Þetta er með ólíkindum. Dagarnir streyma áfram eins og ólgandi fljót. Mér finnst samt fokið í flest skjól ef það er aldrei tími til að skrifa eitthvað. Vonandi er þetta bara tímabundið ástand því mér finnst eitthvað vanta ef ég get ekki sett eitthvað á skjáinn, marga daga í röð. Svo þegar er loksins smá tími til að skrásetja þá er úr vöndu að ráða.
- Ætti ég að segja frá hvað strákarnir standa sig vel frá því þeir koma úr skólanum og þar til ég kem heim (bara smá ágreiningur stöku sinnum sem er eðlilegt).
- Eða ætti ég að segja frá nýju gleraugunum mínum. Loksins, lét ég verða að því að fara aftur til augnlæknis eftir að þykkildið á augnlokinu var fjarlægt (eru ekki að verða tvö ár síðan). Sjónin hefur ekki breyst, nema sjónskekkjan, sem augnlæknirinn taldi að gæti verið vegna þykkildisins, er enn til staðar. Gömlu gleraugun voru orðin mött og rispuð enda amk 15 ára. Ég fann svo þessar fínu umgjarðir í Gleraugnabúðinni í Hagkaup í Skeifunni (þ.e. maðurinn sem rekur búðina rétti mér strax umgjarðir sem smellpössuðu. Ég prófaði nokkrar aðrar til öryggis en þær voru ekki eins akkúrat og þær sem ég fékk fyrst.) Ég gat náð í gleraugun seinna um daginn og um leið og ég fékk þau á nefið á mér þá..... : -"VÁ! Vááááá!" Mikið sá ég allt skýrt og vel.
- Kannski ætti ég samt að segja frá því að eitt kvöldið í vikunni spiluðum við Davíð Pictonary (teiknispilið sem líka má nota sem "actonary") við strákana. Þeir höfðu aldrei spilað þetta áður en þetta var hin besta skemmtun. Ég var með Davíð Steini í liði og við byrjuðum betur en Oddur Smári og Davíð fóru fljótlega framúr okkur, þeir fóru hreinlega á kostum. Það vantaði ekki að liðsfélagi minn var (og er) mjög flinkur að teikna ég var bara ekki alltaf að grípa orðið. En þetta var samt gaman og verður endurtekið sem fyrst!
- Líklega ætti ég þó að segja frá vinkonukvöldinu í gærkvöldi. Við hittumst fjórar (þrjár úr bænum og ein að austan) á miðri leið og fengum okkur að borða á veitingastaðnum Rauða húsið. Þetta var hið besta kvöld, góður matur, mikið spjallað og hlegið og góð þjónusta.
- Svo ætti ég auðvitað líka að segja frá því að Davíð Steinn er í æfingabúðum með kórfélögum sínum. Það þarf að æfa vel fyrir afmælishátíðina sem verður haldin í
Hallgrímskirkju n.k. sunnudag. Kórinn fagnar þá 15 ára afmæli sínu og mikið verður um að vera. - Nú, og ætti ég ekki líka að taka það fram að úrslitin í VISA-bikarnum í knattspyrnu karla, ráðast í dag. Fram og Valur, þetta verður örugglega hörkuleikur og megi betra liðið vinna...
En þetta er svo mikið og bara smá brot af öllu saman að ég sleppi því líklega að skrifa um allt og allt. Þangað til næst: Farið vel með ykkur!