstudag. Þessu hafði ég alveg reiknað með. Ég hef tilhádegis í dag til að samþykkja sem ég mun líklega gera eftir að ég kem úr sundi um níu. Fannst ekki alveg hægt að samþykkja á mánudegi. Um hálftvö kom fasteignasalinn minn til mín hálftíma á undan öðrum einstaklingnum sem er að bjóða í mína íbúð. Hann var með tvo smiði með sér. Mér heyrist á öllu að ungu hjónin séu búin að ákveða ýmsar breytingar og ætli að hreiðra um sig í þessari íbúð næstu tuttugu árin eða svo. Frétti líklega eitthvað meira um það í dag eða á morgun. Klukkan var að verða sex þegar ég skrapp út í smá göngutúr um Öskjuhlíðina og kirkjugarðinn í Fossvoginum, tæplega 4km langan, í tveimur lotum því ég staldraði aðeins við hjá leiði móðurforeldra minna og eins móðurbróður míns. Kom heim rétt fyrir sjö.

1.9.25

Glænýr mánuður

Rumskaði aðeins um sex leytið í gærmorgun. Svaf svo sem ekkert mikið lengur og var ég komin á fætur rétt um átta. Pabbi hafði komið fram á sínum venjulega tíma til að fá sér eitthvað og taka niður tölur. Hann kom svo klæddur fram um hálfellefu og tók þá strax út pakka af saltkjöti úr ísskápnum. Eftir hádegið, rétt rúmlega eitt fór ég í tvískipta göngu. Labbaði niður með ánni, undir brúna við þjóðveginn og yfir tvær smábrýr alveg þar til ég kom að bekk við árbakkann. Þar settist ég niður í ca tíu mínútur og gönguforritið skráði á mig 1,6km. Snéri svo við og labbaði aðeins lengra upp eftir ánni þó ekki mjög mikið lengra en forritið skráði þó á mig 2km. Þegar ég kom til baka sagði pabbi að það væru að koma gestir í heimsókn úr bænum. Þau komu þrjú um hálffjögur, einn bróðir mömmu, konan hans og sonur. Þau settust inn í stofu á meðan ég fann til kaffið og teið. Eftir kaffið bauðst pabbi til að fara með þau í bíltúr um slóðir þar sem þessi frændi minn vann einhver sumur fyrir Landgræðsluna fyrir meira en hálfri öld síðan. Ég fékk að fara með í þann bíltúr. Keyrðum m.a. framhjá Heiði en þegar við komum aðeins framhjá Bolholti beygði pabbi inn á svæði sem einu sinni var hraun og svartir sandar en er nú mjög gróðurmikið með lúpínu, grasi, trjám og fleiru. Það tók góða stund að keyra í gegnum þetta eftir slóðanum. Hægt var að fara fleiri slóða þarna um. Þegar við komum að stað þar sem hægt var að velja um að fara í átt að Selsundi eða Gunnarsholti fékk frændi minn að velja. Hann valdi seinni slóðann. Komum til baka á Hellu eftir eins og hálfstíma bíltúr. Pabbi hellti aftur upp á könnuna en frændi minn var einn um að þiggja kaffið, við hin fengum okkur vatn. Gestirnir kvöddu um sjö leytið en ég stoppaði klukkutíma lengur áður en ég kvaddi pabba og brunaði í bæinn.