Já, ég er búin að vera heima í viku. Var líklega að verða lasin á fimmtudagskvöldið í síðustu viku en stóð samt vaktina í vinnu á föstudag. Mældi mig fyrst á laugardagsmorgninum. Hitinn er að minnsta kosti farinn en ég er enn að hósta einhverju upp sem er ekki alveg á því að losna. Þetta er samt allt í rétta átt. Davíð Steinn var á sinni seinni vinnuvakt í þessari viku í gær og var farinn löngu áður en ég vaknaði. Ég var nú samt komin á fætur fyrir klukkan tíu. Oddur kom á fætur fljótlega en hann var á leið í blóðprufu og hormóna sprautu. Hann fékk lánaðan bílinn til að fara upp á Landsspítala í blóðprufuna en sprautuna fékk hann í Heilsugæslunni, mætti sjálfur með efnið eins og alltaf. Minn dagur var ósköp svipaður og undan farin vika. En á þriðja tímanum hellti ég mér loksins upp á kaffi. Hafði ekki drukkið svoleiðis síðan í hádeginu á föstudaginn var. Áður en vaktin var búin hjá Davíð Steini sendi ég honum skilaboð um að færa mér poka af hálsbrjóstsykri þegar hann kæmi heim. Ég tók engar verkjatöflur í gær, ekki heldur þegar ég fór að sofa.
27.1.23
26.1.23
Hætt að mæla mig
Það var gott að geta slakað á og sofa nokkuð langan dúr. Ég var útsofin upp úr klukkan átta og klæddi mig í fyrsta skipti í nokkra daga. Dagurinn fór í svipað og undan farnir dagar. Hálsinn er enn aumur og augun lasleg svo skynsemin segir mér að halda mér heima eitthvað lengur. Semsagt frekar lítið að frétta.
25.1.23
Hitalaus en ekki 100%
Ég rumskaði um sjö leytið í gærmorgun. Mældi mig, skrapp svo á salernið áður en ég kúrði mig aftur undir sæng. Vaknaði aftur á ellefta tímanum. Hringdi í pabba og einnig fyrirliðann í kortadeildinni og grínaðist í báðum tilvikum með að ég þyrfti endilega að hætta að reykja. Röddin er svo rám enda er hálsinn frekar aumur. Um hádegisbilið ákvað ég að skella í mig tveimur parataps töflum og einu vatnsglasi. Var farin að finna eymsli í skrokknum þannig að erfitt var að finna góða stellingu til að sitja eða liggja. Kláraði eina tusku og fitjaði upp á annarri. Vafraði aðeins um á netinu en ekkert eftir klukkan tvö. Horfði á helling af þáttum en það var ekki fyrr en ég fór upp í rúm um tíu að ég las smávegis. Hitamælirinn sýnir 37°C en augun eru frekar mött ennþá og hálsinn aumur. Ég er samt búin að klæða mig í fyrsta sinn síðan á föstudaginn. Hef hina dagana verið á sloppnum og í ullarsokkum.
24.1.23
mínus fimm kommur, 36,5°C
Aðfaranótt gærdagsins var mér verulega erfið. Fann til, sama á hvaða hlið ég reyndi að leggjast. Ég reyndi fyrst að fara í rúmið um tíu en þetta endaði með því að ég var stöðutg að koma fram í lengri eða styttri ferðir. Mig minnir að ég hafi loks náð að sofna eitthvað á fimmta tímanum en svo var ég vökunuð aftur upp úr klukkan sjö. Þá mældi ég mig og var með fimm kommur. Dagurinn fór í merkilega lítið netvafr, ekkert lesið, smá prjónað en horft á þætti og handbolta. Mældi mig aftur um níu leytið um kvöldið og var þá með átta kommur. Hélt að ég væri orðin nógu þreytt til að lognast útaf en svo var ekki. Um tíu ákvað ég því að senda Odd fyrir mig út í lyfju að kaupa verkjalyf. Hann kom til baka með eina pakkningu af 500mg parataps og aðra pakkningu með 400mg íbúfen. Ég tók tvær parataps töflur og kláraði að horfa á þátt sem ég var langt komin með að horfa á. Þegar ég fór upp í rúm um ellefu fann ég ekkert til og hef líklega sofnað mjög fljótlega. Þrátt fyrir að hitinn sé að víkja er mjög líklegt að ég verði að fara mjög vel með mig í nokkra daga enn og finnst ólíklegt að ég sé á leiðinni í vinnu þessa vikuna. Ég er enn að hósta þótt ég hósti ekki oft, hef ekki verið að hósta mikið en það er samt eitthvað ofan í mér sem er smám saman að losna.
23.1.23
Fimm kommur
Rumskaði frekar snemma í gærmorgun og mældi mig, 38,5°C. Skrapp aðeins á baðherbergið en fór beint upp í rúm aftur og sofnaði. Svaf í rúma þrjá tíma í viðbót. Á tólfta tímanum hringdi ég í fyrirliða kortadeildar og tilkynnti henni stöðuna á mér. Tók því svo frekar rólega allan daginn. Prjónaði smá og horfði á boltaíþróttir og þætti. Eitt af því sem ég gerði ekki var að lesa og síðustu kvöld hef ég farið upp í rúm án þess að lesa staf. Á eftir að lesa eina bók af safninu en ég framlengdi skilafrestinum og þarf ekki að hafa áhyggjur næstu rúmu tvær vikurnar. Þegar Davíð Steinn kom heim úr vinnu í gærkvöldi fór hann næstum beint niður í þvottahús með nýja verkfærið. Þegar hann hafði dvalið þar um stund sendi ég Odd niður til hans. Það er ekki vandamál að skrúfa upp snúrurnar en þeir eru ekki búnir að því nema að hálfu leyti því snúrurnar eru eitthvað flæktar. Kannski finna þeir út úr þessu í dag.
22.1.23
Nýtt verkfæri
Ég mældi mig snemma í gærmorgun og var þá með 38,5°C hita. Rétt fyrir sjö bankaði ég hjá Davíð Steini til að segja honum að hann yrði að bjarga sér sjálfur í vinnuna. Hann var svo sem búinn að undirbúa sig undir það því hann varð var við að ég var að hósta mikið kvöldið áður. Hann tók leigubíl upp á Gagnveg og fær hann vonandi endurgreiddan. Ég fór fljótlega aftur inn í rúm og svaf næstum fram að hádegi. Var þó komin fram aftur um hálftólf í slopp og sokkum. Tveimur tímum seinna bankaði ég hjá Oddi. Ég var búin að millifæra 50000 á hann og bað hann um að fara í Bauhaus til að kaupa borvél sem líka væri hægt að nota sem skrúfvél og þá bæði bor- og skrúfbitasett. Það er útsala um þessar mundir og Oddur fékk ágætist grip á eitthvað um 43000 krónur. Var sagt að gripurinn ætti að endast í 10 ár. Nú verður loksins hægt að skrúfa upp nýju snúrurnar. Þeir munu gera það í sameiningu, bræðurnir, þegar Davíð Steinn kemur heim úr vinnu í kvöld.
21.1.23
Lasin
Vinnudagurinn í gær var frá rúmlega hálfátta til rúmlega þrjú. Ég var í bókhaldinu. Við fengum aukamanneskjuna með okkur. Hún er reyndar alls ekki auka því hún á að koma inn í þetta með okkur með tíð og tíma en hún þarf líka stundum að sinna verkefnum sem hún hefur verið að sinna fram að þessu, sérstaklega ef það eru frí. Fyrirliðinn fékk tækifæri til að taka saman pappíra um ónýt kort í nóvember og desember og ég hjálpaði til við að sortera, telja og stemma af. Ég fór beinustu leið heim eftir vinnu. Var komin með leiðinda kuldahroll. Fljótlega eftir að ég kom heim vafði ég teppi utan um mig. Ég fór ekki að sofa fyrr en á tólfta tímanum og nú brá svo við að ég las ekki einn staf í bókinni sem er á náttborðinu þessa dagana.
20.1.23
Föstudagur
Fengum fjórðu manneskjuna með okkur í gærmorgun og hún var á mótökuendanum á vélinni með mér til hádegis. Framleiðsla gekk næstum eins og í sögu og vorum við búnar með allt daglegt um tólf. Fljótlega komu viðgerðarmennirnir til að yfir fara vélina. Ég fór fyrst í mat og sú sem var með mér um morguninn fór einnig í mat og svo önnur verkefni. Eftir hádegishléið tók ég prjónana með mér niður í korta deild og sat yfir. Strákarnir voru búnir að taka öll lok af vélinni og svo ryksuguðu þeir og blésu. Um þrjú komu tvö úr arion banka í heimsókn og fengu að fræðast um alla starfsemi seðlaversins. Þau komu í kortadeildina þegar viðgerðarmennirnir voru að setja saman vélina aftur og fengu að sjá eitt kort framleitt. Var ekki búin í vinnu fyrr en um hálffimm en þá fór ég beint heim fyrst sundlaugar og aðastaðan í Nauthólsvík voru lokuð vegna kulda og til að spara vatnið.
19.1.23
Færsla no 3494
Í dag eru tuttugu ár síðan ég byrjaði á þessum vettvangi, að blogga. Færslurnar eru orðnar hátt í fjögur þúsund en sum bloggárin voru rýrari en önnur. Ef ég hefði sett inn eina færslu á dag væru þær orðnar rúmlega sjöþúsundogþrjúhundruð. Gærdagurinn var annars alveg ágætur. Var í bókhaldinu. Færði mig yfir í tímon úr tempo og er nú komin með vinnuskráningar app í gemsann þar sem ég get stimplað mig inn og út. Um tvö leytið leysti ég aðra af á vélinni sem þurfti að fara. Það var aðeins eftir að framleiða rúmlega þrjátíu kort, telja, pakka og ganga frá. Það var allt búið um þrjú leytið og um hálffjögur fór ég heim. Hringdi í Lilju vinkonu og pabba en um hálffimm var ég búin að kveikja á sjónvarpinu til að horfa á HM stofuna og landsleikinn. Seinna um kvöldið horði ég að parta úr leik Svía og Ungverja og Cristal Palace og Man. Utd.
18.1.23
Miðvikudagur
Það var vekjaraklukkan í gemsanum sem ýtti við mér í gær. Að vísu var ég búin að rumska en það var vel fyrir sex og ég sofnaði sem betur fer aftur. Hafði alveg tíma til að vafra um á netinu en var mætt í vinnuna tuttugu mínútum fyrir átta. Var á ítroðsluendanum á vélinni. Kláruðum fyrsta skammtinn, sem var yfir tvöhundruð kort, korter yfir níu. En þegar við ætluðum að fara að framleiða kort á form var prentarinn með mjög þreytandi vesen og það tók okkur eina og hálfa klukkustund að koma honum í gang. Kláruðum endurnýjun korta sem renna úr gildi um næstu mánaðamót. Um fimm hundruð kort. Byrjuðum á daglegri framleiðslu rúmlega tólf en þá tók prentarinn aftur kast. Þrátt fyrir að dagleg framleiðsla væru aðeins færri kort en þau sem við vorum að endurnýja vorum við ekki búnar fyrr en rúmlega fjögur og klukkan var orðin hálffimm þegar ég kvaddi vinnustaðinn minn. Fór beinustu leið í sund og náði aðeins í "skottið" á kalda potts vinkonum minni. Eftir sundið kom ég við á AO við Sprengisand og fyllti á tankinn.
17.1.23
Mánuðurinn rúmlega hálfnaður
Var mætt í vinnuna rétt upp úr klukkan hálfátta. Sú sem var í bókhaldinu var komin en ekki búin að fara niður. Ég skrapp því niður til að kveikja á vélinni og rakatækinu. Áður en lengra var haldið fór ég upp aftur, fyllti á vatnsflöskuna, fékk mér kaffi og settist aðeins niður með prjónana mína í kaffistofunni. Ég var á móttökuendanum. Áttum bara eftir hádegis framleiðsluna þegar við fórum í mat upp úr klukkan tólf. Þegar daglegri framleiðslu og pökkun lauk héldum við áfram með endurnýjunina. Vélin var hundleiðinleg. Unnum til klukkan að verða fimm en náðum ekki að klára allt það sem við ætluðum okkur, eigum rúmlega fimmhundruð kort eftir af því. Hlustaði á lýsingu á landsleiknum á Rás tvö á leiðinni heim og var fyrri hálfleikur rúmlega hálfnaður þegar ég kom heim og kveikti á sjónvarpinu.
16.1.23
Mánudagur
Ég var komin á fætur um átta leytið í gærmorgun. Tók því frekar rólega og vafraði um á netinu dágóða stund. Um hálfellefu skrapp ég út til að færa bílinn. Kom beint inn aftur og kveikti þá á sjónvarpinu og horfði á nokkra þætti. Um tvö leytið ætluðum við Davíð Steinn að skreppa aðeins á rúntinn á nýja bílnum hans. Bíllinn fór hins vegar ekki í gang. Var rafmagnslaus, sennilega vegna þess að hann hafði skilið ljósin inni í bílnum eftir á en kuldinn hefur heldur ekki hjálpað til. Vinnufélagi hans sendi pabba sinn á staðinn til að gefa start. Pabbinn kom um fjögur og skömmu síðar gátum við loksins lagt af stað. Sonurinn ók um borgina og nærliggjandi sveitafélög. "Fann" ansi mörg hringtorg og þurfti einnig að stoppa á mörgum ljósum. Bíltúrinn tók um klukkustund. Hann drap aldrei á bílnum og skiptingarnar og að taka af stað verður sífellt mýkra hjá honum. Honum fer fram og hann er vandvirkur og athugull fyrir. Kláraði eldhúshandklæði úr afgöngum. Á samt nóg af afgöngum í amk tvö handklæði eða nokkrar tuskur enn. Fitjaði þó upp á nýrri tusku úr nýju bókinni af nýrri garnhnotu úr Söstrene Grene.
15.1.23
Töp og sigrar
Ég svaf út í gærmorgun og klukkan var byrjuð að ganga tíu þegar ég dreif mig loksins á fætur. Eftir morgunverkin á baðherberginu vafraði ég um á netinu til klukkan að verða hálfellefu. Þá fór ég með esperanto dótið mitt yfir í vesturbæinn til esperanto vinkonu minnar. Komum okkur í ágætis esperanto gír. Var komin heim aftur skömmu fyrir klukkan eitt. Fór ekkert út aftur en setti í eina þvottavél, vafraði á neti, prjónaði og horfði á fótbolta, körfubolta, handbolta og þætti. Lánaði bræðrunum bílinn. Þegar þeir komu til baka fann Oddur ekkert annað stæði en bak við heilsugæsluna.
14.1.23
Á rúntinum
Mætti í vinnu rétt upp úr klukkan hálfátta. Ég var aftur á ítroðsluendanum en hinar tvær skiptu um vinnustöð. Daglegri framleiðslu lauk á svipuðum tíma og daginn áður eða um hádegið. Eftir hádegi framleiddum við eitthvað í kringum fimmhundruð kort í endurnýjun. Hættum vinnum um hálfþrjú. Ég fór beinustu leið heim þrátt fyrir að vera með sjósundsdótið með mér í bílnum. Málið var að það var stutt í háfjöru og ég var ekki alveg í stuði til að vaða "hálfa leið" til Kópavogs. Hefði reyndar ekki þurft að gera það svo sem því það er vel hægt að svamla um í sjó sem nær upp að hné. Þegar klukkan var byrjuð að ganga sex fórum við Davíð Steinn saman að bílnum hans. Illa gekk að bakka út úr stæðinu og það virtist ekki nóg að ég ýtti en sem betur fer kom að ungur maður sem hjálpaði mér svo eftir tíu mínútna streð komst Davíð Steinn loksins út úr stæðinu. Leiðin lá fyrst að N1 í Kópavogi, gömlu vinnustöðinni hans. Þar fyllti hann á bílinn og bætti einnig á rúðuvökvann. Svo keyrði sonrinn í gegnum Breiðholtið og yfir í Grafarvog og stoppaði smá stund á N1 við Gagnveg. Þaðan ók hann í gegnum Grafarvoginn og svo aftur heim. Þessi ferð tók um eina og hálfa klukkustund. Ég finn það að hann verður góður ökumaður. Hann er varkár og ekur frekar mjúklega. Þarf að æfa sig í að taka af stað í brekku og passa að leita ekki of mikið til hægri út í kantinn.
13.1.23
Sigur í fyrsta leik á HM í handbolta karla
Vaknaði upp úr klukkan sex og var komin fram fljótlega eftir það. Nógur tími til að vafra um á netinu og setja inn færslu á þessum vettvangi. Davíð Steinn kom fram fyrir klukkan hálfsjö og var farinn út úr húsi innan við korteri seinna. Ég mætti í vinnuna korter í átta. Var á ítroðsluendanum. Kláruðum daglega framleiðslu um hádegið. Eftir hádegi unnum við að endurnýjun. Þá var vélin byrjuð að vera með stæla og á þeim tíma sem við hefðum venjulega verið að framleiða hátt í þúsund kort framleiddum við rúmlega fjögurhundruð. Fór beint í sund eftir vinnu. Hringdi þó fyrst í pabba þegar ég var búin að leggja bílnum við Laugardalslaugina. Hitti kalda potts vinkonu mína í hennar þriðju ferð í kalda. Fórum saman í fjórar ferðir og svo í gufu. Ég fór í sturtu eftir gufuna og synti 200 metra áður en ég fór upp úr og þvoði mér um hárið. Var komin heim um hálfsex. Byrjaði á því að vafra um á netinu til klukkan að verða sjö en þá kveikti ég á sjónvarpinu til að horfa á HM stofuna og leikinn Ísland - Portúgal 30:26. Fyrstu mínúturnar leit þetta mjög vel út en leikurinn jafnaðist út eingöngu vegna of margra tapaðra bolta hjá okkar strákun. Portugalir komust samt aldrei yfir í leiknum. Þeir eru með mjög gott lið en þetta datt okkar meginn í gær, þökk sé góðri vörn og Bjöggi var frábær í markinu. Viktor Gísli varði eitt víti og leysti Bjögga af um stund þegar sá síðarnefdi var búinn að fá boltann í höfuðið í tvígang.
12.1.23
Fatakaup
Davíð Steinn svaf aðeins yfir sig í gærmorgun svo ég bauðst til þess að skutla honum í vinnuna. Á leiðinni út götuna ókum við framhjá bílnum sem hann fjárfesti í í fyrradag. Hvít volkswagen bjalla með númerið KMT96. Vinnufélagi hans vann í að leita að bíl með honum og sá er einnig skráður sem leiðbeinandi vegna æfingaakstur svo Davíð Steinn fékk rúmlega klukkutíma æfingu seinni partinn á þriðjudaginn. Ég var mætt í vinnu rétt upp úr klukkan hálfátta eftir að hafa skilað syninum af mér korteri fyrr. Ég var á móttökuendanum á vélinni. Kláruðum daglega framleiðslu og pökkun um hádegi og unnum að endurnýjun eftir hádegi. Fór beinustu leið í sund eftir vinnu. Hafði ætlað mér að synda smá baksund og þvo mér um hárið á leiðinni upp úr en ég hafði ekki tekið með mér höfuðhandklæði svo ég sleppti öllu sundi og hárþvotti. Fór 2x5 mínútur í kalda, einu sinni í heitasta, einu sinni í sjópottinn og einu sinni í gufuna. Áður en ég fór heim kom ég við í Belladonna og keypti mér 4 buxur.
11.1.23
Í jafnvægi
Ég var aftur á bókhaldsvaktinni í gær. Leysti aðra af á vélinni milli eitt og hálfþrjú þar sem hún fór á fund og hina um hálffjögur en hún var á leið í sjúkraþjálfun. Bras var á vélinni og þegar við vorum loksins búnar að framleiða um 500 kort þurftum við að lesa saman mest alla framleiðsluna til að finna út hvaða eina kort hafði verið á lista. Listinn hafði óvart verið þurrkaður út. Þetta varð til þess að klukkan var að verða fimm þegar við gátum farið úr vinnu. Og þrátt fyrir að vera með sunddótið meðferðis fór ég beinustu leið heim.
10.1.23
Sjórinn góður
Ég var mætt fyrst í vinnu í gærmorgun. Fór niður og kveikti á vélinni, teljurum og rakatæki. Var að vinna í að prenta út fyrstu tölur þegar samstarfskonur mínar mættu. Ég var semsagt í bókhaldinu í gær. Við unnum til hálffjögur. Þá fór ég beint í Nauthólsvík. Var mætt rétt fyrir fjögur. Sjórinn -1,8°C og aðeins byrjað að flæða að aftur. Engin ísing var á sjónum enda aðeins meiri hreyfing á logninu. Ég var rúmar þrjár mínútur út í og var svo búin að vera tíu mínútur í pottinum þegar þrjár úr sjósundshópnum mættu. Þær fóru í lónið sem þær sögðu vera mun heitara en sjórinn. Var komin heim um fimm leytið. Í dag eru tuttuguogþrjú ár síðan ég byrjaði að vinna hjá RB.
9.1.23
Helgin liðin
Fór á fætur um átta. Rúmlega klukkutíma síðar settum við skiltið á bílinn og Davíð Steinn keyrði sig í vinnuna. Ég tók skiltið af þegar við vorum komin upp á Gagnveg, kvaddi soninn og dreif mig í sund. Synti 400 metra, fór 3x5 mínútur í kalda, einu sinni í sjó pottinn og einu sinni í gufuna. Heitasti potturinn var lokaður. Hitti tvær úr sjósundshópnum mínum örstutt. Var komin heim um hálftólf og byrjaði á því að hella upp á könnuna. Sýslaði við nokkurn veginn það sama annars þegar ég er heima við. Dagurinn var alltof fljótur að líða.
8.1.23
Æfinga akstur
Var vöknuð upp úr klukkan sex í gærmorgun. Rétt fyrir sjö heyrði ég í vekjaraklukkunni hjá Davíð Steini. Tíu mínútum seinna hringdi ég í hann til að ýta við honum. Bauð honum að keyra sig sjálfan í vinnuna. Settum skiltið neðst á skottlokið og tókum ökubókina sem ökukennarinn er búinn að kvitta í fimm sinnum og sýslumaður stimpla leyfi til að æfa sig í akstri. Þetta var í fyrsta sinn sem Davíð Steinn keyrði sjálfskiptan bíl og þetta gekk bara nokkuð vel hjá honum. Aðeins einu sinni sem hann bremsaði svolítið harkalega. Þegar við komum upp á Gagnveg tókum við skiltið af og skiptum um sæti. Ég þáði kaffi bolla með mér til baka og kláraði að drekka hann á planinu við Laugardalslaugina. Fór tvær ferðir í kalda pottinn, eina í heitasta og eina í sjópottinn áður en ég synti 300 metra. Var komin heim um tíu. Klukkutíma síðar skrapp ég til norsku esperanto vinkonu minnar. Skilaði henni smákökudósinni. Var með esperanto dótið meðferðis en við vorum hvorugar í stuði í svoleiðis æfingar í gær og frestuðum þeim um viku. Fór með bílinn í gegnum löðurþvottastöðina við Fiskislóð og skrapp svo í Krónuna á eftir. Kom heim um hálftvö og var nýbúin að ganga frá vörunum þegar Oddur Smári kom fram. Horfði á æfingaleikinn milli Þýskalands og Íslands, fitjaði upp á nýrri tusku, vafraði svolítið á netinu og fleira. Um sex var ég mætt á staðinn Matur og Drykkur við Grandagarð 2. Móðursystir mín hafði boðið mér í mat með þeim mæðgum nöfnu minni og kærasta hennar. Þannig að við vorum fjögur. Mæli eindregið með þessum stað. Góður matur og mjög góð þjónusta. Var komin heim aftur um hálfníu.
7.1.23
Nægjusemi
Var komin á fætur rétt rúmlega sex í gærmorgun. Eftir morgunverkin á baðherberginu settist ég inn í stofu með fartölvuna í fanginu næsta klukkutímann eða svo. Mætti í vinnu um hálfátta leytið. Var á móttökuendanum á vélinni og kláruðum allt daglegt um tólf. Eftir hádegi var klárað og telja og svo gengum við bara frá vélinni og deildinni og hættum vinnu um tvö samt ekkert svo löngu á undan öðrum vinnufélögum á staðnum. Ég fór beinustu leið í Nauthólsvík. Þurfti að vaða varlega út í -2,1°C sjóinn en tolldi samt rúmlega mínútu út í áður en ég fór aftur upp úr og í heita pottinn. Klukkan var ekki orðin hálffjögur þegar ég kom heim.
6.1.23
Ýmislegt
Vinnudagurinn í gær var örlítið styttri en samt náðum við að framleiða yfir ellefuhundruð kort í endurnýnun fyrir utan daglega framleiðslu. Ég var á ítroðsluendanum en hinar tvær skiptu um stað. Sú sem er búin að vera í bókhaldinu undanfarna viku kom á móttökuendann. Vorum búnar að ganga frá deildinni um hálfþrjú. Ég fór beint í sund. Staldraði þó aðeins við í bílnum á planinu og hringdi í eina vinkonu mína sem var að missa pabba sinn í fyrradag. Hún var á rölti á Laugaveginum með einni af systrum sínum til að dreifa huganum aðeins. Synti 300 metra áður en ég fór í kalda pottinn þar var kalda potts vinkona mín að ljúka sinni annarri ferð þar en hún hafði líka mætt í fyrra fallinu. Saman fórum við 4 ferðir í kalda, þann heitasta á milli og í gufuna eftir síðustu ferðina í kalda.
5.1.23
Tækifæri
Ég var mætt í vinnu tuttugu mínútum fyrir klukkan átta. Sú sem hefur verið í bókhaldinu síðustu daga var beðin um að vera í því enn einn daginn en við sem vorum niðri skiptum um enda. Ég var semsagt á ítroðsluendanum. Daglegri framleiðslu lauk um hádegið. Eftir hádegi ætluðum við að byrjað á einni endurnýjuninni sem bíður. Það gekk ekki þrautalaust fyrir sig. Hluti af því var að búið er að taka öll gömul load til hliðar. En þegar búið var að færa fjögur af þeim til baka, fjögur sem tilheyra sex óframleiddum skrám kom í ljós að það var eitthvað meira að því vélin vildi hvorki starta á skrám hvort sem kort áttu að fara á form eða ekki. Kerfisfræðingurinn hafði verið beðinn um að setja inn nýtt forrit inn í Smára (Smári er kerfi sem m.a. "talar" við örgjörvamódúlana í framleiðsluvélinni) af öryggisstjóra. Það var ekki fyrr en búið var að stöðva þetta forrit að kortavélin samþykkti að fara af stað. Framleiddum eina af sex skrám sem bíða. Ég var komin heim um hálffjögur og bað Odd um að skreppa eina ferð í Sorpu, sem hann gerði. Hann hefði helst vilja fara í dag en ég er búin að lofa mér í sund seinni partinn í dag.
4.1.23
Tilraun
3.1.23
Án titils
Var vöknuð um sex og komin fram á undan Davíð Steini sem þó fer alltaf á undan út úr húsi. Hann kom fram um hálfsjö og var farinn tíu mínútum seinna. Útidyrnar stóðu ekki á sér að þessu sinni, hvorki þegar hann fór né þegar ég fór rúmum hálftíma seinna. Er helst á því að minnsta einingin í lásnum hafi frosið eða staðið á sér í fyrrakvöld. Bíllinn var í Blönduhlíð. Þurfti aðeins að sópa af honum en ekki mikið þó. Í vinnunni var ég á móttökuendanum og í pökkun. Vélin hagaði sér þokkalega og við gátum klárað eins og eitt stykki endurnýjun og vorum samt hættar um þrjú. Endurnýjunum er samt ekki lokið en það saxast á þær og vonandi verða þær búnar áður en þær næstu skella á okkur. Ég fór beinustu leið í Nauthólsvík eftir vinnu. Enn var mikill krapi þar sem ég er vön að fara út í. Sjórinn -1,6°C. Við vorum nokkur sem fórum út í á sama tíma. Fórum ekki langt. Ég var um mínútu út í þarna meginn en skrapp svo í lónið í 3 mínútur áður en ég fór í pottinn. Var komin heim um hálffimm. Kláraði tuskuna Blanda og fitjaði upp á nýrri sem heitir Ferningar. Horfði að mestu á leikinn í enska en mínir menn Liverpool töpuðu á úti velli fyrir Brentford sem er á góðri leið að gera heimavöllinn sinn óvinnandi vígi og þó voru þeir án síns besta manns. Aðeins Arsenal hafa unnið þá á þessum velli á þessari leiktíð.
2.1.23
Ryk
Rumskaði um sjö leytið í gærmorgun en steinsofnaði fljótlega aftur. Komst svo á fætur rétt áður en klukkan varð tíu. Ekki það að ég ætlaði mér neitt að vakna mjög snemma og ég var alls ekki með nein plön önnur en að taka því rólega heima við og sinna mínum hugðarefnum. Tók tvær bækur með mér inn í stofu en las svo ekkert í þeim fyrr en ég fór upp í rúm um kvöldið. Það var prjónið, netvafrið, fótboltinn og þáttaáhorf sem urðu ofan á fram eftir degi og fram á kvöld. Lánaði Oddi bílinn um miðjan dag. Ég var farin að sofa þegar Davíð Steinn hringdi um hálfellefu. Þá voru þeir bræður fyrir utan en útidyrnar vildu ekki opnast utan frá. Ég fór í slopp og niður en gat heldur ekki opnað innan frá svo ég hleypti sonunum inn um dyrnar í kjallaranum. Veit ekkert hvað er í gangi með þessa hurð en það verður skoðað.
1.1.23
!
Enn eitt árið horfið í aldanna skaut og nýtt ár að hefja sína vegferð. Ég var komin á fætur um níu í gærmorgun. Þrátt fyrir ágætis veður ákvað ég að senda skilaboð til norsku esperanto vinkonu minnar að ég væri löt og ætlaði bara að halda mig heima við. Og það gerði ég, hélt mér heima við. Vafraði á netinu, kláraði eina tusku og byrjaði á annarri, horfði á þætti, fótbolta, fréttaannál og skaup og hafði það yfir höfuð mjög notalegt. Við Oddur voru tvö heima, Davíð Steinn var hjá vini sínum á Akranesi og kemur ekki heim fyrr en í kvöld. Ég var með ofnrétt úr kjúkling og grænmeti og hafði einnig bygggrjón með. Í stofunni var ég með tvær bækur á kantinum en ég las ekki í þeim fyrr en ég var komin upp í rúm um hálfeitt leytið.
31.12.22
Gamla árið kveður brátt
Var mætt í vinnu korter fyrir átta. Höfum sömu verkaskipan á. Umslagavélin er alls ekki 100% en það er hægt að koma meiru í gegn en undanfarið. Slökktum á vélinni þegar við fórum í kaffi en kveiktum á tölvunni aftur. Þegar við komum niður aftur um tíu kveiktum við á vélarpartinum og fyrirliggjandi daglegur skammtur var kláraður á hálftíma. Á meðan við biðum eftir hádegis skammtinum framleiddum við nokkrar skrár af endurnýjun. Hádegis framleiðslan var langt innan við 100 kort og við vorum búnar að slökkva og ganga frá vélinni fyrir klukkan tólf. Sú sem var á móttökuendanum þurfti að skreppa frá í hádeginu. Við hinar tvær tókum að okkur frá ganginn í kaffistofunni eftir matinn og klárðuðum svo að telja og ganga alveg frá kortadeildinni. Ég var farin út af vinnustaðnum um tvö. Ætlaði að koma við í AO við Sprengisand en þar var mikið að gera svo ég mjakaði mér eftir umferðinni á Reykjanesbraut sem var extra hæg vegna óhapps og fyllti á tankinn við Kaplakrika. Þetta tók mig í það heila um klukkustund. Var komin í Nauthólsvík rúmlega þrjú. Það var 15 stiga frost, hægur vindur og sjórinn við ströndina ísi lagður sums staðar en einnig mjög krapa kenndur. Samkvæmt mælingum var hitastigið á sjónum -2,2°C. Ég ákvað að láta vaða á þetta en varlega þó. Hafði áður farið í hann -1,8°C. Fór ekki langt út í en upp að rúmlega hné og settist þá niður í hálfa mínútu eða svo. Rölti svo yfir að lóninu sem er einhverjum örfáum gráðum heitara og buslaði þar í ca tvær mínútur áður en ég fór í heita pottinn um stund. Var komin heim um hálffimm. Um átta var sýnt beint frá Liverpool - Leicester 1:2. Gestirnir skoruðu öll mörkin.
30.12.22
Síðasti virki dagurinn
Var mætt í vinnu tuttugu mínútum fyrir átta. Ákváðum að hafa sömu vinnustaði. Á ellefta tímanum kom annar viðgerðarmaðurinn til að fylgjast með umslagavélinni í ham og hinn viðgerðarmaðurinn bættist við rúmum klukkutíma síðar. Sá fyrri fór um eitt en hinn var alveg þar til við hættum vinnu um hálffjögur. Eftir hádegið, þegar allt daglegt var búið, framleiddum við slatta af endurnýjun en þó ekki eins mikið og ef umslagavélin væri í 100% lagi. Vonandi finnst út úr þessum bilinum fljótlega. Mætti í sund beint eftir vinnu og þá var kalda potts vinkona mín búin að fara 4 ferðir í kalda og eitthvað í gufuna. Hún fór þrjár ferðir í kalda með mér en ég var búin að fara eina áður því hún var í gufunni þegar ég mætti á svæðið. Kom heim um fimm leytið og fljótlega kom nafna mín og frænka, sú hálf danska, í heimsókn og færði mér gjöf fyrir passið á kisunni. Þau sögðu að auðvitað hefði kisan verið fúl yfir því hversu lengi þau skildu hana eftir eina en þau fundu samt að hún var í góðu jafnvægi. Frænka mín kvaddi rétt fyrir sjö. Ég horfði á fréttir og íþróttamann ársins. Kláraði tuskuna Línudans og gekk frá endum. Fitjaði svo upp á tuskunni Tíglatjútt.
29.12.22
Mjög lítið eftir af þessu ári
Var vöknuð rétt fyrir klukkan sex í gærmorgun og komin á fætur skömmu síðar. Eftir morgunverkin á baðherberginu hafði ég því tæpa klukkustund í að vafra á netinu. Mætti í vinnu rétt rúmlega hálfátta. Það kom í ljós að vélin er ekki alveg upp á sitt best ennþá þótt hún sé miklu, miklu skárri. Ég var á ítroðsluendanum. Þegar við fórum í hádegismat áttum við aðeins eftir að framleiða það sem keyrt er til okkur um ellefu leytið. Slökktum alveg á vélinni á meðan við tókum matartímann. Sú sem var á móttökuendanum á eldhúsvaktina þessa vikuna. Hin sem er skráð með henni er á sjúkrahúsi en það var nóg um hjálparhendur í staðinn. Vorum komnar niður í kortadeild aftur um eitt. Vélin vann ágætlega fyrsta korterið en svo fór allt í sama farið hvað varðar þann part þar sem kortin eiga að koma út á formi og í umslögum. Framleiddum þó 86 kort aukalega og erum þar með formlega byrjaðar að endurnýja þau kort sem gilda frá mánaðamótum janúar febrúar. Hættum framleiðslu um tvö leytið og gengum frá. Ég var komin út af vinnustaðnum um hálfþrjú. Skrapp fyrst upp í Kringlu. Skilaði þremur bókum á safnið og skipti svo bókinni sem Bríet frænka gaf mér í jólagjöf í Eymundsson. Var búin að lesa þá bók; Tíbrá eftir Ármann Jakobsson. Skipti í eina af jólabókum þessa árs. Næst lá leiðin í Laugardalinn. Synti 200 metra, fór tvisvar í kalda, einu sinni í heitasta, einu sinni í sjópott og endaði á 15 mínútna gufubað áður en ég fór heim.
28.12.22
Dásemdar dagar
Þrátt fyrir að vera í fríi var ég komin á fætur upp úr klukkan sjö í gærmorgun. Komst fljótlega að því að ég nennti alls ekki í sund en hafði nóg að sýsla hérna heima við. Vafraði á netinu, las, fitjaði upp á nýrri tusku með glænýju mynstri, horfði á þætti og slakaði vel á. Hellti mér á könnuna um ellefu leytið. Um tvö hjálpaði Davíð Steinn mér að sópa af bílnum. Við skruppum fyrst yfir í Kópavog til sýslumann þar sem hann lagði inn göng til samþykktar um að hann geti byrjað á æfinga akstri. Svo kom hann með mér í síðustu kisu heimsóknina í bili. Lítið þurfti að gera þar annað en að bæta á þurrmatinn og klappa og spjalla smá við kisu. Komum heim aftur skömmu fyrir klukkan hálffjögur. Rúmum klukkutíma seinna setti ég upp kjötið sem mér var sent að norðan rétt fyrir jól. Bætti svo katröflum út í pottinn eftir þriggja kortera suðu. Bitarnir voru 6 og vel vænir. En svona kjöt er líka gott kalt.
27.12.22
Notalegheit
Var komin á fætur áður en klukkan sló tíu í gærmorgun. Vafraði um á netinu í smá tíma. Hellti upp á könnuna fljótlega og lagði kapla við eldhúsborðið um stund. Um tólf leytið hreinsaði ég af hryggnum í pott, bætti niðurskornum soðnum kartöflum við sem og afgangnum af gulrótunum og grænu baununum. Hitaði þetta í smá rjómaslettu. Bauð bræðrunum að skipta þessu á milli sín. Pabbi var búinn að fara tvisvar út að moka braut frá skúrnum átti aðeins haftið eftir út á götu. Davíð Steinn fór út að moka frá bílnum mínum og kláraði haftið út á götu frá skúrnum. Oddur mundaði einnig skófluna. Um hálfþrjú kvöddum við pabba og brunuðum í bæinn. Hleypti strákunum út heima en fór svo beinustu leið að heilsa aðeins upp á kisu. Hreinsaði sandinn hennar. Skolaði allar vatnsskálar og setti nýtt vatn. Kögglarnir voru búnir úr öðrum matardallinum. Hreinsaði hann áður en ég setti meiri kattarmatsköggla. Hreinsaði einnig dallinn þar sem blautmaturinn er settur og setti eitt bréf af blautmat í hann. Stoppaði hjá kisu í ca þrjú korter en var komin tímanlega heim áður en leikur Aston Villa og Liverpool byrjaði 1:3.
26.12.22
Uppstúfur
Svaf heldur lengur fram á morguninn í gær heldur en í fyrradag. Var samt komin á fætur um tíu, langt á undan bræðrunum. Dagurinn leið í notalegheitum við prjóna, lestur, kapallagnir, netvafr og svo gripum við í spil og spiluðum vist. Setti upp kartöflur skömmu fyrir sex og bjó til smá jafning. Pabbi skar niður í sneiðar kalt hangigjöt sem hann keypti og sauð í síðustu viku. Þetta var mjög gott. Eftir fréttir horfðum við á heimildamyndina um Árna og svo jólagesti Björgvins frá því í fyrra á tímaflakkinu.
25.12.22
Takk
Vaknaði um átta í gærmorgun eftir átta tíma svefn. Fór á fætur hálftíma síðar. Pabbi var komin á fætur, búinn að kveikja aftur á tölvunni en sat inn í stofu. Þannig að þegar ég var búin að bjóða góðan dag og sinna morgunverkunum á baðherberginu settist ég aðeins við tölvuna og vafraði um á netinu áður en ég settist með prjónana mína inn í stofu til pabba. Eftir birgðakönnun var ákveðið að pabbi færi í búðina að kaupa sósubréf, rósakál og laufabrauð. Það síðast nefnda var ekki til. Hann kom aftur um tíu leytið með vörurnar og datt í mjúkan snjóinn fyrir utan. Hann var því eins og snjókarl þegar hann bað mig um að ganga frá því hann ætlaði að skreppa út í sundlaug í kalda pottinn, gufu og jólabaðið/sturtuna. Hann var ekki kominn til baka þegar frændi okkar, systursonur hans, lögga kom í innlit með jólakort. Frændi stoppaði í hálftíma og þáði hjá mér kaffi. Hann mætti svo pabba þegar hann var lagður af stað á næsta áfangastað. Um tvö kryddaði ég lambahrygginn frá Árlandi setti í álpappír í ofnpott og inn í ofn á 130° hita. Um sama leyti var Oddur á kisuvaktinni í vestur bænum. Hann sótti svo bróður sinn í vinnuna. Þeir komu aðeins við heima í Hlíðunum en voru komnir austur rétt fyrir sex. Þá var ég að hræra í sósunni og pabbi að leggja á borð. Maturinn smakkaðist mjög vel en ég er sammála pabba um að best hefði verið að hafa hrygginn á háum hita fyrstu tíu mínúturnar en ekki á saman hitanum allan tímann. Davíð Steinn gekk frá í eldhúsinu með afa sínum og svo settumst við öll inn í stofu. Strákarnir fengu slatta af gjöfum frá ættingjum og vinum. Ég fékk gjöf frá pabba (gjafakort), Bríeti, Fossheiðinni og Davíð Steini, gjafakort frá vinnunni og gjöfin frá Oddi er heima, nýjar snúrur í þvottahúsið þar sem 4 af sex snúrum eru slitnar niður. Um níu fengum við okkur ís. Helga systir hringdi í mig um það leyti til að kanna hvernig maturinn hafi verið.
24.12.22
Skötuveisla
Var komin á fætur korter yfir sex í gærmorgun. Eftir morgunverkin á baðherberginu vafraði ég um á netinu í tæpa klukkustund. Bauð Davíð Steini far í vinnuna og við þurftum að labba upp að leikskólanum við Stakkahlíð en þar var bíllinn í stæði eftir pakkaskutl bræðranna kvöldið áður. Kom við í AO við Sprengisand og fyllti á tankinn þegar ég var búin að skila syninum af mér. Svo lá leiðin í Laugardalslaugina. Fór 3 í kalda, synti 300 metra, einu sinni í heitasta, einu sinni í sjópottinn og endaði í gufunni. Eftir sundið fékk ég mér kaffi sem er í boði á staðnum á föstudögum. Svo fór ég vestur í bæ og heimsótti kisu. Hreinsaði sandinn, skipti um vatn í öllum vatnsskálum og bætti kögglum í kögglaskálina. Síðan hreinsaði ég upp hina matarskálina og setti eitt bréf að einhvers konar blautmat í þá skál. Stoppaði hjá kisu í uþb þrjú korter. Skrapp aðeins í Eymundsson í Kringlunni og keypti allra síðustu jólagjöfina áður en ég fór heim. Næstu klukkutímana var ég að lesa, prjóna, vafra um á netinu, pakka inn gjöfum, pakka niður í tösku og horfa á þætti. Pabbi skutlaði Bríeti í bæinn því bíllinn hennar var bilaður. Þau voru fyrir utan um hálffjögur. Frænka mín átti flug tveimur tímum seinna og Oddur ætlaði að skutla henni á völlinn. Ég tók mig saman og varð samferða pabba austur. Hann byrjaði á því að koma við hjá AO við Sprengisand. Á Selfossi kíktum við við í Löngumýrinni hjá Jónu Mæju og Reyni og þáðum kaffi. Afhenti þeim jólakortið í leiðinni. Komum svo rétt við í Fossheiðinni þar sem ég hafði pakka og korta skipti og lofaði að koma í heimsókn mjög fljótlega. Vorum komin á Hellu um sjö. Horfðum á fréttir, íþróttir og veður en svo bauð pabbi mér á Kanslarann í skötu þrátt fyrir að hafa fengið skötu í hádeginu. Þetta var svo skata af bestu gerð og mátti helst ekki opna munninn á meðan maður var að tyggja. Horfði á Kappsmál þegar við komum til baka.
23.12.22
Á kisuvaktinni
Fékk sms rétt fyrir klukkan hálfsjö í gærmorgun um að ég ætti sendingu hjá Icelandair cargo og að opið væri frá sjö til nítján. Ég vissi af þessu því Helga systir hafði samband við mig í fyrradag. Var mætt í vinnuna rétt upp úr klukkan hálfátta. Ég var beðin um að fara á ítroðsluendann á vélinni þar sem ég væri mest inn í málum sem þurfti að afgreiða þar. T.d. urðum við að kippa tveimur umslögum úr póstkassanum og endurgera tvö kort frá því á miðvikudaginn. Framleiðsla gekk vel til að byrja með og við náuðum að telja fyrri vagninn eftir fyrstu framleiðslu dagsins áður en við fórum upp með töskuna og í kaffi. Sem betur fer var debet dagurinn ekki stór. Sumt gekk sæmilega en þegar varahlutirnir voru komnir í hús og stuttu síðar viðgerðarmaðurinn um tvö var enn smávegis eftir af framleiðsludeginum sem hefði á venjulegum degi verið búið um hádegi. Viðgerðin tók smá tíma og við vorum að fara út úr húsi rétt fyrir hálffimm bjartsýn á að nú væri vélin komin í betra skap. Það tók mig um hálftíma að komast út á flugvöll til að sækja pakkann frá Helgu og Ingva, hangikjöt. Þegar ég var að labba með pakkann út í bíl hringdi pabbi. Bíllinn hjá Bríet er bilaður svo pabbi mun skutla henni í flug í dag, Þorláksmessu. Hann mun því taka mig með austur í staðinn. Ætla að fá hann til að koma aðeins við á tveimur stöðum á Selfossi á leiðinni austur. Af flugvellinum fór ég á Vesturgötuna og heimsótti kisu í fyrsta skipti í marga mánuði. Hún mundi eftir mér og heilsaði vel upp á mig. Lánaði bræðrunum bílinn um kvöldið í pakkaskutl.
22.12.22
Þreytandi bilun
Sú fjórða var með okkur í kortadeildinni megnið af gærdeginum eða frá klukkan níu. Vorum reyndar bara þrjár því ein var að taka út gjafa frídag. Ég var í bókhaldinu. Dagurinn var ekkert stór en vesenið á vélinni er alls ekki búið. Þegar við tókum saman rétt fyrir fimm átti eftir að pakka smávegis. Ég fór svo beinustu leið í Laugardalslaug. Synti 300 metra á bakinu, sat tæpar fimm mínútur í kalda pottinum, eitthvað svipað í þeim heitasta og svo næstum hálftíma í sjópottinum áður en ég fór upp úr og þvoði mér um hárið. Í sjónvarpsfréttum um kvöldið sá ég viðtal við kalda potts vinkonu mína og systur hennar. Þær voru örugglega ekki í kalda pottinum því systirin fer mjög sjaldan í hann.
21.12.22
Nóttin löng, en samt stutt
Mætti í vinnuna í fyrra fallinu í gærorgun eða uþb korter yfir sjö. Gat svo ekki notað nýjan aðgang að ytri dyrum hvelfingarinnar upp þegar til kom. Hringja varð í þá sem er á sjúkrahúsi og hennar aðgangur virkaði enn svo ekki hefur tekist að setja minn aðgang í staðinn fyrir hennar. Öryggisstjórinn kom aftur í hádeginu og stofnaði á mig nýjan aðgang á nýjum stað, þ.e. sem númer 6 en ekki fjögur og aðgang númer 5 á aðra sem hefur haft aðgang áður. Þessi aðgangur er settur inn tvisvar þannig að hann virki bæði ef maður er á undan að opna eða á eftir en það þarf alltaf tvo. Þetta var prufað og eftir smá vesen með annan aðganginn minn fór þetta að virka rétt bæði fyrri og seinni aðgangur. Ég var annars aftur í bókhaldinu en fór niður um eitt að leysa Ellu af sem þurfti að fara um eitt. Vorum búnar upp úr klukkan hálffjögur, að framleiða, pakka, telja og ganga frá deildinni. Fór beint heim. Nafna mín og hálfdanska frænka mín hringdi í mig um hálffimm til að spyrja hvort ég gæti tekið að mér kattarpössun í nokkra daga. Það mun ganga upp ef ég fæ Odd til að kíkja á kisu á aðfangadag og verðum komin aftur í bæinn á annan í jólum. Þá verður kisa bara ein í einn heilan dag, tvær nætur. Um átta skrapp ég með kort og nokkrar tuskur til annarrar frænku minnar og nöfnu. Stoppaði þar í um klukkustund. Þegar ég var komin heim aftur kom Anna danska með húslykla handa mér. Hún og kærastinn verða hjá pabba hennar um jólin.
20.12.22
Aðeins fyrr
Ágætlega gekk að koma sér til vinnu í gærmorgun. Að þessu sinni lagði ég fyrir neðan hús. Var fyrst úr kortadeildinni en önnur kom mjög fljótlega og það komu skilaboð frá þeirri þriðju að hún yrði aðeins sein fyrir. Ég var í bókhaldinu og nú er einnig komið að því að standa eldhúsvaktina. Sú sem er skráð með mér var í fríi í gær en ég fékk góða aðstoð. Það bættist við endurnýjunina en henni var bara hlaðið inn og áhersla lögð á að klára allt daglegt. Sú sem var á ítroðsluendanum fékk að hætta um eitt. Ég fór því niður með hinni til að klára. Þegar daglegu kortin á form voru afgreidd var sett af stað 220 korta skrá þar sem aðeins eru framleidd kort. Ég fór upp að prenta út vegna talninga. Yfirmaður minn kom til mín og spurði hvort ég væri til í að vera ein af þeim sem getur opnað ytri hurðina á hvelfingunni uppi. Ég var til í það og þurfti þar með að bíða eftir að öryggisstjóri kæmi í hús og sæi um að veita mér aðgang. Ég fór því ekki niður aftur fyrr en eftir hálftíma. Þá var hin rétt að klára að pakka. Við töldum allt og gengum frá og klukkan var ekki orðin þrjú þegar ég fór. Var næstum búin að gleyma því að bíllinn væri fyrir neðan. Skrapp með kort til móðurbróður míns og fjölskyldu en stoppaði ekkert. Sótti Odd og skipti við hann um sæti. Við skruppum í Krónuna út á Fiskislóð að versla inn.
19.12.22
Messi og Argentína
Í gærmorgun svaf ég út og var klukkan orðin níu þegar ég vaknaði. Vafraði um á netinu, réði krossgátur og las, allt inni í herberginu mínu. Fór ekki fram fyrr en klukkan var langt gengin í eitt. Skömmu síðar kom frænka mín fram úr stofunni. Hún gaf sér góðan tíma til að taka sig saman en kvaddi um tvö. Ekki var búið að opna heiðina en hún fór Þrengslin og hefur líklega gengið ágætlega því ég heyrði ekki frá henni aftur. Að sjálfsögðu horfði ég á úrslitaleikinn milli Argentínu og Frakklands, 3:3 eftir venjulegan leiktíma og framlengingu þar sem Argentína komst í 2:0, voru á undan að skora. Í víta spyrnukeppninni fóru Frakkar fyrst á punktinn. Skoruðu úr fyrsta og fjórða en annað vítið var varið og það þriðja fór ekki á ramman. Argentínumenn skoruðu úr öllum fjórum vítunum og unnu þar með leikinn. Stór stund fyrir Lionel Messi sem aðeins átti eftir að vinna þennan titil á ferlinum.
18.12.22
Ævintýri í umferðinni
Ég var vöknuð fyrir klukkan átta en fór ekki á fætur fyrr en klukkutíma síðar. Eftir morgunverkin á baðherberginu bankaði ég á stofudyrnar. Frænka mín reyndist vöknuð. Hún fór svo til föðurömmu sinnar um tíu leytið. Hafði á orði að hún myndi hringja í mig ef hún kæmist ekki út úr stæðinu. Síminn var þögull en esperanto vinkona mín hafði samband í gegnum facebook og spurði hvort ég væri föst heima. Ég taldi svo ekki vera og sagðist vera á leiðinni fljótlega. Þurfti að sópa af bílnum en þrátt fyrir slatta af snjó komst bíllinn úr stæðinu og út götuna. Það var ekki fyrr en ég var komin vestur í bæ að ég lenti í vandræðum. Var reyndar næstum komin alla leið að bílastæðunum aftan við Sólvallagötuna en þar var verið að losa bíl og ég stoppaði og ætlaði að snúa við en var þá búin að festa mig. Eftir nokkrar tilraunir hringdi ég í Inger. Hún kom út með skóflur og ég notaði einnig mottu úr bílnum. Það tók örugglega hálftíma að losa sig og bakka niður "ranann" aftur út á Sólvallagötuna. Þar festi ég mig aftur en með aðstoð þriggja sem voru á göngu sem og mottunnar komst ég af stað aftur eftir korter tuttugu mínútur. Þá var reyndar bakkgýrinn hættur að virka. Þakkaði fyrir aðstoðina og ákvað að keyra alla leið í Kringluna. Ætlaði að athuga hvort ég gæti lagt í stæði sem hægt væri að keyra út úr. Áður en ég fann stæði komst ég að því að bakkgýrinn var farinn að virka aftur. Rölti um í Kringlunni og keypti líklega síðustu jólagjafirnar. Hafði samt ekki hugsun á því að kaupa mér kaffi. Kom heim klukkan að ganga tvö og hellti mér fljótlega upp á kaffi. Bríet hafði komið í millitíðinni og sótt Davíð. Þau skiluðu sér til baka um fjögur leytið. Davíð Steinn bjó til kjötbollur handa okku í kvöldmatinn.
17.12.22
Helgi
Vaknaði um sex. Var mætt í vinnu upp úr klukkan hálfátta. Sú sem var í bókhaldinu í gær lét vita að hún yrði sein fyrir. Við tvær sem vorum á vélarvaktinni fórum niður, kveiktum á vélinni, náðum í vagna og sendum síðasta endurnýjunarskammtinn í bili upp með lyftunni. Ég útbjó fylgimiða með endurnýjuninni en hin sá um póstmiðana með daglega póstinum frá því daginn áður og prentaði einnig út framleiðslutölur dagsins. Ég fékk að vera á ítroðsluendanum fjórða daginn í röð. Vorum ný byrjaðar að framleiða þegar við vorum sóttar upp til að fá afhentar jólagjafirnar, jólakort undirritað af forstjóra og gjafakort sem við höfðum sjálfar búið til. Í boði voru einnig kaffi, lagkökur og terta. Þrátt fyrir þetta millispil vorum við búnar með fyrstu framleiðslu dagsins um hálftíu. Settum af stað gjafakortaframleiðslu og fórum með töskuna upp og aftur í kaffi. Framleiðsludagurinn var ekki mjög stór en það voru þrjár skrár yfir 30 kort og ein af þeim yfir 100. Þær skrár framleiddum við kort og form sér og handlímdum og settum sjálfar í umslög og lokuðum. Á síðustu litlu fælum dagsins fór vélina að hiksta en við kláruðum allt rétt fyrir hálfþrjú og ég var komin á pósthúsið um þrjú. Sendi 16 jólakort í póst, tvö af þeim til Danmerkur og Englands, og keypti tvö auka frímerki. Næst lá leiðin í Nauthólsvíkina. Hringdi aðeins í pabba áður en ég skellti mér í -0,6°C sjóinn. Það var að fjara út og smá spölur að vaða út í en ég var að svamla um í tæpar fimm mínútur. Afar hressandi. Sat svo í heita pottinum í tæpan hálftíma áður en ég fór upp úr og heim. Skrifaði á síðustu jólakortin í ár og pakkaði inn fyrsta pakkanum. Pakkarnir verða nú ekkert mjög margir og jólakortin urðu 23 stkykki í heildina þannig að ég á 3 óskrifuð tilbúin fyrir næsta ár. Bríet frænka var komin í bæinn og þau Davíð Steinn voru í bæjarferð. Komu heim um átta leytið.
16.12.22
Morgunstund
Annan daginn í röð byrjuðum við á því að senda nokkra póstbakka fulla af kortum með lyftunni upp í afgreiðslu. Sú sem var í bókhaldinu sá um að útbúa fylgiskjöl. Reyndar eru svo útbúin fylgiskjöl af þeim sem eru afgreiðslunni fyrir öryggismennina á bílunum með farminu sem hver og einn bíll tekur með sér. Við vorum á sömu vinnustöðum og tvo dagana á undan. Vorum þrjár til klukkan að ganga fjögur en þá bættist ein við. Klukkan var næstum orðin sex þegar búið var að framleiða allan daginn sem og það sem eftir var af endurnýjun þeirra korta sem eiga að taka við um áramótin. Það þurfti að búa til kort og form á stærstu skránum þannig að handtökin við þá vinnu voru mun fleiri heldur en þegar vélin gerir þetta sjálf alla leið. Eftir vinnu skrapp ég aðeins í sund. Synti 200 metra, settist í kalda í tæpar 4 mínútur, 5 mínútur í þann heitasta og svo tíu mínútur í sjópottinn áður en ég fór upp úr og heim.
15.12.22
Langir vinnudagar
Var komin á fætur upp úr klukkan sex í gærmorgun. Sem fyrr hafði ég því góðan tíma til að vafra smá um á netinu eftir morgunverkin á baðherberginu. Var mætt í vinnuna tuttugu mínútur í átta og byrjaði á því að fara niður með einni úr teyminu til að kveikja á vélinni, opna geymsluna og senda nokkra kassa upp með lyftunni. Lyftan þurfti reyndar að fara tvær ferðir. Var aftur á ítroðsluendanum. Fram að kaffi framleiddum við þau kort sem ekki fara á form og fá að fara samdægurs út úr húsi. Í kaffitímanum létum við vélina framleiða gjafakort. Hún hefði átt að framleiða hátt í fimmhundruð, eða fylla sleðann sem tekur á móti. En framleiddi aðeins tæp hundrað því þótt þessi kort séu ekki að fara á form þóttist hún vera að flækja í umslaga partinum og þá þarf að opna þar og loka áður en maður smellir á "resume" til að vélin haldi áfram. Geymdum því aðeins gjafakortaframleiðsluna og fórum að framleiða form fyrir 500 kort sem við framleiddum kvöldið áður. Fengum aftur mannskap í að hjálpa okkur við að líma hátt í 2000 kort á form, setja í umslög og loka. Vorum þrjú eftir um fjögur en vorum búin heldur fyrr en á þriðjudagskvöldið eða um hálfsjö. Þá vorum m.a. búið að framleiða 400 kort sem eiga eftir að límast á form. Svo mikið var að gera við AO við Sprengisand að ég ákvað að koma við á stöðinni við Kaplakrika til að fylla á tankinn. Var samt komin heim rétt áður en seinni undanúrslitaleikurinn hófst; Frakkland - Marokkó 2:0.
14.12.22
Mánuðurinn næstum hálfnaður
Ég var komin í vinnuna rétt upp úr klukkan hálfátta, um svipað leyti og hinar tvær. Byrjuðum á því að sækja "dót" niður áður en við settumst um stund inn í kaffistofu, fengum okkur fyrsta kaffibolla dagsins og gripum aðeins í prjónið eða heklið. Ég var á ítroðsluendanum. Það var samt búið að hlaða inn verkefnum að hluta vegna smá misskilnings um vinnustöður. Tveir strákar niðri í myntinni tóku að sér að líma 500 kort á form og setja í umslög. Þeir tóku við fleiri svoleiðis verkefnum. Verklagið var líka svona hluta af daglegu framleiðslunni og þegar upp var staðið held ég að handlímd hafi verið yfir 2000 kort. Stór partur af þessu er endurnýjun. Umslaga parturinn er semsagt ennþá með vesen en nú er engin elsku mamma því það eru nokkur þúsund korthafar sem eru með kort sem renna út um áramótin. Sú sem á að koma til okkar í kortadeildina var einnig með okkur í gær. Sjálfsagt ekki gaman að kynnast starfsseminni þegar hún er svona löskuð. Við vorum fjögur sem unnum til klukkan hálfátta, svo lengi að kerfið var komið á og það þurfti að hleypa okkur kortakonunum út um slússuna niðri með fjarstýringu og einni slússuna út. Kom heim þegar fyrri hálfleik fyrri undanúrslitaleiksins í HM í Katar var að klárast. Horfði á allan seinni hálfleikinn og HM stofuna. Skrifaði líka á 7 jólakort í viðbót.
13.12.22
Nýr jaxl
Aldrei þessu vant svaf ég alveg þar til vekjaraklukkan fór að hamast. Hafði samt nægan tíma til að vafra aðeins um á netinu. Mætti í vinnuna rétt upp úr klukkan hálfátta. Blessuð umslagavélin er enn að haga sér frekar leiðinlega. Ég var á móttökuendanum. Byrjuðum á dk framleiðslunni upp úr klukkan níu og til að byrja með gekk allt sæmilega. Eftir því sem leið á daginn gekk verr og verr. Lukum ekki daglegri framleiðslu fyrr en um hálftvö. Þá dembdum við okkur í endurnýjun. Ég skrapp til tannlæknis um þrjú og fékk krónu yfir jaxlinn sem var slípaður niður um daginn, jaxlinn sem undan farin ár hefur verið rótarfylltur. Þessi aðgerð tók ekki nema tæpan hálftíma. Hringdi í vinnunna og þær vildu fá mig aftur. Ég var að spá í að koma fyrst við á pósthúsinu en ákvað að sleppa því að þessu sinni. Þegar ég mætti á staðinn var búið að ákveða af framleiða kort og form sér, handlíma kortin í formin, setja í umslög og loka. Framleiddum og límdum nokkur hundruð kort. Þegar við hættum rétt fyrir hálfsjö áttum við framleidd 480 kort og form sem eftir er að líma og setja í umslög. Óframleidd kort í heildina eru þrátt fyrir það á þriðja þúsund. Fór beinustu leið heim eftir vinnu. Hafði verið með sjósunds dótið í skottinu en það lokar í Nauthólsvík klukkan sjö og ég nennti ekki út aftur til að skreppa í sund. Fitjaði upp á nýrri tusku og skrifaði á fimm jólakort.
12.12.22
Jólabréfin afgreidd
Var komin á fætur fyrir klukkan átta. Skutlaði Davíð Steini í vinnuna rétt fyrir hálftíu og fór svo beinustu leið í Laugardalslaug. Þar byrjaði ég á því að synda 500 metra á braut 6. Hitti svo kalda potts vinkonu mína í kalda pottinum í sinni annarri ferð. Frekar lítið vatn var í heitasta pottinum en það var hægt að fleygja sér flötum í hann. Held samt að það hafi staðið til að loka honum. Eftir mína fimmtu ferð í kalda fórum við í sjópottinn. Þar hitti ég sjósundsvinkonu mína fyrir en hún kemur stundum í sund á sunnudagsmorgnum. Eftir sundið fór ég upp í Kringlu. Þurfti að bíða það í uþb korter eftir að opnaði (kl. 12). Byrjaði á því að skreppa í Eymundsson en svo skilaði ég fjórum bókum á safnið og tók fjórar í staðinn. Fljótlega eftir að ég kom heim tók ég fram skrifblokk, penna, merktu umslögin og jólakortin. Skrifaði aðeins tvö bréf og þau voru svona í styttri kantinum. Byrjaði á bréfi til ensku vinkonu minnar og skrifaði á jólakortið líka og lokaði saman í umslaginu áður en ég skrifaði bréf og jólakort til dönsku gömlu hjónanna á Jótlandi. Að auki skrifaði ég eitt jólakort á íslensku. Þá á ég eftir að skrifa á 18-19 kort í viðbót. Íslenska jólabréfið og jólakveðjan verður rafræn í ár.
11.12.22
Sunnudagsmorgun
Var komin á fætur stuttu fyrir klukkan sjö í gærmorgun. Hafði alveg tíma til að setja inn færslu og vafra smá á netinu áður en kominn var tími til að skutla Davíð Steini upp á Gagnveg. Hleypti honum út við vinnustaðinn sinn um hálfátta en þáði ekki kaffi að þessu sinni heldur fór beint heim aftur. Þar var ég að prjóna og lesa til skiptis þar til klukkan var langt gengin í ellefu en þá fór ég vestur í bæ í esperanto hitting. Hjá Inger byrjaði ég á því að þyggja grautarskál. Eftir að hafa gert grautnum skil settumst við í græna sófann í forstofuherberginu. Ég var með fyrsta kaffibolla dagsins meðferðis. Áður en yfir lauk var búið að hella þrisvar í hann aftur. Lásum stuttan kafla um himininn og þrumur og eldingar. Þurftu ekki að leita uppi mörg orð, en nokkur þó. Þegar við hættum bað Inger mig um að hinkra svo ég gæti hitt á dóttur hennar og barnabarn sem komu fljótlega. Mira Björk varð 3 ára í endaðan október en hún var ekkert feimin við mig bara hissa til að byrja með. En hún vildi alveg tala við mig. Áður en ég fór heim gerði ég tilraun til að skreppa á bókasafnið í Kringlunni en þar sem ég fann ekki bílastæði baka til, hvorki uppi né niðri ákvað ég að bíða með að skila bókunum. Skammtímaláns fresturinn rennur ekki út fyrr en eftir n.k. miðvikudag. Restin af deginum fór í meiri lestur, prjón og einnig horfði ég á tvo fótboltaleiki og tvo þætti.
10.12.22
Jólahlaðborð
Mætti í vinnuna um hálfátta. Ég fór á móttökuendann á vélinni. Eftir fyrstu framleiðslu dagsins kom fljótlega í ljós að það væri eiginlega ekki hægt að vinna á hana eins og hún lét í umslagapartinum. Höfðum það þó af að ljúka við það sem stóð útaf frá því á fimmtudaginn og þótt það væru aðeins rúmlega sextíu kort tók það meira en eina og hálfa klukkustund. Von er á viðgerðarteymi um helgina og það var ákveðið að vera ekki að hjakka svona á vélinni lengur. Ein okkar fékk að fara um eitt en við vorum tvær sem biðum til þrjú eftir nýrri kortasendingu. Ég var komin í Laugardalslaugina korter yfir þrjú. Fór beinustu leið á braut 7 og synti 400 metra á bakinu. Næst lá leiðin í 9°C kalda pottinn og þar sat ég í fjórar mínútur. Endaði svo í góðu gufubaði áður en ég fór inn að þvo á mér hárið. Kom heim skömmu áður en seinni hálfleikur í fyrsta leik í átta liða úrslitum á HM var búinn milli Braselíu og Króatíu. 0:0 stóð eftir venjulegan leiktíma og 1:1 eftir framlengingu. Króatar unnu þetta í vítaspyrnukeppni. Um sjö skutlaði Oddur mér upp í Gullhamra þar sem ég hitta marga af vinnufélögum mínum á meiri háttar jólahlaðborði. Seðlaverið var á tveimur hringborðum. Við mættum tvær úr kortadeildinni og deildum með okkur einni hvítvínsflösku. Rétt upp úr níu hringdi ég í Odd sem kom og sótti mig um hálftíu. Við skutluðum samstarfskonu minni heim í leiðinni. Heima náði ég síðustu mínútum af framlengdum leik Argentínu og Hollands sem endaði 2:2. Argentínumenn unnu í vító.
9.12.22
Föstudagur
Ég komst að því í gær að ég get skráð mig inn á bloggerinn minn í vinnunni. Ekki það að ég ætli að nýta mér það eitthvað að ráði en ég gerði það þó í gær og bætti við textann og sagði frá umslagaskrifum mínum í fyrradag. Annars er vélin enn með vesen. Varahluturinn er kominn og voru hinar tvær í vinnu til klukkan að verða ellefu í fyrrakvöld. Ég var beðin um að vera í bókhaldinu og til að byrja með gekk allt ágætlega í framleiðslunni. Það hafði reyndar komið í ljós að það var einn vír í límarminum sem var brotinn og það var hægt að gera við hann til bráðabirgða en það þurfti að panta annan arm. Bráðabirgðaviðgerðin hélt ekki lengur en til hádegis í gær. Ég fékk að fara heim úr vinnu um fimm en ég veit ekki hversu lengi viðgerðarmaður, sem kom um tvö, eða hinar tvær voru. Ég sótti Davíð Stein heim til að skutla honum í Krónuna í Skeifunni að versla inn fyrir sig. Keyptum rúðuvökva í leiðinni og fylltum á bílinn en boxið var alveg galtómt. Vorum komin heim um hálfsjö.
8.12.22
Líður á vikuna
Sendi skilaboð í vinnuna, rétt fyrir átta, um að ég ætlaði að halda mig heima við. Svaf svo áfram til klukkan að ganga ellefu. Þá fyrst fór ég á fætur. Skömmu síðar kom Davíð Steinn fram en hann fór í sinn fyrsta ökutíma í gær og gekk víst nokkuð vel. Ég var með prjónið, bók og fartölvuna inni í stofu. Seinna um daginn náði ég í jólakortin, umslög og penna. Það kom í ljós að jólalistinn var aðeins styttri en ég hélt. Númerin sem náðu upp í 24 voru ekki alveg rétt, vantaði 3 tölur inn í rununa svo listinn er ekki nema 21. Vissi að ég ætti amk 2 auka kort en þau eru þá 5. Nota þó sennilega ekki nema eitt eða tvö af þeim og á þá þrjú til fjögur kort tilbúin fyrir næsta ár. Skrifaði framan á 22 umslög en engin jólakort þó í bili. Dagurinn leið frekar hratt. Hringdi í pabba, Ellu vinkonu og Lilju vinkonu. Einmitt í þessari röð. Saknaði þess ekkert að það væri engin fótbolti á HM en horfði á þætti og Kiljuna í gær og gærkvöld. Var komin upp í rúm fyrir klukkan tíu og las í tæpan hálftíma.
7.12.22
Lasin
Ég var mætt til vinnu upp úr klukkan hálfátta. Var aftur í bókhaldinu enda erum við farnar að taka tvo daga í röð, stundum þrjá, á sömu stöðvum. Ég prentaði út framleiðslutölur og skiptiblað og fór svo inn á kaffistofu með prjónana og flöskuna til að fylla á. Fékk mér kaffi í leiðinni. Um klukkutíma síðar fór ég að finna fyrir ónotum í maganum. Það virtist ekki ætla að líða hjá. Ég lét vita af þessu og taldi rétt að drífa mig bara heim. Var komin heim um tíu. Setti smá vatn í fötu og byrjaði á því að setjast á salernið með fötuna fyrir framan mig. Ekkert kom upp úr mér en ég tók fötuna þó með mér inn í herbergi til öryggis. Næstu þrjá tímana var ég með ónot í maga og kuldahroll en kastaði aldrei upp. Mókti til að byrja með en að lokum steinsofnaði ég og svaf til klukkan að byrja að ganga fjögur. Þá var ég hætt að finna fyrir einkennum. Fékk mér hrísköku með osti og kveikti á sjónvarpinu til að horfa á næstsíðasta leikinn í 16 liða úrslitum á HM. Átti poka af stjörnupoppi sem ég maulaði með. Fann ekkert fyrir ógleði en var svo sem ekkert banhungruð heldur. Leikurinn fór í framlengingu og vító og það voru Marokkómenn sem lögðu Spánverjana. Fljótlega skipti ég svo yfir á RÚV2 til að horfa á síðasta leikinn; Portúgal - Sviss 6:1 og Ronaldo sem kom ekki inn á fyrr en korter var eftir af venjulegum leiktíma skoraði ekkert af þessum mörkum. Annars er ég byrjuð að lesa þriðju bókina af fimm sem ég sótti af safninu í síðustu viku; Horfnar eftir Stefán Mána. Er búin með skammtímalánsbókina, framlengdu bókina og smásagnasafnið Sérðu það sem ég sé eftir Þórarinn Eldjárn.
6.12.22
Sjórinn 0,2°C í gær
Var mætt í vinnu tuttugu mínútum fyrir átta í gærmorgun. Það var komið að mér að sinna bókhaldinu en eftir hádegi fór ég niður að hjálpa til við öðruvísi framleiðslu. Föstudagsframleiðslan var kláruð og amk þriðjungurinn af framleiðslunni fyrir mánudaginn. Umslagavélin var með vesen í restina annars hefðum við líklega látið okkur hafa það að klára allt sem fyrir lá. Kortin og formin voru framleidd sér. Kortin handlímd á formin og sett í umslög, einnig handgert. Ef umslagavélin verður ekkert skárri í dag munum við líklega bíða eftir varahlutnum sem vonandi kemur á morgun og að allt fari þá að virka eins og á að virka þegar varahluturinn er kominn í.
Stakk mér í sjóinn stuttu fyrir hálffimm. Það var stilla og flóð, mjög stutt út í. Mér leið það vel að svamla um að áður en ég vissi af var ég búin að vera uþb tíu mínútur í hressandi köldum sjónum. Sat svo korter í heita pottinum áður en ég fór upp úr og heim.
5.12.22
Mánudagur
Byrjaði gærmorguninn eins og ég hóf laugardagsmorguninn. Meira að segja á svipuðum tíma. Klæddi mig og bjó um um hálftíu leytið og eftir morgunverkin á baðherberginu færði ég mig inn í stofu. Bækur, prjónar, tölva og sjónvarp voru notuð. Bræðurnir voru sóttir um fjögur sótti ég esperanto vinkonu mína en hún var að vinna í næsta hverfi. Síðan sóttum við eina vestur í bæ. Vorum komnar að Hallgrímskirkju um hálffimm. Ekkert bílastæði var alveg við kirkjuna en ég fékk stæði á Berþórugötunni. Sú fjórða í Viðeyjargenginu bættist í hópinn í röðinni við kirkjuna. Skömmu síðar var byrjað að hleypa inn. Margir voru með miða eins og við en einhverjir gengu frá miðakaupum í anddyrinu. Við fjórar fengum sæti saman í miðri kirkjunni. Framundan var rúmur klukkutími af kórsöng og einsöng, 4 kvenna og stúlknakóra og 3 einsöngvara. Þessi tími var mjög fljótur að líða. Söngurinn var dásamlegur. 18 lög voru á efnisskránni en svo sungu kórarnir eitt aukalag á leiðinni út úr kirkjunni. Þær tvær sem ég sótti vildu labba heim svo ég labbaði ein að bílnum mínum og var komin heim upp úr klukkan hálfsjö.
4.12.22
Skammtímalánsbókin upplesin
Rumskaði fyrst upp úr sex í gærmorgun. Ákvað að slökkva á vekjaraklukkunni sem var stillt á tæplega hálfátta, snúa mér á hina hliðina og sofa eitthvað áfram. Vissi næst af mér rétt fyrir klukkan níu. Þá kveikti ég á lampanum á náttborðinu og hélt áfram að lesa; Morðið í Öskjuhlíð um ævintýri Stellu Blómkvist. Las í uþb hálftíma áður en ég fór á fætur. Eftir morgunverkin á baðherberginu settist ég inn í stofu með fartölvuna í fanginu. Rétt fyrir ellefu var ég mætt vestur í bæ til norsku esperanto vinkonu minnar. Var með esperanto dótið mitt, eða hluta af því, í fyrsta sinn í marga, marga mánuði. Hún byrjaði á því að bjóða mér í graut og á eftir fór ég með kaffi í bolla og settist í græna sófann í forstofuganginum. Við lásum hálfan kafla um veturinn í bókinni Leskaflar. Klukkan var að verða hálfeitt þegar ég kvaddi og fór aftur heim. Hafði þá drukkið þrjá kaffibolla. Hellti aldrei upp á kaffi hér heima en var að prjóna, lesa, vafra á netinu, horfa á leikina í 16 liða úrslitum á HM og síðustu þættina í þáttunum Ummerki sem sýndir eru á RÚV.
3.12.22
Seint að sofa - sofið út
2.12.22
"Jóli Hólm"
Svaf alveg þar til vekjarinn fór í gang í gærmorgun. Hafði að vísu rumskað um fimm leytið en sem betur fer sofnaði ég aftur. Tók sunddótið með mér í vinnuna og geymdi í skottinu. Vorum á sömu vinnustöðvum og á miðvikudaginn. Ágætlega gekk framan af en svo fóru bæði prentarinn og umslagavélin að vera með leiðindi. Allt daglegt var búið. Einnig vorum við búnar að afgreiða allar gjafakorta pantanir. En okkur lék hugur á að vinna á stórri endurnýjun. Framleiddum þó aðeins um 150 kort en það bíða um 3000. Að vísu eru þetta kort sem eiga að taka við af kortum sem renna út um áramótin svo það er enn ágætis tími til að klára. Var komin í kalda pottinn um fjögur. Fór þrisvar í hann, tvisvar í þann heitasta og synti svo aðeins 200 metra áður en ég fór upp úr og heim.
Í pistli gærdagsins gleymdi ég að geta þess að bráðabirgðahulsan þar sem krónan, sem verið er að smíða, á að koma, losnaði. Það er búið að skanna svæðið og krónan verður tilbúin á næstu dögum svo ég er ekkert stressuð yfir að hafa svæðið opið. Finn ekkert til og ekkert kul heldur. Hringdi samt til öryggis í tannlæknaþjónustuna. Fékk óvart samband á Selfoss en sú sem talaði við mig gat flett mér upp. Hún taldi að þetta væri allt í lagi en það væri líka mjög fljótgert að festa hulsuna ef ég vildi. Ég ákvað að bíða bara átekta. Kannski fæ ég símtal frá tannlækninum í dag um að krónan sé komin. Annars var ég búin að fá póst frá Veitum um að komið væri að hinum árlega álestri mæla. Ég fór niður á ellefta tímanum í fyrrakvöld og tók myndir af mælastöðunum sem ég sendi strax.
Í gærkvöldi hittumst við fimm sem höfðum unnið saman í kortadeildinni í mörg ár á sýningunni; Jóli Hólm, í Bæjarbíói í Hafnarfirði. Það var mikil skemmtun. Magnað hvað þessi strákur getur hermt listilega eftir mörgum. Það liggur við að hann breytist í persónuna sem hann er að herma eftir. Fannst t.d. á tímabili að það væri Páll Óskar sem stæði á sviðinu. Hálftíma hlé var á sýningunni sem byrjaði um hálfátta og lauk með laglegri jólasyrpu skömmu fyrir klukkan tíu.
1.12.22
Sá fyrsti í síðasta mánuði ársins
Var mætt í vinnu á svipuðum tíma og undan farið. Ég var á móttökuendanum á vélinni og gekk allt tiltölulega vel fyrir sig. Allar gjafakorta pantanir voru kláraðar og það náðist að framleiða 1000 kort af stórri endurnýjun. Samt hættum við framleiðslu upp úr klukkan tvö. Þá var búið að framleiða samtals yfir 2000 kort. Hinar tvær tóku að sér að klára mánaðamóta talningar á meðan þær biðu eftir að ný kortasending kæmi í hús. Ég var komin heim um þrjú. Kveikti aðeins á sjónvarpinu og horfði á hluta af fyrrhálfleikjum úr síðustu umferð í D riðli. Svo fórum við Oddur í smá leiðangur. Ekki var of mikið rusl þannig að sorpið var sett í tunnurnar hér heima við. Byrjuðum á því að Oddur keyrði mig á bókasafnið í Kringlunni og beið eftir mér út í bíl á meðan ég skilaði þremur bókum af fjórum. Tók fimm bækur í staðinn, þar af eina sem er ný og á skammtímaláni. Þegar ég kom út í bíl sá ég til þess að framlengja skilifrestinum á bókinni sem var eftir heima, annars hefði ég þurft að skila henni í dag. Á um 100 bls. ólesnar af þeirri bók. Næst lá leiðin í Krónuna í Skeifunni til að fylla á brau-, osta- og skinkubirgðir. Ýmislegt fleira rataði í pokana. Oddur sá um að ganga frá vörunum þegar við komum heim aftur.
30.11.22
Sá síðasti í nóvember
Var mætt í vinnu upp úr klukkan hálf átta í gærmorgun. Vorum á sömu vinnustöðum og á þriðjudaginn. Framleiðslan gekk ótrúlega vel en það var samt smá vesen. Við framleiddum yfir 2700 kort, rúmlega 1000 af þeim gjafakort, og vorum samt hættar framleiðslu rétt fyrir þrjú. Ein þurfti að fara skömmu áður en við hinar tvær gengum frá. Það gleymdist samt alveg að loka gluggunum í deildinni. Það er næstum búið að gleymast tvisvar áður en í þetta sinn mundi ég ekki eftir því fyrr en ég var komin ofan í kalda pottinn í Laugardalslauginni. Þar hitti ég fyrir vinkonu mína í sinni annarri ferð, nýstaðna upp úr Covid. Saman náðum við fimm ferðum og enduðum svo í gufunni.
29.11.22
Sjórinn góður
Var vöknuð rétt fyrir klukkan sex. Dreif mig á fætur fljótlega og eftir morgunverkin á baðherberginu settist ég inn í stofu með fartölvuna í fanginu og vafraði um í netheimum þar til tími var kominn til að keyra í vinnuna. Vorum allar þrjár. Ég var á ítroðsluendanum. Framleiðsla gekk þokkalega. Upp úr hádeginu kom annar viðgerðarmaðurinn og við erum að vonast til þess að hann hafi náð að stilla umslagavélina þannig að hún verði stilltari. Báðar hinar þurftu að fara um þrjú. Við gengum frá deildinni og læstum vagnana inni á lager rétt fyrir það og svo tók ég við að klára að ganga frá pökkuninni á daglegri framleiðslu. Korter yfir fjögur var ég að vaða út í 1,7°C sjóinn þegar sjósundsvinkona mín mætti á svæði. Ég dýfði mér aðeins upp að hálsi en fór svo upp úr til að bíða eftir vinkonunni. Hitti aðra úr sjósundshópnum. Ég settist smá stund í heita pottinn þar til þær tvær komu út. Við vorum fimm mínútur í sjónum en örugglega hálftíma í heita pottinum á eftir.
28.11.22
Aðventutími
Fór á fætur rétt fyrir klukkan átta í gærmorgun. Rúmlega klukkutíma seinna skutlaði ég Davíð Steini upp á Gagnveg, þáði kaffi út í bíl og fór svo beinustu leið heim. Gærdagurinn fór meira og minna í fótboltagláp, smá körfugláp, prjón og netvafr. Lánaði Oddi bílinn seinni partinn en hann var kominn heim aftur um átta, rétt á undan bróður sínum. Davíð Steinn var víst kominn í strætó þegar Oddur hringdi og athugaði með hann.
27.11.22
Á skutlvaktinni
Ég var vöknuð upp úr klukkan sex í gærmorgun og var búin að vera á fótum í uþb klukkutíma þegar Davíð Steinn kom fram. Skutlaði honum upp á Gagnveg og þáði kaffi í staðinn. Kom við hjá AO við Sprengisand og fyllti tankinn á bílnum. Var mætt við Sundhöllina fyrir klukkan átta. Sat út í bíl fram yfir morgunfréttir. Eftir ferð í kalda pottinn fór ég beinustu leið í innilaugina og synti 750 metra, flesta á bakinu, á braut þrjú. Það tók mig rétt rúmlega hálftíma. Settist aðeins út í heitari pottinn á svölunum áður en ég fór aðra ferð í kalda pottinn. Endaði í gufunni áður en ég fór inn og þvoði mér um hárið. Var komin heim rúmlega tíu.
26.11.22
Aftur tvær
Það er stefnan á núverandi vinnustað að taka styttingu vinnuviku á föstudögum og vera hættur um þrjú. Það kom sér ágætlega fyrir mig þar sem ég þurfti að mæta aftur til tanna klukkan þrjú til að láta skanna jaxlinn sem var pússaður niður á þriðjudaginn og bráðabirgða hulsa sett yfir þar til króna hefur verið útbúin. Við tvær sem vorum mættar í kortadeildinni urðum samt að halda vel á spöðunum til að komast yfir að klára daginn og kannski smá meira. Gerðum 1500 gjafakort en komumst ekki í endurnýjun enda er umslagavélin verulega leiðinleg svo við ætlum að láta líta á hana eftir helgi. Það eina sem við urðum að skilja eftir var talning á öðrum kortaskápnum. Vorum búnar að telja visa vagninn en vagninn með debet- og saltpay kortunum verður að bíða til mánudagsmorguns. Var mætt til tanna á slaginu þrjú og labbaði þaðan út aftur hálftíma síðar. Fór beinustu leið heim.
25.11.22
Föstudagur
Ég var mætt fyrst af kortadeildargenginu. Reyndar vorum við bara tvær af þremur því ein var lasin. Tækluðum verkefnin tvær með mestu ágætum. Framleiddum slatta en þegar við gengum frá deildinni um hálfþrjú áttum við eftir að telja skápana. Urðum að geyma það því hin átti tíma í sjúkraþjálfun klukkan þrjú. Ég var í vinnunni til klukkan hálffjögur. Fór á sviðsfund í gegnum TEAMS klukkan þrjú en stakk af fundi og fór beint í sund. Kaldapotts vinkona mín hafði sent mér kveðju. Kemst ekki þessa dagana vegna Covid. Ég fór þrisvar í kalda, tvivar í heitasta og endaði í gufunni. Fannst of margir á brautunum að ég sleppti því alveg að synda. Kom heim upp úr klukkan fimm og fékk hornstæðið.
24.11.22
Líður á viku og mánuð
Ég var mætt í vinnu upp úr klukkan hálfátta. Var aftur í bókhaldinu og byrjaði á því að prenta út tölur, fylla út skiptiblað og prenta það út líka. Forstjórinn kom í heimsókn og kíkti niður í kortadeild í smá stund. Um hálftíu var vikulegur fundur í kaffistofunni og boðið upp á brauð og bakkelsi. Framleiðsluvélin, aðallega umslagavélin var með smá leiðindi en daglegri framleiðslu lauk upp úr hádegi. Þá var látið ganga fyrir að ljúka framleiðslu á gjafakortum. Reyndar bættust við 2000 í viðbót með hádegisskammtinum og verða þau framleidd meðfram endurnýjunum sem verður lögð aðal áhersla á næstu dagana. Góða við gjafakortin er að það er hægt að skilja vélina eftir við framleiðslu þeirra. Var komin heim um hálffjögur og fljótlega fóru bræðurnir saman í Sorpuferð. Hvorugur þeirra var að nota þvottavélina svo ég setti í eina vél.
23.11.22
Miðvikudagur
Ég var mætt í vinnuna um hálfátta. Var í bókhaldinu svo ég byrjaði á því að prenta út framleiðslutölur og skiptiblað áður en ég fór á kaffistofuna. Fyllti á vatnsbrúsann, fékk mér kaffi og settist á borðið með prjónana mína þar sem Ella sat með prjónana sína. Allt gekk ágætlega fyrir sig nema vélin var eitthvað að stríða stelpunum. Stuttu fyrir tvö varð ég að fara. Þá var smá eftir af hádegisframleiðslunni. Ákváðum samt að ég þyrfti ekki að koma aftur. Ég var komin til tannlæknisins klukkan tvö. Hann slípaði niður rótarfyllta jaxlinn og setti bráðabirgða hulsu yfir. Þarf að mæta aftur á föstudaginn í skanna og svo fæ ég krónu yfir jaxlinn eftir ca tvær vikur eða svo. Skrapp aðeins heim eftir þetta en var komin í sund um fjögur. Synti samt ekkert og þar sem kalda potts vinkona mín var ekki á staðnum fór ég aðeins 3x5 mínútur í kalda, tvisvar í heitasta pottinn og svo góða gufu á eftir. Gerði svo nokkuð sem ég hef aldrei gert áður, kom við í pylsuvagninum og fékk mér eina með öllu áður en ég fór heim.
22.11.22
Tíminn flýgur
Ég var mætt í vinnuna um hálfátta í gærmorgun. Fyrirliðinn var komin og búin að fara niður til að kveikja á vélinni. Hitastigið í herberginu var um 14°C en fór hæst í rúmlega 18. Ég var á ítorðsluendanum. Daglegur verkefnum lauk um hádegið og eftir hádegi og til klukkan þrjú framleiddum við 1500 gjafakort og eitthvað af endurnýjun. Ég var komin í Nauthólsvík rétt fyrir fjögur. Sjórinn 4,7°C og flóð sem náði alveg upp á brúna niður í fjöru. Svamlaði um í uþb korter og var svo í rúman hálftíma í heita pottinum áður en ég fór upp úr og heim.
21.11.22
Morgunstund
Var fyrst á fætur um níu. Kveikti strax á tölvunni í ganginum en sinnti þó morgunverkunum á baðherberginu áður en ég fór að vafra á netinu. Um tíu fékk ég mér lýsi og harðsoðið egg. Pabbi kom á fætur skömmu síðar og fljótlega bjó ég mér til kaffi. Í hádeginu fengum við okkur skyr. Ég var ýmist að lesa, prjóna eða vafra á netinu. Bjó mér aftur til kaffi um þrjú leytið og tæpum klukkutíma seinna tók ég mig saman, kvaddi og brunaði í bæinn. Fékk stæði beint fyrir utan hús.
20.11.22
Jólakortagerð
Ég var vöknuð og komin á fætur fyrir klukkan sjö. Rétt rúmlega átta lagði ég við Austurbæjarskóla og trítlaði þaðan í Sundhöllina. Byrjaði á ferð í kalda pottinn en fór svo á braut 3 í innilauginni og synti 600 metra, flesta á bakinu. 1x25m skriðsund og 1x25m bringusund. Settist stund í heitari pottinn uppi úti áður en ég fór aftur í þann kalda. Endaði svo í gufunni. Þvoði mér um hárið og var komin heim um tíu. Tæpum klukkutíma seinna var ég búin að pakka niður, hlaða bílinn og á leiðinni til norsku vinkonu minnar. Við tókum smá esperantóhitting áður en ég fór úr borginni. Kom við í Fossheiðinni en var komin á Hellu rúmlega hálfþrjú. Pabbi var að horfa á fótboltalandsleikinn um Eystrasalts-bikarinn. Horfðum til enda áður en við fengum okkur kaffi. Um sex var pabbi með saltfisk í matinn. Ég horfði á kvöldfréttir og prjónaði smá. Um hálfátta tók ég fram jólkortagerðar dótið og tæpum þremur tímum seinna var ég búin að búa til 26 jólakort. Að sjálfsögðu var ég með hvítt á kantinum en það urðu þó bara tvö glös og svo hálft í viðbót eftir að ég var búin að ganga frá dótinu.
19.11.22
Helgarfrí
Var mætt til vinnu á svipuðum tíma og áður, upp úr klukkan hálfátta. Nú var ég komin á ítroðsluendann. Hlóð inn þeim verkefnum sem fyrir lágu. Ein skráin, debet, nýja leiðin, var eitthvað biluð. Kerfisfræðingurinn okkar gat bjargað þeim málum. Vorum búnar með fyrstu framleiðslu og komnar upp með töskuna um hálftíu. Debetið var búið um hádegið sem og 200 spargjafakort. Eftir hádegi og þrjú framleiddum við það sem er sent til okkar á tólfta tímanum sem og 2000 gjafakort úr 5000 korta skrá. Vorum þegar búnar með 1500 af henni svo eftir eru 1500 í viðbót. Með hádegisskammtinum var send 3000 korta gjafakortaskrá til okkar. Ég fór úr vinnunni fyrir hálffjögur og beinustu leið í Nauthólsvík. Byrjaði á því að hringja aðeins í pabba áður en ég fór í 4,9°C sjóinn. Það var rétt að byrja að fjara út eftir háflóð, fáninn á flaggstönginni var ekki á mikilli hreyfingu og þrátt fyrir að það séu líklega þrjár vikur síðan ég fór í sjóinn síðast tolldi ég út í í rúmar tíu mínútur. Sat svo hálftíma í heita pottinum áður en ég fór upp úr og heim.
18.11.22
Flest gengur ágætlega
Ég var mætt í Sundaborg rétt upp úr klukkan hálfátta. Silla kom skömmu síðar en Ella skrapp fyrst niður á K1. Hún var hvort eð er í bókhaldinu og við Silla prentuðum út fyrstu tölur. Urðum reyndar að skreppa niður að sækja tóner í prentarann en við vorum byrjaðar að framleiða korter yfir átta. Lukum fyrsta skammti um níu og byrjuðum aðeins á debetinu áður en við fórum upp með töskuna og í kaffi. Eftir hádegi söxuðum við aðeins betur á gjafakortaframleiðsluna en það eru að hrúgast inn endurnýjanir í staðinn. Silla varð að fara stuttu fyrir þrjú og ég um hálffjögur. Ég fór beinustu leið í besta bankann. Átti pantaðan tíma klukkan fjögur og var því komin í fyrra fallinu. Skemmst er frá því að segja að æðin gafst upp áður en náðist nóg í gjafapokann. Þannig þessi gjöf var ónýt en heimsóknin telur þó og er númer 62. Á þá bara 13 eftir til að ná 75.
17.11.22
Eðlilegri vinnudagur
Ég var mætt í vinnuna upp úr klukkan hálfátta. Fór niður að sækja framleiðsluna frá því á þriðjudaginn til að afgreiðslan gæti komið henni út úr húsi. Svo fyllti ég á vatnsbrúsann og fékk mér kaffi. Við Silla áttum vélarvakt dagsins. Hún á ítroðsluendanum og ég í móttökunni og að taka til í framleiðsluna. Kláruðum fyrstu framleiðslu á rúmum klukkutíma og vorum komnar upp með töskuna um hálftíu. Debetið kláruðum við um hádegisbilið og daglegri framleiðslu lauk fyrir klukkan tvö. Það var smá flækjuvesen á vélinni en ekki nærri eins mikið og fyrstu tvo dagana. Framleiddum 2500 gjafakort til hálffjögur. Viðgerðarmaður kom að kíkja á prentarann og umslagavélina. Ég mátti fara og fór beint heim og sótti Odd. Skipti við hann um sæti. Hann byrjaði á að skreppa í Lyfjaver en þar var lyfið hans ekki til þótt hann ætti ávísun í gáttinni. Þá fór hann í Lyfju í Lágmúla og var afgreiddur þar. Skruppum svo í Krónuna í Skeifunni áður en við fórum heim aftur.
16.11.22
Mánuðurinn hálfnaður
Var vöknuð upp úr klukkan sex. Eftir morgunverkin á baðherberginu vafraði ég um á netinu þar til kominn var tími til að keyra af stað í vinnuna. Við stöllurnar í kortadeildinni ákváðum að halda sömu vinnustöðvum og á mánudaginn. Og vélin ákvað að vera áfram með flækju-leiðindi. Það er kalt í kortadeildinni og gustar aðeins um akkúrat þar sem prentarin er að skila af sér blöðum og formin límast á þau. Það var prófað að leggja teppi yfir þennan stað og svei mér þá ef það var ekki aðeins betra. En það er samt búið að boða viðgerðarmenn til okkar í dag. Fleiri kort voru í framleiðslu heldur en daginn áður. Einhvern veginn náðum við að koma framleiðslunni í gegn en þegar var búið að framleiða, pakka og ganga frá ákváðum við að bíða með talningar til morguns. Labbaði út af vinnustaðnum rétt rúmlega sex. Var ekki í neinu sundstuði og ákvað að fara bara beint heim.
15.11.22
Þriðjudagur
Þrátt fyrir kaflaskiptan svefn í fyrrinótt var ég vöknuð og komin á fætur upp úr sex. Eftir morgunverkin á baðherberginu gaf ég mér góðan tíma í netvafr. Klukkan var tuttuguogeitthvað mínútur yfir sjö þegar ég lagði af stað á bílnum í vinnuna á nýja staðinn. Vinnufélagarnir eru nú orðnir rúmlega tuttugu sem eru að vinna á sama stað. Fyrirliði kortadeildar var þegar mætt og búin að kveikja á kortavélinni. Nokkrir aðrir voru einnig mættir og allir byrjuðu á að bjóða mig velkomna. Ég skrapp niður á kortalager til að sækja þau kort sem þurftu að komast út úr húsi með því sem var að fara. Svo fór ég í smá kaffi eins og flestir gera í upphafi vinnudags. Ég sá um bókhaldið í gær. Fyrsti framleiðsluskammtur kom upp í innsiglaðri tösku rétt fyrir tíu og til að byrja með fær taskan að fara út úr húsi samdægurs eins og hún hefur gert síðustu áratugina fyrir utan þau skipti sem upp hafa komað vélabilanir og tafir. Framleiðsla korta á form var frekar brösug því inn á milli var vélin að flækja burðarblöðin. Þetta tafði aðeins fyrir og framleiðslu lauk ekki fyrr en um fjögur og þá átti eftir að telja, ganga frá og setjast aðeins niður með þeim tveim sem munu halda utan um okkur kortadeildina á þessum stað. Það varð því ekkert úr því að ég færi í sjóinn í gær en þó var ég ekki komin heim fyrr en skömmu fyrir klukkan sex.
14.11.22
Ný vinnuvika á nýjum stað
Var vöknuð upp úr klukkan hálfátta og komin á fætur fljótlega eftir það. Eftir morgunverkin á baðherberginu settist ég niður í stofu með fartölvuna í fanginu og vafraði um á netinu til klukkan níu. Skutlaði Davíð Steini upp á Gagnveg og þáði kaffibolla út í bíl því ég vissi að ég þyrfti að bíða smá stund eftir að komast í sund. Árshátíð sundlaugastarfsfólks var haldin á laugardagskvöldið og ekki opnað í sund fyrr en klukkan tíu í gærmorgun. Þetta hentaði mér ágætlega. Ég fór tvisvar í kalda og einu sinni í heita áður en ég fór á braut átta og synti 200 metra með fjórum aðferðum; baksund, skriðsund, bakskriðsund og bringusund. Fór svo þriðju ferðina í kalda pottinn og góða stund í gufu áður en ég fór upp úr. Þvoði mér um hárið í leiðinni. Afganginn af deginum notaði ég í netvafr, prjón, lestur, íþrótta og þáttaáhorf.
13.11.22
Sunnudagur
Var komin á fætur um klukkan sex í gærmorgun. Rúmum klukkutíma síðar skutlaði ég Davíð Steini upp á Gagnveg og þáði kaffibolla út í bíl í staðinn. Fyllti á tankinn hjá AO við Sprengisand en var samt komin á planið við Laugardalslaug tíu mínútum fyrir átta. Fór inn um leið og var opnað. Tvær ferðir í kalda, eina í heitasta og synti 200 metra áður en ég fór upp úr. Síðan lá leiðin á nýja staðinn. Lagði fyrir ofan, nær Sæbraut. Einn af vinnufélögunum var akkúrat að koma inn að neðan og hleypti mér inn. Þegar ég var komin alla leið inn fékk ég nýtt aðgangskort. Byrjað var á að safnast saman á kaffistofunni. Fengum okkur kaffi og með því og einnig var afmæliskaka á boðstólnum sem flutningsstjórinn sá um að útvega. Fyrirliðinn úr kortadeild átti afmæli. Um hálftíu var farið niður. Þrír frá Ottó B Arnar fór að setja saman vélina. Við úr kortadeildinni fórum inn á lager að taka upp úr pokum og kössum og raða upp í hillur með góðri aðstoð. Um hádegið voru debetkortin og hluti af kreditkortunum komin á sínar nýju hillur. Fengum mat frá Hamborgara fabrikkunni sem flutningsstjórinn hafði pantað eftir okkar óskum og hún sótti og kom með til okkar. Síðan var haldið áfram að taka upp og koma fyrir. Lagerinn var kominn í sitt nýja form á fimmta tímanum. Búið var að kveikja á vélinni og framleiða kort, bæði áprentuð og upphleypt. Þegar framleiðsla á form var prufuð kom upp vandamál með formin. Vélin beyglaði þau eða braut ekki rétt saman. Veit ekki hversu langan tíma tók að laga þetta því ég mátti fara heim um hálfsex en þá var enn verið að finna út úr þessu vandamáli.
12.11.22
Auka vinnudagur á nýjum stað
Ég var vöknuð rétt fyrir klukkan sex í gærmorgun. Hafði því extra góðan tíma til að hafa mig til og vafra smá á netinu því ég fór á bílnum í vinnuna. Var mætt fyrst. Ég var á ítroðsluendanum á vélinni og sú sem var í bókhaldinu var meira og minna á móttökuendanum því fyrirliðinn var að hjálpa við frágang og að innsigla kortaumbúðir. Daglegri framleiðslu lauk rétt fyrir tólf en svo bættist aðeins við og varð smá vesen en það var þó búið að slökka á kortavélinni í síðasta sinn á Kalkofnsvegi um eitt. Um leið og við töldum öll kort á vögnum plöstuðum við þau inn og gátum fækkað komið öllum kortum fyrir í tveimur vögnum. Höfum verið að nota fjóra vagna undan farin ár. Vagnarnir voru síðan læsti og setti inn í hvelfingu hjá öllum hinum kortaumbúðunum. Ein úr öryggisdeildinni fékk mig til að koma með sér inn á lagerinn þar sem hún gerði talningu á því sem verið var að flytja. Hún sá svo um að telja þetta inn í flutningabílinn og svo sá öryggisstjórinn um að telja þetta út úr bílnum á staðnum sem þetta var flutt á. Þrír frá Otto B Arnar komu um eitt og skrúfuðu niður vélina sem var svo flutt í einingum í tveimur ferðum á nýja staðinn. Þessum flutningum fylgdu einnig tveir menn frá securitas. Tveir sem eru á Reiknistofubílnum sáu um að flytja önnur gögn dót og þeir þurftu að fara nokkrar ferðir. Sérstakur flutningsstjóri sá um ýmislegt í kringum þetta og var búin að setja upp skipulag fyrir nokkru. Hún var á Kalkofnsvegi frá því um hádegi í gær. Um sex leytið voru pantaðar pizzur í allan mannskapinn sem vann að þessu. Síðasta ferð frá Kalkofnsvegi var farin um átta. Flutningsstjórinn þurfti svo að taka smávegis í bílinn hjá sér. Ég var að vinna til hálfníu í gærkvöldi en það var mjög skrýtið að labba út af staðnum í síðasta skiptið. Er búin að mæta í vinnu á Kalkofnsveg í tæp 23 ár.
11.11.22
Síðasti vinnudagurinn í Seðlabankarýminu
Í gær labbaði ég í síðasta sinn niður á Kalkofnsveg. Fór Drápuhlíðina, Reykjahlíð, Miklubraut, Snorrabraut, Eiríksgötu, Skólavörðustíg og Ingólfsstræti. Var mætt fyrst af okkur þremur ein hinar komu fljótlega. Hinar tvær svissuðu um vinnustað en ég ákvað að taka að mér móttökuendann þriðja daginn í röð. Um hálftíu var heljarinnar morgunkaffi og mættu þær tvær úr deildinni sem fengu starfslokasamning um daginn og eins einn sem er nýlega hættur að vinna vegna aldurs. Tókum okkur góða stund í kaffi og það var glatt á hjalla og borðið svignaði undan krásunum. Mikið var að gera hjá fyrirliðanum í símsvörum og að svara póstum en daglegri framleiðslu lauk einhvern tímann eftir hádegi. Þá stillti kerfisfræðingurinn af útlitið á nýja gjafakortaplastinu. Hálftíma síðar komu skilaboð um að það mætti framleiða eins og vindurinn. En við vorum líka að pakka niður kortalagernum í poka og kassa sem hægt er a innsigla eða loka örugglega. Vorum að þessu fram á kvöld. Eins gott að það sé til nóg hráefni á vögnunum í framleiðslu dagsins. Fékk far heim úr vinnunni rétt fyrir tíu, í síðasta sinn. Frá og með næstu viku nota ég óvistvænan ferðamáta í vinnuna og fer á bílnum. Sé fyrir mér að ég verði jafnvel duglegri við að skella mér í sund eða sjóinn beint eftir vinnu. Og í næstu viku byrja ég einnig í mataráskrift svo það verður sjaldnar sem ég elda eitthvað á kvöldin. Mun þó örugglega kaupa í soðið öðru hvoru.
10.11.22
Síðasti vinnulabbidagur í bili
Labbaði með höfuðljósið í vinnuna þvert yfir Klambratúnið, Flókagötu, Gunnarsbraut, Njálsgötu, Snorrabraut, Laugaveg og Ingólfsstræti. Vorum allar mættar fyrir átta og ákváðum að halda sömu vinnustöðvum og daginn áður. Ég var því á móttökuendanum. Daglegri framleiðslu lauk rétt fyrir tólf. Ekki var búið að stilla fyrir okkur breytingar vegna gjafakorta en við höfðum í nógu að sýsla við frágang og undirbúning flutninga. Fékk far heim úr vinnunni upp úr klukkan hálffjögur. Um sex bauð ég bræðrunum með mér á Pítuna. Oddur sá um að koma okkur á milli staða.
9.11.22
Heimsókn á nýja staðinn
Ég fór aftur á bílnum í vinnuna í gærmorgun. Þó ekki eins snemma og tvo virku morgnana á undan. Ég var á móttökuendanum á vélinni. Kepptumst við að ljúka allri daglegri framleiðslu sem fyrst svo við gætum skilað af okkur framleiðsluvélinni um hádegið. Það var síðasta yfirferðin á vélinni á þessum stað. Eftir hádegi kláruðum við allar talningar og frágang á deildinni. Um tvö mættum við í heimsókn í Seðlaverið til að skoða aðstöðuna sem við flytjum í um helgina og hitta á næstu yfirmenn okkar. Sú heimsókn tók um klukkutíma. Ég var komin á planið við Laugardalslaugina rétt rúmlega þrjú. Byrjaði á því að hringja í pabba áður en ég fór inn. Um hálffjögur var ég byrjuð að synda og synti ég í tæpar tuttugu mínútur. Ég var svo búin með eina ferð í kalda pottinn og eina í þann heitasta þegar kalda potts vinkona mín mætti á svæðið. Saman fórum við fimm ferðir í hvorn pott og enduðum svo í gufunni. Ég kom heim skömmu fyrir sex.
8.11.22
Á bílnum
Var vöknuð rétt fyrir klukkan sex í gærmorgun. Hafði því alveg tíma til að vafra smá stund á netinu þrátt fyrir að mæta til vinnu klukkan sjö. Enda fór ég á bílnum. Við mættum tvær um sjö og byrjuðum daginn á því að framleiða 1000 gjafakort til að geta afhent þau frá okkur ásamt 4000 öðrum um átta. Næst skiptum við yfir í það sem er yfirleitt framleitt fyrst á morgnana. Þeirri framleiðslu lauk um níu. Þá ákváðum við að klára síðustu endurnýjun frá því í síðasta mánuði. Framleiðsla á kortum sem eiga að taka við af plasti sem rennur út um næstu mánaðamót. Eftir morgunkaffi skiptum við yfir í daglega debetframleiðslu. Henni lauk rúmlega ellefu og þá tók við framleiðsla á hádegisskammtinum. Kreditkort sem send eru til okkar um það leyti. Áttum tæp 5000 gjafakort óframleidd og fengum pöntun upp á önnur 5000. Nóg er til af hráefninu en þegar eldri birgðir kláruðust kom í ljós að það var breyting á plastinu. Við höfðum ekki fengið neina beiðni um að breyta áprentuninni og byrjuðum að nota plastið, hugsuðum eiginlega mest út í að reyna að vinda ofan af framleiðslunni. Enda er kominn þessi tími og þrátt fyrir að við fáum stundum þau skilaboð að ekkert liggi á er spurt næstum daglega eftir gjafakortunum, sérstaklega ef pöntuð hafa verið mörg á saman útibú. Það tekur lengri tíma að framleiða 5000 kort heldur en 500 kort og allt daglegt og jafnvel endurnýjun er látið ganga fyrir. Eftir nokkra framleiðslu á nýja plastútlitinu var samt ákveðið að stoppa og senda fyrirspurn á eigendur. Þrátt fyrir þetta stopp var ég að vinna til klukkan hálffjögur. Var með sjósundsdótið í skottinu en ákvað hins vegar að fara bara beint heim. Hluti af þeirri ákvörðun var tekin vegna þess að ég fékk stæði á góðum stað við húsið.
7.11.22
Mæti snemma í vinnu
Stillti enga klukku á mig en var vöknuð og komin á fætur um átta leytið. Setti í þvottavél og tók upp þvottinn sem var á snúrunni. Mætti í Laugardalslaugina um tíu en kalda potts vinkona mín hefur sennilega ákveðið að mæta og syngja með kirkjukórnum í Laugarneskirkju í messu. Ég fór þrjár langar ferðir í kalda pottinn, tvær í heitasta pottinn og endaði á góðu gufubaði. Var ekki í stuði til að synda neitt og sleppti því þess vegna. Fór beint heim aftur að undirbúa mig undir fyrsta leikinn í enska. Hengdi upp úr vélinni, hellti upp á kaffi og sótti prjónana mína. Lánaði bræðrunum bílinn seinni partinn en þeir skruppu í heimsókn til pabba síns og fjölskyldu hans. Dagurinn leið frekar hratt.
6.11.22
Sunnudagur
Rumskaði fyrst alltof snemma, fyrir klukkan sex. Sofnaði aftur í smá stund en um sjö ákvað ég að fara á salernið og tæma blöðruna. Eftir það sofnaði ég aftur, fyrst til klukkan að verða níu en svo lengur og reyndar var klukkan næstum orðin ellefu þegar ég dreif mig loksins á fætur. Ég eyddi svo deginum í að taka því rólega. Vafra á netinu, prjóna, horfa á boltaíþróttir og þætti og hringja í pabba og vinkonu.
5.11.22
Sofið út
Vaknaði rétt fyrir sex í gærmorgun. Fór á bílnum í vinnunna tæpum klukkutíma síðar. Við ætluðum að reyna að klára það sem stóð útaf þegar við urðum að hætta deginum áður og koma því með í töskuna sem var sótt um átta. Framleiðsluvélin, þ.e.a.s. umslaga parturinn á henni, var að haga sér mjög illa. Aðeins örfá kort voru tilbúin en ekki hægt að senda þau með þegar taskan var sótt. Við gátum hins vegar framleitt öll kort sem ekki voru að fara á form en það voru aðeins um 180 kort svo það var afgreitt á innan við klukkutíma. En á meðan við biðum eftir viðgerðarmanni gátum við þó framleitt slatta af gjafakortum. Vélin komst ekki í lag fyrr en um tvö og við vorum til hálffimm að framleiða allt daglegt á form og það sem vantaði upp á frá því í fyrradag. Ég fékk að fara korter í fimm. Fór beint heim. Tók inn bakpokann, handtöskuna og sjósundsdótið. Fór í aðra blússu og svo brunuðum við mæðginin austur á Selfoss til Jónu og Reynis þar sem við hittum líka Helgu systur og pabba. Helga var búin að vera hjá frændfólkinu í vikunni á meðan hún var starfsmaður í þjálfun í Krónunni á Selfossi. Þetta var frábær hittingur og klukkan var langt gengin í tólf þegar við mæðgin kvöddum og fórum aftur í bæinn. Oddur Smári keyrði báðar leiðir.
4.11.22
Morgunstund
Ég fór á bílnum í vinnuna í gærmorgun. Vorum á sömu vinnustöðvum og á miðvikudaginn svo ég var í bókhaldinu. Stelpurnar byrjuðu á því að framleiða fyrir nýjasta bankann en þegar þær ætluðu að byrja á daglegum verkum stoppaði allt. Það var reynt að endurræsa, slökkva og alls konar en fljótlega varð ljóst að hringja þurfti út viðgerðarmann. Hann kom um tíu og það tók tvo tíma að koma vélinni í gagnið aftur. Um þrjú áttum við að vera í heimsókn á nýja staðnum og skoða aðstöðuna sem við fáum þar en við urðum að afboða okkur. Þurftum samt að afhenda vélina um þrjú svo hægt væri að uppfæra hin ýmsu kerfi á henni. Eitt daglegt verkefni stóð þá útaf. Kláruðum að telja, pakka og ganga frá. Ég var komin fyrir utan Laugardalslaug um fjögur. Hringdi í pabba í gemsann og á meðan við vorum að tala saman hringdi systir mín í hann í heimasímann. Hún var að bjóða okkur í mat í kvöld hjá frændfólki okkar á Selfossi í tilefni þess að hún og kona frænda okkar áttu afmæli 2. og 3. nóvember. Kalda potts vinkona mín mætti á svæðið um hálffimm. Þá var ég búin að fara tvær ferðir í kalda. Fór fjórar í viðbót með henni. Synti 200 metra á bakinu og þvoði mér um hárið á leiðinni upp úr. Kom við í Fiskbúð Fúsa á heimleiðinni. Systir mín hringdi svo aftur í mig í gærkvöldi til að athuga hvort synir mínir myndu nenna með á Selfoss og einkabílstjórinn að keyra mig svo ég gæti fengið mér í tána, eða allar tærnar þess vegna.
3.11.22
Fimmtudagur
Labbaði í vinnuna sömu leið og á mánudagsmorguninn. Ég var í bókhaldinu og það var nóg að gera fram yfir hádegi. Eftir hádegi var verið að vinna að endurnýjun til hálffjögur. Ég settist hins vegar með prjónana mína í sófann dágóða stund en hjálpaði svo til við að ganga frá og loka deildinni. Klukkan var að verða hálffimm þegar við yfirgáfum staðinn því við ákváðum að klára að pakka allri endurnýjun. Fékk far heim úr vinnunni en fór svo ekkert út aftur.
2.11.22
Afmælisdagur systur minnar
Vaknaði um sex. Þveraði Klambratúnið þegar ég labbaði í vinnuna. Setti höfuðljósi í hleðslu á vinnutölvunni minni eftir gönguna. Ákváðum að vera á sömu vinnustöðvum og á mánudaginn. Ég var semsagt á móttökuendanum. Rétt fyrir hádegi tók framleiðsluvélin kast. Við ákváðum að slökkva á henni á meðan við færum í mat. Fyrsta einn og hálfa tímann eftir mat hegðaði vélin sér betur en svo var hún að byrja aftur um tvö. Skiptum því úr endurnýjun yfir í gjafakortaframleiðslu og framleiddum 1000 svoleiðis áður en við sögðum þetta gott um þrjú. Sú sem oftast býður mér far heim úr vinnu var að fara beint í sjúkraþjálfun svo ég labbaði heim yfir Skólavörðuholtið. Það kom maður um hálffimm að rakamæla flestar íbúðir í húsinu. Tengist tilvonandi framkvæmdum og uppsetningu þeirra. Ég skrapp svo á bókasafnið og í Krónuna en skrópaði í sund.
1.11.22
Glænýr mánuður
Vaknaði rétt fyrir sex í gærmorgun. Dreif mig fljótlega á fætur. Eftir morgunverkin á baðherberginu settist ég í stofuna með fartölvuna í fanginu þar til kominn var tími til að labba af stað í vinnuna. Labbaði upp Eiríksgötu og niður Skólavörðustíg og Ingólfsstræti. Ég var á móttökuendanum á vélinni. Öll dagleg framleiðsla var búin um hádegið svo við gátum einbeitt okkur að endurnýjun eftir hádegi. Allt gekk mjög vel framan af en um þrjú fékk vélin kast og það endaði með því að klukkan var orðin hálffimm áður en við gátum yfirgefið vinnustaðinn. Fékk far heim úr vinnunni og við vorum lengur en venjulega vegna umferðar á þessum tíma. Ég ákvað svo að fara ekkert út aftur. Kláraði eina tusku og fitjaði upp á nýrri og horfði á tvo þætti úr hluta af þeim seríum sem ég er að fylgjast með.