Það eru rólegheit hjá mér þótt mikið gangi á gosstöðvunum og veðrið hafi aðeins rokið upp. Þar sem ég var að lesa langt fram á nótt aðfaranótt gærdagsins svaf ég aðeins lengur fram á morguninn. Ég var þó komin á fætur fyrir hádegi. Gærdagurinn var tíðindalítill hjá mér, var bara heimavið í tölvu, eða að lesa og horfði einnig á þrjár myndir í gærkvöldi, tvær á RÚV og eina á DR1. Hafði afgang af kjötsúpu í kvöldmatinn og samt er meira til. Norska esperanto vinkona mín hafði samband, nýlega komin frá Noregi, og spurði hvenær skólinn byrjaði hjá okkur. Við vorum sammála um að byrja núna í september, jafnvel strax næstu helgi.
31.8.14
30.8.14
September handan við helgina
Tíminn heldur áfram að þjóta sinn veg út í buskann, hratt og örugglega. Ég hjólaði í vinnuna í gærmorgun og var mætt í fyrra fallinu. Þar sem ég átti að hlaða inn skrám og troða í framleiðsluvélina fyrstu tvo tímana og ég vissi að það yrði óvanalega mikil framleiðsla ákvað ég að hefja störf áður en klukkan sló átta. Dagurinn leið hratt og án teljandi vandræða og okkur fjórum tókst að ljúka öllu sem þurfti að klára um fjögur. Ég var aðeins lengur að ganga frá nokkrum pappírum og svara pósti. Það rigndi á mig á heimleiðinni en ég hafði troðið þunnri plastslá með mér ofan í pakpokann og passaði hún alveg yfir mig og pokann. Kveikti á tölvunni er heim kom og sat góða stund við hana. Um hálfsex fór ég að undirbúa kjötsúpugerð. Eins og fram kom í pistli gærdagsins þurfti ég að skreppa í Grafarvoginn eftir bedda eftir að hafa sett allt grænmeti í súpuna og lækka undir eftir að suðan kom upp aftur. Davíð Steinn tók svo að sér að fylgjast með þessu. Í bakaleiðinni úr beddaleiðangrinum dældi ég á lánsbílinn þar sem það var 12 kr. afsláttu hjá Atlantsolíu. Súpan var góð og sem betur fer nóg eftir því hún er betri upphituð. Horfði á fyrri hlutann af sænsku myndinni Arne Dahl og svo las ég langt fram á nótt.
29.8.14
Síðasti vinnudagurinn í þessum mánuði liðinn
Strákarnir báðu mig endilega um að fara á lánsbílnum í vinnuna í gær svo þeir gætu fengið far með mér í skólann. Ég varð við þeirri beiðni. Vinnudagurinn var annasamur alveg frá klukkan átta til fjögur og nóg að gera. Inn á milli þarf ég þar að auki að taka símann og svara fyrir kort eða kennispjöld. Strax eftir vinnu skrapp í ég Krónuna við Granda og verslaði inn. Þá er það frá og ég þarf ekki að fara í svoleiðisleiðangur aftur fyrr en í næsta mánuði. ;-) M.a. keypti ég allt í kjötsúpugerð sem ég er reyndar að græja núna á meðan ég er að skrifa pistil dagsins. Búin að skera niður allt grænmetið en ætla að leyfa kjötinu og bygggrjónunum að vera aðeins lengur áður en ég bæti út í súpuna.
Er búin að lesa "Ólæsingjann" og var afar ánægð með þann lestur. Bókin sem ég er byrjuð á núna heitir Drekinn og er eftir Sverri Berg. Hún kom út á síðasta ári og er fyrsta bók höfundar. Spennan er mikil og ég get ekki beðið eftir því að klára bókina en ég er rúmlega hálfnuð. En fyrst er að kíkja á súpuna og skreppa svo og sækja bedda í Veghúsin þar sem Helga systir bjó síðustu átta árin eða þar um bil. Systir mín og mágur eru búin að selja og hafa fest sér kaup á íbúð á Akureyri.
28.8.14
Útstáelsi
Hjólaði í vinnuna í m.a. gegnum Klambratúnið, Gunnarsbraut og Hverfisgötu í gærmorgun. Vinnudagurinn byrjaði eins og sá á undan endaði, með því að ég þurfti að kalla til viðgerðarmann út af ónýtri myndaáprentun. Viðgerðarmaðurinn kom reyndar ekki fyrr en upp úr tíu og í millitíðinni hafði okkur tekist að "fiffa" vélina einhvern veginn þannig að hún eyðilagði ekki eins mikið. Um svipað leyti og sá tilkallaði kom var ónýtu myndunum hins vegar aðeins farið að fjölga aftur. Viðgerðarmaðurinn var hjá okkur þar til hann fór í mat um tólf. Hann kom reyndar aftur eftir matinn en þurfti ekki að gera meira þá. Þetta leiddi til þess að þrátt fyrir að dagleg framleiðsla væri ekkert svo mikið vorum við alveg til tvö að klára og því aðeins minni tími til að grynnka á endurnýjuninni.
Þegar ég kom heim rétt fyrir hálffimm hringdi ég í asea-manninn. Hann svaraði gemsanum en sagðist ekki vera heima. Hann sagði samt að ég gæti skroppið við eftir sendingunni minni því sonur hans væri heima. Sem betur fer sagði hann mér líka að ég mætti labba inn ef dyrabjöllunni yrði ekki svarað. Ekkert löngu seinna hringdi ég bjöllunni tvisvar sinnum áður en ég opnaði útidyrnar og labbaði inn kallandi halló tvisvar eða þrisvar. Ég fékk engin viðbrögð en ég fann kassann minn, tók hann traustataki og skildi eftir seðil fyrir sendingarkostnaði á eldhúsborðinu. Sendi svo asea-manninum sms um ævintýri mín. Ég var nýkomin heim þegar hann hringdi og hélt að ég stæði enn fyrir utan hjá honum. Hann gat nefnilega ekki lesið "skeytið" frá mér vegna gleraugnaleysis. Þegar ég sagði honum frá ævintýrinu varð hann bara ánægður með að ég skyldi bjarga mér.
Spilakvöldið var haft í gærkvöldi, heima hjá okkur að venju. Ég ákvað því að hringja í tvíburahálfsystur mína og kanna hvort hún væri heimavið og tæki á móti mér. Var svo mætt til hennar um hálfníu. Hún hafði reyndar aðeins skroppið frá en maðurinn hennar tók á móti mér og sagði mér að setjast fyrir framan skjáinn og horfa á beina útsendingu í landliðsleik karla við Bosníu. Fljótlega eftir að vinkona mín kom heim settumst við niður í stofu með saumana. Ég tók fram stóru myndina og fyllti smá upp í gatið sem á eftir að klára. Klukkan var byrjuð að ganga tólf þegar ég kvaddi eftir gott spjall og hlátur inn á milli. Alltaf gott og gaman að hitta tvíburahálfsystur sína.
27.8.14
Jafntefli á heimaleik
Þrátt fyrir úðaregn og strengja í lærum ákvað ég að hjóla í vinnuna í gær, ekki í neinum sérstökum regnfatnaði. Blotnaði ekki svo mikið að ég þyrfti að skipta um föt (enda var ég heldur ekki með neitt til skiptanna) og það kom á óvart að ég fann ekki fyrir strengjunum á hjólinu. Það er bara þegar ég er að setjast sem tekur svolítið í. Vorum þrjár í vinnu og kortavélin var með smá vesen. Kortin framleiddust en endurgera þurfti slatta aftur vegna ónýtra mynda. Ég ákvað að þetta gengi ekki lengur og kallaði til viðgerðarmann. Hann ætlaði að renna við "fljótlega" en ég varð að bíða eftir honum til klukkan að ganga fimm svo ég gæti sýnt honum ónýtu kortin áður en ég gengi frá þeim inn á læstan lager. Stuttu fyrir klukkan hálffimm skildi ég viðgerðarmanninn eftir. Hjólaði heim eftir Sæbrautinni og eftir að hafa skilað hjálminum og bakpokanum inn skrapp ég út í Sunnubúð, m.a. eftir brauði. Oddur Smári var kominn heim er ég kom til baka. Hann sagði mér að ekkert yrði úr spilakvöldinu. Ég hafði ekkert verið að hugsa fyrir kvöldmat vegna spilakvöldsins og var þar að auki á leið á völlinn um klukkustund síðar. Ég ákvað því að strákarnir gætu alveg fundið sér eitthvað snarl í þetta skiptið. Þegar ég trítlaði af stað á völlinn rétt fyrir sex sá ég slökkviliðs- og sjúkrabíl í götunni minni rétt við Reykjahlíðina. Þeir voru samt á förum. Leikurinn fór 0-0 en Valsstelpurnar voru að taka á móti Sjörnunni og fyrri leikur þessara liða í sumar gjörtapaðist. Horfði svo á Wallander á DR1 áður en ég skreið upp í rúm upp úr ellefu og las til miðnættis.
26.8.14
Lítið eftir af ágúst
Ég bauð tvíburunum far í skólann á lánsbílnum í gærmorgun. Þeir höfðu verið svo duglegir að þramma um bæinn á menningarnótt að þeir fengu báðir blöðrur, ég var með mína berjastrengi aftan í lærunum og svo var rigning. Um leið og strákarnir yfirgáfu bílinn við Tækniskólann hringdi gemsinn minn. Ein úr kortadeildinni var að tilkynna sig veika. Önnur úr deildinni átti tíma í sjúkraþjálfun um níu svo við vorum bara tvær fyrstu næstum tvö tímana. Báðar áttum við að vera á vélinni og þar sem ég var að hlaða inn skrám og "troða" í var hin að dekka mun fleiri hlutverk. Rétt fyrir tíu vorum við orðnar þrjár. Kláruðum allt daglegt um tólf og tókum okkur þá matarpásu. Eftir hádegi fengum við senda endurnýjun og hlóðum henni inn. Áttum aðeins þrjár skrár, alls um 700 kort, eftir af endurnýjuninni sem kom rétt fyrir helgi. Minnsti fællinn tók það langan tíma að við framleiddum bara tvær af þessum þremur. Settum af stað fæl úr nýjustu endurnýjuninni um þrjú og létum vélina malla á honum á meðan við fórum í afmæliskaffi en ein af okkur átti afmæli á laugardaginn var.
Fór beint heim eftir vinnu og kveikti auðvitað strax á tölvunni. Setti upp kartöflur rétt fyrir sex og skar niður lifur og setti í poka ásamt byggflögum krydduðum með salti og pipar. Rétt áður en ég ætlaði að fara að steikja lifrina hringdi Davíð Steinn í mig og bað mig um að sækja sig í skólann. Um kvöldið horfðum við Oddur Smári á Lewis á DR1.
25.8.14
Smá berjastrengir
Ég vaknaði fyrst fyrir allar aldir eða fyrir klukka sjö í gærmorgun. Var alveg í spreng svo ég skrapp á salernið, fékk mér svo aseadrykk og smurði gelinu á mig áður en ég skreið upp í aftur. Þegar gelið hafði þornað vafði ég sænginni um mig og svaf alveg til klukkan hálftíu. Kom mér á fætur fljótlega, fékk mér morgunmat og kveikti að tölvunni og kaffikönnunni. Mamma svaf og pabbi var frammi hjá sér svo ég settist bara við tölvuna með fyrsta kaffibolla dagsins. Það kom mér á óvart hversu lítið aum ég var eftir berjamóinn daginn áður. Strengirnir eru aðallega aftan í lærunum en ég finn fyrir smástrengjum aðeins ofar.
Gleymdi alveg að segja frá hvað við mamma gerðum á laugardagskvöldið svo ég bæti úr því hér með. Mamma bauð mér upp á hvítvín og við kláruðum saman úr einni flösku, tvö glös á mann. En hún bað mig líka um að lesa fyrir sig eins og ég gerði þegar hún var sem veikust um árið. Hún er að lesa bókina "Amma biður að heilsa" eftir sama höfund og bókin "Maður sem heitir Ove" Frederik Bakcman. Mamma var langt komin með þrettánda kafla og ég byrjaði þar og las hann og næstum tvo kafla í viðbót. Mömmu finnst víst miklu skemmtilegra að láta lesa fyrir sig. Við skelltum nokkrum sinnum upp úr og ég las örugglega í rúmlega klukkustund. Hætti þegar tíufréttir í útvarpinu byrjaði.
Stoppaði á Hellu aðeins framyfir kvöldmat í gær. Mamma fékk að nota bílinn sinn aðeins meira fyrr um daginn. Kom í bæinn um tíu og við Oddur Smári horfðum á Law and Order SVU og Reservation á Skjá einum á plúsnum. Ég las svo um stund áður en ég fór að sofa þrátt fyrir að klukka væri alveg að verða tólf þegar ég skreið upp í.
24.8.14
Krækiber og sólber
Við pabbi drifum okkur af stað um ellefu í gærmorgun eftir að hafa tekið til vatn í tvær flöskur, fötur, tínur og stóran poka. Fyrst stoppuðum við hjá "loftdæminu" við bensínstöðina þar sem pabbi athugaði hvort það vantaði loft í dekkin á jeppanum. Hann kom líka við í búðinni og keypti banana og kexpakka. Síðan keyrðum við austur í Landeyjar. Nóg var af berjum, sumar þúfurnar alveg kolsvartar. Á tæpum einum og hálfum tíma tíndum við hátt í 18 kíló saman. Komum til baka um tvö. Mamma hafði greinilega nýtt sér það að bíllinn hennar var heima. Hafði verið að tala um það kvöldið áður að skreppa á Selfoss. Þegar til kom skrapp hún í Brekkugerði og að Helluvaði, sagðist ekki hafa nennt lengra. En var afar ánægð með að hafa bílinn tiltækan. Eftir síðdegiskaffi skruppum við mamma út í garð með fötur og skæri og klipptum alls tæp tvö kíló af sólberjum. Við kláruðum ekki alveg en vorum að í um klukkustund.
23.8.14
Á leið í berjamó
Strákarnir fengu far með mér fyrsta skóladaginn í gær. Framan af nýhafinni önn byrja allir skóladagar hjá þeim klukka 08:10. Þetta breytist eitthvað aðeins hjá Oddi seinna á önninni. Vinnudagurinn leið afar hratt enda nóg að gera eins og oftast áður. Framleiðsluvélin var í gangi alveg frá átta til þrjú. Þar sem við vorum aðeins þrjár eftir klukka tvö tókum við okkur síðdegiskaffipásu saman upp úr þrjú og svo þurfti ég smá tíma til að gera gjafakortatest á vélinni. Erum langt komnar með endurnýjun sem við hlóðum inn á vélina fyrr í vikunni, einungis þrjár óframleiddar skrár eftir af 18. Það klárast pottþétt fyrir mánaðamót. Svo eigum við von á tveimur endurnýjum í viðbót í næstu viku.
Áður en ég fór inn heima, er ég kom úr vinnu, skrapp ég í Sunnubúðina eftir smá nauðsynjum strákanna vegna. Hvorugur strákanna var kominn heim svo ég gekk frá vörunum og dreif svo í að setja í þvottavél. Síðan setti ég mig í samband við pabba og tilkynnti komu mína austur einhvern tímann um kvöldið. Davíð Steinn skilaði sér heim fljótlega með vin með sér en það var búið að ákveða spilakvöld. Oddur Smári kom heim rétt seinna nýklipptur og fínn. Ég hengdi upp úr vélinni, horfði á fréttir á RÚV, tók mig til, kvaddi og lagði í hann stuttu fyrir klukkan átta.
Er byrjuð að lesa "Ólæsinginn sem kunni að reikna" eftir sama höfund og "Gamlinginn..." Jonas Jonasson. Það stefnir allt í mikinn skemmtilestur og ég er afar ánægð með hversu þykk bókin er. Er með 10 bækur af safninu. Þarf að skila sex þeirra 7. sept og hinum fjórum 17. sept. Er reyndar búin með tvær af þessum sex og er önnur þeirra Makalaus eftir Tobbu Marinós. Sú bók kom mér ánægjulega á óvart og skellti ég nokkrum sinnum upp úr við lesturinn.
22.8.14
Föstudagur enn á ný
Ákvað að fara á lánsbílnum í vinnuna í gærmorgun. Nóg var að gera í vinnunni því fyrir utan verkefnin í kortadeildinni var ég að leysa af og fylgjast með mannaferðum nokkrum sinnum í lengri og skemmri tíma. Það var bara einn að vinna frammi og hann þurfti nokkrum sinnum að fara með mönnum inn í hýsingarsalinn og þá kom til minna kasta. Ein af okkur í kortadeildinni þurfti að fara um hálfþrjú svo ég ákvað að við hinar þrjár færum saman í síðdegiskaffi og framleiðsluvélin sett í pásu á meðan. Annars gekk allt vel og áður en varði var klukkan orðin fjögur. Kom við á Atlantsolíustöðinni við Flugvallarveg á heimleiðinni. Það var 12 kr. afsláttur í gær og þótt ekki kæmust meir en 11 lítrar á tankinn þá fannst mér alveg taka því.
Hafði lax í matinn upp úr klukkan sex. Horfði á fréttir á RÚV og megnið af landsleiknum. Slökkti á sjónvarpinu tíu mínútum áður en leik var lokið. Þá fórum við Oddur í Griffil og A4 þar sem við fundum næstum því allar bækurnar sem hann vantar á þessari önn. Keyptum þær allar í Griffli á um 26 þúsund. Ein bókin var uppseld í bili og við kíktum í A4 til að athuga hvort hún væri til þar. Bókin reyndist uppseld þar líka. Þegar við komum heim horfði ég á kvöldfréttirnar og lögregluþáttinn sem kom á eftir. Oddur Smári fór hins vegar að sofa. Davíð Steinn hafði skroppið út um átta til að hitta vini og kom heim rétt fyrir ellefu. Hann þarf ekki að kaupa neinar bækur, getur hlaðið lesefninu, sem hann þarf það sem eftir er af náminu, niður frítt.
21.8.14
Hvaða hraðferð er eiginlega á tímanum?
Hjólaði leiðina sem ég fer oftast í vinnuna í gærmorgun, framhjá sjúkrahúsinu, Bergstaðastrætið, niður rétt við Hótel Holt og allt Ingólfsstrætið. Vinnudagurinn var erilsamur og um tvö vorum við bara eftir tvær, ég sá um vélina og hin var að ljúka við alls kyns daglegan frágang. Það teygðist þó ekki úr vinnudeginum og ég stimplaði mig út á slaginu klukkan fjögur. Hjólaði beint heim, næstum því sömu leið og ég kom nema ég fór Lækjargötu og Sóleyjargötu og svo alla leið að ljósunum við Lönguhlíðina. Davíð Steinn sá um að elda kvöldmatinn, lasanja. Eftir kvöldmat og fréttir fylgdist ég aðeins með körfuboltaleiknum og varð ekkert smá stolt af íslensku strákunum að tryggja sig inn á EM í fyrsta skipti í sögunni með sigri á Bretum á útivelli.
20.8.14
"Óvænt uppákoma í gær"
Mikið er það annars ágætt að ég hafði ekki hugmynd um hvað vinnudagurinn í gær yrði langur þegar ég hjólaði Klambratúnið upp úr klukkan hálfátta í gærmorgun. Framleiðsludagurinn í heildina voru yfir ellefuhundruð kort. Lukum við kreditkortin fyrst um tíu og svo upp úr klukkan tólf. Dk-dagurinn var langstærstur en við áttum eftir að framleiða innan við 50 kort þegar allt varð stopp. Ég varð að kalla til viðgerðarmann og sem betur fer kom hann fljótlega. En viðgerð lauk ekki fyrr en rétt fyrir fimm og þá átti eftir að ljúka framleiðslunni og ganga frá. Klukkan var orðin hálfsex þegar ég stimplaði mig út og hjólaði Sæbrautina, Skúlagötu, Rauðarárstíg, Klambratún og Lönguhlíð heim. Kveikti á tölvu, sendi Odd í Sunnubúð. Hafði steikt slátur í matinn. Horfði á báða fréttatímana (Stöð2 og Rúv), slökkti á tölvunni aftur um níu og horfði á Wallander á DR1. Skreið upp í fyrir klukkan ellefu og las til klukkan að verða tólf. Hlustaði svo á fréttir á miðnætti áður en ég bað bænirnar mínar og fór að sofa.
19.8.14
Ætli sá "stóri" sé á leiðinni?
Á mánudaginn í síðustu viku fékk ég e-mail með hamingjuóskum frá íslenskri getspá. Ég hafði unnið heilar 580 krónur fyrir 2 rétta og bónustölu á eina áskriftarröðina mína í laugardagslottóinu. Í gær fékk ég svo annan póst þar sem ég hafði unnir 1220 krónur fyrir þrjár rétta á eina röðina. Hvernig póst skyldi ég fá í næstu viku. Fyrsti vinningur hefur ekki gengið út í nokkrar vikur...
Hjólaði í vinnuna í gær og fór m.a. í gegnum Hljómskálagarðinn. Ekkert auka var komið til okkar og allt daglegt kláraðist fyrir tvö. Aftur á móti lentum við í afar dularfullri kennispjaldaleit sem verður ekkert tíunduð neitt frekar hér.
Strákarnir áttu von á vinum á spilakvöld svo ég þurfti ekki að hafa fyrir því að elda. Skrapp á bókasafnið og í búð fljótlega eftir að ég kom heim. Skilaði fimm bókum (alls ekki öllum enda var ég með ellefu heima). Fór samt ekki tómhent heim því ég fann fjórar bækur sem mér fannst ég endilega verða að grípa með mér núna og lesa á næstunni. Upp úr sex fór strákunum að fjölga og með tvíburunum urðu þeir alls níu þegar mest var. Það voru reyndar ekki alveg allir að spila í "sessioninni", tveir eða þrír spiluðu play-stationleiki.
Upp úr átta skrapp ég til nöfnu minnar og frænku í Garðabænum og stoppaði hjá henni i tvo tíma. Þegar ég kom heim voru allir strákarnir ennþá og það var enn verið að spila. En þeir voru hættir fyrir ellefu og fóru þá að tínast heim.
18.8.14
Ný vinnuvika
Eftir að ég kom heim úr afmælinu um hálfeitt aðfaranótt gærdagsins gleymdi ég mér aðeins í tölvunni. Veit ekki hvenær ég skreið nákvæmlega upp í rúm en þá las ég í smá stund. Ég var því heldur löt að fara framúr í gærmorgun. Var nú samt komin á stjá eitthvað fyrir hádegi. Dagurinn leið við ýmis konar dundur. M.a. fylgdist ég reglulega með skálftakortinu á vedur.is. Hrinan sem hófst aðfaranótt laugardagsins stendur enn yfir og enn getur enginn sagt fyrir um hvað er að fara að gerast og hvort og þá hvenær fari að gjósa. Það er eiginlega óhugnanlega spennandi að fylgjast með framvindunni. Bjó til eggjaköku úr afgangnum af fiskinum sem ég var með í síðustu viku og hafði í kvöldmatinn. Bætti út í þetta gulrótum sem ég var búin léttsteikja áður. Strákarnir urðu ekkert fúlir að fá fiskrétt í kvöldmatinn.
17.8.14
Í "hundrað" ára afmælisveislu
Kom mér á fætur, hvorki seint né snemma, upp úr klukkan níu í gærmorgun. Sinnti ýmsum nauðsynlegum málum. Rétt fyrir ellefu kom einn vinur strákanna og það gaf mér ástæðu til að vekja þá. Klukkan eitt vorum við mæðgin mætt í Veghús 21 til systur minnar og mágs. Rétt seinna minnti Oddur mig á að ég hafði ekki tekið aukalyklana að Drápuhlíðinni með handa þeim. Eldri stelpan var um það bil að klára síðustu skautaæfinguna í Birninum og ég bauðst til þess að sækja hana. Hún var ekki með símann á sér og þegar hún skilaði sér ekki út hálftíma eftir æfingu hringdi ég í Helgu. Hún hvatti mig þá til þess að skreppa heim eftir lyklunum. Ég var í þann veginn að leggja af stað til baka þegar Helga hringdi aftur í mig. Hún sagði að Hulda hefði komið labbandi heim en nú væri Bríet búin á sinni æfingu. Ég sótti stelpuna og þegar ég skilaði henni heim til sín fékk ég það verkefni að búa til nýtt kaffi. Verið var að flytja megnið af búslóðinni í skúrinn og voru tvíburarnir að hjálpa til við það. Svo var Ingvi að leggja af stað norður á bíl pabba síns með pabba sinn með sér. Mæðgurnar leggja í hann í dag. Íbúðin í Grafarvoginum er seld og verður afhent í næsta mánuði og systir mín og fjölskylda eru búin að fá leigða íbúð á Akureyri þar til þau finna sér sína eigin þar.
Við strákarnir komum heim rétt fyrir fimm. Ég byrjaði reyndar á því að hleypa þeim út handan við hornið og skrapp til að fylla á bílinn. Fljótlega eftir að ég kom heim fór ég að undirbúa mig undir að mæta í 2x50 ára afmælisveislu í Grindavík. Þangað var ég svo mætt í sal Verkalýðsfélagsins á staðnum um sjö. Náði að vera fyrsti gesturinn en ekki lengi því rétt seinna streymdu afmælisgestir að. Boðið var upp á dýrindis súpu og brauð og kaffi og tertu á eftir. Kona besta vinar míns til margra ára átti afmæli í gær og hann mun svo ná henni í byrjun nóvember. Eftirfarandi ferskeytla var hluti af afmælisgjöf minni til þeirra:
Bæði tvö í tugi fimm
til samans gera hundrað.
Aldrei verður ævin dimm
ekkert fær þeim sundrað.
16.8.14
Laugardagur 228. dagur ársins
Svo ég ljúki nú frásögninni um "vísbendingaleikinn" við strákanna þá tapaði ég. Það eina sem hafði hreyfst úr stað þegar ég kom heim um fimm á fimmtudaginn var klósettburstinn sem hafði verið færður aðeins til hliðar en ekki notaður. Þúsund kallinn og ryksugan voru þar sem ég hafði skilið þau eftir og uppþvottavélin var full af hreinu leirtaui. O, jæja, ég verð þá sennilega að setja fram skýrar óskir, munnlega og skriflega næst.
Annars fór ég á lánsbílnum í vinnuna í gær. Við vorum bara þrjár en það lá ekki mikil framleiðsla fyrir og engin endurnýjun komin í gang. Það var helst að kennispjöldin væru mörg þar sem hafði ekki náðst að skanna allt deginum áður. En það kom babb í bátinn og aðeins hluti af debetkorta framleiðslunni skilaði sér yfir á framleiðslu vél. Við nánari athugun kunnugra var ein vél ónýt. Eftir hádegi kom kerfisfræðingur með sérfræðing út af öðru máli með sér. Hann kann samt að komast framhjá kerfinu í sameiningu tókst okkur að senda restina af dk-deginum yfir svo við gátum klárað að framleiða. Kennispjöldin voru yfir hundrað en það tókst að ljúka öllu fyrir klukkan fjögur. Svo er bara spurning hvernig aðkoman verður eftir helgi.
Strax eftir vinnu skrapp ég í Krónuna og verslaði inn. Oddur Smári gekk frá vörunum. Davíð Steinn var ekki heima en ég var með kvöldmatinn um sex og var komin á Valsvöllinn um hálfsjö þar sem "mínir menn" töpuðu 1-2 fyrir Sjörnunni.
15.8.14
Ágústmánuður hálfnaður
Áður en ég ók til vinnu í gærmorgun skildi ég eftir afar sterkar vísbendingar til tvíburanna. M.a. dró ég ryksuguna fram í hol, spreyjaði salernisskálina að innan, hafði setuna uppi og plantaði burstanum fyrir framan. Uppþvottavélin var merkt hreint í vélinni og strákarnir eiga alveg að vita hvað það merkir og svo skyldi ég eftir þúsundkrónuseðil á borðinu og miða hjá sem á stóð stórum stöfum OSTUR. Í gær var síðasti vinnudagur sumarafleysingastúlkunnar Hrafnkötlu hjá okkur. Af því tilefni hafði hún bakað köku eftir uppskrift frá Nigellu. Annars var í nógu að snúast allan daginn. Framleiðslu lauk reyndar um hádegisbil en þá var allt myndnámið eftir, talningar og pökkun. Ég var líka búin að boða til förgunnar á ónýtu plasti frá því í síðasta mánuði. Tvö mættu úr Katrínartúni klukkan eitt og við vorum svo alls fjögur að ljúka þessu verki á innan við hálftíma. Ég tilkynnti um fjölda ónýtra korta í hverri tegund fyrir sig, einn merkti við að það stemmdi við tölurnar á skjölunum og tvær mötuðu pappírstætarana. Á meðan þessu fór fram sprakk fremri peran í myndskannanum og það eftir árangurslausar tilraunir við að losa peruna úr varð ég að hafa samband við viðgerðarmann. Hann kom fljótlega og var klukkutíma að laga þetta. Skönnun hófst svo rétt fyrir hálffjögur og það náðist að skanna rúmlega helminginn af spjöldunum eða um fjörutíu. Strax eftir vinnu skrapp ég í Kringluna. Lét útbúa tvö lykla af útidyrahurðinni hér heima. Lyklana ætla ég systur minni og mági. Einnig keypti ég gjafakort Kringlunnar segi meira um það á sunnudaginn kemur. Slapp við að hugsa um kvöldmat því það var "session" hjá strákunum og þeir sáu um sig sjálfir strákarnir fimm. Horfði á imbann, RÚV, milli klukkan níu og hálftólf. Þá skreið ég upp í rúm og las um stund.
14.8.14
Tíminn æðir áfram
Fór sömu leið í vinnuna á hjóli í gærmorgun og ég fór á þriðjudagsmorguninn. Í vinnunni var í nógu að snúast enda var klukkan auðvitað allt í einu orðin fjögur. Skyldi tíminn annars líða eitthvað hægar ef maður sleppir því að gera nokkuð svona fyrsta kastið af deginum? Hjólaði beint heim eftir vinnu og fór m.a. í gegnum Hljómskálagarðinn og svo undir tvær brýr þannig að ég kom upp stutt frá Eskihlíðinni. Læsti hjólinu við grindverkið milli 21 og 23 en í stað þess að fara strax inn settist ég upp í lánsbílinn og renndi við í fiskbúðinni við Sundlaugarveg. Þar keypti ég m.a. ýsu í soðið sem ég hafði svo í kvöldmatinn. Horfði á tvo kvöldfréttatíma en slökkti svo á sjónvarpinu. Slökkti á tölvunni um hálftíu og byrjaði á "nýrri" bókasafnsbók. Var svo sofnuð um ellefu og svaf í einum dúr til klukkan sex.
13.8.14
Nágranni í neyð
Leið gærdagsins á hjólinu til vinnu lá m.a. í gegnum Klambratúnið og á fínum hjólastíg meðfram Hverfisgötunni. Mikið var að gera í vinnunni og ekki alveg allt að ganga upp í fyrstu en við náðum þó að ljúka öllum daglegum verkum og komumst í síðdegiskaffipásu upp úr klukkan hálffjögur. Um fjögur hitti ég Lilju vinkonu fyrir utan. Ég reiddi hjólið mitt og við löbbuðum heim eftir Lækjargötu, Sóleyjargötu, Gömlu Hringbraut, Miklubraut og Reykjahlíð. Á leiðinni var hringt tvisvar sinnum í mig. Annað símtalið var frá öðrum syninum og mér skildist að lánsbíllinn væri fyrir í hornstæðinu, fyrsta stæðinu þegar maður beygir inn í götuna. Hann hafði vit á að segja að ég yrði komin heim fyrir fimm og það stóðst. Fór þá inn með bakpokann og sótti bíllykilinn. Lilja kom með mér í Hagkaup í Skeifunni þar sem ég verslaði inn örfáar nauðsynjar. Fórum svo beint heim aftur og lagði ég þá í stæði fyrir framan garðinn við húsið "mitt". Undirbjó kaffiuppáhellingu og tók Oddur Smári við þegar vatnið í katlinum var soðið. Lilja kvaddi á sjöunda tímanum og þá fór ég að huga að kvöldmatargerð, hafði hakk og spakk í matinn. Eftir mat og kvöldfréttir settist ég aðeins fyrir framan tölvuna. Um átta leytið hringdi heimasíminn Ég þekkti ekki gemsanúmerið en á línunni reyndist vera nágranninn í risinu. Dyrnar inn í íbúðina þeirra höfðu skellst í lás á eftir þeim, lykilinn var enn í skránni og þau voru læst inni. Ég trítlaði upp brattan stigann og bjargaði þeim úr prísundinni. Slökkti á tölvunni um hálftíu og skreið næstum strax upp í rúm, óvenjulega snemma. Las í um klukkustund og var klukkan ekki orðin ellefu þegar ég slökkti ljósið og fór að sofa. Hrökk aftur upp nokkru fyrir miðnætti alveg í spreng (hafði samt farið á klósettið áður en ég fór í rúmið en kannski var kaffidrykkjan að skila sér). Annar strákurinn var á prívatinu en ég komst að stuttu seinna og var svo fljót að sofna aftur.
12.8.14
Veðurblíða
Hjólaði í vinnuna í gærmorgun með flíspeysuna órennda og flaksandi en með hlýtt um hálsinn og eyrnaband undir hjálminum. Eins og venjulega þegar mikið er að gera leið vinnudagurinn hratt. Ég var að vinna á vélinni fyrir hádegi og það fór fljótlega að bera á því að það væri sambandsleysi við einn módúlinn. Það varð úr að ég hringdi í viðgerðarmann sem kom til okkar strax upp úr hádeginu. Í millitíðinni náðum við þó að klára alla daglega framleiðslu. Þegar kominn var heimferðartími tróð ég flíspeysunni í bakpokann og hjólaði heim á stutermabolnum. Hafði lifur í matinn og sendi svo annan strákinn í Sunnubúðina eftir því fáa sem vantaði. Hinn tvíburinn og ég horfðum svo saman á Lewis á DR1.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)