16.7.13
Sigga sextug
- Mágkona mömmu sextug -
Önnur mágkona hennar mömmu er sextug í dag og í gærkvöldi byrjaði e-ð að gerjast í kollinum á mér. Hrökk svo upp um fimm í morgun með tilbúna ferskeytlu sem ég sendi mér á sms-i svo ég gæti sent nöfnu minni (Sigríði Björgu Jónsd. Ström) vískukornið í skeyti með morgninum. Ferskeytlan verður ekki "sett á blað" hér en hugsanlega með föstudagsblogginu.
Labbaði annars heim úr vinnunni seinni partinn í gær og fann enn og aftur fyrir því að ég þarf að fara að kaupa mér nýja skó. Ég veit ekki hvað ég er að pæla að drífa mig ekki í slíkan verslunarleiðangur því ég verð að fara fyrr eða síðar, helst í gær (eða jafnvel í síðasta mánuði). Var búin að sjá til þess að strákarnir gætu sjálfir séð um að fá sér kvöldmat svo ég dundaði mér aðeins í tölvunni og las í einni bók þangað til kominn tími til að trítla á völlinn.
Valur - Víkingur Ólafsvík 0:0. Bæði lið áttu sín færi og ef eitthvað er voru gestirnir heldur beittari. En það var semsagt ekkert skorað í gær og þetta var 5. jafnteflisleikur Valsaranna á leiktíðinni og eru þeir í 6. sæti sem stendur. Þeir eiga reyndar einn leik inni en það er í Frostaskjólinu á móti KR, frestaður leikur frá því KR-ingar voru að spila í evrópukeppninni. Það verður ekki á vísann að róa hvað þann leik varðar en þó veit ég að mínir menn verða pottþétt ákveðnir í að ná sem hagstæðustu úrslitum þegar leikurinn verður flautaður á þann 25. n.k.
15.7.13
Mamma á afmæli í dag
- Afmælisdagur mömmu -
Já, mamma mín er sextíuogníu ára í dag og ein frænka okkar sextíuogþriggja. Annars leið helgin hratt og örugglega við lestur, útsaum og sjónvarpsgláp. Skrapp aðeins í Sunnubúðina í gær en þá var ég hvorki búin að versla neitt né elda í heila viku. Morgunmaturinn var grísk jógúrt með krækiberjum og stundum lifrarpylsusneið með, borðaði í mötuneytinu í vinnunni í hádeginu og fékk mér svo haframjöl og rúsínur í nýsoðnu vatni á kvöldin.
Strákarnir komu heim í gærkvöldi eftir heila viku hjá pabba sínum. Tveir vinir komu með þeim og þeir og annar strákurinn fór fljótlega út á rúntinn. Stráksi kom ekki heim fyrr en á tólfta tímanum en ég var ekkert að stressa mig yfir því, var háttuð ofan í rúm og að lesa afar spennandi bók eftir Noru Roberts, Undir yfirborðinu.
12.7.13
Föstudagur
Lýsi eftir logni´ og sól
leitt að vantar sumar.
Ef það kemur kátt um jól
kannski fæ mér humar.
leitt að vantar sumar.
Ef það kemur kátt um jól
kannski fæ mér humar.
Jæja, nú er afleysingu minni í vinnunni brátt lokið. Hópstjórinn minn kemur úr fríi á mánudaginn. Við sem stöndum vaktina á deildinni náðum að vinna upp allt það sem lá fyrir og ég að ganga frá hinum ýmsu málum. Ég er þó ekki frá því að ég mæti nokkuð fyrir átta á mánudagsmorguninn til að "taka stöðuna" á deginum og framleiðsluvélinni.
Eftir vinnu rölti ég upp á Sólvallagötu til norsku esperanto vinkonu minnar. Hún bauð mér fyrst upp á kaffi og speltlummur áður en við fórum að spá í hið tilbúna tungumál. Sagði henni frá að ég væri búin að sjá að það er alveg að koma að esperanto-þinginu sem að þessu sinni verður haldið hér á Íslandi, að mestu í Hörpu, dagana 20.-27. júlí n.k. Gúggluðum þingið og spáðum aðeins í dagskrána áður en við lásum einn kafla í Jen via mondo og skrifuðum niður nokkur orð. Tók svo strætó heim en það vill svo til að leið 13 stoppar við JL-húsið og svo hér á horninu, Langahlíð-Drápuhlíð.
Farið vel með ykkur um helgina og eigið hana sem allra besta!
11.7.13
Fimmtudagur
- Fimmtudagur -
Ég viðurkenni hér með að ég nennti hvorki að hjóla né labba í vinnuna í morgun. Heldur tók ég strætó og vagninn stoppar við Hörpuna og vinnan mín er hinum meginn við götuna.
Hugurinn er annars hjá EM-stelpunum okkar en hvort sem ég labba heim eða tek strætó á eftir þá verður búinn uþb hálftími af leiknum þegar ég kveiki á sjónvarpinu. Annað hvort stilli ég þá á plúsinn og bíð til fimm eða horfi á afganginn á fyrri hálfleik og allan síðari hálfleik í beinni.
Aldrei þessu vant greið ég ekki í saumana mína í gærkvöldi. Ég var búin að "stilla" mér upp í stofunni og kveikja á lampanum góða en svo gerðist ekkert meir.
10.7.13
Miðvikudagur
- Miðvikudagur -
Nýkomin heim úr vinnu, eldrauð, heit og sveitt eftir smá mótvind á hjólinu. Ég var eiginlega stöðugt að í allan dag frá því fyrir átta og þar til klukkan var orðin fjögur, gleymdi meira að segja að taka mér síðdegiskaffipásu. Stelpurnar þrjár (þar af ein sumarstúlka) slógu heldur ekki af og kvörtuðu ekki þótt þær kæmust ekki heim fyrr en fimm mínútur yfir fjögur. Ein af þeim var reyndar að vinna til tvö.
En svei mér þá ef ég þarf ekki að drífa mig í að fjárfesta í nýjum skóm og svo helst setja áminningu í simann um að láta ekki árið klárast áður en ég kaupi mér aðra. Það er engan veginn sniðugt að eiga bara eitt og hálft par. Þetta hálfa par eru skórnir sem ég nota í messum, tónleikum og árshátíðum en það er eiginlega ekki hægt að ganga mikið á þeim.
Ég þarf annars endilega að fara að setja inn aðra mynd af "Lost no more" saumaverkefninu mínu, til samanburðar við þá mynd sem ég setti inn í síðasta mánuði. Ég sat amk tvo og hálfan tíma við saumana í gærkvöldi enda leið kvöldið afar hratt. Náði svo að lesa nokkra kafla í einni af bókasafnsbókunum áður en ég fór að sofa.
9.7.13
Þriðjudagur
- Þriðjudagur -
Í gærmorgun tók ég strætó í vinnuna og labbaði svo heim seinni partinn. Strákarnir eru ekki heima þessa vikuna svo ég get hagað til eins og mér sýnist. Seinni parturinn og kvöldið til ellefu leið ógnarhratt við tölvuleiki, útsaum, sjónvarpsgláp og lestur.
Notaði hjólið í morgun. Það er annríki í vinnunni þessa dagana og nóg að gera allan daginn. Sem betur fer er ég með vanar og góðar stelpur með mér og það gengur undan okkur ef framleiðsluvélin leyfir (sem hún gerir ekki alveg alltaf). Nú fer senn að líða að því að sú sem hefur yfirleitt umsjón með deildinni komi úr fríi og þá fer bæði mínum byrgðum að létta og styttast í fríið mitt.
Var aðeins að fletta í gegnum bækurnar af safninu, þ.e. þær sem ég er ekki búin að lesa og það er ákveðið munstur í titlunum: Hægur dauði, Firring, Óminni, Undir yfirborðinu, Leyndarmál, Skindauði. Ég veit ekki alveg hvort þetta er tilviljun eða ekki en þessar bækur "hrópuðu" á mig að taka sig með heim sl. laugardag og ég held að ég verði ekki svikin af þeim.
8.7.13
Mánudagur
- Mánudagur -
Helgin var ljúf og skemmtileg og alltof fljót að líða. Seinni partinn á föstudaginn skrapp í ég heimsókn á Landakot. og stoppaði í uþb klst. Eftir kvöldmat settist ég með saumana mína fyrir framan sjónvarpið. Sat þar til klukkan var langt gengin í tíu en þá hleypti ég unglingunum að og settist við tölvuna.
Um hádegi á laugardag sótti ég Lilju vinkonu. Hellti upp á og svo föndruðum við góða stund, ég taldi út og hún vann í perlunum að búa til armbönd og hálsmen. Síðan fékk ég hana til að hjálpa mér að pakka ofan í nokkra kassa, dót frá Davíð, aðallega bækur og dvd-diskar. Skutlaði henni heim um fjögur og skrapp í Kringlusafnið á heimleiðinni. Skilaði öllum sex bókunum, endurnýjaði bókasafnskortið og tók með mér 9 bækur heim.
Á sunnudagsmorguninn sótti ég Lilju aftur. Að þessu sinni lá leiðin austur. Fyrst á Hvolsvöll til mömmu hennar þar sem við stoppuðum í tvo tíma, fengum kaffi og nýbakað með því og svo hleypti mamma hennar okkur á smá beit í jarðaberjareitnum í garðinum. Kíktum á sveitamarkaðinn áður en við renndum á Hellu til pabba og mömmu. Þar komum við beint í kaffi og pönnsur. Síðan var smá saumaklúbbur. Ég saumaði, mamma prjónaði og Lilja perlaði með góðri aðstoð frá Bríeti, yngri systurdóttur minni. Við Lilja sáum svo um eldamennskuna. Fengum far með Ingva mági í bæinn en ég var að skila mömmu bílnum sínum í bili.
5.7.13
Föstudagur enn á ný!
- 5 -
Andinn góður, lundin létt
ljúft að vera til.
Þetta þykir ekki frétt
þó segja hana vil.
Já, það er enn og aftur kominn föstudagur. Ég mætti á bíl í vinnuna því ég mun að sjálfsögðu kíkja við hjá Hlíbbu minni á Landakot eftir vinnu í dag. Annars er fátt í fréttum. Á eitthvað erfitt með að pakka niður dótinu hans Davíðs. Finnst miklu skemmtilegra að eyða tímanum í útsaum, lestur og heimsóknir eða eitthvað allt annað. Held það borgi sig samt að fara að drífa þetta af og koma þessu frá og vonandi hætti ég fljótlega að vera "misskilin". Nenni þó alls ekki að velta þessum hlutum of mikið fyrir mér, finnst bara skrýtið hversu mikið léttist á andanum við þetta "áfall" og ég er örugg um það að það koma engir skallablettir að þessu sinni eins og gerðist þegar tveir uppáhaldsfrændur mínir féllu frá á sama sólarhringnum rétt fyrir jól 2008.
Hafði það sem allra best og verum góð hvert við annað! :-)
4.7.13
Þjóðhátíðardagur Bandaríkjanna
- 4 -
Það endaði með því að ég fór á bílnum í morgun og það átti eftir að koma sér ágætlega. Þurfti nefnilega að reka tvö erindi í hádeginu, annað vinnutengt og hitt tengt öðrum syninum. Það eru sennilega hátt í þrjár vikur síðan hraðbanki gleypti debetkortið hans Davíðs Steins. Hann var lítið búinn að gera í málunum en bróðir hans var þó búinn að hringja og spyrjast fyrir en ekkert meir. Í gær var svo hringt í þann kortlausa beint úr útibúinu og honum tilkynnt að kortið hans væri komið þangað og að hann mætti sækja það við tækifæri. Ég hringdi í morgun til að athuga hvort ég mætti sækja það fyrir hann sem ég mátti. Strákurinn varð að vonum afar glaður að endurheimta kortið sitt.
Annars er ég aðeins farin að huga að sumarfríinu mínu enda bara rétt rúmur hálfur mánuður í það. Ég er með ýmsar hugmyndir á bak við eyrað sem ég ætla samt ekki að "viðra" nema eftir að þær verða kannski að veruleika. Þetta verður örugglega eitthvað og pottþétt líka spennandi.
Bókin á náttborðinu er síðasta ólesna bókin af sex sem ég er með í láni úr Kringlusafninu: Rigning í nóvember eftir Auði Ólafsdóttur. Bókin hlaut bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar árið 2004 og er mjög að mínu skapi, alveg fantagóð. En það var einhver að benda mér á að það væri tímaskekkja að vera að lesa hana um mitt sumar.
3.7.13
Annríki
- 3 -
Það er óhætt að segja það að dagarnir þjóta áfram og þá aðallega vegna vinnuannríki. En ég nenni ekkert að vera að skrifa og tjá mig mikið um vinnuna. Nema kannski þetta, að þessa daga sem ég er að leysa hópstjórann minn af er ég alltaf mætt vel fyrir átta og klukkan er oftast orðinn fjögur þegar ég stimpla mig út. Er búin að nota reiðhjólið þessa þrjá daga og er ekki frá því að nota það einnig á morgun. Bíllinn var ekkert hreyfður í gær en um fimmleytið í dag skrapp ég í búðina. Tvíburarnir eru loksins komnir í smá sumarvinnu og þurfa að nesta sig upp og svo er allt útlit að þeir verði með og hjá pabba sínum frá og með mánudeginum og út alla næstu viku svo ég þarf líklega ekkert að versla mikið næstu daga.
Ég lauk við að lesa Húsið eftir Stefán Mána seint í fyrrakvöld. Mæli alveg með þessari bók en þykk og mikil er hún og í raun alveg óskiljanlegt hvað mér tókst að draga lesturinn á langinn og passa upp á að lesa ekki langt fram á nætur.
Saumaði smá í gærkvöldi, bæði útlínur í mynd í jólakort sem í "Týnda sauðnum". Og í lokin get ég lofað ferskeytlubyrjun á föstudagsbloggið kemur, hún er eiginlega tilbúin og aðeins 3 búnir að fá að heyra.
2.7.13
Júlí
- 2 -
Dagarnir þjóta áfram eins og þeim sé borgað fyrir það og maður gerir sitt best til að njóta þeirra. Seinni partinn í gær hafði ég samband við tvíburahálfsystur mína og við sammæltumst um að ég kæmi til hennar upp úr átta með saumana mína. Hún sagði mér allt um Ítalíuferðina og hafði ég gaman að. Sá þetta hreinlega allt saman fyrir mér. Drukkum kaffi, spjölluðum, saumuðum og hlógum og allt í einu var klukkan barasta orðin hálftólf, vó. Ég sem passa yfirleitt upp á að kveðja ekki mikið seinna en ellefu. Við vorum báðar mjög hissa á hve tíminn flaug hratt frá okkur.
1.7.13
Nýr mánuður
- 1 -
Júní var ekki lengi að líða og nú fer að styttast í sumarfríið mitt. Samt
enn þrjár vikur í það en ef ég reikna dæmið rétt þá verða þessir 21 dagar alls ekki lengi að líða. Skrapp á Landakot eftir vinnu á föstudaginn eftir stutt stopp heima fór ég á bikarleik í kvennaboltanum. Mínar stelpur höfðu bara ekki roð í Stjörnustelpurnar og töpuðu á heimavelli 0:3. Þurfti að skreppa í vinnuna milli níu og tólf á laugardagsmorguninn, það er nú ekki oft sem það þarf í seinni tíð. Skrapp í Krónuna á heimleiðinni og var nýkomin úr þeim leiðangri þegar Lilja vinkona hringdi. Hún kvaðst vera nýbúin að baka brauðbollur, var ein heima og í sameiningu ákváðum við að það værið tilvalið að ég tæki saumana mína með til hennar. Stoppaði hjá henni í
fjóra tíma og varð heilmikið úr sauma-verki. Í gær var fótboltadagurinn mikli. Reyndar byrjaði ég á því að fylgjast með Formúlu1 með "öðru auganu". Um fjögur byrjaði bronsleikurinn í Álfukeppninni og hann fór í framlengingu og vítakeppni þannig að þegar ljóst var Ítalir náðu 3. sætinu var kominn tími til að trítla á völlinn á
Valur - FH í Pepsídeild karla 1:1 og svo horfði ég á sjálsögðu á úrslitaleikinn í Álfukeppninni. Það var meira hvað Braselíumenn fór illa með Spánverjana 3:0, engin framlenging og vítakeppni í þeim leik. Fyrsta markið kom strax á annarri mínútu.
28.6.13
Sumarblíðan hún er hvar?
Heldur sig til baka.
Leitað hef ég hér og þar
hefur sólin vaka
-ð?
Heldur sig til baka.
Leitað hef ég hér og þar
hefur sólin vaka
-ð?
Nú vantar aðeins smávegis upp á að lambið/sauðurinn sé kominn á jafann, þ.e. fyrir utan útlínur. Sat við saumana alveg frá því fyrir sjö og til klukkan að verða tíu. Var reyndar oft stopp v/spennu í leiknum milli Ítala og Spánverja, sérstaklega í fyrr hálfleik, lokin á seinni hálfleik framlengingar og í vítaspyrnukeppninni. Catillas sýndi snilldar tilþrif og hafði meira að gera í sínu marki en Buffon. Hvorugur markvarðanna náði þó að verja neina vítaspyrnu.
Svo er bara spurningin hvernig bikarleikurinn í kvennaboltanum fer í kvöld. Ég er eiginlega alveg ákveðin í að drífa mig á völlinn, strákarnir eru hvort eð er að fara til pabba síns svo ég get gert allt það sem mig langar til án þess að þurfa að taka tillit til þeirra.
Það á að fara að e-r framkvæmdir á Hverfisgötunni á næstu misserum og því eru allir stætisvagnar sem fóru þar um farnir að keyra Sæbrautina. Þetta þýðir að þegar ég tek strætó í vinnuna, leið 13, stoppar hann við Hörpu og alveg við vinnustaðinn minn. Það er þess vegna ekki mörg skref út á stoppistöð hvort sem ég er að koma til vinnu eða fara heim.
Hafði það sem allra best um helgina og njótið þess að vera í núinu!
27.6.13
- Álfukeppnin -
Það stefnir allt í fótboltaáhorfsviku hjá mér. Fór á völlinn tvo daga í röð og í gærkvöldi horfði ég á fyrri undanúrsltialeikinn milli Braselíu og Úrúgvæ í Álfukeppninni. Seinni leikurinn er í kvöld og hann er milli Spánverja og Ítalíu og ég ætla ekki að missa af honum. Get samt örugglega "saumað í með hinu auganu" líkt og ég gerði í gærkvöldi. Annað kvöld er bikarleikur kvenna og þá taka Valsstelpur á móti Störnustelpum. Svo er auðvitað heimaleikur hjá strákunum á sunnudaginn þegar þeir fá FH í heimsókn.
Fór annars á bílnum í vinnuna í gærmorgun í rigningarsudda. Það lá nú við að það væri komin sól og blíða upp úr fjögur. Notaði tækifærið og kom við í fiskbúð og hamstraði ýsu, bleikju og nokkrar fiskibollur. Þar sem ég er ákveðin í að föstudagar séu bíladagar og mér fannst ekki gott hjólaveður í morgun notaði ég strætó. Hef þá möguleikann á því að labba heim ef veðrið verður skárra.
26.6.13
- Aftur á völlinn -
Fór á heimaleik hjá stelpunum upp úr sjö í gærkvöldi. Þær tóku á móti Þrótti og höfðu betur 6:1. Á tímibili voru Valsstelpurnar svolítið kærulausar í spilinu og þá voru e-r stuðnings menn sem hrópuðu inn á völlinn: "Vanda sig" sem mér fannst svolítið fyndið því þjálfari Þróttara er Vanda Sigurgeirsdóttir. Fór því einhverra hluta vegna að spá í hvað liðin myndu heita ef þau yrðu sameinuð, Valtur, Þróval, Lurtur Þrólur? En Elín Metta setti tvö í gær og er markahæst í deildinni eftir átta umferðir ásamt Hörpu Þorsteinsdóttur úr Stjörnunni sem setti þrjú í gær á móti Aftureldingu. Eftir leikinn fór ég beint heim og horfði á Castle með Oddi. Stundum horfir Davíð Steinn með okkur en ekki í gær.
Hafði aðeins tekið fram saumana áður en ég fór á leikinn og er langt komin með lambið/sauðinn sem aðeins sást í fæturnar á þegar ég tók myndina, og deildi á bloggið og FB-vegginn, af útsaumnum síðast. Ekkert ústáelsi er á dagskránni í kvöld svo líklega mun bætast nokkuð við myndina (nema ég "festist" of lengi í tölvunni).
25.6.13
- Fyrsta tapið staðreynd -
Ég ákvað að drífa mig í Kópavoginn um átta í gærkvöld og sjá "mína menn" spila við Breiðablik. Því miður tapaðist leikurinn en ég hafði það allan tímann á tilfinningunni að það vantaði bara herslumuninn hjá þeim rauðklæddu að koma boltanum í netið hjá þeim grænklæddu. Valsmenn áttu fleiri skot að marki en það telur ekki þegar upp er staðið. Kom svo heim aftur upp úr tíu og þá voru tvíburarnir farnir með vinum í bíó.
24.6.13
- Helgin liðin -
Ýmislegt var gert um helgina. Annar tvíburinn skrapp til vinar síns eftir kvöldmat á föstudaginn og hinn bað mig um að skutla sér í Kópavoginn á e-n hitting þar. Ég notaði tækifærið og heimsótti mágkonu móðurömmu minnar heitinnar. Tók með mér saumana en þegar til kom þá mundaði ég nálina ekkert á þessum tæpum tveimur tímum sem ég stoppaði.
Á laugardagsmorguninn var ég komin til norsku esperantovinkonu minnar rétt fyrir ellefu. Við byrjuðum á því að fá okkur graut saman og svo settumst við niður yfir esperanto-ið með kaffi (hún reyndar aðeins með kaffistaup). Næst lá leið mín í Krónuna við Granda. Oddur Smári sá um að ganga frá vörunum er ég kom heim og rétt fyrir tvö skutlaði ég þeim báðum í Kópavoginn á "spilakvöld". Þá lét ég verða af því að heimsækja frænku mína og nöfnu (yngsta dóttir gömlu konunnar sem ég heimsótti kvöldið áður). Fyrir margt löngu lét þessi frænka mín mig vita að hún væri með föt af strákunum sínum sem mínir strákar gætu kannski notað. Við sátum úti í sólinni og ég var með saumana mína með mér og mundaði nálina óspart og roðnaði aðeins undan sólinni.
Í gær fór ég á fætur upp úr átta. Á tíunda tímanum skrapp ég í Hagkaup í Skeifunni og keypti afmælisgjöf handa yngri systurdóttur minni sem varð 9 ára í gær. Var mætt upp í óháðu kirkjuna um tíu. Framundan var gúllasmessa, síðasta messa fyrir sumarfrí. Vorum ekki mörg sem mættum en þó níu og þótt kirkjugestir væru ekki margir voru þeir þó fleiri en við. Eftir messuna fékk ég mér tvo skammta af gúllassúpu því í fyrri skammtinum hafði ég ekki fengið neitt kjöt. Kom heim rétt fyrir hálfeitt og vakti þann tvíbura sem enn svaf og svo drifum við okkur í afmælisveislu sem haldin var á Hellu.
21.6.13
Einskis vil ég óska mér,
óþarfi að vona.
Það veit sá er allt hér sér
svalt að hugsa svona.
(Ég er hörku kona!)
óþarfi að vona.
Það veit sá er allt hér sér
svalt að hugsa svona.
(Ég er hörku kona!)
Það er nú ekki meiningin að byrja föstudagsbloggið "alltaf" á ferskeytlum en þegar þær koma til mín þá læt ég þær fljóta með þ.e. ef ég er sátt við þær.
Hjólaði til og frá vinnu í gær þriðja daginn í röð og í morgun fannst mér það hálf glæpsamlegt að fara á bílnum. En föstudagssíðdegin eru helguð henni Hlíbbu minni sem er búin að vera á Landakoti í nokkrar vikur og þar áður var hún búin að vera amk tvo mánuði á sjúkrahúsinu í Fossvoginum. Það eru ekki margir föstudagar frá því í febrúar sem ég hef ekki komist til hennar en þó einhverjir en þá hef ég líka oftast farið til hennar e-n annan dag í vikunni.
Gærdagurinn var annars nokkuð rólegur. Tók fram saumana mína eftir kvöldmat og fylgdist með Spánverjum rústa Tahítimönnum 10:0 (Torres skoraði 4 af þessum mörkum en klúðraði einnig víti). Tvíburarnir fóru út í körfubolta með vinum sínum eftir að hafa borðað en Oddur kom heim um tíu til að poppa og horfa á Glæpahneygð.
Hafið það sem allra best um helgina og njótið þess að vera til!
20.6.13
- Hittingur -
Í fyrrakvöld var ég svo séð að byrja á því að spyrja tvíburana að því hvernig þeim litist á að kanna hvort systir mín og fjölskylda gætu tekið á móti okkur kvöldið eftir (í gærkvöldi semsagt) ef við legðum í matarpúkk. Strákunum leist ekkert illa á þetta nema annar þeirra var svolítið hneykslaður á að ég skyldi byrja að skipuleggja þetta og spyrja þá áður en ég athugaði hvernig systur minni hugnaðist þetta. Ég hringdi í Helgu systur um leið og strákarnir voru búnir að gefa grænt ljós. Henni leist mjög vel á hugmyndina og var sammála mér um að betra var að hafa athugað hvort strákarnir væru til í þetta fyrst. Þegar ég kom heim úr vinnu seinni partinn í gær var enginn heima. Skyldu bræðurnir nú hafa gleymt þessu? Sími annars þeirra var heima en hann sjálfur í ræktinni. Hann var ekkert búinn að gleyma þessu og skilaði sér heim rétt fyrir fimm. Náði símasambandi við hinn sem reyndist hafa steingleymt þessu. Hann var í Kringlunni með vinum sínum. Þegar ræktardrengurinn var tilbúinn lögðum við í hann og sóttum kringludrenginn á leiðinni í Krónuna. Keypti nokkra kindafilletbita og var komin til systur minnar upp úr hálfsex. Hún og maðurinn hennar sáu um að elda og það var sest niður við matarborðið um sjö. Meðlæti var m.a. kartöflugratín, sallat, brokkolí og gular og grænar baunir. Mjög ljúfengt. Töluðum um að við mættum alveg gera þetta oftar eða amk reglulega, t.d. einu sinni í mánuði. Mágur minn bjó annars svo vel að geta látið mig hafa minniskort í myndavélina mína svo nú get ég tekið fleiri en átta myndir áður en ég þarf að tæma vélina. Við mæðgin vorum komin heim um tíu en þeir bræður fóru reyndar fljótlega að hitta vini sína.
19.6.13
- Eitt og annað -
Vikan er strax hálfnuð og það er eins og júní ætli ekki að vera lengi að líða burt. Hjólaði milli heimilis og vinnu í gær. Það voru smá dropar um morguninn en aðallega hvasst á móti seinni partinn. Þetta hafðist samt allt saman og var ég ekkert lengur þrátt fyrir mótvind. Stoppaði frekar stutt við heima því ég var mætt á völlin klukkan sex. Valur - ÍBV strákarnir. Þetta var síðast leikurinn í umferðinni og sá eini og það var margt um manninn. Leikurinn endaði 1:1 og voru Vestmannaeyingarnir á undan að skora. Þar með eru strákarnir enn í 4. sæti, hefðu getað farið í 2. sætið með sigri en þeir eru annað liðið af tveimur sem ekki hefur tapað leik enn.
Kom aðeins við í Sunnubúð á leiðinni heim og freistaðist að kaupa smá sjónvarpssnakk. Strákarnir höfðu bjargað sér með kvöldmatinn á meðan ég var á leiknum (áttum til 2 1944 spaghetti búlones (skrifað eftir framburði, eða nokkurn veginn)). Um níu leytið kom einn vinur þeirra í heimsókn og hann horfði á Castle með okkur mæðginum.
Ekki tók ég fram saumana mína í gær en mér gengur ágætlega að lesa Húsið eftir Stefán Mána en það er bókin á náttborðinu mínu.
18.6.13
- Langa helgin leið alltof hratt -
Þrír dagar liðu mjög hratt. Skrapp á Landakot að venju eftir vinnu á föstudaginn til að kíkja á tengdamömmu eins frænda míns. Hún er búin að vera á sjúkrahúsi (upp í Fossvogi og svo á Landakoti) síðan í febrúar. Um daginn var farið að tala um að senda hana heim. Það er búið að gera þrjár tilraunir en það er alltaf eitthvað sem kemur í veg fyrir heimförina. Fyrst fékk gamla konan flensu, næst var hún komin með blöðrubólgu og núna síðast lungnabólgu þannig að hún þarf aftur að vera með súrefni. Mér segir svo hugur um að gamla konan fari líklega ekki heim til sín aftur. Það þarf sennilega að sækja um pláss á elli- eða hjúkrunarheimili fyrir hana. Ég stoppaði ekki lengi heima þetta föstudagssíðdegi heldur trítlaði upp á völl og fylgdist með "mínum Val-stelpum" taka á móti og spila við FH. "Við" lentum 0:2 undir en leikurinn vannst 5:3 og var Elín Metta með tvö af mörkunum. Fljótlega eftir að ég kom heim byrjaði Barnaby svo annan daginn í röð saumaði ég ekki spor.
Um tíu á laugardagsmorguninn var ég mætt til Nonna í Kristu. Hugsa sér strax liðnar sex vikur síðan ég var í klippingu síðast. Klukkutíma seinna var ég komin til norsku esperanto vinkonu minnar. Stoppaði hjá henni í einn og hálfan tíma. Þá átti ég bara eftir að taka saman það sem ég þurfti til tveggja nátta gistingu. Var ekki alveg byrjuð að hugsa mér til hreyfings þegar pabbi hringdi rétt fyrir eitt. Aldrei þessu vant hafði ég ekki hringt austur á föstudeginum og þar sem hann vissi að ég væri á leiðinni en var ekkert búin að láta í mér heyra hringdi hann til að athuga með mig. Ég var svo komin austur um hálfþrjú. Fékk mér kaffi með foreldrum mínum en hafði svo samband við frænda minn og konuna hans um hvort ég mætti ekki koma til þeirra og verða samferða á "Heiðarfólks-hittinginn".
Við hittumst semsagt önnur og þriðja kynslóð frá föðurforeldrum mínum og borðuðum saman á Hótel Læk sem er staður þar sem hét áður Hróarslækur og ein föðursystir mín bjó á. Mætingin var nokkuð góð, 29 manns, en ég var sú eina mætt af pabba grein. Mamma er frekar léleg til heilsunnar svo pabbi vildi ekki skilja hana eftir eina og systir mín og mágur voru í brúðkaupsveislu. Annars vantaði bara 6 aðra (4 maka og 2 systkinabörn). Annað af systkinabörnunum býr með sýnum maka í Bandaríkjunum og einn makinn var einnig staddur erlendis). Ósköp sem var gaman að hitta þetta fólk. Ég stoppaði samt ekkert svo lengi ákvað að drífa mig þegar frændi minn og hans spúsa kvöddu. Föðursystir mín var einnig samferða okkur og skutlaði ég henni alla leið heim.
Restin af helginni fór í lestur, útsaum og almennt afslappelsi. Sótti tvíburana svo til föðurforeldra þeirra á leiðinni í bæinn í gærkvöldi og við mæðginin ákváðum að hafa myndakvöld. Fór því kannski heldur seint að sofa í gærkvöldi.
14.6.13
Tíminn flýgur furðu hratt,
festir ekki rætur.
Það hef fyrir hreina satt
hann er ekki ætur.
festir ekki rætur.
Það hef fyrir hreina satt
hann er ekki ætur.
Er ekki hressandi að byrja skrifin í virkra vikulokin á einni skrýtinni stöku sem "kom" til mín í morgun? Upp er runninn enn einn föstudagurinn og mánuðurinn alveg að verða hálfnaður. Það er annars búið að sjá til þess að ég missi ekki af heimaleik karla í næstu umferð. Leikurinn átti að vera á sunnudaginn kemur en hefur verið frestað fram á þriðjudagskvöld þar sem einn ÍBV-arinn (erlendur leikmaður) er í e-m landsliðsverkefnum. Ég verð nefnilega sennilega frekar lítið heima um helgina, en allt um það eftir að hún (helgin) er liðin.
Bíllinn var ekki hreyfður í gær. Notaði hjólið milli vinnu og heimilis og var ekki á neinu útstáelsi í gærkvöldi. Tíminn fór í ýmislegt m.a. lestur og útsaum. Aftur á móti er ég á bílnum núna, þarf að reka nokkur erindi seinni partinn. Það er alveg leyfilegt því ég notaði vistvænan ferðamáta þrisvar í vikunni.
Ég er svo á leiðinni á heimleik í Pepsídeild kvenna í kvöld til að hvetja stelpurnar.
Hafið það sem allra best um helgina og brosið mikið!
13.6.13
- Hitt og þetta -
Ég var svo sniðug að skreppa frá í hádeginu í gær. Við hliðina á hjólinu mínu var pumpa sem ég notaði á framdekkið. Hjólaði svo að Hverfisgötu 50 og bað um að framdekkið yrði skoðað og hjólið yfirfarið. Sá sem tók við hjólinu sagði að ég gæti sótt það seinni partinn. Síðan ákvað ég að prófa veitingastaðinn Gló við Laugaveg 20B. Fékk mér kjúklingarétt og gat fengið þrennskonar sallat með. Greip einnig grænan drykk í flösku með. Ég á örugglega eftir að prófa þetta aftur því þetta var bara ljúffengt. Strax eftir vinnu fór ég og sótti hjólið mitt. Ætlaði varla að nenna því því það rigndi alveg beint niður og ég sá fyrir mér að ég kæmi heim alveg rennblaut. Skipta hafði þurft um slöngu í framdekkinu og kostaði viðgerðin og yfirferðin rúmlega átta þúsund. Það hætti svo að rigna fljótlega eftir að ég hjólaði af stað heim. Fyrir framan bílskúrinn heima gerðist eitthvað undarlegt. Ég var búin að stoppa og ætlaði að stíga af hjólinu og á næsta augnabliki lá ég alveg á hliðinni. Hló svo mikið að ég ætlaði ekki að geta staðið upp aftur.
Stoppaði ekki lengi heima heldur dreif mig í Lyfjaver til að leysa út gel sem ég þarf að nota daglega fyrir utan ca hálfan mánuð á 2-3 mánaða fresti. Hef verið með lyfjakort sem gilti 100% en nú þurfti ég að borga hátt í 3000 fyrir hverja flösku (leysi alltaf út 3 í einu á 3 mánaða fresti). Næst lá leiðin í bókasafnið í Kringlunni. Já, ég fór til að skila þessum tveimur bókum sem ég minntist á í gær. Auðvitað fann ég nokkrar aðrar í staðinn, sex stykki eða svo, og nei það var ekki komið að því að endurnýja bókasafnskírteinið. Það verður líklega ekki fyrr en næst.
Eftir kvöldmat skrapp ég svo með handavinnutöskuna yfir til tvíburahálfsystur minnar. Var komin til hennar rétt upp úr átta og svo var klukkan allt í einu alveg að verða ellefu. Magnað hreint hversu tíminn getur flogið hratt.
12.6.13
- Enn af hjólinu -
Ekki komst ég með hjólið í viðgerð í gær heldur fékk það að vera á hjólastæði í kjallara vinnustaðarins í nótt. Borgarhjól sf. er opið milli átta og sex flesta virka daga en ég komst ekki úr vinnu fyrr en upp úr sjö í gær vegna smá mála sem þurfti að afgreiða "strax". En ég er nokkuð viss um að hjólið fer í viðgerð eftir fjögur í dag.
Hef lokið við að lesa tvær síðustu bækurnar sem ég er með af Kringlusafninu. Vetrarsól eftir Auði Jónsdóttur og Drottning rís upp frá dauðum sem er söguleg skáldsaga eftir Ragnar Arnalds. Báðar alveg ágætisbækur. Þarf að skila þeim á safnið fyrir 18. þ.m. og ef ég næli mér í e-r bækur í staðinn þarf ég líklega að endurnýja bókasafnskírteinið. Annars á ég þrjár ólesnar bækur heima, Húsið eftir Stefán Mána, Ég geng ein eftir Mary Higgins Clark og Áður en ég sofna eftir Steven J. Watson. Þessa síðustu fékk ég í síðustu viku frá bókaklúbbnum sem ég er í. Fyrst nefndu bókina keypti ég á afar góðum afslætti í gegnum "Núið" í byrjun árs og "miðbókina" keypti ég á bókamarkaðinum í Perlunni í febrúar eða mars. Byrjaði á að lesa bókina hans Stefáns Mána í gær og hún lofar góðu. Þetta er mjög þykk bók og það er helst að ég kvíði því að hún grípi mig svo sterkum tökum að ég verði að lesa langt frameftir öllu og sinni ekki saumunum mínum á meðan.
11.6.13
- Framhaldssaga af hjólinu -
Um leið og ég kom heim úr vinnu í gær fór ég út í skúr, snéri hjólinu mínu á hvolf og prófaði að pumpa í framdekkið. Það gekk þokkalega en mér fannst ég ekki ná dekkinu alveg hörðu. Það var reyndar smá vesen á mér við þessa framkvæmd, eitthvað færðist hjólið til og allt í einu var stýrisendinn fastur inn á milli teinanna í hjóli annars stráksins. Ég hélt að ég ætlaði aldrei að geta losað þetta en tókst það þó að lokum og var öll útötuð.
Skrapp í heimsókn til systur minnar í gærkvöld og hafði með mér nýjustu þýddu Lee Child bókina til að lána. Stoppaði í rúma tvo tíma og byrjaði svo á því að kíkja á hjólið aftur þegar ég kom heim. Dekkið var amk ekki orðið alveg flatt en hafði linast aðeins upp. Pumpaði meira í það. Svo var ég mætt út í skúr korter yfir sjö í morgun. Mér fannst sem það hefði nú ekki lekið mikið úr dekkinu en líklega hefði ég samt átt að pumpa aðeins meira í það. Engu að síður hjólaði ég af stað og komst alla leið út á Miklubraut og yfir á gönguljósunum þar en þá þorði ég ekki að hjóla meir ef ég skyldi nú skemma dekkið. Teymdi hjólið með mér alla leið í vinnuna og mun svo fara með það beint á Hverfisgötu 50, þar sem hægt er að fá gert við hjól, seinni partinn.
10.6.13
- Sprungið á hjólinu -
Þegar ég ætlaði að grípa í hjólið í morgun sá ég að framdekkið var alveg lint og flatt við gólfið í skúrnum. Þótt ég væri í fyrra fallinu var ég rétt búin að missa af strætó. Þar sem ég er að byrja að leysa teymisstjórann minn af vegna sumarfrís vildi ég mæta tímanlega til vinnu svo það var bara um það að ræða að draga fram bíllykilinn og bruna óvistvænt af stað. Samgöngusamningurinn kveður á um vistvænar ferðir amk þrisvar í viku milli heimilis og vinnu svo ég er ekkert að svindla þótt ég hafi farið á bílnum í morgun. Ég fór líka á bílnum á föstudaginn var því strax eftir vinnu skrapp ég í heimsókn til eldri konu sem er á Landakoti. Ég kíki yfirleitt á hana á föstudögum en ég komst ekki á föstudaginn var svo það var liðinn hálfur mánuður frá síðasta innliti.
Helgin leið annars hratt og örugglega. Skutlaði Oddi Smára í Breiðholtsskóla upp úr hálfellefu á laugardagsmorguninn þar sem hann var að spila á trommur með skólalúðrasveit Árbæjar og Breiðholts á vorhátíð skólans. Síðan lá leið mín til norsku esperanto vinkonu minnar. Þótt stoppið hjá henni væri bara tæpur einn og hálfur tími var strákurinn kominn heim á undan mér. Um tvö gáfumst við upp á að bíða eftir að hinn tvíburinn vaknaði og vöktum hann. Skruppum svo í Dressmann í Kringlunni þar sem ég keypti tvennar buxur á hvorn strák. Annar strákurinn labbaði heim strax á eftir en hinn kom með mér í Hagkaup uppi þar sem ég fann einar buxur á mig og Hagkaup niðri þar sem við keyptum m.a. rjóma í vöfflur sem ég bjó til um leið og við komum heim.
Um eittleytið í gær kvaddi ég strákana sem voru búnir að taka sig til og á leiðinni í nokkurra daga heimsókn til föðurforeldranna. Það var samt ég sem var að fara út úr dyrunum fyrst og mig grunaði að þeir yrðu farnir þegar ég skilaði mér heim aftur. Ég fór í Kolaportið en þangað hef ég ekki komið í mörg ár. Að þessu sinni fór ég að kíkja á vinkonur mínar og saumaklúbbsmeðlimi sem voru með bás ásamt fósturdóttur annarrar þeirra. Stoppaði hjá þeim í hátt í tvo tíma. Nokkuð var af fólki á svæðinu en verslun í bás vinkvenna minna var frekar dræm. Það var helst að sú yngsta seldi nokkuð af flíkum og skóm. Úr Kolaportinu dreif ég mig í heimsókn til einnar sem verður 91 árs eftir tæpan mánuð. Taldi það öruggt að hún væri heimavið þar sem síminn hjá henni var á tali þegar ég reyndi að hringja á undan mér. Enda kom það á daginn að hún var heima og tók mér fagnandi, var nýbúin að búa til stafla af pönnsum.
7.6.13
- Föstudagur -
Ein vika er ekki lengi að líða. Mér finnst dagarnir ótrúlega fljótir að raða sér saman í viku og vikurnar í mánuði. Vika síðan ég fór til Egilstaða. Ég stefni klárlega að því að fara þangað aftur seinni partinn í sumar í 2-4 virka daga.
Tók eftir því í gær að buxurnar sem ég nota mest eru orðnar afar slitnar í klofi og innri skálmum. Það borgar sig líklega ekkert að gera við þetta slit, búið að bæta þennan stað áður og efnið orðið mjög þunnt og götótt. Ég þarf hvort eð er að kaupa buxur á tvíburana og mun líklega nota tækifærið og finna einar á mig, samt ekki í Dressmann. Það gerðist líka þegar ég var alveg að koma heim og hjólaði á mjóu gangstéttinni fyrir framan bílastæðin að einn bíllinn var svo nálægt að það var frekar lítið bil milli bíls og steinveggs utan um garðinn við næsta hús. Hægri skórinn nuddaðist við vegginn á smá kafla og það kom næstum því gat á skóinn fyrir vikið. Sólarnir á þessum skóm eru reyndar orðnir mjög slitnir, sennilega vegna þess að þetta eru eina parið sem ég nota t.d. í innanbæjartrítl. Það væri skynsamlegt af mér að kaupa mér eitt skópar fljótlega og svo annað innan fárra mánaða. Ég er greinilega ekki haldin sterkri skókaupaáráttu og vakna oftast upp við það að skóparið sem ég nota mest er orðið lúið.
Ég er enn að reyna að átta mig á að Hemmi Gunn sé fallinn frá. Auðvitað er þetta það eina sem er öruggt í lífinu að maður mun deyja og þessi þekkti maður sem nú er dáinn var búinn að fá áfall áður og hafði verið "hnoðaður til baka" amk einu sinni. Hann fór ekki heldur alltaf vel með sig. En það má alveg taka mottóin hans sér til fyrirmyndar. Hver dagur er gjöf og um að gera að nota hann vel, vera hress, ekkert stress, kossar og bless.
Hafið það sem allra best um helgina og gerið eitthvað skemmtilegt!
6.6.13
- Misreiknaði mig -
Fór aðeins að spá aftur í heimsóknirnar í blóðbankann. Það að ég er búin að heimsækja þann stað 35 þýðir að það vantar bara 15 heimsóknir upp í 50 og 4(mánuðir)x15 eru 60 en ekki 200. Svo það eru fimm ár í fimmtugustu heimsóknina, þe ef allt gengur vel næstu misserin og ég mæti reglulega á fjögurra mánaða fresti. Það eru líklega bara ágætar líkur á því að ég fari í 50. heimsóknina árið sem ég verð fimmtug.
Davíð Steinn bað mig um að skutla sér í Veiðihornið í Síðumúla eftir að ég var komin heim úr vinnu í gær. Hann hafði augastað á nýju veiðihjóli. Hann borgaði sjálfur fyrir hjólið en ég splæsti línunni á hjólið á hann. Hjólið kostaði um 15þús en línan fimmtánhundruð. Oddur Smári notaði allan sinn vasapening í að kaupa sér nýja tölvumús í byrjun vikunnar þannig að báðir bræðurnir eru búnir að eyða vasapeningunum sínum og mánuðurinn er bara rétt nýbyrjaður.
Klukkan var orðin níu í gærkvöldi áður en ég tók fram saumana mína og þá hafði ég ekki tekið þá fram síðan á mánudaginn. Óskiljanlegt að ég sleppti úr einum saumadegi. Var reyndar alltaf á leiðinni að taka upp saumana á þriðjudaginn en síðdegið og allt kvöldið fór í eitthvað allt annað.
5.6.13
- Samgöngusamningur gildur -
Í nýliðnum mánuði skrifaði ég undir samgöngusamning við vinnustaðinn minn. Þessi samningur tók gildi um mánaðamótin og felur í sér að ég komi mér til og frá vinnu á vistvænan hátt amk þrisvar sinnum í viku. Á mánudaginn var ýmislegt á "þarf að gera-listanum" svo ég valdi að fara á bíl í vinnuna. Hins vegar var allt annað upp á teningnum í gær. Það rigndi nokkuð í gærmorgun og því langaði mig alls ekki til að nota hjólið. Ég ákvað því að taka strætó og var það í allra fyrsta sinn sem ég nota þá leið til vinnu. Vagninn tók ég rétt upp úr hálfátta eiginlega á næsta götuhorni, við Sunnubúð (Langahlíð/Mávahlíð) og fór úr honum aftur við Þjóðleikhúsið. Seinni partinn var hætt að rigna en nokkuð hvasst. Engu að síður labbaði ég af stað heimleiðis þvert yfir Skólavörðuholtið og var komin heim uþb hálftíma síðar. En ég hjólaði til vinnu í morgun. Hef ákveðið að nota bílinn milli heimilis og vinnu á föstudögum og kannski stundum á mánudögum.
4.6.13
- Eignaðist myndavél í gær -
Á föstudaginn var kom tilkynning frá pósthúsinu um að ég ætti sendingu þar. Ég var nokkuð viss um hvað væri í pakkanum og fór með miðann í pósthúsið eftir vinnu í gær. Greiddi smá sendingakostnað og tók svo spennt á móti litlum kassa. Þegar heim kom opnaði ég pakkann og tók upp úr honum rauða krúttlega myndavél. Myndin hér að neðan er einmitt tekin á þá vél. Fyrir þessa myndavél borgaði ég (fyrir utan sendingakostnað) með uppsöfnuðum capacent-punktum, 30.062. Slíkum punktum safna ég með því að ganga daglega með svokallaðan fjölmiðlamæli sem nemur allar útvarpsbylgjur. Um daginn leysti ég út nýjan heimasíma (þurfti ekki að borga sendingakostnað þá) en sá gamli var hættur að sýna neitt á skjánum. Ekki var hægt að sjá úr hvaða númeri var verið að hringja og ekki heldur hvaða númer var verið að slá inn, þannig að það var alveg kominn tími á nýjan síma. Þessi sem tekinn er við af þeim gamla sýnir líka dagsetningu og tíma.
3.6.13
- Frábær helgi að baki -
Var mætt hálftíma of snemma út á Reykjavíkurflugvöll á föstudagsmorguninn var. Byrjaði því á að fá mér smá kaffi og las í nýjustu Lee Child bókinni. Vélin hóf sig til flugs um hálfellefu og klukkutíma seinna lenti ég á Egilstöðum. Einar Bjarni sonur vinkonu minnar var í móttökunefninni en Ella var að vinna til þrjú. Ég setti dótið mitt inn í það herbergi sem ég átti að fá afnot af um helgina og greip með mér saumana, bókina og sudoku-gátur inn í stofu. Tíminn leið hratt við þetta dundur. Var bæði með "Lost no more" myndina og jólakortaútsaum. Það varð úr að þann tíma sem ég greip í sauma um helgina var ég að sauma út eina jólakortamynd, þ.e. ég lauk við allan krosssaum og á nú bara eftir útlínur.
Þegar vinkona mín kom heim hellti hún upp á en fljótlega skruppum við í verslunarleiðangur. Fórum bæði í vínbúð og Bónus. Um kvöldið fengum við okkur hvítt í glas og horfðum m.a. á "The Voice" og spjölluðum að sjálfsögðu. Upp úr hádegi á laugardaginn fórum við fimm á tveimur bílum yfir til Eskifjarðar og hittum tvennt til við höfnina. Fórum um borð í Geysi og sigldum út fjörðinn. Sáum einn einmana lunda. Hvort það var Lundi eða Skundi sem við sáum er ekki vitað. Við Einar Bjarni fórum til baka á undan hinum þremur því hjónin voru á leið í vígsluathöfn og Árdís var að uppvarta í veislunni.
Í gærmorgun fórum við þrjú, hjónin og ég, í bíltúr inn í Hallormsstað. Sáum 12 dýra hreindýrahjörð á leiðinni, allt karldýr og tveir af törfunum með heljarmikil og flott horn. Fórum í smá göngutúr í skóginum. Sáum fleiri hreindýr í bakaleiðinni og þau komu við hjá tilbúnu vatni og sýndu mér Flórgoða. Um hálffjögur skutlaði vinkona mín mér á völlinn og beið með mér þar til kallað var út í vélina. Helgin leið eiginlega alltof hratt en við vinkonurnar erum ákveðnar í að endurtaka leikinn seinna í sumar. Þá ætla ég að fara e-a virka daga í sumarfríinu og vonast til að geta notað e-ð af uppsöfnuðum punktum í leiðinni.
31.5.13
- Frídagur -
Í dag tek ég út einn af síðustu sumarfrísdögunum frá því í fyrra. Fínt að lengja helgina svona. En annars mun ég líklega skrifa um ævintýrin framundan strax eftir helgi.
Nú er ég búin að heimsækja blóðbankann þrjátíuogfimm sinnum síðan ég var tvítug. Fór þangað í gær beint eftir vinnu. Reyndar kom í ljós að ég átti ekki að koma fyrr en í kringum áttunda júní n.k. en þar sem ég er með afar gott blóðgildi þá var ákveðið að þyggja frá mér dropa. Sennilega hef ég mistalið vikurnar 16 og þær ekki verið nema 15 þegar ég setti áminningu á heimsókn í "gsm-dagbókina" mína síðast. Hvað um það, mér skilst að það verði svo haft samband við mig frá blóðgjafafélaginu og ég boðin formlega á næsta aðalfund þar sem ég mun taka á móti bronsmerki. Ég er strax búin að setja markið á 50 heimsóknir og ef heilsan verður áfram hin besta eru svona 200 mánuðir í þá heimsókn.
Eftir blóðgjöfina skrapp ég á bókasafnið í Kringlunni og skilaði af mér einum fimm bókum. Tvær bækur eru enn ólesnar hér heima af safninu en nú brá svo við að það kom engin "ný" bók með mér heim af safninu. Það er í góðu lagi því fyrir utan þessar tvær bækur á ég þrjár nýlegar ólesnar og svo er sennilega stutt í næstu kilju úr krimmabókaklúbbnum.
Hafið það sem allra best um helgina!
30.5.13
- "Öðruvísi" kórhittingur -
Miðvikudagskvöldið fyrir hvítasunnu var síðasta kóræfing í bili. Enn eru eftir tvær messur áður en skellur á sumarfrí, göngumessa kl. 09:00 þann 8. júní n.k. og gúllasmessa kl. 11:00 þann 23. júní. Þá fannst okkur alveg tilvalið að reyna að hóa hópnum saman heim til eins meðlims og leggja saman í smá grillpúkk. Þessi hittingur fór fram í gærkvöldi í Hafnarfirði. Ég kom við í Hagkaup í Skeifunni og hafði með mér e-s konar bita af lambi til að setja á grillið. Freistaðist reyndar til að kaupa nýjustu þýddu bókina eftir Lee Child "Rutt úr vegi", en það er allt önnur saga. Við mættum 8 kórfélagar af 17 heim til þess 9. og kórstjórinn leit við með eldri stelpuna með sér. Annar bassinn tók að sér að grilla. Húsráðandi var búinn að leggja á borð og búa til sósu, ferskt sallat og kartöflusallat. Hann bauð öllum sem vildu smá hvítt í glas. Þegar kallað var að borðum kom smá babb í bátinn því hver og einn átti að þekkja sinn bita og ég sem hafði ekkert reynt að "kynnast" mínum... ...en þetta bjargaðist allt saman því hinir þekktu sína bita. ;-) Kvöldið varð annars hið skemmtilegasta og leið auðvitað alltof fljótt.
29.5.13
- Tap á heimavelli -
Já, ég fór á heimaleikinn Valur - Stjarnan 0:2 í kvennaboltanum í gærkvöldi. Mest allan tímann fannst mér Valsstelpurnar eiga meira í leiknum en maður vinnur ekki nema með því að skora mörk og stelpurnar nýttu ekki færin sín, því miður. Þá er nokkuð ljóst að stelpurnar verða ekki í toppbaráttunni í sumar. En hvað um það, ég mun halda áfram að fara á heimaleiki í sumar, nota mér árskortið, þ.e. ef ég er í bænum þegar þeir fara fram.
Ég er mjög dugleg að fara á bókasafnið. Yfirleitt fæ ég nokkrar bækur að láni í hvert sinn og ein og ein sem er til láns í tvær vikur. Þannig að þegar þarf að skila skammtímalánsbókum er ég ekki endilega búin að lesa allar bækurnar. Þá skila ég þeim sem ég hef lesið og svo rata fleiri bækur í pokann til mín og heim. Er nýbúin að lesa tvær bækur eftir Böðvar Guðmundsson Enn er morgun og Kynjasögur. Sú fyrrnefnda hélt athygli minni allan tímann í hinni bókinni voru alls kyns skrýtnar smásögur sem voru flestar nokkuð skondnar.
28.5.13
- Síðasta vikan í maí -
Helgin leið hratt og örugglega. Skrapp til Inger í esperanto um ellefu á laugardagsmorguninn. Strákarnir voru farnir til pabba síns þegar ég kom heim. Restin af deginum fór í tölvuleiki, lestur, útsaum og svo byrjaði ég að pakka niður dóti frá Davíð.
Á sunnudaginn var ég komin á fætur upp úr níu. Kíkti í tölvuna. Sótti svo Lilju vinkonu um hálftólf. Setti bensín á bílinn og svo brunuðum við austur á Hellu. Vorum komnar það snemma að við byrjuðum á því að kíkja til pabba og mömmu, aðallega til að fá að nota salernið. Klukkan hálftvö vorum við komnar upp á Helluvaði til að taka þátt í "Halló Helluvað". Verið var að hleypa út kúnum í fyrsta sinn þetta sumarið og það er alltaf jafn gaman að verða vitni að því. Það var sko skvett úr klaufunum en stundum vissu kýrnar ekki alveg hvort þær voru að koma eða fara eða hvort allt fólkið væri á staðnum fyrir þær til að horfa á. Kíktum aðeins í fjárhúsið og fengum okkur svo kaffi, kleinu og ábresti.
Næst lá leiðin á Hvolsvöll í heimsókn til mömmu hennar Lilju. Þar fengum við kaffi og berjatertu með þeyttum rjóma. Þegar við kvöddum fékk Lilja með sér fullt af efni í föndrið sitt og slatta af kryddjurtum og sallati. Því næst gerðum við gott stopp hjá pabba og mömmu. Stoppuðum alveg fram yfir kvöldmat, fréttir og Landann. Lilja vann eitthvað að þýðingum og ég var með saumana mína með mér. Það var vel þess virði að missa af einum heimaleik í boltanum fyrir svona skemmtilegan dag. Hefði samt alveg viljað verða á leiknum Valur - Keflavík 4:0 í 5. umferð Pepsídeildar karla. En það er víst ekki hægt að vera alls staðar.
Er búin að gera samgöngusamning við vinnuna mína. Sá samningur felst í því að nota vistvænar leiðir milli heimilis og vinnu amk þrisvar í viku og tekur í gildi um mánaðamótin. Ég er samt farin að hjóla í vinnuna. En í rokinu í gær ákvað ég að fara á bílnum til að geta farið beint að versla eftir vinnu. Þegar strákarnir eru ekki heima geri ég ekki innkaupin fyrr en eftir helgarnar. Hringdi í Odd um þrjú og hann féllst á að koma gangandi í vinnuna til mín og fara með mér í búðina. Kom við í Byko og keypti meira lím til að loka kössum.
Um átta byrjaði "formlegur" saumaklúbbur hjá mér og var þetta sá síðasti skipulagði í bili. Ætlum að taka okkur sumarfrí en áskiljum okkur rétt til að hóa í hver aðra ef við erum í saumastuði og allar í bænum. Kvöldið leið alltof hratt. Er alltaf að vinna í "Lost no more" útsaumsmynd sem Sonja gaf mér í fertugsafmælisgjöf fyrir rúmum fimm árum. Byrjaði loks að vinna í henni í janúar sl. og gengur verkefnið bara vel. Ég notaði líka tækifærið og festi tölu á buxur af Davíð Steini.
24.5.13
- Helgin framundan -
Enn á ný er kominn föstudagur. Það vantar ekki að dagarnir, vikurnar og jafnvel mánuðurnir þjóta áfram og stundum framhjá þrátt fyrir allt og allt. Um daginn leysti ég út fjölmiðlapunkta og sótti nýjan heimasíma á pósthúsið á þriðjudaginn var. Þvílíkur munur að geta aftur séð í hvern maður hringir og hver hringir í mann. Einnig sýnir skjárinn hvað klukkan er og hvaða dagur er. En hringitónninn er svolítið annarlegur og spurning hvort ég reyni ekki að breyta honum eitthvað.
Í gær hafði samband við mig maður hjá skjánum sem sagði að nú færi frí-áskriftinni að ljúka og spurði hvort ég vildi gerast e-s konar pakka-áskrifandi. Ég bað manninn um að senda mér tilboð í tölvupósti. Það skoðaði ég í morgun og ákvað í kjölfarið að gerast áskrifandi að blönduðum pakka þar sem ég hef áfram aðgang að DR1 m.a. Svo sló ég þessu upp í kæruleysi og ákvað að þyggja sumaráskrift af SkjáEinum, þrjá mánuði á verði tveggja.
Ákvað líka að skreppa til Ellu vinkonu á Eglisstaði um næstu mánaðamót þrátt fyrir að geta ekki nýtt flugpunktana mína. Bað um frí þann 31. n.k. og bókaði flug austur um hálfellefu og til baka seinni partinn á sunnudeginum 2. júní. Lét svo Ellu vita en ég var búin að vara hana við áður að ég væri að pæla í þessu svo það var í góðu lagi að ég upplýsti hana um fyrirhugaða heimsókn eftir að ég var búin að bóka flugið.
Og þar sem ég á slatta af eftir af fjölmiðlapunktum lét ég verða af því að biðja um að leysa hluta af þeim út í nýrri myndavél. Já, ég er góð við sjálfa mig og finnst ég alveg verðskulda það.
Góða helgi! :-)
23.5.13
- Tveir dagar í röð -
Kannski kemst ég eitthvað á skrið ef ég bara set mér að pikka "eitthvað" inn á hverjum degi, hver veit? Freyr frændi minn er nýbyrjaður að setja inn pistla daglega um allt mögulegt og það er alltaf spennandi að lesa þá pistla. Þar kennir ýmissa grasa og það liggur við að maður sé ekki tilbúinn í daginn fyrr en að hafa lesið pistil dagsins. Pistlarnir eru hvorki og stuttir né langir, yfirleitt hnitmiðaðir og oftast hægt að brosa amk út í annað. En hann skrifar líka á alvarlegri nótunum, fær mann amk til að hugsa um eitt og annað út í þessa tilveru. Frábært að eiga svona frænda. Þeir eru annars fjórir bræðurnir og allir vel af mönnum gerðir. Sá næstyngsti er í hljómsveitinni "Móses Hightower" og er þar annar af aðal laga- og textahöfunum, og þvílíkir snilldartextar og lög...
Annars heimsótti ég Böddu í gærkvöldi og tók saumana mína með. Stoppaði í rúma tvo tíma og var svo heppin að yngsta dóttir hennar og nafna mín kom líka við, svo ég hitti hana. :-)
22.5.13
- Smá tilraun -
Ó, já, það er orðið nokkuð langt síðan síðast og á þessari stundu er ég svo sem ekkert viss um að ég komist í neitt skrifstuð á næstunni. Hugsanlega mun ég skrifa eitthvað inn í einka"dagbókina"bloggið sem enginn veit slóðina á nema ég. Ekki það að það séu neitt margir að rekast hingað inn núna þar sem ekkert hefur gerst lengi, lengi á þessari síðu... Sjáum bara til hvað gerist og tökum einn dag í einu. Yfir og út í bili. :-)
17.4.12
- Úr ýmsum áttum -
Sumardagurinn fyrsti er eftir tvo daga. Apríl er rúmlega hálfnaður og dagurinn heldur áfram að lengjast. Ýmislegt er á döfinni og ég hef verið að sýsla við eitt og annað undanfarnar vikur. Las 3 krimma upp til agna, "Englasmiðurinn", "Hugsaðu þér tölu" og "Snjókarlinn", allt mjög spennandi bækur sem ég gat varla lagt frá mér fyrr en þær voru búnar. - Páskafríið leið alltof hratt. Við vorum boðin í mat á skírdagskvöld (öll fjögur) þar sem okkur var boðið upp á verðlaunafiskisúpu. Á föstudaginn langa mætti ég í kirkjuna um sjö eh bæði til að hita upp fyrir árlega kvöldvöku þar sem sálmar eru sungnir milli lestra sem og að æfa fyrir páskadagsmorgun. Seinni partinn á laugardeginum var okkur Davíð boðið í heimagert súsý og einhenti Davíð sér í að hjálpa húsmóðurinni á heimili gestgjafanna til að útbúa alla bitana. Stoppuðum aðeins framyfir miðnætti en ég þorði ekki að vera lengur þar sem ég þurfti að fara á fætur upp úr sex vegna páskadagsmorgunmessusöngs. Á annan í páskum kleif ég megnið af Helgafelli með Davíð. Hann fór auðvitað alla leið og svo beint á Úlfarsfellið á eftir. Seinni partinn þann dag skruppum við svo á Bakkann. - Þessir fjóru virku vinnudagar í síðustu viku liðu afar hratt. Það var að sjálfsögðu kóræfing á miðvikudeginum og á fimmtudagskvöldið skrapp ég yfir til tvíburahálfsystur minnar þar sem ég hitti einnig aðra stúlku frá Selfossi. Á laugardaginn mætti ég á langa kóræfingu í kirkjunni ásamt kórfélögum mínum og kórfólki og tveimur öðrum kórum. Flestir voru mættir fyrir tíu og enginn fór fyrr en klukkan var byrjuð að ganga fjögur. - Sl sunnudagur var notaður í smá þrif, þvotta, innkaup og svo gengum við Davíð á Úlfarsfellið ásamt 4 vinnufélögum hans. Tvíburarnir voru velkomnir með en þeir nenntu ekki þegar til kom. - Í gærkvöldi mætti ég í saumaklúbb til tvíburahálfsystur minnar rétt áður en klukkan sló átta. Var svona í fyrra fallinu því ég skutlaði Davíð í pílu um hálfátta. Við vorum þrjár sem mættum og vorum að í tæpa þrjá tíma en skyldum reyndar ekkert í því hvernig tíminn fór að því að æða svona áfram. Okkur fannst við ekki hafa stoppað nema í uþb klst. Já, tíminn flýtir sér enn meir þegar það er gaman og glatt á hjalla. Ég vann að nýjasta verkefninu sem ég byrjaði á um nýliðna helgi. "FRIENDS TOGETHER HERE" eða VINIR HITTAST HÉR eins og ég ætla að sauma út fyrir ofan mynd af tveimur böngsum sem sitja í bókahillu. Erfitt að lýsa þessu betur, en ég mun líklega taka mynd af þessu þegar ég er búin með þetta.
29.3.12
- Það birtir sífellt meir og meir -
Þrátt fyrir að hann (dagurinn) hafi verið grár og gugginn í morgun og einhvers konar þokusúld í kortunum þá var búið að slökkva á öllum ljósastaurum um sjö leytið þegar ég arkaði í vinnuna. Það var alveg nógu bjart enda uþb 10 dagar síðan síðan dagurinn og nóttin voru alveg jafn löng og dagurinn lengist meir og meir, dag frá degi næstu þrjá mánuðina eða svo. Ég geng í vinnu flesta morgna og er hálftíma á milli. Á þessum hálftíma gerist margt í kollinum á mér, margar hugsanir á sveimi og stundum stend ég mig að því að ég er byrjuð að raula lög sem ég er að æfa með K.Ó.S.Í (kirkjukór óháða safnaðarins á Íslandi) kórnum mínum eða einhver önnur lög. Gaman hjá mér á milli heimilis og vinnu en örugglega mjög skrýtið að mæta mér þegar ég í þungum þönkum eða í "raulham"!
21.3.12
Anna 44 - 44 annA
Á 77. degi ársins, þann 17. mars sl. fagnaði ég 44 ára afmælinu mínu. Davíð færði mér morgun mat í rúmið og stjanaði við mig út í eitt allan daginn. Við skruppum m.a. í Húsdýragarðinn, bara við tvö, heilsuðum upp á mörg dýranna og fengum okkur kaffi og vöfflu í kaffihúsinu þar. Síðan skruppum við í Byggt og búið í Kringlunni og keyptum okkur blandara á mjög góðu verði. Tvíburarnir fóru upp í skóla um fimm, tveimur og hálfri klst. fyrir frumsýningu á söngleiknum "Hver er ég?" Við hjónin röltum upp í skóla um sjö og hittum tengdó og Tedda þar. Áður en leikritið hófst urðu "leikhúsgestir" vitni að því þegar Björn Thors leikari afhenti "gamla" listakennaranum sínum, Önnu Flosadóttur, grímuna sem hann fékk 2009 og tileinkaði henni á sínum tíma. Söngleikurinn sjálfur var virkilega flottur og skemmtilegur og upplifði ég allan skalann í tilfinningum á meðan á honum stóð. Yfir 100 krakkar úr leiklistavali í 8.-10. bekk taka þátt og eiga þau öll mikið hrós skilið. Kennararnir sem aðstoðuðu þau við þessa uppsetningu eiga líka mikið lof fyrir. Ég er eiginlega búin að ákveða að fara á aðra sýningu, þá næstsíðustu en er mjög ánægð að vita að það á að taka þetta upp svo hægt verður að kaupa sér eitt (og vonandi fleiri) eintak/tök. Þegar við Davíð komum heim horfðum við á eina af "Police akademia" myndunum. Þannig að ég notaði afmælisdaginn minn mjög vel. :-)
1.3.12
- Einn sjötti liðinn af árinu -
Í gær fór ég í síðustu foreldraviðtölin vegna grunnskólaveru tvíburanna. Þeir eru að pluma sig frábærlega í flestu eins og alltaf áður. Já, strákarnir munu útskrifast úr grunnskóla í vor. Þessir ungu menn verða 16 ára í sumar og byrja væntanlega í framhaldsskóla næsta haust. Í tilefni af foreldradeginum efndi 10. bekkur til kökubazars í fjáröflunarskyni fyrir væntanlegt "útskriftarferðalag" í vor. Hver nemandi í árganginum átti að koma með amk eitthvað tvennt til að selja og voru tveir sölubásar settir upp í skólanum og skiptu krakkarnir með sér deginum og seldist vel. Kvöldinu áður, á þriðjudagskvöldið, kom einn vinur strákanna í árganginum og bakaði með okkur. Það tókst bærilega vel og í gærmorgun fórum við með tvær brúntertur með súkkulaðikremi, tvö lítil haframjölsbrauð, eina hjónabandssælu, 5x4 muffins og 5x6 kornfleksklatta á söluborðin. Verslaði auðvitað við krakkana á báðum stöðunum. - Annars tók ég mér smá vetrarfrí frá og með hádegi sl. fimmtudag og allan mánudaginn með að auki. Fórum út úr bænum rétt upp úr tvö á föstudag og komum við á Bakkanum á leiðinni upp í Brekkubæ, nýjasta sumarbústað RB á Efri-Reykjum. Við Davíð fórum í heita pottinn seint um kvöldið. Það var spilað, lesið, saumað (frúin taldi út), horft á imbann og slakað á. Urðum að vera komin aftur í bæinn fyrir hálfeitt á sunnudag því ég varð að vera mætt í upphitun v/jazzmessu. Feðgarnir "hentu" mér út við kirkjuna uþb 12:40 og svo labbaði ég heim um þrjú. Það var mjög gott að eiga svo mánudaginn. Fór á fætur með manninum og skutlaði honum í vinnuna svo ég gæti haft bílinn. Rak tvö erindi í Mjóddinni og heimsótti svo Böddu. Seinna um daginn heimsótti ég fyrrum nágranna okkar af Hrefnugötunni í fyrsta sinn eftir að þau fluttu á Sléttuveginn.
21.2.12
- Alltaf nóg að sýsla -
Nú er aðeins rétt rúm vika eftir af febrúar, ýmislegt búið að bralla og margt og mikið framundan. Í gærkvöldi var saumaklúbbur hjá "tvíburahálfsystur" minni og vorum við allar mættar áður en klukkan sló hálfníu í gærkvöldi. Ég vann í hvítvínssmámyndinni en tók líka eldhúsmyndina sem ég er byrjuð á með til að monta mig aðeins. Eins og venjulega var glatt á hjalla, mikið spjallað og hlegið en inn á milli datt allt í dúnalogn þegar við vorum allar að einbeita okkur að handavinnunni. Ég náði að koma heim rétt áður en klukkan varð ellefu og klukkutíminn fram að miðnætti (reyndar alveg til 00:10) fór í þvottahús-, tölvumál og lestur. Tíminn er alltof alltof fljótur að líða. Á konudaginn fór ég á fætur upp úr sjö og bjó til hafragraut, aðallega handa karatestráknum mínum en við Davíð fengum líka. Ég fór svo með Oddi Smára í Smárann og var með honum þar milli hálfníu og rúmlega ellefu. Hans flokkur hóf keppni á undan áætlun, upp úr hálfellefu og þetta tók frekar fljótt af. Á heimleiðinni kom ég við í Lyfju og keypti hnéhlíf og hirudoid fyrir manninn minn. Stoppaði mjög stutt heima því við norska esperanto vinkona mín ætluðum að hittast, höfðum bara fært hittinginn aðeins til vegna karatemótsins. Ég var mætt til hennar upp úr tólf og byrjaði hún á að bjóða mér kaffi og bollur áður en við snérum okkur að efninu. Verslaði svo inn áður en ég fór aftur heim. Um miðjan dag setti ég upp slátur. Einnig ákvað ég að standa við loforð sem ég gaf öðrum tvíburanum mínum helgina á undan og skellti í eina eplaköku. Laugardagurinn fór í afslappelsi að mestu. Svaf frameftir og tók því frekar rólega. Reyndar bakaði ég nokkrar vatnsdeigsbollur. Davíð kom draghaltur heim af karateæfingu (og er þá komin skýringing á Lyfju-ferðinni). Á föstudaginn skutlaði Davíð mér á Hvíta riddarann. Ég var mætt þar alveg á slaginu sjö mjög spennt að hitta "Krakkana þeirra Friðriks Guðna og Siggu" Þau heiðurshjón (sem létust langt fyrir aldur fram) stofnuðu tónlistarskóla Rangæinga. Einkadóttir þeirra var stödd á landinu og hún og tvær vinkonur ákváðu hvort ekki væri hægt að hóa saman hóp af krökkum sem stunduðu nám í tónlistarskólanum. Jú, jú, það var ágætist mæting og m.a. mættu nokkrir kennarar líka. Sumir voru ekki búnir að hittast mjög lengi en þetta varð hinn skemmtilegasti hittingur sem vonandi verður endurtekinn næst þegar Þöll verður á landinu. - Á fimmtudagskvöldið var ég orðin ein eftir heima rétt fyrir átta. Horfði á 3. þátt Hallarinnar á leigunni og dreif mig svo á fyrstu keiluæfinguna í marga, marga mánuði. Það er ljóst að þótt ég hafi sýnt gamla takta á köflum að þá er ég alls ekki í góðri æfingu. En þetta var alveg jafn gaman og mig minnti.
15.2.12
- Nokkrir dagar aftur í tímann -
Sennilega er best að byrja á að rekja sig afturábak. Það er gaman að segja frá því að á leiðinni í sund eftir vinnu í gær hitti ég Birnu frænku. Sá konu koma út úr búð við Skólavörðustíginn. Varð litið á hana, þekkti samstundis þessa frænku mína og fleygði mér um hálsinn á henni. Aðstæður til sunds voru svolítið erfiðar akkúrat á því tímabili sem ég var í lauginni, synti því bara 11 25m ferðir áður en ég skrapp í pott og gufu. - Á mánudaginn hitti ég nöfnu mína og frænku, systurdóttir mömmu, eftir vinnu. Ég trítlaði yfir á Vesturgötuna til hennar og hún keyrði mig heim. Löbbuðum samt hálfan hring í Öskjuhlíðinni áður en við fórum inn að hita okkur kaffi. Um svipað leyti og við nöfnurnar lögðum af stað í gönguna var Oddur Smári mættur í Faxafenið með pabba sínum en strákurinn var valinn í tafllið skólans og milli fimm og rúml. átta var haldið Reykjavíkurmót grunnskólanna í skák. Það áttu að vera fjórir í liði en það mættu bara þrír úr Hlíðaskóla svo þeir töpuðu alltaf einni skák í hverri umferð. Oddur tefldi á borði eitt og vann fjórar skákir af sjö. Eina vann hann þar sem hann átti að tefla við e-n sem ekki var á svæðinu svo það voru greinilega fleiri skólar sem ekki voru með fullmönnuð lið. Þessir þrír kappar úr Hlíðó náðu í 12 og hálfan vinning. - Mætti í messuupphitun klukkan eitt á sunnudaginn. Kórstjórinn ákvað að við skildum svo sitja dreifð úti í kirkju. Sungum þrjá sálma og svörin en fyrir og eftir predikun söng Hulda Garðars sópransöngkona fjögur lög (2 og 2) við undirleik Árna. Magnaðir örtónleikar það. Gaf mér ekki tíma til að fá mér kaffi eftir messuna heldur dreif mig heim og sá til þess að við vorum öll fjögur lögð af stað austur á Hellu til pabba og mömmu áður en klukkan varð mikið meira en fjögur. Tók saumana með mér austur en um hálfsexleytið fórum við pabbi að undirbúa þorraveislu sem mamma var aðeins byrjuð að undirbúa. Pabbi skar niður súrmat og setti á tvö föt á meðan kartöflur og rófur suðu í pottunum. Við feðgin lögðum á borð og ég steikti svo slátur handa öðrum unglingnum sem ekki borðar súrt. - Á laugardagsmorguninn skrapp ég til esperantovinkonu minnar. Hún bauð mér upp á lífrænan hafragraut og lífrænt kaffi á eftir áður en við byrjuðum að kíkja á áhugamálið okkar. Þegar ég kom heim var orðið ljóst að ekkert yrði af tófuferð svilanna svo Davíð missti ekki af karateæfingu. Tvíburarnir sáu um að ryksuga yfir gólfin en þeir áttu von á nokkrum unglingum á spilakvöld seinna um daginn. Ég bakaði eplaköku fyrir það tilefni. Fyrstu krakkarnir mættu um fimm og þegar flestir voru komnir röðuðu þau sér í kringum borðið í holinu og þau byrjuðu á að spila fimbulfamb. Glatt var á hjalla lengi frameftir kvöldi og þeir sem voru með mesta úthaldið voru til miðnættis. - Að loku ætla ég að geta þess að ég heimsótti blóðbankann í 30. sinn eftir vinnu og sundsprett sl. fimmtudag. Æðin í "betri" hendinni var með stæla en þá var bara tekið úr þeirri hægri í staðinn.
6.2.12
- Alls konar -
Janúar er liðinn og einnig nokkrir dagar af febrúar mánuði. Ég mætti á kóræfingu sl. miðvikudag. Röddin virkaði en hún var ekki 100% og þegar fór að líða á æfinguna fannst mér ég verða svo þurr í hálsinum. Þetta var ekkert svo erfið æfing en það var greinilega eitthvað ennþá ofan í mér sem fór að trufla mig eftir því sem leið á æfinguna. Daginn áður var "Önnuhittingur". Davíð hafði skilið bílinn eftir rétt fyrir utan vinnuna mína svo ég sótti nöfnu mína og frænku og byrjuðum við á að stoppa í Sundhöllinni og fá okkur smá sundsprett. Syntum 225 metra og vorum svo í nuddpottinum í dágóða stund. Anna kom með mér heim. Davíð sá um kvöldmatinn og fór svo á karateæfingu. Ég sýndi nöfnu minni m.a. kínverska táknið sem ég hef lokið við að sauma og á bara eftir að útbúa púða úr myndinni. Svo spjölluðum við um alla heima og geyma þar til Davíð kom heim af æfingu en þá skutlaði ég henni heim til sín. - Um nýliðna helgi fórum við m.a. tvisvar í Egilshöllina. Á sjöunda tímanum á laugardaginn var Hulda að keppa. Við mættum akkúrat um leið og hún var kynnt inn á svellið og sáum hennar æfingar og stúlkunnar sem var á eftir henni í röðinni áður en við drifum okkur yfir í Grafarholtið í smá þorrablót með vinafólki okkar til margrar ára. Strákarnir höfðu fengið að velja hvort þeir kæmu með eða ekki og þeir ákváðu að koma ekki. Kvöldið varð engu að síður mjög skemmtilegt og kvöddum við ekki fyrr en klukkan var farin að ganga eitt. - Um hálfsex í gær vorum við mætt aftur í Egilshöllina til að fylgjast með Bríeti keppa. Þurftum að bíða smá eftir að röðin kæmi að henni og þar sem ekkert lá annað fyrir biðum við þar til verðlaunaafhendingin fyrir hennar flokk var afstaðin. Sú stutta varð í 3. sæti af átta en var ekki par sátt með það því hún ætlaði sér víst að vinna. - Um helgina skrapp ég einnig í esperantohitting til norsku vinkonu minnar og heimsótti einnig mömmu frænku minnar. Einnig fór tíminn í smá tiltekt, þrif, lestur, saumaskap og sjónvarpsgláp. :-)
Janúar er liðinn og einnig nokkrir dagar af febrúar mánuði. Ég mætti á kóræfingu sl. miðvikudag. Röddin virkaði en hún var ekki 100% og þegar fór að líða á æfinguna fannst mér ég verða svo þurr í hálsinum. Þetta var ekkert svo erfið æfing en það var greinilega eitthvað ennþá ofan í mér sem fór að trufla mig eftir því sem leið á æfinguna. Daginn áður var "Önnuhittingur". Davíð hafði skilið bílinn eftir rétt fyrir utan vinnuna mína svo ég sótti nöfnu mína og frænku og byrjuðum við á að stoppa í Sundhöllinni og fá okkur smá sundsprett. Syntum 225 metra og vorum svo í nuddpottinum í dágóða stund. Anna kom með mér heim. Davíð sá um kvöldmatinn og fór svo á karateæfingu. Ég sýndi nöfnu minni m.a. kínverska táknið sem ég hef lokið við að sauma og á bara eftir að útbúa púða úr myndinni. Svo spjölluðum við um alla heima og geyma þar til Davíð kom heim af æfingu en þá skutlaði ég henni heim til sín. - Um nýliðna helgi fórum við m.a. tvisvar í Egilshöllina. Á sjöunda tímanum á laugardaginn var Hulda að keppa. Við mættum akkúrat um leið og hún var kynnt inn á svellið og sáum hennar æfingar og stúlkunnar sem var á eftir henni í röðinni áður en við drifum okkur yfir í Grafarholtið í smá þorrablót með vinafólki okkar til margrar ára. Strákarnir höfðu fengið að velja hvort þeir kæmu með eða ekki og þeir ákváðu að koma ekki. Kvöldið varð engu að síður mjög skemmtilegt og kvöddum við ekki fyrr en klukkan var farin að ganga eitt. - Um hálfsex í gær vorum við mætt aftur í Egilshöllina til að fylgjast með Bríeti keppa. Þurftum að bíða smá eftir að röðin kæmi að henni og þar sem ekkert lá annað fyrir biðum við þar til verðlaunaafhendingin fyrir hennar flokk var afstaðin. Sú stutta varð í 3. sæti af átta en var ekki par sátt með það því hún ætlaði sér víst að vinna. - Um helgina skrapp ég einnig í esperantohitting til norsku vinkonu minnar og heimsótti einnig mömmu frænku minnar. Einnig fór tíminn í smá tiltekt, þrif, lestur, saumaskap og sjónvarpsgláp. :-)
26.1.12
- Saumi, saumi og smá lestur með -
Í fyrrakvöld ákvað ég að leyfa mér að byrja á "nýju" saumaverkefni þrátt fyrir að vera með alveg nokkur verkefni í takinu sem eru á mismunandi stigum. Ég skrifa nýju innan gæsalappa því myndin sem ég ákvað að byrja á er búin að vera til hjá mér síðan snemma árs 2007 (að mig minnir, ætti að geta flett því upp á blogginu mínu) en ég pantaði hana um leið og bláa engilinn m.a. Þetta er eldhúsmynd en það situr líka köttur á hillunni innan um sultukrukkur og eldhúsáhöld. Ég handsaumaði hringinn í kringum jafann, tók miðjuna og saumaði nokkur spor. Myndin er í grófari jafa en ég sauma oftast í svo notaðir eru þrír þræðir af sex í krosssauminn. Í gærkvöldi hefði ég átt að vera á kóræfingu en hálsinn leyfði það ekki svo ég ákvað að byrja á nýrri saumamynd, smámynd af hvítvínsflösku, vínglasi og smá vínviði. Líkt og kvöldið áður byrjaði ég á að handsauma í kringum jafann, tók miðjuna og saumaði svo af stað. Þetta er miklu minni mynd í fínlegri jafa, nota tvo þræði af sex. Þegar ég lagði þetta verkefni frá mér tók ég aðeins upp flöskusvuntuna sem ég byrjaði á sl. mánudagskvöld. - Davíð gaf mér eina bók í jólagjöf, Jójó eftir Steinunni Sigurðardóttur. Sjálfur fékk hann nýjustu bókina hans Arnaldar. Ég gaf mér ágætan tíma að lesa mína bók. Þessi þunna bók var mun þykkari aflestrar og hygg ég að ég ætti að lesa hana aftur mjög fljótlega til að athuga hvort nokkuð hafi farið framhjá mér. Ég var þó löngu búin með bókina áður en Davíð lauk við sína svo ég þurfti að bíða í næstum þrjár vikur eftir að geta byrjað á Einvíginu. Spurning um að fara að endurnýja bókasafnskortið...
25.1.12
- Hálsbólga -
og sitthvað fleira
Í nokkra daga hefur hálsinn verið mjög sár, söngröddin ónothæf og talröddin léleg. Fann fyrir þessu um miðja síðustu viku. Eins og ég var ánægð með að ég var komin í góðan sundgýr, fór í Sundhöllina eftir vinnu þrjá daga í sl. viku, synti 500m og gaf mér svo góðan tíma í gufunni líka. Hélt mig alveg heima við um helgina og hef ekki þorað að fara í sund í þessari viku. Úða bara í mig sterkum brjóstsykri og heima hef ég drukkið kalt (en soðið) engifervatn með sítrónusafa út í. Passaði mig á að blanda ekki sítrónusafanum út í fyrr en engifervatnið hefur kólnað. Kitlar oft í hálsinn og fæ þá jafnan hóstakast en það er svo undarlegt að ég hef ekki fengið kitl eða kast á nóttunni. Hef heldur ekki fengið neinn hita svo ég hef alveg verið vinnufær. Mamma fékk slæmt kvef upp úr áramótunum sem endaði með því að hún fékk lungnabólgu og öll orkan sem hún náði sér í á Kanaríeyjum í nóvember er horfin. Lyfin eru varla farin að virka á hana og hún þarf að fara mjög, mjög vel með sig næstu vikurnar. - Annars var ég með saumaklúbb hjá mér á mánudagskvöldið var, no. 2 á árinu en ég missti af þeim fyrsta vegna óvæntrar magapestar sem ég fékk að morgni 11. jan. sl. Það mættu þrjár hannyrðakonur til mín og ein af þeim var að ganga í klúbbinn til okkar. Hún smellpassar inn í hópinn sem á það m.a. sameiginlegt að hafa stundað nám í FSu amk 2-3 annir eða lengur (t.d. allt stúdentsnámið). Ég dreif í að klára útlínusaum í rósamynd á flöskusvuntu og byrjaði svo á nýrri. Er með nokkur verkefni í gangi en er einnig nýbúin að klára þrjú verkefni, þar af eitt frekar stórt sem er kínverskt tákn fyrir hamingju. Þ.e. útsaumnum er lokið en svo á eftir að búa til púða úr myndinni. - Í gærmorgun var varla göngufært í vinnuna og líklega valdi ég mér alveg kolranga leið. Það var hvergi búið að moka neinagangstíga á þeirri leið. Ef stutt var út á götuna var þeim mun dýpri snjórinn þar sem ég gekk um enda var ég blaut upp að hnjám er ég mætti í vinnuna og ég hafði ekki verið svo forsjál að taka með mér aukabuxur svo ég varð að biðja Davíð um að skutla til mín þurrum buxum og sokkum. Hann fór á fætur með mér í morgun og skutlaði mér í vinnuna en ég tók eftir því að það var búið að moka e-a göngustíga í morgun. En enn snjóar og snjóar...
17.1.12
- Áfram Ísland -
Já, strákarnir okkar handboltalandsliðinu eru mættir á enn eitt stórmótið, EM í Slóveníu. Ég hafði alveg ágæta tilfinningu fyrir leiknum (Ísland - Króatía, í gærkvöldi) en leist ekki á blikuna þegar fór að líða á leikinn og ekki tókst að slíta sig frá andstæðingunum, og svo fór sem fór. En ég held að fall sé fararheill. Skrýtið annars að sjá liðið án Óla Stefáns og Snorra Steins en það kemur yfirleitt maður í manns stað. Því miður næ ég ekki að horfa á næsta leik í beinni því annað kvöld er fyrsta kóræfing ársins. - Annars missti ég af fyrsta saumaklúbbi ársins, þrátt fyrir að hafa skipulagt hann sjálf. Fannst það alveg upplagt að nota sl. miðvikudag þar sem það var ekki kóræfing. Á ellefta tímanum þann morgun snérist maginn minn á hvolf og ég varð að biðja Davíð um að sækja mig í vinnuna. Rétt náði heim áður en ég þurfti að kasta upp aftur og svo háttaði ég mig, fór beint í rúmið og svaf fram á dag. Fannst ég vera orðin hressari um kvöldið en hélt mig heima við og á fimmtudagsmorguninn kom á daginn að ég var ekki alveg orðin 100%. Var heima þann daginn. - Upp úr hádegi sl. laugardag heimsótti mig ein vinkona mín úr saumaklúbbnum og hafði hún saumana sína með sér svo við settum upp svona "mínísaumaklúbb". Held að við höfum setið og saumað og spjallað í rúma tvo tíma. - Á sunnudaginn skruppum við Davíð að versla eftir hádegið og notuðum tækifærið og fórum með fullt bílskott af ýmsu drasli í Sorpu. Við áttum von á tengdó í heimsókn og ákváðum að bjóða þeim í mat með okkur. Davíð sá um alla eldamennskuna og eldaði dýrindis læri og hafði með sætar kartöflur, sallat, baunir, rauðkál og bernessósu. Mjög ljúffengt allt saman. Með kaffinu eftir matinn buðum við svo upp á karamelluostaköku sem við höfðum kippt með okkur heim úr verslunarferðinni. Góður matur með góðu fólki og stemmingin var mjög notaleg.
11.1.12
- Dagarnir þeytast áfram -
Einn þriðji er liðinn af þessum fyrsta mánuði nýs árs og þótt maður sé ekki kominn í 100 % rútínu þá veit ég varla hvað verður af þessum dögum, og þó... Fór aðeins einu sinni í sund í síðustu viku. Taldi það ekki ráðlegt að fara aftur því ég nældi mér einhvers staðar í slæmt kvef og rétt slapp við að leggjast í rúmið vegna þess. Á laugardagsmorguninn var dreif ég mig í fyrstu esperanto-heimsókn ársins. Við stöllur komumst aðeins í gang og ákváðum að hittast ca hálfsmánaðarlega til að byrja með. Um kvöldið fórum við öll fjölskyldan í veislu sem endaði með balli sem stóð til klukkan að ganga þrjú. Tilefnið var að árgangur 1952 verður sextugur á árinu og var það móðursystir mín (og guðmóðir) sem skipulagði þennan fögnuð. Það voru smá ræðuhöld og upplestur en mest þó söngur úr ýmsum áttum og svo hafði hún beðið bróðurson sinn einn að safna saman strákum til að spila og syngja undir dansi. Davíð bauð tvíburunum að skutla þeim heim um miðnætti en það var bara annar sem þáði það. Hinn tvíburinn skemmti sér of vel til að vilja fara heim enda var jafnaldri hans og frændi okkar sem hefur sams konar áhugamál líka áfram. Þessi sami tvíburi kom svo með mér í messu í óháða klukkan tvö á sunnudaginn þar sem ég mætti sem "óbreyttur kirkjugestur" því kórstjórinn er úti og Raddbandafélag Reykjavíkur sá um að leiða messusönginn. Möguleikhúsið mætti líka á svæðið og sýndi leikrit í staðinn fyrir predikunina. Í gær hélt ég upp á 12 ára starfsafmælið í vinnunni, mætti með brauðtertu, eplaköku og ostaköku. Eftir vinnu dreif ég mig í sund og þangað náði Davíð í mig um hálfsex. Tók loksins fram handavinnuna mína í gærkvöldi, rétt til þess að athuga hvort ég yrði ekki tilbúin í fyrsta saumaklúbb ársins í kvöld...
3.1.12
- Gleðilegt nýtt ár -
Desember var ekki lengi að klárast og allt í einu er árið 2012 mætt á svæðið og bara 355 dagar til næstu jóla. Nýliðin jól voru frekar snubbótt fyrir þá sem þurftu að vinna flesta virka daga, hreinræktuð atvinnuekendajól eða hvað það kallast. Ég fékk kost á því að taka út einn aukafrídag gefins (ekki af orlofinu mínu) í boði vinnunnar og 27. desember varð fyrir valinu. Ég varð líka að taka smá frí frá kirkjusöng, söng bara með við aftanmessur á aðfanga- og gamlársdag en var komin austur á Hellu þegar messað var á jóladag. Mamma og pabbi voru með jóla"brunch"boð fyrir 19 manns (að þeim meðtöldum sem og okkur systrum og okkar fjölskyldum) milli eitt og fjögur. "Litla fjölskyldan" í Danmörku var á landinu, Gerður, Frank og tæplega sjö mánaða sonur þeirra, Elías Frey, voru á landinu 18-27 des og þau komu ma í þetta boð. Yndislega gaman að hitta þau. Foreldra hennar, ömmu, eina frænku mína hennar mann og móður hennar hittum við líka og þetta var hinn allra skemmtilegasti dagur. Helga, Ingvi og dætur eru alltaf fyrir austan á jólunum og oft um áramót. Við Davíð höfum aftur á móti alltaf haldið aðfangadaginn heima hjá okkur sjálfum, alveg frá því við byrjuðum að búa 1990, og það breyttist ekkert eftir að strákarnir fæddust. Okkur var bæði boðið í jólaboðið og hangiket með fjölskyldunni um kvöldið svo við vorum fyrir austan langt fram á kvöld. Tókum því mjög rólega heima næstu tvo daga en skutluðum bræðrunum í heimsókn til föðurforeldrana á þriðjudagskvöldinu milli jóla og nýjárs þar sem þeir voru fram á gamlársdag. Davíð var í fríi frá og með 23. des og alla virku dagana sem eftir voru 2011 og þar að auki "slæddist" 1. virki dagur á nýja árinu með inn í þetta frí. Hann hafði verulega gott af þessu fríi en hann er búin að hafa þetta ca svona nokkuð mörg undanfarin ár því fyrir ekkert svo löngu síðan gat hann ekki tekið lengra sumarfrí að sumri til heldur en uþb tvær vikur. Það er hugsanlega að breytast en ég trúi því samt mátulega fyrr en ég sé það gerast. Fimmtudaginn fyrir áramót hafði snjóað mikið um nóttina og það var eiginlega ófært á köflum. Ég var tíu mínútum lengur að arka í vinnuna enda mátti ég klofa snjóinn sums staðar upp í hné. Ég var samt mætt í vinnuna áður en klukkan sló átta. Eftir vinnu dreif ég mig í Sundhöllina og synti 400m. Var að skila mér heim um hálfsex. Jæja, fyrsti pistill ársins að verða að veruleika, allur í belg og biðu samt. Margt borið á góma en óvíst hvað af því ratar á bloggið. Sjáum bara til með það. Megi árið 2012 fara vel í ykkur og með ykkur. Knús!
13.12.11
- Dagarnir fljúga áfram -
Ég get ekki sagt að ég sé mjög dugleg í jólaundirbúningnum. Einhvern veginn finnst mér tíminn hafa verið alveg nógur hingað til. Bakaði tvær sortir af smákökum seinni partinn í nóvember og aðra þeirra aftur í gærkvöldi. Er eitthvað byrjuð að hugsa um og viða að mér hugmyndum og raunverulegum jólagjöfum en ég er ekki enn byrjuð að skrifa jólakortin. Samt hefur verið í nógu að snúast í félagslífinu hjá mér. Á fimmtudaginn var, var okkur hjónum boðið í dýrindis kjötsúpuveislu vestur í bæ ásamt öðrum hjónum. "Strákarnir" þrír hafa þekkst síðan þeir voru pollar. Húsmóðirin bauð svo upp á alls kyns góðgæti með kaffinu og hafði baka tvær kökur sérstaklega handa mér, þar sem hún veit að ég má ekki borða hvítan sykur og hvítt hveiti. Þetta var mjög skemmtileg kvöldstund með góðum vinum. Á föstudaginn var tók ég mér orlof eftir hádegi til að gefa mér góðan tíma til að undirbúa það sem var framundan. Davíð kom ekki heim fyrr en um þrjú en við vorum lögð af stað úr bænum rúmlega fjögur. Helga systir sótti strákana fyrir kvöldmat og voru þeir hjá henni fram að hádegi á laugardag. Vorum komin á Hótel Rangá rétt fyrir sex og fengum mega-herbergi (að mér fannst) í nýjustu álmunni. Slökuðum vel á til að byrja með áður en kominn var tími til að skvera sig upp fyrir hlaðborðið. Habilis var með borð á efri hæðinni (ásamt öðrum 10 manna hóp) sem þýddi það að það þurfti að trítla upp og niður stigann til að sækja sér á hlaðborðið. En það var alveg í góðu lagi. Maturinn var mjög góður og erfitt að velja úr hvað maður átti helst að smakka því það var ekki sjens að smakka á öllum sortum. Á einum tímapunkti hvarf Davíð og missti því af skemmtilegum jólasveinasveini sem birtist með stærðar poka af gjöfum handa öllum við langborðið okkar. Sveinki var það skemmtilegur að fólk lá í hláturskasti mest allan tímann sem hann var í heimsókn. Úthaldið var mismunandi, sumir létu gott heita um miðnætti og þeir sem höfðu mesta úthaldið voru að langt fram á nótt. Ég var í hópnum þarna mitt á milli. Mættum í morgunverðarhlaðborðið rétt upp úr tíu á laugardagsmorgninum. Þar var hægt að fá alls kyns morgunverðarkræsingar. Á leiðinni í bæinn aftur stoppuðum við bæði hjá pabba sem og hjá tengdaforeldrum mínum þannig að klukkan var að verða fimm þegar við komum heim. Þ.e. ég komst alla leið heim, Davíð þurfti að fara aftur í smá björgunarleiðangur sem tók meira ein fjóra tíma. Fór að aðstoða vin sinn og samstarfsfélaga sem hafði fest sig og festi sig sjálfur. Fleiri voru kallaðir til og þetta var víst mikið bras sem endaði þó vel.
6.12.11
- Desembermánuður byrjaður -
Tæpar þrjár vikur til jóla og tíminn flýgur ógnarhratt áfram. Ætlaði að segja frá því í síðustu viku að síðasta mánudagskvöldið í nóvember tók ég upp saumana mína en þeir höfðu legið ósnertir í ca mánuð eða svo. Ákvað að sauma annað "Jólaþorp" (ætla að reyna að muna eftir því að taka myndir af saumuðu jólakortunum). Myndin er ekki stór en það fer drjúgur tími í að sauma hana. Er búin að taka upp sauman amk þrisvar sinnum síðan þetta kvöld og ég á enn ca klst vinnu eftir, megnið af hvíta litnum og svo útlínur. Á laugardagsmorguninn var, reyndar bara stuttu fyrir hádegi, kíkti ég aðeins á norsku esperanto vinkonu mína. Við tókum reyndar ekki fram bækurnar heldur skruppum í smá göngutúr meðfram sjónum við Grandana í átt að Seltjarnarnesi. Var ekki nægilega vel klædd fyrir langan spöl og entist bara í uþb hálftíma. Mér fannst ég hins vegar þeim mun duglegri heima miðað við marga aðra laugardaga. Eftir hádegi á sunnudaginn var drifum við hjónin okkur saman út í göngu. Að þessu sinni var ég nógu vel klædd. Aftur á móti var úthaldið ekki meira en fyrir rúmlega klst göngu svo gönguleiðir okkar hjóna skildu þegar ég var ca hálfnuð. En þetta var virkilega hressandi. Skutlaði Davíð í pílu og sótti norsku vinkonu mína um hálfátta í gærkvöldi. Við tvær fórum saman á kyrrðarstund í Bústaðakirkju, notaleg stund sem er haldin fyrsta mánudagskvöld í hverjum mánuði með Þór Gunnlaugssyni lögreglumanni á eftirlaunum og oftast er séra Pálmi einnig. Sá síðarnefndi var hins vegar ekki með í gærkvöldi og ekki heldur fyrir mánuði síðan.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)