Það endaði með því að ég lauk við að lesa síðustu bókina af safninu áður en ég fór að gera nokkuð annað í gærmorgun. Rétt fyrir tólf fór á safnið og skilaði öllum bókunum sjö og fékk að láni 6 aðrar í staðinn, allt bækur sem þarf ekki að skila fyrr en 31. júlí n.k. Er þegar byrjuð að lesa bókina Refurinn eftir Sólveigu Pálsdóttur. Annars keypti ég mér kilju eftir Vivecu Sten Ísköld augnablik: tíu sögur úr skerjagarðinu áður en ég fór í ferðalagið um daginn. Byrjaði loksins á þeirri bók í gær.
En eftir ferðina á safnið lagði ég leiðina í vöruhús Gorillas í Vatnagörðum að sækja pakka fyrir systur mína og mág. Þau komu við í gærkvöldi á leiðinni norður til að taka með sér pakkann. Frá Vatnagörðum fór ég í Laugardalslaugina til að synda, pottormast og slaka vel á í gufunni. Verslaði svo inn á leiðinni heim.
Ákvað að taka því rólega til að byrja með í morgun. Var þó komin á fætur fyrir klukkan níu. Gerði mér ferð í vínbúðina í Skeifunni um tíu og keypti mér fjórar litlar hvítvínsflöskur. Útbjó mér nesti og pakkaði ýmsu niður í rauða bakpokann. Rétt fyrir ellefu labbaði ég af stað í Hörpuna. Þar ætlaði ég að kaupa miða í Viðeyjarferjuna kl. 12 en það opnar ekki í Hörpunni fyrr en klukkan tólf. Þær tvær sem ég ætlaði að vera samferða út í eyju voru á leiðinni að Gömlu höfninni. Þar átti ferjan að fara kl. 11:50. Ég náði að komast þangað í tíma og við vorum komnar í Viðey um hálfeitt. Löbbuðum, strandleiðina áleiðis að skólanum. Settumst niður rétt við vatnstankinn, fengum okkur af nestinu og drukkum rautt og hvítt með. Fórum á snyrtinguna í skólanum og skoðuðum okkur um þar inni. Löbbuðum slóðann til baka og skoðuðum m.a. friðarsúluna áður en við keyptum okkur smá hressingu og settumst fyrir utan Viðeyjarstofu. Hinar tvær tóku einn göngutúr enn, en ég ákvað að taka frekar fram bók og lesa. Síðasta ferðin sem fór á Gömlu höfnina var klukkan hálfsex. Það fara þrjár ferðir þangað á dag en 6 eða 7 ferðir á klukkutíma fresti milli Skarfabakka og Viðey. Ég fékk að hoppa af bátnum á Norðurbakka við Hörpu. Ákvað fljótlega að hringja í einkabílstjórann og hann var til í að sækja mig. Er búin að ganga vel yfir 18000 skref í dag.