Seinni partinn í fyrradag var tjaldað í garðinum og systurdætur mínar voru ákveðnar að sofa þar. Það er að segja sú yngri átti hugmyndina og sú eldri var ekkert mótfallin henni. Pabbi þeirra fór með þeim út í tjald um miðnætti og tók það fram að útidyrahurðinni yrði ekki læst yfir nóttina ef þær þyrftu að komast á klósett eða eitthvað. Ég held að það hafi verið um fjögur í gærmorgun að dyrabjöllunni var hringt. Þar var víst Bríet á ferð, svo vön því að dyrnar væru læstar að hún hafði ekki meðtekið upplýsingar pabba síns. Þeirri stuttu var kalt og fékk hún að skríða upp í til foreldra sinna. Eldri systirin svaf alveg til níu en hún kvartaði líka um kulda þegar hún kom inn í gærmorgun.
Ekkert löngu eftir hádegi í gær ákvað ég að drífa mig í heimsókn í bústaðinn Sælukot við Heiði. Enginn hafði tíma til að koma með því enn var verið að taka til í skúrnum og sortera dót og mamma ætlaði að baka. Fjölskylda, Böggu heitnnar systir pabba, á þennan bústað og er alltaf þar um verslunarmannahelgar. Þar að auki er systurdóttir pabba, búsett er í USA, stödd hér á landi ásamt manni sínum. Ég hafði áhuga á því að hitta "fólkið mitt" og vissi að þar fengi ég helling af knúsum. Þegar ég mætti þá voru flestir af elstu kynslóðinni í gólfi við Strönd en ég hitti marga af yngri kynslóðunum. Hluti af þeim hópi fór svo í sund en ekki allir og ég var alveg róleg. Enda kom fólkið úr gólfi á endanum. Það hafði reyndar skroppið í kirkjugarðinn á Keldum í bakaleiðinni. Það var afar gott og gaman að hitta frændfólkið. Ég hef aldrei áður "droppað" svona við í bústaðinn á þessum tíma en veit þó að það hefði alveg verið tekið á móti manni.
Kvöldmatur (á Hellu) var borðaður um níu og rúmum klukkutíma síðar fóru systir mín og hennar fjölskylda í bæinn. Hingað koma þau svo líklega ekki aftur fyrr en upp úr miðjum næsta mánuði.