Ég var komin á fætur upp úr klukkan sex í gærmorgun og mætt í vinnuna á svipuðum tíma og flesta vinnudaga. Við sumarstúlkan sáum um framleiðsluna. Heildar fjöldinn var í kringum fimmhundruð kort. Þrátt fyrir að við værum í klukkutíma stoppi í kaffinu vegna erindis á fundinum vorum við búnar um tólf. Viðgerðarmennirnir mættu á svæðið upp úr klukkan eitt. Ég sat yfir þeim til klukkan tvö en þá leysti fyrirliðinn mig af og sagði að ég mætti fara heim. Þrátt fyrir að allt væri á fullu uppi sýndist mér að það væri í góðu lagi að ég léti mig hverfa af svæðinu. Fór beinustu leið í sund og hitti óvænt kalda potts vinkonu mína í hennar þriðju ferð í kalda pottinum. saman fórum við alls fjórar ferðir. Eftir gufu og mína fimmtu ferð í kalda fór ég aðeins í sjópottinn áður en ég synti 400 metra. Var komin heim um fjögur.
15.6.23
14.6.23
Undarlegheit á blogginu mínu
Taldi mig vera búna að setja inn smá texta um gærdaginn en hafði þurft að setja hann inn í einhver ramma þar sem eingöngu var hægt að skrifa. Ramminn virðis svo hafa gleypt textann, ekki vistað hann þannig að það sem ég byrjaði á því að senda út í dag reyndist ekki vera neitt. Mjög furðulegt. En gærdagurinn var annars ágætur. Var á ítroðsluendanum á vélinni og skrapp í smá förgun milli klukkan ellefu og ellefu tuttuguogfimm. Kláruðum endurnýjun sem lá fyrir og í heildina voru framleidd um nítjánhundruð kort í gær. Var mætt í sund um þrjú, rétt á undan kalda potts vinkonu minni. Ég var búin með eina ferð í kalda og sat í smá sólbaði þegar hún kom. Þegar við vorum í okkar þriðju ferð í kalda kom yngsta systir hennar. Hef ekki hitt þá konu áður en þær systur eru frekar líkar. Það urðu alls sjö ferðir í kalda pottinn hjá mér en ég nennti ekki að synda. Var komin heim upp úr klukkan fimm. Synir mínir kvöddu um sex leytið, fóru út að borða saman og svo í bíó með litlu systur sinni.
13.6.23
Synt/svamlað út að kaðli
Vaknaði nokkrum mínútum áður en vekjarinn átti að ýta við mér. Að vísu hafði ég rumskað um fjögur leytið og vissi þá alveg af mér í dágóða stund. Mætti í vinnu um hálfátta. Synti bókhaldinu. Fyrirliðinn og sumarstúlka kláruðu daglegu framleiðsluna, pakkið og talninguna um tólf og voru í endurnýjun eftir hádegi. Ég var mætt í Nauthólsvík rétt fyrir fjögur. Hringdi í pabba minn á meðan ég var á leiðinni þangað. Svamlaði út að kaðli, var ekkert að flýta mér. Það var nógu mikið flóð til að ekki væri hægt að vaða þessa leið. Sjórinn 10°C og ég var sennilega svona uþb tuttugu mínútur út í og kom svo við í lóninu á leiðinni í heita pottinn við bygginguna. Hitti aðeins á systurnar út sjósundshópnum mínum áður en ég fór upp úr. Kom við í Krónunni áður en ég fór heim. Oddur Smári sótti fyrir mig vörurnar út í bíl og gekk frá þeim. Það voru ekki nema tveir pokar en ég var þar að auki með bakpokann minn og sjósundsdótið. Davíð Steinn hafði verið kallaður inn í afleysingar. Hann fékk samt fyrst að fara með bílinn á dekkjaverkstæðið við Fellsmúla. Það hafði sprungið hjá honum þegar hann var að mæta í vinnu í gærmorgun. Hann setti varadekkið sjálfur undir eftir vaktina og var svo alveg með það á hreinu hvernig dekkjaumgang hann ætlaði að fjárfesta í. Sagði að það væri ennþá betra að keyra bílinn á þessum nýju dekkjum.
12.6.23
Öskjuhlíð, sund og gúllasguðþjónusta
Fannst sem ég væri örlítið sein á ferð þegar ég mætti í Laugardalinn um níu. Þá var ég klukkutíma og snemma á ferðinni því ég hafði ekki lesið öll skilaboð um opnunartíma. Það var semsagt tilkynnt fyrir um hálfum mánuði að lauginni yrði lokað klukkan 18 þann 10. júní. Ef ég hefði lesið lengri þá stóð einnig að vegna skyndihjálparnámskeiðs hjá starfsfólki yrði laugin ekki opnuð fyrr en klukkan tíu þann 11. júní. Ég var að hugsa um að skreppa í Sundhöllina í staðinn. Kom við í hraðbanka hjá landsbankaútibúinu í Borgartúni og þegar ég hélt ferð áfram skipti ég um skoðun. Lagði bílnum við Perluna og fór í hálftíma göngutúr í Öskuhliðinni og alveg út í kirkjugarð að leiða móðurforeldraminna og eins móðurbróður. Var komin aftur í Laugardalinn skömmu eftir að opnaði; kaldur, 400m, kaldur, gufa, kaldur, sjópottur, kaldur og smá "sólbað" áður en ég fór upp úr og heim. Var komin heim rétt fyrir tólf. Hellti mér upp á sterkt og gott kaffi og fékk mér einhverja hressingu. Tíminn til klukkan að verða hálfsex fór í alls konar dundur innan hús, aðallega tengt áhugamálunum. Hringdi líka í eina frænku mína og nöfnu og spjallaði við hana í góðan hálftíma. Um hálfsex skipti ég um topp, fór í kápuna mína og nýjustu skóna og labbaði upp í kirkju óháða safnaðarins til að hlíða á og taka þátt í síðust messu fyrir sumarfrí og fá mér gúllassúpu á eftir. Þetta var síðasta messa organistans sem er að fara í fullt starf sem organisti í Grindavíkurkirkju. Labbaði heim aftur tæpum tveimur tímum síðar og horfði á síðasta þátt hringfarans um mótorhjólaferð um Ísland á Covid-tímum.
11.6.23
Sund, esperanto og göngutúr
Var vöknuð áður en klukkan var orðin sex. Las til klukkan að verða sjö. Þá fór ég á fætur, sinnti morgunverkunum á baðherberginu, fékk mér lýsi, vítamín og vatnsglas og settist svo inn í stofu með fartölvuna í fanginu. Um það leyti sem morgunfréttir klukkan átta voru að hefjast í útvarpinu var ég að leggja af stað í sund. Mikið varð ég glöð fyrir hönd pabba að búið væri að semja. Hann komst ekkert í sund sl. viku vegna verkfalla. Svo gerðist það sem ég var einhvern tímann að velta fyrir mér síðusta hálfa árið, hvort ég myndi einhvern tíma gleyma að beygja inn á Sundlaugarveg um helgi og halda áfram út á Sæbraut í áttina að vinnustaðnum. Fattaði þetta um leið og ég kom að beygjuljósunum út á Sæbraut svo ég fór alls ekki alla leið en tók smá krókaleið í sundið. Fór í kalda pottinn fjórum sinnum, synti 500 metra, eina ferð í gufu og eina ferð í sjópottinn. Þvoði mér um hárið á leiðinni upp úr og fór svo beinustu leið til norsku esperanto vinkonu minnar. Var komin þangað rétt rúmlega tíu og stoppaði í tæpa tvo tíma. Að þessu sinni eyddum við amk þriðjungi af þessum tíma í að lesa kafla í esperanto bók. Kom heim um tólf. Fljótlega eftir hádegisfréttir fór ég að sinna því sem ekki má skrifa um. Milli klukkan 15:41 og 16:25 fór ég í rúmlega þriggja kílómetra göngutúr. Vestur eftir Eskihlíð, undir brýrnar við Bústaðaveg og Miklubraut, yfir brúna við Landsspítalann, framhjá BSÍ, upp Barónsstíg að Eiríksgötu, þar niður, undir brúna þar sem Snorrabraut, Bústaðavegur og Miklabraut mætast, Miklubraut að ljósunum við Lönguhlíð, þar yfir og heim. Mjög hressandi en ég var með foss á bakin og eldrauð í framan þrátt fyrir að hafa gengið rétt rúmlega rólega.
10.6.23
Tuttugu mínútur í 10°C sjónum seinni partinn í gær
Vaknaði góðum hálftíma áður en vekjarinn átti á ýta við mér. Slökkti á vekjaranum og fór á fætur. Hafði góðan tíma til að sinna morgunverkum og netvafri. Mætti í vinnu rétt fyrir klukkan hálfátta. Ég tók tvö af kerfunum niðri af, opnaði seinni lásinn á hvelfingunni uppi, fór niður til að kveikja á vélinni og undirbjó svo fyrstu tölur áður en ég fór inn á kaffistofu til að fylla á vatnsbrúsann og fá mér smá kaffi. Var með prjónana með mér og prjónaði eina umferð í klifurgrinda-tuskunni sem er langt komin. Á kannski tíu til fimmtán umferðir eftir nema ég ákveði að hafa tuskuna í stærra lagi. Ég var í bókhaldsvinnunni í gær. Það var minna vesen á vélinni í gær og aðeins færri kort til daglegrar framleiðslu þannig að þeirri vinnu lauk rétt fyrir tólf. Eftir hádegi var kláruð sú endurnýjun sem var byrjað á tveimur dögum fyrr (miðvikudaginn) og samt var vélin háttuð og gengið frá öllu upp úr klukkan tvö, að verða hálfþrjú. Ég var amk mætt í Nauthólsvík fimm mínútum fyrir þrjú. Hringdi í pabba á leiðinni þangað. Átta manns á kajökum kom að þar sem ég og fleiri fara út í sjóinn. Þau drógu kajakana aðeins upp á sandinn, en það var að fjara út, stilltu sér upp í myndatöku. Ég svamlaði út að enda grjótgarðsins. Gat reyndar alveg botnað og hefði getað vaðið út að kaðli. Fór samt ekki lengri því ég átti von á sjósundsvinkonu minni. Hún og önnur systranna komu tíu mínútum síðar. Þá var kajakfólkið að leggja frá aftur. Það snéri baki í ströndina þannig að þegar ég veifaði vinkonunum var ég spurð hvort ekki væri allt í lagi þar sem ég var að baða út höndunum. He, he. Ég fór upp úr sjónum um leið og hinar tvær, en þær voru út í í amk tíu mínútur. Á eftir vorum við hátt í klukkutíma í heita pottinum. Þurftum að spjalla um svo margt og svo hittum við eina til sem við könnumst við. Sú er daglega í sjónum. Ég kom heim rétt fyrir fimm. Hringdi í Ellu vinkonu og átti gott samtal við hana. Hún er komin í sumarfrí. Davíð Steinn kom heim úr sínu ferðalagi um hálfátta. Hann hafði að vísu verið að lenda seinni partinn en skutlaði samferðafólki sínu heim. Hann tók upp úr töskunum, færðu okkur smá gjafir, sýndi okkur tattú sem hann var að fá sér og einum og hálfum tímum síðar var hann rokinn upp í Mosfellsbæ með gjafir þangað. Hann var verulega ánægður með ferðina en sagðist ekki myndu þora að kíkja á bankareikninginn sinn alveg á næstunni.
9.6.23
Níu bækur heim af safninu
Ég vaknaði rétt upp úr klukkan sex í gærmorgun. Mætti í vinnuna um hálfátta. Tók kerfið af hvelfingunni niðri, prentaði út fyrstu tölur, opnaði seinni lásinn á hvelfingunni uppi og fór niður í kortadeild til að kveikja á framleiðsluvélinni áður en ég fór inn á kaffistofu fyllti á vatnsbrúsann, fékk mér kaffi og prjónaði smá. Sumarstúlkan og ég tókum að okkur vélina en höfðum endaskipti. Hjálpaði henni af stað með að hlaða inn fyrstu framleiðslu og tíndi svo til kortin í þá framleiðslu. Þetta gekk alveg ágætlega. Það var ekki fyrr en við fórum að framleiða debetkort dagsins að við lentum í alls konar veseni. Þrátt fyrir allt þetta vesen hafðist að framleiða alla daglega framleiðslu en við ákváðum að hætta eftir hana. Vorum að ganga frá deildinni um hálfþrjú. Ég var komin í sund um þrjú leytið. Synti 300m og var búin með fyrstu ferðina í kalda pottinn þegar kalda potts vinkona mín mætti. Saman fórum við fimm ferðir í kalda, eina í gufu, eina í sjópottinn og þrjár ferðir í 42°C pottinn. Það er enn verið að lappa upp á heitasta pottinn. Eftir sundið fór ég í Kringlusafnið. Skilaði þremur síðustu bókunum og varð svo að stoppa mig af svo ég færi ekki heim með tveggja stafa tölu af bókum af safninu. Eina af þeim bókum tók ég úr skammtímaláns hillunum en þegar ég skannaði inn bækurnar voru allar með skilafrestinn 10. júlí n.k.
8.6.23
Blautur dagur í dag
Fór á fætur rétt fyrir klukkan sex í gærmorgun. Var mætt í vinnuna um hálfátta. Ég og sumarstúlkan skiptum um hlutverk í kortadeildinni, þ.e. hún fór á móttökuendann. Daglegri framleiðslu var lokið um tólf. Þá átti bara eftir að pakka smávegis. Eftir hádegi og uppvask fórum við aftur niður. Kláruðum það sem var óklárað. Settum svo í gang endurnýjun í um einn og hálfan tíma áður en við hættum og gengum frá. Upp úr klukkan hálfþrjú fengu tveir kerfisfræðingar aðgang að kortavélinni og örfáum kortum í test. Ég hætti vinnu um þrjú. Fór beint á smurstöðina sem ég heimsæki reglulega. Í þetta sinn var ég ekki að láta smyrja heldur fá nýja peru í framljósið farþega meginn. Síðan fór ég beinustu leið heim og var því komin þangað óvenju snemma eða um fjögur leytið.
7.6.23
Vikan strax hálfnuð
Vaknaði ekki alveg eins snemma og á mánudagsmorguninn en þó aðeins fyrir klukkan sex í gærmorgun. Var útsofin og dreif mig strax á fætur. Var mætt í vinnu rétt áður en klukkan varð hálfátta. Nú voru engin vandræði með að komast inn. Ég og sumarstúlkan tókum að okkur vélarvaktina. Það gekk bara nokkuð vel hjá okkur. Vélin var samt með smá vesen en þegar við hættum um þrjú vorum við búnar að framleiða í kringum ellefu hundruð kort, þar af endurnýja um fjögurhundruð. Þessa vikuna eigum við eldhúsvaktina ég og sú fjórða. Fyrirliðinn bauðst til að leysa mig af við fráganginn eftir matinn. Ég þáði það og sagðist skyldu launa henni greiðann í næstu viku þegar hún á vaktina ásamt annarri sem er næst henni í stafrófinu. Var mætt í Laugardalslaug um hálffjögur og kom á sama tíma og kalda potts vinkona mín en hún hafði sent mér fyrirspurn fyrr um daginn um hvenær ég myndi mæta og ég sagðist mæta um þetta leyti. Við fórum fimm ferðir saman í kalda pottinn, eina í gufuna, fjórar í 42°C pottinn og eina í sjópottinn. Eftir góða stund í sjópottinum fór hún aftur í gufu en ég í þann kalda og sat svo smá stund á stól úti áður en ég fór upp úr og heim.
6.6.23
Þriðjudagur
Ég var komin á fætur um fimm leytið í gærmorgun. Rumskaði um fjögur þegar N1 sonurinn dreif sig á vit ævintýranna áleiðis út í lönd. Hann er núna staddur í Manchester ásamt tveimur af fyrrverandi vinnufélögum. Annar vinnufélaginn vinnur reyndar enn á N1 við Stórahjalla en hinn er hættur hjá N1. Þannig að sá sem er enn að vinna hjá N1 er samstarfsmaður þótt þeir Davíð Steinn vinni ekki á sömu stöð lengur. Ég var mætt í vinnu um hálfátta í gærmorgun. Númer tvö í röðinni. Ekki var hægt að komast alla leið inn því dyrnar við slússuna voru bilaðar og það þurfti að kalla út manneskju með lykil. Var komin inn á vinnusvæði stuttu fyrir átta. Var enn einn daginn í bókhaldinu til að setja upp tengingar og skrifa niður smá leiðbeiningar varðandi mánaðamóta tölur og uppgjör. Vonandi slær þetta ekki fyrrum fyrirliða út af laginu þegar hún tekur við uppgjörinu aftur. Held samt að ég hafi náð að einfalda hlutina aðeins betur þannig að það ætti að vera minna mál fyrir þá sem koma nýjir að þessu verkefni að setja sig inn í málin. Hætti vinnu klukkan þrjú og fór beint í Nauthólsvík. Sjórinn var 9,9°C og fjara. Svamlaði um í tíu mínútur og sat svo í heita pottinum í hálftíma áður en ég fór upp úr og heim. Mér tókst að halda mér á fótum til klukkan rúmlega níu. Las til klukkan hálftíu en var örugglega steinsofnuð skömmu síðar.
5.6.23
Dagurinn tekinn mjög snemma
Í gærmorgun/fyrrinótt rumskaði ég um fjögur leytið. Skrapp á salernið en ég sofnaði ekki aftur fyrr en upp úr klukkan sex. Þá svaf ég í rúma tvo tíma. Var semsagt komin á fætur á níunda tímanum. Um leið og ég fór að sinna morgunverkunum á baðherberginu kveikti ég á tölvunni hans pabba. Vafraði um á netinu í rúman klukkutíma. Hellti upp á kaffi um ellefu leytið. Lagði nokkra kapla, prjónaði og las. Var eitthvað að spá í að skreppa loksins í heimsókn á elliheimilið en það varð ekkert úr þeirri hugmynd. Pabbi bjó til amk tvöfaldan skammt af pönnukökum. Vorum með kaffitíma um fjögur. Um fimm leytið tók ég mig saman og pabbi fékk loksins að setja sinn bíl aftur inn í bílskúr. Þrjár umferðir yfir verstu rispurnar á bílnum mínum höfðu dugað til og nú fer ég að vinna í að panta alþrif á gripnum, þá verður hann næstum eins og nýr en hann er árgerð 2014. Kom í bæinn stuttu fyrir sjö. Bræðurnir voru ekki heima en komu rúmum einum og hálfum tíma á eftir mér.
4.6.23
Í heimsókn hjá pabba
Ég var vöknuð löngu fyrir klukkan sjö í gærmorgun. Setti inn færlsu á bloggið og vafraði um á netinu þar til kominn var tími til að skreppa í sund. Var í minni fyrstu ferð af fjórum í 6,6°C kalda pottinum korter yfir átta. Var á leið í gufuna eftir tvær aðrar ferðir, 300m sund og 1 ferð í sjópottinn þegar sr. Pétur mætti á svæðið. Hann sagðist vera flóttamaður þar sem Vesturbæjarlaugin var lokuð. Spjallaði ekki lengi við hann en hann minnti mig aftur á gúllasmessuna sem verður klukkan 18:00 n.k. sunnudag. Það er síðasta messa fyrir sumarfrí. Þvoði mér um hárið áður en ég fór upp úr. Skrapp heim með sunddótið og tók til dót með mér til gistingar. Var mætt til esperanto vinkonu minnar rétt upp úr klukkan tíu. Var með esperanto dótið með mér en við höfðum um svo margt annað að spjalla og voru ekki í rétta esperanto stuðinu. Stoppaði hjá henni í einn og hálfan tíma. Næst fór ég með bílinn í gegnum þvottastöðina Löður við Fiskislóð. Skrapp heim með esperantodótið og sótti strigaskóna og úlpugarm áður en ég brunaði austur. Var komin á Hellu tæpum hálftíma áður en úrslitaleikurinn milli Barcelona og Wolfsburg í knattspyrnu kvenna hófst. Ég hellti upp á kaffi og við pabbi horfðum saman á leikinn. Þegar hann var búinn færði pabbi bílinn sinn úr skúrnum svo ég gæti keyrt minn inn. Hann hjálpaði mér að pússa skrámurnar á bílnum fyrir ofan afturdekkið farþega meginn. Ég átti lakk og glæru efni sem pabbi var búinn að geyma fyrir mig. Fór alls þrjár umferðir, þá síðustu eftir fréttir og kvöldmat. Þetta er ekki mjög fallegt en skárra heldur en rispurnar sem eru búnar að vera þarna frá því í snjóófærðinni rétt fyrir síðustu jól.
3.6.23
Helgarfrí
Ég vaknaði fyrir klukkan sex, góðum hálftíma áður en vekjaraklukkan átti að hringja. Þar sem ég var alveg glaðvöknuð var langbest að drífa sig á fætur. Átti þá góðan tíma í netvafrið eftir morgunverkin. Mætti í vinnuna um hálfátta rétt á eftir fyrirliðanum. Ég var áfram að vinna að mánaðamótauppgjörinu og í daglegu bókhaldi. Fyrirliðinn og sumarstúlkan sáu um alla framleiðslu. Vélin var eitthvað að stríða en um tvö leytið var búið að framleiða yfir níuhundruð dagleg kort og pakka þeim og að auki annan eins fjölda korta til að klára endurnýjun sem kom rétt fyrir mánaðamót. Fyrirliðinn las yfir mánaðamótaskýrsluna hjá mér og ég gat skilað öllu af mér. Þá á ég bara eftir að vinna betur í tenginginunum fyrir næstu mánaðamót. Var komin í sjóinn upp úr klukkan hálffjögur, í fyrsta skipti síðan ég keypti mér árskortið. Sjórinn yfir 10 gráðum, það var að flæða að, lítil hreyfing á loginu og yndislegt að busla um stund í sjónum. Kom heim um fimm leytið.
2.6.23
Föstudagur
Gærdagurinn var hvorki eins þungur né langur vinnulega séð. Ég var áfram í bókhaldi og mánaðamótauppgjöri sem klárast vonandi og sennilega í dag. Daglegri framleiðslu lauk um hádegið og þrátt fyrir að vélin væri með smá leiðindi var framleitt svolítið af endurnýjun líka. En um tólf var vélin afhent til yfirferðar. Annar viðgerðarstrákurinn kom með ansi kunnuglegan grip með sér þegar hann mætti á svæðið. Hann hafði fengið að eiga verkfæratösku Péturs heitins sem var viðgerðarmaður í áratugi og verktaki hjá OBA lengst af. Ég leysti af í yfirsetu í hádeginu. Fyrirliðinn kom niður aftur rúmlega eitt og ég sagðist geta leyst hana aftur af um þrjú ef hún vildi nýta tímann til að fara aðeins fyrr úr vinnu til að endurnýja rafrænu skilríkin sín. Sumarstúlka kortadeildar fór að hjálpa til í störfunum uppi. Klukkan hálfþrjú var ég búin að gera allt sem hægt var að gera í uppgjörsmálum og fór því niður og leysti fyrirliðann af. Rétt skömmu síðar tóku viðgerðarmennirnir sér kaffipásu. Svo það var bara tíu mínútuna stopp hjá mér niðri. Fyrirliðinn var ekki farinn og ég spurði hvort ekki væri skynsamlegt að ná í eitt kort inn á lager til að testa vélina í lok yfirfærslu. Þetta var gripið á lofti og við fórum saman niður til að sækja kort inn í hvelfingu. Vélin var sett saman um hálffjögur, kveikt á henni og kortinu rennt í gegn vandræðalaust. Klukkan fjögur stimplaði ég mig út og fór beinustu leið yfir í Laugardalslaug. Hringdi og spjallaði við pabba á leiðinni yfir. Hann var að koma inn úr sláttuvinnu og var meira að segja að hugsa um að leggja í hólinn. Mér varð pínu um og ó en ég veit sem er að pabbi vill helst bjarga sér sjálfur með hlutina og finnur yfirleitt alltaf leiðir að verkefnunum sem hann tekst á við. Duglegi pabbi minn. Hitti kalda potts vinkonu mína eftir mína fyrstu ferð í kalda. Hún var þá þegar búin að fara þrjár og var að koma úr gufunni. Rúnturinn hjá okkur skiptist í; kalda, 42°, kalda, gufu, kalda, 42°, kalda, gufu, kalda, sjópottinn og kalda. Kom heim um sex leytið.
1.6.23
Júní mánuður hafinn
Ég var mætt í vinnu rétt fyrir klukkan hálfátta í gærmorgun. Vinnudagurinn teygðist alveg til klukkan fimm og var verulega öðruvisi. Ætla samt ekki að fara neitt nánar út í það en bara geta þess að mánaðamótauppgjörsvinnan fer bara nokkuð vel af stað hjá mér. Var með sjósundsdótið með mér en ég var í engu stuði, hvorki til að skreppa í sund eða sjóinn. Sjálfsagt hefði ég nú alveg haft gott af því að skreppa smá en í staðinn kom ég við á AO við Kaplakrika og fyllti á tankinn áður en ég fór heim. Tók sem sagt stærri hringinn heim. Var komin heim stuttu fyrir sex. Bjó mér til plokkfisk úr afgangnum frá því á laugadaginn, ýsunni sem ég keypti hjá Fúsa sl. föstudag. Prjónaði smá, vafraði á netinu, horfði m.a. á Eyðibýli en var komin upp í rúm um níu og farin að sofa hálftíma síðar.
31.5.23
Síðasti dagur maímánaðar framundan
Klukkan er ekki nema hálfsex en þar sem mér tókst ekki að sofna aftur ákvað ég að fara á fætur og undirbúa mig fyrir daginn. Í gær var ég að vinna milli hálfátta og hálffjögur. Á leiðinni yfir í sund spjallaði ég við pabba. Var búin með eina ferð í kalda og 100 metra bringusund þegar kalda potts vinkona mín mætti á svæðið. Fórum tvær ferðir í kalda, eina í 42°C, gufu, og svo annan eins hring. Eftir seinni gufuferðina fór vinkona mín í sína fimmtu ferð í kalda en ég settist á stól í smá stund áður en ég fór inn í sturtu. Kom við í Krónunni við Fiskislóð á heimleiðinni svo klukkan var að verða sex þegar ég lagði í hornstæðið hér heimavið. Gerði nokkrar tilraunir til að ná í syni mína í síma. Oddur varð á undan að hringja til baka. Ætlaði fá upphafi að biðja hann um að koma út og sækja vörurnar út í bíl og ganga frá þeim. Davíð Steinn hringdi líka til baka en ég gat upplýst hann um að málin væru komin í ferli.
30.5.23
41 ár síðan ég fermdist, hvítasunnudag 1982
Rumskaði fyrst um fjögur í gærmorgun en svaf svo áfram til klukkan að verða átta. Pabbi kom fram um tíu leytið en hann hafði reyndar vaknað um sex og fengið sér eitt harðsoðið egg. Hann tvær ferðir í búðina, fyrst of snemma því það opnaði ekki fyrr en klukkan tólf. Um tvö leytið bauð hann upp á saltfisk með kartöflum og rófu. Allt soðið í sama pottinum og mjög gott. Um hálffimm kvaddi ég og brunaði beint í bæinn. Kom heim um sex. Oddur var einn heima. Davíð Steinn kom heim tveimur tímum seinna en hann skrapp aðeins út að borða í gær.... alla leið til Akureyrar, ásamt einum vini sínu og samstarfsmanni. Þeir voru á frívakt í gær og líka í dag. Sonurinn með nýja bílprófið og eigin bíl er greinilega að æfa sig mjög mikið í umferðinni.
29.5.23
Í heimsókn hjá pabba
Ég gat sem betur fer sofnað aftur um hálffimm leytið í gærmorgun. Vaknaði aftur upp úr klukkan hálfníu. N1 sonurinn lagði af stað í vinnuna um það leyti og ég dreif mig skömmu síðar í sund. Synti 300 metra áður en ég fór fyrstu ferðina í kalda pottinn. sá pottur var 6,4°C. Sat í honum í uþb þrjár mínútur áður en ég fór yfir í sjópottinn. Þar sat ég örugglega í um fimmtán mínútur. Eftir næstu ferð í kalda pottinn fór ég í gufu. Var það í svipaðan tíma og í sjópottinum. Fór í kalda stuttu og dýfði mér örstutt aftur í kalda, settist á stól í smá stund áður en ég fór upp úr. Skv. snapp-kortinu var systir mín lögð af stað frá Hellu og var komin austur fyrir Vík á ellefta tímanum. Ég hringdi í hana og spjallaði smástund. Þau hjónin og hundarnir voru á leiðinni á Höfn að heimsækja vinkonu þeirra. Vinkonan hafði reyndar líka gert stopp á Hellu og fengið gistingu svo hún var í samfloti með þeim austur. Ég hellti mér upp á sterkt kaffi þegar ég kom heim. Slakaði á í tæpar tvær klukkustundir en um það leyti sem hádegisfréttir voru að byrja í útvarpinu var ég að leggja af stað austur til pabba. Eftir "innrásir" undanfarna daga var hann einn heima. Unga parið var í sveitinni hjá foreldrum hans. Bjarki kom reyndar tvisvar sinnum. Í annað skipti til að sækja sparifötin sín því hann var á leið í fermingaveislu frænda síns og í seinna skiptið til að sækja smá dót fyrir Bríeti. Þessi ungi maður var að útskrifast úr FSu sl. föstudag af rafvirkjabraut. Við pabbi horfðum á leik í enska. Reyndar byrjaði pabbi ekki að horfa fyrr en langt var liðið á fyrri hálfleikinn í leik Southamton og Liverpool sem fór 4:4 og ég var að flakka á milli stöðva og skoða brot úr hinum leikjunum sem sýndir voru úr síðustu umferðinni. Um korter í sjö var ég með matinn tilbúinn, bleikju og soðin gróf grjón sem ég hafði bætt niðurskornum lauk út í síðasta korterið. Þetta var mjög gott. Um þetta leyti var ég búin að ákveða að gista og fékk ég mér því 2-3 hvítvínsglös úr beljunni í aukaísskápnum í gærkvöldi. Drakk þau ekki mjög hratt en áhrifin entust fram eftir kvöldi. Horfði á tvo þætti í þriðju seríunni Happy Valley um lögreglukonuna Cathrine Cawood. En þegar pabba fór að sofa um hálfellefu leytið slökkti ég á sjónvarpinu og vafraði um á netinu í rúma klukkustund eða svo.
28.5.23
Varla kominn nýr dagur
Einhverra hluta vegna rumskaði ég um þrjú leytið eftir innan við fimm tíma svefn. Hvort sem það var fuglasöngur eða það að byrjað var að birta aftur þá tókst mér ekki að svæfa mig aftur, amk ekki í bili. Ég var mjög snemma á fótum í gærmorgun líka, komin á stjá um sex. Þrátt fyrir að veðrið væri með besta móti kallaði "útið" ekkert á mig, hvorki sund- sjó- eða gönguferðir. Fann enn fyrir hálsinum en ég var ekki beint slöpp. Tók innidag, smá þrif en aðallega hámhorf, prjón og netvafr. Ætla ekkert að skammast mín fyrir þetta. Gærdagurinn er liðinn og kemur ekki aftur. Framundan er nýr dagur og ný ævintýri. Vonandi mun ég ná að sofna smá stund aftur þangað til kominn er tími á næstu sundferð.
27.5.23
Nýjir mælar
Í vikunni fékk ég mail frá fjölmiðlahópnum með skilaboðum um að það ætti að senda til okkar nýja mæla sem eru þannig gerðar að þeim fylgja hleðslusnúrur og það þarf ekki að vera nálægt mótaldinu/ráternum til að skila inn gögnum. Rétt fyrir hálfþrjú í gær fékk ég smáskilaboð frá póstinum um að ég ætti pakka í póstboxunum í Kringlunni. Ég var nýkomin út af vinnustað. Kom fyrst við í Fiskbúð Fúsa, langaði að þessu sinni bæði í harðfisk og ýsuflök. Næst lá leiðin í Kringluna. Þegar ég var búin að leggja bílnum hringdi í Davíð Stein til að fá leiðbeiningar. Hann gaf mér þær en bætt við að ef mér tækist ekki að fylgja þeim mætti ég alveg framsenda skilaboðin til hans. Ég fann póstboxin í rýminu hjá upplýsingunum. Þurfti ekki að biðja um neina aðstoð, skjárinn við boxin leiddi mig áfram og í skilaboðunum frá póstinum fylgdu tvö pin númer og líka slóð með QR-kóða. Notaði pinnin og skápurinn þar sem pakkinn til mín var, opnaðist strax. Var sem betur fer með poka með mér. Kom svo við í Heilsuhúsinu og keypti m.a. gulrótarbrauð. Var með sjósundsdótið með mér í bílnum en notaði það ekki að þessu sinni heldur fór heim. Í pakkanum voru þrír mælar og þrjár hleðslusnúrur.
26.5.23
Rigning en minni ferð á logninu
Gærdagurinn var alveg ágætur þótt ég sé ekki alveg orðin 100%. Við sumarstelpan tókum að okkur kortamálin og eftir kaffi fékk hún loksins að æfa sig aðeins á ítroðsluendanum. Hún stóð sig mjög vel og allt daglegt var búið um hádegi. Í hádeginu hringdi Davíð Steinn í mig. Hann var nýbúinn að skila Huldu af sér út á Reykjavíkur flugvöll og var staddur í Krónunni við Fiskislóð. Hann hafði munað eftir því að ég talaði um að það færi að vanta ost svo ég þyrfti að skreppa í búð fyrr en seinna. Og þar sem hann mundi þetta þegar hann var staddur í búðinni ákvað hann að hringja í mig og spyrja hvort það vantaði eitthvað fleira. Hætti vinnu rétt fyrir þrjú og fór beint yfir í Laugardalslaug. Hringdi í pabba þegar ég var á komin á bílaplanið þar og spjallaði við hann í dágóða stund. Hann var mjög ánægður með innrásina sem hann fékk aðfaranótt fimmtudags. Ég hitti kalda potts vinkonu mína í hennar fyrstu ferð í kalda pottinn. Fór þrjár ferðir með henni og svo í gufu. Heitasti potturinn var lokaður en mér fannst 42°C alveg nógu heitur á milli. Ekkert varð úr að ég tæki smá sundsprett en ég þvoði mér vandlega um hárið áður en ég fór upp úr og heim, ekki búin að þvo það í næstum tvær vikur. En þá er spurningin hvenær ég syndi á bakinu næst, líklega ekki fyrr en annan laugardag...
25.5.23
Öryggisnámskeið
Ég ákvað semsagt að drífa mig í vinnuna í gærmorgun. Var mætt um hálfátta. Vinnudagurinn gekk vel fyrir sig en ég þornaði aðeins upp í hálsinum þegar fór að líða á daginn. Var sem betur fer með hálfbrjóstsykur með mér, tveir mola dugðu alveg. Klukkan var langt gengin í fimm þegar ég kom heim. Aðeins Oddur var heima en um klukkustund seinna komu Davíð Steinn og Hulda. Þau höfðu eytt lungan úr deginum á Hellu. Fyrst til að leggja sig og svo til að eiga tíma með afa sínum. Komu víst við á Bakkanum með dagblöð fyrir Jasmín (hundinn) til að nota fyrir þarfir sínar. Þau frændsystikynin voru búin að fá sér eitthvað að borða þegar þau komu. Hulda leit mjög þreytulega út og ég var smá lúin því ég hafði vaknað svo eldsnemma um morguninn. Ég dró mig því í hlé um hálfátta og ég vissi að frænka mín fór að sofa um átta leytið. Ég las; Vefurinn eftir Magnús Þór Helgason, til klukkan að verða níu en fór svo sjálf að sofa.
24.5.23
Nú reynir á
N1 sonurinn var farinn í vinnuna þegar ég kom fram í gærmorgun. Var sjálf samt ekki seint á fótum en við tók enn einn heima-inni-dagurinn. Las ekki neitt fyrr en ég skreið upp í rúm rétt fyrir tíu í gærkvöldi. Prjónaði ekki eina einustu lykkju. Vafraði smávegis á netinu en deginum eyddi ég að mestu í hámhorf á stóran part af af síðustu seríunni sem kom út um Þernuna, The handmaid´s Tale. Byrjaði að horfa á þennan flokk frá upphafi fyrir mörgum mánuðum síðan og hef inn á milli verið að horfa á einn og einn. Davíð Steinn kom heim úr vinnunni um átta í gærkvöldi með þær fréttir að frænkur okkar, systurnar, væru að koma frá Póllandi. Seinkun væri á fluginu hjá þeim ein líklega lentu þær á þriðja tímanum í nótt. Davíð Steinn tók á móti þeim í Keflavík og brunaði með þær báðar beint austur á Hellu. Þar ætluðu hann og Hulda að hvíla sig og aðeins að heilsa upp á afa sinn áður en þau kæmu svo í bæinn. Hulda hefur ekki hitt afa sinn síðan á fyrstu Árlandsleikunum um miðjan júní í fyrra. Veit ekki hvort Bríet átti að mæta í vinnu í dag. Veit líklega meira um þessi mál á morgun.
23.5.23
Botna ekkert í þessu
Hringdi yfir í heilsugæsluna um hálftíu í gærmorgun og spurði hvort hægt væri að mæta "inn af götunni" til að láta athuga með streptókokka. Já, það væri hægt milli tíu og tólf eða eitt og þrjú. Ég fór strax klukkan tíu og þurfti ekki að bíða lengi. Hjúkrunarfræðingurinn skoðaði upp í mig og sagði að roðinn í hálsinum væri ekki það mikill og taldi að ekki þyrfti einu sinni að taka sýni. Ég yrði bara að vera þolinmóð og halda áfram að fara vel með mig. Fyrir þessa heimsókn borgaði ég 500 krónur. Ef taka hefði þurft sýni hefði ég þurft að borga heldur meira. Mér var létt við þessar niðurstöður og viss um að allt væri á réttri leið. Fór beint heim og hellti mér upp á sterkt kaffi. Hringdi í pabba fljótlega. Hann er hress og brattur. Hringdi líka í fyrirlið kortadeildar til að upplýsa um stöðuna. Kláraði að lesa bókina eftir Arnald. Horfði á einhverja þætti, vafraði smá á netinu og hringdi einnig í Jónu Mæju sem er gift bróðursyni pabba. Hún verður sjötug í nóvember og var að hætta að vinna hjá Landgræðslunni eftir rúmlega fjörutíu ára starf á skrifstofunni. Reynir verður setxtíuogfimm í desember og hann langar líka til að fara að hætta. Dagurinn leið ósköp hratt og mér leið ágætlega ég var því frekar svekkt þegar ég mældist með sjö kommur áður en ég fór að sofa í gærkvöldi. Svaf þó alveg ágætlega en það eru ennþá eymsli í hálsinum. Hvenær eiginlega skyldi þetta ganga yfir?
22.5.23
Hitakommuvesen
Var vöknuð alltof snemma eftir smá órólegan svefn í fyrrinótt. Ákvað að drífa mig á fætur þótt klukkan væri ekki orðin sjö og það á sunnudegi. Áður en ég fór að sofa á laugardagskvöldið mældi ég mig, frekar bjartsýn því mér fannst sem allt væri í rétta heilsuátt. Tæplega átta kommur og svekkelsi yfir því að ég væri ennþá best geymd heima og ekkert á leiðinni út hvað þá í sund og svoleiðis. Setti inn daglega færslu, vafraði aðeins á netinu en greip svo í bók. Á ellefta tímanum hellti ég upp á sterkt kaffi. Davíð Steinn kom fram um ellefu leytið en hann var búinn að taka að sér aukavakt milli tólf og fjögur upp á Gagnvegi. Hann var á árshátíð á laugardagskvöldið en fór á bílnum og var því edrú. Ég var sofandi þegar hann skilaði sér heim sem hann sagði að hefði verið einhvern tímann um eittleytið. Hann tók tvær aukavaktir á föstudaginn var, rúma tvo tíma á N1 í Borgartúni milli hálftíu og tólf og svo fjóra tíma á N1 í Mosfellsbæ um kvöldið milli, hálfátta og hálftólf. Og þegar þetta er skrifað er hann á sínu vinnuplani en að leysa af í Mosfellsbænum sem starfsmaður á plani næstu tvær vikurnar vegna sumarfría. Það er sko gott að hann er kominn með bílpróf og á eigin bíl. Hann kom heim rétt fyrir hálffimm í gær til að skipta um föt og sækja bróður sinn en þeir fóru til pabba síns með afmælisgjöf til litla bróður þeirra sem varð sex ára þann 18. sl. Ég bað þá um að koma við á Kringlusafninu í leiðinni og skila fyrir mig 5 bókum sem ég voru að komast á tíma og ég búin að lesa. Minnir að skilafresturinn hafi verið til 22. sem er í dag en svona er lang best að bera sig að ef maður vill passa að bæta ekki í bókaflóruna. Er enn með þrjár bækur af safninu sem skila þarf um næstu mánaðamót. Tvær af þeim eru; Hundur eftir Alejandro Palomas og Kyrrþey eftir Arnald Indriðason. Upp úr hádeginu í gær hringdi ég í fyrirliða kortadeildar til að taka stöðunni á henni og láta hana vita um stöðuna á mér. Hennar kvefpest færðist úr hálsinum yfir í nefið og snýtingar en hún var hitalaus og nokkuð hress. Ég hef sloppið við snýtingar en hálsinn er enn aumur og ég er alltaf komin með smá kommur þegar fer að líða á daginn.
21.5.23
Hálssærindin enn að hrjá mig
20.5.23
Svipuð staða á heilsu
Ég skrönglaðist á fætur um átta leytið í gærmorgun. Útbjó mér fljótlega engiferdrykk og sat með hann og bók í hönd í stofunni. Ég virðist ekkert eiga erfitt með að lesa þannig að hitinn er ekki svo mikill og meðan ég get andað með nefinu og haft munninn sem mest lokaðan fækka ég hóstaköstunum til muna. Tók samt all nokkur hósta og hnerraköst í gær. Um ellefu leytið hellti ég upp á sterkt kaffi og ristaði brauð. Kaffibollarnir urðu tveir en svo ekki fleiri yfir daginn. Voru þá einum færri heldur en kaffibollar fimmtudagsins. Eftir hádegisfréttir fór ég að horfa á þætti úr seríunni Station 19. Hef verið að horfa á þessa seríu en undanfarið hafa þættirnir safnast upp, líklega helst vegna þess að ég er að fylgjast með nokkuð mörgum seríum en hef takamarkaðan tíma í annríki daganna til að horfa of mikið. Vil líka heldur eiga einhverjar stundir til að lesa sem og stunda sund, kalda pottinn og sjóinn. En þessa dagana held ég mig heimavið og vona að hálsbólgan gangi sem hraðast yfir og ég komist í vinnu og út fyrir dyr strax eftir helgina. Var komin upp í rúm rétt fyrir níu í gærkvöldi. Las til klukkan að verða hálftíu. Rumskaði fyrst um hálfsex í morgun, eftir átta tíma svefn. Gat sem betur fer sofnað aðeins aftur, þó ekki lengur en tæpa tvo tíma.
19.5.23
Lasin
Þrátt fyrir að fara extra vel með mig, drekka heita engiferdrykki og halda mig innan dyra ágerðust hálssærindin og í gærkvöldi var ég komin með nokkrar kommur og farin að hósta að auki. Hálsverkurinn leiðir stundum út í eyru en nefið er alveg laust við hor og get ég andað vel með því sem betur fer því ef ég þyrfti að anda með munninum mundi hálsinn þurrkast upp og ég hósta meira. Fór á fætur um hálfníu leytið í gærmorgun. Slenið hafði engin áhrif á lestur, netvafr og þáttaáhorf og ég hafði líka matarlyst. Las í rúma klukkustund í gærmorgun og dreypti á heitum engifervökva sem ég útbjó sjálf. Á tólfta tímanum hellti ég upp á sterkt kaffi og ristaði mér speltbrauðsneiðar sem ég smurði með hummus, osti og þunnt skornum flúðasveppum. Bjó til samloku úr þessu. Um tvö leytið útbjó ég mér aftur engifervatn. Tíminn var ekkert að láta bíða neitt eftir sér og dagurinn leið frekar hratt. Var komin upp í rúm rétt rúmlega níu. Las um stund en var líklega sofnuð um hálfellefu. Vaknaði upp í hóstakasti um tvöleytið og aftur um fjögur leytið. Ákvað þá að það væri ekkert við í því að skreiðast til vinnu. Rumskaði um sjö í morgun til að senda eftirfarandi skilaboð í vinnuna:
Með hálsbólgu og hitavelling
hósta líka mikið.
Ekki fær um heilan helling
heima fyrir vikið.
18.5.23
Smá hálsbólga
Ég var mætt í vinnu um hálfátta. Í þetta sinn var ég í bókhaldinu, sú fjórða no. eitt að hlaða inn á vél og troða í, sumarstelpan á móttökuendanum og fyrirliðinn niðri til aðstoðar til klukkan hálftólf. Milli klukkan hálftíu og tíu var kaffi, fundur og þar af leiðandi boðið upp á eitthvað að maula með kaffinu. Að auki átti einn vinnufélagi okkar afmæli í gær og hann kom með tertu af því tilefni. Fyrirliðinn fékk að fara um hálftólf til að sækja yngsta bróður sinn. Þau voru að fara til að vera við útför móðurbróður þeirra. Líkt og í fyrradag þurfti að gefa sér extra tíma í umferðinni. Daglegri framleiðslu lauk rétt fyrir tólf. Eftir hádegi kláraði sumarstúlkan að pakka því sem er að fara í útibú í fyrramálið, við hinar tvær settum af stað þá endurnýjun sem byrjað var að framleiða í fyrradag. Sumarstelpan tók svo aftur við á móttökuendanum þegar hún var búin að pakka. Þá var líka búið að telja allt og rétt fyrir hádegi hafði ég undirbúið allar póstsendingar. Ég tók þá ákvörðun að þar sem það væri eins konar föstudagur skildum við hætta og ganga frá um tvö. Þá var búið að framleiða 750 kort og aðeins rétt rúmlega helmingur af stærstu og síðustu skránni eftir. Hluti af þessari hættu-ákvörðun var reyndar sú að ég þurfti að fara heim með bílinn svo Oddur gæti skutlað systurdóttur minni í banka og svo til Keflavíkur. Var ekki viss hversu lengi ég yrði á leiðinni heim og hversu lengi þau myndu vera. Þetta gekk reyndar allt voða vel og voru þau akkúrat að koma til Keflavíkur þegar Bríet var á leið út úr flugstöðinni að koma heim úr æfingabúðum frá Sviss. Þau gátu sótt hana og hún leiðbeint þeim heim til vinkonu sinnar í Keflavík. Þar fengu þær að vera fram eftir kvöldi og var svo skutlað út á flugvöll af vinkonunni eða mömmu hennar en litla systirin bauð nefnilega stóru systur með sér í brúðkaupsveislu til Póllands. Áður en Oddur lagði af stað til baka frá Keflavík þurfti hann að jafna loftþrýstinginn á dekkjunum en það hefur ekki þurft að gera það síðan sumardekkin voru sett undir og það er nú alveg mánuður síðan það var gert og búið að keyra helling um á þeim tíma.
17.5.23
Aðeins öðruvísi dagur í gær
Ekkert varð úr yfirsetu í gær, kannski sem betur fer. Framleiðsludagurinn var í stærra lagi, um þúsund kort í heildina og vélin tók smá kast um tíu leytið. Hefðum líklega aldrei getað afhent vélina alveg á réttum tíma. Í staðinn fengum við tækifæri til að byrja á hinum hlutanum á endurnýjuninni sem kom til framleiðslu þann 3. sl. Ég var í sama hlutverki og að auki var ég þeirri fjórðu innan handar um þá hluti í bókhaldinu sem hún hefur ekki þurft að sinna áður. T.d. að undirbúa endurnýjun undir að verða send í póst. Þau rúmlega áttahundruð kort sem voru endurnýjuð í fyrradag fóru út úr húsi í gærmorgun. Hættum framleiðslu og gengum frá niðri um tvö leytið. Sumarstúlkan og sú fjórða fóru að hjálpa til á seðlavélunum uppi en það var rólegt yfir innleggjunum svo við fyrirliðinn máttum stinga af um hálfþrjú. Ég fór í sund en komst ekki alveg beinustu leið vegna lokana. Þurfti samt ekki að fara langan krók og lenti ekki í neinni biðröð. Hringdi í pabba áður en ég fór inn í sundlaugabygginguna. Hafði hugsað mér að synda smávegis áður en kalda potts vinkona mín mætti á svæðið en það var sundkennsla og leikur í útilauginni sem dreifðist á nær allar brautir. Ég notaði þetta sem afsökun til að bíða bara í sjópottinum eftir fyrstu ferðina í þann kalda.
Davíð Steinn sótti Huldu frænku á Reykjavíkurflugvöll um tvö leytið í gær. Það var yndislegt að fá þessa frænku sína í heimsókn. Hún gisti í stofunni í nótt en seint í kvöld fara þær systur saman til Póllands í brúðkaupsveislu til pólskra vina og vinnufélaga Bríetar.
16.5.23
Yfirseta í dag milli tólf og fjögur
Ég var mætt í vinnu um hálfátta í gærmorgun. Þar sem fyrirliðinn sá um bókhaldið í síðustu viku og fyrrum fyrirliði er farin í sumarfrí ákvað ég amk að taka til fyrstu tölur. Þrír af sex sumarstarfsmönnum sem ráðnir verða í sumar eru komnir og ákveðið var að ein af þeim kæmi í kortadeildina. Sú fjórða var einnig með okkur í gær. Við fyrirliðinn höfðum séð það fyrir okkur að hún myndi leiðbeina sumarstúlkunni en rétt áður en allt fór í gang var ákveðið að sú fjórða færi í bókhaldið, fyrirliðinn á ítroðsluendann og ég að leiðbeina á móttökuendanum. Vélin var með mánudagsmótþróa, það þurfti að taka hana niður og framleiðslan hófst ekki fyrr en upp úr klukkan hálfníu og rúmlega það. Engu að síður vorum við búnar að framleiða fyrsta skammtinn og telja um hálftíu. Þá skruppum við í kaffi. Restin af daglegri framleiðslu, einnig það sem kom um ellefu leytið, var klárað um tólf. Eftir hádegi dembdum við okkur í endurnýun og framleiddum rúmlega áttahundruð kort á innan við tveimur tímum. Allan tímann var ég að aðstoða og leiðbeina á móttöku endanum. Ég fékk að stinga af korter yfir tvö og var komin yfir í K2, Katrínartún skömmu síðar. Þar fór fram kveðjuathöfn fyrir sex af vinnufélögum mínum til margra ára. Sá sem var búinn að vinna lengst hjá RB byrjaði 1980 og "unglingurinn" í þessum hættu hóp byrjaði árið sem tvíburarnir mínir fæddust. Þetta voru tvær konur og fjórir menn. Forstjórinn og einn framkvæmdastjórinn voru með yfirlit yfir ýmislegt sem gerðist árin sem þetta fólk hóf störf sem og starfsferilinn hjá RB. Starfsmannafélagið sem og RB vinnustaðurinn leysti fólkið út með blómum, konfekti og gjafakortum. Boðið var upp á kampavín og stærðar rjóma-marsípan tertur. Ég lét mér nægja að fá mér kaffi með minni tertusneið. Fékk að faðma vinnufélagana sem var að kveðja. Einn af þeim vann öll sín 35 ár á K1, Kalkofnsvegi. Úr kveðjuhófinu fór ég beinustu leið í Nauthólsvík. Vorpassinn var runninn út og nú er loksins búið að ákveða að hér eftir verður ekki lengur fríkeypis í sjóinn og aðstöðuna á sumrin. Ég ákvað strax að fjárfesta í árskorti sem kostar 19.200 kr. og mun ég fá það að mestu endurgreitt í gegnum íþróttastyrkinn í vinnunni. Með vorpassanum og árskortinu í sund er ég komin aðeins yfir 65 þúsund kr. þakið. Það var flóð og sjórinn yfir átta gráðum svo ég ákvað að prófa að nota strandskóna. Það virkaði bara nokkuð vel og sjórinn fór ekki að "bíta" fyrr en ég var búin að svamla um í tíu mínútur.
15.5.23
Fjórir vinnudagar í þessari viku
Ég var komin á fætur upp úr klukkan sjö í gærmorgun og í sund áður en klukkan var orðin hálfníu. Það urðu 4 ferðir í kalda, 460m bringusund, 40m skriðsund, ein ferð í sjópottinn, 15mín í gufu og smá "sólbað" áður en ég fór upp úr. Skrapp næst í Krónuna út á Granda. Keypti álfinn í anddyrinu. Vörurnar úr búðinni komust rúmlega hálfa körfu af minni gerðinni. Var komin heim stuttu fyrir ellefu. Gekk frá vörunum, sótti þvott á snúrur, setti í vél í leiðinni og hellti mér svo upp á fyrstu kaffibolla dagsins. Var búin að drekka 3 bolla um eitt og svo ekkert meir þann daginn. Um hálfþrjú leytið skrapp ég í stuttan, tæplega hálftíma göngutúr sem forritið í símanum mældi sem 2,2km. Annars var ég að gera svipaða hluti og á laugardaginn.
14.5.23
Morgunstund fyrir sund
Var komin á fætur tuttugu mínútum yfir sjö í gærmorgun. Korteri áður hafði ég heyrt í N1 syninum fara út úr húsi á leið upp á Gagnveg á helgarvakt. Ég gaf mér tíma til að vafra aðeins um á netinu. Um átta setti ég í þvottavél og fór svo í sund. Fimm ferðir í kalda, 500 metra stund flestar ferðir á bakinu, einu sinni heitasti potturinn, sjópotturinn, 15 mínútur í gufu og smá "sólbað" áður en ég fór upp úr og þvoði mér um hárið. Hitti mikið af fólki, m.a. sjósundsvinkonu mína sem var að koma þegar ég var að fara. Var mætt hjá esperanto vinkonu minni um hálfellefu. Ekkert varð úr esperanto því mestur tíminn fór í heilabrot yfir smá kafla í nýjustu krossgátu bændablaðsins. Kom heim um hálfeitt. Hengdi fljótlega upp úr vélinni. Hellti mér upp á sterkt kaffi og svo leið dagurinn við alls konar. Reyndar greip ég ekkert í prjónanana og það var ekki fyrr en ég kom upp í rúm um ellefu sem ég greip í bók, las þá í um klukkustund. En ég hringdi í Pabba, æskuvinkonu mína, eldri systur dóttur mína og eina fyrrum samstarfskonu mína úr kortadeildinni. Horfði á fótbolta, þætti, mynd og stigagjöfina í söngvakeppninni. Og svo fór einhver tími í það sem sjaldan er skrifað um.
13.5.23
Helgarfrí
Þegar klukkan var tólf mínútur gengin í átta í gærmorgun og N1 sonurinn ekki kominn fram hringdi ég í hann þótt ég sæti inn í stofu. Í ljós kom að hann hafði gleymt að stilla vekjaraklukkuna og fékk smá áfall. Ég var á undan honum út úr húsi og í mína vinnu. Hann sendi mér sms skömmu fyrir klukkan átta til að þakka mér fyrir að ýta við sér. Hann hafði mætt í sína vinna tvær mínútur yfir hálfátta, sem var innan skekkjumarka. Vinnufélaginn var að hugsa um að fara að hringja í hann. Sonurinn fór semsagt í fyrsta skipti í vinnuna á sínum eigin bíl. Þegar hann var að nota strætó þurfti hann að fara út tuttugu mínútum fyrir sjö. Ég var annars á móttöku endanum á vélinni. Taskan með fyrstu framleiðslu var afhent á réttum tíma og þegar við fórum í mat vorum við búnar að vinna upp alla daga til 11. maí. Debetið og hádegisskammtur gærdagsins var svo framleitt milli eitt og rúmlega tvö. Þegar ég fékk að fara rétt fyrir hálfþrjú var aðeins eftir að telja og ganga frá vögnunum. Ég fór heim, skipti um bol og peysu, fór í nýju kápuna mína og fékk Odd til þess að skutla mér í K2. Þar var viðburðurinn "Kona býður konu". Reyndar bauð ég ekki neinni með mér en þessi viðburður var mjög áhugaverður og ég hitti líka all nokkrar sem ég þekkti. Labbaði heim um fimm leytið og skráði gemsinn á mig 1,5km göngu.
12.5.23
Törn
Við fyrrum fyrirliði vorum komnar niður í framleiðsluherbergi korter fyrir átta. Á tveimur og hálfum tíma náðum við að sópa upp allri morgunkredit framleiðslunni frá því sem út af stóð á mánudaginn, það sem kom á þriðjudag, miðvikudag og það sem var til framleiðslu í gær. Sá sem sækir var til í að bíða þetta korter til að fá allt afhent. Eftir þessa törn skruppum við upp í kaffi og til að fylla á vatnsflöskurnar okkar. Til klukkan tólf vorum við að framleiða debet og hádegiskreditið frá áttunda maí og hluta frá níunda. Eftir hádegi framleiddum við níunda og hluta af tíunda maí. Um tvö byrjuðum við að pakka þessu og framleiddum þá á meðan kort sem ekki fara alla leið á form og í umslög. Hættum og gengum frá upp úr klukkan þrjú og þá stóð út af hluti af tíunda og ellefta sem verður vonandi kláraður með því sem er til framleiðslu í dag. Var komin í sund rétt fyrir fjögur. Hringdi í pabba þegar ég var komin á planið við Laugardalslaug. Davíð Steinn var fyrir austan. Hafði farið með frænku sína á rúntinn og þvoði og bónaði bílinn sinn. Fékk m.a. að nota skúrinn hjá afa sínum. Hann kom svo heim um níu leytið og fer væntanlega á bílnum á vinnuvaktina á dag og um helgina.
11.5.23
Hinn sonurinn líka kominn með bílpróf
Var vöknuð stuttu fyrir klukkan sex. Morgunrútínan svipuð og flesta virka daga. Mætti í vinnuna um hálfátta. Ég byrjaði á því að fara inn á kaffistofu með prjónana mína, fylla á vatnsbrúsann og fá mér fyrsta kaffibolla dagsins. Skömmu síðar opnaði ég seinni lásinn á hvelfingunni uppi. Um átta var fyrirliðinn búin að taka saman kredit tölur dagsins svo ég fór niður að hlaða þeim inn og öllu öðru sem var komið á vélina. Tilkynnti Indó og Emmu tölur á teams hópinn í kortagerð. Fyrirliðinn og fyrrum fyrirliði fóru innleggin. Þegar ég kom upp aftur var ég aðeins að skoða og garfa í reikningagerðamálunum, aðeins að undirbúa mig undir næstu mánaðamót því sú sem oftast sér um þetta er að fara í mánaðar sumarfrí eftir þessa viku. Eftir kaffi fór ég niður með skiptiblaðið og framleiðslutölur fyrir debetið, fyllti út það fyrrnefnda, klemmdi blöðin saman og setti aftast í debet bunkann. Skömmu seinna kom annar viðgerðarmaðurinn til að reyna að ná þannig sambandi við framleiðsluvélina þannig að við gætum gert eitthvað af kortum. Hinn viðgerðarmaðurinn bættist í hópinn skömmu fyrir hádegi. Til að gera langa sögu stutta þá kom varahluturinn í hús á öðrum tímanum. Eftir tvær auka endurræsingar hrökk vélin í gang og hætti að vera með nokkuð vesen, líka á límmiða módúlnum og umslagavélinni. Allt virkaði. Þá var þó búið að ákveða að vinna ekki yfirvinnu. Staðan verður tekin um hádegið í dag. Við gátum þó klárað það sem við vorum með í gangi á mánudagsmorguninn og smá hluta af debetinu. Fyrirliðinn og fyrrum fyrirliði þurftu að fara um þrjú leytið en kerfisfræðingurinn var með mér síðasta klukkutímann. Hann er með aðgang að hvelfingunni og getur þar að auki sett kerfin á . Klukkan var aðeins byrjuð að ganga fimm þegar við vorum búin að ganga frá niðri. Rétt áður hringdi Davíð Steinn í mig að segja mér að hann hefði náð verklega bílprófinu. Ég var komin í sund um hálffimm. Synti reyndar ekkert að þessu sinni en fór þrjár ferðir í kalda, tvær í heitasta og eina í gufuna. Klukkan var byrjuð að ganga sjö þegar ég kom heim.
10.5.23
Auka færsla um eitt atvik gærdagsins
Klukkutíma eftir að ég kom heim í gær hringdi heimasíminn. Það var Davíð Steinn. Hann var í vinnunni og spurði mig hvort Bríet frænka væri fyrir utan. Ég trítlaði fram á gang og alla leið niður til að útidyrum til að hleypa frænku minni inn. Hún hafði hringt í Davíð Stein og spurt hann hvort hann væri heima. Stormaði framhjá mér, upp stigann og beinustu leið að salernið alveg í spreng. Þegar hún kom fram aftur knúsaði hún mig bæði hæ og bæ því hún var að drífa sig austur á Hellu.
Uþb einn þriðji búinn af maí
Vaknaði um sex leytið og sat inni í stofu með fartölvuna í fanginu þegar N1 sonurinn kom fram rúmlega hálfsjö. Köstuðum morgunkveðju á hvort annað, mæðginin, eins og við gerum alltaf þessa morgna sem hann er að fara á vinnuvakt, mánudag, þriðjudag og föstudag aðra vikuna og miðvikudag og fimmtudag hina vikuna. Hann er semsagt á frívakt í dag og á morgun og eftir hádegið fer hann í bílprófið. Ég var mætt í vinnu um hálfátta. Þetta var svona allt öðruvísi vinnudagur og ætla ég ekkert að fara nánar út í það í þetta sinn. Var komin í sund um þrjú og búin með eina ferð í kalda og 400 metra sund þegar kalda potts vinkona mín mætti á svæðið. Aldrei þessu vant dýfði hún sér fyrst í kalda pottinn. Fljótlega eftir þetta var lokað inn í gufu vegna framkvæmda og átti ekki að opna þar aftur fyrr en um sex leytið. Við fórum því í sjópottinn eftir mína sjöttu ferð í þann kalda. Ég tók svo eina mínútu í kalda áður en ég fór upp úr og í kalda sturtu áður en ég fór heim. Horfði að hluta af fyrri riðli í söngvakeppninni. Sá m.a. atriðin tvö sem voru eftir að öll 15 voru búin að koma fram með sín framlög. Svakalega flott. Og varð líka vitni að því þegar norðurlöndin þrjú sem voru í þessum riðli komust áfram.
9.5.23
Beðið eftir varahlutum
Var glaðvöknuð tæpum hálftíma áður en vekjaraklukkan átti að ýta við mér. Slökkti á vekjaranum og dreif mig á fætur. Næsti klukkutími var mjög fljótur að líða og fór að mestu í bloggskrif og netvafr. Mætti í vinnuna um hálfátta. Fyrirliðinn átti tíma í saumatöku um níu og við hinar tvær vissum að hún kæmi ekki fyrr en eftir það. Ég fór niður og kveikti á vélinni á meðan fyrrum fyrirliði tók saman fyrst tölur. Fylltum svo á vatnsflöskurnar og ég fékk mér fyrsta kaffibolla dagsins. Fljótlega eftir að við komum niður kom í ljós að vélin vildi ekki lengur láta plata sig varðandi bráðabirgðaviðgerð á skynjara við annan prentmódúlinn. Gátum framleitt um tuttugu kort af hundraðogsjötíu sem afhenda hefði átt um tíu. Kerfisfræðingurinn kom að hjálpa okkur um níu og svo hringdum við í viðgerðarmann. Þegar ljóst var að hann gat ekki hjálpað í gegnum símann ákvað hann að senda þann sem kemur stundum í yfirferðir til okkar. Sá komst þó ekki alveg á stundinni. Í millitíðinni, létum við vita af seinkun, fórum í kaffipásu og framleiddum þau debetkort sem ekki er prentað aftan á. Eitthvað á annað hundrað kort, öll fyrir sama banka og aðeins ein tegundin af fjórum varð útundan þar sem eitthvað er prentað á bakhliðina á þeim kortum. Viðgerðarmaðurinn kom um ellefu leytið, fékk að skreppa aðeins frá í hádeginu en um hálfþrjú var ákveðið að ekkert væri hægt að gera nema bíða eftir varahlutnum sem hafði verið pantaður með hraði fyrir helgi.
Í gær voru akkúrat sex ár frá því að ég prófaði sjóinn við Nauthólsvík í fyrsta skipti. Það var því upplagt að bjóða fyrrum fyrirliða með mér en hún fór í kælinganámskeið fyrir nokkrum misserum og var búin að eignast sjósundsskó og vettlinga. Í námskeiðinu sjálfu ("Hættu að væla og komdu að kæla") var ekki notast við svoleiðis græjur og námskeiðið fór fram á nokkrum stöðum. Sjórinn var 7,3°C, fjara og við byrjuðum á að vaða aðeinst í áttina að Kópavogi. Eftir eina og hálfa til tvær mínútur fórum við upp úr og löbbuðum landleiðina yfir í víkina. Þar var sjórinn aðeins hlýrri og eftir smá stund bauð samstarfskona mín mér að fara aftur út í þar sem við byrjuðum og ég fer oftast. Ég lét ekki segja mér það nema tvisvar og tíu mínútum seinna hitti ég svo Sillu í heita pottinum. Hún var hæst ánægð með þessa sjóferð. Ég var komin heim um fimm leytið.
8.5.23
Hundraðtuttuguastiogáttundi dagur ársins hafinn
Rumskaði frekar snemma eða um sex leytið í gærmorgun en sofnaði sem betur fer fljótlega aftur. Var komin á fætur skömmu fyrir klukkan níu. Pabbi var kominn fram og var að taka upp úr uppþvottavélinni. Eftir morgunverkin á baðherberginu, sopa af lýsi og glas af vatni með vítamíntöflunum settist ég við tölvuskjáinn í um klukkustund. Um tíu leytið fékk ég mér klementínu og settist svo inn í stofu með bækur og prjóna. Byrjaði á bókinni; Leyniviðauki 4 eftir Óskar Magnússon. Hún er ein af fimm bókum með skilafrest þann 22. maí n.k. sem hægt er að framlengja um 30 daga. Þær þrjár bækur sem ég tók síðast með heim eru með skilafrest til 1. júní og þá líka hægt að framlengja þeim fresti um 30 daga. Fyrir utan þessar átta bækur er ég með nokkrar aðrar, m.a. tvær sem ég tók með mér frá Egilsstöðum, báðar eftir Marian Keyes. Byrjaði að lesa aðra bókina fyrir austan; Vatnsmelóna, svona um það bil að verða hálfnuð með hana. Um ellefu leytið hellti ég upp á kaffi og fékk mér eitt harðsoðið egg. Í hádeginu fékk ég mér skyr með krækiberjum og rúgbrauð með síld. Ég get alls ekki borðað hálfan lítra af skyr í einu eins og pabbi gerir. Efast um að ég hafi tekið nema um einn fimmta úr dósinni sem ég opnaði. Um tvö leytið fékk ég mér örstuttan göngutúr út í Bogatún þangað sem Valur, pabbi Ellu vinkonu, býr núna. Það eru nokkur misseri síðan hann minnkaði við sig og flutti úr Heiðvanginum. Þetta var mín fyrsta heimsókn í Bogatúnið. Valur og Ingibjörg komu að Norðan á húsbílnum um síðustu helgi en þau eru til skiptis á Hellu og Blönduósi þar sem hún á sína íbúð. Hver veit nema ég eigi eftir að heimsækja þau þangað. Þegar ég kom til baka fékk ég mér pönnuköku með rjóma og horfði á það sem eftir var af leik Newcastle og Arsenal. Hafði samt þegið kaffi og sneið af gulrótarköku í Bogatúninu. Um hálfsex kvaddi ég og dreif mig í bæinn. Þoka var á heiðinni en ég var komin heim skömmu fyrir klukkan sjö. Horfði á fréttir og Landann en líka smá part af leik West Ham og Man Utd. og svo á þátt tvö úr fyrstu seríunni af Happy Valley. Var komin upp í rúm um hálftíu og las þá um stund í; Rauður maður/svartur maður eftir Kim Leine.
7.5.23
Þrúþúsundsexhundraðastaogfyrsta færslan
Var vöknuð eldsnemma miðað við að hvorki var virkur dagur né ég á skutlvaktinni. Fór á fætur stuttu fyrir klukkan sjö. Um það leyti sem morgunfréttirnar klukkan átta fóru í loftið var ég að leggja af stað í sund. Fyrsta ferðin af þremur í kalda var tuttugu mínútum síðar. Synti 500m á 25 mínútum, flestar ferðir á bakinu en 100m á bringunni og ca 70m skriðsund. Eftir næstu ferð í kalda fór ég í sjópottinn og hitta þar fyrir yngstu mágkonu mömmu heitinnar. Við spjölluðum saman í dágóða stund. Vorum svo samferða til baka þegar hún fór að synda og ég í mína loka ferð í kalda pottinn áður en ég fór í gufu. Hún fann mig svo aftur í gufunni korteri seinna. Þvoði mér um hárið þegar ég fór upp úr og fór svo beint vestur á Sólvallagötu að hitta esperanto vinkonu mína. Var komin þangað á slaginu hálfellefu. Tæpum tveimur tímum, skál af hafragraut, fjórum kaffibollum og grúsk í nýja símann hennar og bækur, síðar, kvaddi ég og fór heim. Bankaði upp á hjá Oddi og sagði að hann hefði aðeins einnoghálfan til tvo tíma aflögu ef hann vildi fá lánaðan bílinn áður en ég færi austur. Honum tókst greinilega ekki að vakna svo ég sendi sms í Fossheiðina um hálftvö leytið og lauk við að pakka niður. Lagði af stað úr bænum hálftíma síðar. Ákvað að fara Þrengslin til að sleppa við mestu umferðina yfir fjallið. Þar var verið að undirbúa vegaframkvæmdir á stórum kafla og hraðinn tekinn niður í 30km. Ég komst þetta nú samt og hlýddi öllum skiltum. Tveir bílar tóku framúr um leið og það mátti. Það voru líka greinilega einhvers konar framkvæmdir við og kringum hús tvíburahálfforeldranna. Lagði ekki í að leggja fyrir aftan kerruna í innkeyrslunni þar sem þar að auki lá leiðsla eða slanga úr skúrnum og eitthvert út á gangstétt fyrir framan. En það var pláss við hliðina á gangstéttinni. Fékk svo að vita að nágrannahjón voru að hjálpa til við vorverkin í garðinum og hitti "vinnufólkið" svo þegar því var boðið inn í kaffipásu hálftíma eftir að ég kom. Ásdís lánaði mér eina sokkaprjónsbók og gaf mér aðra. Ég var komin á Hellu um fimm. Bríet og Bjarki voru á svæðinu og það var ákveðið að hafa bleikju í kvöldmatinn um hálfátta leytið (eftir fréttir veður og íþróttir). Gufusauð kartöflur, lauk og rófubita sem meðlæti en steikti bleikjuna upp úr miklu smjöri og setti smá rjóma út í. Unga fólkið sá svo um að vaska upp á eftir en ég settist niður fyrir framan imbann með hvítvínsglas og horfði á síðasta þáttinn af Alla leið, tvo þætti úr sarpinum og byrjun á einni mynd af skjáeinum. Unga fólkið skrapp eitthvað út á lífið. Pabbi fór inn í rúm um hálfellefu leytið, ég var smástund í tölvunni en búin að slökkva á henni og komin inn í rúm um hálftólf.
6.5.23
Maí á hröðu skriði
Mættum tvær í kortadeild til að byrja með. Vélin var svo ósamvinnuþýð að kalla þurfti út viðgerðarmann. Skipta þurfti út skynjara við annan prentmódúlinn. Sá skynjari sem var settur í var ekki alveg rétta tegundin og virkaði ekki fyrr en kerfisfræðingur var búinn að breyta þannig að sama hvort við vorum að nota svartan, hvítan, silfraðan eða gylltan borða taldi vélin/skynjarinn að við værum bara með svartan. Framleiðsla fór í fullan gang um hálftólf svo það varð smá seinkun á afhendingu. Þau einu kort sem eru afgreidd innan dagsins fara venjulega frá okkur um tíu en ég gær var klukkan rúmlega hálfeitt þegar við gátum afhent frá okkur þessi tæpu tvöhundruð kort. Þau rúmlega sjöhundruð önnur nýpöntuð kort voru framleidd og pökkuð á innan við þremur tímum. Búið var að telja, ganga frá og útbúa alla póstmiða um hálffjögur. Föstudagur í lengra lagi og ekki byrjað á endurnýjuninni enn. Fór beinustu leið í Nauthólsvík eftir vinnu. Það var háflóð, sjórinn yfir sjö gráður, smá ferð á logninu og ég svamlaði um í rúmt korter. Um það leyti sem ég var að fara upp úr heita pottinum mættu þrjár úr sjósundshópnum. Gott að hitta aðeins á þær. Ég var komin heim um hálfsex.
5.5.23
Sextugastaogþriðja heimsóknin gekk upp
Vaknaði stuttu fyrir klukkan sex í gærmorgun eftir alveg átta tíma svefn. Var mætt í vinnuna um hálfátta en þá þegar var fyrirliðinn mætt. Hún fór niður að kveikja á vélinni og hlaða inn þeim tölum sem ekki kemur póstur út af. Þegar fyrrum fyrirliði mætti var ákveðið að ég tæki að mér bókhaldið. Ég var búin að fylla á vatnsflöskuna mína og drekka einn kaffibolla og var svo sest við skjáinn tíu mínútum fyrir klukkan átta. Opnaði líka seinni lásinn á hvelfingunni uppi. Fyrstu tölur voru í hærra lagi en þó ekki yfir tvöhundruð, hvað þá þrjúhundruð eins og í fyrradag. Bókhaldið gekk vel og framleiðslan alveg fram að hádegi. Síðastu skránni af daglegum verkefnum var ranglega hlaðið inn og vélin vildi ekki framleiða kortin, kannski sem betur fer því þau fara öll í umslag og við hefðum ekki getað séð að á þau hefði prentast logo sem ekki átti að vera. En þegar skránni var hlaðið rétt inn var eins og vélin tæki mótþróaröskunarkast því þrátt fyrir alls konar tilraunir og dekstur við vélina þá framleiddi hún ekki meira þann daginn og útaf stóðu 6 óframleidd kort og nokkur ónýt. Hvort þetta er einhver alvarleg bilun eða lagast í dag kemur í ljós á eftir. Við gengum frá deildinni um hálffjögur og hættum vinnu.
Ég var mætt í besta bankann um fjögur, hálftíma fyrir skráðan tíma en sagðist ætla að fá mér smá af kaffistofunni þar sem ég var ekki búin að borða síðan um hálftólf. Eftir tvö djúsglös, kaffibolla og rúgbrauð með kæfu, gúrku og osti var ég tilbúin. Sú sem sótti mig tók eftir að síðasta heimsókn hefði ekki gengið upp og ég sagði henni frá að í seinni tíð hefði verið ákveðin kúnst að hitta á æðarnar í mér. Þegar hún var búin að fá að þreyfa á olnbogabótum beggja handa ákvað hún að sækja eina reyndari. Þá konu hef ég samt ekki hitt áður í blóðbankanum. Hún var fegin að fá að standa smástund upp frá verkefnum á bak við tjöldin og það sem meira var að hún treysti sér alveg til að stinga í báða handleggi. Hún valdi samt þann hægri og allt gekk eins og í sögu þannig að ég fékk að leggja inn í þennan banka í gær. Fékk mér annan kaffibolla, hafraklatta, lítinn poka af snakki og annan af salthnetum (tók þann poka með mér heim) og gluggaði aðeins í moggann.
Um hálfsjö labbaði ég upp í Háteigskirkju í nýju sumarkápunni og á nýju skónum og keypti mér inn á 30 ára afmælistónleika Valskórsins sem byrjuðu klukkan átta. Gestur og einsöngvari í nokkrum lögum var Kristjana Stefánsdóttir og einnig komu fram erlendir gestir sem spiluðu nokkur lög á orgel og fiðlu og einn kórmeðlimur með þeim í amk einu lagi á flautu. Dagskránni var stillt þannig upp að kórinn fékk að setjast niður tvisvar sinnum. Í heildina, með uppklappslagi voru tuttugu atriði. Ég skemmti mér vel og tíminn týndist gersamlega. Labbaði heim aftur rétt fyrir tíu og fór ekki í háttinn fyrr en hálftíma síðar. Gaf mér samt tíma til að lesa í hálftíma áður en ég fór að sofa.
4.5.23
Fimmtudags- snemma um morgun
Þó ekki alveg eins snemma og í gærmorgun. Þá var ég vöknuð fyrir klukkan fimm eftir ca sex tíma svefn. Samt var ekkert sérstakt að leita á mig. Var mætt í vinnuna um hálfátta. Fyrirliðinn var í fríi og sú fjórða veik. Sá sem var í afgreiðslunni tók öll kerfin af. Ég byrjaði á því að taka saman fyrstu tölur og prenta út fór svo niður til að kveikja á kortavélinni og "ná í" þær tölur sem við fáum ekki póst um. Eftir að hafa hlaðið þeim inn og skráð á teams-kortahópinn fór ég aftur upp. Opnaði seinni lásinn á hvelfingunni uppi, fyllti svo á vatnsflöskuna mína og fór aftur niður til að hlaða fleiri skrám. Fyrrum fyrirliði kom fljótlega niður með fleiri daglegar tölur og talningablöð. Í millitíðinni kom framkvæmdastjórinn niður með fyrstu tvo sumarstarfskraftana. Hann var að kynna þeim húsakynni, starfsemi og starfsfólk og kynnti þau í leiðinni. Þegar þau fóru að yfir í myntdeildina sóttum við Silla vagnana og lykilinn inn í kortahvelfingu. Hún fór að taka til í fyrsta skammtinn sem var óvenjulega stór eða yfir þrjúhundruð kort. Þegar ég ætlaði svo að setja fyrsta skammtinn af stað, neitaði vélin. Tók vélina alveg niður í smá stund og þegar hún kom upp aftur rauk hún í gang. Vorum að byrja framleiðslu korter yfir átta. Þremur korterum síðar gerðum við hlé til að skreppa á morgunfund sem var settur hálftíma fyrr þar sem framkvæmdastjórinn þurfti á annan fund um hálftíu leytið. Áttum eftir að framleiða um fjörutíu kort en taskan á ekki að vera sótt fyrr en klukkan tíu svo þetta slapp. Á miðviku(funda)dögum er alltaf eitthvað með kaffinu og í gær voru extra veitingar, snittur og tvær tertur, þar sem markmiðum apríl mánaðar hafði verið náð. Það náðist líka að ljúka fyrstu framleiðslu, telja og fara upp með innsiglaða töskuna fimm mínútum fyrir tíu. Debet dagurinn var einnig extra stór eða yfir sjöhundruð kort. Áttum eftir um áttatíu kort af þeim þegar við fórum í mat um hálftólf. Þá var hádegisskráin komin með rúmlega hundrað kortum í en hún var extra stór í fyrradag, þó ekki yfir tvöhundruð. Fyrrum fyrirliði þurfti aðeins að skreppa úr húsi í hádeginu en var komin aftur um eitt. Daglegri framleiðslu, pökkun, talningu og frágangi deildar var lokið um tvö. Við fengum reyndar bæði debet og kredit endurnýjun fyrir einn bankann, hátt í þrjúþúsund kort í heildina. Ég hlóð skránum inn og fyrrum fyrirliði las yfir en þar sem við vorum bara tvær og það átti eftir að klára mánaðamótuppgjörið "lokuðum" við kortadeildinni snemma. Ég fór að fara yfir innlegg og þegar kortauppgjörið fyrir apríl var tilbúið las ég yfir það. Klukkan var aftur farin að ganga fimm þegar ég hætti vinnu. Hringdi í pabba og talaði við hann á meðan ég var á leiðinni yfir í Laugardalslaugina en umferðin á Dalbraut og Sundlaugarvegi er mikil og hæg á þessum tíma. Var svo komin heim um sex leytið.
3.5.23
Morgunhani
Vekaraklukkan þurfti ekki að ýta við mér frekar en oftast áður. Var búin að slökkva á henni amk tuttugu mínútum áður en hún átti að vekja mig. Mætti í vinnuna klukkan hálfátta. Var á móttökuendanum á vélinni. Hlé var gert á daglegri framleiðslu milli klukkan ellefu og hálftvö en þá vorum við þó búnar að framleiða rúmlega átta hundruð kort. Fyrirliðinn og fyrrum fyrirliði fóru ásamt tveimur úr öryggisdeild að farga ónýtum sem og úreltum kortum. Ég kláraði að pakka, "sótti" hádegistölurnar (sem voru næstum 170) og fór svo í mat. Förgunin tók lengri tíma en venjulega þar sem verið var að farga slatta af úreltu plasti. Milli hálftvö og þrjú var dagleg framleiðsla og afgangurinn af nýjustu endurnýjuninni kláruð. Búið var að ganga frá kortarýminu fljótlega eftir það. Þá tók ég að mér að fara yfir innlegg og áður en ég vissi af var klukkan byrjuð að ganga fimm. Fór beinustu leið í sund. Kalda potts vinkona mín var þegar búin að fara þrjár ferðir í þann kalda og tók aðrar þrjár með mér áður en við fórum í gufu. Ég tók svo mína fjórðu ferð í kalda áður en ég fór upp úr. Um sex skilaði ég fjórum bókum á Kringlusafnið. Þrátt fyrir að vera með fimm bækur af safninu og nokkrar aðrar heima tók ég þrjár með mér heim. Hringdi í Davíð Stein áður en ég ók af stað frá Kringlunni og úr varð að ég kippti honum með í Krónuna við Fiskislóð. Ég var aðallega að kaupa inn brauð og álegg en hann var að versla sér í sinn mat. Þegar við komum til baka úr leiðangrinum fékk ég stæði fyrir framan númer 9. Sonurinn tók fyrst sína poka inn en kom svo aftur og hjálpaði mér með mína poka þar sem ég var þar að auki með bakpoka, sundpoka og bókasafnspoka.
2.5.23
Fjórir virkir dagar framundan
Þrátt fyrir að ég væri komin á fætur um sjö leytið og að það opnaði í sund í Laugardalslaug klukkan átta var klukkan að verða níu þegar ég mætti þangað. Í anddyrinu mætti ég fyrrum vinnufélaga, hann að koma úr sundi ég að mæta. Var búin að spjalla við hann í hátt í tíu mínútur þegar sr. Pétur kom úr sundi. Yfirleitt fer hann nú í Vesturbæjarlaugina en sú laug og fleiri voru lokaðar í gær þannig að það var dágóður slatti af sundgestum í Laugardalnum sem mætir reglulega í aðrar laugar. Byrjaði á kalda pottinum sem enn er dásamlega kaldur eða undir 7°C. Næst lá leiðin í sjópottinn í dágóða stund. Eftir aðra ferðina í þann kalda var ég að spá í að velja mér braut til að synda á. Það var alveg pláss í lauginni en mér fannst samt heldur margir fyrir minn smekk, akkúrat á þeim tímapunkti svo ég fór í heitasta pottinn. Eftir næstu ferð í kalda fór ég í gufuna. Svo kalda sturtu og aftur í kalda. Svo settist ég einfaldlega á stól og fór í smá sólbað. Það endaði semsagt með því að ég "skrópaði" í sjálft sundið. Var komin heim upp úr klukkan hálfellefu. Hellti upp á sterkt kaffi. Einhvern veginn flaug svo dagurinn við alls konar og ekki neitt.
1.5.23
Frídagur verkalýðsins
Einn þriðji liðinn af árinu sem byrjaði fyrir svo stuttu síðan. Ég var komin á fætur um sjö í gærmorgun. Hafði góðan tíma til að vafra um á netinu því N1 sonurinn átti ekki að vera mættur fyrr en um hálftíu. Korter yfir níu kom sonurinn fram og skömmu síðar fór ég sennilega í mína síðustu skutlvakt og æfingaakstur með honum. Ökukennarinn er með bókina svo það er ekki á það hættandi að fara mikið á rúntinn þegar hún er ekki meðferðis. Ég fór beinustu leið í Laugardalslaugina og hitti strax á kalda potts vinkonu mína. Við fórum fimm ferðir í kalda og ég fjórar í þann heitasta áður en við fórum í gufu. Sjósundsvinkona mín fann mig í gufunni. Hún kom þangað bara til að hitta aðeins á mig. Eftir gufuferðina fór ég í kalda sturtu og svo hittum við eina systur kalda potts vinkonu minnar í sjópottinum. Sjósundsvinkona mín og maðurinn hennar komu þangað skömmu síðar og eina af þeim Sigrúnum sem ég hitti reglulega í sundi, þær eru amk fjórar sem ég hitta þar mis reglulega. Fór sjöttu og síðustu ferðina í þann kalda, sem var 6,5°C, og settist svo smá stund á stól og bakaði mig í sólinni. Var komin heim um hálftólf. Hellti upp á kaffi og fékk mér hressingu. Kveikti á útvarpinu í gegnum sjónvarpið. Hlustaði á hádegisfréttir en um eitt skipti ég yfir á eina sportrás sjónvarps símans. Ætlaði að skreppa í smá göngutúr um miðjan dag en fór ekkert út aftur því það var annar fótboltaleikur seinni partinn og landsleikur í handbolta á sama tíma. Annars var ég líka að prjóna og lesa. Er búin með þær bækur sem þarf að skila 2. og 5. maí og byrjuð á einni af þeim sem eru með skilafrest til tuttugugastaogannan maí og hægt er að framlengja um 30 daga eftir það; Fíkn eftir Rannveigu Borg Sigurðardóttur. Er líka með bókina Tálsýn eftir sama höfund og þrjár aðrar, eina mjög þykka.
30.4.23
Síðasti dagurinn í apríl
Hafði stillt vekjarann á hálfátta sem getur samt ekki gengið upp þegar ég er á skutlvaktinni því N1 sonurinn á að vera mættur upp á Gagnveg um það leyti til að undirbúa opnun. Ég vaknaði hins vegar rétt rúmum klukkutíma fyrr eða tuttugu mínútum yfir sjö. Var smá stund að átta mig en komst fljótlega í rétta gírinn. Slökkti á vekjaranum og fór á fætur. Hafði tíma til að setja inn færslu á þessum vettvangi og vafra aðeins um á netinu. N1 sonurinn kom fram úr sínu herbergi í þann mund sem ég sendi honum sms þar sem ég bauð honum góða daginn og ætlaði í framhaldi að spyrja hvenær hann ætti að vera mættur. Þá var klukkan korter yfir sjö. Tíu mínútum seinna lögðum við af stað á mínum bíl, hann undir stýri og æfingaaksturs skiltið á skottlokinu. Rúmum tuttugu mínútum síðar þáði ég kaffibolla út í bíl. Var komin á planið við sundlaugina í Laugardalnum átta mínútum fyrir opnun. Sat út í bíl til rúmlega átta. Kláraði kaffið og hlustaði á morgunfréttir. Fór beinustu leið í kalda pottinn sem var að þessu sinni tæpar 6°C. Sat þar í um þrjár mínútur áður en ég fór á brautir sjö og átta og synti 500 metra. Flesta á bakinu líka um 120m skriðsund og 50m bringusund. Fór tvisvar í viðbót í þann kalda, einu sinni í sjópottinn, tíu mínútur í gufuna og sat svo smá stund á stól áður en ég fór inn að þvo á mér hárið. Kom heim um hálfellefu og hellti mér upp á 3 bolla af sterku kaffi. Var búin að drekka þá alla um tólf. Hellti ekki aftur upp á. Var m.a. að prjóna og lesa; Þessu lýkur hér eftir Colleen Hoover. Um þrjú skrapp ég aðeins út í göngu. Labbaði út á Klambratún og fékk mér sæti á bekk innan garðsins skammt frá þar sem beygt er af Miklubrautinni inn á Rauðarárstíg. Gangan þangað tók mig ellefu mínútur og var rétt innan við kílómetri. Tók ekki tímann hversu lengi ég sat en þegar ég hélt áfram fór ég undir brúna við Snorrabraut, yfir brúna yfir Miklubraut, framhjá Valsheimilinu, undir brúna á Bústaðavegi, meðfram Flugvallavegi yfir Skógarhlíð, göngustíg að Eskihlíð og þar settist ég á bekk eftir tuttugu mínútna göngu og 1,6km. Leiðin heim af bekknum var það stutt að sá spölur skráðist ekki en ég kom heim skömmu fyrir klukkan hálffimm.
29.4.23
KK og karlakór
Slökkti á vekjaranum amk hálftíma áður en hann átti að ýta við mér. Var þá búin að sofa í tæpa sex tíma. Mætti í vinnuna um hálfátta. Ég var á ítroðsluendanum á vélinni og fyrirliðinn á móttökuendanum. Vorum langt komnar með daglega framleiðslu þegar við fórum í kaffi um hálftíu. Fyrrum fyrirliði var í bókhaldinu en hún kom með mér niður í framleiðsluna milli tíu og ellefu á meðan fyrirliðinn fór á fund. Framleiddum m.a. tvær skrár af þremur sem eftir er af endurnýjuninni, um tvö hundruð kort. Hádegisskammturinn var innan við áttatíu kort. Framleiddum ekkert eftir hádegi heldur sinntum ýmsu tengdu mánaðamótunum og hættum svo vinnu snemma. Ég var komin í sjóinn um hálffjögur. Kom heim um hálffimm og hálftíma seinna hringdi fyrirliðinn í mig og bauð mér að koma með sér, parti af fjölskyldu hennar og fyrrum fyrirliða á tónleika í Salnum. Hún og sú síðast nefnda sóttu mig um hálfátta og þá hafði losnað einn miði til. Ákveðið var að hringja í þá sem við fyrrum fyrirliði vorum heima hjá á fimmtudagskvöldið. Sú var til en fyrirvarinn var það stuttur að hún missti aðeins af byrjuninni. Yngsti bróðir fyrirliðans syngur með karlakór, Þrestir úr Hafnarfirði (þau systkynin eru samt frá Stóru-Mörk) sem stjórnað er af Árna Heiðari Karlssyni og þeir fengu KK í lið með sér. Foreldrar og hluti af systkynahópnum kom á tónleikana en við þrjár auka fengum miða fjölskyldumeðlima sem forfölluðust. Það var þvílík heppni því þessir tónleikar voru mjög skemmtilegir. Ég var komin heim aftur um hálfellefu.
28.4.23
Fimm Dimmalimm og Inga
Það var amk tíu sentimetra snjór sem huldi bílinn minn í gærmorgun og það þurfti bæði að sópa og skafa. Ökufærið í vinnuna var samt í góðu lagi þrátt fyrir að ég væri komin á sumardekkin. Var mætt rétt rúmlega hálfátta. Vel var tekið á móti mér en ég spurð í gríni hvort það væri ég sem hefði komið með þennan snjó frá Egilsstöðum. Þar snjóaði vissulega aðeins á þriðjudaginn var en alls ekki svona mikið. Ég var á móttökuendanum á vélinni. Framleiðsla og pökkun gengu vel og allt daglegt var búið korter fyrir tólf. Um hádegisbilið var síðasta endurnýjun mánaðarins send til okkar, innan við ellefuhundruð kort. Framleiddum hátt í þriðjunginn af henni en hættum samt og gengum frá um tvö. Ég fór fljótlega í sund, synti 400 metra (þar af 50 á skriðsundi) fór 2x4 mínútur í kalda, smá stund í sjópottinn og rúmar tíu mínútur í gufu. Heitasti potturinn var lokaður. Á leiðinni heim kom ég við í Hagkaup í Skeifunni, sem ég geri örsjaldan.
Sá sem á risíbúðina hefur verið að reyna að selja hana og hann vantaði nýja yfirlýsingu frá húsfélaginu. Ég var búin að kíkja inn á fyrirtækjabankann og skrifa niður hjá mér hver staðan væri. Prentaði út tómt skjal frá fasteignasölunni í vinnunni í gærmorgun. Lauk við að fylla út og fékk fyrrum fyrirliða til að lesa yfir í hádeginu áður en ég skannaði skjalið inn og sendi á eigandann. Honum fannst hlutur risíbúðarinnar í yfirstandandi framkvæmdum. Þegar ég fór að skoða málin betur fékk ég hálfgert áfall. Ég hef ekki breytt neinum hlutföllum síðan ég neyddist til að taka við gjaldkerakeflinu og taldi að það væri aðeins munurinn á milli minnar íbúðar og nágrannanna fyrir neðan síðan ég seldi þeim skúrinn sem ég hef ekki enn breytt. Veit að sama hvernig hlutföllin eru þá á mín íbúð þann pening í sjóðnum sem ég hef borgað hvort sem ég greiði 30% hlutfall eða minna. Þegar ég lagðist yfir eignaskiptasamninginn frá því 2014 uppgötvaði ég að risíbúar hafa alla tíð verið að greiða of lágt en kjallaraíbúar of hátt, að það hafi víxlast hlutföllin hjá þeim. Hlutfallið af heildinni hef ég samt alltaf reiknað rétt, hvernig sem á því stendur. En þessi víxlun verður örugglega til þess að ég lagfæri málin. Ætla að leyfa mér að gera ráð fyrir að tilvonandi kjallaraíbúar verði bara ánægðir með að eiga meira en minna og að hússjóður lækki. Núverandi risíbúi var meira hissa á þessu og alls ekki pirraður og ég slapp við að skrifa skjalið aftur þar sem upplýsingarnar um eign í hússjóð og hlutfall í heildinni eru réttar.
Klukkan rúmlega sjö sótti fyrrum samstarfskona mín mig og við vorum mættar hjá annarri sem var að vinna með mér þar til í október sl. Fyrrum fyrirliði mætti rétt á eftir okkur og svo bættust við ein sem byrjaði í kortadeildinni seint árið 2005 og sú sem réð okkur allar á sínum tíma. Vorum sex í heildina með húsráðanda og tíminn hreinlega flaug. Þegar mér datt í hug að kíkja á hvað tímanum liði "hálftíma" eftir að við mættum var klukkan byrjuð að ganga tólf. Það var erfitt að kveðja en við fimm sem erum í hópnum vonumst til þess að fá Ingu inn í hann líka eða amk að hún hitti okkur aftur í einhverjum að næstu hittingum sem hingað til hafa verið frekar óreglulegir en verða kannski á einhverra mánuða fresti í framtíðinni. Kom heim upp úr klukkan hálftólf en las þrátt fyrir það í rúman hálftíma í bókinni; Arnaldur Indriðason deyr eftir Braga Pál Sigurðarson.
27.4.23
Það snjóar
Var komin á fætur upp úr klukkan sjö í gærmorgun. Um átta leytið lét ég sjósunds vinkonu mína vita að ég ætlaði í sjóinn klukkan ellefu og kalda potts vinkonu mína að ég kæmi ekki í sund þennan daginn. Ég fer sjaldan í sjóinn á miðvikudögum en þar sem ég komst ekki á mánudaginn og ég var þar að auki búin að fletta því upp að það væri flóð um hádegisbilið þá togaði sjórinn meira í mig heldur en sundið. Hringdi í Lilju vinkonu um níu leytið. Hún er aðeins byrjuð að "stelast" niður á torg, amk þrjá daga, fór reyndar ekki í gær, en hún er búin að greiða fyrir aðstöðuna frá 1. maí n.k. og í fimm mánuði. Einhver ein var búin að greiða fyrir apríl mánuð líka og byrjaði þrátt fyrir að aðstaðan kæmi ekki upp fyrr en eftir miðjan mánuðinn. Á þessum fáu dögum seldi Lilja fyrir um hundrað þúsund krónur. Davíð Steinn kom á fætur um níu leytið og var tilbúinn þegar hann var sóttur í ökumat af manni sem er að leysa ökukennarann hans af, um tíu. Ég hellti mér upp á kaffi og fékk mér eitthvað að borða því enginn skal fara í sjóinn á fastandi maga. Bílastæðin við Nauthólsvík voru næstum því full en það voru ekki margir í þeim bílum að fara í sjóinn heldur voru bílstjórarnir í HR og það þótt það séu nóg af stæðum sem eru merkt stofnuninni á meðan þessi eru merkt Nauthólsvík. Ég fann eitt sem betur fer eitt stæði og sjósundsvinkona mín annað þegar hún kom. Var mætt aðeins fyrir ellefu og þá var þar þegar kominn þrír árgangar úr skóla í Breiðholti, 5.-7. bekkur ásamt nokkrum kennurum og stuðningskennurum. Þegar aðstaðan var opnuð og við vinkonurnar búnar að klæða okkur í sjósundsfatnaðinn og skilja hin fötin okkar eftir í körfu upp í hillu og skóna undir öðrum bekknum fórum við beinustu leið út í 6°C sjóinn. Vorum þar í um korter og svo næstum þrjú korter í heita pottinum á eftir. Höfum alltaf svo mikið að spjalla um að við gleymum okkur alveg. Kom heim um hálfþrjú og bankaði upp á hjá Davíð Steini því hann var líka kominn heim. Hann sagðist hafa verið metinn tilbúinn í verklega prófið en það er ekki tími í það fyrr en 10. maí. Sá sem sótti hann í gær mun fylgja honum eftir og þeir ætla að hittast einu sinni eða tvisvar fyrir þann tíma. Ökutímarnir sem sonurinn er búinn að taka eru alls ekki margir en þó eitthvað rúmlega tíu. Ná þó ekki einhverjum viðmiðum en það verður fiffað til að mér skilst. Afgangurinn af deginum fór í alls konar en leið þó án þess að ég skryppi aftur út.
26.4.23
Komin heim, síðasti frídagurinn framundan
Vaknaði um hálfsjö. Gerði tilraun til að kúra mig niður aftur en ákvað svo fljótlega að fara á fætur. Þannig náði ég ágætri morgunstund með Ellu og Aðalsteini áður en þau þurftu að fara í vinnu. Þegar þau voru bæði farin sótti ég fartölvuna og setti hana upp við endann á eldhúsborðinu. Klukkan var rétt rúmlega níu. Líkt og daginn áður fór drjúgur tími í blogg og netvafr. Held þó að ég hafi verið aðeins styttra en það getur varla hafa verið margara mínútur. Mesta lagi korter styttri tími. Hjónin komu heim í hádegismat um hálftólf. Aðalsteinn stoppaði í klukkustund en Ella þurfti ekki að fara neitt aftur því það féll niður tími í sjúkraþjálfun hjá henni. Í staðinn gerði hún æfingar heima þegar hún var búin að slaka vel á fram yfir hádegi. Dagurinn leið alltof hratt þrátt fyrir að við værum mjög slakar. Um miðjan dag spurði Ella hvernig mér litist á að skreppa út að borða ca klukkutíma áður en ég þurfti að vera mætt út á flugvöll. Mér leist vel á það. Um fimm leytið var ég búin að pakka niður farangrinum mínum í ferða tösku og bakpoka. Pabbi hennar Ellu hringdi í hana um það leyti. Hann er búinn að vera á Blönduósi undanfarið en um næstu helgi er hann að fara í sextíu ára útskriftarafmæli frá Hvanneyri um næstu helgi. Ella lét svo Aðalstein vita að við værum að fara út að borða um hálfsex. Hann var að vinna til sex og svo á leið á blakæfingu inn á Reyðarfjörð fljótlega eftir kvöldmat. Við vinkonurnar vorum komnar á Salt rúmlega hálfsex. Hún pantaði sér kjúklingasallat en ég brauðlausan hamborgarar með sætkartöflum, sallati og bernessósu og eitt vínglas með. Rétturinn minn heitir "Sá beri". Við vorum alveg slakar en þegar ég var búin með skammtinn minn og hún var orðin södd af sínum skammti var klukkan að verða hálfsjö. Hún keyrði mig út á flugvöll og kvaddi mig fyrir utan um tíu mínútum síðar. Fór með ferðatöskuna í innritun, settist svo niður og las í smá stund. Kalla átti út í vél korter yfir sjö en það tafðist um nokkrar mínútur. Var komin til Reykjavíkur rúmlega hálfníu. Oddur hafði lagt bílnum í stæðin svolítið frá flugvellinum en kom svo akandi að í þann mund sem ég kom út úr flugstöðinni með töskuna í eftirdragi og bakpokann á annarri öxlinni. Davíð Steinn var kominn heim úr sinni vinnu en var kominn í einhvern tölvuleik lokaður inn í sínu herbergi. Oddur hafði verið í pásu í sínum leik en hvarf strax inn í herbergið sitt þegar við komum heim. Ég gekk frá farangrinum mínum og settist svo inn í stofu. Fyrst horfði ég smástund á brot úr þætti svo tók ég fram fartölvuna. Var komin upp í rúm að lesa um hálfellefu leytið.
25.4.23
Gott að vera í smá fríi
Þegar ég kom á fætur upp úr klukkan sjö í gærmorgun sat vinkona mín í stólnum sínum inn í stofu en maðurinn hennar var í ræktinni. Hann var þó kominn heim áður en Ella þurfti að fara í sína vinnu rétt fyrir átta. Hún fór á bílnum með göngugrindina með sér. Sýndi mér það í fyrradag að eitt fatlaða stæðið sem er alveg við innganginn inn í skólann er líka við leiksvæði krakkanna og alveg við hjólagrindurnar sem þau leggja hjólunum sínum þannig að hún vill helst ekki leggja bílnum þar svo það er aðeins lengri spölur sem hún þarf að labba áður en hún kemst inn í anddyri í hjólastólinn sinn. Þegar veðrið og færið verður betra getur hún farið á rafskútunni sinni. Þá fer hún inn á öðrum stað þar sem t.d. eru hjólagrindur fyrir kennarana sem eru á hjólum. Aðalsteinn fer í sína vinnu um níu. Ég fékk mér kaffibolla um hálfátta og settist svo með prjóna og bækur í stólinn við stofugluggann. Um níu leytið náði ég í fartölvuna og kom mér fyrir við endann á eldhúsborðinu til að setja inn færslu og vafra aðeins um á netinu. Ætlaði aðeins að vera að í um klukkustund en það teygðist aðeins meira úr tímanum. Einn tími varð næstum að tveimur. Ég var þó búin að ganga frá fartölvunni aftur áður en hjónin komu heim í mat um hálftólf. Ella var búin að segja mér að það væri svo kennarafundur milli hálfþrjú og fjögur. Ég var ákveðin í að skreppa í sund á þessum tíma og hún spurði mig hvort ég vildi fá far aðra hvora leiðina. Ég ákvað að labba amk í sundið og sjá svo til. Ég var 15 mínútur að ganga þennan spöl, 1,2 km. Fór meira að segja aðeins styttri leið heldur en í göngutúrnum með vinkonu minni í fyrradag. Synti í tuttugu mínútur, líklega um 500 metrar og 100 af þeim á skrisundi. Fór tvisvar í kalda pottinn, einu sinni í heitari pottinn, einu sinni í gufu og einu sinni í kaldari pottinn. Ekkert í vaðlaugina eða rennibrautina en sat smá stund á bekk og í stól. Klukkuna vantaði tuttugu mínútur í fjögur þegar ég var komin upp úr. Kennarafundurinn var búinn og Ella farin heim en hún hafði sent mér skilaboð um að hún gæti sótt mig ef ég vildi. Ég ákvað að fara aðeins aðra leið til baka sem reyndist 1,5 km og var ég 22 mínútur að ganga hana. Ella benti mér á að ég gæti hengt handklæðið og sundbolinn út á snúru í smá stund sem ég gerði. Um fimm leytið færði ég það svo inn á handklæðaofn í sturtunni. Fljótlega eftir það hjálpuðumst við vinkonurnar við að útbúa kvöldmatinn. Ég skar niður afganginn af lærinu, hún setti upp hrísgrjón og afganginn af sósunni í annan pott ásamt rjóma. Þar í setti ég svo kjötið þegar ég var búin að bita það niður. Kvöldmaturinn var tilbúinn þegar maðurinn hennar kom heim úr vinnunni rétt upp úr klukkan sex. Hann skrapp svo á blakæfingu um sjö en hann er að fara að taka þátt í öldungamóti á Akureyri um næstu helgi. Við Ella horfðum á fréttir þar til körfuboltaleikurinn Þór Þorlákshöfn-Valur byrjaði. Hörku leikur og þrátt fyrir að væri jafnt eftir fyrsta leikhluta var Valur alltaf að elta fyrir utan að þeir skoruðu fyrstu körfuna. Niðurstaðan tíu stiga tap fyrir mína menn og þeir eru 0:2 undir í baráttunni um að komast í úrslita leikinn. Það þarf að vinna þrjá leiki til að komast þangað svo þetta er orðið strembið verkefni. Ég fylgdist einnig með gangi mála í 3. umferð bestu deildar karla, seinni þrír leikirnir af sex spilaðir í gærkvöldi. Ég fór í háttinn um hálfellefu og las í smá stund áður en ég fór að sofa.
24.4.23
Dagur 2 af fjórum virkum sumarfrís dögum
Ég var vöknuð um sjö í gærmorgun og komin á fætur hálftíma síðar. Aðalsteinn kom fram skömmu síðar og setti upp hafragraut fyrir rúmlega þrjá og Ella kom fram um átta. Hafragrauturinn kláraðist og það var að hluta til mér að þakka því ég fékk mér tvisvar í skálina og í seinna skiptið kláraði ég úr pottinum. Svo var kominn tími til að fá sér fyrsta kaffibolla dagsins. Aðalsteinn ætlaði að skreppa í smá sexhjólaleiðangur inn á einhverja heiðina með einum til um tíu leytið. Hér má keyra sexhjólin út úr bænum. Hann fór um níu leytið að fylla á tankinn á sexhjólinu og kaupa sér nesti í ferðina. Hann kom svo aftur heim þar til kunninginn hafði samband. Við Ella sátum í stofunni að spjalla, drekka kaffi og fylgjast með einhverju í sjónvarpinu inn á milli. Ég er búin að fitja upp á nýrri tusku og ég var líka með bækur á kantinum, skammtímalánsbókina Hungur og Saknaðarilmur eftir Elísabetu Jökulsdóttur, bók sem ég gaf norsku vinkonu minni í jólagjöf og er með í láni frá henni. Um tíu kvaddi Aðalsteinn. Hann kom reyndar aftur um ellefu. Sexhjól kunningjans hafði bilað áður en þeir gátu lagt af stað. Einn nágranni þeirra hjóna sem ekki er vanur svona ferðum en á sexhjól hafði hitt á Aðalstein og þeir ákváðu að skreppa í styttri ferð á hjólunum upp úr hádeginu. Í hádeginu fengum við okkur afgang af hakkrétt frá kvöldinu áður ásamt spældum gæsa eða andaeggjum (man ekki hvort) sem Aðalsteinn pantar og kaupir reglulega af einum vinnufélaga sínum. Mjög gott. Fljótlega eftir hádegi dró ég fram fartölvuna hans Davíðs Steins sem ég er með í láni og tók með í ferðalagið. Stillti mig inn á heimanetið bæði á fartölvunni og einnig á gemsanum mínum. Ella fór að gera styrktaræfingar á stofugólfinu ég setti inn færslu dagsins um laugardaginn. Um tvö var ég búin að ganga frá tölvunni aftur eftir að hafa einnig vafrað aðeins um á netinu. Horfðum á fyrri hálfleikinn í leik Tottenham og Newcastle. Staðan var fimm núll síðarnefnda liðinu vil í hálfleik. Þá ákváðum við vinkonur að taka stuttan göngutúr, ég á mínum tveimur jafnfljótum og hún á rafskútunni sinni. Hún sýndi mér eina gönguleiðina að sundlaug Egilsstaða og við gengum í eins konar hring því við fórum alls ekki sömu leið til baka. Þessi hringur var um 2,2 km. Þegar við komum til baka var staðan í leiknum 6:1 Newcastle í vil og leikurinn endaði þannig að það var jafntefli í seinni hálfleik. Ég hjálpaði Ellu að krydda lamabalæri, setja í ofnpott, lokið á og inn í ofn. Aðalsteinn kom heim stuttu síðar, eftir rúmlega tveggja tíma ferð aðeins inn á heiði. Hann var svo upptekinn við að leiðbeina nágrannanum og keyra mjög ábyrgt að hann missti af að sjá hreindýrahjörð ofar í heiðinni sem nágranninn tók eftir. Um hálfsex skar Aðalsteinn kartöflur niður í báta, setti í eldfast form með olíu í botninn, kryddaði og setti inn í ofn. Svo útbjó hann sósu. Nokkru áður hafði hann skroppið í búðina til að kaupa rauðkál og grænar baunir. Borðuðum upp úr klukkan sex, mjög gómsætt læri og meðlæti. Kvöldið fór í spjall, þátta og íþróttakeppnis áhorf. Ég fór inn í rúm rétt á eftir Ellu skömmu fyrir ellefu og las um stund áður en ég fór að sofa. Er búin með bókina hennar Elísabetar og langt komin með hina, klára þá bók líklega í dag.
23.4.23
Á Egilstöðum, dagur einn af þremur
Samkvæmt venju mun færsla dagsins vera um gærdaginn. Þrátt fyrir að það væri laugardagur var ég vöknuð um eða fyrir klukkan sjö. Hafði stillt vekjaraklukkuna á rúmlega hálfátta því ég var ákveðin í að fara í sund fljótlega eftir að laugin væri opnuð. Um hálfátta leytið var ég sest með fartölvuna í fanginu í stofusófanum og það fór nú svo að ég var að vafra um á netinu í rúma klukkustund. Klukkan var byrjuð að ganga tíu þegar ég fór fyrstu ferðina í kalda pottinn. Synti svo 400 metra, þar af heila 50 skriðsund í lokin. Eftir aðra ferðina í þann kalda var ég á leið í gufu þegar ég rakst á sjósundsvinkonu mína og manninn hennar í nuddpottinum. Kastaði aðeins kveðju á þau og hitti þau svo í sjópottinum eftir 15 mínútur í gufunni og kalda sturtu. Við Helga Rún fórum svo saman í þriðju og síðustu ferðina mína í kalda pottinn. Það urðu fimm mínútur og svo settist ég aðeins í "sólbað" áður en ég fór upp úr og heim. Kom heim um ellefu leytið og hellti mér upp á kaffi. Fékk mér svo eitthvað snarl um tólf leytið. Fljótlega eftir það kom Davíð Steinn fram og við fórum á rúntinn. Á klukkutíma æfði hann sig m.a. í hraðabreytinum og að taka af stað í brekku. Þegar við komum til baka rétt fyrir tvö fór ég að pakka niður af alvöru. Notaði töskuna sem Lilja vinkona gaf mér þegar ég var á leiðinni frá henni á Kanaríeyjum fyrir rúmum fjórum árum og svo bakpokann sem Davíð Steinn lánaði mér í ferðina til Kaupmannahafnar í síðasta mánuði. Var búin að tékka mig inn kvöldið áður og þurfti bara að afhenda töskuna til innritunar. Horfði á fyrri hálfleikinn í leik Liverpool og Nottingham Forrest og aðeins byrjunina á þeim seinni. Oddur Smári skutlaði mér út á flugvöll um hálffjögur. Það hefði alveg verið nóg fyrir mig að vera mætt þangað tíu mínútum eða korter fyrir fjögur en ég var orðin ferðaspennt og var alveg sama þótt ég þyrfti að bíða smá áður en var tékkað inn í flugvélina. Fórum í loftið korter yfir fjögur og lentum á Egilsstöðum rétt rúmum klukkutíma síðar. Ella og Aðalsteinn tóku á móti mér og hann sótti töskuna mína á færibandið og svo eru þau hjónin komin með smá stuðningsdæmi fyrir Ellu. Hún var aðeins með stafinn sinn, bíllinn á stæði fyrir fatlaða svo það voru ekki mörg skref þangað en samt nógu mörg fyrir hana. Studdi því sig við manninn sinn með vinstri og stafinn með hægri. Þetta er mín fyrsta heimsókn til þeirra síðan fyrir Covid og í millitíðinni eru þau búin að selja húsið við Hamrahlíð og flutt í parhús við Litluskóga. Það eru tæp þrjú ár síðan þau fluttu. Fljótlega eftir að við komum á nýja staðinn var mér boðið kaffi eða hvítvínsglas. Auðvitað þáði ég hvítvínsglasið. Áttum notalega og mjög skemmtilega kvöldstund sem var alltof fljót að líða. Ég fór inn að sofa um miðnætti. Gerði þó heiðarlega tilraun til að lesa nýjustu bókina hans Stefáns Mána um Hörð sem er skammtímaláns bókin af safninu.
22.4.23
Flugferðalag austur framundan
Miðað við að vera í fríi vaknaði ég í fyrra fallinu svona á föstudags virkum morgni. Gaf mér tíma til að vafra um á netinu en var komin í sund um átta leytið. Eftir tvær ferðir í kalda og nokkra stund í sjópottinum synti ég 400 metra, flesta á bakinu, á braut átta áður en ég fór í þriðju og síðustu ferðina í þann kalda. Gufan var lokuð svo ég settist um stund í sólbað og spjallaði við eina af Sigrúnunum sem ég hitti reglulega í Laugardalnum. Þvoði mér um hárið þegar ég var á leiðinni upp úr og var næstum búin að tína sundhettunni því ég hafði gleymt henni hjá handlaugunum við salernisaðstöðuna. Það voru tvær athugular konur sem sáu einmana sundhettu og fóru að kanna málið. Þá var ég að þurrka mér og ekki búin að uppgötva að sundhettan var ekki með sundbolnum og sjampóbrúsanum. Á föstudagsmorgnum er kaffibrúsinn settur fram og ekki þarf að greiða fyrir bollann. Ég sá tvær konur sem ég þekkti að drekka kaffi við eitt borð. Oftast eru þær fjórar vinkonurnar á sama tíma í sundi en núna voru það bara ein sem söng með mér í KÓSÍ kórnum og ein af Sigrúnunum sem ég þekki. Fékk mér kaffi, settist hjá þeim og spjallaði um stund. Var komin heim um ellefu. Davíð Steinn kom á fætur klukkustund síðar en hann var á leiðinni út að borða um tólf. Þegar hann kom til baka úr þeirri ferð fórum við í tveggja tíma æfingaakstur. Fórum beinustu leið í Kringluna. Hann beið út í bílnum sínum á meðan ég fór í bókasafnið, skilaði sex bókum af níu og fékk mér sex aðrar. Fjárfesti í tvenns konar bókasafnspokum í leiðinni. Þetta tók innan við korter. Næst lá leiðin í Krónuna við Fiskislóð. Verslaði smá inn. Svo keyrðum við út að Gróttu, um Seltjarnarnesið, vestubæinn meðfram ströndinni að flugvellinum. Fórum að Nauthól og á stæðunum við HR æfði hann sig í að bakka í stæði. Komum heim um fjögur leitið. Hann sá svo um að útbúa kvöldmatinn síðar um kvöldið. Ein af þeim þremur bókum sem ekki var skilað á safnið í gær er: í trúnaði eftir Héléne Grémillon. Kom út á íslensku árið 2013. Lætur lítið yfir sér en er þó yfir tvöhundruðogfjörutíu blaðsíður. Skáldsaga sem fjallar mest um tímann rétt fyrir og í seinni heimsstyrjöld í Frakkalandi. Hörku spennandi bók.
21.4.23
Smá sumarfrí
Þar sem kalda potts vinkona mín hafði látið mig vita að hún kæmist ekki í sund í gær samþykkti ég að skreppa í sjóinn með sjósunds vinkonu minni. Var á skutlvaktinni og N1 sonurinn átti að mæta klukkan hálftíu. Það er ennþá vetraropnun í Nauthólsvík og opnar ekki fyrr en klukkan ellefu. ég var komin á fætur um átta og fimm korterum seinna settum við mæðgin æfingaakstursskiltið á bílinn minn og ég settist í farþegasætið en Davíð Steinn í bílstjórasætið. Þegar við komum upp á Gagnveg tók ég skiltið af bílnum og settist undir stýri. Ég fór þó ekki fyrr en sonurinn var búinn að færa mér kaffi út í bíl. Fór beinustu leið heim aftur og fékk mér eitthvað að borða með kaffinu því ekki fer maður í sjóinn á fastandi maga. Hafði tíma til að dútla við alls konar en ég var komin á stæði við Nauthólsvík tólf mínútum fyrir ellefu. Byrjaði á að hringja í pabba og óska honum gleðilegs sumars. Hitti sjósundsvinkonu mína í röðinni við aðstöðuna stuttu áður en það var opnað. Það var að fjara út, sjórinn 6,2°C og við vinkonurnar óðum hálfa leið til Kópavogs. Vorum um korter á svamlinu og rúman hálftíma í heita pottinum. Var komin heim aftur um hálfeitt. Tveimur tímum seinna skrapp ég í stuttan göngutúr en annars gerði ég ekkert merkilegt af mér. Hringdi þó í eldri systurdóttur mína til að óska henni gleðilegs sumars og spjalla smá. Ein tuska "datt" af prjónunum og dagurinn leið ógnar hratt.