31.3.26

Mars að klárast

Ég tók ákvörðun í gærkvöldi að stilla vekjaraklukkuna ekki á "mætaísundfyrirvinnu-tíma", heldur klukkutíma seinna. Var meðvituð um það að ég fór alltof seint að sofa. Rumskaði einu að síður lauslega um hálffimm en steinsofnaði strax aftur. Vaknaði svo fimm mínútum áður en klukkan átti að hringja. Mætti í vinnu upp úr klukkan hálfátta. Ungi stöðvarstjórinn mætti á slaginu átta og afleysinga-skoðunarmaðurinn nokkrum mínútum seinna, á sínum síðasta degi í vinnu hjá frumherja. Það var næstum jafn erilsamt í dag og í gær. Fór beint heim eftir vinnu og gerði mest lítið af mér. Samt er tíminn floginn hjá, alltof hratt. 

30.3.26

Erilsamt í vinnunni í dag

Þar ég fer orðið í sund eftir vinnu á mánudögum hafði ég stillt klukkuna á að ýta við mér tuttugu mínútum fyrir sjö. Ég var hins vegar vöknuð um hálfsex. Notaði tímann í smá lestur og þegar ég fór á fætur gerði ég nokkrar æfingar með 2kg lóðum. Fékk mér chiagraut í morgunmat og var mætt í vinnu um hálfátta. Skoðunarmennirnir voru báðir mættir nokkrum mínútum fyrir átta og klukkan var nýorðin átta þegar byrjaði að streyma inn í skoðun. Þeir fengu ekki pásu fyrr en um tíu og sú pása var frekar stutt. Það voru skoðaðir yfir tuttugu bílar fyrir hádegi. Einn af þeim sem kom með bíl kunningja síns í skoðun var "draugur" úr fortíðinni, Guðmundur Skúli Jonhsen og var hann með tvær yngstu dætur sínar með sér. Fyrir utan allar skoðanir, en þær urðu 65 í heildina (og vorum við samt ekki hæst af frumherjastöðvunum), var svolítið að gera í símsvörun, netspjalli, móttöku númera og uppflettingum. Ég stimplaði mig út rétt rúmlega hálffimm, á undan skoðunarmönnunum sem voru að klára að skoða síðasta bílinn áður en þeir myndu ganga frá og loka. Hringdi í pabba og spjallaði við hann á meðan ég keyrði yfir í Laugardalslaug. Hann fór í sund í morgun og sagði að það hefðu ekki allir plástrar skolast af sárinu sem var límt saman eftir fallið í síðustu viku. Sundferðin gekk vel og hann var ánægður að vera kominn aftur í venjulega rútínu. Kalda potts vinkona mín sendi mér skilaboð um að líklega yrði hún frekar sein því hún átti von á símtali sem hún varð að bíða eftir. Það fór svo að símtalið kom ekki fyrr en á sjöunda tímanum en þá var ég búin að synda 500m, fara 4 sinnum í þann kalda, 2 sinnum í þann heitasta, sjópottinn og gufuna og kominn upp úr. Kom heim stuttu fyrir sjö og ákvað að setja bílinn í samband. Hann var kominn niður í 38%. Núna tæpum tveimur tímum síðar er hann kominn í 62% og er ég að hugsa um að hafa hann í hleðslu í ca einn og hálfan tíma í viðbót. 

29.3.26

3 réttir á lottó-áskriftamiða aðra vikuna í röð

Svaf til klukkan að verða hálfátta í morgun. Um níu var ég búin útbúa hafragraut, tvo skammta. Annan skammtinn setti ég inn í ísskáp. Um tíu var ég mætt á fámennan en góðmennan fræðslufund í Grafarholtinu. Eftir fundinn ákvað ég að skreppa í heimsókn til frændfólks sem býr í Sæviðarsundi. Maðurinn og mamma voru systkynabörn. Konan hans hefur verið að glíma við heilsuleysi sl. mánuði, sennilega einhver vírus sem getur tekið langan tíma að vinna á. Stoppaði hjá þeim í rúma klukkustund. Næst lá leiðin í Kringluna. Lagði í bílakjallaranum skammt frá bókasafninu og þurfti aðeins að bíða í nokkrar mínútur eftir að klukkan yrði og og það opnaði. Skilaði næstum því öllum bókum sem ég var með þótt ég væri ekki búin að lesa þær allar. Náði mér í þrjár mjög ólíkar bækur og eina í viðbót úr skilabókunum. Það kom í ljós að bókasafnsskírteinið var útrunnið en það var einfalt mál að endurnýja það. Ein í afgreiðslunni skannaði skírteinið og rukkaði mig um 3.300kr og svo gat ég afgreitt mig um bækurnar sjálf. Fór með pokann út í bíl áður en ég fór aftur inn í Kringlu. Rölti aðeins um en endaði svo á að nýta aftur gjafakortið sem ég fékk í jólagjöf í vinnunni og verslaði smá í Bónus. Á útleiðinni hitti ég einn fyrr um vinnufélaga hjá RB sem sagði það helst í fréttum að hann væri hættur þar, sestur í þennan "helga stein". Lagði bílnum á efra planið þriðja daginn í röð. Hleðslan stendur í tæp 50% og það ætti að duga til þriðjudags. 

28.3.26

Dagurinn leið hratt

Vaknaði upp úr klukkan sex. Fór þó ekki á fætur fyrr en klukkan var að verða hálfátta. Samt var ég mætt í Laugardalslaugina um það leyti sem opnaði. Synti 600m, þar af nokkrar ferðir á bakinu. Eftir þrjár ferðir í kalda pottinn, eina í þann heitasta, dágóða stund í gufu og nokkrar mínútur í sjópottinum fór ég í heita (volga) og kalda sturtu. Skolaði á mér hárið en notaði ekki sápu eða sjampó. Var mætt á Sólvallagötuna um tíu. Stakk bílnum í samband og hafði hann í hleðslu á meðan ég var í espó hittingnum. Ein frænka mín og jafnaldra hafði samband á FB-spjallinu og spurði hvort ég væri heima. Svarið mitt var neitandi en að ég yrði komin heim um hádegisbilið og þá bað hún mig um að hafa samband þegar ég væri komin heim. Móðurafi þessarar frænku minnar var föðurbróðir minn. Ég var komin heim rétt fyrir tólf. Hitti fyrrum vinnufélaga í anddyrinu en hann hafði verið á opnu húsi í íbúð á annarri hæðinni. Innan við klukkutíma eftir að ég lét frænku mína vita að ég væri komin heim var hún mætt. Hafði komin gangandi úr Seljahverfinu. Hún gerði gott stopp, langt síðan við hittumst síðast og höfðum um margt að spjalla. Hún kvaddi upp úr klukkan þrjú og komst örugglega heim áður en veðrið versnaði. Afgangurinn af deginum fór í alls konar mis gáfuleg dæmi. M.a. í að leysa sudoku úr nýjasta sudoku-frístund blaðinu sem ég keypti í Hagkaupsskreppunni eftir vinnu sl. fimmtudag. 

27.3.26

Föstudagur

Ég var mætt í sund um hálfsjö í morgun. Rútínan var svipuð nema ég synti hluta af ferðunum á bakinu. Held að ég geti nú alveg gert meira af því, því það skiptir ekki máli lengur hvort ég er að fara þvo mér um hárið eða ekki. Get alveg tekið af mér sundhettuna og leyft vatninu að skella á stuttu hárinu án þess að þurfa endilega að setja sápu í það. Var mætt í vinnu tuttugu mínútum fyrir átta og búin að hella upp á áður en skoðunarmennirnir mættu nokkrum tæpu korteri á eftir mér. Skoðanir dagsins fóru yfir 40, meirihelmingurinn eftir hádegi en þrettán bílar voru skoðaðir fyrir hádegi. Eftir vinnu lá leiðin yfir á Sléttuveg þar sem fyrrum kórfélagi og konan hans buðu félögum úr KÓSÍ heim. Ég var síðust af sex gestum, fjögur komust ekki og þrjú eru fallin frá. Áttum saman notalega stund. Margt var spjallað og rætt og  "Sann-"Kristinn, gestgjafinn sagði líka nokkra óborganlega brandara. Rétt eftir að ég var mætt á staðinn hringdi gemsinn, sendi skilaboð til baka. Hringdi svo í viðkomandi og spjallaði við hana á meðan að ég var á leiðinni heim. Þetta var ein af fyrstu sundvinkonunum. Hún er komin yfir áttrætt en það er alltaf gaman að spjalla við hana.

26.3.26

Lokað í sund í morgun

Ég var vöknuð upp úr klukkan fimm í morgun. Veðrð var ekkert spes en alls ekki svo slæmt. Var eitthvað að spá í að skrópa í morgunsundið og hefði betur gert það því vegna veðurviðvörunar og vinsamlegum tilmælum frá lögreglu var er opnað í sund fyrr en eftir hádegið. Ég var samt ekki sú eina sem mætti. Það kom ekki til greina að fara heim aftur og of snemmt var að mæta í vinnuna. Ég brá á það ráð að fara að Olís við Álfheima og tengja bílinn við hraðhleðslustöð í tæpan hálftíma. Fékk mér örstuttan göngutúr á meðan. Var svo mætt í vinnu um hálfátta, búin að hlaða bílinn um 40% í 77%. Mjög rólegt var í skoðunum fram að hádegi, þó komu 4 bílar í skoðun og einn af þeim í bæði aðal- og breytingaskoðun. Notuðum tímann milli ellefu og tólf í að byrja tiltekt í númeraplötugeymslunni. Eftir hádegi voru alls 22 skoðanir þannig að í heildina voru skoðaðir 27 bílar. Einhverjir voru sendir til okkar úr Klettagörðum því skoðunarmennirnir á þeirri stöð voru veðurtepptir. Eftir vinnu kom ég aðeins við í Hagkaup í Skeifunni. Var komin heim upp úr klukkan sex

25.3.26

Stutt dagsskýrsla

Ég var mætt í vinnu um hálfátta leytið. Alls voru skoðaðir 45 bíla í dag, rúmlega helmingurinn eftir hádegi. Nóg var að gera í Tidio-spjallinu og ég þarf endilega að fara að athuga hvort ég er ennþá ein að grípa "tala við manneskju" boltann. Um ellefu hringdi ég í pabba í heimasímann úr vinnusímanum. Hann svaraði ekki fyrr en ég hringdi úr gemsanum í gemsann hans. Lét vel af sér en er með stærðar glóðarauga. Hann var að fara að huga að því að taka bílinn úr skúrnum og skreppa í mat í Kanslarann. Á leiðinni úr vinnu og yfir í Hátúnið í osteostrong tíma hringdi ég í báða strákana og sagði þeim frá hvað gerðist í gær. Styrktartíminn gekk annars mjög vel, bætti mig á þremur tækjum af fjórum. Og svo fór ég að sjálfsögðu í Nauthólsvíkina. Fjara og sjórinn -0,6°C. Mega hressandi að skella sér tvisvar út í. Kom heim um sjö. 

Gleymdi mér aðeins í gærkvöldi

Stuttu eftir að ég rumskaði rétt fyrir klukkan sex í morgun sló það mig aðeins út af laginu að ég hafði ekkert tekið fram fartölvuna eftir að ég kom heim úr vinnu í gær. Sem þýddi að ég hafði ekki skráð niður daginn. Ekkert hættulegt svo sem og ef ég spái aðeins í það þá eru sumir dagar bara rútínudagar og þar af leiðandi bara sífelldar endurtekningar með mismunandi blæbrigðum.

Gærdagurinn hófst klukkan korter í sex þegar vekjarinn ýtti við mér. Var mætt í sund klukkan hálfsjö. Synti 300m, fór þrjár ferðir í kalda, eina í heitasta og eina í sjópottinn. Skolaði stutt hárið úr volgu og köldu vatni og setti á mig höfuð handklæði á meðan ég þurrkaði kroppinn og klæddi mig. Þegar ég mætti í vinnu tuttugu mínútum fyrir átta var ungi stöðvarstjórinn þegar mættur og var að sinna tiltekt. Hann var þá þegar búinn að skutlast með konuna sína út á flugvöll en hún var að skreppa til Írlands í nokkra daga til að heimsækja ættingja sína. Yfir þrjátíu bílar voru skoðaðir í gær, fleiri bílar skoðaðir milli hálfeitt og hálffimm heldur en milli átta og hálftólf.

Hringdi í pabba þegar ég var á leiðinni heim eftir vinnu og eftir smá spjall sagði hann mér að hann mætti ekki mæta í sund næstu vikuna. Ástæðan var sú að hann datt í skúrnum rétt eftir hádegið, þegar hann ætlaði að fara að moka snjó af stétt og plani, og fékk gat á hausinn. Hann varð að fara á heilsugæslun til að láta líma sig saman og lappa upp á sig. Ég gleymdi að spyrja hann hvort hann væri búinn að láta starfsfólkið í sundlauginni vita. Ef ekki hafa þau væntanlega hringt í hann áðan því mér skilst að það sé hægt að stilla klukkuna eftir honum og ef hann er ekki mættur á sínum tíma og hefur ekki látið vita er hringt, jafnvel mætt til hans. Gott að vita af þeim öryggisventli.

Annars hringdi ég svo tvö símtöl í gærkvöldi. Annað í Helgu systur að láta hana vita um pabba og svo í eina fyrrum samstarfskonu mína úr kortadeildinni. Hún færði mér sorglegar fréttir af kisunni sinni, varð að láta svæfa hana í síðasta mánuði vegna alvarlegrar nýrnabilunar.

En hvort það voru þessi símtöl eða það að fartölvan er geymd inn í skáp, sem urðu til þess að færsla féll niður í gær veit ég ekki. Veit heldur ekki hvort ég sleppi færslu þegar ég kem heim eftir vinnu, osteostrong og sjósund í kvöld. Það verður bara að koma í ljós.

23.3.26

Gular viðvarandi

Var komin á fætur upp úr klukkan hálfsjö. Gerði nokkrar æfingar með 1,5kg lóðunum, las í fræðunum og fékk mér afgang af hafragraut í morgunmat um sjö. Hitaði bílinn á meðan ég tannburstaði mig og var mætt í vinnu um hálfátta. Fyrsti bíll kom í skoðun á slaginu átta rétt eftir að ungi stöðvarstjórinn mætti til vinnu. Afleysingaskoðunarmaðurinn kom fljótlega og voru 14 bílar skoðaðir fram að hádegi en þeir urðu 33 í heildina. Afgreiðslu störfin voru fjölbreytt, leysti úr flestu en fékk aðstoð í þremur mismunandi tilfellum. Við lokuðum á slaginu hálffimm og ég fór beinustu leið í sund. Kaldapotts vinkona mín var búin að senda 100 þegar ég mætti á braut 8. Ég synti 3 ferðir, 300 og svo fórum við alls fjórum sinnum í þann kalda, tvisvar í heitasta pottinn, langa gufuferði og  næstum því jafnlanga ferð í sjópottinn. Heim heim stuttu fyrir sjö og bjó mér til plokkfisk úr matnum frá í hádeginu í gær. Á smá afgang eftir af honum sem ég mun líklega klára kaldan annað kvöld. 

22.3.26

Áttugastiogfyrsti dagur ársins

Ég vaknaði stuttu fyrir sjö en fór ekki framúr fyrr en klukkan var byrjuð að ganga níu. Oddur Smári var vaknaður en þó ekki kominn á fætur. Fljótlega ákvað ég að útbúa hafragraut og sá grautur stóð með okkur mæðginum til hádegis. Þá bauð ég upp á soðna ýsu, nokkrar soðnar nætursaltaðar gellur og soðnar kartöflur. Annars vorum við Oddur bara slök. Upp úr hádeginu fékk hann það staðfest að Davíð Steinn ætlaði að skutla honum austur seinni partinn. Dagurinn leið ágætlega hratt. Oddur kvaddi rétt fyrir fimm, þá var bróðir hans um það bil að renna að húsinu. Davíð Steinn hringdi í mig rétt eftir að þeir keyrðu burt frá blokkinni til að kasta aðeins á mig kveðju. Sjálf hringdi ég í pabba skömmu síðar til að taka stöðuna á honum. Hann var bara sprækur, lét vel af sér og sagðist vera í miklum krossgátugír. 

21.3.26

Laugardagur

Vaknaði um hálfsjö leytið. Var komin í laugardalinn á slaginu átta. Rétt áður hringdi Oddur Smári í mig og var hann m.a. að athuga hvort hann gæti fengið gistingu aftur sem var alveg sjálfsagt mál mín vegna. Synti 500m á braut 7, meiri hlutann á bakinu, fór þrjár ferðir í þann kalda, góða gufuferð og nokkrar mínútur í sjópottinn. Þvoði mér um hárið, í fyrsta skipti síðan ég var klippt. Þrátt fyrir stutt hár notaði ég höfuðhandklæðið. Þegar ég var á leiðinni út í bíl sá ég skilaboð frá esperanto vinkonu minni sem frestaði hittingnum. Ég var því komin heim aftur um tíu leytið. Einhverra hluta vegna fór ég ekkert út aftur en var að sýsla við ýmislegt. Oddur hringdi aftur rétt fyrir sex og spurði hvort ég væri búin að borða. Einhverra hluta vegna var ég ekki búin að elda úr ýsunni sem keypti í fiskbúðinni í gær. Hún er enn í ísskápnum. Bræðurnir komu með mat með sér, höfðu komið við á einum stað í Smáralindinni. Við borðuðum saman og Davíð Steinn stoppaði aðeins lengur á meðan hann hlóð símann sinn á hraðhleðslubanka bróður síns. Klukkan var samt ekki orðin hálfátta þegar hann kvaddi. Það mun svo ráðast á morgun hvort Oddur tekur strætó til baka austur eða hvort bróðir hans skutli honum.

20.3.26

Vinnuvikan liðin

Rumskaði stuttu áður en vekjarinn fór í gang. Dokaði við í stutta stund, snúsaði vekjarann en tveimur mínútum fyrir næsta ræs var ég búin að slökkva og byrjuð að undirbúa mig undir daginn. Forhitaði bílinn fimm mínútum áður en ég fór út og var mætt á planið við Laugardalslaugina í þann mund sem verið var að opna og hleypa inn. Synti 300m á braut 7. Eftir tvær ferðir í þann kalda hitti ég eina vinkonu í sjópottinum. Við fórum upp úr á sama tíma. Um það leyti sem ég var að fara að leggja af stað í vinnuna var óvenju mikið um sírenuvæl. Hugsaði ekki meir út í það fyrr en ég sá á einhverjum fréttamiðlinum hvað hafði gerst, sá það samt ekki fyrr en rúmum klukkutíma síðar. Annars var ívið meira rennerí í skoðun fyrri partinn en líka alveg nóg að gera eftir hádegi. Lokuðum á slaginu fjögur og ég fór beinustu leið í fiskbúð Fúsa áður en ég fór heim. Það var blint á köflum í umferðinni og hún því extra hæg. Allt gekk þó vel fyrir sig. Hringdi og spjallaði við pabba á heimleiðinni. Ákvað svo að stinga bílnum í samband þótt enn væru rétt rúm 40% eftir af hleðslunni. Helga systir hringdi í mig um hálfníu leytið með síðbúnar afmæliskveðjur og fréttir af þeim fyrir norðan. Ingvi mágur er búinn að fá aðra vinnu, byrjar eftir páska. Eftir símtalið við Helgu ákvað ég að hringja í eina fyrrum samstarfskonu og átti gott spjall við hana. Klukkan var að verða tíu þegar ég stoppaði loksins hleðsluna eftir fimm tíma á staurnum, fór út, gekk frá kaplinum og færði bílinn í annað stæði.

19.3.26

Aðalfundur

Þegar vekjarinn fór að hamast korter fyrir sex var ég alls ekki tilbúin að fara á fætur og í sund. Kúrði áfram til klukkan hálfsjö og var mætt í vinnu um hálfátta. Mjög rólegt var fram að hádegi innan við tíu bílar skoðaðir en eins og í gær uðru þeir 30 á endanum. Hringdi og spjallaði við pabba á meðan ég var á leiðinni heim úr vinnu. Lagði á efra planinu og var komin heim stuttu fyrir fimm. Í stað þess að hvíla mig aðeins og eða að setja inn færslu fékk ég mér að borða og horfði á einn nýja þátt í Chicago Med áður en ég fór í fundarfötin og lagði af stað á fund. Var mætt á staðinn fyrir klukkan hálfsjö og komin heim aftur rétt fyrir hálftíu. 

18.3.26

Annar í afmæli eða þannig

Var komin á fætur fyrir klukkan hálfsjö, vöknuð mun fyrr þó. Það var ágætis tími til að sinna morgunrútínunni og fleira til. Mætti í vinnu upp úr klukkan hálfátta. Morguninn var frekar rólegur, innan við tíu bílar skoðaðir þeir urðu þó þrjátíu áður en vinnudegi lauk. Fór beinustu leið í osteostrong eftir vinnu, gerði vel á öllum tækju og slakaði svo vel á á eftir áður en ég fór í Nauthólsvík. Þar var engin ferð á logninu, flóð og sjórinn 1,6°C. Fór tvisvar sinnun út í, gufu á milli ferða og smá stund í pottinn eftir seinni ferðina. Kom heim stuttu fyrir klukkan sjö. Þá var bíllinn kominn niður í 28%. Það var laust á staurnum sv ég bakkað að, stakk í samband og hóf hleðslu. Var nýkomin inn í íbúð þegar ég sá tilkynningu um að hleðsla hefði stöðvast. Varð að fara út aftur og það tók rúmar fimm mínútur að koma hleðslunni af stað aftur. Nú rúmum tveimur og hálfum tíma síðar er bíllinn kominn í 61%. Ætla helst að fara með hann upp í 80% en vil helst ekki fara of seint að sofa og alls ekki hafa bílinn tengdan í alla nótt þótt. Veit að ég á að geta séð til þess að hleðsla stoppi eftir eða á ákveðnum tíma en samt, ég vil ekki hafa hann tengdan við staurinn í marga klukkutíma. Annars er ég búin að fá fullt af afmæliskveðjum í dag.

17.3.26

21.184 dagar síðan ég fæddist

Þrátt fyrir að hafa farið að sofa með seinni skipunum eða einhvern tíman á tólfta tímanum í gær var ég að byrja að losa svefn rétt áður en vekjaraklukkan hringdi korter fyrir sex. Fékk mér helming af afgangi af hafragraut síðan á laugardag og var mætt á braut 8 í Laugardalslaug tuttugu mínútum fyrir sjö. Synti 300m, fór þrisvar í þann kalda, einu sinni í heitasta og tæpt korter í sjópottinn, sleppti gufunni. Stimplaði mig inn í vinnu átján mínútum fyrir átta. Rétt á eftir mér mætti afleysinga skoðunarmaðurinn. Milli klukkan átta og hálfellefu komu aðeins tveir bílar inn til skoðunar. Ég skrapp í brjóstaskimum skömmu síðar og á þessum tæpa klukkutíma sem ég var í burtu (mesti tíminn fór í að finna stæði skammt frá Eiríksgötu 5) voru skoðaðir fjórir bílar þar af voru tveir nýskráðir. Í heildina voru skoðaðir 24 bílar í dag sem er með minnsta móti. Það var samt alveg nóg að sýsla hjá mér og dagurinn leið frekar hratt. Eftir vinnu skrapp ég aðeins í Krónuna í Skeifunni til að athuga hvort þar væri til kókosvatn. Því miður var það ekki. Svo kom ég við á PreppBarnum og tók heim með mér lítið Mexico box á þriðjudags tilboði.

16.3.26

Vaknaði stuttu fyrir klukkan sex, rúmum klukkutíma fyrir þann tíma sem ég hafði planað. Ég hafði því tíma til að lesa og lyfta ásamt morgunverkunum á baðherberginu og fá mér morgunmat. Mætti í vinnu um hálfátta. Hellti upp á, skúraði kaffistofuna og gólfið í klósettrýminu og startaði tölvukerfunum. Ungi stöðvarstjórinn mætti fimm mínútum fyrir átta og áður en klukkan  var búinn að slá var einn búinn að skrá sig inn í skoðun, tveir bættust nær strax í röðina og sá fjórði mjög fljótlega. Afleysinga-skoðunarmaðurinn mætti rúmlega átta, hafði lagt af stað úr Hafnarfirðinum um hálfátta. Í heildina voru skoðaðir 46 bílar í dag, Ég stimplaði mig út á slaginu hálffimm og var ekki síðust út. Fór beint í sund. Varð að leggja bílnum lengra frá en safnað þá einhverjum skrefum. Kalda potts vinkona mín var búin að synda 100m þegar ég mætti á braut átta um fimm. Ég synti aðeins 200m áður en við vinkonurnar fórum að pottormast. Eftir sund lagði ég leið mína að Löðri við Vesturlandsveg og renndi bílnum í gegnum mannaða þvottastöðina. Kom svo við í Krónunni í Lindum og verslaði áður en ég fór heim.

15.3.26

Inni dagur í dag

Vaknaði rétt fyrir klukkan sjö en nennti ekki alveg strax á fætur. Sofnaði samt ekki aftur og veit ekki hvernig ég fór að því að hanga í rúminu alveg til klukkan að verða hálfníu. En ég náði meira að segja að klæða mig og búa um áður en ég fór og sinnti morgunverkunum á baðherberginu. Oddur var vaknaður. Ég bjó til hafragraut handa okkur og við sátum í dágóða stund við eldhúsborðið áður en við gengum frá eftir morgunmatinn og bjuggum um hann. Hann var ekki með neitt sérstakt á prjónunum en átti von á því að Davíð Steinn myndi skutlast með hann austur um fjögur leytið. Úr varð að við héldum spjalli áfram í stofusófanum, horfðum á nokkra þætti og upp úr hádeginu sauð ég nokkrar kartöflur og steikti tvö bleikjuflök. Stuttu fyrir hálffimm hringdi Davíð Steinn í Odd og sá síðarnefndi skilaði kveðju frá bróður sínum og kvaddi. Ég hefði auðvitað getað skroppið aðeins út í smá göngutúr en tíminn fór í allt annað. 

14.3.26

Le droit humain

Ég var mikið að spá í að taka mér færslufrí í dag, sérstaklega þar sem dagurinn er að mestu helgaður félagsskap sem ég er nýlega gengin til liðs við. Félagsskap þar sem stunduð er mannrækt og gerir ekki greinarmun á kynjum, litarhætti, trú eða trúleysi, allir eru velkomnir en verða þó að vera tilbúnir í vinnuna. Ég er það nýgenginn í eina stúkuna að ég á margt eftir ólært en veit jafnfram að ég get líka gefið af mér. Milli klukkan ellefu og fjögur í dag var haldið sambandsþing og mættu fulltrúar úr öllum stúkum; frá Akureyri, Egilsstöðum, Selfossi og Reykjavík. Vissulega var dagurinn langur, og hann er ekki búinn enn því það er hátíðarkvöldverður á La Primavera í Hörpu í kvöld, en ég hefði alls ekki viljað missa af þessu. Þrátt fyrir að vera aðeins nýbyrjuð þá mátti ég leggja eitthvað til málanna. Hélt reyndar fyrst að ég hefði ekkert fram að færa en það kom á daginn að ég hafði alla vega eitthvað smá að segja, greip hamarinn tvisvar sinnum í mínum umræðuhóp sem var númer níu af níu hópum. Ég er nýkomin heim. Á von á Oddi sem er að fara í þrítugsafmæli í kvöld og ætlar að fá að gista. Hann verður vonandi kominn áður en ég verð sótt að öðrum kosti er hann upp á bróður sinn kominn með að fá húslykla lánaða. Davíð Steinn er búinn að vera með húslykla og lykil að geymslunni síðan við tæmdum snjallgeymsluna um miðjan janúar sl.

13.3.26

Ekki lengur með sítt hár

Klukkan var rétt orðin fimm þegar ég vaknaði í morgun. Ákvað að drífa mig bara á fætur og nota hluta af aukatímanum til að skipta um á rúminu. Var mætt á braut 7 í Laugardalslaug nítján mínútum fyrir sjö og synti ég 400 metra, flesta á bakinu. Fór tvær ferðir, eina langa og aðra stuttta í þann kalda og sjö mínútur í sjópottinn áður en ég fór upp úr og þvoði mér um hárið. Mætti í vinnu tuttugu mínútum fyrir átta. Um níu leytið kom eftirlitsmaður frá samgöngustofu og fylgdist með skoðunarmönnunum skoða fram að hádegi. Þessi eftirlitsmaður kemur einu sinni í mánuði, sjaldan á sama tíma. Rétt fyrir hádegi skrapp annar skoðunarmaðurinn í bakarí á Sogaveginum og keypti fyrir okkur öll þrjú súpu dagsins. Stimplaði mig út úr vinnu á slaginu fjögur og fór í klippingu. Var mætt tuttugu mínútum áður en tíminn var settur en ég fékk mér bara sæti í sófanum og eitt vatnsglas á meðan ég beið. Klipparinn minn spurði mig tvisvar hvort ég væri alveg viss um að ég ætlaði að klippa mig stutt að þessu sinni og eins og það var erfitt að taka þessa ákvörðun þá var ég orðin 100% viss. Svei mér þá ef ég yngdist bara ekki upp um nokkur ár, orðin að stutt- hrokkinhærðri skvísu með meiru. Var svo eitthvað að spá í að fara með bílinn í gegnum þvottastöð, kominn tími á það, en einhvern veginn endaði ég heima. Hafði fiskibollur og kartöflur með smjörklípu í kvöldmatinn. 

12.3.26

Líður á vikuna

Mig var að dreyma einhverja vitleysu þegar vekjarinn fór af stað í morgun. Eitt augnablik hvarflaði að mér að endurstilla vekjarann og kúra í klukkustund í viðbót. En svo dreif ég mig á fætur og var mætt í sund klukkan hálfsjö. Synti reyndar aðeins 200m en gaf mér tíma í bæði gufu og sjópott ásamt tveimur ferðum í þann kalda. Stimplaði mig inn í vinnu tuttugu mínútum fyrir átta og var búin að hella upp á könnuna, ræsa tölvukerfin í afgreiðslunni, gera upp og kveikja á pressunni þegar skoðunarmennirnir komu. Rétt eftir klukkan átta kom fyrsti bíll inn. Verkefnin mín voru alls konar fyrir utan að skrá inn bíla sem voru í færri kantinum í dag eða um 30. En vinnudagurinn leið nokkuð hratt. Stimplaði mig út á slaginu hálffimm og fór beinustu leið heim og stakk bílnum í hleðslu. Upplýsingarnar í Ford-appinu í símanum voru eitthvað að stríða mér og ég fór tvisvar út að athuga hvort ekki væri allt í lagi. Í seinna skipið fór appið að haga sér rétt. On-appið hagaði sér rétt allan tímann. Bíllinn er nú kominn upp í 73% er var í 32%. Ætla að fylla upp í 85-95% og það gæti tekið amk klst í viðbót.

11.3.26

Osteostrong og sjósund eftir vinnu

Fór að sofa um hálfellefu eftir að hafa stillt klukkuna á korter fyrir sjö. Rumskaði fyrir klukkan fimm og um hálfsex gafst ég upp á að reyna að kúra, kveikti ljós og greip í bók. Var mætt í vinnu um hálfátta. Var búin að hella upp á, gera upp, opna kerfin og taka saman smá rusl fyrir klukkan átta. Ungu skoðunarmennirnir mættu rétt fyrir átta. Það kom einn bíll í skoðun skömmu síðar en næst bíll eftir það var skoðaður á tíunda tímanum. Í heildina voru samt skoðaðir þrjátíu og þrír bílar. Ég var mætt í osteostrong stuttu fyrir klukkan fimm og í Nauthólsvík um hálfsex. Sjórinn 2°C og það var fjara. Einstaklega hressandi að skella sér útí, fyrst í uþb 7 mínútur, korter í gufu, aftur í sjóinn í tvær mínútur og svo rúmar tíu mínútur í pottinum áður en ég fór upp úr og heim. 

10.3.26

Allt að fara í eðlilegan farveg

Held að ég hafi verið sofnuð fyrir klukkan hálftíu í gærkvöldi. Rumskaði svo ekkert löngu áður en vekjarinn hringdi. Fékk mér harðsoðið egg, 2 steinlausa döðlur, vítamín og vatnsglas í morgunmat og var mætt í Laugardalslaug í þann mund sem verið var að opna. Synti 400m, fór þrisvar sinnum í þann kalda, sleppti gufunni og náði fyrir vikið sjö mínútum í sjópottinum. Stimplaði mig inn í vinnu tuttugu mínútum fyrir átta. Gerði upp og gerði afgreiðslukerfin klár. Ungi skoðunarmaðurinn mætti nokkrum mínútum fyrir átta. Fyrsti bíll kom inn rétt rúmlega átta en svo var rólegt til klukkan níu. Eftir níu hópaðist fólk með bíla í skoðun. Klukkan um ellefu fengum við auka skoðunarmann til okkar sem var eins gott því það kom mikið að fólki strax eftir hádegislokun og í raun var engin pása fyrr en um þrjú og þá bara örstutt en svo róaðist allt rétt fyrir fjögur. Hátt í 50 bílar skoðaðir í dag. Meira gerðist á vinnudeginum sem ég ætla ekki að fara nánar út í, alls ekki víst að það sé gott að hafa það á opinberu prenti. Hugsanlega er hægt að skrifa um það "undir rós" en ég ætla hins vegar bara að þakka fyrir að búið er að taka á ákveðnum málum og hafa 100% trú á að búið sé að afgreiða og klára málin. Kom aðeins við hjá N1 syninum í Borgartúni áður en ég fór heim. 

9.3.26

Ný vinnuvika

Eftir svolítið skrýtna nótt fór ég á fætur korter fyrir sjö. Fékk mér chiagraut í morgunmat og tók svo með mér afgang af grjónagraut í vinnuna. Varð meira en lítið hissa á að kerfið var ekki á í vinnunni. Báðar hurðarnar voru þó læstar en þegar inn kom voru skýr merki um að einhver hafði verið á staðnum einhvern tímann um helgina. T.d. hafði verið hellt upp á kaffi en brúsinn ekki tæmdur og skolaður eftir. Við nánari eftirgrennslan kom í ljós að stöðin hafði verið lánuð til að taka upp mússík-myndband. Annars vorum við bara tvö í vinnu, ég í afgreiðslunni og einn skoðunarmaður sem skoðaði 37 bíla í dag. Sluppum þó út um hálffimm. Ég fór beint í sund, hitti kaldapotts vinkonu mína í kalda pottinum og átti rúmlega klukkustundar gæðastund með henni. Kom heim upp úr klukkan hálfsjö og er að græja mér plokkfisk í kvöldmatinn.

 

8.3.26

Hvíldardagur með smá útúrdúr

Rumskaði um fimm leytið, alltof snemma, en sofnaði fljótlega aftur og svaf þá til klukkan að verða hálfníu. Greip í bók í stað þess að fara á fætur; Steinninn eftir Ragnheiði Gestsdóttur. Byrjaði á henni í gær. Las í rúma klukkustund áður en ég fór loksins á fætur og tók svo þá ákvörðun að ekkert yrði úr sundi í dag. Kláraði að lesa bókina á tólfta tímanum og átti þá bara eina bók ólesna af safninu, fyrir utan Kon-Tiki. Esperanto vinkona mín var í sambandi í gærkvöldi og við ákváðum að hittast hjá henni um hádegisbilið í dag. Ætlaði varla að nenna af stað því það var dimmt yfir og snjókoma. Hitaði bílinn  og þurfti rétt aðeins að sópa af honum. Var komin vestur í bæ um tólf og stoppaði í um einn og hálfan tíma. Á þeim tíma lásum við m.a. 5 bls. í Kon-Tiki. Svo kom ég við í Kringlusafninu á leiðinni heim. Skilaði fjórum bókum af fimm, m.a. títtnefndri Kon-Tiki. Tók hana að láni strax aftur sem og sjö aðrar. Þrjár af þeim bókum eru reyndar ekki skáldsögur. Sjáum til hvort ég skrifa eitthvað um þær og hinar bækurnar síðar. 

7.3.26

Hárþvottadagur

Það hvarflaði örstutt að mér að skrópa í sundið í morgun og sofa aðeins lengur. En ég dreif mig á fætur um sjö leytið og var komin í Laugardalslaugina rétt eftir að opnaði um átta. Fór á braut 8 og þegar ég kom til baka eftir fyrstu 100m tók annar skórinn á móti mér. Hinn var ennþá upp á bakkanum. Tók þá báða og kom þeim fyrir í rennunni. Þegar ég var langt komin með  níundu ferðina (450m) sá ég mikinn glampa og skömmu síðar heyrðis svaka þruma. Ég synti þó yfir aftur en ákvað að drífa mig sem fyrst í kalda pottinn ef það kæmu fleiri eldingar og þrumur og þyrfti að rýma staðinn. Til þess kom þó ekki. Komst fjórar ferðir í þann kalda, fór í gufu í um korter og tíu mínútur í sjópottinn áður en ég fór inn og þvoði mér um hárið. Var komin alla leið vestur í bæ þegar ég sá skilaboð frá esperanto vinkonunni um að hún yrði að fresta espó-hittingnum. Ég var því komin heim um hálfellefu. Laust var á staurnum, bíllinn í 32% og ég setti hann í hleðslu alveg til klukkan að verða fjögur í dag. Annars er ég búin að klára að lesa skammtímalánsbókina en skilafresturinn á henni og tveimur öðrum bókum er fljótlega eftir helgina. 

6.3.26

Komin helgi

Mætti í  sundið um hálfsjö í morgun. Synti aðeins 200m en fór tvær ferðir og dýfu í þann kalda og var 7 mínútur í gufunni og aðrar 7 í sjópottinum. Var mætt í vinnu tuttugu mínútum fyrir átta í morgun. Var nýbúin að hella upp á þegar stöðvarstjórinn mætti. Hann sagðist reyndar ætla að stoppa stutt. Var í tæpa tvo tíma á staðnum og þegar hann fór var hann ekki viss um hvort hann kæmi aftur. Ungi skoðunarmaðurinn var því einn að skoða milli tíu og fjögur, með hálftíma pásu í hádeginu. Reyndar kom svo pása um þrjú leytið. Eftir vinnu kom ég við í Fiskbúð Fúsa og leit svo inn til fyrrum nágranna áður en ég fór heim. 

5.3.26

Líf í tuskunum

Svefninn var eitthvað órólegur sl. nótt og þegar vekjarinn hringdi korter fyrir sex ákvað ég að endurstilla hann á korter fyrir sjö. Sofnaði greinilega strax aftur því mér fannst engin stund hafa liðið þegar verkjarinn fór aftur af stað. Ég sleppti semsagt sundinu í morgun og mætti beint í vinnu rúmlega hálfátta. Hafði fyrst þurft að sópa af bílnum sem tók þó ekki langa stund þrátt fyrir að mér tókst ekki að ræsa hitakerfið fimm mínútum áður en ég fór út. Annars vorum við tvö í vinnu milli klukkan átta og tíu en þá kom sami afleysingamaðurinn og í gær. Í heildina voru skoðaðir 44 bílar. Ég var síðust út úr vinnu rúmlega hálffimm og komin heim áður en klukkan varð fimm. Ákvað að byrja á því að horfa á síðasta þáttinn í fyrstu seríunni um rannsóknarlögreglukonuna Hildi. Bíð spennt eftir framhaldinu.

4.3.26

Tíminn heldur áfram á hraðferðinni

Ég vaknaði löngu áður en vekjarinn átti að ýta við mér. Ákvað að grípa í bók og náði að klára Kalmann og fjallið sem svaf korteri fyrir hringingu. Slökkti á vekjaranum og tók svo smá lóða-æfingar þegar ég var komin á fætur. Fékk mér chiagraut í morgunmat og tók svo til sjósundsdótið og smá maul. Hitaði bílinn í fimm mínútur áður en ég fór út, rétt þurfti að sópa af honum. Var mætt í vinnu um hálf, fyrst af öllum og var búin að búa til kaffi og gera upp úr báðum kerfunum áður en ungi maðurinn mætti. Samt var ég í smá myrkraverki því það kviknaði ekki ljósið í afgreiðslunni. Það hafði víst slegið út en ég var ekkert að spá í því. Beggi sá um það fljótlega eftir að hann mætti. Við fengum engar fréttir af stöðvarstjóranum fyrr en ég hringdi í hann rétt rúmlega átta. Hann sagðist ekki vera að koma í vinnu en kom þó aðeins stuttlega við upp úr klukkan tíu. Þá vorum við búin að fá liðsauka en önnur brautin var biluð þannig að skoðunarmennirnir hjálpuðust að á brautinni sem var í lagi og skiptust á að "dæma" bílana. 45 bílar voru skoðaðir í dag. Ungi maðurinn skrapp frá í hádeginu, bæði í smá útréttingar og líka heim til sín í mat því það er víst ekkert langt þangað. Við hin læstum að okkur í hálftíma. Ég var svo annars síðust út en engu að síður mætt í osteostrong tíma tíu mínútum fyrir fimm og í Nauthólsvík um hálfsex leytið. Kom heim rúmum klukkutíma eftir það og setti bílinn í hleðslu þótt enn væru rétt rúm 40% eftir. Ætla bara að hlaða hann upp í rétt rúm 80% að þessu sinni.

3.3.26

Erill á köflum

Vekjarinn vakti mig korter fyrir sex í morgun. Borðaði afganginn af hafragrautnum í morgunmat. Mætti í Laugardalslaug rétt eftir opnun. Fór beint á braut 8 og synti 300m. Þegar ég var á leið í þann kalda sá ég tilsýndar að sjópotturinn var lokaður. Eftir 4 mínútur í kalda fór ég því í gufu í 10 mínútur, kalda sturtu á eftir, smá stund í heitasta pottinn og svo hálfa mínútu/dýfu í þann kalda. Mætti fyrst í vinnu tuttugu mínútum fyrir átta. Tók úr lás, slökkti á kerfinu, kveikti ljós, stimplaði mig inn og setti upp kaffið. Ungi maðurinn mætti tíu mínútum á eftir mér. Það var mátulega búið að kveikja á öllu þegar fyrsti kúnninn kom á slaginu 8. Síðan var næstum klukkutíma pása í skoðununum en eitthvað um önnur afgreiðslumál, ss eins og símsvörum, netspjall og fleira. Skoðunarmaðurinn skrapp heim í hádeginu, ég ætlaði að læsa um tólf en tafðist um tíu mínútur vegna annarra afgreiðslumála. Ég var nú samt búin að fá mér borða og tilbúin í afgreiðslustörfin um hálfeitt og það var mikill erill til klukkan að verða þrjú. Róaðist aðeins eftir það en aldrei þannig að það væri alveg stopp. í Heildina voru skoðaðir um 25 bílar, hef ekki tölustakstík yfir hinar afgreiðslurnar. Siggi framkvæmdastjóri kom stuttu fyrir hálffimm til að taka stöðuna. Klukkan var því orðin svolítið meira en hálffimm þegar ég stimplaði mig út. Þar sem skoðunarmaðurinn er ekki kominn með lykla af stöðinni sá ég um að setja kerfið á og læsa á eftir okkur. Kom við í Krónunni í Lindum á heimleiðinni og þótt ég væri ekki með marga eða þunga poka lagði ég bílnum á efra planið og tók þar að auki lyftuna upp á fjórðu hæð.

2.3.26

Glæný vinnuvika

Ég fór frekar seint að sofa í gærkvöldi en þó fyrir miðnætti. Sofnaði ekki strax og ekki fast, önnur bókin sem ég er að lesa togaði aftur í mig og ég lét undan milli klukkan eitt og tvö. Var svo komin á fætur upp úr klukkan hálfsjö og í vinnu rúmri klukkustund síðar. Stöðvarstjórinn mætti um svipað leyti og ég og tíu mínútum á eftir okkur kom nýji skoðunarmaðurinn. Rólegt var fyrsta klukkutímann og stuttu fyrir tíu vorum við, sá nýi og ég skilin eftir ein afganginn af deginum. Þá var búið að skoða eitthvað um fjóra bíla en þeir urðu rúmlega þrjátíu í heildina. Ungi maðurinn að standa sig mjög vel og svo er hann vel fær í að sinna innbókunum í afgreiðslunni líka. Hann sá um að slökkva á öllu í skoðunarrýminu en ég setti kerfið á og lokaði á eftir okkur. Var mætt í kalda pottinn í Laugardalslauginni um fimm og hitti strax á kalda potts vinkonum mína sem var farin að bíða eftir mér. Ég sleppti sundinu en var að pottormast í rúman klukkutíma. Hluti af þeim tíma fór reyndar í gufubaðsstund. Var komin heim upp úr klukkan hálfsjö. 

1.3.26

Sofið út

Fór ekki á fætur fyrr en um hálfníu í morgun. Var að vísu vöknuð um klukkustund fyrr en ég byrjaði daginn semsagt á því að grípa í bók. Rétt fyrir níu útbjó ég mér hafragraut, tvo skammta þannig að ég á afgang í ská inni í ísskáp. Fimm mínútum áður en ég fór út að sópa af bílnum setti ég hitakerfið á. Klukkan var að verða eitt þegar ég kom til baka eftir langan en mjög góðan fræðslufund. Bjó mér til plokkfisk úr fiskafgangi frá því í gær. Svo stóð alltaf til að ég drifi mig aðeins út í smá göngu en einhvern veginn fór restin af deginum í lestur, slökun og þáttaáhorf. En hey það er eða var nú einu sinni sunnu/hvíldar-dagur í dag.