Gærdagurinn var rólegur framan af og jafnvel allur ef út í það er farið. Dútlaði við ýmislegt framyfir hádegi. Strákarnir skruppu í Sorpuferð um tvöleytið og annar þeirra ryksugaði yfir gólfin þegar þeir komu aftur. Ég skrapp svo í Sports Direct og keypti mér fjóra nýja sundboli. Síðan fór ég langleiðina út að Gróttu en þar rétt hjá er nýlega búið að opna nýtt veitingahús; Ráðagerði. Ég ákvað að bjóða mér upp á kaffi og hálfmána áður en ég fór heim aftur.
Annars verður vegur lagður undir hjól í dag og liggur leiðin norður í land. Ég mun að öllum líkindum taka fartölvuna með mér en það gæti alveg farið svo að skrifin munu liggja niðri að einhverju eða öllu leyti. Það er þó alls ekkert víst. Þetta er orðið svo mikil rútína hjá mér að punkta niður það helsta og það er alltaf best að gera það á meðan atburðir eru sem ferskastir.