- Ævintýri gærdagsins - (
...sum þeirra)
Þrátt fyrir veðurblíðuna strax um morguninn fóru strákarnir ekki út fyrr en um ellefu.
Oddur Smári var í Valsbúningnum sínum en
Davíð Steinn var í buxum og bolnum sem hann fékk um síðustu helgi. Þurfti að
kalla á þá inn til að fá sér hádegishressingu (
um eittleytið).
Eftir hádegi löbbuðum við mægðinin saman áleiðis niður í bæ.
Lögðum leið okkar fram hjá
Barónsborg, leikskólanum sem þeir voru í, og vorum við svo heppin að
Lilja leikskólakennari, sem var með þá fyrsta veturinn (´98-99), var úti og spjallaði hún smá stund við okkur. Við báðum bara að heilsa hinum sem við þekktum.
Tilgangurinn með bæjarferðinni var að kaupa afmælisgjöf Jönu Katrínu (
bróðurdóttur mömmu), en hún verður fimm ára á morgun og bauð hún
tvíburunum í barnaafmæli.
Við fundum gjöfina í
Tiger!
Þegar þessu var lokið datt mér í hug að nota tækifærið og athuga með nýja skó á Odd Smára en hann var alveg að klára skóna sem hann fékk í vor. Byrjuðum á að kíkja í
Ecco og þar fundum við strax "
réttu" skóna.
Oddur Smári var a.m.k. mjög ánægður með þá, sérstaklega eftir að hann uppgötvaði að hann gat hlaupið enn hraðar á þeim en gömlu skónum.
Davíð Steini fannst ég vera að hugsa meira um Odd...
Að skókaupunum loknum þurfti að tæma ákveðnar blöðrur. Það gerðum við á Grettisgötunni en ég er alltaf með lykil hjá Helgu systur. Hringdi samt í hana til að láta hana vita og fékk um leið leyfi til að taka gömlu
SS úlpuna, en úlpan sú er með rétta stuðningsmanna-litinn.
Áður en við hugðum að heimferð settumst við inn á
Tíu dropa og fengum okkur hressingu. Einnig gerðum við tilraun til að skipta vinnings-tappa yfir í kókflösku en fórum víst ekki á réttu bensínstöðina.
Eftir kvöldmat fórum við öll fjölskyldan í
Laugardalslaugina. Ég synti 300, Davíð 500 en
strákarnir fóru margar salíbunur í vatnsrennibrautina. Davíð gaf strákunum pylsur eftir sundið og er við komum heim fóru þeir beina leið í háttinn og sofnuðu næstum strax (
um hálftíu).
Davíð þurfti að vinna (
gat þó gert það hér heima). Ég fór í háttinn eftir að mynd tvö var búin. Rumskaði stuttu áður en Davíð var búinn að vinna.
Hann var nýkominn upp í þegar stærsti skjálftinn við Krýsuvík reið yfir. Það kom feiknar högg og hár hvellur en ekkert datt þó úr hillum...