Vaknaði upp úr klukkan sex, rúmum hálftíma áður en vekjarinn átti að ýta við mér. Það gaf mér smá stund til að lesa áður en ég lagði af stað í vinnuna, þ.e. eftir að ég hafði sinnt morgunverkunum. Tók sjósundsdótið með mér. Stimplaði mig inn í vinnu á slaginu hálfátta. Stöðvarstjórinn var búinn að láta okkur vita að hann kæmi ekki í vinnu fyrstu tímana, kom reyndar aðeins við á tíunda tímanum og fékk þá m.a. innkaupalista. Hann mætti svo klyfjaður um hálftólf. Þá var hinn skoðunarmaðurinn búinn að skoða um sautján bíla og það var smá röð. Rétt rúmlega tuttugu bílar voru skoðaðir fyrir hádegi en eftir hádegispásu hélt "veislan" áfram og í heildina voru skoðaðir fimmtíuogfimm bílar í dag, mjög margir með 7 sem endastaf í númeri. Ég stimplaði mig út á slaginu hálffimm. Hringdi og spjallaði við pabba á meðan ég keyrði áleiðs í Nauthólsvík. Umferðin mikil og frekar hæg en ég fór fyrri ferðina í 9°C sjóinn rúmlega fimm. Kom heim um hálfsjö leytið. Borðaði helminginn af afgangum frá kvöldmatnum í gær, horfði á kafla úr landsleiknum í knattspyrnu karla en var aðallega að horfa á tvo þætti um lögreglumanninn Alex Ridley, sem er eiginlega sestur í helgan stein en er beðinn um að sinna ráðgjafahlutverki í málum sem koma upp. Hvert mál spannar tvo þætti en svo er rauður þráður í gegnum alla seríuna. Á aðeins eftir að horfa á síðustu tvo þættina af átta.
29.9.26
28.9.26
Ný vinnuvika hafin
Vekjarinn ýtti við mér tíu mínútum fyrir klukkan sex í morgun. Um hálfsjö var ég mætt á planið við Laugardalslaug og um sjö var ég búin að synda 500m á um það bil tuttugu mínútum. Stimplaði mig inn í vinnu tuttuguogfjórum mínútum fyrir átta. Morguninn var þokkalega rólegur en þó voru skoðaðir átján bílar. Stöðvarstjórinn skrapp frá um tólf leytið til að leysa af á annarri stöð. Hann var sem betur fer kominn aftur um tvö því það var mikil traffík eftir hádegi, amk fyrir einn mann. Í heildina voru skráðir inn fjörutíuogátta bílar í dag en tvo af þeim verður að handskrá inn og skoða á morgun. Það var alveg í lagi að geyma þá því þeir voru skildir eftir með þeim skilaboðum að þeir yrðu sóttir milli níu og tíu í fyrramálið. Eftir vinnu fór ég beinustu leið vestur í bæ til norsku esperanto vinkonu minnar. Stoppaði hjá henni í rúman klukkutíma. Við lásum hluta af þjóðsögu á esperanto í þýðingu Þórbergs heitins Þórðarsonar. Var komin heim upp úr klukkan hálfsjö. Setti upp fiskibollur í einn pott og sæta kartöflu í bitum í annan pott. Eldaði það mikið að ég á afgang í tvö skipti sem er þægilegt.
27.9.26
Aðeins um föstudaginn og helgina
Fór að heiman korter yfir sex á föstudagsmorguninn og var byrjuð að synda á braut 7 í Laugardalslauginni tuttugu mínútum fyrir sjö. Að þessu sinni synti ég aðeins 400m og var því komin í steinapottinn áður en klukkan var orðin sjö. Stimplaði mig inn í vinnu rúmum þrjátíuogfimm mínútum síðar. Alls voru skoðaðir fjörutíu bílar milli klukkan átta og fjögur. Inn á milli var samt rólegt og við lokuðum að venju í hálftíma í hádeginu.
Var ekki alveg búin að "teikna" upp laugardaginn þegar ég fór á fætur um hálfátta. Vissi að ég þyrfti aðeins að sinna því sem ekki má skrifa um og um níu leytið ákvað ég að fara út og setja bílinn í hleðslu þrátt fyrir að vera í rúmlega 60%. Um eitt fór ég aftur út, tók bílinn úr sambandi og færði hann á annað stæði. Ákvað svo að fá mér göngutúr upp í Seljahverfi og athuga hvort ég fyndi eina frænku mína og jafnöldru heima. Svo reyndist ekki vera en ég hitti aðeins á manninn hennar sem var að sinna bílaþvotti úti á plani. Ég skilaði kveðju til frænku minnar og labbaði nokkurn veginn sömu leið til baka heim. Veðrið var mjög þokkalegt og ef ég hefði ekki verið farinn að finna til óþæginda í einni tánni á vinstra fæti hefði ég líklega tekið lengri göngu. Svo virðist sem það hafi verið smá sandkort eða aðskotahlutu í sokknum sem lenti á milli tveggja táa og nuddaði og meiddi.
Í morgun fór ég á fætur upp úr klukkan átta. Nuddið var enn að trufla og meiða og það endaði með því að ég setti plástur á þá tá sem ég fann mest fyrir, en þó ekki fyrr en um hádegisbilið. Þá var ég búin að fá skilaboð frá frænku minni um að hún hefði fengið kveðjuna frá mér í gær og að hún væri heima í dag. Upp úr klukkan eitt dreif ég mig því aftur í göngutúr yfir til Reykjavíkur og var um tuttuguogfimm mínútur á leiðinni til frænku minnar. Veðrið var yndislegt. Heimsóknin stóð yfir í hátt í tvo tíma og svo labbaði ég aðeins aðra leið heim.
Annars er ég búin að lesa báðar bækurnar sem urðu eftir heima í síðustu bókasafnsferð, aðra skammtímalánsbókina og ljóðabókina. Ég var líka að grufla og ráða í vísbendingakrossgátur með Ellu vinkonu. Hún mun flinkari við að finna réttu svörin en ég næ svona einu og einu inn á milli og finnst stundum ég vera að verða betri í þessu.
24.9.26
Síðasti fimmtudagurinn í september
Ég var líklega sofnuð um tíu leytið í gærkvöldi og svaf alveg til klukkan að verða hálfsex í morgun. Var semsagt vöknuð tæplega hálftíma áður en vekjarinn átti að ýta við mér. Var komin á planið við Laugardalslaug fimm mínútum áður en opnaði. Korteri síðar var ég byrjuð að synda á braut 7. Synti í uþb tuttugu mínútur, 500m, og hitti svo kalda potts vinkonu mína í steina pottinum. Stimplaði mig inn í vinnu rúmlega hálfátta. Það var rólegt framan af og inn á milli, samt voru skoðaðir þrjátíuogfimm bílar í heildina í dag. Eftir vinnu kom ég við í Fiskbúð Fúsa og keypti mér fisk í soðið og harðfisk. Ákvað að kíkja við í Drápuhlíðinni. Einn fyrrum nágranni minn var lasinn en ég hitti á manninn sem keypti af mér 50% af gömlu íbúðinni þegar ég var um það bil að labba í burtu. Ég spurði hann hvort ég mætti kíkja við í smá stund og skoða mig um og það var auðsótt mál. Konan hans, og reyndar stelpurnar og ein vinkona voru heima. Hjónin sýndu mér hvað væri búið að gera og það er ekkert smá kósý hjá þeim. Það er m.a. búið að hækka svalirnar, færa rafmagnstöfluna úr holinu yfir í það sem var búr en er nú líka einhvers konar bókaskápur og fleira og fleira. Stoppaði aðeins í tíu mínútur en þakkaði mikið vel fyrir að fá að skoða mig aðeins um. Gleymdi alveg að taka myndir.
23.9.26
Osteostrong
Yfirleitt sef ég extra vel eftir að hafa skroppið og kælt mig í sjónum. Er ekki viss klukkan hvað ég lagði frá mér bókina í gærkvöldi og fór að sofa. Líklega þó fyrir klukkan hálfellefu. Var fljót að sofna en svo rumskaði ég um eitt leytið og þurfti á pisseríð. Gat ekki með nokkru móti sofnað strax aftur og tel ég það vera vegna þess að ég var forvitin að vita hvernig sagan um Galdra-Imbu endaði. Ég lét það eftir mér að klára að lesa bókina áður en ég gat svo farið að sofa aftur. Þegar vekjarinn hringdi tíu mínútum fyrir klukkan sex fann ég að ég var alls ekki tilbúin að fara á fætur svo ég endurstillti vekjarann og steinsofnaði aftur. Var mætt í vinnu rétt rúmlega hálfátta. Morguninn var í rólegri kantinum, mesta ösin var frá því strax eftir hádegi og til klukkan rúmlega þrjú. Í heildina voru skoðaðir þrjátíuogsex bílar í dag. Ég var með sunddótið meðferðis og var að spá í að skreppa í Árbæjarlaugina eftir vinnu. Held þó að ég hefði endað heima ef ég hefði ekki munað eftir því að ég átti tíma í osteostrong klukkan fimm. Var komin í Hátúnið tíu mínútum fyrir tímann þótt ég færi "lengri" leiðina þangað. Komst strax að. Sló met á einu tæki. Eftir tímann var ég orðin alveg frábitin því að skella mér í sund og fór því beinustu leið heim.
22.9.26
Nauthólsvík eftir vinnu
Klukkan var varla orðin níu þegar ég háttaði upp í rúm í gærkvöldi. Held samt að ég hafi náð að lesa í uþb hálftíma áður en ég lagði frá mér tvær bækur, slökkti ljósin og sofnaði mjög hratt. Vekjarinn var stilltur á sex-fjörutíuogfimm en ég var vöknuð amk hálftíma fyrr. Gaf mér mjög góðan tíma í morgunverkin og las líka í um tíu mínútur áður en ég fór beint í vinnuna. Stimplaði mig inn um hálfátta. Erill var í skoðunum fyrsta klukkutímann, milli átta og níu en í heildina voru skoðaðir þrjátíuogfjórir bílar í dag. Strax eftir vinnu fór ég í Nauthólsvík. Sjórinn sagður 9,6°C, háflóð en var að byrja að fjara út og ég fór tvisvar sinnum fimm mínútur út í, korter í gufuna á milli ferða og annað korter í heita pottinum eftir seinni ferðina áður en ég fór upp úr og heim. Nú er búið að setja upp nafna skiltin í anddyrinu og einnig búið að setja upp skilti með mínu nafni hægra meginn við dyrnar inn í íbúðina mína. Þá þarf ég endilega að fara að drífa í því að laga merkinguna á póstkassanum mínum.
21.9.26
Esperanto hittingur eftir vinnu í dag
Ég ætla að byrja á því að leiðrétta það sem ég skrifaði um fjölda skoðaðra bíla á föstudaginn. Það voru skoðaðir akkúrat þrjátíu bílar þannig að fjöldinn var meiri en "innan við þrjátíu". Annars vaknaði ég heldur snemma í morgun, fyrir klukkan fimm. Fór á pisseríið og fékk mér svo sopa af lýsi en ég náði ekki að kúra mig niður aftur svo ég greip í bók og las þar til rétt áður en vekjarinn átti að ýta við mér. Fékk mér chiagraut með bláberjum í morgunmat og sneið af lifrarpylsu með. Mætti í Laugardalslaugina um leið og opnaði og synti 500m á braut 7. Slakaði á í steinapottinum í rúmar tíu mínútur og spjallaði við nokkra fastagesti. Stimplaði mig inn í vinnu rétt rúmlega hálfátta. Sex áttu bókaða tíma á tímabilinu frá átta fjörutíu og ellefu og tveir eftir hádegi. Einn sem átti bókaðan tíma um níu tuttugu skrópaði, "villtist" yfir í Aðalskoðun eða eitthvað. Í heildina voru skoðaðir þrjátíuogtveir bílar, þar af þrír sem fóru í gegnum skráningaskoðun og einn einungis í breytingaskoðun. Stimplaði mig út á slaginu hálffimm. Var hálftíma úr Skeifunni yfir á Sólvallagötuna. Þar ákvað ég að leggja bílnum við annan hleðslustaurinn og stinga bílnum í samband þótt hann væri í 78%. Á tæpum einum og hálfumtíma fór bíllinn upp í 94%. Var komin heim skömmu fyrir klukkan sjö.
20.9.26
Fartölvan ekki verið tekin fram síðan á fimmtudagskvöldið
Var mætt í sund um hálfsjö á föstudagsmorguninn og í vinnu upp úr klukkan hálfátta. Skoðaðir bílar yfir daginn náðu ekki þrjátíu en þeir voru heldur ekki tveir allan tímann því annar skoðunarmaðurinn hætti um hálfþrjú leytið. Vinnudagurinn leið alveg þokkalega hratt, rólegt, en inn á milli alls konar verkefni. Klukkan var byrjuð að ganga fimm þegar ég stimplaði mig út. Hringdi í eina fyrrum samstarfskonu mína þegar ég var sest upp í bíl og úr varð að ég fór beinustu leið í heimsókn til hennar vestur í bæ. Stoppaði hjá henni í næstum tvo tíma enda höfðum við um margt að spjalla. Laust var á staur þegar ég kom heim svo ég stakk bílnum í samband og hlóð hann upp í 85% á uþb fjórum tímum.
Ekkert varð úr esperanto-hitting á laugardagsmorguninn. En ég var komin snemma á fætur og dútlaði mér við alls konar fram yfir hádegi. Um tvö fékk ég mér göngutúr yfir í Belladonna þar sem ég mátaði nokkrar buxur og keypti mér tvennar fyrir rúmlega fjörutíuþúsund. Labbaði beinustu leið heim aftur. Var í og með að fylgjast með bakgarðshlaupinu, lesa, sauma bleikar kindur í barnateppið og fleira. Tíminn leið alla vega frekar hratt.
Rumskaði alltof snemma eða upp úr klukkan fimm í morgun. Fór á pisseríið og svo fékk ég mér sopa af þorskalýsi og þrjá vatnssopa áður en ég reyndi að kúra mig niður aftur. Það virtist ekki ætla að virka framan af en þó steinsofnaði ég að lokum og ætlaði varla að trúa því að klukkan væri byrjuð að ganga tólf þegar ég vaknaði aftur. Upp úr klukkan tvö tók ég saman bækur af safninu, fjórar af sex, og dreif mig í bókasafnið í Kringlunni. Meiningin var að skila bókunum og helst ekki taka neina eða ekki fleiri en tvær í staðinn. En ég stóðst ekki freistinguna og tók sex bækur, þar af tvær skammtímalánsbækur; Þegar heimurinn fórst eftir Stefán Mána, Galdra-Imba eftir Söndru Bergljótu Calusen, Þagnafár ljóð eftir Garibaldi, Bókafárið mikla eftir Tom Sharpe, Ísbirnirnir eftir Sólveigu Pálsdóttur og Arsenik turninn eftir Anne B. Ragde. Var næstum búin að hætta við þá síðustu því mér tóks ekki að nota sjálfsafgreiðsluna og fór með hana að afgreiðsluborðinu og ætlaði að skilja hana eftir þar. En sá sem tók við bókinni vann einu sinni með mér í RB og hann sá til þess að hún bættist í pokann hjá mér. Áður en ég fór heim aftur kom ég við í Krónunni í Lindum. Lagði bílnum á planinu við anddyrið inn í blokk og fór inn með vörur og bækur. Fékk mér hressingu og kveikti smá stund á sjónvarpinu, bakgarðshlaupinu á rás 8. Um hálfsex fór ég út og færði bílinn á stæði á neðra planinu og fór svo í tæplega hálftíma göngutúr áður en ég fór inn aftur.
17.9.26
Styttist í helgina
Ég var byrjuð að losa svefninn og rumska nokkrum mínútum áður en vekjarinn fór að hamast rétt rúmlega hálfsex í morgun. Í gærkvöldi hafði ég skellt tröllahöfrum, smá haframjöli, chiafræum og salti í skaftpott og bætti 6dl af vatni í til að láta liggja í bleyti inni í ísskáp yfir nóttina. Var enga stund að búa til hafragraut úr þessu eftir að ég kom á fætur. Oddur Smári kom sér á fætur þegar grauturinn var tilbúinn og með þessu fengum við okkur kalda lifrapylsusneið. Ég knúsaði soninn og kvaddi korter yfir sex og var mætt í Laugardalslaugina um það leyti sem var verið að opna. Synti 500m og gleymdi mér svo næstum því á spjalli í steinapottinum. Stimplaði mig inn í vinnu tuttuguogeitthvað mínútum fyrir átta. Rólegt var til að byrja með, einn og einn kúnni og um hálftíu ákvað stöðvarstjórinn að nota tækifærið og fara að láta smíða lykla handa nýjasta skoðunarmanninum. Eftir að hann fór varð renneríið meira og sá nýji stoppaði ekki í einn og hálfan tíma. Í heildina voru skoðaðir þrjátíuogátta bílar í dag. Fór beint heim eftir vinnu. Hringdi í pabba og spjallaði við hann hluta af leiðinni. Stoppaði heima í uþb klukkustund og þegar ég fór út aftur var ég búin að dressa mig upp og tilbúin á fund.
16.9.26
Miðvikudagur kominn að kveldi og stutt í háttatíma
Rumskaði eldsnemma, amk tveimur og hálfum tíma áður en ég ætlaði að vakan og fara á fætur. Fór á pisseríið og svo leið góð stund, eftir að ég skreið aftur upp í rúm, áður en ég sofnaði aftur. Það gerðist þó á endanum og næst vissi ég af mér tuttugu mínútum fyrir sjö þegar vekjarinn ýtti við mér. Stimplaði mig inn í vinnu um hálfátta. Þrjátíu bílar voru skoðaðir í heildina, rólegt inn á milli eins og í gær en stundum í alls konar horn að líta. Það varð annars smá óhapp í morgun er einn kúnninn ætlaði að koma inn um aðra stóru hurðina sem eru opnaðar þegar verið er að fara inn og út með bíla í skoðun eða skoðað, að hann áttaði sig ekki á því að hún var að lokast. Skoðunarmaðurinn sem var að loka var líka byrjaðu að skoða bíl og sá ekki neitt fyrr en óhappið varð. Kúnninn fékk hurðina í sig og smá skurð á nefið. Hann kom samt inn, bókaði inn bílinn í skoðun en var ósáttur með þetta atvik. Ég skildi samt ekki afhverju hann var að kvarta í mér en spurði kurteislega afhverju hann hefði ekki frekar notað innganginn fyrir mannfólkið. Bríet frænka hafði samband um tíu leytið og fékk að senda mér skjal til útprentunnar með með rafrænum pósti. Stimplaði mig út á slaginu hálffimm og var komin í Hátún 12 tæpu korteri síðar og komst beint að í osteostrong tíma. Var því komin á planið við Nauthólsvík tuttugu mínútum yfir fimm. Kalda potts vinkona mín var þegar mætt og komin í pottinn. Fórum tvær ferðir í sjóinn, eina í gufu og svo var ég tæpt korter í heita pottinum áður en ég fór upp úr. Oddur Smári var kominn í bæinn og ég pikkaði hann upp í Mjóddinni. Hann fær gistingu hér í nótt og svo ætlar bróðir hans að skutla honum á Keflavíkurflugvöll í fyrramálið. Aðeins meira um það kannski síðar. Bríet kom við rétt áðan, ásamt vinkonu, stoppaði mjög stutt en hún fékk skjalið, gaf mér gott knús og bað um að fá að sýna vinkonu sinni teppið sem ég er enn með í vinnslu.
15.9.26
Ýmislegt var gert í dag
Dagurinn byrjaði helst til snemma, eða rétt fyrir fimm. Um hálfsex var ég komin á fætur og var þá m.a. búin að greiða mánaðarlega reikninginn af húsnæðisláninu. Rétt rúmlega klukkutíma síðar var ég komin á braut átta í Laugardalslaug þar sem ég synti í tuttugu mínútur. Sat nokkrar mínútur í steinapottinum áður en ég fór upp úr og í vinnuna. Stuttu eftir að við vorum búin að opna kom aðal-kerfisfræðingurinn. Hann var hjá okkur í tæpa þrjá tíma, var að uppfæra og skipta um myndavéla-eftirlitskerfi/ð. Rólegt var í skoðunum til að byrja með og inn á milli og heildarfjöldinn náði ekki alveg 30 bílum. En það var smávegis að gera í annarri afgreiðslu, panta ný númer, afhenda ný númer, afhenda númer úr geymslu og skrá faratæki í umferð, gera millifærslu skv. tölvupóstbeiðnum, svara síma og fleira. Stimplaði mig út á slaginu hálffimm og fór beinustu leið að Vesturbrún 30 en klukkan fimm hófst útgáfuteiti í Áskirkju í tilefni útgáfu bókar sem ein frænka mín skrifaði; Traustabrestir eftir Sigurrós Jónu Oddsdóttur. Einskonar sannsöguleg saga með skáldaleyfi. Hitti fyrir þónokkuð af ættingjum og samferðafólki. Í seinni hópnum var m.a. Jón Ingi Sigurmundsson sem var kórstjóri kórs FSu í fjölmörg ár. Ég var í þeim kór árin ´85-´88. Kom heim um hálfsjö. Klukkutíma síðar hringdi ég í tvíburahálfsystur mína til að kanna hvort hún væri upptekinn, sem hún var ekki svo ég dreif mig yfir og tók barnateppið sem ég er með í "smíðum" með mér. Tíminn æddi frá okkur en við náðum þó góðu spjalli og það bættist ein kind við á teppið, meira að segja frekar kindarleg kind en ekki eins og úlfur í sauðargæru.
14.9.26
Mánuðurinn að verða hálfnaður
Ég kvaddi pabba um og upp úr klukkan hálffjögur í gær. Fór beinustu leið heim og byrjaði á því að setja bílinn í hleðslu. Hlóð hann úr rúmlega 30% í tæp 90% á uþb fjórum tímum. Í morgun var ég vöknuð löngu á undan vekjaranum sem átti að ýta við mér stuttu fyrir klukkan sex. Var mætt í sund um hálfsjö og synti 500m á tuttugu mínútum, aðallega á braut 7. Sat í tæpar tíu mínútur í steinapottinum áður en ég fór upp úr og þvoði mér um hárið. Stimplaði mig inn í vinnu upp úr klukkan hálfátta. Í heildina voru skoðaðir 36 bílar í dag og það var svolítið um annars konar afgreiðslur en að bóka inn bíla. Vinnudagurinn leið þokkalega hratt. Stimplaði mig út á slaginu hálffimm og fór beint heim. Hringdi í Odd Smára er ég var nýlögð af stað frá vinnu og hann svaraði frekar hissa því hann ætlaði einmitt að fara að hringja í mig. Þegar ég kom í anddyrið á blokkinni tók ég eftir að það er greinilega verið að vinna í að uppfæra nafnatöfluna. Eins var búið að fjarlægja nafnaskiltið fyrir utan innganginn á íbúðinni minni. Bráðum verður nafnið mitt komið á þessa tvo staði og þá er rétt að fara að huga að því að laga merkinguna á póstkassanum líka, fjarlægja handskrifaða miðann og setja mitt nafn prentað í staðinn fyrir fyrri eiganda. Hringdi í hálfdönsku frænku mína og nöfnu ca klukkutíma eftir að ég kom heim. Milli hálfsjö og sjö skrapp ég út í stutta göngu, smá hring. Rétt fyrir átta sló ég líka á þráðinn til Lilju vinkonu. Hef ekki heyrt í henni síðan einhvern tímann í vor.
13.9.26
Sunnudagur
Það er yfirleitt ágætt að hafa eins konar rútínu á hlutunum, en þó ekki um og of. Hvað færslurnar varðar finnst mér ég stundum hafa það lítið að skrifa og mjög oft að skrifa um það sama. Það er samt mjög gott að geta flett upp í skrifunum, þ.e. ef ég hef þá skrifað um hlutina. Ef líða of margir dagar vill það henda að ég annað hvort gleymi að skrifa um eitthvað sem væri vel þess virði að minnast á og halda upp á eða ég þarf að reka á eftir mér að skrifa áður en enn einn skriflausi dagurinn líður hjá.
Ég fór í morgunsund í Laugardalslaug fyrir vinnu á föstudaginn. Stimplaði mig inn í vinnu á svipuðum tíma og oftast. Báðir skoðunarmennirnir voru mættir fyrir átta. Það var rólegt framan af. Um hálfellefu fór stöðvarstjórinn í próf og fleira, fékk restina af deginum til að nýta í alls kyns útréttingar. Þá var þegar byrjað að færast fjör í skoðunarmálin og hinn skoðunarmaðurinn settist ekki niður fram að lokum nema þennan hálftíma sem við vorum í mat. Skoðaði eitthvað yfir tuttugu bíla. Á heimleiðinni kom ég aðeins við í N1 við Borgartún til að heilsa upp á N1 soninn.
Í gærmorgun var ég komin á fætur um hálfátta, vöknuð miklu fyrr. Sleppti sundinu annan laugardaginn í röð en sinnti því sem ekki má skrifa um í staðinn. Lenti í smá tímahraki því eldhúsklukkan sem ég ætlaði ekki að flytja með mér en setti upp tímabundið datt niður eftir að ég rak skaftir á skúringagræjunni í hana. Sópaði upp stærstu brotunum og varð að taka ryksuguna fram aftur. Um tíu var ég mætt vestur í bæ til norsku esperanto vinkonu minnar og var komin heim aftur fyrir klukkan tólf. Klukkutíma eftir það lagði ég af stað austur og gerði gott stopp í Fossheiðinni. Nokkru á eftir mér mætti tvíburahálfsystir mín. Ég var komin á Hellu um fjögur. Bríet var á kafi í alls konar "geru" og eftir kvöldmatinn fékk hún mig til að aðstoða sig við að þræða tilrauna kjötbitaniðurskurð á tannstöngla eftir að hafa marinerast í þrenns konar legi; sætu, venjlegu og sterkur. Semsagt þrjár tegundir. Þetta lét hún svo bakast í 70°C ofninum í á fimmta tíma. Fékk að smakka árangurinn í dag og var hrifnust af því sem marineraðist í sterkasta kryddleginum. Þetta fer svo frænka mín með sér í vinnuna sína, SS, á morgun sem smakk.
10.9.26
Stutt í helgina
Fór í seinna lagi að sofa í gær, í háttinn upp úr tíu og las svo í dágóða stund. Stillti vekjarann á tíu mínútur fyrir sex. Svaf virkilega vel til klukkan að verða fimm. Þá þurfti ég á pisseríið, augun frekar límd aftur en ég beið sennilega aðeins of lengi með að sinna kalli náttúrunnar því ég náði ekki að sofna aftur þegar ég skreið upp í rúm aftur. Kúrði þó til klukkan rúmlega hálfsex. Var mætt á planið við Laugardalslaug fimm mínútum fyrir opnun. Synti 600m, flestar ferðir á braut 7 en þó 50m á braut átta. Var mætt í vinnu um hálfátta leytið. Skoðunarmennirnir komu stuttu fyrir átta. Skoðaðir voru 32 bílar í dag, frekar rólegt inn á milli en það komu líka smá tarnir. Stimplaði mig út á slaginu hálffimm og fór beinustu leið heim. Stakk bílnum í samband þar sem staurinn var laus og bíllinn kominn niður í 32%. Ég var svo forsjál að taka út ýsuflök úr frysti áður en ég fór að heiman í morgun. Átti líka sæta kartöflu, blómkál og brokkolí í ísskápnum. Úr varð hinn ágætasti kvöldmatur sem dugir í tvo skammta í viðbót.
9.9.26
Háflóð í Nauthólsvík kl 17:20 í dag
Vekjarinn var stilltur á korter í sjö í morgun en ég var vöknuð amk hálftíma fyrr. Mætti í vinnu um hálfátta og var Íris, rétt á eftir mér. Við stimpluðum okkur inn, undirbjuggum kaffið og svo sýndi ég henni hvernig ég geri upp. Annars sá hún eiginlega alfarið um afgreiðsluna í dag. Dagurinn var kannski of rólegur á köflum en alls voru gerðar 32 skoðanir og m.a. kom inn nýskráning og einnig tvær aðalskoðanir með breytingaskoðun þar sem í öðru tilfellinu var verið að skrá krók og í hinu að breyta notkunarflokki bifreiðar. Nýja afgreiðslustúlkan afgreiddi málin nokkuð léttilega, þurfti að spyrja smá, aðallega til að laga og bæta við glósurnar sínar sem virkuðu að öðru leyti mjög vel. Framkvæmdastjórinn kom í heimsókn um tvö leytið, bæði til að taka stöðuna og einnig tilkynna þessari nýju að hún ætti að mæta á framtíðarstöðina sína, Klettagarða, í fyrramálið. Íris stimplaði mig út á slaginu hálffimm og ég fór beinustu leið í Hátúnið þar sem ég komst strax að í osteostrongtíma. Var mætt á planið við Nauthólsvík rétt um það leyti sem háflóðið var. Kalda potts vinkona mín var þegar mætt. Við fórum tvisvar í sjóinn og einu sinni í lónið. Hún fór aðra ferð í gufuna og pottinn en ég kvaddi og fór upp úr korter yfir sex. Var komin heim fyrir klukkan sjö. Greip aðeins í nál í kvöld. Það er að verða nokkuð ljóst að fyrsta saumaða kindin í barnateppinu verður hálfgerð ókind.
8.9.26
Inn í vinnuvikuna
Vekjarinn ýtti við mér tíu mínútum fyrir klukkan sex í gærmorgun. Fjörutíu mínútum síðar var ég mætt á Laugardalslaugar-sund-húninn. Synti 500m og fór svo smá stund í steinapottinn. Stimplaði mig inn í vinnu rétt rúmlega hálfátta. Báðir skoðunarmennirnir mættu 10-15 mínútum síðar og stöðvarstjórinn með þær fréttir að til okkar væri að koma afgreiðslustúlka í þjálfun. Hún var mætt skömmu síðar og fékk þau fyrirmæli að fylgjast með mér, spyrja og punkta niður. Hún ákvað reyndar sjálf að taka niður glósur. Vinnudagurinn gekk vel fyrir sig. Var annars frekar dugleg að þamba vatn því eftir vinnudaginn lá leiðin í Blóðbankann í Kringlunni, sjötugustuogaðra heimsóknina. Þar gekk allt mjög vel fyrir sig en sá sem tók úr mér blóðið vildi að ég hvíldi mig í stutta sund lengur á bekknum eftir gjöfina því honum fannst hendurnar á mér svo kaldar. Lét meira að segja mæla aftur blóðþrýstinginn sem hefur eiginlega aldrei verið betri.
Í morgun var ég vöknuð upp úr klukkan fimm og fór á fætur korter fyrir sex. Mætti í sund um hálfsjö og synti mína 500m. Stoppaði frekar stutt í pottinum og var mætt í vinnu rétt fyrir klukkan hálfátta. Við vorum öll mætt tíu mínútum fyrir átta og sú sem er í þjálfun og á svo að fara í afgreiðsluna í Klettagörðum skráði sig inn í afgreiðslutölvuna og sá um langflestar afgreiðslur í dag sem og að setja upp hin og þessi verkfærin, sem eru notuð, með og án aðstoðar. Dagurinn var fremur rólegur skoðanalega sér. Ég fékk að skrá mig inn, inn á milli til að grípa m.a. millifærslu- og plötupöntunarbeiðnir. Sú nýja stóð sig mjög vel og ég spaugaði með að hún yrði farin að kenna mér áður en langt um liði.
Strax eftir vinnu brunaði ég út úr bænum um Þrengslin austur fyrir fjall og til frændfólks á Selfossi en dóttir þeirra, frænka mín og eins konar litla systir, er í viku heimsókn á landinu. Hún er búin að búa úti í Danmörku í þrjátíu ár af sinni 50 ára ævi. Ég stoppaði hjá þeim í þrjá tíma, og var mikið spjallað. Var boðin í kvöldmat með þeim, svokallaða kofaböku. Hafði líka rænu á því að óska eftir og fá myndatöku bæði af þeim þremur og svo mér og frænku/litlusystur minni áður en ég þakkaði fyrir mig og fór. Var komin heim rétt fyrir tíu.
6.9.26
Nokkra daga "heimatölvufrí"
Það er bæði óvart og smá viljandi að ég tók mér pásu frá skrifum. Fimmtudagurinn var langur í báða enda. Mætti í sund um hálfsjö. Nóg að gera í vinnunni milli 7:37 og 16:35. Stoppaði heima í tæpa klukkustund og klæddi mig í buxnadragtina áður en ég fór að heiman aftur og á fyrsta samfrímúrarafund haustsins. Klukkan var byrjuð að ganga ellefu þegar ég kom heim aftur. Samt gaf ég mér tíma í smá lestur áður en ég fór að sofa. Föstudagurinn byrjaði einnig á sundi áður en ég mætti í vinnu. Það var eiginlega ennþá meiri erill í vinnunni þann daginn og mjög gott að það er skoðað á báðum brautunum. Stimplaði mig út rétt rúmlega fjögur og fór beinustu leið í klippingu. Hringdi reyndar í sundvinkonu sem stundar Laugardagslaugina aðeins á sumrin í seinni tíð, og spjallaði við hana þar til rétt áður en ég átti að klippitímann. Sjö vikur síðan ég var klipp síðast og mér fannst mjög gott að láta stytta og þynna vel. Var komin heim um hálfsex leytið. Fór frekar seint að sofa en þó ekki eftir miðnætti. Var bæði að horfa á þætti og einnig lesa. Kláraði m.a. að lesa ljóðasafnið hans Njarðar en á örugglega eftir að glugga meira í það áður en ég skila inn bókinni.
Vaknaði um hálfsjö á laugardagsmorgninum. Ákvað að fara ekkert í sund. Las í fræðunum og tveimur bókum af safninum fyrsta einn og hálfa tímann. Sinnti því svo sem ekki má skrifa um en var mætt til norsku esperanto vinkonu minnar um tíu. Stakk bílnum í samband á meðan ég var í hittingnum, ca 1 og hálfan tíma. Kom við í Krónunni við Fiskislóð áður en ég fór heim. Heima lagði ég við hleðslustaurinn á planinu og stakk bílnum í samband. Klukkan var líklega eitthvað um hálfeitt og ég var með bílinn í hleðslu til klukkan fjögur. Þá fór ég út, gekk frá hleðslukaplinum, lagði bílnum í annað stæði og skrapp svo í klukkutíma göngutúr.
Í morgun var ég líka vöknuð frekar snemma eða um hálfátta. Fór fljótlega á fætur og var að lesa fyrstu tvo tímana. Rétt fyrir tíu ákváðum við tvíburahálfsystir mín hitting upp úr hádeginu hjá henni. Ég skrapp út í klukkutíma göngutúr. Horfði á einn þátt í þriðju seríunni: "House of the Dragon", fékk mér að borða um tólf leytið og stuttu fyrir eitt tók ég til handavinnudótið mitt og fór akandi yfir í Ljósakur í Garðabæ. Veðrið var svo frábært að við ákváðum að setjast með handavinnuna út á svalir. Ég bað um kaffi og drakk tvo bolla af því. Seinna um daginn skiptum við yfir í te. Sonja kom mér af stað í að sauma í sléttu fletina á barnateppinu. Saumaði reyndar útlínur utan um þrjú hjörtu en er hálfnuð með fyrstu kindina af nokkrum. Finnst ég vera búin að ná tökum á tækninni að sauma eins og kindin sé prjónuð í en samt gæti alveg verið að þessi fyrsta kind muni líta að einhverju leyti út eins og úlfur í sauðagæru. Að vísu verður þessi "kind/úlfur" með horn. Klukkan var að verða að byrja að ganga sjö þegar ég kom heim og bíllinn er enn með 100% hleðslu eða yfir 300km.
2.9.26
Á bókasafnið seinni partinn í dag
Vaknaði næstum hálftíma áður en vekjarinn átti að ýta við mér tíu mínútum fyrir sex. Korter yfir sex lagði ég af stað í sund og fór Kringlumýrarbrautina að þessu sinni. Var komin á planið við Laugardalslaug fimm mínútum áður en opnaði. Synti 500m (250m skrið- og 250m bakskriðsund) á braut sex. Sat svo næstum korter í steinapottinum og spjallaði m.a. við fyrrum vinnufélaga úr RB. Stimplaði mig inn í vinnu upp úr klukkan hálfátta. Aðeins rólegra var í skoðunum í dag heldur en undan farna daga en þær fóru þó nokkkuð yfir þrjátíu. Eftir hádegi kom til okkar kona sem er að ráða sig í afgreiðslustörf hjá frumherja. Vann fyrir nokkrum misserum í afgreiðslu hjá Aðalskoðun þannig að hún kann nú ýmislegt fyrir sér. Tveimur tímum eftir að hún kom settist hún í "afgreiðslu-stólinn" og stóð sig mjög vel og fagmannlega. Á morgun á hún að mæta hjá frumherja í Hafnarfirði. Þar eru tvær tölvur í afgreiðslunni svo hún getur skráð sig inn á aðra og haldið þjálfun áfram en það stendur til að hún fari svo í afgreiðsluna í Hádegismóum síðar á árinu.
Eftir vinnu fór ég beinustu leið í Hátún 12 í osteostrong tíma. Var mætt þar korter fyrir fimm. Þurfti að hinkra í rúmar fimm mínútur og var svo búin með ferlið korter yfir fimm. Þá lá leiðin í bókasafnið í Kringlunni. Skilaði þremur bókum af fjórum. Skilda ljóðasafnið hans Njarðar P. Njarðvík eftir heima þar sem ég er rétt rúmlega hálfnuð að lesa það. Á líka tæpar þrjár vikur eftir af útláninu á þeirri bók. Með mér heim tók ég sex bækur þar af eina með 14 daga skilafresti; Vesen eftir Láru Óskarsdóttur. Hinar bækurnar eru; Fimmta barnið eftir Doris Lessing, FYRIR DAGA farsímans (sögur) eftir Böðvar Guðmundsson, Hefnd Diddu Morthens eftir Sigríði Pétursóttur, Sumarblóm og heimsins grjót eftir Sigrúnu Ölbu Sigurðardóttur og Syndafall eftir Yrsu Sigurðardóttur. Veisla framundan hjá mér en ég tel nú líklegt að ég muni þurfa að framlengja einhverjum skilafrestum því það er meira sem ég þarf að gera eftir vinnu heldur en að lesa.
1.9.26
Glænýr mánuður
Vaknaði á undan vekjaranum, einhvern tímann upp úr klukkan sex. Var mætt í vinnu um hálfátta. Í heildina voru skoðaðir 54 bílar í dag, 10 færri en í gær. Nýji skoðunarmaðurinn var að standa sig ágætlega með góðum stuðningi hjá unga stöðvarstjóranum. Um þrjú leytið kom yfirmaður BSK sviðs (Siggi frændi) við til að funda stuttlega með stöðvarstjóranum. Strax eftir vinnu fór ég í Nauthólsvík. Spjallaði við pabba í símann langleiðina á leiðinni þangað. Var komin út í 11,7°C sjóinn rúmlega fimm. Það var fjara. Fór tvisvar út í, í gufuna á milli ferða og endaði svo í heita pottinum í uþb korter. Var komin heim fyrir klukkan hálfsjö.
31.8.26
Síðasti ágústdagurinn þetta árið
Ég var komin austur á Hellu um hálftvö leytið á laugardaginn. Eyddi 30% af hleðslunni. Sú spænsk-suðurameríska var á vakt í eldhúsinu á Stracta hótelinu til tíu um kvöldið og Bríet frænka var eitthvað á vegum SS á kjötsúpuhátíð á Hvolsvelli en það voru samt "næturgestir" í herberginu sem hún hefur afnot af og pabbi hélt sig í stofunni og stundum eldhúsinu. Hann var annars ágætlega hress. Ég skrapp í stuttan, tæplega hálftíma göngutúr um fjögur leytið og milli fimm og sex bauð pabbi mér upp á grill. Bríet var komin heim en hún og gestir hennar voru í öðrum hugleiðingum varðandi mat og björguðu sér sjálf.
Þegar ég kom fram á níunda tímanum voru pabbi og sú spænska þau einu sem voru komin á fætur. Hún var með í þvottavélinni en vélin var búin fljótlega og ég ákvað að nota tækifærið og þvo utan af rúminu mínu og hengja svo út á snúru. Pabbi tók út þrjú mismunandi fiskflök úr frysti og ég matreiddi handa okkur þremur í hádeginu. Þegar Bríet kom á fætur um eitt afþakkaði hún að fá sér af því sem var afgangs svo ég fékk að taka afganginn með mér í bæinn. Kvaddi pabba um þrjú leytið og var komin í bæinn á fimmta tímanum. Kom við í Löðri við Vesturlandsveg áður en ég fór heim. Hleðslan var rétt komin niður í 39% þegar ég kom heim og af því að það var laust á staur setti ég bílinn í samband og hlóð hann upp í 89%. Tók hann úr sambandi og færði í annað stæð um tíu í gærkvöldi.
Vaknaði um hálfsex í morgun og var mætt í Laugardalslaug þegar opnaði klukkutíma síðar. Synti 500m á braut 6 og hitti svo fyrrum vinnufélaga smá stund í steinapottinum. Stimplaði mig inn í vinnu ca tuttugu mínútum fyrir átta. Stöðvarstjórinn var búinn að fjarlægja bíl sem var á "auka"brautinni því nú er nýji skoðunarmaðurinn kominn með skoðunarnúmer svo þá er um að gera að nýta báðar brautirnar. Það var þokkalega sturlað að gera, slatti bíla bókaðir (bæði fyrir og eftir hádegi) og svo komu mjög margir inn af götunni. Heildar skoðanir fór upp í 64. Þeir voru að klára síðustu skoðanirnar þegar ég stimplaði mig út rétt eftir klukkan hálffimm.
Fór beinustu leið heim. Í síðasta sjónvarpsfréttatíma Sýnar í kvöld kom Davíð Steinn smá stund í mynd vegna fréttar um að á miðnætti mun vsk af eldsneyti hækka aftur upp í 24% úr 11%. Horfði svo á fréttir á Rúv sem sagði m.a. frá síðasta fréttatíma Sýnar (áður stöð 2, í bili eða hvað sem verður).
Sem betur fer tékkaði ég aðeins á almanakinu í símanum því annars hefði ég gleymt að mæta á boðaðan framhaldsfund í húsfélaginu vegna ónæðis íbúa í einni íbúð af 33 í blokkinni. Þar kom fram að ástandið hefur kannski skánað smá en ekki lagast nógu vel og ákveðið var að veita íbúum frest í 30 daga í viðbót. Þó með þeim fyrirvörum að ef ónæðið byrjar aftur eftir þennan tíma þá verði málið tekið lengra.
29.8.26
Inn í helgina
Það var gott og hressandi að byrja gærdaginn á 500m sundi í Laugardalslauginni. Stimplaði mig inn í vinnu um hálfátta. Nóg var að sýsla við undirbúning á opnun en ég sleppti því að gera upp því þá hefði ég verið tæp á skiptimynt. Þá brá auðvitað svo við að enginn af hátt í 50 viðskiptavinum sem voru annað hvort að láta skoða, leggja inn númer eða borga opinbergjöld greiddu með reiðufé. Það gerist alveg. Það voru annars skoðaðir yfir fjörutíu bílar í gær og rétt rúmum hálftíma fyrir lokun kom yfirmaður bifreiðasviðs með skoðunarnúmer og síma fyrir nýja skoðunarmanninn þannig að í næstu viku verður loksins hægt að nýta báðar brautirnar. Eftir vinnu fór ég vestur í bæ til norsku esperanto vinkonu minnar. Var komin til hennar rétt fyrir hálffimm og nýtti ég tækifærið og setti bílinn í hleðslu á meðan. Við settumst út á svalir fyrri klukkutímann og spjölluðum um alls konar. Inger bauð upp á te og sykurlaust eplakökupæ, mjög gott! Seinni klukkutíminn fór í ljóðaglugg og smá esperanto. Ég var með mér nýútgefið ljóðasafn Njarðar P Njarðvík sem ég tók af safninu um síðustu viku. Útgáfan er í tilefni þess að Njörður varð níræður í lok júní sl. Mjög mörg mögnuð ljóð. Ég er annars aðeins búin með ca einn þriðja af bókinni. Bíllinn var kominn yfir áttatíu prósent þegar ég tók hann úr hleðslu. Ákvað samt að skella honum aftur í samband á staurnum á planinu heima og hlaða alveg upp í hundrað.
27.8.26
Sjósund og kosning eftir vinnu
Vaknaði korter fyrir sex, tæpri klukkustund áður en vekjarinn átti að ýta við mér. Skrapp fram á pisseríið og gerði svo tilraun til að kúra mig niður og sofna aftur. Virkaði ekki en ég fór þó ekki á fætur fyrr en um það leyti sem hafði stillt vekjarann á. Mætti í vinnu rétt fyrir hálfátta. Vinnudagurinn var kaflaskiptur, stundum mikill erill en inn á milli rólegra. Fyrrum samstarfskona til hátt í tuttugu ára í kortadeildinni kom með bílinn sinn í skoðun. Gátum spjallað smá því það var smá röð á undan (einn eða tveir bílar). Eftir vinnu fékk ég mér smá göngu að heimilisfangi á Suðurlandsbraut skammt frá gatnamótunum við Grensásveg. Erindið var vinnutengt. Manneskjan sem ég var að reyna að ná sambandi við var ekki heima en ég gat stungið umslagi með smá bréfkorni í í póstkassann hennar. Labbaði beinustu leið til baka í bílinn og dreif mig í Nauthólsvík. Fór fyrri ferðina í sjóinn korter yfir fimm. Stutt var út í og sjórinn 12,2°C. Tók ekki tímann sem ég var út í en fór í gufu, aftur í sjóinn og svo smástund í pottinn áður en ég fór upp úr upp úr klukkan sex. Kom við í Hlíðarsmára og kaus utan kjörfundar. Það var nóg að gera þar en ferlið gekk ótrúlega vel fyrir sig. Ég var komin heim fyrir klukkan sjö.
26.8.26
Eitt og annað
Þar sem ég skrópaði í sund eftir vinnu í gær var ég ákveðin í að mæta á húninn í Laugardalslaug í morgun og stillti vekjarann á að ýta við mér tíu mínútum fyrir sex. Fór í háttinn um tíu og las í hálftíma. Rumskaði um hálffimm og þurfti á pisseríið. Ég sofnaði eiginlega ekki aftur. En ég var mætt á húninn við opnun. Synti 500m á braut sjö á tuttugu mínútum og sat svo nokkrar mínútur í steinapottinum að spjalla við einn fyrrum samstarfsmann. Vinnudagurinn var annars alls konar, rólegur til að byrja með en mun meiri erill eftir hádegið. Í heildina voru skoðaðir 36 bílar. Í stað þess að fara í osteostrong eftir vinnu lá leiðin í ákveðið hús mjög austarlega í borginni. Þar var fyrir slatti af fólki sem var að taka til hendinni og ég lagði mitt af mörkum í því verkefni. Klukkan var langt gengin í sjö þegar ég kom heim.
25.8.26
Án titils
Ég var frekar óákveðin og óviss með plön eftir vinnu í dag. Tók með mér sund- og sjósundsdót en einnig var ég undirbúin undir esperantó hitting. Stimplaði mig inn í vinnu um hálfátta. Hafði í nægu að snúast fram að opnun. Svo var rólegt fyrsta rúma hálftímann áður en fyrsti bíll kom til skoðunar. Stöðvarstjórinn fékk afleysingu milli hálfellefu og hálfeitt. Fyrir hádegi voru skoðaðir 17 bílar og alveg jafn margir eftir hádegi því heildin fór upp í 34. Strax eftir vinnu fór ég í Fiskbúð Fúsa. Ekki var til óbarin ýsa en ég keypti lúðu, glútenlausar fiskibollur og eitt þorskhnakkaflak. Hugað verður að esperanto hittingi seinni part seinna í vikunni og ég ákvað stefna á sund í Árbæjarlauginni í stað sjósunds í Nauthólsvík. Hringdi í pabba á meðan ég var á leiðinni upp í Árbæ. Hann var að gera sultu úr kílói af niðurskornum rabbabara sem hann átti i frysti síðan í fyrra. Var komin að Árbæjarlaug korter yfir fimm. Fann ekki stæði svo ég hætti við sundferð og fór beint heim.
24.8.26
Eftir helgina og vinnuvikuupphaf
Helgin varð aðeins öðruvísi en ég átti von á en ég var svo sem ekki með nein plön. Laugardagsmorguninn fór í stúss sem ekki má og er alveg óþarfi að skrifa um. Fékk áminningu frá bókasafninu og ég hefði alveg eins getað farið og skilað bókunum á safninu í Úlfarsárdal því það var opnað um leið og sundlaugin. Kringlusafnið var opið milli eitt og fimm. Það fór svo að ég fór þangað um miðjan dag. Hafði fests í að horfa á "Sama viðtalið" með Baldvini Þór Bergsveinssyni og Patreki Jaime í sarpi RÚV. Skilaði öllum bókunum sem ég var með í láni og fékk mér fjórar í staðinn. Þar af tvær sem voru nýjar og með 14 daga skilafresti. Á heimleiðinni gerði ég stopp í Krónunni í Lindum. Stór partur af því sem eftir lifði helgarinnar fór í að klára að lesa báðar skammtímalánsbækurnar; 17 ástæður til að drepa og 18 rauðar rósir eftir Unni Lilju Aradóttur.
Í morgun var ég búin að stimpla mig inn í vinnu um hálfátta leytið. Rólegt var fyrir hádegi en í heildina voru skoðaðir 32 bílar, sá fyrsti átti bókaðan tíma og mætti um níu. Sá síðasti var skoðaður korter yfir fjögur. Stimplaði mig út á slaginu hálffimm og kom við í Árbæjarlauginni áður en ég fór heim.
21.8.26
Er að hlaða bílinn
Rumskaði frekar snemma og hefði í sjálfu sér getað byrjað daginn á því að fara í sund en ákvað að kúra aðeins lengur og nota svo tímann í smá dútl hér heima áður en ég fór af stað í vinnu tuttugu mínútum yfir sjö í morgun. Var þó með sunddótið meðferðis. Fyrsta hálftímann í vinnunni notaði ég m.a. til að hella upp á, strjúka yfir nokkra fleti og gera upp kassann. Annars var morguninn rólegur og aðeins ellefu bílar skoðaðir fyrir hádegi. Það var meira líf í tuskunum eftir hádegi en þó smá pásur inn á milli. Heildarfjöldi skoðaðra bíla fór upp í þrjátíuogtvo en við stimpluðum okkur út á slaginu fjögur. Kom aðeins við í N1 við Borgartún og heilsaði upp á Davíð Stein. Keypti mér ný plús 1,5 lesgleraugu. Um fimm leytið var ég komin í Árbæjarlaugina. Synti í tæpar tuttugu mínútur, fór í gufu, eina ferð í kalda pottinn, kalda sturtu og infra rauða klefann. Kom heim stuttu fyrir klukkan hálfsjö. Bíllinn var enn í eitthvað yfir fjörutíu prósent en það var pláss á staurnum og ég ákvað að nýta mér það. Hann er kominn upp í 93% núna og ég gæti alveg farið að kalla þetta gott að sinni og færa hann á almennt stæði. Talandi um stæði þá gleymdi ég að geta þess að í gær voru öll útibílastæði sem tengjast blokkinni máluð.
20.8.26
Nauthólsvík eftir vinnu í dag
Mætti í vinnu um hálfátta. Strákarnir voru mættir tuttugu mínútum. Mjög rólegt var fyrstu tvo tímana og notaði nýji maðurinn tímann til að vinna í síðasta bóklega prófinu til að geta sótt um að fá skoðunarréttindi. Ellefu bílar voru skoðaðir fyrir hádegi. Í hádeginu þurfti stöðvarstjórinn að skreppa frá í rúma tvo tíma. Ein "flakkari" var sendur til okkar. Hann kom rétt fyrir hálfeitt og þá voru þegar komnir tveir á húninn. Flakkarinn gerði 19 skoðanir á rétt rúmum tveimur tímum. Stöðvarstjórinn skilaði sér til baka um hálfþrjú og flakkarinn kvaddi rétt fyrir þrjú. Eftir það og fram að lokun voru gerðar fimm eða sex skoðanir. Ég stimplaði mig út á slaginu hálffimm og fór beinustu leið í Nauthólsvík. Umferðin var þannig að ég var rúmlega tuttugu og fimm mínútur á leiðinni þangað. Var rétt á eftir kaldapotts vinkonu minni. Við fórum tvisvar í sjóinn, tvisvar í gufu, einu sinni í lónið og ég fór aðeins einu sinni í heita pottinn því ég fór upp úr eftir ferðina í lónið. Var komin heim rétt um klukkan sjö.
19.8.26
Osteostrong eftir vinnu í dag
Ég vaknaði fimm mínútum áður en vekjarinn átti að ýta við mér í morgun, eða um hálfsjö. Rétt rúmum klukkutíma síðar var ég mætt í vinnuna. Vorum bara tvö í allan dag. Nokkuð rólegt framan af og stundum inn á milli en í heildina voru þó skoðaðir tuttuguogsex bílar sem er alveg ágætt fyrir einn mann. Sex af þessum skoðunum voru bókaðar í gegnum noona-appið og voru þá á ákveðnum tímum. Með þessari þjónustu þarf þá einnig að vera vakandi fyrir því að tilkynna þeim, sem mæta til að athuga hvort sé hægt að fá skoðun, að bókaðir tímar gangi fyrir. Sum verkefnin mín fóru fram í gegnum síma, með tölvupóstsamskiptum og líka netfyrirspurnarsamskipti af heimasíðu fyrirtækisins. Eftir vinnu fór ég beinustu leið í Hátúnið og komst strax að í osteostrong þótt klukkan væri ekki orðin fimm þegar ég mætti. Átti ekki von á neinum sérstökum árangri þar sem ég er búin að vera lasin en árangurinn var bara mjög þokkalegur. Lét svo vita að ég komist ekki í tíma aftur fyrr en eftir hálfan mánuð. Var komin heim um hálfsex leytið. Í kvöldmatinn kláraði ég afganginn af bleikjuréttinum sem ég útbjó sl. sunnudag. Mikið var annars gaman að horfa á fyrsta þáttinn í sextándu þáttaröðinni af "Með okkar augum" í kvöld.
18.8.26
Smástund í sund eftir vinnu
Ég mætti í vinnu um hálfátta í morgun. Samstarfsmenn mínir mættu stuttu fyrir klukkan átta. Reyndar var sá nýji mættur aðeins fyrr en hann er ekki með lykla og ég vissi ekki af því og hafði læst innri dyrunum eftir að ég var komin inn og búin að taka kerfið af. Það var frekar rólegt í morgun, aðeins tólf bílar skoðaðir fyrir hádegið. Sá nýji fór á skoðunarnámskeið um hádegisbilið og við vorum bara tvö eftir hádegi. Það var meira að gera milli hálfeitt og rúmlega fjögur en þó náði heildarfjöldi skoðaðra bifreiða yfir daginn ekki þrjátíu. Vantaði svo sem ekki mikið upp á. Stimpluðum okkur út á slaginu hálffimm og ég dreif mig í Árbæinn og fór í sund þar. Synti ekki nema um 100m, fór tvisvar í kalda pottinn, eina ferð í gufuna og endaði á að fara í innfrarauða klefann í kvennaklefanum í 15 mínútur áður en ég fór heim. Sundferðin tók innan við klukkustund og ég var komin heim um sex leytið.
17.8.26
Fékk sms og mail frá besta bankanum í morgun
Þar til flensan náði að leggja mig var takmarkið að fara í blóðbankann eftir vinnu í dag. Var með áminningu í dagatalinu um að bóka tíma akkúrat í dag 17. ágúst. Færði þessa áminningu aðeins aftar í dagatalið og eyddi henni svo. Ekki það að ég sé hætt við heldur er ég ekki viss um hversu lengi ég þarf að fresta þessari heimsókn. Ég myndi halda svona 2-4 vikur. En ég mætti þó í vinnuna í dag og lifði vinnudaginn af. Vorum bara tvö framan af og þegar hinn tilvonandi skoðunarmaðurinn mætti einhvern tímann upp úr hádeginu fór hann að vinna í verkefnum sem tengdust því sem hann er að vinna að þessa dagana, þ.e. að klára skoðunarmannanámskeiðið og taka fleiri en eitt próf til að fá skoðunarskírteinið. Þrjátíuogfjórir bílar og ein kerra voru skoðuð í dag, allt af stöðvarstjóranum. Ég hafði annars tekið sunddótið með í bílinn en eftir vinnu ákvað ég heldur að fara beint heim í sturtu og svo rólegtheit. Greip ekki einu sinni í prjónana mína og líklegast er að ég fari beint í háttinn eftir þessa færslu og lesi lítið sem ekki neitt.
16.8.26
Sunnudagur sextándi
Ég hélt mig heima við í gær eins og fjóra daga þar á undan. Davíð Steinn sótti Odd um tvö leytið og þeir fóru saman í gjafa-leiðangur fyrir "baby-shower" og fengu sér að borða í leiðinni. Oddur var kominn til baka einhvern tímann fyrir fimm. Um sex leytið setti ég upp hýðisgrjón og náði í nokkra bleikjubita úr frosti og setti í annan pott. Greip þetta með mér þegar ég fór í Krónuna síðast. Oddur þáði reyndar ekki að borða með mér (meiri afgangur fyrir mig í staðinn) því hann var enn saddur. Rétt fyrir hálfátta fór hann labbandi í Smárann til að fara í bíó. Ég fór í háttinn upp úr hálftíu og byrjaði á því að mæla mig, ennþá örfáar kommur því miður en ég er eiginlega ekki að nenna þessu lengur. Kommurnar eru kannski eðlilegar að kvöldi til, amk á meðan enn "sýður" aðeins í brjóstholinu. Auðvitað langar mig ekki að láta mér slá niður og ég vil helst ekki fara á læknavaktina til að fá sýklalyf til að vinna þetta hraðar niður. Það síðara er kannski samt það sem ég þarf að gera. Skoða þetta betur í vikunni.
15.8.26
Kommunum fer fækkandi
Varð svolítið svekkt þegar ég mældi mig í gærkvöldi, fjórar kommur eru alltaf fjórar kommur ef maður er að slást við pestirnar. Ég er þó ekki frá því að það sé farið að losa um "kekkina" í brjóstholinu. Hefði helst viljað vera laus við kommurnar svo ég gæti verið þokkalega viss um að mér slái ekki niður fari ég af stað út í morgundaginn. Ætla að halda mig heima við í dag. Oddur kom í gærkvöldi og er með gistingu hér til morguns og ég fæ þá bræður vonandi til að vera með mér í gjöf, og sjá um allt í kringum hana, til að taka með á opið hús á morgun. Það er eiginlega annars hálf galið að þurfa að halda sig inni við. Annars greiddi ég hálfa millijón inn á húsnæðislánið í morgun eftir að hafa fyrst greitt fasta greiðsluseðilinn. Lánið er því komið niður í 7,1 úr tæpum tólf sem það var í fyrir ári og greiðslubirgðin líklega að komast niður í um fimmtíuþúsund í stað áttatíuogtveggja. Þarf svo aðeins að ákveða næstu skref. Held að það væri skynsamlegt að koma láninu aðeins neðar til að lækka greiðslubirgðina enn frekar og svo halda áfram að borga inn á lánið með séreignarsparnaðinum þegar ég má fara að taka hann út eftir uþb tvö ár. Gallinn við sumt í þessu lífi er að stundum er það sem er svo rétt í dag alveg kolrangt á morgun og öfugt.
13.8.26
Með 8 kommur á kvöldin
Síðan á mánudags kvöldið hef ég verið að "vinna" í því að ná heilsu á ný. Var frekar spæld yfir því að mér tókst ekki að forðast pestina því dagana áður en ég játaði mig sigraða reyndi ég eins og ég gat að fara extra vel með mig. Það er enn nokkuð fast ofan í hálsi eða neðar. Er ekki stífluð en inn á milli þarf ég þó að snýta mér og horinn stundum grænn. Það er alls ekki gaman að vera kippt svona út úr rútínunni en það að ég hafi þurft að "hanga" heima sl daga hefur þó komið sér vel. T.d. eins og í gær þá gat ég fylgst með allri útsendingunni á RÚV vegan sólmyrkvans og í dag fylgdi ég Gunnari heitnum Þórðarsyni með góðri aðstoð útsendinu á sjónavarp símans preminum.
Oddur Smári byrjaði að vinna á mánudaginn var, sinnir yngstaskólastiginu í frístund í einum skólanum á Selfossi. Á meðan ekki er búið að setja skólann er þetta 100% starf en fer svo niður í hlutastarf um leið og skólinn byrjar.
"Hönnunar"-barnateppið stækkar daglega og mig er farið að gruna að ég þurfi að útvega aðeins fleiri dokkur í sumum litunum. Stundum veit ég ekki hvernig næsti bútur í teppinu verður fyrr en rétt áður en komið er að honum. Og þegar ég verð búin að prjóna og ganga frá endum mun ég amk eiga eftir að sauma kindamyndir á alla vega þrjá fleti og jafnvel ákveða hvort flott verði að hekla kant í kringum teppið.
11.8.26
Pestargemlingur - kann það varla
Eftir að hafa farið frekar vel með mig um nýliðna helgi vaknaði ég nokkuð hress snemma í gærmorgun. Vissulega fann ég enn fyrir særindum í hálsinum en ég taldi mig vera hitalausa og nokkuð viss um að ég væri að komast yfir "versta" hjallann. Mætti í vinnu um hálfátta og var búin að hella upp á, snurfursa salernisrýmið, opna afgreiðslukerfin og gera upp kassann þegar stöðvarstjórinn mætti. Nýi maðurinn var á námskeiði mestallan daginn í gær, að vinna í að fá réttindi til að skoða og skila skoðununum sjálfur. Mér skilst að hugsanlega klárist það mál í vikulokin eða strax í næstu viku. Hann kom til okkar tæpum klukkutíma fyrir lokun og hjálpaði til við að skoða síðustu fimm bílana af 34 í heildina. Þó nokkur erill var í gær og ein skoðunin hafði meira að segja verið bókuð inn á noona sem við vorum að taka í notkun fyrir Skeifuna sl. föstudag. Þegar fór að líða á vinnudaginn var ég orðin nokkuð viss um að ég væri komin með hita. Tókst að mestu að forðast að fá hóstaköst en fann að hálsbólgan lá djúpt. Nebbinn stíflaðist ekki en það kom fyrir að ég þurfti að bregða mér frá og snýta mér eða þurrka nebbann, alls ekki oft. Ég sagði stöðvarstjóranum, í vinnudagslok, að ég ætlaði að mæla mig þegar ég kæmi heim og myndi senda honum sms ef ég væri komin með hita. Fór aðeins inn í Lyfju við Smáratorg. Ætlaði að kaupa annað glas af ólífulaufi og hitamæli en hætti við þar sem greiðslukortið mitt var út í bíl. Kom við í Krónunni í Lindum, hafði ekki farið að versla síðan fyrir síðustu mánaðamót. Kom heim um hálfsex. Gekk frá vörunum og fann svo loksins hitamælinn sem ég vissi að ég ætti í fórum mínum. Mældist með rétt tæplega 38,5°C hita. Ég hef ekki orðið svona lasin í meira en þrjú ár. Sendi sms-ið og tók því svo rólega. Um níu fékk ég mér panodíl-hot drykk, háttaði upp í rúm og fór að sofa án þess að lesa stafkrók. Rumskaði upp úr miðnætti en sofnaði strax aftur eftir að hafa farið á salerni pissað og snýtt mér. Rumskaði aftur um fimm leytið og þá var sama upp á teningnum. Vissi aðeins af mér um sjö en svo ekki fyrr en klukkan var að verða tíu. Er ekki búin að mæla mig aftur, geri það ekki fyrr en í kvöld eða á morgun. Hósta stöku sinnum og það er frekar sárt. Ég þarf líka að þurrka nebbann eða snýta mér öðru hvoru. Er samt ekki stífluð.
Seinni partinn í dag kemur einhver til að þrífa loftstokkinn í þvottaherberginu. Hæðir 5-8 voru teknar í gær og restina á að klára í dag. Nágrannakonan við hliðina bankaði upp á rétt áðan og afhenti mér lykla af sinni íbúð þar sem hún verður að vinna til klukkan hálfsjö.
9.8.26
Svæsin hálsbólga
Ég stóð mína pligt í vinnunni á fimmtudag og föstudag en er ekki búin að fara í sund síðan á Hellu á laugardaginn var og aðeins eina ferð í sjóinn um miðjan dag á miðvikudaginn. Eftir vinnu á fimmtudaginn kom ég við í Lyfju á Smáratorgi, sem ég skrifaði um í síðustu færslu, og keypti mér m.a. ólífulauf- og hvítlaukshylki. Hefði eiginlega líka átt að kaupa eitthvað sterkt og mýkjandi í hálsinn. Átti smá engifer bút sem ég nýtti mjög vel en kláraðist um helgina.
Bríet hafði samband við mig á föstudaginn og spurði hvort hún mætti gista hjá mér aðfaranótt laugardags. Það var auðsótt mál. Hún kom um sjö leytið og fékk lánaða húslykla en staldraði stutt við. Ég sá hana svo ekki aftur fyrr en rétt fyrir klukkan ellefu í gærmorgun þegar hún kom og skilaði lyklunum og sagði orðrétt: "Svefn er greinilega fyrir aumingja!" Var svo rokin út fljótlega aftur á leið í smá lokunar veislu Hárhornsins en Lilja föðursystir hennar hefur rekið þá stofu síðan Torfi dó. Nú er hún búin að finna annað húsnæði á betri stað skilst mér. Ég reyndi að fara vel með mig um helgina og hélt mig heima við. Það varð þó amk til þess að ég er loksins farin að munda prjónana aftur eftir rúmlega árs hlé. Er byrjuð á einhverju sem á helst að verða bleikt ungbarnateppi með kindum á. Bríeti leist vel á það sem hún sá af því en svo verður það að ráðast hvernig heildarútkoman verður og hvort Hulda verði jafn hrifin. Í morgun fór ég annars í þriðja skipti í sturtu hér heima á þessum rétt tæpu tíu mánuðum sem ég hef búið hér en það kemur ekki til af góðu. Það er þó örugglega ágætt að nota sturtuna öðru hvoru og nýta tækifærið og skrúbba sturtubotninn í leiðinni. Hann var þó ekkert sérlega skítugur, samt smá sandur úr Nauthólsvík og einhver hár í niðurfallinu.
6.8.26
Fyrsti vinnudagur eftir frí
Gærdagurinn var síðasti frídagurinn í bili. Kalda potts vinkona mín hafði haft samband kvöldið áður að spyrja hvort við gætum hist í Nauthólsvík um þrjú. Ég taldi það frekar líklegt en sló smá varnagla þó því ég fann aðeins fyrir eymslum í hálsinum og var smeik um að vera að leggjast í pestina sem synir mínir eru rétt að verða góðir af. Skrifaði til baka að ef hún heyrði ekkert frá mér í gær mætti hún reikna með að hitta mig. Fór frekar snemma á fætur og loksins lét ég verða af því að grípa í prjónana aftur eftir árs hlé. Einhverskonar barnateppi er komið í vinnslu og verður frekar fróðlegt að sjá útkomuna þegar þar að kemur. Um hádegið tók ég bleikju og smá ýsu úr frysti, skar niður sæta kartöflu sem ég sauð með spergilkáli. Frosna fiskinn setti ég saman í annan pott í vatn krydduðu með best á lambið. Úr varð hin ágætasta máltíð og nægur afgangur í tvo skammta. Ég var mætt í Nauthólsvíkina rétt fyrir þrjú. Við Hrafnhildur fórum þrisvar í sjóinn, einu sinni í gufuna og tvisvar í heita pottinn á einum og hálfum tíma. Var mætt í Hátúnið stuttu fyrir fimm. Eftir tímann fékk ég gefins sólmyrkvagleraugu og þau skilaboð að stöðinni yrði lokað klukkan fjögur n.k. miðvikudag svo ég fæ eina viku í frí. Á heimleiðinni kom ég við í Lyfju við Smáratorg og verslaði mér C-vítamín, hvítlaukshylki, ólífulauf og extra-tyggjó. Hitti bekkjarsystur úr 2. bekk í Helluskóla fyrir utan.
Þegar ég fór í háttinn í gærkvöldið stillti ég tvær "vekjaraklukkur", annars vegar klukkan hálfsex og hins vegar klukkan hálfsjö. Rumskaði um eitt leytið til að fara á pisseríið og ákvað í leiðinni að slökkva á fyrri vekjaranum og sleppa morgunsundi. Var mætt í vinnu um hálfátta. Hellti upp á, gerði uppgjör og fleira. Stöðvarstjórinn er búinn að útvega tveggja sæta sófa og aukaborði í afgreiðslurýmið og hann hafði þar að auki skroppið í Bónus í gær og passað upp á að kaupa hreint skyr og rjóma. Ég fór því aftur heim með chiagrautinn sem ég tók með í vinnuna í morgun og hafði sem millimál um fimm leytið eftir að ég kom heim.
4.8.26
Næst síðasti frídagurinn langt kominn
Ég mætti fyrst af sjö (tíu ef ég tel hundana með) næturgestum til pabba á laugardaginn var. Helga og Ingvi og hundarnir þrír voru síðust, komu milli fjögur og hálffimm. Þá voru Hulda, Óli og tvíburarnir mætt á tveimur bílum. Við pabbi, Helga og Hulda skruppum þá fljótlega í búðina. Þegar við komum til baka var þremur krydduðum lambalærum pakkað inn í álpappír og stungið í ofn. Þá var líka að komast á hreint hvernig raðað yrði í svefnplássin. Óli, Hulda og Bríet sváfu í stærsta herberginu því þar inni voru tvö rúm, annað tvíbreitt. Ég var ein í mínu herbergi, bræðurnir sváfu saman í tvíbreiðu rúmi í herberginu við hliðina, pabbi og sú spænski í stofunni. Hann í sínu rúmi við minni gluggann og hún á dýnu á gólfinu við stærri gluggann. Helga, Ingvi og hundarnir lögðu undir sig pabba herbergi og "spariforstofuna"! Sú spænska var annars að vinna til klukkan tíu um kvöldið. Kom ekki heim fyrr en við vorum búin að borða og ganga frá. Hún vinnur í eldhúsinu á Stracta hótelinu og er á tólf tíma vöktum. Átti líka vinnu vakt á sunnudeginum. Bræðurnir og Bríet skutluðu henni í vinnuna daginn eftir og gerðu sér ferð á Hvolsvöll eftir hálftöflum og fleiru. Ég rölti í sund og var mætt rétt áður en opnaði um tíu. Kom til baka um tólf leytið. Um hálfþrjú leytið lögðum við af stað á tveimur bílum en Ingvi átti pantað borð fyrir 18 manns á Friðheimum því vinafólk þeirra var á svæðinu. Oddur fékk að keyra okkur Helgu og Ingva og tvo af hundunum á Helgu bíl. Davíð Steinn keyrði bíl afa síns, með óléttu frænku sína í framsætinu og afa sinn, Bríeti og Óla aftur í. Hann lagði heldur lengra frá en hann þurfti en færði svo bílinn nær eftir að pabbi hafði rölt með eina hækju af bílastæðinu og svo smá stuðning þegar hann þurft niður nokkur þrep. Borðið var tilbúið um fjögur leytið og þá voru níu manns á aldrinum 3 til rúmlega 50 búin að bætast við. Stór hlutu af þeim hópi var á fyrstu (og einu hingað til) Árlandsleikunum sem voru haldnir sumarið eftir að Helga og Ingvi fluttu í sveitina fyrir norðan. Systir mín og mágur buðu tvíburunum að borða og drekka, var "sextugs"-afmælisgjöfin þeirra. Ég átti í vandræðum með að velja á milli súpu og sallats en það síðarnefnda, með önd, varð ofan á. Pantaði mér einnig eitt hvítvínsglas með matnum. Nokkru eftir að allir voru búnir að borða og sú ólétta, systir hennar og afinn orðinn þreytt að sitja lengur var ákveðið að Bríet tæki að sér að keyra afa bíl með okkur fjögur og báða hundana með til baka á Hellu. Bræðurnir og systir mín og mágur og hluti af vinahópnum varð aðeins lengur.
Í gær átti sú spænska frídag og hún vildi endilega elda fyrir okkur spænskan rétt. Svo gott hjá henni. Vorum að borða milli tvö og þrjú. Eftir matinn kvöddu Hulda og Óli og fóru til Keflavíkur og ekkert svo löngu á eftir þeim kvöddu bræðurnir. Þeir voru búnir að glíma við smá hálsbólgu alla helgina og mér skilst á Oddi að hann hafi verið kominn með hita seinni partinn í gær. Davíð Steinn átti að byrja að vinna aftur í dag eftir rétt rúmlega viku frí en hann varð að tilkynna sig inn veikan. Ég stoppaði fram yfir kvöldmat og eftirrétt en ákvað svo að drífa mig í bæinn. Bíllinn var í 56% en ég komst á honum alla leið heim og það var laust fyrir hann á hleðslustaurnum þegar ég bakkaði að honum um tíu þá komin niður í 22%. Var rúma sjö klukkutíma að hlaða hann upp í 100%, rumskaði upp úr klukkan fimm til að stoppa hleðsluna en fór ekki út til að taka hann úr sambandi og færa fyrr en um níu.
1.8.26
Í hlutlausum
Ekkert merkilegt gerðist á fimmtudaginn var, nema þá helst að ég kláraði að lesa eina bóka af safninu. Í gærmorgun borðaði ég hinn helminginn af hafragrautnum sem ég bjó til á miðvikudaginn og hitti svo kalda potts vinkonu mína og eina til í Nauthólsvík um tíu. Var komin heim aftur um tólf. Klukkan var orðin hálffjögur þegar ég fór loksins út aftur. Stillti heilsuforritið í símanum á útiveru en byrjaði á því að rölta í Jysk á Smáratorgi að kíkja á og versla garn sem kannski verður að barnateppi við rétta meðhöndlun. Svo hélt ég útiverunni og gönguferðinni áfram. Staldraði aðeins við Himnastigann en ákvað að labba aðra leið og einhverskonar hring. Nú er ég um það bil að fara að leggja í hann austur á Hellu. Helga systir og Ingvi mágur eru á leiðinni suður með hundana sína þrjá. Hulda og Óli komu í bæinn í gær, gistu hjá mömmu hans og fá að geyma hundinn hans þar á meðan þau verða fyrir austan. Pabbi er búinn að undirbúa komu okkar. Færa rúmið sitt í stofuna og smíða annað tvíbreytt í herbergið hans. Spænsk-suðurameríska stúlkan ætlar að hreiðra um sig í stofunni og það lýtur allt út fyrir að hægt verði að hola tíu manns niður inni, amk yfir eina nótt. Pabbi er með allra hressasta móti því blaðran er alls ekki að angra hann þessa dagana. Ég veit annars ekki hvort ég verð eina, tvær eða þrjár nætur fyrir austan. Ætla að láta það ráðast.
29.7.26
Ekkert kaffi í dag
Rumskaði fyrst um fimm leytið. Er ekki svo viss um að ég hafi steinsofnað alveg aftur en ég kúrði eitthvað. Um hálfsjö leytið greip ég í bók og rúmum klukkutíma eftir það fór ég loksins á fætur. Bjó mér til hafragraut um níu leytið. Á svipuðum tíma komu skilaboð frá ensku vinkonu minni. Hún og maðurinn hennar eru búin að bóka ferð til Íslands í 10 daga í júní á næsta ári og festa sér íbúð í sjö mínútna göngufæri frá mér. Þetta verður eitthvað skemmtilegt. Annars mætti ég í Nauthólsvík um það leyti sem verið var að opna og var ég á undan kaldapotts vinkonu minni. Fórum þrjár ferðir í sjóinn og í annarri ferðinni var ég lengur út í og svamlaði út að kaðli. Í þriðju og síðustu ferðinni tók ég sundhettuna af höfðinu og sjóbleytti hárið. Ég kom við í Krónunni í Lindum áður en ég fór heim. Fór ekki aftur út fyrr en upp úr klukkan hálffimm en þá brunaði ég í Hátúnið í osteostrong tíma.
28.7.26
Þrjátíu ár síðan synirnir voru skírðir
Rúmur klukkutími síðan ég kom heim eftir yndislega daga hjá æskuvinkonu á Egilsstöðum. Var svo heppinn að Davíð Steinn var í bænum og nennti að sækja mig á flugvöllinn. Hann skutlaði mér líka þangað um eitt leytið á föstudaginn var. Flugið austur tók um 45 mínútur og var ég að lenda rétt fyrir hálffjögur. Þurfti aðeins að bíða eftir að vera sótt á flugvöllinn, en það var í fínu lagi. Aðalsteinn, maðurinn hennar Ellu, var í sumarfríi á föstudaginn. Það var mikið gott að hitta Ellu og höfðum við um margt að spjalla. Um fimm leytið fengum við okkur hvítvínsglas í fordrykk en Aðalsteinn fór að undirbúa kvöldmatinn, folaldakjöt steikt í ofni í ofnpotti á rótargrænmeti. Mjög góður og vellukkaður matur. Á laugardagsmorguninn fór hann eldsnemma að leiðsegja mönnum frá Vestmannaeyjum í hreindýraveiði. Aðeins annar maðurinn var með leyfi fyrir tarfi en hinn fékk að fljóta með. Það fór allur dagurinn í þetta og endaði með því að þeir urðu frá að hverfa og fara aftur á sunnudaginn. Dagurinn hjá okkur Ellu byrjaði milli sjö og átta, reyndar hafði hún aðeins rumskað og farið fram um leið og bóndinn. Hún er með nokkuð fastmótaða rútínu dags daglega og heimsóknin mín truflaði alls ekki þá rútinu. Inn á milli vorum við að spjalla, leysa lykilgátur, sem hún er sérfræðingur í, horfa á þætti og alls konar. Um tólf ákvað ég að gera hlé á tæplega þriggja ára kaffibindindi og fékk mér einn bolla úr kaffivélinni hennar Ellu ásamt grillaðri samloku. Kaffið var himneskt en ég tók samt þá ákvörðun að "detta" ekki of mikið í það, hélt mig alla fjóra dagana við tvo bolla á dag, seinni bolla alls ekki seinna en klukkan þrjú. Hreindýratúrinn hjá Aðalsteini á sunnudaginn varði frá klukkan átta um morguninn til klukkan hálftvö aðfaranótt mánudagsins. Ella bauð mér út að borða á veitingastaðnum sem tilheyrir "Lake" gistihúsinum. Fórum þangað á rauða bílnum þeirra hjóna, ég bílstjórinn, og vorum settum hjólastólið í skottið á milli staða. Fengum okkur báðar rirsarækjur á grænmetis og ávaxtabeði. Seinna á sunnudaginn fórum við aðeins út á "röltið" þ.e. ég labbaði og Ella notaði rafskútuna sína. Löbbuðum niður á Vilhjálmsvöll, einn hring á ystu brautinni með smá stoppi og svo til baka. Borðuðum afgang af folaldasteikinni um kvöldið. Rétt fyrir hádegið í gær fékk ég rauða bílinn lánaðann og skrapp í heimsókn í Frumherja í Fellabæ. Var mætt rétt fyrir tólf og stoppaði aðeins inn í matartímann þeirra. Skoðunarmanninn þekkti ég aðeins en hann er fastamaður á Hádegismóum en tók að sér að leysa af fyrir austan næstu tvær vikurnar. Milli klukkan átta og tólf skoðaði hann 22 bíla, bæði bókaða bíla og fleiri sem komust að inn á milli ef þeir vildu bíða. Gætu hafa verið allt að fjórir auka bílar bara fyrir hádegi. Eftir heimsókina kom ég við í sundlauginni á Egilsstöðum. Fór beint á braut 2 og synti í um tuttugu mínútur, aðallega skriðsund en líklega um 125m bakskriðsund. Aðalsteinn grillaði ofan í okkur um kvöldið. Upp úr klukkan tíu í morgun skutlaði ég Ellu í sjúkraþjálfun, lagði svo bílnum og fékk mér um það bil hálftíma göngutúr á meðan. Eftir hádegi fórum við stöllur aðeins út á pall bak við húsið þar sem hún blés nokkrar sápukúlur, æfngar sem talmeinafræðingurinn hennar mælti með. Við vorum líka að leysa lykilgátur, horfa á þætti og spjalla. Aðalsteinn bauð upp á þorskhnakka með kartöflum og smjöri í kvöldmat áður en hann skutlaðist með mig á flugvöllinn.
23.7.26
Tvíburarnir þrítugir í dag
Ég gerði það með vilja að taka ekki fram tölvuna í gærkvöldi. Eftir vinnu í gær fór ég í osteostrong tíma, sló met á einu tækinu. Var komin í Nauthólsvík um hálfsex. Þar var margt um manninn því sjósundsfélag Reykjavíkur stóð fyrir einhvers konar sjósundskeppni. Ég er ekki í sjósundsfélaginu, var bara þarna að hitta kalda potts vinkonu mína. Við fórum tvisvar sinnum í sjóinn og í seinna skiptið svamlaði ég út að kaðli og fór smástund í lónið á leiðinni í pottin.
Rumskaði um fimm í morgun sem mér fannst mjög snemmt þar sem ég er byrjuð í tveggja vikna sumarfríi. Hafði ekki stillt á mig klukkuna og gat sem betur fer kúrt mig aðeins niður aftur, ekki mjög lengi samt. Held að ég hafi verið byrjuð að lesa einhvern tímann á sjöunda tímanum. Fór á fætur um átta, hélt áfram að lesa og kláraði næstsíðustu bókina af safninu. Um níu bjó ég mér til hafragraut og um tíu var ég mætt í Nauthólsvík þar sem verið var að opna. Svamlaði út að kaðli og fór í gufuna í tíu mínútur á eftir áður en ég fór aðra ferð í rúmlega 12°C kaldan sjóinn og svo í heita pottinn í ca tuttugu mínútur. Um hálftólf var ég komin á bókasafnið. Skilaði af mér öllum bókum nema einni, líka prjónablaðinu sem ég tók síðast. Í pokann fóru fimm bækur; Í leyndri gröf eftir Vivecu Sten, Hættulegur hæfileiki eftir Camillu Sten, Illska eftir Eirík Örn Norðdahl (gæti verið búin að lesa hana áður), Blómadalur eftir Niviaq Korneliussen og Oddaflug eftir Guðrúnu Helgadóttur.
Þegar ég kom aftur í bílinn af safninu átti klukkan stutt eftir í tólf. Ég hringdi í Odd Smára og talaði við hann á meðan ég keyrði yfir í N1 við Borgartún. Þar hitti ég á hinn soninn. Sá var með kórónu og svolítið skreyttur, m.a. með hálsmen með 30 á. Rétt eftir að ég hitti á Davíð Stein kom einn samstarfsfélaginn og byrjaði að syngja afmælissönginn. Ég tók undir, hástöfum, og afmælisbarnið hálf snéri sér undan. Ég var komin heim um hálfeitt. Ákvað að stinga bílnum í samband og hlaða þrátt fyrir að hann væri í 60%. Fljótlega eftir að ég kom inn fór ég að sinna því sem ekki má skrifa um. Hringdi líka í pabba og Ellu vinkonu. Þegar ég fór út að taka bílinn úr sambandi og færa hann í annað stæði seinni partinn, notaði ég tækifærið og fór í smá göngutúr. Stefnan var tekin á Himnastigann. Neðarlega var grafa við vinnu svo ég tók smá krók, sleppti þar af leiðandi einhverjum tröppum, fór þó alla leið upp og settist á bekkinn um stund. Labbaði svo aðeins aðra leið heim,
Á morgun á ég flug austur á Egilstaði. Davíð Steinn verður kominn í frí og ætlar að gefa sér tíma til að skutla mér á völlinn. Ég mun ferðast frekar létt. Tek ekki tölvuna með mér, enga handavinnu og kannski ekki einu sinni eina bók. Bara föt til fjögurra daga, snyrtibudduna, vítamín og sunddót. Færslur næstu tvær vikur verða örugglega mjög stopular.
21.7.26
Afturelding fer í bikarúrslitaleikinn í knattspyrnu karla 11. sept n.k.
Rumskaði aðeins of snemma en náði að kúra mig niður um stund. Slökkti á vekjaranum fimm mínútum áður en hann átti að ýta við mér. Eftir morgunverkin, morgunmatinn og lóðaæfingar hér heima var ég mætt í sund um það leyti sem opnaði í Laugardalslaug. Fór á braut 1 og synti 500m á rétt rúmum tuttugu mínútum. Stimplaði mig inn í vinnu rétt rúmlega hálfátta. Stöðvarstjórinn mætti fimm mínútum síðar og nýji skoðunarmaðurinn var mættur nokkru fyrir átta. Hann var aðeins að fylgjast með í afgreiðslunni og punkta hjá sér framan af morgni en eftir hádegi þegar meira varð að gera í skoðunum fór hann að hjálpa til þar. Eins og dagurinn byrjaði mjög rólega þá voru á endanum skoðaðir þrjátíuogþrír bílar í dag. Lokuðum á slaginu hálffimm og ég fór beinustu leið heim. Lítið annað að frétta nema ég byrjaði að lesa eina bókina úr síðustu ferð á safnið í gærkvöldi; Gröf minninganna eftir Bjarka Bjarnason. Mæli alveg með þeirri bók.
20.7.26
Tveir vinnudagar eftir fram að tveggja vikna orlof
Ég fór ekki að sofa fyrr en um miðnætti í gær. Var komin upp í rúm um tíu leytið og gleymdi mér alveg í lestrinum. Vaknaði við vekjarann um hálfsex. Mætti í sund um leið og opnaði. Synti 500m. Stimplaði mig inn í vinnu tuttugu mínútum fyrir átta. Stöðvarstjórinn var ný mættur og tíu mínútum á eftir okkur mætti nýr skoðunarmaður. Hafði verið í þjálfun hjá Frumherja í Hafnarfirði en á eftir að klára námskeið eða próf til að fá skoðunarnúmer. Þeir voru því að vinna tveir saman við skoðanir í dag, annar meira uppi og hinn niðri en það var stöðvarstjórinn sem skilaði öllum skoðunum. Á tíma var erill í símsvörun og smá að gerast í númeraplötuviðskiptum. Vinnudagurinn leið fljótt, lokuðum á slaginu hálffimm og ég var komin heim fyrir klukkan fimm.
19.7.26
Helgin og HM að klárast
Þessi helgi hefur verið fljót að líða eins og flestar aðrar helgar. Ég leyfði mér að sofa út í gærmorgun og skrópa í sundið. Vaknaði um hálfníu og frétti um hálftíma síðar að lítil frænka hefði fæðst í Danmörku nokkrum klukkustundum fyrr. Yngsti bróðir mömmu heitinnar og konan hans, 10 og 9 árum eldri en ég, voru að verða afi og amma. Dótturdóttirin hefur verið nefnd Alma. Klukkan tíu var ég mætt til norsku esperanto vinkonu minnar og stoppaði hjá henni í rúma klukkustund. Áður en ég fór heim keypti ég þvott á bílinn hjá Löðri við Fiskislóð. Um þrjú leytið skrapp ég út í göngu, fór 4,4km, með einni pásu, á klukkustund og tuttugu mínútum. Oddur Smári kom um hálftíu í gærkvöldi, rétt áður en Englendingar skoruðu þriðja markið í fyrri hálfleiknum um þriðja sætið á HM. Leikurinn endaði 6:4 fyrir England á mótið Frökkum. Frakkar voru ekki sjálfum sér líkir í fyrri hálfleiknum. En það lítur allt út fyrir að Mbappe verði markakónur, hann skoraði tvö í seinni hálfleik í gær og komst upp í 10 mörk skoruð á þessu móti.
Var komin á fætur um hálfníu í morgun. Bjó mér til hafragraut og tók mig til fyrir sjósundsferð. Hafði smá tíma til að gera æfingar með lóð og lesa. Var mætt í Nauthólsvík rétt fyrir tíu. Hitti kalda potts vinkonu mín sem og sjósundsvinkona mína og aðra til. Kalda potts vinkonan og ég fórum þrisvar í sjóinn, einu sinni í gufu, einu sinni í lónið og tvisvar í pottinn. Ég var komin heim um tólf og hafði glútenlausar fiskibollur úr Fiskbúð Fúsa og sætar kartöflur í matinn. Um þrjú skutlaði ég Oddi í Mjóddina þar sem hann tók næsta strætó á Selfoss, tuttugu mínútur yfir, til að verða kominn á Bakkann áður en úrslitaleikurinn í HM byrjaði.
17.7.26
Viðburðarríkur föstudagur í vinnunni
Synti 500m á brautum 3-5 í morgun, 300m skriðsund og 200m bakskriðsund. Þvoði mér um hárið áður og stimplaði mig inn í vinnu upp úr klukkan hálfátta. Um leið og við opnuðum kom eldri maður, sem bæði hefur hringt og komið áður, til að láta okkur vita að hann hafði valið þessa stöð til að skrá og skoða heimasmíðaðan rafbíl. Hann sagðist vera með alla pappíra frá samgöngustofu og að það kæmu tveir eftirlitsmenn um níu til að fylgjast með. Hann átti eftir að ljúka við að fylla út eitt form og var aðeins á vappinu á svæðinu en fór svo út og skrapp frá þar til klukkan var níu og eftirlitsmennirnir komu. Í millitíðinni höfðu verið skoðaðir tveir bílar. Tæpan klukkutíma tók að taka út þetta nýstárlega furðulega farartæki en niðurstaðan varð bílasmiðnum ekki í vil því alltof mörgu var ábótavant. Fljótlega eftir að þessu ævintýri lauk kom útlendingu hvers farartæki lögreglan hafði boðað í aukaskoðun út af brotnum afturljósum. Hann kom reyndar í gær líka en var ekki með nægan pening þá því það voru ógreidd opinber gjöld á eindaga af bílnum. Viðkomandi bifreið á að koma í skoðun síðar á árinu og við buðum honum að fara í aðalskoðun en hann vildi frekar fara í lögregluskoðun og hélt að þá væri bara skoðað að ljósin væru í lagi. Það endaði með að stöðvarstjórinn hafnaði því að gera skoðun, sagði manninum að fara annað. Ég sá það í ökutækjaskrá seinna í dag að það hafði hann gert, borgað fyrir L1, sem þýðir að ef bíllinn hefði staðist skoðun hefði hann fengið 26 miða og þurft að koma aftur í A1 síðar á árinu. En bifreiðin stóðs ekki skoðun og fékk akstursbann. Stöðvarstjórinn skrapp heim til sín í hádeginu. Ég fór í tuttugu mínútna göngu. Í heildina voru skoðuð 30 farartæki í dag. Lokuðum á slaginu fjögur og ég fór í klippingu áður en ég fór heim og stakk bílnum í hleðslu, var kominn í 30%. Eftir tæpa fjóra tíma er hann kominn í 70%.
16.7.26
Júlí hálfnaður
Ég las einn og hálfan kafla áður en ég fór að sofa í gærkvöldi. Líklega hefur klukkan verið um það bil ellefu þegar ég slökkti ljósið. Rumskaði um þrjú, alveg í spreng, en sofnaði strax aftur eftir að hafa farið á pisseríið. Vissi næst af mér þegar vekjarinn fór að hamast upp úr klukkan hálfsex. Rúmlega klukkustund síðar var ég komin á braut 7 í Laugardalslauginni. Synti 100m áður en ég færði mig á braut 6 og synti 400m í viðbót. Stimplaði mig inn í vinnu tuttugu mínútum fyrir átta. Einn var á húninum á slaginu átta en svo var nokkuð rólegt til að byrja með. Lokuðum í rúmlega hálftíma í hádeginu, þá var búið að skoða 18 farartæki. Stöðvarstjórinn skrapp heim til sín, ég fór í tuttugu mínútna göngu um nágrennið. Meiri erill var eftir hádegi, bæði í síma og annarri afgreiðslu. Heildarfjöldi skoðaðrar farartækja fór upp í 41. Lokuðum á slaginu hálffimm. Ég byrjaði á því að skreppa á bókasafnið. Skilaði fjórum bókum af fimm. Fletti í gegnum prjónablöð og tók eitt að láni ásamt þremur bókum. Kom við í Krónunni í Lindum áður en ég fór heim. Ein vinkona, jafnaldri og fyrrum starfsfélagi hringdi fljótlega eftir að ég kom heim. Við áttum langt og gott spjall.
15.7.26
Nokkuð viðburðarríkur dagur sem byrjaði svolítið snemma
Vaknaði helst til snemma þar sem ég ætlaði mér ekki að mæta í sund fyrir vinnu. Klukkan var ekki orðin sex en ég var útsofin og ég notaði tækifærið m.a. til að gera nokkrar æfingar með 2kg lóðum, borga föstu afborgunina inn á húsnæðislánið, taka mig til fyrir sjósund eftir vinnu og njóta þess að borða chia-morgun grautinn í rólegheitum. Um sjö birtist annar greiðsluseðill vegna húsnæðislánsins í bankaappinu, 2 af þremur í samningi sem ég gerði við sjálfa mig á síðum hsm. Er nú búin að greiða lánið niður um rúmar 4 millijónir síðan ég flutti það yfir á nýja heimilið. Greiðslubirgðin minnkar jafnt og þétt sem er gott. Stimplaði mig inn í vinnu um hálfátta og hafði í nógu að snúast fram að opnun. Morguninn byrjaði rólega en engu að síður var búið að skoða átján bíla fyrir klukkan tólf. Skrapp út í tæplega hálftíma göngu í hádeginu. Opnað var fyrir skoðanir aftur rétt rúmlega hálfeitt og þegar við stimpluðum okkur út tæpum fjórum tímum síðar var heildarfjöldinn kominn upp í 42. Eftir vinnu fór ég beint í osteostrong tíma. Þurfti að bíða smástund eftir að komast að. Bætti mig á tveimur tækjum. Var komin í Nauthólsvík rétt fyrir klukkan hálfsex þar sem ég hitti kalda potts vinkonum mína. Það var háflóð og mjög stutt út í hressandi 11,6°C sjóinn. Vorum extra lengi þar sem við höfðum ekki hist í tæpar tvær vikur en við vorum þó komnar upp úr nokkru áður en lokaði um sjö. Hringdi í tvíburahálfsystur mína þegar ég var að leggja af stað frá Nauthólsvík og var komin til hennar skömmu síðar. Hún bauð mér í kvöldmat sem var súpergóður, lax, sveppir, sætar kartöflur og hollanderssósa. Á níunda tímanum kveikti hún á sjónvarpinu, RÚV og útsendingu frá seinni undanúrslita leiknum. England var nýlega búið að komast 1-0 yfir gegn Argentínu og reyndu svo að verja markið. Argentínumenn gáfust ekki upp og unnu leikinn 2:1. Held að úrslitaleikurinn á sunnudaginn, Spánn - Argentína verði mjög skemmtilegur. Var annars líka að fletta prjónablöðum sem endaði með því að ég tók nokkur með mér heim, eiginlega allan bunkann sem ég var búin að velja og taka frá á sunnudaginn var. En nú er löngu kominn tími fyrir "morgunsunddrottninguna" að koma sér í bælið. Freistast samt örugglega til að lesa smá.
14.7.26
Útsofin í morgun
Ég var pottþétt sofnuð um tíu í gærkvöld og svaf alveg þar til vekjarinn fór að hamast um hálfsex leytið. Var mætt á planið við Laugardalslaugina rétt áður en klukkan varð hálfsjö. Það var hópur á sundæfingu á brautum 6 og 7 svo ég fór á braut 1 og synti 500m áður en ég settist smá stund í steinapottinn. Stimplaði mig inn í vinnu örlítið fyrr en í gærmorgun. Skrapp í tuttugu mínútna göngutúr í hádeginu. Í heildina voru skoðaðir 35 bílar í dag. Ég kom heim um fimm. Þremur korterum seinna fór ég í lopapeysu, strigaskó, setti á mig ennisband og stillti heilsuforritið í símanum á útivist. Labbaði að Himnastiganum og upp langflestar tröppurnar. Sleppti örfáum tröppum neðarlega á leiðinni þar sem að var ungur maður á smágröfu að vinnu. Settist á bekkinn sem er efst uppi í nokkrar mínútur áður en ég fór niður og aftur upp og niður. Grafan var tóm og stopp svo ég fór allar tröppurnar. Labbaði svo stystu leið heim sem er um 950m og var komin áður en fyrri undanúrslitaleikurinn á HM hófst. Núna er hálfleikur og staðan er 1:0 fyrir Spán sem fékk vítaspyrnu stuttu fyrir vatnspásuna.
13.7.26
Mánudagur
Ég var alls ekki útsofin þegar ég fór á fætur stuttu fyrir sex í morgun en ég var ákveðin í að byrja daginn á því að mæta í sund. Það hressti mig til muna. Synti 500m á braut 7 í Laugardalslaug, skriðsund aðra leiðina og bakskrið til baka. Sat svo á spjalli í steinapottinum þar til kominn var tími til að fara upp úr. Stimplaði mig inn í vinnu nítján mínútum fyrir átta og var búin að hella upp á kaffi, snurfursa biðrýmið, opna afgreiðslukerfin og gera upp fimm mínútum fyrir átta. Rólegt var til að byrja með en skoðaðir voru fjórtán bílar fyrir hádegi. Í hádeginu skrapp stöðvarstjórinn aðeins heim og kom svo við í Bónus á leiðinni til baka. Ég skrapp í tuttugu mínútna göngutúr og var byrjuð að taka símann aftur rétt fyrir klukkan hálfeitt. Í heildina voru skoðaðir þrjátíuogfjórir bílar í dag. Hulda frænka fór í tuttugu vikna sónar og fékk að vita að það er von á stelpu seint í nóvember n.k.
12.7.26
Samantekt helgarinnar
Í gærmorgun var ég ákveðin í að sleppa sundinu og ætlaði ég mér að sofa út. Ég varð því mjög hissa þegar "vekjaraklukkan" fór að hamast eldsnemma, um sex að mér sýndist og með nýju hljóði. Í raun var síminn að hringja rétt rúmlega fimm og var það systir mín sem vasahringdi óvart í mig. Ég snéri mér á hina hliðina, nennti ekki fram á pisseríið, og tókst að sofna aftur. Fór á fætur stuttu fyrir níu og bjó mér til hafragraut úr grófum grjónum. Rétt rúmlega ellefu var ég mætt til norsku esperanto vinkonu minnar og á sama tíma kom þar að ein úr Viðeyjargegningu, röltandi frá Aflagrandanum. Innan korters vorum við þrjár lagðar af stað austur fyrir fjall. Keyrðum úr ágætis veðri í bænum inn í þokusúld í Þrengslunum. Það var blautt á Selfossi og líka frekar rigningarlegt á Hellu. Komum til pabba stuttu fyrir klukkan eitt og fengum að pissa. Stoppuðum í ca þrjú korter en vorum mættar nokkru fyrir klukkan tvö í skúrinn við Hellana á Ægisíðu þar sem við keyptum okkur skoðunarferð með íslenskri leiðsögn. Héldum að færði um hellana tæki um klukkustund en þegar búið var að fara inn í þrjá hella og kíkja inn í aðra þrjá og fá mjög góða leiðsögn um þá alla og góðan tíma til að skoða og mynda ef vildi þá var klukkan langt gengin í fjögur. Við fórum aftur til pabba sem bauð upp á pönnsur og Inger upp á smurðar flatkökur, eplapæ og formköku. Pabbi fékk sér kranavatn með, ein fékk kaffi en við vorum tvær í teinu. Hjálpuðumst að við að ganga frá eftir að hafa kýlt vambirnar og spjallað um ýmislegt. Kvöddum pabba rétt fyrir klukkan hálfsex. Stoppuðum næst við Olís vestan við Ölfusá. Lenti í smá veseni með að hlaða bílinn. Appið var dottið út en þegar ég kom því inn aftur tókst að tengja bílinn við hraðhleðsluna. Skilaði stelpunum af mér fyrir utan heima hjá esperanto vinkonu minni um hálfátta leytið og ég fór beinustu leið til að undirbúa mig undir að horfa á þriðja leikinn af fjórum í átta liða úrslitunum. Ég var löngu farin að sofa þegar Oddur kom og bjó um sig í stofunni.
Í morgun ætlaði ég aldrei að nenna á fætur. Dreif mig þó fram áður en klukkan varð mikið meira en tíu. Oddur var vaknaður en ekki búinn að klæða sig eða búa um en fór þó að vinna að því fljótlega. Vorum að spjalla og ákváðum m.a. að sleppa því að fá okkur morgunmat. Ég bauð upp á saltfist og sæta kartöflu í hádeginu og um hálftvö skruppum við mæðgin í tæplega klukkutíma göngu. Sýndi honum Himnastigann og við löbbuðum upp allar 207 tröppurnar en þar sem verið var að mála hann og merkja ákvaðum við að vera ekki að trufla fólkið sem vann að því og löbbuðum í smá hring um hluta af hverfinu. Rúmum hálftíma eftir göngu túrinn skutlaði ég syninum í Mjóddina til að hann næði strætó austur á Selfoss. Sjálf hringdi ég í tvíburahálfsystir mína til að kann hvort hún væri heima og tæki á móti mér. Gerði mjög gott stopp hjá henni.
10.7.26
Vinnuvikan liðin
Var mætt í sund um hálfsjö. Fór á braut 4 og synti í tuttugu mínútur. Sat svo í korter í steinapottinum á spjalli við leikkonuna Kötlu Margréti Þorgeirsdóttur. Stimplaði mig inn í vinnu korter fyrir átta og var búin að hella upp á, snurfusa biðrýmið og setja upp afgreiðslukerfin áður en klukkan varð átta. Þar sem ekki var greitt með reiðufé í gær hafði ég gert upp í lok vinnudagsins í gær. Skoðaðir voru átján bílar fyrir hádegi, samt var mjög rólegt fyrsta klukkutímann. Í hádeginu skrapp ég aftur út í tuttugu mínútuna göngu. Eftir hádegi voru skoðuð 22 farartæki, þar af eitt mótorhjól. Stimpluðum okkur út á slaginu fjögur. Ég kom aðeins við í N1 í Borgartúni. Lét Davíð Stein taka húslykla til að láta bróður sinn hafa. Oddur fær gistingu aðfaranótt sunnudags en þeir bræður eru boðnir í þrítugsafmæli bekkjarsystur úr Hlíðaskóla á laugardagskvöldið. Stakk bílnum í hleðslu þegar ég kom heim upp úr klukkan hálffimm. Hann er kominn upp í 98% núna og segist geta verið að hlaða til klukkan tíu eða í hálftíma í viðbót. Ég skrepp bráðum út, stoppa hleðsluna og færi bílinn á annað stæði.
9.7.26
Fimmtudagur
Ég fór heldur seinna að sofa í gærkvöldi en flest virk kvöld. Klukkan var að verða tíu þegar ég fór í háttinn og þá átti ég eftir að lesa í rúman hálftíma eða þangað til augun fóru að ranghvolfast ég hætt að meðtaka þar sem ég var að reyna að lesa. Rumskaði einhvern tímann um miðja nótt til að fara á pisseríið, sofnaði ekki alveg strax aftur en svaf svo alveg þar til vekjarinn ýtti við mér. Mætti í Laugardalslaugina þegar hún opnaði um hálfsjö, sund, smá spjall í steinapottinum og köld sturta áður en ég fór upp úr og í vinnu. Vinnudagurinn byrjaði mjög rólega, aðeins einn bíll skoðaður milli klukkan átta og rúmlega hálftíu en svo voru 16 bílar skoðaði eftir það til klukkan tólf. Ég skrapp aðeins út í smá göngu, tæpar tuttugu mínútur, í hádeginu. Aðeins meira var að gera eftir hádegi en verkefnin komu í skorpum. Í heildina voru gerðar 29 skoðanir í dag. Kom við í Fiskbúð Fúsa áður en ég fór heim. Verslaði harðfisk, ýsu, saltfisk og smá þorskhnakka sem ég fékk skorinn í þrjá bita.
8.7.26
Hálfurmánuður í sumarfríið
Vaknaði helst til snemma í morgun þar sem planið var að sofa þar til klukkan væri byrjuð að ganga sjö. Var aðeins á "skrollinu" fyrsta hálftímann áður en ég fór á fætur. Tók með mér sjósundsdótið út í bíl á áttunda tímanum og var mætt í vinnu um hálfátta. Veitti ekkert af þessum tíma til að undirbúa daginn og græja eitt og annað áður en opnaði. Dagurinn byrjaði annars rólega en þó voru 16 faratæki skoðuð fyrir hádegi. Í hádeginu skrapp stöðvarstjórinn heim til sín. Ég labbaði tuttugu mínútna hring um svæðið eftir að ég var búin að fá mér að borða og ganga frá. Stimplaði mig úr vinnu á slaginu hálffimm og fór beint í osteostrong. Bætti mig á tveimur tækjum, tvö met. Eftir tímann fór ég beinustu leið í Nauthólsvík. Þar hafði ég mælt mér mót við frænku kaldapotts vinkonu minnar. Sú var nýkomin í klefann þegar ég mætti. Það er langt síðan hún fór í sjóinn síðast. Þótt sjórinn sé 12°C og hún nokkuð vön köldum pottum þá var þetta pínu sjokk fyrir líkama hennar. Vorum líklega útí í um eina og hálfa mínútu. Eftir nokkra stund í heita pottinum fórum við aftur í sjóinn. Hún fór upp úr eftir rúmar tvær mínútur og beið eftir mér í heita pottinum þegar ég kom nokkrum mínútum seinna. Fórum aðeins í gufuna, smá í lónið, sem var volgara en sjórinn þar sem var fjara og vorum svo korter í heita pottinum áður en við fórum upp úr. Ég var komin heim rétt fyrir klukkan sjö.
7.7.26
Sjöundi sjöundi tuttuguogsex
Var farin að losa svefninn í þann mund sem vekjarinn ýtti við mér. Snúsaði einu sinni eiginlega aðallega til að teygja mig og slaka á án þess að hafa áhyggjur af því að ég myndi gleyma tímanum. Fór út í daginn korter yfir sex og var mætt í Laugardalslaug um hálfsjö. Mun færri voru í sundi í morgun en samt einhvern veginn smá kraðak á brautunum til að byrja mér. Æfði mig í að synda hægt í stað þess að reyna að synda framúr. Var mætt í vinnu örlítið fyrr en í gær. Sömu verkefni og bætti við tæmingu á helstu ruslafötum. Þegar við lokuðum í hádeginu um tólf var búið að skoða fimmtán farartæki. Stuttu eftir hádegi komu feðgarnir, sem sjá um tæknimálin í fyrirtækinu, til að skipta um tölvu hjá mér og uppfæra. Ég var nýbúin að bóka inn tvo bíla en svo bókaði ég ekki aftur fyrr en um tvö. Í heildina voru samt skoðaðir tuttuguogátta bílar. Kom við í Krónunni í Skeifunni áður en ég fór heim. Kveikti fljótlega á sjónvarpinu og horfði á síðasta hálftímann í leik Argentínu og Egyptalands. Síðasta rúma hálftímann hef ég hlustað á lýsingu á leik Sviss og Kólumbíu á meðan ég hef verið að vafra á netinu í fartölvunni við eldhúsborðið.
6.7.26
Ný vinnuvika farin af stað
Vaknaði klukkan að verða hálfsex. Um klukkustund síðar var ég mætt á planið við Laugardalslaug. Fór beint á braut 7 og synti 500m. Flestar ferðirnar skriðsund og bakskriðsund til baka en lokaferðina til baka synti ég bringusund í fyrsta skipti í rúma viku. Fór í steinapottinn, sem hefur verið settur upp í amk 40°, þar sem hann er eiginlega eini "heiti" potturinn í notkun þessa dagana. Stimplaði mig inn í vinnu nítján mínútum fyrir átta. Hellti upp á, snurfusaði biðrýmið í afgreiðslunni, startaði tölvukerfunum og gerði upp kassann frá því á föstudaginn. Stöðvarstjórinn mætti nokkrum mínútum fyrir átta. Þótt það væru einhverjir á húninum var tiltölulega rólegt framan af morgni. Þó voru skoðaðir tuttugu bílar fyrir klukkan tólf. Farið var í Bónus í hádeginu og lokunartíminn lengdur um ca korter, opnað aftur korter fyrir eitt. Í heildina fóru skoðanirnar upp í 41 yfir allan daginn og sú sem kom með síðasta bílinn sem var skráður inn var ein bekkjarsystir mín úr A-bekknum í Kennó. Hún var búin að kveikja á mér, mundi bara ekki nafnið, ég þekkti hana ekki fyrr en ég skráði bílinn hennar inn og sá nafnið hennar. Áttum mjög gott spjall þar til ég þurfti að ganga frá afgreiðslunni, stimpla mig út og fara. Þá var bíllinn hennar langt komin í skoðuninni. Ég kom við í N1 í Borgartúni og skilaði syninum hattinum, sem hann hafði reyndar fengið frá móðurafa sínum fyrir þónokkru síðan. Pabbi hafði keypt þennan hatt í annarri af tveimur Tene ferðum með mömmu heitinni á sínum tíma. Annars var ég komin heim stuttu fyrir klukkan hálfsex og ég hugsa að það endi með því að ég horfi loksins á heilan leik á HM í knattspyrnu, 16 liða úrslit milli Spánar og Portúgals.
5.7.26
Uppgjör helgarinnar
Ég er á Hellu í augnablikinu, að ákveða mig hvenær ég legg af stað í bæinn. Var vöknuð upp úr klukkan sjö í gærmorgun en ekki komin á fætur þegar Villa vinkona hringdi í mig stuttu fyrir klukkan átta. Við vorum báðar á leið í sama hitting og höfðum talað um að hún pikkaði mig upp á Hellu upp úr hádeginu. Gestgjafarnir höfðu sent á hana skilaboð um hvort hún gæti komið fyrr. Ég lagði af stað úr bænum tuttugu mínútum fyrir tíu og fór Þrengslin. Ég var rétt komin í gegnum Selfoss og þegar Villa hringdi aftur. Hún hafði lagt af stað tíu mínútum á eftir mér, komið við á einum stað, farið Hellisheiðina og var að keyra framhjá Landsbankahúsinu á Selfossi. Við sammæltumst um að ef hún næði mér ekki áður en ég væri komin á Hellu skyldi ég bíða eftir henni við Olís. Ég stoppaði bílinn reyndar við Arionbanka-bygginguna. Villa kom um þremur mínútum seinna og elti mig til pabba. Vorum þar um ellefu. Ég fór á pisseríið, setti inn dót í herbergið mitt, heilsaði upp á pabba og ítölsku stúlkuna sem fær afnot af einu herberginu þessa dagana. Villa kom líka aðeins inn en við stoppuðum varla í tíu mínútum. Komum við í ÁTVR á Hellu þar sem ég keypti tvær mis-litlar hvítvínsflöskur. Umferðin austur fyrir Hellu og fram að Odda afleggjara var hæg vegna umferðaróhapps. Stoppuðum aðeins í N1 á Hvolsvelli áður en við héldum för áfram inn í Fljótshlíðina að sumarbústað sem er í landi Nátthaga. Þar var vel tekið á móti okkur af þeim tveimur sem eiga bústaðinn og einum gesti sem mætti á föstudeginum. Fljótlega fórum við að hjálpast að við undirbúningi á kvöldmatnum og það var allt búið á ótrúlega skömmum tíma og löngu áður en næstu gestir komu. Alls mættu átta manns í viðbót. Tvennt á húsbíl, tvennt með 6m hjólhýsi í togi, tvennt með 8m hjólhýsi í togi og tvær systur saman á bíl sem ég fékk svo far með á Hellu seint í gærkvöldi. Veðrið var með besta móti, eiginlega of gott og á ákveðnum tímapunkti fór ég í lopapeysu til að handleggir héldu ekki áfram að brenna. Önnur systirin bar líka framan í mig. Þótt ég væri rauð fann ég ekki fyrir þessu. Glatt var á hjalla langt fram á kvöld. Borðuðum úti um átta leytið og seinna um kvöldið var dreginn upp gítar og sönghefti. Ég var komin á Hellu aftur tuttugu mínútum eftir miðnætti og þá áttu systurnar eftir að keyra alla leið í bæinn. Þær sendu skilaboð klukkutíma og korteri síðar um að þær væru komnar heim. Sá þau skilaboð eftir að ég fór á stjá í morgun, en Villa var amk búin að svara þeim.
Stofuklukkan stoppaði um hálftvö í nótt svo ég gat ekki athuga með tímann með því að hlusta á slög þegar ég vaknaði á áttunda tímanum í morgun. Fór á fætur milli átta og hálfníu og einum og hálfum tíma síðar dreif ég mig út í göngu, ákveðin í að labba niður með ánni austan megin alla leið að Ægisíðufossi. Var tæpan klukkutíma á leiðinni. Staldraði við á svæðinu í um korter. Labbaði vegslóða til baka og kom að Hellu við Stracta Hótel. Þá labbaði ég aftur að ánni til þess að fara undir brúna. Þegar ég kom að Hólavanginum hjá pabba aftur voru systurdóttir mín og sú ítalska að hreinsa á milli hellanna á bílaplaninu og pabbi að "saga" niður ónýta sólberjarunna í garðinum. Ég dreif í að elda og matur var borðaður um hálftvö, þótti mjög góður. Fljótlega eftir mat fóru Bríet og vinkonan í smá verslunarferð í bæinn og pabbi aftur út að dútla í garðinum.
3.7.26
Ferð á bókasafnið eftir vinnu
Þrátt fyrir þær fréttir að búið væri að loka fyrir uppáhaldspottana mína, gufuna og fleiri potta í Laugardalslauginni var ég mætt í sund um hálfsjö. Fór beinustu leið á braut 7 og synti 600m á innan við hálftíma. Ekkert bringusund bara skrið og bakskriðssund. Kom aðeins við í steinapottinum áður en ég fór í sturtu og þvoði mér um hárið. Geir Ólafs var með söngatriði í afgreiðslurýminu, staldraði aðeins við en var mætt á planið við vinnuna tuttugu mínútum fyrir átta. Afleysingaskoðunarmaðurinn var þegar mættur á planið. Stöðvarsjórinn mætti rétt fyrir átta. Um hálfníu þurfti afleysingamaðurinn að fara upp í Hádegismóa en hann kom aftur í Skeifuna um hálftvö því fljótlega eftir það þurfti stöðvarstjórinn að fara. Í nógu var að snúast í dag. Sendillinn kom með nýjan kaffibrúsa og skrapp svo fyrir mig í bankann eftir skiptimynt. Hættum á slaginu fjögur og ég var á leiðinni á bókasafnið þegar var hringt í mig. Eftir tuttuguogfimmmínútna spjall skilaði ég fjórum bókum á safnið, framlengdi einni og tók fjórar bækur með mér heim. Setti bílinn í hleðslu um fimm og er bara nýbúin að taka hann úr sambandi og færa á annað stæði.
2.7.26
Líður á vinnuvikuna
Rumskaði stuttu fyrir fimm, alveg í spreng. Sofnaði aftur eftir að hafa farið á pisseríið og vaknaði við vekjarann rúmlega hálfsex. Aldrei þessu vant snúsaði ég tvisvar sinnum og fór ekki á fætur fyrr en rúmum tíu mínútum seinna, aftur alveg í spreng. Var samt ekki að þamba neitt í gærkvöldi. Mætti í sund klukkan hálfsjö. Fór þrisvar í kalda pottinn, synti 300m, fór nokkrar mínútur í gufu og sjópottinn. Nú síðdegis voru annars að berast þær fréttir að loka þurfi gufunni og öllum pottum sem eru stúku megin. Það er spurning hvort ég verði að endurhugsa eða færa morgunsundið í aðra laug. Stimplaði mig inn í vinnu tæpum tuttugu mínútum fyrir átta og var búin að gera upp og starta afgreiðslukerfum í tölvunni í afgreiðslurýminu þegar stöðvarstjórinn mætti. Morguninn var með rólegra móti, þó voru nokkrir á húninum. Það var mun meira að gera eftir hádegi en alls ekkert stress. Í heildina voru skoðuð 33 farartæki. Stimpluðum okkur út og lokuðum á slaginu hálffimm. Ég kom við í N1 í Borgartúni, bæði til að kasta kveðju á N1 soninn og fá lánaðan kúrekahatt til að vera með í hittingnum á laugardaginn.
1.7.26
Árið hálfnað
Vaknaði mun fyrr en ég þurfti þar sem ég ætlaði beint í vinnu en ekki fyrst í sund. Fékk mér chiagraut, kláraði morgunverkin, fyllti á vatnsflöskuna, tók til sjósundsdótið og las svo þar til kominn tími var til að fara. Stimplaði mig inn í vinnu um hálfátta. Það var ein á húninum þegar við opnuðum klukkan átta en svo var rólegt í rúman hálftíma eftir að skoðun lauk. Í heildina komu samt 36 bílar í skoðun í dag. Einnig var smá erill í símsvörun og öðrum afgreiðslum. Stimplaði mig út á slaginu hálffimm og var mætt í osteostrong tíma korteri síðar. Komst strax að. Bætti mig á þremur tækjum af fjórum. Tuttugu mínútum yfir fimm var ég komin í Nauthólsvík, þar sem kalda potts vinkonan beið eftir mér í heita pottinum. Ég byrjaði á því að endurnýja árskortið og fékk blátt armband með mér inn í búningsklefa. Klukkan var rúmlega hálfsex þegar við fórum fyrri ferðina í sjóinn. Það var að flæða að, stutt út í og sjórinn 12,5°C. Ég var komin heim rétt fyrir sjö. Setti upp frosið rósakál og sauð upp á ýsunni sem ég keypti hjá Fúsa í gær. Var að borða kvöldmatinn upp úr klukkan hálfátta.