Dagur var risinn úr rekkju
rigning úti og grátt.
Veruleikinn varð að tímaskekkju
var ég þó sátt.
Ég dreif mig í leppana lúin
langaði aftur í rúmið.
En skylduverkin ei voru búin
enda langt í kvöldhúmið.
Í spegilinn leit, blikkaði´og brosti
burstaði tennurnar vel.
Samt var ég enn í draumalosti
og nýlega komin frá hel.
Martröðin var enn svo lifandi´ og ljót
langaði henni strax að gleyma.
Það myndi ei duga að hlaupa við fót
því minningin fylgir um alla geima.
28.1.07
27.1.07
- Mi legis esperanto -
Í gær fóru strákarnir að sjá "Vef Karlottu" í Kringlubíó. Þeir voru með frímiða fyrir tvo en vinurinn sem fór með þeim (einn bekkjarfélagi Davíðs Steins) fékk líka ókeypis inn. Mamma hans skutlaði þeim og náði í þá. Það voru ánægðir bræður sem komu heim um sex.
Ég var mætt hjá norsku esperantovinkonu minni um ellefu í morgun. Þegar ég ætlaði að taka fram bækurnar kom í ljós að ég hafði gripið með mér rangan poka, kórnóturnar mínar. -"Það er eins gott að ég taki ekki esperantobækurnar mínar með mér í messu á morgun" sagði ég hlægjandi við vinkonu mína. Þetta kom ekkert að sök. Hún var með "Jen via mondo" og við lásum tvo kafla í henni og æfðum okkur munnlega á nokkrum æfingum. Við erum búnar að ákveða að skreppa einhvern tímann saman á kaffihús og tala bara saman á esperanto, megum bara panta á þýsku sagði vinkonan í gríni. Um hádegi skruppum við saman í Bónus en svo sótti ég Odda Smára á karateæfingu. Hann hafði labbað sjálfur á æfinguna, eins og hann gerir oftast á virkum dögum.
Davíð var að fara út úr húsi til að vinna. Það er búið að vera törn hjá honum og sér ekki alveg fyrir endann á henni. Hann hætti þó vinnu um hálfsjö í gærkvöldi og við ákváðum að vera grand á því og skruppum á Pizza Hut. Ég borða að vísu ekki svoleiðis en það eru ekki bara pizzur á matseðlinum. Er við komum heim skruppu nafnarnir saman á leiguna. Þeir leigðu "Pirots of the Carabían, the dead mans chest". Þetta var ágætis fjölskyldumynd.

26.1.07
25.1.07
- KVEF -
Allt í einu er ég komin með stíflað nef og viðkvæman háls. Þetta var ekki beint það sem ég þurfti. Ég skil varla hvernig mér tókst að næla mér í þetta kvef, man ekki til þess að hafa verið með hroll... hmm og þó en það er meira en vika síðan.
"Strákarnir okkar" halda áfram að standa sig vel. Mér leist reyndar ekkert á blikuna þegar þeir voru fimm mörkum undir rétt fyrir fimm í gær og um það bil tuttugu mínútur liðnar af leiknum. Gat ekki hlustað lengur, hvað þá horft því ég var að fara á stjórnarfund. Fundinum lauk um hálfsjö og stuttu síðar voru drengirnir búnir á söngæfingu. Davíð Steinn sagði mér það þá að Íslendingar hefðu unnið 36:30. Ég spurði hann hvernig hann vissi það og þá hafði kórstjórinn fengið SMS með úrslitunum. Nú er bara vona að þeir taki Pólverjana í nefið í kvöld og þá eru þeir búnir að tryggja sig inn í 8 liða úrslitin.
Skutlaði stráknum heim og sótti hinn af karateæfingu. Síðan fór ég beint á kóræfingu. Við æfðum fyrir næstu messu og héldum svo áfram með nýja verkefnið sem við ætlum að syngja með kirkjukór Kópavogs í Kópavogskirkju í apríl. Það gekk bara vel á æfingunni og kvefið mitt virtist ekkert vera neitt fyrir eða há mér mikið.
Áfram Ísland!
23.1.07
- Óle, óle, óle, óle... -
Leikurinn í gær var bara snilld. Strákarnir okkar komu einbeittir og mjög ákveðnir til leiks og það gat ekkert stöðvað þá. Frakkar áttu hreinlega ekkert svar, þótt að það hafi gengi þokkalega í fyrstu að taka Óla Stefáns úr umferð í byrjun seinni hálfleiks. En íslensku strákarnir fundu fljótlega aðra leið. Ef frá eru taldar upphafsmínútur seinni hálfleiks þá átti liðið alveg magnaðan leik og það er ekki hægt að segja að það hafi komið neinn vondur/slæmur kafli. Og það er skondið að hugsa til þess að ef þeir hefðu unnið leikinn með meira en ellefu marka mun hefðu Frakkar farið heim, en Úkraínumenn komist áfram með okkur og með tvö stig en við án stiga. Skyldu Frakkarnir hafa vanmetið okkur svona? Þeir hefðu mátt búast við því að við myndum amk ekki leika með hangandi hendi og "tapa" með stæl. Alfreð lagði upp með að reyna að vinna með einu eða tveimur mörkum og ég held að enginn hafi átt von á að sigurinn yrði svona stór.
Annars var seinni parturinn í gær nokkuð annasamur. Dreif mig heim um fjögur og sinnti þvottahúsmálum. Davíð Steinn var ekki kominn heim en hann skilaði sér á réttum tíma og var mættur á kóræfingu á slaginu fimm. Ég dreif mig í Bónus og verslaði kex handa drengjunum svo þeir hefðu eitthvað að maula í kórhléinu. Eftir að hafa gengið frá kexinu fór ég á bókasafnið. Ég taldi mig vera að skila öllum bókum nema einni, sem ég er að lesa fyrir strákana en í ljós kom að það er ein önnur heima, ein sem ég er ekki búin að lesa (hvað skyldi ég hafa gert af henni?). Kom út af safninu með fullan poka og annan minni. Sótti söngfuglinn af æfingu, setti bensín á jeppann, skilaði stráknum heim og lagði svo fyrir utan rétt við Þórshamar. Beið úti í bíl og hlustaði á upphaf þessa ótrúlega leiks sem verður lengi í minnum hafður.
Davíð sá um kvöldmatinn og borðuðum við í leikhléinu. Eftir að úrslit voru ljós og leikurinn flautaður af skrapp ég til "tvíburahálfsystur minnar" og byrjaði þar á nýju saumaverkefni. Kvöldið var auðvitað alltof fljótt að líða.
22.1.07
- Mánudagur -
Ný vika er hafin. Helgin var undrafljót að líða. Á föstudaginn skutlaði ég Oddi Smára á aukaæfingu í karate, þar sem sensei Poh Lim var að kenna. Þegar kennarinn mætti á svæðið þekkti hann snáðann og sagði: "I remeber you, the strongest boy in Reykjavík" Strákurinn var ánægður með það. Hann lærði líka nýja æfingu í þessum tíma. Morguninn eftir skruppum við tvö saman í hús í Hafnarfirði þar sem ég fékk eina vinkonu mína til að stytta nýjar buxur á strákinn. Úr Hafnarfirðinum fórum við beint á laugardags-karate-æfingu. Ég beið á staðnum og fylgdist með æfingunni. Þar af leiðandi missti ég af byrjuninni á Liverpool - Chelsea sem fór 2:0 fyrir mína menn. Í gær horfði ég svo á Arsenal - Man. Utd. og hafði gaman af. Flottur leikur!
19.1.07
- Vikan senn á enda -
Dagarnir bruna áfram, hratt og örugglega. Það er búin að vera smá vinnutörn hjá Davíð undanfarna daga. Á miðvikudagsmorguninn kom hann heim klukkan sjö og var þá búinn að vera að heiman í vinnu í næstum sólarhring. Hann lagði sig til hádegis en þurfti þá að skreppa á fund. Hann var kominn heim um fjögur aftur þennan dag og ég notaði tækifærið og skutlaði Davíð Steini á kóræfingu á jeppanum. Oddur Smári labbaði á karateæfingu. Ég skrapp til mömmu og hún fékk leyfi til að koma með mér og hlusta á seinni helming kóræfingarinnar hjá drengjakórnum. Þegar æfingin var búinn skutlaði ég henni til bara og svo þurftum við Davíð Steinn að bíða góða stund eftir að Oddur Smári væri búinn. Ég skutlaði bræðrunum heim og fór svo sjálf beint á kóræfingu.
Á æfingunni fengum við hluta af nýju verkefni í hendurnar sem við ætlum að flytja með kirkjukór Kópavogs í kringum sumardaginn fyrsta. Það verður spennandi.
Í gærkvöld sótti ég vinkonu mína út á flugvöll um tíu. Hún var búin að falast eftir gistingu og var það auðsótt mál. Við áttum notalegar tvær stundir í gærkvöldi. Að vísu flaskaði ég á því að slökkva á imbanum og festumst við að nokkru leyti í fyrrihluta spennandi sakamálaþætti.
Framundan er helgi, heimilisverk, innkaup, fótbolti, handbolti og messa í Hallgrímskirkju sem drengjakórinn syngur við.
16.1.07
- Lasleiki -
Tvíburarnir eru alveg einstaklega hraustir alla jafna. Í gær var kvartaði annar um slæma magaverki. Hann var lystarlaus og það var ekkert vit í að senda hann í skólann ef hann skyldi svo kasta upp þar. Ég var farin að heiman fyrir sex. Davíð hringdi í mig um tíu og sagði mér frá stráknumog að hann væri bara einn heima (í fyrsta skipti einn v/veikinda). Ekki kom til þess að hann kastaði upp og þegar leið á daginn kom matarlystin aftur. Honum fannst ekki verra að mega leika sér í tölvunni eins og hann vildi. Ég kom heim rúmlega tvö. Þá var hinn bróðirinn kominn heim með bekkjarfélaga með sér.
Um fimm skutlaði ég söngfuglinum á æfingu og heimsótti mömmu í leiðinni (hún er á sjúkrahúsi). Vinur bræðranna var kominn til Odds og var hjá honum þar til klukkan var örugglega orðin sjö.
Í nótt var það söngfuglinn sem vaknaði upp og leið eitthvað skringilega í maganum. Það endaði með því að hann kastaði upp (sem betur fer var hann kominn inn á bað og hitti í klósettið). Davíð var að vinna í heimatölvunni og hjálpaði nafna sínum að finna til fötu til að setja við rúmið. Nú er þessi piltur einn heima (í fyrsta sinn v/veikinda) og þar sem að hann er lasinn þá var horft fram hjá því að það væri "tölvulaus dagur" og ef ég þekki minn dreng rétt þá er hann búinn að sitja við tölvuna megnið af deginum. Ég hringdi í hann um hádegi og þá var honum aðeins farið að líða betur.
Nú heyrir maður að flensan sé búin að stinga sér niður. Vonandi fer hún framhjá sem flestum heimilium!!!
15.1.07
- Hvað varð af helginni? -
Davíð skrapp heim í tvo tíma á föstudagskvöldið en var farinn aftur um níu og kom ekki heim fyrr en sjö tímum seinna. Ég skutlaði honum til vinnu aftur um tíu á laugardagsmorguninn. Rétt fyrir tólf keyrði ég Odd á karateæfingu, beið eftir honum og fylgdist stundum með tímanum á meðan (annars var ég með bók með mér). Fljótlega eftir æfinguna tók ég strákana með mér í verslunarleiðangur og keypti handa þeim m.a. nýjar úlpur og æfingaskó. Davíð kom heim um níu leytið um kvöldið þannig að við áttum eitthvað af kvöldinu saman.
Á sunnudagsmorguninn skutlaði ég manninum aftur til vinnu um ellefu. Skrapp í Kópavoginn að sækja svolítið fyrir mömmu og er ég kom til baka var eiginlega tími kominn til að taka sig til og mæta í upphitun og messuundirbúning. Pétur prestur var í fríi en í staðinn messaði séra Guðný Hallgrímsdóttir og fórst henni það vel úr hendi. Ég drakk einn kaffibolla eftir messu en dreif mig svo heim því von var á heimsókn.
Um hálffjögur kom nafna mín og frænka, hálfdönsk, og áttum við notalegar stundir saman. Spjölluðum um margt og spáðum í að setja fljótlega saman áætlun fyrir sumarið. Þegar Anna var farinn hringdi ég í Davíð. Við mægðin sóttum hann svo um hálfátta og skruppum svo á Pítuna.

11.1.07
- "Lestur er bestur!" -
Þetta eru einkunnarorð sem standa utan á smá kompu sem ég keypti þegar ég fór á bókasafnið í nóvemberlok. Í bókina skrái ég niður allar bækur sem ég les fyrir sjálfa mig. Ég skráði fystu bókina þann áttunda desember sl. og í dag skráði ég 24. bókina. Ég fékk þrjár bækur í jólagjöf. Reyndar gaf ég sjálfri mér tvær af þeim (he, he). Eina bókina fékk ég frá Tomma, Hugborgu, Tedda og Skottu; Fimm manneskjur sem maður hittir á himnum eftir Mitch Albon. Ég mæli hiklaust með þessari bók, hún er yndisleg! Tvíburarnir fengu líka þrjár bækur hvor og Davíð einnig. Hann fékk bækurnar; Konungsbók eftir Arnald, Gemsar eftir Stephen King og Hringur Tankados eftir Dan Brown. Davíð er búinn að lesa tvær síðast nefndu bækurnar og byrjaður á Konungsbók. Ég er auðvitað harðákveðin í að lesa þessar bækur líka.
Annars er ég komin með smá sauma-fráhvarfs einkenni. Það er orðið svo langt síðan ég greip í nál síðast að ég stend mig að því að hugsa um öll skemmtilegu verkefnin sem á eftir að sauma. Ég held að það líði ekki á löngu áður en ég verð komin á saumakaf (eða verð ég að skrifa komin í ...kaf?)
En nóg að sinni. Ég ætla nú að fara að lesa Bert og bræðurnir fyrir strákana.

9.1.07
- Undarlegt bankamál -
og fleira
Fyrir nokkru átti ég fund í bankanum mínum þar sem farið var yfir öll mín mál. Eitt af því sem var ákveðið var að nú skyldi ég fara að eyða í sparnað um hver mánaðamót. Skuldfæra skyldi ákveðna upphæð af sérreikningnum mínum og færð yfir í peningabréf. Fyrsta skuldfærsla var í byrjun desember sl. Ég passaði mig á að eiga nægjanlega upphæð á reikningnum. Svo varð ég vör við að það "hvarf" upphæð af kaffi-reikningi Óháða kórsins. Ég var ekki sein á mér að jafna muninn og hafa svo samband við bankann til að biðja um að framvegis yrði skuldfært af réttum reikningin, mínum prívat og persónulega vörðureikningi. Í upphafi nýs árs setti ég mig í samband við þjónustufulltrúa og spurði hvort það væri ekki öruggt að það væri rétt tengt. Jú, það átti að vera. En það hefur ekkert gerst enn, upphæðin sem á að fara í sparnað er enn á sínum stað. Þar sem ég átti erindi í bankann í morgun ákvað ég að láta kanna þetta betur og þá kippa málunum í rétta liðinn. Þetta "vesen" tók ótrúlegan tíma og niðurstaðan var mjög furðuleg: Það hafði allan tímann verið tengt á þann reikning sem ég bað um að skuldfært yrði á í upphafi en einhverra hluta vegna "sýndist" ekki nóg á honum. Nú er það svo að innistæða kórsreikningsins er lægri heldur en spariupphæðin er svo ég er viss um að ef innstæða þess reiknings væri næg, yrði skuldfært á hann aftur. ÉG vona svo sannarlega að þetta verði lagfært sem fyrst!
Annars er það að frétta að Oddur Smári er að færast upp í unglingaflokk í karate og þar með bætist við ein æfing á viku hjá honum. Tveir tímanna eru á sömu dögum en heldur seinna, kl. 18:10-19:00 í stað 17:20-18:10 og þriðji tíminn er klukkan tólf á laugardögum. Ég veit að hann hefur bara gott af þessu. Hann fékk annars gott hrós á fyrstu æfingu ársins í gær (þá var hann á sínum "gamla" æfingatíma, líklega í síðasta skipti), hann var víst sá eini sem mundi eftir að skipa um stöðu í ákveðinni æfingu. Það er líka verið að fjölga æfingunum í frjálsum en mér sýnist sem þeir bræður verði að sleppa einni æfingu úr á viku.

8.1.07
- Jólin búin í þetta sinn -
Við Davíð hjálpuðumst að við að taka niður jólin í gær. Svo fékk hann strákana til að hjálpa sér við að fara með kassana niður í geymslu. Þetta tók ekki langan tíma. Ég á reyndar eftir að taka jóladúkinn af matborðinu og þvo hann en það verður gert fljótlega.
Feðgarnir skruppu á brennu og flugeldasýningu í Grafarvoginum á þrettándanum. Þeir sá lítið af brennunni en voru ánægðir með flugeldana og sáu þar að auki smá af sýningu úr Grafarholtinu.
Annars var ég frekar róleg í tíðinni um helgina. Norska esperanto vinkona mín bauð mér yfir upp úr hádegi á laugardaginn. Ég fékk mér göngutúr til hennar og stoppaði hjá henni í tvo tíma eða svo. Hún bauð mér einstaklega kraftmikla og góða grænmetis-baunasúpu og nýja gerð af te á eftir. Og svo sýndi hún mér hluta af jólagjöfunum sínum, aðallega bækurnar sem hún fékk. Við ætlum svo að byrja af krafti að rifja upp og læra meira esperanto núna í vikunni.

5.1.07
3.1.07
- Gleðilegt ár ! -
Jæja, núna er árið 2007 gengið í garð og næstum liðnir þrír dagar af því. Tíminn lætur ekki hæða að sér og hleypur æ hraðar. Ég er löngu hætt að reyna að elta hann uppi. Við skruppum austur á nýjársdag. Hulda var hjá afa sínum og ömmu. Helga, Ingvi og Bríet voru tiltölulega nýfarin. Tvíburarnir fengu líka að verða eftir.
Pabbi og mamma komu í bæinn í dag með krakkana og þessa stundina er ég með systurnar í heimsókn. Það er reyndar stutt í að ég skutlist með þær, sæki pabba þeirra í vinnuna og skutli þeim öllum heim. En þangað til ætla ég að njóta samvistanna við frænkur mínar.

31.12.06
- Lokadagur 2006 -
Mér finnst alls ekki svo langt síðan þetta ár byrjaði. Og nú er það senn á enda. Við erum búin að hafa það gott yfir hátíðarnar. Ég skildi feðgana eftir heima um fimm á aðfangadag og fór í kirkju. Það var mjög notaleg stund og allt gekk vel. Ég kom heim rétt fyrir sjö og þá hafði eitthvað klikkað í sambandi við kartöflurnar þannig að klukkan var eitthvað um átta þegar við settumst niður. Seinna um kvöldið fréttum við að kartöflurnar hefðu klikkað á fleiri stöðum og valdið seinkun, bæði hjá foreldrum Davíðs og yngsta bróður hans. Ég var búin að segja strákunum að þeir mættu vaka eins lengi og þeir vildu og að það mætti ekki fara í tölvur daginn eftir fyrr en klukkan væri örugglega orðin tíu.
Um hálftíu á aðfangadagskvöld vorum við öll komin inn í stofu. Strákarnir sáu um að lesa á og dreifa pökkunum. Við urðum stundum að bremsa þá af svo þetta gengi ekki of fljótt fyrir sig. Tæpum tveimur tímum seinna var búið að opna alla pakka fyrir utan einn stóran sem Davíð átti. Um miðnætti varð Oddi Smára litið á klukkuna. Hann hnippti í bróður sinn og sagði: -"Davíð, klukkan er orðin tólf við verðum að fara að hátta og sofa!" Ekkert löngu seinna komum við hjónin okkur fyrir uppi í rúmi með öll jólakortin, opnuðum þau og lásum saman.
Á jóladag mætti ég upp í kirkju um eitt og var næst á eftir prestinum. Messan klukkutíma seinna fór vel fram. Petra formaður kvenfélagsins var ræðumaður og fórst henni það vel úr hendi. Tommi og Hugborg komu til okkar um kvöldið. Þau lögðu til kalda hlutann af hangiketinu á meðan við buðum upp á okkar heitt. Kvöldið varð notalegt, letilegt og skemmtilegt.
Á annan í jólum fórum við fjölskyldan í fjölskyldumessu í Hallgrímskirkju. Davíð Steinn söng með drengjakórnum við messuna, það var skírður hálf norskur og hálf íslenskur drengur (Tindur) og önnur dóttir kórstjórans söng einsöng hluta af messunni.
Davíð var í fríi á milli jóla og nýjars. Hann þurfti aðeins að fara með bílinn í skoðun og reyndar að mæta á einn fund. Annars fór vel um feðgana hér heima og var mikið spilað í tölvunni.
Í gær skruppum við til tengdó á Bakkann. Tommi, Hugborg, Teddi og Skotta komu líka. Við stoppuðum frameftir öllu.
Það er aftansöngur klukkan sex og svo ætlum við að hittast hjá Tomma og borða saman. Á morgun skreppum við svo á Hellu og þar fá strákarnir að vera fram á miðvikudag.
Takk fyrir allar heimsóknir og athugasemdir á árinu sem er að líða. Ég vona að framundan sé skemmtilegt og gefandi nýtt ár fyrir alla. Umfram allt; Farið vel með ykkur! "Sjáumst hress og kát á nýju ári!"

24.12.06
- Gleðileg jól -
Það eru um það bil átta tíma þar til klukkurnar syngja. Þá verð ég stödd í kirkju óháða safnaðarins. Mér hefur ekki tekist að sannfæra feðgana um að koma í kirkju þannig að þeir verða heima og leggja loka hönd á undirbúninginn. Kannski tekst mér að fá þá í kirkju á morgun. Ég mun amk mæta þegar Davíð Steinn syngur með drengjakórnum í Hallgrímskirkju á annan í jólum.
Á fimmtudagskvöldið var keyptum við Davíð síðustu jólagjafirnar og vorum að pakka inn langt fram eftir. Ég til þrjú og hann til hálffimm. Helga systir og Bríet komu um hálffimm á föstudag með pakkana til okkar og þegar þær fóru tóku þær pakkana til þeirra og pabba og mömmu. Seinna um kvöldið komu tengdó að skila af sér og eftir kaffibolla og skemmtilega stund tóku þau sína pakka með sér til baka.
Í gær átti eftir að keyra út örfáa pakka og nokkur jólakort. Við byrjuðum samt á því að taka til hér heima. Strákarnir skiptu um á rúmunum hjá sér, ég ætla að skipta um á okkar rúmi á eftir. Seint í gærkvöldi eldaði ég jólagrautinn. Festist nefnilega yfir "Sleepless in Seattle" og "Instinct".
Ég ætla ekki að hafa þetta lengra að þessu sinni. Óska lesendum mínum gleðilegra og friðsamra jóla. Hafið það sem allra best.

19.12.06
- Hugskeyti? -
Ég stóð mig að því að hugsa til Blóðbankans í gær enda um fjórir mánuðir síðan ég gaf síðast. Nokkru eftir að ég var að hugsa þetta barst mér sms sem var akkúrat frá umræddum banka. Og ekki nóg með það heldur fékk ég líka tölvupóst frá blóðbankanum. Ég ákvað því að fara og leggja inn seinni partinn í gær. Ég notaði tækifærið og spurði hversu mikið mætti vanta upp á fulla fjóra mánuði og fékk svarið vika til tíu dagar. Þannig að ég er búin að reikna það út að ég get gefið 20. gjöfina mína á fertugsafmælisdaginn minn, þann 17. mars 2008 og ég ætla mér að stefna að því markmiði. Annars var mjög létt yfir mér í blóðgjöfinni. Bað um að það yrði frekar tekið úr vinstri handlegg þar sem ég ætlaði að skrifa jólakortin um kvöldið. Sú vinstri er reyndar mun betri en eitthvað var streymið letilegt í gær og var ég beðin um að pumpa og pumpa. Ég var orðin svo pumpuþreytt í restina að ég spurði hvort ég mætti ekki pumba með hinni... he, he!

18.12.06
- Laufabrauð -
Davíð skrapp á skrifstofuna milli klukkan tíu og eitt í gær. Þegar hann kom aftur fórum við öll fjögur til frænku minnar. Mamma hennar, bróðir og mágkona voru þegar mætt. Tvíburarnir og yngri sonur frænku minnar settust gallvaskir við skurðarbrettin og skáru út mismargar áður en þeir gáfust upp og fóru frekar í tölvuleiki. Við fullorðna fólkið skárum áfram af kappi. Þegar við vorum langt komin fóru tveir af mömmunum (minn og frænku minnar) til við að steikja og pressa. Þegar upp var staðið voru 100 stykki laufabrauð í þremur myndarlegum bunkum og á þeim hin margvíslegustu mynstur. Þetta var hin besta skemmtun.

17.12.06
- Árlegt jólaglögg "óþæga kórsins" -
Á föstudagskvöldið var, hittist óháði kórinn allur heima hjá einni úr kórnum. Einnig komu Pétur Máté (kórstjórinn sem er í leyfi), séra Pétur og örfáir makar. Núverandi kórstjóri fékk far með okkur Davíð. Þegar við vorum að koma á staðinn fékk ég símtal frá tvíburahálfsystur minni. "Hvað er hún að hringja í mig núna þegar ég er að fara í kórpartý...? hugsaði ég með mér en hló svo með sjálfri mér því hún var auðvitað að fara í sama teiti og var að leita að götunni.
Fljótlega eftir að allir voru mættir stóð Kristinn Þorsteins upp, setti upp gleraugun, tók upp nokkur blöð úr jakkavasanum og las okkur pistilinn. Hann klikkaði ekki frekar en venjulega og af og til komu einhverjir með smá innskot sem hittu alveg í mark. Hann byrjaði að lesa nokkra fimmaura brandara og ég bara verð að láta tvo af þeim flakka hér:
Kona nokkur hitti lækni og kvartaði undan því að hún ætti svo erfitt með svefn.
-"Hefurðu prófað að liggja á bakinu"?
-"Þá kemur Kalli".
-"En geturðu legið á hliðinni"?
-"Þá kemur Kalli líka".
-"Hmm, hvernig væri þá að sofa á maganum"?
-"Það er greinilegt að þú þekkir ekki hann Kalla minn..."
Gamall maður sem hafði búið alla sína ævi á eyju einni í Breiðafirði og lifað af því sem land og sjór gaf var kominn í land og á elliheimili. Honum fannst ekkert varið í matinn og kvartaði oft. Dag einn kemur ein vinnustúlkan til hans og segir að hann fái nú gott að borða í kvöld.
-"Hvað verður í matinn"?
-"Snitsel"!
-"Hann hef ég aldrei smakkað en ég hef borðað bæði landsel og útsel..."
Eftir pistilinn leið ekki á löngu uns Adda settist við píanóið og sagði: -"Þetta virkar svona; þið segið mér hvað þið ætlið að syngja og ég spila undir." Það var nánast sama hvaða lag var nefnt allt gat hún spilað. Kvöldið leið hratt enda held ég að allir hafi skemmt sér hið besta. A.m.k. skemmti ég mér afar vel.

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)