- Langa helgin leið alltof hratt -
Þrír dagar liðu mjög hratt. Skrapp á Landakot að venju eftir vinnu á föstudaginn til að kíkja á tengdamömmu eins frænda míns. Hún er búin að vera á sjúkrahúsi (upp í Fossvogi og svo á Landakoti) síðan í febrúar. Um daginn var farið að tala um að senda hana heim. Það er búið að gera þrjár tilraunir en það er alltaf eitthvað sem kemur í veg fyrir heimförina. Fyrst fékk gamla konan flensu, næst var hún komin með blöðrubólgu og núna síðast lungnabólgu þannig að hún þarf aftur að vera með súrefni. Mér segir svo hugur um að gamla konan fari líklega ekki heim til sín aftur. Það þarf sennilega að sækja um pláss á elli- eða hjúkrunarheimili fyrir hana. Ég stoppaði ekki lengi heima þetta föstudagssíðdegi heldur trítlaði upp á völl og fylgdist með "mínum Val-stelpum" taka á móti og spila við FH. "Við" lentum 0:2 undir en leikurinn vannst 5:3 og var Elín Metta með tvö af mörkunum. Fljótlega eftir að ég kom heim byrjaði Barnaby svo annan daginn í röð saumaði ég ekki spor.
Um tíu á laugardagsmorguninn var ég mætt til Nonna í Kristu. Hugsa sér strax liðnar sex vikur síðan ég var í klippingu síðast. Klukkutíma seinna var ég komin til norsku esperanto vinkonu minnar. Stoppaði hjá henni í einn og hálfan tíma. Þá átti ég bara eftir að taka saman það sem ég þurfti til tveggja nátta gistingu. Var ekki alveg byrjuð að hugsa mér til hreyfings þegar pabbi hringdi rétt fyrir eitt. Aldrei þessu vant hafði ég ekki hringt austur á föstudeginum og þar sem hann vissi að ég væri á leiðinni en var ekkert búin að láta í mér heyra hringdi hann til að athuga með mig. Ég var svo komin austur um hálfþrjú. Fékk mér kaffi með foreldrum mínum en hafði svo samband við frænda minn og konuna hans um hvort ég mætti ekki koma til þeirra og verða samferða á "Heiðarfólks-hittinginn".
Við hittumst semsagt önnur og þriðja kynslóð frá föðurforeldrum mínum og borðuðum saman á Hótel Læk sem er staður þar sem hét áður Hróarslækur og ein föðursystir mín bjó á. Mætingin var nokkuð góð, 29 manns, en ég var sú eina mætt af pabba grein. Mamma er frekar léleg til heilsunnar svo pabbi vildi ekki skilja hana eftir eina og systir mín og mágur voru í brúðkaupsveislu. Annars vantaði bara 6 aðra (4 maka og 2 systkinabörn). Annað af systkinabörnunum býr með sýnum maka í Bandaríkjunum og einn makinn var einnig staddur erlendis). Ósköp sem var gaman að hitta þetta fólk. Ég stoppaði samt ekkert svo lengi ákvað að drífa mig þegar frændi minn og hans spúsa kvöddu. Föðursystir mín var einnig samferða okkur og skutlaði ég henni alla leið heim.
Restin af helginni fór í lestur, útsaum og almennt afslappelsi. Sótti tvíburana svo til föðurforeldra þeirra á leiðinni í bæinn í gærkvöldi og við mæðginin ákváðum að hafa myndakvöld. Fór því kannski heldur seint að sofa í gærkvöldi.