2.9.26

Á bókasafnið seinni partinn í dag

Vaknaði næstum hálftíma áður en vekjarinn átti að ýta við mér tíu mínútum fyrir sex. Korter yfir sex lagði ég af stað í sund og fór Kringlumýrarbrautina að þessu sinni. Var komin á planið við Laugardalslaug fimm mínútum áður en opnaði. Synti 500m (250m skrið- og 250m bakskriðsund) á braut sex. Sat svo næstum korter í steinapottinum og spjallaði m.a. við fyrrum vinnufélaga úr RB. Stimplaði mig inn í vinnu upp úr klukkan hálfátta. Aðeins rólegra var í skoðunum í dag heldur en undan farna daga en þær fóru þó nokkkuð yfir þrjátíu. Eftir hádegi kom til okkar kona sem er að ráða sig í afgreiðslustörf hjá frumherja. Vann fyrir nokkrum misserum í afgreiðslu hjá Aðalskoðun þannig að hún kann nú ýmislegt fyrir sér. Tveimur tímum eftir að hún kom settist hún í "afgreiðslu-stólinn" og stóð sig mjög vel og fagmannlega. Á morgun á hún að mæta hjá frumherja í Hafnarfirði. Þar eru tvær tölvur í afgreiðslunni svo hún getur skráð sig inn á aðra og haldið þjálfun áfram en það stendur til að hún fari svo í afgreiðsluna í Hádegismóum síðar á árinu.

Eftir vinnu fór ég beinustu leið í Hátún 12 í osteostrong tíma. Var mætt þar korter fyrir fimm. Þurfti að hinkra í rúmar fimm mínútur og var svo búin með ferlið korter yfir fimm. Þá lá leiðin í bókasafnið í Kringlunni. Skilaði þremur bókum af fjórum. Skilda ljóðasafnið hans Njarðar P. Njarðvík eftir heima þar sem ég er rétt rúmlega hálfnuð að lesa það. Á líka tæpar þrjár vikur eftir af útláninu á þeirri bók. Með mér heim tók ég sex bækur þar af eina með 14 daga skilafresti; Vesen eftir Láru Óskarsdóttur. Hinar bækurnar eru; Fimmta barnið eftir Doris Lessing, FYRIR DAGA farsímans (sögur) eftir Böðvar Guðmundsson, Hefnd Diddu Morthens eftir Sigríði Pétursóttur, Sumarblóm og heimsins grjót eftir Sigrúnu Ölbu Sigurðardóttur og Syndafall eftir Yrsu Sigurðardóttur. Veisla framundan hjá mér en ég tel nú líklegt að ég muni þurfa að framlengja einhverjum skilafrestum því það er meira sem ég þarf að gera eftir vinnu heldur en að lesa.


1.9.26

Glænýr mánuður

Vaknaði á undan vekjaranum, einhvern tímann upp úr klukkan sex. Var mætt í vinnu um hálfátta. Í heildina voru skoðaðir 54 bílar í dag, 10 færri en í gær. Nýji skoðunarmaðurinn var að standa sig ágætlega með góðum stuðningi hjá unga stöðvarstjóranum. Um þrjú leytið kom yfirmaður BSK sviðs (Siggi frændi) við til að funda stuttlega með stöðvarstjóranum. Strax eftir vinnu fór ég í Nauthólsvík. Spjallaði við pabba í símann langleiðina á leiðinni þangað. Var komin út í 11,7°C sjóinn rúmlega fimm. Það var fjara. Fór tvisvar út í, í gufuna á milli ferða og endaði svo í heita pottinum í uþb korter. Var komin heim fyrir klukkan hálfsjö. 

31.8.26

Síðasti ágústdagurinn þetta árið

Ég var komin austur á Hellu um hálftvö leytið á laugardaginn. Eyddi 30% af hleðslunni. Sú spænsk-suðurameríska var á vakt í eldhúsinu á Stracta hótelinu til tíu um kvöldið og Bríet frænka var eitthvað á vegum SS á kjötsúpuhátíð á Hvolsvelli en það voru samt "næturgestir" í herberginu sem hún hefur afnot af og pabbi hélt sig í stofunni og stundum eldhúsinu. Hann var annars ágætlega hress. Ég skrapp í stuttan, tæplega hálftíma göngutúr um fjögur leytið og milli fimm og sex bauð pabbi mér upp á grill. Bríet var komin heim en hún og gestir hennar voru í öðrum hugleiðingum varðandi mat og björguðu sér sjálf.

Þegar ég kom fram á níunda tímanum voru pabbi og sú spænska þau einu sem voru komin á fætur. Hún var með í þvottavélinni en vélin var búin fljótlega og ég ákvað að nota tækifærið og þvo utan af rúminu mínu og hengja svo út á snúru. Pabbi tók út þrjú mismunandi fiskflök úr frysti og ég matreiddi handa okkur þremur í hádeginu. Þegar Bríet kom á fætur um eitt afþakkaði hún að fá sér af því sem var afgangs svo ég fékk að taka afganginn með mér í bæinn. Kvaddi pabba um þrjú leytið og var komin í bæinn á fimmta tímanum. Kom við í Löðri við Vesturlandsveg áður en ég fór heim. Hleðslan var rétt komin niður í 39% þegar ég kom heim og af því að það var laust á staur setti ég bílinn í samband og hlóð hann upp í 89%. Tók hann úr sambandi og færði í annað stæð um tíu í gærkvöldi.

Vaknaði um hálfsex í morgun og var mætt í Laugardalslaug þegar opnaði klukkutíma síðar. Synti 500m á braut 6 og hitti svo fyrrum vinnufélaga smá stund í steinapottinum. Stimplaði mig inn í vinnu ca tuttugu mínútum fyrir átta. Stöðvarstjórinn var búinn að fjarlægja bíl sem var á "auka"brautinni því nú er nýji skoðunarmaðurinn kominn með skoðunarnúmer svo þá er um að gera að nýta báðar brautirnar. Það var þokkalega sturlað að gera, slatti bíla bókaðir (bæði fyrir og eftir hádegi) og svo komu mjög margir inn af götunni. Heildar skoðanir fór upp í 64. Þeir voru að klára síðustu skoðanirnar þegar ég stimplaði mig út rétt eftir klukkan hálffimm.

Fór beinustu leið heim. Í síðasta sjónvarpsfréttatíma Sýnar í kvöld kom Davíð Steinn smá stund í mynd vegna fréttar um að á miðnætti mun vsk af eldsneyti hækka aftur upp í 24% úr 11%. Horfði svo á fréttir á Rúv sem sagði m.a. frá síðasta fréttatíma Sýnar (áður stöð 2, í bili eða hvað sem verður).

Sem betur fer tékkaði ég aðeins á almanakinu í símanum því annars hefði ég gleymt að mæta á boðaðan framhaldsfund í húsfélaginu vegna ónæðis íbúa í einni íbúð af 33 í blokkinni. Þar kom fram að ástandið hefur kannski skánað smá en ekki lagast nógu vel og ákveðið var að veita íbúum frest í 30 daga í viðbót. Þó með þeim fyrirvörum að ef ónæðið byrjar aftur eftir þennan tíma þá verði málið tekið lengra.

29.8.26

Inn í helgina

Það var gott og hressandi að byrja gærdaginn á 500m sundi í Laugardalslauginni. Stimplaði mig inn í vinnu um hálfátta. Nóg var að sýsla við undirbúning á opnun en ég sleppti því að gera upp því þá hefði ég verið tæp á skiptimynt. Þá brá auðvitað svo við að enginn af hátt í 50 viðskiptavinum sem voru annað hvort að láta skoða, leggja inn númer eða borga opinbergjöld greiddu með reiðufé. Það gerist alveg. Það voru annars skoðaðir yfir fjörutíu bílar í gær og rétt rúmum hálftíma fyrir lokun kom yfirmaður bifreiðasviðs með skoðunarnúmer og síma fyrir nýja skoðunarmanninn þannig að í næstu viku verður loksins hægt að nýta báðar brautirnar. Eftir vinnu fór ég vestur í bæ til norsku esperanto vinkonu minnar. Var komin til hennar rétt fyrir hálffimm og nýtti ég tækifærið og setti bílinn í hleðslu á meðan. Við settumst út á svalir fyrri klukkutímann og spjölluðum um alls konar. Inger bauð upp á te og sykurlaust eplakökupæ, mjög gott! Seinni klukkutíminn fór í ljóðaglugg og smá esperanto. Ég var með mér nýútgefið ljóðasafn Njarðar P Njarðvík sem ég tók af safninu um síðustu viku. Útgáfan er í tilefni þess að Njörður varð níræður í lok júní sl. Mjög mörg mögnuð ljóð. Ég er annars aðeins búin með ca einn þriðja af bókinni. Bíllinn var kominn yfir áttatíu prósent þegar ég tók hann úr hleðslu. Ákvað samt að skella honum aftur í samband á staurnum á planinu heima og hlaða alveg upp í hundrað. 

27.8.26

Sjósund og kosning eftir vinnu

Vaknaði korter fyrir sex, tæpri klukkustund áður en vekjarinn átti að ýta við mér. Skrapp fram á pisseríið og gerði svo tilraun til að kúra mig niður og sofna aftur. Virkaði ekki en ég fór þó ekki á fætur fyrr en um það leyti sem hafði stillt vekjarann á. Mætti í vinnu rétt fyrir hálfátta. Vinnudagurinn var kaflaskiptur, stundum mikill erill en inn á milli rólegra. Fyrrum samstarfskona til hátt í tuttugu ára í kortadeildinni kom með bílinn sinn í skoðun. Gátum spjallað smá því það var smá röð á undan (einn eða tveir bílar). Eftir vinnu fékk ég mér smá göngu að heimilisfangi á Suðurlandsbraut skammt frá gatnamótunum við Grensásveg. Erindið var vinnutengt. Manneskjan sem ég var að reyna að ná sambandi við var ekki heima en ég gat stungið umslagi með smá bréfkorni í í póstkassann hennar. Labbaði beinustu leið til baka í bílinn og dreif mig í Nauthólsvík. Fór fyrri ferðina í sjóinn korter yfir fimm. Stutt var út í og sjórinn 12,2°C. Tók ekki tímann sem ég var út í en fór í gufu, aftur í sjóinn og svo smástund í pottinn áður en ég fór upp úr upp úr klukkan sex. Kom við í Hlíðarsmára og kaus utan kjörfundar. Það var nóg að gera þar en ferlið gekk ótrúlega vel fyrir sig. Ég var komin heim fyrir klukkan sjö.

26.8.26

Eitt og annað

Þar sem ég skrópaði í sund eftir vinnu í gær var ég ákveðin í að mæta á húninn í Laugardalslaug í morgun og stillti vekjarann á að ýta við mér tíu mínútum fyrir sex. Fór í háttinn um tíu og las í hálftíma. Rumskaði um hálffimm og þurfti á pisseríið. Ég sofnaði eiginlega ekki aftur. En ég var mætt á húninn við opnun. Synti 500m á braut sjö á tuttugu mínútum og sat svo nokkrar mínútur í steinapottinum að spjalla við einn fyrrum samstarfsmann. Vinnudagurinn var annars alls konar, rólegur til að byrja með en mun meiri erill eftir hádegið. Í heildina voru skoðaðir 36 bílar. Í stað þess að fara í osteostrong eftir vinnu lá leiðin í ákveðið hús mjög austarlega í borginni. Þar var fyrir slatti af fólki sem var að taka til hendinni og ég lagði mitt af mörkum í því verkefni. Klukkan var langt gengin í sjö þegar ég kom heim. 

25.8.26

Án titils

Ég var frekar óákveðin og óviss með plön eftir vinnu í dag. Tók með mér sund- og sjósundsdót en einnig var ég undirbúin undir esperantó hitting. Stimplaði mig inn í vinnu um hálfátta. Hafði í nægu að snúast fram að opnun. Svo var rólegt fyrsta rúma hálftímann áður en fyrsti bíll kom til skoðunar. Stöðvarstjórinn fékk afleysingu milli hálfellefu og hálfeitt. Fyrir hádegi voru skoðaðir 17 bílar og alveg jafn margir eftir hádegi því heildin fór upp í 34. Strax eftir vinnu fór ég í Fiskbúð Fúsa. Ekki var til óbarin ýsa en ég keypti lúðu, glútenlausar fiskibollur og eitt þorskhnakkaflak. Hugað verður að esperanto hittingi seinni part seinna í vikunni og ég ákvað stefna á sund í Árbæjarlauginni í stað sjósunds í Nauthólsvík. Hringdi í pabba á meðan ég var á leiðinni upp í Árbæ. Hann var að gera sultu úr kílói af niðurskornum rabbabara sem hann átti i frysti síðan í fyrra. Var komin að Árbæjarlaug korter yfir fimm. Fann ekki stæði svo ég hætti við sundferð og fór beint heim. 

24.8.26

Eftir helgina og vinnuvikuupphaf

Helgin varð aðeins öðruvísi en ég átti von á en ég var svo sem ekki með nein plön. Laugardagsmorguninn fór í stúss sem ekki má og er alveg óþarfi að skrifa um. Fékk áminningu frá bókasafninu og ég hefði alveg eins getað farið og skilað bókunum á safninu í Úlfarsárdal því það var opnað um leið og sundlaugin. Kringlusafnið var opið milli eitt og fimm. Það fór svo að ég fór þangað um miðjan dag. Hafði fests í að horfa á "Sama viðtalið" með Baldvini Þór Bergsveinssyni og Patreki Jaime í sarpi RÚV. Skilaði öllum bókunum sem ég var með í láni og fékk mér fjórar í staðinn. Þar af tvær sem voru nýjar og með 14 daga skilafresti. Á heimleiðinni gerði ég stopp í Krónunni í Lindum. Stór partur af því sem eftir lifði helgarinnar fór í að klára að lesa báðar skammtímalánsbækurnar; 17 ástæður til að drepa og 18 rauðar rósir eftir Unni Lilju Aradóttur.

Í morgun var ég búin að stimpla mig inn í vinnu um hálfátta leytið. Rólegt var fyrir hádegi en í heildina voru skoðaðir 32 bílar, sá fyrsti átti bókaðan tíma og mætti um níu. Sá síðasti var skoðaður korter yfir fjögur. Stimplaði mig út á slaginu hálffimm og kom við í Árbæjarlauginni áður en ég fór heim.

21.8.26

Er að hlaða bílinn

Rumskaði frekar snemma og hefði í sjálfu sér getað byrjað daginn á því að fara í sund en ákvað að kúra aðeins lengur og nota svo tímann í smá dútl hér heima áður en ég fór af stað í vinnu tuttugu mínútum yfir sjö í morgun. Var þó með sunddótið meðferðis. Fyrsta hálftímann í vinnunni notaði ég m.a. til að hella upp á, strjúka yfir nokkra fleti og gera upp kassann. Annars var morguninn rólegur og aðeins ellefu bílar skoðaðir fyrir hádegi. Það var meira líf í tuskunum eftir hádegi en þó smá pásur inn á milli. Heildarfjöldi skoðaðra bíla fór upp í þrjátíuogtvo en við stimpluðum okkur út á slaginu fjögur. Kom aðeins við í N1 við Borgartún og heilsaði upp á Davíð Stein. Keypti mér ný plús 1,5 lesgleraugu. Um fimm leytið var ég komin í Árbæjarlaugina. Synti í tæpar tuttugu mínútur, fór í gufu, eina ferð í kalda pottinn, kalda sturtu og infra rauða klefann. Kom heim stuttu fyrir klukkan hálfsjö. Bíllinn var enn í eitthvað yfir fjörutíu prósent en það var pláss á staurnum og ég ákvað að nýta mér það. Hann er kominn upp í 93% núna og ég gæti alveg farið að kalla þetta gott að sinni og færa hann á almennt stæði. Talandi um stæði þá gleymdi ég að geta þess að í gær voru öll útibílastæði sem tengjast blokkinni máluð.

20.8.26

Nauthólsvík eftir vinnu í dag

Mætti í vinnu um hálfátta. Strákarnir voru mættir tuttugu mínútum. Mjög rólegt var fyrstu tvo tímana og notaði nýji maðurinn tímann til að vinna í síðasta bóklega prófinu til að geta sótt um að fá skoðunarréttindi. Ellefu bílar voru skoðaðir fyrir hádegi. Í hádeginu þurfti stöðvarstjórinn að skreppa frá í rúma tvo tíma. Ein "flakkari" var sendur til okkar. Hann kom rétt fyrir hálfeitt og þá voru þegar komnir tveir á húninn. Flakkarinn gerði 19 skoðanir á rétt rúmum tveimur tímum. Stöðvarstjórinn skilaði sér til baka um hálfþrjú og flakkarinn kvaddi rétt fyrir þrjú. Eftir það og fram að lokun voru gerðar fimm eða sex skoðanir. Ég stimplaði mig út á slaginu hálffimm og fór beinustu leið í Nauthólsvík. Umferðin var þannig að ég var rúmlega tuttugu og fimm mínútur á leiðinni þangað. Var rétt á eftir kaldapotts vinkonu minni. Við fórum tvisvar í sjóinn, tvisvar í gufu, einu sinni í lónið og ég fór aðeins einu sinni í heita pottinn því ég fór upp úr eftir ferðina í lónið. Var komin heim rétt um klukkan sjö. 

19.8.26

Osteostrong eftir vinnu í dag

Ég vaknaði fimm mínútum áður en vekjarinn átti að ýta við mér í morgun, eða um hálfsjö. Rétt rúmum klukkutíma síðar var ég mætt í vinnuna. Vorum bara tvö í allan dag. Nokkuð rólegt framan af og stundum inn á milli en í heildina voru þó skoðaðir tuttuguogsex bílar sem er alveg ágætt fyrir einn mann. Sex af þessum skoðunum voru bókaðar í gegnum noona-appið og voru þá á ákveðnum tímum. Með þessari þjónustu þarf þá einnig að vera vakandi fyrir því að tilkynna þeim, sem mæta til að athuga hvort sé hægt að fá skoðun, að bókaðir tímar gangi fyrir. Sum verkefnin mín fóru fram í gegnum síma, með tölvupóstsamskiptum og líka netfyrirspurnarsamskipti af heimasíðu fyrirtækisins. Eftir vinnu fór ég beinustu leið í Hátúnið og komst strax að í osteostrong þótt klukkan væri ekki orðin fimm þegar ég mætti. Átti ekki von á neinum sérstökum árangri þar sem ég er búin að vera lasin en árangurinn var bara mjög þokkalegur. Lét svo vita að ég komist ekki í tíma aftur fyrr en eftir hálfan mánuð. Var komin heim um hálfsex leytið. Í kvöldmatinn kláraði ég afganginn af bleikjuréttinum sem ég útbjó sl. sunnudag. Mikið var annars gaman að horfa á fyrsta þáttinn í sextándu þáttaröðinni af "Með okkar augum" í kvöld.

18.8.26

Smástund í sund eftir vinnu

Ég mætti í vinnu um hálfátta í morgun. Samstarfsmenn mínir mættu stuttu fyrir klukkan átta. Reyndar var sá nýji mættur aðeins fyrr en hann er ekki með lykla og ég vissi ekki af því og hafði læst innri dyrunum eftir að ég var komin inn og búin að taka kerfið af. Það var frekar rólegt í morgun, aðeins tólf bílar skoðaðir fyrir hádegið. Sá nýji fór á skoðunarnámskeið um hádegisbilið og við vorum bara tvö eftir hádegi. Það var meira að gera milli hálfeitt og rúmlega fjögur en þó náði heildarfjöldi skoðaðra bifreiða yfir daginn ekki þrjátíu. Vantaði svo sem ekki mikið upp á. Stimpluðum okkur út á slaginu hálffimm og ég dreif mig í Árbæinn og fór í sund þar. Synti ekki nema um 100m, fór tvisvar í kalda pottinn, eina ferð í gufuna og endaði á að fara í innfrarauða klefann í kvennaklefanum í 15 mínútur áður en ég fór heim. Sundferðin tók innan við klukkustund og ég var komin heim um sex leytið. 

17.8.26

Fékk sms og mail frá besta bankanum í morgun

Þar til flensan náði að leggja mig var takmarkið að fara í blóðbankann eftir vinnu í dag. Var með áminningu í dagatalinu um að bóka tíma akkúrat í dag 17. ágúst. Færði þessa áminningu aðeins aftar í dagatalið og eyddi henni svo. Ekki það að ég sé hætt við heldur er ég ekki viss um hversu lengi ég þarf að fresta þessari heimsókn. Ég myndi halda svona 2-4 vikur. En ég mætti þó í vinnuna í dag og lifði vinnudaginn af. Vorum bara tvö framan af og þegar hinn tilvonandi skoðunarmaðurinn mætti einhvern tímann upp úr hádeginu fór hann að vinna í verkefnum sem tengdust því sem hann er að vinna að þessa dagana, þ.e. að klára skoðunarmannanámskeiðið og taka fleiri en eitt próf til að fá skoðunarskírteinið. Þrjátíuogfjórir bílar og ein kerra voru skoðuð í dag, allt af stöðvarstjóranum. Ég hafði annars tekið sunddótið með í bílinn en eftir vinnu ákvað ég heldur að fara beint heim í sturtu og svo rólegtheit. Greip ekki einu sinni í prjónana mína og líklegast er að ég fari beint í háttinn eftir þessa færslu og lesi lítið sem ekki neitt.

16.8.26

Sunnudagur sextándi

Ég hélt mig heima við í gær eins og fjóra daga þar á undan. Davíð Steinn sótti Odd um tvö leytið og þeir fóru saman í gjafa-leiðangur fyrir "baby-shower" og fengu sér að borða í leiðinni. Oddur var kominn til baka einhvern tímann fyrir fimm. Um sex leytið setti ég upp hýðisgrjón og náði í nokkra bleikjubita úr frosti og setti í annan pott. Greip þetta með mér þegar ég fór í Krónuna síðast. Oddur þáði reyndar ekki að borða með mér (meiri afgangur fyrir mig í staðinn) því hann var enn saddur. Rétt fyrir hálfátta fór hann labbandi í Smárann til að fara í bíó. Ég fór í háttinn upp úr hálftíu og byrjaði á því að mæla mig, ennþá örfáar kommur því miður en ég er eiginlega ekki að nenna þessu lengur. Kommurnar eru kannski eðlilegar að kvöldi til, amk á meðan enn "sýður" aðeins í brjóstholinu. Auðvitað langar mig ekki að láta mér slá niður og ég vil helst ekki fara á læknavaktina til að fá sýklalyf til að vinna þetta hraðar niður. Það síðara er kannski samt það sem ég þarf að gera. Skoða þetta betur í vikunni. 

15.8.26

Kommunum fer fækkandi

Varð svolítið svekkt þegar ég mældi mig í gærkvöldi, fjórar kommur eru alltaf fjórar kommur ef maður er að slást við pestirnar. Ég er þó ekki frá því að það sé farið að losa um "kekkina" í brjóstholinu. Hefði helst viljað vera laus við kommurnar svo ég gæti verið þokkalega viss um að mér slái ekki niður fari ég af stað út í morgundaginn. Ætla að halda mig heima við í dag. Oddur kom í gærkvöldi og er með gistingu hér til morguns og ég fæ þá bræður vonandi til að vera með mér í gjöf, og sjá um allt í kringum hana, til að taka með á opið hús á morgun. Það er eiginlega annars hálf galið að þurfa að halda sig inni við. Annars greiddi ég hálfa millijón inn á húsnæðislánið í morgun eftir að hafa fyrst greitt fasta greiðsluseðilinn. Lánið er því komið niður í 7,1 úr tæpum tólf sem það var í fyrir ári og greiðslubirgðin líklega að komast niður í um fimmtíuþúsund í stað áttatíuogtveggja. Þarf svo aðeins að ákveða næstu skref. Held að það væri skynsamlegt að koma láninu aðeins neðar til að lækka greiðslubirgðina enn frekar og svo halda áfram að borga inn á lánið með séreignarsparnaðinum þegar ég má fara að taka hann út eftir uþb tvö ár. Gallinn við sumt í þessu lífi er að stundum er það sem er svo rétt í dag alveg kolrangt á morgun og öfugt.

13.8.26

Með 8 kommur á kvöldin

Síðan á mánudags kvöldið hef ég verið að "vinna" í því að ná heilsu á ný. Var frekar spæld yfir því að mér tókst ekki að forðast pestina því dagana áður en ég játaði mig sigraða reyndi ég eins og ég gat að fara extra vel með mig. Það er enn nokkuð fast ofan í hálsi eða neðar. Er ekki stífluð en inn á milli þarf ég þó að snýta mér og horinn stundum grænn. Það er alls ekki gaman að vera kippt svona út úr rútínunni en það að ég hafi þurft að "hanga" heima sl daga hefur þó komið sér vel. T.d. eins og í gær þá gat ég fylgst með allri útsendingunni á RÚV vegan sólmyrkvans og í dag fylgdi ég Gunnari heitnum Þórðarsyni með góðri aðstoð útsendinu á sjónavarp símans preminum.

Oddur Smári byrjaði að vinna á mánudaginn var, sinnir yngstaskólastiginu í frístund í einum skólanum á Selfossi. Á meðan ekki er búið að setja skólann er þetta 100% starf en fer svo niður í hlutastarf um leið og skólinn byrjar.

"Hönnunar"-barnateppið stækkar daglega og mig er farið að gruna að ég þurfi að útvega aðeins fleiri dokkur í sumum litunum. Stundum veit ég ekki hvernig næsti bútur í teppinu verður fyrr en rétt áður en komið er að honum. Og þegar ég verð búin að prjóna og ganga frá endum mun ég amk eiga eftir að sauma kindamyndir á alla vega þrjá fleti og jafnvel ákveða hvort flott verði að hekla kant í kringum teppið. 

11.8.26

Pestargemlingur - kann það varla

Eftir að hafa farið frekar vel með mig um nýliðna helgi vaknaði ég nokkuð hress snemma í gærmorgun. Vissulega fann ég enn fyrir særindum í hálsinum en ég taldi mig vera hitalausa og nokkuð viss um að ég væri að komast yfir "versta" hjallann. Mætti í vinnu um hálfátta og var búin að hella upp á, snurfursa salernisrýmið, opna afgreiðslukerfin og gera upp kassann þegar stöðvarstjórinn mætti. Nýi maðurinn var á námskeiði mestallan daginn í gær, að vinna í að fá réttindi til að skoða og skila skoðununum sjálfur. Mér skilst að hugsanlega klárist það mál í vikulokin eða strax í næstu viku. Hann kom til okkar tæpum klukkutíma fyrir lokun og hjálpaði til við að skoða síðustu fimm bílana af 34 í heildina. Þó nokkur erill var í gær og ein skoðunin hafði meira að segja verið bókuð inn á noona sem við vorum að taka í notkun fyrir Skeifuna sl. föstudag. Þegar fór að líða á vinnudaginn var ég orðin nokkuð viss um að ég væri komin með hita. Tókst að mestu að forðast að fá hóstaköst en fann að hálsbólgan lá djúpt. Nebbinn stíflaðist ekki en það kom fyrir að ég þurfti að bregða mér frá og snýta mér eða þurrka nebbann, alls ekki oft. Ég sagði stöðvarstjóranum, í vinnudagslok, að ég ætlaði að mæla mig þegar ég kæmi heim og myndi senda honum sms ef ég væri komin með hita. Fór aðeins inn í Lyfju við Smáratorg. Ætlaði að kaupa annað glas af ólífulaufi og hitamæli en hætti við þar sem greiðslukortið mitt var út í bíl. Kom við í Krónunni í Lindum, hafði ekki farið að versla síðan fyrir síðustu mánaðamót. Kom heim um hálfsex. Gekk frá vörunum og fann svo loksins hitamælinn sem ég vissi að ég ætti í fórum mínum. Mældist með rétt tæplega 38,5°C hita. Ég hef ekki orðið svona lasin í meira en þrjú ár. Sendi sms-ið og tók því svo rólega. Um níu fékk ég mér panodíl-hot drykk, háttaði upp í rúm og fór að sofa án þess að lesa stafkrók. Rumskaði upp úr miðnætti en sofnaði strax aftur eftir að hafa farið á salerni pissað og snýtt mér. Rumskaði aftur um fimm leytið og þá var sama upp á teningnum. Vissi aðeins af mér um sjö en svo ekki fyrr en klukkan var að verða tíu. Er ekki búin að mæla mig aftur, geri það ekki fyrr en í kvöld eða á morgun. Hósta stöku sinnum og það er frekar sárt. Ég þarf líka að þurrka nebbann eða snýta mér öðru hvoru. Er samt ekki stífluð.

Seinni partinn í dag kemur einhver til að þrífa loftstokkinn í þvottaherberginu. Hæðir 5-8 voru teknar í gær og restina á að klára í dag. Nágrannakonan við hliðina bankaði upp á rétt áðan og afhenti mér lykla af sinni íbúð þar sem hún verður að vinna til klukkan hálfsjö.

9.8.26

Svæsin hálsbólga

Ég stóð mína pligt í vinnunni á fimmtudag og föstudag en er ekki búin að fara í sund síðan á Hellu á laugardaginn var og aðeins eina ferð í sjóinn um miðjan dag á miðvikudaginn. Eftir vinnu á fimmtudaginn kom ég við í Lyfju á Smáratorgi, sem ég skrifaði um í síðustu færslu, og keypti mér m.a. ólífulauf- og hvítlaukshylki. Hefði eiginlega líka átt að kaupa eitthvað sterkt og mýkjandi í hálsinn. Átti smá engifer bút sem ég nýtti mjög vel en kláraðist um helgina. 

Bríet hafði samband við mig á föstudaginn og spurði hvort hún mætti gista hjá mér aðfaranótt laugardags. Það var auðsótt mál. Hún kom um sjö leytið og fékk lánaða húslykla en staldraði stutt við. Ég sá hana svo ekki aftur fyrr en rétt fyrir klukkan ellefu í gærmorgun þegar hún kom og skilaði lyklunum og sagði orðrétt: "Svefn er greinilega fyrir aumingja!" Var svo rokin út fljótlega aftur á leið í smá lokunar veislu Hárhornsins en Lilja föðursystir hennar hefur rekið þá stofu síðan Torfi dó. Nú er hún búin að finna annað húsnæði á betri stað skilst mér. Ég reyndi að fara vel með mig um helgina og hélt mig heima við. Það varð þó amk til þess að ég er loksins farin að munda prjónana aftur eftir rúmlega árs hlé. Er byrjuð á einhverju sem á helst að verða bleikt ungbarnateppi með kindum á. Bríeti leist vel á það sem hún sá af því en svo verður það að ráðast hvernig heildarútkoman verður og hvort Hulda verði jafn hrifin. Í morgun fór ég annars í þriðja skipti í sturtu hér heima á þessum rétt tæpu tíu mánuðum sem ég hef búið hér en það kemur ekki til af góðu. Það er þó örugglega ágætt að nota sturtuna öðru hvoru og nýta tækifærið og skrúbba sturtubotninn í leiðinni. Hann var þó ekkert sérlega skítugur, samt smá sandur úr Nauthólsvík og einhver hár í niðurfallinu. 

6.8.26

Fyrsti vinnudagur eftir frí

Gærdagurinn var síðasti frídagurinn í bili. Kalda potts vinkona mín hafði haft samband kvöldið áður að spyrja hvort við gætum hist í Nauthólsvík um þrjú. Ég taldi það frekar líklegt en sló smá varnagla þó því ég fann aðeins fyrir eymslum í hálsinum og var smeik um að vera að leggjast í pestina sem synir mínir eru rétt að verða góðir af. Skrifaði til baka að ef hún heyrði ekkert frá mér í gær mætti hún reikna með að hitta mig. Fór frekar snemma á fætur og loksins lét ég verða af því að grípa í prjónana aftur eftir árs hlé. Einhverskonar barnateppi er komið í vinnslu og verður frekar fróðlegt að sjá útkomuna þegar þar að kemur. Um hádegið tók ég bleikju og smá ýsu úr frysti, skar niður sæta kartöflu sem ég sauð með spergilkáli. Frosna fiskinn setti ég saman í annan pott í vatn krydduðu með best á lambið. Úr varð hin ágætasta máltíð og nægur afgangur í tvo skammta. Ég var mætt í Nauthólsvíkina rétt fyrir þrjú. Við Hrafnhildur fórum þrisvar í sjóinn, einu sinni í gufuna og tvisvar í heita pottinn á einum og hálfum tíma. Var mætt í Hátúnið stuttu fyrir fimm. Eftir tímann fékk ég gefins sólmyrkvagleraugu og þau skilaboð að stöðinni yrði lokað klukkan fjögur n.k. miðvikudag svo ég fæ eina viku í frí. Á heimleiðinni kom ég við í Lyfju við Smáratorg og verslaði mér C-vítamín, hvítlaukshylki, ólífulauf og extra-tyggjó. Hitti bekkjarsystur úr 2. bekk í Helluskóla fyrir utan.

Þegar ég fór í háttinn í gærkvöldið stillti ég tvær "vekjaraklukkur", annars vegar klukkan hálfsex og hins vegar klukkan hálfsjö. Rumskaði um eitt leytið til að fara á pisseríið og ákvað í leiðinni að slökkva á fyrri vekjaranum og sleppa morgunsundi. Var mætt í vinnu um hálfátta. Hellti upp á, gerði uppgjör og fleira. Stöðvarstjórinn er búinn að útvega tveggja sæta sófa og aukaborði í afgreiðslurýmið og hann hafði þar að auki skroppið í Bónus í gær og passað upp á að kaupa hreint skyr og rjóma. Ég fór því aftur heim með chiagrautinn sem ég tók með í vinnuna í morgun og hafði sem millimál um fimm leytið eftir að ég kom heim. 

4.8.26

Næst síðasti frídagurinn langt kominn

Ég mætti fyrst af sjö (tíu ef ég tel hundana með) næturgestum til pabba á laugardaginn var. Helga og Ingvi og hundarnir þrír voru síðust, komu milli fjögur og hálffimm. Þá voru Hulda, Óli og tvíburarnir mætt á tveimur bílum. Við pabbi, Helga og Hulda skruppum þá fljótlega í búðina. Þegar við komum til baka var þremur krydduðum lambalærum pakkað inn í álpappír og stungið í ofn. Þá var líka að komast á hreint hvernig raðað yrði í svefnplássin. Óli, Hulda og Bríet sváfu í stærsta herberginu því þar inni voru tvö rúm, annað tvíbreitt. Ég var ein í mínu herbergi, bræðurnir sváfu saman í tvíbreiðu rúmi í herberginu við hliðina, pabbi og sú spænski í stofunni. Hann í sínu rúmi við minni gluggann og hún á dýnu á gólfinu við stærri gluggann. Helga, Ingvi og hundarnir lögðu undir sig pabba herbergi og "spariforstofuna"! Sú spænska var annars að vinna til klukkan tíu um kvöldið. Kom ekki heim fyrr en við vorum búin að borða og ganga frá. Hún vinnur í eldhúsinu á Stracta hótelinu og er á tólf tíma vöktum. Átti líka vinnu vakt á sunnudeginum. Bræðurnir og Bríet skutluðu henni í vinnuna daginn eftir og gerðu sér ferð á Hvolsvöll eftir hálftöflum og fleiru. Ég rölti í sund og var mætt rétt áður en opnaði um tíu. Kom til baka um tólf leytið. Um hálfþrjú leytið lögðum við af stað á tveimur bílum en Ingvi átti pantað borð fyrir 18 manns á Friðheimum því vinafólk þeirra var á svæðinu. Oddur fékk að keyra okkur Helgu og Ingva og tvo af hundunum á Helgu bíl. Davíð Steinn keyrði bíl afa síns, með óléttu frænku sína í framsætinu og afa sinn, Bríeti og Óla aftur í. Hann lagði heldur lengra frá en hann þurfti en færði svo bílinn nær eftir að pabbi hafði rölt með eina hækju af bílastæðinu og svo smá stuðning þegar hann þurft niður nokkur þrep. Borðið var tilbúið um fjögur leytið og þá voru níu manns á aldrinum 3 til rúmlega 50 búin að bætast við. Stór hlutu af þeim hópi var á fyrstu (og einu hingað til) Árlandsleikunum sem voru haldnir sumarið eftir að Helga og Ingvi fluttu í sveitina fyrir norðan. Systir mín og mágur buðu tvíburunum að borða og drekka, var "sextugs"-afmælisgjöfin þeirra. Ég átti í vandræðum með að velja á milli súpu og sallats en það síðarnefnda, með önd, varð ofan á. Pantaði mér einnig eitt hvítvínsglas með matnum. Nokkru eftir að allir voru búnir að borða og sú ólétta, systir hennar og afinn orðinn þreytt að sitja lengur var ákveðið að Bríet tæki að sér að keyra afa bíl með okkur fjögur og báða hundana með til baka á Hellu. Bræðurnir og systir mín og mágur og hluti af vinahópnum varð aðeins lengur.

Í gær átti sú spænska frídag og hún vildi endilega elda fyrir okkur spænskan rétt. Svo gott hjá henni. Vorum að borða milli tvö og þrjú. Eftir matinn kvöddu Hulda og Óli og fóru til Keflavíkur og ekkert svo löngu á eftir þeim kvöddu bræðurnir. Þeir voru búnir að glíma við smá hálsbólgu alla helgina og mér skilst á Oddi að hann hafi verið kominn með hita seinni partinn í gær. Davíð Steinn átti að byrja að vinna aftur í dag eftir rétt rúmlega viku frí en hann varð að tilkynna sig inn veikan. Ég stoppaði fram yfir kvöldmat og eftirrétt en ákvað svo að drífa mig í bæinn. Bíllinn var í 56% en ég komst á honum alla leið heim og það var laust fyrir hann á hleðslustaurnum þegar ég bakkaði að honum um tíu þá komin niður í 22%. Var rúma sjö klukkutíma að hlaða hann upp í 100%, rumskaði upp úr klukkan fimm til að stoppa hleðsluna en fór ekki út til að taka hann úr sambandi og færa fyrr en um níu.