Gærdagurinn var aðeins öðruvísi en til stóð. Við, í minni deild, ætluðum t.d. að vera búin með allt daglegt og hætta vinnu fyrir klukkan þrjú til að skreppa á fund í K2 sem forstjóri fyrirtækisins hafði boðað til með góðum fyrirvara. Skylduverkin létu sum hver bíða aðeins eftir sér sem varð til þess að við 100% manneskjurnar urðum að standa vaktina til fjögur.
Ég fékk reyndar að fara aðeins fyrir fjögur til að komast upp í Brimborg með strætó fyrir lokun. Það var hringt í mig af verkstæðinu um þrjú til að segja mér að búið væri að laga tvö atriði af þremur. Til þess að geta lagað það þriðja þarf að panta varahlut að utan og bilunin er ekki það alvarleg að það liggi alveg á því (rifa í gúmmílista við bílstjórahurðina). Eftir að hafa gert upp við verkstæðið fór ég beint heim.
Straujaði skyrtu annars sonarins en þeir bræður voru á leið í veislu. Þeir voru sóttir af pabba sínum rétt fyrir sjö. Korteri eftir að strákarnir fóru tók ég leið þrettán niður á Lækjartorg og labbaði upp í húsnæði sem heldur utan um starf Lífsspekifélagsins. Þar hafði ég mælt mér mót við norsku esperantovinkonu mína til að hlusta á fyrirlesut um ágrip af fræðum Jungs. Klukkutíminn var fljótur að líða og mér fannst fyrirlesturinn rétt að komast í gang þegar tímamörkin voru liðin. En á efri hæðinni var hægt að kaupa kaffi og með því og setjast niður og spjalla um fyrirlesturinn og fleira. Klukkan var því langt gengin í ellefu þegar ég kom heim aftur.