Sem oftast áður vaknaði ég nokkru áður en vekjaraklukkan átti að hringja. Slökkti á henni og dreif mig á fætur, bæði til að vera á undan N1-syninum inn á baðherbergi og einnig til að hafa tíma til að vafra aðeins um á netinu. Áður en ég labbaði af stað í vinnuna tók ég mannbroddana undan gönguskónum. Broddarnir hafa skilað sínu og mér sýnist þeir ekki verða notaðir aftur, orðnir mjög eyddir. Það var samt smá skrýtið að labba án broddanna en leiðin sem ég labba þessa dagana er næstum því greið. Vorum fjórar í vinnu, ein lasin. Ég var á ítroðsluendanum fram að kaffi. Í kaffinu kom vinnufélagi okkar með bakkelsi í tilefni afmælis síns. Hann er frekar ósáttur við að eldast og kallaði afmæliskaffið erfidrykkju. Þessi náungi er ári yngri en ég. Skil ekki alveg svona hugsunarhátt. Það eru forréttindi að fá að eldast og í góðu lagi að safna upp afmælisdögum ef heilsan er góð. Eftir kaffi fór ég á móttökuendann á vélinni. Eftir hádegi var ég aðallega í að flokka kennispjöld. Markmiðið er að vera búin að sortera spjöldin og koma þeim af okkur áður en deildin flytur og við erum komin á árin 2008-2009 og eigum eftir að flokka 6-7 ár áður en við komum að þeim tíma sem við byrjuðum að flokka. Hjá okkur liggja kennispjöld frá árunum 1992 til miðs árs 2018 en þá breyttust persónuverndarlögin og öll spjöld eftir þann tíma voru send til baka eftir að hafa verið skönnuð. Fékk far heim úr vinnunni og þangað komin rétt fyrir fjögur. Klukkutíma seinna var ég komin í Nauthólsvík. Það var fjara svo vaða þurfti hálfa leið til Kópavogs áður en maður komst á eitthvað dýpi. Ég fór nú kannski ekki alveg svo langt en ég var út í sjónum í tæpt korter og svo annað eins í heita pottinum á eftir. Kom heim aftur rétt fyrir sex.
24.3.22
23.3.22
Birtir fyrr og fyrr
Var komin á fætur og sest með fartölvuna í fanginu inni í stofu um hálfsjö í gærmorgun. Þegar ég undirbjó mig að labba af stað í vinnuna setti ég aukabol, súpubréf, húslykla og tvennt annað í gamlan sundpoka. Setti pokann á bakið áður en ég fór í regnkápuna. Var enn með mannbroddana undir gönguskónum en það fer lílega að verða óhætt að taka þá af. Var mætt fyrst á vinnustað. Sú sem átti að vera í bókhaldinu var í fríi og ég ákvað að skipta við hana, taka að mér bókhaldið í gær og eftirláta henni bókhaldið í dag. Aðeins var unnið að hinu daglega en það kláraðist um hálfeitt. Töldum, gengum frá deildinni og fengum okkur að borða. Stuttu fyrir tvö fórum við yfir í Katrínartún á annan vinnufund með þeim tveimur sem munu taka á móti okkur og verða næstu yfirmenn þegar kortadeildin flytur í seðlaverið. Fundurinn stóð yfir í rúma tvo tíma. Fékk þá far heim og vitandi það að framkvæmdir eru að hefjast í Laugardalslaug og búið að loka kalda pottinum og útilauginni þá hélt ég mig bara heima við. Hvað maður gerir svo næstu vikur og mánuði, fer oftar í sjóinn eða hvaða laug maður finnur sér til að synda í, það verður að koma í ljós.
22.3.22
Tiki
21.3.22
Ný vinnuvika
Klukkan var um hálfníu þegar ég dreif mig á fætur. Einum og hálfum tíma síðar var ég komin í kalda pottinn. Fljótlega kom kaldapotts vinkona mín í sína þriðju ferð svo við stilltum okkur af. Fórum í heitasta pottinn, aftur í kalda og hittum svo systur hennar í sjópottinum. Eftir næstu ferð í kalda pottinn fórum við í gufuna. Ég sat þar inni aðeins lengur en hún. Fór svo í kalda sturtu á eftir. Systurnar voru í potti tvö og kom kaldapotts vinkonan með mér í sína sjöttu ferð í kalda áður en ég fór að synda aðeins. Kom heim um hálftólf og byrjaði á því að mala kaffibaunir og hella upp á könnuna. Lauk við að lesa bókina hennar Auði Jónsdóttur. Rétt fyrir tvö skutlaði ég Davíð Steini í skírnarveilsu í Kópavog og fór svo beinustu leið á bókasafnið í Kringlunni og skilaði af mér fjórum bókum. Tók þrjár í staðinn, allar með 30 daga skilafresti og möguleika á að framlengja svo um aðra 30 daga. Þannig að allar fimm bækurnar sem ég er með í láni af safninu eru með skilafresti í apríl og fjórar af þeim með möguleikann á að framlengja fram í maí. Davíð Steinn kom heim um sex og tók að sér að elda, gerði eins konar kjúklingasúpu sem var virkilega góð hjá honum.
20.3.22
Sjötugastiogníundi dagur ársins
Var komin á fætur um hálfsjö. N1 sonurinn kom fram rúmum hálftíma seinna og ég skutlaði honum í vinnuna. Hleypti honum út við N1 við Gagnveg á slaginu hálfátta og fór ekki fyrr en hann hafði fært mér kaffibolla í bílinn. Var komin á planið við Laugardalslaug þrettán mínútum áður en opnaði. Kláraði að drekka kaffið í rólegheitum og hlustaði á morgunfréttir áður en ég fór inn. Byrjaði á því að synda í hálftíma, 600 metra á brautum 6-8. Synti 200 metra af þeim á bakinu. Fór svo beint í þann kalda og sat þar í fimm mínútur. Þá fór ég í sjó pottinn og sat þar sennilega í tæpt korter áður en ég fór aftur í þann kalda og svo gufuna að lokum áður en ég fór upp úr og þvoði mér um hárið. Var komin heim upp úr klukkan tíu. Dagurinn fór svo í alls konar dútl. Lauk við að lesa bókina; Stúlkan með snjóinn í hárinu eftir Ninni Sculman. Byrjaði á bókinni; Tilfinningabyltingin eftir Auði Jónsdóttur. Þá á ég eftir að lesa tvær aðrar bækur af safninu; Í leyndri gröf eftir Vivecu Steen og Kaldaslóð eftir Kim Faber & Janni Pedersen. Sú síðarnefnda var með skiladaginn 23. n.k. en ég framlengdi þeim fresti um mánuð rétt áðan. Skammtímalánsbókinn þarf að skila í síðasta lagi á morgun en ég fer líklega með hana og tvær aðrar og skila á safnið í dag. Vona að það freisti mín ekki of margar bækur til að taka með heim í staðinn því ég hef nú hug á því að fara að glugga loksins í jólabækurnar.
19.3.22
Morgunstund
Ég var komin á fætur upp úr klukkan sex í gærmorgun. Eftir morgunverkin á baðherberginu "skrapp" ég í netheima í dágóða stund. Stuttu fyrir hálfátta tók ég bakpokann, handtöskuna og sjósundsdótið með mér út í bíl. Tvennt það síðastnefnda setti ég í skottið en bakpokann setti ég í framsætið. Mættum þrjár í vinnu, ein vinnur aldrei á föstudögum nema upp komi sérstakar aðstæðru og önnur var í fríi. Ég var á móttökuendanum á vélinni á meðan á framleiðslu stóð. Hádegissendingin var sein til okkar og þegar hún loksins kom og við keyrðum gömlu leiðina þá virkaði ekki að framleiða kortin. Fyrst prófuðum við að biðja tæknideildina okkar að athuga hvort hægt væri að setja "sjálfvirku" keyrsluna aftur af stað. En það virkaði ekki þar sem við vorum búnar að keyra í millitíðinni. Þá þurfti að hafa samband við þá aðila sem sendu okkur keyrsluna og biðja um að senda aftur. Það sem við erum vanalega búnar með milli tólf og eitt kláraðist korter yfir tvö. Hætti vinnu rétt fyrir fjögur og fór beinustu leið í 1°C sjóinn. Var út í í uþb tíu mínútur og svo korter í heita pottinum á eftir. Kom heim um fimm. Restin af deginum og kvöldinu fór í netvafr, prjónaskap, sjónvarpsgláp og lestur.
18.3.22
Stutt í helgina
Ég var vöknuð rétt rúmlega sex í gærmorgun. Hafði tímann fyrir mér því ég var ákveðin að fara á bílnum í vinnuna. Ég var nefnilega klyfjuð meira en bakpokanum. Var með auka poka með vínberjum, ostum, ostaköku og saltstöngum með mér. Mætti í vinnu á sama tíma og sú sem var í bókhaldinu og bakarísferðinni. Við lögðum báðar á neðra planinu. Undirbjó pökkun fram að kaffi. Fyrrum vinnufélagi mætti í kaffi. Held hann hafi nú ekki endilega munað að það var afmæli en hann veit að það eru kaffiveitingar á fimmtudögum og kemur stöku sinnum. Hann hætti vinnu sl. haust eftir 42 ára starf enda orðinn 67 ára. Hann fær að mæta á árshátíð RB sem haldin verður í Hörpu á morgun. Eftir kaffi fór ég á ítroðsluendann á vélinni. Við kláruðum að framleiða allt daglegt rétt fyrir tólf. Þá tók ég út styttingu vinnuvikunnar, hálfan dag einu sinni í mánuði, og fór beinustu leið heim. Um tvö skutlaði Oddur mér í blóðbankann og fór í Sorpu í leiðinni. Sú sem afgreiddi mig í afgreiðslunni óskaði mér til hamingju með daginn. Stuttu síðar "sótti" hjúkrunarfræðingur af erlendu bergi broti mig. Hún sagðist tala smá íslensku en spurði hvort það væri í lagi að við töluðum á ensku. Ég samþykkti það og bætti við að hún mætti tala á ensku ég gæti kannski svarað á íslensku. Þegar ég var búin að þvo mér, spritta, sest inn og hafði lokað að okkur, sagðist hún þurfa að tala við mig um eitthvað sem ekki tengdist blóðgjöfinni. Svo brast hún í söng og söng afmælissönginn fyrir mig á ensku. Þegar ég var búin að koma mér fyrir á einum bekknum frammi leyfði ég henni að velja úr hvorum handleggnum hún ætlaði að taka. Eftir að hafa þreifað á þeim báðum góða stund valdi hún þann vinstri. Hélt í augnablik að það yrði vesen en allt gekk vel, svo vel að æðin vildi helst halda áfram að gefa eftir að búið var að fylla á pokann. Það tók góða stund að stoppa og loka fyrir. Fékk mér kaffi og hafraköku áður en ég hringdi í Odd aftur til að sækja mig. Heima fór ég að lesa, prjóna og svara kveðjum. Mágur minn hringdi um hálftíu. Hann er kominn með pestina. Yngri dóttlan hans hringdi í mig í hádegispásunni sinni. Hún er orðin hress eftir pestina. Um miðjan dag hringdi kona eins frænda míns. Hún er með pestina. Um hálfsjö skruppum við mæðgin á Pítuna. Ég borgaði fyrir okkur en Davíð Steinn ákvað að endurgreiða mér. Þegar við vorum að koma heim aftur hringdi æskuvinkona mín í mig. Hún er enn að jafna sig eftir veirusýkinguna. Og um hálfníu hringdi besti vinur minn í mig en það er hefð okkar á milli að hringja í hvort annað þegar hitt á afmæli.
17.3.22
Afmælisdagur
Var vöknuð um sex. Hafði og gaf mér tíma til að skreppa aðeins í netheima eftir morgunverkin á baðherberginu og áður en ég labbaði í vinnuna. Vorum allar mættar í gær en tvær fóru svo á hádegi, önnur að taka styttingu vinnuvikunnar en hin var enn smá lasin og búin með kraftana þennan daginn. Hún er samt ekki að jafna sig eftir Covid-19, er ein af þremur (af fimm) sem ekki er búin að fá þá veiru. Ég var að flokka kennispjöld fram að kaffi og fór á móttökuendann eftir kaffi. Eftir hádegi tók ég við bókhaldinu og hélt svo áfram að flokka kennispjöld. Á einum tímapunkti leysti ég aðeins af inn á framleiðsluvél til að þær sem stóðu vaktina þar gætu skroppið á prívatið, önnur í einu því það þurfa alltaf að vera tvær þegar framleiðsluvélin er í gangi. Fékk far heim úr vinnunni rétt fyrir fjögur. Um hálfsex var ég loksins mætt í sund eftir að hafa slakað smástund á heima og komið við í fiskbúðinni. Keypti bleikjuflök og harðfisk. Hitti kaldapotts vinkonu mína í sundi og það varð úr að ég var einungis að rölta á milli kalda og heitasta og endaði svo í gufunni. Synti semsagt ekkert. Áður en ég fór heim kom ég við í Hagkaup í Skeifunni til að kaupa vínber og osta til að bjóða upp á í vinnunni. Steikti bleikjuna og gufusauð blómkál í kvöldmatinn. Var svo að horfa á íþróttir, smá körfubolta, en aðallega leik "minna manna" í Liverpool á móti Arsenal. Kláraði enn eina tuskuna.
16.3.22
Miðvikudagur
Vaknaði rétt áður en vekjaraklukkan átti að hringja. Hafði rumskað fyrst um fimm enda var ég sofnuð fyrir klukkan hálfellefu í fyrrakvöld. En ég var ekki lengi að sofna aftur og "grjótrotaðist". Labbaði sömu leið í vinnu og undan farna daga og er sú leið uþb 300 metrum styttri og ég fljótari eftir því. Sú sem átti að vera í bókhaldinu í gær var enn lasin. Ég tók að mér að sjá um bókhaldið í staðinn. Lenti í smá brasi með að prenta út. Prentarinn var eitthvað tregur. Fyrirliðinn gat lagað það og allt annað gekk vel. Eftir hádegi sorteraði ég kennispjöld og við fórum tvær, sem vorum frammi, og skiluðum 14 sorteruðum kössum og sóttum 15 aðra í staðinn. Er líka byrjuð að vinna á óvissubunkanum, þau spjöld sem flest eru óstimpluð. Það verður líklega ekki hægt að finna út úr öllum en mjög mörgum samt. Fékk far heim úr vinnunni. Stoppaði heima við í um klukkustund áður en ég fór í sund. Tvær ferðir í kalda, 300m og gott gufubað áður en ég fór heima aftur. Stuttu fyrir átta sótti ég Lilju vinkonu og vorum við mættar í saumaklúbb hjá Sonju á slaginu átta. Kvöldið leið alltof hratt. Var komin heim aftur rétt rúmlega ellefu en ég las samt í smá stund áður en ég fór að sofa.
15.3.22
Þriðjudagur
Hafði meðbyr með mér á göngunni í vinnuna í gærmorgun. Ekki orðið of hvasst þó og slapp við alla úrkomu. Vorum fjórar í vinnu, ein lasin. Ég var á ítroðsluendanum fram að kaffi og á móttökuendanum fram að hádegi. Eftir hádegi flokkaði ég kennispjöld en ég settist líka smá stund í sófann með bók og prjóna. Fékk far heim úr vinnunni. Þá var grenjandi rigning svo ég var fegin að sleppa því að labba. Hefði líklega hringt í einkabílstjórann ef ég hefði ekki fengið farið.
14.3.22
Mánudagur
Var á fótum á svipuðum tíma og á laugardagsmorguninn. Klukkan var svo að verða hálfellefu þegar ég mætti í sund. Byrjaði á fimm mínútum í kalda, synti 500 metra, aftur fimm mínútur í kalda, gufubað, kalda sturtu, sjópottinn, kalda pottinn og sat svo smá stund í sólbaði áður en ég fór upp úr og heim aftur. Hellti upp á kaffi. Hlustaði á hádegisfréttir. Prjónaði, vafraði um í netheimum, horfði á leiki í enska og einhverja þætti. Svo var dagurinn var allt í einu liðinn. Fór upp í fyrir klukkan tíu. Réð smá sudoku og las svo í smá stund.
13.3.22
Sunnudagur
Ég var vöknuð fyrir klukkan átta í gærmorgun en kom mér ekki fram úr fyrr en korter yfir. Eftir morgunverkin á baðherberginu "skrapp" ég í netheima í rúma klukkustund. Upp úr klukkan hálftíu tók ég til sunddótið. Skrapp fyrst á AO við Bústaðaveg og fyllti á bílinn en var komin í sund um tíu. Fimm mínútur í kalda pottinum, tíu mínútur í sjópottinum og svo synti ég 500 metra. Þar af 200 metra á bakinu. Var komin heim aftur um hálftólf. Setti handklæði í þvottavél og hellti svo upp á könnuna. Horfði á einn og hálfan leik í enska, og báða bikarleikina í handbolta og einnig þrjá þætti úr sarpinum. Fitjaði upp á nýrri tusku og þegar ég var komin upp í um ellefu byrjaði ég á skammtímalánsbókinni; Úti eftir Ragnar Jónasson.
12.3.22
Aftur í sjóinn
Þrátt fyrir að fara á bílnum í vinnuna í gærmorgun mældi síminn tæp fimmþúsund skref í gær. Annars var ég aftur á ítroðsluendanum fram að kaffi, á móttökuendanum fram að hádegi og enn og aftur á ítroðsluendanum eftir hádegi til klukkan þrjú. Þessi uppstilling endaði svona vegna þess að ein af okkur fjórum tók styttingu vinnuvikunnar og var farin inn í helgina um hádegið. Framleiðsla gekk annars afar vel og erum við loksins byrjaðar á síðustu endurnýjuninni. Gátum reyndar ekki lokið framleiðslu á einni endurnýjun vegna hráefnisskorts. Vonandi kemur það hráefni fljótlega því kortin sem á eftir að framleiða eiga taka við af kortum sem renna út næstu mánaðamót. Eftir vinnu fór ég beinustu leið í Nauthólsvík. Var komin í 2°C sjóinn rúmlega hálffjögur og þrátt fyrir að hafa ekki farið í tvo mánuði var ég tæpar níu mínútur út í og svo annað eins í heita pottinum. Eftir hressandi sjóferðina fór ég í Krónuna við Fiskislóð og verslaði inn. Ákvað að kaupa súsíbakka handa okkur mæðginum í matinn. Strákarnir voru ekkert smá glaðir. Oddur kom út að hjálpa mér inn með vörurnar og gekk frá þeim líka. Ég slapp semsagt mjög létt frá allri eldamennsku í gærkvöldi.
11.3.22
Hraðferð á tímanum
Ég labbaði aðeins aðra leið til vinnu í gær, út götuna, Reykjahlíð og yfir Miklubraut á gönguljósunum. Eftir það fór ég í "fótsporin" mín frá því í fyrradag, undir brúna við Snorrabraut/Bústaðaveg, upp Eiríksgötu og niður Skólavörðustíg og Inólfsstræti. Ég fór á ítroðsluendann á vélinni fram að kaffi og á móttökuendann eftir kaffi og flokkaði kennispjöld eftir kaffi. Hættum vinnu stuttu fyrir fjögur og fékk ég far heim. Það var meiningin að skreppa svo í sund en það endaði með því að ég ílengdist heima. Horfði m.a. á brot úr kvennaundanúrslitunum í handboltanum. Bæði lið Vals eru komin í úrslit og það verður nóg að gera hjá aðstoðaþjálfara liðanna, Óskari Bjarna Óskarssyni á úrslitadaginn.
10.3.22
Vinnufundur
Labbaði í vinnuna í gærmorgun en sleppti því að þvera Klambratúnið. Sums staðar varð ég þó að fara extra varlega. Var rúmum þremur mínútum lengur á leiðinni heldur en á mánudagsmorguninn og var þetta þó ekkert lengri leið sem ég fór. Vorum fjórar af fimm í vinnu. Ég byrjaði frammi í að undirbúa pökkun og flokka kennispjöld. Eftir kaffi fór ég á ítroðsluendann á vélinni. Lukum við daglega framleiðslu suttu fyrir tólf. Eftir hádegi og til ca korter í tvö var ég á móttökuendanum á vélinni. Þá gengum við frá en "afhentum" sérfræðingunum vélina í testframleiðslu. Sjálfar fórum við yfir í K2 og fékk ég far með einni þangað. Hittum tilvonandi næsta yfirmann og aðra til frá Seðlaverinu í fundarherberginu Hamar. Annar sérfræðingurinn mætti á svæðið klukkutíma síðar. Vorum að fara yfir skrefin okkar í daglegri framleiðslu og velta upp í leiðinni hvort hægt væri að einfalda einhverja þætti og hvernig eða hvaða verkfæri þyrfti til þess. Þegar þessum vinnufundi var slitið rétt fyrir fimm átti alveg eftir að fara yfir bókhaldið og nokkra aðra þætti svo það verður boðaður nýr fundur. Fékk far heim og fór ekkert út aftur. Fylgdist aðeins með bikarundanúrslita leikjunum í handbolta karla. Horfði ekki á nema brot af leikjunum en þó stærra brot úr fyrri leiknum þar sem Valsstrákarnir tryggðu sér sæti í úrslitaleiknum komandi helgi með því að vinna FH.
9.3.22
Vikan hálfnuð
Ég fór á bílnum í vinnuna í gærmorgun og hafði sunddótið með mér í skottinu. Ég var í bókhaldinu í gær og kom því ekkert að framleiðslu. Vorum bara þrjár áfram og því nóg að gera frammi í pökkun líka. Flokkaði einnig kennispjöld. Hættum vinnu um hálffjögur og þá fór ég beinustu leið í sund. Byrjaði á því að sitja í fimm mínútur í kalda pottinum áður en ég synti í rúmt korter, 400 metra. Var svo í minni annarri ferð í kalda pottinum þegar kalda potts vinkonan kom í sína þriðju eða fjórðu ferð. Hún kom víst á svæðið á svipuðum tíma og ég en var sennilega í gufunni þegar ég var í fyrstu ferðinni. Fórum tvær ferðir í viðbót í kalda, sátum góða stund í gufunni á eftir og enduðum í sjópottinum eftir að hafa tekið sturtu. Þar hitti systir hennar okkur. Ég kom heim upp úr klukkan hálfsex. Davíð Steinn sá um kvöldmatinn svo ég gat bara slakað á fyrir framan imbann á meðan og á eftir.
8.3.22
Þrjár í vinnu, tvær lasnar
Vaknaði upp úr klukkan sex í gærmorgun. Labbaði af stað í vinnuna um sjö. Ég var á móttökuendanum og hélt mig þar. Daglegum verkefnum lauk um tólf. Framleiddum rúmlega áttahundruð kort og kláruðum alveg eina af endurnýjununum. Hættum vinnu rétt fyrir þrjú. Fékk far heim úr vinnunni. Um hálffimm skrapp ég og skilaði tveimur bókum af þremur á safnið. Tók þrjár bækur í staðinn. Það er komið nýtt sjálfsafgreiðslukerfi en eftir sem áður er hægt að senda útlánin til sín í tölvupósti. Kom svo við í fiskbúðinni áður en ég fór heim aftur. Annar sonurinn var búinn að panta sér pizzu en hann var að keppa í einhverjum tölvuleik og vissi ekki hvenær hann yrði laus.
7.3.22
Ný vinnuvika
Var komin á fætur um átta í gærmorgun. Rúmum klukkutíma síðar bankaði ég á herbergisdyrnar hjá Davíð Steini og spurði hvort hann ætlaði ekki að mæta til vinnu og vera mættur um hálftíu. Hann kom fram skömmu síðar og við hjálpuðumst að við að sópa af bílnum áður en við lögðum í hann. Hleypti honum út hjá vinnunni sinni á slaginu hálftíu og fór svo beint í sund. Það endaði þó með því að ég synti ekkert. fór tvisvar í kalda pottinn, tvisvar í sjópottinn, einu sinni í gufuna og sat á stól í fimm mínútur áður en ég fór upp úr og heim rétt fyrir tólf. Í seinni ferðinni í sjópottinum hitti ég yngstu mágkonu mömmu heitinnar og spjölluðum við í góða stund. Heima byrjaði ég á því að hlusta á hádegisfréttir og horfa á einn þátt áður en ég hellti upp á fyrstu kaffibolla dagsins. Það voru þrír bollar af sterku kaffi en ég hellti ekki aftur upp á. Lauk við afgangatuskuna og fitjaði upp á nýrri. Hringdi í pabba en hann og Bríet eru búin að ná sér í pestina, C-19 náði að klukka þau. Eins er ein samstarfskona mín með þetta. Vonandi munu þau ná sér fljótt og vel. Þetta er örugglega bara spurning um hvenær eða ekki hvort maður verði klukkaður nema maður verði einn af undantekningunum.
6.3.22
Sunnudagur
Var komin á fætur um hálfsjö. Klukkutíma síðar hleypti ég Davíð Steini út við N1 við Gagnveg og þáði kaffi í lokuðu máli út í bíl áður en ég fór í Laugardalinn. Byrjaði á kalda, synti 400 fór aftur í kalda og smá stund í gufu. Var mætt á vinnustað á slaginu níu, önnur af þremur. Sú þriðja kom skömmu síðar og þá gat framleiðsla hafist. Tókum smá pásu um hálfellefu. Ég var í bókhaldinu og pökkun fyrsta "hringinn" af þremur á meðan hinar tvær framleiddu það sem átti að framleiða 2. mars sl. Yfirmaður okkar færði okkur mat um hádegið. Ég var á ítroðsluendanum þegar næsti hringur, 3. mars var framleiddur. Hinar tvær voru eitthvað að spá í hvort við ættum að mæta aftur í vinnu í dag en ég vildi klára og fór á móttökuendann þegar 4. mars var framleiddur. Síðan var allt talið áður en gengið var frá. Klukkan var líka um hálfsjö þegar ég kom heim. Ég er fegin að við kláruðum þessa törn í gær og eiga frí í dag. Á mánudaginn er allt tilbúið fyrir fyrstu tvö daglegu verkefnin, voru hlaðin inn í gærmorgun og talið í tegundirnar um leið og við vorum að telja vagnana.
5.3.22
Vinnutörn
Ég var komin á fætur upp úr klukkan hálfátta. Eftir morgunverkin á baðherberginu setti ég handklæði og brækur í þvott og braut saman og tók með mér þvott Davíðs Steins upp úr þvottahúsinu. Svo vafraði ég um á netinu til klukkan tíu. Um það leyti sem ég var nýbúin að hengja upp þvottinn hringdi fyrirliðinn í mig og sagði að von væri á varahlutnum um hádegið og ég gæti mætt um eitt í vinnuna. Fram að þeim tíma var ég að lesa í bókinni; Hnífurinn eftir Jo Nesbö. Fór á bílnum um hálfeitt og varð að leggja honum á sama stæði og tveimur dögum fyrr. Passaði mig núna að borga bara til rúmlega fjögur en ekki einn sólarhring og sex tíma. Það munaði 800 kr. Varahluturinn kom ekki fyrr en rúmlega eitt og þá átti eftir að setja hann í vélina og keyra hana upp. Flokkaði kennispjöld þar til viðgerðarmaðurinn sagði "go" um tvö. Ég fór á móttökuendann að taka á móti framleiðslunni sem átti að framleiða þann 1. mars. Vorum rúmlega hálfnaðar með þann dag þegar tvær af okkur þremur þurftum að skreppa frá rétt fyrir fjögur. Fyrirliðinn til að sækja son sinn í vinnuna og skutla á æfingu og ég í viðhaldsklippingu. Ég kom til baka rúmlega hálffimm. Fengum okkur smá kaffi og fylltum á vatnsflöskurnar áður en við héldum áfram það sem frá var horfið. Þegar við vorum búnar að klára framleiðslu frá 1. var klukkan að verða sex og þá urðum við að hætta þar sem ein af okkur þremur átti von á gestum. En við ætlum að mæta aftur um níu í dag og klára framleiðslu frá 2.-4. mars og jafnvel það sem var sent á vélina klukkan hálfsjö og níu í gærkvöldi. Það verður örugglega amk átta tíma törn.
4.3.22
Föstudagur
Fór á fætur um átta í gærmorgun. Framan af degi var ég að væflast í netheimum, prjóna og lesa. Hellti mér ekki upp á kaffi fyrr en á tólfta tímanum. Oddur Smári kom fram um hálftvö og klukkutíma síðar skrapp hann í sorpuferð. Þegar hann kom til baka fór ég loksins í sund. Var mætt í Laugardalinn á sama tíma og kalda potts vinkona mín. Við fórum tvær ferðir í kalda en svo synti ég 500 metra en hún hitti aðra vinkonu sína í sjópottinum. Eftir sundsprettinn hittumst við aftur þrjár ferðir í kalda og tvær í þann heitasta. Hún endaði að heitasta pottinum á meðan ég fór í gott gufubað áður en ég fór upp úr og heim aftur. Strákarnir voru báðir heima og ég eldaði hakkpottrétt í kvöldmatinn. Horfði á kvöldfréttir og nokkra þætti áður en ég fór upp í rúm að lesa rétt fyrir tíu.
3.3.22
Engin vinna í dag
Ég var komin á fætur um hálfátta í gærmorgun. Þegar klukkan nálgaðist níu ákvað ég að ég færi ekki gangandi í vinnuna heldur á bílnum. Vissi að þar með yrði ég mjög líklega að borga í stöðumæli en held samt að þetta hafi verið hárrétt ákvörðun. Um hálftíu tók ég með mér bakpokann, handtöskuna og sundpokann út í bíl. Tvennt það síðarnefnda setti ég í skottið. Bíllinn var við Drápuhlíð 1. Það var eins og mig grunaði, þau fáu stæði sem eru á neðra plani voru full og ég kunni ekki við að setja bílinn í eina stæðið sem merkt er RB. Lagði á gjaldstæði móts við bakaríið við Skúlagötu þannig að það var smá spölur að labba í vinnuna. Ekkert langt en hluta af leiðinni varð ég að fara extra varlega þar sem ég var ekki á gönguskónum með mannbroddunum. Sennilega hefði ég samt þurft að fara jafn varlega á þeim. Tvær aðrar voru mættar til vinnu þegar ég kom stuttu fyrir tíu. Sú fjórða var orðin lasin og sú fimmta er í fríi. Við byrjuðum á því að fá okkur kaffi og hlusta á erindi á TEAMS um svefn. Síðan hlóð ég inn fyrirliggjandi, daglegur verkefnum á framleiðsluvélina. Flokkaði kennispjöld í hálftíma. Fékk mér súpu í hádeginu og aðeins meira kaffi og svo máttum við fara og það með þeim skilaboðum að við þyrftum ekki að mæta í vinnu næsta dag. Ein af okkur þremur ætlaði samt að mæta til að hlaða inn verkefnunum sem safnast upp og sinna reikningagerðinni og mánaðamótauppgjörinu.
Fór beinustu leið í Laugardalinn og byrjaði á því að synda 500 metra, 350 af þeim á bakinu. Fór tvisvar sinnum 5 mínútur í kalda pottinn, einu sinni í þann heitasta og endaði á góðu gufubaði áður en ég fór upp úr og þvoði mér um hárið. Fljótlega eftir að ég kom heim kom N1 sonurinn fram. Hann er í vaktafríi til föstudags. Ég spurði hann hvort hann ætlaði að setja í vél og hann játti því og fór fljótlega niður. Þegar hann kom upp úr aftur sagði hann að einhver væri búinn að setja þvott í vélina en hún hefði ekki farið af stað þar sem ekki var skrúfað frá krananum. Hann hélt að ég ætti þennan þvott sem var ekki. Ég hafði spurt hann hvort hann ætlaði að þvo og ætlaði niður með þvott ef hann hefði sagt nei. Líklegast hafa leigendur risíbúðar ruglast á vél. Þessu var kippt í liðinn og Davíð Steinn gat því þvegið af sér þrátt fyrir allt.
2.3.22
Allt í steik
Göngufærið í vinnuna í gærmorgun var alveg sæmilegt. Þurfti að passa mig á einum stað á Klambratúninu en annars sóttist ganga ágætlega. Langbest að hafa mannbroddana bara undir skónum áfram. Nú brá svo við að framleiðsluvélin vildi ekki vinna vinnuna sína, fór í verkfall. Kalla varð út viðgerðarmann en allt kom fyrir ekki. Sennilega er farinn varahlutur sem þarf að panta að utan. Vorum á staðnum til fimm, flestar af okkur fjórum. Þá fékk ég far heim með einni en ein tók að sér að sitja áfram yfir á meðan viðgerðarmaður lauk við að bilanagreina. Upp úr klukkan sex bauð ég Oddi að koma með mér í IKEA og fá okkur saltkjöt og baunir. Röðin var löng en nóg til og það sem meira var að við fundum strax borð til að borða við. Eftir átið passaði það svo vel að ná í Davíð Stein úr vinnunni, hann var búinn um átta. Gleymdi því annan daginn í röð að hringja í norsku esperantovinkonu mína. Fyrirliðinn hringdi í mig fljótlega eftir að ég kom heim til að segja að mæting í vinnu væri ekki fyrr en klukkan tíu. Ekkert hægt að gera nema, hlaða inn skrám og flokka kennispjöld. Jú svo er reyndar hægt að punkta niður ýmislegt sem tengist tilvonandi flutningum. Svo frétti ég það að æskuvinkona mín og maður hennar eru komin með veiruna. Vonandi fara þau ekki illa út úr henni. Líklega er þetta nú ekki spurning um hvort heldur hvenær veira hittir mann fyrir.
1.3.22
Tveir af tólf búnir
Vaknaði rúmlega sex. Labbaði af stað í vinnuna um sjö. Gönguleiðin var að mestu greið, smá torfærur á einum stað á Klamratúninu. Seinni hluta göngunnar var smá hagl að "ráðast" á augun mín. Vorum þrjár í vinnu, tvær í fríi. Ég var á ítroðsluendanum á vélinni. Límið til að líma kortin á formin var ekki komið svo enn einn daginn þurftum við að handlíma. Daglegri framleiðslu lauk um tólf og þá mættu þeir sem sjá um reglulegt viðhald á vélinni. Tvær af okkur hættu vinnu rúmlega tvö og fékk ég far með hinni heim. Sú þriðja tók að sér að sitja yfir yfirferðarmönnunum til fjögur. Ég var ekkert að fara neitt að heiman aftur. Hringdi í pabba, vafraði um á netinu, prjónaði og horfði á nokkra þætti. Steingleymdi hins vegar að hafa samband við norsku vinkonu mína eins og ég var búin að lofa um helgina.
28.2.22
Ný vinnuvika að hefjast
Var komin á fætur um átta en klukkan var rúmlega tíu þegar ég fór í sund. Hitti kalda potts vinkonu mína og systur hennar í sjópottinum eftir mína fyrstu ferð í kalda. Tókum svo eina ferð í kalda og svo tíu mínútur í gufunni. Fórum í sturtu eftir gufuna og hittum systir hennar í potti tvö. Fljótlega fóru þær upp úr en ég synti fyrst 400 metra. Skrapp aðeins í Krónuna við Fiskislóð áður en ég fór heim. Heima var eldhúsvaskurinn stíflaður svo ég skrapp í BYKO um tvö að kaupa stíflueyðir. Keypti þrjár tegundir. Eldhúsvaskurinn er tvöfaldur og mér tókst að losa stífluna úr þeim hluta sem mest er notaður. Hinn hlutinn er meira notaðu undir plastafganga áður en þeir fara út í tunnu eða í sorpu. Gerði þó þrjár tilraunir til að losa stífluna þeim meginn en þótt eihttvað hafi þokast í rétta átt er vandamálið ekki úr sögunni. Horfði á fótbolta, þætti og smá af körfuboltalandsleiknum. Er einnig að nýta afganga úr tuskuprjóni í afgangatusku eftir mynstrinu blíðar bárur.
27.2.22
Rólegheit
Klukkan var um miðnætti þegar ég skreið upp í rúm á föstudagskvöldið. Þá átti ég eftir bæði að ráða smá í sudoku og lesa svo ég fór ekki að sofa fyrr en um eitt. Svaf því aðeins fram á morguninn í gær en komst á fætur áður en klukkan sló tíu. Einhvern veginn fór að svo þannig að ég fór ekkert út. Vafraði bara á netinu, prjónaði eða horfði á þætti. Sauð síðustu tvo keppina af mínum hluta af sláturgerðinni frá því í haust. Það voru tveir lifrarpylsukeppir. Mjög góðir en best finnst mér bland af báðu á diskinn minn. Það er hægt að fá frosið ósoðið slátur í Hagkaup, þrír keppir saman, svo það hefði alltaf verið einn auka ef ég hefði nælt mér í svoleiðis. En svo getur vel verið að ég kaupi þrjá og þrjá fljótlega því þótt suðan taki tíma er mjög gott að hafa svona mat öðru hvoru.
26.2.22
Sofið út
Áður en ég fór í vinnuna í gærmorgun hellti ég upp á 2-3 bolla af rótsterku kaffi. Engin hreyfing heyrðist úr stofunni. Fór á bílnum í vinnuna og klukkutíma síðar sendi ég mági mínum skilaboð um að ég hefði hellt upp á. Var á móttökuendanum á vélinni þar til allri daglegri framleiðslu var lokið. Sú sem var í bókhaldinu þurfti að fara um hálftvö og við hinar tvær sem voru eftir þá (ein í fríi og önnur er ekki að vinna á föstudögum) ákváðum að hafa stuttan dag og hættum upp úr klukkan tvö. Ég kom við í fiskbúðinni áður en ég fór í sund. Synti 500 metra, fór tvisvar í kalda pottinn (á undan og eftir sundinu) og endaði í góðu gufubaði. Var að koma heim um fjögur. Ákvað að hlusta á fréttirnar áður en ég færi inn en þá var bankað á bílrúðuna hjá mér. Mágur minn var að koma úr jarðarför. Synir mínir höfðu passað upp á hundinn á meðan og farið tvisvar út að ganga með hann. Ingvi stoppaði í rúma klukkustund en þá fóru hann og hundurinn austur á Hellu.
25.2.22
Næturgestir
Göngufærið í vinnuna í gærmorgun var mjög misjafnt á köflum. Á stórum hluta af stígnum þvert yfir Klambratún hafði skafið yfir til hálfs eða meira og eins á Gunnarsbrautinni. En ég var samt ekki nema þremur mínútum lengur að labba venjulegu leiðina. Var í bókhaldinu, talningum og flokkun kennispjalda. Hættum vinnu rúmlega hálfþrjú og þáði ég far heim úr vinnunni. Bræðurnir voru í sorpuferð en komu heim fljótlega á eftir mér. Var komin í sund um fjögur. Byrjaði á því að taka tvö skipti í kalda, einn í heitasta og góða stund í gufunni með kalda potts vinkonu minni. Eftir gufubaðið fór ég í kalda sturtu og synti svo 500 metra. Fékk mér bara snarl í matinn því strákarnir höfðu látið eftir sér að taka með sér pizzur heim. Fylgdist með mega spennandi körfubolta landsleik. Leik sem var svo spennandi á köflum að ég gat varla horft. Um níu hringdi mágur minn í mig. Hann var staddur í Varmahlíð og spurði hvort hann og Vargur fengju gistingu þegar þeir kæmu í bæinn. Ég sagði þá velkomna og sagðist myndi biðja Odd um að vera tilbúna að taka á móti þeim.
24.2.22
Styttist í næsta mánuð
Ég vaknaði sjálf um sex og dreif mig á fætur. Eftir morgunverkin vafraði ég aðeins um á netinu þar til tími var kominn til að labba af stað í vinnuna. Göngufærið var sæmilegt. Búið að moka gangstétt við Lönguhlíð en ekki stíginn þvert yfir Klambratún sem og gangstéttar við Gunnarsbraut. En þetta hafðist allt saman og tafði mig ekkert að ráði. Fram að kaffi flokkaði ég kennispjöld. Eftir kaffi var ég á móttökuendanum á vélinni. Nú var verklagið aðeins annað heldur en venjulega því límið sem límir kortin á formið er búið og við fáum ekki nýjar birgðir fyrr en í vikulokin. Kortin voru framleidd fyrst og sér og formin sér. Svo handlímdum við kortin á viðeigandi form og allt sem var H merkt og með gild heimilisföng settum við í umslög. Hinu var pakkað eftir útibúsnúmerum. Þrátt fyrir þessa aðferð vorum við búnar með daglega framleiðslu stuttu fyrir tólf. Eftir hádegi flokkuðum við kennispjöld í um klukkutíma. Þá fórum við með 15 flokkaða kassa í kennispjaldageymsluna og sóttum 15 óflokkaða kassa í staðinn. Ég labbaði heim um þrjú. Fljótlega hringdi N1 sonurinn í mig hann sagðist þurfa að láta skoða sig á bráðamóttökunni, væri líklega með brákað rifbein eftir smá heimskupör með vinnufélögum í vinnunni um daginn. Hann var að jafna sig en verkurinn tók sig upp þegar hann hnerraði og var svo slæmur að hann var hálf ónýtur í vinnunni. Dvölin á bráðamóttökunni stóð yfir í hátt í sex tíma en einkabílstjórinn fór og sótti bróður sinn þegar hann var búinn. Ég var farin í háttinn og veit ekki hvort nokkuð var gert nema staðfest að um brot eða brákað rifbein væri að ræða.
23.2.22
Mið vika
Í gærmorgun fór ég á bíl í vinnuna í fyrsta skpti í þessum mánuði. Bíllinn var hinum megin við Lönguhlíð fyrir framan Drápuhlíð 25. Hann var hvítur á annarri hliðinni og það var einnig snjólag á framrúðunni. Það var auðvelt að sópa þessu af og skafa. Þurfti svo að aka varlega á köflum því það voru stórir pollar sums staðar á leiðinni. Ég var á ítorðsluendanum á vélinni fram að kaffi. Eftir kaffi var ég í pökkun en ég notaði einnig hluta af tímanum til að lesa síðustu sextíu blaðsíður í bókasafnsbók sem var að komast á síðasta skiladag. Hefði reyndar geta framlengt frestinum um 30 daga en ég vildi helst skila bókinni innan þrjátíu daga. Um hádegisbilið kláraðist límið sem límir kortin á form. Það eru þrjár vikur síðan við pöntuðum en af því að ekki var allt sem pantað var tilbúið var pöntunin enn erlendis. Birginn okkar verður að bjarga því en á meðan verðum við að framleiða kort og form sér og handlíma kortin á formin. Þetta gerum við aðeins við daglega vinnslu, endurnýjunin verður að bíða aðeins. Eftir hádegi flokkaði ég kennispjöld. Hættum vinnu um hálffjögur. Ég fór beinustu leið á safnið og skilaði þremur bókum sem voru með skilafrest til 23. og 24. febrúar. Tók þrjár bækur í staðinn þrátt fyrir að vera með tvær ólesnar heima. Ein af þeim bókum er ný, með 14 daga skilafresti. Síðan fór ég í sund. Synti í hálftíma. Kalda potts vinkonan var á svæðinu og hún tók eina aukaferð með mér í kalda pottinn og svo í gufuna. Þegar ég kom heim var Davíð Steinn byrjaður að sinna matargerð. Hann hafði skroppið út í búð en gleymt hluta af því sem hann vantaði svo ég rölti yfir í Krambúð og bjargaði því sem hægt var. Maturinn var mjög góður hjá honum.
22.2.22
Litríkar veðurviðvaranir
Vaknaði rétt upp úr sex. Fór á fætur og eftir morgunverkin á baðherberginu settist ég í sófann í stofunni með fartölvuna í fanginu. Um sjö labbaði ég af stað í vinnu. Ég var frammi fyrsta kastið. Flokkaði kennispjöld en fór svo að skoða og telja kort sem voru að koma til okkar. Eftir kaffi fór ég á móttökuendann á vélinni og aftur eftir hádegi. Fékk far heim úr vinnunni og ákvað fljótlega að halda mig heima við það sem eftir lifði dags.
Hulda systurdóttir mín er tuttuguogtveggja í dag.
21.2.22
Mánudagsmorgunn
Ég var komin á fætur um átta, rúmum klukkutíma á undan N1 syninum. Hleypti honum út við vinnustaðinn um hálftíu og fór svo beint í sund. Fór fyrst í kalda pottinn í 3 mínútur og svo á braut átta og synti í 30 mínútur. Í þriðju ferð af sjö tók ég eftir því að kalda potts vinkona mín var mætt á svæðið. Lauk samt við sundið. Hitti vinkonuna í hennar næstsíðustu ferð í kalda, fórum í þann heitasta á eftir þeirri ferð og í gufuna eftir síðustu ferðina. Eftir gufu fór ég í kalda sturtu og settist svo dágóða stund í sjópottinn. Kom heim um hálftólf og byrjaði á því að hella upp á sterkt og gott kaffi. Fór ekkert út aftur en dagurinn leið fljótt við alls konar dútl. Ég var nýkomin upp í rúm um tíu þegar Oddur Smári bankaði. Bríet hafði skroppið fljúgandi norður um helgina og geymt bílinn sinn á stæði við flugvöllinn. Bíllinn var á kafi í snjó og þótt Oddur færi fyrst einn kom hann fljótlega og sótti Davíð Stein til að aðstoða við bílabjörgunina. Þetta tók drjúga stund og þótt ég væri hætt að lesa og búin að kúra mig niður sofnaði ég ekki almennilega fyrr en bræður komu til baka, langt gengin í eitt. Bríet fór sennilega beinustu leið austur þegar bíllinn hennar var laus úr prísundinni. Sem betur fer á hún seinni parts vakt í þessari viku, á ekki að mæta til vinnu fyrr en um ellefu.
20.2.22
Sunnudagur
Fór á fætur um hálfsjö í gærmorgun. Davíð Steinn kom fram rúmum hálftíma síðar. Skutlaði honum upp á Gagnveg og þáði kaffi út í bíl í staðinn. Kom næst við á Atlantsolíustöðinni við Bústaðaveg og fyllti á tankinn. Þegar ég setti bílinn aftur í gang tók ég eftir að kílometramælirinn stóð akkúrat í 46000. Var komin á planið við Laugardalslaugina rétt fyrir átta. Hlustaði á fréttir áður en ég fór inn. Var byrjuð að synda tólf mínútur yfir átta. Fyrstu 400 metrana synti ég á bringunni en eftir það aðra hverja ferð á bakinu. Hætti ekki að synda fyrr en ég var búin að vera að í klukkutíma. Það voru 12 eða 13 hundruð metrar. Fór næst í kalda pottinn í fimm mínútur. Áður en ég fór í þann heitasta skrapp ég á salernið í útiklefa kvenna. Eftir þrjár mínútur í heitasta fór ég aftur fimm mínútur í þann kalda og svo uþb tíu mínútur í gufuna áður en ég fór upp úr og þvoði mér um hárið. Næst lá leiðin í Krónuna við Fiskislóð. Kom heim um ellefu leytið. Dagurinn til hálfsex fór í netvafr, prjónaskap, lestur og fótboltagláp. Um hálfsex sótti fyrrum samstarfskona mín mig og leið okkar lá heim til annarar samtarfskonu upp í Árbæ og sú fjórða mætti rétt á eftir okkur. Þrjár af okkur fjórum vinnum enn saman. Heimsóknin stóð yfir í rúma þrjá tíma og var ansi glatt á hjalla. Fengum gott að borða og húsráðandi og sú sem var með bílstjóra fengu hvítvín með matnum. Ég kom heim um hálftíma á undan bræðrunum en þeir höfðu verið að hitta vini á Jómfrúnni. Davíð Steinn fékk að hætta fyrr í vinninnu til að komast með í þann hitting. Ég lánaði þeim þó ekki bílinn. Mun betra að nota strætó sem sem stoppar rétt hjá.
19.2.22
Á skutl vaktinni
Göngufærið í vinnuna í gærmorgun var alveg ágætt. Þveraði Klambratúnið, labbaði Gunnarsbraut að Njálsgötu, Snorrabraut að Laugavegi. Elti Laugaveg að Klapparstíg og Klapparstíg niður á Skúlagötu. Var 40 mínútur á leiðinni og mætt fyrst. Var á móttökuendanum fram að kaffi, í pökkun og talningum fram að hádegi og ítroðsluendanum eftir hádegi. Hættum vinnu um hálfþrjú og ég þáði far heim úr vinnunni. Einhvern veginn endaði ég á því að vera bara heima það sem eftir lifði dags og kvölds. Setti upp kartöflur og sauð upp á ýsuflakinu upp úr klukkan sex og svo fékk ég mér hvítvín með matnum.
18.2.22
Næstum búin að gleyma aðgangsorðinu
Það var svolítið strembið göngufærið í vinnuna í gærmorgun og var ég þrjú korter á leiðinni. Labbaði meðfram Klambratúninu því það var ekki búið að moka göngustíginn þvert yfir túnið. En svo var ekki heldur búið að moka gangstéttina sjúkrahúsmeginn við Eiríksgötuna svo það voru nokkur aukasporin sem ég tók þar. Enda var ég næstum komin með fimmþúsund skref þegar ég mætti í vinnunna. Var fyrst á svæðið en hinar fjórar komu skömmu síðar. Ég flokkaði kennispjöld fram að kaffi og var á móttökuendanum á framleiðsluvélinni til hádegis. Eftir hádegi tók ég við bókhaldskeflinu því sú sem var á þeirri vakt er búin með sína vinnuviku á hádegi á fimmtudögum. Ég þáði far heim úr vinnunni. Skrapp í fiskbúðina um hálfsex á leiðinni í sund. Synti kílómeter á þremur korterum, sat í kalda pottinum í fimm mínútur og gufunni í tíu mínútur.
17.2.22
40, 50 og 30
Skondið hvernig maður vaknar stundum. Í gærmorgun var mig að dreyma eitthvað, þurfti að hagræða mér og rumskaði aðeins. Varð litið á útvarpsklukkuna og þótt enn væri korter þar til vekjaraklukkan átti að ýta við mér þá glaðvaknaði ég um leið. Dreif mig á fætur og hafði því nokkuð góða stund til að vafra aðeins um á netinu sem og setja inn færslu hér áður en ég labbaði í vinnuna. Göngufærið var svona la, la, sums staðar en ég var fjörutíu mínútur á leiðinni líkt og aðra morgna. Var á ítroðsluendanum fram að kaffi. Eftir kaffi fór ég með 14 flokkaða kennispjaldakassa inn í geymslu og sótti 15 óflokkaða kassa í staðinn. Flokkaði svo kennispjöld í um klukkustund. Eftir hádegi fór ég á móttökuendann á vélinni. Við vorum að vonast eftir því að ná að klára endurnýjunina sem ég hlóð inn seinni partinn í fyrradag því þetta eru kort eiga að taka við af kortum sem renna út um mánaðamótin og það er frekar stutt í mánaðamót. Prentarinn fór hins vegar að láta öllum illum látum um hálfþrjú leytið og hálftíma síðar þegar búið var að eyðileggja helling af formum ákváðum við að skilja eftir um sjöhundruð óframleidd kort af tvöþúsundogfimmhundruð. Labbaði sömu leið heim og í fyrradag og var fimmtíu mínútur á leiðinni. Það tók mig svo meira en einn og hálfan tíma að hafa mig af stað aftur. Var smá stund að sópa og skafa af bílnum en það var ekkert mál að bakka honum út úr stæðinu þrátt fyrir að hafa verið þar síðan á sunnudaginn. Ætlaði að koma við í fiskbúðinni hjá Fúsa en þar var ekkert stæði fyrir framan svo ég dreif mig í sund. Hitti kalda potts vinkonu mína og systur hennar í klefanum. Þær voru á leiðinni upp úr. Byrjaði á því að fara í kalda pottinn í uþb fimm mínútur. Tíu mínútur yfir sex byrjaði ég að synda og hálftíma seinna og 700 metrum síðar hætti ég og fór upp úr. Kom aðeins við í Hagkaup í Skeifunni á leiðinni heim. Fékk ekki sama stæðið en samt stæði fyrir framan hús.
16.2.22
Tíminn flýgur
Göngufærið var mun betra í gærmorgun. Búið var að moka stíginn sem þverar Klambratúnið. Var engu að síður 40 mínútur að labba í vinnuna og samt mætt fyrst. Ég var ekki skráð á vélina fyrr en eftir kaffi en sú sem átti að vera á móttökuendanum var að láta sinna tanneftirliti svo ég leysti hana af. Hún tók þá mína stöðu eftir kaffi en þá var ég í pakkningum. Allri framleiðslu var lokið upp úr klukkan hálftólf. Þá þurfti bara að bíða eftir að hluti af síðustu dk-endurnýjun yrði keyrður aftur yfir á vél. Kerfisfræðingurinn sem var í þeim málum var að skoða málið en fjarstýrði mér svo á endanum. Það var samt ekki fyrr en klukkan var langt gengin í fjögur og allar hinar voru farnar heim. En keyrslan gekk og það var mjög gott því þessi kerfisfræðingur er að fara í hálfsmánaða frí. Ég labbaði sömu leið heim og á föstudaginn var, m.a. gegnum Hljómskálagarðinn. Var tæpar 50 mínútur á leiðinni. Kom heim um fimm og ákvað að halda mig heima það sem eftir lifði dags og kvölds.
15.2.22
Þriðjudagur
Göngufærið í vinnuna í gærmorgun var örugglega skárra heldur en færið fyrir bílana sums staðar. Ég lagði samt ekki í að þvera Klambratúnið því það var ekki búið að moka stíginn þar nýlega. Fór þess í stað meðfram Klambratúninu, Eiríksgötu, Skólavörðustíg og Ingólfsstræti. Var ekkert lengur á leiðinni, bara á venjulegum vetrarfæristíma, 40 mínútur. Ég var fyrst í vinnuna. Var í bókhaldinu og byrjaði á því að prenta út fyrstu tölur. Sú sem býr í Mosfellsbænum mætti síðust, um tíu, en við hinar vorum komnar fyrir átta. Fengum aukaverkefni á borð til okkar, rúmlega fimmtánhundurð kort, sem við kláruðum að framleiða um tvö. Framleiðsla hófst milli daglegu verkefna tvö og þrjú og svo skiptum við okkur í mat þannig að framleiðsla var í gangi frá tíu til tvö. Ég þáði far heim úr vinnunni og fór ekkert aftur út.
14.2.22
Inn í vinnuvikuna
Ég var byrjuð að synda um hálftíu í gærmorgun og synti í 40 mínútur. Hitti kalda potts vinkonu mína i minni fyrstu ferð í kalda pottinu og það reyndist hennar fyrsta líka. Hún var komin á undan og fór á undan en kom við í gufunni þannig að við vorum báðar að fara í heitasta pottinn á sama tíma. Hittum eina systur hennar á svæðinu og eftir ferð tvö í kalda vorum við dágóða stund í sjópottinum með systurinni. Fór aðeins eina ferð í viðbót í kalda pottinn og endaði svo á góðu gufubaði áður en ég fór upp úr og heim. Dagurinn leið jafn fljótt og allir aðrir, við lestur, prjónaskap, netvafr, fótbolta- og þáttagláp.
13.2.22
Sunnudagur
Var komin á fætur um hálfníu en fór ekki í sund fyrr en um tíu leytið. Synti í 55 mínútur. Fyrstu 100 metrana á bakinu og svo aðra hverja ferð á bringunni. 2x5 mínútur í kalda pottinum, einu sinni í þann heitasta og góða stund í gufunni áður en ég fór upp úr og heim aftur. Hellti mér fljótlega upp á kaffi. Hringdi í pabba, föðursystur mína og Ellu vinkonu. Sú síðast nefnda svaraði ekki símanum en hringdi til baka skömmu síðar. Er að lesa aðra af þeim bókum sem ég skildi eftir hér heima þegar ég fór síðast á safnið; Glerstofan eftir Ann Cleeves um Veru Stanhope. Hin bókin sem ég á eftir að lesa er Bláköld lygi eftir Quentin Bates. Og skammtímaláns bókin sem skila þarf um svipað leyti er Þegar fennir í sporin eftir Steindór Ívarsson.
12.2.22
Bjart og stillt
Labbaði í vinnuna í gærmorgun og var fyrst á svæðið. Fram að kaffi var ég á móttökuendanum og fram að hádegi í pökkun og talningum. Öllum verkefnum var lokið upp úr hádegi nema um tvö hafði annar kerfisfræðingurinn samband við mig. Bað mig um að undirbúa ákveðnar breytingar í sérstöku verkfæri sem við höfum aðeins tvær aðgang að. Hinar þrjár fóru heim í helgina en ég og hinn kerfisfræðingurinn, sem var á svæðinu vorum áfram þar til þessu verkefni var lokið. Sá kerfisfræðingur sem var að fjarstýra mér gerði það í gegnum TEAMS. Var búin með minn part upp úr klukkan hálfþrjú og mátti fara heim fljótlega eftir það. Rifjaði upp gönguleiðina í gegnum Hljómskálagarðinn og var aðeins rétt túmum fimm mínútum lengur á leiðinni heim heldur en í vinnu. Forritið í símanum sagði að ég hefði gengið um 300 metrum lengra heldur en um morguninn. Skref gærdagsins fóru yfir tólf þúsund.
11.2.22
Helgin handan við vinnudaginn
Labbaði í vinnuna fjórða daginn í röð. Tók m.a. með mér bók af safninu. Átti 100 bls. ólesnar, skiladagur runninn upp og ég gat ekki endurnýjað útlánið. Fram að kaffi flokkaði ég kennispjöld. Var aftur á ítroðsluendanum eftir kaffi. Dagleg framleiðsluverkefni kláruðust upp úr klukkan hálftólf. Las í smá stund í hádeginu. Engin verkefni bárust eftir hádegi, bara hægt að flokka kennispjöld. Hættum vinnu um tvö leytið. Þáði far heim úr vinnunni. Heima settist ég strax niður og kláraði að lesa bókina. Fór með þrjár bækur til að skila á safnið um fjögur. Þær voru allar komnar á tíma og ég var búin að lesa þær. Skildi tvær bækur eftir heima. Á eftir að lesa þær og þeim þarf ekki að skila fyrr en eftir hálfan mánuð. Mun líka geta framlengt skilafrestinum. Það kom nefnilega í ljós að bókasafnsskírteinið var útrunnið. Endurnýjaði það og tók þrjár bækur af safninu. Ein af þeim er með 14 daga skilafresti. Af safninu fór ég beinustu leið í sund. Synti í 30 mínútur. Hitti kalda potts vinkonu mína í kalda pottinum. Hún var í sinni næst síðustu ferð. Ég fór þá síðustu með henni og svo í gufuna. Eftir gufuna fór ég í kalda sturtu og sat svo í sjópottinum í rúmar tíu mínútur áður en ég fór upp úr og heim.
10.2.22
Meiri hreyfing
Labbaði í vinnuna þriðja daginn í röð. Færið var betra en gott að vera á mannbroddunum. Fram að kaffi flokkaði ég kennispjöld og taldi svo með þeirri sem var í bókhaldinu þegar fyrstu tölur voru tilbúnar. Fram að hádegi var ég á ítroðsluendanum á vélinni og okkur tókst að ljúka við daglega framleiðslu fyrir klukkan tólf. Í hádeginu skruppum við á kaffihúsið í hótelinu við hliðina á Hörpu. Vissum af verkefni sem kæmi klukkan tvö. Það tók fimmtán mínútur að afgreiða það og svo gátum við farið. Ég labbaði heim yfir Skólavörðuholtið. Klukkan var orðin hálffimm þegar ég dreif mig loks í sund. Synti í 30 mínútur, fór einu sinni 5 mínútur í kalda pottinn og sat svo rúmar tíu mínútur í gufunni áður en ég fór upp úr og heim aftur.
9.2.22
Hreyfing
Var vöknuð tuttugu mínútum á undan klukkunni í gærmorgun. Hafði því góðan tíma til að vafra aðeins um á netinu áður en ég labbaði í vinnuna. Mætti fyrst af fjórum á vinnustað, ein var í fríi. Fljótlega kom önnur en hún fékk skilaboð frá hinum tveimur að þær yrðu seinar fyrir vegna færðar og hægrar umferðar. Ég var í bókhaldinu en korter yfir átta lagði ég til að ég myndi telja í framleiðslutegundir fyrstu tveggja tegundanna og taka á móti á meðan hin myndi hlaða inn verkefnum og setja þau af stað þar til mannskapurinn mætti. Þær voru komnar um hálfníu. Öllum daglegum verkefnum var lokið um eitt leytið. Ákváðum að hafa þetta stuttan dag en biðum þó fram yfir tvö með að stinga af úr vinnunni. Ég labbaði heim aftur. Þar staldraði ég við í uþb hálftíma áður en ég tók til sunddótið og sópaði af bílnum. Kom fyrst við í Fiskbúð Fúsa og keypti ýsu í soðið. Var byrjuð að synda rétt rúmlega fjögur og synti í hálftíma. Fór svo beinustu leið í kalda pottinn og var búin að sitja þar þegar kalda potts vinkona mín kom úr heitasta pottinum í sína þriðju ferð í kalda. Fórum þrjár aðrar ferðir í kalda pottinn og enduðum svo á góðu gufubaði. Klukkan var um sex þegar ég skilaði mér aftur heim.
8.2.22
Hríðarveður
Var komin á fætur um átta í gærmorgun. Tók því rólega til að byrja með, vafraði um á netinu og setti inn færslu. Rúmlega tíu labbaði ég af stað í vinnuna. Var í "frammiverkum" til að byrja með og hjálpaði til við talningar. Eftir hádegi fór ég á móttökuendann á vélinni. Kláruðum daglega framleiðslu um þrjú. Hættum vinnu tæpum klukkutíma seinna. Ég þáði far heim úr vinnunni og fór svo ekkert út aftur. Davíð Steinn tók að sér að elda kvöldmatinn og Oddur Smári að ganga frá eftir hann.
7.2.22
Veðurofsi
Ég var komin á fætur fyrir klukkan átta í gærmorgun. Tæpum einum og hálfum tíma síðar skutlaði ég N1 syninum í vinnuna og fór svo beint í sund. Braut 5 var laus og ég synti 550 metra á bakinu áður en ég fékk félagsskap á brautinni. Skipti þá yfir í bringusund og synti 450 metra í viðbót. Var uþb 50 mínútur að þessu svo ekki syndi ég nú mjög hratt. Næst lá leiðin í kalda pottinn og eftir fimm mínútur þar fór ég í sjópottinn þar sem ég hitti fyrir yngstu mágkonu mömmu heitinnar. Hún var eiginlega á leiðinni að fara að synda en staldraði við í tíu mínútur til að spjalla. Fór aðrar fimm mínútur í kalda áður en ég fór í gufuna. Var búin að sitja nokkrar mínútur í gufunni þegar kaldapotts vinkona mín mætti. Fór því í sturtu eftir gufubaðið og eina ferð í kalda pottinn með vinkonunni, 3 mínútur, áður en ég fór upp úr og þvoði mér um hárið. Var komin heim um tólf. Hlustaði á hádegisfréttir og hellt mér svo upp á kaffi. Um hálffjögur hringdi fyrirliðinn í mig og spurði hvort ég gæti hitt hana og aðra til í vinnunni í smá stund. Ég var til í það og sú þriðja kippti mér með. Vorum mættar á svæðið um fjögur og á klukkutíma lukum við að framleiða og telja það sem við framleiðum yfirleitt fyrst á morgnana. Settum bankatöskur og töskuna með framleiðsluverkefninu í læstan skáp í afgreiðslunni og svo var mér skutlað aftur heim með þeim fyrirmælum að mæting í vinnu á mánudagsmorgni væri klukkan ellefu.
6.2.22
Sunnudagur
Ég var vöknuð um hálfsjö í gærmorgun. Notaði næsta rúma hálftímann í að vafra um á netinu sem og setja inn færslu á þessum vettvangi. N1 sonurinn var tilbúinn korter yfir sjö. Skutlaði honum upp á N1 við Gagnveg í Grafarvogi og þáði kaffibolla út í bíl í staðinn. Var komin á planið við Laugardalslaugina tíu mínútum fyrir átta. Lauk við að drekka kaffið og gaf mér líka tíma til að hlusta á morgunfréttirnar klukkan átta áður en ég fór að synda. Byrjaði á því að synda í hálftíma, 700 metra. Settist svo í kalda pottinn í fimm mínútur, sjópottinn í fimmtán mínútur, kaldapottinn aftur í fimm og endaði á tíu mínútna gufubaði. Eftir þessa dásamlegu rútínu fór ég heim. Hellti fljótlega upp á kaffi og fékk mér hressingu. Vafraði meira um á netinu. Kveikti á sjónvarpinu um hálftólf. Setti upp og sauð sjö egg. Oddur Smári kom loksins fram um hálftvö. Skömmu síðar skruppum við mæðgin í Krónuna við Fiskislóð til að versla. Sú verð tók tæpa klukkustund.
5.2.22
Á skutlvaktinni
Áður en ég féllst á að skrá mig í lífshlaupið hafði ég ætlað mér að fara á einkabílnum í vinnuna síðasta vinnudag vikunnar. Þegar maður er á samgöngusamning má maður nota bílinn einu sinni til tvisvar í viku og þegar ég fór á bílnum til vinnu á mánudagsmorguninn var enn janúar og samningurinn ekki kominn í gildi aftur. Ég ákvað að labba í vinnuna í gærmorgun. Ekkert sérstakt var á dagskrá eftir vinnu og veðrið alveg þokkalegt þrátt fyrir smá ferð á logninu og nokkuð frost. Var á móttökuendanum á vélinni fram að kaffi og í pökkun, talningum og flokkun kennispjalda eftir kaffi. Öllum daglegum verkefnum var lokið fljótlega eftir hádegi og ekki komið leyfi til að klára dk-endurnýjunina svo við ákváðum að hætta vinnu um tvö. Ég labbaði heim yfir Skólavörðuholtið en fór ekkert út aftur eftir að heim kom. Hringdi í pabba og spjallaði um stund við hann, vafraði um á netinu og horfði á nokkra þætti.
4.2.22
LÍFSHLAUPIÐ
Labbaði sömu leið í vinnuna í gærmorgun og á miðvikudaginn. Var á gönguskónum með broddana undir. Tók samt stutt skref á köflum og var um tíu mínútum lengur á leiðinni heldur en að sumri til. Fram að kaffi flokkaði ég kennispjöld og aðstoðaði við talningu eftir fyrstu framleiðslu dagsins. Eftir kaffi var ég á móttökuendanum á vélinni. Við fórum ekki í mat fyrr en um eitt en þá vorum við líka búnar með endurnýjunina sem fór svo með hádegissframleiðslunni. Ég var svo vinsamlegast beðin um að skrá mig inn á lífshlaupið og sækja um að vera í hópnum korta sem er einn af hópunum í RB. Ég var í lífshlaupinu fyrir nokkrum árum og átti að eiga aðgang. Gat samt ekki munað lykilorðið og þau netföng sem ég gaf upp til að fá nýtt voru ekki samþykkt. Stofnaði því nýjan aðgang. Vorum tvær eftir í vinnu um hálfþrjú og hættum fljótlega sjálfar eftir það. Labbaði heim yfir Skólavörðuholtið. Einkabílstjórinn var í Sorpu- og stússferð. Hann kom heim milli fjögur og hálffim. Ég skrapp fljótlega í sund. Fór 2x5 mínútur í kalda, synti 500 metra og endaði á tíu mínútna gufubaði. Bauð svo strákunum með mér á Pítuna. Ég fékk mér fisk í orly og hvítvínsglas með.
3.2.22
Yfir áttaþúsund skref í gær
Fór í fyrsta skipti í gönguskóna í vetur og setti þar að auki undir þá mannbrodda áður en ég labbaði í vinnuna í gærmorgun. Var mætt fyrst, rúmlega hálfátta, og vatt mér beint í bókhaldsvinnuna. Fyrir utan bókhald og talningar í gær flokkaði ég kennispjöld úr rúmum tveimur kössum. Eitthvað á þriðja þúsund spjöld. Erum komnar að árinu 2006 og íslandsbanki kominn með glitnis-stimpilinn. Vorum í vinnu til klukkan að verða fjögur. Lokið var við að framleiða eina endurnýjun. Eigum þá síðustu frá því í síðasta mánuði eftir ef frá er talið það sem enn bíður úr debetendurnýjun vegna breytinga. Fékk far heim úr vinnunni. N1 sonurinn kom heim eitthvað á eftir mér, hafði þurft að taka að sér smá aukavinnu upp á Gagnvegi en hann átti að vera í vaktafríi því næsta vakt er frá föstudegi til sunnudags.
2.2.22
Mið vika
Labbaði í vinnuna í gærmorgun, stutt, stutt, skref fyrri partinn af leiðinni þannig að ég var komin með yfir fjögurþúsund skref þegar ég mætti. Fram að kaffi var ég á ítroðsluendanum á vélinni. Eftir kaffi flokkaði ég kennispjöld en leysti líka eina af um stund á framleiðsluvélinni. Hún var á sama enda og ég fyrr um morguninn. Dagleg verkefni þrjú af fjórum var lokið og verið var að vinna í endurnýjun. Ég var hins vegar búin að hlaða inn fjórða verkefni dagsins og skrá inn skiptingarnar. Eftir hádegi átti ég að fara á móttökuendann á vélinni. Kerfisfræðingarnir tveir voru á staðnum að gera einhverjar tilraunir og fyrirliðinn ákvað að leyfa þeim að hafa vélina. Við gengum frá og hættum vinnu um tvö. Ég fékk far heim.
1.2.22
Einn tólfti liðinn af nýja árinu
Vaknaði upp úr klukkan sex. Eftir morgunverkin á baðherberginu settist ég niður í stofu með fartölvuna í fanginu í nokkra stund. Tíu mínútum yfir sjö fór ég út í bíl með sunddótið, bakpoka og veski. Hélt ég yrði góða stund að sópa og skafa bílinn en var mun fljótari að því og mætti í vinnuna á svipuðum tíma og venjulega um hálfátta. Vinnudagurinn leið ágætlega hratt. Fram að kaffi flokkaði ég kennispjöld. Var á ítroðsluendanum á vélinni fram að hádegi og fór aftur í kennispjöldin eftir hádegi. Fór með 14 flokkaða kassa inn í geymslu og sótti 15 óflökkaða í staðinn. Erum komin til ársins 2006 með flokkunina. Eigum eftir að flokka rúm 12 ár enn þar til við náum að þeim tíma sem við hættum að flokka eingöngu eftir kennitölu og dagsetningum heldur eftir bönkum líka. Hættum vinnu um hálffjögur. Ég fór beint í sund. Byrjaði á 6 mínútum í kalda pottinum, synti svo 500 metra. Þar af helminginn á bakinu. Fór aftur í kalda í 4 mínútur og endaði svo í sjópottinum. Þar hitti ég fyrir eina sem hélt að hún væri að ruglast á dögum því venjulega fer ég í sjóinn á mánudögum. Ég þurfti hins vegar að þvo á mér hárið og það vil ég ekki gera eftir sjósundsferð. Kom við í Fiskbúð Fúsa á leiðinni heim og keypti ýsu í soðið og harðfisk. Ég var ein um fiskinn. N1 sonurinn var á vakt og hinn var búinn að "redda" sér annars konar máltíð.
31.1.22
Mánuðurinn að klárast
Fór á fætur á um hálfníu leytið í gærmorgun. Dagurinn æxlaðist þannig að ég hélt mig heima við. Vafraði um á netinu, prjónaði, horfði á þætti og spennandi handboltaleiki. Setti reyndar líka í eina þvottavél og hengdi upp þvottinn þegar vélin hafði lokið sér af. Hafði hakk og spakk í kvöldmatinn.
30.1.22
Færsla 3140 á rúmum nítján árum
Ég var komin á fætur einhvern tímann á áttundan tímanum í gærmorgun. Settist fljótlega niður í stofu með fartölvuna í fanginu. Davíð Steinn kom fram rúmum tveimur tímum seinna. Hann var að fara eitthvað með tveimur vinum sínum. Oddur kom fram um hádegið og ég spurði hvort hann vildi skreppa með mér í dagsferð til afa síns. Hann var alveg til í það og eftir að hann var búinn að fara í sturtu og fá sér eitthvað lögðum við í hann. Einkabílstjórinn sat undir stýri. Komum austur upp úr klukkan tvö. Bílskúrinn hans pabba var galopinn og tómur. Bíllinn hennar Bríetar var í stæði fyrir framan hús. Húsið ólæst en enginn heima. Það var stafli með pönnukökum á diski undir tertuloki. Pabbi kom skömmu síðar. Hafði skroppið í búðina eftir rjóma. Hálftíma síðar komu Bríet og Reynir frændi en sá síðar nefndi hafði farið með frænku minni til að stilla riffilinn hennar. Pabbi var búinn að hella upp á könnuna og hann bauð öllum í rjómapönnukökuveislu. Eftir kaffi og eftir að frændi minn var farinn spurði pabbi hvort hann mætti biðja mig um að elda fisk í kvöldmatinn. Ég tók vel í það og pabbi tók þá poka af löngu út úr frysti. Næstu tvo tíma var ég að leggja kapla, prjóna, spjalla og vafra aðeins á netinu. Kvöldmaturinn var tilbúinn stuttu fyrir klukkan sjö og þótti mjög góður. Bríet spurði mig út í eldamennskuna og var hissa en mjög hrifin þegar ég sagðist hafa steikt löngubitana upp úr blöndu af byggflögum og hveiti krydduðu með best á lambið og smá cayanne. Horfi á fréttir áður en við Oddur kvöddum og drifum okkur heim. Davíð Steinn hafði komið heim um sjö eftir ferðalag austur til Víkur með sínum vinum. Við Oddur komum um níu.
29.1.22
Á bílnum
Vaknaði rétt rúmlega sex í gærmorgun. Eftir morgunverkin á baðherberginu settist ég niður í stofusófa með fartölvuna í fanginu. Vafraði aðeins um á netinu, setti inn færslu og tók nokkra leiki. Var lengur að dunda mér en flesta aðra virka daga því ég fór svo á bílnum í vinnuna. Þangað var ég mætt um hálfátta. Ég sá um ítroðsluendann fram að kaffi og eftir kaffi færði ég mig á móttökuendann. Fórum í hádegispásu rétt fyrir klukkan eitt. Eftir hádegi taldi ég með þeirri sem var í bókhaldinu innihald úr síðasta vagni dagsins en hinar tvær byrjuðu aðeins á endurnýjun. Ég fékk að hætta rétt fyrir hálfþrjú og brunaði heim. Heyrði lýsingu á fyrstu mínútum leiksins um fimmta sæti rétt áður en ég kom heim. Oddur Smári sat inni í stofu þegar ég kom inn en hann var ekki búinn að kveikja á sjónvarpinu. Þrátt fyrir hvað strákarnir okkar væru grátlega nærri því að landa 5. sætinu á EM er ekki hægt annað en að hrósa þeim og landsliðsþjálfaranum fyrir magnaða frammistöðu sl. tvær vikur þrátt fyrir alls konar áföll. Við virðumst vera komin með mjög gott lið og mikla breidd. Fyrri undanúrslitaleikurinn byrjaði korter seinna en áætlað var vegna framlengingar í leiknum um fimmta sætið. Danir urðu að játa sig sigraða á móti sterku liði Spánverja og keppa því um þriðja sætið við Frakka sem töpuðu á móti Svíum. Eftir maraþon EM-leikaáhorf horfði ég á vikuna á sarpinum og einn þátt með MacGyver áður en ég fór inn í rúm að lesa.
28.1.22
Áttaþúsund skref
Það þarf víst að kaupa eitthvað hjá strætó til að geta virkja klapp-appið í símanum. Ég var svo svekkt yfir að geta ekki keypt strætókort þegar ég fór í upplýsingamiðstöðina í Kringlunni að ég spurði ekki nánar út í þetta. Strangt til tekið er ég svo sem ekki á samgöngusamning þennan mánuðinn. Hann rann út um áramótin og ég mundi ekki eftir að sækja um aftur fyrr en á nýju ári og sá samningur gildir frá 1. febrúar næst komandi. En ég átti klink í strætó. Farið kostar 490 kr. Ég fór úr vagninum við Bíó Paradís og labbaði þaðan í bakaríið við Skúlagötu sem var akkúrat að opna þegar ég kom þar að. Keypti gróft súrdeigsbrauð sem ég fékk niðursneitt og eina vínarbrauðslengju. Ég var samt fyrst í vinnuna og var byrjuð að sinna bókhaldsverkefnum áður en næstu tvær mættu. Sú fjórða svaf yfir sig og mætti upp úr klukkan átta og sú fimmta var búin að láta vita að hún yrði sein fyrir þar sem hún þurfti að byrja daginn á því að fara í blóðprufu. Vinnuverkefnin gengu vel fyrir sig. Um tólf mættu tveir viðgerðarmenn til að þjónusta vélina og þegar ég var búin að telja síðustu framleiðslu og ganga frá mátti ég fara heim. Klukkan var um hálfeitt þegar ég labbaði af stað yfir Skólavörðuholtið. Oddur var mjög hissa þegar ég birtist snemma annan daginn í röð. Hann fór fljótlega í sorpuferð. Fékk hornstæðið aftur þegar hann kom til baka svo ég notaði það sem afsökun fyrir að fara ekkert út aftur. Hornstæðið er uppáhalds.
27.1.22
Smá svekkjandi
Ég fór á bílnum í vinnuna í gærmorgun. Fram að kaffi undirbjó ég pökkun og flokkaði kennispjöld. Skiptum okkur í kaffi. Þær sem byrjuðu inni á vél lentu í smá veseni en höfðu þó af að klára fyrsta verkefni dagsins áður en þurfti að afhenda það frá okkur. Það gekk ekki eins vel þegar ég og sú sem vaktaði móttökuendann tókum við í næsta verkefni. Það endaði með því að hringja varð á viðgerðarmann. Gerðum þó nokkrar tilraunir sjálfar til að endurræsa, fara í stillingar og alls konar en allt kom fyrir ekki. Um tólf fékk ég leyfir til að taka mér hálfan dag og taka sem styttingu vinnuvikunnar einu sinni í mánuði. Við vorum tvær sem gerðum þetta og hættum tólf. Ég fór með bílinn í smurningu. Það tók aðeins stutta stund. Kom svo við á þjónustuborðinu í Kringlunni og ætlaði að fjárfesta í nýju þriggja mánaða strætókorti. En nú er það og farmiðasala hætt. Varð svo svekkt að ég hafði ekki hugsun á því að kaupa eitthvað til að fylla á "klapp-app". Á reyndar líka að geta sett upp strætóappið en ég hugsa að klappið sé jafnvel sniðugra. Ég fór heim og undirbjó mig undir handboltaáhorf. Strákarnir okkar stóðu við sitt og unnu sinn leik með tíu mörkum og voru í öðru sæti milliriðils eitt þar til hinir leikirnir voru búnir. Frakkar unnu Dani, sem voru búnir að tryggja sig í undanúrslit og hvíldu lykilleikmenn, og tóku efsta sætið í riðlinu. Frökkum hefði líka nægt jafntefli og hefðu þá orðið í öðru sæti. Strákarnir okkar munu því spila um fimmta sætið á mótinu við norsku strákana. En ég er óhemju stollt af strákunum okkar því þeir komust þetta langt þrátt fyrir að missa marga lykilmenn í einangrun.
26.1.22
Útrunnið strætókort
Vaknaði um sex. Ákvað að taka ekki bakpokann með mér í vinnuna. Stakk lykilkorti, strætókorti, vettlingum, grímu og súpubréfi í vasana á bleiku regnkápunni. Steingleymdi að hugsa fyrir húslyklunum og var búin að loka mig úti þegar ég fattaði það. Tók strætó frá Krambúð að Þjóleikhúsi og labbaði þaðan í vinnunna. Ein af okkur fimm hafði tekið sér frí framyfir hádegi til að passa barnabarn. Hún átti að vera á ítroðsluendanum á vélinni fram að kaffi. Ég tók það að mér og fór svo á móttökuendann eftir kaffi eins og ég var skráð. Sú sem var í fríi kom um hálftvö og ég þáði far með henni að Sundaborg, staðnum þangað sem stendur til að kortadeildin flytji á. Mættum þangað allar fimm rétt fyrir tvö og fengum góðar móttökur, leiðsögutúr um svæðið og kaffi og með því á eftir. Svo var ég keyrð heim á eftir. Ég var komin þangað um þrjú og þurfti að hringja í báða syni mína áður en mér var hleypt inn. Ákvað að vera löt og fara ekkert út aftur. Horfði bara á alla handboltaleikina, kvöldfréttirnar og tvo þætti úr safni sjónvarpi símans. Davíð Steinn sá um að elda kvöldmatinn.
25.1.22
Styttist í mánaðamót
Vaknaði um sex. Dreif mig á fætur og hafði svo góða stund til að vafra um á netinu og setja inn færslu. Var mætt í vinnu um hálfátta. Ákváðum að skipta okkur í kaffi og mat og fá svo að hætta í fyrra fallinu. Ég var á móttökuendanum á vélinni þar til við vorum leystar af í kaffi. Lukum við fyrsta daglega verkefnið og einnig þann hluta af dk endurnýjun sem mátti senda út þegar búið væri að framleiða. Vorum byrjaðar á næsta daglega verkefni þegar við vorum leystar af. Eftir kaffi flokkaði ég kennispjöld. Fórum aftur inn á vél um hálfeitt og þá fór ég á ítroðsluendann. Hættum vinnu um tvö og ég var komin heim um það leyti sem leikurinn við Króata var að byrja. Þetta var sveiflukenndur leikur sem endaði með grátlega eins marks tapi okkar stráka. En þeir stóðu sig samt vel og geta borið höfuðið hátt. Þessir pilta eiga eftir að ná langt á komandi árum og erum komnir lengra heldur en margir bjuggust við nú þegar. Eftir leikinn skrapp ég í Fiskbúð Fúsa og keypti nætursaltaða ýsu í soðið. Skilaði svo fjórum bókum af sjö á safnið og kom með tvær með mér heim í staðinn.
24.1.22
Ný vinnuvika
Var komin á fætur upp úr átta í gærmorgun. Vafraði um á netinu þar til kominn var tími til að skutla N1 syninum á vinnuvakt. Hleypti honum út við Gagnveg rúmlega hálftíu og fór svo beint í sund. Var að koma þangað á sama tíma og kaldapotts vinkona mín. Hún byrjaði á því að skreppa í gufuna en ég fór beinustu leið í 6,7°C kalda pottinn. Eftir nokkrar ferðir mætti systir hennar á svæðið. Við hittum á hana í sjópottinum. Eftir góða gufuferð fór ég í kalda sturtu og svo á braut 8. Eftir fyrri ferðina mætti ég öðrum skónum og hinn var lagður af stað yfir. Náði honum á miðri leið og kláraði "hringinn" með skóna á höndunum. Synti því aðeins 200 metra. Kom heim um hálftólf og byrjaði á því að hella upp á kaffi. Fór ekkert út aftur en prjónaði, vafraði um á netinu, horfði á fótbolta, handbolta, þætti og verbúðina.
23.1.22
Á skutlvaktinni
Var komin á fætur fyrir klukkan hálfsjö í gærmorgun. N1 sonurinn kom fram korter yfir sjö. Ég skutlaði honum upp á Gagnveg. Hann var kominn þangað um hálfátta. Fékk kaffibolla út í bíl í staðinn fyrir skutlið. Rúmum tíu mínútum fyrir átta var ég komin á planið við Laugardalslaug. Kláraði að drekka kaffið, hlustaði á átta fréttir og beið af mér haglhríð áður en ég fór í sund. Tuttugu mínútur yfir átta var ég komin í kalda pottinn, 6,8°C. Sat þar í fimm mínútur og fór svo í sjópottinn í tíu mínútur. Synti 500 metra á bakinu á braut tvö og var rúmlega tuttugu mínútur að því. Sat því næst aðrar fimm mínútur í kalda pottinum. Sleppti gufunni en fór aftur í sjópottinn áður en ég fór upp úr og þvoði mér um hárið. Næst lá leiðin í Krónuna við Fiskislóð. Klukkan var byrjuð að ganga tólf þegar ég kom heim með vörurnar. Hellti upp á kaffi og þegar hádegisfréttirnar byrjuðu var ég sest inn í stofu með prjónana mína. Horfði á part úr leik í enska boltanum en líka á megnið af leik Hollands og Svartfjallalands. Var búin að stilla á RÚV um hálffimm þegar EM-stofan fór í loftið. Næstu tveir tímar voru rafmagnaðir. Þvílíkur leikur og karakter í okkar mönnum. Þeir áttu sinn besta leik án átta lykilmanna á meðan frakkar áttu sinn versta leik í langan tíma. Mótherjarnir voru þó án aðal þjálfarans sem er, eins og svo margir aðrir, kominn í einangrun. Eftir kvöldfréttir í sjónvarpinu stillti ég yfir á RÚV2 og fylgdist með leik Dana og Króata.
22.1.22
Aftur komin helgi
Framleiðslan í gær gekk þokkalega. Gátum kallað eftir að sótt væru til okkar um sjöþúsund kort og sett í póst. Erum langt komnar með þann hluta af dk-endurnýjun mánaðarins sem var óvart klippt út og keyrð eins og þeim hluta væri lokið, þegar átti að keyra það sem var klippt út úr endurnýjun síðasta mánaðar. Já, það er ýmislegt sem gerist og getur komið upp á og svei mér þá ef maður er stöku sinnum að læra eitthvað nýtt í vinnunni þrátt fyrir að hafa verið þar í tuttuguogtvö ár. Ég var á móttökuendanum á vélinni fram að kaffi. Eftir kaffi var ég í pökkun og talningum og eftir hádegi fór ég á ítroðsluendann á vélinni. Ákváðum að hætta vinnu um hálfþrjú, hálfsmeikar um að annars myndum við lenda í því enn einn daginn að vélin yrði með vesen í restina og seinkaði vinnulokum fram yfir venjulegan "hættutíma". Kom heim um þrjú leytið og ákvað fljótlega að skrópa í sjóinn í annað sinn í vikunni.
21.1.22
Stolt af "strákunum okkar"
Vekjaraklukkan vakti mig í gærmorgun. Dreif mig á fætur og hafði alveg smá tíma til að vafra um á netinu og setja inn færslu hérna. Var mætt fyrst til vinnu. Fram að kaffi undirbjó ég pökkun og flokkaði kennispjöld. Um níu fengum við heimsókn frá tveimur konum úr Sundaborg. Einnig kom næstráðandi yfirmaður og öryggisstjóri RB. Önnur kvennanna mun verða næsti yfirmaður okkar þegar kortadeildin flytur til þeirra. Þær voru m.a. að skoða allt sem mun flytjast með okkur. Eftir kaffi hefði ég átt að fara inn á vél en ég þurfti að aðstoða annan kerfisstjórann í gegnum teams. Einilega var hann að hjálpa mér að keyra lok á ákeðnu verkefni. Að þeirri keyrslu lokinni gátum við sent rúmlega átjánhundruð kort í póst. Flokkaði svo kennispjöld fram að hádegi. Eftir hádegi fór ég á móttökuendann á framleiðsluvélinni. Við sem vorum að framleiða kláruðum sérverkefni og dembdum okkur svo beint í næstu endurnýjun. Upp úr klukkan þrjú fór prentarinn að vera með smá vesen sem varð til þess að við gátum ekki klárað og gengið frá fyrr en klukkan var um hálffimm. Þannig að enn einn daginn kom ég frekar seint heim. Og vegna þess að ég ætlaði rétt að setjast niður eftir að heim kom varð það til þess að ég fór ekkert út aftur og skrópaði enn einn daginn í sund.
20.1.22
Vaknað við vekjaraklukku
Í gærmorgun var ég komin á fætur rúmlega sex. Var mætt fyrst til vinnu um hálfátta. Sýslaði ýmislegt í skrifstofurýminu fram að kaffi, taldi m.a. með bókaranum eftir fyrstu framleiðslu dagsins. Eftir kaffi fór ég á framleiðsluvélina og leysti af þá sem var á ítroðsluendanum. Aeins ein skrá úr daglegaverkefni tvö var eftir en þá tók við sérverkefni. Framleiddum 750 kort af því verkefni áður en hádegisframleiðslan kom yfir. Eftir hádegi var ég á móttökuendanum á vélinni. Fórum langt með að ljúka við sérverkefnið en aðeins erum rúmlega 200 kort eftir í framleiðslu. Kerfisfræðingarnir voru á staðnum. Þegar ég var að ganga frá á skrifborðinu mínu sá ég nýtt verkefni, skráð á mig, sem unnið er með verkfæri sem aðeins ég og önnur höfum aðgang að. Ákvað að demba mér í það verkefni. Allt gekk vel þar til breytingaskrárnar áttu að fara yfir þá var allt fast. Kerfisfræðingarnir voru á endanum báðir komnir til mín að hjálpa og það endaði með því að þetta hafðist en þá var klukkan líka orðina fimm. Var komin heim um hálfsex og ákvað að skrópa í sund enn einn daginn.
19.1.22
Háspennu handboltaleikir
Var mætt fyrst á vinnustað og fór strax að sinna bókhaldinu. Ein af hinum sem átti að vera á vélinni fram að kaffi skipti við aðra svo ekki þyrfti að leysa hana af þegar hún þurfti að skreppa aðeins eftir hádegið. Vinnudagurinn leið hratt en var ekki búinn hjá mér fyrr en um fjögur því ég var aðeins að aðstoða kerfisfræðingana tvo sem voru að vinna að ýmsum verkefnum. Klukkan var því orðin hálffimm þegar ég kom heim og þar sem ég vildi ekki missa af einni einustu mínútur af landsleiknum milli Íslands og Ungverjalands og þar að auki fylgjast með hinum leiknum í sama riðli, fór ég ekkert út aftur. Þvílíkir leikir. Og allir íslensku þjálfararnir á mótinu komu sínum liðum upp úr riðlinum. Veislan heldur áfram.
18.1.22
Líður á fyrsta mánuðinn
Ég vaknaði um sex í gærmorgun, rúmum tuttugu mínútum áður en vekjaraklukkan átti að stugga við mér. Eftir morgunverkin á baðherberginu settist í niður í stofu með fartölvuna í fanginu. N1 sonurinn kom fram um hálfsjö og kvaddi tæpu korteri síðar. Ég var mætt í mína vinnu um hálfátta. Var á ítroðsluendanum á framleiðsluvélinni fram að kaffi. Eftir kaffi flokkaði ég kennispjöld og eftir hádegi var ég á móttökuendanum á vélinni. Kom heim rétt rúmlega fjögur. Dagurinn leið jafn hratt og flestir aðrir dagar. Er langt komin með tuskuna sem ég fitjaði upp á sl. föstudag og einnig að lesa þriðju bókina af sjö af safninu. Er enn að spara jólabækurnar.
17.1.22
Ný vinnuvika framundan
Var komin á fætur um hálfátta í gærmorgun og í sund rétt rúmum tveimur tímum síðar. Synti 400m á bakinu á braut 2, fór 2x uþb 6 mínútur í 6,9°C kalda pottinn, einu sinni í heitasta og endaði í gufunni áður en ég fór upp úr og þvoði mér um hárið. Kom heim um hálftólf. Skellti handklæðum í þvottavélina. Hellti upp á kaffi og settist svo fyrir framan sjónvarpið með prjónana mína. Horfði á einn þátt, hlustaði á hádegisfréttir og horfði svo á annan þátt þar til leikur Liverpool og Brentford hófst. Seinni part dags hringdi ég í pabba sem var að ljúka við pönnukökubakstur. Davíð Steinn tók að sér að elda kvöldmatinn því ég sat spennt yfir handboltanum, fyrst hinn leikinn í riðlinum; Ungverjaland-Porúgal og svo leik okkar manna á móti Hollandi. Strax eftir leik og EM-stofu var 4. þáttur af verbúðinni sem ég horfði á með textavarpinu. Fór inn í rúm upp úr klukkan tíu og las um stund áður en ég fór að sofa.
16.1.22
Morgunstund
Ég leyfði mér að kúra til klukkan að verða tíu í gærmorgun. Það varð til þess að ég ákvað að skrópa í sund enn einn daginn. Vafraði um á netinu, prjónaði og horfði á fótbolta. En um hálfþrjú skrapp ég í ágætis göngutúr; Lönguhlíð (frá Drápuhlíð), Hamrahlíð, Kringlumýrarbraut, Miklabraut, Reykjahlíð og Drápuhlíð. Þetta voru 2,7 km á 33 mínútum og hátt í fjögurþúsund skref. Lánaði bræðrunum bílinn seinni partinn en ég tók því rólega, vafraði um á netinu, kláraði að lesa bók af safninu, horfði á þætti og fótbolta. Var semsagt bara mjög slök í gær.
15.1.22
Fimmtándi
Var mætt fyrst af okkur fjórum til vinnu um hálfátta í gærmorgun, ekki löngu á undan hinum þó. Sá um móttökuendann á framleiðsluvélinni fram að kaffi. Var í pökkun og talningum fram að hádegi og eftir hádegi var ég á ítroðsluendanum að vinna í með annarri í sérverkefni. Hættum vinnu um þrjú og var ég komin heim hálffjögur. Heyrði aðeins í pabba mínum og vafraði um stund á netinu. Skrapp í sjóinn rétt fyrir fimm. Hann var 0,9°C, það var flóð og smá öldugangur. Svamlaði um í tíu mínútur og sat svo örugglega tæpra tuttugu mínútur í heita pottinum áður en ég fór upp úr og heim aftur. Lauk við að prjóna eina tusku og fitjaði strax upp á annarri og prjónaði amk þrjátíu umferðir á meðan ég var einnig að fylgjast með landsleiknum. Strákarnir áttu mjög góðan leik og eftir fyrstu mínúturnar og þrumugóðan fyrri hálfleik var ég alveg handviss um að þessi leikur myndi vinnast.
14.1.22
Föstudagur
Vaknaði um sex í gærmorgun. N1 sonurinn kom fram á eftir mér en fór út á undan mér. Ég var mætt fyrst á minn vinnustað. Fram að kaffi flokkaði ég kennispjöld og taldi með bókaranum eftir fyrstu framleiðslu dagsins. Skitpum okkur ekki upp í kaffi því á fimmtudagsmorgun er sameiginlegur kaffitími þar sem sú sem er í bókhaldinu þann daginn sér um að koma með brauð og bakkelsi. Sú sem var í því hlutverki í gær kom við í bakaríisbílalúgu á leið í vinnuna um morguninn. Eftir kaffi var ég á móttökuendanum á vélinni. Við lukum við framleiðslu dk-dagsins og kláruðum svo einnig það sem eftir var af dk endurnýjun. Reyndar þarf að framleiða hluta af þeirri endurnnýjun aftur en ekki þann part sem við vorum að klára. Korter fyrir tólf var stuttur zoom-fundur með næstráðandi yfirmanni þar sem hún sagði okkur að það væri ákveðið að kortadeildin myndi flytja á árinu og þegar við værum komnar þangað fengjum við nýjan næstráðandi yfirmann. Vinnudegi lauk ekki fyrr en um fimm vegna smá máls sem kom uppá. Ég nennti því ómögulega út aftur eftir að ég kom heim og skrópaði í sund annan daginn í röð.
13.1.22
Í vinnu á ný
Var mætt fyrst á svæðið í gærmorgun. Búið var að setja pakka af heimaprófi á skrifborðið mitt. Ég var að framkvæma svoleiðis í fyrsta skipti. Þær tvær sem voru að vinna með mér í síðustu viku gerðu svona próf heima hjá sér. Reglan verður líklega sú að gera heimapróf á sunnudögum eða eftir helgar. Það eru amk nokkrir pakkar af prófi á vinnustaðnum. Allar reyndumst við neikvæðar. Fram að kaffi undirbjó ég pökkun á daglegum debetkortum og flokkaði kennispjöld. Ákváðum að skipta okkur í kaffi þannig að við sem vorum frammi í skrifstofurými fórum tvær í kaffi um hálftíu og leystum svo af á vélinni. Þá fóru hinar þrjár í kaffi. Ég var á ítroðsluendanum. Við kláruðum að framleiða daginn og fórum svo beint í síðustu en jafnframt stærstu dk-endurnýjunarskrána. Rúmlega tvöþúsundfimmhundruðogfjörutíu kort. Stærri parturinn af þessari skrá eru kort sem fara eiga í útibú. Búið var að setja þau á hold. Ég skipti upp skránni í nokkrar 250 korta skrár. Framleiddum tæp 500 fram að hádegisframleiðslu. Hefðu átt að geta framleitt fleiri en prentarinn fór að vera með alls konar hundakústir í seinni skránni. Þær sem við leystum af í kaffi fóru á undan í mat og leystu okkur svo af. Þær komust að því að betra var að handsetja kort og form í umslög þá gekk framleiðslan heldur skár. Þær luku við að framleiða það sem á að fara í póst og byrjuðu á útibúaframleiðslunni. Komust reyndar nokkuð langt með þá framleiðslu en það eru ennþá tæp þúsund óframleidd. Á framleiðsluvélinni bíður einnig nokkur stórt aukaverkefni. Komumst ekki í það fyrr en endurnýjun er lokið. Ég flokkaði alls tvo og hálfan kassa af kennispjöldum í gær sem eru líklega um tvöþúsundogáttahundruð spjöld. Hættum vinnu korter í fjögur og var ég komin heim tæpum hálftíma síðar. Gerðist löt og eitt af því fáa sem ég afrekaði eftir að heim kom var að klára að lesa skammtímalánsbókina. Einkabílstjórinn fékk leyfi til að sækja bróður sinn á vakt um átta í gærkvöldi. Annars hefði Davíð Steinn ekki verið kominn heim fyrr en rúmlega níu.
12.1.22
Saumaklúbbur
Ég var komin á fætur um átta og í sund um níu. Synti 400 metra, fór alls 3x5 mínútur í kalda pottinn, tvisvar í heitasta pottinn, einu sinni 15 mínútur í sjópottinn og var rúmar tíu mínútur í gufunni í lokin. Kom við í Fiskbúð Fúsa og keypti ýsu í soðið, kartöflupoka og harðfisk. Skilaði 4 bókum á safnið og fékk mér 7 í staðinn. Ein af þeim er með 14 daga skilafresti og er það nýjasta útkalls bókin Í auga fellibylsins. Kom heim um hálftólf og ákvað að setja strax upp kartöflur og sjóða upp á fiskinum. Hellti upp á könnuna í leiðinni. Átti smjör og afgang af hrásallati til að hafa með hádegismatnum. Strákarnir komu ekki á fætur fyrr en einhvern tímann upp úr hádegi en þeir höfðu hvorugur áhuga á því að fá sér af matnum svo afgangurinn endar annað hvort sem plokkfiskur eða nesti í vinnuna. Dagurinn leið svo við prjónaskap, þáttaáhorf og netvafr. Um það leyti sem ég ætlaði að hafa samband við tvíburahálfsystur mína sendi hún mér skilaboð og spurði hvort hún ætti ekki að kippa mér með í klúbbinn í kvöld. Ég þáði það með þökkum. Hún var fyrir utan korter fyrir átta og við vorum komnar á Grettisgötuna áður en klukkan sló átta. Það voru fagnaðarfundir og eins og venjulega leið kvöldið alltof hratt. Það sem virtist rétt vera tíu mínútur eða í mesta lagi hálftími varð allt í einu að þremur tímum. Ég var komin heim aftur upp úr klukkan ellefu og þá sá ég skilaboð frá fyrirliðanum og ósvarað símtal frá næstráðandi yfirmanni. Fréttirnar voru þær að við megum mæta aftur til vinnu í dag. Las fyrstu 80 bls. af skammtímalánsbókinni áður en ég fór að sofa. Reyndar er mikið um myndir svo líklega hafa varla verið meira en 50 bls. Er þá búin með tæplega helminginn. Planið er svo að lesa fleiri af þeim sjö bókum sem ég sótti á safnið í gær og skila þeim með skammtímalánsbókinni á safnið eftir hálfan mánuð.
11.1.22
Á leið í sund
Ég var komin á fætur um hálfátta í gærmorgun. Tók því frekar rólega eftir morgunverkin á baðherberginu. Var að "dunda" mér í tölvunni til klukkan að ganga tíu. Þá hellti ég upp á kaffi og fékk mér eitthvað meira heldur en sopa af þorskalýsi. Um ellefu fór ég í Nauthólsvík. Það var flóð, smá vindur og sjólinn1,5°C. Buslaði í sjónum í tæpt korter. Það voru ekki margir en þó vorum við eitthvað á annan tuginn. Fór beint heim aftur eftir sjóferðina og var komin passlega heim fyrir hádegisfréttir. Settist niður með prjónana og hlustaði á fréttir. Síðan "datt" ég í smá þáttaáhorf. Hringdi aðeins í pabba á fjórða tímanum og hellti mér svo aftur upp á kaffi. Strákarnir voru báðir heima í gær. Ég hafði hakkkássu í kvöldmatinn. Horfði á kvöldfréttir og fleiri þætti. Fór upp í rúm um hálfellefu og kláraði að lesa síðustu bókina af safninu.
10.1.22
Fyrsti virki ekkivinnudagur ársins
Ég var komin á fætur um átta í gærmorgun. Einum og hálfum tíma síðar hleypti ég N1 syninum út við Gagnveg og fór svo beinustu leið í sund. Kalda potts vinkona mín mætti á sama tíma en hún byrjaði á því að skreppa aðeins í gufu og hitti mig svo í kalda pottinum. Eftir fjórar kalda potts ferðir hittum við systur hennar í þeim heitasta og svo í sjópottinum eftir fimmtu ferðina. Ég sleppti því að synda og var komin heim aftur um hálftólf. Hellti ekki upp á kaffi fyrr en eftir hádegisfréttir. Dagurinn leið frekar hratt þrátt fyrir að ég væri ekki að gera neitt sérstakt. Fitjaði upp á nýrri tusku, horfði á nokkra MacGyver þætti, vafraði um á netinu svo eitthvað sé nefnt. Greip ekki í bók fyrr en ég fór í háttinn um hálfellefu. Á nú aðeins örfáa kafla eftir og innan við 50 bls. af síðustu lánsbókinni. Er örugglega búin að fá skilaboð um að skiladagur nálgist en hann er á morgun svo það er ekkert stress. Það er mjög líklegt að ég fari á safnið á morgun, skili 4 bókum og komi með einhverjar heim í staðinn. Þarf samt líka að fara að huga að því að lesa jólabækurnar.
9.1.22
Sunnudagur
Ég var vöknuð og komin á fætur um hálfsjö í gærmorgun. Eftir morgunverkin á baðherberginu settist ég niður í stofusófa með fartölvuna í fanginu. Vafraði um á netinu þar til N1 sonurinn var kominn á fætur og tími komin til að skutla honum í vinnu. Hleypti honum út við vinnustaðinn um hálfátta. Skömmu síðar færði hann mér kaffibolla og piparköku út í bíl. Ég var komin á planið við Laugardalslaugina tæpu kortieri áður en opnaði. Hlustaði svo á átta fréttir áður en ég fór í sundið. Byrjaði á tveimur ferðum í kalda pottinn og einni í þann heitasta. Kaldi potturinn góður, 6,6°C. Eftir seinni ferðina í hann fór ég á braut sex og synti í 25 mínútur, flestar ferðir á bakinu en þó 50m á bringunni því þá var einhver annar komin á brautina líka og ég vildi ekki eiga á hættu að þurfa að passa mig á að synda ekki í veg fyrir viðkomandi. Fór beint í kalda, svo í sjópottinn í korter, gufuna í tíu mínútur og sat úti í 3 mínútur áður en ég fór inn að þvo á mér hárið. Úr sundinu lá leiðin að Löðri við Fiskislóð þar sem ég keypti "ferð" í gegnum bílaþvottastöð. Skrapp svo í Krónuna áður en ég fór heim. Klukkan var byrjuð að ganga tólf þegar heim kom. Gekk frá vörunum og hellti mér fljótlega upp á kaffi. Dagurinn leið svo undra hratt við alls konar dútl.
8.1.22
Á skutlvaktinni
Ég var mætt á undan til vinnu í gærmorgun. Var í bókhaldsvinnu og á móttökuendanum á vélinni. Þegar fyrstu framleiðslu var lokið fékk ég hina til að undirbúa pökkun á meðan ég safnaði saman tölum. Svo töldum við báða skápana áður en við fórum í kaffi. Daglegri framleiðslu lauk um hálfeitt. Eftir hádegi framleiddum við svo tæplega sautjánhundruð kort af rúmlega 4000 úr síðustu endurnýjuninni. Hættum ekki vinnu fyrr en um fimm. Síðasta hálftímann vorum við að ganga frá og skilja eftir upplýsingar til handa þeim sem standa vaktina í næstu viku. Ég kom heim um hálfsex og fór ekkert út aftur. Aðeins eina ferð í þvottahúsið að setja handklæði í þvottavélina og taka upp það sem var á snúrunum frá öðrum syninum. Hinn sonurinn samþykkti svo að fara niður og hengja upp þegar þvottaprógramminu var lokið. Hringdi örstutt í pabba, Bríet og pabbi hennar voru akkúrat að mæta á svæðið svo ég vildi ekki trufla lengi.
7.1.22
Föstudagur
Var að losa svefn um það leyti sem vekjaraklukkan tilkynnti að kominn væri fótaferðatími í gærmorgun. Sem fyrr settist ég smástund niður í stofunni með fartölvuna í fanginu, eftir morgunverkin á baðherberginu. Mætti í vinnu um hálfátta og þá var sú sem kláraði reikningagerðina mætt að rannsaka smá mál sem hafði setið í henni. Sú þriðja mætti í vinnu rétt fyrir átta eftir viðkomu í bakaríinu. Þrátt fyrir að hún hafi verið í bókhaldinu í fyrradag bauð ég henni að taka það að sér aftur sem hún þáði. Var á móttökuendanum á framleiðsluvélinni. Sú sem var á hinum endanum fór heim um hádegi. Áður en við hinar tvær hættum vinnu ryksuguðum við vélina. Var komin heim um hálffjögur. Oddur sat í bílnum fyrir utan nýkominn úr sorpuferð. Ég fékk hann til að setja upp slátur, fylgjast með suðunni koma upp, að hún héldist þrátt fyrir lækkun á hellunni og bað hann einnig tvisvar um að stinga aðeins í keppina. Ég sá svo um að bæta kartöflunum út í rúmum tveimur tímum seinna. Vel var borðað af þessum kræsingum. Samt er nægur afgangur til að steikja.
6.1.22
Þrettándinn
Vekjaraklukkan ýtti við mér í gærmorgun. Samt hafði ég tíma til að setjast aðeins niður í stofu með fartölvuna í fanginu, vafra um á netinu og setja inn eina færslu. Var mætt fyrst til vinnu. Sá að listar voru búnir að skila sér en ákvað að það væri bókarans að prenta út. Ég var á ítroðsluendanum á vélinni og fyrir utan daglega framleiðslu kláruðum við eina endurnýjun. Til stóð að ryksuga vélina en annar kerfisfræðingurinn bað um að fá að gera smá tilraunir þegar við vorum hættar framleiðslu. Var komin heim korter yfir fjögur og sund um fimm. Synti 300 metra og var í minni fyrstu ferð í kalda pottinum þegar kaldapotts vinkona mín mætti á svæðið. Fórum fimm ferðir í kalda og enduðum í gufu. Klukkan var langt gengin í sjö þegar ég kom heim aftur. Hafði byggbuff og hrísgrjón í matinn en aðeins annar sonurinn kom fram til að borða þannig að eftir varð afgangur fyrir mig til að taka með í vinnuna. Annars er Árný föðursystir mín 94 ára í dag.
5.1.22
Mið vika
Var aftur mætt fyrst til vinnu af okkur þremur. Ég sá um móttökuendann á vélinni í gær. Ekki var hægt að prenta út venjulega framleiðslulista til að byrja með vegna einhvers konar stíflu í póstinum. Við gátum samt bjargað okkur en allir framleiðslulistar daglegu framleiðslunnar voru mjög óvenjulegir. Skannaði inn kvittinina úr Nauthólsvík og sendi hana með e-mail á deildina sem sér um alla borga m.a. íþróttastyrki. Var komin heim um fjögur og í sund um fimm. Þar hitti ég kaldapotts vinkonu mína. Hún var búin með þrjár ferðir á þann kalda og hún fór þrjár aðrar með mér. Eftir mína þriðju ferð og hennar sjöttu fórum við í gufuna. Ég sat lengur þar en hún, fór svo í kalda sturtu til að geta farið út í sundlaugina. Valdi braut 8 og synti í tuttugu mínútur. Oddur Smári sótti bróður sinn í vinnu um átta og þeir komu við á KFC þar sem N1 sonurinn var búinn að bjóðast til að kaupa handa okkur fjölskyldutilboð fyrir 4. Hann á svo frívakt í dag og á morgun, á vakt næst um helgina.
4.1.22
Morgunstund
Ég var mætt fyrst til vinnu af þremur. Þegar hinar vorum komnar skiptum við með okkur verkum. Ég var beðin um að sjá um bókhaldið, frystingar og byrja á áramótauppgjörinu. Hinar tvær tóku að sér framleiðslu. Kerfisfræðingarnir mættu báðir. Ég hafði reyndar boðað annan til okkar vegna breytingabeiðni. Þeir voru á staðnum fram yfir hádegi. Framleiðslu var hætt á fjórða tímanum. Ég var komin heim rétt fyrir fjögur. Klukkutíma seinna dreif ég mig í mína fyrstu sjóferð á árinu. Hafði mislesið hitastigið á sjónum á netinu sem 0,3°C en það var víst mínusmerki fyrir framan töluna. Það var flóða, stafalogn og ég entist tíu mínútur í sjónum. Var svipað í heita pottinum áður en ég fór upp úr. Kom við í Fiskbúð Fúsa á leiðinni heim. Keypti ýsu í soðið, fiskibollur í frystinn og meiri harðfisk. Ekki voru til kartöflur þannig að ég skrapp einnig í Krambúðina eftir að vera búin að leggja bílnum fyrir framan hús.
3.1.22
Virkur vinnudagur
Var komin á fætur upp úr klukkan átta í gærmorgun. Hélt mig heimavið allan daginn. Ein tuska "datt" af prjónunum og fitjaði ég strax upp á annarri. Á bómullargarn í nokkrar tuskur og eldhúshandklæði svo ég er hvergi nærri hætt þessu tuskuprjóni. En verið getur að ég taki mér hlé og fari að huga að öðru prjóni en þá þarf ég að útvega mér rétta garnið. Ég á líka alveg eins von á því að útvega mér garn í eitt eða tvö teppi enn því ég átti eftir að prófa fleiri mynstur úr teppaprjónabókinni. Gærdagur leið hratt. Horfði á fótbolta, þætti og annan þátt af Verbúðinni. Hægt er að hámhorfa á síðast nefndu þættina, eru allir inn á RÚV en þá er ekki hægt að hafa textavarpið á, sem mér finnst miklu betra. Skilafrestur á bókasafnsbókum er til 12. janúar. Ég á eftir að lesa hátt í 300 bls. af síðustu bókinni. Næ því örugglega fyrir skiladag en ef ekki framlengi ég skilafrestinum amk á þeirri bók.
2.1.22
Rólegheit
Annar dagur ársins runninn upp. Það munar um birtustig og hækkandi sól. Ég stóð við það að gera sem minnst í gær. Prjónaði reyndar slatta og horfði á Mcgyver þætti og smá fótbolta. Las ekki fyrr en ég fór upp í rúm um hálfellefu leytið. Strákarnir héldu sig heima við í gær. Höfðu komið úr partýinu um sex í gærmorgun. Samt var annar þeirra vaknaður og kom aðeins fram um hálfeitt. Hinn svaf lengra fram á daginn. Var með hakkkássu í kvöldmatinn og strákarnir sáu um að ganga frá á eftir. Ætla hvorki að setja markmið né lofa að ég muni skrifa á þessum vettvangi daglega allt þetta ár en það er samt eitthvað við að að setjast niður og skrá það helsta niður. Þetta eru samt ósköp venjulegir hlutir sem eru að gerast í kringum mig og spurning um hvort það sé ekki of mikið um endurtekningar á gjörðum mínum og venjum. Er að lesa síðustu bókina af bókasafninu; Óminni eftir Sverrir Berg Steinarsson. Þær þrjá sem ég er búin að lesa eru; Vonarbarn eftir Marianne Fredriksson, Hafnargata eftir Ann Cleeves og Eitraða barnið eftir Guðmund S. Brynjólfsson. Svo á ég eftir að lesa bækurnar sem ég fékk í jólagjöf.
1.1.22
Glænýtt ár MMXXII
Þetta er fyrsta færsla á fyrsta degi nýs árs en í heildina er þetta færsla númer 3111. Nýliðið ár voru færslurnar þær næst flestu af þessum rétt tæplega 19 árum sem ég hef bloggað. Mun líklega seint slá metárið nema ég fari að taka upp á því að setja inn tvær færslur suma dagana öðru hvoru sem mér finnst frekar ósennilegt. En hvað veit maður svo sem hvað ókomin framtíð ber í skauti sér? Í gærmorgun var ég komin á fætur fyrir klukkan átta og komin í sund upp úr hálfníu. Byrjaði á því að synda 500 metra, allt á bringunni. Sat svo rúmar fimm mínútur í kalda pottinum, nokkrar mínútur í heitasta pottinum, aftur fimm mínútur í kalda og svo næstum því hálftíma í sjópottinum áður en ég fór upp úr. Áður en ég fór heim kom ég við á AO-stöðinni við þar sem einu sinni var veitingastaðurinn Sprengisandur, við hinn endann á Bústaðavegi. Fyllti tankinn. Fljótlega eftir að ég kom heim hellti ég mér upp á kaffi og fékk mér einhverja hressingu. Dagurinn leið jafn hratt og flestir aðrir dagar. Var að vafra um á netinu og leika mér, prjóna og horfa á imbann, ekki alveg allt í einu. Um miðja dag bauð ég strákunum upp á að fá sér af jólagrautnum. Ég fékk mér líka og hellti mér aftur upp á kaffi. Malaði mér úr baunum af hátíðarkaffi, í eina uppáhellingu, sem ég fékk í jólagjöf frá Davíð Steini. Ég var svo heppin að Davíð Steinn tók að sér að elda kvöldmatinn. Ég hafði keypt þrjár vænar nautakjötsneiðar og með þeim hafði hann steiktar kartöflur, rósakál, grænar baunir og piparsósu sem hann hafði bætt chiliosti út í. Virkilega vel heppnað hjá honum. Vorum að borða um sex. Strákarnir tóku heimapróf en voru heima fram yfir miðnætti, horfðu m.a. með mér á skaupið, áður en þeir fóru í smá teiti í næstu götu. Voru að hitta krakka sem þeir hittu í afmælisveislu fyrir nokkrum dögum. Ég horfði á einn og hálfan þátt en fór inn í rúm um tvö. Átti og á enn hvítvínsflösku sem ég keypti um daginn. En mig langaði ekki í neitt svoleiðis og ákvað að spara hana aðeins lengur. Planið í dag er að vera heima og gera sem allra minnst.