14.5.21

Föstudagur

Klukkan var næstum orðin níu þegar ég vaknaði í gærmorgun. Dreif mig á fætur all óráðin að hverju ég ætti að stefna. Eftir morgunverkin á baðinu settist ég inn í stofu með fartölvuna og fór að leika mér og vafra um á netinu. Fljótlega hafði sjósundsvinkonan samband. Það varð úr að við hittumst þrjár úr kjarnahópnum í röðinni við aðstöðuna í Nauthólsvík stuttu fyrir ellefu. Sjórinn var 8,2°C og við vorum út í í um það bil tuttugu mínútur og hefðum vel getað verið lengur. Vorum svo annað eins eða lengur í heita pottinum áður en við fórum upp úr. Það var frekar fámennt svo það myndaðist ekki röð, komust allir að, amk á meðan við vorum þarna.

Heima hellti ég mér upp á kaffi og hélt svo áfram að prjóna eldhúshandklæðið. Byrjaði einnig á bók af safninu; Eplamaðurinn eftir Anne Mette Hancock. Horfði á Man Utd - Liverpool og fylgdist með gangi mála í Pepsídeild karla á mbl.is Valsmenn voru að spila á útivelli. Er alveg harðákveðin í að fjárfesta ekki í fótbolta/eða árskorti á völlinn þetta árið og heldur ekki kaupa mig inn á stöku heimaleiki. Hluti af þeirri ákvörðun er byggð á því að mér líkaði ekki að Valsaranir brytu sóttvarnarreglur til að halda upp á Íslandsmeistaratitilinni í fyrrahaust. En ég mun eflaust fylgjast með gangi mála í leikjum sumarsins á netmiðlum.

13.5.21

Rauður dagur

Þegar ég var alveg að koma að vinnunni minni um hálfátta í gærmorgun hjólaði ein samstarfskona mín og maður hennar framhjá veifandi. Hann semsagt "skutlaði" konunni í vinnuna eða þannig. Ákvað alla vega að fá sér hjólatúr og fylgja henni í vinnuna. Hann staldraði aðeins við á horninu við neðra planið og spjallaði áður en við samstarfkonurnar urðum samferða inn í vinnu. Ég var í bókhaldi í gær. Það er ekki komin endurnýjun enn svo við vorum allar fimm að flokka kennispjöld eftir að daglegri framleiðslu og talningu lauk. Það fór líka svo að það var flokkað úr næstum öllum 15 kössunum sem sóttir voru í fyrradag. Við fórum tvær inn í geymslu með 13 kassa og sóttum 15 í viðbót um tvö en svo var ákveðið að hætta fyrr, hafa hálfgildings föstudag.

Fékk far heim úr vinnunni og var komin heim fyrir þrjú. Var komin í sund um hálffimm og var búin að synda 400 metra og í minni þriðju ferð í kalda pottinum þegar kaldapottsvinkonan mætti á svæðið fór fjórar ferðir í þann kalda með henni og endaði svo í góðu gufubaði áður en ég fór aftur heim.

Hjartaungbarnateppið "datt" af prjónunum í gærkvöldi. Gekk frá endum og lagaði teppið á einum stað. Fitjaði svo upp á eldhúshandklæðastykki en mun líklega fitja fljótlega upp á öðru ungbarnateppi. Á nóg af garni í bæði verkefnin, í þónokkrar smátuskur/handklæði og líklega tvö ungbarnateppi. 

12.5.21

Frídagur framundan

Ég var komin á fætur á svipuðum tíma í gærmorgun og á mánudagsmorguninn. Labbaði af stað í vinnuna um sjö eftir að hafa vafrað um á netinu í næstum hálftíma. Fram að kaffi var ég á framleiðsluvélinni að hlaða inn skrám og setja kortin af stað. Eftir kaffi flokkaði ég kennispjöld og einnig eftir hádegi. Við fórum tvær með 16 flokkaða kassa inn í geymslu og komum með 15 óflokkaða til baka. Áður en við hættum vinnu vorum við búnar að flokka úr næstum sjö af þessum fimmtán kössum. Fékk far heim úr vinnunni og var komin heim rétt upp úr þrjú. Oddur Smári var á leiðinni út í Sorpuferð. Rétt síðar hringdi vinkona mín sem er með sölubás á Lækjargötu og spurði hvort ég væri í vinnunni. Ég sagðist vera nýkomin heim og Oddur á bílnum. Hjólinu hennar var stolið, klippt á lásinn eiginlega fyrir framan nefið á henni og farangurinn var of mikill fyrir eina manneskju að bera heim þótt í sjálfu sér sé ekki svo langt þangað sem hún býr en það er allt upp í móti. Ég sagðist geta komið um fjögur og skutlaði henni heim með dótið. Það stóðst og var ég svo heppin að hún var búin að ganga frá dótinum og stóð rétt við rútustæði við Lækjargötu. Ég lagði í stæðið rétt á meðan hún var að setja vörurnar í skottið og koma sér inn í bílinn.

Eftir þennan björgunarleiðangur kom ég við í fiskbúð Fúsa og keypti ýsu, lax og harðfisk. Síðan dreif ég mig í sund. Sleppti því reyndar að synda en fór nokkrar ferðir í þann kalda og yfirleitt 4 mínútur í hvert sinn. Klukkan var byrjuð að ganga sjö þegar ég var að fara heim. Skrapp aðeins í Krambúðina eftir að ég var búin að leggja í stæði fyrir framan hér heima. Var með ýsu í soðið með kartöflum og hrasallati og fékk ég mér smá smjör út á réttinn.

Horfði á seinni riðil Skólahreysti dagsins og sá íslandsmet sett í hreystigreip, og það ekkert smá met. Búið að standa í 12 mínútur og 40 sekúndur í fimm ár og það var bætt um rúmar tvær mínútur. 

11.5.21

Sólskin og þurrkur

Var komin á fætur upp úr klukkan sex í gærmorgun. Notaði tímann áður en ég þurfti að labba af stað í vinnuna til að vafra um á netinu og setja inn færslu í bloggheima. Var komin í vinnuna um hálfátta, mætti númer tvö af okkur öllum fimm. Fyrirliðinn var mætt á undan og við náðum í bankatösku og tókum þrjá framleiðsluvagna af fjórum út úr lagergeymslunni í leiðinni. Fórum svo fram, fylltum á vatnsflöskurnar, fengum okkur morgunmat og kaffi og sátum á kaffistofunni með samstarfsfélögunum til klukkan að byrja að ganga níu. Ég var í móttökunni á framleiðsluvélinni fram að kaffipásu. Eftir kaffi sorteraði ég kennispjöld úr tveimur kössum til hádegis og svo annað eins eftir hádegi. Fékk far heim úr vinnunni.

Rétt um fimm var ég komin í Nauthólsvík. Þurfti að bíða í röðinni eftir að komast inn í búningsaðstöðuna. Var númer fjögur í röðinni og svo  var alltaf að bætast við í röðina fyrir aftan mig. Þurfta að bíða í um tuttugu mínútur. Synti svo út að kaðli þegar ég komst loksins í sjóinn. Svamlaði einnig smá stund í lóninu áður en ég fór í pottinn. Það var enn röð þegar ég fór upp úr rúmlega sex. Aðstaðan er opin til klukkan sjö. 

10.5.21

Morgunstund

Var komin á fætur um átta í gærmorgun. Fór ekki í sund fyrr en klukkan var langt gengin í tíu því þá var meiri möguleiki á að hitta á kalda potts vinkonuna. Hitti samt ekki á hana þessa eina og hálfa klukkustund sem ég var að pottormast og synda smá. Hins vegar hitti ég aðeins á sjósundsvinkonu mína rétt áður en ég fór upp úr.

Skrapp vestur á Granda eftir sundið og keypti þvott fyrir bílinn. Allur fuglaskítur náðist af. Kom heim rétt fyrir tólf og byrjaði á því að hella upp á könnuna. Synir mínir komu fram úr sínum herbergjum um eitt. Veiðisonurinn var ekki viss hvort hann væri að skreppa í annan veiðitúr, hafði komið seint heim kvöldinu áður. Einkabílstjórinn kom hins vegar með mér austur á Hellu og fékk að keyra.

Vorum komin til pabba um hálfþrjú. Ég var með prjónana með. Pabbi bauð upp á vöfflur með kaffinu og sagði svo að það væri til bleikja ef við vildum vera líka í kvöldmat. Ég tók út þrjú flök sem ég matreiddi svo upp úr klukkan sex. Með þessu var boðið upp á hrásallat og kalda rófustöppu og þar sem ég var með einkabílstjóra fékk ég mér hvítvínsglas með matnum. Horfði á fréttir og Landann áður en haldið var aftur heim á leið. 

9.5.21

Sunnudagsmorgunn

Kom mér á fætur áður en klukkan varð átta í gærmorgun. Fyrsta klukkkutímann var ég að vafra um á netinu. Svo hellti ég mér upp á kaffi og borðaði afgang af hafragraut, kaldan. Las þar til klukkan var að verða hálfellefu. Þá tók ég sjósundsdótið til og dreif mig af stað í röðina í Nauthólsvík. Hitti hinar fimm úr kjarnanum úr sjósundshópnum mínum og komumst við allar inn í fyrsta hollinu. Syntum út að kaðli og komum aðeins við í lóninu á leiðinni í pottinn. Flatmöguðum í pottinum á næstum hálftíma. Svo lá leiðin heim til sjósundsvinkonu minnar sem bauð okkur öllum í hádegissnarl. Þar vorum við í góðu yfirlæti í rétt rúma tvo tíma.

Ætlaði að skreppa með bílinn á þvottastöðina við Granda en þá var búið að loka þar vegna viðhalds. Fór í Krónuna í staðinn. Reyndar var alltaf ætlunin að skreppa að versla. Þegar heim kom varð ég að leggja í Blönduhlíð þar sem það voru smá framkvæmdir hjá Veitum fyrir utan hjá mér og ekki hægt að leggja. Hringdi í Odd og hann kom og sótti vörurnar og gekk frá þeim er við komum inn.

Lauk við að lesa skammtímalánsbókina. Las líka alla ljóðabókina Spegilsjónir eftir Guðrúnu Hannesdóttur. Byrjaði á skáldsögunni Hilduleikur eftir Hlín Agnarsdóttur. Þá bók fann ég í almennri hillu en það var líka eintak af henni í skammtímalánshillunni. 

8.5.21

Sjósundsdagur

Vaknaði á undan vekjaranum í gærmorgun. Hafði því fleiri mínútur til að vafra aðeins um á netinu áður en ég labbaði af stað í vinnuna um sjö. Ég var á framleiðsluvélinni, móttökuendanum og einnig að telja og taka til þær tegundir sem voru í framleiðslu. Daglegri framleiðslu lauk rétt upp úr klukkan hálftólf og þar sem ekki er alveg komið að endurnýjun ennþá var ég að flokka kennispjöld eftir hádegi alveg til klukkan þrjú. Gaman líka að segja frá því að það er loksins verið að rífa niður gömlu framleiðsluvélina sem var hætt að framleiða á nokkrum vikum fyrir síðustu áramót.

Davíð Steinn er á leið í veiðiferð með félaga sínum. Þeir ætluðu að leggja af stað seinni partinn í gær en frestuðu för þar til í dag. Ætla að vera eina nótt í burtu.

Fékk far heim úr vinnunni og fór ekkert aftur út. Ein af bókunum úr síðust safnferð er með 14 daga skilafresti og ég er byrjuð að lesa hana; Snerting eftir Ólaf Jóhann Ólafsson. Bjó til eggjaköku úr fiskafgangi í kvöldmatinn og notaði sex egg, rjómaslettu og rifinn ost í blöndua. 

7.5.21

Föstudagur

Vekjaraklukkan ýtti við mér rétt fyrir klukkan hálfsjö í gærmorgun. Eftir morgunverkin á baðinu og eina matskeið af lýsi kveikti ég á fartölvunni og vafraði um á netinu í um það bil tuttugu mínútur. Þá var akkúrat passlegt að ganga af stað í vinnuna. Ég var á framleiðsluvélinni, endanum þar sem maður hleður inn verkefnum dagsins og setur kortin af stað. Frá hálftvö til rúmlega þrjú var ég að sortera kennispjöld. Við fórum tvær með nokkra sorteraða kassa merkta bönkum aftur inn í kennispjaldageymslu og sóttum 15 kassa í staðinn.

Fékk far heim úr vinnunni. Sá þá að ég hafði fengið fyrirspurn frá kaldapotts vinkonu minni um hvort ég kæmi í sund. Þegar ég mætti í kalda pottinn upp úr hálffimm kom hún skömmu síðar í sína þriðju ferð. Hún fór fimm ferðir í kalda pottinn með mér. Hittum einnig á systur hennar í heitasta og 42°C pottinum en hún fer aldrei í kalda pottinn. Nennti ekki að synda en sat góða stund í gufunni eftir síðustu kalda potts ferðina. 

6.5.21

Þriðji vinnudagurinn í vikunni af fjórum

Rumskaði fyrir sjö en tókst að sofna aftur og svaf þá til hálfníu. Um tíu bjó ég mér til hafragraut og svo var ég mætt með sjósundsdótið í Nauthólsvík um það leyti sem aðstaðan opnaði um ellefu. Hitti sjósundsvinkonu mína og aðra systurina úr kjarnahópnum. Fljótlega eftir að við vorum komnar út í sjó var aðstaðan orðin full í bili og forsetinn þurfti frá að hverfa þegar hann mætti á svæðið um hálftólf.

Eftir sjósundið skrapp ég á Atlantsolíustöðina við Sprengisand og fyllti á tankinn og áður en ég fór heim kom ég við á Borgarbókasafninu í Kringlunni, skilaði inn fjórum bókum og tók sjö bækur í staðinn. Tvær af þeim eru ljóðabækur og kláraði ég aðra þeirra í gær; Ljóð muna rödd eftir Sigurð Pálsson. 

5.5.21

Á leið í sjóinn

Í gær sinnti ég bókhaldinu í vinnunni. Þess á milli og alveg til þrjú flokkaði ég líklega á fjórða þúsund kennispjöld frá því um mitt ár 1994. Hinar tvær sinntu framleiðslu og töldu með mér en þegar daglegum verkum var lokið fóru þær í reikningagerðina, önnur til að læra og hina að leiðbeina. Önnur af þeim þurfti reyndar að skreppa frá á ellefta tímanum í gær til að fá sína seinni sprautu. Það tók aðeins lengri tíma en áætlað var því röðin var löng. Fyrirliðinn okkar þurfti því að fá lánaðan einn af "strákunum" frammi, sem reyndar hefur hoppað inn áður, til að aðstoða við hádegisframleiðsluna. Allt gekk það vel fyrir sig.

Fékk far heim úr vinnunni og stoppaði heima við í hátt í klukkustund áður en ég dreif mig í sund. Nennti ekki að synda þegar til kom, alltof mikil umferð á brautunum. En ég kældi mig vel og hitaði inn á milli og endaði í góðu gufubaði. Skrapp aðeins í Krambúðina eftir að ég var búin að leggja í hornstæðið fyrir utan heima. Áttum til afganga svo ég þurfti ekki að hugsa um að matbúa eitthvað. Annar sonurinn fór reyndar að hitta vin til að borða með honum og skipuleggja veiðiferðir sumarsins. 

4.5.21

Gott gönguveður

Vaknaði á undan vekjaraklukkunni í gærmorgun, slökkti á henni og dreif mig á fætur. Hafði tíma til að vafra aðeins um á netinu á fartölvunni. Labbaði af stað í vinnu um sjö. Gátum ekki byrjað að framleiða strax því skrárnar höfðu ekki skilað sér yfir og við þurftum að fá aðstoð við að koma þeim yfir. Klukkan var byrjuð að ganga tíu þegar framleiðslan komst af stað. Ég var í móttökunni. Skammturinn sem á að vera tilbúinn klukkan tíu var tilbúinn á slaginu þá. Hins vegar var securitas maðurinn búin að koma við hálftíma fyrr til að athuga með töskuna. Oftast gengur það upp en hann veit þó að við höfum tímann til klukkan tíu til að skila af okkur. Urðum að geyma hluta af debet framleiðslunni þar til eftir hádegi en daglegri framleiðslu og frágangi var lokið um hálftvö. Þá fóru hinar tvær í mánaðamóta-reikningagerða-vinnu, önnur til að læra af hinni. Ég flokkaði kennispjöld.

Fékk far heim úr vinnunni upp úr hálffjögur. Rúmum klukkutíma seinna tók ég sjósundsdótið til. Kom við í fiskbúð Fúsa og fór beint þaðan í Nauthólsvík. Ég var komin ofan í sjóinn um fimm. Sjósundshópurinn minn kom, næstum allur, rúmlega tíu mínútum síðar. Ég var enn að busla þá en fór þó í pottinn aðeins á undan þeim.

Var búin að hátta mig upp í rúm rétt fyrir hálftíu í gærkvöldi. Braut heilann yfir sudoku í korter og las svo í hálftíma áður en ég fór að sofa.

3.5.21

Ný vinnuvika

Ég var komin á fætur fyrir klukkan átta í gærmorgun. Rétt upp úr hálftíu bankaði ég á herbergisdyrnar hjá N1 syninum og spurði hvort hann ætti ekki að mæta í vinnu fljótlega. Hann hafði þá víst slökkt á vekjaranum án þess að fatta það svo það var eins gott að ég ýtti við honum. Skutlaði honum á vinnustaðinn og var hann mættur fimm mínútum fyrir tíu. Fór beint í sund eftir skutlið. Nokkrar ferðir í kalda pottinn, synti 300 metra, endaði á góðri gufuferð og þvoði á mér hárið áður en ég fór heim aftur. Restin af deginum fór alls konar dútl. 

2.5.21

Sunnudagur

Fór á fætur um sjö í gærmorgun. Var komin fram á undan N1 syninum. Bauðst til að skutla honum í vinnuna en hann var með far svo ég gat sest niður með prjónana mína þar sem ég var búin að slökkva á fartölvunni. Rétt upp úr hálfellefu var ég komin í röðina við aðstöðuna í Nauthólsvík. Ég var númer tíu í röðinni og því örugg inn. Þrjár úr sjósundskjarnavinahópnum mínum komu í röðina tíu mínútum á eftir mér og þá var röðin orðin miklu lengri. Þær sluppu nú samt inn með fyrsta hollinu. Það var háflóð, sjórinn 6,3°C og dásamlegt að svamla um í korter. Vorum reyndar ekki allar jafn lengi en hittumst svo aftur í heita pottinum. Þær sem voru á undan upp úr sjónum fóru fyrr upp úr, höfðu ekki geð í sér að vera of lengi því það var fólk að bíða í röð eftir að komast að. Ég kom heim um tólf. Setti handklæði í þvottavél og settist svo niður með prjónana mína á meðan ég hlustaði á hádegisfréttirnar. Klukkan var byrjuð að ganga tvö áður en ég hellti mér upp á fyrsta kaffibolla dagsins. 

1.5.21

Fyrsti maí

Eins og oftast áður var ég vöknuð, búin að slökkva á vekjaraklukkunni og komin á fætur áður en innstilltur tími var runninn upp. Hafði tíma til að vafra aðeins um á netinu. Hitti aðeins á N1 soninn en hann fór út ca korteri á undan mér. Labbaði af stað í vinnuna um sjö. Hlutverk mitt á vinnustað var að sinna bókhaldinu og þar sem það var föstudagur og þar að auki mánaðamót voru ýtarlegri talningar. Undirbjó lagertölur og eftir daglega framleiðslu voru allar kortategundir á vögnum taldar hvort sem þær voru í framleiðslu eða ekki. Hættum vinnu í fyrra fallinu en þá átti aðeins eftir að telja rekstrarvörur, form og umslög á lager. Það mun gefast tími til þess eftir helgi.

Fékk far heim úr vinnunni og var komin um þrjú. Hélt mig heima við þar sem eftir lifði dags og kvölds. Er búin að lesa þriðju skammtímaláns bókina af safninu Illverk eftir Ingibjörgu Katrínu Kristjánsdóttur. Hennar fyrsta skáldsaga. Þá er aðeins eftir ein ólesin bók af safninu Hótel Aníta Ekberg eftir Helgu Sv. Helgadóttur. Líklega verð ég búin að lesa hana löngu áður en skilafresturinn á skammtímaláns bókunum rennur út 10. maí.

30.4.21

Síðasti dagurinn í apríl

Það var ósköp lítið að gerast í gær. Fór á fætur um átta. Dagurinn fór í netvafr, prjónaskap og lestur. Setti reyndar upp slátur seinni partinn, horfði á handboltalandsleik og sótti þvottinn minn niður á snúrur í þvottahúsinu. Er búin að lesa Arnald og er langt komin með Vetrarmein eftir Ragnar Jónasson. Það var staðfest í dag að í næstu viku höldum við áfram að mæta aðeins þrjár á vinnusvæðið og er ég svo heppin að fá 4 vinnudaga af fimm. 

29.4.21

Veðurblíða

Klukkan var átta þegar ég fór á fætur í gærmorgun. Eftir morgunverkin á baðinu settist ég niður með fartölvuna í rúman klukkutíma eða svo. Síðan sauð ég handa mér hafragraut. Átti smá rjómalögg til að gera hann enn betri. Um ellefu tók ég til sjósundsdótið mitt og skrapp í Nauthólsvíkina. Sjórinn var sagður 6,6°C og það var dásamlegt að svamla um í honum. Það var fjara og þurfti að vaða hálfa leið til Kópavogs til að komast á eitthvað dýpi. Var líklega um tuttugu mínútur í sjónum. Áður en ég fór upp úr og í pottinn sá ég Guðna forseta skella sér í sjóinn við annan mann. Þeir syntu út að kaðli. Ég var svipað lengi í pottinum og sjónum. Var komin heim um tólf. Klukkutíma síðar kveikti ég aftur á fartölvunni og sá þá að Lilja vinkona hafði sent mér skilaboð um tíu um hvort ég vildi koma í labbitúr. Þegar ég spurði hvort hún væri búin að fara sagðist hún alveg vilja fara í annan labbitúr. Við ákváðum því að hittast á Klambratúni. Þaðan löbbuðum við niður á Sæbraut og niður á Lækjartorg. Þar bauð Lilja mér upp á kaffibolla Te&kaffi. Drukkum kaffið úti í blíðviðrinu. Síðan röltum við upp Hverfisgötu. Lilja sótti sendingu í póstbox og á horni Barónsstígs og Grettisgötu skildu leiðir. Ég hafði hugsað mér að setja upp slátur í gær en þar sem ég vissi ekki hvenær ég kæmi úr gönguferðinni tók ég út hakkrúllu og matreiddi úr henni á sjöunda tímanum.

28.4.21

Þrír þorskar

Mikið varð ég hissa rétt fyrir hálfsjö í gærmorgun þegar vekjaraklukkan vakti mig. Hafði ekki farið seint að sofa, svaf vel en var að dreyma einhverja vitleysu. Ég hafði samt tíma til að kveikja aðeins á fartölvunni og vafra á netinu áður en ég labbaði af stað í vinnuna um sjö. Ég var aftur að vinna á framleiðsluvélinni, núna á hinum endanum. Tók til framleiðslutegundir dagsins fyrir þá sem var að hlaða inn og troða í. Tók svo á móti framleiddum kortunum og skoðaði. Allt annað er að vinna við umslagavélina. Hún er ekki alveg hætt að flækja þó en vinnslan gengur svo miklu, miklu betur. Lukum við framleiðslu á endurnýjun debetkorta eftir daglega framleiðslu. Síðasta endurnýjun mánaðarins var keyrð til okkar um hádegið. Hún var keyrð yfir að framleiðsluvél og hlaðið inn og verður að öllum líkindum framleidd öll í dag.

Einkabílstjórinn sótti mig í vinnuna rétt fyrir hálffjögur. Hann hleypti mér út við Krónuna við Granda og skrapp svo í Sorpu áður en hann kom aftur og verslaði fyrir sjálfan sig. Við vorum komin heim um fjögur. Hann gekk frá vörunum en ég ákvað að taka því rólega, sleppa því að skreppa í sund eða sjóinn og lesa og prjóna í staðinn þar til kominn var tími til að undirbúa saumaklúbbshitting.

Ein af skammtímalánsbókunum er Þagnarmúr eftir Arnald Indriðason. Er byrjuð á henni og búin að lesa ca einn þriðja. Ég verð líklega ekki lengi að lesa allar þrjár skammtímalánsbækurnar, sérstaklega þegar ekki má mæta alla virka daga til vinnu.

Það var hundrað prósent mæting í saumaklúbbinn til mín og sem fyrr voru þrír tímar liðnir á methraða. Var að ganga frá upp úr klukkan ellefu, fór svo beint í rúmið og las til miðnættis. 

27.4.21

Heimavið næstu tvo daga

Rumskaði um hálfsex í gærmorgun. Það gekk ekkert að reyna að sofna aftur svo ég var komin á fætur um sex. Eftir morgunverkin á baðinu settist ég beint í sófann inni í stofu, kveikti á fartölvunni og vafraði um á netinu í tæpan klukkutíma. Hitti aðeins á N1 soninn en hann fór út úr húsi á undan mér enda þurfti hann að ná strætó korter í sjö. Ég labbaði af stað í vinnuna um sjö. Var mætt fyrst af okkur þremur sem máttum mæta í gær. Eftir hádegi kom viðgerðarmaður á svæðið að reyna að stilla betur umslagavélina en það hefur borið mjög mikið á því að allt fari í flækju, komi ekki alla leið út eða þá að það þarf að loka umslögunum handvirkt þegar þau skila sér úr vélinni. Svo virðist sem tekist hafi að koma þessu í betra lag.

Fékk far heim úr vinnunni um hálffjögur. Stoppaði heima í ca hálftíma. Skilaði öllum fjórum bókum á safnið þrátt fyrir að vera ekki búin að lesa tvær af þeim. Valdi fjórar bækur í staðinn og þrjár af þeim eru með 14 daga skilafresti svo ég veit hvað ég verð að gera næsta hálfa mánuðinn. Fór beint í sund eftir bókasafnsferðina. Synti reyndar ekkert. Fór beint í kalda pottinn í fimm mínútur og hitti svo kalda potts vinkonu mína í heitasta pottinum. Saman fórum við fimm ferðir í kalda pottinn og þann heitasta á milli en eftir síðustu ferðina endaði ég í gufunni.

Prófaði að "baka" frosnar fiskibollur úr fiskbúð Fúsa í ofni. Sauð rósakál og var einnig með hrásallat úr Krambúðinni sem og köldu piparsósuna sem ég fékk með sumarglaðningnum úr vinnunni í síðustu viku. Þetta smakkaðist bara ágætlega.

26.4.21

Bókasafnsferð

Heyrði stofuklukkuna slá átta högg í gærmorgun og svo "tíu mínútum" síðar sló hún níu högg. Dreif mig á fætur. Pabbi sat frammi í eldhúsi að leggja kapal. Ég fékk mér lýsi og egg og lagði svo nokkra kapla líka. Um hádegið steikti ég bleikjuflök handa okkur og höfðum við hrásallat og kalda rófustöppu með. Fram að kaffi var ég mest að prjóna. Eftir kaffi lagði ég nokkra kapla en um hálffimm kvaddi ég pabba og brunaði í bæinn. Var svo heppin að fá stæði fyrir bílinn beint fyrir utan.

25.4.21

Helgarstopp á Hellu

Rumskaði fyrst upp úr sex í gærmorgun. Var svo glaðvöknuð um sjö og dreif mig á fætur. Vafraði um á netinu í fartölvunni í tæpa klukkustund. Bankaði aðeins upp á hjá N1 syninum til að kveðja hann því ég vissi að hann yrði farinn í dagsferð á Akureyri með vini sínum þegar ég kæmi aftur heim úr sundi. Var akkúrat að keyra af stað í sund þegar átta fréttirnar byrjuðu í útvarpinu. Fór tvær ferðir í kalda pottinn og eina í þann heitasta áður en ég synti 200 metra. Fór svo aðrar tvær ferðir í kalda pottinn, smá stund í sjópottinn og endaði í gufbaði áður en ég fór upp úr og þvoði mér um hárið.

Hellti mér upp á tvo bolla af kaffi þegar ég kom heim. Oddur Smári var komin á fætur og fram áður en ég tók mig saman og dreif mig austur. Kom við hjá tvíburahálfforeldrum mínum. Var komin á Hellu um hálfþrjú. Og hér verð ég eitthvað fram eftir degi í dag, sunnudag. 

24.4.21

Sund og hárþvottur framundan

Gat leyft mér að vafra á netinu í tæpan hálftíma í gærmorgun áður en tími var kominn til að labba í vinnuna. Í vinnunni var ég í framleiðslunni og sá um að troða í. Umslagavélin var með smá leiðindi og það tefur aðeins fyrir endurnýjun. Höfum þó nægan tíma til að klára þessi tæplega tvöþúsund debetkort sem eftir eru því fyrir nokkrum mánuðum var farið að endurnýja þau kort í mánuðinum áður en kortin sem kúnninn er með renna út eins og alltaf hefur verið gert með kreditkortin. Hættum framleiðslu í fyrra fallinu og gengum extra vel frá fyrir helgina. Ljóst er að í amk eina viku enn megum við aðeins mæta þrjár á svæðið og samkvæmt plani má ég mæta næst á mánudag og þriðjudag og svo ekki aftur fyrr en á föstudag. Fékk far heim úr vinnunni. Eftir smá flakk á netinu og pistil dagsins tók ég fram prjónana mína. Er bæði með ungbarnateppi og eldhúshandklæði á prjónunum. Davíð Steinn tók að sér að elda sumarglaðninginn sem ég fékk frá vinnunni á miðvikudaginn, lambaprime. Fengum einnig meðlæti með, m.a. kalda piparsósu og sætkartöflumús með salthnetum. Þetta var mjög gott og vel útilátið fyrir þrjá.

Nú er ég aðeins að velta því fyrir mér hvort ég eigi að skila öllum fjórum bókum á safnið þrátt fyrir að vera aðeins búin að lesa tvær af þeim. Er byrjuð á báðum hinum en er ekki viss hvort þær höfði til mín. Fékk póst frá bókasafninu um að skiladagur nálgast á einni bókinni. Þarf þó ekki að skila fyrr en í síðasta lagi á mánudaginn kemur. 

23.4.21

Seinni föstudagur vikunnar

Mér tókst að sofa næstum því til klukkan níu í gærmorgun. Dreif mig á fætur en var ekki viss hvort ég ætlaði í sund eða sjóinn. Opið var í Nauthólsvík í gær milli ellefu og fjögur. Það var kalda potts vinkona mín sem valdi fyrir mig. Hún hafði samband fljótlega á facebook spjallinu, sagðist vera að fara í sund rúmlega tíu og spurði hvort hún myndi hitta mig þar. Ég var búin að fara eina ferð í kalda pottinn og sat í heitasta pottinum þegar hún kom. Saman fórum við fimm ferðir í kalda pottinn. Systir hennar kom aðeins við, fyrst í heitasta og svo settumst við stund hjá henni í sjópottinum. Þær systur ætluðu svo í Vesturbæjarlaugina eftir hádegi. Ég kom heim rétt fyrir tólf og byrjaði á því að hella upp á könnuna. Setti handklæði í þvott og svo leið dagurinn við alls konar dútl. Fór ekkert út aftur. 

22.4.21

Sumardagurinn fyrsti

Var búin að slökkva á vekjaranum og komin á fætur nokkru áður en hann átti að vekja mig. Varð á undan N1 syninum að sinna morgunverkunum á baðinu. Hann var hins vegar farin út á undan mér. Labbaði af stað í vinnuna um sjö. Var í framleiðslu, taka til tegundir og á móti þeim úr vélinni. Hættum framleiðslu um hálfþrjú en þá var eftir að telja hádegisframleiðsluna og að ganga frá. Fékk far heim úr vinnu um hálfjögur. Tók til sunddótið mitt en byrjaði á því að fara beint á hjólbarða- og smurverkstæðið í Fellsmúla til að fá þá til að athuga framdekkið farþega meginn. Komst að eftir næstum klukkutíma bið en þeir voru innan við hálftíma að laga dekkið sem var með nagla í sér. Þá var ég dottinn úr öllu sundstuði svo ég fór beint heim aftur.

21.4.21

Fyrri "föstudagur" vikunnar

Vaknaði á undan vekjaraklukkunni og var komin á fætur, búin að slökkva á henni og búa um mig áður en tíminn var kominn. Gaf mér því tíma til að vafra aðeins um á netinu á fartölvunni. Labbaði af stað um sjö. Ég sá um bókhaldið í vinnunni en vinnudagurinn endaði svo á því að ég þurfti að fara inn á vél síðasta klukkutímann þar sem önnur hinna þurfti að fara og smá framleiðsla var eftir  sem þurfti að ljúka áður en hægt var að ganga frá. Klukkan var orðin fjögur þegar ég labbaði heim úr vinnu. Hringdi í pabba fljótlega eftir að ég kom heim. Svo skrapp í fiskbúðina eftir ýsu í soðið. Keypti einnig harðfisk. Var með sunddótið með mér en einhverra hluta vegna fór ég beint heim aftur. 

20.4.21

Labbað báðar leiðir

Var því miður aðeins of löt í gang í gær. Var vöknuð upp úr sjö en sá samt enga ástæðu til að drífa mig með bílinn á dekkjaverkstæðið til að láta laga lekann á öðru framdekkinu. Klukkan var að verða tiu þegar ég dreif mig af stað í þau mál. Þá var bara svo mikið að gera þarna í Fellsmúlanum að ég fékk ekki einu sinni stæði á planinu. Fór því heim í bili. Fylgdist með almannavarnafundinum og hlustaði á hádegisfréttir á Rás 2 á meðan ég dundaði mér við að prjóna hjartateppið.

Um tvö gerði ég aðra tilraun til að láta laga dekkið en það var sama sagan. Fór í smá bíltúr og kom við á ÓB-stöðinni við Öskjuhlíð til að athuga hvað væri búið að síga úr dekkinu. Það voru 6 pund.

Davíð Steinn tók að sér að elda kvöldmatinn svo ég gat dúllað mér í mínum áhugamálum. Eftir kvöldfréttir á RÚV skipti ég yfir að símann sport og horfði á Leeds Utd og Liverpool. Sá leikur fór 1:1. Var komin upp í rúm um hálftíu og las í þrjú korter í nýlegri bók eftir Mary Higgins Clark. Var líklega sofnuð um hálfellefu

19.4.21

Ekki mæta á vinnustað í dag

Ég var komin á fætur um átta í gærmorgun. Eyddi fyrsta klukkutímanum í fartölvunni. Um hálftíu bankaði ég á herbergisdyr N1 sonarins. Hann var við það að stökkva á fætur og gaf sér meira að segja tíma til að taka snögga sturtu. Ég skutlaði honum upp í Grafarvog og var hann mættur fyrir tíu. Notaði tækifærið og athugaði þrýstinginn á dekkinu farþega meginn að framan. Það vantaði ellefu pund en mælaborðið var ekkert farið að kvarta. Líklegast var það þó alveg að fara að gerast.

Úr Grafarvoginum lá leiðin í Laugardalinn líkt og á laugardagsmorguninn. Fór fyrstu ferðina í kalda pottinn korter yfir tíu. Hitti kalda potts vinkonu mína í heitasta pottinum en hún var þá þegar búin að fara tvær ferðir í kalda. Fórum fjórar ferðir saman milli heita og kalda. Hittum reyndar systir hennar og fórum sjá stund í sjópottinn um hálfellefu. Synti ekkert í gær en endaði á góðu gufubaði eftir síðustu ferðina í kalda pottinn.

Kom við í Hagkaup í Skeifunni áður en ég fór heim og fjárfesti meðal annars í nýjum brúsa undir kaffið. Prófaði hann strax og ég kom heim.

Fitjaði upp á nýju ungbarnateppi en prjónaði líka nokkrar umferðir af handklæða stykkinu. Vantaði bara að ég hefði aðeins gripið í nál. 

18.4.21

Kaldapottsvinkonudagur í dag

Ég var komin á fætur um sjö í gærmorgun. Bauð N1 syninum far í vinnuna. Hann átti að vera mættur um átta og það passaði vel að taka sunddótið með í skutlið og fara beint í Laugardalinn. Byrjaði á tveimur sinnum 4 mínútum í kalda pottinn og þann heitasta á milli. Synti 400 metra og fór aðrar tvær ferðir í þann kalda og þann heitasta á milli. Endaði svo á góðu gufubaði.

Kom heim rétt upp úr tíu og byrjaði á því að hella upp á könnuna. Ég er ekki búin að ákveða hvaða uppskirft af barnateppi ég prjóna næst en ég fitjaði aftur upp á eldhúshandklæðastykki og gekk mun betur að prjóna það. Það gæti farið svo að ég verði að útvega mér aðra dokku í þessum lit eða jafnvel tvær. Er með eina dokku í öðrum lit sem tónar alveg við þennan sem er á prjónunum svo kannski verður þetta stykki tvílitt.

Annars gerði ég fátt annað merkilegt af mér í gær. Oddur Smári skrapp í Sorpuferð og það er ekki enn farið að kvarta undan hjólbarðaþrýstingnum. Ætla þó að fylgjast áfram með þessu.

Fylgdist með "Alla leið" og tónlistarverðlaununum á RÚV í gærkvöldi. 

17.4.21

Löng helgi framundan

Að sjálfsögðu var ég vöknuð og búin að slökkva á vekjaraklukkunni áður en hún hringdi. Var komin á fætur um hálfsjö en hafði nægan tíma. Ákvað nefnilega að fara í vinnuna á bílnum í annað skiptið á þessu ári og hafa sunddótið tilbúið í skottinu. Mér leist samt ekki á blikuna þegar ég kom að bílnum og sá að það var lint í öðru framdekkinu. Eftir smá umhugsun ákvað ég að leggja samt í hann. Var komin upp á Bústaðaveg þegar mælaborðið tilkynnti að ég þyrfti að athuga þrýstinginn á hjólbörðunum. Dældi lofti í framdekkið við olísstöð, sem reyndar er búið að loka, á Skúlagötunni skammt frá vinnunni. Veit ekki hversu miklu lofti ég dældi en það var amk ekki nóg til að hætti að "væla" yfir þrýstingnum. Mætti í vinnuna rétt fyrir hálfátta. Ég var að taka til framleiðslutegundir og taka á móti og skoða fram að hádegi. Eftir hádegið flokkuðum við kennispjöld til klukkan að verða hálfþrjú. Ákváðum að það væri í lagi að hætta í fyrra fallinu á föstudegi.

Í stað þess að fara á dekkjaverkstæðið fór ég á Orkustöðina við Öskjuhlíð. Þar er lofttæki með mæli. Þrjú af fjórum dekkjum voru nánast á sömu stillingu og eftir dekkjaskiptin en vandræðadekkið mældist 22" og bætti ég 11" á það. Þá loksins hætti að kvarta. Svo fór ég beinustu leið í Laugardalinn. Var ekki stemmd í að synda enda var "umferð" á öllum brautum þótt ekki væri mjög margt um manninn. Fór nokkrar ferðir í kalda pottinn sem var tæplega 6°C, í heitasta pottinn á milli og ég sat einnig góða stund í sjópottinum. Endaði svo á góðri gufuferð. Var komin heim um hálfsex.

Lauk við að fella af nýjasta sjalinu, gekk frá endum á því og afganga tusku sem "datt" af prjónunum um daginn. Var búin að fitja upp á stykki sem á að verða eldhúshandklæði og prjóna nokkrar umferðir. Þá gerði ég einhverja gloríu sem mér virtist ekki létt að laga og þar sem ég var ekki búin að prjóna meira en tíu umferðir ákvað ég að rekja þetta upp. 

16.4.21

Tvær vikur eftir af apríl

Ég slökkti á vekjaranum uþb korteri áður en hann átti að hringja í gærmorgun. Það flögraði aðeins að mér að fara á bílnum í vinnuna en svo labbaði ég af stað um sjö. Það hafði rignt en var ekki að rigna akkúrat þegar ég var á ferðinni. Aftur á móti mætti mér bíll á Eiríksgötunni sem var örugglega að keyra hraðar en 30 og þótt ég væri eins innarlega á gangstéttinni og ég gat fékk ég smá gusu yfir mig. Enn erum við aðeins að mæta þrjár í vinnu og verður það svo alveg út næstu viku. Ég var að hlaða inn og troða í á framleiðsluvélinni. Eftir hádegi sorteraði ég kennispjöld úr tveimur kössum á um tveimur tímum. Labbaði af stað heim um þrjú. Í það skiptið var aðeins rakara þótt það væri ekki hellirigning blotnaði úlpan mín og á svipuðum stað og um morguninn ók bíll framhjá mér svo það gusaðist yfir mig.

Rétt rúmum klukkutíma eftir að ég kom heim sótti sjósundsvinkona mín mig. Það er búið að opna aðstöðuna í Nauthólsvík. Einungis 30 geta þó notað aðstöðuna í einu. Við þurftum samt ekki að bíða í röð eftir að komast í klefann. Fórum bæði í sjóinn og lónið og vorum svo næstum hálftíma í heita pottinum á eftir.

15.4.21

Hálfgerður mánudagur í dag

Ég var ekkert að sofa frameftir í gærmorgun þótt ég þyrfti ekki að mæta í vinnu þriðja virka daginn í röð. Tók utan af sæng og kodda og setti hreint á í staðinn. Leyfði svo klukkunni að verða níu áður en ég fór með sængurfötin í þvottavélina og sótti þvottinn frá því í fyrradag. Einu skiptin sem ég fór úr íbúðinni voru þau tvö skipti sem ég fór í þvottahúsið. Nennti ekki í göngurtúr þrátt fyrir ágætis veður. Dagurinn leið þó frekar hratt og var notaður mis skynsamlega.

14.4.21

Enn einn heimadagur

Var komin á fætur upp úr klukkan hálfátta í gærmorgun. Tók því rólega til að byrja með en setti fljótlega í þvottavél. Vafraði um á netinu, las og prjónaði. Ekkert varð úr að ég gripi í saumana. Upp úr hádeginu skrapp ég út í smá göngu. Leiðin lá til Lilju og þar gerði ég uþb klukkustundar stopp. Þáði einn kaffibolla og við áttum gott spjall áður en ég labbaði af stað aftur áleiðis heim. Kom aðeins við í Krambúðinni. Lítið annað að frétta. Er að hamast við að klára það sem er á prjónunum svo ég geti farið að fitja upp á nýju barnateppi úr eitthvað af því garni sem ég keypti í vikunni. Hef einnig verið að spá í að fitja upp á aðra prjóna úr garni sem má fara á 60°C, kannski ekki enn eina tuskuna heldur svona eldhús-handklæða stykki. Hef annars verið að horfa á þættina Systrabönd úr Premium safninu og á aðeins einn þátt eftir. 

13.4.21

Ekki vinnudagur hjá mér

Hafði stillt vekjaraklukkuna á mig í fyrrakvöld og átti hún að vekja mig um hálfsjö. Ég rumskaði korteri fyrir þann tíma. Hafði mig á fætur fljótlega en samt ekki nógu snemma til að kasta kveðju á N1 soninn. Rétt fyrir klukkan átta var ég mætt með bílinn á N1 stöðina við Fellsmúla. Þeir voru tilbúnir að taka á móti bílnum, setja sumardekkin undir og taka nagladekkin á dekkjahótelið sitt. Ég var komin heim aftur um hálfníu.

Það var ekki fyrr en um tvö sem ég fór út aftur. Fór á bókasafnið, skilaði 6 bókum og tók fjórar í staðinn. Er byrjuð að lesa Næturskuggar eftir Evu Björg Ægisdóttur. Frá safninu lá leiðin í garnbúðina við Reykjavíkurveg og svo kom ég við í Fiskbúð Fúsa áður en ég fór aftur heim.

Rétt fyrir fimm var ég búin að græja mig upp í sjósundsflíkurnar mínar þegar sjósundsvinkona mín sótti mig. Við hittum aðra systurina við Nauthólsvík. Svömluðum um í sjónum í fimm mínútur og var það afar hressandi. 

12.4.21

Sumardekkin komin undir

Gærdagurinn var allur með allra rólegasta móti. Stillti ekki á mig vekjaraklukku á laugardagskvöldið en átti ekki von á því að sofa alveg til klukkan hálfníu í gærmorgun þar sem ég var farin að sofa rétt upp úr tíu. Ég var svo hissa á þessum svefni mínum að það tók mig næstum fimmtán mínútur að drífa mig framúr. Megnið af deginum fór svo í fótboltagláp. Millifærði smá summu á einkabílstjórann seinni part dags og sendi hann eftir fjölskyldupakka á kfc. Þetta hef ég ekki gert lengi og reyndar er þetta í fyrsta skipti á þessu ári sem ég læt þetta eftir okkur. Hinn sonurinn var að spila einhvern leik þannig að hann missti af því að borða með okkur en það var nóg til handa honum. 

11.4.21

Einn þriðji búinn af apríl

Vekjaraklukkan var stillt á uþb hálfátta. Ég vaknaði hins vegar rétt upp úr sjö, slökkti á klukkunni, klæddi mig og bjó um. Vafraði um á netinu í klukkustund en slökkti svo á fartölvunni og bjó mér til hafragraut. Rétt fyrir tíu sóttu nöfnurnar mig og við hittum systurnar á bílastæðinu við Nauthólsvík. Sjórinn mældist 2,5°C og það var langt komið að fjara út þannig að maður var hálfnaður út í Kópavog loksins þegar maður komst á smá dýpi. Vorum að svamla um og spjalla í rúmar fimm mínútur. Ég var komin heim aftur upp úr hálfellefu. Þvoði mér um hárið. Eftir sturtuna hellti ég mér upp á kaffi.

Horfði á Liverpool-leikinn en svo skruppum við einkabílstjórinn í Krónuna við Granda. Bræðurnir sáu um heimilisþrifin en ég var að lesa og prjóna. Greip ekki í nálina annan daginn í röð. Hafði kindabjúgu í matinn. Reyndar vorum við aðeins tvö í mat því Davíð Steinn fór eitthvað út um sex. Var búin að slökkva á imbanum um níu og fór fljótlega upp í rúm og las til klukkan tíu. 

10.4.21

Tíminn líður

Í gær labbaði ég báðar leiðir milli heimilis og vinnu. Lagði af stað um sjö. Verkefnin fram að hádegi voru bókhaldstengd og eftir hádegi flokkaði ég kennispjöld til klukkan hálfþrjú. Í fyrradag tók ég mig til og taldi öll kennispjöldin úr einum heilum kassa sem ég flokkaði og voru þau 1115 stykki. Maður er líka næstum einn og hálfan tíma að flokka úr einum kassa, aðeins lengur ef maður rekst á myndir af fólki sem maður þekkir. Við erum búnar að flokka úr rúmlega 30 kössum og eigum að minnsta kosti efitr 600 kassa. Labbaði heim yfir Skólavörðuholtið og var komin um hálffjögur. Greip ekkert í nál en aðeins í prjóna og bækur. Bjó svo vel að eiga til afganga svo ég var ekkert að hafa neitt fyrir kvöldmatnum. 

9.4.21

Löng helgi framundan

Aftur var ég vöknuð á undan vekjaraklukkunni. Gærmorguninn var ósköp svipaður og aðrir vinnumorgnar. Gaf mér smá tíma í tölvunni eftir að ég var komin á fætur og búin að ljúka morgunverkunum. Labbaði af stað í vinnu um sjö. Fyrirliðinn var mætt til vinnu og hún fékk mig til að skipta við sig um stöðu, þ.e. bað um að fá að taka bókhaldið í gær þar sem hún þurfti að mæta á fjarfund um níu. Ég samþykkti það og fór á móttökuendann á framleiðsluvélinni. Daglegri framleiðslu lauk um hádegið og eftir hádegið flokkuðum við gömul kennispjöld til klukkan að verða þrjú. Fékk far heim úr vinnunni. Sjósundsvinkona mín var búin að spyrja hver vildi koma með í sjóinn um fimm en þegar til kom komst hún ekki sjálf og engin af hinum heldur svo ég var ekkert að æða ein af stað. Saumaði út, las, vafraði á netinu og glápti á imbann. Um níu fór ég í snögga sturtu og svo upp í rúm. Las til klukkan tíu og er nú langt komin með bókina Urðarköttur. 

8.4.21

Gluggaveður

Ég vaknaði aftur smá stundu áður en vekjarinn átti að hringja í gærmorgun og var búin að slökkva á honum og koma mér á fætur fyrir klukkan hálfsjö. Labbaði í vinnuna yfir Skólavörðuholtið. Ég var í framleiðslu að troða í vélina fram að hádegi. Eftir hádegi kláruðum við að plokka frá gulu miðana og töldum allt plastið, skráðum niður upplýsingar og létum kortaeigendur vita fjöldann og tegundirnar. Yfirgáfum vinnustað rétt fyrir hálffjögur. Ég fékk far heim. Nennti ekki út aftur. Hellti mér upp á smá kaffi og kveikti svo á fartölvunni. Millifærði smá summu á Odd og fékk hann til að skreppa út í Krambúð. Hringdi í pabba og einnig jafnöldru hans, konu sem var í Óháða kórnum. Tók aðeins fram útsauminn. Horfði á imbann og FBI þátt. Var háttuð upp í rúm um hálftíu og las í rúman hálftíma. Var frekar fljót að sofna. 

7.4.21

Vinnuvikan hálfnuð

Ég vaknaði rétt upp úr klukkan sex í gærmorgun, amk fimmtán mínútum áður en vekjarinn átti að hringja. Dreif mig á fætur, bjó um mig, sinnti morgunverkunum á baðherberginu, fékk mér lýsi og notaði svo tímann sem eftir var til að vafra aðeins um á netinu. Labbaði af stað í vinnuna um klukkan sjö. Fram að hádegi vann ég við framleiðsluna, taldi í kortategundirnar og tók á móti þeim og skoðaði. Framleiðslu lauk um hádegið en eftir hádegi voru við tvær af þremur að plokka út gula miða á milli plasta úr nýrri sendingu sem kom til okkar fyrir fáeinum dögum. Sú þriðja var að vinna í reikningagerðinni en hún plokkaði smá stund með okkur, eða úr einum 300 korta kassa af þeim 25 sem voru saman í öðrum stóra kassanum úr sendingunni.

Fékk far heim úr vinnunni. Tímann til hálfátta notaði ég í tölvumál, útsaum og sjónvarpsgláp. En um hálfátta tók ég til handavinnuna mína og labbaði í Grettisgötuna í saumaklúbb. Tvíburahálfsystir mín mætti um hálfníu. Notaleg og skemmtileg kvöldstundin til klukkan ellefu leið alltof hratt. Fékk far heim með Sonju en við tókum smá rúnt á Gróttu og Ægisíðu til að virða fyrir okkur gosbjarmann af Reykjanesinu. Var komin heim fyrir miðnætti en það munaði ekki miklu. Fór beint í rúmið en gaf mér tíma til að lesa aðeins áður en ég fór að sofa þannig að klukkan var byrjuð að ganga eitt þegar ég slökkti ljósið. 

6.4.21

Fyrsti virki dagurinn í apríl

Ég var pínu löt að fara fram úr fletinu í gærmorgun. Var þó klædd og komin á ról um hálfníu. Það lá svo sem ekkert sérstakt fyrir framan af morgni. Eyddi rúmri klukkustund í fartölvunni en um tíu bjó ég mér til hafragraut. Stuttu fyrir ellefu sótti sjósundsvinkona mín mig og var nafna hennar með í för. Þrjár saman skelltum við okkur í sjóinn við Nauthólsvík. Frost var í lofti en sjórinn mældist 3°C. Áður en við vissum af vorum við búnar að svamla um í sjö mínútur. Tíminn leið extra hratt því við vorum að spjalla svo mikið. Ég kom heim aftur rétt fyrir tólf og var búin að fara í sturtu búa mér til kaffi áður en hádegisfréttirnar á Rás 2 fóru í loftið.

Hélt mig heima við það sem eftir var af deginu. Skrapp aðeins tvær ferðir í þvottahúsið en annars var ég að prjóna, lesa, vafra um á netinu og glápa á imbann. Ekkert varð úr útsaum í gær en það stendur til bóta í dag.

 

5.4.21

Meiri eldar

Ég fór á fætur um hálfníu í gærmorgun. Eftir morgunverkin fór ég beint í eina tölvuna hans pabba og sat þar í uþb klukkustund. Síðan fékk ég mér AB-mjólk og lagði nokkra kapla. Hellti upp á kaffi um tíu um það leyti sem pabbi kom fram. Hann fékk sér þó ekki af kaffinu. Tók út eitt laxaflak sem ég matreiddi í hádeginu og gufusauð ég afganginn af blómkálinu, paprikunni og einn niðurskorin lauk en gleymdi að bæta epli út í. Fram að kaffi var ég að lesa, prjóna, sauma og leggja kapla. Fljótlega eftir kaffitímann tók ég mig saman, kvaddi pabbi, fermdi bílinn og brunaði í bæinn. Kom við á Sprengisandi og fyllti tankinn áður en ég fór heim. Fékk stæði beint fyrir utan og komst með dótið mitt inn í einni ferð. Afgangurinn af deginum fór í sjónvarpsgláp. 

4.4.21

Laxasteik í páskamatinn

Dreif mig á fætur upp úr klukkan átta í gærmorgun. Fyrsti klukkutíminn fór í leiki og netvafr í einni tölvunni hans pabba. Pabbi kom fram um það leyti sem ég hellti mér upp á fyrstu kaffibolla dagsins um tíu. Dagurinn fór svo í lestur, prjón, útsaum og tölvuleiki. Pabbi hafði keypt nokkur laxastykki og matreiddi ég tvö væn stykki í hádeginu og hafði með þeim gufusoðið blómkál, papriku, lauk og epli. Á meðan ég var að græja þetta skrapp pabbi í "mjólkurbúðina" til að kaupa einn kassa af hvítvíni. Opnaði hann ekki fyrr en á áttunda tímanum í gærkvöldi. Um tvö leytið bjó pabbi til pönnukökustafla úr pönnusumixi frá Kötlu. Út í soppuna bætti hann við eggi.

Er búin með bókina um þöglu stúlkuna og er byrjuð á bókinni; Urðarköttur eftir Ármann Jakobsson. 

3.4.21

Páskahelgin á Hellu

Ég var komin á fætur um hálfátta í gærmorgun.  Beið aðeins með að fá mér lýsi og morgunverð eða til níu. Þá borðaði ég afganginn af hafragrautnum frá því á miðvikudagsmorguninn, kaldan með smá rjóma útá. Sjósundsvinkona mín sótti mig rétt fyrir tíu. Þá var ég tilbúin og búin að bíða úti í uþb tíu mínútur. Hún var þá að koma frá því að bíða fyrir utan hjá nöfnu sinni sem hafði ætlað með okkur. Hún var greinilega steinsofandi því það náðist ekki í hana. Við vorum því bara tvær úr kjarnanum sem skelltum okkur nokkrar mínútur í sjóinn við Nauthólsvík. Hittum þó tvennt annað.

Var komin heim rétt upp úr hálfellefu. Skellti mér í sturtu og hellti svo upp á kaffi. Synir mínir komu fram úr herbergjum sínum á tólfta tímanum en ég kvaddi þá um tólf. Kom við hjá Atlantsolíu við Sprengisand en þar var röð af bílum svo ég ákvað að rúmlega hálfur tankur væri alveg nóg næstu daga.

Á leiðinni austur kom ég aðeins við í Fossheiðinni. Stoppaði þar í tæpa klukkustund. Var komin austur á Hellu fyrir klukkan þrjú og hér ætla ég að vera amk til morguns.

Við pabbi vorum með reykt folaldakjöt með rófustöppu í matinn og eftir kvöldréttir setti pabbi upp tjaldið og var með myndasýningu í rúma klukkustund.

2.4.21

Föstudagurinn langi

Í gærmorgun var klukkan byrjuð að ganga níu áður en ég fór fram úr fletinu og á fætur. Eftir morgunverkin á baðinu fór ég beint inn í stofu. Þar voru bæði bækur og prjónadót en líka fartölvan og ég settist niður með hana í dágóða stund. Annars var gærdagurinn nokkuð rólegur. Nennti ekki út í smá labbitúr og það eina sem ég fór út úr íbúðinni voru tvær ferðir í þvottahúsið. Drakk aðeins tvo bolla af kaffi en er ekkert að finna fyrir því núna, þ.e. höfuðið er ekki byrjað að kalla á kaffi. Er langt komin með bókina um þöglu stúlkuna og á aðeins tíu umferðir eftir af barnateppi no tvö áður en ég felli af og geng frá endum. Reyndar verða ekki svo margir endar til að ganga frá því ég prjónaði endana inn í teppið þegar ég var að klára og byrja á nýjum dokkum. Fyrir nokkrum dögum datt mér í hug að kíkja á þætti sem heita "Sáttasemjarinn", var búin að horfa á 3 þætti í gær og horfði á þrjá í einu seinni partinn og í gærkvöldi. 

1.4.21

Mars búinn

Var komin á fætur fyrir klukkan átta í gærmorgun. Fyrsta klukkutímanum eyddi ég í fartölvunni. Rétt fyrir níu skrapp ég í þvottahúsið og fór síðan beint í að búa mér til hafragraut. Sjósundsvinkona mín sótti mig rétt fyrir tíu og við hittum systurnar á bílastæðinu við Nauthólsvík. Ég var langfyrst út í sjó og fór upp úr um leið og hinar. Þær voru eitthvað um fimm mínútur og ég sennilega rúmum tveimur mínútum lengur. Kom heim um hálfellefu og nú notaði ég tækifærið og þvoði mér um hárið. Fljótlega eftir surtuferðina hellti ég upp á fyrsta kaffibolla dagsins. Þeir urðu reyndar tveir og um miðjan dag hellti ég upp á og drakk aðra tvo. Hengdi upp í þvottahúsinu og ákvað að skella yfirtökuflíkinni og hluta af sjósundsdótinu á stutt 39°C prógramm. Annars fór gærdagurinn í lestur, prjón, sjónvarpsgláp og netvafr. 

31.3.21

Í sjóinn í morgun

Ekki tókst mér að sofa lengur en til klukkan að verða sjö í gærmorgun. Gerði tilraun til að kúra svolítið lengur en var komin á fætur áður en klukkan varð hálfátta þrátt fyrir að eiga ekki að mæta til vinnu. Vann einum virkum degi lengur í mars heldur en samanlagt fyrir janúar og febrúar. Það er komið vaktaáætlun alveg til  16. apríl n.k. og skv. þeirri áætlun vinn ég alla fjóra virku dagana eftir páska og svo 15. og 16. apríl.

Tók því frekar rólega fram að hádegi í gær, setti þó handklæði í þvottavélina og var búin að hengja þau upp eftir þvottinn áður en Oddur Smári kom fram. N1 strákurinn var á vinnuvakt og hafði lagt af stað nokkru fyrir klukkan sjö.

Komst að því að það eru tveir höfundar að bókinni um Þöglu stúlkuna, Michael Hjorth & Hans Rosenfeldt og ég kannast eitthvað við persónurnar í sögunni svo ég hef alla vega lesið eina bók af þeim þremur sem eru komnar út á undan þessari.

Upp úr klukkan eitt lögðum við mæðgin af stað í verslunarleiðangur. Rúntuðum aðeins út að Gróttu á heimleiðinni. Um þrjú fékk ég svo einkabílstjórann til að skutla mér niður í bæ þar sem ég hitti 2 núverandi vinnuvinkonur og eina sem vann með okkur til 2016 á Cafe Aleppo. Ég pantaði mér kaffi með nafni staðarins, eplapæ og litla hvítvínsflösku. Eftir eins og hálfs tíma hitting kvöddumst við. Ég varð samferða einni að Hörpunni og þar sem bíllinn hennar var búinn að vera frá því klukkan korter í átti um morguninn. Hún skutlaði mér svo heim.

30.3.21

Heima

Varð svolítið hissa þegar vekjaraklukkan vakti mig rétt fyrir hálfsjö í gærmorgun. Stillti á fimm mínútna blund á meðan ég var að átta mig á þessu. Það tók mig samt aðeins tæpar þrjár mínútur svo ég var búin að slökkva á vekjaranum áður en hann náði að hringja aftur. N1 sonurinn var að undirbúa sig undir vinnuvakt og hann fór út amk tuttugu mínútum á undan mér. Ég labbaði af stað í vinnuna um sjö. Við þrjár sem máttum mæta í gær voru sömu þrjár og unnu saman aðrahverja viku frá því viku eftir verslunarmannahelgi sl haust. Ég sinnti bókhaldinu en hinar tvær sáu um framleiðslu. Upp úr hádegi var send á okkur síðasta endurnýjun mánaðarins svo það var framleitt alveg til klukkan að verða þrjú. Ég sorteraði gömul kennispjöld á meðan og náði næstum því að klára að sortera úr þremum kössum, nokkur hundruð kennispjöld.

Fékk far heim úr vinnunni. Rétt fyrir fimm sótti sjósundsvinkona mín mig og við pikkuðum einnig upp nöfnu hennar áður en við skelltum okkur í sjóinn í Nauthólsvík, 7 mínútur í 3°C sjónum sem var að flæða að. Var komin heim aftur um hálfsex og fór beint í sturtu. Frestaði hárþvotti þótt það séu komnir tíu dagar síðan ég þvoði hárið síðast. Það sleppur alveg í tvo daga enn.

Er byrjuð á bók sem heitir Þögla stúlkan eftir Hjorth Rosenfeldt. Þetta ku vera fjórða bók höfundar um sálfræðikarakter að nafni Sebastian Bergman. Hef ekki lesið hinar en ef þessi nær til mín mun ég líklega leita hinar bækurnar uppi.

29.3.21

Extra stutt vinnuvika

Ég var komin á fætur rétt upp úr klukkan sjö í gærmorgun. Dagurinn fór allur í eitthvað dútl hér heima við og yfir 90% af því dútli tengdist áhugamálum og svoleiðis dægradvöl. Hellti mér tvisvar upp á kaffi. Horfði á báða landsleikina. Prjónaði, las og horfði á imbann. Eitt af því fáa sem ég gerði sem ekki tengdist dútlinu var að útbúa kjúklingalæri í ofni í kvöldmatinn. Var á einhverjum tímapunkti að spá í að skreppa aðeins út í göngutúr en það náði ekki lengra en að hugsa það. Bíllinn er búinn að vera kjurr í sama stæðinu síðan ég kom heim úr síðustu sundferð sl. miðvikudag. 

28.3.21

Síðasti sunnudagur marsmánaðar

Ég var glaðvöknuð og komin á fætur rétt fyrir átta í gærmorgun. Eftir morgunverkin á baðinu settist ég beint inn í stofu og kveikti á fartölvunni. Rétt rúmum klukkutíma síðar slökkti ég á tölvunni og snéri mér að því að búa mér til hafragraut. Þegar ég var búin að taka lýsi og borða helminginn af grautnum hafði ég smá tíma til að lesa og byrjaði ég á einni af bókunum sem ég sótti á safnið sl. miðvikudag; Stelpur sem ljúga eftir Evu Björg Ægisdóttur. Las þó ekki lengi og upp úr hálftíu græjaði ég mig upp fyrir sjósundsferð. Fór í sundbolinn, setti teygju í hárið og sundhettuna á mig. Klæddi mig í sjósundsskóna, í lopapeysu af mömmu, ullarhúfu og yfirtökuflíkina sem ég var enn með í láni frá sjósundsvinkonu minni. Setti skó, handklæði og sjósundsvettlinga í bláan ikeapoka og húslykla, vettlinga, sokka og síma í stóru vasana á yfirtökuflíkinni. Helga Rún sótti mig stuttu fyrir tíu og svo nöfnu sína áður en við fórum og hittum systurnar á stæðinu við Nauthólsvík. Þær þrjár síðastnefndu klæddu sig upp við húsið en ég og Helga Rún fórum á "okkar staði" í fjörunni sem var hægt því það var að fjara út. Hún byrjaði á því að mæla sjóinn sem reyndist 1,8°C. Vorum allar fimm samferða út í og svömluðum um á svæðinu í uþb fjórar mínútur. Fjórir aðrir höfðu fengið sömu hugmynd, að skella sér í smá sjóbað. Ég var komin heim aftur upp úr klukkan hálfellefu og fór ekkert út aftur í gær, aðeins eina ferð í þvottahúsið að skola sjósundsskó og vettlinga, vinda og hengja til þerris. Hringdi í pabba upp úr ellefu og eftir spjallið við hann hellti ég upp á fyrstu tvo kaffibolla dagsins. Hellti aftur upp á einn bolla á þriðja tímanum. Hafði samband við Ellu vinkonu og Önnu Önfjörð frænku mína. Las, prjónaði og dundaði mér við ýmislegt.

27.3.21

Laugardagsmorgun

Það var nokkuð svalt að labba í vinnuna í gærmorgun. Var ekki í nýju úlpunni en það slapp alveg til, hefði sennilega svitnað miklu meira í henni. Í vinnunni vorum við sömu þrjár og á fimmtudaginn. Skiptum um hlutverk og mitt hlutverk í gær var að taka á móti framleiðslu dagsins og skoða. Eftir hádegi vorum við að flokka kennispjöld til klukkan rúmlega hálfþrjú. Fékk far heim úr vinnunni og fór ekkert út aftur. Strákarnir voru báðir heima og ég hafði lasanja í kvöldmatinn. Annars var ég að vafra á netinu, prjóna, lesa og glápa á imbann. Ekki allt í einu samt. Áður en ég fór að sofa lauk ég við að lesa bókina sem ég hef verið að lesa undan farna daga. Það kom tilkynning frá bókasafninu um að skiladagur væri í gær en ég gat framlengt um 30 daga og gerði það. 

26.3.21

Helgarfrí

Seinni partinn í fyrradag var ákveðið að aðeins þrjár mættu mæta á vinnustað í einu. Yfirmaður setti upp nokkura daga plan og ég var skráð í vinnu í gær, dag og nk. mánudag og síðan ekki fyrr en fyrsta virka dag í apríl. Þegar við erum þetta fáar í vinnu röðum við okkur niður í framleiðslu og bókhaldsverkefni, ein í bókhaldi, önnur að hlaða inn og troða í vél og sú þriðja að taka á móti og skoða. Daglegri framleiðslu lauk um hádegið í gær. Ein af okkur fékk að fara fljótlega eftir hádegi en við hinar sátum og flokkuðum kennispjöld til klukkan að verða hálfþrjú. Þá ákváðum við að segja þetta gott þann daginn. Ég labbaði heim og byrjaði á því að hella mér upp á sterkan kaffibolla. Fór ekkert út úr húsi aftur en fór tvær ferðir í þvottahúsið, eina til að setja í vél og aðra ferð til að hengja upp. Horfði á báða landsleikina, vafraði um á netinu í fartölvunni og las smávegis í seinna bindinu um Hellu. Fór tiltölulega snemma í háttinn eða rétt fyrir tíu og las þá í bókinni; Vatn handa fílum sem er sú bók af safninu sem ég skilaði ekki í fyrradag.

25.3.21

Hertar reglur

Í gærmorgun var ég vöknuð um fimm við fuglasöng. Gerði tilraun til að kúra mig niður en um hálfsex gafst ég upp og fór bara á fætur, tannaði, tók lýsi og settist svo með fartölvuna inn í stofu þar til kominn var tími til að labba af stað í vinnuna. Vorum fjórar mættar í vinnu og mitt hlutverk var að sinna bókhaldinu. Daglegri framleiðslu lauk um hádegið. Eftir hádegið vorum við allar fjórar að flokka niður gömul kennispjöld eftir bönkum. Hættum í fyrra fallinu. Ég fékk far heim úr vinnunni og var komin í þann mund sem bein útsending frá blaðamannafundi ríkisstjórnarinnar um hertar samgöngur hófst. Ég hafði fengið áminningu frá bókasafninu um að skiladagur væri að nálgast. Ég tók til sunddótið og ákvað að byrja á því að skreppa á safnið og skila öllum bókum nema þeirri síðustu, sem ég er enn að lesa. Þá bók ætla ég að framlengja, ef það þá gerist ekki bara "sjálfkrafa" vegna lokunnar. Fékk fimm bækur að láni í amk mánuð. Af safninu fór ég beint í sund. Fór fjórum sinnum 4-5 mínútur í kalda pottinn, synti 500 metra, fór tvisvar í heitasta pottinn og endaði í gufunni áður en ég fór upp úr og heim að útbúa ommilettu úr 4 eggjum, rjóma, rifnum osti og afgangi af soðinni ýsu.

24.3.21

Á leið í sund og bókasafn áður en lokar

Vaknaði örfáum mínútum áður en vekjarinn átti að fara af stað í gærmorgun. Slökkti á honum og dreif mig á fætur. Það var ekki lengur strigaskóafæri svo ég reimaði á mig gönguskóna og labbaði í vinnuna á svipuðum tíma og venjulega. Vorum allar fimm og nú er nóg af aukaverkefnum ef maður er búinn með þau verkefni sem skráð er á mann. Rétt fyrir þrjú kom yfirmaður okkar á staðinn og fundaði með okkur í tæpa klukkustund. Góður fundur og farið yfir eitt og annað. Fékk far heim úr vinnunni. Vorum aðeins lengur á leiðinni því umferðin er þyngri upp úr klukkan fjögur. Stoppaði heima í hátt í klukkustund og hringdi m.a. í pabba. Dreif mig loksins í sund upp úr hálfsex. Fór tvisvar sinnum 5 mínútur í kalda pottinn, einu sinni í þann heitasta og synti svo aðeins 100 metra áður en ég fór upp úr og heim aftur. 

23.3.21

Alveg að fara í sund

Vekjaraklukkan vakti mig í gærmorgun. Valdi að "blunda" áfram í fimm mínútur en slökkti svo og fór á fætur þegar hún hringdi aftur. Það var strigaskóagöngufæri í vinnuna. Þurfti reyndar að sneiða framhjá einstaka pollum. Ég átti móttökuvakt á framleiðsluvélinni fram að kaffi. Var í öðrum verkefnum fram að hádegi en eftir hádegi og til rúmlega þrjú var ég á fremri (stjórnar) enda vélarinnar að framleiða endurnýjun. Fékk far heim úr vinnunni. Stoppaði heima til hálffimm en þá skrapp ég í sjóinn við Nauthólsvík. Var komin heim aftur um klukkustund síðar.

Er byrjuð að lesa síðustu bókina af safninu: Vatn handa fílum eftir Sara Gruen. 

22.3.21

Sund- eða sjóferð, erfitt að velja

Mágur minn og hundarnir voru fyrstir á fætur í gærmorgun. Ég kom fram rétt fyrir klukkan átta og þá var að hellast upp á kaffikönnuna. Upp úr klukkan tíu kvöddu systir mín og mágur og fóru með hundana í bæinn. Þau voru á tveimur bílum, mágur minn á vinnubíl því hann verður í verkefnum hér fyrir sunnan til miðvikudags. Leið þeirra hjóna lá í Kostkó áður en þau sóttu yngri dóttlu sína og mættu í fermingaveislu til systursonar Ingva.

Ég stoppaði fyrir austan aðeins fram yfir kaffi og var komin í bæinn rétt fyrir klukkan sex. Kvöldið fór í sjónvarpsgláp.

21.3.21

Hittingur á Hellu

Ég vaknaði við vekjaraklukkuna korter yfir sjö í gærmorgun. Dreif mig fram úr og á fætur. Lokað var inn í stofu sem benti til þess að frænka mín hefði skilað sér í hús einhvern tímann eftir að ég fór að sofa. Um hálfátta bankaði ég upp á hjá N1 syninum og spurði hvort hann þyrfti ekki að mæta í vinnuna klukkan átta. Hann dreif sig á fætur og ég tók til sunddótið mitt. Skutlaði syninum upp á Gagnveg og var hann mættur tvær mínútur fyrir átta. Kom við á Altanstsolíustöðinni við Sprengisand og fyllti á tankinn áður en ég fór í sund. Fámennt en góðmennt var í sundi en það voru samt all nokkrir sem heilsuðu mér með spurningunni; "Hvar hefur þú verið?" Það er svolítið langt síðan ég var í sundi á þessum tíma og undanfarna laugardaga hef ég þar að aukið valið að fara í sjóinn. Byrjaði á því að fara í kalda pottinn í 4-5 mínútur áður en ég synti 500 metra. Fór þrjár ferðir í viðbót í kalda pottinn, tvær ferðir í heitasta pottinn og endaði á gufubaði áður en ég fór upp úr og þvoði mér um hárið. Var mætt til klipparans rétt fyrir tíu. Hálft ár síðan ég var þar síðast. Hann klippti um 2cm af hárinu til að laga endana en lengsta tímann tók að þurrka og greiða á mér hárið. Það heldur áfram að þykkna og nú er ekkert verið að þynna það.

Hvorki Oddur né Bríet voru komin á fætur þegar ég kom heim um hálfellefu. Ég bjó mér til hafragraut og kaffi og gluggaði aðeins í helgarblaðið á meðan ég gæddi mér á þessu. Á tólfta tímanum raðaði ég klæðnaði, snyrtisetti og bókum í ferðatösku og tók til handavinnutöskuna og prjónadótið mitt. Bankaði á herbergisdyrnar hjá Oddi til að kveðja hann og brunaði svo beinustu leið á Hellu. Þar voru fyrir systir mín og mágur og báðir hundarnir þeirra og seinni partinn bættust Jóna Mæja og Reynir í hópinn. Grillið var tekið út. Mágur minn gerði bernessósu og hann og Reynir grilluðu lambasneiðar eftir að Helga systir og Jóna voru búnar að útbúa tvenns konar sallat og ofnbakað grænmeti. Þetta var mjög gott. Ég gekk frá eftir matinn og pabbi hellti upp á kaffi og boðið var upp á kleinur, kex og súkkulaði í eftirrétt. Jóna og Reynir kvöddu á ellefta tímanum og fljótlega fóru systir mín, mágur og hundarnir að sofa. Pabbi bauð góða nótt stuttu á eftir þeim. Ég sat við tölvuna til klukkan hálftólf áður en ég slökkti á henni og fór inn í rúm að lesa.

20.3.21

Gos

Þrátt fyrir smá úða og einhverja polla fór ég á strigaskóm og úlpu labbandi í vinnuna í gærmorgun. Á föstudögum erum við fjórar í vinnu því sú fimmta er í 70% stöðu og búin með sína vinnuviku á hádegi á fimmtudögum. Ég byrjaði frammi í skrifstofurými að undirbúa pökkun. Flokkaði svo gömul kennispjöld í um hálftíma þar til hægt var að telja fyrstu tölur. Eftir kaffi fór ég inn á framleiðsluvél að troða í og eftir hádegi fór ég á móttökuendann. Hættum framleiðslu um þrjú og gengum frá. Ég fékk far heim úr vinnunni. Stoppaði stutt við heima, fann til sunddótið mitt og dreif mig í Laugardalinn. Á heimleiðinni kom ég aðeins við í Krónunni við Nóatún. Ég var nýkomin heim og að setja upp grjónagraut þegar yngri systurdóttir mín kom. Hún þurfti að fara þrjár ferðir til að sækja dótið sem hún var með svo ég spurði auðvitað hvort hún væri flutt til mín. Dótið setti hún inn í stofu enda búin að fá leyfi til að gista þar. Ég fékk samt að sitja yfir imbanum langt fram á kvöld og aðeins inn í nóttina.

Æskuvinkona mín hringdi í mig upp úr tíu og það var hún sem færði mér þau tíðindi að gos væri hafið við Fagradalsfjall á Reykjanesi. Ég var að horfa á nýjasta þátt FBI most wanted, hafði ekki nennt að horfa á allan vikulega þáttinn hans Gísla Marteins en vinkona mín sagði að hann hefði fengið fréttirnar í eyrað undir lok þáttarins. Eftir spjallið við Ellu beið ég eftir því að aukafréttatíminn í sjónvarpinu hæfist og horfði aðeins fram yfir miðnætti. Útsendingu var ekki lokið þegar ég slökkti og dreif mig í háttinn. Rétt hafði úthald til að lesa einn kafla í næstsíðustu bókasafnsbókinni áður en ég fór að sofa í hausinn á mér.

19.3.21

Aftur komin helgi

Labbaði í vinnuna í gærmorgun á strigaskóm í mildu og góðu veðri. Vinnudagurinn leið hratt en hann var ekki búinn fyrr en um hálffjögur. Fékk far heim úr vinnunni. Aldrei þessu vant hafði ég gleymt að færa húslyklana yfir í bakpokann. Hvorugur sonanna svaraði í síma en annar þeirra hringdi fljótlega til baka og hleypti mér þá inn. Ég stoppaði stutt við heima, rétt til þess að taka til sunddótið. Var mætt í Laugardalinn rétt upp úr klukkan fjögur og var að klára mína fyrstu ferð í kalda pottinn þegar kalda potts vinkonan mætti á svæðið. Hún byrjar venjulega á því að fara í heitasta pottinn. Fór fimm ferðir í þann kalda með henni en endaði svo í gufubaði. Kom við í Fiskbúð Fúsa á leiðinni heim og keypti m.a. ýsu í soðið. 

18.3.21

Bráðum verður dagurinn lengri en nóttin

Vekjaraklukkan vakti mig rétt fyrir hálfsjö í gærmorgun. Var mikið að spá í að fara labbandi í vinnuna en í tilefni dagsins ætlaði ég að bjóða samstarsfólki mínu upp á smá veitingar sem voru aðeins meiri en ég treysti mér til að labba með. Það varð úr að ég fór á bílnum í vinnuna í fyrsta skipti á þessu ári. Framleiðsludagurinn fór ekki nógu vel af stað því það höfðu engar skrár skilað sér yfir á vél og við þurftum að hringja á vin til að hjálpa okkur að koma þeim yfir. Og fyrir utan fyrstu tvo daglegu verkin var ein stór endurnýjun með. Sem betur fer gat sá sem kom og hjálpaði okkur sent yfir nokkrar skrár í einu svo það tókst að ná að ljúka við að framleiða fyrsta skammtinn fyrir tímamörkin. Eftir þá framleiðslu fórum við í kaffipásu. Ég bauð m.a. upp á pralín ostatertu, litla gerð af súkkulaðitertu, þrjár tegundir af ostum, vínber og ritzkex. Þetta féll alveg í kramið.

Vinnudegi lauk rétt fyrir hálffjögur. Ég fór heim til að sækja sjósundsdótið mitt og var komin í 3,7°C sjóinn rétt upp úr fjögur. Það var mikil fjara og áður en ég vissi af var ég búin að svamla alla leið út að kaðli. Kom heim aftur um fimm og næsta klukkutímann var í að skoða og svara afmæliskveðjum á veggnum mínum. Helga systir hringdi í mig um þetta leyti.

 Klukkan sex fór ég aftur út og brunaði upp í Hraunbæ, mætti síðust af vinnufélögunum en íbúðareigandinn var akkúrat að byrja að sýna alla króka og kima íbúðarinnar. Svo bauð hún okkur upp á tvær tegundir af súpu, kjúklinga- og sveppasúpu, brauð og fl. Það var svo mikið af súpu að við spurðum tveggja spurninga, hvað hún hefði átt von á mörgum eða hverslu lengi hún vildi að við værum. Ég smakkaði báðar súpurnar og þáði svo kaffi og lítið páskaegg á eftir. Var vel södd eftir þessar veitingar. Um átta leytið kvöddum við gestgjafann. Á leiðinni heim hringdi besti vinur minn í tilefni dagsins. Sá býr í Grindavík og ég spurði strax hvernig þau hefðu það. Hann sagði að þetta væri búið að taka á og nóttin á undan hefði verið sú fyrsta í þrjár vikur sem hann svaf vel og vaknaði úthvíldur.

Þegar heim kom hélt ég áfram að svara öllum kveðjum og fékk einnig þriðja afmælissímtalið og það var frá esperanto vinkonum minni.

17.3.21

Afmælisdagur í dag

Var vöknuð aðeins á undan vekjaraklukkunni í gærmorgun og kom mér fljótlega á fætur. Sinnti morgunverkunum á baðinu og fékk mér matskeið af lýsi og glas af vatni. Svo settist ég smá stund inn í stofu með fartölvuna í fanginu. Labbaði af stað í vinnu um sjö og var mætt um hálfátta. Vorum fjórar af fimm, ein var í orlofi. Vinnudagurinn leið frekar hratt við alls konar hefðbundin sem og nokkur óalgeng störf. Fékk far heim úr vinnunni. Stoppaði heimavið í uþb klukkustund áður en ég dreif mig í sund. Synti reyndar ekkert en fór 3x4-5 mínútur í kalda pottinn, 2x í heitasta pottinn, 1x í sjópottinn og endaði í gufunni. Kom við í Hagkaup í Skeifunni á leiðinni heim.

16.3.21

Marsmánuður hálfnaður

Ég vaknaði á undan vekjaraklukkunni í gærmorgun og fór fljótlega á fætur. N1 sonurinn var kominn fram aðeins á undan mér og fór út úr húsi amk tuttugu mínútum á undan mér. Ég labbaði á strigaskóm í vinnuna sem var alveg í góðu lagi, göngufærið fínt. Sennilega voru það sokkarnir sem urðu til þess að tvær litlar tær á vinstra fæti fóru að nuddast saman á göngunni. Lét það samt ekki stoppa mig. Var á framleiðsluvélinni í móttöku fram að kaffi og í frágangi frammi í skrifstofurými eftir kaffi. Eftir hádegi sat ég sveitt í á þriðja klukkutíma að taka hið árlega öryggispróf, svara 30 spurningum, langflestar með fjórum svarmöguleikum og fyrirmælin voru þau að standast þyrfti með amk 70% rétt til að þurfta ekki að taka prófið strax aftur. Það hafðist og rétt rúmlega það.

Fékk far heim úr vinnunni og var að undirbúa mig að verða sótt af sjósundsvinkonu minni þegar ég sá tilkynningu frá Ylströndinni í Nauthólsvík að loka þyrfti aðstöðunni frá klukkan hálffjögur í gær vegna veikinda starfsmanns. Ég lét því vinkonunan vita að ég ætlaði að skreppa í sund í staðinn. Var mætt þangað rétt fyrir fimm og var búin að fara eina ferð í kalda pottinn þegar kalda potts vinkonana mætti. Við fórum fimm ferðir saman í þann kalda og svo endaði ég á að sitja góða stund í gufunni. Sleppti því alveg að synda í þetta sinn.

Ég var nýkomin upp í rúm um hálfellefu í gærkvöldi þegar stærsti skjálfti gærdagsins reið yfir, rúmlega 4 að stærð. Það kom annar innan við 4 skömmu síðar og fann ég líka fyrir honum. Las í smá stund en var svo örugglega sofnuð einhvern tímann upp úr klukkan ellefu. 

15.3.21

Ný vinnuvika framundan

Í gærmorgun var ég komin á fætur rétt fyrir átta. Til að byrja með fór ég aðeins að vafra um á netinu í fartölvunni sem Davíð Steinn lánaði mér. Áður en klukkan varð níu var ég búin að slökkva. Fékk mér afganginn af hafragrautnum frá því á laugardagsmorguninn. Borðaði hann kaldan með rúsínum og rjóma. Var mætt í laugardalslaugina um hálftíu. Byrjaði á því að synda og var búin með fyrstu ferðina í kalda pottinn þegar kalda potts vinkona mín fann mig í heitasta pottinum. Ein systir hennar og nafna mín mætti á svæðið þegar við vorum að koma úr þriðju og fjórðu ferðinni í kalda. Stuttu síðar hittum við sjósunds vinkonu mína og það kom í ljós að þær könnuðust hver við aðra, höfðu alist upp í sama hverfi. Þvoði á mér hárið þegar ég fór upp úr. Var komin heim um tólf og byrjaði á því að hella mér upp á kaffi. Var að hlusta á hádegisfréttirnar og prjóna þegar einn stór skjálfti reið yfir rúmlega hálfeitt.

Rétt fyrir tvö hringdi ég í nöfnu mína og frænku, Önnu Önfjörð, og okkur samdist um að ég kæmi yfir til hennar en við færum saman í kaffihús. Oddur Smári skutlaði mér vestur í bæ og hann notaði ferðina til að fara með flöskur og dósir í endurvinnslu. Rétt eftir að ég hringdi á dyrasímann hjá frænku minni ku næst stærsti skjálftinn í þessari þriggja vikna hrinu hafa riðið yfir, 5,4 og annar um 4 rétt síðar. Ég fann ekki fyrir þeim þarna fyrir utan, hef líklega verið á einhverri hreyfingu á meðan ég beið eftir að nafna mín kæmi niður og út. Það fyrsta sem hún spurði mig að þegar hún svo kom var hvort ég hefði fundið skjálftann. Hún sagði að kisan þeirra hefði í fyrsta skipti farið í spá í hvað væri að gerast, lætin og glamrið í húsgögnum og dóti í skápum var það mikið.

Við frænkur fórum saman á Cafe Aleppo og ég bauð okkur upp á kaffi og kruðerí. Eftir gott spjall og einnig könnun á hversu stórir skjálftarnir voru löbbuðum við aðra leið til baka. Nafna mín bauðst til þess að skutla mér heim og þáði ég það svo hittingur okkar var, smá gönguferð, kaffihúsahittingur og bíltúr að auki.

Er byrjuð að lesa næstsíðustu bókina af safninu: Marrið í stiganum eftir Evu Björg Ægisdóttur.

14.3.21

Fjárfest í sundbolum

Ég var frekar löt að fara framúr í gærmorgun og var klukkan langt gengin í níu áður þegar ég hafði mig loksins framúr. Klukkutíma síðar bjó ég mér til hafragraut og átti ég rjómalögg til að bæta út á hann svo hann var virkilega saðsamur og góður. Rétt rúmlega hálfellefu sótti sjósundsvinkona mín mig. Mættum í röðina við aðstöðuna korter fyrir ellefu. Systurnar komu um svipað leyti. Við vorum allar frekar aftarlega en samt nógu framalega til að fá að fara inn í fyrsta hollinu. Sjávarhitinn var kominn niður í 2,1°C og vindkælingin nokkur. Ég var fyrst út í af fjögurra manna hópnum mínum. Það var fjara svo vaða þurfti hálfa leið til Kópavogs ef maður vildi komast á eitthver dýpi.

Var skilað heim aftur fyrir klukkan hálfeitt. Fékk mér afgang af steiktum fiski frá því í vikunni og hellti mér upp á tvo kaffibolla. Tveimur tímum síðar dreif ég mig í sundbolaleiðangur í Sports Direct. Fann uppáhalds sniðið mitt í minni stærð og keypti mér þrjá. Tveir af þeim þremur sundbolum sem ég hef verið að nota eru orðnir hættulega þunnir á viðkvæmum stöðum svo þeir verða lagði til hliðar og svo í Rauða kross gám fljótlega. 

13.3.21

Í sjóinn á eftir

Labbaði af stað í vinnuna um sjö í gærmorgun, Um það bil sem ég var að komast efst upp á Skólavörðuhæðina ákvað ég að taka niður og slökkva á höfuðljósinu. Það er sennilegt að ég þurfi ekki að setja það upp aftur næstu mánuðina því það er alls ekki eins dimmt á morgnana enda verður jafndægur á vori um næstu helgi. Ég sinnti bókhaldsstörfum í vinnunni og um ellefu tók ég þátt í förgun ónýtra plasta frá því í febrúar. Höfðum þann háttinn á að ég þuldi upp tegundirnar og fjölda og yfirmaður minn var með pappíra til að staðfesta. Fyrirliðinn og ein úr öryggisdeildinni biðu með að farga plastinu þar til búið var að staðfesta öll tæplega hundrað kortin. Síðan var skeiðklukkan sett í gang til að athuga hvað tæki langan tíma fyrir tvo að tæta þessi kort. Niðurstaðan var ein og hálf mínúta. Eftir förgun var stuttur stöðu og upplýsingafundur. Öllum daglegu verkefnum og frágangi var lokið fyrir klukkan hálftvö. Enginn póstur kom klukkan tvö svo við drifum okkur heim í helgina. Ég fékk far heim. Byrjaði á því að hella mér upp á kaffi og fá mér smá hressingu. Tveim tímum seinna dreif ég mig loksins í sund og náði tveimur ferðum í kalda pottinn með kalda potts vinkonu minni. Ég tók svo smá sundsprett áður en ég fór aftur heim og bjó til plokkfisk úr afganginum að ýsunni frá því kvöldið áður.

12.3.21

Föstudagur

Þar sem ég tók að mér að sitja yfir þeim sem sinna yfirferð á framleiðsluvélinni var mér boðið að mæta aðeins seinna til vinnu í gærmorgun. En þótt ég ætti von á því að vera til klukkan fjögur þá var ég vöknuð og komin á fætur fyrir klukkan sjö og ákvað að labba af stað á venjulegum tíma, um sjö. Var í móttökustörfum á vélinni fram að morgunkaffi en pökkun, frágangi og talningu fram að hádegi. Yfirferðarmennirnir voru mættir klukkan tólf. Þá vorum við búnar að læsa alla skápa og bankatöskur inn á lager. 70% manneskjan kvaddi um þetta leyti og óskaði okkur góðrar helgar. Hinar tvær voru farnar um og upp úr klukkan eitt. Ég var með prjónana mína og bækur. Um tvö athugaði ég hvort borist hefði póstur. Pósthólfið var tómt. Yfirferðarmennirnir voru aftur á móti að taka sig saman og hættir. Þeir áttu semsagt aðeins að skila fjórum tímum og þar sem þeir voru tveir deildust tímarnir á þá báða svo þeir voru bara tvo tíma. Ég gat því hætt um leið og þeir voru farnir.

Labbaði heim og var komin nokkru fyrir þrjú. Kalda potts vinkona mín hafði haft samband fyrir klukkan átta og spurt hvort ég kæmi í sund um fjögur. Þá átti ég ekki von á því að komast fyrr en um fimm. Ég var ekkert að breyta tímasetningunni aftur. Mætti þó í sund rétt fyrir fimm, kom við í fiskbúðinni áður. Þá var hún búin að fara eina ferð. Saman fórum við fimm ferðir og fórum svo ýmist í heitasta pottinn, sjó-pottinn (sem loksins er kominn sjór í aftur) og pott no 2 sem er 42°C. Ég tók svo eina loka ferð í þann kalda, mína sjöttu áður en ég fór upp úr og heim. Klukkan var orðin meira en hálfsjö en ég var búin að græja soðna ýsu, með kartöflum og lauksmjöri um sjö leytið.

11.3.21

Labbað báðar leiðir

Fór labbandi á strigaskóm í vinnuna í gærmorgun. Færið var fínt. Við vorum aðeins fjórar í vinnu, sú fimmta hafði tekið sér orlofsdag. Ein af hinum tók svo út styttingu og kvaddi okkur um hádegið. Þá var framleiðslu lokið og átti aðeins eftir að telja síðustu tölur. Fljótlega eftir hádegishlé voru þær afgreiddar og sú sem var í bókhaldinu fór með slatta af dósum og flöskum með sér út stuttu fyrir tvö. Við tvær sem vorum eftir hinkruðum til tvö ef það myndi koma póstbeiðni um að vinna ákveðið verk. Sá póstur kemur aðeins stöku sinnum en hafði komið á slaginu tvö síðustu fjóra virka daga á undan. Í gær kom enginn póstur svo við ákváðum að drífa okkur heim. Ég fékk fínasta meðbyr á göngunni heim en mér fannst pínu fyndið að vera í strigaskóm þar sem það var kominn smá snjór hér og þar. Snjórinn var samt meira að fjúka um.

Þegar heim var komið hellti ég mér upp á tvo bolla af kaffi þrátt fyrir að vera búin að drekka amk fjóra espressó í vinnunni yfir daginn. Var lengi vel að spá í að drífa mig í sund en um fimm tók ég þá ákvörðun að fara ekkert út úr húsi aftur, heldur lesa, prjóna og taka því rólega. 

10.3.21

Smá hret

Ég reimaði á mig gönguskóna rétt fyrir sjö í gærmorgun. Setti ekki broddana undir og það slapp alveg til á göngunni í vinnuna. Þurfti þó að fara extra varlega þegar ég þveraði Klamratúnið, labbaði stundum til hliðar við steypta stíginn. Vann til klukkan tólf því ég var búin að ákveða að taka hálfan dag og skrá sem uppsöfnuð stytting vinnuvikunnar fyrir marsmánuð.

Hafði nefnt það við einkabílstjórann hvort hann myndi fara í Sorpu í fyrra fallinu, sækja mig í vinnunna á leiðinni þangað og hleypa mér út við Krónuna við Granda. Sonurinn var ekki einu sinni lagður af stað þegar ég labbaði út af vinnustaðnum en þegar ég náði loksins í hann samdist okkur um að hann myndi pikka mig upp við Sólfarið. Ég rölti því þangað og þurfti aðeins að bíða í uþb 7 mínútur.

Var búin að skrifa niður innkaupalista svo ég myndi ekki gleyma neinu nauðsynlegu. Komum heim um hálftvö. Þá var hinn sonurinn búinn að taka aðeins til í eldhúsinu. Einkabílstjórinn hjálpaði mér að ganga frá vörunum og svo tókum við okkur saman um að fara aðeins yfir gólfin, með rykmoppu yfir parketi, hrúgurnar svo ryksugaðar upp sem og teppið fram á palli og flísarnar á baðherbergisgólfinu.

Klukkan var langt gengin í fjögur þegar ég tók til sjósundsdótið og brunaði í Nauthólsvík. Það var næstum háflóð, sjórinn 3,2°C og ég svamlaði um í rúmar tíu mínútur. Engin biðröð var við aðstöðuna en þegar ég var á leiðinni heim upp úr klukkan fjögur þá tók það mig aðeins lengri tíma að komast heim en venjulega því það var smá umferðarsulta á Flugvallarvegi upp á Bústaðaveg.

Í gærkvöldi var ég svo með saumaklúbb hjá mér. Það var 100% mæting og sem fyrr fannst okkur við bara búnar að sitja, föndra og spjalla í uþb tíu mínútur þegar klukkan var allt í einu orðin ellefu. 

9.3.21

Stytting

Var í fyrstu ekki alveg viss hvað var að gerast þegar vekjarinn fór í gang í gærmorgun. En ég var tiltölulega fljót að átta mig og dreif mig á fætur. Átti til kaldan hafragraut í ísskápnum síðan á laugardagsmorguninn og ég gæddi mér á honum. Labbaði á strigaskóm í vinnuna. Nú þegar við erum allar fimm þá verðum við að skipta verkunum á milli okkar. Tvær sjá um framleiðsluvélina fram að morgunkaffi, ein sinnir bókhaldinu og önnur af þeim sem tekur við vélinni eftir kaffi undirbýr pökkun. Hin fær þá yfirleitt að aðstoða bókarann við að telja þegar fyrstu tölur eru tilbúnar eftir fyrsta framleiðsluskammtinn. Daglegri framleiðslu lauk fyrir klukkan tólf. Eftir hádegi ákváðum við að setjast aðeins niður saman í sófanum, tvær af okkur vorum með prjónana. Spjölluðum á léttu nótunum í kannski hálftíma áður en bókarinn fór að undirbúa síðustu talningalotu dagsins. Á slaginu tvö kom póstur sem þurfti að meðhöndla á ákveðinn hátt. Svona póstur kemur stöku sinnum en svo geta liðið dagar á milli. Í gær var þetta þriðji pósturinn í röð frá og með sl. fimmtudegi. Stungum af úr vinnunni rétt fyrir hálfþrjú. Ég fékk far heim.

 Þar sem ég fór ekkert í sund á sunnudaginn og þvoði þar af leiðandi ekki á mér hárið þá þá ákvað ég að drífa mig í sund seinni partinn. Synti að vísu ekki nema 200 metra en fór 4x4-5 mínútur í kalda pottinn, 2x í heitasta pottinn og var svo góða stund í gufunni. Þvoði á mér hárið og var komin heim um sex. Hafði tekið út þorshnakkaflak út í gærmorgun. Setti upp kartöflur, skar flakið í fjóra bita og steikti upp úr eggi og krydduðum byggflögum. Átti svo smá rjómaslettu til að setja út á pönnuna í restina. Mjög gott.

Er byrjuð á enn einni bókasafnsbókinni; Blóðengill: Hilma eftir Óskar Guðmundsson. Er samt enn að lesa Vatnið, gríman og geltið. Þar að auki er ég enn að lesa tvær síðustu jólabækurnar og svo styttist örugglega í að ég opni seinna bindið um Hellu.

8.3.21

Slyddukenndur göngutúr í vinnuna í morgun

Ég vaknaði ekki fyrr en klukkan var að verða hálftíu í gærmorgun, við glampandi sól og afar gott veður. Bíllinn minn var samt hrímaður að utan. Veit ekki hvenær ég sofnaði eftir skjálftann um nóttina en það var amk ekki alveg strax. Pabbi spurði um hvað við ættum að hafa í hádegismat. Sagðist reyndar eiga skyr fyrir sig. Ég tók út eina þorskblokk, sem ég steikti upp úr hrærðu eggi og krydduðu byggmjöli. Sauð kartöflur með og var maturinn tilbúinn rétt fyrir tólf.

Um eitt leytið fékk ég mér göngutúr upp að Helluvaði til að heimsækja föðursystur mína. Þetta er fyrsta heimsóknin mín til hennar á þessu ári en hún er búin að fá báðar sprauturnar. Stoppaði hjá henni í hátt í tvo tíma.

Annað sem ég gerði á meðan ég var fyrir austan um helgina, fyrir utan að prjóna, lesa og leggja kapla var að fá síðustu upplýsingar í skattframtalið mitt og skila því. Í fyrra var lokagreiðslan á lífeyrissjóðsláni sem pabbi tók og lánaði mér til að fjármagna fyrstu íbúðarkaupin 1995.

Um hálffimm kvaddi ég pabba og brunaði heim í bæinn. Var komin heim um sex, en södd eftir hádegismatinn og tvo kaffitíma. N1 sonurinn var að vinna til hálfátta og hinn fékk sér núðlur um það leyti sem ég var að koma heim. 

7.3.21

Hrökk upp við skjálfta um tvö í nótt

Var komin á fætur um sjö í gærmorgun. Hálftíma síðar vakti ég N1 soninn og spurði hvort hann ætti ekki að mæta til vinnu um átta. Það var reyndin og bauðst ég til að skutla honum. Hann þáði það, pissaði, tannaði og klæddi sig og með minni aðstoð komst hann í vinnuna rétt áður en klukkan sló átta. Ég fór beint heim aftur. Gekk frá endum á fyrsta barnateppinu sem datt af prjónunum í fyrrakvöld. Fitjaði upp á nýju barnateppi með öðru mynstri. Byrjaði að lesa Vatnið, gríman og geltið eftir Silju Björk Björnsdóttur sem er mágkona mágs míns og er um veikindi hennar sem hún glímdi við um tvítugt. Um hálftíu bjó ég mér til hafragraut og hellti upp á könnuna. Klukkutíma síðar var ég sótt af nöfnunum. Við vorum mættar í röðina við aðstöðuna í Nauthólsvík korter fyrir ellefu, nógu framalega til að ná inn með fyrsta hollinu. Sjórinn var kominn yfir þrjár gráður og tvær af okkur nutum þess að svamla um. Sú þriðja naut þess líka til að byrja með en við vorum kannski of lengi út í fyrir hana, næstum því korter og svo smá stund í lóninu áður en við fórum í heita pottinn. Vorum í pottinum í amk tuttugu mínútur en hún náði ekki í sig hita, ekki fyrr en hún fékk sér te eftir að hún mætti til vinnu upp úr tólf.

Um eitt leytið var ég búin að taka saman farangur amk til einnar nætur, vakti Odd til að kveðja hann og brunaði beint austur á Hellu. Við pabbi fórum í smá kaplakeppni en spilin voru ekki með okkur í liði svo ég settist fljótlega inn í stofu með prjónana mína. Pabbi bauð upp á pönnsur með kaffinu og í kvöldmat fékk ég kjötsúpu. Hann sjálfur er hættur að borða heitan mat á kvöldin, fékk sér kornfleks og lifrapylsusneið. Eftir að kvöldfréttirnar voru byrjaðara fékk ég leyfi til að renna í hvítvínsbeljuna. Horfði á seinni hlutann um Daða og Gagnamagnið og skipti svo yfir á Sjónvarp símans. Ég var komin upp í rúm um ellefu og las bara í stutta stund. Var örugglega sofnuð fyrir miðnættið. Um tvö leytið í nótt var ég nýbúin að snúa mér í rúminu þegar skjálftinn upp á fimm reið yfir og fannst greinilega. Ég ætlaði að halda áfram að sofa en ég varð að byrja á því að skreppa fram á salerni og tæma hlandblöðruna fyrst og það varð líklega til þess að ég glaðvaknaði og gekk illa að sofna aftur í einhvern tíma.

6.3.21

Sjórinn 3,2°C

Að sjálfsögðu labbaði ég í vinnuna fimmta daginn í röð í gærmorgun. Var mætt um hálfátta. Á föstudögum mætum við fjórar af fimm, þ.e. ef engin er í fríi eða lasin. Fram að morgunkaffi var ég inni á framleiðsluvélinni í móttökunni eftir að hafa tekið saman og talið til þær tegundir sem voru í daglegri framleiðslu í fyrstu tveimur daglegur verkefnunum. Eftir kaffið var ég frammi í pökkun, frágangi og einnig föstudagstalningu með bókaranum þegar framleiðsluverkefnum var lokið. Engin auka framleiðsla er í gangi svo það var engin framleiðsla eftir hádegi. Vorum samt í vinnu til klukkan að verða hálfþrjú.

Fékk far heim úr vinnunni. Hellti mér upp á smá kaffi og settist smá stund inn í stofu með fartölvuna í fanginu. Var komin í sund klukkan að verða hálffimm. 3x5 mínútur í kalda, 300m sund og endaði í löngu gufubaði. Kom heim aftur um sex. 

5.3.21

Fyrsta heila vinnuvikan mín á árinu liðin

Vaknaði upp við snarpan skjálfta stuttu fyrir sex í gærmorgun, rúmum hálftíma áður en vekjaraklukkan átti að vekja mig. Fór á fætur skömmu síðar. Labbaði af stað í vinnuna á svipuðum tíma og venjulega. Valdi aðra leið eftir að ég var komin þvert yfir Klambratún. Fór yfir Snorrabraut, framhjá Domus Medica, upp á milli Tækniskólans og Hallgrímskirkju, Skólavörðustíginn, hluta af Arnarhól og kom Kalkofnsveginn að vinnustaðnum. Ég var í bókhaldi og kom því ekkert nálægt framleiðslunni. Hinar fjórar skiptu með sér verkum, tvær í framleiðslu fram að kaffi og hinar tvær í alls konar undirbúning frammi. Þær síðarnefndu fóru svo í framleiðsluna eftir morgunkaffi. Allri endurnýjun er lokið í bili og daglegri framleiðslu lauk rétt fyrir klukkan tólf. Nú þegar við erum allar í vinnu saman er ein búin að færa sig aftur í 70%. Hún var því búin með vinnuvikuna sína um hádegið. Við hinar vorum til rúmlega tvö.

Fékk far heim úr vinnunni. Fór í sund um fjögur. Var búin að synda 400metra og sat í minni fyrstu ferð í þeim kalda þegar kalda potts vinkona mín mætti á svæðið. Kom heim aftur um sex. 

4.3.21

Skatturinn

Ég er ekki búin að opna skattframtalið mitt sem á að skila inn á næstu dögum. Er samt alveg róleg yfir þessu og stefni að því að skoða þetta og klára um komandi helgi.

Tuttugastaogþriðja vinnudaginn í röð á árinu labbaði ég í vinnuna upp úr klukkan sjö í gærmorgun. Framan af morgni höfðum við allar fimm nóg að sýsla. Við þrjár sem vorum frammi til að byrja með, ein í bókhaldi, önnur í að undirbúa pökkun og sú þriðja að sortera og raða saman ónýtu plasti frá því í febrúar, vorum sömu þrjár og unnu saman aðra hverja viku frá verslunarmannahelgi. Tvær af okkur tókum við framleiðslunni inni á vél eftir morgunkaffi. Ég var í að taka á móti. Þegar daglegu framleiðsluverkefni tvö af þremur lauk og það var amk hálftími í það þriðja höfðum við síðustu endurnýjun febrúar úr að moða. Sú endurnýjun var keyrð til okkar og yfir á vél sl. mánudag og það var búið að framleiða eitthvað af henni. Nokkrar misstórar skrár voru þó eftir og framleiddum við allar nema þá stærstu, hún var framleidd eftir hádegið.

Skipt var um vinnutölvur hjá mér og einni annarri eftir hádegi í gær og það var ekki búið fyrr en um fimm. Fékk svo far heim og ákvað að fara ekkert út úr húsi aftur, skrópaði semsagt í sjóinn og fór heldur ekkert í sund. 

3.3.21

Jarðhræringar og gosórói

Jæja, ætli það sé komið að því? Gos kannski að hefjast á stað sem er virkt en hefur ekki gosið öldum saman? Það er mikið lagt á almannavarnir þessi misserin og verkefnin velflest krefjandi. Og margt sem hefur verið að gerast og er í gangi eitthvað sem þarf að fylgjast með, læra af og búa sig undir allt mögulegt. Það væri nú samt alveg ágætt ef maður hætti að hrökkva upp við skjálfta á nóttunni.

En hvað um það, það gerist sem gerist. ÉG er að spá í að reyna bara að halda áfram daglegri rútínu. Ég labbaði í vinnuna á svipuðum tíma og oftast áður í gærmorgun og var mætt á vinnustaðinn rétt upp úr hálfátta. Ég átti fyrstu vakt á vélinni ásamt einni annarri, ég að hlaða inn og setja af stað. Hún að telja til tegundirnar og taka á móti. Sú sem átti að vera í móttökunni eftir kaffi var í krefjandi yfirlestri á verkferlum og handbók og þáði það að ég leysti hana af. Svo það fór þannig að ég kom mér inn á vél allan tímann sem hún var í gangi því eftir hádegi vorum við aftur saman á vélinni sem tókum fyrstu vaktina. Ég að taka á móti og hún að troða í. Hættum framleiðslu rétt fyrir hálffjögur, gengum frá og fórum heim. Fékk far með þeirri sem var tvisvar með mér á vélinni.

Kalda potts vinkona mín lét mig vita að hún kæmist ekki í sund. Ég var mætt í Laugardalslaugina upp úr klukkan fjögur. Fór 3x5 mínútur í kalda, synti 400 metra, fór einu sinni í heitasta pottinn og endaði í gufunni. Kom heim um sex leytið.

Er enn að lesa bókina Pabbastrákur en er rúmlega hálfnuð með hana enda hef ég aðeins verið að lesa í þeirri bók síðustu tvö kvöld.

2.3.21

Annar dagurinn í mars

Labbaði af stað í vinnu í gærmorgun rétt upp úr klukkan sjö og var þriðja af fimm til að mæta til vinnu. Eftir að hafa fyllt á vatnsflöskurnar okkar og setið smá stund frammi á kaffistofu fór tvær að vinna á vélina, ein í bókhaldið og við tvær sem áttum vélarvakt eftir morgunkaffið til hádegis fórum í lagertalningu. Í morgunkaffinu fengum við sendar sérstakar veitingar frá næsta yfirmanni í tilefni þess að þetta var fyrsti vinnudagur okkar allra saman síðan síðast í júlí á síðastliðnu ári. Fyrir utan daglega framleiðslu var enn nokkur endurnýjun eftir. Vélin var gangandi alveg til klukkan að ganga fjögur fyrir utan kaffi og hádegispásur.

Fékk far heim úr vinnunni upp úr hálffjögur. Rúmum klukkutíma síðar sótti sjósundsvinkona mín mig. Við voru aðeins tvær af fimm úr hópnum okkar sem drifum okkur í sjóinn. Vorum rúmar fimm mínútur í 2,2°C sjónum og svo nokkrar mínútur í lóninu sem virkaði næstum eins og heitur pottur. Vorum svo næstum hálftíma í heita pottinum. Mér var skilað aftur heim um sexleytið.

1.3.21

Grímulausar allar fimm saman í vinnu

Fór á fætur um klukkan níu í gærmorgun. Fljótlega hafði kalda potts vinkona mín samband og hún spurði hvort ég myndi mæta í Laugardalslaugina um tíu. Ég kvað svo vera og var akkúrat á planinu fyrir utan laugina þegar klukkan sló tíu. Hrafnhildur var þegar búin að fara eina ferð í kalda pottinn þegar hún hitti mig þar í minni fyrstu ferð. Fyrsta ferðin hjá mér varð þá aðeins lengri en hinar fjórar sem ég fór í viðbót. Eftir fimmtu ferðina mína synti ég 400m áður en ég fór upp úr. Þvoði á mér hárið og á heimleiðinni kom ég við í Krónunni við Nóatún. Restin af deginum var svona svipuð og undanfarna daga. Horfði á Landann og fyrri partinn af heimildamyndinni um flugslysið í Mykinesi 1970. Er ekki búin að klára að lesa bókina. Fór í háttinn um tíu, bæði til að lesa smá og undirbúa mig undir fyrstu heilu vinnuvikuna síðan í fyrra sem og að hitta allar samstarfskonur mínar á deildinni en síðast vorum við allar saman seinni partinn í júlí sl. Varð vör við skjálftana sem voru um hálfeitt í nótt og hrökk svo upp með andfælum klukkutíma síðar þegar sá sem var 4,9 reið yfir.