Ég fékk skilaboð frá núverandi viðgerðarmanni og verktaka hjá OBA seinni partinn í gær um fráfall Péturs, sem var verktaki hjá OBA í áratugi og þjónustaði og gerði við m.a. umslagavélar, kortavélar og póstvélar í gegnum árin. Ljúfur, hægur, dulur og mjög flinkur maður þar á ferð. Blessuð sé minning hans. Skilaboðin voru send um þrjú leytið en þá var ég komin í sund og strax eftir sund heimsótti ég frændfólk í Álftamýrinni. Bróðursonur mömmu tók einn á móti mér um hálffimm leytið. Hann er rúmum tuttugu árum yngri en ég en tók mjög hlýlega á móti mér og við spjölluðum alveg helling saman. M.a. sýndi ég honum mynd af bíl Davíðs Steins. Þurfti að kveikja á farsímagögnum því myndin sem ég sýndi honum er geymd inn á snapchat. Þetta var um fimm leytið og þá fékk ég þessa andláts tilkynningu. Bróðir mömmu og konan hans komu heim á svipuðum tíma um hálfsex leytið svo ég stoppaði hálftímanum lengur. Bæði eru hætt að vinna en hann er að hjálpa vini sínum að flísaleggja og hún var að koma úr einhverjum hittingi. Áður en ég fór heim kom ég við í Fiskbúð Fúsa og keypti hjá honum harðfisk, óbarna ýsu.
Vinnudagurinn var annars mjög góður. Kláruðum allt daglegt upp úr klukkan eitt og rétt tæplega helming af uþb fimmtánhundruð korta endurnýjun. Ég var á móttökuendanum allan daginn. Hættum framleiðslu um hálfþrjú og gengum frá vélinni. Þá var einnig allt búið í innleggjum og flestir farnir eða að fara heim.
Hringdi í pabba rétt áður en ég fór í sund, tvo aðra eftir kvöldmat og svo var hringt í mig. Talaði við pabba í rúmar tíu mínútur en símtöl kvöldsins stóðu yfir í einn og hálfan tíma samtals.