Í gærmorgun var ég komin á fætur upp úr klukkan átta. Það var samt ekki fyrr en klukkan tíu að ég bjó til matarmikinn og þykkan hafragraut og hellti í leiðinni upp á 2 bolla af kaffi. Rétt fyrir ellefu var ég mætt í Nauthólstvík með sjósundsdótið mitt. Við mættum allar fimm úr nýstofunum svokölluðum boðsundshóp sem ég vildi nú frekar kalla; Helgurnar, systurnar og Anna. Hvað um það sjórinn og lofthitinn sá sami 10°C, fjara og við syntum út að kaðli á uþb 13 mínútum og svömluðum þar um í sjö mínútur í viðbót áður en við fórum upp úr og í heita pottinn.
Næst lá leiðin í Krónuna við Granda og áður en ég fór heim með vörurnar kom ég við hjá Oddi í Kvikk og sníkti einn bolla af kaffi. Heima gekk ég frá vörunum, sótti þvott á snúrurnar, pakkaði niður í tösku og bakpoka og kvaddi Davíð Stein áður en ég lagði af stað austur. Hringdi í pabba og tvíburahálfforeldra mína áður en ég lagði af stað og kom við hjá þeim síðarnefndu á leiðinni. Stoppaði innan við klukkutíma á Selfossi þrátt fyrir að langt er síðan ég kom þar við síðast en ég var komin á Hellu um fjögur. Við pabbi skruppum í búðina eftir nokkrum nauðsynjum. Í gærkvöldi gufusauð ég blómkál, niðurskorna karföflu og einn niðurskorinn lauk saman í potti og steikti marinerað bleikjuflak sem pabbi átti í frysti. Með þessu drukkum við vatn, hvítt (ég) og rautt (pabbi).
Þrátt fyrir að framundan sé vika sem ég verð að halda mig fjarri vinnustað er ég á leiðinni í bæinn. Ætla í sund, kannski á Valsvöllinn og svo þarf ég að afhenda nágrannanum í risinu, sem er að selja íbúðina sína, gögn frá aðalfundinum sem hún vill hafa aðgengileg fyrir tilvonandi nýja íbúa. Ég er líka með nokkur önnur markmið á prjónunum (fyrir utan tuskur) fyrir komandi viku. M.a. að splæsa á bílinn alþrif innan og utan líkt og ég gerði í fyrra.