Aftur þurfti ég að leita að gleraugunum mínum áður en ég lagði af stað í vinnuna í gærmorgun. Á síðustu stundu mundi ég að líklega væru þau niðri í þvottahúsi frá því kvöldið áður. Ég hef reyndar aldrei gleymt þeim þar áður en einu sinni verður allt fyrst. Fann þau á borðinu við hliðina á þvottavélinni minni og tók þau með mér í strætó. Notaði þau alla leið í vinnuna en það fyrsta sem ég gerði eftir að ég var komin að skrifborðinu mínu var að leggja þau frá mér undir öðrum tölvuskjánum og þar voru þau allt þar til kominn var tími til að fara heim rúmum átta klukkutímum síðar. Að þessu sinni ákvað ég að labba hægra megin við Skólavörðuholtið, þ.e. Lækjargötuna og meðfram tjörninni. Þegar ég kom að Gunnarsbrautarendandum sem er næst Miklubrautinni beygði ég aðeins af leið til að athuga hvort ég gæti ekki fengið eins og eitt vatnsglas heima hjá einum frænda mínum. Konan hans og tveir synir þeirra voru heima. Mér var boðið inn en ég ætlaði mér ekki að stoppa að þessu sinni nema örfáar mínútur og varla það. Vatnsglasið gerði mér afar gott.
31.1.15
30.1.15
Gengið heim úr vinnu
Í gærmorgun fór ég í "neglda" gönguskó áður en ég trítlaði út í strætóskýli. Var með bakpokann með mér og í honum var m.a. sunddótið mitt. Gleraugun voru skilin eftir heima, það er að segja ég fann þau ekki áður en ég þurfti að drífa mig af stað. Það kom alls ekki að sök því ég nota ekki gleraugun nema við akstur og ég skildi lánsbílinn eftir.
Vinnudagurinn var jafn öðruvísi og flestir hinna undanfarið en vinnudagurinn leið hratt. Það teygðist reyndar aðeins úr honum en bara smá. Um hálffimm labbaði ég áleiðis heim og kom við í Sundhöll Reykjavíkur. Synti nokkrar inniferðir, skrapp í útipott og gufu og þegar ég var að þvo mér á eftir bað ég um að konan sem var að spúla gólfið sprautaði köldu vatninu á fæturnar á mér. Það var afar hressandi og er að spá í að biðja um slíkt aftur og jafnvel yfir mig alla ef færi gefst.
Var komin heim um sex og fór fljótlega að taka til kvöldmatinn því ég var ákveðin í að setjast niður með saumana mína fyrir framan skjáinn um átta leytið. Það tókst en reyndar saumaði ég aðeins útlínur með einum þræði, gengur eitthvað hægt hjá mér handavinnan þessa dagana. Davíð Steinn lét mig vita að hann hefði fundið gleraugun mín í stofusófanum og höfðu þau verið það frá því kvöldið áður.
29.1.15
Innisund
Aftur var lánsbíllinn notaður og voru synir mínir ekkert ósáttir með það að fá far í skólann. Vinnudaguirnn leið hratt en það var í mörg horn að líta hjá mér eins og undanfarið. Klukkan var að verða hálffimm þegar ég losnaði. Ég var búin að mæla mér mót við manneskju á ákveðnum stað sem miðaðist við að vera komin áður en klukkan yrði fimm. Það tókst en þá hafði hin steingleymt stefnumótinu og var komin í annan bæjarhluta þegar ég hringdi. Hún sagðist ælta að snúa við og ég ákvað að best væri að hún kæmi bara við fyrir utan Drápuhlíðina. Ég var komin á undan þangað og var alveg tilbúin að taka á móti vörunum sem verið var að koma með til mín.
Hafði ekki langan tíma heima þar til kominn var tími til að drífa mig á vikulega kóræfingu. Að þessu sinni var mæting með besta móti og kórstjórinn bað mig um að syngja þá frekar með sópran. Það var bara gott og gaman og röddin ekkert þreytt eftir. Reyndar var ekki verið að syngja lög sem fóru of hátt upp en samt aðeins hærra en alt-röddin þarf sjaldnast að fara. Annars á ég ekki í miklum erfiðleikum með að syngja niður en það eru líklega sveiflurnar sem fara verst með mig.
Eftir kóræfingu kom ég við í Hagkaup í Skeifunni til að kaupa smá brauð. Þegar ég kom heim var að byrja spilakvöld hjá strákunum og nokkrum af félögum þeirra. Seinna um kvöldið hringdi ég í tvíburahálfsystur mína og við töluðum saman í næstum klukkustund sem virkaði samt ekki lengar en tíu mínútur/korter.
28.1.15
Mið vika
Þar sem ég hafði hug á að reka nokkur erindi eftir vinnu og annar strákurinn var volgur fyrir því að taka að sér að sjá um kvöldmatinn þá bauð ég bræðrunum far í skólann í gærmorgun. Vinnudagurinn var frekar mikið öðruvísi en það náðist að ljúka honum á "hreinu borði" hvað daglega framleiðslu varðar. Ég slapp út klukkan að verða hálffimm og byrjaði á því að renna við í Sorpu við Granda með fullan poka í Rauða Kross gám og smávegis fleira. Síðan brunaði ég í Laugardalinn til að synda og gufast í uþb þrjú korter. Klukkan var að byrja ganga sjö þegar ég kom aftur út í bíl. Þá hringdi ég í matsvein kvöldsins sem var búinn að fastákveða að sjá um kvöldmatinn þannig að ég skrapp fyrst til Böddu minnar. Það var kannski eins gott því hún sagði mér að hún væri að fara af sjúkrahúsinu í hvíldarinnlögn daginn eftir. Ekki það að ég mun örugglega halda áfram að heimsækja hana reglulega. Maturinn beið mín þegar ég kom heim en bræðurnir voru nýbúnir að borða sjálfir. Ég tók því að mér að sjá um að ganga frá í eldhúsinu.
27.1.15
Flug á dögunum
Það þarf ekki að kvarta neitt yfir því að tíminn sé lengi að líða þessa dagana og það er aldrei lognmolla í kringum mig nema þegar ég dreg mig markvisst í hlé bara til að íhuga ein með sjálfri mér í stutta stund. Verst hvað ég gef mér lítinn tíma í handavinnu og lestur þessa dagana en það er eins og mér sé ætlað að minnka það aðeins í bili. Samt er ég ákveðin í að "tína" þessu ekki niður og ætla að passa að það líði ekki of margir dagar á milli.
Vinnudagslok í gær miðuðust við að ég næði heim og að taka til matinn áður en leikur Íslands og Dana í 16 liða úrslitum hæfist. Það tókst nokkurn veginn en þegar ég ætlaði að byrja að horfa þá var staðan strax orðin erfið hjá okkar strákum og það enti með því að ég settist ekki niður fyrir framan skjáinn, neitt að ráði, heldur notaði tímann í annað.
26.1.15
"Alltaf í...." ...sundi ;-)
Fyrripartur gærdagsins var ekki nýttur alveg jafn vel og ég hafði ætlað mér. En rétt fyrir tvö dreif ég mig á lánsbílnum yfir í kirkju óháða safnaðarins og sem almennur kirkjugestur hlustaði ég á og tók þátt í blúsmessu þar sem allri tónlist var stýrt af blússveit Þollýjar. Það mætti nokkuð margt í kirkju og meiri hlutinn af því fólki var að mæta í fyrsta sinn.
Eftir messu skrapp ég aðeins niður í "neðra" og fékk mér svartbaunaseyði áður en ég dreif mig í Laugardalinn. Var komin ofan í laugina rúmlega fjögur og synti og synti og synti. Tapaði tölunni á ferðunum en synti líklega í um 40 mínútur þar sem mig langaði ekki alveg strax upp úr eiginlega vegna rysjótts veðurs. Þar kom þó að ég fikraði mig þvert yfir laugina og synti næstum því til baka, eða þar til ég kom að tröppunum sem eru á móts við gufuna.
Að lokum lá leiðin á Borgarspítalann í stutta heimsókn til Böddu minnar, sem enn liggur þar. Við áttum gott spjall og við kvöddumst hlægjandi yfir einhverju sem ég bullaði út úr mér. Man bara ekki hvað enda skiptir það minnstu máli.
25.1.15
Þakklæti
Ekki náði ég að skreppa í sund áður en tími var kominn til að mæta í klippingu í gærmorgun en ég gerði ýmislegt annað. Mætti á klippistaðinn á slaginu tíu og var ég eini kúnninn og meistarinn minn einn mættur. Ég man ekki til þess að slíkt hafi komið upp áður. Tíminn var fljótur að líða, hárið var þynnt og klippt og lagað til og á meðan áttum við gott spjall. Mikið er ég þakklát fyrir að hafa aðgang að svona góðum hárgreiðslumeistara.
Skrapp aftur heim í stutta stund en einungis til að ná í ýmislegt til að nýta ferðina vestur í bæ til norsku esperanto vinkonu minnar. Enn bólar ekkert á "nýjustu" esperanto bókunum og fór því stundin mest í andlega sviðið og krossgátulausnir. Inger ákvað svo að nýta sér ferðina með mér í Sorpu. Ég var að losa mig við pappa og blöð og hún ýmislegt annað. Hún trítlaði svo beint heim til sín aftur en ég fór í Krónuna að kaupa smávegis inn.
Næst lagði ég lánsbílnum stutta stund á neðra planið við vinnustaðinn minn á meðan ég skrapp yfir í Hörpuna til að sækja tvo miða á mömmu nafni á "Lífið er yndislegt" - Eyjatónleikana. Eftir það fór ég beint heim. Oddur Smári gekk frá vörunum að venju og ég fór að sýsla við eitt og annað.
Foreldrar mínir voru á leið í bæinn og byrjuðu á því að útrétta smávegis. Strákarnir voru nýlega farnir með pabba sínum að heimsækja föðurforeldrana þegar mínir foreldrar komu klukkan að ganga sex. Ég var með ofnbakaða bleikju, soðnar kartöflur, rósakál og gula baunir í bræddu smjöri í matinn fyrir okkur þrjú á sjöunda tímanum. Pabbi skutlaði okkur mömmu í Hörpuna um hálfátta og fékk húslykla hjá mér til að fá að bíða þar á meðan við mamma vorum sannkallaðar grúppíur á fremsta bekk á stórskemmtilegum tónleikum með fullt af flottum atriðum þar sem Páll Magnússon fór á kostum sem kynnir milli atriða. Þessu hefði ég alls ekki viljað missa af. Pabbi sótti okkur upp úr ellefu og skutlaði mér heim áður en þau fóru heim. Mamma hringdi í mig um eitt, enn í gleðivímu, til að láta mig vita að þau hefðu orðið að fara Þrengslin en væru búin að skila sér heim.
24.1.15
"Lífið er yndislegt..." :-)
Í gærmorgun var ég ákveðin í að taka strætó í vinnuna. Var smá tíma að taka mig til því ég þurfti að hafa meira og annað með mér en venjulega. Á meðan ég beið í biðskýlinu við Sunnubúð fann ég að ég hefði helst þurft að bera á varirnar. Stakk hægri hendi í hægri vasa á yfirhöfninni og fann það sem ég hélt fyrst að væri varasalvi. Uppgötvaði það á síðustu stundu að þetta var varalitur svo ég vandaði mig við að "klína" þessu framan í mig. Það tókst sem betur fer áfallalaust. Vinnudagurinn varð ansi skrýtinn og ég hugsa stöðugt um hvað ég hefði geta gert betur. Mér fannst bæði allt vera með mér og á móti mér en ég stóð fyrst og fremst með sjálfri mér og spilaði úr þessu eins og dyntótt kortavélin leyfði.
Eftir vinnu hitti ég hluta af vinnufélögum mínum á ÚNÓ, ætlaði bara rétt að kíkja á fólkið og fá mér að borða með því en úr varð hið skemmtilegasta kvöld og ég vissi ekki fyrr en klukkan var farin að ganga ellefu. Þegar ég fór að hugsa mér til hreyfings var mér boðið far heim og ég beðin um að hinkra smá. Ég hefði alveg getað tekið strætó eða labbað en ákvað að taka boðinu og var fegin því þegar ég kom út því það var smá hríð, kalt og hálfleiðinlegt veður.
Strákarnir voru hjá pabba sínum og var ég löngu farin að sofa áður en þeir komu heim.
23.1.15
Vinnuvikan liðin
Sá aumur á strákunum mínum og bauð þeim far í skólann í gærmorgun. Það kom sér annars alveg ágætlega að vera á lánsbílnum því þegar líða tók á vinnudaginn var ég boðuð á fund og gat ég bara farið úr vinnunni á fundinn og þurfti ekki að fara heim aftur. Ég skrapp í smá sund eftir fund og skellti mér svo í smá hitting á einum stað á Laugarvegi. Þegar ég kom heim voru bræður ekkert farnir að fá sér kvöldmat svo ég tók mig til, fann rabbabara í frystinum og bjó til rabbabaragraut, að ég held í fyrsta skipti. Hann heppnaðist bara ágætlega og kláraðist. alveg.
22.1.15
Rabbabaragrautur
Stóri guli bíllinn var nýttur í ferðir milli heimilis og vinnu báðar leiðir í gær. Klukkan var orðin hálffimm þegar ég skilaði mér heim og þá hafði ég tæpa klukkustund áður tími var til að mæta á kóræfingu. Strákarnir voru á leið til pabba síns svo ég þurfti ekkert að hugsa fyrir mat heldur slakaði aðeins á og undirbjó mig undir æfinguna. Í fyrrakvöld hafði ég tekið mig til að raðað saman eftir hálfa prógramminu sem kórstjórinn póstaði á okkur. Fámennt var á æfingu aðeins 1-3 í hverri rödd og kórstjórinn ákvað að rifja upp sönglög úr brúnu bókinni. Ég æfði í altinum því það mættu þrjár í sópran en við vorum aðeins tvær í alt. Lögin sem við æfðum kann ég líka flest í altröddinni.
Strax eftir kóræfingu skrapp ég til hennar Böddu minnar og mætti henni á ganginum. Við settumst inn á og við rúmið "hennar" og um leið var komið að og okkur boðið kaffi og með því ef við vildum. Ég þáði kaffið. Las tvær ör-sögur eftir Bjargeyju Ólafsdóttur, úr bókinni Flæðarmál. Svo spjölluðum við um eitt og annað í rúman klukkutíma eða svo.
21.1.15
Langt liðið á vinnuviku
Í gær féllu niður allir tímar hjá Oddi Smára og hann var heima allan daginn. Ég átti að mæta á fund út í bæ um níu og hafði ákveðið að fara á bílnum beint á fundinn. Davíð Steinn fékk far með mér í skólann. Hann var pínu seinn á fætur en ég hafði góðan tíma að koma mér á milli. Þegar til kom var ég hálf-framhjá mér í umferðinni og fór smá krókaleiðir á fundinn. Náði þó að mæta á réttum tíma. Á leiðinni á vinnustaðinn, seinna um morguninn, æfði ég mig í að biðja um laust stæði á neðra planinu. Sennilega hef ég ekki haft fulla trú að að það tækist því það var ekki fyrr en ég var búin að leggja lánsbílnum í gjaldstæði örstutt frá að það losnaði eitt af stæðunum.
Vinnudagurinn leið afar fljótt og ég ákvað að skella mér í sund í Laugardalnum strax eftir vinnu. Keyrði ákveðið en afar varlega líkt að hinir sem voru á ferðinni um leið og ég. Synti 450metra og skrapp í gufu í stutta stund áður en ég fór heim. Þriðji leikur "handbolta strákanna okkar" var nýhafinn er ég kom heim svo ég fór beinustu leið inn í stofu, kveikti á sjónvarpinu og fleygði mér í sófann. Ég var eiginlega hálfsvekkt að leikurinn vannst ekki en strákarnir voru að spila einn sinn besta leik hingað til á mótinu. Oddur Smári sá um kvöldmatinn og það gekk bara vel hjá honum. Það var afslappandi og mikið gott að þurfa ekkert að hafa fyrir að taka til matinn.
20.1.15
Mikið að gerast alltaf
Þrátt fyrir að aðeins annar strákurinn minn ætti að mæta í skólann upp úr átta fór ég á lánsbílnum í vinnuna og skutlaði honum í leiðinni. Um miðjan dag áttu bræðurnir nefnilega tíma hjá tannlækni og ég var ákveðin í að koma þeim á staðinn og borga fyrir eftirlitstímana. Fór úr vinnu um hálfþrjú og afþví að það var eitt daglegt mál útistandandi ákvað ég að stimpla mig ekki út. Sótti Odd í skólann og Davíð Stein heim en mánudagsstímarnir hans byrja ekki fyrr en tuttugu mínútur yfir þrjú. Ég var eitthvað að misskilja þetta með tannlæknatímann/ana, var svo ákveðin í þeir ættu að mæta klukkan þrjú að ég las aldrei nema annað sms-ið sem ég fékk kvöldið áður. Þar stóð einmitt nafnið á öðrum tvíburanum og að tíminn væri klukkan þrjú. Hin smáskilaboðin las ég ekki fyrr en í gærkvöldi og það voru skilaboð um að hinn strákurinn ætti að mæta klukkan hálfþrjú. Við mæðginin mættum því eiginlega of seint því við vorum að mæta ca sjö mínútur í þrjú. Ég skildi heldur ekkert í því afhverju fjölskyldutannlæknirinn virtist vera að bíða þegar við komum. En þessi misskilningur minn kom ekki að sök. Engar holur x2, greiddi 4000x2, bókaðir voru tveir tímar eftir ár, skutlaði Oddi langleiðina heim og Davíð Steini í skólann og fór svo aftur í vinnuna. Síðarnefndi strákurinn var ekki einu sinni of seinn í tíma.
19.1.15
Líður á mánuðinn
Það er nú meira hvað dagarnir hlaupa frá manni, og gera það hvort sem einhverju er komið í verk eða ekki. Ég var samt nokkuð ánægð með sjálfa mig og hvað ég afrekaði að framkvæma í gær. Sumt er reyndar ekki frásagnarvert og tilheyrir hefðbundum heimilisstörfum. Það fór reyndar drjúgur tími í þau verk. Engu að síður náði ég að skreppa á safnið, skila fimm bókum, næla í eina í staðinn, heimsækja Böddu mína, horfa áleikinn, lesa og sauma. Davíð Steinn sá um kvöldmatinn, hafði lasanja. Hann bað mig reyndar aðeins að hjálpa sér með smá undirbúning í upphafi matseldar og það gerði ég með glöðu geði. Við settumst svo þrjú við matarborðið og náðum ágætis spjalli um eitt og annað mis-merkilegt. Allt merkilegt samt að mínu mati.
18.1.15
Sunnudagur
Gærmorguninn var ekki alveg eins drjúgur og laugardagsmorguninn var en nothæfur samt. Fór ekki út úr húsi fyrr en rétt fyrir ellefu þegar ég skrapp til norsku esperanto vinkonu minnar. Enn hafa "nýjustu" esperantobækurnar ekki komið í ljós svo við helltum okkur í krossgátulausnir og tíminn flaug. Fór beint í Krónuna á eftir og þá var klukkan að byrja að ganga tvö. Í versluninni hitti ég einn vinnufélaga og gáfum við okkur smá stund til að spjalla. Ég átti svo ekki nema tíu mínútur ófarnar heim þegar mamma hringdi. Hún lofaði að hringja aftur þegar ég kæmi heim en ég stóðst ekki mátið og hringdi til baka ca. tíu mínútum seinna og spjölluðum við mamma í rúma klukkustund. Náði samt að sinna sumu af því sem ég hafði ætlað mér og er bara ánægð með það. Klukkan var langt gengin í sex þegar ég dreif mig í sund. Úr sundinu skrapp ég svo í heimsókn til hennar Böddu minnar, og stoppaði hjá henni hátt í klukkutíma, en hún liggur á LHS í Fossvoginum og búin að vera þar í nokkra daga. Annar strákurinn var löngu farinn í spilasession en hinn var tiltölulega nýkominn úr sundi með vinum þegar ég kom heim. Hann var byrjaður að græja sér heitt brauð í ofni þar sem hann hafði ekki fundið afganginn af kvöldmatnum frá því á föstudagskvöldið (einhver (bróðir hans) hafði lagt eitthvað ofan á skálina þegar hann gekk frá vörunum úr búðinni). Ég sá til þess að það yrði haft líka og við skiptum þessu öllu saman á milli okkar.
17.1.15
Helgi
Ég notaði strætó milli heimilis og vinnu í gær. Vinnudagurinn var jafn skemmtilegur og erilsamur og daginn áður en þó var ekki eins mikið hringt. Erillinn fólst í öðrum verkum sem sum hver voru að ganga bara vel upp og leysast. Þrátt fyrir yndislegt veður ákvað ég að fara aftur heim með strætó en ég þyrfti að fara að taka mér tak, svona göngutak. Heima voru bræður búnir að hjálpast að við ákveðið verkefni sem ég hafði sett þeim fyrir og munar um. Ég sá um kvöldmatinn og horfði svo á leikinn, las og sitthvað fleira sem ekki skiptir máli. Jú, ég setti logandi útikerti út á tröppur, kveikti á einu hvítu kerti og setti stjakann á eldhúsborðið og svo fóru nokkur sprittkerti á ýmsa staði, m.a. herbergisgluggann, stofugluggann og baðherbergisgluggann. Annars var ég komin í rúmið fyrir ellefu og sofnuð fyrir tólf.
16.1.15
HM-handboltinn
Þrátt fyrir að lánsbílinn væri ekki á bílastæði á bak við heilsugæsluna bauð ég bræðrunum far í skólann í gærmorgun. Bað þá um að senda mér smáskeyti um hálffjögur ef þeir myndu vilja koma með mér í sund eftir vinnu og skóla. Reyndin varð sú að annar strákurinn sendi skeyti og sagðist ekki mundu ná því á þeim tíma sem ég var að hugsa um og hinn sagði greinilega pass þar sem ég heyrði ekkert frá honum. Ég dreif mig sjálf strax eftir erilsaman en skemmtilegan vinnudag (þrátt fyrir ógrynni af símsvörunum) og fór í Laugardalslaugina. Synti aðeins 300 metra, settist smástund í sjópottinn og örstutt í gufuklefann en það hefði ég líklega átt að láta vera miðað við það sem ég gerði svo eftir sundferðina. Ég fór nefnilega beint í blóðbankann við Snorrabraut í 39. heimsóknina. Blóðþrýstingurinn var ekki í nógu góðu lagi í fyrstu mælingu en við "skelltum skuldinni" á hm því við aðra mælingu var þrýstingurinn mun betri. Það gekk líka mjög vel að finna æð og ná úr henni.
Ég var nýlega komin heim og að láta líða úr mér þegar "föðursystir" mín hafði samband og spurði hvort ég vildi hitta sig og börnin á kjúklingastaðnum í Suðurveri. Ég sló til og hún ákvað að kippa mér með. Á meðan ég beið eftir að vera sótt hringdi ein frænka mín og nafna með heldur leiðinleg tíðindi af mömmu sinni sem hún bað mig um að koma á framfæri við foreldra mína.
Strákarnir héldu smá spilakvöld hér í gærkvöldi. Þeir voru aðeins fjórir og þurftu að bíða í tvo tíma áður en fjórði aðilinn komst hingað. Ég var háttuð og komin inn í rúm upp úr klukkan tíu.
15.1.15
39
Þar sem ég hafði lagt lánsbílnum fyrir aftan heilsugæsluna eftir sundferðina í fyrrakvöld bauð ég bræðrunum far í skólann. Þeir voru frekar glaðir með það þótt þeir væru mættir nokkuð vel fyrir fyrsta tíma. Á leiðinni lagði ég þeim aðeins línurnar því við mæðgin erum í eins konar "dreifa álaginu og klára eitt af öðru" átaki. Vinnudagurinn teygðist sem betur fer ekki neitt að ráði og ég náði aðeins að slaka á og taka mig til fyrir kóræfingu og aukahitting strax á eftir. Mætti upp í kirkju rétt fyrir hálfsex og nú brá svo við að þær voru fleiri í sópran en altinum svo ég söng s-alt. Rúmum tveimur tímum seinna var æfingin búin og þá dreif ég mig til tvíburahálfsystur minnar. Hún var að byrja að ganga frá eftir matinn og bauð mér fá mér að borða á meðan sem ég þáði með þökkum. Spjölluðum á meðan um það sem er framundan en svo hjálpuðu hún og maðurinn hennar mér að tengjast með skilríki á leiðréttingarvefnum og eftir smá vesen tóks loksins hjá mér að undirrita samþykki mitt með skilríkjunum. Á eftir settumst við "tvíburahálfsystur" inn í stofu með saumana okkar. Kvöldið leið fljótt en mér tókst að ná heim áður en klukkan varð mikið meira en ellefu.
14.1.15
Nokkrar línur um gærdaginn
Notaði strætó milli heimilis og vinnu í gær. Vinnudagurinn teygðist aðeins í annan endann en ég var komin heim aftur um hálfsex. Þrátt fyrir að hafa ákveðið að setjast ekki niður fyrr en ég væri búin að ljúka einu verki þá byrjaði ég auðvitað á því að setjast niður í stofu og hringja örstutt í pabba. Annar strákurinn settist líka í sófann. Hann var þreyttur en samt ákveðinn í að sjá um kvöldmatinn. En fyrst röbbuðum við svolítið saman. Á meðan hann sá svo um að útbúa kvöldmatinn tók ég til í tveimur hillum í tölvuskápnum. Hinn strákurinn sagði mér að það væri spilakvöld í Breiðholtinu klukkan átta og þar sem ég var ákveðin í að skreppa í sund eftir kvöldmat bauðst ég til að skutla honum. En fyrst borðuðum við kjúklinganagga a la Davíð Steinn öll saman, mjög gott hjá honum. Oddur Smári tók svo að sér að ganga frá eftir matinn. Ég var komin ofan í Laugardalslaugina klukkan níu og var búin að synda 500 metra áður en ég vissi af og það tók mig um tuttugu mínútur. Á eftir gaf ég mér tíma til að flatmaga í sjópottinum og sitja svo í gufubaðinu í smá stund.
13.1.15
Mörg eru hornin
Þar sem ég varð að leggja fyrir aftan heilsugæslustöðina í fyrrakvöld ákvað ég að fara á bílnum í vinnuna í gærmorgun. Aðeins annar strákurinn gat nýtt sér farið því hinn strákurinn átti ekki að mæta í skólann fyrr en seinni partinn. Það var reyndar ágætt að fara á lánsbílnum því ég var með smávegis aukalega með mér til að bjóða uppá í tilefni þess að 10. janúar sl. voru liðin heil fimmtán ár síðan ég byrjaði í kortadeildinni. Erillinn í vinnunni var það mikill að ekki var tími til að setjast öll niður saman um morguninn. Vinnufélagarnir voru búnir í vinnu á mismunandi tímum og þar að auki þurfti ég að fara fyrir þrjú. Fyrsta erindið sem ég rak eftir að ég kvaddi vinnufélagana var vinnutengt. Því næst skrapp ég í fiskbúð og keypti í soðið og svo fór ég heim. Setti mig í samband við þau sem voru að vinna til sjö til að taka hjá þeim stöðuna. Helga systir hringdi til að láta mig vita að ekkert yrði úr borgarferð mæðgnanna um næstu helgi.
Heima náði ég að ljúka einu verkefni sem setið hefur á hakanum, hafa til kvöldmatinn og undirbúa fyrsta saumaklúbb ársins og þegar allt var tilbúið og á meðan beðið var eftir hinum meðlimunum varð eftirfarandi staka til:
Koma bráðum vinur bestu
brátt mun hlátur krauma.
Ef þú spyrð og þetta lestu
Þá ætlum við að sauma
12.1.15
Tólfti
Mánuðurinn er alveg að verða hálfnaður og það lítur út fyrir að hann ætli að hlaupa hratt og verða að minningu á einu augabragði. Ég var annars nokkuð sátt við gærdaginn og náði að koma heilmiklu í verk. Vaknaði nú ekki eins snemma og á laugardaginn en byrjaði þó daginn svipað, á því að lesa um stund áður en ég dreif mig á fætur. Morguninn fór að öðru leyti í ýmis heimilisstörf sem í raun eru hversdagsleg venjulega en vegna baðherbergisframkvæmdanna höfðu sum störfið legið niðri og þá var auðvitað extra mikið að gera, bæði vegna "verkfalls" og "framkvæmdaösku".
Klukkan eitt var ég mætt í kirkjuna til að hita upp fyrir messu með kórfélögum mínum. Alla fjóra sálmana átti að syngja einraddað en kórstjórinn gaf sér líka tíma til að taka mínikóræfingu og æfa nokkra tesesöngva. Nú vorum við aðeins tvær í altinum, helmingi færri en sópraninn svo ég var Anna alt ásamt nöfnu minni í þeirri rödd. Messan var annars óvenju löng því þetta var fyrsta messa ársins og þá er venjan að Stopp-leikhópurinn komi og sýni leikrit í stað predikunnar. Þau sýndu okkur leikritið um Hans Klaufa og héldu athygli allra, ungra sem aldinna, allan tímann. Eftir leikritið sagði Pétur nokkur orð og kynnti svo söngatriði þar sem tvö sem hafa "vaknað", samið um það lög og gefið út disk tróðu upp. Það var allt í lagi í sjálfu sér en aðeins of langt að minu mati, hefði mátt og verið hægt að stytta atriðið um þriðjung.
Eftir messu og smá kaffi skrapp ég örstutta stund í Hagkaup í Skeifunni. Hringdi í foreldra mína er ég kom heim hélt aðeins áfram að sinna hversdagsverkum, hafði steikt slátur og lifrarpylsu með soðnum kartöflum í matinn og eftir fréttir og Landann skellti ég í eina brauðtertu áður en ég skrapp í sund.
11.1.15
Messudagur
Gærdagurinn byrjaði eiginlega of snemma því ég var vöknuð um hálfsex. Sennilega hafa margvísleg umhugsunarefni leitt til þess og ég gat ekki sofnað aftur. Þess vegna ákvað ég að nota fyrsta klukkutímann til að lesa og athuga hvort myndi síga á mig þreyta aftur. Þegar TIL var búin byrjaði ég á bókinni Hlaðhamrar eftir Björn Th Björnsson sem er söguleg skáldsaga og hans sýn á þjóðsögunni um Árna frá Hlaðhömrum. En það er ekki gott að byrja strax á nýrri bók eftir að hafa lokið við að lesa mergjaða sögu sem leitar á mann. Samt er ég alveg viss um að sögulega skáldsagan er ekkert síðri en TIL.
Ég dreif mig því bara á fætur. Tók meðvitaða ákvörðun um að kveikja ekki á tölvunni og náði því að gera ýmislegt sem hefði annars getað tekið mig allan daginn til að framkvæma. Var komin í Laugardalinn um níu og synti 500 metra. Pottarnir sem ég hafði hug á því að skreppa í voru allir lokaðir svo ég fór í gufu í tíu mínútur áður en ég dreif mig upp úr. Svo splæsti ég á mig kaffibolla og tæmdi hann áður en ég skrapp heim aftur.
Um ellefu var ég komin til norsku esperantovinkonu minnar. Hún var ekki enn búin að finna bækurnar en bað mig um að hjálpa sér við að klára krossgátu. Hún er alltaf að verða flinkari og flinkari með þessar íslensku gátur og að læra ný og ný samheitaorð. Klukkan var orðin hálfeitt þegar ég kvaddi og skrapp í Krónuna. Þar hitti ég Bjössa tvíbura og fyrrum söngfugl úr sama kór og söngfuglinn minn.
Þegar ég kom heim vakti ég Odd því hann sér alltaf um að ganga frá vörunum ef hann er heima. Mér fannst líka það langt liðið á daginn að það var alveg tímabært fyrir unga menn að fara að vakna.
Tveimur tímum seinna fórum við mæðgin með tómar flöskur og dósir í Valsheimilið til styrktar unglingastarfinu í knattspyrnu. Svo skruppum við í A4 þar sem Oddur skilaði inn nokkrum bókum, keypti sér þrjár í staðinn og við fengum borgað smá klink á milli. Ég skutlaði strákunum svo í Breiðholtið og fór svo beint heim.
Horfði á mestan partinn af leik Dana og Íslendinga og nú var allt annað að sjá til liðsins.
10.1.15
Fimmtán ára starfsafmælisdagurinn minn er í dag
Af því að vorönnin var rétt að byrja hjá tvíburunum, annar skóladagurinn í gær, ákvað ég að bjóða þeim aftur far í skólann. Þeir voru ekkert leiðir yfir því. Vinnudagurinn var jafn erilsamur og undanfarið þannig að tíminn leið fljótt. Enn og aftur var klukkan byrjuð að ganga fimm þegar ég stimplaði mig út. Þegar ég kom heim ákvað ég að byrja á því að hringja í pabba og einnig klára tvennt áður en ég kveikti á tölvunni. Það virkaði svo vel að ég ætla mér að halda þessari reglu alla virka daga. Hafði matinn til um hálfsjö og við mæðgin náðum að sitja örstutta stund saman við matarborðið. Stundin var svona stutt af því að annar bróðirinn heyrði ekki þegar var kallað í mat og við hin vorum byrjuð áður en ég uppgötvaði að drengurinn var sofandi. Hann náði að setjast niður með okkur í smá stund áður en bróðir hans lauk við að borða og stóð upp frá matarborðinu. Fylgdist svo aðeins með handboltalandsleiknum en fannst þetta lítið að marka þar sem lykilmenn voru hvíldir. Að vísu finnst mér að það sé kominn tími til að yngri strákar fari að taka við af sumum af eldri "refunum" en það þarf að gerast þannig að styrkleikinn haldist sem mestur. Eftir leikinn fann ég ekkert sem mig langaði að horfa á í sjónvarpinu svo ég slökkti. Stuttu seinna slökkti ég líka á tölvunni og fór að lesa í staðinn.
9.1.15
Síðasti einnar tölu dagurinn í mánuðinum
Skólinn hjá strákunum byrjaði aftur í gær og af því tilefni bauð ég bræðrunum far í skólann. Þeir vöknuðu báðir af sjálfsdáðum og það svo snemma að við gátum borðað morgunmatinn saman við borðstofuborðið í holinu.
Sami erillinn var í vinnunni og dagurinn flaug næstum framhjá mér, klukkan var orðin fjögur þegar ég stimplaði mig út. Ég fór beint heim því ég átti hálft í hvoru von á foreldrum mínum sem voru í bæjarferð í heimsókn. Fyrir utan hitti ég leigjandann í risinu og spjallaði stund við hann og hjónin á neðri hæðinni komu rétt á eftir mér og köstuðu á okkur kveðju.
Ég fór að sjálfsögðu beint inn á bað þegar ég kom inn í íbúiðna mína til að skoða spegilskápinn sem ég fjárfesti í daginn áður. Um sex undirbjó ég kvöldmat og þar sem ég var hvorki farin að heyra í eða sjá foreldra mína hringdi ég í gemsann hans pabba. Þau voru þá stödd í heimsókn í Kópavogi, alveg á leiðinni yfir. Bauð þeim að borða með okkur þegar þau komu og voru búin að taka út baðherbergið.
Ég hef nýlokið við að lesa "Milli trjánna" eftir Gyrði Elíasson og er nú að lesa "TIL" eftir Snorra Snorrason. Gyrðir er magnaður örsöguhöfundur. Bókin eftir Snorra kom út stuttu fyrir jól og er alveg búin að grípa mig föstum tökum.
8.1.15
"Spegill, spegill..."
Mikið var ég fegin að ekki þurfti að skafa í gærmorgun. Hringt var úr vinnunni rétt upp úr klukkan sjö og vandamálið sem um ræddi var þess eðlis að það borgaði sig fyrir mig að fara á staðinn og leysa það. Ég var hvort sem er komin á fætur, hafði ætlað mér að fara í sund en var hætt við það og ætlaði frekar að nota tímann í að setja inn morgunpistil. Stimplaði mig inn um hálfátta og hugsaði með mér að kannski gæti ég hætt klukkan hálffjögur í staðinn. Mikill erill var í vinnunni enda flaug tíminn frá mér og áður en ég vissi af var klukkan orðin fjögur.
Úr vinnunni lagði ég leið mína í Tengi og gekk frá kaupum á speglaskáp inn á baðið. Síðan kom ég við í Mjóddinni til að kaupa mér fleiri strætómiða og svo lá leiðin til tvíburahálfsystur minnar. Ég ætlaði að nýta mér það að þau eiga tæki sem tekur rafræn skilríki og voru líka búin að setja upp forritið í tölvuna hjá sér. Hins vegar hafði það alveg farið framhjá mér að til að skrá sig inn í kerfið þarf bara að nota fjóra fyrstu stafina af sex í PIN-inu sem ég valdi mér þegar ég sótti kortið og virkjaði. Ég gerði 3 misheppnaðar tilraunir og gafst svo upp svo PIN-ið myndi ekki blokkast. Fékk kaffi og með því, gott spjall og knús en stoppið var ekki lengi að þessu sinni.
Næst lá leiðin í Hagkaup í Skeifunni en í gær var síðasti skiladagur á bókum sem voru keyptar fyrir jólin og ég fékk tvær eins bækur í jólagjöf. Bjallaði aðeins í pabba og svo Davíð Stein og sendi smáskilaboð til mannsins sem hafði tekið að sér að setja upp speglaskápinn. Úr Skeifunni lá leiðin í Laugardalinn þar sem ég skrapp í sund, sjópott og gufu og áður en ég fór heim kom ég við í hraðbanka og á einum stað í viðbót. Klukkan var orðin hálfníu þegar ég skilaði mér loksins heim.
7.1.15
Þrettán tíma fjarvera að heiman í dag
Notaði klink til að borga strætóferðina í vinnuna í gærmorgun því ég ákvað að spara síðasta miðann fyrir heimferðinni. Töluverður erill var í vinnunni í gær og í mörg horn að líta. Vinnudagurinn entist mér ekki í að gera allt sem mér fannst þurfa að klára en ég stimplaði mig út rúmlega fjögur og ætlaði mér að koma við á Hlemmi á heimleiðinni til að kaupa mér fleiri strætómiða. Hins vegar gerðist það sama og á mánudaginn, næsti vagn sem kom að biðskýlinu rétt eftir að ég var komin þangað var leið 13, og ég fór alla leiðini heim án þess að stoppa.
Hringdi í pabba og spjallaði aðeins lengur en vanalega og svo seinna í Helgu systur. Þ.e. ég endaði á að hringja í símanúmer mágs míns því ég fékk bara strax samband við talhólfsrödd er ég reyndi að hringja í systur mína. Annar strákurinn skrapp í sund með vinum í "góða veðrinu" og reyndi mikið til þess að fá hinn tvíburann með sér. Sá nennti ekki með, fór í sund á mánudaginn, heldur vildi hann horfa á Castle með mömmu sinni.
6.1.15
Stóri guli bíllinn
Gærdagurinn var langur í báða enda. Var vöknuð upp úr hálfsex, nokkuð á undan fyrri klukkunni og slökkti þá á henni. Dreif mig í sturtu, nýju fínu sturtuna mína, og var þetta þriðja "ferðin" mín í hana. Svo er ég byrjuð á venjulegri morgunrútínu aftur þannig að ég skreið upp í rúm eftir þvottinn eftir að hafa borið á mig. Seinni klukkan átti ekki að hringja fyrr en um klukkustundu síðar svo ég átti að hafa tíma til að breiða yfir mig sængina og dotta um stund eftir þornun. Ég var hins vegar glaðvöknuð, kveikti á náttlampanum og las í bókinni með stysta skilafrestin þar til rétt áður en seinni klukkan átti að hringja. Þá lagði ég frá mér bókina, slökkti á klukkunni, klæddi mig og undirbjó mig undir daginn.
Um hálfátta tók ég strætó í vinnuna. Morgunvaktafólkið var að sjálfsögðu mætt og búið að vinna í tæpa klukkustund. Þar sem ég átti svolítið í land með samantekt vegna desembermánaðar ákvað ég að ég tæki að mér það sem snéri að bókhaldinu í daglega starfinu og hinar tvær sem mættu líka klukkan átta myndu leysa af á vélinni. Á tíunda tímanum hætti prentarinn við framleiðsluvélina að vinna og neitaði hreinlega að hlýða. Þetta kostaði margra tíma stopp því m.a. þurfti að hreinsa tvo skynjara. Reyndar var hægt að vinna þau verk þar sem prentarinn kemur ekkert við sögu. Klukkan var farin að halla í fjögur þegar prentarin komst aftur af stað. Síðdegisvaktin tók að sér að ljúka daglegri framleiðslu og ég vann aðeins legnur og kláraði pökkun og undirbúning undir talningu.
Á sjötta tímanum lagði ég í hann heim. Ætlaði mér að taka næsta strætó, taka skiptimiða, stoppa á Hlemmi til að útvega mér fleiri strætómiða og ná svo 13 sem stoppar hér á Lönguhlíð milli Mávahlíðar og Drápuhlíðar. Næsti vagn sem stoppaði við Hörpu rétt eftir að ég kom út í skýli var númer 13 svo ég fór með honum alla leið heim án þess að koma við á Hlemmi. Skrapp í Sunnubúðina eftir örfáum nauðsynjum, hringdi austur og talaði við mömmu um stund og hafði svo til lifrarrétt í kvöldmatinn. Horfði á seinni vináttulandsleikinn, vafraði aðeins um á netinu og las svo til miðnættis.
5.1.15
Vináttuleikir í handboltanum
Passaði mig á að kúra ekki of lengi í gærmorgun en leyfði mér þó að liggja um stund (amk í klukkustund) og lesa áður en ég fór á fætur og bjó um einhvern tímann á ellefta tímanum. Um eitt leytið dreif ég mig á Kringlusafnið og skilaði inn átta bókum. Þrátt fyrir að eiga þrjár jólabækur og tvær bókasafnsbækur ólesnar heima var ég allt í einu komin með níu "nýjar" (mis-nýjar) bækur í hendurnar og ákvað að taka þær allar. Ein af þessum bókum er með tveggja vikna skilafrest.
Seinna um daginn horfði ég á fyrri vináttulandsleik Íslands og Þýskaland í handbolta karla. Fyrri helmingurinn af fyrri hálfleik var stórgóður og var allur hálfleikurinn í heildina ásættanlegur. En það hrundi allt hjá strákunum okkar í seinni hálfleik og leikurinn tapaðist með sjö marka mun.
Rétt fyrir fimm ræsti ég tvíburana svo þeir kæmust báðir í sturtu tímanlega áður en við héldum svo af stað í sex ára afmælismatarboð í Grafarholtinu. Vorum mætt þangað á slaginu sex og flestir aðrir gestir komu á svipuðum tíma. Afmælisbarnið átti reyndar afmæli á gamlársdag en það er erfitt að hóa fólki saman akkúrat á þeim degi. Stuttu eftir að við komum kom sá sex ára aftur inn í stofu og settist smá stund í fangið á Davíð Steini en það var víst alveg óvart og var drengurinn fljótur að standa upp þegar hann uppgötvaði að þetta var ekki mamma hans sem hafði setið þarna stuttu áður. Tvíburarnir voru óvenju feimnir framan af en ég fann "on-takkann" á þeim og þeir gátu spjallað alveg helling við föðursystur afmælisbarnsins.
4.1.15
Smá skrepp
Vekjarinn í gemsanum mínum hringdi eitthvað upp úr átta. Ég slökkti frekar en að snúsa og kúrði mig lengur. Komst á fætur áður en klukkan sló tíu. Stuttu fyrir ellefu sópaði ég af lánsbílnum og fór svo í fyrstu heimsóknina til norsku esperantovinkonu minnar á árinu. Hún fann reyndar ekki eina af bókunum sem við keyptum í fornbókabúð Braga fyrir nokkru, þessa sem við höfðum ekki séð áður og vorum byrjaðar að glugga í. Í staðinn réðum við tvær krossgátur, aðra sem var langt komin og hina úr lesbók morgunblaðsins sem einhverra hluta vegna var víst borið í öll hús í gær.
Kom heim aftur um eitt. Hafði aðeins gert eitt stopp í bakaleiðinni því ég kom við hjá AO við flugvallarveg og fyllti tankinn á lánsbílnum. Annar tvíburinn var kominn á fætur en ég bankaði hjá hinum ef hann skyldi nú vilja bregða sér í sturtu áður en við héldum af stað út úr bænum um tvö. Stráksi notaði allan tímann til að kúra en við vorum öll þrjú á leið út úr bænum nokkrum mínútum yfir tvö. Vorum komin til foreldra minna á Hellu rétt fyrir hálffjögur. Pabbi var búinn að moka stóran part af planinu eða þannig að hægt væri að leggja og komast frá bílnum án þess að klofa neina skafla. Mamma var að undirbúa pönnuköku gerð og pabbi bað mig um að þýða bréf til einna af dönsku vinahjónum þeirra sem misstu yngstu dóttur sína úr sortuæxliskrabbameini í nóvember sl. Unga konan var ekki nema 37 ára og lét einnig eftir sig mann og tvö ung börn. Afar sorglegt.
Á fimmta tímanum var sátum við öll og gæddum okkur á dýrindis kaffiveitingum. Seinna færðum við okkur um stund yfir í stofuna og spjölluðum um stund en um sjö kvöddum við mæðginin og héldum til baka. Við vorum rétt komin í bæinn þegar hringt var í Odd og hann beðinn um að koma í spilasession upp í Breiðholt. Við komum við á tveimur stöðum áður en ég skutlaði honum þangað.
Þegar ég skreið upp í rúm í kringum miðnættið tók ég mér bók í hönd sem ég gat ekki lagt frá mér fyrr en að lestri loknum. Til allrar hamingju er þetta ekki ein af þessum mörghundruð blaðsíðna bókum heldur er innan við 130 blaðsíður. Þetta er bókin Mánasteinn - Drengurinn sem aldrei var til eftir Sjón. Þetta skáldverk er alveg magnað og stíll og uppsetning hrein snilld.
3.1.15
Helgarfrí
Enn og aftur fór ég á lánsbílnum í vinnuna á fyrsta vinnudegi nýja ársins í gærmorgun. Þurfti nú að hafa aðeins fyrir því, því ég hafði ekki hreyft bílinn síðan ég kom úr kirkjunni á gamársdagskvöld. Það tók smá tíma að skafa og sópa bílinn en ég var mætt til vinnu fyrst af öllum á deildinni en reyndar bara rétt á undan þeim vinnufélaga sem kom næst. Það náðist að ljúka því sem útaf stóð seinasta dag ársins í tíma sem og næstu daglegu verkefnum. Um eitt leytið var svo byrjað á debetframleiðslu dagsins og það átti ekki að vera mikið mál því um mun færri kort að ræða heldur en alla aðra daga ársins. Við vorum líka búin að hlaða inn nýjum, vænum skammti af aukaverkefninu og sáum fram á að geta jafnvel byrjað á því þrátt fyrir að vera að vinna líka að áramótauppgjöri. En það varð nú ekki raunin því til að gera langa sögu stutta þá endaði þetta með því að kalla þurfti út viðgerðarmenn (sem reyndar voru á leiðinni til okkar með nýjan myndskanna) út af erfiðu sambandsleysi við vélina. Sem betur fer voru þeir ekki lengi að finna út úr þessu og koma okkur af stað á ný þannig að hægt var að ljúka öllu daglegu fyrir klukkan fjögur.
Strax eftir vinnu skrapp ég í Lyfjaver að leysa út hormónagel og þaðan fór ég í Rúmfatalagerinn í Skeifunni og keypti nokkur lök á rúmdýnur strákanna, nýja ruslafötu á nýja baðherbergið mitt, upphengjanlegar skúffur undir sjampó og sápu í sturtuna og nokkra hluti í viðbót. Klukkan var farin að halla í sex þegar ég kom heim.
2.1.15
Mánuföstudagur
Ég gleymdi alveg að minnast á það í færslu gærdagsins að ég prófaði nýju sturtuna mína að morgni síðasta dags nýliðins árs. Er hæst ánægð en stefni nú samt að því að vera dugleg að nota árskortið mitt í laugarnar oft og mikið.
Nýjársdagur var notalegur í alla staði og var ég í hlutlausa gírnum allan daginn. Las mikið og slakaði vel á. Hafði samskonar mat og kvöldið áður. Strákarnir eru eiginlega búnir að snúa sólarhringnum á hvolf og ég varð ekkert vör við þá langt frameftir degi. Um kvöldið skrapp svo annar tvíburinn í bíó, aftur á Hobbitann, með einum vini sínum.
Var komin upp í rúm rétt fyrir ellefu en las í ca. hálftíma áður en ég bjó mig undir svefninn.
1.1.15
Glænýtt ár
Hef ákveðið að vera ekkert að setja mér nein ákveðin markmið eða strengja einhver sérstök heit. Mun bara halda mínu striki, lifa í núinu og þakka fyrir það daglega hversu heppin ég er. Brosa framan í lífið og njóta þess að vera í samskiptum við mína nánustu vini og samferðafólk.
Þegar ég mætti til vinnu í gærmorgun rétt fyrir átta var framleiðsla í fullum gangi enda hafði ég beðið um að tvær tækju að sér að mæta klukkutíma fyrr svo það væri öruggt að allt daglegt sem lægi fyrir myndi klára fyrir klukkan ellefu. En það er ekkert öruggt í þessum heimi nema kannski það að það liggur fyrir öllum að deyja einhvern daginn. Debetkortaframleiðsla var komin á fullt þegar prentarinn bilaði upp úr klukkan níu og fljótlega varð ljóst að kalla varð út viðgerðarmann. Sem betur fer kom sá maður áður en klukkan sló tíu. Það tók hann rúmlega hálftima að gera við og það þurfti m.a. að skipta um varahlut sem síðast var skipt um fyrir nákvæmlega þremur árum, á gamlársdag 2011. Hluturinn sem var settur í var reyndar sá sem þá var tekinn úr, notaður semsagt. Ég var svo heppin að framkvæmdastjórinn lagði leið sína til okkar um það leyti sem viðgerð var að ljúka og hann var sammála mér um að panta þyrfti tvo svona hluti sem fyrst, annan til að nota í staðinn fyrir þennan sem settur var í til bráðabirgða í gær og hinn til að eiga til vara.
Um ellefu varð ljóst að ekki yrði hægt að ljúka debetframleiðslu nema fara framyfir á tíma. Ég ákvað samt að það yrði pakka saman og allir færu heim því ég tel að það verði tími til að ljúka því sem eftir stóð tímanlega á fyrsta virka degi nýs árs. Klukkan var samt farin að halla í hálftólf áður en ég náði að stimpla mig út. Fór beint heim og hringdi nær strax í pabba og spjallaði stund við hann. Kveikti svo á tölvunni, náði einnig í þvottinn og stakk í eina vél í leiðinni.
Rétt fyrir fimm bað ég strákana um að setja upp kartöflur um hálfsjö og leggja á borð. Sjálf fór ég í kirkjuna mína, hitaði upp með kórnum mínum og nokkrum hjálparröddum og tók þátt á aftansöngnum milli sex og sjö. Klukkan var reyndar ekki alveg orðin sjö þegar ég kom heim og það var ekki búið að leggja á borðið en kartöflurnar voru soðnar og það tók innan við hálftíma að "græja" matinn en ég hafði ákveðið að hafa nokkuð sem ég er afar sjaldan með, nautalund, sem ég skar í hæfilegar sneiðar, kryddaði með pipar og léttsteikti á pönnu. Með þessu voru soðnar kartöflur, waldorfssallat, rauðkál, rauðrófur, grænar baunir og piparsósa.
Að lokum ætla ég að hrósa skaupinu því mér fannst það hitta í mark í flestum tilfellum. Að vísu jaðraði við að gengið væri of langt en er það ekki bara eins og með margt í daglega lífinu, það er gengið eins langt og hægt er?
31.12.14
Síðasta færslan á þessu ári
Af 365 dögum ársins setti ég inn færslu alla daga nema einn og fjóra af þessum 364 færsludögum setti ég aukalega inn 4 myndir. Alls urðu því færslurnar 368. Svo ég leiki mér aðeins með tölurnar og bæti t.d. 170 framan við færslutölufjöldann þá höfum við byrjunina á kennitölunni minni. ;-). Þegar líða fór á árið og ég sá að ég gat gefið mér tíma til að skrifa eitthvað niður daglega varð það auðvitað markmiðið að færa inn alla dagana. Það var svo í byrjun desember sem einn dagur datt úr. Nóg að gera í vinnunni og vinnujólaglögg strax á eftir þannig að þegar ég kom heim um hálftíu um kvöldið var ég ekki neinu ástandi til að kveikja á tölvu og setja inn hugleiðingar eða segja frá deginum áður. Það væri nú samt fróðlegt að vita hvað ég hefði skrifað og hvernig ef ég hefði gert tilraun en kannski langbest að sleppa skrifunum. Ekki það að ég sé neitt smeik um að ég hefði skrifað eitthvað sem ekki þolir birtingu, síður en svo.
En í gær var síðasti átta tíma vinnudagur ársins 2014 og nóg að gera. Það náðist að ljúka aukaverkinu mun fyrr en ég hafði þorað að vona. Það var einnig byrjað að undirbúa mánaða/áramótauppgjör og hægt að taka saman tölur í sumum tilfellum. Dagurinn leið afar hratt. Ég var á lánsbílnum og hafði hugsað mér að skreppa í rúmfatalagerinn í Skeifunni eftir vinnu til að kaupa nokkur lök á rúmdýnur bræðranna. Þar í kring var bara svo mikil umferð að ég steinhætti við og fór bara heim. Hringdi í foreldra mína og svaraði mamma í símann. Við töluðum saman í góða stund. Það var greinilegt að mamma var í skárra formi en undanfarið. Ég fékk svo aðeins að heyra í pabba áður en mamma bað um símtólið og orðið aftur og allt í allt varði þessi símhringing í rúmar 50 mínútur en sá tími virtist samt ekki vera nema kannski korter.
Eftir mat horfði ég á fréttir og kastljós og einnig uppistandsþátt. Davíð Steinn fékk nokkra vini í heimsókn og spiluðu krakkarnir eitthvað borðspil sem vakti mikla kátínu. Ég held að Oddur hafi verið með til að byrja með en þegar ég slökkti á sjónvarpinu og færði mig inn í herbergi í tölvuna á ellefta tímanum var hann farinn inn til sín. Hinir krakkarnir spiluðu til miðnættis en þá leystist fjörið upp og gestirnir fóru. Ég var komin upp í þegar það var og nýhætt að lesa.
30.12.14
Síðasti átta tíma vinnudagur ársins
Ég fór á lánsbílnum í vinnuna í gærmorgun þar sem ég ætlaði að reka nokkur erindi eftir vinnu. Framleiðsluvélin byrjaði á því að slá út en þegar búið var að slá henni inn aftur og kveikja á öllum tölvum og tökkum við hana vann hún bara nokkuð vel. Vélin var látin ganga sleitulaust frá klukkan átta til klukkan að verða hálfþrjú en þá var tekin smá pása og ein úr deildinni bauð okkur upp á "stúdentsveislurest" en litli bróðir hennar var að útskrifast rétt fyrir jól.
Strax eftir vinnu skrapp ég í Krónuna út á Granda og valdi mér hvað við mæðgin munum borða á síðasta degi ársins annað kvöld. Áður en ég fór heim kom ég við hjá Smith og Norland hf. við Nóatún 4 og spurði eftir ryksugupokum. var með alls konar númer á ryksugunni minni niður skrifuð og það var m.a. hringt á verkstæðið þegar líklegir pokar voru fundnir. Þegar ég kom heim og mátaði þá pössuðu þeir ekki.
Eftir kvöldmat og fréttir skrapp ég til tvíburahálfsystur minnar. Hún á svona búnað fyrir rafræn skilríki og ætluðum við m.a. að prófa hvort ég gæti samþykkt leiðréttinguna sem ég á að fá skv. RSK. Ekki tókst að komast alla leið og ætlaði Sonja að spyrjast fyrir um málið í dag. Kvöldið leið afar hratt við gott spjall og var klukkan farin að ganga ellefu áður en ég kvaddi og hélt heim á leið.
29.12.14
Vinnudagur
Ég vaknaði nú ekkert svo seint í gærmorgun, eitthvað upp úr átta. Ég ákvað hins vegar að fara ekki alveg strax á fætur heldur notaði tækifærið og las um stund. Var svo löngu komin á fætur áður en annar tvíburinn kom fram úr stofunni. Hann hafði ákveðið að sofa þar þar einhverra hluta vegna. Líklega þó vegna þess að hann hafði tekið utan af sængurveri og kodda og var ekki búinn að setja hreint í staðinn. Þeir komu heim nokkru eftir miðnætti eftir bíóferð kvöldið áður.
Rétt fyrir tvö dreif ég mig í sund. Þrátt fyrir að margir hefðu fengið sömu hugmynd var nóg pláss til að synda. Fór ofan í laugina þeim meginn sem pottarnir og gufan eru og valdi að synda við kaðalinn sem afmarkar eina af fjórum brautum. Í þriðju ferðinni uppgötvaði ég að kona nokkur var farin að synda á nákvæmlega sömu leið og samt var nóg pláss. Ég lét þetta trufla mig þannig að ég kláraði ferðina út í hinn enda (alls 250m) og fór svo bara upp úr. Fór í pott og gufu og var svo komin heim upp úr þrjú.
Hafði kvöldmat upp úr sex og yfirtók svo stofuna. Horfði á fréttir og las svo þar til sérstakur jólaþáttur af Downton Abbey fór í loftið. Þátturinn var extra langur en samt langaði mig svo til að sjá meira að honum loknum.
28.12.14
120 ár síðan föðurafi fæddist
Ég var komin á fætur um níu í gærmorgun. Hitti pabba fyrir í eldhúsinu og við fengum okkur morgunmat. Ég hellti svo á kaffikönnuna og settist með bolla og bók í stofuna. Las og las. Ég var líka með saumatöskuna hjá mér en var einhvern veginn ekki í stuði til að munda nál. Um ellefu kíkti ég aðeins í tölvuna hans pabba. Eftir hádegi fór ég að hugsa mér til hreyfings. Pabbi hafði beðið mig um að láta sig vita í tíma og lána sér bíllykilinn af lánsbílnum nokkru áður en ég hafði hugsað mér að leggja í hann. Um tvö fékk pabbi lykilinn og ég týndi fram allt mitt dót og umslag sem ég átti að hafa með mér í bæinn til Brynju vinkonu Helgu. Í umslaginu voru tvær skólabækur frá Huldu. Ég hengdi saumatöskuna á snaga þar sem flíspeysan mín hékk en hugsaði um leið að ég ætti nú samt eftir að gleyma handavinnutöskunni engu að síður. Pabbi hjálpaði mér svo að ferma bílinn og ég fékk með mér þrjá poka af krækiberjum.
Lagði í hann um hálfþrjú og ákvað að koma við í Fossheiðinni og þakka fyrir mig. Þar stoppaði ég í rúman klukkutíma og þáði afar gott lakkríste, kaffibolla, ýmislegt meðlæti og gott spjall. Ég kom í bæinn upp úr hálfsex og byrjaði á því að skila af mér umslaginu. Stoppaði um stund hjá Brynju og fékk góða athygli frá Ösku sem er af labradorkyni.
Þegar ég lagði fyrir utan heima milli sex og hálfsjö hringdi ég í Odd. Hann sendi Davíð Stein út til að hjálpa mér að bera úr bílnum. Á meðan ég beið eftir hjálparsyninum hringdi ég í pabba til að láta vita af mér. Og viti menn, það fyrsta sem hann tilkynnti mér að handavinnutaskan mín væri enn hangandi á snaga í forstofunni.
Strákarnir fóru út með vinum seinna um kvöldið, m.a. í bíó. Ég horfði á tvær jólamyndir á frelsinu og hafði það náðugt. Skreið inn í rúm upp úr miðnætti og las að sjálfsögðu í góða stund áður en ég fór að sofa.
27.12.14
Enn fækkar ársins dögum
Ég var komin fram upp úr hálfníu í gærmorgun og hitti fyrir yngri systurdóttur mína í eldhúsinu. Pabbi hennar var í göngutúr með Cöru og ég ákvað að hella upp á kaffi. Kaffið var akkúrat tilbúið þegar "göngugarparnir" komu úr göngunni, mági mínum til mikillar ánægju. Stuttu seinna ræsti hann mæðgurnar, systir mína og eldri dóttur þeirra og stofuklukkan sló akkúrat tíu þegar þau settust ferðbúin inn í bíl og lögðu í hann áleiðis norður með smá "brunch" stoppi hjá vinkonu í bænum. Ég notaði daginn aðallega í lestur og netvafr. Einnig tók ég fram saumatöskuna mína en það varð ekkert úr að ég mundaði neinar nálar.
26.12.14
Annar í jólum
Ég held að hún hafi verið farin að ganga ellefu, klukkan, þegar ég dreif mig á fætur í gærmorgun. Hitti yngri systurdóttur mína í eldhúsinu og stuttu seinna kom mágur minn úr göngutúr með Cöru. Hann var frekar svekktur að ég væri ekki búin að hella upp á en ég var fljót að bjarga þeim málum. Við vorum langt komin með fulla könnu af kaffi þegar Helga systir kom fram og byrjaði að undirbúa jóladags-"brunch". Ég hellti afgangnum af kaffinu á brúsa og bjó til meira kaffi. Um eitt settust allir við borðið og gæddu sér á alls kyns góðgæti. Annars leið dagurinn frekar hratt við lestur og netvafr. Um sjö setti ég upp kartöflur og þegar þær voru hálfsoðnar útbjó ég jafning. Pabbi lagði á borð og skrældi kartöflur og Helga systir skar niður hangikjöt. Með þessu var borið fram rauðkál, grænar baunir og laufabrauð. Jafningurinn þótti víst heppnast sérlega vel og það er ég ánægð með.
25.12.14
Jóladagur
Mikið sem ég svaf vel í gamla herberginu hennar systur minnar. Klukkan var orðin hálftíu áður en ég fór á fætur. Þá voru feðginin og hvolpurninn Cara að leggja í hann til uppeldisbróður mágs míns og fjölskyldu hans á Friðheimum. Pabbi kom fram í eldhús stuttu seinna en hann var örugglega löngu vaknaður. Mamma og Helga komu eitthvað aðeins seinna fram. Dagurinn leið afar hratt. Ég las og vafraði einnig um á netinu. Ferðalangarnir komu til baka um þrjú. Hellt var upp á könnuna og bornar fram kökur. Fljótlega fór yngri systurdóttir mín að ókyrrast. Erfitt að bíða eftir jólunum. Mágur minn sá um eldmennskuna en það voru hafði lambahryggir og ýmislegt meðlæti í matinn. Við pabbi gengum frá eftir matinn og upp úr klukkan sjö var loksins komið að því sem Bríet var búin að bíða og bíða eftir. Og þó hafði hún fengið að opna einn pakka fljótlega eftir matinn. Ég fékk nokkrar og góðar jólagjafir, bók (sem mágur minn valdi) frá mömu og pabba (Mary Higgins Clark), Yrsu (DNA) frá fjölskyldu systur minnar, dvd (Love acually) sem mig er lengi búið að langa í frá Davíð Steini, mörgæska jólakrukku frá Oddi, fallega mynd til að sauma út frá mömmu og pabba tvíburahálfsystur minnar, krem, handáburð og nokkrar nærbuxur frá foreldrum mínum og þrjár bækur frá mér sjálfri. Ein af þeim bókum var í pakkanum frá mér í fyrra líka en ég var búin að vera að spara mér að lesa hana, ein var sú sama og Ingvi valdi handa mér fyrir pabba og mömmu og þriðja bókin var eftir Camillu Läckberg, sú nýjast þýdda. Ég er bara alsæl með þetta allt saman. Og svo yljuðu hlýjar og góðar kveðjur úr jólakortum frá ættingjum og vinum.
24.12.14
Aðfangadagur
Aftur mætti ég til vinnu á lánsbílnum í gærmorgun. Markmiðið var að klára öll dagleg verk sem fyrst því við höfðum fengið leyfi til að hætta að þeim loknum. Hlóðum líka inn einni endurnýjun og nýrri skrá að auki úr aukaverkefninu. Ég gaf sumum leyfi til að fara upp úr tólf. Sjálf ákvað ég að bíða til eitt. Þá hringdi ég í seinni sendilinn og dreif mig svo út úr húsi. Keyrði út síðasta jólakortið og fór svo í bankann að sækja rafræna kortið mitt.
Kom heim upp úr hálftvö. Náði í þvottinn á snúrunum og byrjaði að taka mig til í fimm daga ferðalag. Annar tvíburinn kom fram fljótlega en ég vakti hinn til að geta kvatt hann. Sá sem vaknaði sjálfur hjálpaði mér að hlaða bílinn. Um hálfþrjú lagði ég af stað úr bænum. Ég var komin að Rauðavatni þegar Helga systir hringdi til að biðja mig um að koma við í Bónus og kaupa hvítar brauðbollur. Ég stoppaði því aðeins í Hveragerði til að verða við beiðninni. Næsta stopp var í Fossheiðinni á Selfossi. Þar lenti ég heldur betur í veislu og stoppaði í rúma klukkustund.
Var komin austur á Hellu upp úr klukkan fimm og klukkutíma seinna fórum við pabbi og Ingvi mágur og fengum okkur skötu hjá Helga Bjarna í Kanslaranum. Skatan var virkilega kæst og fín og bauð pabbi mér upp á hvítvínsglas með sem ég þáði. Það kom mér á óvart hversu vel þetta passaði saman.
23.12.14
Þorláksmessa
Ég fór á lánsbílnum í vinnuna í gærmorgun og var mætt rétt upp úr klukkan átta. Fann verkefni handa öllum en fram yfir áramót eru hvorki morgun né kvöldvaktir og við mætum því sjö um átta og sá áttundi um níuleytið. Ég hafði m.a. gripið til minna ráða og keypt jólakort til að senda út í nafni kortadeildarinnar. Við erum svo heppin á deildinni að það er ein sem skrifar skrautskrift. Hún fékk því það hlutverk að skrifa á sex jólakort. Tvö þeirra sendum við með kortatöskunum til Valitors og Borgunar, eitt gátum við afhent um leið og kort sem komið var að sækja beint til okkar frá Auðkenni en síðustu þrjú kortin keyrði ég út strax eftir vinnu. Öll fóru þau reyndar á saman staðinn, í fyrirtækið Ottó B. Arnar. Viðgerðarmennirnir tveir fengu hvort sitt kortið og svo var eitt stílað á Birgi Arnar. Ég fór líka með kort frá mér persónulega til hárgreiðslumeistara míns, Nonna í Kristu Quest og starfsfólks hans og fjölskyldna.
Klukkan var að verða fimm þegar ég kom heim og þá spurði annar tvíburinn hvort systir mín hefði heyrt í mér. Hún hringdi reyndar skömmu síðar. Þær mæðgur voru allar í bænum og við ákváðum að hittast á KFC í Faxafeni um sex svo krakkarnir okkar fengju að hittast eitthvað. Eftir hittinginn skilaði ég strákunum heim og skrapp svo í sund þar sem ég synti 400 og fór bæði í sjópottinn og gufuna á eftir. Þegar ég kom heim úr sundinu setti ég í eina þvottavél og var ég búin að hengja upp úr henni fyrir miðnætti.
22.12.14
Var að koma úr sundi
Þar sem ég var að væflast langt fram eftir öllu aðfaranótt sunnudagsins leyfði ég mér að kúra til ellefu. Dagurinn fór svo í ýmislegt, bæði þarfa og óþarfa hluti. Slapp við alla eldamennsku því strákarnir fóru enn seinna á fætur en ég og voru svo á leiðinni að reka nokkur erindi um sex. Þeir þáðu far með mér í Mjóddina en þaðan skrapp í Kost á Dalveginum til að verða mér úti um jólarúllur til næstu tíu-fimmtán ára eða svo. Á heimleiðinni kom ég við hjá móðurbróður mínum í Álftamýrinni. Skilaði Daða, syni hans, bók sem Oddur hafði verið með í láni og svo skiptumst við á jólakortum. Stoppaði um stund og þáði kaffi og skoðaði nýuppgert baðherbergi í kjallaranum hjá þeim.
Þegar heim kom dreif ég mig loksins í að fara að pakka inn jólagjöfunum. Þær urðu 18 allt í allt og þar af ein frá mér til mín (ekki baðherbergið þó). Pakkastandið gekk bara vonum framar eftir að ég vatt mér í það á annað borð og var ég búin áður en klukkan varð hálfellefu. Þá settist ég um stund við tölvuna en fór fljótlega í háttinn með enn eina bókina.
21.12.14
Þessar helgar líða alltof hratt
Ég var komin á fætur upp úr klukkan átta í gærmorgun. Tæpum tveimur tímum síðar, þegar ég var að leggja í hann til norsku esperanto vinkonu minnar, fann ég hvergi jólakortið sem ég ætlaði að taka með. Ég skoðaði listann og ég hafði hakað við og mig rámar í að hafa skrifað kortið. Kortið kom ekki í leitirnar og ég brá á það ráð að taka afganginn af kortunum sem ég keypti af Lilju. Ég leyfði Inger að velja hvaða kort hún vildi og skrifaði á það sem hún valdi. Hún fékk svo lánaðan pennann minn og skrifaði á kort handa mér. Stoppaði annars í rúma klukkustund og skrapp svo í Krónuna á eftir. Vakti Odd þegar heim kom og bað hann um að ganga frá vörunum. Settist um stund við tölvuna og hringdi svo í pabba. Um hálftvö skrapp ég í Kringluna. Fyrst fór ég og skilaði einni bók á safnið. Þrátt fyrir að hafa nóg lesefni heima tók ég einn hring um safnið og fann mér fjórar bækur. Svo kíkti ég í Tiger, Hagkaup á efri hæðinni og Eymundsson. Næst lagði ég leið mína í Borgartúnið þar sem ég keypti með ryksugupoka hjá Einari Farestveit. Að lokum skrapp ég í sund áður en ég fór heim.
Heima voru strákar á bak og burt en þeir voru víst í vinahittingi í Kópavogi og reiknuðu með að vera fram á kvöld. Ég hringdi því í tvíburahálfsystur mína til að kanna hvort hún yrði heima og gæti tekið á móti mér um kvöldið. Rétt eftir að kvöldfréttir byrjuðu í sjónvarpinu dreif ég mig í Hafnarfjörðinn. Fyrst með jólakort og nokkur kerti til Höllu. Stoppaði þar í smá stund áður en ég fór til Sonju. Þar stoppaði ég heldur lengur og var ekki komin heim fyrr en um hálfellefu. Ég kom þó heim á undan tvíburunum. Beið eftir annarri mynd kvöldsins, "Die Hard2". Hún var ekki búin fyrr en um tvö en ég kíkti engu að síður aðeins í tölvuna og las svo um stund eftir að ég var skriðinn upp í. Veit ekkert klukkan hvað ég lagði frá mér bókina "Hið fullkomna landslag" eftir Rögnu Sigurðardóttur en það var seint þótt ég hafi ekki lesið bókina upp til enda.
20.12.14
Ekkert að stressa mig yfir einu eða neinu
Aftur fór ég á lánsbílnum í vinnuna. Í nógu var að snúast í vinnunni en það er líka allt að ganga upp. Við fórum tvær og leystum sjö-manneskjurnar af á vélinni um átta og vorum að til tíu. Á þeim tíma náðum við að klára tvö af daglegu verkefnunum. Eftir morgunkaffi sinnti ég öðrum málum. Þegar ég var búin að taka mitt matarhlé leysti ég aftur af á vélinni, í þetta sinn í um klukkustund. Og ég leysti einnig af síðasta klukkutímann (milli þrjú og fjögur) svo kvöldvaktin fengi aðeins meira en bara kaffipásu. Rétt fyrir fjögur hringdi Helga systir. Þar sem ég var ekki komin heim sagðist hún ætla að kíkja við um sex. Ég skrapp því í BYKO eftir vinnu og keypti gluggasköfu (hníf) og klósettbursta. Systir mín mágur, yngri dóttir þeirra og hvolpurinn Cara komu svo eins og um var rætt. Setti hraðsuðukönnunna í gang og kaffifílter og kaffi í trektina. Oddur Smári tók svo við þegar vatnið var soðið og lauk við að búa til kaffið. Gestirnir stoppuðu um stund, dáðust að nýja baðherberginu mínu og settust aðeins niður með kaffið í stofunni. Oddur fór í spillasessíjón og Davíð Steinn skrapp aðeins út þegar gestirnir voru farnir. Ég ákvað svo að hafa það bara notalegt fyrir framan sjónvarpsskjáinn.
19.12.14
Á opnunarsýningu
Í gærmorgun skóf ég af lánsbílnum og fór á honum í vinnuna. Klukkan var alveg að smella í átta þegar ég mætti. Vinnuverkin gengu alveg þokkalega og gekk vélin næstum stanslaust frá klukkan sjö um morguninn til klukkan að verða sjö um kvöldið. Ég stimplaði mig út á slaginu fjögur en fór samt ekki alveg strax. Settist aðeins við tölvuna frammi á kaffistofu. Þegar ég svo fór þurfti ég að sópa aftur af bílnum. Lagði bílnum við bókasafnið við Grófina, skilaði einni bók og trítlaði svo yfir á Café Haítí þar sem Brynja vinkona var að opna málverkasýningu um fimm. Hún var eiginlega nýbúin að stilla upp þegar ég kom. Sex ára tvíburadætur hennar sátu við eitt borðið og dunduðu sér. Nokkru seinna kom pabbi Brynju og lilta systir hennar með sína fjölskyldu. Svo komu m.a. hjón með þrjú börn og eldri dóttirin er með systrunum í bekk. Pabbi Brynju tók fram nikkuna og það gerðist að sjálfu sér að börnin röðuðu sér upp hjá honum og sungu jólalögin sem hann spilaði. Málverkasýningin er mögnuð og samt allt öðruvísi en sýningin sem hún var með þarna í haust.
18.12.14
Dagarnir þjóta áfram
Enn og aftur notaði ég strætó milli heimilis og vinnu í gær. Stimplaði mig inn ca. korter fyrir átta og út rétt fyrir hálffimm. Úr vinnu fór ég fyrst gangandi á pósthúsið niður í bæ og komst að því að jólafrímerkin sem ég átti eftir síðan í fyrra og tvö síðan í hitti fyrra giltu 100%. É g þurfti því bara að borga undir sjö jólakort en á eftir að keyra út fimm. Kom heim stuttu fyrir fimm og hafði þá eiginlega bara stutta stund áður en ég þurfti að taka mig til á kóræfingu. Tók sunddótið með mér út í bíl. Árni Heiðar bað mig fyrst um að syngja með altinum en eftir fleiri tilfæringar færði hann mig aftur yfir í sópran. Nafna mín í sópran segir að ég sé "sópr-Anna-alt". Eftir æfingu lét ég tvíburana vita því ég hafði boðið þeim að koma með mér í sund. Þegar til kom, kom bara annar þeirra með mér. Við hittumst ekkert í lauginni eða pottunum en komum út úr klefunum á sama tíma eftir sundið.
17.12.14
Búin að skrifa öll jólakort
Aftur notaði ég strætó milli heimilis og vinnu í gær og ég hreyfði ekki lánsbílinn í gær. Kom heim úr vinnu rétt fyrir fimm. Frammi í gangi sá ég eitthvað af tilvonandi baðinnréttingum og þegar ég kíkti inn á baðherbergi sýndist mér að þá sé búið að mála. Þetta er allt að gerast.
Eftir kvöldmat kom ég mér loksins að því að skrifa á fleiri jólakort. Var komin í góðan gír eftir þrjú skrifuð jólakort og ákvað að nota nú hvítvínið sem mér áskotnaðist á föstudaginn var. Og viti menn um 30 kort, eitt og hálft jólabréf og tvö vískýglös hálffull af hvítvíni þá átti ég bara eftir að skrifa eitt jólabréf og kort með því og utan á umslag með korti og dönsku jólabréfi. En klukkan var víst farin að ganga eitt. Ég var annars svo heppin að finna ónotuð jólafrímerki frá því í fyrra og hittifyrra sem eru víst alveg í fullu gildi.
16.12.14
Fimm virkir til jóla
Strætó skilaði mér báðar leiðir milli heimilis og vinnu í gær. Það gekk á ýmsu í vinnunni en flest mál leystust sem betur fer. Samt stóðu einhver útaf þegar ég fór rétt fyrir hálffimm. Heima slakaði ég á um stund áður en ég fór að huga að kvöldmatnum sem ég hafði í fyrrafallinu. Við mæðgin vorum búin að borða upp úr klukkan sex og ég bauð bræðrunum með mér í sund. Annar strákurinn var eitthvað slappur og treysti sér ekki en hinn kom með. Ég fór ofan í laugina heitupotta meginn og synti 250m. Þá fór ég í sjópottinn. Var að fara að huga að því að drífa mig í gufuna þegar Oddur Smári kom. Hann sagðist hafa synt eina ferð og svo farið í 40°C pottinn. Ég leyfði honum að ráða hvenær við færum í gufuna. Allt í allt stoppuðum við aðeins rúman klukkutíma í Laugardalnum. Heima nennti ég engu. Eftirlét hinum syninum stofuna og sjónvarpið en hann hafði fengið vin í heimsókn. Þrátt fyrir að dögunum fyrir jól fækki hef ég ekki enn fundið mig í að skrifa á fleiri jólakort. Það breytist vonandi í kvöld.
15.12.14
Komið fram í miðjan mánuð
Mér finnst eins og það sé þriðjudagur í dag. Kannski ekkert svo skrýtið því ég var mætt til vinnu rétt fyrir átta í gærmorgun ásamt einni annarri og við unnum alveg til klukkan þrjú til að klára að vinna upp bilunardagana. Fleira fólk hafði staðið vaktina á laugardaginn og það náði að ljúka næstum öllum debetkortunum og smá slatta af hinu. Þegar við hættum í gær vorum við m.a. búnar að "gera upp" kreditkortin og tilbúnar með dk-tölur. Náðum að vinna aðeins í stórri gjafakortaskrá en smá hluti af dk-inu kláraðist ekki vegna vandræða með nýja sendingu af einni plasttegundinni.
Skrapp aðeins í Krónuna við Granda eftir vinnu og verslaði smá. Oddur Smári gekk frá vörunum er ég kom heim. Ekkert löngu seinna báðu strákarnir mig um að skutla sér í Nexus á spilakvöld og þeir fór svo þaðan seinna í gærkvöldi eitthvað með vinum. Ég hafði það rólegt heima en nennti engan veginn að halda áfram með jólakortaskrif.
14.12.14
Vinnudagur
Klukkan var rétt að byrja að ganga níu þegar ég dreif mig á fætur í gærmorgun. Fór með eitt fang af óhreinum þvotti í þvottahúsið, setti í þvottavélina og gangsetti hana. Tók sunddótið með mér upp og lagði í hann fljótlega. Var komin ofan í laugina í Laugardalnum stuttu fyrir níu. Synti ekki nema 300m en gaf mér tíma til að pottormast og gufast smá.
Rétt fyrir tíu var ég mætt til Nonna í Kristu Quest til að fá klippt á mér höfuðhárin en það eru liðnar sex vikur síðan ég var síðast á ferðinni. Hann bauð mér upp á kaffi, smáköku og súkkulaði áður en hann fór að munda skærin. Alltaf erum við jafn hissa hvað hárið mitt hefur þykknað á þessum tíma frá því ég var klippt síðast.
Þegar ég kom heim aftur fór ég beint í þvottahúsið og hengdi upp úr þvottavélinni og það var líka pláss fyrir handklæði og sundbol. Nokkru seinna skrifaði ég fyrstu þrjú jólakortin í ár. Þau tók ég með til frænda míns eins um fjögur og fékk hann og konan hans eitt, systir hans og mágur eitt og mamma þeirra systkyna eitt. Tilefni hittingsins var að skera út og steikja laufabrauð. Skornar voru út 100 kökur. Tókum smá pásu um fimm til að fá okkur kaffi. Þegar langt var komið að steikja staflana var sonurinn á heimilinu sendu á KFC til að kaupa tvö fjölskyldutilboð og við borðuðum öll saman að lokum. Ég kom heim um níu og fór fljótlega að horfa á bíómynd númer tvö þótt ég hafi séð hana áður.
13.12.14
Laugardagur
Kúrði aðeins lengur en á venjulegum virkum degi í gærmorgun. Klukkan var farin að halla í átta þegar ég dreif mig á fætur. Rétt upp úr átta fékk ég sms frá einni af deildinni þar sem hún spurði hvort ekki hefði átt að mæta til vinnu klukkan átta. Allir aðrir höfðu heyrt og vissu að það átti ekki að mæta fyrr en níu. Ég hringdi til baka og setti henni bara fyrir verkefni. Tók svo næsta strætó í vinnuna og var mætt um hálfníu. Verkefni morgunsins voru þau sömu og á fimmtudagsmorguninn. Aðrir fóru í að skreyta og undirbúa hinn salinn undir Jólasviðsfundinn sem boðaður var milli þrjú og fimm.
Klukkan var að verða tvö þegar viðgerðarmenn komu í hús með varahlutinn í framleiðsluvélina. Á rúmum hálftíma komu þeir vélinni af stað og ég framleiddi tvær skrár til að sannreyna að hún væri orðin vinnuhæf. Svo var gengið frá öllu því Það átti að taka læsa og taka allan aðgang af kortalagernum um þrjú. "Gestir" voru að byrja að streyma á fundinn, þ.e. aðrir úr rekstrarteyminu "Tæknirekstur og Þjónusta". Framkvæmdastjórinn sagði nokkur orð, "húsbandið" spilaði, Logi Bergmann kom með smá fyrirlestur um vinnustaðagrín og ég fór með nokkra hópa í skoðunarferðir inn í kortadeildina. Boðið var upp á léttar veitingar en ég hélt mig frá víninu að þessu sinni en græddi svo hálfa hvítvínsflösku þegar ég fór heim. Fékk far með yfirmanni um hálfsjö.
Heima stoppaði ég ekki nema svona rúmlega klukkustund áður en ég keyrði mig í næsta teiti, jólaglögg KÓSÍ-kórsins. Fékk mér smá smakk af glögginni. Tíminn flaug hratt enda í afarskemmtilegum félagsskap. "Sann-Kristinn" var með pistil eins og venjulega og var mikið helgið enda kann hann lagið að sjá og segja skoplegu hliðarnar á hlutunum. Skilaði mér aftur heim rétt um miðnætti.
12.12.14
Föstudagur
Við mættum aðeins tvær til vinnu í minni deild í gærmorgun til að senda skrár á vél hlaða inn til framleiðslu og merkja umslög með bankaútibúsnúmerum og dagsetningu. Okkur tókst að ljúka þessu verki á innan við klukkustund. Settumst svo aðeins fram í kaffistofu áður en ég sendi hina bara heim.
Sjálf fór ég ekki fyrr en á ellefta tímanum eftir að hafa fengið leyfi hjá næsta yfirmanni.
Heima hringdi ég í mömmu tvíburahálfsystur minnar sem og pabba minn á meðan ég beið eftir að klukkan yrði tólf á hádegi. Þá fannst mér tímabært að stugga við strákunum og bjóða þeim með mér í sund. Aðeins annar komst á fætur og dreif sig með mér. Við stoppuðum svo sem ekki lengi í lauginni en nóg til að ég gæti synt 250 metra, pottormast og gufast smá. Þegar við komum upp úr kvartaði drengurinn yfir því að hann færi svangur svo ég bauð honum upp á rúnnstykki, kleinu og kakó á kaffihúsinu Kornið við Borgartún. Sjálf fékk ég mér kaffi, kleinu og vínarbrauð.
Svo var ég allan daginn að ákveða hvað ég ætlaði að gera næst. Það var ekki fyrr en strákarnir voru farnir á jólahlaðborð með föðurfjölskyldunni að ég dreif mig í Hagkaup í Skeifunni til að kaupa laufabrauð til að skera út og steikja með frændfólki komandi helgi. Ég náði meira að segja að kaupa nokkrar jólagjafir þannig að ég er eiginlega langt komin með þau innkaup.
11.12.14
Fimmtudagur
Það var annar óvenjulegur vinnudagur í gær. Ég tók strætó við Sunnubúð um hálfátta og flest af okkur áttum að mæta um átta vitandi það að það væri sennilega ekkert hægt að framleiða. Þær tvær sem voru á kvöldvaktinni áttu þó að mæta klukka einn ef ske kynni að allt kæmist í gang. Hægt var að sinna undirbúnings vinnu og nú var séð til þess að öll umslög væru dagsett. Þegar leið á daginn varð alveg ljóst að ekkert væri hægt að gera fyrr en varahluturinn kæmi að utan. Þar sem þessi tiltekni hlutur var ekki til í Evrópu varð að panta hann frá USA og það tekur tvo daga. Flestir fengu því að fara fyrr og var sagt að mæta ekki fyrr en á föstudagsmorguninn. Ég hringdi í eina sem hafði farið um tvö og vissi ekki af þessari tilhögun. Ég bað hana um að mæta með mér í morgun. Ég fór ekki úr vinnu fyrr en um fjögur en dundaði mér við að skrifa eitt jólabréf á ensku.
Kóræfing gærdagsins hafði verið boðuð á gamla tímanum svo aldrei þessu vant tók ég til kvöldmat, lifur með soðnum kartöflum og grænum baunum. Á kóræfingunni æfði ég "Bjarnatónið" í fyrsta skipti með sópran og fannst ég eiginlega að vera að syngja það í fyrsta skipti. Mér leist satt að segja stundum ekkert á blikuna því sumstaðar fer sópraninn ansi hátt upp að mér fannst og ég var í mesta basli með að passa að klemma ekki hálsinn. En upp fór ég og held að ég hafi staðið mig þokkalega. Við æfðum einnig jólasálminn "Í dag er glatt...". Hann er sunginn í röddum en ég hélt mig sópran meginn fyrst kórstjórinn bað mig ekki um að syngja með altinum. Reyndar söng hann sjálfur stundum með altinum.
Þegar heim kom vafraði ég um stund á netinu en horfði svo á Kiljuna á plúsnum.
10.12.14
Miðvikudagur
Gærdagurinn var á heildina litið ansi óvenjulegur. Ég tók strætó frá Sunnubúð um hálfátta og þegar ég kom inn á deild korter fyrir heila tímann hitti ég fyrir þær sem höfðu mætt klukkan sjö og þær sögðu sínar farir ekki sléttar. Vélin neitaði að fara upp og einungis var hægt að hlaða verkefnum inn á hana. Það var mikil huggun að tekist hafði að ljúka framleiðslu mánudagsins og þar að auki náðst að framleiða eitthvað af endurnýjuninni milli fjögur og sjö á mánudaginn. Klukkan var rétt orðin átta þegar ég hringdi í viðgerðarmann. Hann og annar til komu á svæðið um hálftíu og að þessu sinni sáu þeir að ekki væri hægt að gera við vélarbilunina heldur yrði að skipta um bilaðan varahlut. Þeir tóku þó hlutinn með sér upp úr tíu og ætluð að athuga hvort hægt yrði að gera við til bráðabirgða. Tíminn var að hluta til notaður til að jólaskreyta. Allir starfsmenn á deildinni fengu að fara fyrr heim þegar búið var að sinna því sem hægt var að sinna, nema ég og næsti yfirmaður. Ég stimplaði mig út nokkrum mínútum yfir fjögur og tók næsta strætó heim.
Eftir kvöldmat kom annar tvíburinn með mér í sund. Ég þurfti að beita afli til að skafa af farþegahliðinni á lánsbílnum og svo byrjaði ég á því að fylla á tankinn. Þegar við komum í Laugardalinn keypti ég nýja skýlu á strákinn en hann hafði rifið þær gömlu og hent þeim í síðustu sundferð. Við stoppuðum ekki lengi í sundi og ég synti aðeins 200 metra en við pottormuðumst smá og fórum einnig í gufuna. Castle var einmitt að byrja þegar við komum heim aftur.
9.12.14
Þriðjudagur
Gærdagurinn var aðeins öðruvísi en flestir mánudagar. Ég lagði af stað á lánsbílnum í fyrra fallinu í vinnuna og var mætt um hálfátta. Mér varð létt þegar í ljós kom að það var verið að framleiða á fullu. En léttirinn varði aðeins í tæpa tvo tíma því þá bilaði vélin og kalla þurfti út viðgerðarmann. Sá kom heldur seint að mínu mati en með annan með sér. Þeim tókst að koma vélinni í gang þannig að við náðum að ljúka hádegisframleiðslunni og vorum aðeins um hálftíma sein. Fljótlega eftir það var skipt aftur yfir í daglega framleiðslu debetkorta. Þá bilaði vélin aftur. Hún komst svo í gang um fjögur og ég skildi við kvöldvaktina upp úr því, þar sem þær tvær voru að vinna á daglegri framleiðslu.
Skrapp í fiskbúð á leiðinni heim og keypti ýsu- og bleikjuflök. Frysti bleikjuna er heim kom en um hálfsex setti ég upp kartöflur, ýsuna í annan pott og bræddi smjör og hellti úr einni dós af gulum baunum í þriðja pottinn. Kvöldið var tíðindalítið en ég ákvað að drífa mig í háttinn fyrir klukkan hálfellefu og las svo í um hálftíma áður en ég fór að sofa.
8.12.14
Mánudagur
Í gær var ég komin á fætur fyrir níu. Ætlaði mér að skreppa í sund um hádegisbil og svo á bókasafnið strax á eftir. En þetta snerist aðeins við. Var mætt á safnið og skilaði þremur bókum upp úr klukkan eitt. Var búin að framlengja þremur öðrum bókum í gegnum gegnir.is og átti tvær aðrar sem skila þarf milli jóla og nýjárs. Engu að síður tók ég þrjár bækur með mér út af safninu. Síðan fór ég í Laugardalslaugina. Synti ekki nema 300 metra en var svo að pottormasta og gufast smá stund á eftir. Fljótlega eftir að ég kom upp úr hringdi ég í annan tvíburann og bað hann um að búa til kaffi. Hringdi líka í hinn tvíburann og bað hann um að sækja þvott af snúrunum í þvottahúsinu. Sá mátti ekki vera að því alveg strax þannig að ég var komin heim áður en hann fór niður og hann tók með sér sunddótið mitt og hengdi upp fyrir mig í leiðinni.
Upp úr klukkan hálffimm raðaði ég nótum fyrir aðventukvöldið í rétta röð, tók til nesti, klæddi mig í spariföt og var komin upp í kirkju tuttugu mínútur yfir fimm. KÓSÍ-kórinn byrjaði upphitun, Karlakórinn Stefnir blandaðist saman við um sex og æfði með okkur "Við kveikjum einu..." og "Heims um ból". Eftir það var minn kór laus til klukkan átta. Ég borðaði nestið mitt og um sjö leytið setti ég á mig varalit. Aðventukvöldið tókst alveg glimrandi vel. Rithöfundurinn Kristín Steinsdóttir var með hugvekju (eða hugveikju eins og misritaðist í póstinum þar sem dagskráin var tilgreind), Hlíf Sigurjónsdóttir og Árni Heiðar opnuðu reyndar kvöldið og spiluðu saman ýmis lög milli hálfátta og átta. Hlíf spilaði svo aftur eftir að minn kór var búinn að syngja og hún spilaði einnig undir í "Heims um ból".
7.12.14
"Tvíburahálfsysturdóttir" mín og frænka 10 ára í dag
Í gær leyfði ég mér að kúra langt fram eftir morgni, eiginlega alveg til hádegis, áður en ég fór á fætur. Um svipað leyti var tilvonandi rafeindavirki (og vonandi rafvirki líka) að fara á fætur. Hann var á leiðinni í skólann til að ljúka við smá verkefni. Ég skutlaðist með strákinn en fór strax heim aftur. Rúmri klukkustund síðar hringdi ég til að athuga hvort hann væri búinn. Verkið hafði eitthvað klúðrast þannig að hann var ekki búinn en var búinn að ákveða að skreppa og fá sér eitthvað að borða. Ég sagðist vera á leiðinni að versla fljótlega og myndi hringja aftur er ég væri á leiðinni úr búðinni. Þegar ég var svo á leiðinni í búðina hringdi strákurinn og sagðist að búið væri að loka skólanum. Ég náði því í hann og hann varð samferða mér í Krónuna. Reyndar beið hann úti í bíl á meðan ég verslaði ofan í þrjá poka og keypti einnig kassa af mandarínum. Við komum heim um þrjú og hinn sonurinn var ennþá sofandi. Ég ákvað að vekja hann. Svefnpurrkan varð afar hissa á að hafa sofið svona lengi eða í um tólf tíma. Hann gekk frá vörunum og lauk við að hella upp á könnuna.
Um kvöldið bað hann mig um að skutla sér í Háskólabíó á uppstand sem átti að vera þar skv. miða sem þeir bræður höfðu fengið frá pabba sínum. Hinn bróðirinn hafði ákveðið að eyða kvöldinu í eitthvað annað svo sá sem dreif sig hafði fengið vin til að koma með sér. Í ljós kom að uppistandið hafði verið fært e-t upp á Höfða en þá var of seint að koma sér þangað. Ég var farin í góðri trú að hafa skutlað stráknum á réttan stað og strákurinn tók strætó heim aftur. Ég skil bara ekkert í exinu að skrifa ekki breytta staðsetningu á miðann. Það er nefnilega sjaldnast nóg að nefna breytinguna og/eða pósta henni á FB.
6.12.14
Missti úr einn færsludag
Gærdagurinn æxlaðist þannig að ég komst ekki í að skrifa nokkur orð um fimmtudaginn. Hugsanlega hefði ég getað gefið mér tíma til að lauma mér í tölvuna frammi á kaffistofu í gærmorgun þegar útséð var um að vélin færi í gang og búið að kalla til viðgerðarmann sem lét aðeins bíða eftir sér. En úr því ég gerði það ekki fannst enginn annar tími. Framleiðslan fór í gang upp úr ellefu og það var í nógu að snúast til klukkan fjögur. Náðum að ljúka öllum daglegum verkefnum klára gjafakortaframleiðslu á þessum tíma. Einnig var gerð vikuleg talning á stöðu plasta á vögnum. En skrám úr mánaðarlegri endurnýjun debetkorta var einungis hlaðið inn á framleiðsluvélina.
Um fjögur fengu tvær af okkur far með þeirri þriðju upp í Katrínartún en þar átti að vera jólaglögg milli klukkan fimm og sjö. Klukkan var orðin nokkuð meira en sjö þegar ég slagaði heim eftir að hafa m.a. drukkið nokkur hvítvínsglös, spjallað við vinnufélaga sem maður hittir sjaldan og tekið þátt á "pulpquiz" (eða hvernig sem það er skrifað). Þegar heim kom fékk ég þær fréttir að ekki mætti setjast á klósettið fyrr en á nýjum degi. En flísalög virðist vera langt komin.
Ef ég hefði komist í að skrifa í gær hefði ég m.a. sagt frá því að ég hefði notað strætó báðar leiðir milli heimilis og vinnu. Ég hefði líka sagt frá því að þegar ég kom heim hefði ég sótt sunddótið, sópað af lánsbílnum og skroppið í sund í Laugardalslaugina. Þar synti ég 400 metra og fór í gufu áður en ég fór aftur upp úr. Og um kvöldið skrapp ég til Lilju sem hjálpaði mér við að klára jólaservíettuhringina með því að strauja flíselínið aftan á stykkin sex. Sjálf saumaði ég hringina saman og fór ekki fyrr en það var búið eða einhvern tímann upp úr klukkan tíu. Einnig keypti ég nokkur tilbúin jólakort eftir Lilju
4.12.14
Snjór, snjór...
Þar sem ég er búin með vikukvótann hvað varðar ferðir á "einka/láns-bílum" milli vinnu og heimilis tók ég strætó í gærmorgun. Var reyndar afar fegin að sleppa við að skafa. Í vinnunni voru allir með verkefni og hin sex dekkuðu allt daglegt og svo smá auka eftir hádegi og til fjögur á meðan ég gat alfarið sinnt reikningagerðinni og lokið við hana. Fékk svo eina til að fara yfir tölurnar hjá mér áður en ég fyllti út þar til gerðan módúl fyrir nóvembertölur kortadeildar og lét vita að kortadeildin væri tilbúin með nýjustu tölur. Sú sem ég lét vita og tekur við keflinu var afar ánægð með mig. Einnig útbjó ég beiðni til að fá pantaðar nokkrar rekstrarvörur bæði í kortavél og ljósritunarvél. Þegar beiðnirnar voru samþykktar útbjó ég pantanir. Einhvern tímann eftir hádegi kom til okkar stærðarinnar kassi með kortasendingu. Það var of áliðið dags til að fá einhvern til að opna og skoða með mér en ég setti mig samt í samband við innri endurskoðun og við fundum út hver gæti komið og hvenær (þá í dag).
Tók strætó aftur heim tuttugu mínútur yfir fjögur. Hérna heima var annar strákurinn steinsofandi, hinn ekki kominn heim úr skólanum og svo tveir menn af erlendu bergi brotnir að leggja flísar á baðherbergisgólfið. Strákarnir ákváðu að skreppa til pabba síns og bjóða sér m.a. í mat hjá honum. Ég var mætt á kóræfingu um hálfsex. Ætlaði að byrja á því að skreppa á salernið því ég vildi ekki trufla mennina sem voru að leggja flísarnar. Kvennasalernið í neðra var læst en enginn þó að nota það og ég mundi ekki eftir því fyrr en rétt í þessu að það er líka salernisaðstaða í anddyri kirkjunnar. Ég var svo sem heldur ekkert í spreng og hugsaði bara með mér "...er ekki hvort sem er sagt að full hlandblaðra hjálpi sóprönnum að styðja betur við tónana og það sé léttara að komast á hærri nóturnar....".
Þegar ég kom aftur heim horfði ég á íslensku stelpurnar í kvennalandsliðinu sigra þær frá Makedóníu með tíu marka mun. Og svo horfði ég að sjálfsögðu á Kiljuna.
3.12.14
Mið vika
Annan daginn í röð fór ég á lánsbílnum til vinnu og bauð tvíburanum sem átti að mæta í skólann far með mér í gærmorgun. Engin veikindi voru á deildinni svo ég gat skipt verkefnum á fólkið og sinnt reikningagerðinni í rólegheitum. Dagurinn leið afar hratt og eftir að ég stimplaði mig út rúmlega fjögur fór ég beint í laugardalinn í sund. Vissi að strákarnir ætluðu að fara með vini sínum. Ég synti 400 metra og fór bæði í sjópottinn og gufuna á eftir. Allt í allt var ég innan við klukkutíma. Fljótlega eftir að ég kom heim fór ég að sinna matargerðinni. Hafði ofnbakaðan lax með soðnum kartöflum og gulum baunum í bræddu smjöri. Ég var búin að borða og slökkva undir öllu áður en strákarnir komu heim. Og já, það var byrjað að flísaleggja baðherbergið hjá mér í gær eins og kom fram í fyrirsögninni á pistli gærdagsins. Ég var ekki sein á mér að draga fram myndavélina.
2.12.14
Flísalögn hafin á baðinu (í dag)
Aðeins annar tvíburinn varð samferða mér á lánsbílnum í gærmorgunn. Hinn þarf víst ekki að mæta í skólann fyrr en í próf um miðja næstu viku. Í vinnunni er ein í fríi út vikuna og í gær voru tvær veikar. Sem betur fer vorum engar vaktir og aukavinna í bili og með því að ég sæki um bókhald, keyrslur og talningu þá gat ég líka byrjað að vinna að mánaðarlegri reikningasamantekt. Vinnudagurinn leið afar hratt. Ákvað að hafa steikt slátur og soðnar kartöflur í kvöldmatinn. Yfirleitt steiki ég bæði blóðmör og lifrarpylsu en lifrarpylsan var búin svo það var bara ein tegund á pönnunni. Var eitthvað að spá í að skreppa í sund en endaði með því að skutla strákunum í 18 ára afmæli (í Kópavog) til einnar sem var með þeim í Hlíðaskóla og kíkja svo á hana Böddu mína. Tók handavinnuna mína með mér og náði að klára útlínusaum á verkefni sem nú á bara eftir að pressa flíselín á bútana og sauma þá í hring. Þetta verða allt í allt sex jólaservíettuhringir.
1.12.14
Innipúki í gær
Var að væflast í tölvunni og svo að lesa langt fram á aðfaranótt gærdagsins. Engu að síður vaknaði ég fyrst klukkan átta án þess að nokkur vekjaraklukka kæmi við sögu. Sinnti ákveðnum morgunverkum en gat svo sofnaði aftur og svaf þá frameftir morgni. Notaði gærdaginn frekar illa en hef svo sem ekkert samviskubit yfir því. Setti reyndar í þvottavél og hengdi upp en annars var ég bara að dunda mér eitthvað. Horfði á handboltalandsleik kvenna við Ítalíu og slapp svo aftur við að sjá um kvöldmatinn. Davíð Steinn bauðst aftur til að sinna þeim málum. Strákarnir fóru svo í sund með vini sínum í leiðindaveðrinu í gærkvöldi en ég sat fyrir framan sjónvarpsskjáinn til klukkan tíu.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)