Vekjarinn vakti mig korter fyrir sex í morgun. Borðaði afganginn af hafragrautnum í morgunmat. Mætti í Laugardalslaug rétt eftir opnun. Fór beint á braut 8 og synti 300m. Þegar ég var á leið í þann kalda sá ég tilsýndar að sjópotturinn var lokaður. Eftir 4 mínútur í kalda fór ég því í gufu í 10 mínútur, kalda sturtu á eftir, smá stund í heitasta pottinn og svo hálfa mínútu/dýfu í þann kalda. Mætti fyrst í vinnu tuttugu mínútum fyrir átta. Tók úr lás, slökkti á kerfinu, kveikti ljós, stimplaði mig inn og setti upp kaffið. Ungi maðurinn mætti tíu mínútum á eftir mér. Það var mátulega búið að kveikja á öllu þegar fyrsti kúnninn kom á slaginu 8. Síðan var næstum klukkutíma pása í skoðununum en eitthvað um önnur afgreiðslumál, ss eins og símsvörum, netspjall og fleira. Skoðunarmaðurinn skrapp heim í hádeginu, ég ætlaði að læsa um tólf en tafðist um tíu mínútur vegna annarra afgreiðslumála. Ég var nú samt búin að fá mér borða og tilbúin í afgreiðslustörfin um hálfeitt og það var mikill erill til klukkan að verða þrjú. Róaðist aðeins eftir það en aldrei þannig að það væri alveg stopp. í Heildina voru skoðaðir um 25 bílar, hef ekki tölustakstík yfir hinar afgreiðslurnar. Siggi framkvæmdastjóri kom stuttu fyrir hálffimm til að taka stöðuna. Klukkan var því orðin svolítið meira en hálffimm þegar ég stimplaði mig út. Þar sem skoðunarmaðurinn er ekki kominn með lykla af stöðinni sá ég um að setja kerfið á og læsa á eftir okkur. Kom við í Krónunni í Lindum á heimleiðinni og þótt ég væri ekki með marga eða þunga poka lagði ég bílnum á efra planið og tók þar að auki lyftuna upp á fjórðu hæð.
3.3.26
2.3.26
Glæný vinnuvika
Ég fór frekar seint að sofa í gærkvöldi en þó fyrir miðnætti. Sofnaði ekki strax og ekki fast, önnur bókin sem ég er að lesa togaði aftur í mig og ég lét undan milli klukkan eitt og tvö. Var svo komin á fætur upp úr klukkan hálfsjö og í vinnu rúmri klukkustund síðar. Stöðvarstjórinn mætti um svipað leyti og ég og tíu mínútum á eftir okkur kom nýji skoðunarmaðurinn. Rólegt var fyrsta klukkutímann og stuttu fyrir tíu vorum við, sá nýi og ég skilin eftir ein afganginn af deginum. Þá var búið að skoða eitthvað um fjóra bíla en þeir urðu rúmlega þrjátíu í heildina. Ungi maðurinn að standa sig mjög vel og svo er hann vel fær í að sinna innbókunum í afgreiðslunni líka. Hann sá um að slökkva á öllu í skoðunarrýminu en ég setti kerfið á og lokaði á eftir okkur. Var mætt í kalda pottinn í Laugardalslauginni um fimm og hitti strax á kalda potts vinkonum mína sem var farin að bíða eftir mér. Ég sleppti sundinu en var að pottormast í rúman klukkutíma. Hluti af þeim tíma fór reyndar í gufubaðsstund. Var komin heim upp úr klukkan hálfsjö.
1.3.26
Sofið út
Fór ekki á fætur fyrr en um hálfníu í morgun. Var að vísu vöknuð um klukkustund fyrr en ég byrjaði daginn semsagt á því að grípa í bók. Rétt fyrir níu útbjó ég mér hafragraut, tvo skammta þannig að ég á afgang í ská inni í ísskáp. Fimm mínútum áður en ég fór út að sópa af bílnum setti ég hitakerfið á. Klukkan var að verða eitt þegar ég kom til baka eftir langan en mjög góðan fræðslufund. Bjó mér til plokkfisk úr fiskafgangi frá því í gær. Svo stóð alltaf til að ég drifi mig aðeins út í smá göngu en einhvern veginn fór restin af deginum í lestur, slökun og þáttaáhorf. En hey það er eða var nú einu sinni sunnu/hvíldar-dagur í dag.
Gerast áskrifandi að:
Ummæli (Atom)