Einhver sagði einhvern tímann að ..."engar fréttir eru góðar fréttir!" Ég er að verða hálfnuð með fríið mitt og batteríin eru heldur betur að hlaðast þrátt fyrir að ég sé ekki að skipuleggja neitt stórt þannig séð. Leyfi mér að haga seglum alveg eftir vindi en læt samt veðrið alls ekki hafa áhrif á mig. Það kom einn mjög góður sumardagur í kringum 20. júní og þá ákvað ég að fara gangandi í Laugardalinn. Hafði með mér klink fyrir fari með strætó til baka því þótt ég treysti mér alveg til að labba heim aftur þá fannst mér tilhugsunin um göngublautt bak ekki góð. Ég fór líka gangandi á bókasafnið fyrir nokkrum dögum. Skilaði öllum 6 bókunum (lesnum) og það komu sjö með mér heim aftur. Fyrir tæpri klukkustund kom ég gangandi heim úr heimsókn frá fyrrum kórsystur. Labbaði af stað til hennar um tvö og var svona ca tuttugu mínútur á leiðinni. Semsagt það er allt í góðu.
29.6.18
18.6.18
Smá lífsmark
Það er spurning hvort uppfærsla á persónuverndarlögum og því öllu muni fæla mig frá því að vera eitthvað að skrásetja hluta af því sem fer fram í kringum mig og um mig? Svo er þetta með andann og löngunina til að skrifa. Auðvitað er hún oftar til staðar heldur en sést amk ef skrif/blogg-árin eru borin saman. Ég ætla ekkert að velta mér frekar upp úr þessu og heldur ekki hafa þetta lengra í dag. Er að lesa svo spennandi bækur, fylgjast með HM, stunda kalda pottinn og laugarnar og rembast við að halda mér í gönguformi líka. Jú, kannski eitt, sl. föstudag fór Davíð Steinn með mér á N1 í Fellsmúla svo ég gat nýtt mér 22% afláttinn hans þegar ég keypti ný sumardekk undir Fordinn og lét setja undir bílinn.
23.5.18
Stiklað á stóru
Ég er mjög dugleg að láta það vera að kveikja á tölvunni. Hef svo sem, hvort eð er, ekki verið í neinu skrifstuði en það er alltaf eitthvað um að vera í kringum mig og stundum mætti ég alveg vera duglegri að skrifa um sumt af þessu svo það gleymist ekki.
Æskuvinkona mín, Ella, var hjá mér í tvær nætur fyrir rétt rúmri viku. Ég hafði vitað af komu hennar í nokkra daga og undirbjó heimsóknina vel. Bauð henni að sofa í herberginu mínu og bjó um mig á beddanum í stofunni sem tvíburahálfsystir mín var nýbúin að skila en ég lánaði henni hann í heila viku undir sænska eða danska stelpur (veit ekki hvor þeirra notaði hann). Degi eftir að Ella vinkona flaug aftur heim til sín gistu mágur minn og yngri systurdóttir mín. Hún var í stofusófanum í eina nótt en hann á beddanum í 3 nætur. Frænka mín flaug nefnilega með föðursystur sinni til London seinni partinn á fimmtudaginn var. Helga systir kom suður á föstudagskvöldið með kærustuparið og hvolpinn. Hinn hundurinn var skilinn eftir í pössun fyrir norðan. Kærustuparið fór heim til mömmu hans en Helga gisti í sófanum í eina nótt. Ég rétt náði að heilsa upp á hana um hálftólf þegar ég kom heim úr kortadeildargrillpartý. En við systur hittumst svo aftur á Hellu seinni partinn á laugardaginn. Ég gisti í eina nótt en þau í tvær.
Klukkan ellefu á mánudagsmorguninn var ég mætt í Dómkirkjuna til að fylgjast með því þegar verið var að vígja einn frænda minn til prests til að taka við Patreksfjarðarprestakalli. Eftir athöfnina heilsaði ég aðeins upp á frændfólkið mitt sem var þarna en dreif mig svo beint í sund. Bræðurnir voru báðir að vinna, annar til klukkan átta og hinn til klukkan tíu (eh). Ég mætti í mína kirkju upp úr klukkan sjö til að undirbúa maulið eftir messuna. Alls mættu 17 ef allir voru taldir með. Ég gaf mér góðan tíma til að sitja og spjalla á eftir messunni og var til klukkan tíu að ganga frá á eftir.
Ég skilaði annars inn 5 bókum á safnið sl. föstudag, þrjár hafði ég klárað en hinar tvær rétt byrjaði ég á og sá að ég mundi ekki nenna að lesa þær. Hefði getað haft þær í 10 daga lengur en ég ákvað að skipta þeim út. Kom með 5 bækur heim í staðinn og er búin að klára tvær af þeim nú þegar. Önnur þeirra var svaðalega spennandi; Týndu stúlkurnar eftir Angelu Marsons þýdd af Ingunni Snædal. Mér skilst að það sé búið að þýða tvær aðrar eftir þennan höfund og ég á örugglega eftir að "þefa" þær uppi og lesa (skrifar sú sem ekkert lyktarskyn hefur).
Þriggja mánaða strætókortið mitt rann úr gildi eftir 18. maí og þar sem það styttist í sumarfrí hef ég ákveðið að labba sem oftast milli heimilis og vinnu. Það var fínt að labba í gærmorgun en leiðinda rok og rigning á móti mér seinni partinn. Komst þó heim, skipti um föt, hringdi aðeins í pabba en fór svo beinustu leið í sund og kalda pottinn. Labbið í morgun og seinni partinn voru fínustu göngutúrar og eftir að hafa hringt austur setti ég bræðrunum fyrir og skrapp svo smá stund í sjóinn. Þegar ég kom til baka var maturinn tilbúinn. Stoppaði ekkert svo lengi heima því það var heimaleikur hjá Val í Pepsídeild kvenna. 2-0 fyrir VAL á móti HK/Víkingi.
5.5.18
Lítið að gerast í skrifunum
Það er það langt síðan að ég skráði mig inn síðast að google sá ástæðu til að spyrja hvort ég ætti örugglega að vera með aðgang að þessari síðu. Fékk sent númer með sms í farsímann til að staðfesta að ég mætti fara hérna inn og nota þessa síðu eftir mínu höfði. Annars er ég stödd á Hellu þessa stundina og verð eitthvað fram á morgundaginn. Esperanto-hittingingi var frestað til næsta fimmtudags svo ég var löt að drífa mig af stað í sund í morgun. Var þó komin ofan í þann kalda upp úr klukkan hálftíu. Rúmum einum og hálfum tíma síðar var ég komin í Krónuna við Granda og fyrir utan að ég var að gera innkaup fyrir sjálfa mig var ég að leita eftir vöru fyrir pabba og mömmu sem ekki fæst á Hellu í augnablikinu. Fann þetta ekki í Krónunni. Kom við hjá Atlantsolíu við Öskjuhlíð áður en ég fór heim með vörunar, gekk frá þeim og sunddótinu, ýtti aðeins við öðrum stráknum til að láta vita að ég væri að fara austur, tók dót sem ég hafði tekið saman í morgun til að fara með. Fyrsta stopp var í Hagkaup í Skeifunni og eftir smá hringsól og nokkuð mikla leit fann ég nokkrar krukkur af súrsætri sósu frá "Benna frænda". Næsta stopp var í Fossheiðinni og svo var ég komin á áfangastað um hálffjögur.
Fyrsti stjórnarfundur nýkjörinnar safnaðarstjórnar í Óháða söfnuðinum var haldinn í Kirkjubæ milli 17 og 18:30 sl. fimmtudag. Ritari og gjaldkeri höfðu boðað forföll en það var fagnaðarefni að frétta og sjá að það hafði náðst að fullskipa stjórnina, að búið væri að fylla í öll þrjú sætin sem í höfðu setið formaður, varaformaður og einn meðstjórnandi síðustu 2-12 ár. Ég tók að mér að sjá um fundarritun. Náði að hreinskrifa þau skrif í gær og senda á nýkjörinn formann sem fór yfir, bætti við einu atriði og ætlar að senda á alla stjórnina.
Var á leiknum VALUR - Selfoss í Pepsídeild kvenna í gærkvöldi. Svolítið kalt en það voru skoruð átta mörk sem öll voru skoruð í mark gestanna. Valsstelpurnar héldu hreinu. Annars er ég bara góð. :-)
24.4.18
Árskort á Valsvöllinn 2018-19, kort no 68
Já, líkt og í fyrra gildir kortið á alla heimaleiki Vals fram á næsta vor, þ.e. alla deildarleiki. Ég vona bara að ég nýti þetta kort betur næsta vetur heldur en kortið sem var að renna úr gildi. Ég var frekar dugleg að mæta á heimaleikina fyrrasumar, í Pepsídeild bæði karla og kvenna en ég fór aðeins á einn heimaleik í vetur í Olísdeild kvenna. Pepsídeild karla byrjar að rúlla á föstudaginn kemur og það er Valur - KR strax í fyrstu umferð.
Annars var ég að koma heim úr sundi. Var mætt í Laugardalslaugina rétt upp úr klukkan fjögur og fékk gott pláss bæði í pottum og laug. Synti í um 25 mínútur eða 600 metra. Hitti eina nöfnu mína sem var með mér í KÓSÍ kórnum. Við syntum víst eitthvað á svipuðum tíma en ég tók ekki eftir henni fyrr en við vorum báðar farnar að pottormast.
19.4.18
Gleðilegt sumar!
Afar gott að fá svona aukafrídag. Ég leyfði mér samt ekki að sofa út í morgun, en kannski var ég bara útsofin því ég vaknaði löngu áður en vekjarinn átta að hringja eða einhvern tímann milli klukkan hálfsjö og sjö. Var mætt í Laugardalinn um leið og verið var að opna klukkan átta. Byrjaði á því að demba mér í kalda pottinn í fjórar mínútur áður en ég fór í laugina. Reyndar varð lítið úr sundi, þ.e. ég fór aðeins tvær ferðir, 200 metra, því gúmmíið öðru megin á sundgleraugunum datt af þegar ég var að setja þau á mig í upphafi. Þrjóskaðist þessa 200 metra með annað auga lokað. Settist aftur í þann kalda áður en ég fór í heitari potta og hitta hluta af "morgunfólkinu" mínu. Hafi svo engan tíma til að blása á mér hárið því ég var búin að lofast til að skutla N1 syninum í vinnuna og hirða hann upp um hálftíu.
Skrapp í göngu núna seinni partinn, hálfan Öskjuhlíðarhring, og kom við í Valsheimilinu til að athuga með árskortið á völlinn í sumar. Þau koma ekki í sölu fyrr en á morgun. Hefði geta keypt mig inn á leik Vals og ÍBV, ríkjandi bikar og deildameistara en ákvað frekar að ljúka göngunni og fara heim til að þurrka af mér göngufossinn á bakinu.
Er annars nýlega byrjuð á Smásögum eftir Ágúst Borgþór Sverrisson, AFLEIÐINGAR. Bókin inniheldur sjö smásögur. Er aðeins búin með þá fyrstu en ég gat ekki hætt að lesa fyrr en ég var búin með hana. Ég er enn með 3 bækur af safninu eftir að ég skilaði inn nokkrum bókum sl. sunnudag án þess að ná mér í aðrar í staðinn.
17.4.18
Soðið slátur í matinn í kvöld
Í dag er nákvæmlega mánuður síðan ég varð fimmtug, þessi mánuður er rúmlega hálfnaður og það fer alveg að líða að því að ég fari í sumarfrí. Ekki alveg tveir mánuðir þangað til en miðað við hvernig tíminn brunar áfram þá er alls ekki langt þangað til. En á meðan ætla ég að njóta hvers dags og hverrar mínútu eins og kostur er.
Síðan ég setti inn færslu hérna síðast er ég m.a. búin að fara nokkrum sinnum í sund, í tvær fermingaveislur, eitt sextugs afmæli, skila nokkrum bókum á safnið, láta taka nagladekkin undan bílnum og eyða sólarhring með stelpunum í kortadeildinni á Hótel Selfossi.
Fór í blóðbankann strax eftir vinnu í gær, 49. heimsóknina og sleppti því sundferð. Hins vegar dreif ég mig í sund upp úr klukkan fjögur eftir að ég hafði sett upp slátur og beðið Davíð Stein um að fylgjast með suðunni sem og setja upp kartöflur um sex.
Kveikti annars á tölvunni í kvöld til þess að senda og setja inn tilkynningar um næstu messu í moggann og á vegg og heimasíðu safnaðarins.
4.4.18
Fiskbúð og sund eftir vinnu í dag
Ég er rúmlega hálfnuð með eina bókina sem ég kom með heim af safninu í gær. smáglæpir eftir Björn Halldórsson hefur að geyma 7 smásögur sem eru frá 12 bls og upp í 24 að lengd. Á aðeins eftir að lesa 3 smásögur. Ætla ekki að segja neitt um sögurnar sem ég hef þegar lesið nema það að ég mæli alveg með þessari bók.
Þegar ég var búin að heyra aðeins í pabba rétt upp úr klukkan fjögur í dag, tók ég til sunddótið, kvaddi og byrjaði á því að stoppa í fiskbúðinni Hafið við Skipholt. Þar keypti ég ýsu í soðið, lax og 1 kg af rauðum kartöflum. Var komin ofan í kalda pottinn rétt fyrir fimm og byrjuð að synda um fimm mínútum síðar. Synti aðeins í rúmt korter eða 400 metra. Þá fór ég aftur í þann kalda í 3 mínútur áður en ég skrapp í nokkrar mínútur í 38°C pott sem ég fer ekki oft í. Eftir nokkrar mínútur þar fór ég þriðju og síðustu ferðina í þann kalda áður en ég endaði í gufunni. Kom heim um hálfsjöleytið og var maturinn tilbúinn ca hálftíma seinna.
3.4.18
Bókasafn og sund eftir vinnu í dag
Vinnudagurinn var ekki lengi að líða enda nóg af verkefnum. Var komin heim upp úr klukkan fjögur. Tók stöðuna á foreldrum mínum og hringdi einnig í esperanto vinkonu mína sem er á leið út í tveggja vikna frí eftir tvo daga. Við höfðum ætlað að veifast á á Facebook en það lítur út fyrir að það sé búið að loka á mig þar. Veit ekki alveg hvað eða hvernig þetta gerðist en ef mér tekst ekki að endurræsa aðganginn minn innan nokkurra daga þá gæti allt eins farið svo að ég láti þann vettvanginn alveg eiga sig. Hver veit nema það hafi þá líka góð áhrif á skrifin mín á þessum vettvangi.
Áður en klukkan varð fimm var ég búin að taka til sunddótið mitt og fjórar lesnar bækur af fimm af Kringlusafninu og búin að kveðja strákana. Fyrst lá leiðin í efnalaugina Snögg þar sem ég "leysti" út jakkaföt strákanna, þ.e. mínus einn jakki. Setti þetta í skottið og fór næst á safnið. Sex bækur komu með mér út af safninu í staðinn fyrir þessar fjórar sem ég skilaði inn. Ein af þessum sex er með tveggja vikna skilafrest en hún og þrjár aðrar af hinum innihalda smásögur. Segi kannski betur frá þessu seinna. Úr safninu lá leiðin í Laugardalslaugina, tvær ferðir í kalda, 400 m sund og næstum tíu mínútur í gufunni. Kom heim aftur um sjö. Strákarnir farnir í heimsókn til pabba síns og ég slapp við að elda þar sem til eru ýmis konar afgangar.
2.4.18
Úti snjóar
Laugardalslaugin er um það bil að opna. Ég er komin á fætur, búin að fá mér eitthvað og allt tilbúið fyrir sundferð. Ég fór ekki í sund í gær þótt það væri opið milli klukkan 10 og 18. Gærdagurinn hófst snemma. Var komin á ról um hálfsjö og mætt upp í kirkju á slaginu sjö. Við vorum 4 úr stjórninni sem hjálpuðumst að við að leggja á borð í efri safnaðarsalnum, hita brauðbollur, smá kaffi, búa til heitt kakó og þeyta rjóma. Það fór svo að aðeins eitt okkar sá sér fært að mæta í messuna. Ég hálfsé því eftir því að hafa ekki drifið mig í kirkju á föstudagskvöldið því nýji kórinn var að syngja þá sem og í gær. Get huggað mig við það að bæði heyrði ég í kórnum þegar hann var að hita upp og svo mun hann syngja aftur í tilraunamessu fjórða sunnudaginn í þessum mánuði. En það mættu ríflega fimmtíu mann í messu í gærmorgun og er það heldur fleira heldur en undanfarna páska. Klukkan var byrjuð að ganga ellefu þegar öllum frágangi var lokið og þá fór ég beint heim aftur og hélt mig þar. Strákarnir voru báðir heima en þeir komu ekki á fætur fyrr en einhvern tímann eftir hádegi. Í gærkvöldi var ég með steikt hrefnukjöt og bjó til sæta kartöflumús með smá tvisti, hafði hálfa rauðrófu með í litlum bitum út í músinni.
31.3.18
Stutt skrepp út út bænum
Á skírdagsmorgun var ég að sjálfsögðu mætt í Laugardalinn rétt upp úr klukkan átta. Sinnti rútínunni vandlega og fór svo auka ferð í kalda pottinn. Klukkan var byrjuð að ganga ellefu þegar ég var búin að blása á mér hárið. Var með esperanto bakpokann í skottinu en ég kom fyrst við hjá Atlantsolíu í Öskjuhlíðinni.
Við Inger kláruðum fimmta kaflann í Kon-Tiki og þóttumst vera afar duglegar. Við munum hins vegar ekki hvenær við byrjuðum að lesa þessa bók en það er amk ár síðan og við erum rúmlega hálfnaðar. Eftir esperanto-hittinginn fór ég heim til að hengja upp sunddótið, setja ofan í tösku og "vekja" tvíburana til þess að kveðja þá. Á austur leiðinni kom ég við í Fossheiðinni.
Hálftíma eftir að ég var kominn á Hellu komu fjórir gestir í heimsókn, 2 af þremur systkynum og makar þeirra. Litla systir þeirra og hennar maki eru í gólfferð á Spáni þessa dagana. Þessi systikyni og mamma eru systkynabörn. Gestirnir höfðu gert boð á undan sér og bannað pabba að hafa fyrir þeim. Hann átti bara að hella upp á þegar þau kæmu. Mamma hafði samt útbúið rækjusallat. Fjórmenningarnir stoppuðu í rúma tvo tíma.
Um kvöldið opnaði ég hvítvínsflöskuna sem Inger og fjölskylda gáfu mér. Mamma þáði aðeins einn sopa en pabbi, sem yfirleitt fær sér frekar rauðvín eða bjór þegar hann fær sér, þáði í glas og þótti þetta gott. Við feðginin kláruðum samt úr flöskunni svo ég tók afganginn með mér í bæinn aftur í gærkvöldi.
26.3.18
Nokkrir ókostir við að draga verulega úr tölvunotkun
Rúmlega tveir mánuðir liðnir síðan ég setti inn síðustu færslu. Á þeim tíma hefur margt og mikið vatn runnið til sjávar. Hef eingöngu kveikt á tölvunni þegar ég þarf að setja inn messutilkynningar. Stundum hefur hvarflað að mér að gefa mér þá tíma á þessum vettvangi í leiðinni en ég hef ekki endilega verið í skrifstuði. Gallinn við að "detta" svona út er að þá á ég það ekki neins staðar skráð það helsta sem á daga mína drífur. Kannski er það bara ágætt eða hvað. Mér finnst nefnilega svo gott að geta flett upp í sjálfri mér en það er eðlilega ekki hægt ef maður er með einhvers konar ritstíflu eða lyklaborðaleti.
Ég er mjög sátt við að hafa dregið úr tölvunotkuninni samt, það fór heldur mikill tími í þetta apparat. Er frekar dugleg við að stunda sundið, fer helst ekki sjaldnar en fjórum sinnum í viku og næ stöku sinnum að fara sjö daga í röð. Meðaltalið er líklega í kringum 5 sinnum í viku. Ætla annars ekkert að reyna að tæpa á því helsta sl. 8-9 vikur, amk ekki í þetta sinnið.
Ein bókin sem heldur mér hugfanginni um þessar mundir er af safninu er Náðarstund eftir Hannah Kent. Mögnuð bók sem ratað loksins til mín. Ég er líka að lesa úrval úr Ganglera, fyrstu 50 árin. Hún var gefin út af Lífspekifélaginu í fyrra en ég tók hana með af safninu um daginn og er að glugga í hana inn á milli. Reyndar meira en að glugga því ég þarf að gefa mér tíma til að melta vel sumt af því sem í þeirri bók er.
17.1.18
Miðvikudagskvöld, mánuðurinn rúmlega hálfnaður
Þessa vikuna höfum við vinnufélagarnir á minni deild látið nægja að skila af okkur átta tímum, mætum korter fyrir átta og hættum korteri fyrir fjögur. En bæði á mánudaginn og gær voru hendur látnar standa vel fram úr ermum og í morgun fór síðasta auka-SPES frá okkur. En þá liggur fyrir að vinda sér í vörutalningu á varahlutalager. Um tvö í dag fékk ég eina með mér í að byrja. Ég var búin að prenta út skrána sem er upp á 14 blaðsíður. Nú á hins vegar bæði að telja og taka út þá hluti sem eru síðan fyrir 2010 og hafa ekkert hreyfst í mörg ár. Margir af þeim tilheyrðu eldri vélinni sem er ekki til lengur svo þetta er löngu tímabært. Við náðum að sitja við þetta verkefni í tæpa klukkustund og vorum strax komnar með rúmlega botnfylli í kassa af úreltum varahlutum en aðeins búnar að fara yfir brotabrot af öllum heildar lagernum. Ætli við fáum svo ekki sérfræðinga til að fara yfir þessa hluti og gefa grænt ljós á förgun. Ég er ekki slíkur sérfræðingur en það segir sig sjálft að sumir gamlir hlutir hljóta að úreldast.
Eftir að ég kom heim úr vinnu á mánudaginn og var búin að taka stöðuna á foreldrum mínum dreif ég mig í sund og verslaði á leiðinni heim. Við Oddur hjálpuðumst svo að við að útbúa kvöldmatinn og við ákváðum að bíða eftir Davíð Steini sem var á leiðinni heim úr vinnu. Við borðuðum því ekki fyrr en rúmlega hálfníu. Fór ekkert út aftur eftir að ég kom heim úr vinnu í gær þar sem ég ætlaði mér að fylgjast með strákunum okkar á EM. Leiðinlegt að þeir náðu ekki að vinna þennan leik og enn leiðinlegra að Króatar skyldu liggja fyrir Svíum. Gat þó ekki annað en dáðst að sænska liðinu sem tapaði fyrsta leiknum í riðlinum en komast upp úr honum með 4 stig.
Gef mér alltaf einhvern tíma í lestur og er ég að lesa fjórar bækur í einu. En ég er líka komin á skrið í hundalopapeysuprjóni. Hugsanlega næ ég að ljúka því verkefni á næstu tíu dögum en systurdóttir mín á að keppa á skautum hér í bænum síðasta föstudaginn í þessum mánuði og þá koma amk hún og mamma hennar suður og jafnvel pabbi hennar og hárlausi hundurinn. Cara, labradorinn, verður líklega send í pössun.
14.1.18
Vetrarveður
Ég lét undan leti minni og fór ekki í sund í morgun þrátt fyrir að vera í bænum. Var vöknuð um sjö en ég fór ekki á fætur fyrr en klukkan var farin að ganga ellefu. Bíllinn er í stæði aftan við heilsugæsluna síðan um hálftvö í gær og ég verð að færa hann þaðan fyrir klukkan átta í fyrramálið.
Strax eftir vinnu á föstudaginn var tók ég 13 alla leið upp í Kringlu, eingöngu til að fara á bókasafnið. Var með fimm bækur sem voru komnar á allra síðasta skiladag. Vel gekk að skila inn bókunum en ég komst ekki út aftur fyrr en ég var komin með sjö bækur í staðinn þrátt fyrir að vera enn að lesa jólabækurnar. Ein af þessum sjö bókum er nýjasta hjólabókin hans Smára um Rangárvallasýslu. Hefði svo vel getað fengið mér smá göngu og labbað heim en ég ákvað að bíða frekar eftir strætó sem stoppar við Sunnubúðina. Heima hafði ég rúmlega eina og hálfa klukkustund áður ég fór að heiman aftur. Þann tíma notaði ég m.a. til að taka stöðuna á foreldrum mínum og ég náði einnig að horfa á næstum allan fyrsta EM-landsleik strákanna okkar. Slökkti á sjónvarpinu þegar um hálf mínúta var eftir af leiknum og öruggt að við vorum að vinna.
Um tíu mínútum fyrir sjö sótti Brynja vinkona mig. Leið okkar lá í Þjóðleikhúsið að sjá Risaeðlurnar og leiddist okkur alls ekki á þeirri sýningu. Vorum uppi á svölum í 20. röð, smá niðurhræddar en það gleymdist þegar sýningin hófst um hálfátta. Þremur tímum seinna færðum við okkur enn nær miðbænum og enduðum á Kebabhúsinu þar sem við fengum okkur að borða og ég eitt hvítvínsglas með matnum. Klukkan var byrjuð að ganga eitt þegar ég kom heim aftur.
Var mætt í sundið korter yfir átta í gærmorgun, náði heim tímanlega til að skutla N1-ungamanninum á aukavakt en hann átti að vera mættur aðeins fyrir klukkan tíu. Klukkan ellefu var ég komin í fyrsta esperantohitting á nýja árinu og þar sem ég var ekki búin að koma síðan á aðfanga dag stoppaði ég í rúma tvo tíma. Ég var ekki búin að vera heima nema í um þrjú korter þegar ég tók strætó niður í bæ til að skreppa á hugleiðslu og fyrirlestur í Lífsspekifélaginu.
Annars er ég búin að lesa fyrstu bókasafnsbókina, Hótel smásögur eftir Steindór Ívarsson. Mæli með þessari bók en hún gerist í Hótel Fönix og er köflunum skipt upp í herbergisnúmer og tengjast kaflarnir, þ.e. gestunum úr sumum herbergjanna bregður fyrir í hinum köflunum.
Horfði á landsleikinn í Indónesíu í hádeginu og núna eru rúmlega tveir klukkutímar í leik númer 2 hjá EM hópnum í Split. Áfram Ísland!
10.1.18
18 ára starfsafmæli í dag
Ég kom beint heim úr vinnu einhvern tíman á sjötta tímanum í gær. N1 strákurinn var í vaktafríi og hann var búinn að taka niður jólin og fara með í geymsluna. Ég á reyndar eftir að taka jóladúkinn af borðinu í stofunni, þvo hann og ganga frá og einnig að taka niður jólapóstinn.
Átti til bleikju og fór fljótlega að huga að matargerð. Eftir að hafa sett upp kartöflur og skorið niður grænmeti með bleikjunni og sett í 150° heitan ofn hrærði ég í eina eggjalausa brúnköku og skipti deiginu í tvö velsmurð form. Þegar kvöldmaturinn var tilbúinn hækkaði ég ofninn upp í 175° og setti inn annað formið. Eftir 2x25 mínútur slökkti ég á ofninum og þá stóð til að skreppa í sund og koma koma svo við í Hagkaup í Skeifunni á leiðinni heim. Það varð ekkert úr þeim áformum því ég hafði kveikt á tölvunni og ætlaði að vera snögg að setja upp og senda út messutilkynningar. Það tók hins vegar nógu langan tíma til að ég ákvað að sleppa sundinu og fór út í Sunnubúð. Eftir að deigið hafði kælst niður ákvað ég að vera ekkert að setja botnana saman. Setti á tvo diska og bjó til krem úr flórsykri, kakói, smjörlíki og smá slettu af heitu vatni og setti yfir þá. Annan diskinn skildi ég svo eftir heima í morgun en hinn tók ég með mér ásamt ostum og smá fleiru þegar ég fór á bílnum í vinnuna upp úr klukkan hálfsjö í morgun.
8.1.18
Gleðilegt nýtt ár 2018
Það er 8. janúar og klukkan byrjuð að ganga ellefu að kveldi dags. Dagarnir eru þegar farnir að þjóta hratt framhjá og munar líklega frekar mikið um aukið vinnuálag. Það er smá törn í gangi og hún er reyndar búin að vera í gangi í um það bil mánuð. Sé ekki alveg fyrir endan á henni í bili því þegar verkefninu, sem er í vinnslu, verður lokið verður að fara í lagertlaningar. Áramótin í þeim talningum hnikast til um einhverjar vikur því það þarf að nota allan auka tíma í SPES-verkefnið.
Eyddi áramótunum og síðustu helgi með foreldrum mínum og um nýliðna helgi byrjaði ég á að prjóna aðra hundapeysu á litla hárlausa hund systur minnar og mágs. Hann passaði fínt í peysuna sem ég prjónaði í október sl. og vill helst vera í henni en það þurfti að taka endurskinsþráðinn úr henni því hann meiðir í frosti.
Föðursystir mín varð níræð á þrettándanum, á laugardaginn 6. janúar. Ég á enn eftir að heyra í henni en hún var ekki heima á afmælisdaginn sinn. Með þessum tímamótum hefur hún farið framúr eldri systikynum sínum heitnum í aldri en til að fara fram úr föðurömmu minni vantar hana rúmlega sjö og hálft ár enn. Ég yrði ekkert svo hissa þótt hún næði því, því þótt hún segist sjálf finna fyrir aldrinum líklamlega lítur hún alls ekki út fyrir að vera mikið eldri en áttræð og varla það.
Vonandi kemst bráðum regla á færslurnar mínar, það er nú lágmark að láta ekki líða of marga daga á milli en stundum fær maður ekkert ráðið við það því annað hvort er tíminn of knappur eða andinn ekki yfir manni.
26.12.17
Jólaræðan
Jóladagur 25. Desember 2017 í óháða söfnuðinum.
Gleðilega hátíð kæra samferðafólk!
Það er margt búið að ganga á í kollinum á mér frá því Pétur bað mig um að taka þetta verkefni að mér á jóladag fyrir ári. Ég ákvað þó strax að taka þessari áskorun alveg óviss um hvernig ég ætti og ætlaði að tækla þetta verkefni. Ég veit vel að ég get alveg skrifað, hef frá því ég man eftir mér dregist að línustrikuðum blöðum og haldið dagbók með hléum síðan ég var krakki. Frá því 2003 færðust þau skrif yfir í bloggheima og þar á ég enn mína spretti.
Ég er annars ein af þeim sem er alin upp í sveit. Tel mig Rangæing í húð og hár þótt mömmu greinar skiptist í vestur, og norður. Hún fæddist á Akureyri 1944 þegar Lýðveldið Ísland var tæplega mánaða gamalt. Til tólf ára aldurs átti ég lögheimili á Heiði á Rangárvöllum, um 16 km frá Hellu. Föðurafi minn var fæddur þar og pabbi og öll hans 4 systkyni, pabbi yngstur árið 1934.
Ég fæddist í Reykjavík í mars 1968 og var á heimleið í fyrsta skipti í sveitina mína daginn sem breytt var yfir í hægri umferð, þann 26. maí sama ár. Mér er sagt að bíllinn hans pabba hafi sést á myndbroti í fréttum af þessari umferðarbreytingu. Fyrstu fjögur árin mín, eða á meðan, afi lifði, var Heiði þríbýli. Elsti bróðir pabba sá þó um að reka búið, bæði kúa og sauðfjárbú auk nokkurra hesta. Hann hafði byggt sitt eigið hús yfir sig og sína örstutt frá gamla bænum og nefnt Heiðarbrekku. Foreldrar mínir byggðu sitt hús, 1961, við gamla bæinn þannig að það var innangengt á milli. Pabbi var í mörg ár titlaður bóndi í símaskránni en hann var farinn að vinna utan heimilis fyrir mína tíð. Eftir að afi dó fluttist amma mín að Helluvaði til yngstu dóttur sinnar og bjó þar síðustu 15 árin sín.
Ég fæddist í Reykjavík í mars 1968 og var á heimleið í fyrsta skipti í sveitina mína daginn sem breytt var yfir í hægri umferð, þann 26. maí sama ár. Mér er sagt að bíllinn hans pabba hafi sést á myndbroti í fréttum af þessari umferðarbreytingu. Fyrstu fjögur árin mín, eða á meðan, afi lifði, var Heiði þríbýli. Elsti bróðir pabba sá þó um að reka búið, bæði kúa og sauðfjárbú auk nokkurra hesta. Hann hafði byggt sitt eigið hús yfir sig og sína örstutt frá gamla bænum og nefnt Heiðarbrekku. Foreldrar mínir byggðu sitt hús, 1961, við gamla bæinn þannig að það var innangengt á milli. Pabbi var í mörg ár titlaður bóndi í símaskránni en hann var farinn að vinna utan heimilis fyrir mína tíð. Eftir að afi dó fluttist amma mín að Helluvaði til yngstu dóttur sinnar og bjó þar síðustu 15 árin sín.
Ég er ekki fyrsta barn foreldra minna þótt í sé sú eldri af tveimur systrum. Frumburður þeirra, "Litla-Anna", fæddist daginn eftir fimm ára brúðkaupsafmæli þeirra í september 1966 en hún dó eftir stutt veikindi aðeins fimm mánaða gömul. Önnu nafnið mitt er því bæði eftir henni og í höfuðið á móðurömmu minni. Yngri systir mín fæddist rúmum 19 mánuðum á eftir mér. Ég kallaði hana víst Óóið lengi vel er mér sagt en ég man ekkert eftir því. Þegar ég fer að muna eftir mér sváfum við í koju, hún í þeirri efri og ég í þeirri neðri af því að ég átti það til að ganga í svefni. Okkur voru snemma kenndar bænir, vers og heilræðavísur og það var föst venja að fara þær og signa sig fyrir svefninn. Þegar við fengum sér herbergi í kjallaranum varð mamma oftast vör við það þegar ég labbaði af stað því þótt ég væri steinsofnadi þá fór ég í klossana mína. Mamma náði þá oftast að snúa mér við áður en ég var komin alla leið upp og fylgja mér í rúmið aftur. Ég man þó eftir einu skipti þar sem ég vaknaði upp á gólfinu fyrir framan tröppuna inn í hjónaherbergi. Mig hafði verið að dreyma að ég væri á sundæfingu.
Systir mín átti stundum erfitt með að sofna. Ef ég var sofnuð gat hún teygt hendina niður úr efri kojunni og kveikt ljósið hjá mér. Síðan hallaði hún sér yfir rúmbríkina, þannig að ég sá andlitið hennar á hvolfi, og sagði við mig: "Anna Sigga ég get ekki sofnað. Viltu segja mér sögu?" Og sýndi mér jafnvel með höndunum hversu löng sagan átti að vera. Ég átti frekar auðvelt með þetta, varð snemma læs og las mikið m.a. Þjóðsögur Jóns Árnasonar. Ég var dugleg við að búa til alls konar ævintýri. Ég hafði afar gaman af því að spila eða leggja kapla og á tímabili gekk ég með spilastokk í rassvasanum og vísnabókina undir hendinni. Ég fékk líka stundum skrýtnar hugmyndir, t.d. eftir að Gideonfélagið hafði heimsótt bekkinn minn og gefið okkur nýja testamentið. Maðurinn sem afhenti okkur bækurnar sagði að hann myndi koma aftur þegar við yrðum í elsta bekk grunnskólans til að athuga hversu snjáðar bækurnar væru, þ.e. hvort við hefðum verið iðin við að glugga í testamentið. Ég gerði gott betur en það því ég fékk þá flugu í höfuðið að læra ættartölu Jésú Krists utan að og kunni hana lengi vel, alla 36 liðina, alveg frá Abraham að Jésú. Föðurbróðir minn vissi af þessu og átti það til að biðja mig um að þylja ættartöluna upp sérstaklega ef það voru gestir á staðnum.
Systir mín átti stundum erfitt með að sofna. Ef ég var sofnuð gat hún teygt hendina niður úr efri kojunni og kveikt ljósið hjá mér. Síðan hallaði hún sér yfir rúmbríkina, þannig að ég sá andlitið hennar á hvolfi, og sagði við mig: "Anna Sigga ég get ekki sofnað. Viltu segja mér sögu?" Og sýndi mér jafnvel með höndunum hversu löng sagan átti að vera. Ég átti frekar auðvelt með þetta, varð snemma læs og las mikið m.a. Þjóðsögur Jóns Árnasonar. Ég var dugleg við að búa til alls konar ævintýri. Ég hafði afar gaman af því að spila eða leggja kapla og á tímabili gekk ég með spilastokk í rassvasanum og vísnabókina undir hendinni. Ég fékk líka stundum skrýtnar hugmyndir, t.d. eftir að Gideonfélagið hafði heimsótt bekkinn minn og gefið okkur nýja testamentið. Maðurinn sem afhenti okkur bækurnar sagði að hann myndi koma aftur þegar við yrðum í elsta bekk grunnskólans til að athuga hversu snjáðar bækurnar væru, þ.e. hvort við hefðum verið iðin við að glugga í testamentið. Ég gerði gott betur en það því ég fékk þá flugu í höfuðið að læra ættartölu Jésú Krists utan að og kunni hana lengi vel, alla 36 liðina, alveg frá Abraham að Jésú. Föðurbróðir minn vissi af þessu og átti það til að biðja mig um að þylja ættartöluna upp sérstaklega ef það voru gestir á staðnum.
En ég átti víst að segja frá jólaminningum mínum. ...og verð ég þá að viðurkenna og kannast við að undirbúningur undir jólin voru bara vesen í mínum huga, svo langt sem ég man? Mamma var og er mikið jólabarn og hún komst í mikið stuð þegar líða fór að aðventu. Hún saumaði eitt sinn jólaklukkustreng, sem var númeraður frá 1 - 24 og rauður hringur við hvert númer. Áður en 1. desember rann upp var hún búin að pakka alls konar nammi-molum inn í álpappír, binda utan um og festa tvo pakka í hvern hring. Svona töldum við systur niður dagana til jóla. Mamma saumaði líka á okkur jólafötin í mörg ár. Allt var þrifið hátt og lágt og mamma var að langt fram á nótt vikurnar fyrir jól. Pabbi hjálpaði henni eftir að hann kom heim úr vinnu á kvöldin. Settar voru upp jólagardýnur í eldhúsinu og jóladúkar á eldhús- og stofuborð. Mamma bjó til aðventukrans og notaði svo hluta af greninu til að gera smáskreytingar og festa fyrir ofan innrammaðar myndir á veggjum í stofunni og víðar. Ákveðnar jólaskreytingar áttu sína föstu staði. Ég man sérstaklega eftir pínu litlu, skreyttu gervijólatré sem mamma hafði valið sem möndlugjöf sem unglingur og fékk svo sjálf möndluna. Þetta tré var alltaf sett upp á stofuklukkuna.
Bakaðar voru að mér fannst millijón smákökusortir og nokkrar lagtertur, jólakökur, og fleira og fleira og var mamma potturinn og pannan í þessu öllu. Nokkrar smákökusortir kölluðum við lengi vel fjölskyldukökur því þá hjálpuðumst við öll að, þetta voru t.d. loftkökur og vanilluhringir. Þetta fannst mér skemmtilegt. Foreldrar mínir hjálpuðust einnig að við að baka og setja saman piparkökuhús sem var látið standa alveg fram á þrettándann. Þá var það brotið niður og oft voru frændur okkar, bróðursynir pabba boðnir yfir til að hjálpa okkur að brjóta niður húsið og borða. Ef það voru fleiri ungmenni stödd á staðnum þá var þeim boðið líka. Leyfarnar af húsinu entust í einhverja daga.
Bakaðar voru að mér fannst millijón smákökusortir og nokkrar lagtertur, jólakökur, og fleira og fleira og var mamma potturinn og pannan í þessu öllu. Nokkrar smákökusortir kölluðum við lengi vel fjölskyldukökur því þá hjálpuðumst við öll að, þetta voru t.d. loftkökur og vanilluhringir. Þetta fannst mér skemmtilegt. Foreldrar mínir hjálpuðust einnig að við að baka og setja saman piparkökuhús sem var látið standa alveg fram á þrettándann. Þá var það brotið niður og oft voru frændur okkar, bróðursynir pabba boðnir yfir til að hjálpa okkur að brjóta niður húsið og borða. Ef það voru fleiri ungmenni stödd á staðnum þá var þeim boðið líka. Leyfarnar af húsinu entust í einhverja daga.
Það var annars aldrei farið í kirkju á aðfangadag, jóla- eða gamlársdag, hvorki á meðan við bjuggum í sveitinni né eftir að við fluttum alfarið í þorpið 1981. En ég man að við fórum einu sinni á aðventustund, stuttu fyrir jól, í Þykkvabæjarkirkju og þótti mér sú stund afar hátíðleg.
Á Þorláksmessukvöld var gervitréð sett saman og pabbi athugaði hvort seríurnar væru í lagi áður en þær voru settar á og tréð skreytt. Mér fannst mest spennandi að sjá hversu mikið tréð hafði "minnkað" frá því árinu áður. Það var alltaf einhver munur en ég óx frekar hægt, 1-2 cm ár ári og eitt árið, tók systir mín mikinn vaxtakipp lengdist um heila tíu sentimetra og óx mér vel yfir höfuð. Ég, sem hafði alltaf verið aðeins stærri, var alveg nokkur ár að ná henni aftur.
Í hádeginu, á aðfangadag, var mamma með heitan grjónagraut með möndlu í og sá sem fékk möndluna fékk fyrsta pakkann. Klukkan fimm voru pakkarnir settir undir tréð en ljósin voru þó ekki kveikt fyrr en klukkan sex. Þá var líka sest að borðum og borðaður lambahryggur eða læri með öllu tilheyrandi. Ég var ekki mikið fyrir brúnuðu kartöflurnar og jólaölsblandan, hvítöl, malt, kók og appelsín fór alls ekki vel í magann minn. Þegar borðhaldinu lauk fengum við systur að opna fyrstu pakkana, sem voru yfirleitt merktir frá jólasveininum. Lengi vel voru líka geymdir nokkrir pakkar sem sem við systur opnuðum einn á dag alveg fram á gamlársdag. Ég sagði frá því hér að ofan að ég var og er mikill lestrarhestur. Ein bestu jólin voru líklega þegar ég var um ellefu ára. Ég fékk nýja skólatösku, einhverjar flíkur, kerti og spil frá heimilisfólkinu á Kaldbak en það var hefð í mörg ár og svo heilar ellefu bækur. Ég var því miður búin að lesa þær allar áður en nýtt ár rann upp.
Sem krakki var ég frekar alvarleg og tók lífinu kannski helst til of hátíðlega. En svo langt sem ég man átti ég það þó til að bresta í söng alveg að því er virtist af tilefnislausu og var ég ekki endilega að syngja neitt ákveðið þótt ég gerði það líka. Ég get alveg skotið því hér að, að ég er ekki vaxin upp úr þessu. Átta ára var ég send í Tónlistarskóla Rangæinga. Lærði fyrst á blokkflautu og svo orgel og píanó. Það var hefð að halda tvenna jólatónleika í sýslunni og eina í Hallgrímskirkju í Reykjavík. Ég var valin í hópinn nokkrum sinnum til að koma fram á þessum tónleikum og ég gleymi því aldrei þegar ég spilaði á stóra pípuorgelið í fyrsta skipti. Sem betur fer var alltaf mætt góðum tíma fyrir tónleika svo hægt væri að taka eitt rennsli áður. Þrátt fyrir að ég kviði alltaf að koma fram þá fannst mér líka þetta vera hluti af undirbúningnum fyrir komu jólanna.
Sem krakki var ég frekar alvarleg og tók lífinu kannski helst til of hátíðlega. En svo langt sem ég man átti ég það þó til að bresta í söng alveg að því er virtist af tilefnislausu og var ég ekki endilega að syngja neitt ákveðið þótt ég gerði það líka. Ég get alveg skotið því hér að, að ég er ekki vaxin upp úr þessu. Átta ára var ég send í Tónlistarskóla Rangæinga. Lærði fyrst á blokkflautu og svo orgel og píanó. Það var hefð að halda tvenna jólatónleika í sýslunni og eina í Hallgrímskirkju í Reykjavík. Ég var valin í hópinn nokkrum sinnum til að koma fram á þessum tónleikum og ég gleymi því aldrei þegar ég spilaði á stóra pípuorgelið í fyrsta skipti. Sem betur fer var alltaf mætt góðum tíma fyrir tónleika svo hægt væri að taka eitt rennsli áður. Þrátt fyrir að ég kviði alltaf að koma fram þá fannst mér líka þetta vera hluti af undirbúningnum fyrir komu jólanna.
Mig langar til að enda þetta á því að fara með smá bæn í ferskeytluformi sem ég samdi í endaðan mars fyrir bráðum þremur árum:
Legg ég saman lófa mína
leitar hugur víða.
Bið Hann heili alla sína
höftin leysi´ og kvíða.
(ASH 28.03.2015)leitar hugur víða.
Bið Hann heili alla sína
höftin leysi´ og kvíða.
Takk fyrir mig!
11.12.17
Morgunstund
Áfram æðir tíminn og lætur alls ekki bíða eftir sér. Það er varla að maður geti hangið í kjölsoginu. Oftast er það nú ekki nauðsynlegt að vera að eltast neitt sérstaklega við tímann. Mér sýnist á öllu að ef ég punkta bara upp það sem verður að klárast fyrir jól og raða svo verkefnunum skynsamlega niður þá á þetta allt að hafast. Ég er amk búin að skrifa jólabréfin og annað þeirra er nú þegar á leiðinni til Englands og hitt leggur af stað til Danmerkur í dag.
Ég skrapp annars austur um helgina, hafði ekki farið tvær helgar í röð og það var alveg kominn tími til að kíkja. Ég fór klifjuð af dóti eins og vanalega en notaði svo ekkert af því þegar til kom. Mestallur tíminn fór í að prjóna með mömmu, þýða eitt jólabréf fyrir pabba og svo skrapp ég aðeins og kíkti á föðursystur mína upp úr hádeginu í gær.
Pabbi var mjög duglegur að setja upp hluta af jólunum. Fékk að hjálpa honum aðeins við að setja upp jólagardýnur á efri gardýnustangirnar í eldhúsinu og leist nú ekkert að blikuna að fylgjast með pabba príla af tröppunni og alla leið upp á innréttinguna. Hann lofaði nú að fara varlega, vildi gera þetta sjálfur og það var ekki að sjá að "prílarinn" væri orðinn 83 ára.
Hafði annars ætlað mér að vinna í jólahugvekjunni. Kollurinn er fullur af orðum og hugmyndum en ég hafði einhvern veginn enga eirð til að setjast niður yfir punktana sem þegar eru komnir í skjalið. Mér finnst samt að það sé ekki langt í að ég detti í skrifstuðið og þá vona ég svo sannarlega að ég sitji fyrir framan tölvuskjá og hafi góðan tíma.
3.12.17
Fyrsti sunnudagur í aðventu
Þetta er önnur helgin í röð sem ég fer ekki út úr bænum og austur. Í gærmorgun var ég mætt í sund rétt upp úr átta. Hafði smá stund aflögu heima eftir sundið áður en ég skrapp í esperanto hitting til norsku vinkonu minnar. Var komin heim aftur upp úr klukkan tólf. Tæpum tveimur tímum seinna skutlaði einkabílstjórinn minn mér út að Eiðistorgi og hann notaði ferðina til að skreppa með plast, pappír og fleira í Sorpu. Á Eiðistorgi var verið að sýna ballett, milli klukkan tvö og þrjú, þó nokkuð margir hópar sem eru í ballettskólanum á Seltjarnarnesi en skólinn er víst til húsa þarna á Eiðistorgi. Tvíburar Brynju vinkonu voru í fyrsta hópnum. Þetta var mjög skemmtileg sýning, atriðin ekki of löng en maður fékk að sjá ýmsa ballettakta, allt frá byrjendum og upp í unglinga.
Rétt upp úr þrjú vorum við vinkonurnar sestar inn í Hannesarholt þar sem við sátum næstu tvo tímana. Áður en hún skilaði mér heim tókum við smá rúnt yfir í annan bæjarhluta.
Ég var komin ofan í kalda pottinn 12 mínútur yfir átta í morgun. Sat þar í rúmar þrjár mínútur en synti svo í næstu tuttugu mínútur áður en ég fór aftur í þann kalda. Eftir þá ferð fór ég í sjópottinn og svo enn og aftur í þann kalda. Endaði svo stutta stund í gufunni áður en ég fór upp úr. Hitti óvænt þá sem ég heimsótti í Skagafirðinum er ég var á leiðinni til Helgu systur í ágúst sl. Eftir tíu mínútna spjall dreif hún og hennar maður sig í sundið en ég kom við í Hagkaup í Skeifunni á leiðinni heim.
Ég er annars nýkomin heim úr árlegu laufabrauðshittingi með frændfólki mínu. Vorum alls sjö og skárum út 80 kökur. Var mætt fyrst rétt fyrir tvö og við vorum búin að skera og steikja tveim tímum seinna. Og næst liggur leiðin í kirkjuna mína en þar er aðventukvöld í kvöld og stjórnin ætlar að hittast á undan til að undirbúa smá góðgæti sem verður á boðstólum eftir dagskrána.
29.11.17
Nokkrar línur fyrir svefninn
Ég kveikti á tölvunni í kvöld til þess að senda Veitum álestrartölur af rafmagns- og hitamælum íbúðarinnar. Báðir þessir mælar eru niðri í kjallara, annar í þvottahúsinu en hinn á ganginum fyrir framan.
Eftir vinnu í gær tók ég strætó á Hlemm og nr 14 þaðan í Laugardalinn. Kaldi potturinn var lokaður og tómur en ég synti í tæpan hálftíma, flatmagaði um stund í sjópottinum og endaði að gufu áður en ég fór upp úr. Var komin heim upp úr klukkan sex og byrjaði á því að hringja í pabba.
Hluta af vinnutímanum í dag notaði ég í að hreinsa til á heimasíðu óháða safnaðarins. Fór yfir allar tilkynningasíðurnar, afritaði textana yfir í word-skjal og ef í ljós komu leiðinda linkir eftir innbrot þá eyddi ég þeim textum einfaldlega út. Ég á aðeins eftir að athuga hvort svona linkir leynist í textunum sem eru bundnir við hnappana í svörtu stikunni.
Fór beint í sund eftir vinnu. Nú var kaldi potturinn opinn svo ég fór beint ofan í hann þegar ég kom út. Þar fyrir var maður sem ég veit að mælir hitastig pottsins reglulega svo ég spurði hvort hann hefði mælt í dag og hvað hitastigið væri. Jú, hann hafði mælt pottinn innan marka, 7,8°C. Við fórum aðeins að ræða um kalda potta og sjóböð og ég gleymdi tímanum, sat í pottinum í rúmar sjö mínútur. Synti svo í hálftíma og fór aðeins í sjópottinn áður en ég fór uppúr. Var komin heim á svipuðum tíma og í gær.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)