Það var svolítið sérstakt að keyra til vinnu í gærmorgun því það var þokkalega þétt þoka og umhverfið hálf draugalegt þannig. Annars var framleiðsludagur. Kortasumarliðinn fór niður að hlaða inn skrám og fylla út skiptiblöð og ég útbjó framleiðslublöðu, fyllti út talningablöð og prentaði öll gögn út áður en ég fór niður. Framleiðsluvélin var með smá mótþróaþrjóskuröskun í upphafi og þurfti að taka hana einu sinni niður áður en hún komst af stað. Eftir það gekk allt eins og í sögu. Vorum næstum búnar með dagskammtinn þegar boð komu um að það væri fundur í morgunkaffinu um 9:40. Á fundinum var verið að fara yfir alls konar tölur varðandi vinnuna okkar allra. Framkvæmdastjórinn var mjög ánægður með hvað gengi vel á öllum sviðum. Hann langar þó að fá að sjá hversu mikil tími fer í kortaframleiðsluna þessa fáu mánuði sem eftir eru af henni svo hann bað um að við myndum skrá tímana okkar á það sama og við skráðum þá á þegar kortadeildin var staðsett í seðlabankanum, alltsvo þegar við værum að vinna í kortunum. Eftir fundinn fórum við niður aftur, kláruðum daginn og afganginn af endurnýjuninni sem kom stuttu fyrir sl mánaðamót. Sendum upp tólf fulla póstbakka um tólf leytið, ellefu af þeim tengdir endurnýjuninni. Vorum búnar að ganga frá kortadeildinni niðri en eftir mat kláruðum við frágang og fylgiskjöl, skráðum tímana og settum upp nýtt "tímatrakk" áður en við fórum í næsta verkefni. Mínum verkefnum var ekki lokið fyrr en um hálffimm leytið. Þá var komin sól og blíða úti. Var bæði með sund og sjósundsdót meðferðis. Ákvað að skella mér í sundið þar sem ég var viss um að það væri krökkt af fólki í Nauthólsvíkinni. Hringdi í pabba og spjallaði við hann á meðan ég var á leiðinni yfir. Hann var nýlega kominn heim úr smá ferðalagi um Rangárvelli með Bjarna Böðvarssyni frá Þinghól sem sótti hann og fékk hann til að fara með sér um þessar slóðir. Það var líka kraðak í sundlauginni sjálfri og kaldi potturinn ívið of heitur eða meira en 14°C. Sleppti því að synda en lét mig hafa það að sitja 2x10 mínútur í "kalda" pottinum, 10 mínútur í gufu og 10 mínútur í sjópottinum. Var komin heim um hálfsjö leytið.
8.8.24
7.8.24
Vikan uþb hálfnuð
Eitthvað var svefninn ekki alveg hundrað prósent í fyrrinótt, fannst ég ekki útsofin þegar ég fór á fætur upp úr klukkan sex. Ég var engu að síður tilbúin í daginn. Morgunrútínan var svipuð. Var mætt í vinnu um hálfátta. Nóg var af verkefnum og ég var að alveg til klukkan korter í fjögur. Fór þó auðvitað í kaffi og matarpásur. Tvær úr kortunum voru í fríi og sumarliðinn sem þekkir inn á það dæmi er enn lasin eftir slæma covid-pest. Ég fór því bæði niður að hlaða inn skrám og gera skiptablöð sem og útbúa framleiðslublöð og gera bókhaldið. Fékk að fara úr vinnu áður en allt var alveg búið því þar sem það var frídagur á mánudaginn hafði ég fært osteostrong tímann til um einn dag. Átti tíma tíu mínútur yfir fjögur í gær. Var mætt aðeins fyrr en það og átti von á því að þurfa kannski að bíða. En ég komst strax að, bætti mig á tveimur tækjum af þremur og jafnaði árangur á einu. Var ekki svo langt undir því besta á fjórða tækinu. Eftir jafnvægisæfingar á eftir og slökun fékk ég mér vatnsglas áður en ég kvaddi og fór beint í sund. Synti reyndar ekkert, fannst of margt á öllum brautum en ég fór tvisvar fimm mínútur í þann kalda og 15 mínútur í gufu og einnig sjópott.
6.8.24
Vinnuvika í styttra lagi framundan
Fór á fætur um hálfátta í gærmorgun. Pabbi var löngu kominn á fætur og hafði lokað dyrunum inn á þvottahúsgang og inn í stofu. Hann hafði kveikt á sjónvarpinu um sex leytið og fylgst með beinum útsendingum. Ég settist inn í stofu með bók og prjóna. Fljótlega rétti pabbi mér fjarstýringuna og fór að sýsla ýmislegt annað. Um hádegið bauð hann upp á saltfisk með kartöflum og smjöri. Ég lagði fyrsta kapal dagsins eftir mat, 10, 20, 30, og hann gekk strax upp. Um hálf fimm leytið tók ég mig saman og kvaddi pabba. Umferðin var þónokkur í báðar áttir en gekk vel. Ákvað samt að beygja upp Villingaholtsafleggjarann og keyra þá leiðina í gegnum Stokkseyri og fara Þrengslin. Var komin heim upp úr sex. Fékk Odd til að koma út til að hjálpa mér inn með ferðatöskuna. Báðir bræður voru heima.
5.8.24
Góður bíltúr með pabba í gær
Klukkan var að verða hálfátta þegar ég fór á fætur í gærmorgun. Pabbi var þá þegar kominn á fætur. Morguninn var þokkalega rólegur; beinar útsendingar, prjón, lestur, æfingar og netvafr. Um hádegisbilið spurði pabbi hvenær ég hefði hugsað mér að fara. Ég var ekki alveg búin að hugsa það og spurði á móti, í gríni, hvort hann væri orðinn þreyttur á mér. Ekki var það nú meinið heldur var hann að spá í hvort ég kæmi með honum í smá bíltúr eftir hádegið. Auðvitað var ég til í bíltúr. Lögðum af stað rétt fyrir tvö. Ókum næstum upp að Keldum en beygðum upp til vinstri rétt áður, veg sem merktur er Syðri Fjallabaksleið. Ókum alla leið upp að leyfum af eyðibýlinu Rauðnefsstöðum sem fór í eyði eftir Heklugosið 1947. Í bakaleiðinni komum við niður hjá Tumastöðum í Fljótshlíðinni. Þessi bíltúr og smá stopp við Rauðnefsstaði tók rétt rúma tvo tíma.
4.8.24
Rólegheit
Vaknaði fyrir klukkan sex. Þurfti og fór á pisseríið en fannst of snemmt að fara strax á fætur. Las í smá stund en vissi svo næst af mér um níu leytið. Pabbi var auðvitað löngu kominn á fætur þegar ég kom fram um hálftíu. Hann var að horfa á beina útsendingu frá Frakklandi. Fórum svo í smá kaplakepnni og vöfruðum á netinu. Eftir hádegisfréttir skruppum við í búðina. Þegar við komum til baka kveikti pabbi á grillinu en ég setti upp sæta kartöflu og útbjó smá sallat. Vorum að borða um tvö leytið.
Ein af bókunum af safninu er meðferðis hún er númer tvö í röðinni eftir Camillu Lackberg og Henrik Fexeus um samstarf lögreglu og sjáanda; Gátan. Vel yfir fimmhundruð blaðsíður og ég er bara komin á blaðsíðu tvöhundruðogeitthvað. Hinar þrjár bækurnar eru svipað þykkar svo ég spyr mig; Hvenær ætla ég að læra að sníða mér stakk eftir vexti? Ég þarf að hafa mig alla við að klára þessar fjórar á 30-60 dögum því ég er með fleira lesefni á kantinum fyrir utan annað dútl.
3.8.24
Verslunarmannahelgi
Eftir vinnu á fimmtudaginn ákvað ég að skreppa aðeins í sund enda með sunddótið meðferðis. Það var búið að rigna mikið um daginn og um hádegisbilið kom þvílíkt úrhelli í þónokkurn tíma að það dimmdi yfir. En þegar ég kom í laugina rúmlega þrjú fór að sjást í bláan himin og sólina. Synti því í uþb hálftíma, flestar ferðir á bakinu, fór tvisvar sinnum fimm mínútur í kalda, 15 mínútur í gufu og næstum annað eins í magnesíum pottinn. Var komin ofan í þann pott rétt fyrir fjögur og á slaginu fjögur var sturtað úr heilli fötu af magnesíumflögum yfir okkur. Þvoði mér um hárið á leiðinni upp úr þar sem ég var að fara út úr bænum í nokkra daga. Hringdi í pabba þegar ég var á leiðinni heim og sagðist eiga eftir að pakka og fá mér eitthvað áður en ég drifi mig af stað. Hann var í miðju kafi að steikja pönnukökur. Ég var komin austur um átta leytið og frétti þá að Helga systir væri á leiðinni. Þau hjónin höfðu lagt af stað að norða um fimm leytið svo ég var farin að sofa þegar þau mættu á svæðið. Rumskaði aðeins þegar þau komu með tvo hunda af þremur um eitt leytið. Hefði þurft að fara og tæma blöðruna en ég sofnaði aftur og vaknaði ekki fyrr en um sjö leytið. Þá var pabbi farinn í sund og enginn annar kominn á fætur. Korter yfir tíu lögðum við mæðgin af stað í jarðaförina, Ingvi varð eftir til að passa upp á hundana. Vorum komin að Keldum tæpum hálftíma fyrir athöfn. Sátum út í bíl og fylgdumst með á fm 107,1. Athöfnin var mjög falleg og minningarorðin alveg í anda frænku minnar. Öðlingarnir og Gísli Stefánsson sáu um kór og einsöng, frændi minn Guðjón Halldór Óskarsson var organisti og frændi minn sr. Kristján Arason var sálusorgarinn. Margt var um manninn og eftir athöfn í kirkju og úti í garði var öllum boðið í íþróttahúsið á Hellu. Hitti ótal marga en hafði ekki tök á því að knúsa alla. Vorum komin í Hólavanginn upp úr klukkan tvö. Bríet frænka var komin og hún bað um að fá far með foreldrum sínum á Selfoss en þau voru að fara í bústað með vinkonu og verða þar næstu daga. Systir mín í fríi fram yfir næstu helgi og mágur minn að vinna í bænum í næstu viku. Við pabbi höfðum það bara gott. Fylgdumst eitthvað með beinum útsendingum, vöfruðum á netinu, lögðum kapla og ég var líka að lesa. Hafði bleikju og sætar kartöflur í kvöldmatinn, horfði á eina mynd í gærkvöldi og fór óvenju seint (á eftir pabba) í háttinn eða stuttu fyrir miðnætti.
2.8.24
Árný Oddbjörg Oddsdóttir, f 6. jan 1928 d 13. júlí 2024
Í dag fylgi ég föðursystur minni síðasta spölinn og þakka fyrir samfylgdina. Það eru ótal skrefin upp að Helluvaði í gegnum tíðina og margar, margar minningarnar bæði gamlar og nýrri, allar góðar. Erfitt að gera upp á milli hverjar á að toga fram og festa á blað og verður líklega ekki gert. Þessi rólega, hlýja og blátt áfram frænka mín sem nú hefur fengið hvíldina. Lúmst stríðin og gott að spjalla við hana. Ekkert svo mörg ár síðan hún lagði prjónana á hilluna. Ræktaði garðinn sinn í öllum skilningi og var mjög stolt af fólkinu sínu. Mátti líka alveg vera það, sá fjársjóður er aldrei ofmetinn. Takk fyrir allt og allt!
1.8.24
Bóksafn og hopp í sjónum
Í gærmorgun var ég mætt í vinnu rétt fyrir klukkan hálfátta. Það var framleiðsludagur og ég var komin niður og búin að kveikja á vélinni korter fyrir átta. Að hlaða inn skrám og útbúa skiptiblöð gekk vandræðalaust fyrir sig. Sjálf vélin var með smá mótþróaþrjóskuröskun í byrjun en þegar hún komst af stað gekk allt ljómandi vel. Vorum búnar með daglega framleiðslu um kaffi leytið. Eftir kaffi byrjuðum við á nýjustu endurnýjuninni. Framleiddum alls níu skrár af ellefu en skildum tvær stærstu skrárnar eftir. Slökktum á framleiðsluvélinni um tvö en vorum hálftíma lengur niðri að plokka gula miða úr nýlegri plastsendingu. Var að vinna til klukkan rúmlega hálffjögur. Ætlaði að skila fjórum bókum á Kringlusafnið áður en ég færi í Nauthólsvík. Sumarlokun var og er á safninu til 19. ágúst n.k. Ég gerði mér því ferð á Sólheimasafnið. Tók fjórar bækur að láni. Það var pínu freistandi að fara svo bara heim en ég var með sjósunddótið meðferðis og ákvað að drífa mig í Nauthólsvík. Sé svo sannarlega ekki eftir því. Fór reyndar aðeins einu sinni út í sjóinn í uþb tíu mínútur og var aðallega að hoppa um í öldunum. Var næstu tíu mínútur í gufunni og sat svo í heita pottinum í tuttugu mínútur áður en ég fór upp úr og heim.
31.7.24
Smá yfirvinna og sund á eftir
Þessa dagana er N1 sonurinn að leysa af 07-15 vakt alla virka daga. Það er örugglega smá munur á því og að vinna tólf tíma vaktir þrjá virka daga í viku og aðra hverja helgi. Sjálf var ég vöknuð og komin á fætur um hálfsex í gærmorgun, klukkutíma á undan Davíð Steini. Hann lagði af stað í sína vinnu hálftíma á undan mér. Ég stimplaði mig inn um hálfátta. Fór fljótlega niður til að hlaða inn skrám. Lenti í vandræðum með fartölvuna, það kom síðar í ljós að hún var "dottin" af nettengingunni. Gat fundið út úr því með aðstoð tæknimanns í gegnum TEAMS. Annars var stór dagur í innlögnum eins og er oftast á þriðjudögum. Klukkan var byrjuð að ganga fimm þegar ég var búin með mín verkefni. Dreif mig beint í Laugardalslaugina. Fór fyrst í kalda, gufu og sjópott áður en ég fór á braut 2 og synti 400m. Kom heim um hálfsjö.
30.7.24
Osteostrong í gær
Gærdagurinn byrjaði nokkuð snemma eða um fimm leytið. Þá "heimtaði" blaðran að hún yrði tæmd og ég komst fljótlega að því að ég var útsofin eftir um sjö tíma ágætis svefn. Tíminn fram að vinnu var samt fljótur að líða við netvafr og æfingar. Vinnudagurinn minn teygði sig aðeins yfir átta tímana en ég fékk að fara um fjögur því ég átti tíma í osteostrong kl. 16:20. Vildi alls ekki missa þann tíma því það var hálfur mánuður frá síðasta tíma. Umferðin var ekki svo þung og ég var byrjuð í æfingunum tíu mínútur yfir fjögur og búin með þær og hvíldina eftir ca tuttuguogfimm mínútur. Fór beint í sund. Synti aðeins 200m og fór bara 2x4 mínútur í þann kalda en var 15 mínútur í gufunni og rúmar tíu í sjópottinum. Kom heim um hálfsjö.
29.7.24
Sjósund og stutt ganga
Vaknaði útsofin um sexleytið í gærmorgun. Eftir morgunverkin á baðherberginu, netvafr og æfingar kveikti ég á sjónvarpinu. Nóg um að vera þar, beinar útsendingar frá ólympíuleikunum. Um hálftíu fékk ég mér chia-graut. Var komin í Nauthólsvík á saginu tíu og út í 12°C sjóinn tíu mínútum síðar. Það var flóð og enn að flæða að. Synti/svamlaði út að kaðli á ca korteri. Gerði æfingar í gufunni, fór í kalda sturtu og smá stund í heita pottinn. Fór aftur í sjóinn í tæpar fjórar mínútur áður en ég fór upp úr og heim. Eldaði mér ýsu og sætar kartöflur í hádeginu. Planið var að fara fljótlega út í göngu en ég festist fyrir framan sjónvarpið fram eftir degi þannig að klukkan var byrjuð að ganga sex þegar ég loksins dreif mig aðeins út aftur. Það var rigning en samkvæmt heilsuforritinu í símanum labbaði ég samt rúma 1,8km á tæpum átján mínútum.
28.7.24
Sund, hárþvottur og esperanto og í gær
Var glaðvöknuð um sex leytið í gærmorgun og alveg útsofin. Fyrstu tveir tímarnir fóru í netvafr og æfingar. Dreif mig í sund strax upp úr klukkan átta. Byrjaði á kalda pottinum í nokkrar mínútur. Fór svo í gufu í uþb 15 mínútur og gerði úlnliðs og fingraæfingar þar. Síðan var það köld sturta áður en ég fór á braut 8. Eftir 50m á þeirri braut færði ég mig á braut 7. Eftir aðra 50m færði ég mig á braut 6 og synti 400m í viðbót, flesta á bakinu. Svo var það kaldur pottur, sjópottur, nuddpottur og að endingu sá kaldi áður en ég fór upp úr og þvoði mér um hárið. Þessi rútína tók alveg tvo tíma með klefatímanum. Fór beint vestur í bæ að hitta norsku esperanto vinkonu mína. Stoppaði hjá henni í einn og hálfan tíma og við lásum m.a. tvær bls í KonTiki. Restin af deginu fór í alls konar dútl.
27.7.24
Þokuloft
Dagarnir bruna áfram, oftast eins og þeir séu í ein hvers konar akkorði. Ég var mætt í vinnu um hálfátta, stimplaði mig inn og hóf vinnudaginn á því að taka saman helstu tölur áður en ég fór og fyllti á vatnsflöskuna mína. Fyrrum fyrirliði fór niður í kortadeild að hlaða inn skrám og útbúa skiptiblöð. Að því loknu "hnippti" hún í mig í gegnum TEAMS svo ég gæti prentað út skjölin áður en ég skottaðist niður. Framleiðslu var lokið upp úr klukkan níu og ég kláraði bókhaldsfráganginn áður en ég fór í kaffi. Þótt það væri frekar rólegt uppi var alveg not fyrir auka hendur. Vinnudegi lauk um hálfþrjú. Þrátt fyrir að vera með sjósundsdótið meðferðis ákvað ég að skrópa. Hluta til vegna þess að ég vissi að það væri fjara og svo var líka of gott veður og sjórinn tæpar 13°C. Fór því heim og skömmu síðar fór Davíð Steinn á bílnum mínum til að þvo hann. Hugmyndin hjá mér var að skreppa frekar út í göngu en það varð ekkert úr þeirri hugmynd. Hringdi í pabba, setti í og hengdi upp úr tveimur þvottavélum en tók því að öðru leyti mjög rólega. Fór þó óvenju seint í háttinn eða klukkan að ganga ellefu.
26.7.24
Síðasti föstudagurinn í júlí
Vaknaði á slaginu sex í gærmorgun, tuttugu mínútum áður en vekjarinn átti að hnippa í mig. Var útsofin eftir átta tíma svefn. Rámar aðeins í að ég hafi rumskað um miðja nótt, en svo stutt að ég er ekki viss nema það hafi verið draumur. Þegar ég kom fram tók ég eftir því að ferðalangurinn var búinn að skila sér heim. Gleymdi að minnast á að eftir sjósundið á miðvikudaginn stalst ég til að leggja bílnum í smá stund við Austubæjarskóla. Skrapp í jurtaapótekið að verða mér úti um brenninetlu til að prófa og labbaði smá hring í leiðinni. Annars var gærdagurinn alveg jafn fljótur að líða og flestir aðrir dagar. Var komin í vinnu um hálfátta. Fyrrum fyrirliði fór niður að hlaða inn nýjustu kortaskránum og ég tók saman bókhaldið en annars vorum við í innleggjum. Það var ekki stór dagur og það margar hendur á dekki að stundum þurfti að bíða eftir verkefnum. Var komin í sund upp úr klukkan þrjú. Synti 400m og fór 3x4mínútur í þann kalda. Samkvæmt plani átti að sturta magnesíumflögum í nuddpottinn klukkan fjögur. Planið gekk samt ekki upp í gær því okkur var sagt að það hefði riðlast til um daginn (þennan eina dag vikunnar sem þetta er gert) og yrði ekki fyrr en klukkan fimm. Á spjaldinu við pottinn stendur: Kl 7:00, 12:00, 16:00 og 20:00. Ég nennti ekki að bíða til klukkan fimm, náði mér bara í smá magnesíum í sjópottinum í staðinn.
25.7.24
Í sjóinn í gær
Aftur var ég frekar snemma á fótum, útsofin á sjötta tímanum í gærmorgun. Morguninn fram að vinnu tíma er samt alltaf frekar fljótur að líða hvort sem ég hef hálftíma eða tvo tíma. Reyndar eru flestir dagar afar fljótir að líða í heildina og gærdagurinn var engin undantekning. Það var framleiðsludagur og ég var í bókhaldinu og á móttöku endanum. Afgreiddum framleiðsluna á rúmum klukkutíma. Milli tíu og tvö vorum við fyrrum fyrirliði að taka saman, flokka og telja ónýt kort alveg frá því í nóvember. Þegar það allt var komið heim og saman og alveg búið að ganga frá kortadeild og hvelfingu tókum við nokkur innlegg til að flýta fyrir vinnunni uppi. Allt var búið um þrjú. Hringdi og talaði við pabba á meðan ég var á leiðinni í Nauthólsvík. Davíð Steinn var enn hjá honum að gæða sér á nýsteiktum pönnsum. Sonurinn var samt farinn að huga að brottför. Óð "hálfa" leið til Kópavogs í sjónum því það var mikil fjara. Fór reyndar langleiðina út að kaðli og aftur til baka. Hefði getað vaðið þetta og gerði það á köflum en annars svamlaði ég á bakinu. Tók þó einstaka sinnum skrið og bringusundstök. Var hálftíma í 11,4°C sjónum, fimm mínútur í gufu og korter í heita pottinum eftir kalda sturtu. Fór ekki aftur út í sjó svo að þessu sinni þvoði ég mér um leið og ég skolaði úr sundbol og strandskóm. Á snap-kortinu sá ég að Davíð Steinn var kominn í heimsókn til ömmu sinnar um fimm leytið.
24.7.24
Vika eftir af júlímánuði
Dagurinn í gær byrjaði nokkuð snemma. Rumskaði semsagt upp úr klukkan fimm og fann fljótlega að ég var eiginlega útsofin þótt ég hafi ekki alveg náð sjö tíma svefni. Tíminn fram að vinnutíma leið mjög hratt við netvafr, blogg og æfingar. Mætti í vinnu um hálfátta. Þriðjudagar eru stórir dagar og gærdagurinn var enginn undantekning. Höfðum það samt af að klára yfir sextánhundruð innlegg fyrir klukkan hálffjögur. Ég fór beint í sund eftir vinnu og hitti strax á kalda potts vinkonu mína. Hún var þá þegar búin að fara eina ferð í kalda. Fórum fjórum sinnum saman í kalda. Eftir síðustu ferðina synti ég aðeins 100m áður en ég fór upp úr og heim. - Annars ætlaði ég að segja frá því að í kringum áttunda júli fékk ég áminningu frá bókasafninu um að skiladagur væri að nálgast. Ég var búin að lesa þrjár af þeim fjórum bókum sem ég var með að láni. Ákvað að framlengja skilafrestinum á öllum bókunum og gefa mér tíma til að lesa; Ættarfylgjan eftir Ninu Waha. Það eiga reyndar að vera tveir punktar yfir báðum ö-unum en lyklaborðið er ekki að vinna með mér í að finna út leið til að skrá þá. Engu að síður er bókin góð en ég á þó enn eftir að lesa síðustu 100 bls af tæplega 500 bls bókinni.
23.7.24
Smá vinna, útför og kistulagning í gær
Vaknaði um fimm leytið í gærmorgun. Var komin á fætur um hálfsex. Vafraði um á netinu eftir morgunverkin á baðherberginu en stuttu fyrir sjö greip ég aðeins í prjónana mína áður en ég gerði fyrstu æfingalotu dagsins. Stimplaði mig inn í vinnu upp úr klukkan hálfátta. Fyrirliðinn var komin úr fríi og þegar fyrrum fyrirliði kom úr sjúkraþjálfun vorum við fjórar kortadömur á svæðinu. Sumarliðinn okkar fór niður að hlaða inn skrám en tókst ekki að kveikja á fartölvunni til að fylla út skiptiblöð. Kom með fartölvuna upp og skiptinguna handskrifaða. Ég var í innleggjum fram að kaffi en var líka í kortabókhaldinu. Mér tókst ekki að "vekja" fartölvuna svo ég leitaði ráða hjá tæknimanni í gegnum teams. Hann sagði mér að halda inni starthnappnum í 30 sekúndur, sem ég gerði. Svo kom fyrirliðinn og tók tölvuna, ætlaði að setja hana í samband við aðra hleðslustöð. Á leiðinni yfir að sínu svæði smellti hún á starthnappinn og tölvan vaknaði til lífsins. Stimplaði mig út úr vinnu eftir fjóra tíma. Samstarfsmaður til margra ára, var oft mikið í kortamálunum, var að missa konuna sína um daginn. Útförin fór fram í Háteigskirkju klukkan eitt og ég var búin að fá leyfi til að fara. Það var nánast full kirkja. Stundin var mjög falleg en smá erfið á köflum. Yngsta dóttir þeirra var í árgangi með tvíburunum í Hlíðaskóla og sú elsta leigði risíbúðina fyrir ofan mig í eitt ár fyrir nokkrum árum. Boðið var upp á veitingar í safnaðarheimilinu eftir kirkjuathöfnina. Ég fór eingöngu þangað til að votta vinnufélaganum og börnum hans samúð mína en svo dreif ég mig beint austur. Var komin til pabba fyrir klukkan fjögur. Við urðum svo samferða á hans bíl yfir á elliheimilið stuttu fyrir fimm. Einn systur-sonar-sonur pabba er prestur og hann tók að sér að stýra kistulagningu ömmu sinnar. Mjög falleg athöfn og gott að fá að taka þátt í henni, kveðja aldraða föðursystur og knúsa margt af fólkinu hennar. Eftir athöfnina var öllum boðið í súpu og spjall á Maríuvöllum. Við pabbi komum aftur í Hólavanginn um sjö leytið. Ég staldraði við í tvo tíma, fór í smá kaplakeppni við pabba (hann hafði betur), því ég vissi að von væri á Davíð Steini sem er að verða búinn að fara hringinn. Hafði tjaldað á Höfn kvöldið áður. Gat því gefið syninum fyrirfram afmælisknús áður en ég fór heim.
22.7.24
Strembinn dagur framundan
Þrátt fyrir að vera komin á fætur um sjö leytið í gærmorgun fór ég ekki í sund fyrr en stuttu fyrir tíu. Hitti þá beint á kalda potts vinkonu mína og við fórum beinustu leið í þann kalda. Yfirleitt vill hún byrja á heitasta pottinum og enda á honum líka. Fórum fimm ferðir í þann kalda og ég fór í alla hringpotta, gufu og sjópott á milli. Eftir fimmtu ferðina fór ég á braut 7 og synti 300m en vinkona mín í steinapottinn ásamt einni systur sinni. Vorum búnar að kveðjast en eftir sundið ákvað ég að fara sjöttu ferðina í þann kalda og þá var hún líka að fara sína sjöttu ferð. Hún fór svo í þann heitasta en ég settist smá stund á stól áður en ég fór upp úr og heim. Gerði annars alls konar í gær en hluti af því skrifa ég sjaldnast um. Skrapp í stutta göngu, með bók og sólgleraugu meðferðist. Settist á bekk rétt hjá Veðurstofu Íslands og las nokkrar blaðsíður. Ferðin á logninu var þó heldur of hröð svo ég hélt för áfram fljótlega og kláraði smá hring um hverfið.
21.7.24
Hálfgerð letihelgi
Var vöknuð upp úr klukkan sex í gær. Tók tvo tíma í netvafr og æfingar áður en ég dreif mig í sund snemma á níunda tímanum. Sturturnar voru margar kaldar og eitthvað ólag á þeim en ég hafði það samt af að þrífa mig áður en ég fór fyrstu ferð í þann kalda af fjórum. Eftir ferð í sjópott og aðra í kalda fór ég á braut 2 og synti af stað á bakinu. eftir eina og hálfa ferð færði ég mig á braut 1 og synti tvær og hálfa ferð í viðbót. Eftir þriðju ferðina í þann kalda fór ég í gufu, svo kalda sturtu og nuddpott og eftir fjórðu og síðustu ferðina í kalda sat ég smá stund á stól áður en ég fór inn að þvo mér um hárið. Fór beinustu leið til esperanto vinkonu minnar og stoppaði þar í rúman klukkutíma. Lásum tvær bls. í Kon Tiki. Fór svo með bílinn á færibandið hjá Löðri við Fiskislóð áður en ég fór heim. Var með ýmsar hugmyndir um hvernig framhaldið af deginu átti að vera en framkvæmdi fæstar af þeim.
20.7.24
Aftur í sjóinn
Það er komin helgi enn á ný. Gærdagurinn var nokkuð léttur og fljótur að líða. Framleiðslu lauk um hálftíu og eftir kaffi tók við smá bið eftir innleggs verkefnum. Þegar þau komu vorum við nokkuð snögg að afgreiða þau enda margar hendur á dekki. Vinnutíminn á föstudögum í seðlaverinu er skráður 7klst og korter. Ég stimplaði mig inn í gær um hálfátta og út sjö tímum síðar. Leiðin lá beint í Nauthólsvík. Það var flóð, sjórinn rúmlega 12 gráður og ég fór tvisvar út í. Fyrst í rúmt korter. Beint í gufu í fimm mínútur, kalda sturtu og í pottinn í tæpt korter. Að lokum í sjóinn í uþb fimm mínútur áður en ég fór upp úr og heim. Hringdi í systur mína sem var á leiðinni suður en einn bróðir mágs míns, sammæðra honum, er að gifta sig um helgina. Esperanto vinkona mín hafði svo samband í gærkvöldi. Nú á að fara að koma esperanto hittingi í rútínu aftur. Annars var ég aðeins að fylgjast með Davíð Steini á snappinu. Hann er búinn að tjalda í Fellabæ, verður með bækistöðvar þar amk til morguns. Fór m.a. á Borgarfjörð eystri í gær.
19.7.24
Færsla no. 4004
Vaknaði rétt rúmlega sex í gærmorgun, einhverjum mínútum áður en vekjarinn átti að ýta við mér. Aldrei þessu vant gaf ég mér ekki tíma til að "trekkja" þá hægri í gang áður en ég fór í vinnu en það var eiginlega það fyrsta sem ég gerði svo eftir að ég var búin að stimpla mig inn. Um átta fór ég niður í kortadeild að hlaða inn nýjustu skránum og útbúa skiptiblöð. Þegar ég kom upp aftur voru öll verkefni komin í vinnslu. Fékk þá að taka af því sem sessunautur minn og fyrrum fyrirliði var að vinna í. Það var allt búið fyrir klukkan hálftíu og ekkert komið inn svo ég fór í góða kaffipásu. Heildarinnlegg gærdagsins náðu ekki 700 og allt gekk það vel að öllum verkefnum var lokið upp úr klukkan tvö. Þá máttum við fara og fór ég beint í sund. Synti 300m og hitti svo kaldapotts vinkonu mína í kalda pottinum. Fórum þrjár ferðir í kalda áður en við fórum í gufu. Eftir gufu vorum við næstum hálftíma í sjópottinum, eiginlega að bíða eftir að klukkan yrði fjögur en þá stóð til að sturta magnesíumflögum út í nuddpottinn. Flögurnar voru settar út í nokkrum mínútum yfir fjögur og tíu mínútum síðar fórum við fjórðu og síðustu ferðina í þann kalda. Kom við í Fiskbúð Fúsa á leiðinni heim. Hann er að fara í þriggja vikna frí eftir þessa viku. Ég ætlaði að hamstra harðfisk en hann átti hvorki óbarna ýsu né lúðu. Keypti því keilu, eitt flak af bleikju og 500gr af ýsu. Var með hluta af ýsunni í matinn handa mér í gærkvöldi ásamt kúlukáli (rósakál), spínati og súrkáli.
18.7.24
Í sjóinn í gær
Var mætt í vinnu rétt fyrir klukkan hálfátta. Hugurinn var svo mikill því til stóð að vera búin að framleiða fyrsta kortið, testkort, sem átti að fara úr húsi með fyrstu ferð. Kortið var framleitt rétt fyrir átta en einhver misskilningur varð og það uppgötvaðist um hádegisbil að það var ekki einu sinni farið út úr húsi. En það fór frá okkur um hálfeitt og tæpum tveimur tímum síðar fengum við grænt ljós á að nota nýtt load á plast með engu logoi (svo það fengi logo) og framleiða sem tegund sem kláraðist fyrir helgi. Öll verkefni voru svo búin um þrjú. Ákvað að byrja á því að skreppa í Aquasport því ég hafði frétt að þar væri hægt að fá sundsokka sem gætu tekið við af strandskónum mínum. Því miður voru ekki til sokkar í minni stærð, koma kannski eftir tvær til þrjár vikur. Þá lagði ég leið mína í Sportsdirect og keypti mér þrjá nýja sundboli. Hitti þar einn frænda minn og fjölskyldu hans. Amma hans var ein af systrum pabba. Svo lá leiðin loksins í Nauthólsvíkina. Notaði einn af nýju sundbolunum. Fór eina tíu mínútna ferð í sjóinn og svo beint upp úr aftur. Á leiðinni úr úr klefanum hitti ég annan tvíburann sem ég kynntist á Klamratúninu fyrir tuttuguogsex árum síðan. Hún og bróðir hennar verða 28 í nóvember og við mæðurnar smullum saman og áttum nokkuð mikil samskipti næstu árin, amk á meðan fjölskyldan bjó í Hlíðunum. Ásta Bergrún mundi alveg eftir mér og ég fékk gott knús og smá spjall. En hún var á leiðinni í sjóinn en ég að fara heim.
17.7.24
Framleiðsludagur í dag
Um hálfþrjú leytið í fyrrinótt vakna ég upp við það að ég var í spreng. Sinnti kallinu en fór að sjálfsögðu beinustu leið í rúmið aftur. Var svolítið lengi að sofna en gleymdi mér örugglega eitthvað. Um fjögur vaknaði ég aftur við blöðruna. Kannski er eitthvað af bjúgnum að renna af mér, veit ekki, en eftir seinni ferðina á pisseríið steinsofnaði ég og vaknaði ekki fyrr en vekjaraklukkan fór af stað. Þá var ég í miðju draumalandinu og svolítið rugluð á hvaða læti væru eiginlega í gangi. Þrátt fyrir að vera hálftíma seinna á fótum en oftast áður þá náði ég að setja inn færslu og smá netvafri áður en ég fór í vinnuna. Þriðjudagar eru klárlega stærstu dagarnir í vikunni af innleggjum en það voru nógu margar hendur á dekki og flest gekk snuðrulaust fyrir sig þannig að allt var búið áður en við vorum búin að vera átta tíma á svæðinu. Ég var komin í sund um hálffjögur. Kalda potts vinkona mín kom stuttu síðar og við náðum þremur ferðum í þann kalda saman. Ég var samt komin heim fyrir fimm áður en landsleikur íslenska kvennaliðsins í knattspyrnu við Pólverja hófst. Sá leikur vannst með einu marki gegn engu.
16.7.24
Vaknað við vekjarann
Í gærmorgun var ég komin á fætur fyrir klukkan sex. Netvafrið tók ívið lengri tíma en ég hafði ætlað mér en ég hafði þó smá tíma í úlnliðs- og fingraæfingar áður en ég fór í vinnuna. Stimplaði mig inn í vinnu um hálfátta og fékk strax það hlutverk að opna hvelfinguna uppi á móti annarri. Síðan fyllti ég á vatnsflöskuna og sauð mér vatn. Þegar fyrrum fyrirliði og sumarliðinn voru komnar var sú ákvörðun tekin að sumarliðinn yrði í reiðufénu, ég færi niður að hlaða inn skrám og fyrrum fyrirliði yrði í bókhaldinu þessa vikuna. Mesti tíminn niðri fór í að bíða eftir að ég loggaðist inn á fartölvuna sem notuð er til að útbúa skiptiblöð. Var byrjuð í innleggjum um hálfníu. Kláraði minn skammt á einum og hálfum tíma og fór þá inn á kaffistofu. Þurftum að bíða aðeins eftir fleiri verkefnum og það sem kom var það lítið að ég fór í mat um hálftólf. Aðeins meira var að gera eftir hádegi en það var samt allt búið um þrjú leytið. Var mætt í Osteostrong tíma fyrir klukkan fjögur og komst strax að þótt fasti tíminn minn væri ekki fyrr en 16:20. Var því komin í sund um hálffimm. Þar sem úti var hálfgert bongó voru margir í sundi, bæði í lauginni, pottunum og á bekkjum og stólum. Ég fór þrjár ferðir í kalda, eina í gufu, eina í 42°C pottinn og sat svo smá stund í skugganum áður en ég fór upp úr og heim. Skrópaði því í sundið. Það er samt allt í lagi því ég var búin að taka vel á því í osteostrongtímanum.
15.7.24
Mamma hefði orðið áttatíu ára í dag
Rumskaði stuttu fyrir klukkan sex í gærmorgun. Var í spreng svo ég sinnti kallinu en fór svo upp í aftur. Heyrði klukkuna slá hálfsjö en svo steinsofnaði ég greinilega því næst heyrði ég klukkuna slá níu. Þá dreif ég mig á fætur. Pabbi var kominn á ról, sat inni í eldhúsi að leggja kapal. Hann var sestur inn í stofustól og búinn að kveikja á sjónvarpinu þegar ég var búin að sinna morgunverkefnunum á baðherberginu. Greip í prjónana í smá stund en kveikti svo á tölvunni hans, setti inn færslu og vafraði smá stund á netinu áður en ég settist aftur inn í stofu. Um hádegisbilið borðuðum við afganginn af bjúganu frá því á laugardagskvöldið. Eftir mat lagði ég einn kapal sem gengur afar sjaldan upp en í þetta sinn gekk hann upp í fyrsta. Veðrið var þannig að hvorugt okkar pabba nennti í bíltúr. Hugmyndin hafði verið að skreppa aðeins upp að Keldum og krossa yfir nokkur leiði en það bíður bara betri tíma. Kvaddi pabba um hálffjögur. Ákvað svo að beygja niður hjá Urriðafossi og keyra Flóann, gegnum Stokksteyri og fara Þrengslin í bæinn. Var komin heim rétt rúmlega fimm. Oddur var einn heim því Davíð Steinn er kominn í sumarfrí og lagði af stað úr bænum milli átta og níu í gærmorgun. Annars er ég sammála sparksérfræðingum að fótboltinn og betra liðið vann í gær, Spánn 2 - England 1.
14.7.24
Öðruvísi
Fór á fætur um sjö leytið í gærmorgun og gaf mér tíma í netvafr áður en ég fór í sund enda var klukkan langt gengin í níu þegar ég var loksins byrjuð að synda. Synti 500m, flestar ferðir á bakinu. Fór þrjár ferðir í þann kalda, eina í gufu og eina í sjópottinn áður en ég fór upp úr og þvoði mér um hárið. Mætti Davíð Steini, frekar syfjulegum, þegar ég kom heim. Hann var á leiðinni að redda frænku sinni Bríeti, sækja hana í vinnuna til að ná í lykil heima hjá henni og skutla henni svo aftur í vinnuna. Ég fékk mér hressingu og pakkaði niður. Var samt ekki farinn þegar Davíð Steinn kom aftur og hann var farinn aftur út á undan mér. Bankaði aðeins upp á hjá Oddi áður en ég fór um tólf. Keyrði Nesjavalla leiðina austur á Selfoss. Hef ekki farið þessa leið lengi. Lenti auðvitað í smá sultu við Ölfusárbrúna en var svo sem ekki alveg stopp, amk ekki lengi í einu, heldur mjakaðist í gegnum þennan kafla á mjög hægum hraða. Það var allt læst hjá pabba en bílinn hans fyrir utan. Hringdi bjöllunni og kafaði svo í veskið eftir húslykli og var á undan að opna. Pabbi var þó næstum kominn að útidyrunum, hafði setið inni í stofu. Ég var ekki búin að vera nema rúmlega tvo tíma á svæðinu þegar bankað var á "spari-dyrnar". Þær eru mun nær stofunni en ég var á undan pabba að opna. Þar var einn systursonur pabba á ferð. Sagðist hafa marg reynt að hringja dyrabjöllunni en við feðgin heyrðum aldrei í henni. Kannski var við hæfi að frændi kæmi þessa leið inn en hann var að koma beint af elliheimilinu. Mamma hans, föðursystir mín, fékk hvíldina í gær 96 og hálfu ári betur. Svo nú er pabbi einn eftir af systkyninum fimm. Frændi stoppaði í hálftíma og þáði pönnsur hjá pabba. Eftir að Oddur var farinn hringdi pabbi í Helgu systur. Fór svo fljótlega að prófa dyrabjölluna sem virkaði alveg fínt. Annars höfðum við feðgin það frekar rólegt.
13.7.24
Aftur komin helgi
Það fór svo að daglegri framleiðslu sem og endurnýjun var lokið um hádegisbil í gær og það þótt við tækjum kaffipásu og vélin væri aðeins að stríða okkur í lokin. Það verða því væntanlega léttari og styttri næstu fjórir framleiðsludagar en þá verður komin ný endurnýjun. Það gekk líka vel í öðrum deildum og ég því alveg búin með mín verkefni um tvö leytið. Fór beinustu leið í Nauthólsvík. Fjara, sjórinn 12°C, smá ferð á logninu og mjög hressandi að hoppa í öldunum. Fór tvisvar út í, fyrst í tæpt korter og eftir fimm mínútur í gufu rúmar fimm mínútur áður en ég fór upp úr. Skolaði á mér tærnar, strandskóna og sundbolinn en þurrkaði mér svo að öðru leyti. Verð svo dásamlega mjúk í húðinni ef ég sleppi því að fara alveg í sturtu og sápa mig eftir hoppið í sjónum.
12.7.24
Framleiðsludagur framundan
Þegar ég kíkti á vinnupóstinn minn eftir að ég var búin að stimpla mig inn í vinnu í gærmorgun biðu þau fyrirmæli um að senda í póst það sem tilbúið var af endurnýjuninni. Fór því niður með fyrrum fyrirliða til að sækja 12 fulla og hálfan póstkassa í viðbót af samtals yfir þrjúþúsundogþrjúhundruð kortum. Fyrrum fyrirliði sá um að koma þessu í lyftu 1 í tveimur hollum og snéri sér svo að því að hlaða inn daglegum skrám. Ég fór upp aftur og útbjó fylgiskjal með póstinum og sendi svar við fyrirmælunum. Annars vorum við í innleggjum í gær sem voru nokkuð innan við þúsund í gær. Margar hendur á dekki og allt gekk vel fyrir sig, svo vel að flestir voru búnir með sín verkefni um hálfþrjú. Ég sendi skilaboð á kaldapotts vinkonu mína, stimplaði mig út og hringdi og talaði við pabba á meðan ég var á leiðinni yfir í Laugardalslaug. Hann var byrjaður að sulta og hafði sett allt í gang um fimm leytið í gærmorgun. Ég var búin að synda 300m þegar vinkona mín sótti mig. Fórum þrjár ferðir í kalda, eina í heitasta, eina í 42°C, eina í gufu, eina í magnesíumpottinn (um það leyti sem sturtað var úr heilum magnesíumpoka út í pottinn) og smá stund í sjópottinn. Fór upp úr korter yfir fjögur. Sótti Odd og skipti við hann um sæti. Fórum í Krónuna við Fiskislóð. Hann var á undan að versla sitt og fara með í bílinn. Kom svo inn aftur að hjálpa mér að raða í poka og halda á þyngri pokanum út í bíl og svo aftur inn þegar við komum heim. Annars skrapp ég smá stund yfir í Eskihlíðina þar sem litli bróðir mömmu og konan hans búa. Var að skila henni fatla sem hún lánaði mér í vor. Stoppaði hjá þeim í uþb hálftíma og átti gott spjall við þau. Kristínu hitti ég reglulega í sundi en við vorum samt ekki búnar að hittast síðan skömmu áður en ég var búin með sumarfríið. En það var enn lengra síðan ég hitti Billa frænda, man ekki einu sinni hvenær það var.
11.7.24
Framleiðsludagur í gær
Í gærmorgun var ég komin á fætur um sex. Morgunrútínan var svipuð og flesta virka morgna. Mætti í vinnu um hálfátta. Nú vorum við þrjár á svæðinu sem gátum farið í kortaframleiðslumálin. Það var reyndar nóg að gera í reiðufénu þannig að það varð úr að fyrrum fyrirliði fór niður að hlaða inn skrám og búa til skiptiblað á meðan ég var í bókhaldinu uppi og prentaði út framleiðslu-, skipti- og talningablöð. Daglegri framleiðslu lauk um hálftíu og frágangnum vegna framleiðslunnar tæpum hálftíma síðar. Þá fór ég í "kaffi" en fyrrum fyrirliði til tæknimanns, sem er á svæðinu einu sinni í viku, til að fá hann til að setja upp fyrir sig nýja síma. Hún var að breyta úr samsung í iphone og þetta tók þó nokkurn tíma. Um ellefu sagðist tæknimaðurinn að það væru eftir uþb tíu mínútur svo ég fór niður til að ganga frá daglegum pappírum og undirbúa endurnýjun. Ekkert bólaði á fyrrum fyrirliða en sem betur fer var búið að sækja hluta af hráefninu í endurnýjunina og þegar ég opnaði fyrsta kassann af fjórum (þurftum 7 kassa) til að telja hann kom í ljós að það voru gulir miðar á milli hvers einasta plasts (300 kort í kassanum). Þegar ég var búin að plokka alla gulu miðana úr kössunum fjórum var klukkan að verða hálftólf. Ég ákvað því að skreppa í mat. Rúmlega hálftíma síðar, eftir að við báðar vorum búnar í mat, fórum við niður, sóttum 3 kassa til viðbótar, umslög, form og vagn undir þetta. Framleiddum tólfhundruð kort á tveimur tímum. Vissum að um það leyti væri mest allt búið uppi og flestir að fara eða farnir svo við ákváðum að ganga frá deildinni og geyma síðustu áttahundruð kortin úr endurnýjuninni til föstudags. Ég stimplaði mig út um hálfþrjú, lét "föðurnöfnu" mína vita og hitti hana í Nauthólsvík um þrjú. Ég skrapp í sjóinn í rúmar fimm mínútur en svo sátum við í heita pottinum í rúma klukkustund og spjölluðum. Ég sat reyndar ekki allan tímann í pottinum sjálfum því þá hefði ég líklega breyst í rúsínu. Var komin heim stuttu fyrir fimm.
10.7.24
Mið vika
Varð mjög hissa þegar vekjarinn fór í gang í gærmorgun, tuttugu mínútum yfir sex. En var líka ánægð með að hafa sofnað svona vel aftur eftir að hafa rumskað alltof snemma um hálffimm leytið. Gaf mér tíma í netvafr og færslu og það var einnig smá tími fyrir nokkrar úlnliðs og fingraæfingar. Mætti í vinnu um hálfátta. Tók saman framleiðslutölur sem voru frekar fáar. Fengum skilaboð frá einum stað af fjórum að engar skrár hefðu verið sendar en yrðu þá bara aðeins stærri í dag. Annars var ég byrjuð á að vinna innlegg um hálfníu og þar var nóg að gera og tveir sumarliðar lasnir. Það kom reyndar ein mjög vön úr sumarfríi og þau tvö sem eru í hraðbönkunum tóku einhver innlegg inn á milli hraðbanka verkefna. Boðað var til sérstaks fundar tuttugu mínútum fyrir tíu og mætti "nýr" framkvæmdastjóri úr fríi með tertur og tilkynningu. SKM er ekki lengur undirdeild undir öðru sviði heldur orðið sér svið. Hæstráðandi í seðlaverinu var semsagt að hækka í tign og vildi þakka okkur fólkinu á gólfinu fyrir okkar þátt í því. Við samglöddumst honum en ég lét þó terturnar og rúnstykkin alveg eiga sig. Annars urðu innlegginn rétt tæp sextánhundruð í heildina en engu að síður vorum við búin að vinna þau fyrir þrjú og allt búið milli þrjú og hálffjögur nema hjá þeim sem eru í sjóðunum. Enginn af okkur átti von á þessum rífandi gangi. Ég stimplaði mig út 40 mínútum áður en átta tímarnir voru liðnir og fór beinustu leið í sund. Hringdi í pabba á leiðinni í sundið. Hann var nokkuð lengi að svara því hann var að dunda við garðverkinn og í aukabuxum. Rútinan í sundinu var aðeins öðru vísi. Synti fyrst 200m, fór svo í kalda pottinn í 4 mínútur, sjópottinn í 15 mínútur, aftur í kalda í 4 mínútur, synti aðra 200m, fór í gufu í tíu mínútur og kalda sturtu í lokin.
9.7.24
Rumskað heldur snemma en vaknað svo við klukku í morgun
Var komin á fætur um hálfsex í gærmorgun. Hafði því góðan tíma í netvafr sem og æfingar. Mætti í vinnuna tuttugu mínútum fyrir átta. Byrjaði á að taka saman tölur fyrir kortadeild. Fyrrum fyrirliði mætti en við sendum sumarliðann okkar niður til að hlaða inn og undirbúa skiptiblöð áður en hún fór svo í reiðuféð. Annars var ég í innlögnum og nóg að gera þar. Um hálffjögur fór þó að sjá fyrir endann á verkefnunum og ég fékk að fara fljótlega þótt ekki væri alveg allt búið. Mætti í osteostrong tímann rétt rúmlega fjögur. Sú sem hefur fylgt mér fyrstu tvo tímana var upptekin en ég komst samt strax að því það var önnur á svæðinu. Bætti allar tölur á tækjunum fjórum og finn einnig að jafnvægið á öðrum fæti á hristipallinum hefur lagast alveg heilmikið. Er þó með betra jafnvægi á vinstri en þeim hægri en það er víst eðlilegt ef maður er hægri hentur. Eftir hvíldina fékk ég mér vatnsglas að venju og fór svo beinustu leið í sund. "Föðursystir" mín (eða öllu heldur föðurnafna, Hjaltadóttir) hafði haft samband á fb fyrr um daginn. Hringdi í hana og spjallaði aðeins á meðan ég var á leiðinni yfir í Laugardalslaug. Var komin í sund rétt fyrir fimm. Synti ekki nema 200m og það í restina eftir að hafa farið 2x4 mínútur í þann kalda, 10 mínútur og úlnliðs- og fingraæfingar í gufu og tíu mínútur í sjópottinn. Klukkan var farin að ganga sjö þegar ég kom heim.
8.7.24
Ný vinnuvika og osteostrongtími í dag
Var vöknuð frekar snemma eða um hálfsex í gærmorgun. Fór þó ekki á fætur fyrr en um hálfátta. Pabbi var þá þegar klæddur og kominn á ról og byrjaði á því að spyrja hvað við ættum að hafa í matinn síðar um daginn. Það var fljótákveðið því ég vissi að hann ætti til bleikju í frysti. Upp úr klukkan tíu bauð hann mér með sér í bíltúr. Við fórum sem leið lá á æskuslóðir og keyrðum framhjá Heiði. Rétt við Kaldbak keyrði hann inn á slóða og að hliði sem þurfti að opna. Skilti við hliðið bannaði skotvopn og mótorhjól. Skammt innan hliðs/girðingar skiptist slóðinn í tvennt. Pabbi hafði farið þann hægri áður og ákvað að beygja til vinstri. Sá slóði er sennilega mun minna notaður og eftir að hafa keyrt nokkra kílómetra eftir honum og m.a. kannað aðstæður gangandi sums staðar ákvað pabbi að snúa við og fara frekar hinn slóðann. Sá slóði var mun betri yfirferðar og reyndar um fleiri leiðir að ræða en bara þann slóða. Þetta voru mjög fallegar leiðir og komum við niður skammt frá Selsundi. Keyrðum svo aftur framhjá Heiði í baka leiðinni. Komum við í búðinni og keyptum sallat og sæta kartöflu. Þá var klukkan farin að ganga eitt. Ég fór næstum beint í að elda þegar við komum aftur í Hólavanginn. Setti upp hýðishrísgrjón, skrældi kartöfluna, bitaði niður og setti í annan pott. Hitaði svo sallatmaster pönnuna upp í 150°C og skellti tveimur frosnum flökum af bleikju á í uþb korter. Maturinn var tilbúinn fyrir klukkan hálftvö og var mjög góður. Lagði kapla, las, prjónaði og/eða horfði á þætti til klukkan að ganga sex en þá tók ég mig saman, kvaddi pabba og brunaði í bæinn. Nokkuð greiðfært var að Selfossi. Við hringtorgið austan við Selfoss sýndist mér vera smá röð svo ég ákvað að fara sömu leið og ég hafði komið deginum áður og fara Þrengslin í bæinn. Skammt frá Eyrarbakka var verið að reka hestastóð smá spöl en það tók ekki svo langan tíma. Fáir voru á ferðinni í Þrengslunum en þegar ég var komin að afleggjaranum að Bláfjöllum hægðist verulega á og stoppaði og svo var hægt að mjaka sér áfram einhverja metra á tíu kílómetra hraða. Það greiddist ekki úr þessari sultu fyrr en á seinna hringtorginu við Rauðavatn. Var komin heim milli hálfátta og átta, rétt á undan N1 syninum sem var að vinna á Gagnvegi til hálfátta.
7.7.24
Hjá pabba
Var komin á fætur um hálfsjö í gærmorgun og í sund tæpum tveimur tímum síðar. Synti 500 metra á braut 6, næstum alla á bakinu. Fór fjórum sinnum fjórar mínútur í 10°C kalda pottinn, einu sinni í gufuna, sjópottinn og 42°C pottinn. Gerði æfingar í gufunni og heita pottinum. Sat svo góða stund á stól í sólbaði áður en ég fór í sturtu og þvoði mér um hárið. Var komin heim upp úr klukkan hálfellefu. Sótti þvott niður á snúru og pakkaði niður í tösku áður en ég fékk mér skál af ab-mjólk með bláberjum og allskonar fræjum og hnetum í. Oddur kom fram um það leyti sem ég var að leggja af stað austur. N1 sonurinn var á vinnuvakt. Keyrði Þrengslin og þegar ég keyrði Fossheiðina tók ég beygju inn í botnlangann þar sem tvíburaforeldrarnir eru til húsa. Hafði ekki gert boð á undan mér en þau voru heima við og tóku vel á móti mér. Gústi var að dunda í bílskúrnum en við Ásdís sátum úti á palli og spjölluðum þar til mér var orðið of heitt á bakinu. Stoppaði eitthvað á annan tíma áður en ég hélt förinni áfram. Var að koma að Landvegamótum stuttu fyrir þrjú þegar tveir lögreglubílar á ljósum og miklum hraða tóku fram úr. Sá það á netmiðlum síðar um daginn að sérsveitin var kölluð út í aðgerðir í Þykkvabænum. Annars horfðum við pabbi á báða leiki dagsins á EM karla. Fyrri leikurinn fór í framlengingu og vítaspyrnukeppni þar sem Englendingarnir höfðu betur gegn Sviss. Seinni leikurinn fór ekki í framlengingu. Tyrkir voru á undan að skora en Hollendingar settu svo tvö mörk og spila gegn Englandi í undan úrslitunum sem fara fram á þriðjudag og miðvikudag n.k.
6.7.24
Rífandi gangur
Vaknaði upp úr klukkan fimm í gærmorgun, nánast útsofin. Fór á fætur fljótlega. Morgunstundin leið hratt en hún var líka notuð ágætlega, m.a. við æfingar. N1 sonurinn fór í vinnu um sjö og ég var mætt í mína vinnu um hálfátta leytið. Fyrrum fyrirliði er ennþá veik og fyrirliðinn í sumarfríi en þá er nú gott að Petra fékk sumarvinnuna hjá okkur. Hún er aðallega staðsett í reiðufénu en hún kemur sterk inn í kortagerðina þegar á þarf að halda. Og það var kortaframleiðsludagur í gær. Við vorum byrjaðar að framleiða fyrir klukkan hálfníu og kláruðum uppsafnað daglegt fyrir fimmtudag og föstudag um hálftíu. Vorum búnar að ganga frá því öllu áður en við fórum í endurnýjun eftir kaffi. Milli hálfellefu og hálfþrjú (mínus 30 mínútur í matarhlé) endurnýjuðum við svo yfir nítjánhundruð kort. Eigum þá samt eftir að endurnýja rúmlega tvöþúsund. Stimplaði mig út um hálffjögur og ákvað að skella mér í Nauthólsvíkina. Hringdi í pabba þegar ég lagði af stað og spjallaði við hann í gegnum wifi í bílnum alla leiðina. Hann var nýbúinn að kveðja fjóra gesti, tvö systkyni og maka þeirra. Systkynin og mamma voru systkynabörn. Önnur hjónin búa í Noregi en eiga íbúð í Kópavogi og heimsækja þau Ísland amk einu sinni á ári og stoppa í nokkrar vikur. Þessi frænka mín á sama afmælisdag og mamma heitin og mamma hélt því alltaf fram að hún hefði fengið hana í afmælisgjöf enda var alltaf mjög kært á milli þeirra. - Það var flóð í Nauthólsvík en samt ekki eins mikið og á miðvikudaginn. Synti og svamlaði alla leið út að kaðli, líklega uþb 300m. Hefði alveg getað synt til baka aftur en ákvað handlanga mig upp og rölta svo beinustu leið í búningsaðstöðuna aftur. Skolaði af tánum og úr strandskónum og sundbolnum. Var komin heim um hálffimm. Náði restinni af fyrri hálfleik milli Þýskalands og Spánar (sem vann), öllum seinni sem og framlengingunni og horfði á allan seinni leik dagsins milli Frakklands og Portúgals sem einnig fór í framlengingu og alla leið í vítaspyrnukeppni þar sem Frakkar höfðu betur. Það kemur svo í ljós í dag hvaða tvö önnur lið fara í fjögurra liða úrslitin.
5.7.24
Strax kominn föstudagur
Samkvæmt ráðleggingum frá mannauð RB og einni sem vinnur í bókhaldinu sótti ég um styrk bæði til RB og SSF vegna osteostrong tímanna. Þetta var samþykkt og fékk ég stóran hluta af reikningum endurgreiddan í gær, bæði frá RB og SSF. Þessar styrktaræfingar flokkast undir sjúkraþjálfun. Ráðleggingar fékk ég vegna þess að ég setti inn fyrirspurn hvort ég gæti nýtt það sem ég á eftir að líkamsræktarstyrknum í osteostrong dæmið. Ef sá styrkur hefði verið fullnýttur hefði ég ekki einu sinni spáð í þessu. Það er hægt að fá styrk fyrir 30 tíma á ári og ég fékk semsagt fyrir alla 26 tímana sem ég var búin að fjárfesta í og búin að fara í tvo af þeim og reiknast til að að ég hafi sjálf aðeins þurft að greiða innan við þrettánþúsund. Þetta kemur sér vel fyrir heilsu og veski. - Annars var ég í innleggjum í gær. Það gekk vel. Þurfti líka aðeins að skreppa niður til að færa tóma póstbakka úr öðrum skúrnum yfir í kortagerðarrýmið. Notaði tækifærið og skráði mig inn á framleiðsluvélina til að kanna smávegis sem og að endurnýja aðgangsorðið. Stimplaði mig út úr vinnu um hálffjögur og fór beinustu leið í sund. Skrópaði reyndar í sundinu sjálfu en hitti kalda potts vinkonu mína og við fórum nokkrar ferðir í kalda, eina í magnesíum pottinn, eina í gufu og eina í sjópottinn. Enduðum svo á því að sitja góða stund á stólum í sólbaði. Var komin heim um hálfsex leytið. Bræðurnir komu heim skömmu síðar en þeir fóru saman í Þorlákshöfn að leysa út jólagjöf frá föðurbróður þeirra.
4.7.24
Framleiðsla og sjósund
Vaknaði nokkrum mínútum áður en vekjarinn átti að ýta við mér. Hafði reyndar rumskað aðeins um hálffimm leytið en sofnaði sem betur fer aftur. Það var samt alveg nógur tími í netvafr og æfingar áður en ég dreif mig í vinnu. Ég sá um að undirbúa framleiðslublöð og prenta þau út ásamt skipti- og talningablöðum. Ætluðum að byrja framleiðslu um hálfníu en kortavélin var ekki samvinnuþýð og þegar við vorum búnar að reyna öll trix sem við kunnum hringdum við á vin. Hann kom fljótlega og endurræsti m.a. hugbúnaðinn sem "talar" við örgjörvamódúl vélarinnar og við tókum vélina aftur niður á meðan. Þetta virtist ekki ætla að vera nóg til að koma vélinni af stað. Svo þegar tæknimaðurinn kom að skjánum við vélina til að skoða eitthvað betur þá hrökk hún í gang og gekk bara þokkalega vel restina af deginum. Framleiddum allt daglegt fyrir hádegi og endurnýjuðum rúmlega tólfhundruð kort milli eitt og þrjú. Lentum í smá brasi með umslagavélina en það var líklega vegna gallaðra umslaga. Fékk Petru líka til að lesa yfir síðustu tölur vegna mánaðamótauppgjörs og skilaði þeim svo af mér. Stimplaði mig út um hálffjögur og fór beinustu leið í Nauthólsvík. Smá umferðatafir voru á leiðinni en ég var komin út í 12°C sjóinn á háflóði tuttugu mínútur yfir fjögur og svamlaði um í næstum hálftíma. Gerði æfingar í gufunni og dýfði mér svo smástund í lónið áður en ég fór upp úr og heim. Hringdi í pabba í bílnum á leiðinni heim og við spjölluðum það lengi að ég var komin í stæði hér heima og búin að drepa á bílnum amk sjö mínútum áður en við feðgin hættum spjallinu. Fitjaði upp á því sem kannski verður ullarennisband.
3.7.24
Reikningagerð
Var vöknuð og komin á fætur um hálfsex leytið í gærmorgun. Það var því feykinógur tími í netvafr og úlnliðsæfingar. Mætti í vinnu um hálfátta og fljótlega kom í ljós að fyrrum fyrirliði yrði sennilega frá meiri partinn af vikunni, kannski alla, vegna veikinda. Ég fór því að sinna kortatengda mánaðamótauppgjörinu. Eftir kaffi og alveg til tvö (mínus hádegishlé) var ég í innlögnum en síðasta klukkutímann fór ég aftur í uppgjörið sem er langt komið. Á bara eftir að fá tölurnar yfirlesnar. "Slapp" út úr húsi eftir uþb átta tíma vinnu og fór beinustu leið yfir í Laugardalinn. Þar hitti ég kalda potts vinkonu mína og tvær af þremur systrum hennar. Systurnar eru lítið fyrir kalda pottinn en við Hrafnhildur fórum fjórar ferðir og inn á milli í þann heitasta, sjópottinn, 42°C pottinn og gufuna. Var komin heim um hálfsex leytið.
2.7.24
Tími tvö í osteostrong
Rumskaði um fimm í gærmorgun og var komin á fætur hálftíma síðar. Eftir morgunverkin á baðherberginu og smá netvafr greip ég í prjónana í smá stund áður en ég gerði fyrstu æfingalotu dagsins. Var mætt í vinnu upp úr klukkan hálfátta. Vel gekk í gær og unnum við okkur í haginn fyrir daginn í dag en þriðjudagarnir er oft langstærstu dagarnir. Semsagt allt klárað og meira til á innan við átta tímum. Sumarliðarnir eru mjög öflugir. Ég hefði því ekkert þurft að kvíða því að verða sein í Hátún 12 þar sem ég fer í osteostrong tíma á fimmta tímanum á mánudögum. Var komin fyrir utan fyrir klukkan fjögur en fór þó ekki inn fyrr en eftir útvarpsfréttirnar. Þrátt fyrir að klukkan væri ekki orðin tuttugu mínútur yfir þá þurfti ég ekki að bíða neitt og var búin um hálffimm. Þrátt fyrir að vera með sunddótið með mér í bílnum ákvað ég að fara beinustu leið heim, slaka á og horfa á EM.
1.7.24
Í sjóinn á sunnudegi
Klukkan var nýorðin átta þegar ég vaknaði í gærmorgun. Held að ég hafi verið sofnuð um miðnættið svo þetta var amk uþb átta tíma svefn. Eftir morgunverkin á baðherberginu og lýsis inntöku settist ég inn í stofu með fartölvuna í fanginu. Það hefði auðveldlega getað stefnt í "veraheimainniletidag" en um hálftíu fékk ég mér ab-mjólk með alls konar hnetum og fræjum og um tíu fór ég út úr húsi með sjósundsdótið meðferðis. Fór tvisvar út í 12°C sjóinn, fyrst í uþb tuttugu mínútur og eftir ca tíu mínútur í heita pottinum aftur út í í fimm mínútur og svo beinustu leið inn í klefa. Skolaði sundbol, strandskó og tær en sleppti því að skola alveg af mér líkt og ég gerði fyrir helgi. Úr Nauthólsvíkinni lá leiðin vestur á Fiskislóð. Keypti bílþvott hjá Löðri. Stoppaði næst hjá Krónunni. Byrjaði á því að hringja í pabba og spjalla við hann áður en ég fór inn í búðina og verslaði. Var komin heim um tólf. Davíð Steinn var þá farinn úr húsi að hjálpa einni vinkonu sinni að setja saman skáp. Oddur Smári var kominn fram en vissi ekki að hann væri einn heima. Hann horfði á einn þátt af NCIS með mér en rakaði svo af sér allt skeggið og ryksugaði inn á baði. Davíð Steinn kom heim upp úr klukkan tvö og rúmum tveimur tímum seinna fóru þeir bræður til pabba síns. Ég horfði á báða leikina í 16 liða úrslitum á EM karla.
30.6.24
Í mega veislu í gærkvöldi
Var vöknuð um hálfsjö leytið í gærmorgun. Fór í sund á tíunda tímanum. Synti 600m, fór þrisvar í kalda pottinn, einu sinni í nudd pottinn, einu sinni í sjópottinn og sat örugglega í 30 mínútur á stól í sólbaði. Sleppti alveg gufunni. Kom heim skömmu fyrir hádegi. Horfði á undanúrslitaleik í bikakeppni í knattspyrnu kvenna og fyrri leikinn í 16 liða úrslitunum á EM karla. Um sex leytið skutlaði Oddur mér heim til sjósundsvinkonu minnar sem var að halda upp á sextugsafmælið sitt á afmælisdaginn sinn í gær. Viðburðurinn var samt kallaður Sumargleði Alla og Helgu Rúnar og var mexíkanskt þema. Þetta var þvílíka veislan með óvæntum uppákomum og leynigestum. Hjónin og einn vinur voru með smá ræðuhöld, það kom stúlka og kenndi gestum undirstöðu atriði í salsadönsum og tóku flestir þátt í þeim gjörningi og svo mætti sjálfur Herbert Guðmundsson á svæðið, byrjaði á því að stjórna afmælissöng en tók líka nokkur gömul og ný lög og það var sungið og dansað með. Yngri sonur hjónanna var barþjónn og boðið var upp á rósavín, bjór, skot og margarrítur sumt bæði áfengt og óáfengt. Ég lagði ekki í sterkari drykk en venjulegt vatn (hversdags hvítvín) en leyfði mér að smakka á mörgu sem var á mexíkanska hlaðborðinu. Hitti eina konu sem man eftir mér úr FSu, ári yngri, ég kannaðist ekkert við hana en við spjölluðum í smá stund. Þarna voru líka einhverjar sem ég bæði þekki eða kannast við úr sjósundinu og svo var þarna líka skólasystir tvíburanna úr 96 árganginum í Hlíðaskóla. Helga Rún var prófdómari hennar í textílverkefnum og hún var í saumateymi yngri sonarins sem var að útskrifast úr frægum hönnunarskóla í London í vor og er komin með vinnu í París. Var að fljúga út snemma í morgun. Eldri sonur hjónanna kom stutta stund í partýið með eins árs dóttur sína en konan hans átti að eiga þeirra annað barn á mánudaginn var en var ekki komin af stað. Veislan átti að standa til klukkan eitt en ég lét gott heita um ellefu leytið og fékk Odd til að sækja mig aftur.
29.6.24
Gleymdi mér aðeins á vafrinu
Svaf heila sjö tíma í fyrrinótt og var samt vöknuð á undan klukkunni. Mætti í vinnu á svipuðum tíma. Fyrstu þrjú korterin var ég í innleggjum en á milli hálfníu og tvö var ég í kortaframleiðslu á móttöku endanum á vélinni. Síðasta klukkutímann var ég aftur í innleggjum. Stimplaði mig út upp úr klukkan þrjú og var komin í Nauthólsvík um hálffjögur leytið. Svamlaði um í sjónum í tæpar tuttugu mínútur en fór hvorki í gufuna né pottinn heldur beint upp úr aftur. Skolaði tær og sundbol en sleppti sturtunni að öðru leyti. Kom heim um hálffimm og þá fengu bræðurnir bílinn minn til að fara með nokkra poka af flöskum og dósum í endurvinnslu.
28.6.24
Það er sól en smá ferð á logninu
Svefninn í fyrrinótt var eitthvað slitróttur. Líklega smá spenningur að mæta aftur í vinnu eftir sex vikna frí. Man að ég þurfti fram á salernið um tvö leytið og pissaði eins og ég hefði sofið alla nóttina en ekki bara rúmlega þrjá tíma. Man ekki hvenær ég náði loksins að sofna aftur en var vöknuð aftur um sex, áður en vekjaraklukkan hringdi. Vafraði á netinu en gaf mér líka tíma að gera fyrstu æfingalotu dagsins áður en ég fór úr húsi. Mætti í vinnuna tuttugu mínútum fyrir átta. Vel var tekið á mótin mér. Ég fyllti á vatnsflöskuna og settist um stund inn í kaffirými að spjalla við eina samstarfskonu mína. Var þó sest við borðið mitt og skjáina fyrir klukkan átta. Það tók smá tíma að komast inn, næstum hálftíma, en þurfti þó enga utanaðkomandi aðstoð eins og þegar ég mætti í vinnu eftir veikindaleyfið. Var byrjuð að vinna innlegg upp úr klukkan hálfníu. Sex sumarliðar voru á svæðinu, tel Petru með í þeirri tölu. Vinnan gekk vel og ég var búin og gat farið í sund um þrjú leytið. Kaldi potturinn var í heitara lagi, sennilega rúmlega tólf gráður, því það var hægt að sitja næstum endalaust í honum. Synti 400m, gerði æfingar í gufunni, sat í nuddpottinum þegar sturtað var magnesíum út í hann um fjögur leytið og sat einnig góða stund í sólbaði og á spjalli. Kom heim um fimm leytið. Vafraði aðeins á netinu, gerði æfingar og horfði á þætti. Var eitthvað að spá í að skreppa aðeins út í göngu en ekkert varð af þeirri hugmynd. Var komin upp í rúm um hálftíu og farin að sofa hálftíma síðar.
27.6.24
Stutt vinnuvika framundan
Vaknaði stuttu fyrir sjö í gærmorgun. Fór í sund á tíunda tímanum. Í annarri ferðinni í kalda pottinum hitti ég konu sem sagðist kannast svo við mig. Þegar ég sagðist vera Rangæingur frá Heiði á Rangárvöllum kom önnur kona aðvífandi og sagðist hafa verið í sveit hjá Steina og Svövu og sú var alveg viss um að ég hlyti að vera dóttir Hjalta. Flaskaði alveg á því að spyrja þessa konu að nafni en í ljós kom að hin konan var frænka mín, fjórmenningur, ein af þremur börnum Skúla heitins og Erlu sem ég man eftir þegar þau bjuggu á Kornbrekkum. Erla er enn á lífi, verður nítíuogfimm ára síðar á árinu og býr enn heima. Hitti þessa frænku, Hansínu, aftur í sjópottinum og þegar við kvöddumst vorum við báðar margbúnar að senda kveðju, ég á mömmu hennar og hún á pabba minn. Kom við í Fiskbúð Fúsa á heimleiðinni og keypti mér ýsu í soðið sem ég setti strax upp í hádeginu. Um hálfþrjú leytið skrapp ég út í fimm kortera göngutúr og fór að þessu sinni hring um Öskjuhlíðina með tveimur stuttum stopp pásum. Það voru í heildina 5,3km. Kom heim aftur mátulega fyrir fyrri leiki dagsins og horfði á fótbolta og þætti fram eftir degi og fram á kvöld.
26.6.24
Síðasti sumarfrísdagurinn í bili
Í kvöld mun ég stilla vekjarann minn aftur eftir nokkuð gott hlé. Þótt ég hafi verið að rumska og vakna frekar snemma oftast sl sex vikur er betra að hafa vaðið fyrir neðan sig. Annars var gærdagurinn ósköp ljúfur og ég stefni á að þessi dagur verði það líka. Er kannski ekki búin að gera alveg allt sem ég hafði á bak við eyrað í byrjun frísins en samt alveg helling og ég get ekki verið annað en sátt.
Var komin á fætur milli hálfsjö og sjö í gærmorgun. Klukkan var að byrja að ganga níu þegar ég dreif mig loksins í sund. Engin hreyfing var á strákunum enda N1 sonurinn í vaktafríi og ekkert fyrirliggjandi hjá þeim atvinnulausa. Ég kom heim aftur um ellefu leytið. Þá sat Davíð Steinn í bílnum sínum rétt að leggja af stað með augnvottorð til að skila inn til sýslumanns svo hægt sé að afgreiða fullnaðar ökuskírteinið. Hann hafði átt tíma hjá heimilislækni í síðustu viku en þann dag sem tíminn var var pilturinn mjög utan við sig og fattaði það ekki fyrr en hann fór að sofa það kvöldið að hann hefði gleymt að mæta. Hann fékk nýjan tíma, 10:40 í gærmorgun, og hafði sett hann inn í skipulagið sitt svo hann myndi ekki gleyma sér aftur. Um eitt leytið fór ég út í klukkutíma göngu um Öskjuhlíð. Tók einhverja króka því ég rambaði á tökustað og hvort sem það var verið að taka upp eða bara setja upp senuna þá vildi ég ekki æða alveg í gegn. Sá reyndar engar myndavélar en tvö "lík" við einn stíginn. Snéri við og fann annan stíg, nóg af stígum og leiðum í Öskjuhlíðinni. Svo var það misskemmtilegur fótbolti milli fjögur og sex og sjö og níu. Prjónaði helling og horfði á einhverja þætti líka.
25.6.24
Fjárfest í árskorti í gærmorgun
Rumskaði upp úr klukkan fimm í gærmorgun. Var komin á fætur um sex og settist fljótlega í stofusófann með fartölvuna í fanginu. Gleymdi tímanum aðeins og mér fannst vera að stefna í einhvers konar letidag. Greip því til minna ráð stuttu fyrir tíu. Fékk mér tilbúinn chia-graut sem ég hafði undirbúið í fyrradag og átti í ísskápnum. Tók svo til sjósundsdótið og var komin í Nauthólsvík fyrir klukkan hálfellefu. Þar er sumar opnunartími, opið alla daga frá 10-19. Byrjaði á því að endurnýja árskortið en hitt hafði runnið út um miðjan maí. Tók kvittun því ég held að líkamsræktarstyrkur vinnunar muni dekka þennan kostnað líka þótt ég sé búin að fjárfesta í árskorti í sund fyrr á árinu. Sjórinn var annars nokkuð nálægt 11°C. Fór hanskalaus út í, með vilja, og svamlaði um í ca tíu mínútur. Fór í gufuna í örfáar mínútur, útisturtu og sat svo í pottinum í uþb korter áður en ég fór upp úr og heim. Seinna um daginn fór ég svo í Hátún 12 í minn fyrsta osteostrong tíma. Ferlið var mjög svipað og í kynningartímanum en sú sem fylgdi mér eftir lét mig gera aðeins öðru vísi jafnvægisæfingar á skjálftapallinum. Allt ferlið frá því ég fór fyrst á pallinn og þar til ég var búin með 8 mínútna slökun í restina tók innan við tuttuguogfimm mínútur. Fyrir utan hvíld og hristipall eru fjögur tæki og ég held að ég hafi verið hámark tvær mínútur í hverju þeirra. Samt kófsvitnaði ég við átökin sem voru þó frekar mjúk en ég þurfti að halda réttri stöðu og anda ofan í kviðinn í einhverjar sekúndur. Um kvöldið horfði ég svo aðallega á leik Ítalíu og Króata en skipti stöku sinnum yfir í leika Albana og Spánverja.
24.6.24
Dagarnir byrja snemma
Held að það haldist í hendur af ef ég er sofnuð fyrir klukkan ellefu á kvöldin vakna ég útsofin í kringum sex leytið. Oft er klukkan ekki einu sinni orðin hálfsex. Blaðran "ýtir" mér á fætur og yfirleitt þýðir ekkert að reyna að kúra sig niður aftur. Þá sjaldan að ég nenni ekki að klæða mig strax gríp ég í einhverja bókina á náttborðinu og les um stund. Ég var komin í sund í gær fyrir klukkan hálfníu tveimur tímum eftir að ég fór á fætur. Eftir 4 mínútur í kalda pottinum synti ég 500m á braut 6. Fór tvær aðrar ferðir í þann kalda, gerði æfingar í gufunni og flatmagaði í sjópottinum í rúmt korter. Var komin heim um tíu leytið. Þá var N1 sonurinn farinn í vinnu. Um hádegisbilið bjó ég mér til hafragraut, tvo skammta, þannig að ég á til einn skammt í dalli inni í ísskáp. Upp úr klukkan eitt skrapp ég út í rúmlega hálftíma göngu. Annars var ég að prjóna og horfa á þætti fram eftir degi. Eldaði mér lax í kvöldmatinn. Horfði svo á megnið af leik Skota og Ungverja en kíkti aðeins á hinn leikinn í riðlinum milli Sviss og Þýskalands.
23.6.24
Bríet tvítug í dag
Var komin á fætur um sex leytið í gærmorgun. N1 sonurinn fór í vinnuna upp úr klukkan sjö og ég var mætt í sund stuttu eftir opnun, um átta. Hitti sjósunds vinkonu mína, bæði á brautum sjö og átta og svo aftur í sjópottinum. Þvoði mér um hárið áður en ég fór upp úr og beinustu leið vestur í bæ til esperanto vinkonu minnar. Var komin þangað um hálfellefu og stoppaði í uþb klukkutíma. Annars fór megnið af gærdeginum í fótbolta- og þáttaáhorf og prjón.
22.6.24
Skroppið á Skagann
Í gærmorgun fór ég á fætur um sjö leytið. Lagði af stað í sund tuttugu mínútum fyrir níu og þáði Oddur far með mér í Borgartúnið á síðasta námskeiðsdaginn. Sundrútína gærdagsins tók allt í allt rúm fimm korter. Fór beinustu leið heim eftir sundið. Upp úr hádeginu hringdi ég í vinnufélaga, sem er að jafna sig eftir maðmaliðsskipti, til að athuga hvernig ég sækti að. Ég var meira en velkomin. Þessi vinnufélagi á íbúð í Breiðholtinu en fjarbýlingur hennar á íbúð á Akranesi og þar eru engar tröppur eða stigar og því betra að vera þar. Kom við hjá N1 syninum sem var á vakt og fékk hann til að jafna þrýstinginn á hjólbörðunum. Var ekki búin að fá viðvörun í mælaborði en eitt dekkið var komið niður í 27" þegar öll eiga að vera 32". Hvalfjarðagöngin voru lokuð vegna hjólreiðamanns í göngunum svo ég ákvað að keyra fyrir Hvalfjörðinn eins og margir aðrir. Meðalhraðinn fyrir fjörðinn var í kringum 70km. Ég var komin á Akranes korter í þrjú og rambaði beinustu leið á réttan stað. Hélt kannski að ég þyrfti að stoppa og finna leiðarlýsingu en þurfti þess ekki. Þórný tók mjög vel á móti mér. Ég var með prjónana meðferðis. Hún var með ýmis handverksverkefni í gangi, prjón og hekl og fullt af garni. Þannig að hún er ekki verkefnalaus. Hún er farin að fara í stuttar göngur úti og í næstu viku má hún fara að keyra sjálf. Bæði systir og dóttir fjarbýlismannsins hafa verið duglegar að hjálpa henni og skutla henni. Tvær systur hennar sjálfrar höfðu verið í heimsókn hjá henni á fimmtudaginn og átta ára systurdóttir hennar fékk að baka. Stoppaði í rúma tvo tíma. Fór göngin til baka og var komin heim um sex leytið.
21.6.24
Snerting - mögnuð mynd
Var enn fyrr á fótum í gærmorgun, komin á stjá um sex. Morguninn leið þó fremur hratt. Oddur Smári kom fram stuttu fyrir átta og ég bauð honum aftur far á námskeiðið sem hann þáði. Ég var komin í sund rétt fyrir níu. Byrjaði í kalda pottinum áður en ég fór á braut sex og synti 400m. Fór þrjár aðrar ferðir í þann kalda, eina í gufuna, eina í nudd/magnesíum pottinn, eina í sjópottinn og settist svo á stól í góðar fimm mínútur áður en ég fór upp úr. Kom við í Fiskbúð Fúsa á leiðinni heim. Hitti vinnufélaga með ungan son sinn fyrir utan búðina og við spjölluðum dágóða stund. Þessi vinnufélagi var að vinna í K1 síðasta rúma árið sem kortadeildin var þar. Hjá Fúsa keypti ég ýsu í soðið, harðfisk, smá laxaflak (í frystinn) og gulrætur. Eldaði mér hádegismat fljótlega eftir að ég kom heim. Davíð Steinn var kominn á stjá en það þýddi hvorki að bjóða honum né Oddi, þegar hann kom af námskeiðinu, með mér. Davíð Steinn tók sig til síðar um daginn og eldaði sér bæði í nesti og til áts. Horfði á tvo fyrri leiki dagsins á EM karla en bara fyrstu tíu mínúturnar í loka leiknum því ég var búin að mæla mér mót við vinkonu við Laugarásbíó um hálfátta til að sjá myndina Snertingu eftir Baltasar sem byggð er á bók Ólafs Jónhanns Ólafssonar. Bókin er mjög góð að mínu mati og myndin er alveg mögnuð. Tveir tímar liðu alltof hratt. Var komin heim aftur klukkan að verða hálfellefu.
20.6.24
Ennþá tæp vika eftir af fríinu
Vaknaði um hálfsjö í gærmorgun og dreif mig fljótlega á fætur. Eftir morgunverkin á baðherberginu settist ég inn í stofu með fartölvuna í fanginu. Oddur Smári kom fram ca klukkutíma síðar eða milli hálfátta og átta. Hann átti að mæta á námskeið, þriðji dagur af fimm, klukkan níu. Úti var mikil rigning og ég bauðst til að skutla honum þegar ég færi í sund. Hann þáði það. Ég var komin í kalda pottinn um níu. Fór svo á braut 2, þar sem það var sundleikfimi á brautum 7 og 8, og synti 300metra. Fór þrjár aðrar ferðir í þann kalda. Í gufunni frétti ég að sést hefði til stærðarinnar rottu við sjópottinn fyrr um morguninn. Ég held að tekist hafi að veiða kvikindið, varð amk ekki vör við neitt svoleiðis þessi fimm korter sem ég var í sundi. Eftir sundið fór ég í Krónuna í Skeifunni. Var að setja vörurnar í skottið þegar Oddur hringdi um ellefu. Búið var að fara yfir námskeiðsskammtinn þann daginn. Náði í soninn og hann hjálpaði mér með vörurnar inn. Lánaði honum svo bílinn svo hann gæti farið að versla fyrir sig. Davíð Steinn var greinilega alveg búinn á því eftir síðustu vaktatörn því hann vaknaði ekki fyrr en um miðjan dag. Hann skrapp í verlsunarferð um sex. Horfði annars á alla EM leikina í gær, prjónaði alveg helling og bauð strákunum upp á steikt slátur í matinn, aldrei þessu vant. Þeir þáðu boðið en það er orðið afar sjaldan sem ég elda fyrir okkur öll. Gafst eiginlega upp á því þar sem oftar og oftar kom fyrir að þeir borðuðu lítið sem ekkert af því sem ég var með í matinn. Davíð Steinn er mjög duglegur að sjá um eldamennsku fyrir sig sjálfan. Eldar þá gjarnan þannig að hann geti tekið með nesti á vinnuvaktir. Oddur er mjög lítið fyrir eldamennsku, kaupir sér brauð, flatbrauð og ost og einnig heimsendan skyndibita stöku sinnum.
19.6.24
Komin heim
Ég var nýlega komin á fætur þegar pabbi kom heim úr sundi í fyrra fallinu, milli hálfátta og átta. Hann sagðist þó hafa getað gert flest af sundrútínunni nema farið í rennibraut og gufu. Hann stoppaði alls ekki lengi heima því hann átti tíma hjá augnlækni seinna um morguninn. Morguninn leið mjög hratt hjá mér við svipaða hluti og ég var að gera í fyrradag, leggja kapla, prjóna, vafra á netinu og fleira. Pabbi kom aftur upp úr eitt og um svipað leyti fékk ég skilaboð frá konu sem ég var hjá í sveit um fermingu um að hún væri komin heim eftir skrepp á Selfoss. Fljótlega tók ég mig saman og kvaddi pabba sem var sennilega að fara undirbúa sig undir pönnukökugerð og síðar sultugerð. Ísbíllinn var mættur í sveitina þegar ég kom þar upp úr klukkan tvö. Sá sem var á bílnum var inni að fá sér hressingu. Ég spurði hvort hann væri með sykurlausan ís og keypti af honum einn pakka, áður en hann fór, og fékk að geyma hann í frystikistunni hjá Helgu og Óla á meðan á heimsókn minni stóð. Þetta var fyrsta heimsókn ársins í sveitina, liðið hátt í eitt ár frá því ég kom þar síðast. Ég batt ekki enda á kaffipásuna, bað bara um kalt vatn. Sleppti líka að fá mér af kökunum sem voru á borðum. Fékk mér eina brauðsneið með osti en lét svo vatnið duga. Hafði mestan áhuga á því að spjalla við Helgu og seinna Óla þegar hann og yngsti sonurinn komu inn úr smá girðingavinnu. Tengdadóttirin hafði komið inn aðeins fyrr eftir að hafa sótt börnin tvö, Þorstein og Söru, á leikskólann. Það er alltaf gott að koma í afa og ömmuhús en þau fóru reynda inn í sjónvarpsherbergi, smá feimin við gestinn. Stoppaði í rúma tvo tíma sem liðu alveg ótrúlega hratt. Var komin heim um sex og hjálpaði Oddur mér með dótið úr bílnum. Hann hafði engan áhuga á því að smakka sykurlausa ísinn. Það gerði aftur á móti bróðir hans þegar hann kom heim úr vinnu upp úr klukkan átta.
18.6.24
Ennþá á Hellu
Við pabbi fórum hvorki í skrúðgöngu né yfir höfuð út úr húsi í gær. En það hefði nú verið í frásögur færandi ef við hefðum tekið upp á því. Þess í stað höfðum við það mjög notalegt hér á númer 24. Lagði kapla, vafraði á netinu, gerði æfingar, prjónaði og horfði að fullt af fótbolta. Hafði bleikju handa okkur í hádeginu og það var svo ekki fyrr en ég fór upp í rúm um ellefu að ég leit í bók.
17.6.24
Lýðveldi Íslands 80 ára í dag
Rumskaði upp úr klukkan sex. Snéri mér aðeins á hina hliðina. Um sjö skrapp ég fram á salernið en skreið aftur upp í rúm. Las til klukkan að verða hálfátta. Þá dreif ég mig loksins á fætur. Pabbi hafði aðeins farið á stjá um sex leytið en hann kom svo klæddur fram um níu leytið. Klukkutíma síðar fór hann á rabbabara veiðar hjá nágrönnunum á no 22. Hann var búinn að fá leyfi og það var nóg til. Upp úr hádeginu tók ég að mér að skera niður uppskeruna í ca 9mm bita. Markmiðið hjá pabba var að fylla tvo fimm kílóa poka og frysta. Fyrstu "veiðarnar" mældust rúmlega sjö kíló. Þá var náð í aðeins meira. Seinni pokinn mældist 4,750kg en pabbi ákvað að láta það gott heita. Hann mun svo taka annan pokann úr frysti einhvern tímann í næstu viku og sjóða úr honum sultu. Veðrið var einstaklega gott en við fórum þó inn um fjögur leytið og horfðum á hluta af öðrum leik dagsins á EM í knattspyrnu karla. Horfðum á allan síðasta leikinn eftir kvöldmat.
16.6.24
Sumarblíða
Dreif mig á fætur um sjö í gærmorgun. Það fóru svo þrjú korter í netvafrið og færsluna eftir morgunverkin á baðherberginu. Tíu mínútum fyrir átta settist ég upp í bíl með sund- og esperantodótið með mér. Var akkúrat að leggja á planinu við Laugardalslaug þegar morgunfréttir fóru í loftið og verið var að opna. Eftir þrjár mínútur í kalda pottinum synti ég 500m á braut átta og amk 200m á bakinu. Eftir næstu þrjár mínútur í kalda sat ég í gufunni í rúmar fimmtán mínútur og gerði æfingar. Næst lá leiðin í sjópottinn eftir kalda sturtu og eftir þriðju og síðustu ferðina í þann kalda settist ég í sólbað við hliðina á einni sundvinkonu minni þar til kominn var tími til að fara upp úr og þvo sér um hárið. Fór beinustu leið úr sundi vestur í bæ í esperantohitting og var komin þangað rúmlega hálfellefu. Stoppaði tæpan klukkutíma að þessu sinni en við lásum samt eina og hálfa blaðsíðu í Kontiki. Erum alltaf jafn hrifnar af þeirri bók. Fljótlega eftir að ég kom heim sendi ég af stað skilaboð í Fossheiðina og dreif mig í að pakka niður fyrir nokkra daga. Davíð Steinn var vaknaður og hjálpaði mér að ferma bílinn. Lenti í smá töfum á Miklubraut milli Lönguhlíðar og Kringlumýrarbrautar vegna framkvæmda við gatnamót. Að öðru leyti gekk ferðalagið vel. Fór Þrengslin og var komin í Fossheiðina upp úr klukkan hálftvö. Þar var vel tekið á móti mér þessa aðra heimsókn á árinu. Stoppaði í rúman klukkutíma og brunaði áfram austur á bókinn. Bruninu lauk þegar ég var nýkomin yfir Þjórsárbrú en það voru vegaframkvæmdir á kaflanum rétt við Holtaafleggjara (stendur Gíslholt á skiltinu) og næstum að Áshól. Umferðin var mikil í báðar áttir og langar raðir mynduðust. Klukkan var byrjuð að ganga fimm þegar ég kom í Hólavanginn. Pabbi hafði verið að klára að slá og var á spjalli við nágrannann í endahúsinu. Ég kastaði á þá kveðju en fór svo inn til að horfa aðeins á EM og prjóna.
15.6.24
EM 2024 fór af stað í gær
Byrjaði gærdaginn ósköp svipað og flesta morgna. Eftir morgunverkin á baðherberginu og sopa af turmenik-kanildrykk (fæ mér stundum sítrónuvatn eða eplaedik í vatni) settist ég með fartölvuna í fangið í stofusófanum. Reyndar skrapp ég niður í þvottahús fyrst og setti í vél korter fyrir átta. Vafraði um á netinu og skrásetti fimmtudaginn. Um níu leytið hafði ég samband við kalda potts vinkonu mína og sagðist fara í sund upp úr tíu þegar ég væri búin að hengja upp úr vélinni. Milli hálftíu og tíu greip ég í prjóna og gerði æfingar í framhaldi af nokkrum umferðum. Var mætt í kvennaklefann í Laugardalslaug tuttugu mínútum yfir tíu. Það voru fjórar ferðir í þann kalda, gufa, sjópottur og einn pottur til áður en ég synti 400m. Kom heim um tólf. Hitaði mér afganginn af linsubaunasúpunni. Um hálftvö skrapp ég í klukkutímagöngutúr. Rétt fyrir lokin á þeim göngutúr settist ég á bekk í Eskihlíðinni og hringdi í pabba. Hann var úti í garði að slá. Lét bara þokkalega af sér. Þó kom það fram að hann er nýlega búinn að hitta þvagfærasérfræðinginn og var settur á tvöfaldan og sterkan sýklalyfjakúr. Þótt hann sé hættur að leka og sjái um að tappa af sér sjálfur þá kemur víst alltaf sýking öðru hvoru sem endar með að hann þarf að fá eitthvað við henni til að losna við hana.
Í dag eru annars áttatíu ár síðan Sigrún mamma æskuvinkonu minnar fæddist en hún dó í október 2006 árið sem hún varð 62. Sigrún kenndi mér handavinnu í grunnskóla var ekki lærð en mjög flink. Síðar náði hún sér í kennararéttindi, útskrifaðist úr kennó sama ár og dóttirin, vorið 1992.
14.6.24
Osteostrong
Vaknaði snemma í gærmorgun. Var komin á stjá rétt fyrir sjö og hitti því aðeins á N1 soninn áður en hann dreif sig í vinnu. Um hálfátta heyrði ég í vekjara hins sonarins sem kom fram fljótlega og fór í sturtu. Ég vafraði á netinu til klukkan að verða átta. Þá greip ég í prjónana mína til að liðka mig upp fyrir fyrstu æfingalotu dagsins. Aldrei þessu vant er ég með tvö verkefni á prjónunum. Er að gera tilraun til að prjóna ennisband úr afgangnum af ullinni sem ég keypti á Ullarsetrinu á Hvammstanga þegar ég var á leiðinni norður í síðasta mánuði. Og svo er ég búin að fitja upp og byrjuð á enn einu eldhúshandklæðinu sem hugsanlega fær heimili hjá systur minni síðar meir. Oddur var annars á leiðinni í skyldunámskeið á vegum Vinnumálastofnunar, fyrsta dag af fimm. Hinir fimm verða virku dagana í næstu viku. Námskeiðið er frá 9-12 og hann rölti af stað niður í Borgartún rétt fyrir hálfníu. Rúmum klukkutíma síðar tók ég sunddótið með mér í bílinn en lagði leiðina fyrst í Hátún 12 í frían prufutíma hjá Osteostrong. Ég var ein mætt í þennan tíma og leið eins og prinsessu þar sem ég fékk óskipta athygli og aðstoð í þessari kynningu. Ferlið frá því ég mætti og þar til ég kvaddi tók rúma klukkustund og til að gera langa sögu stutta þá er ég að hugsa um að fjárfesta í þessu dæmi amk hálft ár. Tímarnir verða einu sinni í viku og ef einhverjar vikur detta út þá er ég ekki að glata þeim, fæ amk 24 tíma hvort sem ég tek þá út í hverri viku eða yfir 6-12 mánaða tímabil. Festi fyrsta tímann mánudaginn 24nk kl 16:20. Það er í sömu viku og ég byrja að vinna aftur eftir sumarfrí, einn af síðustu frídögunum í bili. Það er svo mjög líklegt að ég segi betur frá æfingunum þegar ég verð byrjuð að stunda þær en hver æfingatími á ekki að taka lengri tíma en 20-25 mínútur og það þarf engin sérstök æfingaföt.
Var komin í sund fyrir hálftólf. Ætlaði að byrja á því að synda en hitti fyrir konu frænda míns og þegar ég var búin að spjalla stuttlega við hana sá ég að kalda potts vinkona mín var að fara í þann kalda svo ég rauk til að hitta á hana. Vissi ekkert hvað hún væri búin að vera lengi á svæðinu en í ljós kom að hún var nýkomin og þetta hennar fyrsta ferð í kalda. Saman náðum við fjórum ferðum, hittum eina systur hennar eftir aðra ferð, fórum í gufu eftir þriðju ferð og svo í sjópottinn þar sem systir hennar var búin að koma sér fyrir. Klukkan tólf fórum við allar í nuddpottinn en þar var verið að hella magnesíum flögum út í og fengum við smá í lúkurnar til að dreifa á okkur. Eftir fjórðu ferðina í kalda pottinn synti ég aðeins 200m, þar af ca 75m skriðsund. Kom við í heilsuhúsinu í Kringlunni á leiðinni heim og splæsti á mig próteindrykk. Lagði bílnum á hornstæði við Blönduhlíð þegar ég kom heim. Hugmyndin var svo að skreppa út í göngu síðar um daginn. Ekkert varð úr þeirri áætlun en ég bjó til linsubaunasúpu og notaði hluta af afgangum af fiskinum frá deginum áður út í. Oddur þáði ekki að fá að smakka. Þeim mun meiri afganga á ég fyrir mig. Hringdi annars í einn vinnufélaga, Þórný, sem er að jafna sig eftir að fá nýjan maðmalið. Hún er á Akranesi og verður þar í sumar, ný byrjuð að fara í stuttar göngur.
13.6.24
Sund og innlit til fyrrum samstarfskonu
Aftur var ég vöknuð alltof snemma og komin á fætur um sex leytið í gærmorgun. Hitti því auðvitað aðeins á N1 soninn áður en hann fór í sína vinnu. Dreif mig ekki í sund fyrr en á tíunda tímanum en synti 500m áður en ég skellti mér fyrri ferðina í kalda pottinn. Gerði æfingar í 42°C pottinum og gufunni eftir seinni kalda potts ferðina. Eftir gufuna sat ég um tíu mínútur í sjópottinum áður en ég tók stutta dýfu í kalda á leiðinni upp úr. Kom við í Fiskbúð Fúsa og keypti harðfisk og ýsu í soðið. Kom heim rétt fyrir tólf og var maturinn til um hálfeitt. Bauð Oddi að borða með mér en hann afþakkaði. Rétt fyrir tvö hringdi ég í fyrrum samstarfskonu sem býr vestur í bæ til að athuga hvort hún væri heima. Hún sagðist vera heima til klukkan fjögur og ég væri velkomin að kíkja í millitíðinni. Tók prjónana mína með í þessa heimsókn. Stoppaði í ca einn og hálfan tíma sem mér fannst ekki vera meira en rúmt korter. Var komin heim skömmu fyrir fjögur og fór ekkert út aftur. Hringdi í pabba um hálfsex. Helga systir hringdi í mig um sex og spjallaði í rólegheitum í dágóða stund á meðan hún var líka að horfa á kindurnar og lömbin úti á túni. Seinna um kvöldið hringdi nýjasti sumarstarfsmaður Seðlaversins í mig og við spjölluðum í þrjú korter þrátt fyrir að það væru aðeins örfáir dagar síðan við töluðumst síðast við. Hún er með vinnusamning út ágúst þannig að við náum að vinna saman í tvo mánuði eftir að ég kem aftur úr sumarfríi annan fimmtudag.
12.6.24
Mega rólegheit
Vaknaði alltof snemma í gærmorgun. Var ekkert búin að ákveða hvernig og í hvað ég ætlaði að eyða deginum. Byrjaði morguninn eins og oft áður með því að vafra á netinu, prjóna og gera æfingar. Mér leist satt að segja ekkert á gosmóðuna úti og notaði hana á endanum sem lélega afsökun fyrir að halda mig bara inni við, lesa, horfa á þætti og prjóna. Davíð Steinn skrapp til sýslumanns og pantaði tíma á heilsugæslunni til að fá augnvottorð. Hann fékk tíma í næstu viku og fljótlega eftir það fær hann ökuskírteini sem gildir mun lengur en í eitt ár. Oddur Smári er allur að hressast. Það kom í ljós að nóg var fyrir hann að drekka mikið af vatni og að parodinið sló á verkina sem voru að hrjá hann. Nú er ég bara að vona að hann fari að huga betur að sjálfum sér og heilsunni og fari að lifa lífinu sínu í stað þess að loka sig of mikið inni.
11.6.24
Skutl, sund og tveir göngutúrar
Ég vaknaði upp um sjö í gærmorgun við það að heyra í Oddi kasta upp af kvölum. Ég dreif mig á fætur til að athuga hvort ég gæti hjálpað honum eitthvað. Hann talaði um að ætla að fara á heilsugæsluna um átta. Rúmlega átta ákvað hann þó að biðja mig um að skutlast með sig á bráðamóttökuna í Fossvogi. Ég tók sunddótið með og sagði að hann myndi ekki ná í mig aftur fyrr en upp úr klukkan hálfellefu. Var búin að synda og sóla mig og sest aftur inn í bíl korter fyrir ellefu. Hringdi þá í soninn. Hann var ekki alveg búinn, gat sagt mér að í ljós hefði komið að ekki væri um þvagfærasýkingu að ræða svo hann var tekinn af sýklalyfjunum. Ég var ekki komin heim þegar kom grænt ljós að ég mætti sækja hann. Brunaði því upp í Fossvog og áður en við mæðgin fórum heim skutlaði ég honum í Lyfjaver til að leysa út verkjalyf. Hann hafði ekki fengið að vita hvað væri að hrjá hann. Mátti hætta á sýklalyfjunum og skrifað var upp á parkodin og honum sagt að drekka mikið af vatni. Ég laumaði því að honum að líklega væri líkami hans að gefa honum aðvörun um að hugsa betur um sig. Davíð Steinn var búinn að fara í ökumat og kominn heim aftur þegar við Oddur komum stuttu fyrir tólf. Ég bjó mér til hafragraut. Davíð Steinn skrapp til þess að leysa út pakka fyrir Bríeti. Hann færði henni pakkann í vinnuna hennar áður en hann kom heim aftur. Um hálftvö setti ég bók og les-sólgleraugu í lítinn og léttan bakpoka og labbaði niður í bæ. Heimsótti Lilju á torgið og spjallaði við hana í góða stund áður en ég rölti áleiðis heim aftur. Settist á bekk á Klambratúni og las í korter í einni bókinni af safninu; Stúlka A eftir Abigail Dean. Oddur var allur að koma til þegar ég kom heim um fjögur.
10.6.24
Fjórir mis-langir göngutúrar og gúllasmessa
Klukkan var byrjuð að ganga tíu í gærmorgun þegar ég dreif mig loksins í sund. Synti 400metra, fór nokkrum sinnum í kalda pottinn, gerði æfingar í gufunni og sjópottinum og sat smá stund úti í sólbaði áður en ég fór heim og fékk mér eitthvað að borða. Um hálftvö setti ég bók les-sólgleraugu, buff og ennisband í lítinn bakpoka og skrapp út í smá göngu. Þveraði Öskjuhlíðina og settist á bekk rétt við stíginn hinum meginu skammt frá einu hliðinu úr kirkjugarðinu. Las í ca fimmtán mínútur áður en ég hélt göngu túrnum áfram meðfram hlíðinni, framhjá Valsheimilinu og heim. Klukkan var að nálgast fjögur um það leyti og ég kveikti á sjónvarpinu til að fylgjast með fyrsta leik í átta liða úrslitum í mjólkurbikar karla í fótbolta milli Keflavíkur og Vals. Hætti þegar rúmt korter var eftir af venjulegum leiktíma og staðan 2:2. Rölti upp í kirkju óháða safnaðarins en þar byrjaði síðasta messa fyrir sumarfrí á slaginu sex. Það var alveg slangur af kirkjugestum og gospelkórinn samanstóð af tólf konum. Eftir messuna Fékk ég mér eina skál af gúllassúpu, heilsaði upp á prestinn, messuguttann og formann safnaðarstjórnarinnar áður en ég rölti heim aftur. Bikarleikurinn fór í framlengingu og vító og endaði 5:8 fyrir Val sem voru að spila á útivelli við lið sem er í fyrstu deildinni en það lið var þegar búið að slá m.a. Breiðablik úr keppni.
9.6.24
Á leið í sund fljótlega
Tók þá ákvörðun, fljótlega eftir að ég kom á fætur um átta í gærmorgun, að sleppa sundferð. Vafraði á netinu, gerði æfingar og var svo mætt til esperanto vinkonu minnar um hálfellefu. Á leiðinni þaðan gerði ég tilraun til að hringja í Davíð Stein en hann var á kafi í vinnu og sendi þau skilaboð að hann myndi hringja til baka. Um eitt leytið hringdi ég í Helgu systur. Hún sagði að matarveislunni myndi seinka um klukkustund eða tvær og ég sagði henni þá að við Oddur myndum bíða þar til Davíð Steinn væri laus úr vinnu og við kæmum á einum bíl upp úr klukkan sex. N1 sonurinn hafði ekki hringt til baka þegar þetta var svo ég hringdi aftur og náði þá sambandi við hann, sagði honum að við myndum renna við á Gagnvegi um fimm. Þangað til á horfðum við Oddur á þrjá NCIS þætti. Hann var annars allur að koma til af þvagfærasýkingunni svo þetta er örugglega ekki sveppur eða þaðan af verra. Hann treysti sér alveg til að keyra og við vorum komin á Gagnveg tíu mínútum fyrir fimm. Þurftum ekki að bíða nema eina mínútur eftir Davíð Steini. Við vorum gestir númer þrjú, fjögur og fimm af ellefu en í heildina vorum við 16 þegar allir voru mættir. Þau sem komu síðust voru að koma úr afmælisveislu úr bænum. Þessi fögnuður var mjög vel heppnaður og stór hluti af veislunni var búið til af Bríet. Pabbi hennar sá um að grilla og það var boðið upp á fimm tegundir af kjötmeti, m.a. eitthvað sem var kallað flétta og annað kallað loftbelgur. Bríet þarf að endurtaka tvennt af verklega sveinsprófinu í haust en hún fær örugglega loka skírteinið varðandi sveininn í haust eins og hinir. Hún er annars þegar byrjuð að vinna hjá Krónunni í Garðabæ, þennan mánuðinn og í næsta mánuði verður hún í Krónunni í Hafnarfirði. Við mæðgin kvöddum um tíu í gærkvöldi. Oddur keyrði til baka og hleypti bróður sínum út við bílinn hans rúmlega ellefu. Davíð Steinn varð nokkrum mínútum á undan okkur Oddi heim, fyrstur á salernið og fór svo beinustu leið í háttinn. Enda er hann um það bil að fara að leggja af stað á síðustu vakt þessarar helgar.
8.6.24
Laugardagur
Þegar ég kom á fætur upp úr klukkan hálfátta í gærmorgun var N1 sonurinn farinn á vakt og hinn sonurinn inni í stofu fölur og fár. Hann var kominn með sömu einkenni og fyrir fjórum árum þegar hann var greindur með þvagfærasýkingu. Verkirnir voru ekki orðnir eins slæmir en hann hringdi í 1717 og var sagt að leita á heilsugæsluna þegar opnaði. Hann var búinn að taka verkjatöflu, dreif sig í sturtu en klukkan var að verða hálfníu þegar hann rölti yfir í Skógarhlíð. Örlítið lengra að labba heldur en mörg undanfarin ár en það eru komnir nokkrir mánuðir síðar heilsugæsla Hlíða flutti þangað úr Drápuhlíðinni. Rúmum klukkutíma seinna hringdi hann í mig. Var á leiðinni heim en spurði hvort ég gæti skutlast með hann í Lyfjaver. Þar leysti hann út sýkla og verkjalyf. Ef þetta verður ekki orðið betra á morgun, sunnudag, á hann að leysa út sveppapillu og ef þetta versnar á hann að leita á bráðamóttökuna. Hann hafði skilið eftir sig sýnishorn á heilsugæslunni sem verður sent í ræktun. Það fór því þannig að ég fór ekki í sund fyrr en um hálfþrjú. Synti 400m, fór 4x4mínútur í kalda, 15 mínútur í gufu og tíu mínútur í sjópottinn. Eftir sundið fékk ég þá skyndihugdettu að koma við á Saffran í Faxafeni og bjóða mér upp á bleikjurétt. Fyrrum samstarfskona mín og vinkona hafði samband með þær fréttir að hún er búin að fá sumarvinnu í Seðlaverinu og byrjar þar strax eftir helgi. Við munum því vinna saman í amk 2 mánuði eftir að ég kem úr sumarfríi. Það vantaði annars aðeins örlítið upp á að Bríet kláraði verklega sveinsprófið. Hún mun rúlla því upp í haust. Engu að síður ætlum við að fagna með henni á Hellu seinni partinn í dag og kvöld ásamt nokkrum nánustu vinum og fjölskyldu. Vonandi verður Oddur nógu hress til að skreppa þetta. Davíð Steinn kemur í seinna fallinu en hann sleppur sennilega ekki úr vinnu fyrr en um fimm leytið, fær afleysingu síðustu rúmu tvo tímana.
7.6.24
Göngutúr á bókasafnið
Svaf aðeins lengur fram á morguninn í gær heldur en ég hef verið að gera marga aðra daga í sumarfríinu. Var þó komin á fætur um níu leytið. Þetta ruglaði aðeins upp óskipulagða skipulaginu hjá mér og dagurinn varð allt öðruvísi heldur en ég hafði ímyndað mér. Ég "datt" líka í að hámhorfa á íslensku þáttaröðina "Vitjanir" úr sarpinum af RÚV. Var búin að horfa á fyrstu þrjá eða fjóra af átta og horfði á restina í gær. Fór ekkert í sund en ég prófaði nýju strigaskóna og skrapp labbandi í borgarbókasafnið í Kringlunni til að skila þremur bókum sem ég var búin að vera með í 30 daga. Kláraði að lesa síðustu bókina í fyrrakvöld. Fann fjórar bækur til að taka með mér heim. Hefðu reyndar alveg getað orðið sex eða fleiri en ég er með nóg af lesefni heima og ég vildi heldur ekki burðast með of þungan poka. Kom þó einnig við í Söstrene Grene og keypti átta dokkur af bómullargarni. Lítið af deginum fór í það sem helst ekki á að skrifa um en ég prjónaði, las, horfði á þætti og náði skrefamarkmiðunum.
6.6.24
Sumarfríið hálfnað
Vaknaði eiginlega alltof snemma í gærmorgun en gerði bara gott úr því. Klæddi mig og bjó um á sjöunda tímanum. Fékk mér sítrónuvatn, tannburstaði mig og settist svo um stund inn í stofu með fartölvuna í fanginu. Um níu leytið greip ég aðeins í prjónana til að liðka mig upp fyrir æfingarnar. Kveikti á sjónvarpinu á meðan ég var að ákveða hver yrðu svo næstu skref. Um hálftíu hafði samband smiður sem er á vegum fagmenn.is. Hann kom í hádeginu til að taka út verkefnið. Hann ætlar svo að senda mér tilboð fljótlega. Ég var komin í sund rétt fyrir tvö. Hitti aðeins á kalda potts vinkonu mína og dóttur hennar, náðum einni ferð í þann kalda saman áður en þær fóru í "diskinn". Ég synti annars 500 metra og fór þrjár aðrar ferðir í þann kalda. Sleppti gufunni og heitasta pottinum en fór í hina hringpottana og 15 mínútur í sjópottinn. Áður en ég fór heim eftir sundið lagði ég leið mína í "Fætur toga" og keypti mér nýja strigaskó.
5.6.24
Morgunhæna
Í gærmorgun fór ég á fætur á svipuðum tíma og á mánudagsmorguninn. Morguninn var þó ekki alveg nákvæmlega eins. Setti ekki í þvottavél né sótti þvottinn. Skrapp yfir til esperanto vinkonu minnar um hálfellefu og stoppaði í rúma klukkustund. Renndi með bílinn í gegnum þvottastöðina Löður við Fiskislóð áður en ég skrapp heim aftur. Stoppaði heima í um klukkustund áður en ég dreif mig í sund. Í anddyrinu á Laugardalslaugarbyggingunni kastaði Rangæingur á mig kveðju og ég staldraði aðeins við til að spjalla við hann. Kalda potts vinkona mín mætti á svæðið skömmu síðar. Ég synti 300 metra og hún beið eftir mér í sjópottinum á meðan. Fórum þrisvar sinnum þrjár mínútur í þann kalda, ég fór einu sinni í heitasta pottinn, einu sinni í nuddpottinn og eftir 20 mínútur í gufu og tíu mínútur í sjópottinum skrapp ég í þann kalda í eina mínútu áður en ég fór upp úr. Hringdi í Odd áður en ég lagði af stað í burtu. Ég var á leið í búð og spurði hvort hann þyrfti líka að versla. Svo reyndist vera svo ég kippti honum með í leiðinni. Var tæpt korter að komast til hans því bæði var umferðin að þyngjast og einnig framkvæmdir í gangi og lokað akkúrat þar sem ég er vön að fara um. Hringdi og spjallaði við pabba á leiðinni. Oddi var sama í hvaða Krónu við færum og ég ákvað að fara vestur í bæ. Keypti ekkert svo mikið en var nokkuð lengi að rölta um búðina hálf hissa á sjálfri mér að vera ekki alveg með það á hreinu hvað ég ætlaði að versla. Var semsagt ekki með neinn sérstakan lista en held ekki að ég hafi gleymt neinu né verslað neinn óþarfa.
4.6.24
Snúningar í bland við rólegheit
Rumskaði um svipað leyti og N1 sonurinn var að fara af stað í vinnu í gærmorgun. Fór þó ekki alveg strax á fætur en mjög fljótlega. Var mjög óákveðin hvernig ég ætti að haga deginum en eftir morgunverkin á baðherberginu fékk ég mér sopa af þorskalýsi og settist svo inn í stofu með fartölvuna í fanginu. Sendi skilaboð á kalda potts vinkonu mína sem sagðist myndu verða í sundi um tvö. Vafraði á netinu í rúman klukkutíma áður en ég tók til við fyrstu æfingalotu dagsins. Eftir þá lotu setti ég í eina þvottavél og kveikti svo á sjónvarpinu og horfði á einn þátt af 911. Datt ekkert í hug að fitja upp á prjóna eða ná í bók inn í herbergi. Um ellefu leytið bjó ég mér til hafragraut. Gerði tvöfaldan skammt og setti annan skammtinn í ílát inn í ísskáp. Um hálfeitt var ég búin að hengja upp á snúrur þá tók ég sunddótið með mér út úr húsi. Kom fyrst við í Fiskbúð Fúsa og keypti harðfisk og nætursaltaða ýsu í soðið. Næst lá leiðin í bankann þar sem ég fékk hjálp við að setja upp RSA-appið svo ég geti nú greitt reikninga eða millifært úr fyrirtækjabankanum þegar þörf er á og þurfi ekki að nota gamla símann í það. Var byrjuð að synda rétt fyrir hálftvö. Synti 500 metra á tæpum 25 mínútum. Þá var kalda potts vinkonan mætt á svæðið. Við fórum alls fjórar ferðir í þann kalda, ég komst tvær ferðir í heitasta, sátum um fimmtán mínútur í gufunni og tíu mínútur í sjópottinum. Fórum upp úr á svipuðum tíma, ég þvoði mér um hárið og fór heim hún þurfti að skreppa aftur í vinnuna/skólann. Um hálfsjö bauð ég Oddi með mér upp á nætursaltaða ýsu með soðnum kartöflum. Hann sá því um að ganga frá eftir matinn.
3.6.24
Heima
Það sem maður verður latur ef ákveðin svefnrútína skolast eitthvað til. Var komin á fætur fyrir níu og settist næstum beint við tölvuna. Dagurinn var rólegur. Pabbi skrapp í búðina eftir rófu um hálfellefu og bauð aftur upp á grásleppu í hádeginu. Ég lagði helling af köplum og horfði á þætti. Hins vegar gerði ég engar markvissar æfingar né fitjaði upp á nýju prjónaverkefni. Tók mig upp og kvaddi pabba um hálfníu leytið í gærkvöldi. Fékk stæði fyrir framan no 7 í götunni og dobblaði syni mína til að koma út og hjálpa mér inn með farangurinn.
2.6.24
Sunnudagur
Var tiltölulega snemma á fótum í gærmorgun eða um hálfátta leytið. Vaknaði aðeins fyrr en það en tók minn tíma í að koma mér fram úr og klæða mig. Kveikti á tölvunni á leiðinni í að sinna morgunverkunum á baðherberginu. Um hálftíu settist ég inn í stofu og greip í prjónana í smá stund áður en ég tók til við fyrstu æfingalotu dagsins. Dagurinn fór í alls konar innistúss. Var alltaf með það á bak við eyrað að skreppa aðeins út. Pabbi skrapp á kjörstað fyrir klukkan ellefu. Hann bauð svo upp á grásleppu með kartöflum og rófum í hádeginu. Unga fólkið kom aðeins við að sækja dót. Ein tuska "datt" af prjónunum, kaplar voru lagðir og horft á þætti. Vakti yfir kosningasjónvarpi til klukkan langt gengin í tvö, aðeins lengur en pabbi. Las í uþb hálftíma áður en ég fór loksins að sofa.
1.6.24
Kjördagur
Ég var síðust á fætur í gærmorgun þótt ég væri komin á stjá milli klukkan sjö og hálfátta. Pabbi var farinn í sund rétt fyrir klukkan hálfsjö og ég heyrði í unga fólkinu drífa sig í undirbúning og vinnu stuttu fyrir sjö. Hann á Selfoss og hún Hvolsvöll. Það fyrsta sem ég gerði, þegar ég kom fram, var að kveikja á tölvunni. Eftir morgunverkin á baðherberginu settist ég svo fyrir framan skjáinn og var þar næsta klukkutímann eða svo. Pabbi kom úr sundi um hálfníu leytið. Þá var ég komin með prjónana í hendurnar að mýkja mig upp fyrir fyrstu æfingalotu dagsins sem ég gerði skömmu síðar. Fyrst án lóða og svo með 1kg lóðunum. Morguninn leið annars frekar hratt við alls konar dundur og spjall við pabba. Hann bauð mér svo með sér á Kanslarann um hálftólf. Eftir matinn skruppum við í fiskbúðina þar sem hann keypti bleikju, grásleppu og fiskisnakk. Næst lá leiðin í búðina og fékk ég að stinga 1 líter af grískri jógúrt í körfuna hjá pabba. Eftir hádegisfréttir horfði hann með mér á síðustu þrjá þættina af "Grafin leyndarmál", nýjustu þáttaröðinni sem verið er að sýna á RÚV þessar vikurnar en er einnig í RÚV-sarpinum. Bjarki kom að sækja dót um hálfþrjú og Bríet klukkutíma síðar. Þau voru líklega á leið í sveitina hans en verða í leiguíbúðinni í bænum í næstu viku. Sveinsprófið þreytir Bríet í MK seinni part vikunnar. Um fjögur skiptum við pabbi yfir á beina útsendingu af landsleik kvenna í knattspyrnu, Austurríki - Ísland 1:1. Fékk mér gríska jógúrt og smakkaði pylsu sem Bríet hafði búið til um sjö. Eftir fréttir fylgdist ég með báðum hópum af "kappræðum" forsetaframbjóðendanna tólf.