Mætti í vinnu rétt rúmlega hálfátta. Sótti kaffikönnuna/brúsann inn á kaffistofu, skolaði hann vel áður en ég hellti upp á kaffi. Kaffið var einmitt tilbúið þegar afleysingaskoðunarmaðurinn mætti. Fullmannað var á stöðinn sem hann leysti af í gær. Þótt dagurinn byrjaði rólega var samt gott að þeir voru tveir því á endanum voru skoðaðir næstum því 70 bílar. Það var mikil traffík á leiðinni heim úr vinnu og klukkan var rétt orðin fimm þegar ég kom heim. Um sex leytið var ég búin að hafa mig til og lagði af stað á fund. Lenti líka í umferðasultu á leiðinni þangað en var komin fyrir klukkan hálf. Fundurinn var í lengri kantinum og að venju var sest niður í kaffi á eftir svo klukkan var langt gengin í ellefu þegar ég kom aftur heim. Þá tók ég eftir því að í póstkassanum beið mín bréf frá ensku pennavinkonu minni, sem er farin að nota google translate og svara mér jólabréfunum á íslensku. En mikið er ég fegin að það er frídagur á morgun.
30.4.26
29.4.26
Aftur í sjóinn eftir vinnu og osteostrongtíma
Mætti í vinnu rétt fyrir hálfátta. Stöðvarstjórinn kom uþb hálftíma seinna. Vorum bara tvö í dag. Það byrjaði frekar rólega en jókst jafnt og þétt og skoðaðir voru rétt yfir tuttugu bílar fyrir hádegi. Í heildina voru skoðaðir hátt í fimmtíu bílar, þegar mest var voru sex að bíða. Reyndar notuðu sumir tækifærið og skruppu frá en aðrir biðu þolinmóðir í mislangan tíma eftir skoðuninni. Það var líka smá annríki í annars konar verkefnum eins og að afhenda númeraplötur og skrá bíla í umferð eða öfugt; taka á móti plötum, rukka geymslugjald, skrá bíla úr umferð og setja plöturnar á réttan stað í rétta hillu. Það var líka svolítið um símsvörun og nú er ég alvarlega að spá í hvort ég eigi nokkuð að skrá niður nokkuð skondið eða jafnvel umhugsunarvert símtal, eða réttara skrifað tvö símtöl. Kannski bara ágætt að láta það flakka. Það var hringt beint í Skeifuna í morgun og ég gat svarað, engin önnur afgreiðsla akkúrat á þeim tímapunkti. Símtalið byrjaði nokkuð eðlilega, maður var að athuga með að lengja frest á endurskoðun bíls um mánuð. En svo kom svolítið á mig þegar viðkomandi sagðist hafa komið með bílinn í skoðun í Skeifuna fyrr á árinu og hefði litist svo vel á mig. Vildi fá að vita hvort ég væri ein og í kjölfarið hvort hann mætti bjóða mér í bíó. Ég sagðist vera ein og mjög sátt við það og vön því en það mætti alveg íhuga tilboðið. Ég vildi samt ekki gefa upp símann minn og sagðist vilja hugsa þetta. Innan við klukkutíma síðar hringdi maðurinn aftur, bað mig afsökunnar á framhleypninni en bað mig jafnframt um að skrifa niður símanúmerið sitt. Eigandi bílsins sem hann fékk frest á er 16 árum eldri en ég og eðlilega hélt ég að ég væri að tala við þann mann og sagði honum að það væri frekar mikill aldursmunur á okkur. Þá kom í ljós að hann var að sjá um bílamálin fyrir mun eldri bróður sinn. Ég fékk að vita nafn og fæðingarár og tók niður númerið. Vildi samt ekki lofa neinu. En mér fannst þetta frekar skrýtið og smá fyndið. Kannski varð þessi "truflun" til þess að ég gleymdi hluta af "ganga frá fyrir vinnulok" rútínunni, þ.e. að skola kaffibrúsann að innan og fylla hann af sjóðheitu vatni. Kaffibrúsinn mun örugglega bíða mín í biðrýminu í fyrramálið. Var mætt í osteostron rúmlega tíu mínútum fyrir fimm og komst beint að. Var því komin í Nauthólsvík fyrir klukkan hálfsex þar sem ég hitti fyrir kalda potts vinkonu mína. Við fórum þrjár ferðir í 6,5°C sjóinn, tvær seinni í lónið. Ég var komin heim milli hálfsjö og sjö. Bíllinn rétt kominn niður í 46% en af því að það var laust á staurnum ákvað ég að stinga honum í hleðslu. Nú á ég bara eftir að ákveða hvort ég hleð upp í 85 eða 95 prósent.
28.4.26
Í sjóinn eftir vinnu
Í morgun var ég vöknuð hálftíma á undan klukkunni þrátt fyrir að hafa verið að leysa sudoku og lesa til klukkan langt gengin í ellefu í gærkvöldi. Mætti í vinnu rétt fyrir hálf. Afleysingaskoðunarmaðurinn mætti korter í átta og fékk að vera með okkur til klukkan að verða þrjú en þá var hann sendur í Klettagarða til að klára daginn þar og mun verða þar allan dagin á morgun líka. Annars voru skoðaðir yfir sextíu bílar í dag. M.a. kom ungur maður á bíl pabba síns og ég kannaðist við það nafn. Fékk það staðfest á eigandinn væri jafnaldri minn og stúdenst-útskriftarbróðir frá Selfossi og móðir unga mannsins jafnaldra mín frá Eyrarbakka. Ungi maðurinn er fæddur 2004 og hann var ræðinn, kurteis og skemmtilegur. Eftir að bíllinn sem hann var á hafði verið skoðaður kom hann svo sérstaklega til mín, tók í hendina á mér, þakkaði fyrir spjallið og sagðist skyldu skila kveðju til foreldra sinna. Ég gekk frá afgreiðslunni og kaffinu og stimplaði mig út á slaginu hálffimm. Þá var stöðvarstjórinn að skoða síðasta bílinn. Var mætt í Nauthólsvík á háflóði rétt fyrir fimm og skellti mér tvisvar út í 7°C sjóinn og hoppaði og svamlaði aðeins um í ölduganginum. Kom heim um sex leytið og fékk mér helminginn af afganginum af plokkfiskinum kaldan um sjö. Tvíburahálfsystir mín hringdi í mig um hálfátta leytið. Við spjölluðum saman í rúman klukkutíma og hefðum spjallað lendur ef ég hefði ekki verið komin í spreng.
27.4.26
Bókasafnsferð eftir vinnu
Ég hrökk upp rétt fyrir hálfsjö um það bil sjö mínútum áður en vekjarinn átti að ýta við mér. Var mætt í vinnu um klukkutía síðar. Korteri eftir að ég stimplaði mig inn mætti afleysingamaðurinn og hann fékk að vera með okkur í allan dag og verður með okkur alla vikuna. Stöðvarstrjórinn ungi þurfti að skreppa þrisvar sinnum frá í dag. Eitt skreppið var í bankann fyrir mig til að sækja skiptimynt í seðlum því ég var búin með alla 500 og 1000 kr. seðla, þrátt fyrir að hafa fengi slatta úr bankanum í síðustu viku. Skoðaðir voru rúmlega fimmtíu bílar og gekk allt mjög vel, miklu styttri bið heldur en undanfarið, nema auðvitað þann tíma sem afleysingamaðurinn var einn en það var alls ekki langur tími í heildina. Strax eftir vinnu fór ég beinustu leið í Kringluna á bókasafnið þar. Skilaði öllum bókum sem ég var með og tók fjórar í staðinn; Á meðan hann horfið á þig ertu María mey smásögur eftir Guðrúnu Evu Mínervudóttur, Herranótt eftir Steindór Ívarsson og Voðaskot og Eyja eftir Katrine Engberg. Allt bækur sem ég má hafa í 30 daga og get framlengt um aðra þrjátíu ef ég þarf. Á heimleiðinni hringdi ég í pabba og spjallaði við hann. Vissi að hann átti von á heimsókn frá hjúkrunarfræðing í morgun og vildi fá að heyra hvernig gekk. Heimsóknin varði í uþb tvo tíma og var pabbi spurður út úr og einnig beðinn um að gera ákveðin verkefni. Fljótlega eftir að ég kom heim hringdi ég í Önnu Önfjörð systurdóttir mömmu og spjallaði dágóða stund við hana. Og næstum strax eftir að hafa spjallað við hana hringdi ég í eina fyrrum samstarfskonu mína sem er með mér og fjórum öðrum í hóp sem við köllum Sex svani. Átti mjög gott spjall við hana og fljótlega eftir að því spjalli lauk var hún búin að pósta á hópinn okkar og bjóða okkur til sín í næstu viku. Hafði plokkfisk í kvöldmatinn. Fékk mér tvisvar á diskinn en á helling eftir í afgang sem dugar líklega í tvö skipti.
26.4.26
Komin heim
Rumskaði rétt fyrir sjö en velti mér á hina hliðina og dormaði áfram í tæpan klukkutíma. Pabbi var kominn á fætur þegar ég kom fram um átta. Morguninn frekar rólegur hjá okkur. Var eitthvað í tölvunni, smá að leggja kapla en aðallega vorum við að hlusta á "Fyrst á fætur!", með Huldu Geirsdóttur á Rás 2. Pabbi bauð upp á soðið, saltað folaldakjöt með venjulegum kartöflum og sætri kartöflu í hádeginu. Eftir hádegisfréttir drifum við okkur út og hjálpuðumst að við að skola af gluggum á þremur hliðum af fjórum. Slepptum hliðinni sem snýr út í garð enda voru þeir gluggar ekkert svo skítugir. Fljótlega eftir að við komum inn aftur hafði móðursystir mín samband, hringdi í gegnum facebook spjallið, og við spjölluðum saman í rúmlega klukkustund. Klukkan var að byrja að ganga fimm þegar ég tók mig saman og kvaddi pabba. Ákvað að keyra á Selfoss á 55% tanknum. Lenti svo í smá hleðsluævintýri, það var annað stæðið laust á hraðhleðslustöð ísorku við Olís. Eins og ég lagði við það þá náði kapallinn ekki alveg að innstungunni í bílinn. Skrapp þá sem snöggvast á atlantsolíustöðina. Þar voru allar fjórar stöðvarnar lausar en ég var ekki búin að setja upp appið og fann ekki út hvort eða hvernig ég gæti nýtt mér eina stöðina. Keyrði framhjá Olís aftur, þar voru báðar stöðvar uppteknar. Komst á stæði við KFC en þegar ég ætlaði að fara að tengja kom maður í dyrnar og sagði að þetta væri ekki að virka, amk ekki þau tengi sem ég lagði við. Endaði því aftur á Olís vestan við Ölfusá og þurfti að bíða í smástund eftir að annað stæðið losnaði. Hlóð bílinn upp í 90% á 25 mínútum. Klukkan var að verða sjö þegar ég kom heim. Bíllinn kominn niður í 71% og það á að duga í amk 3-4 daga.
25.4.26
Á Hellu
Mikið var skrýtið að sleppa sundinu í morgun. Var vöknuð um hálfsjö og komin á fætur um átta. Fór ekki úr húsi fyrr en upp úr klukkan hálftíu. Þá var ég búin að pakka niður í tösku og tók hana með, ásamt íslensku útgáfunni af Kon-Tiki. Var komin til Inger rétt fyrir tíu. Við lásum síðustu blaðsíðurnar í báðum útgáfunum af Kon-Tiki á tæpum klukkutíma. Kvaddi um hálf tólf og byrjaði á því að fara á þvottastöðina Löður, færibandið, við Fiskislóð. Kom svo aðeins við í Krónunni þarna skammt frá og varð mikið glöð þegar ég sá að þar var hreint kókosvatn í lítersumbúðum komið aftur í hillur. Á leiðinni út úr bænum spjallaði ég aðeins við Huldu frænku. Gerði gott stopp í Fossheiðinni og var svo komin til pabba um hálfþrjú. Þá var bíllinn kominn í 55%. Var annars að enda við að horfa á fyrri undanúrslitaleikinn í meistaradeild kvenna í fótbolta, milli Barcelona og Bayern Munchen en Glódís okkar Viggósdóttir er fyrirliði í síðarnefnda liðinu.
24.4.26
Í klippingu eftir vinnu
Nú þegar árskortið mitt í sund er útrunnið og ég hef tekið þá ákvörðun að endurnýja það ekki fyrr en eftir miðjan maí, lá mér ekkert á að vakna eldsnemma í morgun. Man samt að ég þurfti á salrenið fyrir klukkan tvö í nótt og ég vissi svo aftur af mér um fimm leytið. Steinsofnaði þó aftur og var að dreyma eitthvað furðulegt þegar vekjarinn hringdi tuttugu mínútum fyrir sjö. Mætti í vinnu tæpum klukkutíma síðar. Það var nóg að gera í skoðunum í allan dag, 22 bílar fyrir hádegi milli átta og tólf og 25 bílar milli hálfeitt og fjögur, alls 47 bílar. Engir í breytingaskoðun, flestir í A1 en nokkrir í endurskoðun. Stimplaði mig út rétt rúmlega fjögur. Átti tíma í klippingu klukkan hálffimm. Var mætt á staðinn korter yfir fjögur og fékk mér vatnsglas á meðan ég beið. Festi næsta klippitíma eftir nákvæmlega sex vikur, fyrsta föstudaginn í júní. Á leiðinni heim hringdi ég bæði í pabba og Odd. Það var laust á hleðslustaurnum á planinu og ég ákvað að nýta mér það. Hafði bílinn í hleðslu í rúma fjóra tíma fyrir rúmlega fjögurhundruð krónur.
23.4.26
Sumardagurinn fyrsti
Vaknaði heldur snemma eða rétt fyrir sjö. Skömmu síðar varð ég vör við að ruslabíll var á ferðinni. Fór á fætur upp úr klukkan átta og bjó mér til tvo skammta af hafragraut. Helmingurinn fór í skál og inn í ísskáp en hinn helminginn borðaði ég og hafði einnig lifrarpylsu sneið með. Rétt fyrir ellefu var ég mætt fyrir utan Laugardalslaugina. Við kaldapotts vinkona mín vorum búnar að mæla okkur mót við opnun. Hún ákvað að sleppa sundinu en beið eftir mér í heita pottinum á meðan ég synti 300m. Eftir fyrstu ferðina í þann kalda hittum við eina systur hennar í pottinum við hliðina. Fórum því í sjópottinn eftir næstu ferð í þann kalda. Ég fór upp úr milli tólf og hálfeitt. Þá vorum við búnar að fara tvær ferðir í viðbót í þann kalda og gufuna. Þvoði mér um hárið og fór svo beinustu leið heim. Var ekki með nein sérstök plön en dagurinn leið engu að síður alltof hratt við að gera ekkert sérstakt sem skrifandi er um.
22.4.26
Síðasti vetrardagur
Var vöknuð fyrir klukkan hálfsex. Eftir morgundaginn rennur árskortið í sund út og ég ætlaði að nýta þessi tvö skipti. Tók sunddótið með mér en skildi eftir sjósundsdótið. Þegar ég mætti í Laugardalinn um hálfsjö voru allir sem voru á húninum að hverfa frá, það var víst lokað vegna bilunar og manneklu. Ég vissi að ég hefði eiginlega of lítinn tíma til að fara frekar í Sundhöllina og ekki tók því heldur að fara heim aftur. Bíllinn var í 50% en ég ákvað samt að skreppa á Olís við Álfheima og stinga bílnum í samband við hraðhleðslutöð Ísorku í smá stund, nánar til tekið í um tuttugu og fimm mínútur, bætti um 30% á hann. Fékk mér smá göngutúr á meðan. Kom aðeins við í Hagkaup í Skeifunni, aðallega til að athuga hvort hægt væri að fá hreint kókosvatn. Keypti tvær hálfs lítra fernur, C vítamín og tvennt annað. Var mætt í vinnuna fyrir klukkan hálfátta. Rúmlega hálfátta mætti afleysingaskoðunarmaður sem átti að vera hjá okkur á stöð 37 í dag. Hann fékk að skoða hálfan bíl áður en hann var sendur til að aðstoða við skoðun í Hádegismóum, svo hann var ekki einu sinni klukkutíma á staðnum. Um tíu leytið duttu kerfin hjá samgöngustofu út svo það var ekki hægt að gera afgreiðslu eða skoða bíla í rúma klukkustund. Á meðan þetta ástand varaði skrapp stöðvarstjórinn í bankann og Bónus. Kerfin voru farin að virka aftur upp úr klukkan ellefu. Davíð Steinn kom með sinn bíl í frískoðun um hálftólf. Það kom í ljós að stöðvarstjórinn og hann könnuðust hvor við annan, sá fyrrnefndi var stundum að leigja kerrur hjá N1 við Gagnveg áður en kerruleigan var lögð niður. Annars voru skoðaðir heldur færri bílar en undanfarið, fóru þó upp í 34. Eftir vinnu fór ég beint í Hátúnið í osteostrong. Var eitthvað að spá í að fara í sund en ákvað að "lulla" mér heim í traffíkinni. Notaði tækifærið og hringdi og spjallaði við pabba og Ellu vinkonu á leiðinni.
21.4.26
Styttist í norðurferð
Vaknaði stuttu fyrir hálfsex í morgun. Sinnti morgunverkunum í rólegheitunum og var svo mætt í sund um hálfsjö. Sundrútínan svipuð og í gær nema ég fór í gufu í staðinn fyrir sjópottinn. Það var jafn erilsamt í vinnunni og undanfarið, skoðaðir voru rétt yfir 40 bílar og það var einnig nokkuð um símsvörun og bílnúmera viðskipti. Var búin í vinnu rúmlega hálffimm, þá var verið að skoða 41. og síðasta bíl dagsins en bíllinn sem var skráður síðastur inn og no 42 í röðinni var skilinn eftir til morguns því sá sem kom með hann var að sækja aðra tvo sem voru skoðaðir í dag. Eftir vinnu kom ég bæði við í Krónunni í Skeifunni og Fiskbúð Fúsa áður en ég fór heim.
20.4.26
Blóðbankinn heimsóttur í sjötugastaogfyrsta sinn
Vekjarinn vakti mig korter fyrir sex. Var að dreyma eitthvað stórfurðulegt sem ég man ekki lengur hvað var. Mætti í sund um leið og opnaði klukkan hálfsjö. Var með svipaða rútínu og á föstudagsmorguninn. Stimplaði mig inn í vinnu um tuttugu mínútum fyrir átta og var búin að hella uppá, gera upp kassann, kveikja á pressunni og starta tölvuforritunum í afgreiðslunni þegar stöðvarstjórinn mætti rétt fyrir átta. Það er óhætt að segja að dagurinn hafi verið erilsamur, sérstaklega fyrir skoðunarmanninn. Átján bílar fyrir hádegi og 23 eftir hádegi. Minni vinnu lauk um hálffimm og fór ég beinustu leið í Kringluna og í Blóðbankann. Allt gekk eins og í sögu, stungan, steymið og gjöfin. Þegar ég var á leiðinni úr Kringlunni hitti ég örstutt á yngri systurdóttur mína, svona knús, hæ og bæ. Var komin heim um sex leytið og er búin að taka því rólega síðan. Eldaði mér þó fiskibollur í kvöldmat og borðaði hluta af afgang af sætkartöflumús frá því um helgina með.
19.4.26
Þungbúið verðu en vor í lofti
Vaknaði um sjö leytið en fór ekki á fætur fyrr en tæpum tveimur tímum síðar. Oddur vaknaði ekki fyrr en ég var búin að búa til hafragraut, borða helmigninn af honum og að undirbúa mig undir sundferð og esperanto hitting. Hann var ekki viss hvenær hann myndi fara svo ég kvaddi hann til öryggis. Synti 500m, flesta á bringunni en þó 50 síðustu metrana skriðsund. Gaf mér einnig góða rútínu í pottaferðir og gufu. Var mætt á Sólvallagötuna rétt rúmlega tólf. Við Inger fengum okkur fíflate. Náðum ekki að klára bókina að aðeins eru um 4 bls eftir svo við klárum næst. Oddur var á leiðinni í strætó þegar ég var næstum komin heim og ég ákvað að skutla honum í Mosfellsbæinn, hann getur alltaf nýtt strætóferðina síðar þar sem hann var ekki búinn að virkja ferðina sem hann var búinn að greiða fyrir. Ég kom heim um tvöleytið og sá þá sms skilaboð frá fulltrúa fjölmiðlamælisins. Svaraði skilaboðunum og ekkert löngu síðar kom hann við, tók gamla tækið og færði mér nýtt ásamt apparati sem þarf að vera í sambandi í íbúðinni. Það má þó færa það apparat með sér, amk innan lands.
18.4.26
Laugardagur
Vaknaði rétt fyrir sjö. Fór á fætur rúmum hálftíma síðar, sinnt morgunverkunum á baðherberginu, tók til sunddótið, fékk mér vatnsglas og dreif mig svo í sund. Gaf mér góðan tíma í alla rútínu. Synti 500m, flesta á bakinu, fór nokkrum sinnum í kalda pottinn, smástund í gufuna og dágóðastund í sjópottinn því þar hitti ég m.a. yngstu mágkonu mömmu og átti gott spjall við hana og reyndar fleiri. Kom heim um hálfellefu. Oddur var vaknaður en ekki búinn að fá sér neitt. Ég bjó til hafragraut og hafði lifrapylsusneiðar og ferskar sveskjur til hliðar. Um eitt leytið skruppum við út í smá göngu. Tókum með okkur poka af tómum dósum. Dósagámurinn hinum megin við götuna var fullur. Enduðum á því að labba við í Sorpu við Dalveg (með smá krók framhjá Smáralindinni). Annars leið dagurinn alveg ótrúlega hratt yfir alls konar smá dútli og spjalli og þáttaglápi. Bjó til sæt-kartöflumús og steikti nokkrar sneiðar af blóðmör í kvöldmatinn.
17.4.26
Helgarfrí
Vekjaraklukkan vakti mig korter fyrir sex og ég var mætt í sund þremur korterum seinna. Breytti til að þessu sinni, fór tvisvar í þann kalda og einu sinni í þann heitasta áður en ég fór á braut 7 og synti 200m. Hafði svo samt tíma til að fara tvisvar aftur í kalda pottinn, 7 mínútur í gufu og aðrar 7 í sjópottinn. Stimplaði mig inn tuttugu mínútum fyrir átta. Vinnudagurinn var nokkuð hefðbundinn, dagarnir eru þó aldrei alveg eins. Í dag voru skoðaði 34 bílar, eitthvað var um síma- og bílnúmera afgreiðslur og starfsmannastjórinn hringdi sérstaklega í mig. Vildi athuga með mig þar sem hún hafði frétt af því að einn vinnudagurinn í vikunni endaði með því að hringja þurfti á lögguna út af mjög reiðum kúnna. En ég er búin að skrifa um það sama dag og það gerðist. Ég stimplaði mig út klukkan fjögur, stöðvarstjórinn ætlaði að vera aðeins lengur og þrífa stöðina. Ég kom aðeins við í N1 í Borgartúni og heilsaði upp á Davíð Stein. Stoppaði ekki lengi og var komin heim um hálffimm. Bíllinn var í 42%, laust var á staurnum og ég ákvað að nýta mér það. Oddur Smári kom um hálfsex leytið. Hann ætlar að fá að gista hérna næstu tvær nætur. Ég hafði soðna bleikju með kúlukáli, soðnum lauk, súrkáli, svörtum ólífum og piccalo tómötum í matinn. Bíllinn er að verða full hlaðinn, Ford-appið segir að ég geti haft hann í 15 mínútur í viðbót, prósentan er samt komin upp í 99 og heildar km sagðir 311. Það verður fróðlegt að vita hvernig áhrif hlýnandi veður og sumardekk hafa á drægni bílsins.
16.4.26
Dagurinn hófst með sundferð
Var um það bil að rumska þegar vekjarinn ýtti betur við mér korter fyrir sex í morgun. Þremur korterum síðar var ég komin í sund. Synti 300m á braut 7, fór þrisvar í þann kalda, einu sinni í heitasta, sjö mínútur í gufu og sjö mínútur í sjópottinn. Stimplaði mig inn í vinnu tuttugu mínútum fyrir átta. Vinnudagurinn var heldur rólegri en þó alveg í nokkur horn að líta og skoðaðir voru 35 bílar. Eftir vinnu fór ég beint heim. Stoppaði ekki heim nema í rúman klukkutíma, var mætt á Kirkjustétt í fullum skrúða korter yfir sex. Er rétt nýlega komin heim aftur eftir góðan fund og hitting í góðum hópi.
15.4.26
Aðalfundur húsfélagsins
Þegar vekjarinn hringdi klukkan korter í sex í morgun, slökkti ég strax á honum, hugsaði mig um í augnablik og endurstillti hann svo á 7:40. Sleppti því semsagt að fara í sund í morgun þótt ég vissi að ég kæmist ekki í sjóinn eftir vinnu og osteostrong. Mætti í vinnu rétt fyrir klukkan hálfátta. 17 bílar voru skoðaðir fyrir hádegi og 26 eftir hádegi. Líka var eitthvað um aðra afgreiðslu. M.a. kom maður sem hugðist sækja númer af kerru sem hann sagðist hafa lagt inn hjá mér í febrúar. Ég fann engin merki um þetta númer og gat ómögulega munað eftir þessu. Þar sem engin plata fannst ákvað maðurinn að panta nýja og borgaði að sjálfsögðu fyrir. Hann kom þó fljótlega til baka aftur og fékk endurgreitt því platan hafði fundist í bíl kunninga hans. Ekki furða að ég myndi ekki eftir þessu og ég var fegin að vera ekki búin að senda skeyti fyrir pöntuninni. Vinnudagurinn endaði eiginlega í háa lofti vegna óánægðs viðskiptavins sem kom fimm mínútum fyrir lokun, þegar verið var að skoða síðasta bílinn og við hætt að bóka inn. Hann vildi meina að þar sem klukkan væri ekki orðin ættum við að bóka bílinn inn og skoða hann fyrir hann. Hann var frekar dónalegur við mig en þegar skoðunarmaðurinn kom í gættina og spurði hvort ekki væri allt í lagi varð hann fljótlega mjög ógnandi við hann, hækkaði róminn og endurtók að hann hefði komið fyrir lokun og ætti rétt á að fá skoðun. Hann snautaðist ekki í burtu fyrr en stöðvarstjóinn ungi hringdi í lögregluna. Lögreglan var fljót á vettvang en óánægði kúnninn var þá farinn. Ég stimplaði mig út rúmlega hálffimm en var mætt í osteostrong stuttu fyrir fimm og komin heim rúmlega hálfsex. Klukkan sex hófst aðalfundur húsfélagsins sem var boðaður fyrir nokkru síðan. Við mættum einungis úr sex íbúðum af 33, sex manns og svo maður frá Eignarekstri sem hélt utan um fundinn. Formaður húsfélagsins sl ár var veikur og gaf heldur ekki kost á sér í áfram, hafði ætlað að hætta í fyrravor. Þótt við værum svona fá slapp ég við að festa mig í hlutverki, sagðist ekki vilja taka svona að mér í bráð. Það fengust þrjár konur í stjórn og við hin þrjú þökkuðum þeim fyrir að taka þetta að sér og sögðumst styðja þær100%. Hússjóðurinn er orðinn frekar "bólginn" vegna framkvæmdaleysis eða verkefna sem áttu að vera á döfinni en hafa ekki verið samþykkt. Lögðum drög að nokkrum verkefnum sem fara verður í, sum mjög fljótlega. Einnig var talað um að hafa samband við lóðaeigendur og formenn í nr 2 og 4 til að athuga hvort ekki megi setja upp fleiri hleðslustaura. Rafbílunum er að fjölga og þessi eini staur sem er á planinu fyrir 2-6 er bara með tvær innstungur.
Gestir í heimsókn í gærkvöldi
Í gærmorgun vaknaði ég rétt áður en vekjarinn átti að ýta við mér. Var mætt á húninn fimm mínútum áður en opnaði í Laugardalslaug. Þar fékk ég að faðma eina sem er fastagestur og var að missa manninn sinn í fyrradag. Var komin á braut 7 tuttugu mínútum fyrir sjö. Synti 300m til að hafa góðan tíma í pottarútínu. Mætti í vinnu tuttugu mínútum fyrir átta og var búin að hella upp á, gera upp og fleira þegar ungi stöðvarstjórinn mætti rétt fyrir átta. Alls voru um 40 skoðanir í gær, þar af 15 fyrir hádegi. Eftir vinnu fór ég beint upp á Bíldshöfða þar sem ég fékk sumardekkin undir bílinn hjá N1 og þeir settu nagladekkin á dekkjahótelið sitt. Kom aðeins við í Krónunni upp á Höfða en var komin heim fyrir klukkan hálfsjö. Átti von á gestum, frænku minni og norskum manni hennar. Frænka mín hafði samband um sjö, ekki hætt við en sagðist tefjast aðeins. Þau komu á níunda tímanum og gerðu mjög gott stopp. Það var ekki fyrr en ég var komin upp í um hálfellefu leytið að ég fór að hugsa um að ég hefði ekki sett inn neina færslu. Kannski verða þær bara tvær í staðinn í dag.
13.4.26
Ný vinnuvika hafin
Ég vaknaði upp úr klukkan sex, amk hálftíma á undan vekjaraklukkunni. Var mætt í vinnu rúmlega hálfátta. Þar var búið að þrífa flest öll gólf og tæma ruslafötur. Ég hellti upp á kaffi og gerði afgreiðsluforritin klár. Stöðvarstjórinn mætti nokkrum mínútum fyrir átta. Hann hafði komið um helgina og tók tveggja tíma törn í að þrífa. Annars var rólegt hjá okkur fyrstu þrjú korterin. 13 bílar voru skoðaðir fram að hádegi. Eftir hádegi var öllu meiri traffík og lítið sem ekkert um skoðunarpásur. Það var líka smá erill á tímabili í öðrum afgreiðslum hjá mér. Eftir vinnu fór ég beint í sund. Kalda potts vinkona mín var mætt á undan mér og ég ákvað að sleppa sundinu og fara beint í potta-rútínuna með henni. Kom heim um hálfsjö. Davíð Steinn sendi mér snapp af upplýsingum um hans 3. innlögn í besta bankann, Blóðbankann.
12.4.26
Labbaði yfir til Reykjavíkur
Ég fór ekki að sofa fyrr en stuttu fyrir miðnætti í gærkvöldi. "Festist" yfir söngvakepnni framhaldsskólanna sem var ekki búin fyrr en um hálftólf. Gerði tilraun til að lesa í smá stund en það voru ekki margar blaðsíður. Er að lesa Blóð hraustra manna eftir Óttar Norðfjörð. Vaknaði um sjö leytið og var komin á fætur upp úr klukkan átta. Um hálftíu lagði ég af stað í sund. Hafði mælt mér mót við kaldapotts vinkonu mína og við hittumst við sturturnar. Ég var aðeins á undan á svæðið en hún var á undan út því ég hitti yngstu mágkonu mömmu á þurrksvæðinu fyrir framan sturturnar og spjallaði aðeins við hana. Hún var að koma upp úr. Ég fór svo á braut 7 og synti 500m, flesta á bakinu. Hrafnhildur var á braut 8 en hún hætti að synda aðeins á undan mér og skrapp aðeins í heitasta pottinn. Við hittumst svo í kalda pottinum. Kom heim um tólf. Um þrjú skrapp ég út og fékk mér göngu yfir í Seljahverfið og til baka. Afar hressandi. Um það leyti sem ég kom heim aftur var landsleikur kvenna í handbolta að byrja. Hætti að horfa í smá stund þegar staðan var 4:1 fyrir Portúgal. Mér leist ekkert á blikuna. En þegar ég skipti aftur yfir á boltann var staðan 11:12 og í næstu sóknum jöfnuðu okkar stelpur og "sigldu" fram úr. Leikurinn vannst sem þýðir að stelpurnar eru komnar inn á Evrópumótið seint á árinu.
11.4.26
Laugardagur
Ég var vöknuð um hálfsjö, komin á fætur upp úr klukkan sjö og mætt í sund um átta. Að þessu sinni synti ég 600m á braut 7 og gaf mér ágætis tíma í potta og gufurútínu áður en ég fór upp úr. Þvoði mér um hárið og var mætt á Sólvallagötuna um 10. Setti bílinn í samband við annan staurinn á planinu. Við Inger erum nú langt komnar með Kon-Tiki, klárum næst eða þarnæst, eitthvað innan við 10 bls. eftir. Erum vissar um að þrátt fyrir að hafa lesið bókina amk þrisvar og séð myndina tvisvar þá eigum við örugglega eftir að lesa esperanto útgáfuna aftur. Kvaddi um hálftólf. Fór með bílinn í gegnum þvottastöðina Löður við Fiskislóð. Kíkti svo aðeins í Krónuna við Granda, aðallega til að athuga hvort þar fengist kókosvatn sem var því miður ekki. Kom heim fyrir klukkan hálfeitt og ákvað að bæta við hleðsluna fyrst það var laust á staurnum. Hlóð úr tæpum 60% í 100% á um fjórum tímum. Á eftir ákvað ég að leggja bílnum á stæði á efra planinu og skreppa svo aðeins í stuttan göngutúr.
10.4.26
Föstudagskvöld
Vaknaði stuttu áður en vekjaraklukkan átti að ýta við mér. Ég var svo mætt í sund um leið og opnaði klukkan hálfsjö. Synti 300m, fór tvær ferðir í kalda, smá stund í gufu og hitti svo frænku kaldapotts vinkonu minnar í sjópottinum. Var mætt í vinnu tuttugu mínútum fyrir átta. Erillinn í vinnunni var heldur minni en undanfarna daga en þó voru hátt í fjörutíu bílar skoðaðir. Rétt eftir hádegi hringdi Hulda systurdóttir mín í mig til að segja mér frá hvernig gekk í snemm-sónar skoðuninni og staðfesta að ég verð ömmusystir síðar á árinu. Vinnudegi lauk á slaginu fjögur og ég fór beinustu leið heim eftir vinnu. Hringdi bæði í pabba og Odd Smára á leiðinni.
9.4.26
Björgvin Halldórsson fallinn frá
Vekjarinn ýtti við mér klukkan korter fyrir sex. Í eitt augnablik var ég að spá í að kúra lengur en ákvað svo að drífa mig á fætur til að geta byrjað daginn í sundi. Var mætt á planið við Laugardalslaug þremur mínútum áður en opnaði og rúmum tíu mínútum síðar var ég komin á braut 8. Synti 300m, fór þrisvar sinnum í kalda pottinn, einu sinni í þann heitasta og var næstum korter í sjópottinum. Mætti Nonna, klipparanum mínum, þegar ég var að fara upp úr. Stimplaði mig inn í vinnu tuttugu mínútum fyrir átta. Stöðvarstjórinn mætti á slaginu átt. Rólegt var fyrsta hálftímann en í heildina skoðaði hann 42 bíla. Eftir vinnu fór ég fyrst í Fiskbúð Fúsa og keypti m.a. harðfisk og ýsu. Fór því næst í Krónuna í Skeifunni. Klukkan var að verða sex þegar ég kom heim. Gekk frá sunddótinu og vörunum og setti upp ýsu og sauð rósakál. Hafði með þessu svartar ólífur, grænt pestó og klípu af smjöri.
8.4.26
Miðvikudagur
Fór á fætur á svipuðum tíma og í gærmorgun. Fékk mér chiagraut í morgunmat. Tók sjósundsdótið með mér út í bíl og var mætt í vinnu um hálfátta. Það var rólegt fyrsta hálftímann eftir að opnaði en þegar dagurinn endaði um hálffimm höfðu verið skoðaðir 38 bílar, tveimur færri en í gær. Og þessir bílar voru allir skoðaðir af sama skoðunarmanninum. Það var að venju í nokkur horn að líta hjá mér, mis-mörg þó. Fékk stundum lengri pásur heldur en sá sem var í skoðununum, ekkert mjög langar þó. Dagurinn leið mjög hratt. Var mætt í osteostrong tíma korter fyrir fimm, þurfti að bíða í um tíu mínútur áður en ég komst að. Svo var ég komin í Nauthólsvík um hálfsex. Rétt við bílastæðið voru tveir ungir menn og kastaði annar þeirra kveðju á mig og spurði hvort ég væri ekki að vinna hjá Frumherja. Ég játaði því og sýndi honum merkið á vinnupeysunni. Hann hefur semsagt komið með bíl í skoðun í Skeifuna nýlega og mundi eftir mér. Ég fór annars tvisvar sinnum út í 3,4°C sjóinn, gufuna á milli og smá stund í pottinn á eftir. Ætlaði að koma við í Krónunni í Lindum á eftir. Verslunin var alveg opin en frekar tóm. Mér skilst að hún sé að loka í um tvo mánuði vegna breytinga og viðhalds. Ég kom því tómhent heim og versla líklega í Krónunni í Skeifunni eftir vinnu á morgun.
7.4.26
Erill í vinnu og sund á eftir
Vekjarinn hringdi korter fyrir sex, ég slökkti og ákvað að endurstilla vekjarann á 6:40. Var ekki alveg að nenna að drífa mig í sund. Sofnaði aftur en vaknaði fimm mínútum áður en vekjarinn átti að ýta við mér. Tók m.a. til sunddótið og eftir að hafa fengið mér hressingu og lokið við morgunverkin á baðherberginu lagði ég af stað í vinnu. Stimplaði mig inn rúmlega hálfátta. Var búin að hella upp á og undirbúa afgreiðslukerfin þegar ungi stöðvarstjóinn mætti. Klukkan var rétt orðin átta þegar kúnnar fóru að streyma inn og það má eiginlega segja að skoðunarmaðurinn hafi varla sest niður nema þegar hann settist inn í bílana. Lokuðum í rúman hálftíma í hádeginu og hluta af þeim tíma varði stöðvarstjóinn í að versla. Alls voru skoðaðir 40 bílar. Tæpum klukkutíma fyrir lokun mætti Siggi frændi, sá sem er yfir BSK-sviðinu. Áður en hann fór aftur hafði hann spurt mig hvort ég væri ánægð í Skeifunni eða hvort ég myndi vilja flytja mig yfir í afgreiðsluna í Dalshrauni með haustinu. Ég var eiginlega frekar á því að halda mig við Skeifuna en má alveg hugsa þetta eitthvað. Stimplaði mig út á slaginu hálffimm og fór beinustu leið í Laugardalinn. Varð reyndar að leggja aðeins lengra en ég var komin inn í klefa tíu mínútum fyrir fimm. Kalda potts vinkona mín kom nánast á sama tíma en hún varð á undan út. Ég tók þá ákvörðun að sleppa því að synda og byrja strax á pottarútínunni. Fórum 4 sinnum í þann kalda, tvisvar í þann heitasta og einu sinni í sjópottinn. Ég kvaddi um sex og kom við á PreppBarnum á leiðinni heim. Staurinn var laus og bíllinn er búinn að vera í hleðslu síðan rétt fyrir klukkan sjö, kominn upp í 81%. Nú er bara spurning hversu lengi enn ég ætla að hlaða því þótt ég geti alveg stoppað hleðsluna hvenær sem er vil ég helst ekki "teppa" staurinn í alla nótt og heldur ekki láta hleðslusnúruna vera í staur og bíl þegar ég er hætt að hlaða.
6.4.26
Innipúki
Dagurinn er langt frá því að vera búinn og hann byrjaði í seinna fallinu. Rumskaði vísu aðeins rétt fyrir hálfsjö en vaknaði svo um níu. Fór alls ekki strax fram úr en loksins þegar ég dreif mig á fætur ákvað ég að fara í sturtu, þvo á mér hárið og skafa handakrikana. Burstaði tennur, fékk mér vatnsglas og epli og kom mér svo fyrir í stofustólnum. Það var ekki fyrr en upp úr klukkan eitt að ég útbjó mér hádegishressingu úr hluta af afgangnum af lærinu og meðlæti. Útivera freistar mín ekki neitt og bíllinn er í 53% sem dugar alveg til og frá vinnu á morgun og meira til. Ætla að leyfa mér að halda áfram að vera löt í dag.
5.4.26
Komin heim
Heyrði stofuklukkuna slá sex högg þegar ég rumskaði fyrst í morgun. Sofnaði eiginlega strax aftur og fór ekki á fætur fyrr en klukkan var byrjuð að ganga níu. Pabbi var löngu kominn á fætur og búinn að setja bláberjakryddað lambalæri í ofninn. Ég fékk mér harðsoðið egg, vítamín og vatnsglas áður en ég tannburstaði mig. Svo lagði ég helling af köplum og leysti sudoku gátur. Um hálfhellefu afhýddi ég sæta kratöflu, skar í bita og gufusauð. Bjó til sósu um ellefu leytið og lagði á borð og við pabbi borðuðum um hálftólf. Hjálpuðumst svo að við að ganga frá á eftir. Fljótlega eftir að hádegisfréttir voru búnar kvaddi ég pabba og var komin heim um tvö. Einhvern veginn hefur tíminn svo flogið frá mér við alls konar dundur en aðallega slökun. Var samt búin að slaka vel á fyrir austan.
4.4.26
Fjórði fjórði
Heyrði stofuklukkuna slá 6 högg og smástund (að mér fannst) síðar fannst mér hún slá átta högg. Reyndar voru það líklega bara sjö högg en ég missti af skiptunum sem klukkan sló hálf sjö og hálfátta. Þegar ég vaknaði betur og var að verða tilbúin í daginn sló klukkan átta högg. Var komin á fætur fyrir klukkan hálfníu. Morgunin fór í ýmislegt dundur, í tölvu, leggja kapla og lesa. Um eitt leytið skruppum við pabbi í búðina. Jóna Mæja hringdi í pabba á meðan við vorum úr búðinni og niðurstaðan var sú að þau Reynir kæmu í heimsókn seinni partinn. Þau komu um fjögur. Fengu kaffi og um fimm leytið hjálpuðumst við Jóna Mæja við að setja skera niður rófur og kartöflur og gufusjóða og setja upp saltfisk. Vorum mátulega búin að borða og vaska upp þegar kvöldfréttir sjónvarps hófust. Eftir fréttir spurði pabbi hvort þau vildu horfa á þáttinn um Grindavík sem var sýndur í sjónvarpinu í gærkvöldi. Þau vildu það og við pabbi horfðum aftur á þáttinn með þeim. Mjög góð heimildamynd um atburði sem líklega eru ekki alveg búnir. á eftir fengum við okkur ís. Gestirnir kvöddu rétt fyrir tíu. Ég horfði á einn þátt á meðan pabbi settist aðeins við tölvuna. Áður en pabbi dró sig í hlé og bauð góða nótt spurði hann hvort ég ætlaði eitthvað aftur í tölvuna. Ég svaraði játandi að þessu sinni, vildi m.a. skrásetja daginn.
3.4.26
Letidagur
Rumskaði fyrst um sex í morgun. fór á fætur tveimur tímum síðar. Þá var glampandi sól en nokkuð frost og það hafði snjóað. Ég fékk mér klementínu, harsoðið egg og gleypti í mig vítamínin með glasi af vatni á eftir. Svo kveikti ég á tölvunni hans pabba og eyddi næsta klukkutímanum í henni. Ég var sest inn í eldhús og farin að leggja kapla þegar pabbi kom aftur fram um hálftíu, en ég veit að hann var búinn að koma fram löngu fyrr um morguninn. Eldaði handa okkur fisk á pönnu, í hádeginu, ásamt einum lauk og hálfri sætri kartöflu. Dagurinn er svo sem ekki búinn en ég er eiginlega ekki búin að gera neitt af viti, t.d. eins og að skreppa út og fá mér ferkst loft. Ætla samt alls ekki að hafa móral útaf því.
2.4.26
Skírdagskvöld
Þá er ég loksins komin austur á Hellu. Allur mars leið án þess að ég kæmist, ýmist vegna veðurs eða anna. Eitt af því fyrsta sem ég gerði þegar ég fór á fætur í morgun var að taka fram tölvuna og setja inn færslu um gærdaginn. Upp úr klukkan hálftíu hafði esperanto vinkona mín samband. Ég hitaði upp bílinn, tók mig til og var mætt á Sólvallagötuna um tíu. Stakk bílnum í samband við annan staurinn á planinu fyrir utan. Við vorum duglegar í lestrinum, og drukkum fíflate með. Eigum aðeins tuttugu blaðsíður eftir af Kon-Tiki. Kvaddi um hálf tólf leytið. Bíllinn var kominn í 83%. Ég fór beinustu leið heim aftur og lagði á efra planinu. Það snjóaði og snjóaði en um tvö leytið gafst ég upp á að bíða eftir að hætti að snjóa. Hringdi í pabba, kláraði að pakka niður fyrir nokkra daga og lagði af stað úr bænum. Á Sandskeiðinu og allt upp að brekkunni við Hveradali voru tvö snjóruðningstæki að moka. Það hélt áfram að snjóa og létti ekki til fyrr en ég var komin yfir Hellisheiðina. Gerði gott stopp í Fossheiðinni, skilaði af mér lánsbókinni. Það var fínasta veður á Selfossi og í Árnessýslunni en fljótlega eftir að ég kom yfir í Rangárvallarsýsluna keyrði ég inn í snjóbakka sem náði líklega eitthvað austur fyrir Hellu. Sá að það var laust á hraðhleðslustöðinni við Olís. Bíllinn var kominn í 35% og ég ákvað að stinga honum í samband og hlaða í hálftíma, komst þá upp í 90%. Á meðan ég beið eftir hleðslunni kíkti ég í sjoppuna og fór einnig í stuttan göngutúr. Var komin til pabba um sex.
Skírdagsmorgun
Já, það fór svo að ég tók ekki fram tölvuna og setti inn færslu eftir að ég kom heim úr vinnu, osteostrong og sjóbusli í gær. Erilsamt var í vinnunni og aðeins einn skoðunarmaður, ungi stöðvarstjórinn. Hann skoðaði yfir 40 bíla í gær. Það voru líka þó nokkrir sem komu eingöngu til að fá skráða kílómetrastöðuna, það var alfarið á minni könnu en ég þurfti þó ekki að fara út og lesa af. Fólk kom með myndir í símanum eða tölur niðurskrifaðar á blað. Eitthvað var um símsvörun, tölvupóst og "tidio-spjallaviðmanneskju". Inn á milli gafst þó tími til að spjalla við suma kúnnana á meðan þeir biðu eftir að bílar þeirra væru skoðaðir. Stimpluðum okkur út, lokuðum og læstum rétt rúmlega hálffimm. Ég fór beint yfir í Hátúnið, hringdi í pabba og spjallaði við hann á meðan ég var á leiðinni. Það kom í ljós að hann hafði gert sér ferð á Selfoss til að fylla á tankinn, versla og svo kom hann við í afgreiðslunni hjá frumherja á Selfossi og fékk skráða km stöðuna án þess að vera rukkaður fyrir þar sem hann nefndi mig á nafn. Ísland.is appið var dottið út hjá honum svo þetta var það besta í stöðunni. Eftir osteostrong tímann fór ég beinustu leið í Nauthólsvík, þar beið kaldapotts vinkona mín eftir mér en hún hafði haft samband fyrr um daginn til að fá það staðfest að ég ætlaði í sjóinn. Við fórum þrisvar sinnum út í 1,4°C sjóinn, þar af tvisvar sinnum í lónið. Það var flóð og stutt út í. Ég var komin heim rétt fyrir sjö. Fékk mér afgang af fiskibollum og sætri kartöflu og plammaði mér svo fyrir framan imbann, var aðallega að horfa á þætti úr sarpi sjónvarps símans. Einhvern tímann upp úr klukkan átta flögraði að mér að taka fram tölvuna og setja inn færslu. Gleymdi mér svo á áhorfinu. Fór í háttinn um tíu. Hálfleysti eina sudoku og las svo smá stund í; Undantekningin eftir Auði Övu Ólafsdóttur.