Fór síðast á bókasafnið rétt fyrir miðjan júní og skilaði af mér 5 bókum þar af tveimur sem átti að skila í síðasta lagi þann 18. Var með tvær bækur eftir heima sem skila á 4. júlí n.k, Sonurinn eftir Jo Nesbö og Eftirbátur eftir Rúnar Helga Vignisson. Tók aðeins 3 bækur, þar af eina stutta ljóðabók, allar með 30 daga skilafresti. Mæli mjög með bókinni Líkblómið eftir Anne Mette Hancock. Aðeins ein bók af safninu er ólesin en ég er byrjuð á henni og líst vel á þá sögu; Svartalogn eftir Kristínu Mörju Baldursdóttur. Stefni að því að vera búin með þá bók fyrir fjórða júlí og skila þá af mér öllum bókasafnsbókunum.
27.6.19
26.6.19
Þyrfti helst að setja upp e-s konar blogg-rútínu
Það getur verið gott að taka sér pásur og það er sérstaklega gott að vinna markvisst að því að halda sig meira frá tölvunni. En það er líka frekar erfitt að skrá niður það sem gerist hjá mér og í kringum mig ef það eru margar vikur á milli færslna. Ætti að geta komið með einhver stikkorð/setningar um það helsta en akkúrat núna er ég með takmarkaðan tíma til að festa þetta niður. Ég get þó sagt að ég hafi ekki slegið slöku við lesturinn eða tuskuprjónaskapinn, er "útskrifuð" frá sálfræðingun eftir 4 góða samtalstíma (má þó alltaf hafa samband ef ég tel mig þurfa þess). Pabbi er búinn að sækja duftkerið sem ákveðið hefur verið að setja niður hjá "litlu Önnu" daginn sem mamma hefði orðið 75 ára og þá verður akkúrat vika þar til aðal sumarfríið mitt byrjar. Pabbi er kominn á nýjan bíl og búinn að selja þann gamla. Systir mín, mágur, hundarnir og yngri systurdóttir mín komu suður helgina fyrir 17. júní. Áttum góða helgi saman á Hellu þar sem við skruppum m.a. upp að Heiði. Þetta var svona það allra helsta. Vona að það verði ekki margar vikur þar til næst, en kannski einhverjir dagar. Sjáum til með það, ætla ekkert að lofa neinu.
4.6.19
Og þá er kominn júní
Í gær fékk ég bæði sms og mail frá Blóðbankanum. Ég kom því við þar á leið heim úr vinnunni í mína 52. heimsókn. Vel gekk að gefa en ég varð að sleppa því að skreppa í sund og potta svo ég fór ekkert aftur út eftir að ég kom heim um hálffimm. Bjó til kjötbollur í kvöldmatinn, prjónaði, las og horfði á danska þáttinn á RÚV.
Ég fékk líka skilaboð frá bókasafninu í gær um að skiladagur væri að nálgast á einni bók, bókinni sem var með 14 daga skilafresti. Þótt sá frestur hafi verið til 5. júní ákvað ég að skreppa á safnið eftir vinnu í dag þegar ég væri hvort sem er á leiðinni í sund. Skilaði fimm bókum af sex. Er byrjuð að lesa þá sjöttu. En það "eltu" mig sex bækur heim og þar af eru tvær með 14 daga skilafresti. Hvar endar þetta eignlega?
Annars er ég komin með 9. tuskuna á prjónana. Er ekki enn búin að prófa að hekla eitt stk tusku, en það er nóg eftir af garni, sér varla högg á vatni í pokanum.
29.5.19
Maí alveg að verða búinn
Hvernig fer tíminn eiginlega að því að æða svona hratt áfram? Ég er búin að vera dugleg við lesturinn undanfarið og hef heimsótt bókasafnið á ca hálfsmánaða fresti aðallega vegna þess að ein að bókunum sem koma með mér heim í hvert skipti er með 14 daga skilafrest. Næ að klára að lesa hluta af hinum bókunum og skila í leiðinni en þótt ég skilji eftir ólesnar bækur heima kem ég alltaf með 4-6 bækur með mér heim. Á miðvikudaginn var skilaði ég nýjustu bók Arnaldar Indriðasonar Stúlkan hjá brúnni og þar áður Krýsuvík eftir Stefán Mána. Var annars að ljúka við lestur á bókinni Bókmennta- og kartöflubökufélagið eftir Mary Ann Shaffer & Annie Barrows. Bókin gerist rétt eftir seinni heimstyrjöldina og er framvinda sögunnar sett upp í sendibréfum. Þessi bók greip mig heljartökum. Byrjaði á henni sl. sunnudag og lauk við hana aðfaranótt þriðjudags. Var ekki heima á mánudagskvöldið. Hefði geta farið á heimaleik í Pepsí-deild kvenna en milli sex og rúmlega hálfátta var ég á Bjórgarðinum að kveðja einn vinnufélaga og þaðan fór ég svo beint í saumaklúbb til tvíburahálfsystur minnar. Var mætt hjá henni rétt fyrir átta og fimm mínútum síðar var klukkan byrjuð að ganga tólf.
Var ekki í vinnu í gær. Var að hitta sálfræðinginn í 3. sinn og líkt og í hin skiptin tók ég mér heilan veikindadag. Ég finn að þetta samtal er að gera mér gott og ég finn líka að ég geri rétt með því að taka nokkra tíma í þetta. Sálfræðingurinn var að hvetja mig til að halda einhvers konar tilfinningadagbók fyrir sjálfa mig. Það er smá áskorun því það er orðið mjög langt síðan ég skrifaði eitthvað niður á blað ef mér leið ekki mjög vel. Ég er nokkuð viss um að það mun gera mér gott að taka þessari áskorun. Svo stefnan er að finna eða útvega mér stílabók og byrja á þessu verkefni sem fyrst. Punkta niður líðan mína daglega sama hvernig mér líður og grufla þá í því hvort eða hvað sé að flækjast fyrir mér og hvernig ég geti létt á mér og skilið eftir eitthvað sem er alveg óþarfi að burðast með dags daglega út lífið.
14.5.19
Rúmur mánuður
Það er alltaf eitthvað um að vera í kringum mig en samt hef ég leyft tímanum að þjóta hjá án þess að setja niður staf um eitt eða neitt af því. Ég er mikið búin að lesa, prjóna, labba, synda, pottormast og fara á hina og þessa viðburðina, hitta vinkonur og fleira og fleira.. Og svo er ég búin að gera eitt tvisvar sinnum sem ég hef aldrei gert áður. Var við það að brotna saman í vinnunni um daginn, ekki alveg viss nákvæmlega út af hverju en ákvað að prófa að fá að tala við sálfræðing. Ferlið var þannig að ég lét mannauststjóra og framkvæmdastjórann minn vita að ég væri ekki alveg að fúnkera og að þegar samstarfstarfsfólki mínu væri farið að líða illa í kringum mig þá þyrfti ég að athuga minn gang. Þetta var fyrir páska. Tveim dögum eftir að ég sendi þessi skilaboð hitti ég mannauðsstjóra og talaði við hana í rúma klukkustund, beygði aðeins af fyrstu mínúturnar sem er frekar ólíkt mér. Við, mannauðsstjórinn, ákváðum í sameiningu að ég myndi fara og bera mig upp við trúnaðarlækni fyrirtækissins morguninn eftir en hún sendi mér líka rafrænt bréf á einkanetfangið mitt með alls konar tillögum. Hitti lækninn strax morguninn eftir og við ákváðum að ég skildi prófa að tala við sálfræðing. Læknirinn tók niður gsm-númerið mitt og tveim dögum seinna hafði sálfræðingurinn samband og gaf mér tíma síðasta mánudaginn í apríl. Mér skilst að vinnan mín greiði fyrir allt að 10 tíma. Ég fékk líka að ráða því að hafa það þannig að ég tæki mér heilan veikindadag fyrir þennan eina tíma. Fyrsta viðtaliið gekk bara vel, fannst gott að fá tækifæri til að velta upp og tala um ýmsa hluti. 50 mínútur voru afar fljótar að líða og okkur kom saman um að hittast aftur. Sá tími var í gær og fékk ég að hafa þetta eins, taka heilan veikindadag og ráðstafa honum að vild. Fór í sund í gærmorgun og hellti upp á kaffi þegar ég kom heim upp úr klukkan tíu. Sálfræðitíminn var klukkan eitt. Það fór á sama veg, 50 mínútur voru fljótar að líða og mér fannst ég ekki vera búin að tala út eða finna alveg afhverju mér leið svona illa og hafði allt á hornum mér í vinnunni fyrri partinn í apríl. Það getur vel verið að það sé fleira en eitt og meira en tvennt sem er að naga mig að einhverju leyti. En á meðan mér finnst það gera mér gott að tjá mig við fagmenntaðan einstakling ætla ég að þyggja það að taka nokkra tíma enn.
8.4.19
Nagladekkin komin á dekkjahótel
Það fór eins og mig grunaði, ég dvaldi fyrir austan alveg framyfir kvöldfréttir og kvöldmat. Upp úr tvö hrærði ég í pönnsur. Pabbi ákvað að fá sér göngutúr á meðan og fór alla leið í búðina til að kaupa rjómapela. Skrapp aðeins til Möggu og Sævars í Nestúnið eftir pönnsukaffið. Þar voru þau úti á palli ásamt tveimur börnum sínum, tengdasyni, gesti (núverandi bónda á Helluvaði), dóttur hans og þremur barnabörnum. Sátum ekki lengi útivið. Dóttir þeirra hjóna og hennar fjölskylda búa í bænum og þegar sonur þeirra var orðinn úrvinda og farinn að biðja um að fara heim kvöddu þau. Við Magga sátum svo í góða stund inni í stofu hjá henni og spjölluðum um lífið og tilveruna.
Við pabbi ákváðum að ég skyldi taka sumardekkin með mér í bæinn, sóttum þau í skúrinn upp úr klukkan sex og settum tvo hjólbarða í skottið og tvo afturí. Ég fékk að sjá um matinn. Steikti þorsk og hafði kartöflur, gulrætur og lauk með. Um það leyti sem Landanum lauk kvaddi ég pabba og dreif mig heim. Fékk ekki stæði í Drápuhlíðinni en fann ágætis stæði í Blönduhlíðinni.
Fór gangandi í vinnuna í morgun og þegar ég kom heim aftur ákvað ég að keyra við hjá hjólbarðaþjónustu N1 við Fellsmúla og athuga hvort þeir gætu ekki umfelgað, sett sumardekkin undir og geymt fyrir mig nagladekkin. Maðurinn í afgreiðslunni sagði að það væri amk klukkutíma bið en féllst á að taka bíllykilinn og fá hjá mér símanúmer á meðan ég tæki smá göngutúr. Ég kíkti aðeins í A4, Rúmfatalagerinn og Hagkaup. Þegar ég tók upp símann til að athuga með hvað tímanum liði sá ég að ég hafði misst af símtali, nokkrum mínútum áður en það var ekki einu sinni liðinn nema uþb hálftími. Borgaði rúm 15 þúsund fyrir umfelgun og hálfs árs hótelgeymslu og fór svo beint í sund.
6.4.19
Á Hellu
Aðra helgina í röð er ég komin í sveitasæluna á Hellu og það er ljóst að hér verð ég til morguns og líklega alveg frameftir degi þá og jafnvel fram á kvöld. Var komin austur rétt upp úr klukkan tvö. Eftir kaffi, um fjögur, skrapp ég með nokkrar bækur til nöfnu minnar (vinkonu mömmu) og mömmu eins bekkjarbróður míns í grunnskóla. Þar kom vel á vondann. Hún var heimavið að endurlesa og langt komin með eina bók eftir Camillu Läckberg og var farin að spá í hvað hún ætti að lesa í kvöld og næstu daga. Hún ákvað að taka til skoðunnar allar fjórar bækurnar sem ég var með, tvær eftir Lizu Marklund og aðrar tvær eftir Boris Akunin. Stoppaði hjá henni í hátt í tvo tíma.
Pabbi notaði tækifærið og fór í sinn nýlega daglega göngutúr á meðan ég var í þessari heimsókn. Á fimmtudaginn var labbaði ég í fyrsta skipti til og frá vinnu síðan í haust og sama dag sá pabbi að það var orðið vel göngufært fyrir eldri borgara með staf. Strætókortið mitt rann úr gildi eftir 2. apríl sl. og þann 3. fór ég á bíl í vinnuna í fyrsta skipti síðan fyrsta virka daginn á þessu ári. Hætti vinnu fyrir hálfþrjú þann dag og byrjaði á því að sækja mér nýja lykil fyrir fyrirtækjabankann v/hússjóðs Drápuhlíðar 21. Úr bankanum fór ég beint í sund og svo kom ég við í Krónunni við Nóatún á leiðinni heim. Var komin heim rétt fyrir fimm. Davíð Steinn tjáði mér að hann ætti að taka vakt frá klukkan sex til klukkan tíu á N1 í Fossvogi milli Reykjavíkur og Kópavogs. Það eru aðeins strætóstoppistöðvar á Kringlumýrarbraut við Kringluna og svo við Hamraborg. Það var boðaður saumaklúbbur hjá mér þetta kvöld um átta. Ég ákvað að hringja í þá sem býr í húsbílnum sínum í Moso og bjóðast til að sækja hana í fyrra fallinu og bjóða henni í mat. Hún þáði það með þökkum. Davíð Steinn var mættur á vaktina ca tíu mínútum fyrir sex og uþb tuttugu mínútum seinna var ég kominn upp í Mosó. Við Lilja vorum komnar í Drápuhlíð um hálfsjö, sáum Odd Smára tilsýndar en hann hafði verið kallaður á aukavakt. Bauð Lilju upp á steikta þorskhnakka með kartöflum. Hnakkana fékk ég hjá einni sem vann með mér á kortadeildinni í meira en tíu ár. Hennar maður er vélstjóri á sjó og kemur stundum með þorsk, ýsu og eða þorskhnakka í tíu kílóa öskjum. Ég keypti af þeim tíu kíló á mánudagskvöldið var og skipti þeim niður í þónokkra frystipoka með tveimur flökum í.
Í gær skráði síminn á mig alls fjóra göngutúra. Til og frá vinnu og svo skrapp ég gangandi í Lífspekifélagið og var mætt rétt fyrir átta og komin heim aftur upp úr klukkan hálftíu eftir fróðlegan fyrirlestur sem var m.a. um ffh, fljúgandi furðuhluti.
29.3.19
Vinnuvikulok og bráðum mánaðamót
Ég er tiltölulega nýkomin heim úr Lífspekifélaginu. Þar hélt Þórarinn Friðriksson fyrirlestur sem bar yfirskriftina: Í minningu vinar og gelísk áhrif. Efnið var mjög áhugavert og vel flutt. Þórarinn sagði svo frá því að það væri að koma út bók sem hann tók saman um gelísk orð í íslenskunni. Eftir erindið skrapp ég aðeins upp á efri hæðina, fékk mér kaffibolla og kleinu og spjallaði við nöfnu mína sem var með erindi um spring forest qi gong í félaginu fyrir nokkrum vikum.
28.3.19
Snjór
Það var snjókoma úti þegar ég trítlaði út á strætóstoppistöð á leið í vinnuna um hálfátta í morgun. Þétt snjókoma á köflum. Kom heim aftur úr vinnu rétt fyrir fjögur með strætó í ágætisveðri. Staldraði stutt við heima. Hringdi í pabba og tók svo til sunddótið, dall undir fisk og kúst til að sópa af bílnum. Eftir að hafa sópað af bílnum lá leiðin í Fiskbúð Fúsa og keypti mér nætursaltaða ýsu í soðið. Síðan lá leiðin í Laugardalinn og tók uþb klukkutíma rútínu í þann kalda, laugina og gufuna.
27.3.19
Kiljan
Kom við heima eftir vinnu til að sækja sunddótið mitt og ákvað að skila tveimur bókum á safnið í leiðinni. Flýtti mér út af safninu eftir að hafa skilað bókunum. Er enn með fjórar bækur af safninu og það er nóg næstu tvær til sex vikurnar.
Var komin fyrstu ferðina í kalda pottinn klukkan hálffimm, var búin að synda 500 metra áður en klukkan var orðin fimm og komin aftur í pottinn. Eftir þriðju ferðina í þann kalda fór ég í gufu. Lét þetta svo gott heita en gaf mér góðan tíma í hárþvott og hárblástur á eftir.
Kom heim um sex og var búin að finna til kvöldmatinn áður en klukkan varð hálfsjö. Gekk frá öllum endum í appelsínugula sjalinu sem datt endanlega af prjónunum í hádegishléinu. Fitjaði jafnfram upp á nýju sjali í nýjum lit.
26.3.19
Appelsínugult sjal alveg að verða tilbúið
Þegar ég kom heim úr vinnunni núna seinni partinn var einkabílstjórinn rétt ókominn úr Sorpuferð og einkaerundum á bílnum. Ég hringdi í pabba til að heyra í honum hljóðið og deila með honum sögum. Spallaði svo stuttlega við Odd þegar hann kom heim áður en ég dreif mig í sund og kalda pottinn í Laugardalnum. Þar sinnti ég nokkurn veginn hefðbundinni sundpottarútínu. Var komin heim um sex og dreif mig í að útbúa kvöldmatinn, ofnbakaða laxabita kryddaða með "best á flest" og sítrónupipar. Með í ofnin fóru smávegis af hvítkáli, rauðkáili, uþb 1 epli og ein lítil rauðrófa. Sauð einnig örfáar kartöflur. Þetta var mjög gott.
Um daginn fékk ég lánaða bókina Leyndarmál systranna eftir Diane Chamberlain íslenskuð af Magdalenu Kristjánsdóttur. Fékk þessa bók lánaða þrátt fyrir að vera nýbúin að sækja mér nokkrar bækur á safnið, þar af eina sem er með 14 daga skilafresti og þar að auki á ég enn eftir að lesa eina jólabókina. En allt um það ég fékk þessa bók lánaða daginn fyrir afmælið mitt, byrjaði að lesa hana það kvöld og kláraði á mánudeginum eftir að ég kom heim úr vinnu. Mjög spennandi bók, það komst fátt annað að á meðan ég var að lesa hana. Áðan var ég svo að ljúka við að lesa eina af bókasafnsbókunum. Eyland eftir Sigríði Hagalín Björnsdóttur. Þetta er fyrsta skáldsaga höfundar sem kom út 2016 en fyrir síðustu jól kom út Hið heilaga orð eftir sama höfund. Þá bók fékk ég lánaða frá vinnufélaga seinni partinn í janúar og eftir lesturinn ákvað ég að verða mér úti um fyrstu bókina sem fyrst.
25.3.19
Kundalini
Fór ekkert út úr bænum nýliðna helgi en ég fór í sund báða morgnana, esperanto-hitting strax eftir sundið á laugardagsmorguninn og kom við í Krónunni á Granda áður en ég fór heim.
Strax eftir vinnu í dag tók ég leið 13 vestur í bæ. Var komin til Inger um fjögur. Við höfðum rúman tíma svo við ákváðum að lesa smá í Kon-Tiki. Lásum fjórar blaðsíður og við erum staddar á mjög spennandi stað í leiðangrinum. En korter fyrir fimm röltum við með teppi og kodda yfir á Aflagranda þar sem Inger mátti bjóða með sér gesti á kynningaræfingu í kundalini jóga. Hef aldrei prófað svoleiðis áður og það kom mér á óvart hversu misvel mér gekk að gera æfingarnar. Það er aldrei að vita nema ég ákveði að fara að stunda þetta. Sjáum samt aðeins til með það,
23.3.19
Dagarnir æða áfram en það er svo sem ekki nýtt
Rúmar þrjár vikur síðan ég skrifaði eitthvað á þessum vettvangi síðast. Er svo sem heldur ekkert svo dugleg að uppfæra stöðuna á FB-veggnum mínum. Tíminn virðist fara í eitthvað allt annað sem er kannski bara ágætt. En samt, eins og ég hef sagt/skrifað áður þá er smá eftirsjá í því að skrifa ekki reglulega um það helsta sem er í gangi. Þótt ég segi sjálf frá þá hef ég mjög gaman að því að rifja upp eldri skrif og þykir mér að stundum hafi mér tekist ágætlega upp. Búin að blogga reglulega óreglulega í rúm 16 ár og það er í raun fjársjóður að geta leitað í þessar minninar, amk fjársjóður fyrir mig.
Um síðustu helgi komst ég loksins austur eftir akkúrat mánaðahlé. Var ekki búin að fara síðan Hellublótið var, helgina 16.-17. febrúar sl. Helgina eftir það var tvíburahálfsystir mín að útskrifast úr HÍ og halda upp á það. Ég þáði boð í þann fagnað, var mætt með þeim fyrstu og fór með þeim síðustur. Einkabílstjórinn bæði skutlaði mér og sótti aftur.
Fyrsta helgin í mars byrjaði á því að það var samverustund í kirkju óháða safnaðarins vegna alþjóðlegs bænadags kvenna. Ég var mætt klukkutíma fyrir stundina til að aðstoða við undirbúning vegna mauls á eftir og fór ekki fyrr en búið var að ganga frá öllu á eftir. Kvöldið eftir var árshátíð safnaðarstjórnar haldin og á sunnudeginum dreif ég mig loksins til æsku vinkonu og jafnöldru mömmu, til Keflavíkur og færði henni m.a. sálmaskrá.
Þann 10. mars var galdramessa og Bjargar-kaffi á eftir og þá þarf stjórnin að undirbúa báða sali og hlaðborð af ýmsu góðgæti á báðum hæðum og ganga svo frá á eftir. Þann 13. mars kom Lilja vinkona heim frá Spáni. Hún fékk að gista hjá mér í nokkrar nætur en varð svo samferða mér austur sl. laugardag til að sækja húsbílinn sinn til mömmu sinnar, hvar hann var búinn að vera í heimkeyrslunni síðan seinni partinn í september.
5.3.19
Saltkkjöt og "jóla"-baunir
Eftir vinnu í gær kom ég heim, náði í sunddótið og dreif mig í Laugardalslaugina. Þegar ég kom heim bjó ég til kjötbollur og skolaði gular baunir og lagði í bleyti. Í dag kom ég heim um fjögur. Hafði tæpan klukkutíma áður en ég varð að trítla af stað á safnaðarstjórnarfund upp í kirkju. Notaði þann tíma til að hella af baununum, setja þær í stærri botn, tæplega 3 lítra af vatni og sjóða upp á þeim. Kom heim af fundinum upp úr klukkan sjö. Setti saltkjötsbita út í baunapottinn og restina af rúmlega kílói af kjöti í annan pott með vatni. Kveikti á hellunum undir báðum pottum og skar niður kartöflur, rófu, gulrætur, lauk, hnúðkál og rauðkál. Grænmetið setti ég út í baunapottinn þegar þær voru búnar að malla með kjötbitanum í í rúman hálftíma. Klukkan var alveg að verða níu þegar maturinn var tilbúinn en það var alveg þess virði að bíða eftir honum. Og það var meðvituð ákvörðun að nota rauðkálið. En enginn tími var til að skreppa í sund í dag.
3.3.19
Engin austurferð um helgina en ýmislegt brallað
Á föstudaginn var mætti ég í kirkjuna mína rétt fyrir klukkan fimm. Ég var fyrst á staðinn en ég er með lykil sem gengur bæði að útidyrum Háteigsmeginn sem og eldhúsinu. Veit ekki hvort lykillinn gengur líka að aðal-kirkjudyrunum þar sem ég hef ekki prófað, en mér þykir það þó líklegt. Það var alþjólegi bænadagur kvenna og sameiginlega helgistundin byrjaði klukkan sex. Upphaflega átti stundin að byrja klukkan átta en til að organistinn í óháða gæti komið að verkefninu varð að færa til því hann var upptekinn klukkan átta. Ég var mætt svona snemma til að hjálpa til við undirbúning undir samfélagið/maulið eftir stundina. Við vorum nokkrar sem hjálpuðumst að og allt var til reiðu fyrir klukkan sex svo ég gat tekið þátt í mjög skemmtilegri stund. Það kom okkur á óvart hversu margir mættu og voru allir ánægðir með tímann.
Mætti í Laugardalslaugina um hálfníu í gærmorgun. Bílastæðin laugarmeginn voru öll upptekin en það var nóg af stæðum við völlinn. Strax eftir sundrútínuna fór ég í esperantohitting og áður en ég fór heim kom ég við í Krónunni úti á Granda og keypti þvott á bíllinn hjá Löðri. Ákvað að sleppa því að mæta í Lífsspekifélagið, dútla heldur heima við þar til kominn var tími til að mæta á árshátíð óháða safnaðarins, þeirra sem vinna fyrir kirkjuna velflestir í sjálfboðavinnu. Smá forföll voru á þeim sem þekkst höfðu boðið en við vorum um 35. Grillvagninn kom og sá um aðalréttinn fyrir okkur en við vorum búin að hella upp á kaffi, setja skreytingar og glös á borðin og keypt hafði verið konfekt og súkkulaðikaka sem var boðið upp á á eftir. Organistinn og nokkrir kórfélagar sungu tvö lög og það var einnig fjöldasöngur. Mjög skemmtilega kvöldstund.
Var komin í laugina klukkan að ganga tíu. Lagði bílnum á sama stað og í gær. Þegar ég kom heim þeytti ég rjóma, hellti upp á kaffi og festi tölu á buxur fyrir Odd m.a. Um hálftvö lét ég loksins verða að því að skreppa til elstu vinkonu mömmu sem býr suður með sjó og færa henni sálmaskrána frá útförinni. Þær vinkonur voru jafngamlar aðeins um þrjár vikur á milli þeirra og þær voru búnar að þekkjast í yfir 70 ár. Stoppaði hjá vinkonunni í tvo tíma og margt spjallað. Hún spurði út í ýmislegt og rifjaði líka upp ýmislegt frá því þær mamma voru litlast skottur og næstu nágrannar. Var komin heim aftur upp úr fimm.
27.2.19
Febrúarlok nálgast
Febrúar bráðum búinn er
brátt þá kemur vorið.
Birtustundum fjölga fer
fáum úr því skorið.
brátt þá kemur vorið.
Birtustundum fjölga fer
fáum úr því skorið.
Langt síðan andinn heltist svona yfir mig. Og auðvitað rataði þessi ferskeytla á vegginn minn. Verð að muna eftir því að setja hana líka hjá ljóðasafninu mínu.
Fór í lífspekifélagið á föstudagskvöldið var. Þar var kynning á Spring forest Qi Gong og við sem vorum á kynningunni fengum að prófa að fara í gegnum æfingarnar og elimentin fimm. Það var virkilega skemmtilegt. Sú sem sá um kynninguna sagði að hún yrði með hugleiðingu og frekari kynningu í félaginu strax daginn eftir. Ég fór líka á þann viðburð og sá ekki eftir því þótt ekki væru gerðar neinar verklegar prufur í það skiptið.
Ég var boðin í útskriftar -og "fögnum lífinu"- veislu sl. laugardagskvöld. Einkabílstjórinn keyrði mig á staðinn um átta. Skemmti mér mjög vel í þessu partýi hitti nokkrar manneskjur sem ég þekki en mismunandi langt síðan ég hef hitt þær. Hitti líka eina sem ég hef heyrt mikið um en aldrei hitt áður. Tíminn leið alltof hratt enda var mjög gaman eins og áður hefur komið fram. Sendi skilaboð til einkabílstjórans upp úr miðnætti um að sækja mig um eitt. Hann sá þau klukkan eitt og kom ekki fyrr en um hálftvö. Ég var samt ekkert farinn að bíða eftir honum.
21.2.19
Þrumur og eldingar
Eftir þrjá sunddaga í röð rennur upp annar fimmtudaginn í röð sem ég sleppi sundi. Það er þó ekki endilega vegna þrumuveðursins heldur var settur á bland af frænku og vinkonu hittingi. Ein sameiginlega vinkona mín, og einnar frænku minnar og nöfnu, sem hefur unnið með okkur nöfnunum báðum ákváðum að hittast hjá nöfnu minni á nýja heimilinu hennar. Hún fluttist innan Garðabæjar í desember sl og ég var aðeins búin að kíkja einu sinni á hana, rétt fyrir jól, þegar hún var enn að koma sér fyrir og átti m.a. eftir að fá hluta af eldhúsinnréttingunni upp. Ég fékk að hætta vinnu rétt fyrir þrjú og sameiginlega vinkonan renndi við eftir mér. Ég sá þá um að leiðbeina henni heim til frænku minnar. Við þrjár höfum ekki hist allar saman síðan í nóvember 2017. Frænka mín tók vel á móti okkur en bað okkur að afsaka óreiðna hjá sér. Ég gat ekki séð neina óreiðu en hún átti líklega við þá hluti sem enn er verið að vinna að eftir flutningana.
20.2.19
Aðeins rúm vika eftir af febrúar
Þriðja daginn í röð fór ég í sund mjög fljótlega eftir að ég var búin að sinna vinnuskyldunni og sækja sunddótið og bílinn heim. Sundrútínan tekur lágmark uþb klst og í dag bættist einhver aukatími við vegna hárþvottar og þurrkunar. Ég sápuþvæ hárið á ca viku fresti. Þess á milli kemst ég upp með að setja það í hnút og troða því undir sundhettu sem ég tek ekki af fyrr en eftir sundrútínu og sturtu. Hárið er yfirleitt nánast þurrt eftir. Það er aðeins ef ég syndi nokkrar ferðir á bakinu að það virðist vætla meira inn fyrir hettuna, en ekkert þó sem orð er á hafandi.
Það var hringt í mig í dag frá blóðgjafafélaginu og ég boðuð á aðalfundinn hjá þeim sem verður fyrsta fimmtudagskvöldið í næsta mánuði. Ég var spurð að því hvort mætti senda mér sms um viðburðinn. Mér fannst það ekki spurning, þáði þetta með þökkum og má meira að segja bjóða einhverjum að koma með mér. Þetta verður eitthvað.
19.2.19
Meira um bækur
Ég er byrjuð að lesa tvær af þeim sjö bókum sem komu með mér heim af safninu á föstudaginn var; Ævintýri og sögur frá nýja Íslandi tekið saman af Wwilliam D. Valgardson þýdd af Böðvari Guðmundssyni og Þitt annað líf hefst þegar þú uppgötvar að þú átt bara eitt eftir Rahaëlle Gio. Verð líklega ekki lengi að klára þessar tvær. Sú síðarnefnda er eiginlega þannig að maður vill helst ekki hætta að lesa. Er búin með uþb einn fjórða af þeirri bók og ég mun klára hana í síðasta lagi annað kvöld.
Annars fékk ég að hætta vinnu upp úr tvö. Fór beint heim en stoppaði ekki mjög lengi þar. Var komin í Laugardalslaug um hálffjögur. Eftir sund- og pottarútínuna kom ég aðeins við í Krónunni við Nóatún til að versla það sem upp á vantaði til að hafa vefjur með hakki og grænmeti. Davíð Steinn sá svo um að útbúa kvöldmatinn.
18.2.19
Aðeins um bækur
Í síðustu viku fékk ég lánaða bókina Hið heilaga orð eftir Sigríði Hagalín Björnsdóttur. Á föstudaginn rann út skilafrestur á þeim fjórum bókum sem ég var með á safninu. Hefði getað framlengt frestinum um 30 daga en ég var búin að lesa þessar bækur að mestu og það sem ég var ekki búin með hafði ég ekki áhuga á eyða lengri tíma í að glugga í. Og þrátt fyrir að vera með eina bók í láni og þar að auki eina ólesna jólabók þá komu sjö bækur með mér heim af safninu. Um síðustu helgi tók ég lánsbókina og tvær af safninu með mér austur. Ég tek venjulega ýmislegt með mér og pakka niður fyrir nokkra daga þótt ég ætli bara að vera yfir nótt. En að þessu sinni eltu lesgleraugun, +1, mig ekki. Sem betur fer þarf ég ekki alltaf að nota þau, sleppur alveg í góðri birtu og með vel hvíld augu. Lánsbókin greip mig strax á fyrstu blaðsíðu, skemmtilega sett upp, spennandi og áhugaverðar pælingar. Tók þá bók með mér í vinnuna í morgun og var svo þrælheppinn að geta nýtt, kaffi, matar og smá af vinnutímanum í lestur þannig að ég náði að klára bókina og skila henni.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)