Ég er tiltölulega nýkomin heim úr Lífspekifélaginu. Þar hélt Þórarinn Friðriksson fyrirlestur sem bar yfirskriftina: Í minningu vinar og gelísk áhrif. Efnið var mjög áhugavert og vel flutt. Þórarinn sagði svo frá því að það væri að koma út bók sem hann tók saman um gelísk orð í íslenskunni. Eftir erindið skrapp ég aðeins upp á efri hæðina, fékk mér kaffibolla og kleinu og spjallaði við nöfnu mína sem var með erindi um spring forest qi gong í félaginu fyrir nokkrum vikum.
29.3.19
28.3.19
Snjór
Það var snjókoma úti þegar ég trítlaði út á strætóstoppistöð á leið í vinnuna um hálfátta í morgun. Þétt snjókoma á köflum. Kom heim aftur úr vinnu rétt fyrir fjögur með strætó í ágætisveðri. Staldraði stutt við heima. Hringdi í pabba og tók svo til sunddótið, dall undir fisk og kúst til að sópa af bílnum. Eftir að hafa sópað af bílnum lá leiðin í Fiskbúð Fúsa og keypti mér nætursaltaða ýsu í soðið. Síðan lá leiðin í Laugardalinn og tók uþb klukkutíma rútínu í þann kalda, laugina og gufuna.
27.3.19
Kiljan
Kom við heima eftir vinnu til að sækja sunddótið mitt og ákvað að skila tveimur bókum á safnið í leiðinni. Flýtti mér út af safninu eftir að hafa skilað bókunum. Er enn með fjórar bækur af safninu og það er nóg næstu tvær til sex vikurnar.
Var komin fyrstu ferðina í kalda pottinn klukkan hálffimm, var búin að synda 500 metra áður en klukkan var orðin fimm og komin aftur í pottinn. Eftir þriðju ferðina í þann kalda fór ég í gufu. Lét þetta svo gott heita en gaf mér góðan tíma í hárþvott og hárblástur á eftir.
Kom heim um sex og var búin að finna til kvöldmatinn áður en klukkan varð hálfsjö. Gekk frá öllum endum í appelsínugula sjalinu sem datt endanlega af prjónunum í hádegishléinu. Fitjaði jafnfram upp á nýju sjali í nýjum lit.
26.3.19
Appelsínugult sjal alveg að verða tilbúið
Þegar ég kom heim úr vinnunni núna seinni partinn var einkabílstjórinn rétt ókominn úr Sorpuferð og einkaerundum á bílnum. Ég hringdi í pabba til að heyra í honum hljóðið og deila með honum sögum. Spallaði svo stuttlega við Odd þegar hann kom heim áður en ég dreif mig í sund og kalda pottinn í Laugardalnum. Þar sinnti ég nokkurn veginn hefðbundinni sundpottarútínu. Var komin heim um sex og dreif mig í að útbúa kvöldmatinn, ofnbakaða laxabita kryddaða með "best á flest" og sítrónupipar. Með í ofnin fóru smávegis af hvítkáli, rauðkáili, uþb 1 epli og ein lítil rauðrófa. Sauð einnig örfáar kartöflur. Þetta var mjög gott.
Um daginn fékk ég lánaða bókina Leyndarmál systranna eftir Diane Chamberlain íslenskuð af Magdalenu Kristjánsdóttur. Fékk þessa bók lánaða þrátt fyrir að vera nýbúin að sækja mér nokkrar bækur á safnið, þar af eina sem er með 14 daga skilafresti og þar að auki á ég enn eftir að lesa eina jólabókina. En allt um það ég fékk þessa bók lánaða daginn fyrir afmælið mitt, byrjaði að lesa hana það kvöld og kláraði á mánudeginum eftir að ég kom heim úr vinnu. Mjög spennandi bók, það komst fátt annað að á meðan ég var að lesa hana. Áðan var ég svo að ljúka við að lesa eina af bókasafnsbókunum. Eyland eftir Sigríði Hagalín Björnsdóttur. Þetta er fyrsta skáldsaga höfundar sem kom út 2016 en fyrir síðustu jól kom út Hið heilaga orð eftir sama höfund. Þá bók fékk ég lánaða frá vinnufélaga seinni partinn í janúar og eftir lesturinn ákvað ég að verða mér úti um fyrstu bókina sem fyrst.
25.3.19
Kundalini
Fór ekkert út úr bænum nýliðna helgi en ég fór í sund báða morgnana, esperanto-hitting strax eftir sundið á laugardagsmorguninn og kom við í Krónunni á Granda áður en ég fór heim.
Strax eftir vinnu í dag tók ég leið 13 vestur í bæ. Var komin til Inger um fjögur. Við höfðum rúman tíma svo við ákváðum að lesa smá í Kon-Tiki. Lásum fjórar blaðsíður og við erum staddar á mjög spennandi stað í leiðangrinum. En korter fyrir fimm röltum við með teppi og kodda yfir á Aflagranda þar sem Inger mátti bjóða með sér gesti á kynningaræfingu í kundalini jóga. Hef aldrei prófað svoleiðis áður og það kom mér á óvart hversu misvel mér gekk að gera æfingarnar. Það er aldrei að vita nema ég ákveði að fara að stunda þetta. Sjáum samt aðeins til með það,
23.3.19
Dagarnir æða áfram en það er svo sem ekki nýtt
Rúmar þrjár vikur síðan ég skrifaði eitthvað á þessum vettvangi síðast. Er svo sem heldur ekkert svo dugleg að uppfæra stöðuna á FB-veggnum mínum. Tíminn virðist fara í eitthvað allt annað sem er kannski bara ágætt. En samt, eins og ég hef sagt/skrifað áður þá er smá eftirsjá í því að skrifa ekki reglulega um það helsta sem er í gangi. Þótt ég segi sjálf frá þá hef ég mjög gaman að því að rifja upp eldri skrif og þykir mér að stundum hafi mér tekist ágætlega upp. Búin að blogga reglulega óreglulega í rúm 16 ár og það er í raun fjársjóður að geta leitað í þessar minninar, amk fjársjóður fyrir mig.
Um síðustu helgi komst ég loksins austur eftir akkúrat mánaðahlé. Var ekki búin að fara síðan Hellublótið var, helgina 16.-17. febrúar sl. Helgina eftir það var tvíburahálfsystir mín að útskrifast úr HÍ og halda upp á það. Ég þáði boð í þann fagnað, var mætt með þeim fyrstu og fór með þeim síðustur. Einkabílstjórinn bæði skutlaði mér og sótti aftur.
Fyrsta helgin í mars byrjaði á því að það var samverustund í kirkju óháða safnaðarins vegna alþjóðlegs bænadags kvenna. Ég var mætt klukkutíma fyrir stundina til að aðstoða við undirbúning vegna mauls á eftir og fór ekki fyrr en búið var að ganga frá öllu á eftir. Kvöldið eftir var árshátíð safnaðarstjórnar haldin og á sunnudeginum dreif ég mig loksins til æsku vinkonu og jafnöldru mömmu, til Keflavíkur og færði henni m.a. sálmaskrá.
Þann 10. mars var galdramessa og Bjargar-kaffi á eftir og þá þarf stjórnin að undirbúa báða sali og hlaðborð af ýmsu góðgæti á báðum hæðum og ganga svo frá á eftir. Þann 13. mars kom Lilja vinkona heim frá Spáni. Hún fékk að gista hjá mér í nokkrar nætur en varð svo samferða mér austur sl. laugardag til að sækja húsbílinn sinn til mömmu sinnar, hvar hann var búinn að vera í heimkeyrslunni síðan seinni partinn í september.
5.3.19
Saltkkjöt og "jóla"-baunir
Eftir vinnu í gær kom ég heim, náði í sunddótið og dreif mig í Laugardalslaugina. Þegar ég kom heim bjó ég til kjötbollur og skolaði gular baunir og lagði í bleyti. Í dag kom ég heim um fjögur. Hafði tæpan klukkutíma áður en ég varð að trítla af stað á safnaðarstjórnarfund upp í kirkju. Notaði þann tíma til að hella af baununum, setja þær í stærri botn, tæplega 3 lítra af vatni og sjóða upp á þeim. Kom heim af fundinum upp úr klukkan sjö. Setti saltkjötsbita út í baunapottinn og restina af rúmlega kílói af kjöti í annan pott með vatni. Kveikti á hellunum undir báðum pottum og skar niður kartöflur, rófu, gulrætur, lauk, hnúðkál og rauðkál. Grænmetið setti ég út í baunapottinn þegar þær voru búnar að malla með kjötbitanum í í rúman hálftíma. Klukkan var alveg að verða níu þegar maturinn var tilbúinn en það var alveg þess virði að bíða eftir honum. Og það var meðvituð ákvörðun að nota rauðkálið. En enginn tími var til að skreppa í sund í dag.
3.3.19
Engin austurferð um helgina en ýmislegt brallað
Á föstudaginn var mætti ég í kirkjuna mína rétt fyrir klukkan fimm. Ég var fyrst á staðinn en ég er með lykil sem gengur bæði að útidyrum Háteigsmeginn sem og eldhúsinu. Veit ekki hvort lykillinn gengur líka að aðal-kirkjudyrunum þar sem ég hef ekki prófað, en mér þykir það þó líklegt. Það var alþjólegi bænadagur kvenna og sameiginlega helgistundin byrjaði klukkan sex. Upphaflega átti stundin að byrja klukkan átta en til að organistinn í óháða gæti komið að verkefninu varð að færa til því hann var upptekinn klukkan átta. Ég var mætt svona snemma til að hjálpa til við undirbúning undir samfélagið/maulið eftir stundina. Við vorum nokkrar sem hjálpuðumst að og allt var til reiðu fyrir klukkan sex svo ég gat tekið þátt í mjög skemmtilegri stund. Það kom okkur á óvart hversu margir mættu og voru allir ánægðir með tímann.
Mætti í Laugardalslaugina um hálfníu í gærmorgun. Bílastæðin laugarmeginn voru öll upptekin en það var nóg af stæðum við völlinn. Strax eftir sundrútínuna fór ég í esperantohitting og áður en ég fór heim kom ég við í Krónunni úti á Granda og keypti þvott á bíllinn hjá Löðri. Ákvað að sleppa því að mæta í Lífsspekifélagið, dútla heldur heima við þar til kominn var tími til að mæta á árshátíð óháða safnaðarins, þeirra sem vinna fyrir kirkjuna velflestir í sjálfboðavinnu. Smá forföll voru á þeim sem þekkst höfðu boðið en við vorum um 35. Grillvagninn kom og sá um aðalréttinn fyrir okkur en við vorum búin að hella upp á kaffi, setja skreytingar og glös á borðin og keypt hafði verið konfekt og súkkulaðikaka sem var boðið upp á á eftir. Organistinn og nokkrir kórfélagar sungu tvö lög og það var einnig fjöldasöngur. Mjög skemmtilega kvöldstund.
Var komin í laugina klukkan að ganga tíu. Lagði bílnum á sama stað og í gær. Þegar ég kom heim þeytti ég rjóma, hellti upp á kaffi og festi tölu á buxur fyrir Odd m.a. Um hálftvö lét ég loksins verða að því að skreppa til elstu vinkonu mömmu sem býr suður með sjó og færa henni sálmaskrána frá útförinni. Þær vinkonur voru jafngamlar aðeins um þrjár vikur á milli þeirra og þær voru búnar að þekkjast í yfir 70 ár. Stoppaði hjá vinkonunni í tvo tíma og margt spjallað. Hún spurði út í ýmislegt og rifjaði líka upp ýmislegt frá því þær mamma voru litlast skottur og næstu nágrannar. Var komin heim aftur upp úr fimm.
27.2.19
Febrúarlok nálgast
Febrúar bráðum búinn er
brátt þá kemur vorið.
Birtustundum fjölga fer
fáum úr því skorið.
brátt þá kemur vorið.
Birtustundum fjölga fer
fáum úr því skorið.
Langt síðan andinn heltist svona yfir mig. Og auðvitað rataði þessi ferskeytla á vegginn minn. Verð að muna eftir því að setja hana líka hjá ljóðasafninu mínu.
Fór í lífspekifélagið á föstudagskvöldið var. Þar var kynning á Spring forest Qi Gong og við sem vorum á kynningunni fengum að prófa að fara í gegnum æfingarnar og elimentin fimm. Það var virkilega skemmtilegt. Sú sem sá um kynninguna sagði að hún yrði með hugleiðingu og frekari kynningu í félaginu strax daginn eftir. Ég fór líka á þann viðburð og sá ekki eftir því þótt ekki væru gerðar neinar verklegar prufur í það skiptið.
Ég var boðin í útskriftar -og "fögnum lífinu"- veislu sl. laugardagskvöld. Einkabílstjórinn keyrði mig á staðinn um átta. Skemmti mér mjög vel í þessu partýi hitti nokkrar manneskjur sem ég þekki en mismunandi langt síðan ég hef hitt þær. Hitti líka eina sem ég hef heyrt mikið um en aldrei hitt áður. Tíminn leið alltof hratt enda var mjög gaman eins og áður hefur komið fram. Sendi skilaboð til einkabílstjórans upp úr miðnætti um að sækja mig um eitt. Hann sá þau klukkan eitt og kom ekki fyrr en um hálftvö. Ég var samt ekkert farinn að bíða eftir honum.
21.2.19
Þrumur og eldingar
Eftir þrjá sunddaga í röð rennur upp annar fimmtudaginn í röð sem ég sleppi sundi. Það er þó ekki endilega vegna þrumuveðursins heldur var settur á bland af frænku og vinkonu hittingi. Ein sameiginlega vinkona mín, og einnar frænku minnar og nöfnu, sem hefur unnið með okkur nöfnunum báðum ákváðum að hittast hjá nöfnu minni á nýja heimilinu hennar. Hún fluttist innan Garðabæjar í desember sl og ég var aðeins búin að kíkja einu sinni á hana, rétt fyrir jól, þegar hún var enn að koma sér fyrir og átti m.a. eftir að fá hluta af eldhúsinnréttingunni upp. Ég fékk að hætta vinnu rétt fyrir þrjú og sameiginlega vinkonan renndi við eftir mér. Ég sá þá um að leiðbeina henni heim til frænku minnar. Við þrjár höfum ekki hist allar saman síðan í nóvember 2017. Frænka mín tók vel á móti okkur en bað okkur að afsaka óreiðna hjá sér. Ég gat ekki séð neina óreiðu en hún átti líklega við þá hluti sem enn er verið að vinna að eftir flutningana.
20.2.19
Aðeins rúm vika eftir af febrúar
Þriðja daginn í röð fór ég í sund mjög fljótlega eftir að ég var búin að sinna vinnuskyldunni og sækja sunddótið og bílinn heim. Sundrútínan tekur lágmark uþb klst og í dag bættist einhver aukatími við vegna hárþvottar og þurrkunar. Ég sápuþvæ hárið á ca viku fresti. Þess á milli kemst ég upp með að setja það í hnút og troða því undir sundhettu sem ég tek ekki af fyrr en eftir sundrútínu og sturtu. Hárið er yfirleitt nánast þurrt eftir. Það er aðeins ef ég syndi nokkrar ferðir á bakinu að það virðist vætla meira inn fyrir hettuna, en ekkert þó sem orð er á hafandi.
Það var hringt í mig í dag frá blóðgjafafélaginu og ég boðuð á aðalfundinn hjá þeim sem verður fyrsta fimmtudagskvöldið í næsta mánuði. Ég var spurð að því hvort mætti senda mér sms um viðburðinn. Mér fannst það ekki spurning, þáði þetta með þökkum og má meira að segja bjóða einhverjum að koma með mér. Þetta verður eitthvað.
19.2.19
Meira um bækur
Ég er byrjuð að lesa tvær af þeim sjö bókum sem komu með mér heim af safninu á föstudaginn var; Ævintýri og sögur frá nýja Íslandi tekið saman af Wwilliam D. Valgardson þýdd af Böðvari Guðmundssyni og Þitt annað líf hefst þegar þú uppgötvar að þú átt bara eitt eftir Rahaëlle Gio. Verð líklega ekki lengi að klára þessar tvær. Sú síðarnefnda er eiginlega þannig að maður vill helst ekki hætta að lesa. Er búin með uþb einn fjórða af þeirri bók og ég mun klára hana í síðasta lagi annað kvöld.
Annars fékk ég að hætta vinnu upp úr tvö. Fór beint heim en stoppaði ekki mjög lengi þar. Var komin í Laugardalslaug um hálffjögur. Eftir sund- og pottarútínuna kom ég aðeins við í Krónunni við Nóatún til að versla það sem upp á vantaði til að hafa vefjur með hakki og grænmeti. Davíð Steinn sá svo um að útbúa kvöldmatinn.
18.2.19
Aðeins um bækur
Í síðustu viku fékk ég lánaða bókina Hið heilaga orð eftir Sigríði Hagalín Björnsdóttur. Á föstudaginn rann út skilafrestur á þeim fjórum bókum sem ég var með á safninu. Hefði getað framlengt frestinum um 30 daga en ég var búin að lesa þessar bækur að mestu og það sem ég var ekki búin með hafði ég ekki áhuga á eyða lengri tíma í að glugga í. Og þrátt fyrir að vera með eina bók í láni og þar að auki eina ólesna jólabók þá komu sjö bækur með mér heim af safninu. Um síðustu helgi tók ég lánsbókina og tvær af safninu með mér austur. Ég tek venjulega ýmislegt með mér og pakka niður fyrir nokkra daga þótt ég ætli bara að vera yfir nótt. En að þessu sinni eltu lesgleraugun, +1, mig ekki. Sem betur fer þarf ég ekki alltaf að nota þau, sleppur alveg í góðri birtu og með vel hvíld augu. Lánsbókin greip mig strax á fyrstu blaðsíðu, skemmtilega sett upp, spennandi og áhugaverðar pælingar. Tók þá bók með mér í vinnuna í morgun og var svo þrælheppinn að geta nýtt, kaffi, matar og smá af vinnutímanum í lestur þannig að ég náði að klára bókina og skila henni.
17.2.19
Hellublót 2019
Þegar pabbi spurði mig, fyrir uþb 10 dögum síðan, hvort hann mætti bjóða mér á þorrablót á Hellu sagði ég strax; "Já takk!", þrátt fyrir að það væri árshátíð hjá RB sama kvöld. Árshátíðin hjá vinnunni minni hefur oftast verið haldin í mars og einhverra hluta vegna var ég alls ekki stemmd fyrir því að fara núna. Ég hef hins vegar aldrei farið á þorrablót hér fyrir austan öll þessi 20 ár síðan það var haldið fyrst. Þetta var semsagt tuttugu ára afmælisblót, uppselt og húsfyllir eða vel yfir 500 manns. Pabbi hefur heldur ekki farið á blót áður en að þessu sinni ákvað hann að slá til. Það var líka vel tekið á móti honum og honum heilsað hlýlega af mjög mörgum. Hann fékk úthlutað á sæti á besta stað. Dekkuð voru yfir 50 10 manna borð og tveir að hinum borðsgestunum voru pabbi æskuvinkonu minnar og með honum var skólasystir mömmu frá því í húsmæðraskólanum á Blöndósi fyrir uþb 60 árum síðan. Var að hitta þá konu í fyrsta skipti og líkaði vel við. Hún spurði mig hvort ég hefði ekki verið heimagangur hjá Sigrúnu heitinni og Val hér árum áður og kannaðist vel við það og sagði hann ætti alveg stóran part í mér. Blótið var annars verulega vel heppnað, súrmaturinn frá Múlakaffi, heimatilbúin skemmtiatriði, smá harmonikkuball á eftir og svo lék Stuðlabandið fyrir dansi eitthvað fram eftir. Við pabbi vorum mætt á staðinn upp úr klukkan sjö og létum svo gott heita þegar ég hélt að það væri uþb miðnætti en þá var klukkan að byrja að ganga tvö. Pabbi keyrði en við vorum hvorugt í víni og ég fór ekkert á dansgólfið að þessu sinni. Var ekkert í svoleiðis stuði (kannski næst) en hitta marga en þó ekki alla. Í morgun fékk ég mér svo göngutúr upp að Helluvaði og var systir hans pabbi mjög hissa en mikið ánægð með að litli bróðir hennar hafi drifið sig á blót.
13.2.19
Febrúar næstum hálfnaður
Í gærkvöldi bað ég einkabílstjórann um að gera sér ferð í Sorpu í dag. Svo vildi svo vel til að hann var akkúrat á ferðinni um það leyti sem ég mátti fara heim úr vinnu sem var aðeins í fyrra fallinu. Hann sótti mig rétt fyrir þrjú og ég bað hann um að skutlast með mig í fyrirtækið "Eins og fætur toga" til að sækja nýju innleggin mín. Það gekk fljótt og vel fyrir sig því. Ég notaði tækifærið og keypti tvo aukapúða undir vinstri hælinn í skó sem ég set ekki eða kem ekki innleggjunum í. Ég stoppaði ekki lengi heima, bara rétt til að ná í sunddótið mitt. Var komin ofan í kalda pottinn rétt fyrir klukkan fjögur. Fékk gott pláss á brautum 7 og 8 til að synda mína 500 metra. Sundrútínan, pottaferðir og gufan tók mig rétt rúmlega klukkustund.
11.2.19
Auka heimsókn til tannlæknis
Um miðjan nóvember síðast liðinn fór ég í árlegt tanneftirlit um mánuði seinna en mörg undanfarin ár. Ástæða seinkunarinnar var sú að tannlæknirinn minn var kominn í barnsburðarleyfi og þessi tími var næsti lausi tími hjá öðrum tannlækni. Sá sem sinnti eftirlitinu tók tvær myndir og benti mér á að það borgaði sig að bóka tíma fljótlega til þess að huga að skemmd uppi hægra meginn alveg út í enda. Það eru einhver ár síðan var gert við á þessum stað en ég á greinilega mjög erfitt með að bursta þennan stað. Ég ákvað að taka mark á þessari ábendingu og bókaði tíma eftir að ég hafði gert upp heimsóknina þennan dag. Vildi þó ekki fá tíma í desember eða janúar og fyrsti tími eftir hádegi í febrúar hjá þessum tannlækni var kl. 15:45 í dag. Var svo heppin að eiga kost á því að skreppa fyrr heim úr vinnu til þess að sækja bílinn og sunddótið. Var mætt á 4. hæð í Valhöll tæpum tíu mínútum fyrr. Komst að á réttum tíma og þrátt fyrir að það þyrfti að deyfa, bora, pússa, spasla og fleira tók þetta innan við hálftíma. Næst fer ég í árlegt eftirlit í lok október til tannlæknisins míns en hún kemur til vinnu aftur úr fæðingarorlofi núna í vor. Ég var komin í Laugardalinn rétt fyrir hálffimm.
Annars fór ég ekkert austur um helgina. Eftir sund og esperanto á laugardaginn notaði ég restina af deginum í ýmislegt dútl hér heima. Í gær fékk ég Odd til að koma og hjálpa mér við að undirbúa maulið eftir messuna. Davíð Steinn var að vinna 12 tíma vakt (10-22) á N1 í Borgartúni. Hann fór labbandi um morguninn en gleymdi að taka með sér strætókortið. Oddur skutlaði mér í Krónuna við Nóatún og skutlaðist með kortið til bróður síns á meðan ég verslaði aðeins inn fyrir maulið sem og heimilið. Ég var komin út á plan með pokann áður en Oddur kom aftur. Hann sá svo um að undirbúa efri safnaðarsalinn undir móttöku á kirkjugestum í maulið eftir messuna. Hann fór upp með bolla, glös og fleira. Ég hellti upp á kaffi, skar niður gulrótarköku, jólaköku og setti á diska og setti einni tvær smákökusortir í skálar. Undirbúningurinn tók okkur mæðginin um þrjú korter og svo leyfði ég honum að fara en ég var sest inn í kirkju rétt áður en messan hófst. Við vorum amk 34 í kirkjunni. Sat svo róleg í maulinu á eftir og drakk amk 2 kaffibolla og spjallaði við einn kirkjugestinn. Var tæpan klukkutíma að ganga frá á eftir, m.a. vegna þess að það var aukauppvask, tvær fullar grindur af bollum, glösum og diskum voru í þurrskápnum. Sennilega var eitthvað af því hreint en það var búið að setja óhreint leirtau saman við (sem á aldrei og alls ekki að fara þangað óuppvaskað) svo ég ákvað að renna því öllu í gegnum þvottavélina. Sendi einkabílstjóranum og sérlega aðstoðarmanni mínum skilaboð um að hann mætti sækja mig rétt fyrir klukkan hálffimm.
7.2.19
Fyrsti dagur í vinnu eftir stutt frí
Það var vel tekið á móti mér á K1 þegar ég mætti rétt fyrir klukkan átta í morgun. Þar að auki reyndist þessi vinnudagur mjög svo gestkvæmur. Petra sem hætti í kortadeildinni í fyrra eftir rúmlega 12 ára starf kom til okkar um það bil sem við vorum að fara að morgunkaffi. Klukkan eitt var reglubundinn hálfsmánaðarfundur með framkvæmdastjóra og að þessu sinni var nýr forstjóri með í för að kynna sig og kynnast starfseminni hjá okkur. Og um þrjú leytið kom fyrrverandi starfsmannastjóri í heimsókn.
Annars var mjög notalegt að vera í fríi í gær. Var tiltölulega snemma á fótum en notaði morguninn í að hringja í pabba og einnig klára jólabók númer tvö af þremur sem ég byrjaði á að lesa í ferðalaginu. Þorpið eftir Ragnar Jónasson. Virkilega spennandi og góð bók. Klukkan var byrjuð að ganga eitt þegar ég dreif mig loksins í sund. Gaf mér góðan tíma í Laugardalnum. Á heimleiðinni kom ég við í Krónunni í Nóatúni og Fiskbúð Fúsa í Skipholti. Restin af deginum fór í alls konar dúllerí heima, m.a. prjónaskap en ég byrjaði á enn einu sjalinu kvöldið fyrir Kanaríferðina. Er komin á þriðju dokku núna.
6.2.19
Komin heim frá Kanarí
Síðustu vikuna í september síðast liðinn gisti góð vinkona, Lilja, í stofunni hjá mér áður en hún fór út til vetrardvalar á Kanaríeyjum. Þessa viku sem hún var hjá mér spurði hún mig nokkrum sinnum hvort ég myndi ekki koma og heimasækja hana. Seinni parinn í nóvember varð það úr að ég athugaði hvort það væri í lagi að ég kláraði sumarfrídagana mína frá því í fyrra um mánaðamótin jan/feb 2019. Það gekk eftir og ég bókaði viku ferð með WOW út þann 29. janúar með eina litla handfarangurstösku og heim þann 5. febrúar með ferðatösku. Með sköttum og forfallatryggingu kostaði þetta vel innan við 50 þúsund.
Á mánudaginn í síðustu viku fékk ég að hætta í vinnu um hálftvö. Tók strætó heim til að sækja bílinn og byrjaði á því að skreppa í "Eins og fætur toga" til að leggja inn pöntun fyrir nýjum innleggjum og kaupa mér nýja strigaskó. Ætlaði líka að kaupa mér auka 7mm púða undir vinstri hælinn en það gleymdist. Kom reyndar ekki að sök því ég átti til innlegg með upphækkun sem ég gat notað. Áður en þessi dagur var úti var ég líka búin að skreppa í sund og pakka mig saman. Tvíburahálfsystir mín kom við hjá mér upp úr klukkan fimm til að hjálpa mér að setja upp bókunarapp í símann og ég var búin að skrá mig inn í flugið með því appi og pósti frá wow áður en hún fór.
Morguninn eftir keyrði einkabílstjórinn minn á BSÍ rétt upp úr klukkan sex þaðan sem ég tók rútu upp á flugvöll. Vel gekk að koma sér í gegn en þótt ég hefði rúman tíma þá notaði ég hann einungis til að taka út 300 evrur úr hraðabanka en settist svo niður og beið þar til kominn var tími til að ganga um borð. Fékk mér hvorki vott né þurrt þessi tvö harðsoðnu egg og vatnsglas stóðu með mér alveg þar til boðið var upp á að kaupa sér hressingu um borð. Flugið út tók styttri tíma en reiknað var með og vorum við lent amk tuttugu mínútum á undan áætlun, það snemma að Lilja vinkona var ennþá í strætó á leiðinni að sækja mig og þurfti ég að bíða smástund eftir henni. Það urðu fagnaðarfundir þegar hún fann mig. Við byrjuðum á því að skreppa með dótið mitt "heim" til hennar í þorp sem heitir Vecendario sem er ekkert mjög langt frá flugvellinum. Lilja bauð mér upp á súpu og kaffi. Svo skruppum við aðeins út í búð til að kaupa helstu nauðsynjar fyrir næstu daga, m.a. BACH-hvítvínsflösku. Sambýlingur Lilju síðustu mánaða skrapp til Íslands með vélinni sem ég kom með. Hún var búin að vera rúmum mánuði lengur á Kanarí og þurfti að koma heim áður en liðnir væru 6 mánuðir frá því hún fór út til að halda ákveðnum réttindum hér heima. En í stað þeirrar konu var von á annarri með öðru flugfélagi sama kvöld og ég kom. Sú lánaði hinni íbúðina sína í viku og fékk herbergið hennar í staðinn. Við Lilja fórum saman út á flugvöll að sækja viðkomandi. Lögðum tímanlega af stað en nú brá svo við að það var seinkun í gangi og við biðum í hátt í tvo og hálfan tíma á vellinum. Það var svo sem í góðu lagi því það var hægt að setjast niður og fá sér smá hressingu. Það var svo ákveðið að taka leigubíl heim. Fórum ekki að sofa fyrr en fór að halla í miðnætti.
Við vorum vaknaðar og komnar á stjá rétt upp úr klukkan átta á miðvikudagsmorguninn. Gáfum okkur góðan tíma í fá okkur kaffi og staðgóðan morgunverð, gríska jógúrt með múslí og epli. Síðan fórum við allar þrjár út í göngutúr um Vecendario. Fórum m.a. upp á göngugötu sem Lilja sagðist kalla Laugaveginn, tæplega km löng. Við skoðuðum inn í margar búðir og ég keypti mér bakpoka, buxur og stuttbuxur. Við fórum líka á markað þarna í grenndinni sem er alltaf á miðvikudögum og margt að sjá og finna þar. Ég keypti ekkert þar en hinar tvær fjárfestu m.a. í allskonar hollustu nammeríi eins og möndlum, fíkjum, döðlum og fleiru.
Á fimmtudeginum fengum við okkur 45 mínútna göngutúr að öðru þorpi, Paya de Pozo izquario, sem er alveg við sjóinn. Þar stoppuðum við í góða stund og tvær af okkur skelltu sér í smá sjóbað. Héldum göngunni svo áfram, fundum aðra leið heim og vorum þá búnar að ganga í stóran hring. Seinni partinn skruppum við svo í Mollið í Vecendario.
Á föstudaginn tókum við strætó til Faro. Þar keypti ég mér sandala og strandmottu enda eyddum við góðum tíma á ströndinni þar. Lilja var sú eina sem ekki fór í sólbað og sjóinn en hún var með sessu og bók með sér og beið þolinmóð eftir okkur hinum tveimur.
Morguninn eftir vildi hinn gesturinn fara eigin leiðir og skoða aðra strönd í öðru þorpi en við Lilja tókum stærtó upp í fjöllinn og eyddum deginum í einu af efsta fjallaþorpinu sem var endastöð strætó. Það var mjög gaman að ferðast með strætó alla þessa leið og margt að sjá. Á mörgum stöðum þurfti bílstjórinn að flauta fyrir horn. Í þorpinu sjálfu var líka ýmislegt að skoða. Við prófuðum m.a. útiæfingatæki sem ætluð voru öllum eldri en 15 ára. Við vorum þau löngu búnar að skoða það helsta og einnig fá okkur hressingu áður brottfarartími vagnsins til baka (um sex) rann upp. En þatta var mjög skemmtilegur dagur sem endaði með smá Pizza-veislu heima í íbúð.
Á sunnudeginum var ætlunin að fara á markað stutt frá ensku ströndinni. Svæðið sem Lilja fór með okkur á reyndist autt og tómt en áður en við vorum búnar að ákveða framhaldið bar að þýskan mann sem er búsettur í nágrenninu helminginn af árinu. Hann vissi hvert var búið að flytja markaðinn og rölti með okkur þangað spjallandi við Lilju á sínu móðurmáli. Markaðurinn reyndist öðruvísi en við ætluðum, t.d. ekkert grænmeti til sölu bara alls konar varningur í misjöfnu ástandi. Hinn gesturinn fann reyndar afar flotta styttu af konu í flottum bláum kjól og prúttaði niður í 7 evrur. Alveg við markaðinn var kaffihús og þar bauð egypskur maður okkur að setjast hjá sér. Þegar kaffið okkar kom var svarta kaffið kalt og ódrekkandi og Abú skilaði þeim bollum og kom með heitara kaffi í staðinn. Hann krafðist þess líka að fá að borga fyrir kaffið en þegar hann bauð okkur á rúntinn með sér sögðum við hingað en ekki lengra. Þökkuðum pent fyrir og sögðumst vera ákveðnar í að fara fótgangandi á næsta áfangastað sem var Jumbó Center á ensku ströndinni. Þangað var nokkur spölur en mjög skemmtileg ganga þangað, þurftum að svindla okkur yfir götur á tveimur stöðum þar sem við sáum ekki gangbraut nálægt en þurftum yfir. Fengum okkur að borða á stað sem er stutt frá stað sem í mörg ár var kallaður Klörubar. Og þegar við héldum göngunni áfram á þann stað þar sem við tókum strætó til baka til Vecendario sá ég Europalace hótelið tilsýndar, hótelið sem ég og nokkrir af útskriftarfélögum úr FSu dvöldum á í hálfan mánuð fyrir 31 ári síðan.
Á mánudaginn löbbuðum við hinn hina leiðina að ströndinni við Pozo þar sem tvær af okkur fóru í sólbað og sjóinn áður en við löbbuðum aftur til baka. Skiluðum af okkur stranddótinu og fórum svo í stærstu Kína-búðina í Vecendario þar sem ég keypti m.a. stærri tösku sem ég gat bæði sett flugreyjutöskuna mína, mitt dót sem ég var ekki með í bakpokanum og einnig nokkuð af verkfærum sem Lilja keypti sér í London í haust á leiðinni til Kanarí. Kínabúðtaskan er fjólublá og flott og tók leikandi við þessu öllu og fór ekki yfir þyngdarmörkin 23kg vó uþb 21,5kg og ég náði þarna að bjarga Lilju svo hún þarf ekki að borga yfirvigt þegar hún tekur sig upp frá Vecendario.
23.1.19
Miðvikudagskvöld
Kom ekki heim úr vinnu fyrr en rétt upp úr klukkan fimm í dag og ég hef ekki nennt út aftur. Hefði þurft að fara og sinna sund-rútínunni en hugga mig við það að ég fór í sund bæði í gær og í fyrradag. Auðvitað er alveg í lagi að hvíla kropparæktina dag og dag og það er jafnvel æskilegt á stundum.
Er að horfa á Danmörk-Svíþjóð á HM á Rúv2. Þetta er hörku leikur og ég er ekki viss um með hvoru liðinu ég á að halda. Megi betra liðið vinna og leikurinn halda áfram að vera skemmtilegur á meðan hann er í gangi.
Sjalaprjónið gengur alveg ágætlega, á kannski svona tuttugu umferðir eftir áður en ég felli af.
20.1.19
Ekki út úr bænum þessa helgina
Síðast liðin vika var fljót að líða. Fékk að fara heim úr vinnu um hálfþrjú á miðvikudaginn og horfði á megnið af landsleiknum hér heima. Strax eftir leikinn sótti ég jafnöldru, vinkonu og fyrrum vinnufélaga og við byrjuðum á því að skreppa í IKEA til að fá okkur kaffi. Sátum þar og spjölluðum í á aðra klukkustund. Síðan skruppum við á rúntinn um Breiðholt og Árbæ og þegar ég skilaði henni heim skrapp ég með henni inn til að heilsa upp á kisuna hennar og stoppaði í amk klst. Var með sunddótið með mér í bílnum en þegar til kom fór ég beint heim eftir þennan hitting enda klukkan byrjuð að ganga níu.
Á fimmtudaginn var landsleikurinn klukkan fimm og ég horfði á hann heima og fann til og borðaði kvöldmat áður en ég fór í sundið. Þegar ég kom heim úr vinnu á föstudaginn lagði ég áherslu á að koma smá skikk á heimilið. Var eitthvað að spá í að skreppa á fund/fyrirlestur í Lífsspekifélaginu en þegar til kom nennti ég engan veginn að fara út aftur. Slakaði bara á fyrir framan skjáninn með prjónana með mér. Var farin að sofa fyrir miðnætti.
Í gærmorgun var ég mætt í sundið upp úr klukkan hálfníu. Þá var ég eignlega búin að ákveða að fara ekkert út úr bænum þessa helgina. Úr sundinu fór ég beint í espernatohitting og var mætt vestur í bæ áður en klukkan sló hálfellefu. Hringdi í pabba þegar ég kom heim og hann var sammála mér um að vera ekkert að leggja upp í nein ævintýri og nota frekar helgina í hluti sem eru nauðsynlegir en leiðilegt að framkvæma og skrifa um.
Er búin að lesa eina af jólabókunum, Hasím og er sú bók mjög vel skrifuð og vekur mann til umhugsunar. En ég er líka að lesa mega spennandi bók af safninu; Hellisbúinn eftir Jörn Lier Horst. Er rúmlega hálfnuð með þá bók og skil varla hvernig ég gat lagt hana frá mér.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)